Skip to main content

BaejarbladidJokull1209tbl

Page 1


Gáfu augnlampa og hjartasírita

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands afhentu Heilbrigðisstofnunin Vesturlands veglega gjöf á dögunum. Með myndarlegum framlögum til söfnunar samtakanna gátu þau afhent augnlampa eða raufarlampa til heilsugæslunnar í Ólafsvík og Holter hjartasírita til starfssvæðis HVE. Hjónin Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir færðu söfnuninni höfðinglegt framlag að fjárhæð 2 milljónum króna og sveitarfélagið Snæfellsbær lagði einnig fram 300 þúsund krónur til verkefnisins. Af því tilefni var augnlampinn afhentur formlega á heilsugæslunni í Ólafsvík föstudaginn 22. maí að viðstöddum fulltrúum Hollvinasamtakanna, starfsfólki HVE og styrktaraðilum. Augnlampi eða raufarlampi er nákvæmt greiningartæki sem notað er til að skoða fremri hluta augans, meðal annars hornhimnu, lithimnu og augastein. Með slíkum búnaði er hægt að greina augnsjúkdóma og breytingar á auganu fyrr og með meiri nákvæmni, sem bætir þjónustu við sjúklinga á svæðinu. Sævar Freyr Þráinsson, formaður Hollvinasamtaka HVE segir Hollvinasamtökin einstaklega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem samfélagið sýnir Hollvinasamtökunum og HVE. Þessi framlög skipta verulegu máli fyrir heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi og gera samtökunum kleift að styðja við mikilvægan tækjabúnað sem nýtist bæði starfsfólki og sjúklingum um ókomin ár. Á aðalfundi Hollvinasamtakanna í mars síðastliðnum var samþykkt

Á myndinni eru Ástþór Vilmar Jóhannsson, Svanfríður Kristjánsdóttir, starfsmaður heilsugæslunnar í Ólafsvík, Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir, styrktaraðilar, Sævar Freyr Þráinsson formaður hollvinasamtaka HVE, Þrúður Halla, Patryk Zolobow og Birna Dröfn Birgisdóttir, starfsmenn heilsugæslunnar í Ólafsvík, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá HVE, Regína Ösp Ásgeirsdóttir, starfsmaður heilsugæslunnar í Ólafsvík, Kristjana Hermannsdóttir sem situr í stjórn Hollvinasamtaka HVE og fulltrúi Snæfellsness og Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir, forstjóri HVE.

að næsta söfnunarverkefni samtakanna yrði kaup á augnlampa fyrir Ólafsvík og fjórum Holter hjartasíritum sem nýtast munu um allt starfssvæði HVE.

Hollvinasamtökin hvetja áfram fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga til að taka þátt í verkefninu og styðja við áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi en hægt er að gerast félagsmaður Hollvinasamtakanna og greiða árgjald að upphæð 3.000 krónum á Facebook síðu Hollvinasamtakana sem ber nafnið Vesturlandsvaktin.

Rafmagnslaust aðfaranótt

Aðfaranótt föstudagsins 29. maí n.k. hyggst Landsnet fara í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir í tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rarik í Vatnshömrum. Af þessum sökum mun verða rafmagnslaust á stóru svæði í u.þ.b. 2 klst., eða frá kl. 00:10-02:10 þessa nótt. Svæðið sem um ræðir er allt Snæ -

fellsnes og Borgarfjörður, þ.m.t. Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Hellissandur, Vegamót og Borgarnes. Rarik hvetur viðskiptavini sína á svæðinu til að gera viðeigandi ráðstafanir sé þess þörf.

Meðfylgjandi er kort af því svæði sem um ræðir og verður rafmagnslaust í u.þ.b. 2 klst.

Landsbankinn í Snæfellsbæ 50 ára

Nú í vor eru liðin 50 ára frá því að útibú Landsbankans í Snæfellsbæ hóf starfsemi sína. Í tilefni þess bauð Landsbankinn gestum og gangandi í afmælisveislu í útibúinu í Ólafsvík þriðjudaginn 26. maí.

Boðið var upp á kaffi og veitingar, farið yfir sögu Landsbankans í máli og myndum og Eyþór Ingi mætti á svæðið og skemmti gestum. Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans flutti ávarp og þakkaði meðal annars starfsfólki útibúsins fyrir gott starf. Í máli Lilju kom fram að mjög hátt hlutfall einstaklinga og fyrirtækja á Snæfellsnesi eru í viðskiptum hjá bankanum, má það án efa þakka öflugu og lausnamiðuðu starfsfólki útibús-

ans þennan dag þegar bæjarbúar fögnuðu 50 árum af þjónustu Landsbankans í sveitarfélaginu. SJ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Ræða Víglundar Jónssonar

Flutt við opnun útibús Landsbankans

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

ar á þessari vertíð sem senn er lokið verðum við að vona að hér sé um tímabundna erfiðleika að ræða, enda hafa hér ráðið um erfitt tíðarfar og

Við sem byggjum þessi útnesja þorp verðum fyllilega að gera okkur það ljóst að lífsafkoma okkar byggist öll á því sem við fáum úr sjó, þess vegna ber okkur að standa saman um öll fiskverndunarsjónarmið. Í því sambandi vil ég minnast lítillega á þá framsýni sem Breiðfirðingar sýndu árið 1968 þegar útgerðarmenn og sjómenn við Breiðafjörð fengu Sjávarútvegsmálaráðuneytið og Hafrannsóknastofnunina til þess að friða allt árið fyrir netum og togveiðarfærum innhluta Breiðafjarðar. Sem sagt innan línu sem hugsast dreginn úr Skor í Eyrarfjall.

Ég ætla ekki að fara frekar útí fiskifræðina en vildi að þetta kæmi hér fram, því óumdeilanlega hlýtur að fara saman í svona sjávarþorpum, afkoma ajávarútvegsins og þeirra lánastofnana sem lána fé til reksturs og framleiðslu.

Alstaðar um landið þar sem hefur verið komið upp bankaútibúum og þá hvað helst Landsbankans, hafa orðið gjörbreytingar í framleiðslu og félagslegum viðskiptum.

Þau þorp sem hafa fengið þessa fjárhagslegu þjónustu hafa gjörsamlega skipt um svip til velmegunarframfara og menningar.

Með þjóðbanka innan hvers byggðarlags skapar það fólkinu fjárhagslegt traust og bjartari vonir um ókomin ár. Víglundur Jónsson

frammi

Útskrifað úr Fjölbrautaskólanum

Fertugasta og önnur útskriftarathöfn Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði fór fram 22. maí í hátíðarsal skólans. 19 nemendur útskrifuðust við hátíðlega athöfn en nú hafa 640 nemendur lokið námi frá skólanum frá stofnun hans árið 2004. Á vorönn voru tæplega 260 nemendur skráðir í nám við FSN og af þessum hópi voru 188 nemendur sem stunduðu fjarnám og 70 nemendur sem stunduðu staðnám í Grundarfirði. Um jólin útskrifuðust fimm nemendur frá skólanum en vegna þess hve fáir útskriftarnemendur voru var þeim boðið að mæta til hátíðarinnar 22. maí og voru tveir útskriftarnemendur frá því í desember með hópnum. Nemendur sem luku námi nú í vor voru því 17 og útskrifuðust af fimm mismunandi brautum. 6 nemendur luku námi á félags- og hugvísindabraut, 6 á náttúru- og raunvísindabraut, 2 nemendur á opinni braut, 2 nemendur luku námi af íþróttabraut og 1 nemandi lauk viðbótar-

námi til stúdentsprófs. Hrafnhild ur Hallvarðsdóttir, skólameistari, brautskráði nemendur og var það Eyrún Lilja Einarsdóttir sem hlaut hæstu einkunn útskriftarnema í ár. Á meðfylgjandi mynd er útskriftarhópurinn ásamt Agnesi

Helgu Sigurðardóttur, námsráðgjafa og Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skólameistara. SJ

Öflugt krakkastarf GJÓ

Á aðalfundi Golfklúbbsins Jökuls þann 1. mars var ákveðið að koma á fót barnaog unglingastarfi innan klúbbsins. Fyrsta verkefnið í umræddu barna- og unglingastarfi var að halda helgarnámskeið fyrir yngstu kynslóðina. Síðastliðnar tvær helgar hefur Katrín Dögg, PGA kennari, komið vestur og haldið námskeið fyrir iðkendur í 1. til 10. bekk. 24 krakkar á grunnskólaaldri tóku þátt í námskeiðinu og var markmiðið var að kveikja áhuga og undirbúa ungmennin fyrir komandi golfsumar. Farið var yfir járna-

högg, upphafshögg, vipp og pútt í golfherminum á Rifi og endaði námskeiðið svo á Fróðárvelli í blíðskaparveðri þar sem spilaðar voru nokkrar holur undir leiðsögn Katrínar. Stjórn barna og unglingastarfs GJÓ, HG lagnir og Sjoppan sáu til þess að námskeiðið varð að veruleika og stóð börnum og ungmennum til boða að kostnaðarlausu. Stefnt er á að geta boðið upp á fleiri námskeið í sumar fyrir börn og ungmenni og auka þannig enn frekar fjölbreytni í íþrótta og tómstundastarfi sem stendur börnum í Snæfellsbæ til boða. SJ

Birkir Jón Jónsson nýr bæjarstjóri Grundarfjarðar

Í tilkynningu frá Framsókn og félagshyggjufólki, sem fór með sigur úr býtum í sveitarstjórnarkosningum í Grundarfjarðarbæ, kom fram að samkomulag hafi náðst um að Birkir Jón Jónsson verði næsti bæjarstjóri Grundarfjarðar. Birkir er fæddur árið 1979 og er uppalinn á Siglufirði. Hann var meðal annars aðstoðarmaður félagsmálaráðherra árin 2000 til 2003 en sveitarstjórnarmál heyrðu undir það ráðuneyti. Hann sat á Alþingi frá 2003 til 2013, var í bæjarstjórn Fjallabyggðar 2006 til 2010 og í bæjarstjórn Kópavogs 2014 til 2022 auk þess að vera formaður bæjarráðs þar 2018 til 2022. Listinn telur að Birkir Jón búi yfir þeim leiðtogahæfileikum, yfirvegun og framtíðarsýn sem þurfi til að leiða Grundarfjörð inn í næsta kafla uppbyggingar og framfara. í tilkynningunni segir að Birkir leggi áherslu á opið samtal við íbúa, gott samstarf innan stjórnsýslunnar og markvissa vinnu að þeim verkefnum sem skipta samfélagið mestu máli.

Á sama tíma færir listinn fráfar-

andi bæjarstjórn og bæjarstjóra, Björgu Ágústsdóttur, sérstakar þakkir fyrir þeirra ötullega starf í þágu Grundarfjarðar undanfarin ár og líta bjartsýn fram á veg-

inn. Framsókn og félagshyggjufólk eru staðráðin í að leggja sig fram af ábyrgð og krafti fyrir Grundarfjörð á komandi kjörtímabili. Meðfylgjandi mynd er af

lista Framsóknar og félagshyggjufólks og Birki Jóni, nýráðnum bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar. SJ

„Einvígi aldarinnar“ í Klifi

Einvígi aldarinnar fór fram í Fé lagsheimilinu Klifi föstudaginn 22. maí síðastliðinn. Einvígi aldar innar er árlegt taflmót Taflfélags Snæfellsbæjar þar sem ungir skák menn mæta þeim eldri. Barna og unglingasveit Taflfélags Snæfells bæjar keppti á móti liði Vagns Ing ólfssonar sem var skipað reynslu boltum en hann fékk líka góðan liðsauka þegar Vignir Vatnar, stór meistari í skák, gekk til liðs við liðið. Góð þátttaka var á mótinu og lauk einvíginu lauk með sigri hjá eldra liðinu en fyrir ári síð an vann barna og unglingasveit Taflfélags Snæfellsbæjar einvígið. Að mótinu loknu var boðið upp á pizzur frá Sker og veitt verð laun fyrir efstu þrjú sætin í eldri son í 1. sæti í unglinga og barna- 26. Sigurður Scheving segir í til-

Grænfánaverkefni á Sólvöllum

Í upphafi skólaárs hóf leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði vinnu í grænfánaverkefni Landverndar. Verkefnið er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er skólum sem standa sig vel í umhverfismálum. Sólvellir byrjuðu á að setja saman nefnd í upphafi skólaársins sem skipuð var börnum og starfsfólki og var farið yfir stöðuna og sett markmið fyrir skólaárið.

Nú þegar skólaárið er að líða undir lok var svo kominn tími til að fara yfir stöðuna og var því sest niður á fund til að sjá hvernig til tókst. Mörg verkefni hafa verið í gangi í vetur sem tengjast grænfánaverkefninu á leikskólanum. Útikennsla hefur aukist á öllum deildum, starfsfólk og börn hafa verið meðvituð um matarsóun, að skammta rétt á diska og um hvernig rusl

er flokkað auk þess að vanda sig að flokka í réttar tunnur og að spara rafmagn með því að slökkva ljós í þeim rýmum sem ekki eru í notkun. Síðan en ekki síst eru þau með gróðurhús sem er orðið ansi líflegt og vonast þau til að fá góða uppskeru í haust. Í gróðurhúsinu er meðal annars verið að rækta tómata, gúrku, papriku og úti er ræktað kartöflur. Inn af gróðurhúsinu er svo hænsnakofi þar sem fjórar hænur skipa stóran þátt í starfinu á Sólvöllum, en þær fá bæði matarafganga og gefa egg.

Það má því með sanni segja að fyrsta árið hjá Sólvöllum í Grænfánaverkefninu hafi gengið vel og við hlakka bæði börn og starfsmenn til að halda áfram næsta haust og uppskera því sem sáð var nú á vormánuðum.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.

Tímapantanir í síma 436-1111

Á dögunum fengu aðstandendur Ólafsvíkurréttar fjögur borð sem keypt voru fyrir styrk frá Snæfellsbæ.

Síðan árið 2014 hefur Guðrún Tryggvadóttir staðið að átaksverkefni sem varðar endurhleðslu réttarinnar ásamt Lydíu Rafnsdóttir og Sölva Konráðssyni. Ari Jóhannesson hleðslumeistari hefur staðið vaktina með þeim ásamt fjölda sjálfboðaliða. Þá hefur réttin ver-

ið endurhlaðin einn dilk í einu og þann 12 október 2025 var endanlegur frágangur kláraður og upplýsingaskjöldur settur upp. Með tilkomu nýrra bekkja er staðsetningin orðinn að enn fýsilegri áningastað en umhverfið býður upp á mikla möguleika í útiveru og tengingu við náttúruna og nú er hægt að koma sér vel fyrir í lautarferð í leiðinni. SJ

ar munu nú æfa stíft því ætlunin sé að vinna titilinn til baka að ári.

Útskrift af Leikskólum Snæfellsbæjar

Miðvikudaginn 20. maí síðastliðinn fór fram hátíðleg útskrift elstu barna í leikskóla Snæfellsbæjar. Athöfnin var að þessu sinni haldin í safnaðarheimili Ingjaldshólskirkju og útskrifuðust 21 barn. Daginn eftir fór hópurinn svo í útskriftarferð en nánar verður fjallað um hana í næsta blaði. Í haust munu börnin fara yfir á næsta skólastig og hefja nám í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Starfsmenn Leikskóla Snæfellsbæjar óska börnunum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar á næsta skólastigi.

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-54

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins lagðist við bryggju við Norðurgarð í Grundarfjarðarbæ sunnudaginn 17. maí. Skipið ber nafnið Fridtjof Nansen og er um 140 metrar á lengd. Um borð voru 530 farþegar og 150 áhafnarmeðlimir. Rútur biðu hluta farþeganna þegar þeir komu í land sem fóru með þá í útsýnisferðir um Snæfellsnes á meðan aðrir fóru í göngutúra um

bæinn og nágrenni hans. Mikið líf var í bænum þennan sunnudagsmorgun enda veðrið milt og gott fyrir útiveru. Rúmlega 80 skemmtiferðaskip hafa boðað komu sína til Grundarfjarðar í sumar og mun það síðasta leggjast að bryggju í lok september ef öll plön ganga eftir.

búa nýjan golfvöll við flugvöllinn á Rifi frekar enn að eyða frekara púðri í að viðhalda Fróðárvelli sem hefur verið í notkun hjá félaginu síðan 1980. Framkvæmdateymi Rifsvallar, sem samanstendur af Jóni Bjarka Jónatanssyni, Rögnvaldi Ólafssyni og Hirti Ragnarssyni ásamt öðrum sjálfboðaliðum, hafa unnið hörðum höndum við að búa til 9 holu golfvöll. Vallarsvæði sem er á mun betri stað hvað varðar skjól í ríkjandi vindáttum á svæðinu auk þess sem nálægðin við Snæfellsjökul gerir staðsetninguna áhugaverðari en þá á Fróðárvelli. Margir hafa komið að þeirri miklu vinnu sem nú hefur far-

tók framkvæmdateymi Rifsvall ar ákvörðun um að opna völlinn fyrir spilun föstudaginn 22. maí síðastliðinn. Opnunin að þessu sinni er eingöngu fyrir félagsmenn Golfklúbbsins Jökuls og er skylt að skrá rástíma í Golfbox. Formleg opnun á vellinum verður svo að ári, sumarið 2027. Framkvæmdir á vellinum ganga vel en ýmislegt þarf ennþá að gera. Fjöldi félagsmanna hefur nú þegar farið golfhring á nýja vellinum og eiga öll það sameiginlegt að hrósa vellinum í hástert og golfarar í öðrum félögum bíða spenntir eftir að fá tækifæri til að spreyta sig á glæsilegum Rifsvelli. SJ

06.00

Barre Burn í CF SNB

12.05 WOD í CF SNB

16.00 - 18.00 Happy Hour á Sker Restaurant

18.30 Skemmtisigling frá Ólafsvík. Matthías, Egill, Steinunn og Saxhamar. Eftir siglingu: Sjómannagarðurinn í Ólafsvík, grillveisla í boði Sjómannadagsráðs. Hoppukastalar fyrir börnin.

20.00 - 23.00 Birgir Olgeirsson spilar lifandi tónlist í sjómannagarðinum í Ólafsvík, kaldur á krana.

09.00 PartnerWod í CF SNB

10.00 Barre Burn í CF SNB

11.00 Dorgveiðikeppni á Norðurgarði í Ólafsvík í umsjá SJÓSNÆ

Grillveisla í boði Kassans eftir keppni.

13.00 Höfnin á Rifi:

Liðakeppni, kappróður, reiptog og flekahlaup

Skráning í keppnisgreinar

hjá Höskuldi s. 690 293 og Gylfa s. 894 0421

Ís í boði B. Vigfússonar fyrir þátttakendur flekahlaups

Fiskisúpa í boði Sjómannanefndar

Hoppukastalar

13.00 - 15.00 Snæfells-Kayak bjóða öllum að koma og prófa kayak

í fjörunni hjá prammanum

15.30 Víkingur tekur á móti Kára í Vesturlandsslag á Ólafsvíkurvelli

16.00 - 18.00 Happy Hour á Sker Restaurant

19.30 Húsið opnar

20.00 Sjómannahóf hefst

Matur frá Galito

Veislustjóri er Freyr Eyjólfsson

Sjómannskonur heiðraðar

Minni sjómanna

Áskorendakeppni sjómanna

23.30

Sjómannaball í Félagsheimilinu Klifi

Hljómsveitin Babies flokkurinn, 18 ára aldurstakmark.

Miðaverð 3.000, snyrtilegur klæðnaður

Rútuferðir verða frá Hellissandi og Rifi

08.00

Fánar dregnir að húni 11.00

Sjómannamessa að Ingjaldshóli 14.00 Í Sjómannagarðinum á Hellissandi

Hátíðarræða

Sjómenn heiðraðir

08.00

Fánar dregnir að húni 13.00 Í Sjómannagarðinum í Ólafsvík

Hátíðarræða

Söngur milli atriða

Sjómenn heiðraðir 14.00

Sjómannamessa í Ólafsvík

10.00

Barre Burn í CF SNB 14.00 - 16.00 Sjómannakaffi Slysavarnadeildanna Helgu Bárðardóttur og Sumargjafar í Björgunarstöðinni Von.

ALLA HELGINA

Gilbakki kaffihús, opið 11-17. Brauðtertur og rækjubrauð. Pakkhús - Saga og kaffi, opið 9-16

Elja kaffihús, opið 9.30 - 17

Sólarsport, frítt fyrir sjómenn og sjómannskonur alla helgina.

Sveinbjörn Jakobsson SH-10

Hildur SH-777

Soffanías Cecilsson ehf. Landsbankinn hf. Guðbjartur ehf. Deloitte ehf. Litlalón ehf. Dudda ehf. Hraðfrystihús Hellissands hf. Útgerðarfélagið haukur ehf. Balatá ehf.

Sjávariðjan Rifi hf.

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. Útgerðarfélagið Dvergur hf. Fiskmarkaður Íslands ehf.

Nesver ehf.

Sandbrún ehf.

Bárður SH 81 ehf.

Birta BA

KG Fiskverkun ehf.

Bjartsýnn ehf.

Kvika ehf.

Steinunn SH.

Særif SH.

Tryggvi Eðvarðs SH-2 Hilmar afi SH-124 Kári III SH-219. Nónvarða ehf. Smiðjan Fönix ehf. Skarðsvík ehf. Akraborg ehf. Hampiðjan Ísland ehf. Útgerðarfélagið Guðmundur ehf. Hafnarsjóður Snæfellsbæjar Breiðavík ehf. Hraunskarð ehf. Rabbi ehf.

Kristinn J. Friðþjófsson ehf. Útnes ehf.

Skeljungur

Ingibjörg ehf.

Kristborg SH. Ragnar og Ásgeir ehf.

Sker restaurant

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook