Skip to main content

BaejarbladidJokull1210tbl

Page 1


bótaréttur.is

55 hlupu Kerlingarskarðshlaupið

Kerlingarskarðshlaupið var haldið í annað sinn laugardaginn 23. maí. Um er að ræða 14 km langt utanvegahlaup sem fer fram á malarslóða í gegnum Kerlingar skarð. Leiðin tengir saman suð ur- og norðurhluta Snæfellsness en það hefst á norðanverðu nes inu, við afleggjarann að Kerlingar skarði, og lýkur á sunnanverðu nesinu. Þetta er í annað sinn sem Kerlingarskarðshlaupið er haldið og tóku 55 manns þátt í hlaupinu, þar af fjórir hlauparar úr Hlaupa hópi Snæfellsbæjar.

Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í kvenna- og karla flokki. Í karlaflokki átti Gestur Daníelsson 1. sætið en hann kláraði hlaupið á 51 mínútu og 55 sekúndum. Benedikt Óli var

Víkingum

Meistaraflokkur Víkings Ólafsvíkur spilaði tvo leiki á liðinni viku. Fyrri leikurinn var á Blönduósi þann 27. maí á móti Kormáki/Hvöt. Leikurinn var hluti af 1. umferð í Gatorade-bikarnum 2026. Sigurður Bjarni Aadnegard tókst að skora fyrsta mark leiksins fyrir Kormák/Hvöt á 10. mínútu leiksins. Abdelhadi Khalok El Bouzarrari jafnaði 15. mínútum síðar fyrir Víking. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks bætti Manuel Ferriol Martínez við marki fyrir heimamenn. Víkingum tókst að jafna aftur þegar Björn Henry Kristjánsson skoraði mark á 58 mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruð innan hefðbundins leiktíma og fór leikurinn í framlengingu. Á 105. mínútu fengu El Bouzarrari og Jackson Cole Vanderven báðir gul spjöld og Kormáki/ Hvöt dæmd vítaspyrna. Leikstjórnendur Víkings voru ekki par sáttir sem endaði með því að Tomaz Luba og Fannar Hilm-

arsson þurftu báðir að víkja upp í stúku með rauð spjöld. Pere Belmonte skoraði úr vítaspyrnunni og tryggði liði sínu sigurinn. Víkingur þurfti því að sætta sig við súrt tap á Blönduósi og eru dottnir úr Gatorade-bikarnum í ár.

Seinni leikur liðsins var á móti Selfossi á JÁVERK vellinum þann 31. maí í 2. deild karla. Viðar Örn Kjartansson kom sterkur inn í fyrri hálfleik þegar hann skoraði tvö mörk fyrir Selfoss. Nói Hrafn Ólafsson skoraði eina mark Víkings í leiknum á 69. mínútu en Brynjar Bergsson kórónaði sigurinn fyrir Selfoss þegar hann bætti við marki á 75. mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og annað tap raunin fyrir Víkinga.

Næsti leikur Víkings Ó. verður laugardaginn 6. júní klukkan 15:30 á Ólafsvíkurvelli þegar Kári sækir Víkinga heim. JJ

mínútum. Sunna Kristín Jónsdóttir var í 2. sæti og rétt á eftir henni var Helga Jóhannsdóttir í 3. sæti á 1 klukkustund, 15 mínútum og 11 sekúndum. Frá Hlaupahópi Snæfellsbæjar hlupu einnig feðgarnir Ari Bent Ómarsson og Gunnar Bent Arason sem komu saman á

ur sem mun fara fram á Snæfells nesi í sumar en Snæfellsjökulshlaupið mun fara fram í 15. sinn þann 20. júní og Sjónarhóll trail run fer fram í fyrsta sinn laugardaginn 8. ágúst á Hellissandi.

SJ

Móttaka á flöskum og dósum hættir

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Aðalfundur Ferðafélags Snæfellsness

Mánudaginn 11. maí var aðalfundur Ferðafélags Snæfellsness haldinn á kaffihúsinu Hjá góðu fólki að Hraunhálsi í Helgafellssveit, þar sem blásið var nýtt líf í félagið og ný stjórn kosin. Um 29 manns mættu, fólk af Snæfellsnesi og utan þess sem komu saman til að vinna að framgangi þessa félags. Sjálfkjörið var í stjórn. Að lokinni kosningu gerði nýkjörinn formaður það að sínu fyrsta verki að leggja til að Reynir Ingibjartsson yrði kjörinn heiðursfélagi Ferðafélags Snæfellsness og var það samþykkt með dynjandi lófataki. Hin nýkjörna stjórn mun svo koma saman og ráða ráðum sínum og skipuleggja framhaldið. Guðmundur Rúnar Svansson frá Dalsmynni var kosinn formaður. Ávörp fluttu Gunnar Njálsson um sögu og stofnun félagsins og fyrstu starfsár, Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands um starf félagsins og

100 ára afmæli þess á næsta ári, og Reynir Ingibjartsson sem sagði frá gönguleiðum og gönguferðum og gaf svo félaginu safn sitt af örnefnalýsingum. Greint var

frá því á fundinum að 46 hefðu skráð sig sem félagsmenn. Eitt af fyrstu verkum nýrrar stjórnar verður að ganga frá formlegri umsókn um að gerast deild í Ferðafélagi Íslands, en lágmarksfjöldi er 50 manns í félagi. Þeir sem enn

eiga eftir að ljúka skráningu í félagið eru því beðnir að gera það sem fyrst.

Á myndinni eru frá vinstri: Gyða Steinsdóttir (gjaldkeri), Helga María Magnúsdóttir, Eygló Kristjánsdóttir, Ólafur K. Ólafsson (rit-

ari) og Guðmundur Rúnar Svansson (formaður). Á myndina vantar Pálma Jóhannsson og Gunnar Njálsson sem voru í fjarfundi. SJ

Útskriftarferð leikskólanna

21 barn frá leikskóla Snæfellsbæjar fóru í útskriftaferð 21. maí. Mikil spenna og gleði var fyrir óvissuferðalaginu sem beið barnanna. Við byrjuðum á að fara á Malarrif, þar sem Guðmundur Jensson og Ingunn Ýr Angantýsdóttir tóku á móti okkur. Guðmundur, eða Gummi Jens eins og hann er kallaður, fræddi börnin um nærumhverfið og marga merkilega staði. Þau sem vildu fengu að smakka þara og fór það misjafnlega í börnin. Eftir góða yfirferð fóru þau í náttúrubingó og klifurtækin voru prufuð.

Eftir það fórum við í Búðarfjöru, tókum með skóflur og fötur og lékum okkur í sandinum. Þau höfðu á orði að þetta væri eins og sandurinn í útlöndum og ekki skemmdi þetta dásamlega veður sem tók á móti okkur. Börnin sáu nokkra seli stutt frá fjörunni og vakti það mikla lukku. Í góðri óvissuferð þarf alltaf að taka með smá nesti en þau fengu nýbakaðar muffinskökur og safa eða vatn með.

Næst var það reiðhöllin þar sem Selma, Hildur og Guðný tóku á móti okkur og fengu börnin að fara á hestbak. Var þetta mikil áskorun fyrir sum þeirra en öll voru þau glöð eftir að hafa farið á bak. Að lokum var farið á Sker veitingastað og þeirra beið pizzu hlaðborð, djús og KOKTELSÓSA sem vakti þvílíka lukku og þau upplifðu sig mjög fullorðins að fara út að borða og skein gleðin úr hverju andliti.

Var þetta frábær dagur í alla staði. Okkur langar að þakka Gumma og Ingunni fyrir að taka á móti okkur á Malarrifi. Einnig langar okkur að þakka Selmu, Hildi og Guðný fyrir að taka á móti okkur í reiðhöllinni og senda þak klæti til hennar Lilju á Skerinu fyrir að vera alltaf svona elsku leg að bjóða útskriftahópnum í pizzuveislu. Að lokum þökkum við honum Hafþóri bílstjóra sem er alltaf svo jákvæður og réttir okkur hjálparhönd ef þess þarf. Það er svo gaman og gefandi að

ógleymilegan fyrir börnin.

Gleðilegt sumar, Þórey, Adriana, Sylwia og Aldís

Skýrsla um óstaðbundin störf

Skýrslan „Óstaðbundin störf: viðhorf, væntingar og búseta“ var unnin af Rannsóknarsetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir og Vífill Karlsson unnu skýrsluna. Tilgangur og markmið rannsóknarinnar um óstaðbundin störf er að nálgast með nýjum hætti möguleg byggðaáhrif óstaðbundinna starfa. Starf telst óstaðbundið ef inna má það af hendi að hluta til eða öllu leyti hvar sem er. Nú þegar liggur fyrir mat stjórnenda innan ráðuneyta hins opinbera á því hversu mörg ársverk þau gætu auglýst sem óstaðbundin störf.

Handafhófskenndur úrtakshópur af öllu landinu svaraði netkönnun um hvort störf þeirra, og hversu mikið af þeim, mætti leysa eftir hugmyndafræðinni um óstaðbundin störf. Niðurstöður sýna að það liggja mörg tækifæri í sveigjanlegra starfsumhverfi. Það er sóknarfæri fyrir fyrirtæki að marka sér stefnu hvað varðar blandað vinnufyrirkomulag, sem

fækkað um 12% á höfuðborgarsvæðinu en á Vesturlandi gæti íbúum fjölgað um 58% ef sóknarfæri sem felast í óstaðbundum störfum yrðu nýtt í samræmi við skoðanir almennra starfsmanna ríkisins og annarra vinnuveitenda. Þá kemur líka fram að 57% Vestlendinga vinna að einhverju leyti óstaðbundið og veruleg tækifæri eru til frekari aukningar.

svæðisins segja Snæfellsbæ vera þeirra óskabúsetu ef starf þeirra væri óstaðbundið og 1,7% íbúa annarra staða á Vesturlandi myndi kjósa Snæfellsbæ. Þá er nokkur meirihluti í öllum landshlutum sem eru sáttir við núverandi búsetu en 82% íbúa Vesturlands myndu kjósa að búa á sama stað og núna ef starf þeirra væri óstaðbundið. Þegar litið er sér-

fjarðar kjósa að búa þar áfram og Þetta og ýmislegt fleira kemur fram í nýrri skýrslu um óstaðbundin störf, sem unnin var af Rannsóknarsetrinu í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst fyrir Samtök sveitarfélag á Vesturlandi. Hana má nálgast í fullri lengd á vefsíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is.

Til hamingju með daginn sjómenn!

Sjómannadagsblaðið að koma út

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar kemur út núna í vikunni fyrir sjómannadaginn í þrítugasta og fjórða sinn. Það byrjar með ávarpi eftir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og sr Karen Hjartardóttir sóknarprestur í Grundarfirði er með hugleiðingu í tilefni sjómannadagsins.

Í blaðinu er afar góð grein eftir

Svein Þór Elinbergsson um Eleníus Jónsson sem fluttist til Ólafsvíkur árið 1900 úr Miklaholtshreppi er hann var tuttugu og tveggja ára gamall. Hann varð seinna formaður á sínum eigin bát. Þá var honum síðar falin stjórnarfomennska Hraðfrystihúss ÓLafsvíkur og kaupfélagsstjóri Kaupfélags ÓLafsvíkur. Þá átti hann stóran þátt í gerð Sjómannagarðsins í Ólafsvík. Eleníus var mikill merkismaður á sinni tíð í Ólafsvík og vel þekktur meðal bæjarbúa en hann lést 1966.

Rætt er við Jón Eggertsson fv vörubílstjóra sem er fæddur í Ólafsvík og hefur búið þar alla æfi. Jón er hafsjór af minningum frá æskuárum sínum af margskonar grúski, leikjum og ævintýrum

með vinum sínum. Jón starfaði sem vörubílstjóri alla tíð og búin að eiga marga bíla. Hann var ekki sjómaður en hann kynntist öllu sem tengdist sjávarútveginum og því fólki sem við hann störfuðu.

Guðmundur Svavarsson dugmikill skipstjóri og útgerðarmaður er fæddur á Siglufirði og bjó í Ólafsvík í mörg ár. Hann var í útgerð með bæði smærri og stærri skip til áratuga. Hann segir frá þessu í viðtali og dregur ekkert undan í því sem á daga hans hefur drifið og ekki komið að tómum kofanum þar.

Þá rekur Hans Bjarni Sigurbjörnsson sögu Hafrúnar SH 204 en 70 ár eru frá því að skipið kom til landsins frá Hollandi sem Gjafar VE 300. Fleiri skip komu til landsins frá Hollandi á þessum árum. Þetta voru burðarmikil skip og eru nokkur enn þeirra í gangi ennþá.

Egill Þórðarson hefur tekið saman texta um sjólsys frá 1940 sem tengjast Grundarfirði. Þar verður minnst þeirra manna sem fórust við störf en þeir eru alls nítján. Safnskipið Óðinn kemur fyrir sjómannadagshelgina inn á Grundarfjörð og þar verður blómakrans hent í sjóinn og rós við nafn hvers látins sjómanns.

Ágúst Valves Jóhannesson Ólafsvíkingur að ætt og uppruna og er kokkur á frystitogaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni GK segir skemmtilegar sögur af sjónum og lætur nokkrar góðar uppskriftir fylgja með.

Pétur Kristjánsson vélamaður og skipstjóri sem býr í Ólafsvík segir frá sinni sjómennsku er var viðburðarík. Hann vann hjá Faxaflóahöfnum í um fjörtíu ár. Þá var

hann kafari og einnig fór hann í nokkur skipti í Miðjarðarhafið á varðskipinu Tý við störf er tengdust aðstoð við flóttamenn.

Ívar Þórarinsson sem var háseti á Snæfugli SU 20 segir frá því er skipið fórst árið 1963 fyrir austan land en allir skipverjar björguðust.

Þá eru margar myndir fallegum skipum sem Vigfús Markússon stýrimaður á Rifsnesi sendi blaðinu. Einnig eru myndir frá hátíðarhöldum sjómannadagsins 2025. Það eru margar fleiri greinar sem prýða blaðið. Þá eru vísurnar á sínum stað eftir Guðjón Jóhannesson bónda í Ytri Knarrartungu. Nú hefur Ólína Gunnlaugsdóttir á Ökrum bæst í hópinn.

Blaðið er 92 síður og allt í lit. Það verður borið hús í Snæfellsbæ nk fimmtudag og einnig í Stykkishólmi. Ritstjóri er Pétur Steinar Jóhannsson. Blaðið er brotið um í Steinprent í Ólafsvík.

Blaðið verður til sölu Kaffihúsinu Norðurbakka í Hafnarfirði og hjá Gleraugna Pétri á Garðatorgi 4a í Garðabæ.

- fyrir öll heimsins höf

Safnskipið Óðinn til Grundarfjarðar

Dagskrá

heimsóknar 4. til 6. júní 2026

Fimmtudagur 4. júní

11:00 Brottför frá Reykjavík. Hádegisv, 12:00-13:00, ka 15:30-16:30, kvöld.v. 18:00-19:00

20:00 Komið til Grundar arðar og lagst við akkeri.

Föstudagur 5. júní.

07:30-08:30 Morgunverður.

09:00 Verkfundur áhafnar.

09:30 Akkeri létt.

10:00-10:30 Minningarathöfn á Grundar rði.

11:00 Lagst að bryggju í Grundar rði, móttaka gesta.

12:00-13:00 Háegismatur í landi.

15:30-18:00 Skipið almenningi til sýnis. Vegna öryggis fólks er öldi takmarkaður við 50 gesti um borð hverju sinni. Það tekur um 30-40 mínútur að fara í gegn um skipið. Farin er ákveðin leið: Upp á stjórnborðs brúarvæng á A-dekk, í gegn um brú og bestik, síðan niður á B-dekk í forsetaíbúð og skipherraherbergi, þá niður á C-dekk; hásetagang, sjúkraklefa, messa, eldhús og vélareisn. Þá aftur bakborðsgang aftur á skut og upp á þyrludekk. Við viljum að gestir njóti verunar um borð, en biðjum þá jafnframt um að halda áfram og safnast ekki saman svo ekki myndist stí ur á leiðinni og sem estir komist að. Menn úr áhöfninni verða á eftirtöldum stöðum: Við landgang til að stýra ölda um borð, við stiga upp á brúarvæng, brú og bestikki, loftskeytaklefa, forsetaíbúð, hásetagangi og sjúkraklefa, messum og eldhúsi, velareisn.

19:00-20:00 Kvöldmatur í landi. Legið við bryggju í Grundar rði um nóttina.

Laugardagur 6. júní.

07:30-08:30 Morgunverður 09:00 Brottför frá Grundar rði. Hádegisv. 12:00-13:00, ka 15:30-16:30. Komið til R.víkur um kl 18:00. Kvöld óð 22:34.

V/s Óðinn undan Vébjarnarnúp í Ísa arðardjúpi þar sem hann háði sína hörðustu baráttu 5. - 6. febrúar 1968. Ljósmynd: Jón Páll Ásgeirsson.

Ellefti grænfáninn til Lýsudeildar

Lýsudeild Grunnskóla Snæfellsbæjar tókst að fá sinn ellefta Grænfána þann 20. maí síðastliðinn. Grænfáninn er merki um að skólinn standi sig vel í umhverfismálum og er tákn um árangursríka menntun til sjálfbærni og umhverfisstefnu í skól-

um. Fáninn er afhentur til tveggja ára í senn og þurfa skólar því að vinna stöðugt að því að halda honum. Grænfáninn er útbreiddasta viðurkenning sinnar tegundar í heiminum en samtökin Foundation for Environmental Education (FEE) halda utan um starfsemina.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.

Tímapantanir í síma 436-1111

Skólar þurfa að velja sér tvö þemu sem þau vinna eftir til tveggja ára en þemu Lýsudeildar síðustu tvö árin voru hnattrænt réttlæti og átthagar og landslag. Gamli græn

inn niður og sá nýi dreginn að húni. Í framhaldinu velur deildin sér ný þemu í verkefninu sem þau vinna að næstu árin. JJ

ur af átta stórum ljósmyndum af íslenska refnum í sínu náttúrulega umhverfi efitr ljósmyndarann Phil Garcia. Ljósmyndirnar veita einstaka innsýn í líf þessa harðgerða dýrs í íslenskri náttúru og skapa um leið vettvang til samtals og fræðslu um refinn og stöðu hans á Íslandi. Phil Garcia er franskur atvinnuljósmyndari búsettur á Flateyri en ljósmyndir hans hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenningar og verið sýndar á helstu náttúruljósmyndahátíðum Evrópu. Frá árinu 2013 hefur Phil rannsakað og skráð harðbýlt líf heimskautarefsins á Íslandi. Í tilefni af sýningaropnuninni var Ester Rut Unnsteinnsdóttir, spendýravistfræðingur, með erindi um íslenska refinn. Ester starfar hjá Náttúrufræðistofu Ís-

um í nærri 30 ár og tók meðal annars þátt í því að stofna Melrakkasetrið á Súðavík árið 2010. Ester hefur unnið náið með Phil Garcia sem og öðrum ljósmyndurum og heimildamyndagerðarfólki í gegnum árin í verkefnum tengdum refnum. Saman hafa þau Ester Rut og Phil Garcia, ásamt Rán Flygenring gefið út bókina Melrakki, the Surviving Arctic Fox, sem telst vera helsta heimildarritið um heimskautarefinn á Íslandi.

Sýning Phil Garcia mun standa í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi til 23. júní og fæst bókin þeirra, Melrakki, einnig í báðum gestastofum Snæfellsjökulsþjóðgarðs. SJ

18. - 31. maí

Góður afli hefur borist að landi í höfnunum undanfarið, eitthvað hefur dregið úr línuveiðinni og hafa nokkrir bátar farið suður í Faxaflóa í leit að meiri afla þar. Ólafur Bjarnason og Esjar hafa verið að veiða Steinbít og kola fyrir vestan og landað góðum afla þar, Ólafur á Þingeyri en Esjar á Patreksfirði. Hildur fór tvær ferðir vestur og veiddi vel. Annars eru dragnótarbátarnir farnir að fara í sumarfrí, þegar þessi orð eru skrifuð eru allavega 4 komnir í frí. Strandveiðarnar ganga vel og fjöldii báta eru á miðunum.

Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5):

Dragnót: Steinunn 142 tonn í 6 lönd. Magnús 113 tonn í 6 löndunum. Saxhamar 74 tonn í 5 löndunum.

Egill 54 tonn í 5 löndunum. Hildur 46 tonn í 2 löndunum.

Net:

Bárður SH-81 56 tonn í 4 lönd. Bárður SH-811 18 tonn í 5 lönd. Júlli Páls 3 tonn í 1 löndun.

Lína: Rifsnes 172 tonn í 4 löndunum. Tjaldur 158 tonn í 2 löndunum. Kristinn 84 tonn í löndunum. Indriði Kristins 70 tonn í 8 lönd. Stakkhamar 45 tonn í 6 lönd.

Handfæri: Sædís 6,5 tonn í 6 löndunum. Kóni 5,5 tonn í 5 löndunum. Birta 5,3 tonn í 5 löndunum. Hugrún Fjóla 5,2 tonn í 7 lönd. Falkvard 4,8 tonn í 6 löndunum.

ÞB

Starfsfólk hafna Snæfellsbæjar sendir sjómönnum

og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur á sjómannadaginn.

Útieldhús á Kríubóli

Fljótlega eftir áramót kviknaði sú hugmynd hjá Helgu Maríu, deildarstjóra á yngstu deildinni á Kríubóli, að gaman væri að hafa samband við Hörð, smíðakennara í Grunnskóla Snæfellsbæjar, og athuga hvort hann og nemenda hópur hans hefðu áhuga á sam starfi við leikskólann. Hörður tók mjög vel í hugmyndina og var snöggur að hrinda henni í fram kvæmd.

Um er að ræða samfélagslegt verkefni þar sem einn af nem endahópum hans fékk tækifæri til að smíða útieldhús sem stað sett yrði á leikskólalóðinni. Fyrir myndin kom frá öðrum leikskóla sem áður hafði farið í sambæri legt samstarf með góðum árangri. Hörður fékk hóp nemenda í 7. bekk með sér í verkefnið og lögðu þau ásamt honum mikla vinnu í hönnun og smíði útieldhússins. Hugsað var út í öll smáatriði og um er að ræða fullbúið eldhús með öllum helstu nauðsynjum, svo sem vaski, helluborði, ofni, diskum, bollum, brauðbrettum, brauði og fleiru.

Hörður og nemendahópurinn komu færandi hendi á Kríuból þann 27. maí síðastliðinn og afhentu eldhúsið. Það fékk strax góðan stað á leikskólalóðinni þar sem það mun án efa hvetja til fjölbreyttra og skemmtilegra

hlutverkaleikja utandyra. Eldhúsið var tekið í notkun samstundis og leikgleðin allsráðandi meðal barnanna.

Starfsfólk og börn á Kríubóli viljja færa Herði og nemendum hans kærar þakkir fyrir einstak-

lega skemmtilegt samstarf og frábæra lokaútkomu. Útieldhúsið mun án efa auðga leik barnanna og veita leikskólabörnum á Kríubóli gleði um ókomin ár.

06.00

Barre Burn í CF SNB

12.05 WOD í CF SNB

16.00 - 18.00 Happy Hour á Sker Restaurant

18.30 Skemmtisigling frá Ólafsvík. Matthías, Egill, Steinunn og Saxhamar. Eftir siglingu: Sjómannagarðurinn í Ólafsvík, grillveisla í boði Sjómannadagsráðs. Hoppukastalar fyrir börnin.

20.00 - 23.00 Birgir Olgeirsson spilar lifandi tónlist í sjómannagarðinum í Ólafsvík, kaldur á krana.

09.00 PartnerWod í CF SNB

10.00 Barre Burn í CF SNB

11.00 Dorgveiðikeppni á Norðurgarði í Ólafsvík í umsjá SJÓSNÆ

Grillveisla í boði Kassans eftir keppni.

13.00 Höfnin á Rifi:

Liðakeppni, kappróður, reiptog og flekahlaup

Skráning í keppnisgreinar

hjá Höskuldi s. 690 293 og Gylfa s. 894 0421

Ís í boði B. Vigfússonar fyrir þátttakendur flekahlaups

Fiskisúpa í boði Sjómannanefndar

Hoppukastalar

13.00 - 15.00 Snæfells-Kayak bjóða öllum að koma og prófa kayak

í fjörunni hjá prammanum

15.30 Víkingur tekur á móti Kára í Vesturlandsslag á Ólafsvíkurvelli

16.00 - 18.00 Happy Hour á Sker Restaurant

19.30 Húsið opnar

20.00 Sjómannahóf hefst

Matur frá Galito

Veislustjóri er Freyr Eyjólfsson

Sjómannskonur heiðraðar

Minni sjómanna

Áskorendakeppni sjómanna

23.30

Sjómannaball í Félagsheimilinu Klifi

Hljómsveitin Babies flokkurinn, 18 ára aldurstakmark.

Miðaverð 3.000, snyrtilegur klæðnaður

Rútuferðir verða frá Hellissandi og Rifi

08.00

Fánar dregnir að húni 11.00

Sjómannamessa að Ingjaldshóli 14.00 Í Sjómannagarðinum á Hellissandi

Hátíðarræða

Sjómenn heiðraðir

08.00

Fánar dregnir að húni 13.00 Í Sjómannagarðinum í Ólafsvík

Hátíðarræða

Söngur milli atriða

Sjómenn heiðraðir 14.00

Sjómannamessa í Ólafsvík

10.00

Barre Burn í CF SNB 14.00 - 16.00 Sjómannakaffi Slysavarnadeildanna Helgu Bárðardóttur og Sumargjafar í Björgunarstöðinni Von.

ALLA HELGINA

Gilbakki kaffihús, opið 11-17. Brauðtertur og rækjubrauð. Pakkhús - Saga og kaffi, opið 9-16

Elja kaffihús, opið 9.30 - 17

Sólarsport, frítt fyrir sjómenn og sjómannskonur alla helgina.

Sveinbjörn Jakobsson SH-10

Hildur SH-777

Soffanías Cecilsson ehf. Landsbankinn hf. Guðbjartur ehf. Deloitte ehf. Litlalón ehf. Dudda ehf. Hraðfrystihús Hellissands hf. Útgerðarfélagið haukur ehf. Balatá ehf.

Sjávariðjan Rifi hf.

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. Útgerðarfélagið Dvergur hf. Fiskmarkaður Íslands ehf.

Nesver ehf.

Sandbrún ehf.

Bárður SH 81 ehf.

Birta BA

KG Fiskverkun ehf.

Bjartsýnn ehf.

Kvika ehf.

Steinunn SH.

Særif SH.

Tryggvi Eðvarðs SH-2 Hilmar afi SH-124 Kári III SH-219. Nónvarða ehf. Smiðjan Fönix ehf. Skarðsvík ehf. Akraborg ehf. Hampiðjan Ísland ehf. Útgerðarfélagið Guðmundur ehf. Hafnarsjóður Snæfellsbæjar Breiðavík ehf. Hraunskarð ehf. Rabbi ehf.

Kristinn J. Friðþjófsson ehf. Útnes ehf.

Skeljungur

Ingibjörg ehf.

Kristborg SH. Ragnar og Ásgeir ehf.

Sker restaurant

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1210tbl by Steinprent - Issuu