

Met þátttaka á Héðinsmóti
Árlegt Héðinsmót líkams tæktarinnar Sólarsport fór fram í þriðja sinn laugardaginn 13. júní. Mótið er haldið til minningar um Héðinn Magnússon heitinn sem fórst með Svanborgu SH ár ið 2001. 19 keppendur mættu til leiks í íþróttahúsinu í Ólafsvík í bekkpressukeppni og keppt var í fjórum flokkum, unglingaflokki, kvennaflokki, karlaflokki undir 100 kg og karlaflokki yfir 100 kg.
Líkt og síðustu ár mætti Magnús Ver Magnússon, fjórfaldur sigur vegari í sterkasta manni í heimi, og dæmdi á Héðinsmótinu. Guð mundur Njáll Þórðarsson og Dagbjört Lind, dóttir hans, eru eigendur Sólarsports og sjá um skipulag og framkvæmd móts ins ásamt fjölda sjálfboðaliða en mótið er haldið í samráði við vini og fjölskyldu Héðins.
Í ungmennaflokkur var Adrian Pienkowski í 1. sæti með 112,5 kg, í öðru sæti var Vadym Ilnytskaya var í 2. sæti með 110 kg og Oli ver Zolobow lyfti 105 kg og lenti í 3. sæti. Í kvennaflokki átti Guð ný Hanna Sigurðardóttir sigurinn með 60 kg lyftu, Orsola Balogh var í 2. sæti með 35 kg og Elle Aquino var í 3. sæti einnig með 35 kg. Þá var Hubert Stachecki í 1. sæti í karlaflokki undir 100 kg með 135 kg, Svanlaugur Atli Jónsson var í 2. sæti með 132,5 kg og Mohamed Iratni var í 3. sæti með 125 kg. Að lokum tók Arek Lakomski sigurinn í karlaflokki fyrir 100 kg með 210 kg, Piotr Janewics var í 2. sæti með 190 kg og Benedikt Haukur Guðmundsson var í 3. sæti með 180 kg.

Mótið gekk virkilega vel, fjöldi fólks mætti til að fylgjast með og met þátttaka var á mótinu í ár. Þar að auki sló Arek mótsmet með 210 kg lyftu sinni en ekki munaði miklu að hann hafi náð 220 kg
upp. Það má sjá árangur þátttakenda á milli ára og hafði Magnús Ver orð á því á mótinu hve öflugir keppendur væru, þá sérstaklega þeir í ungmennaflokki. SJ

Fjallkonan á Snæfellsnesi
Aflraunamótið Fjallkonan 2026 var haldið á Snæfellsnesi um helgina. Mótið sækja sterkustu konur Íslands og erlendir gestir sem keppast um titilinn Fjallkonan. Í ár var keppt í réttstöðulyftu, sirkúshandlóðum, að bera lóð upp stiga, í sundlaugargrein, helluburði, steinapressu, steinatökum og bóndagöngu með stein. Laugardaginn 13. maí fór keppni fram í Stykkishólmi en daginn eftir voru þrautir við Bæjarfossinn í Ólafsvík, við Ólafsvíkurkirkju, á Ólafsvíkurvelli og svo endaði dagurinn í Lýsulaug. Fimm konur tóku þátt í ár og stóðu sig allar með sóma. Ally Abbs frá Bandaríkjunum stóð uppi sem Fjallkonan 2026 eftir allar þrautirn
ar. Ragnheiður Jónasdóttir var í
öðru sæti og Berglind Rós Bergs dóttir í þriðja sæti.

garðinum á leikskólanum Kríla koti þessa dagana. Unnið er að undirbúningi fyrir nýtt gervigras og spennandi ný leiktæki og sjá starfsfólk Áhaldahúss Snæfellsbæjar, B. Vigfússon og Jóhann Helgi og co um framkvæmdina. Hluti lóðarinnar hefur verið girtur af og hefur vinnu við að grafa upp og undirbúa jarðveg fyrir nýjungarnar staðið yfir

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
lóðinni hafa deildirnar verið mikið í vettvangsferðum og nýtt leikvelli í Ólafsvík í útiverunni. Þá þykir líka mjög skemmtilegt að vera á leikskólalóðinni og fylgjast með vinnunni sem á sér stað innan girta svæðisins eins og sjá má á þessari mynd. SJ
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Aflatölur
31. maí - 14. júní
Eins og sjá má á þessum aflatölum eru margir bátar farnir í sumarfrí, einnig eru nokkrir farnir í slipp. Strandveiðibátarnir ráða því nánast ríkjum hér í höfnunum núna, einhverjir strandveiðibátar eru farnir að tínast vestur enda er fiskeríið hérna heimavið farið að minnka á skakinu og eru bátarnir að sigla 30-40 mílur eftir skammtinum. Ólafur Bjarnason, Hildur og Esjar eru þó enn að róa á dragnótinni. Enginn netabátur er á veiðum. Magnús og Bárður eru farnir norður í land og eru á veiðum þar, líklega að leita að Ýsu.
Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5):
Dragnót:
Hildur 152 tonn í 7 löndunum. Esjar 80 tonn í 8 löndunum. Ólafur Bjarnason 70 tonn í 5 lönd. Saxhamar 40 tonn í 5 löndunum. Magnús 36 tonn í 4 löndunum.
Lína: Rifsnes 41 tonn í 1 löndun. Lilja 26 tonn í 6 löndunum.
Handfæri:
Glaður 8,3 tonn í 3 löndunum. Birta (2689) 7,8 tonn í 6 lönd. Brimkló 7,5 tonn í 8 löndunum. Skáley 6,6 tonn í 8 löndunum. Hítará 6,5 tonn í 8 löndunum.
Söng- og leiklistarhópurinn Leik og Sprell hélt námskeið í Snæfellsbæ í síðustu viku en tólf ungir og upprennandi skemmtikraftar tóku þátt. Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Áður en nemendur mættu á námskeiðið völdu þau sér eitt lag. Út frá lögunum, spuna og leik bjuggu þau svo til sýningu sem var opin fyrir aðstandendur á lokadegi námskeiðsins. Allir sungu einsöng í sýningunni og heppnaðist sýningin með besta móti. Á myndinni eru nemendur




ásamt leiðbeinanda þeirra, Júlí Mjöll.
Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Haffabíó í Röst
Fimmtudaginn 11. júní var bíósýning í Röstinni. Var það opnunarsýning á Haffabíói en þennan dag voru 60 ár síðan Haffi eða Hafsteinn Jónsson hóf að sýna bíó í þá nýrri og glæsilegri Röst. Bíó var þá haldið í Röstinni á fimmtudags- og sunnudagskvöldum auk barnasýninga á sunnudögum og hélt Haffi bíóinu úti í rúma tvo áratugi.
Drífa Skúladóttir var að fara í gegnum ýmis blöð sem faðir hennar skildi eftir sig og rak augun í að bíósýningar hafi hafist í Röstinni 11. júní 1966. Það vildi svo til að sýningargræjur sem Frystiklefinn hafði gefið Röstinni voru tilbúnar í húsnæðinu, það var því tekið til hendinni, með grænt ljós frá Snæfellsbæ og aðstoð frá fjölda manns voru græjurnar settar upp og Röstin undirbúin fyrir alvöru bíókvöld. Um 50 manns mættu í bíó og til stóð að sýna
Now you see me: now you don’t en fyrir mistök kom vitlaus mynd og horfðu bíógestir á myndina How to make a killing. Sýningin gekk vel, popp var í boði og mikil ánægja var með framtakið. Þá stóð líka til að halda barnasýningu en vegna dagskrár hjá leikskólum Snæfellsbæjar var því frestað og stefnt er að því að halda barnasýningu bráðlega. Nú þegar allt er klárt til sýninga í Röstinni segist Drífa Skúladóttir ákveðin í að halda Haffabíói gangandi, þó það verði kannski rólegt fyrir sumartímann. Með tilkomu þessarra tækja í Röstina gefst íbúum einnig kostur á að halda viðburði í húsinu og varpað upp fótboltaleikjum, Eurovision eða öðru sem vekur áhuga. Þessi nýja viðbót í Röstinni opnar á mikla möguleika og eykur lífsgæði á svæðinu.

Víkingur Ólafsvík spilaði tvo leiki í liðinni viku og uppskáru 6 stig. Fyrri leikurinn var gegn Þrótti Vogum á Vogaídýfuvellinum þann 10. júní. Asmer Begic skoraði fyrsta mark leiksins á 37. mínútu leiksins Ismael Salmi Yagoub varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark og jafnaði því leikinn. Á 91. mínútu varð leikmaður Þróttar einnig fyrir því óláni að skora sjálfsmark og með því tryggja víkingum sigurinn. Seinni leikur vikunnar var á móti Magna frá Grenivík á Ólafsvíkurvelli þann 14. júní. Gabríel Þór Þórðarson byrjaði leikinn sterkt fyrir Víkinga þegar hann skoraði fyrsta mark
Tveir sigrar í vikunni
leiksins á 9. mínútu. Fleiri mörk komu ekki í fyrri hálfleik en þegar nokkrar mínútur voru liðnar af seinni hálfleik tókst leikmanna Magna að jafna leikinn. Það stóð ekki lengi því Ingvar Freyr Þorsteinsson skoraði stuttu seinna og kom Víking Ó. aftur yfir. Asmer Begic bætti svo þriðja marki víkinga við á 74. mínútu og endaði leikurinn 3-1 Víking í vil. Liðið er núna í 8. sæti deildarinnar með 11 stig. Næsti leikur Víkings Ólafsvíkur verður spilaður þann 20. júní næstkomandi á móti Haukum á Birtuvellinum.

„Síðasta sveitaballið“ á Lýsuhóli 19. júní
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111
Ný bæjarstjórn
tekin til starfa

Nýkjörin bæjarstjórn Grundarfjarðar kom saman til fundar fimmtudaginn 11. júní. Á fundinum var skipað í ráð og nefndir og var Fannar Þór Þorfinnsson kjörin forseti bæjarstjórn-
ar og Aðalsteinn Jósefsson formaður bæjarráðs. Jafnframt var samþykkt að Birkir Jón Jónsson verði ráðinn bæjarstjóri og hefur hann hafið störf.

Fimmtudagskvöldið 19. júní mæta Greifarnir á Lýsuhól á Snæfellsnesi, stað sem margir tengja við góða stemningu og ógleymanleg böll í gegnum tíðina.
Greifarnir eiga sjálfir góðar minningar frá Lýsuhóli. Þó að sveitin hafi ekki spilað þar mjög oft í gegnum árin hefur alltaf verið sérstakt að koma á Snæfellsnes og ekki síst í þessi gömlu og sjarmerandi félagsheimili sem eiga svo stóran þátt í íslenskri sveitaballamenningu.
„Síðasta sveitaballið“ eru vissulega tónleikar, en markmiðið er ekki síður að endurvekja stemninguna sem gerði sveitaböllin svo eftirminnileg. Kvöld þar sem
fólk hittist, syngur með, dansar
Á efnisskránni verða helstu lög Greifanna frá síðustu fjórum áratugum ásamt fjölmörgum lög um sem flestir Íslendingar kunna, syngja með og tengja við góðar minningar.
Samhliða afmælisárinu hafa Greifarnir einnig sent frá sér nýtt lag, „Endalaust sumar“, sem nú er komið út á Spotify og öðrum helstu streymisveitum.
Ballið/tónleikarnir á Lýsuhóli standa frá kl. 22:00 til 01:00, forsala miða er hafin á Tix.is og einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn.
Greifarnir hlakka til að hitta Snæfellinga og aðra gesti í Lýsuhóli og skapa saman kvöld sem vekur upp góðar minningar frá sveitaballatímanum.