Skip to main content

BaejarbladidJokull1213tbl

Page 1


Hlaupið yfir Jökulháls í fimmtánda sinn

Laugardaginn 20. júní var Snæ fellsjökulshlaupið haldið í fimmt ánda sinn. 157 hlauparar lögðu af stað frá Arnarstapa og lá leið þeirra yfir jökulhálsinn og yfir til Ólafsvíkur, um 22 kílómetra. Að stæður í ár voru nokkuð góðar, snjór var á köflum á hluta leiðar innar og nokkuð vindasamt. Eft ir klukkustund og 44 mínútur kom fyrsti hlauparinn í mark en það var heimamaðurinn Brynj ar Vilhjálmsson. Þetta er í fyrsta sinn sem heimamaður vinnur Snæfellsjökulshlaupið en Brynj ar gerði sér lítið fyrir og hljóp frá Ólafsvík yfir á Arnarstapa áð ur en hann hóf keppni, hljóp til baka og sigraði.

Brynjar Vilhjálmsson sigraði á tímanum 1,44,39. Í öðru sæti var Kristján Svanur Eymundsson á 1,45,29 og í þriðja sæti var Hannes Jóhannsson á tímanum 1,47,01. Í kvennaflokki sigraði Dalrós Inga Ingadóttir á tímanum 01:56:55. Í öðru sæti var Marín Rut Elíasdótt ir á 02:05:08 og í þriðja sæti Sigrún Sigurðardóttir sem hljóp á 02:05:18.

Ingunn Ýr Angantýsdóttir og Sigrún Ólafsdóttir standa að hlaupinu, þær hafa með sér gott bakland í verkefnið, björgunarsveitin Lífsbjörg sá um drykkjarstöðvar og hvatningu á

hlaupaleiðinni fyrir keppendur og sjúkraflutningsmenn voru til taks ef eitthvað skyldi koma uppá. Karítas Sveina Guðjónsdóttir tók meðfylgjandi myndir sem fanga góða stemningu í vel heppnuðu hlaupi.

1213. tbl - 26. árg.
24. júní 2026

Aðstandendur Ólafsvíkurréttar buðu bæjarbúum og gestum til grillveislu í réttinni á 17. júní. Staðið hefur verið að átaksverkefni sem varðar endurhleðslu réttarinnar síðan árið 2014 og ákváðu sjálfboðaliðarnir að bjóða til grillveislu í tilefni þess að verkefninu er nú lokið. Þar var fagnað þessu þrekvirki sem hefði ekki orðið nema fyrir þrautseigju og kraft þeirra sjálfboðaliða sem hófu og leiddu verkefnið. Í grillveislunni ávarpaði Guðrún Tryggvadóttir viðstadda en hún er forsprakki verkefnisins. Fór hún þar yfir sögu verkefnisins og þakkaði þeim fjölmörgu aðilum og sjálfboðaliðum sem hafa komið að endurhleðslunni í gegnum árin. Svo héldu Þorsteinn Jakobsson, Magnús Höskuldsson og Reynir Rúnar

Reynisson uppi stemningunni með ljúfum tónum og stjórnuðu fjöldasöng. Um 200 manns mættu í grillveisluna og þó það væri held -

Tvær sýningar verða opnaðar í Pakkhúsinu í Ólafsvík mmtudaginn 25. júní kl 15.00

Verslunarsaga Ólafsvíkur

Sýning sem Sveinn Þór Elinbergsson og Guðlaug

Dröfn Gunnarsdóttir hafa unnið og sett upp.

Jóhann Jónsson

Sýning um Jóhann Jónsson skáld frá Ólafsvík sem

Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir vann og setti upp í

Pakkhúsinu á síðasta ári.

Boðið verði upp á léttar veitingar og eru öll hjartanlega velkomin.

Hollvinasamtök pakkhússins í Ólafsvík

vindasamt þennan dag er alltaf betra í skjóli trjánna svo hægt var

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

herra hefur undirritað reglugerð sem eykur strandveiðikvótann úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Það er 2.700 tonna aukning frá því sem áður hafði verið tilkynnt. Með þessari aukningu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 14.700 tonnum. Strandveiðar hafa staðið yfir frá því í byrjun maí mánaðar en hagsmunaaðilar höfðu bent stjórn-

veiða í 48 daga ef ekki kæmi til lagabreyting. Eyjólfur segir það ánægjuefni að strandveiðivertíðin í ári verði sú allra stærsta frá upphafi, þrátt fyrir samdrátt í heildarafla síðustu ár. Hann telur mikilvægt að efla strandveiðar enda tryggi þær beint aðgengi að þjóðarauðlindinni, styðji við nýliðun í greininni og skapi mikil verðmæti.

ur
að eiga notalega stund í fallegu

Glóandi jökull á Hellissandi

Glerlistahátíðin Glóandi Jökull hefst með formlegum hætti miðvikudaginn 24. júní á Hellissandi.

Undirbúningur fyrir hátíðina hefur staðið undanfarna mánuði, en segja má að fyrstu drög að hátíðinni hafi orðið til í Berlín fyrir rúmum tveimur árum þegar skipuleggjendur hátíðarinnar tóku upp samtal um að halda metnaðarfulla, alþjóðlega glerlistahátíð við rætur Snæfellsjökuls á Íslandi.

Forsprakkar og skipuleggjendur hátíðarinnar eru þær Louise Lang frá Þýskalandi, Fiona Byrne frá Írlandi og Laura Sonne Lund frá Danmörku. Sýningarstjóri er listamaðurinn Bjarni Sigurbjörnsson á Himinbjörgum.

Hátíðin stendur í rúmar þrjár vikur og er einstakur lista- og menningarviðburður þar sem boðið er upp á fjölbreyttar sýningar og viðburði víða á Hellissandi. Listamenn koma frá Danmörku, Kanada, Tékklandi, Sviss, Þýskalandi, Írlandi og Bretlandi auk Íslands.

Hátíðin verður sett kl. 17:00

miðvikudaginn 24. júní í gamla frystihúsinu á Hellissandi - við Saltport.

Aðgangur að hátíðinni er öllum ókeypis og eru íbúar og aðr-

ir gestir hvattir til að fjölmenna á viðburði og njóta þessarar eftirtektarverðu hátíðar hér í Snæfellsbæ. Jafnframt eru áhugasamir hvattir til að fylgja hátíðinni á samfélagsmiðlum til að missa ekki af áhugaverðum viðburðum næstu vikurnar.

Að vanda var Þjóðhátíðardagurinn 17. júní haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ. Dagurinn norðan heiðar hófst á Landsbankahlaupi við Landsbankann í Ólafsvík og svo teymdi Hesteigendafélagið Hringur undir börnum í reiðhöllinni í Ólafsvík. Skrúðganga hélt af stað frá íþróttahúsinu í Ólafsvík og lá leiðin upp í Sjómannagarðinn í Ólafsvík þar sem Erika Rún Heiðarsdóttir setti hátíðardagskránna. Ari Bent Ómarsson var kynnir hátíðarinnar. Fjallkonan 2026 var Margrét Vilhjálmsdóttir. Þá var Séra Ægir Örn Sveinsson með helgistund og Stefanía Klara Jóhannsdóttir flutti ræðu nýstúdents. Vigdís Júlía Viðarsdóttir söng og Menningarnefnd Snæfellsbæjar veitti Leikfélaginu

17. júní í Snæfellsbæ

þar voru hoppukastalar, Sirkus Ísland, atriði frá krökkum sem hafa verið á Leikur og sprell námskeiði og leikir og þrautir í boði Ungmennafélags og meistaraflokks Víkings.

Sunnan heiðar bauð Ungmennafélag Staðarsveitar til hátíðarhalda á íþróttavellinum á Lýsuhóli. Dagskráin hófst á skrúðgöngu, Fjallkonan 2026 var Leonie Sophie Limberger. Viðstaddir léku sér saman í leikjum fyrir alla fjölskylduna og grilluðu pylsur. Líkt og undanfarin ár var svo boðið í kaffiboð á Hótel Búðum þar sem fjöldi fólks mætti í sínu fínasta pússi til að njóta afmæli lýðveldisins saman. Í lok dags var svo Shoot out mót fyrir meðlimi Golfklúbbsinsveisla við Ólafsvíkurrétt, þar semSJ

Á Þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní í Grundarfirði hófst dagskráinmeð hinu árlega Grundar- og Kvernárhlaupi UMFG. 56 manns þátt þrátt fyrir töluverðan vind. Að loknu hlaupi var haldið í sundlaug Grundarfjarðar þar sem sundmót UMFG var haldið. 16 krakkar tóku þátt og var keppt í bringu- og skriðsundi. Félagið bauð iðkendum félagsins og öðrum upp á pylsur og safa og eftir grillið voru veitt verðlaun fyrir bestu mætingu og mestu framfarir í hverri íþróttagrein. Allir sem hlutu viðurkenningar fengu merktan eignarbikar.

Skrúðgangan fór svo frá miðbæjarreit í átt að hátíðarsvæði við íþróttahúsið þar sem hátíðardagskráin fór fram utandyra. Sólveig Stefanía Bjarnadóttir var fjallkona Grundarfjarðar og flutti ljóðið Íslandsljóð eftir Tómas Guðmundsson og Ingibjörg Eyrún Bergvins-

17. júní í Grundarfirði

fjarðar. Sigríður Diljá hefur verið dugleg að taka náttúru- og dýralífsmyndir undanfarin ár og

er hægt að sjá afraksturinn í sýningu hennar sem stóð svo í húsinu yfir helgina. Dagurinn endaði

arnir sem hafa tekið þátt í Leik og Sprell steig á stokk og sýndu frumsamið verk sem þau hafa verið að vinna að á námskeiðinu. Skólakór Grunnskóla Grundarfjarðar lokaði svo dagskránni á hátíðarsvæðinu með nokkrum velvöldum lögum. Kynnar á hátíðinni í ár voru þau Klara Dögg Tryggvadóttir og Sævar Hjalti Þorsteinsson. Á hátíðarsvæðinu var nóg um að vera, meðal annars hoppukastali, sölubás og loftboltar.

Í Grundarfjarðarkirkju var heimildarmyndin Þorp verður til sýnd en það er ný mynd sem segir frá tilurð Grundarfjarðarbæjar. Myndin var framleidd alfarið af heimafólki í samstarfi við Bæringsstofu. Þá opnaði ljósmyndasýning Sigríðar Diljá Guðmundsdóttur í Samkomuhúsi Grundar-

svo á því að 9. bekkur bauð 7.-10. bekk í sundlaugarpartý. SJ

Menningarverðlaun veitt Laugu

Við hátíðardagskrá Snæfellsbæjar á 17. júní veitti Menningarnefnd Snæfellsbæjar Menningarverðlaun Snæfellsbæjar. Leikfélagið Lauga hlaut viðurkenningu fyrir sitt ríkulega framlag til menningarmála í samfélaginu. Með metnaðarfullum, fjölbreyttum og skemmtilegum uppfærslum á leikverkum undanfarin ár hefur félagið auðgað menningarlíf í Snæfellsbæ og skapað ógleymanlegar stundir fyrir íbúa og aðra gesti. Starf félagsins ber vitni um mikla elju, sköpunargáfu og ástríðu fyrir leiklist og er mikilvægur þáttur í að efla menningu og samfélagsanda í sveitarfélaginu. Leikfélagið Lauga hefur sett upp fjórar leiksýningar á jafn mörgum árum og er hópurinn sannarlega vel að því komin að hljóta menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar árið 2026.

Ertu með hugmynd fyrir

Barnamenningarhátíð?

Barnamenningarhátíð Vesturlands hefur nú opnað fyrir umsóknir og hugmyndir fyrir hátíðina. Barnó er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands, nýtur stuðnings frá Barnamenningarsjóði Íslands og hefur það aðalmarkmið að börn skapi, njóti og taki virkan þátt í fjölbreytilegum menningarviðburðum. Í fyrra heppnaðist hátíðin einstaklega vel og voru viðburðir vel sóttir. Hátíðin í ár fer fram í október og leita skipuleggjendur

að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0-18 ára. Einstaklingar, listafólk, hópar, félagasamtök, skólar, stofnanir og aðrir skapandi aðilar eru hvattir til að senda inn hugmyndir að t.d. atriðum, listsmiðjum, skapandi verkefnum, tónlist, dansi eða hverju öðru sem gleðir, kveikir forvitni og virkjar sköpun barna og ungmenna. JJ

Ari Bent Ómarsson og Helga Jóhannsdóttir

er flestum kunnur sem mikill sögumaður og maður sem þekkir hverja þúfu á Útnesinu. Skrán-

um við áhugasama til að tryggja sér þátttöku sem fyrst, þar sem hámarksfjöldi þátttakenda er 80. Við hlökkum til að taka á móti -

Opnun á listsýningu í 3 veggir

Laugardaginn 13. júní opnaði listsýningin Fractures of shadow eftir Louise Lang í 3 veggjum listrými. Sýningin er partur af glerlistahátíðinni Glóandi jökull sem verður sett á Hellissandi miðvikudaginn 24. júní næstkomandi en hún er ein af þremur einstaklingum sem munu sýna á hátíðinni. Hinir tveir eru Fiona Byrne með sýninguna Returning The Skin í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og Laura Sonne Lund með sýninguna Echoes í Félagsmiðstöðinni Afdrep.

Í sýningunni Fractures of Shadow kannar Louise mörkin milli ummerkis og ásýndar. Í verkum hennar birtast dularfullar verur þegar ljósið dregur fram útlínur, áferðir og hverful form. Með verkum sínum skoðar Louise heim skugga og lögunar, verkin koma hugsunum á flug og hið óáþreifanlega verður sýnilegt.

Sýningin Fractures of shadow mun standa í 3 veggjum listrými til 5. júlí.

- Almenn suðuvinna

- Smurþjónusta

- Smábátaþjónusta

- Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Fréttir af boltanum

í Snæfellsbæ. Sævar kynnti sól myrkva og almyrkva fyrir nemendum en einnig margt annað fróðlegt. Sævar náði vel til nem-

enda á öllum aldri. Hann setti fyrirbærið upp á lifandi hátt sem

um hvað gerist þegar almyrkvi á

myrkvagleraugu á skólaslitum en Sævar lagði mikla áherslu á mik ilvægi þess að hafa slík gleraugu þegar fylgst er með sólmyrkvan um til þess að verja augun. - Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta

Víkingur Ólafsvík mætti liði Hauka á Birtu vellinum þann 20. júní síðastliðinn. Víkingar komu staðfastir til leiks enda búnir að vera taplausir þrjá leiki í röð. Daði Snær Ingason skoraði fyrir Hauka á 38. mínútu leiksins og héldu víkingar áfram að berjast fram á lokamínútu leiksins sem dugði þó ekki til. Mikill baráttuhugur var í báðum liðum og fóru þrettán gul spjöld á loft í leiknum. 1-0 tap var lokastaða leiksins og eiga Víkingar næst leik á móti KFG á Ólafsvíkurvelli þann 27. júní klukkan 14:00.

Reynir Hellissandur fór í langt ferðalag austur á firði um liðna helgi þar sem liðið spilaði tvo leiki. Fyrri leikurinn var á móti Neista frá Djúpavogi á Djúpavogsvelli. Kristján Páll Bjarnason skoraði fyrsta mark leiksins

á 6. mínútu og bætti Björn Óli Snorrason öðru við 20. mínútum síðar. Í kjölfarið tókst Neista að skora fimm mörk á stuttu tímabili. Reynismenn rifu sig í gang í seinni hálfleik en Snær Fannarsson skoraði stuttu eftir að leikurinn var flautaður á. Mikael Kári Júlíusson bætti svo við fjórða marki reynismanna í kjölfarið. Það dugði ekki til því að Neistamenn skoruðu sjötta mark sitt stuttu seinna sem varð seinasta mark leiksins. Seinni leikur Reynismanna fyrir Austan var gegn Leikni F. í Fjarðarbyggðarhöllinni. Leikurinn fór 10-1 fyrir Leikni. Næsti leikur Reynis H. verður á Ólafsvíkurvelli föstudaginn 26. júní klukkan 19:00 gegn Fálkum. JJ

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1213tbl by Steinprent - Issuu