

Lokið við að reka þil niður

Unnið hefur verið að lengingu bryggjunnar við Norðurgarð í Ólafsvík í nokkurn tíma. Nú er verið að lengja stálþil við Norðurbakka í Ólafsvíkurhöfn um 100 metra, auk þess sem útbúinn verður fyrirstöðugarður og 30 metra grjótvörn við enda þilsins. Um þessar mundir eru verktakar Hagtak hf á höfninni og var síðasta stálþilið slegið niður síðastliðna helgi. Haustið 2025 voru skipin Pétur mikli og Reynir við störf í Ólafsvíkurhöfn við dýpkunarframkvæmdir en grafið var 4,5 metra niður frá hafsbotni til að
mynda þilskurði og skipt um efni í þeim. Hagtak hefur svo slegið þilin niður í þessa þilskurði og notað til þess víbrara sem hangir úr stærðarinnar krana sem sést hefur á höfninni. Þegar síðasta þilinu var slegið niður gekk erfiðlega að koma því á sinn stað svo gripið var til hamars og er það ástæða þess að bæjarbúar urðu skyndilega varir við taktfastan slátt á sunnudagsmorguninn í Ólafsvík. Áætlað er að framkvæmdinni við lengingu á Norðurgarði í Ólafsvík ljúki í maí 2026. Kostnaður við þetta verk er um 600 milljónir króna en þar af
er hlutur ríkisins 60%. Á síðasta fundi hafnarstjórnar Snæfellsbæhar þann 31. janúar var lagt fram til kynningar tillaga að samgönguáætlun fyrir tímabilið 2026 til 2030. Þáverandi hafnarstjóri, Björn Arnaldsson, kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir í höfn -
um Snæfellsbæjar og við sjóvarnir í Snæfellsbæ sem eru í áætluninni á tímabilinu og kom fram að framkvæmdakostnaður hafnarframkvæmda væri áætlaður um 1,72 milljarður króna og sjóvarnaframkvæmdir um 50,4 milljón króna. SJ
Góugleðin fór fram í félags heimilinu Röst á Hellissandi laugardaginn 21. febrúar síðast liðinn. Miðasala á viðburðinn gekk vel, Arnór Ísfjörð Guð mundsson sá um á veislustjórn og gæddu gestir sér á hlaðborði frá Sker. Sívinsælu skemmtiatriði skipulagsnefndar Góugleðinnar voru á sínum stað þar sem tekið var á málefnum sveitarfélagsins og góðlátlegt grín gert af atburð um og íbúum. Hljómsveitin Bland frá Borgarnesi spilaði fyrir dansi að borðhaldi loknu. Skemmti leg nýjung var tekin upp í ár en gestir sáu sjálfir um að velja sér þema á borðið sitt og mæta með skreytingarnar. Mikill metnaður var lagður í skreytingarnar og var til að mynda sjóara þema, spilavíti og barnasturta á meðal skreyttu borðanna sem settu svip sinn á kvöldið.
Góugleði í Röst

Aðalfundur
Golfklúbbsins
Jökuls Ólafsvík
Aðalfundur Golklúbbsins Jökuls
verður haldinn sunnudaginn 1. mars kl. 20
í ka stofu HH í Ri .
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla formanns.
2. Ársreikningur 2025.
3. Önnur mál. Stjórn GJÓ
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
kemur út vikulega.
Úthlutað úr Íþróttasjóði
Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026 og hefur íþróttanefnd ákveðið að úthluta 32 milljónum til 76 verkefna fyrir árið. Flestir styrkirnir fóru í að bæta aðstöðu íþróttafélaga en það voru 42 styrkir. 26 styrkir voru veittir til fræðslu og útbreiðslu og átta styrkir munu nýtast til rannsókna. Ungmennafélag Grundarfjarðar fékk 400.000 króna styrk til kaupa á búnaði til að gera gönguskíðaspor. Félagið lagði mikla áherslu á
bættu aðgengi að íþróttum fyrir nýbúa og jaðarsetta en þau hlutu 300.000 króna styrk fyrir skíðabúnaði sem mun nýtast fyrir alla, 250.000 króna styrk fyrir skíðakennslu fyrir alla hópa samfélagsins og svo fékk Skotfélagið Skotgrund 250.000 króna styrk fyrir útbreiðslu á skotíþróttum fyrir nýbúa og jaðarsetta. Ungmennafélagið Víkingur fékk 300.000 króna styrk fyrir stofnun blakdeildar en aðsókn í íþróttina hefur verið að aukast í sveitarfélaginu. JJ
Jökull á Issuu
Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér að ofan með myndavélinni í símanum.
SJ
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið

Átthagastofan rifin á næstu mánuðum
Á 198. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar Snæfellsbæjar var tekið fyrir umsókn Snæfellsbæjar um leyfi til niðurrifs á Átthagastofu Snæfellsbæjar sem staðsett er við Kirkjutún 2. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti erindið að uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar sveitarfélagsins. Húsið var byggt á árunum 1941 til 1942 og er komið vel til ára sinna. Gluggar eru orðnir ónýtir, húsið lekur, veggir lélegir og fokhætta stafar af því. Í nokkurn tíma hefur verið lítil sem engin starfsemi í húsinu. Snæfellsbær keypti húsið á sínum tíma með það í huga að geta stækkað dvalarheimilið Jaðar og byggt íbúðir fyrir eldri borgara. Rætt hefur verið um að byggja fjölbýlishús fyrir eldri borgara á lóðinni og hafa úr því innangengt í Jaðar en sú hugmynd er ennþá á frumstigi, eins hefur verið rætt um að nota hluta af lóðinni fyrir stækkun Jaðars eins og áður segir. Stefnan er sett á að rífa Átthagastofuna á næstu mánuðum.
Mikil eftirspurn hefur verið eftir íbúðum fyrir eldri borgara í Snæfellsbæ en nú þegar eru fjórar íbúðir til útleigu í Ólafsvík og nýverið voru tvær auglýstar til leigu á Hellissandi. Mikill áhugi hefur verið á íbúðunum á Hellissandi og er önnur þeirra farin í útleigu

og nokkrir áhugasamir um hina íbúðina en ekki búið að fastsetja hana. Þessi möguleiki á viðbót á
Átthagastofureitnum myndi því koma sér vel fyrir íbúa Snæfellsbæjar sem eru komnir yfir 60 ára

Grundarfjarðarhöfn kaupir Nesveg 4
Grundarfjarðarhöfn hefur skrifað undir skuldbindandi tilboð á iðnaðarhúsnæði sem stendur að Nesvegi 4 í Grundarfirði. Seljandi hússins er Fiskmarkaður Snæfellsbæjar. Húsið sem er tæpir 4.800 fermetrar að stærð hýsti Hraðfrystihús Grundarfjarðar til ársins 1996 eða þangað til FISK Seafood keypti það. Húsið var byggt í upprunalegri mynd árið 1941 en hefur stækkað síðan og breyst töluvert. Lóðin sem húsið stendur á er ríflega 7200 fermetrar að flatarmáli. Húsið hefur verið á sölu síðan í lok janúar en viðræður Grundarfjarðarhafnar og seljenda hófust stuttu eftir að það kom á sölu. Kaupverð hússins er 30 milljónir króna. Hafnarsjóður tók ákvörðun um að kaupa húsið til þess að tryggja framtíðar-

uppbyggingu á lóðinni. Í fram tíðinni mun frystihúsið víkja fyrir nýrri byggingu eða byggingum
og mun lóðin þá fá nýtt hlutverk sem mun vera í takt við uppbyggingu hafnarsvæðisins. Í til-
kynningu frá Grundarfjarðarbæ kemur fram að um framtíðarfjárfestingu sé að ræða. JJ
og bíða enn eftir að fá úthlutaða íbúð. SJ
Aðalfundur Rauða krossins í Snæfellsbæ
verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026
kl. 20.00 í félagsheimilinu Klifi.
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn Rauða krossins Snæfellsbæ
Málþing um gjaldskyldu eða þjórfé
Þriðjudaginn 17. febrúar fór málþingið „Gjaldskylda – þjónustugjald eða þjórfé?“ fram í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Farið var yfir umgjörð og upplifun ferðamanna, réttláta gjaldtöku og aðgangsstýringu á áningarstöðum. Að málþinginu stóðu Rannsóknamiðstöð ferðamála, Markaðsstofa Vesturlands, Náttúruverndarstofnun, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og Svæðisgarður Snæfellsnes – UNESCO vistvangur. Á undanförnum árum hefur fjölgun ferðafólks og aukin umferð, þar á meðal skipulagðar hópferðir leitt til aukins álags á náttúrustaði um land allt. Uppbygging göngustíga, bílastæða og aðstöðu, aukin landvarsla, öryggismál og daglegt viðhald kallar á skýra ábyrgð og stöðugt fjármagn til að tryggja sjálfbærni þessara staða.
Á málþinginu hélt Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, erindið Sveitarfélög: Gjaldtaka á ferðamannastöðum - uppbygging eða rekstur?. Næst tók Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúru-
verndarstofnunar, til máls með erindið Gestagjöld: lykill að þjónustu og þekkingu. Ragnhildur Sigurðardóttir, þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs, hélt erindið Þjónustugjöld í Snæfellsjökulsþjóðgarði: áhrif og reynsla. Eftir hlé var Þorgrímur Guðmundsson, selabóndi í Ytri-Tungu, með erindið Selafjaran í Ytri-Tungu: gjaldskyld bílastæði og Ásgeir Baldursson, forstjóri Arctic Adventures, flutti loks erindið Umgjörð og upplifun ferðamanna – réttlát gjaldtaka og aðgangsstýring á áningarstöðum. Að erindunum loknum var pallborðsumræða með frummælendum og gestum málþingsins. Auk frummælenda og aðstandenda málþingsins mættu fulltrúar Ferðamálastofu, Umhverfisráðuneytis, SAF, ferðaþjónustufyrirtækja, þjóðgarða, innheimtufyrirtækja, landeigenda, bæjarstjórar, sveitarstjórnarfólk og almennir íbúar. Breidd hópsins endurspeglar hversu víðtæk áhrif þessi umræða hefur á samfélagið. Í erindum og umræðum var

fjallað um mismunandi leiðir til fjármögnunar og hvort og hvern ig bein gjaldtaka á staðnum sjálf um geti verið hluti af lausninni. Þrátt fyrir ólík sjónarmið var skýr samhljómur um mikilvægi þess að móta sanngjarnan og fyrir sjáanlegan ramma sem tryggir uppbyggingu, rekstur og vernd náttúrustaða með sjálfbærum hætti. Á málþinginu var sérstök áhersla lögð á að íslensk náttúra sé kjarninn í ímynd og aðdráttarafli fyrir áfangastaðinn Ísland. Þá var rætt mikilvægi þess að tekið
staðarins.Málþingið var tækifæri fyrir alla viðstadda til að skiptast á sýn, reynslu og skoðunum á málefninu og markar það mikilvægt skref í átt að heildstærði og opinni umræðu um viðfangsefnið. SJ
Grunnskólanemar kynna sér lífið í
Það eru stór tímamót í lífi hvers unglings að ljúka grunnskóla og velja sér braut til framtíðar. Hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga er lagður metnað í að styðja vel við bakið á nemendum á þessum krossgötum og sýna þeim þau fjölmörgu tækifæri sem bjóðast í heimabyggð.
Liður í þessum stuðningi eru heimsóknir Agnesar Helgu, námsráðgjafa FSN, í alla 10. bekki á upptökusvæði skólans. Þar fer hún yfir almennt skipulag framhaldsskólanáms og kynnir sérstaklega þá fjölbreyttu möguleika sem FSN býður upp á. Markmiðið er að auðvelda nemendum valið og svara þeim spurningum sem brenna á þeim fyrir næsta skólastig.
Þann 10. febrúar sl. fór hinn árlegi Framhaldsskólahermir fram við góðar undirtektir. Þar fengu nemendur í 10. bekk af öllu Snæfellsnesi tækifæri til að prófa hvernig það er að vera nemandi

Skólaakstur: Nemendur utan Grundarfjarðar nýttu sér skólabílana sem aka á hverjum morgni til skólans.
Innan veggja skólans: Agnes Helga tók á móti hópnum og kynnti starfsemina, en að því loknu fóru nemendur í raunverulegar kennslustundir hjá kennurum skólans til að fá tilfinningu fyrir náminu.
Mötuneyti: Nemendur áttu þess kost að borða hádegismat í mötuneyti skólans og þennan dag
FSN býður upp á öflugt bók nám til stúdentsprófs þar sem áhersla er lögð á persónulega kennslu. Í minni skóla eins og FSN er hægt að koma til móts við þarfir og áhugasvið hvers og eins einstaklings, sem skapar gott og
„Nálægðin og persónuleg þjón usta er einn mesti styrkur FSN. Það er dýrmætt fyrir nemendur að geta sótt metnaðarfullt nám án þess að þurfa að flytja langt að heiman strax að loknum grunnskóla.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111
Styrkir úr Byggðaáætlun
Sigur gegn KFG
Víkingur Ólafsvík mætti KFG í Lengjudeildinni síðastliðinn laugardag í Akraneshöllinni. Brynjar Kristmundsson er þjálfari KFG en var þjálfari Víkinga þangað til í lok síðasta tímabils. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir KFG en Sveinn Ingi Þorbjörnsson lenti í því óhappi að skora sjálfsmark á þriðju mínútu. Kristófer Áki Hlinason skoraði annað mark Víkinga á 37. mínútu og var staðan 2-0 í hálfleik. Víkingar mættu einbeittir til leiks í seinni hálfleik, staðráðnir í að klára leikinn með sóma. Asmer Begic bætti þriðja
marki liðsins við á 59. mínútu en Sölvi Snær Sólberg Auðunsson tókst að minnka muninn stuttu seinna og staðan því 3-1. Abdelhadi Khalok El Bouzarrari kom inn á fyrir Naim Aaras El Hmaidi á 73. mínútu og skoraði mark fjórum mínútum síðar. Ólafur Viðar Sigurðsson náði að skora mark fyrir KFG í blálokinn en það dugði ekki til. Lokastaðan var 4-2, Víkingum í vil. Næsti leikur liðsins í Lengjubikarnum verður þann 1. mars á Helluvelli á móti Sindra frá Höfn.
Innviðaráðherra hefur úthlutað 170 milljónum króna til fjórtán verkefna um land allt. Framlag til styrkjanna kemur af byggðaáætlun, aðgerð um sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Markmiðið með aðgerðinni er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar eru í forgangi. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.
Að þessu sinni hlutu tvö verkefni á Vesturlandi styrk, bæði á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Annars vegar fékk verkefnið Sjálfbær ferðaþjónusta í Dölum 9 milljón króna styrk og hins vegar hlaut verkefnið Búseta og samfélag í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ hlaut 11,5 milljón króna styrk. Verkefnið felst í heildstæðri greiningu á forsendum búsetu og byggðafestu í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ, skólahverfi Lýsuskóla. Unnin verður greining, sviðsmyndavinna og raunhæfar tillögur að leiðum til að efla íbúabyggð, fjölskyldubúsetu og samfélagsinnviði.
Búningar og nammi á Öskudag
Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 18. febrúar um allt land. Börnin og fullorðnir klæddu sig upp í tilefni dagsins og fóru allskyns verur um þennan dag. Börn mættu í búningum á leikskólana, nemendur grunnskólans mættu margir hverir í búningum og starfsfólk fyrirtækja og stofnanna klæddu sig í búninga og skemmtu sér
vel. Kötturinn var að sjálfsögðu sleginn úr tunnunni að gömlum sið á leikskólunum og Foreldrafélag leikskóla Snæfellsbæjar bauð til Öskudagsballs í íþróttahúsinu í Ólafsvík sem var opið öllum.
Eftir að dagskrá dagsins var lokið fór fjöldi barna á stjá um Hellissand og Rif líkt og venj an er á Öskudaginn. Klædd í

búninga gengur þau úr húsi í hús og óskuðu eftir að fá eitt hvað gott í gogginn frá heimil iseigendum sem tóku vel á móti þeim. Fullir pokar af nammi og
































Tilboðin gilda 26. febrúar - 8. mars