

![]()


Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér að ofan með myndavélinni í símanum.
fyrsta fimmtudag hvers mánaðar og taka saman slökkviliðsæfingu.
Æfingarnar eru af ýmsum toga þar sem æft er meðal annars björgun, reykköfun, viðbragð, samvinnu og fleira sem gæti komið upp í útköllum. Fyrsta fimmtudag febrúarmánaðar, þann 5. febr-
og björgun í Átthagastofu Snæfellsbæjar.
Blaðamaður náði þessari mynd á meðan æfingin stóð yfir en sjá má tvo bíla slökkviliðsins og reykinn sem liggur út úr Átthagastofunni.
SJ
Kristrún Guðnadóttir, dóttir Friðgerðar Ólafar Jóhannsdóttir og Guðna Gunnarssonar, keppti á Vetrarólympíuleikunum í Tesero í Ítalíu en þetta er annað sinn sem hún tekur þátt í vetrarólympíuleikunum. Kristrún er fædd árið 1997 og er uppalin í Ólafsvík en hún flutti til Noregs ásamt fjölskyldu sinni 12 ára gömul og byrjaði þar að æfa skíðagöngu.
Kristrún var á meðal 89 keppenda sem hófu undankeppni sprettgöngunnar á skíðagöngusvæðinu í Tesero en aðeins þriðjungur keppenda komust í úrslit. Hringurinn var 1,5 km og gaf Kristrún allt í eins og hún ætlaði sér að gera. Kláraði hún gönguna á 4:09.30 mínútum og endaði í 61. sæti. Kristrún lenti í 74. sæti fyrir

fjórum árum þegar hún keppto íist í topp 30 þá hækkaði hún sig um þrettán sæti í sprettgöngunni á milli leika og því má fagna. Kristrún var einungis 33,09 sekúndum frá besta tíma göngunnar og 13,02 sekúndum frá 30. sætinu. Hún keppir næst í 10 km skíðagöngu fimmtudaginn 12. febrúar. SJ

Nemendur úr 5. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar eiga nú listaverk á sýningunni Norðrið í Norræna húsinu. Settu nemendur sýninguna upp ásamt nemend-
um frá Höfn í Hornafirði en báðir hóparnir eiga það sameiginlegt að búa í nágrenni jökla.
Sýningin Norðrið er hluti af stærri sýningu sem ber heitið Gár-

Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617

ur umbreytinar á Norðurslóðum en sú sýningin sameinar listafólk og vísindafólk í rannsókn á þeim umbreytingum sem nú eiga sér stað á norðurslóðum. Sýningin skoðar áhrif loftslagsbreytinga á snjó, ís og jökullandslag og hvetur gesti til að íhuga samband mannsins við náttúruna og menningarlegt mikilvægi norðursins. Sýningarnar munu standa til 24. apríl og eru skipulagðar af Ásthildi B. Jónsdóttur og Hönnu Ólafsdóttur í samstarfi við FÍMK, Listaháskóli Íslands, Menntavísindasvið HÍ og ASAD. Í tengslum við sýninguna var haldið málþingið Listkennsla fyrir
Ósk
arhorn á listkennslu og loftslagsvitund og var Inga Harðardóttir, myndmenntakennari í Grunnskóla Snæfellsbæjar, með erindi þar sem kallaðist Samtal við Snæfellsjökul: Listkennsla í Snæfellsbæ. Þar fjallaði hún um hvernig unnið er með jökla og loftslagbreytingar í listkennslu í skólanum en Inga hefur lagt mikið upp úr því í myndmenntakennslu sinni að nemendur vinni með nærumhverfi sitt, þar á meðal Snæfellsjökul og Snæfellsjökulsþjóðgarð.
SJ
Kæru vinir og samborgarar
Ákveðið hefur verið að setja upp tvær varmadælur í Ólafsvíkurkirkju í því skyni að bæta hitun kirkjunnar. Núverandi rafmagnsofnar eru orðnir gamlir, orkufrekir og hafa leitt til verulegrar hækkunar á rafmagnskostnaði.
Því miður er afgangur af rekstri kirkjunnar ekki nægur til að standa straum af þessari framkvæmd. Áætlaður kostnaður við uppsetningu varmadælanna er 1,3 milljónir króna.
Af þessum sökum er leitað til þeirra sem eru aflögufærir um að styrkja sóknina með fjárframlagi, svo hægt verði að ráðast í þessa nauðsynlegu framkvæmd.
Jafnframt má geta þess að fleiri verkefni eru fram undan varðandi viðhald kirkjunnar á
þessu og næsta ári. Í nóvember 2027 verður haldið upp á 60 ára vígsluafmæli Ólafsvíkurkirkju, og er það metnaður sóknarnefndar og bæjarbúa allra að kirkjan líti ætíð sem best út.
Bankaupplýsingar v/ framlaga: 0194-26-76 500269-4999
Með fyrirfram þökk fyrir stuðning og hlýhug í garð kirkjunnar.
Fyrir hönd sóknarnefndar Ólafsvíkurkirkju,
Olga Guðrún Gunnarsdóttir
Pétur Steinar Jóhannsson
Ragnheiður Víglundsdóttir
Inga Fanney Jónasdóttir
Þorsteinn Jakobsson
vikulega.
fyrir Tjaldsvæði Snæfellsbæjar
Gildir frá 1. janúar 2026
Gisting:
Almennt gjald...........................................................................................................
Börn, 0-13 ára......................................................................................................... Frítt
Börn, 14-16 ára......................................................................................................... 550 kr.
- frítt fyrir börn í fylgd með foreldrum/forráðamönnum
Ellilífeyrisþegar (65+) og öryrkjar............................................................................
Tilboð:
kr.
Fyrsta nóttin............................................................................................................... 2.100 kr.
Önnur nóttin...............................................................................................................
Þriðja nóttin................................................................................................................
Fjórða nóttin...............................................................................................................
Annað: Rafmagn pr. dag......................................................................................................... 1.300 kr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt í bæjarstjórn Snæfellsbæjar þann 4. desember 2025. Tekur gjaldskrá
þessi gildi þann 1. janúar 2026 og frá sama tíma fellur niður gjaldskrá fyrir tjaldsvæði
Snæfellsbæjar sem gilt hefur frá 1. janúar 2025.
Snæfellsbær, 4. desember 2025
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Aðalfundur Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ var haldinn í Klifi fimmtudaginn 5. febrúar sl. Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf ásamt umræðum um bæjarmálin. Á fundinum var einnig samþykkt tillaga um fyrirkomulag við röðun á lista D listans með uppstillingu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, 16. maí nk. Kosið var í uppstillinganefnd og voru þau Björn Arnaldsson, Kristjana Hermannsdóttir og Rögnvaldur Ólafsson kjörin. Á fundinum voru þau sem skipuðu efstu sæti listans við síðustu kosningar spurð hvort þau gæfu kost á sér áfram og upplýstu Auður Kjartansdóttir og Eiríkur Böðvar Rúnarsson að þau gæfu kost á sér áfram. Júníana Björg Óttarsdóttir lýsti því yfir að hún hefði ekki enn gert upp hug sinn og Björn H. Hilmarsson sagði frá því að hann hyggðist hætta í vor og gæfi ekki kost á sér áfram. Þá hefur Jón Bjarki Jónatansson sagt frá því að hann gefi kost á sér áfram.

Kristinn Jónasson bæjarstjóri var einnig ynntur eftir svörum og sagði hann frá því að hann væri til í að halda áfram ef þau sem munu sitja í efstu sætum framboðslistans óski eftir hans kröftum enda er það þeirra sem skipi listann að ákveða það. JÓ
Fyrirmyndar sjálfboðaliðar & framtíðar
Á vorönn 2026 hófst kennsla í FSN í áfanganum SJÁL2ÍH02 og eru níu nemendur skráðir í áfangann og eru þetta nemendur frá öllum sveitarfélögum á norðanverðu Snæfellsnesi. Markmiðið með áfanganum er að kynna nemendum fyrir sjálfboðaliðastörfum innan íþróttahreyfingarinnar og mikilvægi þeirra í og aðildarfélögum á Snæfellsnesi og að fjölga sjálfboðaliðum hjá íþróttafélögunum og kenna nemendum um mikilvægi íþróttahreyfingarinnar fyrir samfélagið. Í síðustu viku heimsóttu sjálfboðaliðar skólann og sögðu nemendum í áfanganum frá sínu mikilvæga starfi. Spennandi er að fylgjast með þeim verkefnum sem nemendur taka sér fyrir hendur í vor.
áfanginn?
Áfanginn gefur 2 einingar og byggir á blöndu af fræðslu og verklegri reynslu:
Fræðsluerindi : Nemendur sitja þrjú erindi sem fjalla um skipurit íþróttahreyfingarinnar, inngildingu og það hvað sjálfboða -
liðastörf gefa einstaklingnum.
Vinnuframlag: um 29–30 klukkustundum af sjálfboðavinnu fyrir íþróttafélög.
Fjölbreytni: nemendur prófi að starfa hjá að minnsta kosti tveimur mismunandi félögum.
Einkunn: Gefið er fyrir mætingu og vinnuframlag í formi einkunn-
sinna störfum sem að jafnaði eru launuð, svo sem þjálfun. Þá er gerð krafa um að nemendur standi við öll sín verkefni og haldi utan um tímaskráningu í lokaskýr-
slu, en þar er hvorki leyfilegt að

Það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu og sjá hvort þetta framtak verði til þess að efla enn frekar starf íþróttafélaganna á svæðinu og styrkja tengsl ungs fólks við sjálfboðaliðastörf.
Í september 2025 fjallaði Jökull um framkvæmdina í Gilinu í Ólafsvik á vegum Snæfellsbæjar og Ofanflóðasjóðs. Áætlaðar endurbætur Ofanflóðasjóðs á næstu árum eru um 14 milljarðar króna og hafa framkvæmdir við varnir nú farið fram á alls tólf þéttbýlisstöðum á landinu auk þess sem uppkaup eigna hafa átt sér stað á þrettán stöðum. Varnarframkvæmdir sem þessar eru hafnar á sjö stöðum á landinu, þar á meðal Patreksfirði, Flateyri og Neskaupsstað en í Ólafsvík er unnið að víkkun farvegar Bæjargils og viðgerðum á rofvörnum. Í skýrslu Ofanflóðanefndar frá 2024 segir að áætlun ofanflóðasjóðs á árunum 2025 til 2029 miðar að því að ljúka við undirbúningsvinnu og framkvæmdir á hættulegustu svæðum í þéttbýli á grundvelli staðfests hættumats Veðurstofu Íslands. Forgangsröðun uppbyggingar hefur miðast við að verja fyrst hættulegustu svæðin, þar sem flest hús standa á hættusvæði. Af tæknilegum ástæðum aðallega, hefur þurft að víkja frá þeirri megin reglu á fáeinum stöðum. Áætlun sjóðsins til næstu fimm ára miðar að því að halda áfram uppbygginu varna ofan hættulegustu svæða í þéttbýli. Í framkvæmdaáætlun Ofanflóðasjóðs eftir árið 2029 er




svo gert ráð fyrir frekari viðhaldi og viðbótum stoðvirkja í Ólafsvík. aðili verkefnisins með stuðningi Ofanfljóðasjóðs og verktaki við verkið er Borgarverk frá Borgarnesi. Líkt og áður vekja þessar framkvæmdir mikla lukku hjá börnunum á leikskólanum Krílakoti sem dást að vinnuvélunum við hvert tækifæri. Meðfylgjandi mynd fékk blaðamaður frá leikskólanum af börnum á Rauðu deildinni sem fylgjast áhugasöm með framkvæmdinni.
SJ
Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is
436 1617

Nú stendur yfir endurskoðun á menntastefnu Snæfellsbæjar og boðað er til íbúafundar vegna málsins.
Verkefnið er að greina stöðu í mennta- og uppeldisstarfi í sveitarfélaginu og móta framtíðarsýn til næstu ára með skýrri stefnu og innleiðingaráætlun.
Rík áhersla er lögð á samráð við stjórnendur, starfsfólk, nemendur, foreldra, kjörna fulltrúa og aðra íbúa sveitarfélagsins við endurskoðun stefnunnar. Opið ferli og samtal við samfélagið er mikilvægt svo vel takist til við mótun stefnu og innleiðingu enda
er slíkt grundvöllur þess að sem mest sátt ríki um stefnuna.
Í ljósi þess boðar stýrihópurinn til opins íbúafundar þar sem öllum sem hafa áhuga á málefninu gefst kostur á að leggja sitt af mörku við áherslu nýrrar menntastefnu.
Íbúafundur verður í Félagsheimilinu Klifi miðvikudaginn 11. febrúar 2026 kl. 17:30.
Dagskrá fundar:
• Kynning - Gerð og mikilvægi menntastefnu sveitarfélaga
• Hópavinna - Styrkleikar, veik-
leikar, ógnanir, tækifæri ofl.
• Lokaorð og næstu skref.
Að loknum íbúafundi verður einnig hægt að koma ábendingum og tillögum á framfæri við stýrihópinn á heimasíðu Snæfellsbæjar.
Stýrihópur um endurskoðun menntastefnu Snæfellsbæjar vonast eftir góðri þátttöku og hvetur bæjarbúa til að fjölmenna á fundinn.

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur hefur samið við Abdel hadi Khalok og Daða Kárason um að spila með liðinu í sumar. Khalok kemur til Víkings frá Kor máki/Hvöt, hann er 30 ára kant maður sem er kunnugur staðhátt um í Ólafsvík þar sem hann spilaði með Víking 2023 og 2024. Hann hefur spilað 30 leiki fyrir Víking Ó og skorað í þeim 9 mörk. Daði kemur til Víkings frá Val og semur við liðið út leiktíðina 2027. Hann er 25 ára miðvörður sem spilaði með Víking árin 2023, 2024 og 2025.
Liðið tekur báðum leikmönn um fagnandi aftur vestur og væntir mikils af þeim í sumar. Þá hefur líka verið gefið út að Ingólfur Sigurðsson muni ekki spila með félaginu á komandi tímabili. Ingólfur hefur lagt mikið af mörkum til liðsins á sínum tíma hjá félaginu, bæði innan vallar sem utan, og hefur verið mikilvægur hluti af starfsemi þess. í tilkynningu frá félaginu þakkar Ingólfur Víkingi fyrir tíma sinn hjá félaginu, veitt traust og gott samstarf.

Mótanefnd KSÍ hefur birt leikjaniðurröðun fyrir 2. deildina sumarið 2026 og verður fyrsti leikur Víkings á heimavelli 1. maí
þar sem þeir munu taka á móti Hvíta Riddaranum. Undirbúningstímabilið fyrir sumarið er nú hafið og hefur Víkingur spilað þrjá æfingaleiki nú í byrjun árs. Fyrsti æfingaleikur Víkings á undirbúningstímabilinu fór fram í Kórnum í Kópavogi á móti Ými og tók Ýmir þar 5-2 sigur. Víkingur og Hvíti Riddarinn mættust í Mosfellsbæ og skoraði Kolbeinn þar eina mark leiksins svo að Víkingar unnu 1 - 0. Víkingar mættu svo Fjölni í Grafarvogi í skemmtilegum leik sem endaði þó 2 - 1 fyrir Fjölni og átti Kolbeinn Tumi einnig mark Víkinga í þeim leik. SJ

Í Tímariti um viðskipti og efnahagsmál birtist nýlega greinin Viðhorf íbúa til þjónustu sveitarfélaga eftir stærð þeirra, metin í fjölda íbúa eftir Vífil Karlsson, Stefán Kalmansson og Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur. Greinin birtist á vegum Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst. Í greinni kemur fram að íbúar fjöl-
mennari sveitarfélaga eru töluvert ánægðari með þjónustu sem þau veita en íbúar þeirra fámennari. Það á aðallega við um sveitarfélög á með á bilinu 500 til 20.000 íbúa, sem er þó aðeins breytilegt eftir tegund þjónustunnar. Við efri mörk íbúafjölda, um 20.000 manns, mælist viðsnúningur þannig að íbúar sveitarfélaga í kringum 20.000 íbúa eru
Efni og auglýsingum í Jökul
þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.
Það er í lagi að skila fyrr.
þá ánægðari en þeirra sem fjölmennari eru. Annað sem kom fram er að íbúar fjölkjarna sveitarfélaga eru frekar óánægðari með þjónustu sinna sveitarfélaga en þau sem eru einkjarna og íbúar landmeiri sveitarfélaga frekar óánægðari en þeirra sem landminni. Þá komu fram skýr merki um að íbúar sveitarfélaga sem hafa búið við örustu fólksfjölgun yfir lengra tímabil eru mun óánægðari með þjónustu síns sveitarfélags en þeirra þar sem fjölgunin hefur verið hófstilltari eða jafnvel fækkun. Af þessu má m.a. ráða að það virðist gott að búa í fjölmennu sveitarfélagi en það er ekki gott að gott að komast hratt í þá stöðu. Í rannsókninni var stuðst við stóran gagnagrunn Íbúakönnunar landshlutanna þar sem nærri
29.000 manns tóku þátt árin 2016, 2017, 2020 og 2023. Í könnuninni voru þátttakendur spurðir um viðhorf þeirra til ýmissa þjónustu í þeirra sveitarfélagi eins og grunnskóla, leikskóla og 18 aðra þætti sem hafa verið á ábyrgð sveitarfélaga að hluta til eða öllu leyti. Gæði þjónustunnar byggja því á mati íbúanna en rannsóknin er fyrst og fremst samanburður á afstöðu íbúa um land allt gagnvart þjónustu sinna sveitarfélaga og hvort fylgni sé gagnvart stærð þeirra auk annarra eiginleika. Efni greinarinnar gæti því verið innlegg í umræðu um sameiningu sveitarfélaga. Greinina má nálgast í heild sinni á vefsíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is. SJ
Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar fimmtudaginn 5. febrúar fékk bæjarstjórnin góða gesti þegar ungmennaráð Snæfellsbæjar kom í heimsókn. Á fundinum fengu ungmennin tækifæri til að sjá hvernig hefðbundin fundarstörf á slíkum fundum fara fram og fá frekari innsýn í starf bæjarstjórnarinnar.
Ungmennaráðið er vettvangur fyrir ungmenni í Snæfellsbæ til að taka virkan þátt í mótun samfélagsins og er markmið þess að skapa vettvang og leiðir fyrir þá sem eru yngri en 18 ára til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Starf ungmennaráðsins hefur verið öflugt síðastliðin ár þar sem meðlimir þess hafa lagt sitt af mörkum innan samfélagsins, sótt fundi og ráðstefnur, tekið á móti erlendum ungmennaráðum og kynnt fyrir þeim starf sitt auk þess að ferðast út fyrir landsstein-
ana til að kynnast starfi annarra.

þau Adrian Pienkowski, Arnar Val ur Matthíasson, Emilía Hall Stígsdóttir, Hrefna Jónsdóttir, Hanna Líf Kristgeirsdóttir og Kristján Mar Yilong Traustason frá Ungmennaráði Snæfellsbæjar ásamt Halldóru Unnarsdóttur. SJ
Fyrsti fundur Farsældarráðs Vesturlands var haldinn að Garðavöllum á Akranesi þann 22. janúar síðastliðinn en Farsældarráð Vesturlands var formlega stofnað þann 1. október 2025. Í farsældarráðinu eiga sæti fulltrúar frá sveitarfélögunum á Vesturlandi, fulltrúar þeirra ríkisstofnanna sem eru á Vesturlandi, fulltrúi frá Svæðisstöð íþróttahéraða og fulltrúar frá Ungmennaráði Vesturlands. Farsældarráð vinnur í samræmi við farsældarlög með það að markmiði að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur á Vesturlandi með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun. Jafnframt mun farsældarráð vinna að því að styrkja þverfaglegt samstarf og tryggja að farsæld barna sé höfð að leiðarljósi í stefnumótun og framkvæmd þjónustu í landshlutanum.
Elísabet Sigfúsdóttir sérfræðingur á Farsældarsviði Barna- og fjölskyldustofu hélt erindi um hlutverk farsældarráðs
og farsældarlögin, Ragný Þóra Guðjohnsen faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fór yfir lykiltölur ÍÆ varðandi börn og ungmenni á Vesturlandi, Bára Daðadóttir verkefnastjóri farsældarmála hjá SSV fór yfir niðurstöður Farsældardags Vesturlands ásamt stöðu innleiðingar farsældar á Vesturlandi og Jón Arnar Sigurþórsson Samfélagslögregla á Vesturlandi sagði ráðsmönnum frá því góða forvarnarstarfi sem lögreglan á Vesturlandi stendur fyrir í þágu barna og ungmenna.
Að fyrirlestrum loknum var vinnustofa fyrir fulltrúa Farsældarráðs Vesturlands en verkefni vinnustofunnar var að kortleggja þau forgangsatriði sem fulltrúar telja brýnt að lögð sé áhersla á. Næsti fundur Farsældarráðs Vesturlands verður haldinn í Borgarbyggð í mars næstkomandi og verður þá unnið að svæðisbundinni aðgerðaráætlun í þágu farsældar barna á Vesturlandi. SJ
viðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

ar hennar skína á Snoppuna í Ólafsvík er sólin formlega komin aftur. Að því tilefni taka vaskar konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur sig til árlega og baka sólarpönnukökur fyrir fyrirtæki og einstaklinga í samfélaginu. Þar var enginfélagskonur í félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 10. febrúar og bökuðu pönnukökur til að fagna því að sólin sést nú aftur eftir skammdegið. Mikil vinna fer í þetta skemmtilega verkefni en kvenfélagskonur voru mættar í baksturinn uppúr klukkan 4 aðfaranótt þriðjudags og bökuðu um 2200 pönnukökur í góðum félagsskap.


Viðbragðsaðilar í Snæfellsbæ halda upp á 112 daginn laugardaginn 14. febrúar 2026
Bílalest viðbragðsaðila mun keyra um bæinn.
Farið verður frá Björgunarmiðstöðinni Von í Ri kl. 12.00 og keyrt um Hellissand, Rif og Ólafsvík.
Sjáumst svo í Slökkvistöðinni Mettubúð þar sem verður opið hús kl. 13.00 og gestum boðið að skoða og kynna sér búnað viðbragðsaðila.




