7. janúar 2026
1189. tbl - 26. árg.
Áramótabrenna á Breiðinni
Á sjálft gamlárskvöld var boðið til árlegrar áramótabrennu á Breiðinni, við Rif. Þar hafði hópur vaskra sjálfboðaliða hlaðið brennuna undir stjórn Hjálmars Kristjánssonar. Fjöldi fólks kom þar saman, söng þjóðlega söngva og naut samverunnar í góðu veðri. Björgunarsveitin Lífsbjörg hafði þar komið upp glæsilegri
flugeldasýningu og heilluðu viðstadda með mögnuðu sjónarspili. Fyrir marga er áramótabrenna skemmtileg og notaleg hefð og að viðburðinum loknum héldu viðstaddir heim til að kveðja árið og fagna því nýja á miðnætti þegar 2026 gekk í garð. SJ
Brenna á Kirkjuhóli Þegar áramótin ganga í garð er venjan á Íslandi að halda áramótabrennur. Eru þessir viðburðir séríslenskur siður sem má rekja aftur til ársins 1791. Daginn fyrir gamlársdag, þriðjudaginn 30. desember stóð Ungmennafélag Staðarsveitar fyrir sinni árlegu áramótabrennu á Kirkjuhóli í Staðarsveit. Kom þar saman margmenni sem kvaddi árið 2025 með notalegri kvöldstund, fylgdist með bálinu loga á meðan sungið var, spjallað og notið samverunnar. Þegar brennan fór að líða undir lok bauð björgunarsveitin viðstöddum upp á glæsilega flugeldasýningu í blíðskaparveðri. SJ
Jólamót í skák Jólatré hirt í Ólafsvík, Rifi og Hellissandi 8. janúar Lionsklúbbur Ólafsvíkur mun að vanda sjá um hirðingu jólatrjáa í Ólafsvík, Rifi og Hellissandi. Jólatré verða hirt fimmtudaginn 8. janúar frá kl. 18:00. Þeir íbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir að setja tré út við lóðarmörk fyrir þann tíma. Snæfellsbær hvetur bæjarbúa jafnframt til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda og fleira sem fellur til eftir nýárs- og þrettándagleði.
Þriðjudaginn 30. desember fór fram jólamót Taflfélags Snæfellsbæjar fram í bláa salnum í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. 14 keppendur tóku þátt í mótinu, þar af ein í kvennaflokki og 13 í karlaflokki. Tefldar voru 8 umferðir eftir monrad kerfi og voru verðlaun veitt í kvennaflokki, 16 ára og yngri og flokki fullorðinna. Ísabella Davíðsdóttir var í 1. sæti kvenna, Víglundur Orri Heimisson var í 1. sæti í flokki 16 ára og yngri, Sævar Hjalti Þorsteins-
son var í 2. sæti og Eiríkur Árnason lenti í því 3. Þá átti Sigurður Scheving vinninginn í flokki fullorðinna, Steini Ágústsson var í 2. sæti og Rafn Gunnlaugsson var í 3. sæti. Allir sem lentu í verðlaunasæti fengu flugelda að gjöf en auk þess voru fjórir vinningar dregnir úr happdrætti svo að þátttakendur fóru heim klárir í áramótin og skildu sátt við skákárið eftir vel heppnað mót til að loka árinu. SJ
Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Jökull Netfang: steinprent@simnet.is á Issuu Sími:
Blaðið kemur út vikulega.
436 1617
Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér til hliðar með myndavélinni í símanum.
Gjaldskrá fyrir skólamáltíðir og heilsdagsskóla GJALDSKRÁ í Snæfellsbæ 2026 fyrir skólamáltíðir og heilsdagsskóla í Snæfellsbæ Gildir frá 1. janúar 2026 1. gr.
Í grunnskólanum eiga nemendur kost á heitri máltíð í hádeginu fimm daga í viku, alla skóladaga skv. skóladagatali. Maturinn er eldaður í eldhúsi grunnskólans. Foreldrar skrá börn sín í áskrift í byrjun skólaárs.
2. gr.
Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar í Grunnskóla Snæfellsbæjar, þó þarf að skrá börn í fæði. 3. gr. Skóladagvist, Skólabær, er í boði fyrir nemendur í 1. – 4. bekk á Hellissandi. Hann er starfræktur á skóladögum, samkvæmt skóladagatali frá því að skóla lýkur. Boðið er upp á gæslu til kl. 15:00 eða kl. 16:00. Á föstudögum er boðið upp á gæslu til kl. 15:00. Skóladagvist er ekki opin í vetrarfríum. Starfsemi hefst á skólasetningardegi og lýkur á skólaslitadegi. 4. gr. Gjald fyrir hverja dvalarstund í skóladagvist er kr. 381- Gjald fyrir síðdegishressingu er kr 185.5.gr. Greitt er fyrirfram fyrir hvern mánuð og er innheimt með greiðsluseðli. Ekki er veittur afsláttur þó nemendur fari í íþróttir eða tónlistartíma á dvalartíma. Ekki er endurgreitt vegna fjarvista eða veikinda, nema þau vari lengur en eina viku samfellt. 6. gr. Skráning í mat og skóladagvist er hjá skólaritara. Skráning eða afskráning tekur gildi um næstu mánaðarmót samkvæmt tilkynningu sem þarf að berast skólaritara fyrir 20. dag mánaðar á undan. Gjaldskrá þessi er samin með vísan til 23. og 33.. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 með síðari breytingum og var samþykkt í bæjarstjórn Snæfellsbæjar þann 4. desember 2025. Tekur gjaldskrá
þessi gildi þann 1. janúar 2026 og frá sama tíma fellur niður gjaldskrá grunnskóla Snæfellsbæjar sem gilt hefur frá 1. janúar 2025. Snæfellsbær, 4. desember 2025
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbær
|
Klettsbúð 4
|
433 6900
|
snb.is
Steinhleðslu komið fyrir við Réttarskóg Í desember tóku nokkrir vaskir menn þátt í verkefni á vegum Skógræktarfélags Ólafsvíkur í Réttarskógi. Vagn Ingólfsson, Sæbjörn Ágúst Svavarsson, Ríkharður Einar Kristjánsson og Oddur Orri Brynjarsson komu hleðslugrjóti fyrir við Réttarskóg en þar er ætlunin að setja upp myndaog söguskilti þar sem stiklað er á stóru í sögu Ólafsvíkur frá upphafi. Grjótinu er hlaðið í hring og mun skiltunum vera raðað þar inn í auk þess sem hægt er að koma fyrir bekkjum, borðum og öðru til að gera þetta að notalegum og aðlaðandi áningarstað. Ef áhugasamir vilja styðja verkefnið með frjálsu framlagi er hægt að leggja inn á reikning Skógræktarfélags Ólafsvíkur. Aðstandendur Skógræktarfélagsins vilja koma
fram þökkum til allra þeirra sem hafa nú þegar stutt við verkefnið, bæði með fjárframlögum og með annarri aðstoð. Rkn. 194-26-624 Kt. 510391-2179
Dregið úr happadrætti Fönix
Frá jólaopnun verslanna í Snæfellsbæ þann 4. desember og fram á Þorláksmessu, þann 23. nóvember, fóru allir viðskiptavinir sem versluðu fyrir 10 þúsund krónur eða meira í Smiðjunni Fönix í pott og gátu unnið veglega vinninga. Dregið var úr pottinum á Þorláksmessukvöld og áttu viðskiptavinir í pottinum möguleika á að vinna Scott Aspect reiðhjól að verð-
mæti 116 þúsund króna. Það var Ævar Þór Ólafsson sem var svo heppinn að eiga nafnið sem kom upp úr pottinum og hlaut reiðhjólið að gjöf. Þá voru tveir aukavinningar dregnir úr pottinum, annars vegar Stiga sleði og hins vegar fjarstýrður Milwaukee flutningabíll sem fóru einnig í góðar hendur. SJ
Auglýsingaverð í Jökli Heilsíða
36.750 +vsk
Hálfsíða
26.250 +vsk
1/4 úr síðu
18.000 +vsk
1/8 úr síðu
15.000 +vsk
1/16 úr síðu
12.500 +vsk
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Stelpuæfing milli hátíða Þriðjudaginn 30. desember var ungmennafélagið Víkingur með opna fótboltaæfingu fyrir stelpur á grunnskólaaldri. Systurnar Erika Rún og Sædís Rún Heiðarsdætur voru með æfinguna í íþróttahúsinu í Ólafsvík en þær hafa báðar náð frábærum árangri í fótbolta og byrjuðu sinn feril í Snæfellsbæ. 24 hressar stelpur mættu á æfinguna og fengu að æfa undir þeirra leiðsögn. Að æfingu lokinni voru nokkrar heppnar stelpur dregnar út sem fengu húfu frá 66 norður, Víkings eyrnaband og tvær heppnar fengu áritaða skó frá Sædísi. Því miður er mikið brottfall úr knattspyrnu hjá ungum stúlkum og því frábært að hafa flottar fyrirmyndir eins og þær systur sem ólust hér upp og komust langt í íþróttinni. Vonir eru bundnar við áframhaldandi
samstarf til þess að styrkja stelpuboltann enn frekar á Snæfellsnesi.
JJ
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
Nýárshlaup í búningum Hlaupahópur Snæfellsbæjar, sem stofnaður var í lok ágúst 2024, stóð fyrir sínu fyrsta nýárshlaupi þann 1. janúar 2026. Helsta markmiðið með hópnum er að efla hlaupasamfélagið í Snæfellsbæ og hvetja fólk til að stunda útihlaup allt árið um kring. Hópurinn reynir að hittast vikulega, á laugardags- og sunnudagsmorgnum, og hleypur saman fyrirfram ákveðna hlaupaleið. Í nýárshlaupi hópsins voru hlauparar hvattir til að mæta í búningum og mættu þar ofurhetjur, prinsessur og fleiri og tóku létt og skemmtilegt hlaup á Breiðinni. Að hlaupinu loknu var svo veittur farandsvikar fyrir besta búninginn og var það Karen Olsen sem Lína Langsokkur sem
hreppti gripinn, bæði fyrir besta búninginn og leikræna tilburði á meðan hlaupinu stóð.
Áhugasamir hlauparar sem vilja ganga til liðs við Hlaupahóp Snæfellsbæjar geta gengið til liðs við
hópinn á Facebook, Hlaupahópur - SNB.
SJ
Um áramót Umhverfismál
Umhverfismál eru okkur áfram hugleikin í Snæfellsbæ og á öllu Snæfellsnesi. Á árinu náðum við þeim merka áfanga að verða fyrsti UNESCO-vistvangurinn á Íslandi. Það er mikil viðurkenning og opnar fjölmörg tækifæri til framtíðar. Okkar verkefni er að nýta þau tækifæri samfélögunum til framdráttar með sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi.
Framkvæmdir í sveitarfélaginu
Ágætu lesendur Jökuls. Hér að neðan mun ég fara yfir helstu þætti ársins 2025 í Snæfellsbæ. Árið 2025 var fyrsta heila starfsár nýrrar ríkisstjórnar. Þau verk sem ný ríkisstjórn hefur ráðist í meðal annars í tengslum við fjárlagagerð, aukna skattheimtu og samgönguáætlun hefur haft áhrif á umræðu um stöðu sveitarfélaga og landsbyggðarinnar. Ljóst er að áskoranir eru víða og mikilvægt að áfram sé hlustað á sjónarmið sveitarfélaga, fyrirtækja og íbúa um allt land. Okkar hlutverk er að halda málefnum samfélagsins á lofti, vinna að sanngjörnu jafnvægi í opinberri stefnumótun og tryggja að byggðir landsins fái tækifæri til að þróast og blómstra. Eins og undanfarin ár settu alþjóðleg átök mark sitt á heimsmálin. Það er áhyggjuefni að enn skuli stríð herja víða og vonandi munu þeir sem bera ábyrgð finna farsælli leiðir til lausna og friðar. Þrátt fyrir þetta leggst nýtt ár vel í mig. Framundan eru spennandi tímar og tækifærin eru fjölmörg í
okkar góða landi og ekki síst hér í Snæfellsbæ.
Þjóðgarðurinn
Þjóðgarðurinn heldur áfram að vera ein af sterkustu stoðum samfélagsins á Snæfellsnesi. Aðsókn var mjög mikil á árinu og þegar fyrstu tíu mánuðir ársins voru liðnir hafði sami fjöldi gesta heimsótt þjóðgarðinn og allt árið áður. Í haust var sett upp glæsileg sýning í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi sem án efa mun laða enn fleiri gesti á svæðið.Þá var einnig töluvert um framkvæmdir á vegum þjóðgarðsins sem skipta miklu máli, bæði fyrir aðgengi, upplifun gesta og samfélagið í heild.
Hátíðarhöld
Á árinu var Ólafsvíkurvaka haldin og heppnaðist með miklum ágætum. Slíkir viðburðir skipta samfélagið miklu máli og styrkja samkennd og lífsgæði íbúanna. Það er alltaf ánægjulegt þegar íbúar og gestir koma saman og gera sér glaðan dag.
Á árinu var áfram unnið að fjölbreyttum framkvæmdum í Snæfellsbæ bæði á vegum sveitarfélagsins og annarra aðila. Höfuðáhersla sveitarfélagsins var líkt og undanfarin ár lögð á viðhaldsframkvæmdir á eignum. Unnið var að umfangsmiklum malbiksframkvæmdum og nú eru einungis örfáar götur eftir sem ekki hafa verið malbikaðar. Ef allt gengur að óskum er stefnt að því að ljúka þeim framkvæmdum árið 2027. Meðal stærri verkefna voru bílastæði malbikuð á Arnarstapa sem er mikilvægur áfangi til að bæta aðstöðu gesta. Stærsta einstaka framkvæmd ársins voru gatnaframkvæmdir við Vallholt í Ólafsvík þar sem jarðvegur og lagnir voru endurnýjaðar, gatan malbikuð og gangstéttir lagfærðar framkvæmd sem löngu var kominn tími á. Settir voru upp körfuboltavellir við grunnskólana á Hellissandi og í Ólafsvík, þak ráðhússins á Hellissandi var endurnýjað og húsið málað. Þá var farið í endurbætur í Naustabúð þar sem eldri vatns-
lögn var skipt út fyrir nýja plastlögn og gatan í kjölfarið malbikuð sem markar þann áfanga að allar stofnlagnir sveitarfélagsins eru nú úr plasti. Lokið var við nýjan inngang á Jaðri, stækkun leikskólans í Ólafsvík og áfram var unnið að endurnýjun götulýsingar með LED-lömpum. Þá náðist sá ánægjulegi áfangi að ljúka samfelldum göngustíg frá Ólafsvík og út í Krossavík á Hellissandi.
Framkvæmdir Hafnarsjóðs
Í Ólafsvíkurhöfn var lokið við framkvæmdir við stækkun og hækkun á trébryggju við Norðurtanga, lokið var við að skipta um og hækka alla bryggjupolla á Suðurþili. Þá var sett út ný bauja við innsiglinguna til Ólafsvíkur. Öll götulýsing á hafnarsvæði Rifshafnar var yfirfarin og lampar endurnýjaðir. Hafnargatan í Rifi ásamt plani við Norðurgarð í Ólafsvík voru malbikuð. Teknir voru í notkun tveir nýir löndunarkranar annar á Rifi og hinn í Ólafsvík. Unnið var við dýpkun á svæðinu við Töskuvita og í innsiglingunni til Rifshafnar, fyrir framan trébryggjuna við Norðurtanga í Ólafsvík og á svæðinu fyrir framan væntanlegt stálþil við Norðurbakka í Ólafsvík. Einnig var dýpkað á nokkrum stöðum innan hafnar í Ólafsvík. Þá var uppsátur fyrir smábáta í Ólafsvík endurnýjað. Haldið var áfram vinnu við endurbætur innanhúss í hafnarhúsinu í Ólafsvík. Framkvæmdir hófust við lengingu á Norðurbakka í Ólafs-
Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu. Það er í lagi að skila fyrr.
vík. Um er að ræða 100 m. lengingu á stálþili með 7 – 8 m. dýpi ásamt fyrirstöðugarði og 30 m. grjótvörn við enda þilsins. Þessum hluta framkvæmdanna á að ljúka í maí 2026. Gert er ráð fyrir að bjóða út framkvæmdir við þekju, lagnir o.fl. nú í vetur og verklok verði í lok árs 2026. Þá var unnið við fjölmörg viðhaldsverkefni í öllum höfnum Snæfellsbæjar á s.l. ári. Á árinu var landað 34.600 tonnum af afla í höfnum Snæfellsbæjar sem er örlítil aukning frá fyrra ári.
Listir og menning
Listir og menning skipta samfélagið miklu máli og hafa jákvæð áhrif á lífsgæði íbúa. Galleríið 3 Veggir á Hellissandi hélt fjölda listsýninga á árinu sem voru vel sóttar og mikilvægt er að hafa slíka aðstöðu í sveitarfélaginu. Tvö ný útilistaverk bættust við í bæjarfélaginu. Í Krossavíkinni var sett upp steinlistaverkið Frelsisleið eftir Jo Kley og á Hellissandi listaverkið Valur eftir Hörð Rafnsson. Slík verkefni auka aðdráttarafl byggðarinnar og gera umhverfið lifandi og áhugavert.
Atvinnulíf
Sjávarútvegur er enn sem fyrr okkar stærsta atvinnugrein hér í Snæfellsbæ og skapar tæplega 50% af útsvarstekjum sveitarfélagsins. Árið var gjöfult í útgerð
og vinnslu en það er ljóst að álögur á fyrirtækin munu aukast með hækkun veiðigjalda sem er áhyggjuefni fyrir okkar svæði. Árið 2025 var metár í komum ferðamanna til Snæfellsbæjar. Gestafjöldinn jókst á öllum helstu mælikvörðum og tjaldsvæðin tóku á móti tæplega 27.000 gestum sem er fjölgun um 7.400 frá fyrra ári. Ferðaþjónustan heldur áfram að eflast og skapar sífellt fleiri störf í sveitarfélaginu. Samhliða fjölgar gistirýmum og framboð á veitinga- og þjónustustarfsemi eykst. Það er hlutverk sveitarfélagsins að skapa góð rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki og styðja við fjölbreytt atvinnulíf.
Fjármál og fjárfestingar
Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar er afar sterk á mælikvarða sveitarfélaga á Íslandi. Þessa stöðu hefur bæjarstjórn nýtt í framkvæmdir sem voru mjög miklar á árinu og svigrúm til framkvæmda eykst alltaf ár frá ári sökum þess að skuldir lækka ár frá ári. Það þýðir að við erum stöðugt að bæta búsetuskilyrði fyrir íbúa sveitarfélagsins sem skiptir mestu máli þegar upp er staðið. Á árinu 2026 verður áfram haldið á fullu í framkvæmdum í sveitarfélaginu með hinum ýms-
Fleiri tölublöð Jökuls á timarit.is
Bæjarblaðið Jökull kom fyrst út 8. mars árið 2001 og verður því 25 ára árið 2026. Blaðið er þriðja tilraun Steinprents til reglulegrar útgáfu bæjarblaðs og hefur komið út vikulega síðan 2001.
Landsbókasafn Íslands heldur utan um tímarit sem gefin eru út á Íslandi og hefur unnið hörðum höndum undanfarin ár að skrásetningu gagnanna. Vefsíðan timarit.is geymir þessi gögn en þar má nálgast fjölda rita sem gefin hafa verið út um allt land. Sá áfangi hefur nú náðst að birta 1.095 tölublöð Jökuls á síðunni en það eru öll þau blöð sem gefin hafa verið út frá 8. mars 2001 til 28. desember 2023. Blöð sem gefið voru út eftir það munu skila sér inn á timarit.is en þangað til má finna þau á Issuu.com ef leitað er að steinprent eða Bæjarblaðið jökull. JJ
um framkvæmdum og ætlum við að fjárfesta fyrir 745 m.kr. sem verður að teljast gott hjá ekki stærra sveitarfélagi en Snæfellsbær er.
Á persónulegum nótum
Árið var mér persónulega sérstakt. Ég náði þeim áfanga að verða sextugur og er þakklátur fyrir það. Fjölskyldan naut margra gleðistunda ekki síst með barnabarni okkar, Helgu. Þá lauk Kristinn Jökull meistaranámi í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík sem var stór áfangi í hans lífi og okkar. Sumarið gaf góð tækifæri til golfiðkunar, fjárræktin gekk vel
og í lok árs þurfti ég að gangast undir bakaðgerð. Ég er afar þakklátur fyrir þá góðu þjónustu og hlýhug sem mér var sýndur bæði hér heima og á Landspítalanum. Nýja árið verður nýtt til að ná fyrri styrk og koma inn enn sterkari. Samstarf innan bæjarstjórnar var gott á árinu og mikil samstaða um þau verkefni sem fyrir lágu. Starfsmenn Snæfellsbæjar stóðu sig eins og ávallt með mikilli prýði og skilar það sér í góðum rekstri sveitarfélagsins. Að lokum óska ég ykkur öllum gleðilegs árs og þakka gott samstarf. Megi árið 2026 verða okkur öllum farsælt og gott. Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar
Hollvinasamtök HVE gáfu BiPAP tæki
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands afhentu sjúkrahúsinu á Akranesi nýlega BiPAP öndunaraðstoðartæki að gjöf, þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Tækið mun nýtast við hjúkrun sjúklinga með öndunarvanda sem lagðir eru inn á lyflækningadeild HVE á Akranesi en það er getur verið lífsnauðsynlegt hjálpartæki fyrir þá sem þurfa tímabundna eða viðvarandi öndunaraðstoð. Tækið getur komið sér vel fyrir sjúklinga með alvarlega lungnasjúkdóma, fólk sem á erfitt með öndun eftir sýkingar, slys eða aðgerðir og önnur bráðatilfelli á sjúkrahúsinu. Verðmæti tækisins er um 3,5 milljónir króna og var það fjármagnað með styrkjjum frá fjölmörgum aðilum, þar á meðal frá Akraborg ehf og Lionsklúbbnum Rán í Ólafsvík auk þess sem félagsmenn Hollvinasamtaka
HVE hafa greitt árgjald til samtakanna sem notað var til kaupa á tækinu. Stjórnendur HVE mátu BiPAP tækið sem forgangs verkefni í tækjakaupum stofnunarinnar en með því er hægt að stytta sjúkrahúsalegu sjúklinga, minnka líkur á að einstaklingar þurfi að fara í öndunarvél og bæta líðan sjúklinga. Hollvinasamtök HVE hvetja alla sem vilja styðja við Heilbrigðisstofnun Vesturlands og heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi til að gerast félagar en það er hægt með því að senda skilaboð á Facebook síðu hollvinasamtakanna Vesturlandsvaktin eða senda tölvupóst á saevarfreyr@icloud.com. Nýlega fengu samtökin skráningu á almannaheillaskrá Skattsins svo nú geta einstaklingar og fyrirtæki fengið skattfrádrátt vegna gjafa og framlaga til samtakanna. SJ
GJALDSKRÁ Gjaldskrá fyrir tónlistarskólagjöld fyrir tónlistarskólagjöld pr. önn í Snæfellsbæ pr. önn í Snæfellsbæ 2026 Gildir frá 1. janúar 2026 1. gr.
Forskóli: Grunngjald .............................................................................................
20.000 kr.
Undir 21 árs: Heilt tónlistarnám....................................................................................... Hálft tónlistarnám....................................................................................... Heilt söngnám............................................................................................. Hálft söngnám.............................................................................................
45.800 kr. 27.480 kr. 45.800 kr. 27.480 kr.
21 árs og eldri: Heilt tónlistarnám....................................................................................... Hálft tónlistarnám....................................................................................... Heilt söngnám............................................................................................. Hálft söngnám.............................................................................................
80.000 kr. 48.000 kr. 80.000 kr. 48.000 kr.
Hljóðfæraleiga............................................................................................
10.000 kr.
2. gr.
Afslættir af dvalargjald: Einstæðir foreldrar og námsmenn........................................................... Systkinaafsláttur, 2. barn......................................................................... Systkinaafsláttur, 3. barn..........................................................................
25% 25% 50%
Afsláttur til námsmanna gildir ef báðir foreldrar eru skráðir í fullt nám og ljúka a.m.k. 75% af fullu námi. Afsláttur reiknast frá því að vottorð um skólavist er lagt fram. Ljúki ekki báðir foreldrar 75% af fullu námi, fellur afsláttur niður. Systkinaafsláttur reiknast af lægsta dvalargjaldinu. Afsláttur gildir fyrir systkini yngri en 18 ára og á ekki við um frændsystkini þó þau deili lögheimili og greiðandi sé sá sami. 3. gr. Gjaldskrá þessi er samin með vísan til 11. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og var samþykkt í bæjarstjórn Snæfellsbæjar þann 4. desember 2025. Tekur gjaldskrá
þessi gildi þann 1. janúar 2026 og frá sama tíma fellur niður gjaldskrá tónlistarskóla Snæfellsbæjar sem gilt hefur frá 1. janúar 2025. Snæfellsbær, 4. desember 2025 Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbær
|
Klettsbúð 4
|
433 6900
|
snb.is