Skip to main content

BaejarbladidJokull1207tbl2

Page 1


Bátur í slipp í Höllinni

Menn sem sækja Höllina í Snæfellsbæ og Leikskóli Snæfellsbæjar hafa átt farsælt samstarf þegar kemur að viðgerðum á leiktækjum. Nokkrir vörubílar af útisvæðum leikskólanna hafa verið sendir í viðgerð og komið til baka eins og nýir. Fyrir nokkru fengu þeir Teni og Jón stærra verkefni upp í hendurnar en bátur sem hefur staðið á leikskólalóðinni við Krílakot þurfti yfirhalningu. Nú er báturinn kominn til þeirra í Höllina og hafa þeir staðið í ströngu við lagfæringar undanfarnar vikur. Nemendur af rauðu deild Krílakots heimsóttu þá á dögunum og tóku út verkið. Þeim leist vel á framvinduna og hlakka til að fá endurbættan bát aftur í garðinn eftir fjarveruna.

Úthlutun úr framkvæmdasjóði aldraðra

Úthlutun úr framkvæmdasjóði aldraðra fór fram í byrjun mánaðarins og voru um 1,4 milljörðum króna úthlutað sem verður varið í uppbyggingu og eflinu öldrunarþjónustu um allt land. 55 styrkir voru veittir til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á öldrunarstofnunum vegna ársins 2026. Í byrjun árs var reglugerð sjóðsins breytt á þann veg að styrkjahlutföll voru hækkuð í 20/40% í 50%. Með því var sjóðurinn að reyna að laða að umsóknir frá minni öldrunarstofnunum á landsbyggðinni sem hafa átt í erfiðleikum með að fjármagna mótframlögin.

Við mat á umsóknum og forgangsröðun úthlutana lagði stjórn sjóðsins sérstaka áherslu á bættan aðbúnað í íbúðum,

lyftur og bætt aðgengi íbúa, öryggiskerfi og öryggismál ásamt viðhaldi húsnæðis, innan og utan. Þá var bættur aðbúnaður í sameiginlegum rýmum og viðgerðir vegna rakaskemmda einnig í forgangi.

Hjúkrunarheimilið Fellaskjól sótti um styrk m.a. fyrir endurnýjun rafmagnstöflu og fékk úthlutað 1.193.289 krónum.

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar sótti um styrki fyrir tvenns konar framkvæmdum. Annars vegar var sótt um styrk fyrir endurnýjun lyftu og var þeim úthlutað rúmum 3 milljónum króna og hins vegar var sótt um endurnýjun sjúkrakallkerfis og var heimilinu úthlutað rúmar 2 milljónum króna í verkefnið.

BREYTING AÐALFUNDARDAGS ÓLAFSVÍKURSÓKNAR

Aðalfundur verður haldinn í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 9. júní kl 17,00.

Á dagskránni eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.

Fólk er hvatt til að mæta og ræða málefni kirkjunnar og taka þátt í störfum hennar.

Sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju.

Aría og Magni taka við verslun N1 á Hellissandi

Þann 1. maí voru eigendaskipti á versluninni við Útnesvegi 10 á Hellissandi þegar Drífa Skúladóttir og Viðar Gylfason hættu rekstri á Hraðbúð Hellissands eftir 30 ára rekstur. Aría Jóhannesdóttir og Magni Jens Aðalsteinsson tóku við rekstrinum og reka núna verslun N1 í húsnæðinu. Aría hefur starfað sem stöðvarstjóri verslunar N1 í Ólafsvík síðustu 4 árin og mun áfram vera með annan fótinn þar. Hjónin opnuðu dyrnar að versluninni strax á fyrsta degi en framundan eru töluverðar framkvæmdir á húsnæðinu. Stefna þau á að stækka bæði lagerinn og gera verslunarrýmið aðgengilegra. Þá munu þau endurnýja tæki og búnað í versluninni og fara í framkvæmdir úti.

Verslunin er opin alla virka daga frá klukkan 9 til 19 og frá klukkan 10 til 17 um helgar. Á meðfylgjandi mynd eru Aría og

Nýr aðstoðarskólameistari FSN

Sigríðar Guðbjörg Arnardóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga og mun hefja starf sem aðstoðarskólameistari 1. ágúst.

Sigríður Guðbjörg er með B.A.-próf í þroskaþjálfafræðum frá Kennaraháskóla Íslands, viðbótardiplóma í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og M.Ed.-próf í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Hún er með kennsluréttindi á leik, grunnog framhaldsskólastigi.

Sigríður hefur starfað sem deildarstjóri starfsbrautar og kennari í félagsgreinum hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga frá árinu 2008. Áður starfaði hún sem þroskaþjálfi við Grunnskóla Grundarfjarðarbæjar (2006–2008). Þar áður gegndi hún m.a.

starfi deildarstjóra starfsbrautar við Fjölbrautaskóla Snæfellinga (2004–2006), starfaði sem þroskaþjálfi við Leikskólann Sólvelli í Grundarfirði (2003–2004) og var forstöðumaður skammtímavistunar að Gufuskálum hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vesturlandi (2003–2005). Sigríður hefur gegnum störf sín hjá Fjölbrautaskóla Snæfelling öðlast góða reynslu og þekkingu á stefnumótun menntastofnana.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði, Blaðið kemur út vikulega.

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Leiðbeinandi óskast í Smiðjuna

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf í Smiðjunni í Ólafsvík, virkni og hæfingastöð fyrir fullorðið fólk með skerta starfsgetu.

Um er að ræða 100% starf á dagvinnutíma Menntunar- og hæfniskröfur:

• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur

• Góð íslenskukunnátta er krafa.

• Þekking á málaflokk fólks með fötlun er kostur.

• Góð almenn tölvukunnátta er kostur.

• Hreint sakavottorð er krafa.

• Stundvísi er mikilvæg.

• Geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleika.

• Búa yfir samstarfsvilja og þolinmæði ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.

• Áhugi á málefnum fólks með fötlun.

• Samviskusemi og skipulögð vinnubrögð í daglegu starfi og samskiptum.

• Færni í að eiga gott samstarf og samskipti.

• Æskilegt er að vera við góða líkamlega og andlega heilsu.

• Framfylgir hlutverki og markmiðum þjónustueiningar sem leiðbeinandi starfar á, undir stjórn yfirmanns og í samvinnu við hann.

• Smiðjan er reyklaus vinnustaður

• Laun skv. kjarasamningi sveitarfélaganna og viðkomandi stéttarfélags.

• Umsækjandi þarf að geta hafið störf frá og með mánudeginum 17.ágúst 2026

• Ráðið er í starfið tímabundið til 1 árs vegna barneignar leyfis.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórheiður E. Sigurðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi Smiðjunnar á netfangi: thorheidur@fssf.is

Umsóknarfrestur er til og með 25.maí 2026

Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617

Magni ásamt dætrum sínum, Klöru Karmen og einni nýfæddri. SJ

Sjóstangveiðimót í

var fínt báða dagana og gott var í sjóinn en þó frekar kalt. Loka hóf og verðlaunaafhending fór svo fram í Voninni á Rifi þar sem keppendur mettuðust á ljúffeng um mat og lygasögum. Alls veidd ust 16.5 tonn yfir helgina af falleg um fiski. Þá veiddust níu tegund ir og var stærsti fiskur mótsins 21,08 kg. Sigurjón Már Birgis son frá Akranaesi var aflahæsti karlmaðurinn og átti sömuleiðis stærsta fiskinn. Jón Einarsson frá Sjósnæ var annar aflahæsti karl maðurinn en hann átti líka flesta fiskana, stærstu ýsuna og sló hann

SJ sögu en það er komið vel til ára sinna. Gluggar eru orðnir ónýtir, húsið lekur, veggir eru lélegir og fokhætta er af því. Í síðustu viku hófust framkvæmdir við að rífa húsnæðið. Kranabíll frá Bigga Tryggva ehf hóf að taka ofan af

hugmyndir eru þó enn á frumstigi og ekkert staðfest ennþá. Efri myndin var tekin í síðustu viku þegar vinna var í gangi við að rífa húsið, neðri myndin er af hugmyndum að stækkun Jaðars. SJ

Vel sóttur íbúafundur

Kæru íbúar Snæfellsbæjar, D listinn í Snæfellsbæ hélt opinn íbúafund í Klifi þriðjudaginn 5. maí þar sem við kynntum helstu stefnumál fyrir komandi kjörtímabil og íbúar fengu tækifæri til að koma með hugmyndir inn í stefnuskrána sem verið er að vinna að. Fundurinn var vel sóttur og viljum við þakka þeim fjölmörgu sem mættu á fundinn. Margar hugmyndir og ábendingar komu fram í umræðum í lok fundarins sem við hlökkum til að vinna úr.

Á fundinum var farið yfir helstu rekstrartölur sveitarfélagsins en staða Snæfellsbæjar verður að teljast afar góð. Fjárhagsleg staða sveitarfélagsins og lág skuldastaða veitir tækifæri til enn frekari fjárfestinga og til að íbúarnir njóti góðrar stöðu sveitarfélagsins. Við ætlum okkur að sýna áfram

ábyrgð í rekstri meðal annars með því að forgangsraða verkefnum og nýta fjármuni sveitarfélagsins á skynsamlegan hátt. Meðal þeirra verkefna sem kynnt voru á fundinum eru:

• Beita okkur fyrir stækkun Jaðars, þrýsta á fjölgun hjúkrunarrýma og skoða úthlutanir dagdvalarrýma.

• Byggja íbúðir fyrir 60 ára og eldri í Ólafsvík þar sem innangengt yrði á Jaðar með tengibyggingu.

• Byggja við húsnæði bókasafnsins og tónlistarskólans þar sem yrði sameiginlegur salur fyrir bæði bókasafn og tónlistarskóla með góðu aðgengi.

• Lækka dvalargjald í leikskóla um 50% á kjörtímabilinu.

• Halda áfram uppbyggingu á leiksvæðum við leik- og grunnskóla

Kristján Mar í 2. sæti í stærðfræðikeppni

hélt sína árlegu stærðfræðikeppni 17. apríl síðastliðinn og tóku 114 nemendur þátt. Keppendur komu frá sex skólum á Vesturlandi en laugardaginn 9. maí voru veittar viðurkenningar í sal FVA fyrir fyrstu 10 sætin í 8., 9. og 10. bekk. Peningaverð-

laun frá Norðurál voru veitt fyrir efstu þrjú sætin en Kristján Mar Traustason úr Grunnskóla Snæfellsbæjar var í verðlaunasæti. Kristján hreppti 2. sæti af í flokki 10. bekkinga sem er glæsilegur árangur. JJ

félaginu með því að fjölga leik tækjum og endurnýja fallvarnir.

• Skoða opnun ungmennahúss fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára í samráði við ungmennaráð.

• Hækka frístundastyrki til barna og ungmenna til 20 ára aldurs vegna íþrótta- og tómstundastarfs.

• Auka þjónustu við Ólafsvíkurvöll yfir vetrartímann og moka a.m.k. hálfan völl þegar veðurspá og aðstæður leyfa.

• Setja upp tæki til heilsueflingar á völdum stöðum við hlið göngustígs milli Ólafsvíkur og Hellissands.

• Halda áfram að vinna að samþættingu þjónustu við eldri borgara í gegnum verkefnið Gott að eldast.

• Kaup á nýrri slökkvibifreið

• Setja upp varmadælur í skólabyggingarnar sem eru í eigu sveitarfélagsins til að spara orku og kostnað.

• Setja okkur viðhaldsáætlun fyrir næstu 4 ár og halda áfram viðhaldi á fasteignum sveitarfélagsins.

• Semja við rekstraraðila til að setja upp hleðslustöðvar við fjölbýlishús og opinberar byggingar sveitarfélagsins. Einnig að leyfa fyrirtækjum að setja upp hleðslustöðvar í bæjarfélaginu.

• Gera göngustíg á Arnarstapa meðfram þjóðveginum niður að

höfn í samvinnu við Vegagerðina.

• Framkvæmdir á vegum Hafnarsjóðs verða töluverðar og þær helstu verða malbikun hafnarsvæðisins í Ólafsvík, dýpkunarframkvæmdir í Rifi og Ólafsvík, endurbygging bryggjunnar á Arnarstapa og austurkantur bryggjunnar í Rifi endurbyggður.

• Byggja nýtt salernishús á Arnarstapa.

• Gera deiliskipulag að frístundasvæði á Hellissandi og deiliskipulag fyrir íbúðabyggð í Rifi.

Þetta er ekki tæmandi listi þeirra verkefna sem við ætlum að vinna að á kjörtímabilinu. Að sjálfsögðu munum við halda áfram öðrum góðum verkum sem við höfum verið að vinna að á síðastliðnum árum eins og til dæmis hagsmunagæslu fyrir íbúana, atvinnustarfsemi og sveitarfélagið og stuðningi við öfluga félagsstarfsemi í sveitarfélaginu.

Líkt og áður hefur komið fram munum við leggja upp með að vera í virku samtali við íbúana á meðan kjörtímabilinu stendur. Við ætlum að halda íbúafund í haust í tengslum við fjárhagsáætlanagerðina fyrir árið 2027. Fyrir þann tíma verðum við búin að fullgera stefnuna okkar fyrir næstu ár ásamt því að gera áætlun um hvaða verkefni við ætlum í á hverju ári.

F.h. D listans í Snæfellsbæ Auður Kjartansdóttir

BÍLINN

Á FERÐINNI UM LANDIÐ

Sjáumst þriðjudaginn 19. maí. frá 13:00 til 16:00 í Smiðjunni Fönix á Rifi

skólaskák

úrslita í tveimur flokkum. Það var þá öruggur sigurvegari í 8. til 10. bekk en tefla þurfti einvígi í flokki 1. - 4. bekkjar og 5. - 7. bekkjar. Virkilega vel var staðið að mótinu og hefur Sigurður Scheving fengið mikið lof fyrir sitt framlag til mótsins og skákstarfsins. Taflfélag Snæfellsbæjar átti þrjá fulltrúa á mótinu, þá Víglund Heimisson, Mána Berg Gunnarsson og Sævar Hjalta Þorsteinsson. Þrátt fyrir að hafa ekki náð í toppsæti að þessu sinni áttu þeir góða leiki

og enn betri helgi þar sem þetta er eitt skemmtilegasta skákmótið sem börnin sækja.

Það er mikill heiður fyrir Taflfélag Snæfellsbæjar að fá heiður til að halda Landsmótið í skólaskák á heimaslóðum og sýnir það bæði hve öflugt skákstarfið á Snæfellsnesi er orðið og að aðstaðan og umgjörð starfsins sé til fyrirmyndar. Meðfylgjandi mynd er af fulltrúum Taflfélags Snæfellsbæjar á mótinu ásamt Sigurði Scheving. SJ

Siglandi safnskip með fullt haffæri, líkt og Óðinn, þarf viðhald eins og hvert annað skip og hjá okkur er það stöðugt árið um kring. Til að halda í horfinu þarfnast skip sem þetta 5.000-6.000 klukkustunda af viðhaldsvinnu á ári. Daglegt viðhald er nú á höndum fimm vélstjóra, tveggja háseta og eins loftskeytamanns auk tæknistjóra. Við njótum velvilja margra fyrirtækja, í góðum kjörum, stundum gjöfum og ýmiskonar fyrirgreiðslu, þó ekki sé alltaf um beint vinnuframlag að ræða. Má þar nefna Stálsmiðjuna, nú Vélsmiðju Orms og Víglundar, Simberg, Brimrún, Raftíðni, Skipasýn, Hampiðjuna, Faxaflóahafnir og Ísfell svo einhverjir séu nefndir. Því svona verkefni gengur ekki nema að margir séu tilbúnir að leggja því lið, vinna sjálfboðaliða ein og sér nægir ekki. Nokkuð skarð var hoggið í sjálf -

boðaliðahópinn s.l. vetur þar sem tveir vélstjórar fóru á „eftirlaun“ 80 og 81 árs gamlir, en yngri vélstjóri bætist í hópinn s.l. sumar og með vorinu bætist annar við, sá er aðeins á sjötugsaldri.

Viðhaldið í vetur hefur m.a. falist í því að yfirfara spíssa og olíudælur aðalvéla. Þó nokkuð hefur verið unnið við lensikerfi og austurskilvindu. Ljósavélarnar þrjár eru ræstar reglulega og keyrður upp hiti á þeim. Aðalvélunum er lofttörnað að minnsta kosti mánaðarlega og keyrður upp olíuþrýstingur á þeim, en ekki er hægt að ræsa þessar vélar við bryggju, þar sem þær eru snarvendar og beintengdar við fasta skrúfu.

Landhelgisgæslan tók sjálfstýringuna úr skipinu eftir að því var lagt og höfum við því handstýrt hingað til á þeim ferðum sem farnar hafa verið. Í vetur var ákveðið

Brynjar Viggósson t.v. og Búi Stein Jóhannsson að undirbúa festingar fyrir stýrisskynjarann, fyrir sjálfstýringuna.

að kaupa sjálfstýringu og hafa tveir vélstjórar og tæknistjóri unnið að því að koma stýrisskynjara fyrir, nokkuð sem krafðist natni og vandaðra vinnubragða. En SIMBERG sér um lokafrágang.

Strax eftir sjómannadag og siglingu til Grundarfjarðar liggur fyrir að rífa plankadekkið af brúarvængjunum þar sem 66 ára gamlir plankarnir halda ekki vatni lengur og hætta er á ryðskemmdum á stálinu sem undir er, verði það látið dragast lengur. Búið er að panta nýja planka úr völdum við, frá sögunarmyllu í Danmörku og verður það lagt síðsumars af ungum skipasmið ættuðum úr Stykkishólmi, sem Einar heitir. Í fyrra rifum við allt timbrið af afturdekkinu og það verður að huga bæði að brúarþaki og B-dekki meðfram yfirbyggingu áður en langt um líður.

Hásetarnir voru natnir við að

mála yfirbyggingu, afturdekk og utanskips í fyrrasumar. Í vetur hafa þeir tekið lestina i gegn og málað tankdekkið. Undanfarið hafa þeir málað plittin í ljósavélarúminu og allt verkstæðið, auk þess að sápuþvo það allt á undan sem hvorutveggja var veruleg vinna í kringum röraflækjur og í endalaus skúmaskot. Í loftskeytaklefanum hefur Jón Már Richardsson, sem ýmsir sjómenn þekkja frá því að hann var með Decca umboðið og fyrirtækið Raför, verið að setja upp með aðstoð loftskeytamanna ofl., notaða milli- og stuttbylgjustöð sem hann fékk gefins og verið hafði á annari Stellunni á Akureyri. Þegar sú stöð hefur verið tekin út og samþykkt ætti að vera hægt að sigla í fjarskiptafarsviði A2. Egill Þórðarson.

Kristinn Halldórsson, tæknistjóri smíðaði einnig púltið undir sjálfstýringuna.
Hilmar Guðmundsson kampakátur að mála loftið á verkstæðinu.

Vortónleikar K

Sem lið í vorferð Kórs Vídalínskirkju, Garðabæ um Snæfellsnes heldur kórinn vortónleika laugardaginn 23. maí n.k. kl. 16:00 í Ólafsvíkurkirkju. Á tónleikunum verður einnig Kór Ólafsvíkurkirkju en þessir kórar hafa ekki sungið saman áður. Mikil tilhlökkun er meðal kórfélaga með að fá að „stilla saman strengi sína“ og eiga saman góða samveru.

Nokkur tímamót eru hjá Kór Vídalínskirkju um þessar mundir, þ.s. þetta eru síðustu tónleikar kórsins undir stjórn núverandi kórstjóra, Jóhanns Baldvinssonar en hann lætur af störfum í sumar eftir 29 ára starf með kórnum. Samhliða starfi organista við Vídalínskirkju hefur Jóhann stjórnað kórnum við góðan orðstír og þess má geta að hann fékk heiðursviðurkenningu listamanna í Garðabæ árið 2022 og Garðasteininn, sem Rótarýklúbburinn Görðum veitir þeim sem þykir auðga mannlífið í Garðabæ, árið 2023.

vortónleika. Efnisskrá tónleikanna í Ólafsvíkurkirkju mun litast af þeim vortónleikum. Flutt verða þekkt íslensk ættjarðarlög sem kórstjórunum eru huglæg í bland við nokkur erlend lög. Má þar m.a. nefna kórverk án undirleiks, t.d. eftir Jón Ásgeirsson, Sigurð Flosason og J. S. Bach. Kórarnir munu síðan syngja

Kórfélagar í Kór Vídalínskirkju eru um 40 talsins og það er hugur í þeim nú sem endranær. Kórinn hefur síðustu árin notað vorin sem vettvang til að fylgja eftir vel heppnuðum vortónleikum heimafyrir og heimsótt aðra kirkjukóra á landsbyggðinni. Það er reynsla kórsins af slíkum ferðum að þær

mennt, skapa gott samband milli kórfélaga sem og að þær efla góð tengsl milli kóra.

Á vortónleikana í Ólafsvíkurkirkju er frítt inn og eru öll velkomin.

- Skipaþjónusta

- Almenn suðuvinna

- Smurþjónusta - Smábátaþjónusta

- Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Nemendur fluttu t

Vortónleikar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar 2026 voru haldnir í Klifi þann 4. og 5. maí síðastliðinn. Tæplega 50 nemendur sýndu afrakstur vinnu sinnar á tónleikunum á allskyns hljóðfærum. Eldri nemendur tónlistarskólans komu fram miðvikudaginn 6. maí. Mikill undirbúningur fer í tónleika sem þessa og voru nemendur vel undirbúnir fyrir framkomuna. Ótal lög voru spiluð og sungin á tónleikunum þremur sem heppnuðust með besta móti. Nemendur skólans sunnan heiða munu halda tónleika miðvikudaginn 20. maí klukkan 13:00 í Lýsuhólsskóla.

áherslu á að þessi viðburður er fyrir alla, allir íbúar Snæfellsness og gestir eru velkomnir. Hvort sem þátttakendur vilja vera virkir eða bara sitja á teppi og spjalla, þá ættu allir að finna stað fyrir sig á þessum viðburði. Þetta er fullkomið tækifæri til að komast út úr húsi, hitta nágranna, spjalla og einfaldlega eyða tíma saman í skemmtilegu andrúmslofti.

Þátttakendur meiga búast við síðdegi fullu af afþreyingu sem er hönnuð til bæði slökunar og skemmtunar. Þar verður klassísk grillveisla, afþreying fyrir börnin þar sem skemmtikraftur-

inn Justyna Jaszczak mun bjóða

spilum og slökunarsvæði til smá keppnisíþrótta fyrir þá sem njóta hreyfingar. Að lokum verður hið sameiginlega borð á sínum stað, þeir sem hafa áhuga á geta komið með eitthvað til að deila, til dæms heimabakaða köku, uppáhaldssalatið eða smá snarl þar sem það að deila mat saman er einn skemmtilegasti hluti dagskrárinnar.

Skipuleggjendur hvetja alla til að koma með teppi, ástvini og góða skapið og búa sig undir afslappað síðdegi í Stykkishólmi. Meðfylgjandi mynd er frá viðburðinum árið 2025. SJ

Vinnuskóli

Snæfellsbær óskar eftir umsóknum um störf í skemmtilegri og lærdómsríkri sumarvinnu við vinnuskóla Snæfellsbæjar sumarið 2026.

Vinnuskólinn verður starfræktur í heildina í sex vikur og er fyrir nemendur í 8. - 10. bekk og unglinga fædda árið 2009.

Starfstímabil:

• Nemendur úr 8. bekk starfa í fjórar vikur, frá 8. júní - 6. júlí.

• Nemendur úr 9. og. 10. bekk starfa í sex vikur, frá 8. júní - 20. júlí.

• Unglingar fæddir árið 2009 starfa frá 8. júní - 20. júlí.

Nánari upplýsingar um vinnutíma, laun og annað tengt vinnuskóla má nálgast á upplýsingasíðu um vinnuskóla á heimasíðu Snæfellsbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí.

Umsóknir berist rafrænt í gegnum heimasíðu Snæfellsbæjar.

Umsóknir sem berast í tölvupósti eða með öðrum hætti eru ekki teknar gildar. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.

LAUGARDAGINN 16. MAÍ • FÉLAGSHEIMILIÐ KLIF

Kosningakaffi

Í tilefni sveitarstjórnarkosninga bjóðum við öllum íbúum Snæfellsbæjar í opið kosningakaffi

í Klifi á kjördag, laugardaginn 16. maí nk., frá kl. 14-17.

Þó sjálfkjörið sé í sveitarfélaginu viljum við halda upp á daginn, hitta ykkur íbúana og spjalla.

Allir velkomnir og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1207tbl2 by Steinprent - Issuu