Skip to main content

BaejarbladidJokull1192tbl

Page 1


1192. tbl - 26. árg.

28. janúar 2026

Límmiðahreinsun við Saxhól

Útivistarfólk hefur eflaust rekið augun í límmiða sem ferðamenn hafa skilið eftir sig á ýmsum áningastöðum í kringum landið, á ruslatunnum, staurum og útsýnisskífum svo eitthvað sé nefnt. Í Snæfellsjökulsþjóðgarði er sömu sögu að segja og tók einn landvarða þjóðgarðsins sig til nýverið og hreinsaði límmiða af útsýnisskífu við Saxhól sem hafði verið þakin með límmiðum. Að því tilefni gaf Snæfellsjökulsþjóðgarður út áminningu um að slíkar merkingar séu ekki velkomnar en þær geta skemmt bæði náttúruna og upplifun annarra gesta á ferð um svæðið. Þá eru gestir þjóðgarðsins beðnir um að taka allt rusl með sér á ferð sinni um svæðið, það eina sem ætti að vera eftir eftir heimsókn í þjóðgarðinn eru fótspor.

Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér að ofan með myndavélinni í símanum.

45 tonna kvóti í sjóstöng í Snæfellsbæ

Fiskistofa hefur úthlutað vilyrðum til félaga sem sóttu um í samræmi við ákvæði reglugerðar um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum.

Alls bárust 10 umsóknir og við lok umsóknarfrestar var veitt vilyrði fyrir 200 tonnum sem skiptist á milli félagana í samræmi við umsóknir um magn.

Af þessum 200 tonnum sem voru til úthlutunar koma 45 tonn í Snæfellsbæ, annarsvegar 19 tonn til EFSA til að halda Evrópumót í sjóstangaveiði frá Ólafsvík og hinsvegar 26 tonn til Sjóstangaveiðifélags Snæfellsness.

Sjóstangveiðimót á Snæfellsnesi eru vinsæl á meðal veiðimanna, bæði innlendra og erlendra, þar sem jafnan þarf stutt að fara til að komast í veiði.

Önnur félög sem fengu úthlutun eru:

Sjóstangaveiðifélag Neskaupstaðar fékk 20,5 tonn

Sjóstangaveiðifélag Ísafjarðar 4 tonn

Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur 25 tonn

Sjóstangaveiðifélag Siglufjarðar 24 tonn

Sjóstangaveiðifélag Vestmannaeyja 14 tonn

Sjóstangaveiðifélag Gullbringusýslu 11,5 tonn

Sjóstangaveiðifélag Akureyrar 28,5 tonn

Sjóstangaveiðifélagið Skipaskaga 27,5 tonn.

Breyting á gjaldtöku við móttökustöð sorps

Frá og með 1. febrúar 2026 verður byrjað að nota rafræn klippikort við móttöku sorps á móttökustöð Snæfellsbæjar við Ennisbraut í Ólafsvík. Rafræna kortið veitir aðgang að móttökustöðinni og mun hver fasteignaeigandi og sumarhúsaeigandi í Snæfellsbæ sem greiðir sorphirðugjald fá 12 eininga kort til að nota yfir árið. Komugjald fellur niður samhliða breyttu fyrirkomulagi en hingað til hefur hver heimsókn kostað 500 krónur.

Þegar komið er með sorp á móttökustöð er ökutæki vigtað og við brottför er það vigtað aftur. Kortið er síðan skannað af starfsmanni þar sem hvert “klipp” gildir fyrir 25 kg af sorpi. Á hverju korti eru 12 einingar sem duga fyrir 300

kg. Gert er ráð fyrir að kortið ætti að duga flestum allt árið og því felst enginn aukakostnaður fyr ir kortið fyrir almenna íbúa. Ef kort klárast er hins vegar hægt að kaupa auka kort á kostnaðarverði. Eftir 1. febrúar geta skráðir eigendur fasteigna sótt kortin sín inn á vefsíðuna jokulkort. is. Kortið er vistað í rafrænu veski í símtækjum og geta skráð ir eigendur fasteigna sent kort í fleiri síma, til dæmis ef annar en eigandi fasteignar fer með sorp á móttökustöð eða ef húsnæði er í leigu. Þeir aðilar sem ekki eru með rafrænt veski geta nálg ast eintak í Ráðhúsi Snæfellsbæj ar á opnunartíma. SJ

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík

355 Snæfellsbæ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Hvolpaheimsókn

Hópur Labrador hvolpa heimsótti íbúa á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í síðustu viku. Það var Eygló Kristjánsdóttir frá Stóra Kambi sem kom með nokkra hvolpa sem fæddust 26. nóvember síðastliðinn.

Íbúar voru ánægðir að fá svona krúttlega heimsókn enda ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til þess að leika við og klappa litlum hvolpum.

1, 355 Ólafsvík

Föstudaginn 30. janúar 2026

Máltíð fyrir 4 á aðeins 2.698kr.

Grillaður kjúklingur - McCain Crinkle cut franskar úr frysti Flaska af Pepsi 2L, Pepsi Max 2L eða Kristall 2L

Tökum á móti pöntunum í síma 436 1376

Pantið tímalega til að tryggja ykkur þetta tilboð. ATH - ATH Takmarkað magn. ATH breyttan afhendingartíma. Nú kl. 11-17-18 og 19

Undirbúningur Þorrabl

Undirbúningur fyrir Þorrablót í Klifi hefur nú staðið yfir síðan fyrir jól og styttist heldur betur í gleðina. Miðasalan fór mjög vel af stað og þegar þetta er skrifað eru um 240 miðar seldir á blótið. Nefndin hefur langt mikla vinnu í skemmtiatriði, skipulagningu og skreytingar og stefnir allt í hið glæsilegasta Þorrablót. Á Facebook síðu þorrablótsnefndarinnar sem heitir Þorrablót í Klifi má

finna myndbönd og annað efni sem sýnir frá undirbúningnum en nefndarmeðlimir hafa verið duglegir að sýna frá ferlinu. Þar má einnig finna viðtöl við miðakaupendur sem biðu spenntir eftir að skella sér í dressið og upplifa stemminguna. Á myndunum má sjá nefndarmeðlimi við undirbúning.

Kvenfélag Ólafsvíkur

Frá afhending borðtennisborðs í Félagsmiðstöinni Afdrep, á myndinni eru Veronica Osterhammer formaður KÓ og Elsa Bergmundsdóttir ásamt nokkrum unglingum sem tóku á móti gjöfinni.

Árið 2025 varð Kvenfélag Ólafsvíkur 75 ára. Í tilefni af þeim tímamótum langar okkur að segja frá starfi og leik félagsins á síðasta ári.

Haldnir voru 7 félagsfundir á árinu. Alltaf er gaman að hittast á fundum, gæða sér á góðum veitingum, ræða málin, gera eitthvað skemmtilegt og fróðlegt. Einnig hafa konurnar gjarn-

an handavinnu með sér.

Ein aðalfjáröflun félagsins er að baka gómsætar Sólarpönnukökur í febrúar á hverju ári fyrir heimamenn og að þessu sinni voru bakaðar nákvæmlega 2.157 pönnukökur sem runnu vel niður í kaffitímum á vinnustöðum bæjarins.

Kvenfélag Ólafsvíkur tók þátt

Hæfileikamótun

Frá afhending sparistells á Dvalarheimilinu Jaðri. Í neðri röð frá vinstri: Guðrún Alexandersdóttir, Sigrún M. Ólafsdóttir og Sigríður Eggertsdóttir, standandi frá vinstri eru Anna Reyes matráður, Sigrún Erla Sveinsdóttir forstöðukona, Veronica Osterhammer formaður KÓ og Elfa Eydal Ármannsdóttir ritari KÓ.

í árlegu þorrablóti, sá um vel heppnað Aðventukvöld í Ólafsvíkurkirkju og ásamt öðrum félögum um jólaball í Klifi. 1.vetrardag hélt KÓ bingó á Dvalarheimilinu Jaðri. Kvenfélagskonur seldu bakkelsi á Ólafsvíkurdögum og leiðisgreinar fyrir jólin.

19. júni var haldinn hátíðlegur í Klifi. Auk Snæfellskra kvenfélagskvenna mættu einnig 24 konur úr Kvenfélaginu Gefn í Garði á gleðina, í heild um 65 konur. KÓ konur sáu um matinn og skemmtiatriði, það var mjög vel heppnað kvöld og mikil kvenorka í loftinu á þessum sérstaka degi, sem er einnig afmælisdagur félagsins.

Kvenfélag Ólafsvíkur styrkti Kvennaathvarfið um kr. 100.000 kr. Félagsmiðstöðinni Afdrep var gefið nýtt borðtennisborð og spaða að andvirði 200.000 kr. og Dvalarheimilið Jaðar fékk

nýtt kaffi - sparistell á rúmlega 90.000 kr.

Í tilefni af 75 ára afmæli félagsins skelltu 20 félagskonur sér í aðventuferð til Dublin 4. – 7. des. Ferðin tókst mjög vel í alla staði, við vorum að skapa dýrmætar minningar saman, fengum að upplifa írska aðventustemmingu og sumar ferðatöskurnar tútnuðu full mikið út.

Tilgangur Kvenfélagsins er að vinna að menningar – og mannúðarmálum í Ólafsvík. Það er dýrmæt að tilheyra svona kröftugum vinkvennahóp sem bætir og styrkir samfélagið með góðum verkum. En ekki síður styrkir það okkur sjálfar að mynda vináttutengsl í góðum félagsskap. Við tökum vel á móti nýjum félögum, ekki hika við að hafa samband ef þig langar að vera með.

V.O.

Efni og auglýsingum í Jökul

þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.

Það er í lagi að skila fyrr.

Stakar sundferðir:

Gjaldskrá

fyrir Lýsulaugar 2026

GJALDSKRÁ

fyrir Lýsulaugar

Gildir frá 1. janúar 2026

Sundlaug

Snæfellsbæjar á Lýsuhóli

Börn, 9 ára og yngri.................................................................................................. Frítt

Börn, 10-17 ára......................................................................................................... 500 kr.

Fullorðnir.................................................................................................................. 1.800 kr.

Ellilífeyrisþegar og öryrkjar...................................................................................... 700 kr.

Afsláttarmiðar:

Börn, 10 miðar........................................................................................................... 2.500 kr.

Börn, 30 miðar........................................................................................................... 6 000 kr.

Börn, árskort.............................................................................................................. 15.000 kr.

Fullorðnir, 10 miðar................................................................................................... 7.000 kr.

Fullorðnir, 30 miðar................................................................................................... 16 800 kr.

Fullorðnir, árskort...................................................................................................... 42 000 kr.

Ellilífeyrisþegar og örytkjar, árskort……………………………………………….. 10.000 kr.

Annað:

Sturta, fullorðnir......................................................................................................... 1.000 kr.

Leiga á sundfötum...................................................................................................... 500 kr.

Leiga á handklæði...................................................................................................... 500 kr.

Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sundlauginni nema í fylgd með syndum einstaklingi, 15 ára eða eldri. Viðkomandi má ekki hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna.

Athugið: afsláttarkort gilda bæði í sundlauginni í Ólafsvík og á Lýsuhóli.

Gjaldskrá þessi er samþykkt í bæjarstjórn Snæfellsbæjar þann 4. desember 2025 Tekur gjaldskrá þessi gildi þann 1. janúar 2026 og frá sama tíma fellur niður gjaldskrá fyrir sundlaug

Snæfellsbæjar á Lýsuhóli sem gilt hefur frá 1. janúar 2025

Snæfellsbær, 4. desember 2025

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri

Þann 30. desember gáfu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi út nýjan Hagvísi Vesturlands eftir Vífil Karlsson. Þar var hlutfall sex atvinnugreina í útsvarstekjum sveitarfélaga til skoðunar. Með þeim hætti má sjá hvort hagsmunir einstakra sveitarfélaga séu miklir eða litlir gagnvart tilteknum atvinnugreinum og þá hvort þær séu mjög háðar þeim. Til skoðunar voru sex atvinnugreinar sem segja má að séu landdreifðar atvinnugreinar, það er sjávarútvegur, ferðaþjónusta, iðnaður, landbúnaður, hið opinbera og fiskeldi. Meðal niðurstaðna var að hagsmunir sveitarfélaga eru ólíkastir í sjávarútvegi af þessum sex atvinnugreinum sem voru. Það þýðir að vægi atvinnugreinarinnar er ólíkast frá einu sveitarfélagi til annars. Þau eru því mis háð þessari atvinnugrein og breytileikinn er hvergi meiri. Ferðaþjónustan er önnur í þeirri röð og svo iðnaður án fiskvinnslu. Á landsvísu, skilar hið opinbera stærstum hluta útsvars til sveitarfélaga á landinu öllu en iðnaður án fiskvinnslu kemur þar næst á eftir.

Atvinnulíf á Vesturlandi

Vægi lykilatvinnugreina á Vesturlandi

Grundarfjörður

Fiskveiðar og fiskvinnsla voru lang stærstu atvinnugreinar

Grundarfjarðarbæjar með nærri 40% vægi og skipuðu sér í 5. sæti á landsvísu. Það skiptist nokkuð jafnt á milli veiða og vinnslu. Hið opinbera kom þar næst á eftir með nærri 30% og var í 34. sæti af 62 sveitarfélögum landsins. Fiskveiðar og fiskvinnsla virðast gefa eftir en gildið fyrir 2017 til 2024 er hærra en 2024. Á móti hækkaði annar iðnaður og ferðaþjónusta. Grundarfjarðarbær náði 20. sæti í fiskeldi jafnvel þó svo að sú at-

vinnugrein hafi eingöngu staðið á bakvið 0,6% af heildinni. Ekki er mikið um sætisbreytingar meðal atvinnugreina Grundarfjarðarbæjar í samanburðinum 2024 og 2017 til 2024 nema í landbúnaði sem fór úr 55. í 49. Samt breyttist vægi hans í Grundarfjarðarbæ ekki neitt og var áfram mjög lágt, 0,1%, svo það segir okkur meira um breytingar á landsvísu.

Snæfellsbær

Í Snæfellsbæ voru fiskveiðar og fiskvinnsla stærsta atvinnugreinin þar sem rekja má um helm-

ing útsvarstekna sveitarfélagsins til hennar. Þó gaf hún eftir þegar 2024 var borið saman við tímabilið 2017 til 2024 en sætistalan hélst óbreytt, í 2. sæti á landsvísu. Aðeins eitt annað sveitarfélag er á þennan hátt stærra í þessari atvinnugrein og er það Kaldrananeshreppur á Vestfjörðum. Veiðarnar vega þyngra en vinnslan í Snæfellsbæ og þar er sveitarfélagið hæst á landinu sama hvort litið er eingöngu til ársins 2024 eða tímabilsins 2017 til 2024. Hið opinbera kemur næst á eftir með 21,3% og færist í aukana. Samt er athyglisvert að sjá Snæfellbæ með

næst lægsta hlutfall hins opinbera á landsvísu. Verra er að sjá hvað iðnaður án fiskvinnslu á landsvísu er lágt, eða 4,6% árið 2024 og fer lækkandi. Ferðaþjónusta vó 9,1% og fer vaxandi og fór úr 37. sæti í 27. Þessar sex atvinnugreinar stóðu á bakvið 84,8% af útsvarstekjum Snæfellsbæjar. Athygli vekur hvað Vesturland á mörg sveitarfélög bæði í þremur efstu og neðstu sætum landssamanburðarins þegar horft var til vægis í útsvarstekjum þeirra. Snæfellsbær hampaði öðru sæti í sjávarútvegi og því efsta í fiskveiðum en Skorradalshreppur var í því neðsta í sjávarútvegi. Eyja- og Miklaholtshreppur var í þriðja efsta í ferðaþjónustu. Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit voru í þremur efstu sætunum í iðnaði án fiskvinnslu og Snæfellsbær og Eyja- og Miklaholtshreppur í þremur neðstu. Þá var Eyja- og Miklaholtshreppur í öðru sæti í vægi landbúnaðar. Skorradalshreppur og Dalabyggð voru í tveimur efstu sætunum í vægi hins opinbera en Snæfellsbær í þriðja neðsta. Þá voru Skorradalshreppur og Eyja- og Miklaholtshreppur í neðsta sæti er varðar vægi fiskeldis ásamt reyndar 17 öðrum sveitarfélögum með ekkert vægi. Á þessu má sjá að uppbygging atvinnulífs á Vesturlandi er býsna ólík milli sveitarfélaga. Það gefur meðal annars vísbendingar um að breytingar í ytra rekstrarumhverfi þeirra kemur mis hart niður á þeim. Hægt er að nálgast hagvísirinn í heild sinni á vefsíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is. SJ

Snæfellsbær endurskoðar menntastefnu

Fræðslunefnd Snæfellsbæjar ákvað haustið 2025 að hefja vinnu við endurskoðun menntastefnu Snæfellsbæjar, en stefna sem nú er í gildi er frá 2010 og þarfnast endurskoðunar. Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar 17. nóvember 2025 var samþykkt að veita fræðslunefnd umboð til að

stöðu um stefnumótunina og skýra framtíðarsýn í mennta- og uppeldismálum sveitarfélagsins.

Helstu verkefni stýrihópsins er að greina stöðu menntamála í sveitarfélaginu, meðal annars með rýni á fyrirliggjandi gögnum, fyrirlögn kennara og á íbúafundi. Þá þarf að móta stefnu með gild

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Leiðrétting á Íþróttamanneskja

HSH

Skráning er hafin í Lífshlaupið sem er árlegt heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands en það höfðar til allra aldurshópa. Lífshlaupið hefur verið haldið árlega frá 2005 og eru landsmenn hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. Hópar skrá sig og skrá hreyfitíma sinn yfir daginn en

hópar geta skráð sig í grunnskólakeppni, framhaldsskólakeppni, vinnustaðakeppni eða hreystihóp 60+. Skrá má alla hreyfingu ef hún nær minnst 30 mínútur á dag en tímanum má Skipta niður í nokkur styttri tímabil yfir daginn. Margir hópar sem stunda reglulega hreyfingu hafa tekið þátt og hlotið viðurkenningu og verðlaun fyrir sína frammistöðu. JJ Lífshlaupið

Í síðasta tölublaði Jökuls var greint frá árlegri heiðursviður kenningu Héraðssambands Snæfells- og Hnappadalssýslu til ÍþróttamanneskjU HSH sem er veitt þeirri íþróttamann eskju á sambandssvæði HSH sem þótt hefur skara fram úr á íþróttasviðinu. Var villa í titli greinarinnar þar sem talað við um Íþróttamann HSH en ný lega fór lagabreyting í gegn hjá stjórn HSH um að breyta titl inum í Íþróttamanneskju í stað íþróttamanns. Alexandra Björg Andradóttir hlaut því viðurkenn inguna Íþróttamanneskja HSH 2026.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook