

112 dagurinn

Neyðarlínan heldur upp á 112 daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð. Í ár var áhersla dagsins að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi en fyrsta símtalinu í 112 var svarað 1. janúar 1996.
Miðvikudaginn 11. febrúar fór slökkvilið Grundafjarðar í heimsókn í grunnskólann auk þess sem sem viðbragðsaðilar fóru í bláljósaakstur frá slökkvistöðinni seinnipartinn sama dag. Hringur viðbragðsaðilanna endaði við stóra bílastæðið vestan við grunnskólann. Þar sýndu viðbragðsaðilar hvernig bíll er klipptur í sundur og var það mikil upplifun viðstaddra að verða vitni að slíku. 112 dagurinn í Snæfellsbæ hef-
ur verið færður yfir á næsta laugardag svo að sem flestir geti tekið þátt í fögnuðinum. Laugardaginn 14. febrúar fóru viðbragðsaðilar af stað í bílalest frá björgunarstöðinni Von á Rifi og keyrðu lögreglan, Slökkvilið Snæfellsbæjar, sjúkrabíllinn og björgunarsveitin Lífsbjörg um Rif, Hellissand og Ólafsvík áður en íbúum var boðið í opið hús í Mettubúð, Slökkvistöð Snæfellsbæjar. Auk þeirra sem voru í bílalestinni
voru þar aðilar frá Slysavarnarfélögum Helgu Bárðar og Sumargjöf og frá Rauða Krossinum. Ungir sem aldnir ræddu við viðbragðsaðila Snæfellsbæjar, fengu að líta í bílaflotann, gátu fengið sýnikennslu á skyndihjálp og eins og svo oft áður vakti þetta mikla lukku yngstu kynslóðarinnar og vakti upp ýmsar spurningar. SJ
1195. tbl - 26. árg.
18. febrúar 2026
Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur föstudaginn 6. febrúar síðastliðinn. Í tilefni dagsins var foreldrum barna á Krílakoti og Kríubóli boðið í morgunverð á leikskólunum og áttu börn og foreldrar notalega stund saman. Seinna sama dag kom Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, í heimsókn á báðar starfsstöðvarnar. Hann hitti þar tvo elstu árgangana og las fyrir börnin nokkrar blaðsíður úr bókinni Snorri selur. Voru öll börnin mjög áhugasöm um bókina og að loknum lestri fengu þau tækifæri til að spyrja Kristinn fjölda spurninga um og allt á milli himins og jarðar. Í tilefni dagsins settu börnin á leikskólunum líka upp listasýningar. Börnin á Krílakoti settu upp myndlistasýningu í versluninni Kassanum og börnin á Kríubóli
Dagur leikskólans

setti upp listasýningu í Tröðinni á Hellissandi. Fóru þau með málað ar dósir og hengdu á trén í skóg skín af andlitum þeirra
Björtubrauð í
Breiðuvík
Björtubrauð er lítið sveitabakarí á Snæfellsnesi rekið af Guðnýju Heiðbjörtu Jakobsdóttur frá Syðri-Knarratungu. Bakaríið er staðsett á Litla Kambi í Breiðuvík og opnaði nú í byrjun árs. Ekki er eiginleg opnun á bakaríinu en í samstarfi við Ann Þórsson og Þórarinn Þórsson, eigendur á Litla Kambi fær Guðný afnot að vottuðu eldhúsinu og aðstöðunni í uppgerðri hlöðunni og tekur við netpöntunum. Í framhaldinu er stefnir Ann að því að opna listagallerí og kaffihús í hlöðunni þar sem brauð Guðnýjar verða til sölu.
Súrdeigsbrauð eru i aðalhlutverki í bakaríinu en sætabrauð líta líka stundum dagsins ljós. Í upphafi bakaði Guðný fyrir sveitunga sína á sunnanverðu Snæfellsnesi og hefur keyrt brauðin heim eftir pöntunum. Eftir góðar mót-
tökur á Björtubrauðum tók hún næsta skref í byrjun febrúar og bauð Snæfellsbæingum norðan fjalls að panta nýbökuð súrdeigsbrauð úr litla sveitabakaríinu. Íbúar Snæfellsbæjar norðan heiðar geta þá pantað í gegnum skráningarblað á Facebooksíðu bakarísins. Í samvinnu við Sóley saumar eru brauðin afhent þar á miðvikudögum. Í samtali við Guðný segir hún að von sé um að næsta skref verði dreifing í Grundarfirði í samstarfi við kaffibrennsluna Valeriu.
Salan á brauðunum hefur farið vonum framar og eru íbúar í sveitarfélaginu lukkulegir með ljúffengt brauðmetið. Segir Guðný að ef það væri ekki fyrir samheldnina og stuðninginn í samfélaginu sunnan heiðar hefði þessi draumur hennar ekki orðið að veruleika. Mótttökurnar norð-
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði, Blaðið kemur út vikulega.
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
an heiðar hafa sömuleiðis verið frábærar enda eru ekki margir sem slá hendinni á móti nýbökuðu brauði. Íbúar eru hvattir til að líka við síðu Björtubrauða á Facebooksíðu bakarísins til að
geta fylgst með skráningalistunum sem koma þar inn en á hverjum lista er hægt að sjá hvað er í boði hverju sinni auk mynda af vörunum og verðlista.

þegar þau
Þann 25. nóvember 2025 kom í ljós að Lilja Dögg, 16 ára dóttir Guðbjargar Þuríðar Ágústsdóttur og Andra Steins Benediktssonar, væri komin með illvígan blóðsjúkdóm. Við frekari rannsóknir á blóði og beinmerg kom í ljós að hún væri með bráðahvítblæði og við enn nánari greiningu kom svo í ljós að hún væri með blandað bráðahvítblæði, AML og ALL. Blönduð bráðahvítblæði er afar sjaldgæf og flokkast sem hááhættu afbrigði þar sem þessi tilfelli eru mjög einstaklingsbundin, óútreiknanleg og ekki eru til neinar fastar meðferðaráætlanir. Mjög fljótlega eftir greiningu fór hún í meðferð. Eftir meðferðina var staðan háalvarleg vegna aukaverkana og eyddi Lilja Dögg fjórt-
Safnað fyrir Lilju Dögg
án dögum í desember á gjörgæslu. Þarna kom í ljós að hún var ekki bara að berjast við háalvarlegar afleiðingar meðferðarinnar heldur hafði meðferðin ekki haft nein áhrif á sjúkdóminn.
Til þess að eiga möguleika á að bjarga Lilju Dögg varð að hefja strax aðra lyfjameðferð á meðan hún var enn á gjörgæslu. Læknateymið á Íslandi hefur unnið þétt með evrópska ALL teyminu í Svíþjóð og hafa til dæmis verið flutt inn tvö lyf fyrir hana sem hafa ekki áður verið notuð hérlendis.
Menntastefnufundur

Líkt og kom fram í síðasta tölublaði Jökuls er menntastefna Snæfellsbæjar nú í endurskoðun. Að því tilefni var boðað til íbúafundar í félagsheimilinu Klifi miðvikudaginn 11. febrúar. Með endurskoðuninni er stefnt að því að greina stöðu í menntaog uppeldisstarfi í sveitarfélaginu og móta framtíðarsýn til næstu ára með skýrri stefnu og innleiðingaráætlun. Rík áhersla er lögð á samráð við stjórnendur, starfsfólk, nemendur, foreldra, kjörna fulltrúa og aðra íbúa sveitarfélagsins við endurskoðun stefnunnar. Opið ferli og samtal við samfélagið er mikilvægt svo vel takist til við mótun stefnu og innleiðingu enda er slíkt grundvöllur þess að sem mest sátt ríki um nýja stefnu.
Með áherslu á samráð að leiðarljósi boðaði stýrihópur verkefnisins til opins fundar en hófst hann á kynningu á verkefn-

Þrátt fyrir að hafa verið töluvert mikið veik í janúar hefur hún verið að svara meðferð vel en vegna alvarleika sjúkdómsins þarf hún að komast sem fyrst út til Svíþjóðar í beinmergsskipti og búið er að finna nokkra beinmergsgjafa. Reiknað er með að hún fari út til Svíþjóðar í mars eða apríl og mun þar taka við 4 til 6 mánaða ferli. Eftir meðferðina tekur svo við mikil endurhæfing, eftirfylgni og eflaust ýmislegt annað. Sigrún Erla Sveinsdóttir og Inga Jóhanna Kristinsdóttir tóku sig til og komu af stað söfnun fyrir Lilju Dögg, líkt og hjá öðrum var hugur þeirra mæðgna hjá Lilju og fjölskyldu hennar á þessum erfiðu tímum og vildu þær leggja sitt af mörkum. Þær deildu því þessari sögu Lilju Daggar á samfélagsmiðlum og til félagasamtaka í Snæfellsbæ með von um að samfélagið myndi taka sig saman í að veita þeim stuðning í þessu stóra verkefni.
inu frá Gunnþóri E. Gunnþórssyni, ráðgjafa frá Ásgarði skólaráðgjöf. Þar kynnti hann gerð og mikilvægi menntastefnu sveitarfélaga og útskýrði fyrir viðstöddum að núverandi menntastefna Snæfellsbæjar sé komin til ára sinna svo að tímabært sé að endurnýja hana. Eftir erindi Gunnþórs var viðstöddum skipt í hópa þar sem farið var yfir styrkleika og veikleika í mennta og uppeldisstarfi í sveitarfélaginu, ógnanir og tækifæri auk þess að farið var yfir þær áherslur sem fólk vill sjá í nýrri menntastefnu. Að loknum fundi var birt rafræn íbúakönnun á vefsíðu Snæfellsbæjar þar sem þau sem misstu af fundinum eða vilja bæta einhverju við fá tækifærið til að taka þátt í vinnunni. Öllum í Snæfellsbæ er velkomið að taka þátt! SJ
Samhugur í samfélaginu hefur verið áberandi og hélt CF Snb styktaræfingu fyrir Lilju Dögg laugardaginn 14. febrúar þar sem allir 27 iðkendur greiddu 2000 kr fyrir æfinguna sem rann óskipt til Lilju auk frekari styrkja. Þá hefur Lionsklúbburinn Rán skipulagt viðburð í félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 3. mars þar sem
verður perlað af krafti. Til að sýna Lilju Dögg og hennar fjölskyldu samhug verður perlað nýja armbandið frá Krafti, Lífið er núna og mun Lionsklúbburinn Rán standa fyrir vöfflu og kaffisölu þar sem ágóðinn mun renna óskertur til Lilju Daggar.
Lilja Dögg hefur tekist á við þessa baráttu af aðdáunarverðri þrautseigju og jafnaðargeði, hún er hljóðlátur nagli með hjarta úr gulli. Þrátt fyrir mikil veikindi hefur hún sýnt starfsfólki og fjölskyldu meiri umhyggju en margir fullfrískir gera. Hún hefur aldrei í þessu ferli sýnt merki um uppgjöf eða sjálfsvorkun. Hún er harðákveðin í að berjast og gera allt sem hún getur til þess að sigra þetta ljóta og ósanngjarna verkefni sem henni var fært.
Fyrir þau sem vilja standa við bakið á Lilju og fjölskyldu hennar og leggja henni lið er hægt að leggja inná reikning þeirra. Margt smátt gerir eitt stórt. Kt. 091280-5239 Rkn. 0123-15-245667
Opnun myndlistasýningar í 3 veggir
Bjarni Sigurbjörnsson hefur opnað listsýninguna Vetrablóm í Himinbjörg Listhúsi á Hellissandi. Opnun sýningarinnar var laugardaginn 14. febrúar í 3 veggjum listrými. Bjarni er eigandi Himinbjörg Listhúss ásamt eiginkonu sinni Ragnheiði *. Um er að ræða olíumálverk sem Bjarni hefur málað með innblæstri frá umhverfinu. Opnunin var að venju vel sótt en sýningin mun standa til 14. mars og er hægt að líta á verkin á fimmtudögum og föstudögum frá klukkan 16 til 18 og um helgar frá klukkan 14 til 17. SJ

Boltinn rúllar af stað
Fyrsti leikur Víkings Ó. í Lengjubikarnum fór fram síðastliðinn laugardag þegar þeir mættu Árbæ á Domusnovavellinum. Víkingur spilar í B-deild, 2. riðli. Víkingar mættu til leiks með fullskipað lið enda hafa forsvarsmenn unnið hörðum höndum í vetur við að næla í leikmenn. Jackson Cole Vanderven skoraði fyrsta mark Víkings í leiknum á 30. mínútu. Strákarnir spiluðu flottan leik í fyrri hálfleik en náðu ekki að bæta við öðru marki. Asmer Begic tókst hins vegar að skora mörk á 59. og 66. mínútu sem kom Víkingum í mjög sterka stöðu gagnvart Árbæ. Abdelhadi Khalok El Bouzarrari og Ingvar Freyr Þorsteinsson skoruðu stuttu seinna sitt hvort markið og var staðan þá orðin 5-0 fyrir Víking Ó. Jordan
Chase Tyler náði að lauma boltanum í netið fyrir Árbæ þegar 8 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en tókst ekki að minnka muninn meira en það. Lokastaða leiksins var því sterkur sigur, 5-1 fyrir Víking Ólafsvík í fyrsta leik sumarsins. Næsti leikur liðsins verður á Ólafsvíkurvelli þann 21. febrúar næstkomandi klukkan 14:00 á móti KFG.
Reynir Hellissandur mun spila í utandeildinni í ár og eru þeir einnig skráðir í Mjólkurbikarinn. Ef drög að bikarnum haldast óbreytt munu þeir spila fyrsta leik sinn í ár á Ólafsvíkurvelli þann 21. mars klukkan 13:00 á móti liðinu Elliða. Seinna sama dag stendur til að Víkingur taki á móti liði Árborgar í Mjólkurbikarnum einnig á heimavelli. JJ
Ingi
Hans í Höllinni

Fimmtudaginn 12. febrúar hélt
Ingi Hans erindi í Höllinni, félagsmiðstöð eldri borgara í Snæfellsbæ. Erindið bar heitið Með kaskeiti við stýrið og sagði hann þar sögu fyrstu bifreiða í Neshreppi
utan Ennis. Saga Inga Hans er óvenjuleg þar sem hún er um bifreiðar í vegalausum hreppi. Bráðskemmtileg hlustun sem viðstaddir höfðu gaman af. SJ
