Skip to main content

BaejarbladidJokull1205tbl

Page 1


Stóri plokkdagurinn var 26. apríl

Sunnudaginn 26. apríl var tekið höndum saman á vegum Snæfellsjökulsþjóðgarðs og friðlandið á Arnarstapa hreinsað í tilefni af Stóra plokkdeginum. Hópur vaskra plokkara kom saman á sunnudagsmorgun og týndu rusl sem finna mátti í umhverfinu. Ýmislegt fannst, stórt og smátt sem fjarlægt var af svæðinu og fundu ungir sem aldnir margt forvitnilegt sem ekki á heima í náttúrunni. Fleiri tóku höndum saman í sínu nærumhverfi þennan dag og mun vinnan við að fegra nærumhverfið halda áfram fram á sumarið. Leikskólar og skólar hafa lagt sitt af mörkum, félagasamtök og einstaklingar sömuleiðis en margar hendur vinna létt verk. Meðfylgjandi mynd tók Ingunn Ýr Angantýsdóttir, þjónustustjóri Snæfellsjökulsþjóðgarðs. SJ

Söngskemmtun á Sumardaginn

fyrsta

fjelagið fögnuðu sumri í Þjóð garðsmiðstöðinni á Hellissandi á Sumardaginn fyrsta. Kórarnir þrír, sem þekktir eru fyrir léttleika og mikla sönggleði leiddu saman hesta sína og sungu vorið inn fyrir tónleikagesti. Söngfjelagið er blandaður kór af höfuðborgarsvæðinu, Heiðbjört samanstendur af körlum af sunnan-

Snæfellsnesi. Það sem kórarn ir þrír eiga þó sameiginlegt er að allir syngja þeir undir stjórn Hólmfríðar Friðjónsdóttur, kórstjóra og sá hún um kórstjórn á umræddum tónleikum kóranna.

Fjöldi fólks gerði sér ferð í Þjóðgarðsmiðstöðina til að hlíða á sönginn og átti þar notalegt upphaf á sumrinu sem var að hefjast.

AÐALFUNDUR ÓLAFSVÍKURSÓKNAR

verður haldinn í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 19. maí kl 17,00.

Á dagskránni eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.

Fólk er hvatt til að mæta og ræða málefni kirkjunnar og taka þátt í störfum hennar.

Sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju.

Pakkhúsið Saga og kaffi

Pakkhúsið Saga & Kaffi opnar í Pakkhúsinu í Ólafsvík í sumar. Í byrjun apríl skrifaði Snæfellsbær undir samning við Yevheniia Korchyha um leigu á Pakkhúsinu og opnar hún rekstur á næstu vikum í húsinu. Á fyrstu hæð verður saga samfélagsins í hávegum höfð ásamt sölu kaffiveitinga og minjagripa og á efri hæðum hússins verður safnið enn aðgengilegt almenningi. Hollvinasamtök Pakkhússins vinna jafnframt að sýn ingu um verslunarsögu Ólafsvík ur sem verður aðgengileg í hús inu á opnunartíma rekstraraðila.

hval á land við Írskrabrunn við Gufuskála. Hvalurinn var 12 metra tarfur og gerðu margir heimamenn sem og ferðamenn sér ferð á staðinn til þess að bera dýrið augum. þann 20. apríl eða tíu dögum síðar varð stórstreymt og hvalinn hvergi að sjá. Að öllum líkindum hefur hræinu skolað út með straumnum. Í samtali við mbl.is sagði Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfells-

Pakkhúsið á sér langa og merkilega sögu í Ólafsvík, byggt árið 1844. Snæfellsbær hefur undanfarin ár auglýst eftir áhugasömum rekstraraðila í Pakkhúsið og með nýjum leigjendum er stefnt að því að Pakkhúsið verði á ný opið allan ársins hring. Íbúar og gestir eru hvattir til að líta við hjá nýjum rekstraraðilum þegar dyrnar að Pakkhúsinu opna að nýju á næstu vikum og skoða verslunarsögu Ólafsvíkur og safnið á efri

Meðfylgjandi mynd er af nýjum rekstraraðilum Pakkhússins. SJ

VORTÓNLEIKAR Tónlistarskóla Snæfellsbæjar 2026

verða haldnir sem hér segir:

Mánud. 4. maí kl. 17:00 í Kli

Þriðjud. 5. maí kl.17:00 í Kli

Miðvikud. 20. maí kl. 13:00 í Lýsuhólsskóla Enginn aðgangseyrir er á tónleikana.

Eftir tónleika í Kli 4. og 5. maí verður Foreldra-og styrktarfélag Tónlistarskóla Snæfellsbæjar með ka , djús og kökur til sölu.

ATH. Ágóði af ka sölu fer í styrktarsjóð til kaupa á hljóðfærum.

Tónleikar fullorðinna nemenda

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði, Blaðið kemur út vikulega.

bæjar, að það stæði ekki til að fjarlægja hvalinn og að stefnan væri að leyfa náttúrunni að vinna á skepnunni. Veðrið á þessum tíma var hentugt og þeim grunaði að hræið yrði fljótt að fara aftur. Mikil lykt barst umhverfis strandstaðinn en vísindamönnum tókst að ná sýnum úr hvalnum sem munu nýtast í rannsóknir. Landverðir frá þjóðgarðinum munu fylgjast áfram grannt með svæðinu.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Tónleikar fullorðinna nemenda við Tónlistarskóla Snæfellsbæjar verða haldnir í í Kli miðvikudag 6. maí kl.17:00.

Tónlistarskólakennarar og skólastjóri þakka samstar ð í vetur og óska íbúum gleðilegs sumars.

Lionsklúbbur Ólafsvíkur mun í ár, eins og undanfarin ár, bjóða upp á fermingarskeyti.

Fermt verður í Ingjaldshólskirkju 2. og 24. maí og Ólafsvíkurkirkju verður fermt 24. maí.

Hægt er að nálgast skeytapöntunarblöð í Kassanum og á Facebook-síðu Lionsklúbbs Ólafsvíkur

Í Kassanum er hægt að skila skeytapöntunum en að auki er hægt að senda skeytapöntun í tölvupósti á stebbifera@gmail.com

Fótboltahelgi

Nótan á Patreksfirði

Síðastliðin helgi var mikil fótboltahelgi í Snæfellsbæ. Veislan byrjaði á föstudagskvöldið þegar 3. flokki Víkings mætti liði Reynis í æfingaleik á Ólafsvíkurvelli. Leikurinn fór fram í rólyndis veðri þó kalt væri, virkilega vel var mætt á völlinn og mikil stemning var í stúkunni. Leikurinn var heldur jafn og áttu bæði lið góð færi og endaði hann með sigri 3. flokks Víkings með 4 mörkum á móti 2 hjá Reynismönnum.

Meistaraflokkur Víkings mætti svo Haukum í úrslitaleik Lengjubikarsins B deildar laugardaginn 25. apríl. Leikurinn fór fram á Ólafsvíkurvelli á vindasömum degi en vindurinn var svo mikill að leikmenn áttu í vandræðum með að hafa stjórn á boltanum. Víkingar byrjuðu leikinn í meðvind og spiluðu því erfiðari leik eftir hálfleik með vindinn á móti sér. Leikurinn endaði markalaus þrátt fyrir harða baráttu, bæði á milli liðanna og við veðrið. Leikurinn endaði því á vítaspyrnukeppni sem Haukar unnu með 4 mörkum á móti 2. Haukar fengu því Lengjubikarinn afhentan að leik loknum og Víkingar lentu í 2. sæti.

Eftir leikinn var Herrakvöld Víkings haldið á Sker þar sem hátt í 100 karlmenn komu saman í þeim tilgangi að styrkja fótboltastarfið. Tommi Steindórs og Gunni Birgis sáu um veislustjórn, Sker sá um að matreiða ofan í mannskapinn og uppboð á sjö fallegum málverkum fór fram með góðum undir-

Nótan, árleg uppskeruhátíð tónlistarskóla á Vesturlandi fór fram á Patreksfirði síðastliðna helgi. Nótan er uppskeruhátíð allra tónlistarskóla á landinu en á Patreksfirði fóru fram svæð istónleikar Vestfjarða og Vest urlands. Markmiðið með stofn un Nótunnar er að efla sam starf milli tónlistarskóla og um leið tónlistina í landinu en upp skeruhátíðin var fyrst haldin ár ið 2010.

tektum. Þá var happdrætti með veglegum vinningum og var fyrsti vinningur saunaklefi sem endaði í góðum höndum. Herrakvöldið gekk vonum framar og söfnuðust háar upphæðir sem munu nýtast félaginu vel á komandi sumri. SJ

Um 100 nemendur á aldrin um 6 til 20 ára stigu á svið, ann aðhvort einir eða sem hópur og voru flytjendur frá Akranesi, Bol ungarvík, Borgarfirði, Grundar firði, Ísafirði, Snæfellsbæ og Stykkishólmi. Í upphafi tónleik anna flutti allir flytjendur í sameiningu lagið Rock Around the Clock í útfærslu Madis Mäekalle.

Að því loknu var flutt fjölbreytta tónlist, allt frá stórsveitarslögurum niður í einleiksatriði, klassík, popp og rokk. Tónlistarskóli Snæfellsbæjar átti einn fulltrúa á hátíðinni, Oliver Mar Jóhann-

esson sem fór ásamt kennara sínum, Evgeny Makeev. Tónlistarskóli Grundarfjarðar átti einnig sex fulltrúa á hátíðinni. Meðfylgjandi mynd er af Oliver Mar sem flutti lagið Goodbye My Heart eftir Mike Smukal á altsaxófón.

Árleg vorhreinsun í Snæfellsbæ

Árleg vorhreinsun stendur yfir í Snæfellsbæ frá 1. - 18. maí 2026.

Gámar fyrir garðúrgang ásamt gámum með moltu verða settir upp á eftirfarandi stöðum:

Ólafsvík: á malarplani við Grundarbraut 40

Rif: til móts við botnlanga að Háarifi 41 - 47

Hellissandur: við félagsheimilið Röst

Gámar eru eingöngu ætlaði undir lífrænan úrgang. Öðru skal skilað á starfsstöð Kubbs í Ólafsvík, opið þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 15 - 18 og laugardaga frá kl. 11 - 15.

Bent er á að nú verður boðið upp á moltu án endurgjalds í stað moldar á öllum stöðum.

Nánari upplýsingar um vorhreinsun má nálgast á snb.is.

Vortónleikarnir Söngvar og sveifla frá Írlandi voru haldnir í Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 21. apríl. Kirkjukór Ólafsvíkur og kór Ingjaldshólskirkju sungu undir stjórn Veronicu Osterhammer og Elenu Makeeva. Hljómsveitin Parma spilaði undir og einsöngvarar úr kórnum tóku lagið fyrir tónleikagesti. Virkilega góð mæting var á tónleikana og sönn írsk stemming og stuð var í kirkjunni á þessum síðustu dögum vetrarins.

- Bílaviðgerðir

- Skipaþjónusta

- Almenn suðuvinna

- Smurþjónusta

- Smábátaþjónusta

- Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Föstudaginn 1. maí fer fyrsti heimaleikur Víkings í 2. deild karla fram á Ólafsvíkurvelli þegar liðið færir Hvíta riddarann í heimsókn. Ingvar Freyr Þorsteinsson, fyrirliði Víkings, missti kærustu sína, Birtu Björk, í byrjun árs

Styrktarleikur 1. maí

úr illvígu krabbameini einungis 23 ára að aldri. Á sama tíma og

Birta barðist sinni hetjulegu baráttu við krabbameinið var móðir hennar, María Magnúsdóttir, einnig að kljást við krabbamein sem hún svo sigraðist á. Því mið-

ur greindist María með bráðahvítblæði í mars síðastliðnum og munu stjórnir ungmennafélags Víkings og meistaraflokks Víkings taka höndum saman og tileinka þennan fyrsta leik deildarinnar þeim mæðgum, í þeim tilgangi að heiðra minningu Birtu Bjarkar og styðja við Maríu í komandi baráttu. Allur ágóði af

miðasölu, sjoppusölu og öðrum seldum varningi rennur því beint til Maríu. Stjórnir félaganna tveggja hvetja alla til að mæta á völlinn, fylla stúkuna af bláu og sýna stuðning í verki. Leikurinn hefst klukkan 14:00 þann 1. maí og verða hamborgara og pylsur til sölu af heitu grillinu.

SJ

ÞRIÐJUDAGINN 5. MAÍ, 20:00 • FÉLAGSHEIMILIÐ KLIF

Stefnumótun D listans

Opinn íbúafundur

Við kynnum helstu stefnumál fyrir komandi kjörtímabil og tökum samtalið við íbúa sem fá þar tækifæri til að hafa áhrif á stefnuskrána sem verið er að vinna að.

Kosningakaffi verður í Klifi á kjördag 16. maí, nánar auglýst síðar.

Allir íbúar velkomnir.

Laust starf við ræstingar í Ráðhúsi

Snæfellsbær auglýsir laust til umsóknar 50% starf við ræstingar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar og skrifstofurými í Félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Um er að ræða starf á dagvinnutíma eftir samkomulagi.

Auk þess hefur viðkomandi umsjón með eldhúsi, fundum og afleysingu í móttöku eftir þörfum. Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 og netfanginu lilja@snb.is.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. júní 2026.

Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar á snb.is.

1. maí 2026 STYRKUR OKKAR ER VELFERÐ ALLRA

1. maí samkomur Verkalýðsfélags Snæfellinga, Kjalar og Sameykis verða haldnar sem hér segir:

Í Stykkishólmi hefst dagskrá kl. 13.30 á Fosshótel Stykkishólmi

Kynnir: Þóra Sonja Helgadóttir verkefnastjóri Kjalar

Ræðumaður: Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu-rannsóknarstofu vinnumarkaðarins

- Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Stykkishólms

- Skemmtiatriði: Jón Jónsson

- Fosshótel Stykkishólmi sér um ka veitingar

Í Grundarfirði hefst dagskrá kl. 14.30

í Samkomuhúsi Grundarfjarðar

Kynnir: Sævör Þorvarðardóttir fulltrúi Sameykis stéttarfélags

Ræðumaður: Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu-rannsóknarstofu vinnumarkaðarins

- Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Grundar arðar

- Skemmtiatriði: Jón Jónsson

- Kvenfélagið Gleym-mér-ei sér um ka veitingar

Í Snæfellsbæ hefst dagskrá í Klifi kl. 15.30

Kynnir: Vignir Smári Maríasson formaður Vlf. Snæfellinga.

Ræðumaður: Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu-rannsóknarstofu vinnumarkaðarins

- Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Snæfellsbæjar

- Skemmtiatriði: Jón Jónsson

- Félag eldri borgara í Snæfellsbæ sér um ka veitingar

Félagsmenn og aðrir íbúar eru hvattir til að mæta og eiga saman góðan dag. Börn verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1205tbl by Steinprent - Issuu