Skip to main content

BaejarbladidJokull1190tbl

Page 1

14. janúar 2026

1190. tbl - 26. árg.

Jólin kvödd á þrettánda degi jóla Þriðjudaginn 6. janúar var Þrettándinn haldinn hátíðlegur víða. 6. desember er þrettándi dagur jóla og markar hann lok jólahátíðarinnar. Víða um land eru haldnar þrettándabrennur og í Snæfellsbæ stóðu Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbburinn Rán fyrir sinni árlegu skrúðgöngu frá Pakkhúsinu í Ólafsvík og gengið var rétt út fyrir Klif. Í fylgd lögreglunnar og slökkvuliðs gengu viðstaddir saman og leiddi Máni Berg Gunnarsson gönguna með trommuslætti auk Berglindar Long, álfadrottningar, og Jóns Guðmunssonar, álfakonungi. Þegar komið var út fyrir Klif beið þar brenna á vegum Slökkviliðs Snæfellsbæjar, þjóðleg lög ómuðu og að lokum var samkomunni slitið með mikilfenglegri flugeldasýningu frá Lionsklúbbi Ólafsvíkur. Eftir að hafa hvatt jólin með skrúðgöngu og brennu fóru börnin á stjá um bæinn líkt og venjan er á Þrettándanum í Ólafsvík. Klædd í búninga gengur þau úr húsi í hús og óskuðu eftir að fá

eitthvað gott í gogginn frá heimiliseigendum sem tóku á móti þeim með bros á vör. Fullir pokar af nammi og þreytt og ánægð börn skiluðu sér heim eftir þennan síðasta dag jóla.

SJ


Sinubruni á Hellissandi Mánudagskvöldið 12. janúar barst Slökkviliði Snæfellsbæjar útkall vegna sinubruna á Hellissandi. Íbúi á Hellissandi, sem var í kvöldgöngu, kom auga á að eldur hafi kviknað í sinu á milli Sjóminjasafnsins og Þjóðgarðsmiðstöðvarinnar. Hringdi hann í neyðarlínuna og hóf svo vinnu við að slökkva eldinn. Eldurinn barst mjög hratt í átt að Þjóðgarðsmiðstöðinni Fleiri íbúar bættust í hópinn með skóflur og fleira svo þegar Slökkvilið Snæfellsbæjar bar að garði höfðu hvunndagshetjurnar náð að kæfa eldinn og koma í veg fyrir frekara tjón. Talið er að sinueldurinn hafi kviknað út frá flugelda en það er ekki í fyrsta sinn sem slíkt óhapp

þar sem afar þurrt hefur verið í veðri og gróður víða mjög þurr svo hætta er á að eldur breiðist hratt út komist hann í sinu. Það er mikið mildi að ekki fór verr en vert er að minna á að almenn notkun flugelda er leyfð frá 28. desember til 6. janúar. Á myndinni hér til hliðar sem Ingunn Angantýsdóttir tók af brunninni sinu má sjá að ekki var langt í Þjóðgarðsmiðstöðina, myndina af sinubrunanum tók Guðjón Hrannar Björnsson en hann var einn þeirra sem komu að og slökktu eldinn. gerist nú í kringum áramótin á Íslandi. Hafa slökkviliðsstjórar víða um land biðlað til fólks að veikja ekki eld nærri sinu, kjarri og háu grasi og vera ekki með flugelda

SJ

þar sem hætta er á að glóð úr þeim geti komið af stað sinubruna

Hæfileikamótun KSÍ

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

Tveir leikmenn Ungmennafélagsins Víkings hafa verið valdir til þess að taka þátt í Hæfileikamótun KSÍ fyrir drengi fædda árið 2012. Það eru þeir Gunnar Bent Arason og Freysteinn Hall Stígsson. Helstu markmið Hæfileikamótunar KSÍ er að fylgjast með yngri leikmönnum og undirbúa þá fyrir hefðbundnar lands-

liðsæfingar en einnig að koma til móts við félög á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum. Þetta er stórt tækifæri fyrir leikmenn til þess að sanna sig og læra af þjálfurum KSÍ. Æfingar fara fram í Miðgarði næstkomandi fimmtudag. JJ


Nýtt handteiknað kort af Ólafsvík Nýtt kort af Ólafsvík mun koma út á næstu vikum og var það teiknar af Ómari Smára Kristinssyni fyrir Snæfellsbæ. Á kortið er hvert einasta hús bæjarins handteiknað og litað eftir ljósmyndum og öðrum gögnum. Sambærilegt kort af Hellissandi hefur nú þegar verið gefið út. Teikningin hefur verið stílfærð að hluta til þess að ramma inn áningarstaði, gönguleiðir og aðra áhugaverða staði á svæðinu. Verkið er á lokastigum og því verður dreift til þjónustuaðila þegar það er tilbúið. Nálgast má kortið í Ráðhúsi Snæfellsbæjar þegar að því kemur. JJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Fleiri íbúðir fyrir íbúa eldri en 60 ára Snæfellsbær hefur fest kaup á tveimur íbúðum í raðhúsi sem stendur að Helluhóli 14 á Hellissandi. Íbúðirnar verða leiguí-

búðir fyrir íbúa sem eru 60 ára og eldri. Raðhúsið var byggt árið 2022 og eru íbúðirnar um 122 fermetrar að stærð að meðtöld-

um innbyggðum bílskúr. Skipulag íbúðanna er gott og eru þær fullbúnar með flísum á þvottahúsi, bílskúr og sólpalli. Íbúðirnar eru

kærkomin viðbót við framboð íbúða Snæfellsbæjar fyrir aldurshópinn.

JJ


Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbburinn Rán stóðu fyrir flugeldasýningu á Þrettándanum. Þessi fyrirtæki styrktu flugeldasýninguna og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Sveinbjörn Jakobsson SH - 10

Esjar SH 75

JÓNAS KRISTÓFERSSON HÚSASMÍÐAMEISTARI

Útgerðarfélagið Haukur ehf.

Egill SH-195

Bjartsýnn ehf. Brynja SH - 237

BALATÁ 21. janúar 1973

15 tonna byggðakvóti til Ólafsvíkur Í bréfi innviðaráðuneytisins til Snæfellsbæjar um úthlutun byggðakvóta er sveitarfélaginu tilkynnt hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðalags innan sveitarfélagsins sem rétt á á úthlutuðum byggðakvóta. Úthlutun byggðakvóta er á grundvelli reglugerðar um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla bolfisks til ráðstöfunar til minni

byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á bolfiski. Sömuleiðis til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildarafla heimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum.

Innviðaráðherra hefur allt að 3.465 þroskígildistonn af botnfiski til ráðstöfunar en til að geta fengið úthlutun þarf byggðalag að falla undir sérstök skilyrði um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2025 til 2026.

Í Snæfellsbæ fékk aðeins Ólafsvík úthlutun og fær byggðalagið 15 tonn af kvóta. Næsta skref Fiskistofu er að auglýsa byggðakvóta til umsóknar í byggðarlaginu. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1190tbl by Steinprent - Issuu