Skip to main content

BaejarbladidJokull1206tbl

Page 1


Fjöldi báta hóf strandveiðar

nýju þann 1. maí síðastliðinn en þar sem dagurinn bar upp á föstudegi hófu strandveiðibátar veiðar mánudaginn 4. maí. Þann dag var heilmikil umferð á Breiðafirðinum þegar fjöldi strandveiðibátar létu úr höfnum Snæfellsbæjar og héldu til veiða, í samtali við starfsmann Hafna Snæfellsbæjar kom fram að tæplega 100 strand-

fyrsta dag strandveiða í ár. Samkvæmt gildandi reglum er strandveiðitímabilið afmarkað við fjóra mánuði, frá maí og út ágúst. Á þessu tímabili mega strandveiðibátar stunda veiðar á handfæri að uppfylltum skilyrðum og með leyfi Fiskistofu en veiðarnar eru þó háðar ákveðnum takmörkunum. Hverjum báti

í hverjum mánuði á tímabilinu eða allt að 48 veiðidaga yfir sumarið. Þá eru veiðar almennt heimilar fjóra daga í viku, frá mánudegi til fimmtudags. Fyrsti dagur

manna er mikill, enda fjölmargir bátar sem héldu til veiða strax og færi gafst þó enn eigi eftir að bætast í hópinn.

SJ

Snæfellingar öflugir á Öldungamóti

Öldungamótið í blaki fór fram á Akureyri dagana 30. apríl til 2. maí en það er eitt stærsta íþróttamót landsins haldið fyrir iðkendur sem eru 30 ára og eldri. Á mótinu komu saman 110 kvennalið í 16 deildum og 53 karlalið í 8 deildum. 5 lið frá Snæfellsnesi gerðu sér ferð norður, tvö lið frá UMF Víking, eitt karla og eitt kvennalið, eitt kvennalið frá UMFG og tvö karlalið frá Snæfell. Liðunum gekk öllum mjög vel á mótinu og enduðu öll 5 liðin af Snæfellsnesi í verðlaunasæti eftir leiki helgarinnar. Lið Snæfells kepptu bæði í 6. deild A og spiluðu úrslitaleikinn á móti hvoru öðru sem endaði svo að Snæfell C hreppti fyrsta sætið og Snæfell A tók annað sætið. Karlalið Víkings keppti í 5. deild B og vann

alla sína leika, enduðu í 1. sæti og munu keppa í 4. deild á næsta ári. Lið UMFG keppti í 4. deild, unnu alla leiki nema einn, enduðu í 1. sæti og keppa í 3. deild að ári. Kvennalið Víkings keppti svo í 10. deild A, unnu þar alla sína leiki og komust í úrslitaleik en töpuðu honum naumlega og enduðu því í 2. sæti.

Blakmenningin á Snæfellsnesi er á hraðri uppleið og iðkendum í íþróttinni fer sífellt fjölgandi, bæði meðal fullorðinna og barna. UMFG mun næst standa að blak móti á Snæfellsnesi í Grundarfirði og Ólafsvík helgina 15. til 17. maí þar sem iðkendur undir 12 ára og undir 14 ára keppa í Íslandsmóti yngri flokka.

SJ

Dagur eldri borgara

Sameiginleg messa í Ólafsvíkurkirkju

Fimmtudagur 14. maí kl. 14:00 Ólafsvíkurkirkja

Boðað er til sameiginlegrar messu safnaðanna í Snæfellsbæ á uppstigningardag þann 14. maí kl. 14:00 í Ólafsvíkurkirkju.

Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir prédikar og Sr. Ægir Örn Sveinsson þjónar fyrir altari.

Kórar Ingjaldshólskirkju og Ólafsvíkurkirkju syngja

Organisti er Elena Makeeva og kórstjóri er Veronica Osterhammer

Góðar kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimili kirkjunnar.

Takið daginn 14. maí frá fyrir samveru í Ólafsvíkurkirkju.

Verið öll hjartanlega velkomin Á þessum degi, sem er dagur aldraðra, er rétt að geta þess að fólk á gamansaldri hefur heiðurssess í messunni.

Prestarnir og Vinafélag eldri borgara

í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Margrét leysir Kristfríði tímabundið af

Margrét Sif Sævarsdóttir leysir Kristfríði Rós Stefánsdóttur af í stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á meðan sú síðarnefnda fer í fæðingarorlof. Kristfríður Rós á von á sínu öðru barni og fer í fæðingarorlof frá og með 1. maí. Margrét Sif er mætt til starfa og nýtir fyrstu dagana í að koma sér inn í starfið með Kristfríði Rós.

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi

Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins var haldinn hátíðleg ur síðastliðinn föstudag, 1. maí. Líkt og undanfarin ár héldu verka lýðsfélögin Sameyki, Verkalýðsfé lag Snæfellinga og Kjölur viðburði á Snæfellsnesi í sameiningu. Fé lagsmönnum og öðrum íbúum var boðið til samkomu í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ. Á öll um viðburðum hélt Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknarstofu vinnu markaðarins, barátturæðu dagsins. Flutt voru atriði frá tónlistarskólunum á svæðinu, Jón Jónsson flutti nokkur vel valin lög og að skemmtiatriðum loknum var boðið upp á kaffiveitingar, frá Kvenfélaginu Gleym-mér-ei í Grundarfirði og Félag eldri borgara í Snæfellsbæ sá um kaffiveitingarnar í Klifi. Styrkur er velferð okkar alla var yfirskrift baráttudagsins í ár og vel var mætt á baráttufundi á öllum stöðum. Meðfylgjandi mynd er af Jóni Jónssyni í félagsheimilinu Klifi ásamt vöskum hóp af krökkum sem tóku vel undir með söngvaranum.

SJ

Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617

Optical Studio heimsækir Snæfellsnes

frá 9:00-19:00 þann dag.

Þetta er í annað sinn sem Optical Studio heimsækir Snæfellsnes en rúmt ár er síðan við heimsóttum nesið í fyrsta sinn með fullbúna uppsetta verslun. Viðtökurnar voru stórkostlegar og nutum við þess að geta þjónustað Snæfellsnesbúa almennilega með því að koma með verslunina okkar til þeirra þennan dag.

Við munum nú aftur mæta með mikið úrval af okkar fallegu vöru, bæði af umgjörðum og sólgleraugum og bjóða 20% afslátt af öllum vörum þennan dag.

um með nýjasta tækjabúnaði á því sviði. Hægt er að bóka tíma í sjónmælingar á opticalstudio.is og á noona.is eða í síma 511-5800. En einnig er líka hægt að koma við og skoða úrvalið og versla á staðnum óháð tímabókunum.

Við hvetjum alla til að kíkja við til okkar á þriðjudaginn og sjá úrvalið sem við höfum upp á að bjóða. Einnig verðum við með mikið af flottum sólgleraugum á góðu verði.

Segir Hulda Guðný Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Optical Studio.

Laus störf í Grunnskóla

Snæfellsbæjar skólaárið 2026/2027

Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir starfsfólki í eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár. Ráðið er í allar stöðurnar frá 1. ágúst 2026.

Umsjónarkennarar

• Umsjónarkennari á yngsta stig við starfsstöð skólans á Hellissandi.

• Umsjónarkennari á miðstig við starfsstöð skólans í Ólafsvík.

Kennarar

• Íþróttakennari við starfsstöð skólans í Ólafsvík.

• Kennari á mið- og unglingastigi við starfsstöð skólans í Ólafsvík. Helstu kennslugreinar íslenska og stærðfræði.

• Kennari við Lýsudeild. Helstu kennslugreinar stærðfræði, danska, samfélagsfræði og textílmennt.

Tónmennta- og heimilisfræðikennarar í hlutastörf

• Tónmenntakennari í 30% starf við starfsstöð skólans á Hellissandi.

• Heimilisfræðikennari í 60% starf við starfsstöð skólans í Ólafsvík.

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2026.

Nánari upplýsingar um hlutverk og kröfur starfa má finna á heimasíðu Snæfellsbæjar. Upplýsingar veitir Vilborg Lilja Stefánsdóttir, skólastjóri, í síma 894 9903 og í netfanginu lilja@gsnb.is.

Sótt er um störfin á ráðningarvef Snæfellsbæjar á heimasíðu Snæfellsbæjar.

Í Grunnskóla Snæfellsbæjar eru um 220 nemendur. Starfsstöðvar skólans eru þrjár; Hellissandur 1. - 4. bekkur, Ólafsvík 5. - 10. bekkur og Lýsudeild 1. - 10. bekkur en þar er einnig rekið leikskólasel.

Átthagafræði er ein af meginstoðum skólans þar sem nemendur í 1. -10. bekk læra að þekkja nærumhverfi sitt, sögu, náttúru og staðhætti og geri sér líka grein fyrir möguleikum þar til framtíðar. Skólinn hlaut Íslensku menntaverðlaun árið 2022.

Sauðburður víðast

Sauðburður er nú hafinn víða um land og ber það merki um að vorið sé gengið í garð í sveitum landsins. Þetta er einn annasamasti tími ársins hjá bændum þar sem sinna þarf kindunum dag og nótt og fylgjast grannt með gangi mála. Þessum tíma fylgir jafnframt mikil tilhlökkun, með vor í lofti og von um gott sumar og farsælan búskap. Á einstaka bæjum hófst sauðburður um páskana og eru þau lömb

orðin nokkuð stór en almennt er sauðburðurinn að hrökkva í gang núna í lok apríl og bændur eru að taka á móti sínum fyrstu lömbum. Komandi vikur verða krefjandi en skemmtilegar í þessum órjúfanlega hluta af íslenskri sveitamenningu. Meðfylgjandi mynd er frá Herdísi og Emil í Mávahlíð en þar er gemlingurinn Mandla með tvær gimbrar undan hrútnum Prímusi.

SJ

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.

Tímapantanir í síma 436-1111

Aðalfundir deilda

Verkalýðsfélags Snæfellinga

verða haldnir miðvikudaginn 13. maí 2026 í golfskálanum Stykkishólmi

• Sjómannadeild kl: 17:30

• Verslunardeild kl: 17:30

• Deild starfsmanna ríkis og sveitarfélaga kl 17:45

• Almenn deild kl 17:45

Aðalfundur Verkalýðsfélags Snæfellinga

verður haldinn kl. 18 miðvikudaginn 13. maí 2026

í golfskálanum Stykkishólmi

Dagskrá aðalfundar:

• Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins

• Breyting á reglugerð sjúkrasjóðs

• Önnur mál

Veitingar verða í boði á fundinum

Sýnum samstöðu og fjölmennum á fundinn

Þau sem óska eftir fari á fundinn hafi samband við skrifstofu félagsins í síma 588 9191 eða á verks@verks.is.

Aflatölur 13. - 30. apríl 2026

Rólegt var yfir höfnunum fyrra hluta mánaðarins vegna hrygningastoppsins en allt fór á fullt þann 21. apríl á slaginu kl. 10:00 þegar svæðið opnanði aftur. Mjög góð veiði hefur verið í öll veiðarfæri. Hildur SH fór tvær ferðir vestur á firði í leit að Steinbít en veiðin hefði mátt vera betri. Tryggvi Eðvarðs fór suður í Faxaflóa og landar á Akranesi, fín veiði hjá honum. Strandveiðibátarnir eru farnir að fara á flot og allir að gera klárt en mánudaginn

okkar í Breiðafjörðinn og vonandi veiðir hún vel.

Landanir fimm hæstu í hverjum útgerðarflokki (óslægðar tölur):

Dragnót:

Saxhamar 148 tonn í 7 löndunum.

Ólafur Bjarnason 142 tonn í 7 lönd.

Hildur 140 tonn í 8 löndunum.

Stapafell 120 tonn í 7 löndunum.

Steinunn 116 tonn í 6 löndunum.

Net:

Bárður SH – 81 472 tonn í 15 lönd.

Magnús 256 tonn í 9 löndunum.

Bárður SH – 811 68 tonn í 6 lönd.

Júlli Páls 27 tonn í 3 löndunum.

Birta 7 tonn í 4 löndunum.

Rifsnes 306 tonn í 5 löndunum.

Tjaldur 298 tonn í 5 löndunum.

Lilja 186 tonn í 13 löndunum.

Stakkhamar 158 tonn í 14 lönd.

Tryggvi Eðvarðs 153 tonn í 10 lönd.

Kári III 15 tonn í 6 löndunum.

Glaður 13 tonn í 4 löndunum.

Stella 12 tonn í 7 löndunum.

Katrín II 11 tonn í 4 löndunum.

Huld 11 tonn í 4 löndunum. ÞB

Fyrsti deildarleikur

Víkings í sumar

Alvöru markaveisla átti sér stað á Ólafsvíkurvelli föstudaginn 1. maí þegar Víkingur Ó. tók á móti Hvíta riddaranum í fyrstu umferð 2. deildar karla í fótbolta.

Víkingar skoruðu fyrsta mark leiksins undir lok fyrri hálfleik þegar Naim Aaras El Hmaidi kom boltanum í netið. Leikmenn Hvíta riddarans voru fljótir að snúa leiknum sér í vil í byrjun síðari hálfleiks en sami leikmaðurinn skoraði tvö mörk á innan við fimmtán mínútum. Níu mínútum fyrir lok hefðbundins leiktíma bættu þeir svo við því þriðja.

Þegar Ólsarar héldu að leikurinn væri tapaður varð leikmaður Hvíta riddarans fyrir því óláni að skora sjálfsmark og Naim Aaras El Hmaidi jafnaði svo muninn fyrir Víking þegar fimm mínútur voru liðnar af uppbótatíma. Víkingar sættu sig því við

jafntefli í fyrsta leik sumarsins í deildinni.

Leikurinn var sérstakur styrktarleikur eins og komið hefur fram en fyrirliði Víkings, Ingvar Freyr missti kærustuna sína, Birtu Björk úr krabbameini í byrjun árs. María, móðir hennar var á sama tíma að glíma við krabbamein en sigraðist á meininu. Því miður greindist hún með bráðahvítblæði í mars sl. og ákvað því stjórn Umf. Víkings að tileinka fyrsta heimaleik henni og heiðra minningu Birtu Bjarkar.

Fyrir leikinn stóð yfir uppboð á treyju Ísaks Bergmanns til styrktar Maríu. Hæsta boð var 110 þúsund krónur og rann sú upphæð óskert til hennar auk ágóða af miðasölu, sjoppusölu og öllum varningi sem keyptur var á leiknum.

JJ

L a u s a r l ó ð i r í

G r u n d a r f i r ð i

G r u n d a r f j a r ð a r b æ r a u g l ý s i r l a u s a r l ó ð i r t i l ú t h l u t u n a r - a l l t a ð 1 8 n ý j a r

í b ú ð a r h ú s a l ó ð i r í Ö l k e l d u d a l o g 7 e l d r i l ó ð i r , a u k 6 a t v i n n u l ó ð a á

i ð n a ð a r s v æ ð i v e s t a n K v e r n á r . A u k þ e s s e r u p p b y g g i n g a r s v æ ð i á

m i ð b æ j a r r e i t o g f l e i r i t æ k i f æ r i t i l u p p b y g g i n g a r s e m k y n n t e r u á l ó ð a v e f

G r u n d a r f j a r ð a r b æ j a r g r u n d a r f j o r d u r . i s .

Í b ú ð a r h ú s a l ó ð i r :

Ö l k e l d u v e g u r 1 0 , 1 2 , 1 4 o g 1 6

Ö l k e l d u v e g u r 1 8 , 2 0 , 2 2 o g 2 4

Ö l k e l d u v e g u r 1 7 a o g 1 7 b

Ö l k e l d u v e g u r 3 9 o g 4 1 , e ð a 3 94 3

H r a n n a r s t í g u r 4 2 , 4 4 o g 4 6

( f y r i r 6 0 á r a o g e l d r i )

F e l l a s n e i ð 5

F e l l a s n e i ð 7

F e l l a b r e k k a 1 , 7, 9 , 1 1 o g 1 3

H e l l n a f e l l 1

G r u n d a r g a t a 6 3

A t v i n n u l ó ð i r :

H j a l l a t ú n 4 ; m e t r a l ó ð i r , s e m

s k i p t a m á u p p s k v s k i l m á l u m

H j a l l a t ú n 5 ; 2 . 2 7 7 m 2

H j a l l a t ú n 6 ; 2 . 4 0 0 m 2

H j a l l a t ú n 7 ; 2 3 8 3 m 2

G r a f a r t ú n 2 ; 2 4 8 2 m 2

G r a f a r t ú n 4 ; 2 . 0 4 4 m 2

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1206tbl by Steinprent - Issuu