Skip to main content

BaejarbladidJokull1188tbl

Page 1

30. desember 2025

1188. tbl - 25. árg.

Sandholt 2 er Jólahús Snæfellsbæjar

Í desember óskaði Menningarnefnd Snæfellsbæjar eftir tilnefningum frá íbúum um jólalegasta húsið í Snæfellsbæ. Árlega hafa íbúar kosið um það hús sem þykir fallega skreytt í tilefni jólahátíðarinnar og í ár barst nefndinni fjölda tillaga enda verða mörg hver húsin í bæjarfélaginu jólalegri með ári hverju. Við yfirferð á innsendum tillögum kom í ljós að mikill meirihluti var sammála um að hjónin Þorgrímur Toft-

um og Hallveig Jóhanna Magnúsdóttir, við Sandholt 2 í Ólafsvík skyldu fá viðurkenningu fyrir fallega jólaskreytingu árið 2025. Á meðfylgjandi mynd eru fulltrúar Menninganefndar Snæfellsbæjar, þær Ingunn Ýr Angantýsdóttir og Kristín Arnfjörð, að færa hjónunum viðurkenningu fyrir hönd nefndarinnar á Þorláksmessumorgun. SJ

Átaksverkefni um tvítengingu ljósleiðara Átaksverkefni hefur verið hrundið af stað til að tryggja að á annan tug þéttbýlisstaða og byggðakjarna verði tvítengdir, það er fái tvöfalda ljósleiðaratengingu. Öll fjarskipti á þessum stöðum fara nú um einn ljósleiðarastreng en við rof á slíkum strengjum verða staðirnir sambandslausir sé ekkert varasamband fyrir hendi. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, segir góð og áfallaþolin fjarskipti vera ein af undirstöðum búsetu og atvinnulífs óháð því hvar fólk á heimili eða sækir atvinnu og brýnt sé að auka áfallaþol fjarskiptainnviða. Innviðaráðuneytið kallaði nýverið eftir eigin áformum fjarskiptafyrirtækja og annarra aðila um úrbætur

hjá Bolungarvík, Skagaströnd, Borgarfirði eystri, Grenivík, Hellissandi, Hnífsdal, Hvammstanga, Kópaskeri, Patreksfirði, Raufarhöfn, Rifi og Suðureyri. Niðurstaða liggur fyrir og fleiri þéttbýlisstaðir eða byggðakjarnar kunna mögulega að bætast við síðar. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Magnús Hauksson, framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta ehf., og Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Skagastrandar voru viðstödd þegar samkomulag um átaksverkefnið var undirritað en áætlað er að verklok á Skagaströnd verði fyrir lok árs og verður þá haldið áfram til næstu þéttbýliskjarna í framhaldi af því. SJ


Jólablakmót

Laugardaginn 27. desember var haldið jólablakmót í íþróttahúsinu Ólafsvík fyrir blaklið á Snæfellsnesi. Keppt var í þremur deildum, kvenndadeild efri, kvennadeild neðri og karladeild. Fjögur lið kepptu í kvennadeild efri, þrjú frá UMFG og eitt frá Víking. Fjögur lið kepptu í kvennadeild neðri, eitt frá UMFG, eitt frá Snæfell, eitt frá Víking og gullaldarlið Reynis mætti til leiks. Í karladeildinni léku svo fimm lið, tvö frá Snæfell, tvö frá UMFG og

eitt frá Víking. Spilað var skemmtilega og æsispennandi blakleiki allan daginn fyrir fullri stúku af áhorfendum. Til úrslita var talið flestar unnar hrynur og í öllum þremur deildunum bar lið UMFG sigur úr býtum. Að mótinu loknu var opið á Sker þar sem keppendur gátu gætt sér á pizzahlaðborði, spiluðu tónlistarbingó og skemmtu sér saman eftir vel heppnaðan dag. Búast skipuleggjendur við því að jólamótið verði árlegur viðburður

hér eftir en svo mikill áhugi var á meðal þátttakenda að möguleiki er á að fleiri mót verði haldin á Snæfellsnesi. Vill blakstarfið í Snæfellsbæ koma fram þökkum til CFSNB og Sker fyrir veitta að-

stoð við framkvæmd mótsins og sömuleiðis til allra þátttakenda og áhorfenda sem gerðu mótið að því sem það var. SJ

Helena Ólafs. þjálfar fótbolta Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111 Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Ungmennafélaginu Víkingi og mun hefja störf í þessari viku. Hún mun

strax hefja þjálfun hjá 8. flokki en tekur einnig við æfingum fyrir stelpur í 5., 6. og 7. flokki eftir áramót. Helena er einn reyndasti þjálfarinn í kvennaknattspyrnu á Íslandi og hefur meðal annars þjálfað lið Vals, ÍA og ÍR auk kvennalandsliðs Íslands. Hún spilaði lengi í efstu deild á íslandi og hefur leikið 8 leiki með A-landsliði Íslands. Hún er íþróttakennari að mennt og hefur lokið C-stigi í þjálfun hjá KSÍ. Helena er mikill fengur fyrir ungmennafélagið og hvatning fyrir ungar stelpur í íþróttum. JJ


Jólasmásögukeppni Jökuls

Jólasmásögukeppni Jökuls var haldin fyrir útgáfu jólablaðsins og fór þátttaka fram úr okkar björtustu vonum. 24 sögur bárust blaðinu frá nemendum af öllum stigum Grunnskóla Snæfellsbæjar og Grunnskóla Grundarfjarðar. Nemendur létu ímyndunaraflið ráða för og voru sögurnar skemmtilegar og fjölbreyttar fyrir vikið. Sigurvegarar smásögukeppninnar í ár voru Hans Bjarni Sigurbjörnsson úr 9. bekk grunnskóla Grundarfjarðar með söguna Jólavesen. Emil Máni úr 4. bekk Lýsudeildar grunnskóla Snæfellsbæjar en hann samdi söguna Cheeriosbærinn. Sævar Hjalti Þorsteinsson úr 8. bekk grunnskóla Grundarfjarðar var höfundur sögunnar Jólastjarnan. Jólasaga 2025 var eftir Dagbjörtu Unni Guðjónsdóttir úr 6. bekk grunnskóla Snæfellsbæjar og Kolfinna Kristný Jónsdóttir úr 6. bekk grunnskóla Snæfellsbæjar samdi söguna Jólasaga. Sigurvegararnir í ár fengu fengu bók og happa-

drættismiða úr jólahappadrætti Lionsklúbbs Nesþinga og Lionsklúbbs Ólafsvíkur í verðlaun. Við þökkum öllum sem sendu inn smásögu í keppnina kærlega fyrir þátttökuna og óskum sigurvegurum 2025 til hamingju með árangurinn. JJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu. Það er í lagi að skila fyrr.


FLUGELDASALA Í METTUBÚÐ

SÖLUDAGAR: Mánud. 29. des. Þriðjud. 30. des. Miðvikud. 31. des.

16 - 22 16 - 22 10 - 16

Þriðjud. 6. jan.

16 - 18

LIONSKLÚBBUR ÓLAFSVÍKUR

Dregið í Lionshappdrættum ósóttum vinningum og verður hægt að vitja vinninga úr happdrættinu á Klifi í verslun Hampiðjunnar í Ólafsvík á opnunartíma verslunarinnar. Ósótt númer eru þessi: 167, 168, 180, 215, 317, 335, 338, 344, 385, 389, 390, 392, 401, 413, 501, 511, 527, 606, 622, 663, 770, 821, 850, 968, 1053, 1096, 1149, 1179, 1220, 1252, 1325, 1503, 1519, 1590, 1635, 1784, 2330, 2358. Ósótta vinninga úr happdrættinu í Röst er hægt að nálgast með því að hringja í Jóhannes Stefánsson í síma 8476649 og eru ósótt númer þessi: 195, 204, 368, 488, 511, 514, 518, 620, 677, 708, 736, 742, 746, 748, 972, 1222 Lionsklúbbur Nesþinga og Lionsklúbbur Ólafsvíkur hafa um áratugaskeið glatt börn í Snæfellsbæ með jólahappdrættum, í ár varð ekki breyting á og

leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Nesþinga var haldið í félagsheimilinu Röst á Þorláksmessu, Lionsklúbbur Ólafsvíkur dró út í sínu happdrætti í félagsheimilinu Klifi

á Aðfangadagsmorgun, fjölmenni mætti á viðburðina og fóru margir glaðir heim enda vinningshlutfall hátt í báðum happdrættum. Eins og oft áður er talsvert að

Lionsklúbbarnir þakka kærlega fyrir þátttökuna og óska öllum gleðilegrar hátíðar.


Jólaball félagasamtaka haldið í Klifi Sunnudaginn 28. desember var sameiginlegt jólaball á vegum félagasamtaka í Snæfellsbæ haldið í Klifi. Komu þar saman ungir sem aldnir og gengu í kringum jólatréð og sungu saman. Vigdís Júlía Viðarsdóttir söng við undirspil Nönnu Þórðardóttur. Tekið var stutt pása fyrir kaffiveitingar áður en haldið var aftur á dansgólfið og þar sungið og dansað til að lokka jólasveinana inn. Tveir hressir jólasveinar mættu svo, spjölluðu við viðstadda og tóku sporið í kringum jólatréð áður en þeir náðu í góðgæti í pokana til að gefa börnunum. Það voru Kvenfélag Ólafsvíkur, Kvenfélag Hellissands, Lionsklúbbur Rán og Lionsklúbbur Nesþinga sem koma að skipulagi og framkvæmd jólaballsins sem lukkaðist að venju mjög vel. SJ

Héraðsmót Taflfélags Snæfellsbæjar

Taflfélag Snæfellsbæjar hélt héraðsmót í skák miðvikudaginn 17. desember. Mótið fór fram í Grunnskóla Grundarfjarðar og var það ætlað öllum börnum á grunnskólaaldri á Snæfellsnesi. Skipulag og utanumhald mótsins var í höndum Sigurðar Scheving og hjónanna Þorsteins Hjaltasonar og Sigurrósar Söndru Bergvinsdóttur. 16 hressir krakkar mættu og tefldu 9 umferðir með monrad kerfi. Að sögn Sigurðar Scheving var hart barist og lítið gefið eftir á mótinu þó svo að virðing og

vinsemd hafi svifið yfir hópum. Í drengjaflokki var Víglundur Orri Heimisson í 1. sæti eftir að hafa unnið allar sínar skákir, Kristófer Óskarsson var í 2. sæti og Sævar Hjalti Þorsteinsson var í 3. sæti. Í stúlknaflokki var Telma Dís Ásgeirsdóttir í 1. sæti, Elín Björg Þorsteinsdóttir í 2. sæti og Friðmey Ósk Fannarsdóttir í því 3. Krakkarnir spiluðu góðar skákir og eru framfarirnar í hópnum gífurlegar. Að mótinu loknu fengu allir keppendur pizzur frá Kaffi 59. SJ

Jökull á Issuu

Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér að ofan með myndavélinni í símanum.


GjaldskráGJALDSKRÁ fyrir leikskólagjöld fyrir leikskólagjöld í Snæfellsbæ í Snæfellsbæ 2026 Gildir frá 1. janúar 2026 1. gr.

Dvalargjald: Grunngjald fyrir hvert auka korter að dvalartíma loknum..................... Mánaðargjald fyrir vistun – 4 klt. á dag................................................. Mánaðargjald fyrir vistun – 5 klt. á dag................................................. Mánaðargjald fyrir vistun – 6 klt. á dag................................................. Mánaðargjald fyrir vistun – 7 klt. á dag (föstudagsstytting).................. Mánaðargjald fyrir vistun – 8 klt. á dag (föstudagsstytting)..................

1.163 kr. 18.600 kr. 23.250 kr. 27.900 kr. 32.318 kr. 36.735 kr.

Mánaðargjald er fast gjald á mánuði óháð frídögum sem falla á tiltekinn mánuð. Afsláttur er ekki gefinn af mánaðargjaldi. Fæðisgjald: Morgunmatur.......................................................................................... Hádegismatur.......................................................................................... Siðdegiskaffi (föstudagsstytting)............................................................ Fullt fæði.................................................................................................

2.865 kr. 5.990 kr. 2.293 kr. 11.148 kr.

Fæðisgjald er fast gjald á mánuði óháð frídögum sem falla á tiltekinn mánuð. Afsláttur er ekki gefinn af fæðisgjaldi nema barn sé fjarverandi í lengri tíma en 4 vikur samfellt. Afslátt af fæðisgjaldi skal undantekningarlaust ræða við leikskólastjóra.

2. gr.

Dvalargjald við Lýsukot við Lýsuhólsskóla: Mánaðargjald fyrir vistun – 4 dagar í viku................................................. Mánaðargjald fyrir vistun – 5 dagar í viku.................................................

22.320 kr. 27.900 kr.

Mánaðargjald er fast gjald á mánuði óháð frídögum sem falla á tiltekinn mánuð. Afsláttur er ekki gefinn af mánaðargjaldi. Fæðisgjald við Lýsukot við Lýsuhólsskóla: Morgunmatur.......................................................................................... Hádegismatur..........................................................................................

2.865 kr. 5.990 kr.

Fæðisgjald er fast gjald á mánuði óháð frídögum sem falla á tiltekinn mánuð. Afsláttur er ekki gefinn af fæðisgjaldi nema barn sé fjarverandi í lengri tíma en 4 vikur samfellt. Afslátt af fæðisgjaldi skal undantekningarlaust ræða við deildarstjóra Lýsuhólsskóla.

3. gr.

Afslættir af dvalargjald: Einstæðir foreldrar og námsmenn........................................................... Systkinaafsláttur, 2. barn......................................................................... Systkinaafsláttur, 3. barn..........................................................................

40% 50% 100%

Afsláttur til námsmanna gildir ef báðir foreldrar eru skráðir í fullt nám og ljúka a.m.k. 75% af fullu námi. Afsláttur reiknast frá því að vottorð um skólavist er lagt fram. Ljúki ekki báðir foreldrar 75% af fullu námi, fellur afsláttur niður. 4. gr. Gjaldskrá þessi er samin með vísan til 27. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og var samþykkt í bæjarstjórn Snæfellsbæjar þann 4. desember 2025. Tekur gjaldskrá þessi gildi þann 1.

janúar 2026 og frá sama tíma fellur niður gjaldskrá leikskóla Snæfellsbæjar sem gilt hefur frá 1. janúar 2025. Snæfellsbær, 4. desember 2025 Kristinn Jónasson, bæjarstjóri

Snæfellsbær

|

Klettsbúð 4

|

433 6900

|

snb.is


Aldrei meira úrval! Við eigum réttu vörurnar í áramótaveisluna.

Yfir 100 sölustaðir um allt land.

Nánar á flugeldar.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1188tbl by Steinprent - Issuu