Skip to main content

BaejarbladidJokull1193tbl

Page 1


Þorra blótað í Klifi

koma aðilar úr Kvenfélagi Ólafs víkur, Lionsklúbbi Ólafsvíkur, Lionsklúbbnum Rán, Átthagafélagi Fróðhreppinga og Leikfélaginu Laugu að skipulagi blótsins og sjá til þess að allir skemmtu sér vel. 240 miðar seldust á blótið í ár, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sá um veislustjórn og Galito sá um veitingarnar. Guðmundur Jensson fór með minni kvenna og Sól­

riðin sem margir hafa beðið eftir, tekið var á málum ársins úr samfélaginu, sungið og mikið hlegið. Að því loknu fór hljómsveitin Festival á svið og spilaði fyrir dansglaða gesti þar til húsið lokaði.

Mikil ánægja var með þorrablótið og eiga allir sem komu að þorrablótinu lof skilið fyrir vel heppnað blót.

SJ

Ölkelduvegur 31 - Nýtt 75 fm raðhús í Grundar rði

Húsið eru í byggingu og verður afhent fullbúið að utan en tilbúin til innréttinga að innan. Verð á fullbúnu húsi með öllu er 42 millj.

Einnig er hægt að kaupa eignina á núverandi byggingarstigi og getur þá laghentur kaupandi skapað sér eigið fé á auðveldann hátt. Hægt er að taka hlutdeildarlán á þetta hús.

To świetna okazja dla tych, którzy potra ą zrobić coś na własną rękę lub dobrze się bawić. Możesz zaciągnąć pożyczkę partnerską na te domy.

Uppl. í síma 840 6100 og 699 3444

Uppbyggingarsjóður úthlutar

Uppbyggingarsjóður Vesturlands hélt úthlutunarhátíð miðvikudaginn 21. janúar þar sem tilkynnt var um þau menningar­, atvinnu­ og nýsköpunarverkefni sem hlutu styrk úr sjóðnum í þetta skiptið. Að þessu sinni hlutu 61 verkefni styrk og fjárhæð úthlutaðra styrkja voru 54.340.000. Úr hópi atvinnu ­ og nýsköpunar voru þrjú verkefni sem hlutu styrk úr Snæfellsbæ og Grundarfirði. Eimreiðarfélag Grundarfjarðar ehf. hlaut 540.000 króna styrk fyrir verkefnið sitt Bókum heima, Golfklúbburinn Jökull fékk 650.000 króna styrk til uppbyggingar á Rifsvelli og Halldóra

Kristín Unnarsdóttir fékk 1 millj ón króna styrk fyrir verkefnið Snæ fells Kayak Adventures. Úr flokki menningarstyrkja fengu Hollvina félag Pakkhússins 500.000 króna fyrir sýningu um verslunarsögu Ólafsvíkur og Lionsklúbbur Ólafs víkur fékk 1 milljón króna fyrir verkefni sitt 115 ár. Svæðisgarður Snæfellsness fékk einnig 750.000 króna styrk fyrir verkefnið Sendiherrar Snæfellsness – UNESCO vistvangs. Sjóminjasafnið á Hellissandi var eini umsækjandinn á svæðinu sem fékk úthlutað í formi rekstrarstyrks en safnið hlaut 700.000 króna úthlutun.

- Bílaviðgerðir

- Skipaþjónusta

- Almenn suðuvinna

- Smurþjónusta

- Smábátaþjónusta

- Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Í sumar verða haldin þrjú utanvegahlaup á Snæfellsnesi en tvö ný hlaup verða haldin í fyrsta skiptið í ár. Kerlingaskarðshlaupið verður haldið í fyrsta skiptið þann 23. maí næstkomandi en þá verður hlaupinn malarslóði í

skarð. Hlaupið hefst við afleggjarann að Kerlingaskarði á norðanverðu Snæfellsnesi og lýkur á sunnanverð nesinu. Hlaupaleiðin er 14 kílómetrar og er skráningarfrestur til lok dags 22. maí. Keppnishaldari er Emil Einarsson. Snæfellsjökulshlaupið verður haldið

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

þann 20. Júní í ár en þetta verður fimmtánda skiptið sem hlaupið er haldið. Rásmark er á Arnarstapa og hlaupa keppendur yfir jökulhálsinn og að marklínu í Ólafsvík. Hlaupaleiðin er um 22 kílómetrar og er skráningarfrestur til lok dags 19. Júní. Keppnishaldarar eru þær Sigrún Ólafsdóttir og Ingunn Ýr Angantýsdóttir. Sjónarhóll Trail Run verður haldið í fyrsta skiptið 8. Ágúst og hefst hlaupið á Hellissandi. Hlaupaleiðin liggur upp á Sjónarhól og til baka á Hellissand.

Hlaupaleiðin er 21 kílómetri að lengd og er skráningarfrestur til loks dags 7. ágúst. Keppnishaldari hlaupsins er Hlaupahópur Snæfellsbæjar og fyrir hópnum fara þau Ari Bent Ómarsson og Helga Jóhannsdóttir.

Það verður því nóg um að vera fyrir hlaupaunnendur á Snæfellsnesi í sumar og um að gera að byrja að æfa fyrir keppnir sumarsins. Skráningar fara fram á www.netskraning.is.

JJ

Bættur árangur í sorpflokkun

Fyrir rúmlega ári hóf Snæfellsbær söfnun á sorpi í fjórum úrgangsflokkum, það er almennu sorpi, lífrænu sorpi, pappa og plasti. Fyrirtækið Kubbur hefur sinnt söfnun á úrgangi frá því í júní 2024 og tók Smári Jónas Lúðvíksson saman upplýsingar um söfnun heimilisúrgangs frá heimilum. Í yfirferðinni er tölum um úrgangssöfnun skipt í fjóra flokka, það er söfnun frá heimilum, söfnun frá stofnunum, söfnun frá rekstraraðilum og söfnun í móttökustöð. Ástæðan fyrir þessari skiptingu er að þetta eru aðskilin verkefni í framkvæmd og mismikil aðkoma sveitarfélagsins þegar kemur til þess að ná árangri í minnkun og flokkun úrgangs. Í samantekt Smára er eingöngu litið til söfnunar á heimilum.

Hvort árangur náist í flokkun sorps frá heimilum er nær alfarið undir íbúum sveitarfélagsins komið. Sveitarfélagið hefur sett

upp kerfi þar sem reynt er að finna jafnvægi á milli kostnaðar og þjónustustigs en þar að auki þarf að uppfylla kröfur laga um sérsöfnun úrgangs. Samstarf sveitarfélags og íbúa um að nýta kerfið þannig að það skili árangri skiptir því miklu máli hér. Marka má árangur á milli ára í öllum flokkum sem mældir voru. Samdráttur var í magni á íbúa um 900g, eða úr 146,5 kg í 145,6 kg sem er vart marktækt en þó í rétta átt. En það sem er merkilegra er að hlutfall almenns úrgangs sem fór í urðun lækkaði úr 68% í 51% og kemur þannig Snæfellsbæ nær settum markmiðum, en stefnt er að 45% almenns úrgangs fari í urðun.

Ef skoðað er tölurnar betur sést að frá júlí til desember 2024 safnaðist að meðaltali 20.717 kg á mánuði af sorpi. Í byrjun árs 2024 voru skráðir 1697 íbúar í Snæfellsbæ svo það féllu til 12,2 kg af sorpi á hvern íbúa í mánuði

að meðaltali. Þar af voru 8,2 kg eða 68% almennt sorp, 1,4 kg eða 11% lífrænt sorp, 1,7 kg eða 14% pappi og 0,8 kg plast. Frá 1. janúar til 31. desember 2025 hefur hins vegar safnast 21.208 kg af sorpi í mánuði. Í byrjun árs 2025 voru 1748 íbúar skráðir í sveitarfélaginu sem gefur okkur að það féllu til að meðtaltali 12,1 kg af sorpi á íbúa í mánuði. Þar af var 6,2 kg eða 51% af því almennt sorp, 1,9 kg eða 17% lífrænt sorp, 3,0 kg eða 25% pappi og 1,0kg eða 10% plast.

Til viðmiðunar var skoðað tölur um heildar úrgang sem safnaðist í Stykkishólmi fyrir allt árið 2024 en það var um 150 kg á íbúa og tölur fyrir höfuðborgarsvæðið yfir sama tímabil var um 152 kg. Á sama tíma söfnuðust um 146,4 kg á íbúa í Snæfellsbæ og árið 2025 var það 145,5 kg á íbúa yfir árið. Árangur varðandi söfnun heimilisúrgangs við heimili í Snæfellsbæ er því góður í ofangreindum samanburði. Hlutfall almenns úrgangs í Snæfellsbæ er eins og áður segir um 51% frá söfnun við heimili. Sama hlutfall í Stykkishólmi er 47% og í höfuðborginni er það 53%.

Þó að ekki sé búið að greina

samsetningu sorps úr söfnun í Snæfellsbæ að fullu þá má álykta að gerlegt sé að ná hlutfalli almenns sorps undir 45% með því að vera duglegri í að flokka lífrænt frá almennu sorpi. Hlutfall lífræns úrgangs í Snæfellsbæ er 16%, til samanburðar er þetta hlutfall í Stykkishólmi 32% og á höfuðborgarsvæðinu 23%. Ef íbúar eru með önnur úrræði, eins og jarðgerð, eru þeir hvattir til að halda því áfram.

Snæfellsbær hefur fengið greiddar 10.606.000 krónur frá Úrvinnslusjóði vegna góðs árangurs söfnunar frá heimilum árið 2025 en það er margfalt meira en árið á undan. Söfnun heimilisúrgangs er farin að skila fjárhagslegum árangri og á síðastliðnu ári stóðu sorphirðugjöld undir kostnaði svo Aðalsjóður þurfti í fyrsta sinn ekki að greiða með sorphirðu í Snæfellsbæ. Það varð til þess að sorphirðugjöldin tóku litlum breytingum í nýrri fjárhagsáætlun og með frekari þróun væri hægt að lækka gjöld á komandi árum án þess að skerða þjónustu til almennra íbúa.

Leiðrétting

Í síðasta tölublaði Jökuls var stutt grein um úthlutun vilyrða til félaga sem sóttu um í samræmi við ákvæði reglugerðar um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum.

Útivistartími barna

Þann 1. maí nk. breytast reglur um útivistartíma á þann hátt að hann lengist um tvær klukkustundir. En um útivistartíma barna er fjallað í 92. gr barnaverndarlaganna, þar segir:

„Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22:00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla­, íþrótta­ eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. septem­

ber lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.“

Þau aldursmörk sem getið er um í reglunum miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag, því gilda sömu reglur um fyrir öll börn í sama árgangi.”

Börn sem eru því 12 ára og yngri mega ekki vera í sundlauginni ein án foreldri eða forráðamenn eftir kl.20:00 og eru foreldrar beðnir um að virða þessar reglur.

Í greininni var ranglega sagt að 45 af 200 tonnum verði út­

hlutað í Snæfellsbæ, hið rétta er að þetta verða aðeins 26 tonn þar sem að Evrópumót EFSA verður ekki haldið í Snæfellsbæ. Beðist er velvirðingar á þessum rangfærslum.

Efni og auglýsingum í Jökul

þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.

Það er í lagi að skila fyrr.

Sumarafleysing á Jaðri

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir starfsfólki í sumarafleysingar í eftirfarandi störf:

Laus störf:

• Sjúkraliða og ófaglært fólk í vaktavinnu við almenna aðhlynningu

Við ræstingar og þvottahús

Matráð og aðstoð í eldhús

Hjúkrunarfræðing og sjúkraliða með umsjón með hjúkrun- og lyfjamál

Viðkomandi þarf að búa yfir:

Góðri íslenskukunnáttu

• Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi

• Góðum samskiptahæfileikum

• Jákvæðni, frumkvæði og góðum samstarfsvilja

Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum

Hreinu sakavottorði

Umsóknarfrestur til 28. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðurmaður Jaðars, í síma 433 6933 eða á netfanginu sigrunerla@snb.is

Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar á heimasíðu Snæfellsbæjar.

FUNDARBOÐ

AÐALFUNDUR

Fundur er boðaður í:

• Sjálfstæðisfélagi Ólafsvíkur og nágrennis

• Snæfelli, sjálfstæðisfélagi Hellissands

• Forseta, félagi ungra sjálfstæðismanna í Snæfellsbæ

• Sjálfstæðisfélaginu Frey

• Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ

Fimmtudaginn 5. febrúar 2026, kl. 20.00 í félagsheimilinu Kli .

ATH BREYTTAN FUNDARTÍMA

Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga 2026 Önnur mál

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook