
1191. tbl - 26. árg.
21 . janúar 2026
![]()

1191. tbl - 26. árg.
21 . janúar 2026

astliðinn var boðað til opins fund ar í Frystiklefanum á Rifi. Tilefnið var kynning á sjóböðunum í Krossavík en verkefnið hefur verið í þróun í fimm ár, áætlað er að hrinda því í framkvæmd á næstu misserum og stefnt er að því að opna böðin um mitt árið 2027. Kári Viðarsson, verkefnastjóri, og Páll Kr. Pálsson, sem sér um utanumhald fjárhagslegrar framvindu verkefnisins, sáu um kynninguna og var farið yfir stöðuna á verkefninu og viðskiptatækifæri tengd stofnun nýs baðstaðar við Krossavík.
líð unarfyrirtæki sinnar tegund ar á Snæfellsnesi. Baðstaðurinn verður staðsettur við höfnina í Krossavík, mitt á milli strandlengunnar og bakka Kópatjarnar, um 500 metra vestur af Hellissandi. Útlit mannvirkja verður lágstemmt og í takt við umhverfi sitt, með skírskotun í þá starfsemi sem áður prýddi svæðið. Verður þar boðið upp á heita sjólaug með aðgengi að bar, heitan sjópott með þara, slökunaraðstöðu með stórum útsýnisglugga, þrjár saunur með útsýni yfir umhverfi Krossavíkur, köld böð og

greitt aðgengi að strönd og sjó. Aðalmarkhópur Krossavíkurbað anna verða ferðamenn, farþegar skemmtiferðaskipa, vinnustaðir og félagasamtök á Íslandi og íbúar á nærsvæðinu. Framkvæmdaáætlun gerir ráð fyrir að Jóhann Kjartansson á Arkitektastofunni HZA í Osló í Noregi vinni arkitektateikningar fyrir verkefnið, verkfræðistofan EFLA, með Höskuld Goða Þorbjargarson sem tengilið, mun sjá um að vinna áætlun um tæknilega útfærslu og allar framkvæmdir sem tengist uppbyggingu baðanna. Áætlað er að Skipavík í Stykkishólmi sjái um framkvæmd verksins og hönnunarstofan AJ S, í eigu Antons Jónasar Illugasonar og Símons Viðarssonar, hefur og mun sjá um grafíska hönnun.
leg fjárhagslíkön fyrir varðandi uppbyggingu, rekstur, afkomu og starfsemi baðstaðarins fyrir. Heildarfjárþörf verkefnisins er um 920 milljónir króna og þegar fundurinn var haldinn þann 15. janúar nam óbrúuð hlutafjáröflun um 200 milljónum króna. Heimamönnum var boðið að fjárfesta í sjóböðunum en að mati aðstandenda verkefnisins eru þau gögn sem liggja til grundvallar áætlunum um framkvæmd verkefnisins og rekstur fyrirtækisins ítarleg og forsendur vel ígrundaðar. Því eru Krossavíkurböðin að þeirra mati álitlegur kostur fyrir fjárfesta og þátttaka í verkefninu sóknarfæri í heimabyggð.
Sunnudaginn 11. janúar fór verðlaunaafhending HSH fyrir árið 2025 fram á Langaholti þar sem úthlutað var verðlaunum fyrir íþróttafólk ársins, sjálfboðaliðum HSH voru veittar viðurkenningar og Hvatningarverðlaunin afhent. Við athöfnina var Alexandra Björg Andradóttir kjörin Íþróttamanneskja HSH 2025 ásamt því að vera Blakíþróttamanneskja HSH 2025. Alexandra Björg Andradóttir er efnilegur og öflugur leikmaður. Hún er einn af lykilleikmönnum í meistaraflokki kvenna, sem spilar í 1. deild á yfirstandandi tímabili með góðum árangri. Alexandra er mikil fyrirmynd fyrir unga iðkendur en hún er dugleg, metnaðarfull og með mikið keppnisskap. Á árinu var hún valin í tvö verkefni með íslenska landsliðinu, annars vegar í Írlandi þar
sem hún keppti á Smáþjóðaleikunum með unglingalandsliðinu og síðar til Færeyja með U19 landsliðinu. Nú í janúar ferðaðist Alexandra svo með U17 landsliðinu til Dublin þar sem liðið tryggði sér gullverðlaun á Evrópumóti Smáþjóða ásamt því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu sem fer fram í júlí 2026. Alexandra Björg Andradóttir hefur hlotið nafnbótina Íþróttamaður Grundarfjarðar tvisvar, árið 2024 og 2025 og er vel að þessari viðurkenningu komin.
Íþróttafólk úr öllum áttum hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á sínu sviði. Skotíþróttamanneskja HSH 2025 var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir og Frjálsíþróttamanneskja HSH 2025 var Alexandra Ásta Þrastardóttir. Jón Kristinn Elíasson hlaut titilinn Knattspyrnumann

arsson valinn Körfuknattleiksmanneskja HSH 2025.
Fundur er boðaður í:
• Sjálfstæðisfélagi Ólafsvíkur og nágrennis
• Snæfelli, sjálfstæðisfélagi Hellissands
• Forseta, félagi ungra sjálfstæðismanna í Snæfellsbæ
• Sjálfstæðisfélaginu Frey
• Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026, kl. 19.00 í félagsheimilinu Kli .
Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur
frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Við athöfnina var sjálfboðaliðum HSH veitt Silfurmerki HSH fyrir þeirra framlag til aðildarfélaga HSH. Þau sem voru kjörnir Sjálfboðaliðar HSH 2025 voru Arnar Geir Diego Ævarsson fyrir starfs sitt fyrir Skotfélag Snæfellsness, Daniel Ali Kazmi hjá UMF. Snæfell, Eyþór Benediktsson hjá Golfklúbbunum Mostra, Heimaleikjaráð Snæfells, Hugrún Elíasdóttir hjá Golfklúbbunum Vestarr, Högni Friðrik Högnason fyrir starf sitt hjá Hestamannafélaginu Snæfelling og að lokum Örvar Ólafsson fyrir starf sitt hjá UMF. Víkingur Ólafsvík.
Stjórn HSH afhenti Hvatningaverðlaun í ár en þau eru ný af nálinni. Með þeim hljóta þrjú verkefni innan HSH viðurkenningu
sem þóttu skara fram úr á árinu. ingarverðlaunanna hlutu Eva urðardóttir og Silja Guðnadóttir viðurkenningu fyrir þeirra þátt í uppbyggingu blakdeildar UMFG og þeirri velgengni sem lið UMFG hefur náð á þeim mótum sem farið hefur verið á. Þá hlaut Æskulýðsnefnd Snæfellings viðurkenningu fyrir frábært frumkvöðlastarf við að kaupa og koma af stað hestafimleikum fyrir börn á svæðinu. Verkefnið býður upp á skemmtileg nýbreytni í hestamennskuna á svæðinu og voru það Katharina Kotschote, Ulrike Taylor, Katrín Gísladóttir, Sigríður Sóldal ásamt Franziska Kopf og Dagbjörtu Dúnu Rúnarsdóttir sem hljóta viðurkenninguna. Síðast en ekki síst hlaut Skíðaráð UMFG Hvatningarverðlaunin fyrir mikið og gott starf við uppbyggingu Skíðasvæðis Snæfellsness.
SJ

Þann 15. janúar síðastliðinn var árlegur viðburður Markaðsstofa landshlutanna, Mannamót, haldinn í Kórnum í Kópavogi.
Dagarnir 13. til 15. janúar voru helgaðir ferðaþjónustunni með svokallaðri Ferðaþjónustuviku, þá var lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu



í greininni og var Mannamótið hluti af dagskránni.
Viðburðurinn er sérstaklega
ætlaður ferðaþjónustu á landsbyggðinni og er best sótti viðburður í ferðaþjónustunni á Íslandi.
Markaðsstofur landshlutanna starfa með yfir 1000 fyrirtækjum
23. – 26. Janúar

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Fyrir börn og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun, þá hefur Fuglavernd útbúið hjálparblað með
myndum se hægt er að nálgast á heimasíðunni fuglavernd.is, blaðið er hægt að prenta út og nota við talninguna. Skilafrestur er til og með 15. febrúar 2026. Þú getur valið þá leið sem þér hentar best til að skrá niðurstöðurnar að lokinni athuguninni. Mælt er með rafrænni skráningu, þar sem gögnin eru þá slegin inn og fara beint í gagnagrunn þar sem hægt er að vinna úr niðurstöðunum. frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Fuglaverndar: fuglavernd.is
Fuglavernd hvetur alla sem hafa snefil af áhuga á fuglum að taka þátt. Meðfylgjandi mynd er af gráþresti en ljósmyndari er Örn Óskarsson.
og 61 sveitarfélagi um allt land og er þessi ferðakaupstefna haldin árlega þar sem fagaðilar í greininni fá tækifæri til að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem fyrirtæki á landsbyggðinni fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma er þetta frábær vettvangur til að efla tengsl innan ferðaþjónustunnar og tækifæri fyrir viðskiptavini til þess að eiga gott samtal við
ferðaþjónustuaðila víðs vegar um landið. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá en alls voru um 250 fyrirtæki frá sex landshlutum. Þar af voru 41 ferðaþjónustuaðili af Vesturlandi mættir til að kynna sig og sjá aðra, á meðal fulltrúa Snæfellsness voru Glacier Paradise, Hótel Arnarstapi, Hótel Búðir, Hótel Langaholt, Matarlist, Sker restaurant, Snæfellsjökulsþjóðgarður, Snæfellsnes Adventure og Svæðisgarðurinn Snæfellsnes.
SJ



Jólabingó Kvenfélags Hellissands var haldið í fyrsta sinn 18.desember síðastliðinn og heppnaðist virkilega vel. Stemningin var frábær og greinilegt að bæjarbúar nutu þess að koma saman í notalegri fjölskyldusamverustund.
Kvenfélagið vill færa öllum sem mættu innilegar þakkir fyrir samveruna og fyrir að taka þátt með okkur – án ykkar væri þetta ekki mögulegt.
Að lokum viljum við senda sérstakar þakkir til allra styrktaraðilanna sem voru eftirfarandi:
Matarlist Local Food, Summit Adventures, Elja Kaffihús, Glacier Paradise, Útgerðin, Hampiðjan, CF SNB, Sundlaugin Snæfellsbæjar, Sjoppan, Snyrtistofan Glóey, Apótek Vesturlands, Muska snyrtistofa, N1 Ólafsvík, Sóley saumar, Hrund, Patrick Roloff, Snæfellsbær, Alyssa Eggertsdóttir Græna Stofan, Tilefni.is, Hjólastillingar ehf.
Kvenfélag Hellissands.
í Ólafsvík hefur gert samn inga við Jón Björgvin Jónsson og Jackson Van Der Ven um að spila með liðinu. Jón Björgvin gerði samning til tveggja ára en hann er tvítugur miðjumaður frá Grundarfirði og skiptir yfir til Vík ings frá Stjörnunni. Jackson er
unum en hann kemur til Víkings frá bandaríska liðinu Flatirons FC. ins á fimmtudaginn og mun hann arins sem fer fram laugardaginn

Tillaga að breyttu deiliskipulagi á Arnarstapa, Snæfellsbæ
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. janúar 2026 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi á Arnarstapa í samræmi við 1. mgr. 43. gr skipulagslaga.
Deiliskipulagstillagan nær til Hótel Arnarstapa við Bárðarslóð 1 sem er innan VÞ-1 á Arnarstapa, Snæfellsbæ. Gert var ráð fyrir í deiliskipulagi frá 2015 að leyfilegt byggingarmagn fyrir þjónusthús væri 290 fm. Í breytingartillögu er gert ráð fyrir stækkun á byggingarreit til suðurs og aukningu á heimiliðu byggingarmagni þjónustuhúss um 160 fermetra eða þannig að leyfilegt byggingarmagn þjónustuhúss verði í heildina allt að 450 fermetrar.
Gögn eru frá Pro-Ark Teiknistofu: Greinargerð, deiliskipulag fyrir breytingu í mælikvarða 1:1.000 og tillaga að breyttu deiliskipulagi í mælikvarða 1:1.000.
Hægt er að skoða tillöguna frá 22. janúar – 5. mars 2026 á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmeri 71/2026.
Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna í síðasta lagi 5. mars 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á skipulagsgatt.is vegna máls númer 71/2026.
Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar
fyrir hunda- og kattahald í þéttbýli Snæfellsbæjar 2026
1. gr.
Sækja þarf um leyfi til að halda alla hunda og ketti, einnig þau dýr sem af einhverjum ástæðum eru undanþegin leyfisgjaldi.
2. gr.
Snæfellsbær innheimtir gjöld vegna hunda- og kattahalds samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hunda- og kattahald í Snæfellsbæ, nr. 757/2007.
3. gr.
Skráningargjald hunda og katta
Við leyfisveitingu hunda skal innheimta gjald sem hér segir:
Fyrsta leyfisveiting, kr. 27 000.-
Leyfisveiting eftir útrunninn frest, kr. 36 345 -
Við leyfisveitingu katta skal innheimta gjald sem hér segir:
Fyrsta leyfisveiting, kr. 13.800.-
Leyfisveiting eftir útrunninn frest, kr. 19.600.-
Frestur til að skrá hunda og ketti er 2 vikur eftir að dýrið er tekið inn á heimili, en hvolpa og kettlinga skal skrá eigi síðar en þegar þeir ná þriggja mánaða aldri.
4. gr. Eftirlitsgjald
Af leyfðum hundum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:
Fyrir hvern hund, kr. 20 250.-
Af leyfðum köttum skal innheimt árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:
Fyrir hvern kött, kr. 11.500.-
Ekki er innheimt eftirlitsgjald sama ár og hundur eða köttur er skráður.
Innifalið í eftirlitsgjaldi hunda og katta er greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu, merkispjald, heilbrigðisskoðun dýralæknis og árleg ormahreinsun, ásamt umsýslugjaldi sveitarfélagsins
5. gr. Handsömunargjald
Við afhendingu handsamaðra hunda skal innheimt handsömunargjald sem hér segir:
Fyrsta afhending hunds, kr. 20 840 -
Önnur afhending hunds, kr. 41 685 -
Þriðja afhending hunds, kr. 62 475 -
Fyrsta afhending hunds sem ekki er skráður, kr. 41 685.Við afhendingu handsamaðra katta skal innheimt handsömunargjald sem hér segir:
Fyrsta afhending kattar, kr. 13.300.-
Önnur afhending kattar, kr. 26.500.-
Fyrsta afhending kattar sem ekki er skráður, kr. 26.500.Óheimilt er að afhenda óskráða hunda eða ketti nema gengið verði frá leyfisveitingu við afhendingu.
Að auki skal greiða þann kostnað sem leggs á vegna fæðis, geymslu, auglýsinga og ferðakostnaðar handsamaðs hunds.
Verð pr. sólarhring pr. hund, kr. 4 450 -
Verð á sólarhring pr. kött, kr. 2.500.-
6. gr. Undanþágur frá leyfisgjaldi
Undanþága frá eftirlitsgjöldum er veitt sem hér segir:
vegna minkahunda og smalahunda á lögbýlum,
vegna hjálparhunda fyrir fatlaða einstalinga,
vegna leitarhunda. Leitarhundur er undaþeginn leyfis- og eftirlitsgjaldi ef viðkomandi hundur hefur að minnsta kosti B-viðurkenningu sem gefin er út af viðurkenndum leiðbeinanda. Ljósrit af slíkri viðurkenningu skal afhent við umsókn um niðurfellingu gjalda. Heimilt er að ógilda niðurfellingu gjalda sé hundurinn ekki lengur á skrá sem leitarhundur samkvæmt skilgreiningu þessari.
7. gr. Afsláttur á leyfisgjaldi Hafi eigandi skráðs hunds lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi, viðurkenndu af heilbrigðiseftirliti þar sem námskeiðið er haldið, er heimilt að veita 20% afslátt af gjöldum fyrir viðkomandi hund.
Framvísi eigandi tryggingaskírteini vegna ábyrgðartryggingar og kvittun frá dýralækni um að heilbrigðisskoðun og árleg ormahreinsun hafi farið fram annars staðar á kostnað eiganda, er heimilt að veita 10% afslátt af gjöldum fyrir viðkomandi hund. Þessum skírteinum skal skilað árlega.
Við afhendingu handsamaðra katta skal innheimt handsömunargjald sem hér segir:
Fyrsta afhending kattar, kr. 13.300.-
Önnur afhending kattar, kr. 26.500.-
Fyrsta afhending kattar sem ekki er skráður, kr. 26.500.-
Óheimilt er að afhenda óskráða hunda eða ketti nema gengið verði frá leyfisveitingu við afhendingu.
Að auki skal greiða þann kostnað sem leggs á vegna fæðis, geymslu, auglýsinga og ferðakostnaðar handsamaðs hunds.
Verð pr. sólarhring pr. hund, kr. 4 450 -
Verð á sólarhring pr. kött, kr. 2.500.6. gr. Undanþágur frá leyfisgjaldi
Undanþága frá eftirlitsgjöldum er veitt sem hér segir:
vegna minkahunda og smalahunda á lögbýlum,
vegna hjálparhunda fyrir fatlaða einstalinga,
vegna leitarhunda. Leitarhundur er undaþeginn leyfis- og eftirlitsgjaldi ef viðkomandi hundur hefur að minnsta kosti B-viðurkenningu sem gefin er út af viðurkenndum leiðbeinanda. Ljósrit af slíkri viðurkenningu skal afhent við umsókn um niðurfellingu gjalda. Heimilt er að ógilda niðurfellingu gjalda sé hundurinn ekki lengur á skrá sem leitarhundur samkvæmt skilgreiningu þessari.
7. gr. Afsláttur á leyfisgjaldi
Hafi eigandi skráðs hunds lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi, viðurkenndu af heilbrigðiseftirliti þar sem námskeiðið er haldið, er heimilt að veita 20% afslátt af gjöldum fyrir viðkomandi hund.
Framvísi eigandi tryggingaskírteini vegna ábyrgðartryggingar og kvittun frá dýralækni um að heilbrigðisskoðun og árleg ormahreinsun hafi farið fram annars staðar á kostnað eiganda, er heimilt að veita 10% afslátt af gjöldum fyrir viðkomandi hund. Þessum skírteinum skal skilað árlega.
Framvísi eigandi kattar tryggingarskírteini vegna ábyrgðartrygginar og kvittun frá dýralækni um heilbrigðisskoðun og að árleg ormahreinsun hafi farið fram annars staðar á kostnað eiganda, er heimilt að veita 10% afslátt af eftirlitsgjöldum fyrir viðkomandi kött. Þessum skírteinum skal skilað árlega.
8. gr. Gjalddagi
Gjalddagi eftirlitsgjalds er 1. apríl ár hvert og eindagi 30. apríl. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengungarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
Við afskráningu hunds eða kattar er eftirlitsgjald endurgreitt í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir lifa af árinu.
9. gr. Annað Ofangreind gjaldskrá bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, staðfestist hér með, samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998, með síðari breytingum, um hollustuhætti og mengunarvarnir, samanber samþykkt um hunda- og kattahald í Snæfellsbæ nr. 757/2007, til að öðlast gildi þegar við birtingu.
Jafnframt falla úr gildi gjaldskrá fyrir hundahald í Snæfellsbæ nr. 1585/2024 og gjaldskrá fyrir kattahald í Snæfellsbæ nr. 1586/2024
Snæfellsbæ, 4. desember 2025
Lilja Ólafardóttir bæjarritari
Nýliðið ár var gott ár hjá Grundarfjarðarhöfn. Þetta var merkisár í framkvæmdum og uppbyggingu og stærsta ár hafnarinnar til þessa í móttöku skemmtiferðaskipa, en auk þess einkenndist árið af vinnu við hagsmunagæslu fyrir höfnina. Hér er stiklað á því helsta í starfsemi og framkvæmdum hafnarinnar 2025, en lengri útgáfu með hlekkjum á frekari upplýsingar er að finna á www.grundarfjordur.is
Landaður afli fiskiskipa
Landaður afli fiskiskipa var 16.536 tonn hjá Grundarfjarðarhöfn árið 2025. Sé litið allmörg ár aftur í tímann telst það vera meðalár í lönduðum afla, en er um 4,9% aukning frá árinu 2024. Stærstu löndunarmánuðirnir 2025 voru í maí þegar landað var um 2400 tonnum og 2120 tonn í ágústmánuði.
Sumarið í skemmtiferðaskipum
Skemmtiferðaskipasumarið 2025 var það stærsta til þessa, en alls fengum við 75 heimsóknir. Fyrsta skipið kom 5. maí og það síðasta 28. október og er það nýlunda að skip heimsæki okkur svo síðla árs. Það var mikið sjónarspil að sjá skipið
Vasco da Gama liggja ljósum prýtt við Norðurgarðinn í rökkri og snjó. Koma skipsins sýnir að það er gerlegt að teygja skemmtiferðaskipatímabilið í a.m.k. hálft ár, ef tíðarfar er hagstætt. Um borð í skipum ársins voru samtals yfir 70.000 farþegar og um 30.000 í áhöfnum.
Markaðsmál, upplýsingagjöf og miðlun eru orðin umsvifamikill þáttur í starfi hafnarinnar í tengslum við móttöku skemmtiferðaskipa. Í júnímánuði fékk höfnin liðsauka þar sem nýráðinn forstöðumaður menningar og markaðsmála, Pálmi Jóhannsson, sinnir einnig markaðsmálum hafnar.
Hagsmunir hafna vegna skattaumhverfis skemmtiferðaskipa
Mikill tími fór á árinu í umsagnir og eftirfylgni gagnvart ríkinu um hagsmunamál hafnanna, einkum baráttu gegn stórhækkun og breytingu í innheimtu innviðagjalda, sem ákveðin var í árslok 2024 og tók gildi 2025. Skattaumhverfi skemmtiferðaskipa var einnig til skoðunar, þar sem til stóð að afnema tollfrelsi skemmtiferðaskipa

í hringsiglingum og breyta innheimtu virðisaukaskatts hjá þeim. Ljóst var að svo miklar hækkanir og breytingar á sama tíma myndu hafa mikil áhrif á stöðu Íslands sem viðkomustaðar, en meginmálið var þó að nær enginn fyrirvari var gefinn til aðlögunar að breytingunum. Slíkt er óheppilegt á markaði sem selur ferðir 23 ár fram í tímann, enda mátti sjá fækkun eða jafnvel hrun í bókunartölum fyrir árin 2026 og 2027, einkum hjá minni höfnum á landsbyggðinni.
Samtökin okkar, Cruise Iceland, ásamt einstaka höfnum, héldu vel á lofti þeim hagsmunum sem í húfi eru, með því að draga fram og kynna tölulegar staðreyndir fyrir hafnir og samfélög. Fyrir utan beinar tekjur hafnarinnar af móttöku skemmtiferðaskipa eru gríðarlega mikilvæg störf og tekjur annarra sem tengjast skipakomunum, þ.e. okkar góðu þjónustufyrirtæki og ferðaþjónar, verslanir og fleiri, á Snæfellsnesi öllu, en gera má ráð fyrir að allt að 50 manns komi að því í heildina á okkar svæði.
Við tókum þátt í að skrifa umsagnir, ræddum við fulltrúa úr samtökum skipafélaga, fórum á fundi þingmanna og þingnefnda, í viðtöl við fjölmiðla og fleira.
Sú ánægjulega niðurstaða náðist á Alþingi rétt fyrir jól, að innviðagjald var lækkað úr 2500 kr. í 1600 kr. á sólahring fyrir hvern farþega skemmtiferðaskips og hætt var við áform um að afnema tollfrelsi skipa í hringsiglingum. Það kom strax í ljós að þetta hafði góð áhrif á markaðinn og bókunartölur hafa aftur hækkað síðasta mánuðinn. Eftir standa breytingar á virðisaukaskatti hjá
skipum í hringsiglingum sem ekki er ljóst hvernig verða framkvæmdar.
Önnur hagsmunagæsla, sem hefur umtalsverð áhrif á höfnina okkar, snýr að ástandi þjóðvega á okkar áhrifasvæði og samgönguáætlun, sem lengi hefur verið beðið eftir að Alþingi afgreiði. Bæjarstjórn fylgdi fast eftir óskum um aukið fjármagn í samgöngubætur á Snæfellsnesi og um nýja samgönguáætlun sem endurspeglaði þörf fyrir tímabært viðhald og endurbætur á okkar svæði. Hagsmunir íbúa og atvinnulífs, ekki síst sjávarútvegs og ferðaþjónustu, byggja á góðum og öruggum þjóðvegum að, fyrir nú utan öryggi íbúa. Sveitarstjórnir á Vesturlandi stóðu þétt saman um þessa hagsmunagæslu og í samgönguáætlun sem komin er fram er þó ánægjulegt að auknir fjármunir virðast ætlaðir í viðhald vega, m.a. á okkar svæði, og munum við fylgja því fast eftir.
Fundir, markaðssókn og samskipti við viðskiptavini
Í vel yfir 20 ár hefur höfnin tekið þátt í markaðssetningu fyrir skemmtiferðaskip og byggt upp aðstöðu, þannig að núverandi staða er ekki tilviljun. Heilt yfir má segja að skipafélögin séu mjög ánægð með Grundarfjarðarhöfn og með Snæfellsnes í heild sem áfangastað, en frá upphafi höfum við kynnt Snæfellsnes sem áfangastaðinn. Í ár var rauði þráðurinn í samtölum við viðskiptavini þessi fyrirvaralitla hækkun á innviðagjöldum og afnám tollfrelsis, sem augljóst var að fulltrúar í bransanum fylgdust vel með. Það leiddi af framangreindri hagsmunagæslu hafnanna að við vorum í óvenju miklum samskiptum beint við áhrifafólk úr skipaheiminum. Eins má segja að samtal hafna og hagsmunaaðila hafi verið með mesta móti á árinu og er það a.m.k. jákvætt. Hafnarstjórn hélt átta bók
aða fundi á árinu, auk þess sem fulltrúar hennar tóku þátt í fundum um skipulagsmál, sóttu hafnafund Hafnasambands Íslands í Ólafsvík í október og höfnin bauð til samtals að vori um komandi skemmtiferðaskipasumar. Hafnarstjóri situr í stjórn samtakanna Cruise Iceland og tekur virkan þátt í starfinu. Við tókum einnig á móti góðum gestum hér heima, frá CLIA, samtökum skemmtiferðaskipafélaga, Cruise Iceland og fleirum.
Í byrjun apríl fór bæjarstjóri fyrir hönd hafnarinnar til Miami í Florida, þar sem við tókum í fyrsta skipti þátt í einni stærstu kaupstefnu skemmtiferðaskipageirans, Seatrade Cruise Global. Um miðjan september fóru Hafsteinn hafnarstjóri og Pálmi forstöðumaður menningar og markaðsmála svo til Hamborgar í Þýskalandi á kaupstefnuna Seatrade Europe, sem við höfum tekið þátt í til fjölda ára. Í september gerðist höfnin aðili að Cruise Europe samtökunum, sem eykur sýnileika hafnarinnar sem áfangastaðar og stækkar
Heildartekjur hafnarinnar námu rúmlega 255 millj. kr. árið 2025 og jukust um 39% frá 2024. Beinar tekjur hafnarinnar af móttöku skemmtiferðaskipa voru tæpar 129 millj. kr., sem er aukning um 55% frá 2024. Tekjur af skemmtiferðaskipum voru
50,6% af heildartekjum hafnarinnar og er þetta fyrsta árið sem þær eru hærri en tekjur af fiskiskipum og öðrum löndunum. Rekstrargjöld hafnarinnar án afskrifta voru 129,7 millj. kr. árið 2025. Af þessu má sjá að afkoman var góð á liðnu ári. Fjárfest var fyrir um 130 millj. kr. á árinu. Þess má geta að höfnin er skuldlaus.
Í maí 2025 var tekið í notkun nýtt þjónustuhús með viðbyggingu við hafnarhúsið. Sú uppbygging er einn liður í að bæta aðstöðu hafnarinnar og þjónustu. Byggingarframkvæmdir gengu afar vel, þær stóðu yfir frá febrúar til loka maí, þegar nýja aðstaðan var tekin í notkun
skips ársins. Í nýju byggingunni er bæði góð salernisaðstaða fyrir gesti, með góðu aðgengi fyrir alla, hvíldar og kaffiaðstaða fyrir starfsfólk í skipamóttöku, s.s. bílstjóra, leiðsögufólk, umboðsmenn o.fl. og einnig viðbótarrými fyrir hafnarstarfsmenn, þar sem afar þröngt var orðið um þá. Nýja þjónustuhúsið er einnig nýtt sem almenningssalerni, með gjaldhliði, sem opin eru allt árið. Þeirri þjónustu hafði frá 2019 verið sinnt í samkomuhúsinu en var aflögð þar með tilkomu nýja hússins.
Meðal annarra framkvæmda hafnarinnar á árinu voru malbikun á stórum hluta af plani við smábátahöfn, keypt var ný þjónustubifreið, lýsing á hafnarsvæði var endurbætt, keyptur nýr landgangur og stór fríholt (fenderar) fyrir skemmtiferðaskip, endurnýjuð var rafmagnstafla á Norðurgarði og fleira.
Áfram var haldið með deiliskipulagsvinnu fyrir hafnarsvæðið. Í byrjun október var kynnt skipulagslýsing og um miðjan nóvember tillaga á vinnslustigi fyrir nýtt deiliskipulag sem nær yfir

suðurhluta hafnarsvæðisins, miðsvæði, Miðgarð og Norðurgarð. Þar er horft óvenju langt fram í tímann, því áformin fela í sér stækkun athafnasvæðis hafnarinnar með landfyllingu, nýrri vegtengingu hafnarsvæðis að þjóðvegi 54 til að minnka þungaumferð í gegnum bæinn, nýjan 100 metra viðlegukant og vel afmarkaðar gönguleiðir og stíga, sem tryggja eiga bætt öryggi gangandi og aðstöðu fyrir ferðafólk og skemmtiferðaskip. Við slíkar framkvæmdir ræður mestu, að sjóvarnargarður utan um svæðið, sem er ysta brún nýs lands, verður einungis byggður einu sinni. Staðsetning hans þarf því að vera klár og síðan má búast við það taki allnokkur ár að forma landið og vegsvæðið þar innan við. Einnig þarf að hafa í huga að skipulag og leyfisveitingar, m.a. til efnistöku úr sjó til slíkra framkvæmda, eru tímafrekar og betra að hafa fyrirhyggju í því. Deiliskipulagið er enn í vinnslu og mun án efa taka nokkrum breytingum frá tillögunni sem kynnt var í nóvember.
Helstu framkvæmdir hafnarinnar 2026 velta á afdrifum samgönguáætlunar nú á vorþingi. Með þeim fyrirvara, þá er næst á dagskrá stækkun lands með tilfærslu á sjóvörn efst við Norðurgarð (svonefndur kriki), ný flotbryggja og stólpi fyrir hana sem kæmi norðan við núverandi flotbryggju og þjóna á skemmtiferðaskipagestum og öðrum ferðalöngum á sjó. Þessu fylgir frágangur á vegi og plani á landi. Gert er ráð fyrir að ljúka viðgerð á yfirborði Norðurgarðs, undirbúningsvinnu og hönnun á „bryggjuvegi“, þ.e. áframhald götu frá Bergþórugötu/Nesvegi og framhjá nýja netaverkstæðinu.
Við horfum bjartsýn á árið 2026 hvað varðar starfsemi hafnarinnar, með bættri aðstöðu og góðu samstarfi við viðskiptavini og aðra. Við eigum einstaklega lipra þjónustuaðila sem þjónusta fiskiskipin. Búið er að bóka yfir 80 komur skemmtiferðaskipa 2026 og þjónustuaðilar í þeim bransa eru sömuleiðis orðnir fjölmargir og með mikla reynslu. Grundarfjarðarhöfn er góð höfn heim að sækja og Snæfellsnesið í heild sinni.
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri og Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri
fyrir sorphirðu í Snæfellsbæ
1. gr.
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar skal ákvarða og innheimta sorpgjald fyrir söfnun og meðhöndlun úrgangs, samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Þá er Snæfellsbæ heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna
2. gr.
Sorpgjald er lagt á hverja íbúð og hvern sumarbústað í Snæfellsbæ og er það innheimt með fasteignagjöldum eða á annan hátt eftir því sem við verður komið og þá með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Gjaldið nýtur lögveðsréttar í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga.
3. gr.
Tunnugjald fer eftir rúmmáli þeirra sorpíláta sem eru við heimili skilyrt er að hafa minnst eitt ílát fyrir lífrænan úrgang, pappír/pappa, plast og almennan úrgang. Tíðni tæminga fer eftir sorphirðudagatali en er almennt á 21 dags fresti.
Ílát fyrir blandaðan heimilisúrgang
240L Tunna
Tunna
Kar
Kar
Ílát fyrir pappír
Tunna
Tunna
Kar
Kar
Ílát fyrir plast 240L Tunna
Tunna
Kar
Kar
Ílát fyrir matarleifar 35L Ílát í tunnu
140L Tunna
Gjald vegna breytingar á þjónustu (breyting á stærð/fjölgun tunna)
4. gr.
Söfnun, förgun, móttaka og flokkun sorps, sem og önnu gjöld, eru sem hér segir:
Sorpförgun – heimili
Sorpförgun – sumarhús/takmörkuð ívera
10 000
5 000
Rekstur grenndarstöðva – þéttbýli 2 000
Rekstur grenndarstöðva – sumarhús
Innifalið í sorpförgunargjaldi eru 12 einingar í Jökulkort sem gilda á gámastöð Snæfellsbæjar. Ein eining er ígildi 25 kg af úrgangi og gilda því 12 einingar fyrir 300 kg. Þær einingar sem fylgja sorpgjöldunum renna út næstu áramót eftir að þær eru gefnar út.
Hægt er að kaupa fleiri einingar inn á Jökulkortin, 10 einingar í senn, á kostnaðarverði. Þær einingar renna ekki
5.gr.
Umráðendur íbúða og sumarhúsa eru ábyrgir fyrir ílátum fyrir úrgang við sitt heimili/sumarhús og standa undir kostnaði við að endurnýja eða lagfæra ílátin ef þau týnast eða skemmast vegna slæms umbúnaðar.
Gjald á varahlut – lok
Gjald á varahlut – dekkjasett
3.000
3.000
Endurnýjunargjald – 30L ílát 5.000
Endurnýjunargjald – 140L tunnu 15.000
Endurnýjunargjald – 240L tunnu 10 000
Endurnýjunargjald – 360L tunnu 15.000
Endurnýjunargjald – 660L Kar 21 000
Endurnýjunargjald – 1100L Kar 32 000
6. gr.
Tæknideild Snæfellsbæjar er heimilt samkvæmt gjaldskrá þessari að leggja göld á þá aðila sem verða uppvísir að því að fleygja sorpi og úrgangi á víðavangi eða á jarðvegstipp fyrir útlögðum kostnaði við hreinsun.
7. gr.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarstjórn Snæfellsbæjar þann 4. desember 2025 með stoð í 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 með síðari breytingum.
Gjaldskrá þessi öðlast gildi við birtingu Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Snæfellsbæ nr. 1588/2024
Snæfellsbær, 4. desember 2025
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari