Skip to main content

BaejarbladidJokull1211tbl

Page 1


Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um síðustu helgi, hátíðahöld voru bæði í Grundarfirði og Snæfellsbæ og góð þátttaka enda veður með besta móti.

Meðal atriða á Rifi var að þyrla

Landhelgisgæslunnar hífði þrjá sjálfboðaliða Lífsbjargar upp úr höfninni og var þessi mynd tekin við það tækifæri.

Á innsíðum blaðsins er fjallað ítarlega um dagskrá helgarinnar í máli og myndum.

og hjúkrunarheimilinu Jaðri um helgina en hún byrjaði á því að kór Átthagafélags Strandamanna kom í heimsókn og söng fyrir íbúa ljúfa tóna. Um kvöldið bauð Sjómannadagsráð íbúum og starfsmönnum upp á veislumat. Sami matseðill var á Jaðri

haldið í Klifi. Á meðan íbúar og starfsmenn nutu matarins söng Freyr Eyjólfsson veislustjóri sjómannahófsins nokkur vel valin lög. Forsvarsmenn Jaðars vilja þakka kórnum og Sjómannadagsráði fyrir þessa skemmtun og hlýhug í garð Jaðars.

Ný bæjarstjórn tekur til starfa

Ný bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur formlega tekið til starfa. Þann 4. júní 2026, kom ný bæjarstjórn Snæfellsbæjar saman á sínum fyrsta fundi og var þar meðal annars kosið í embætti forseta bæjarstjórnar, bæjarráð og nefndir sveitarfélagsins. Auður Kjartansdóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar og Júníana Björg Óttarsdóttir fyrsti varaforseti. Júníana Björg var einnig kjörin formaður bæjarráðs.

Á fundinum var einnig samþykktur nýr ráðningarsamningur við Kristinn Jónasson sem mun áfram gegna starfi bæjarstjóra Snæfellsbæjar. D-listinn, sem situr einn í bæjarstjórn, lagði fram bókun á fundinum þar sem meðal annars er fjallað um auðmýkt gagnvart því mikilvæga hlutverki sem þeim hefur verið falið næstu fjögur árin. Í bókuninni segir „Sú staða að listinn taki einn sæti í bæjarstjórn felur í sér sérstaka

ábyrgð á að gæta fjölbreyttra sjónarmiða, að vera í góðu sambandi við íbúana og sem fyrr vinna ávallt með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi”. Listinn segist ætla að leggja sig fram um að veita öfluga þjónustu við íbúa, styðja

við kröftugt atvinnulíf, tryggja traustan rekstur sveitarfélagsins og halda áfram uppbyggingu sem styrkir sveitarfélagið til framtíðar og þannig tryggja að Snæfellsbær sé góður, aðlaðandi og fjölskylduvænn búsetukostur. Á

meðfylgjajndi mynd eru Eiríkur Böðvar Rúnarsson, Jóhanna Jóhannesdóttir, Sigrún Erla Sveinsdóttir, Auður Kjartansdóttir, Júníana Björg Óttarsdóttir, Urszula Zyskowska, Illugi Jens Jónasson og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.

Sjómannadagurinn í Snæfellsbæ

Sjómannadagshelgin var haldin hátíðleg í Snæfellsbæ síðastliðna helgi í tilefni Sjómannadagsins sem var 7. júní. Helgin hófst á skemmtisiglingu frá Ólafsvíkurhöfn þegar áhafnir á Matthíasi, Agli, Steinunni og Saxhamri héldu af stað með fólk á öllum aldri í skemmtisiglingu um Breiðafjörð. Eftir skemmtisiglinguna var boðið til grillveislu í Sjómannagarðinum í Ólafsvík þar sem börnin skemmtu sér í hoppuköstulum og Birgir Olgeirsson spilaði og söng. Heldur blautt var þetta kvöld en fólk lét það ekki á sig fá. Liðakeppnin var svo haldin á

Rifi á laugardeginum, keppt var í kappróðri, þrautakeppni, reipitogi og flekahlaupi. Í karlaflokki kepptu fjögur lið, áhafnir á Guðmundi Jenssyni, Ólafi Bjarnasyni og Kristni auk liðs ungra manna úr sveitarfélaginu. Í kvennaflokki áttu starfsmenn leikskóla Snæfellsbæjar eitt lið og CF Snb eitt lið. Áhöfnin á Kristni tók bikarinn í róðrakeppni karla og þrautakeppni karla í ár og áhöfn Guðmundar Jenssonar sigraði reipitogið. CF Snb vann róðrakeppni kvenna og leikskólar Snæfellsbæjar sigruðu í þrautakeppni kvenna og reipitogi kvenna. Mjög

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

góð þátttaka var í flekahlaupinu en þar var Róbert Máni Birgisson fljótastur drengja á tímanum 12.72 sekúndum og Díana Marín Alexandersdóttir var fljótust stúlkna á 21,93 sekúndum. Þegar liðakeppnin var búin kom þyrla Landhelgisgæslunnar og bjargaði þremur sjálfboðaliðum Lífsbjargar upp úr höfninni og flaug svo nokkra hringi yfir áhorfendum. Snæfells Kayak bauð svo áhugasömum að koma prófa kayak í fjörunni við Rif.

Að kvöldi laugardagsins hélt fjöldi fólks á Sjómannahófið í félagsheimilinu Klifi þar sem Galito sá um matinn, Freyr Eyjólfsson sá um veislustjórn og hljómsveitin

Babies flokkurinn spiluðu fyrir dansi að borðhaldi loknu. Á hófinu tryllti áhöfn Saxhamars salinn í áskorendakeppni sjómanna og skoruðu á áhöfn Egils SH að gefa allt sitt í keppnina að ári. Lilja Hrund Jóhannsdóttir hélt Minni sjómanna og sjómannskonurnar

Monika Kapanke, Lilja Björk Þráinsdóttir og Ástrós Gunnarsdóttir voru heiðraðar.

Á Sjómannadaginn sjálfan var Sjómannamessa í Ingjaldshólskirkju og hefðbundin dagskrá í sjómannagörðunum á Hellissandi og í Ólafsvík var á sínum stað. Í lok dagskránnar í sjómannagarðinum í Ólafsvík var Sjómannamessan haldin þar í blíðskapaveðri. Í Sjó-

mannagörðunum hélt Bogi Þor steinsson, skólastjóri Slysavarna skóla sjómanna hátíðarræðuna og svo voru sjómenn heiðraðir. Lesin voru ágrip um heiðurssjómennina áður en þeir fengu heiðursmerki í barminn og fallegan blómvönd. Í Sjómannagarðinum í Ólafsvík var Ægir Kristmundsson heiðraður. Tók hann á móti viðurkenningunni ásamt eiginkonu sinni, Árný Báru Frið riksdóttur. Í Sjómannagarðinum á Hellissandi var Reynir Rúnar Reynisson heiðraður. Tók hann á móti viðurkenningunni ásamt eiginkonu sinni, Halldóru Sæv arsdóttur.

Helginni var svo lokað með

ar í Björgunarstöðinni Von á Rifi sem var að vanda vel sótt. Áhafnirnar á Hildi SH, Sveinbirni Jakobssyni SH, Tryggva Eðvarðs SH, Hilmari afa SH, Kára III SH sáu um

kvæmd Sjómannahelgarinnar í ár en að ári verður það í höndum Tjalds SH, Bárðs SH, Lilju SH, Bessu SH og Jónas Gunnarssonar SH.

SJ

Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí jei,

það er kominn 17. júní

17. júní í Snæfellsbæ

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní verður að vanda haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ.

Þjóðhátíðarveislan teygir anga sína víða um bæinn og ættu allir að geta gert sér glaðan dag með fjölskyldu og vinum.

Gleðilega hátíð, kæru íbúar!

Dagskrá:

Kl. 8:00 Íslenski fáninn dreginn að húni

Kl. 10:00

Landsbankahlaup - við Landsbankann í Ólafsvík Öllum velkomið að taka þátt. Ís í boði að loknu hlaupi.

5 ára og yngri hlaupa 500 metra

6 - 8 ára hlaupa 1,3 km

9 - 11 ára hlaupa 2,5 km

12 - 16 ára hlaupa 3,5 km

Kl. 10:30 Hesteigendafélagið Hringur

Hesteigendafélagið Hringur teymir undir börnum í reiðhöllinni.

Kl. 11:30 Skrúðganga í Sjómannagarðinn

Skrúðganga frá íþróttahúsinu.

Kl. 11:45 Hátíðardagskrá í Sjómannagarðinum

Setning: Erika Rún Heiðarsdóttir

Kynnir: Ari Bent Ómarsson

Ávarp fjallkonu

Helgistund

Ræða nýstúdents: Stefanía Klara Jóhannsdóttir

Tónlistaratriði - Vigdís Júlía Viðarsdóttir

Menningarviðurkenning Snæfellsbæjar

Kl. 13:00 Kaffiboð á Hótel Búðum

Hótel Búðir býður upp á hátíðarveislu í tilefni dagsins frá 13:00 til 16:00.

Rjúkandi kaffi, heitt súkkulaði og ilmandi vöfflur.

Kl. 13:00 Skemmtun við íþróttahúsið

Hoppukastali

Sirkus Íslands

Ungmennafélag og meistaraflokkur Víkings með leiki og þrautir

Unglingadeildin Drekinn verður með sjoppu

Kl. 15:00 Froðufjör með slökkviliði Snæfellsbæjar við Gilið í Ólafsvík

Ath. að þessi viðburður fer eingöngu fram ef veður leyfir.

Shoot-out golfmót Golfklúbbsins Jökuls á Rifsvelli

Shoot-out golfmót fyrir félagsmenn.

Skráning og tímasetning á GolfBox.

Þann 17. júní verður opið í sundlaugum Snæfellsbæjar.

Sundlaugin í Ólafsvík er opin frá kl. 10 - 17.

Lýsulaugar eru opnar frá kl. 11 - 21.

Sjómannadagurinn í Grundarfirði

Helgina 5. til 7. júní var Sjómannahelgi haldin hátíðleg i Grundarfirði. Helgin hófst með sjómannadagsmóti í leirdúfuskotfimi hjá Skotfélagi Snæfellsness á fimmtudeginum.

Á föstudagsmorguninn mættu sjómenn í heimsókn á leikskólann Sólvelli með fiskasýningu og smakk fyrir börnin. Sjómannadagsráð bauð svo börnum eldri en 10 ára í sundlaugapartý þar sem farið var í ýmiss konar keppnir og skemmt sér vel. Sjómannadags golfmót Guðmundar Runólfssonar var á sínum á Bárarvelli á föstudagskvöldið. Að morgni föstudags var minningarathöfn um látna sjómenn á firðinum utan við Grundarfjörð með Varðskipinu Óðni, björgunarskipinu Björgu, Björgunarsveitinni Klakki og smábátasjómönnum. Varðskipinu Óðni var svo lagt við Grundarfjarðarhöfn og gafst gestum og gangandi kostur á að skoða skipið.

Laugardagurinn byrjaði svo á krakkasprelli í Vélsmiðju Grundarfjarðar með hoppuköstulum fyrir börnin. Farsæll SH fóru með áhugasama í hátíðarsiglingu að Melrakkaey áður en hátíðardagskrá hófst á hafnarsvæðinu. Þar fóru fram keppnisgreinar, liðakeppni og reipitogskeppni um

kvenna vann starfsfólk Grunnskóla Grundarfjarðar. Þá var árlegi blakleikurinn í íþróttahúsinu þar sem sjómenn öttu kappi við konur sínar, mæður, systur og dætur og áttu sjómenn sigurinn þetta árið. Að kvöldi dags var boðið til dansleiks á Kaffi 59 með hljómsveitinni Bland. Á sjálfan Sjómannadaginn var börnum boðið á leiksýninguna Litaland með Leikhópnum Lottu á leikskólalóðinni. Sjómannamessa var haldin í Grundarfjarðarkirkju þar sem Ólafur Guðmundsson og Kristján Guðmundsson, fyrrum sjómenn, voru heiðraðir fyrir störf sín. Ragnheiður Þórarinsdóttir, kona Kristjáns var einnig heiðruð og voru þau sæmd heiðursmerki Sjómannadagsráðs Grundarfjarðar. Að messu lokinni var svo athöfn við styttuna Sýn þar sem blómakrans var lagður til minningar um látna sjómenn. Kvenfélagið Gley mér ei var svo með sinn árlega kökubasar í Samkomuhúsinu sem var vel sóttur.

Sjómannadagsráð Grundarfjarðar kemur á framfæri þökkum til allra þeirra sem styrktu hátíðina og öllum þeim sem lögðu sitt fram við undirbúning og framkvæmd helgarinnar svo sjómenn ásamt fjölskyldum sínum, öðrum bæjarbúum og gestum gætu

Dorgveiðikeppni

Sjóstangveiðifélagið Sjósnæ hélt glæsilega dorgveiðikeppni á laugardegi Sjómannadagshelgarinnar í Snæfellsbæ. Tæplega hundrað manns mættu í blíðskaparveðri á Norðurtanga í Ólafsvík til þess að dorga og vonuðust til þess að næla í

stærsta fiskinn. Það voru systkinin Bianka og Jakub sem lentu í fyrsta sæti, í öðru sæti var Sigmar og Pola í þriðja sæti. Að dorgi loknu grill uðu meðlimir Sjósnæs pylsur fyrir þátttakendur.

Dagana 31. maí til 4. júní fór fram vinnufundur og vettvangsheimsóknir í tengslum við alþjóðlega verkefnið BEAM – Building Entrepreneurial Attitude and Mindset, sem er samstarfsverkefni sveitarfélaga í Suður-Eistlandi og sveitarfélaga á Snæfellsnesi. Markmið verkefnisins er að efla frumkvöðlahugsun, samfélagsþátttöku og framtakssemi ungs fólks í dreifbýli ásamt því að þróa hagnýtt stuðningslíkan fyrir fagfólk sem starfar með ungu fólki.

Að verkefninu á Íslandi standa Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær og Stykkishólmsbær. Fyrir hönd Snæfellsbæjar hefur Halldóra Kristín Unnarsdóttir, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Afdreps, haft umsjón með skipulagi og framkvæmd verkefnisins. Með henni í verkefnahópnum eru Hinrik Konráðsson, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Eden í Grundarfirði, og Magnús Bæringsson, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Xið í Stykkishólmi.

Alls komu níu þátttakendur frá Suður-Eistlandi til Íslands þar sem unnið var að þróun og mótun verkefnisins, miðlun reynslu og undirbúningi næstu skrefa. Heimsóknin markar mikilvægan áfanga í verkefninu og leggur grunn að áframhaldandi samstarfi sveitarfélaganna og fagfólks í æskulýðsstarfi.

Á meðan á heimsókninni stóð fengu gestirnir tækifæri til að kynnast fjölbreyttu samfélagi og starfsemi á Snæfellsnesi. Í Snæfellsbæ voru heimsóttar Smiðjan, Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Vatnshellir og farið í ævintýraferð með Glacier

Alþjóðlegt samstarfsverkefni

Paradise frá Arnarstapa þar sem ekið var á buggy-bílum um stórbrotna náttúru svæðisins. Í Grundarfirði heimsótti hópurinn Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Sögumiðstöðina, þar sem kynnt voru menningarog menntaverkefni svæðisins. Í

Stykkishólmi naut hópurinn leiðsagnar í eyjasiglingu með Sæferðum, þar sem náttúra og saga Breiðafjarðar voru í forgrunni. Íslenski verkefnahópurinn lagði mikla áherslu á að kynna gestunum það fjölbreytta samfélag sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða, bæði hvað varðar menningu, náttúru, atvinnulíf og matarmenningu. Markmiðið var að gefa þátttakendum sem besta innsýn í styrkleika svæðisins og þau tækifæri sem felast í dreifbýli þegar kemur að nýsköpun, frumkvæði og samfélagsþróun.

Næsti áfangi verkefnisins verður um miðjan ágúst þegar íslenskur hópur heldur til Suð-

ur-Eistlands til áframhaldandi vinnu. Þar verður unnið áfram að þróun stuðningslíkansins, miðlun reynslu milli landanna og mótun nýrra leiða til að styðja við ungt fólk í dreifbýli.

Þátttakendur frá Eistlandi héldu heim þann 4. júní síðastliðinn, þakklátir fyrir móttökurnar, innblásnir af því sem þeir höfðu upplifað og spenntir fyrir áframhaldandi samstarfi í verkefninu. Verkefnið hefur þegar

Svæðisgarðurinn styrktur

skapað sterk tengsl milli þátttakenda og sveitarfélaganna og lofar góðu fyrir áframhaldandi þróun og samstarf á komandi misserum. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ áætlunina. Skoðanir og niðurstöður sem fram koma í verkefninu eru á ábyrgð þátttakenda og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins eða Erasmus+. - Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

hlutun úr sjóðnum í ár. Svæð isgarður Snæfellsness hlaut 3.000.000 króna úthlutun til fýsileikagreiningar á sameiginlegri dreifilausn staðbundinna matvæla á Snæfellsnesi. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun og samkeppnishæfni ís lenskrar matvæla. Matvælasjóður hefur fjóra flokka sem hver hefur sína eiginleika. Svæðisgarðurinn hlaut styrk í flokknum Bára en þau verkefni sem hljóta styrk úr flokknum eru á hugmyndastigi og á styrkurinn að hjálpa umsækjendum að koma hugmyndinni í framkvæmd. JJ

Gæðingamót Snæfellings

Opið gæðingamót Snæfellings fór fram laugardaginn 30. maí í Stykkishólmi. Þátttaka á mótinu var góð og gekk það vel í alla staði. Keppt var í níu flokkum og verðlaunað efstu sætin.

Í A flokki var Hlýri frá Bergi og Jón Bjarni Þorvarðarson í 1. sæti, í 2.sæti var Sjarmur frá Ólafsvík og Hrefna Rós Lárusdóttir, í 3.sæti var Tign frá Hrauni og Guðný Margrét Siguroddsdóttir og Lárus Ástmar Hannesson á Skugga frá Hríshóli var í 4. sæti. Í B flokki var Jón Bjarni Þorvarðarson aftur í 1. sæti á Mær frá Bergi. Guðný Margrét Siguroddsdóttir á Vænting frá Hrísdal var í 2. sæti og Lárus Ástmar Hannesson á Friðrik frá Stykkishólmi var í 3. sæti. Í C1 flokki voru Vindur frá Grundarfirði og Sveinn Bárðarson í 1. sæti, Kvistur frá Blönduhlíð og Kim Deirdre Denner í 2. sæti og Roði frá Háa-Rima 1 og Margrét Þóra Sigurðardóttir í 3. sæti. Í B flokk ungmenna var Glettir frá Hólshúsum og Hera Guðrún Ragnarsdóttir í 1. sæti og Sæla frá Reykhólum og Christina Fischer í 2. sæti. Sól Jónsdóttir á Sægrími frá Bergi var í 1. sæti í Unglingaflokki.

Bragi frá Hrísdal og Ásdís Ólöf Sigurðardóttir í 1. sæti í opnum flokki í Gæðingatölti. Reykur frá Brennistöðum og Guðný Margrét Siguroddsdóttir voru í 2. sæti og Sónata frá Lyngási og Hrefna Rós Lárusdóttir voru í 3. sæti. Í 2. flokki Gæðingatölts voru Haukur frá Brekku í Þingi og Kim Deirdre Denner í 1. sæti og Prins frá Lyngási og Björn Heiðar Björnsson í 2. sæti. Í unglinga-

Fréttir af boltanum

Víkingur Ólafsvík fékk Kára í heimsókn um liðna helgi en leikurinn var liður í 6. umferð í 2. deild karla í fótbolta. Máni Berg Ellertsson tókst að skora fyrir Kára þegar tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Mikil harka var í leikmönnum beggja liða enda Víkingur að reyna að bjarga sér frá botnsæti deildarinnar og Kári í baráttu um fyrsta sætið. Naim Aaras El Hmaidi tókst að jafna leikinn þegar hann skoraði á 27. mínútu og Ingvar Freyr Þorsteinsson bætti svo öðru marki við tíu mínútum síðar. Víkingar voru yfir í hálfleik og voru einnig að spila töluvert betri leik. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson jafnaði leikinn aftur þegar hann skoraði á 72. mínútu en það stóð ekki lengi því El Hmaidi skoraði sitt annað mark í leiknum stuttu seinna. El Hmaidi fékk sitt annað gula spjald á 82. mínútu og var rekinn af velli með rautt spjald. Á loka mínútu hefðbundins leiktíma

tókst Birki Hrafni Samúelssyni að skora loka mark leiksins og með því jafna stöðuna í 3-3 sem urðu úrslit leiksins. Víkingar eiga tvo

leiki í vikunni en næsti leikur Víkings verður á Vogaídýfuvellinum miðvikudaginn 10. júní klukkan 19:15. Sá seinni verður á Ólafsvíkurvelli þann 14. júní klukkan 16:00 á móti Magna frá Grenivík. Stuðningsmenn liðsins eru hvattir til þess að mæta á leikina og styðja þá til sigurs.

Reynir Hellissandur tók á móti

Einherja frá Vopnafirði á Sjómannadaginn á Ólafsvíkurvelli í utandeild karla. Brynjar Þór Ásgeirsson skoraði tvennu á 30. og 38. mínútu leiksins fyrir Reyni. Snær Fannarsson fylgdi því eftir með því að skora aðra tvennu fyrir liðið á 41. og 60. mínútu. Það leið ekki langt á milli marka en mínútu seinna bætti Björn Óli Snorrason fimmta marki Reynis við. Ísak

Brimir Alexandersson kórónaði stórsigur Reynis með lokamarkinu á 90. mínútu. Úrslit leiksins voru 6-0 Reyni í vil en næsti leikur liðsins verður þann 20. júní gegn

Neista á Djúpavogsvelli. Daginn eftir munu þeir svo spila á móti

Leikni á Fáskrúðsfirði.

frá Bergi og Sól Jónsdóttir í 1. sæti. Að lokum tóku Sjarmur frá Ólafsvík og Hrefna Rós Lárusdóttir 1. sæti í 100 metra flugskeiði og Skuggi frá Hríshóli 1 og Lárus Ástmar Hannesson voru í 2. sæti. Í lok mótsins völdu dómararnir ssvo hest mótsins, hryssu mótsknapann. Hestur mótsins var Sjarmur frá Ólafsvík, hryssa mótsins var Mær frá Bergi og knapi mótsins var Jón Bjarni Þorvarðarson frá Bergi. Sól Jónsdóttir var svo valin efnilegasti knapinn en hún er einmitt dóttir Jóns Bjarna. Meðfylgjandi mynd er af efstu fjóru sætunum í A flokki. SJ

Tvö útköll hjá

Áhöfn björgunarskipsins Bjargar í nógu að snúast þar sem skipið var tvívegis boðað út þann dag til að koma skipverjum í sjávarháska til bjargar. Á tólfta tímanum þann 3. júní barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynning um að eldur hafi komið upp í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var á Breiðafirði. Einn maður var um borð í bátnum og þyrlusveit landhelgisgæslunnar ásamt áhöfn björgunarskipsins Bjargar voru kölluð út í mesta forgangi. Einnig voru skip og bátar í grenndinni beðin um að halda á vettvang. Fyrsti nálægi báturinn kom fljótt á vettvang og stuttu síðar var björgunarskipið og þyrla Landhelgisgæslunnar komin á staðinn. Sigmaður og læknir þyrlusveitarinnar sigu um borð í bátinn til að meta aðstæður og huga að skipverjanum en hann varð fyrir óhappi þegar eldurinn kom upp. Að því búnu fór skipverjinn um borð í

Björginni

Björgu og fiskibáturinn var tekinn í tog til hafnar á Rifi. Um hálftíma eftir að gengið hafði verið frá bátnum í Rifshöfn barst áhöfn björgunarskipsins Bjargar annað útkall. Þá barst tilkynning um aflvana bát vestur af Öndverðarnesi. Engin hætta reyndist á ferðum en áhöfn Bjargar dró bátinn til hafnar. Meðfylgjandi mynd er frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu. SJ

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1211tbl by Steinprent - Issuu