Skip to main content

BaejarbladidJokull1197tbl

Page 1


Fengu rósir í hlýrri kirkjunni

Á konudaginn, sunnudaginn 22. febrúar, var haldin konudags messa í Ólafsvíkurkirkju. Áttu þar öll saman notalega stund og af henti sóknarnefndin öllum kon um sem mættu til kirkju rós í til efni dagsins. Eftir guðsþjónustuna héldu kirkjugestur niður í safnað arheimilið þar sem þau fengu sér saman kaffisopa og hressingu og nutu samverunnar. Guðþjónustan og samveran á eftir var einkar góð þennan sunnudaginn í hlýrri kirkj unni þar sem töluverður munur er á hitanum þar inni eftir nýlegar framkvæmdir.

Líkt og kom fram í 1194. tölu blaði Jökuls er búið að setja upp tvær varmadælur í Ólafsvíkur kirkju til að bæta hitun kirkjunn

til kirkjunnar en er það þó ekki nóg til að standa undir kostnaði. Því biðla þau að nýju til íbúa Snæfellsbæjar og annarra velunnara Ólafsvíkurkirkju að veita sókninni fjárhagslegan stuðning svo unnt

verði að klára að greiða þessa ember 2027 verður haldið upp á 60 ára vígsluafmæli hennar. Það er metnaður sóknarnefndarinnar og bæjarbúa að kirkjan líti ávallt sem best út og sé vel við haldið.

Bankaupplýsingar fyrir framlög: 0194-26-76 kt:500269-4999. 1197.

Upplestrarkeppni 7. bekkjar Grunnskóla Snæfellsbæjar fór fram í sal skólans í Ólafsvík þriðjudaginn 24. febrúar. 17 nemendur frá starfsstöðvum skólans í Ólafsvík og á Lýsu lásu texta úr bókinni „Ertu Guð, afi?“ eftir Þorgrím Þráinsson og ljóð að eigin vali. Stóðu nemendur allir sig einstaklega vel en vel mátti heyra að mikil vinna hefur verið lögð í að æfa bæði framkomu og lestur. Dómarar voru Guðríður Þórðardóttir, Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Þiðrik Örn Viðarsson. Þeir nemendur sem valdir voru til að taka þátt í lokahátíð keppninnar á Snæfellsnesi sem fram fer í Ólafsvíkurkirkju fimmtudaginn 5. mars voru Carmen Bylgja Arnarsdóttir, Freyja Hafrún Hall Valdimarsdóttir og Víglundur Orri Heimisson. Auk þess var Kristófer Óskarsson valinn sem varamaður liðsins.

Stóra upplestrakeppnin

Framkvæmdir boðnar út á Snæfellsnesi

Í byrjun febrúar óskaði Vegagerðin eftir tilboðum í sjóvörn við Útnesveg. Verkið felst í gerð sjóvarnar meðfram Útnesvegi nr 574-07, vestan við Ólafsvík. Um 50 m endurbygging af núverandi grjótfláa og 330 m lenging, samtals um 380 m, leggja á út um 12.000 rúmmetra af grjóti og sprengdum kjarna og á verkinu að vera lokið

eigi síðar en 15. september 2026. 24. febrúar voru tilboð opnuð og kom þá í ljós að tveir aðilar buðu í verkið en það voru Flakkarinn ehf. og Stafnafell ehf., Stafnafell var með lægra tilboð sem hljóðar upp á 70,86 milljónir en það er 84,2% af áætluðum kostnaði við verkið.

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Sama dag voru einnig opnuð tilboð í grjótvörn við Norðurgarð í Grundarfirði, verkið fellst í uppúrtekt og endurröðun á grjótvörn, um 3.500 rúmmetra af grjóti og sprengdum kjarna. Landfylling og yfirborðsfrágangur um 3.300 rúmmetrar. Fjórir aðilar buðu í en Flakkarinn var með lægsta tilboðið í þetta verk, rúmar 23 milljónir sem var 80,2% af áætluðum kostnaði, athygli vekur að Stafnafell, sem kom næst Flakkaranum, bauð aðeins tæpum 77 þúsund krónum meira í verkið. Vinnu við grjótvörnina skal lokið fyrir 1. júní í sumar.

Vegagerðin hefur einnig boðið út endurbyggingu á um 6 km kafla á Snæfellsnesvegi, frá Brúarhrauni að Hraunsmúla. Innifalið í endurbyggingunni er gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, útlögn tvöfaldrar klæðingar ásamt lögn ræsa og vinnslu og efnisútvegun efnis í burðar- og styrkarlög. Verkinu á að vera lokið fyrir 15. september n.k.

Tilboð í verkið var opnað 17. febrúar og eina tilboðið kom frá Borgarverki og hljóðaði upp á 356,82 milljónir eða 94,4% af áætlun.

Víkingar á toppi riðilsins

skrifað undir samning við fram herjann Allyson Fernando Santos Da Silva en hann kemur frá liðinu Club Deportivo Boiro á Spáni. Allyson er 31 árs Spánverji og mun hann spila með liðinu í sum ar. Allyson er kominn til landsins og var kominn með leikheimild fyrir leik Víkings á móti Sindra síðastliðinn sunnudag. Leikurinn fór vel af stað en Víkingar voru óheppnir að fá mark á sig á 20. mínútu leiksins. Víkingar voru ekki lengi að svara fyrir sig en það var Kolbeinn Tumi Sveinsson sem jafnaði leikinn. Ellert Gauti Heiðarsson skoraði annað mark Víkings á 35. mínútu og bætti Asmer Begic því þriðja við á 42. mínútu. Víkingar fóru sáttir inn

í klefa í hálfleik enda góð staða fyrir liðið. Asmer Begic bætti svo við öðru marki sínu í leiknum þegar sex mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Allyson Fernando Santos Da Silva kom inn á í sínum fyrsta leik þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka en Haukur Smári Ragnarsson náði að kóróna sigurinn þegar hann skoraði fimmta mark Víkinga á 89. mínútu. Þegar leikurinn var flautaður af voru Víkingar með fimm mörk á móti einu marki Sindra. Víkingur er í efsta sæti riðils 2 í B deild Lengjubikars karla með 9 stig eins og Selfoss , næsti leikur Víkings Ó. í Lengjubikarnum verður á Ólafsvíkurvelli þann 7. mars á móti Reyni Sandgerði. JJ

Perlað fyrir Lilju Dögg

Líkt og kom fram í 1195. tölublaði Jökuls greindist Lilja Dögg, 17 ára, með sjaldgæfa tegund bráðahvítblæðis þann 25. nóvember síðastliðinn. Lyfjameðferðir hafa gengið erfiðlega en þessi tegund krabbameins flokkast sem hááhættu afbrigði þar sem tilfellin eru mjög einstaklingsbundin, óútreiknanleg og ekki eru til neinar fastar meðferðaráætlanir. Vegna alvarleika sjúkdómsins þarf hún að komast sem fyrst út til Svíþjóðar í beinmergskipti. Þar mun taka við 4 til 6 mánaða ferli og en að því loknu mun hún þurfa mikla endurhæfingu, eftirfylgni og fleira. Lilja Dögg hefur tekist á við þessa baráttu af aðdáunarverðri þrautseigju og jafnaðargeði. Hún er harðákveðin í að berjast og gera allt sem hún getur til þess að sigra þetta ósanngjarna verkefni sem henni var fært.

Samfélagið á Snæfellsnesi hefur staðið þétt við bakið á fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum en til að mynda bauð veitingastaðurinn Matarlist upp á fjögurra rétta matseðil alla Konudagshelgina þar sem 5% af heildar-

vikudaginn 25. febrúar þar sem allur ágóði rann til Lilju Daggar. Þriðjudaginn 3. mars stóð til að Lionsklúbburinn Rán héldi viðburð þar sem perlað væri af krafti í Klifi, veður kom í veg fyrir að það væri hægt og var viðburðinum frestað til miðvikudags 4. mars . Perlað af Krafti er skemmtilegt verkefni á vegum Krafts, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þá koma hópar saman og leggja góðu málefni lið með því að perla armband til styrktar félaginu. Verkefna- og líknarnefnd Lionsklúbbsins Ránar fékk þá hugmynd af perla saman til þess að sína Lilju Dögg Gunnarsdóttur og fjölskyldu hennar samhug. Ránarkonur ætla að selja veitingar á viðburðinum til styrktar Lilju Daggar en auk þess gafst íbúum færi á að kaupa Lífið er núna armband til styrktar Krafts.

Lilja Dögg og fjölskylda hennar eru samfélginu og stuðningnum sem þeim hefur verið veitt á þessum erfiðu tímum afar þakklát. Þau finna samhuginn svo sannarlega og hvernig samfélagið umvefur þau og líður þeim hreinlega eins og það sé heilt samfélag að faðma þau og senda þeim orku. Þeir sem vilja leggja Lilju Dögg lið er bent á styrktar reikning á nafni móður hennar, Guðbjargar Ágústsdóttur.

Kennitala: 091280-5239

Reikningur: 0123-15-245667.

Efni og auglýsingum í Jökul

þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.

Það er í lagi að skila fyrr.

NORÐURTANGI 3, ÓLAFSVÍK

Til sölu er 459,2 fm. iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði í steinsteyptu húsi byggðu árið 1962.

Eignin  sem áður hýsti aðsetur Varar sjávarútvegsseturs skiptist annarsvegar í skrifstofuhúsnæði og rannsóknarstofur og hinsvegar í iðnaðarhúsnæði.

Gengið er inn í skrifstofu og rannsóknarstofuhlutann að framanverðu.  Er hann ca. 136 fm. að atarmáli og er í sérstöku húsi sem byggt er inní húsinu.  Hann skiptist í fordyri, hol, tvö skrifstofuherbergi, ka stofu, salerni, tvö rannsóknarherbergi og geymslu. Iðnaðarhlutinn skiptist í stóran sal og er hluti hans er afstúkaður sem geymsla og milliloft er y r hluta hans. Stór innkeyrsluhurð er á iðanarhlutanum. Nýlegir gluggar eru í skrifstofuhlutanum og nýlegur dúkur er á þaki hússins.

Húsið er staðsett miðsvæðið í Ólafsvík og gæti hentað undir ýmiskonar starfsemi. Eignin býður upp á ýmis tækifæri og mætti t.d. skipta henni í tvær eignir.  Verð 37.000.000,-.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu fasteignasölunnar www.fasteignsnae.is og á skrifstofu.

Fasteigna- og skipasala Snæfellsness

Pétur Kristinsson, lögm. og löggiltur fasteigna- og skipasali.

Sími 438-1199, netfang pk@simnet.is

Heimasíða: www.fasteignsnae.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook