Skip to main content

BaejarbladidJokull1208tbl

Page 1


s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Kajakræðarar tjölduðu í fjörunni

- Bílaviðgerðir

- Skipaþjónusta

- Almenn suðuvinna

- Smurþjónusta

- Smábátaþjónusta

- Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Lionsklúbbur Ólafsvíkur mun í ár, eins og undanfarin ár, bjóða upp á fermingarskeyti. Fermt verður 24. maí í Ingjaldshólskirkju og Ólafsvíkurkirkju.

Hægt er að nálgast skeytapöntunarblöð í Kassanum og á Facebook-síðu Lionsklúbbs Ólafsvíkur Í Kassanum er hægt að skila skeytapöntunum en að auki er hægt að senda skeytapöntun í tölvupósti á stebbifera@gmail.com

Sveitarstjórnarkosningar afstaðnar

Flokkur Framsóknar og félagshyggjufólks sigraði sveitarstjórnarkosningar í Grundarfjarðarbæ. Ljóst er að miklar breytingar verða í bæjarstjórn en B-listi framsóknar og félagshyggjufólks hlaut 56% fylgi og fær fjóra bæjarfulltrúa. D-listi Sjálfstæðisflokksins og óháðra hlaut 44% fylgi og fær þrjá bæjarfulltrúa. Kjörsókn í Grundarfirði var 73,3% sem telst gott. Í yfirlýsingu frá B-listanum vilja frambjóðendur þakka bæjarbúum traustið sem þeim var sýnt. Þau telja að kosningarnar sýni að íbúar vilja öflugt og jákvætt samstarf með hagsmuni bæjarfélagsins að leiðarljósi og munu þau taka því verkefni með auðmýkt, ábyrgð og af miklum metnaði. Í yfirlýsingu frá D-listanum kemur fram að listinn gangi stoltur frá kosningabaráttunni en þau telja sig hafa háð heiðarlega, málefnalega, öfluga og bjartsýna baráttu. Þau taka fram að kjörtímabilið sé rétt að hefjast og að kjósendur hafi veitt þeim umboð fyrir þremur kjörnum fulltrúum í bæjarstjórn sem munu vinna að þeirra stefnumálum og að þeirri framþróun sem þau telja að sveitarfélagið þarfnist. Með þessum úrslitum úr kosningabaráttunni í Grundarfirði hefur Björg Ágústsdóttir, núverandi bæjarstjóri sveitarfélagsins tilkynnt að á næstu dögum muni

stjóri en hún kveður starfið með stolti og þakklæti. Flokkur Framsóknar og félagshyggjufólks vinnur nú að ráðningu nýs bæjarstjóra en að sögn Fannars Þórs Þorfinnssonar, oddvita flokksins, er það ferli núna á síðustu metrunum og verður bæjarstjóraefnið kynnt á næstu dögum.

Kjördagur í Snæfellsbæ var með óhefðbundnu sniði í þetta sinn en íbúar fengu ekki að fara á kjör stað til þess að nýta kosningar rétt sinn. Eins og komið hefur fram var aðeins einn listi í fram boði og var hann því sjálfkjörinn. Þrátt fyrir það bauð D-listinn í

Fyrsti sigur í deildinni í sumar

Víkingur Ólafsvík tók á móti Dalvík/Reyni á Ólafsvíkurvelli síðastliðinn laugardag í 2. deild karla í fótbolta. Norðanmenn skoruðu fyrsta mark leiksins á 26. mínútu en Naim Aaras El Hmaidi jafnaði leikinn á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Víkingar komu tvíefldir úr klefanum inn í seinni hálfleik, stað -

ráðnir í að landa sigri. Kolbeini Tuma Sveinssyni tókst að skora fyrir Víking Ó. á 65. mínútu og var það lokamark leiksins. Þetta var fyrsti sigur liðsins í deildinni í sumar en næsti leikur Víkings er á móti Fjölni í Egilshöll laugar daginn 23. maí klukkan 14:00.

Klifi og voru um 200 bæjarbúar sem þáðu boðið. Glæsilegt köku-

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði, Blaðið kemur út vikulega.

hlaðborð var á boðstólum og fór enginn svangur heim.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

bæjar kom í sína árlegu heimsókn á Jaðar á dögunum. Veronica Osterhammer stjórnaði kórnum og Nanna Aðalheiður Þórðardóttir spilaði undir á píanó. Skólakórinn hefur haft það að venju að halda tónleika á hjúkrunarheimilinu stuttu áður en þau halda vortónleika en það eru síðustu tón-

lega þrjátíu nemendur sem sungu ljúfa tóna fyrir íbúa en á sama tíma voru eldri nemendur í ferðalagi og því vantaði nokkra nemendur í hópinn. Íbúar heimilisins voru mjög ánægðir með sönginn og fengu nemendur safa og kex að tónleikum loknum.

Fiskar og lömb í leikskólanum

Sumardagskráin á leikskólum Snæfellsbæjar tók gildi mánudaginn 11. maí. Með betra veðri færist starfið á leikskólunum meira út og verður mikið um vettvangsferðir og val á milli deilda til að brjóta upp starfið. Sumarstarfið byrjar að krafti og fóru nemendur Rauðu deildinni, Gulu deildinni og elsti hópurinn af Stubbadeildinni saman í vettvangsferð í Tungu. Þar tók Herdís Leifsdóttir á móti spenntum hópnum og leyfði þeim að kíkja í fjárhúsin þar sem sauðburður hefur verið í gangi síðasta mánuðinn. Börnin fylgdust ýmist skelkuð eða spennt með nýbornum lömbum, kindum og hrútum en flestir komu þó heim glöð með ferðina enda mikið að sjá og skoða.

Seinna í sömu viku kom Ólafur Hlynur Illugason með nokkrar fiskitegundir á leikskólalóðina sem að börnin á Krílakoti gátu skoðað. Voru þar nokkrar tegundir í vatni og aðrar á ís sem börnin gátu skoðað ítarlega, fengu að snerta og vakti það mikla lukku.

í verkefni inni tengd fiskum og sköpuðust líflegar umræður.

Þá var Umferðaskólinn í boði fyrir elstu börnin þar sem þau lærðu um helstu umferðarreglurnar og kom það sér vel því næst á sumardagskránni er hjóladagur barnanna og er þá gott að hafa öryggið í fyrirrúmi.

SJ

Aflatölur 1. - 17. maí

Mikið hefur verið að gera í höfnunum undanfarið, strandveiðar eru byrjaðar á fullu og flestir aðrir bátar enn að róa, landburður hefur verið af fiski í öll veiðarfæri. Nú styttist í að stóru bátarnir fari að týnast í sumarfrí enda kvótinn að verða búinn hjá mörgum. Á þessu tímabili 1. – 17. maí komu á land 3.155 tonn í 738 löndunum, stærsti dagurinn í löndunum talið var 13. maí en þá voru 125 landanir í höfnunum þremur.

Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5):

Dragnót:

Magnús 268 tonn í 10 löndunum. Saxhamar 236 tonn í 7 löndunum. Ólafur Bjarnason 201 tonn í 10 lönd. Stapafell 157 tonn í 8 löndunum. Steinunn 145 tonn í 5 löndunum.

Net:

Bárður SH – 81 424 tonn í 18 lönd.

Bárður SH – 811 114 tonn í 12 lönd.

Júlli Páls 33 tonn í 5 löndunum.

Lína:

Tjaldur 287 tonn í 4 löndunum.

Rifsnes 268 tonn í 4 löndunum.

Kristinn 202 tonn í 12 löndunum.

Stakkhamar 147 tonn í 13 lönd.

Tryggvi Eðvarðs 114 tonn í 7 lönd.

Handfæri: Kári III 16 tonn í 8 löndunum. Herdís 11 tonn í 8 löndunum. Gestur 10 tonn í 5 löndunum. Sverrir 9 tonn í 4 löndunum. Naustvík 8.5 tonn í 7 löndunum.

Launafólk athugið ORLOFSUPPBÓT 2026

Minnum félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst árhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu ár hvert.

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði:

62.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní.

Starfsfólk hjá ríkinu:

62.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní.

Starfsfólk sveitarfélaga:

62.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí.

Pakkhúsið opnar aftur

Laugardaginn 16. maí sl tóku nýir rekstraraðilar við Pakkhúsinu í Ólafsvík, það eru Yevheniia Korchyha, Sigurður Örn Ríkharðsson, Polina Korchyha og Benedikt Unnarsson. Yevheniia og Polina eru systur frá Úkraníu.

Þau reka þarna verslun með fallegum gjafavörum og fleiru, einnig bjóða þau uppá kaffi og kökur. Þá verður gestum boðið að skoða safnið á efri hæðum

sem er mjög skemmtilegt í þessu fallega húsi.

Hollvinasamtök Pakkhússins sóttu um styrk til Uppbyggingasjóðs Vesturlands í þeim tilgangi að setja upp verslunarsögu Ólafsvíkur og fengu Guðlaugu Dröfn Gunnarsdóttur og Svein Þór Elinbergsson til verksins og fengu samtökin kr. 500.000.- styrk, einnig veitti Snæfellsbær styrk á móti til sýningarinnar og þökk-

um við fyrir það. Nú styttist í að sú sýning verði sett upp í Pakkhúsinu.

Þess má einnig geta að fyrir er sýning um Jóhann Jónsson skáld frá Ólafsvík sem Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir setti upp á síð asta ári.

ánægð með að nú skuli Pakkhúsið verið opið fyrir íbúum Snæfellsbæjar, gestum og þeim sem heimsækja Snæfellsnesið. Okkur líst vel á nýja rekstaraðila sem sýna mikinn metnað í því sem þau

Aðalfundur Verkalýðsfélags

Snæfellinga var haldinn í Stykkishólmi þann 13. maí, á aðalfundinum urðu breytingar á stjórn félagsins þar sem Vignir Smári Maríasson lét af störfum sem formaður félagsins og Heiðrún Hallgrímsdóttir tók við.

Vignir Smári hefur gegnt starfi formanns félagsins frá því í apríl árið 2019 og sinnt því starfi af ábyrgð og fagmennsku, á þessum

Nýr formaður tekinn við

árum hefur hann verið drífandi kraftur í starfi félagsins.

Árið 2022 varð Vignir fyrir slysi sem hafði þær alvarlegu af leiðingar að hann missti starfs getu. Þrátt fyrir þessa áskorun sýndi hann einstakan styrk og seiglu með því að snúa aftur til starfa. Hann lagði sig áfram fram af krafti og sinnti embætti sínu af sömu fagmennsku og áður.

Þegar fram liðu stundir varð

bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.

Tímapantanir í síma 436-1111

Frá D-listanum í Snæfellsbæ

Kæru íbúar,

Við á D listanum viljum þakka þeim fjölmörgu sem mættu í kaffið til okkar í Klifi á kjördag kærlega fyrir komuna. Það var ánægjulegt að

þjónustu fyrir unga sem aldna ásamt því að sýna áfram ábyrgð í rekstri. Við hlökkum til að vinna í þágu samfélagsins alls og það er okkur mikilvægt að vera í góðu sam

Sundmót

Sunddeild Ungmennafélags Víkings var boðið á Vinamót á Kleppjárnsreykjum fimmtudaginn 14. maí síðastliðinn. Metþátttaka var á mótinu í ár eða um 80 keppendur, þar af mættu 10 keppendur frá Snæfellsbæ og tóku þátt í sundmótinu. Þau stóðu sig öll virkilega vel og komust nokkur af þeim á verðlaunapall. Irma Júlía Arndal Mánadóttir fékk brons verðlaun fyrir 100 metra bringusund. Yngri keppendur fengu þátttökuverðlaun og nokkur af þeim lentu í 1. til 3. sæti. Ingibjörg Yrsa Þórðardóttir var í 1. sæti bæði í 25 metra bringusundi og 25 metra skrið-

sundi af 19 keppendum í sínum flokki. Rakel Hall Guðmundsdóttir var í 2. sæti í 50 metra bringusundi og 3. sæti í 25 metra bak- og skriðsundi. Máni Berg Gunnarsson var í 1. sæti í 25 metra skriðsundi og 3. sæti í 50 metra bringusundi. Þórður Unnsteinn Þórðarson var í 3.sæti í 25 metra skriðsundi.

Helga Guðrún, sundþjálfari hjá Víking, segir þau ótrúlega dugleg og áhugasöm á æfingum. Þá segir hún það að fara með iðkendurna á svona mót gefi þeim svo mikið, liðsandinn sé góður og svo hjálpi til að þau fái yfirleitt gott veður á sundmótunum.

Föstudaginn 8. maí barst áhöfn björgunarskipsins Bjargar í Rifi útkall vegna fiskibáts sem var orðinn aflvana á miðjum Breiðafirði. Tryggvi Eðvarðs SH 2 var þar um 15 sjómílur norður af Rifi og þurfti aðstoð við að komast til hafnar eftir að bilun hafði komið upp í gír skipsins. Fjórir skipverjar voru um borð en engin aðkallandi hætta var á ferð og veður var gott. Björgin hélt úr höfn á Rifi um klukkan 15:30 á föstudeginum og 40 mínútum seinna var skipið komið í tog og siglt var til Ólafsvíkur. Björgin sigldi með Tryggva Eðvarðs inn í Ólafsvíkurhöfn laust yfir klukkan 19 á föstudagskvöldið, vel gekk að koma skipinu að bryggju og um 15 mínútum síðar var Björgin komin til heimahafnar á Rifi þar sem hún var gerð klár fyrir næsta verkefni. Þriðjudaginn 12. maí var áhöfnin á björgunarskipinu Björgu kölluð út í hæsta forgangi vegna þess að fiskiskip Ólafs Bjarnasonar varð aflvana út af Búlandshöfða. Hafði skipið fengið veiðafæri í skrúfuna um eina og hálfa sjómílu frá landi og var hætta á að það myndi stranda. Þegar útkallið kom liðu einungis 7 mínútur þar til níu sjálfboðaliðar voru komnir um borð í Björgina og voru þau farin úr höfn um 20 mín-

dró inn nótina og svo var stefnan sett á Ólafsvík en Björgin var komin þangað með Ólaf í eftirdragi um klukkan 15.

Björgin sigldi þá aftur í heimahöfn á Rifi og var gerð klár fyrir næsta útkall sem kom ekki nema átta tímum eftir að skipið lagðist að bryggju. Þá var Torfi Björnsson frá Flateyri í vandræðum þar sem aðskotahlutur var fastur í skrúfu skipsins. Skipið var statt rúmar 12 sjómílur NNA af Ólafsvík og var Björgin komin að skipinu um klukkustund eftir að útkallið barst. Hófst þá áhöfnin handa við að koma taug á milli skipana og dró Björgin svo skipið rólega til Ólafsvíkurhafnar. Lagðist skipið að höfn í Ólafsvík klukkan rúmlega fjögur aðfaranótt miðvikudagsins

útkall barst en einungis fjórum dög um seinna, að kvöldi 17. maí fengu sjálfboðaliðar Lífsbjargar útkall vegna fiskibátsins Einars Guðnasonar frá Suðureyri sem staddur var á miðjum Breiðafirði og þurfti aðstoð vegna vélarbilunar. Tveir voru um borð í bátnum sem var á leið til Hafnarfjarðar til viðgerða á bátnum. Innan við 40 mínútum síðar var áhöfn Bjargarinnar komin að

fellsnes. Áhöfn björgunarskipsins Kristrúnar frá Bjargi, frá Akranesi, hélt til móts við Björgina og tóku við drættinum sunnan við Malarrif og drógu bátinn seinni spölinn til Hafnarfjarðar. Skipin mættust um klukkan þrjú aðfaranótt mánudags og var Björgin komin heim á Rif um fjögurleytið og gerð klár fyrir næsta útkall. SJ

Leikfélagið Lauga er

umsjá UMFG og er þetta í fyrsta sinn sem félagið heldur barnablakmót. Rúmlega 200 keppendur og yfir 40 liðstjórar og þjálfarar sóttu mótið sem tókst einstaklega vel. Umf. Víkingur átti eitt lið piltar/blandað en UMFG átti 7 lið á mótinu. Skipulag mótsins tókst mjög vel og stóðu keppendur sig allir með prýði. JJ

leikfélag sem hefur nú þegar sett á svið 4 verk. Fyrst var það Sex í sama rúmi, bréf til Önnu, Ævintýrabókin, og nú síðast Stelpuhelgi. Öll þessi verk hafa hafa verið sýnd fyrir fullu húsi aftur og aftur og hafa leikarar fengið mikið lof fyrir. Sýningagestir hafa skipt hundruðum enda leikarar lagt sig alla fram og sett mikla vinnu í þetta. En eins og oft vill fara hefur þetta verið keyrt áfram á sama fólkinu og nú er svo komið að okkur vantar nýtt fólk til að ganga til liðs við okkur. Að tilheyra svona hóp og taka þátt í svona verkum er oft erfitt, tímafrekt en fyrst og fremst endurnærandi fyrir

frumsýningu er engri lík og því langar okkur að leyfa fleirum að njóta.

Ertu til í smá vinnu, leika, hita kaffi, leikmyndagerð eða allt hitt sem til fellur þá erum við að leita af þér. Stígðu út fyrir kassann og komdu á fund þar sem ákveðið verður hvaða verk við setjum upp fyrir næsta haust og gakktu til liðs við okkur. Fundurinn verður 10. Júní og verður nánari tímasetning og staður settur inná Facebook síðu Leikfélagsins Laugu. Um að gera að líka við hana svo þið missið ekki af fundinum. Hlökkum til að sjá nýtt fólk stíga á svið í haust.

Sólveig Bláfeld Agnarsdóttir

Stórafmæli í Snæfellsbæ

Í vor eru liðin 50 ár frá því að útibú Landsbankans í Snæfellsbæ hóf starfsemi sína. Í tilefni þess bjóðum við gestum og gangandi í afmælisveislu í útibúinu þann 26. maí kl. 15:00.

Eyþór Ingi mun skemmta og boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Verið öll hjartanlega velkomin.

Betri saman í 50 ár

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1208tbl by Steinprent - Issuu