Skip to main content

BaejarbladidJokull1187tbl_Jola

Page 1

OPNUNARTÍMI YFIR HÁTÍÐIRNAR 22. des. 23. des. 24. des. 25. des. 26. des. 27. des. 28. des. 29. des. 30. des. 31. des. 01. jan. 02. jan.

mánudagur Þorláksmessa Aðfangadagur Jóladagur Annar í jólum laugardagur sunnudagur mánudagur þriðjudagur Gamlársdagur Nýársdagur föstudagur

09 - 18 09 - 21 10 - 13 LOKAÐ LOKAÐ 11 - 17 13 - 17 09 - 18 09 - 19 10 - 13 LOKAÐ 09 - 20

Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári viljum við þakka kærlega fyrir ánæjuleg samskipti síðasliðin 50 ár.


Ljósið glóir í kirkjunni

Eitt af því sem einkennir desemberdagana okkar hér á Íslandi er myrkrið. Á hefðbundnum vinnutíma fara flestir á fætur og til starfa sinna í svartamyrkri og að loknum vinnudeginum er aftur orðið dimmt þegar við leggjum af stað heim á leið. Ef leið okkar liggur framhjá kirkjunni í skammdeginu og okkur verður litið til kirkjubyggingarinnar má vera að við tökum eftir ljósinu sem glóir þar inni. Síðan höldum við flest áfram leiðar okkar í vetrarkuldanum. Það eru margir sem sjá ljósið en fara ekki inn, jafnvel þótt upp sé runninn aðfangadagur, kirkjuklukkurnar hafa hringt og minnt á að jólin eru gengin í garð.

Breyttir tímar

Ég áfellist fólk ekki sem velur að sleppa því að fara í kirkjuna um jól. Tímarnir hafa breyst og með þeim hafa siðir og venjur breyst hraðar en við hefðum getað ímyndað okkur. Kirkjusókn er ekki lengur, eins og á fyrri árum, órjúfanlegur hluti þess að halda jólin hátíðleg. Tengsl margra við kirkjuna eru ekki hin sömu og þau voru þegar þjóðfélagið okkar var einsleitara og kirkjan var einn af þeim þáttum sem sameinaði íslenska þjóð.

Leitin hættir ekki

Þótt tengsl margra við kirkjuna séu minni en þau voru áður, hefur þörfin fyrir merkingu ekki horfið. Manneskjan hættir ekki að leita þrátt fyrir breytta tíma. Spurningar um tilgang, von, gildi og fyrirgefningu sækja á þegar við gefum okkur tíma til að staldra við og

velta því fyrir okkur hvert líf okkar stefnir. Um tíma varð það að ríkjandi viðhorfi að hægt væri að byggja lífið alfarið á mannlegri skynsemi, framförum, frelsi einstaklingsins og trú á eigin mátt. Mörgum fannst það frelsandi að losna undan því sem þeir töldu vera íþyngjandi trúarhugmyndir og gamlar hefðir. Í stað þess að hafa trúna að leiðarljósi í lífinu varð markmiðið að „fylgja hjartanu“ og lifa „fullu lífi“. Að upplifa sem mest og halda öllum möguleikum opnum. Þetta er skiljanleg löngun en þegar lífið snýst fyrst og fremst um að njóta augnabliksins, verður erfitt að svara dýpri spurningum: hvað stendur eftir þegar augnablikið er liðið?

Leitið og þér munuð finna

Ein helsta ástæða þess að ég valdi að gerast prestur var einlæg sannfæring mín um sannleiksgildi kristinnar trúar. Sannfæring um að sá Jesús sem guðspjallamennirnir vitna um sé sannarlega Guð kominn til okkar sem maður til þess að frelsa okkur. Að í Kristi sé að finna góð svör við öllum þessum djúpu tilvistarspurningum okkar. Mér finnst það mikil forréttindi að fá að starfa við að boða fagnaðarerindið um Krist og að fá að þjóna fólki á vettvangi kirkjunnar. Þess vegna gleður mig að skynja að viðhorf gagnvart kristinni trú og kirkju séu víða að breytast nú í jákvæða átt.

Ingjaldshólskirkja

Það veitir mér von að finna Guð að verki þessi misseri, ekki síst meðal ungs fólks. Í samtölum við fólk verður mér sífellt ljósara að andúð á trú er alls ekki jafn almenn og ég hélt að hún væri. Fremur ber fólk í auknum mæli virðingu fyrir andlegri leit manneskjunnar og þeirri sannfæringu að til séu verðmæti sem hvorki verða sett upp í Excel-skjöl né vegin á vísindalegum vogaskálum. Margir eru að verða meðvitaðir um að svörin sem þeir leita að séu ekki endilega ný af nálinni, heldur að finna á gömlum og þrautreyndum slóðum. Kristin trú hefur allt frá upphafi tekið þessa leit alvarlega. Hún lítur ekki á hana sem veikleika, heldur sem vísbendingu um það sem Guð hefur lagt í hjarta sérhvers manns. Ágústínus, einn af fyrstu leiðtogum kristinnar kirkju, orðaði þessa hugsun svo að Guð hafi skapað okkur fyrir sjálfan sig. Það þýð-

ir að við erum sköpuð til þess að þekkja Guð og eiga samfélag við hann. Án þessa samfélags er manneskjan friðlaus. Þar og hvergi annars staðar er að finna þessa hvíld sem stillir stormana innra með okkur og gefur okkur ró. Eins og Guð segir í gegnum spámann sinn Jeremía: „Nemið staðar við vegina og litist um, spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin og farið hana svo að þér finnið sálum yðar hvíld.“

Guð kemur til okkar

Sígildur boðskapur jólanna á ennþá erindi við okkur. Jólin eru ekki bara gömul og falleg hefð eða notaleg fjölskyldustemning heldur þessi fögnuður sem engillinn á Betlehemsvöllum boðaði og enn veitist öllum, að „Yður er í dag frelsari fæddur“. Fagnaðarboðskapurinn um að Guð sjálfur hafi stigið inn í heiminn okk-


ar í Jesú Kristi sem maður sem deildi kjörum sínum með venjulegu fólki og mætti því þar sem það var. Enn í dag gerir hann það sama og mætir okkur þar sem við erum stödd með spurningar okkar, ótta og von. Þetta er í mínum huga kjarni kristinnar trúar. Við getum aldrei nálgast Guð með því einu að lifa góðu og fallegu lífi og einmitt þess vegna nálgast Guð okkur. Hann kemur til okkar, fyrst í jötu, í fátækt og einfaldleika og síðan til þeirra sem leita merkingar og friðar. Þessi gamla og góða jólasaga verður lifandi, ekki með því að endurtaka hana ár eftir ár eða með því að halda í gamlar hefðir heldur með því að við verðum sjálf þátttakendur í henni þegar við leyfum henni að tala inn í aðstæður okkar og líf okkar sjálfra.

Að stíga inn

Ljósið skín úr gluggum kirkjunnar í desembermyrkrinu og flestir ganga framhjá því. Kannski vegna þess að þeim finnst eins og kirkjan eigi ekkert erindi við þá lengur og þeir eiga erfitt með að tengja sjálfa sig gömlum hefðum hennar. Kannski vegna þess að tímar menningarlegs kristindóms eru liðnir og ekki

verður aftur snúið til þess sem einu sinni var. Það er heldur ekki markmiðið. Svarið við breyttum tímum er ekki að halda í hefðir eða endurlífga liðna fortíð. Það þýðir samt sem áður ekki að boðskapur jólanna hafi misst gildi sitt. Þvert á móti. Hann snýst ekki um hefðir, venjur og menningu heldur um raunverulegan Guð sem kemur til raunverulegs fólks. Þess vegna bjóða jólin okkur að horfa ekki bara á ljósin utan frá heldur að stíga inn. Að ganga yfir þröskuldinn og hlusta á boðskap sem hefur verið fluttur kynslóð eftir kynslóð, ekki til að

fylgja gamalli hefð heldur vegna þess að hann er sannur. Boðskapurinn krefst þess síður en svo að við séum fullkomin. Hann býður okkur að taka á móti gjöf. Að Guð hafi sjálfur komið til okkar, ekki til að dæma heldur til að frelsa. Þess vegna langar mig til að skora á þig lesandi góður að ganga ekki framhjá ljósinu þessi jól. Komdu inn. Sestu og hlustaðu. Gefðu þessari gömlu sögu tækifæri til að tala inn í líf þitt eins og það er núna en ekki eins og það ætti að vera. Þú þarft ekki að hafa allt á hreinu. Þú þarft ekki að vera viss um allt.

Það eina sem þarf er að vera til staðar. Jólin snúast á endanum ekki um að varðveita fortíðina, heldur um nærveru. Um Guð sem kemur til okkar í myrkrinu. Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, var að koma í heiminn og öllum þeim sem taka við honum gefur hann rétt til þess að verða Guðs börn. Guð gefi okkur öllum frið, yl og birtu jólanna og blessi okkur nýja árið. Ægir Örn Sveinsson, sóknarprestur Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalls.


Jólasögusamkeppnin

Kvöldið 7 .desember. Jólakötturinn og Tumi eru úti að leika sér með bolta fyrir utan grýluhelli. Þeir eru búnir að vera þar í 4 tíma. Jólakötturinn er orðinn þreyttur og ákveður að taka sér blund inni í grýluhelli. Þegar hann er lagstur verður hann alveg rosa svangur. Hann er ekki búinn að borða síðan á síðustu jólum, þegar Grýla gerði sér krakkakássu úr óþekku börnunum. Hann labbar í hringi inn í Grýluhelli, þá sér hann lítinn jólaálf og hann hugsar: Við höfum svo marga jólaálfa að einn lítill jólaálfur skaðar ekki neinn. Hann fer og talar við jólaálfinn. “Halló, hvað segirðu, litli jólaálfurinn þinn.” Jólaálfurinn svarar: “’Ég segi bara fínt, hefurðu séð pabba minn? Hann heitir Ingólfur.” “Nei ég hef ekki séð hann.” Svarar jólakötturinn. “Hvað heitir þú?” “Ég heiti Gunnar.” Svarar álfurinn. “Gaman að hitta þig Gunnar.” Svo gleypir jólakötturinn Gunnar litla jólaálf í einum munnbita. Þetta var góður álfur, smá saltur,

Jólavesen en góður. Svo röltir jólakötturinn í bælið sitt og fær sér vænan blund, en hann gleymdi að hann átti að passa lykilinn af hellinum, jólagjafa hellinum. Fyrir utan hellinn situr Tumi og bíður eftir jólakettinum. Hann hugsar með sér að hann er búinn að sitja lengi úti og ákveður að fara inn og fá sér smáköku. Hann fer inn og sér jólaköttinn sofa vært í bælinu sínu. Hann fer og nær í stigann sinn litla, en samt mjög langa stigann sinn og setur hann upp við borðið inni í eldhúsi. Hann klifrar upp hann, fer og fær sér smáköku og lítur í kringum sig. Hann sér krókinn hans Ketkróks og við hliðina á honum er snagi. Snaginn geymir vanalega lykilinn af Grýluhelli og gjafahellinum en hann er ekki þar. Lyklarnir af öllum húsum Íslands eru þar en ekki lyklarnir af hellunum. Tumi hleypur að jólakettinum og vekur hann. “KISI KISI! VAKNAÐU!” Jólakötturinn vaknar og segir við hann úrillur: “Hvað lyklarnir að hellunum eru horfnir?! HVAÐ!!! Þetta er hræðilegt við verðum að finna lyklana. Grýla verður brjáluð ef hún kemst að þessu.” “Ég veit,” segir Tumi, “en hvar gæti hann verið.” “Ég veit ekki, það er enginn búinn að vera í hellinum nema við í allan dag. Við verðum að fara að leita.” Segir jólakötturinn. Þeir leita og leita en finna ekki neitt. Þeir leita ofan í baðkarinu, ofan í pottinum hennar Grýlu, þeir leita upp á ísskáp og meira að segja inn í ísskáp, en finna hann ekki. “Hvar gæti hann verið?” Spyr Tumi. “Ég veit ekki.

Við óskum íbúum Snæfellsness starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs

Megi nýja árið vera ykkur hamingjuríkt og gjöfult.

Heldurðu að einhver hafi tekið hann?” svarar jólakötturinn. ”Kannski, leitum að vísbendingum.” stingur Tumi upp á. Þeir fara inn í eldhús og þar finna þeir fótspor í hveitinu sem var út um allt borð. Þetta voru lítil fótspor, eftir jólaálf. Tumi segir: “Þetta er ekki eftir mig, ég er ekki búinn að vera þarna megin á borðinu. Sjáðu, sporin halda áfram, alla leið að lyklunum.” Þeir halda áfram að elta sporin þar til að þau hverfa. Þá líta þeir í kringum sig. “Þarna eru fótspor í drullunni” Segir Tumi. “Já, það er rétt hjá þér, þau leiða út.” segir jólakötturinn. Þeir fara út og elta fótsporin. Nú eru sporinn komin í snjóinn. Þeir fylgja sporunum alla leið að jólaþorpinu, þar sem allir jólaálfarnir búa. Það er enginn þar, allir álfarnir eru að hjálpa Grýlu að þvo jólasveinana. Allir nema einn, hann Ingólfur. Um leið og Ingólfur sér Tuma og jólaköttinn hleypur hann. Tumi kallar: “ELTUM HANN!” Þeir taka sprettinn. Þeir elta hann inn í skóg, Ingólfur hleypur inn í kofa í skóginum, en um leið og Tumi og jólakötturinn fara inn í kofann er Ingólfur ekki þar. Þeir fara út en á leiðinni út dettur Tumi í gegnum gólfið. “Tumi, er allt í lagi?” Spyr jólakötturinn. “Já, hér eru göng, þau leiða inn í einhvern helli.” svarar Tumi. “Farðu inn.” segir jólakötturinn. Tumi fer inn í hellinn og þar er hann Ingólfur. Hann heldur á lyklunum. Tumi læðist á bak við hann og hlustar á hann

tala við sjálfan sig. Ingólfur segir: “Nú þegar ég er með lyklana, þá þarf ég bara að bíða eftir að Grýla fatti að lyklarnir eru horfnir. Og þá fær jólakötturinn loksins að kenna á því.” Hann sleppir lyklunum og fer að skoða eitthvað úti í horni. Tumi grípur tækifærið hann tekur lyklana og hleypur út, en Ingólfur heyrði í honum og hleypur á eftir honum. Tumi kemst út með lyklana og sér jólaköttinn. Hann hleypur til hans og segir við hann móður og másandi: “Ingólfur er að reyna að hefna sín á þér, af hverju veit ég ekki.” Ingólfur kemur út um holuna og sér þá. Jólakötturinn spyr: “Hvað gerði ég þér?” Þá segir Ingólfur: “Þú ert búinn að borða 12 af börnunum mínum!” “Ha!” Segir jólakötturinn. “Já, þau eru öll búinn að vera hnusast uppi í grýluhelli undanfarin ár og alltaf borðar þú þau.” “Ég verð stundum bara svo svangur og það eru engar mýs lengur í Grýluhelli.” útskýrir jólakötturinn. “Geturðu fyrirgefið mér? Ég lofa að ég geri það ekki aftur.” Ingólfur hikar en svo segir hann: “Ég fyrirgef þér. Ég á hvort eð er 126 önnur börn.” Þá segir Tumi: “Við skulum svo bara skila lyklunum og fara svo í boltaleiki saman.” Ingólfur og jólakötturinn samþykkja það og þeir fara upp í Grýluhelli og fara svo allir út í boltaleik. Endir Hans Bjarni Sigurbjörnsson 9. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar

Óskum viðskiptavinum og Snæfellingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. cPAǖ^c\N^i ;Ï: <BA{:CYtYBÓ;1 BBC>5 Z. B ĕĝĝĜ


Hefðbundin jól í Þýskalandi Hefðbundin jólahátíð hefst í Þýskalandi á fyrsta aðventusunnudegi. Margar fjölskyldur skreyta þó heimili sín og glugga aðeins fyrr. Það er oft gert í vikunni milli Totensonntag (dagur sem er tileinkaður þeim látnu) og fyrsta í aðventu. Húsið er þá aðallega skreytt og lýst að innan. Jólaljós að utan eru til en eru heldur sjaldgæf. Á næstum öllum þýskum heimilum má finna jólajötu og aðventukrans sem má ekki vanta á neinu heimili. Aðventudagatal barnanna fær sérstakan stað í stofunni. Oft er það handgert og fyllt annaðhvort með sælgæti eða litlum gjöfum. Frá 1. desember til aðfangadags mega börnin opna

Aðventudagatal.

Frá jólamarkaði.

einn glugga á dag. Á aðventunni er mikil hefð fyrir og fullkomin leið til að komast í alvöru jólaskap að heimsækja jólamarkað. Nürnberger Christkindlesmarkt er jólamarkaður í Þýskalandi sem þekktur er um nánast allan heim. Fallega jólaskreytt söluhús og ilmurinn af brenndum möndlum og grilluð pylsu láta hjörtun slá hraðar. Hér er hægt að kaupa ýmiss konar jólaskreytingar hvort sem þær eru úr tré, leir, pappír eða málmi. Það sem er sérstakt við markaðinn er að nánast allt er handunnið. Það sem má aldrei vanta á neinum jólamarkaði: bolli af glühwein. Rauðvín er hitað

upp í um 65°C og bragðbætt með vetrarkryddum. Það hlýjar ekki aðeins líkamann heldur einnig sálina. Að sjálfsögðu er glühwein borið fram í bollum sem skreyttir eru með vetrarmyndum samkvæmt hefð. Nikólausardagurinn er sérstaklega spennandi fyrir börnin en hann er 6. desember. Kvöldið áður setja þau stígvélin sín fyrir utan hurðina svo að heilagur Nikulás fylli þau með súkkulaði, litlum gjöfum, mandarínum og valhnetum. Til þess verða stígvélin að vera vandlega pússuð því aðeins hreint stígvél er fyllt.

Jólajötu má finna á flestum heimilum.

Á meðan börn sem hegða sér vel geta hlakkað til súkkulaðis og gjafa þá þurfa óþekk börn að óttast að Knecht Ruprecht, hjálparmaður Nikulásar, setji kol eða skemmdar kartöflur í stígvélin þeirra. Það sem auðvitað má ekki vanta á aðventunni er að baka jólasmákökur saman. Oft kemur öll fjölskyldan saman. Deigið er hnoðað í marga klukkutíma, jólasöngvar sungnir og svo mikið smakkað að börnin þurfa varla kvöldmat. Í Þýskalandi er alvöru jóla-

Stígvél fyllt af góðgæti.

tré sett upp í stofunni — annaðhvort blágreni eða klassíska Norðurmannsgrenið. Hefð sem því miður hefur orðið minna vinsælli á síðustu árum er að

Hefðbundið er að skreyta ekki jólatréð fyrr en á aðfangadag.


höggva jólatréð sjálf. Fjölskyldan fer þá í sérstakan skóg, velur sitt tré og fellir það. Nú á dögum er það þó ekki lengur nauðsynlegt því á aðventunni má kaupa fellt jólatré í hverri byggingavöruverslun, garðmiðstöð og jafnvel stundum í matvöruverslun. Gervijólatré verða einnig sífellt vinsælli. Hefðbundið er að tréð sé ekki skreytt fyrr en á aðfangadag og þá saman af allri fjölskyldunni. Sérstaklega vinsælt er að skreyta með jólakúlum, sykurstöngum og stjörnum en einnig piparkökum í formi stjarna og hjarta. Á sérstöku hátíðar augnabliki er toppur trésins settur á. Hjá mörgum fjölskyldum er þetta hátíðleg stund sem oft tengist söng eða litlum helgisiðum. Í flestum fjölskyldum stendur jólatréð til 6. janúar. Í sumum héruðum Þýskalands og þá sérstaklega í dreifbýli er jólatrjám þorpsins safnað saman og þau notuð sem eldsneyti í páskabrennu. Í Þýskalandi er jólunum fagnað strax 24. desember. Þótt dagurinn sé formlega ekki frídagur og margir þurfa að vinna til kl. 14 er aðfangadagur fyrir

flestar fjölskyldur hinn eiginlegi jóladagur. Hefðbundin jólamessa hefst klukkan 17. Þar er jólasagan lesin, jólalög eru sungin saman og í næstum hverri messu er flutt helgileikrit. Börn á öllum aldri fara þá í hlutverk Maríu og Jósefs, vitringanna þriggja eða englanna og segja frá fæðingu Jesú. Eftir messuna fer fólk heim til að halda jólin áfram með notalegri máltíð. Á aðfangadag samanstendur jólamaturinn hjá flestum fjölskyldum af kartöflusalati og pylsum. Einfalt og látlaust, og oft búið til deginum áður. Undanfarin ár hafa þó raclette og fondue orðið sífellt vinsælli. Á fyrsta jóladegi er hefð fyrir að borin sé fram jólagæs. Oft er hún fyllt með hnetum, epl-

Bakað epli (Bratapfel).

um eða hakki og er algjört góðgæti. Venjulega er hún borin fram með rauðkáli, kartöflum eða soðbollum og bragðmikilli sósu. Það sem auðvitað má ekki vanta með jólamatnum eru bökuð epli (Bratapfel). Bakað í ofni, fyllt með marsípani og borið fram með vanillusósu. Það vekur ávallt upp ýmsar bernskuminningar. Í mörgum fjölskyldum er hefð fyrir því að leita að Jesúbarninu eða jólasveininum. Fjölskyldan fer þá í vetrargöngu. Vel klædd leita börnin á himninum að fyrstu merkjum um að Jesúbarnið eða jólasveinninn sé á leiðinni. Ef barn sér stjörnuhrap verður spenningurinn auðvitað sérstaklega mikill. Heima bíður barnanna svo stóra gjafastundin. Fallega

staflaðar undir greinum hátíðlega skreytts jólatrésins bíða gjafirnar þess að börnin uppgötvi þær. Oft kemur öll fjölskyldan saman á fyrsta og öðrum jóladegi. Þá eru haldin hátíðleg samkvæmi, borðað, sungið og notið samveru. Vinsæl hefð í mörgum fjölskyldum er að flytja jólaljóð eða tónlistaratriði á blokkflautu eða gítar. Á milli ljóða, tónlistar og ilma hátíðlegra rétta skapast á þessum dögum sérstök samkennd - tilfinning sem á hverju ári minnir á hvers vegna hefðbundin jól eru svo sérstök fyrir svo marga og geta veitt, jafnvel fjarri heimahögum, örlítið heimilislega og hlýja jólastemningu. Nadine Lamparter


Jólaspurningar sterkt eftir var kyrrðin sem ríkti inni í stofunni og ekki síður að mér fannst ég sjá þennan fallega engil hreyfast í bjarma ljósanna. Ég varð agndofa, steig rólega til baka og lokaði hurðinni hljóðlega. Í dag hefur þessi sami engill heiðurssess ofarlega á jólatré fjölskyldu minnar og minnir mig á jól æskunnar. Hver er þín uppáhalds jólaminning?

Svanborg Tryggvadóttir Hvað kemur þér í jólaskap?

Það sem kemur mér í jólaskap er þetta hefðbundna, jólalögin í bland við jólaljósin og ilminn af nýbökuðum smákökum. Hver er þín fyrsta jólaminning?

Mín fyrsta jólaminning er frá æskuheimili mínu að Hlíðarvegi 9 í Grundarfirði. Ég var mjög ung og myndi halda að ég hafi verið um fjögurra til fimm ára gömul. Eins og á svo mörgum heimilum á þeim tíma var stofan sett í jólabúninginn rétt fyrir jólin, hurðinni lokað og það var alveg bannað að fara þangað inn fyrr en á aðfangadagskvöld. Þetta jók bara á töfrana sem í

mínum huga leyndust inni í stofu, á bak við lokaða hurð. Þar inni stóð jólatréð, alsett litríkum jólaljósum sem mögnuðust svo fallega í englahárinu sem huldi tréð og áhrifin af því voru mikil á litla stúlku. Ofarlega á trénu var lítill engill í ljósbláum þunnum kjól. Hann hélt á gylltri hörpu og var með gyllta kórónu í hárinu. Mér þótti hann svo undur fallegur og þarna var hann í allri sinni dýrð, undir þunnu lagi af englahári. Þó svo að stofan væri höfð lokuð og það væri alveg bannað að fara þangað inn, kom það ekki í veg fyrir að það væri hægt að opna litla rifu á hurðina og gægjast inn í töfrana sem þar voru fyrir innan. Það sem ég man svo

Útgáfa Jökuls á næstunni Næsta blað kemur út 30. desember, skil í það er fyrir kl. 16 mánudag 29. des.

Snæfellingum óskum við gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinu.

Ein af mínum uppáhalds jólaminningum er frá því þegar börnin okkar voru lítil og rauðklæddu sveinarnir heimsóttu heimilið. Það sló alltaf í gegn og vakti gríðarlega lukku. Þeir lömdu gluggana að utan, reyndu að klifra inn um þá og hömuðust á útidyrahurðunum en á sama tíma skríkti í systkinunum sem fylgdust með hamaganginum full eftirvæntingar, flest. Sum þeirra hlupu spennt um húsið en önnur völdu að vera í skjóli hjá mömmu eða pabba. Stundum komu margir saman en á öðrum stundum koma bara einn til okkar. Það var samt eitt við þessa skemmtilegu viðburði ár eftir ár að eins mikið og okkur langaði að bjóða Þuru heitinni, tengdamóður minni, til að koma og hitta jólasveinana þá komst hún því miður aldrei og missti alltaf af fjörinu, svo undarleg tilviljun. Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

Eftirminnilegasta jólagjöfin frá því ég var barn var dúkka í kúrekafötum. Ég fékk stelpudúkku sem var í pilsi, blússu, vesti og með kúrekahatt og Óli bróðir minn fékk strákadúkku sem var í samsvarandi kúrekafötum. Þetta þótti mér afskaplega skemmtilegt. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn?

lyktin af steikinni fer að ilma um húsið er allt eins og það á að vera. Hvaða jólalag er í uppáhald hjá þér?

Það jólalag sem snertir alltaf einhverja taug hjá mér er Nóttin var sú ágæt ein í flutningi Diddúar. Hún gaf þetta fallega lag út á geisladisk 1997 sem hún nefndi Jólastjarna. Hvaða hefð finnst þér ómissandi um jólin?

Á heimili okkar Kristmanns höfum við viðhaldið hefð sem ég tók með mér frá æskuheimili mínu og mér og mínu fólki hefur alltaf þótt algjörlega ómissandi. Foreldrar mínir höfðu það þannig þegar ég var barn að allar jólagjafir voru settar upp á efstu skápana í eldhúsinu. Þannig gátum við fylgst með því hvernig pökkunum fjölgaði jafnt og þétt og það jók verulega forvitni og spennu hjá okkur systkinunum. Að sjálfsögðu var þetta góð lausn hjá foreldrum mínum til að við kæmumst ekki í pakkana fyrir jólin. Í dag skiptir þessi hefð það miklu máli hjá fjölskyldunni okkar Kristmanns að þegar við fengum okkur nýja eldhúsinnréttingu fyrir einhverjum árum voru nokkrir skápar sérstaklega hannaðir þannig að þeir næðu ekki upp í loft svo við gætum haldið áfram að raða jólagjöfunum upp skápana í eldhúsinu. Hefðin er síðan þannig að eftir möndlugrautinn í hádeginu á aðfangadag fer heimilisfaðirinn upp á stól og týnir niður pakkana og börnin taka við einum í einu og ganga full lotningar með dýrðina inn í stofu og raða þeim vandlega í kringum jólatréð. Í dag eru það barnabörnin okkar sem sjá um að taka við pökkunum úr höndum afa síns og raða þeim við jólatréð.

Við erum með hamborgar­ hrygg á aðfangadag og þegar

Kæru vinir. Sendum vinum og skyldfólki jóla og nýárskveðjur. Með þökk fyrir árið sem er að líða og með ósk um góða framtíð.

Anton og Valentina


Litlu jólin í Grunnskóla Snæfellsbæjar Í Grunnskóla Snæfellsbæjar eru Litlu jólin árlegur viðburður sem nemendur og starfsfolk halda mikið upp á. Á starfsstöð grunnskólans á Hellissandi hélt yngsta stig upp á litlu jólin föstudaginn 19. desember. Dagurinn byrjaði með samkomu 1. til 4. bekkjar á sal. Þar sungu börnin í 1. bekk Skín í rauðar skotthúfur fyrir samnemendur sína og nemendur 2. bekkjar söng Litla jólabarn. 3. og 4. bekkur stigu á svið með uppsetningu á helgileik og leikriti um jólasveinana. Þá fengu allir nemendur piparkökur að

gæða sér á áður en hver bekkur hélt í sína stofu. Þar voru haldin stofujól í notalegu andrúmslofti, nemendur og starfsfólk átti jólalega stund saman og skiptust á pökkum. Að því loknu var aftur haldið á sal þar sem dansað var í kringum jólatréð. Jólasveinarnir létu sjá sig, börnunum til mikillar gleði, dönsuðu með þeim og færðu þeim svo mandarínur. Að því loknu kvöddu börnin skólann fyrir jólafrí með bros á vör, spennt fyrir komandi vikum. SJ

Jólaspurningar Hver er þín uppáhalds jólaminning?

Að opna góðan pakka Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

Þegar ég fékk nýja kommóðu í fyrra Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn?

Hamborgarhryggur

Ómar Hall Hvað kemur þér í jólaskap?

Að hlusta á jólalög

SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á VESTURLANDI

Hver er þín fyrsta jólaminning?

Að vera með fólkinu mínu á Hellissandi

Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá þér?

Þegar jólin koma með Iceguys Hvaða hefð finnst þér ómissandi á aðfangadag?

Að opna pakka eftir kvöldmatinn


Auður prjónaði húfur og vettlinga fyrir nýbura Blaðinu barst ábending um góðverk Auðar Böðvarsdóttur. Auður prjónar vettlinga og húfur fyrir ófædd börn í Snæfellsbæ og fer með á heilsugæsluna í Ólafsvík. Starfsmaður í mæðravernd útdeilir svo handverkinu til verðandi mæðra sem þangað

leita. Góðvild sem þessi á skilið sviðsljós í umræðunni enda ekki á hverjum degi sem maður heyrir af svona góðmennsku. Við tökum glöð á móti ábendingum um fleiri ósérplægin góðverk á svæðinu. JJ

5 ’vVv43vVv43VvV43VvV‘ 87 87 87 6 “ ” FUu21uUu21UuU21Uuf 65 65 65 wh HW xX xX wW wW 43 43 87 87 21 Kæru Snæfellingar 21 65 65 wW wW Ë Ê Ë Ê [] Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld og frið á nýju ári. [] ë ê Þökkum góð samskipti á árinu sem er að líða. ë ê xX xX yfir hátíðarnar 43 Opnunartími 87 43 87 23. desember 12:00 – 20:00 21 24. desember 11:00 –13:00 65 21 65 xX Virka daga 13:00 –17:00 xX wW Síðasti skiladagur fyrir bækur er 10. janúar. wW xg GX EVv43vVv43VvV43Vve 87 87 87 ‘ ’ 7 ”uUu21uUu21UuU21UuU“ 8 65 65 65


Á EFTIR AÐ KLÁRA SÍÐUSTU PAKKANA? Kíktu til okkar og athugaðu hvort við getum hjálpað.

• Sjónvörp • Hljóðstangir • Hátalarar • Bose heyrnatól • Sony heyrnatól • Lenovo fartölvur

• Apple TV • AirTag • AirPod • IPad • IPhone

• Heimilistæki • Sjónvörp • Heyrnartól • Snjallsímar

Í heita pottinn • Regnfatnaður • Ullarsokkar • Vinnusokkar • Kuldagallar

• Ullarnærfatnaður

• Síur • Salt • Klór • Ýmis hjálparefni

Við óskum þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir viðskiptin á árinu.

Opið virka daga 8 - 16 Þorláksmessa 8 - 16 Aðfangadag LOKAÐ

Sími 436 1214

olafsvik@hampidjan.is

Verslun - Ólafsbraut 19, Ólafsvík


Jólin sem hurfu um, heljarstökk fram og aftur og því glæfrarlegra því betra. En ekki þorðum við að vera einir við þessa iðju þar sem einn okkar komst í sjálfheldu, en hann sökk svo djúpt í skafl eftir stökk að hann gat sig ekki hreyft og þurftum við að grafa hann upp.

Það er föstudagurinn 20. desember 1974, snjó hafði kyngt niður í heila viku, og Neskaupstaður fullur af snjó. Bílar voru merktir með prikum í snjósköflunum svo þeir væru ekki eyðilagðir þegar helstu götur bæjarins voru ruddar. Sjaldan eða aldrei höfðum við krakkarnir séð svona mikinn snjó og var hann vel þeginn. Ekki komumst við á skíði vegna fannfergis, en aðal sportið var að finna þök og stökkva í skaflana. Alkyns útfærslur af stökk-

Allir voru að komast í jólaskapið, bærinn fallega skreyttur, búðirnar fullar af nýju dóti og við krakkarnir á fullu að skoða og pæla hvað hinir og þessir í fjölskyldunni áttu að fá í jólagjöf. Búið var að vinna allan fisk daginn áður og fólk komið í

jólafrí á stærsta vinnustað bæjarins, frystihúsinu og bræðslunni. Þar unnu á annað hundrað manns daglega, en þennan dag voru tveir til þrír tugir manna við vinnu á þessum stöðum. Það var svo rétt fyrir tvö að það drundi í bænum og allt

Leitarmenn að störfum í fjöruborðinu og úti í sjó eftir snjóflóðin í Neskaupstað 1974. Ljósmynd: Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Nesþinga. Árlegt jólahappadrætti Lkl. Nesþinga verður haldið 23. desember kl. 17:00 og hvetjum við alla til að mæta. Miðar verða til sölu í Hraðbúð Hellissands og Fönix og á Þorláksmessu í félagsh. Röst á milli kl. 16-17. ATH posi á staðnum.

Fjöldi veglegra vinninga Aðeins dregið úr seldum miðum. Miðaverð 300kr.


varð rafmagnslaust. Hvað var nú þetta? Við sem vorum útivið sáum ekki neitt, enda dimmur éljabakki yfir Neskaupstað. En það versta átti eftir að koma í ljós, þennan dag féllu átta snjóflóð í Neskaupstað og tvö af þeim mannskæð og gengu langt út í sjó fram. Bæði bræðslan og frystihúsið voru lögð í rúst, steypistöð og einbýlishús nánast horfið. Brak langt út á fjörð. Þennann dag hófst barátta uppá líf og dauða, allir sem vettlingi gátu valdið fóru að leita. En okkur krökkunum var skipað að vera heima. Ömulegur tími fór í hönd, þegar fréttir fóru að berast af flóðasvæðinu. Hér þekktu allir alla enda ekki stórt samfélag. Fólkið í leitinni var örmagna af þreytu enda gaf sig enginn, Það var svo fyrst eftir 12-14 tíma þegar hjálp fór að berast af fjörðunum í kring að bæjarbúar gátu hvílt sig. Fólk var að missa vonina að finna fleiri, en eftir 20 tíma frá því að flóðin féllu fannst sá síðasti á lífi. Þegar upp var staðið kom í ljós að 25 manns höfðu lent í flóðunum, 13 af þeim var bjargað eða náðu að grafa sig út sjálf.

12 létust í flóðunum en tveir fundust aldrei, flóðin fóru 300400 m út á fjörð. Ekki var hægt að hugsa sér hvað hefði gerst ef full vinna hefði verið í gangi í frystihúsinu, en vinnslusalurinn stútfylltist af snjó, svo það var lán í óláni. Þetta var hræðilegur tími,

Hvað kemur þér í jólaskap?

Mér kemur mest í jóla skap þegar ég er að skreyta jólatréð með fjölskyldunni og baka piparkökur. Hver er þín fyrsta jólaminning?

Ég man þegar ég var að skreyta piparkökurhús. Hver er þín uppáhalds jólaminning?

Alltaf eftir jóla kvöldmat förum við út og leikum okkur þar.

ekki hvaða gjafir ég fékk, ekki hvort við vorum með jólatré, ekkert eftir jólabókum, jólakortum eða jólakveðjum. Þó ég muni vel eftir jólum fyrir 1974, eru þetta jólin sem hurfu. Hörður Rafnsson

Frá Neskaupstað, hægra megin sést í hluta snjóflóðavarna sem nú er búið að koma fyrir. Ljósmynd: Hlynur Sveinsson

Jólaspurningar

Iga Lewoniewska

bekkjarsystkini, vinir og vinkonur höfðu misst ástvini, feður, mæður og systkini. Við krakkarnir vissum ekki, í hvorn fótinn við áttum að stíga, ekki var talað um þetta eða hvernig átti að bregðast við. Allir voru í djúpri sorg. Ég man ekkert eftir þessum jólum, ekki hvað við borðuðum,

Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

Það er svona stjarna sem lýsir í myrkri. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn?

Það er pólsk súpa, barszcz czerwony og hangikjöt. Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá þér?

Uppáhalds lagið mitt er þessi týpísku jól með lceguys Hvaða hefð finnst þér ómissandi um jólin?

Það er að syngja sálma.


Fótboltasumar Víkings gert upp Það er óhætt að segja að árið hjá meistaraflokki Víkings Ó. hafi heilt yfir verið nokkuð kaflaskipt. Eftir tvö góð ár á undan, þar sem liðið var í toppbaráttu framan af í deildinni og missti naumlega af því að komast upp í Lengjudeildina, er ekki hægt að segja annað en að gengi liðsins í 2. deildinni í sumar hafi verið undir væntingum. Liðið var snemma úr leik í toppbaráttunni og endaði að lokum í 8. sæti deildarinnar. Það var ekki í takti við vonir og væntingar fyrir mót enda metnaður til staðar að gera betur en það. Það var hins vegar þátttaka liðsins í Fótbolta.net bikarnum sem stóð upp úr þetta sumarið og vakti talsvert meiri ánægju og gleði meðal bæjarbúa og þeirra sem að liðinu koma. Eftir öruggan sigur gegn Elliða í fyrstu umferðinni og góðan sigur gegn Reyni Sandgerði í 2. umferð mættum við KFA fyrir austan í 8-liða úrslitunum. Viðureignir þessara liða eru jafnan hörkuspennandi og í þetta sinn varð engin breyting á. Okkar menn í Víkingi höfðu að lokum betur í vítaspyrnukeppni eftir að hafa verið manni færri lengi vel í framlengingunni. Sætur sigur en ævintýrið var bara rétt að byrja. Við mættum sterku liði Gróttu

á Seltjarnarnesinu en liðið hafði vikuna áður tryggt sér 2. sætið í deildinni og þar með sæti í Lengjudeildinni að ári. Sá leikur var alls ekki fyrir hjartveika. Grótta komst yfir snemma leiks en ólseigir Ólsarar svöruðu því með þremur mörkum á 25 mínútum og voru komnir í góða stöðu. Gróttumenn náðu að minnka muninn en gekk bölvanlega að finna jöfnunarmarkið. Víkingar virtust vera að sigla sigrinum heim en Grótta jafnaði á 5. mínútu uppbótartíma. Ekkert var skorað í framlengingunni og því þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram sigurvegara. Þar reyndist Jón Kristinn Elíasson, markvörður Víkinga, hetjan en

hann varði nokkrar spyrnur og átti stóran þátt í að tryggja okkar mönnum dramatískan sigur. Þann 26. september mættum við svo liði Tindastóls í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli en sá dagur verður lengi í minnum hafður. Fjölmargir stuðningsmenn Víkings gerðu sér leið á völlinn. Hitað var upp í Þróttaraheimilinu fyrir leik áður en gengið var á völlinn. Alls voru 1.200 áhorfendur mættir á leikinn sem er met í þessari ungu bikarkeppni. Víkingur Ó. vann að lokum 2-0 sigur með mörkum frá Spánverjunum Tato og Ivan Lopez. Bikarinn var í höfn og var sigrinum fagnað ásamt stuðningsmönnum fram eftir

kvöldi í Þróttaraheimilinu. Eftir tímabilið lét Brynjar Kristmundsson af störfum sem þjálfari liðsins eftir 3 ár sem aðalþjálfari. Við þökkum honum fyrir frábær störf. Við starfinu tók Tomasz Luba og má segja að hann sé að koma aftur heim. Hann lék sjö ár með liðinu og þjálfaði yngri flokka áður en hann fluttist á Selfoss og hefur þjálfað þar síðan. Innan herbúða Víkings er mikil ánægja með ráðninguna á Tomaszi og væntum við mikils af honum á komandi árum. Gleðilega hátíð og sjáumst á vellinum á nýju ári! Þorsteinn Haukur Harðarson

Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Brynja SH Bjartsýnn ehf.


Óskum viðskiptavinum og snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.


Jólasögusamkeppnin

Cheeriosbærinn En ef þú vilt bíða og sjá hvað þetta er skaltu fara á hluta 2. 2. hluti. Bíðum.

Þú vilt endilega sjá hvað þetta er. Allt í einu kom risa cheeriosskrímsli. Ef þú vilt flýja skaltu fara á hluta 4. Ef þú vilt reyna að spjalla við skrímslið skaltu fara á 3. hluta. 3. hluti. Spjöllum.

Þetta er saga um þig. Þannig að ef hún endar illa geturðu alltaf farið aftur til baka. Þú skilur það þegar þú byrjar að lesa 1. hluti

Þú ert í göngutúr og ferð upp á klettasyllu. Þú kíkir niður og sérð skugga læðast. Ef þú vilt flýja heim farðu þá eldsnöggt á hluta 5.

Þú veist ekki alveg hvað þú átt að segja en á endanum segir þú halló, ég heiti… en svo manstu ekki hvað þú heitir. En þá segir skrímslið það skipti engu máli hvað þú heitir, ég skal sýna þér bóndabæinn minn. Ef þú vilt fara með skrímslinu skaltu fara á hluta 6. En ef þú vilt reyna að flýja heim skalt fara á hluta 5. 4. hluti. Flýjum.

þig - endir. Ef þér finnst sagan enda illa getur alltaf farið aftur til baka. 5. hluti. Flýjum heim.

Þú verður dálítið hræddur og ákveður að fara heim - endir. 6. hluti. Förum með.

Þú verður forvitinn og dálítið hræddur en þú kemur með. Loksins komið þið að risastóru hliði. Cheeriosskrímslið opnar, þið gangið inn, þér finnst allt mjög óhugnanlegt en þá byrjar skrímslið að kalla eitthvað. Ef þú vilt reyna að komast aftur út um hliðið skaltu fara á hluta 8. Ef þú vilt bara halda áfram skaltu fara á hluta 7. 7. hluti. Höldum áfram!

Þú verður smá hræddur. Allt í einu kemur fullt af cheeriosskrímslum og umkringja þig og éta þig - endir.

8. hluti. Út um hliðið.

Þú verður hræddur og reynir að hlaupa að hliðinu en þar eru tilbúin skrímsli en þá færðu hugmynd. Ef þú vilt halda áfram að hlaupa skaltu fara á hluta 10 en ef þú vilt nota hugmyndina þína skaltu fara á hluta 9. 9. hluti. Hugmyndin.

Þú sérð hús með risa járndyrum eins og í banka. Þú hleypur að húsinu og ferð inn og læsir en þá kemur peningaflóð, peningarnir eru eins og cheerios. Dyrnar opnast um leið og það kemur peningaflóð og þú nærð að synda heim sirka eins og Jóakim - endir. 10. hluti. Hlaupum

Þú hleypur áfram en vegurinn endar, skrímslin hafa umkringt þig og þau éta þig - endir. Emil Máni 4. bekk Lýsudeild

Þú hleypur, skrímslið hleypur á eftir þér, það nær þér og étur

Óskum viðskiptavinum okkar og Snæfellingum öllum gleðilegra jóla. Við þökkum viðskiptin á árinu.

Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin.


Jólastarf í Lýsudeild Grunnskóla Snæfellsbæjar Þann 4. desember þáðu nemendur yngsta stigs Lýsudeildar boð Þjóðgarðsins um jólaheimsókn í Þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi og fóru þangað með jólaskraut til að skreyta jólatré þar. Skrautið bjuggu nemendur til út frá þemanu flóra Snæfellsjökulsþjóðgarðs og skreyttu þau tréð ásamt samnemendum sínum frá starfsstöð skólans á Hellissandi og elstu börnum leikskóla Snæfellsbæj-

Rökkurró í Hofsstaðaskógi. Ljósmynd:Silja Sigurðardóttir.

Í Þjóðgarðsmiðstöðinni. Ljósmynd: Franziska Kopf.

ar. Lýsudeild var komið í jólalegan búning þegar nemendur máluðu jólamyndir á norðurglugga skólans, sem er til móts við aðkomu að byggingunum og þann 6. desember var piparkökudagurinn haldin í Lýsudeild. Piparkökudagurinn er árleg samkoma og samvera fyrir fjölskyldur í skólahverfinu og gesti þeirra, svo sem afa, ömmur og fyrri nemendur skólans sem eiga notalega stund saman í aðdraganda jólanna.

Þann 16. desember var Rökkurró, en þá fara nemendur í Hofsstaðaskóg þar sem haldin er jólaskemmtun á vegum foreldrafélagsins. Nemendur og fullorðnir skemmta sér saman, fara í ratleik, syngja jólalög og dansa, hitta á jólasveina, fá kakó, kökur og fleira góðgæti við varðeld og njóta samverunnar. Flestir nemendur Lýsudeildar koma fram í jólaútvarpi Gsnb auk þess sem nemendur gefa út jóla-skólablað ár hver, heilmikil

vinna og metnaður er í kringum gerð blaðsins. Skóla lýkur fyrir jólaleyfi með litlu jólunum og jólatónleikum tónlistarskólanemenda en þetta er almenn samkoma í samfélaginu á sunnanverðu Snæfellsnesi. Nemendur halda þar tombólu til styrktar þörfu málefni, selja skólablaðið sitt og foreldrafélagið býður upp á veitingar áður en haldið er í frí fram á nýtt ár.


Litið yfir árið Við starfsmenn og leiðbeinendur Smiðjunnar vildum taka saman liðið ár og veita vinum okkar nær og fjær innsýn í okkar daglegu störf. Árið 2025 hófst á námskeiði. Þann 14. janúar var fyrsti dagur á hestanámskeiði okkar á Brimilsvöllum hjá Veronicu og Gunnari. Þetta var þriðja námskeið okkar hjá þeim hjónum og er alltaf jafn gaman að koma til þeirra. Námskeiðið var einu sinni í viku í sex vikur og er markmið okkar að kynnast hrossunum, nærveru þeirra og öllum þeim verkum sem fylgir því að eiga hesta. Á árinu fórum við samtals á fjögur námskeið. Í febrúar var fimm tíma dansnámskeið hjá Lilju Stefánsdóttur (skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar). Það fór fram einu sinni í viku í íþróttahúsi Snæfellsbæjar. Í mars fórum við á tónlistarnámskeið hjá Tónlistarskóla Snæfellsbæjar undir leiðsögn Jenna tónlistarkennara og Valentinu tónlistarskólastjóra. Var það í annað sinn sem við sækjum námskeið til þeirra í tónlistarskólann. Í september var síðasta námskeið ársins en þá var boðið upp á þriggja daga dansnámskeið undir leiðsögn Jón Péturs danskennara. Virkilega skemmtileg námskeið á árinu. Stefnum við á fjórða námskeið okkar á Brimilsvöllum í janúar 2026. Námskeiðin eru haldin í samstarfi við Símenntun á Vesturlandi. Símenntun styrkir námskeiðin að mestu og notendur greiða ákveðið grunngjald fyrir hverja klukkustund. 28. maí síðastliðinn var vorferð starfsmanna og leiðbeinenda. Í ár var farið í Ölduna í Borgarnesi. Aldan virkni og hæfing er glæsilegur vinnustaðar í Borgarnesi fyrir fólk með skerta starfsgetu. Við fengum hlýjar móttökur hjá starfsmönn-

um og leiðbeinendum ásamt því að vera boðið í grillveislu. Það var virkilega skemmtileg upplifun að sjá og kynnast starfi þeirra í Öldunni og vonumst við til þess að taka á móti þeim í Smiðjunni á nýju ári. Að heimsókn lokinni var ferðinni heitið heim á leið með einu stoppi á Mýrum við Grundarfjörð. Þar tóku hjónin Anna Júlía og Óli á móti okkur í yndislegu veðri. Hjá þeim fengum við að hitta geitur sem tóku vel í alla athyglina. Anna Júlía hafði svo skemmtilegar sögur að segja af geitunum og nutum við að hlusta, fylgjast með og klappa geitunum. Við þökkum þeim hjónum kærlega fyrir hlýjar móttökur. Verkefni okkar eru fjölbreytt og má þar t.d. nefna þátttökupoka fyrir Snæfellsjökulshlaupið. Síðustu ár hefur Smiðjan og Ásbyrgi (í Stykkishólmi) skipt með sér að búa til þátttökupoka fyrir alla þá glæsilegu hlaupara sem taka þátt. Í ár voru pantaðir 350 pokar, 175 frá Ásbyrgi og 175 frá Smiðjunni. Þetta er stórt og skemmtilegt verkefni sem hefur orðið að föstum lið hjá okkur síðustu ár. Það er gaman að sjá pokana okkar og heyra af þeim hjá bæði heimafólki og öðrum sem gerðu sér ferð í Snæfellsbæ til að taka þátt í hlaupinu. Við í Smiðjunni höfum einnig tekið við allskonar taupoka pöntunum fyrir hin ýmsu tilefni. Í október fórum við annað árið í röð í samstarf með menningarnefnd og tók Smiðjan það að sér að búa til hrekkjavökuskreytingar fyrir fjölskylduviðburð í Pakkhúsinu fimmtudaginn 30.október síðastliðinn. Skemmtilegt verkefni sem vakti mikla ánægju. Þegar hrekkjavökunni lauk hófst undirbúningur fyrir aðventugleði Snæfellsbæjar. Aðventugleðin var 4.desember síðastliðinn og heppnaðist hún vel. Þátttakan var góð og nutum við að

taka á móti fólki á jólagleði Snæfellsbæjar. Síðustu tvö ár höfum við einnig tekið meira að okkur í gagnaeyðingu, í dag eru tvö fyrirtæki sem koma með efni í gagnaeyðingu til okkar og styrkja starfsmannasjóð starfsmanna fyrir verkið. Það er mikið að gera í gagnaeyðingu og er það orðið stórt verkefni hjá okkur. Við erum einnig með fjölbreytta tau og saumavinnu. Í Smiðjunni eru útbúnar svuntur (barna og fullorðins), grjónapúðar, töskur,

gjafapokar og skrautpúðar. Kerta endurvinnsla,er eitt af okkar stærri verkefnum líka og tökum við á móti notuðu vaxi sem er flokkað, brætt og endurnýtt í handgerð inni eða útikerti. Fólki er einnig velkomið að koma með kerta glas að heiman og fá áfyllingu hjá okkur. Við flokkum, málum, pússum, sníðum, límum, heftum, straujum, litum, klippum, þræðum, heklum, þæfum, föndrum, perlum, afgreiðum, þrífum, eldum og förum í ýmsar útréttingar. Við erum alltaf að

Óskum starfsfólki okkar og öðrum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.


huga að nýjum og endurbættum verkefnum. Ásamt verkefna vinnu í húsi erum við í sjálfboðastörfum hjá nokkrum fyrirtækjum í Ólafsvík. Við berum út póstinn þrisvar sinnum í viku, 1-2 götur í senn. Förum í Kassann þrisvar sinnum í viku að fylla á hillur og/eða aðstoða með endurvinnsluna. Förum í Sjoppuna tvisvar sinnum í viku í áfyllingu og/ eða önnur verk sem lögð eru fyrir. Aðstoðum fólk í flöskumóttökunni hjá Ragnari og Ásgeri á mánudögum frá kl.13:00-14:00. Í vor fengum við beiðni frá Gistiheimilinu við Hafið að koma í samstarf með þeim gegn styrk. Við tökum því fagnandi og prufuðum nokkur skipti í sumar á háanna tíma. Þá vorum við að aðstoða við þvott, herbergisþrif eða annan frágang í húsi. Förum einu sinni í viku á Matarlist restaurant og aðstoðum við að undirbúa matsalinn. Á nýju ári bætist svo

Símenntun á Vesturlandi og Fjölmennt – símenntunar og þekkingarmiðstöð hafa undanfarin ár verið í samstarfi um nám fyrir fólk með fötlun á Vesturlandi og gildir samningur um þjónustuna á milli Fjölmenntar og Símenntunar á Vesturlandi. Í þjónustusamningnum er kveðið á um að Símenntun skuli bjóða upp á fjölbreytt námstækifæri fyrir fólk með fötlun á Vesturlandi. Forsenda þess að vel takist til er góð og öflug samvinna við þá aðila sem standa að málefnum fólks með fötlun á svæðinu. Mikilvægt er einnig að benda á að einstaklingar sem njóta námskeiða þurfa að reiða fram hluta kostnaðar úr eigin vasa. Á flestum stöðum kemur sú upphæð frá vinnustöðum sem hafa náð að koma sér upp sjóðum, m.a. með sölu handverks. Framboð námskeiða byggist á áhugakönnunum og

við Ólafsvíkurkirkja en þá munum við fara þangað og ryksuga teppin og þurrka af bekkjum einu sinni í viku. Verkefnin eru fjölbreytt og mikilvægt er að hver og einn hafi tækifæri á að prufa hvern stað fyrir sig og sjá hvort verkefni henti hverjum og einum. Mikilvægt er að taka það fram að hver og einn hefur sitt áhugasvið, við erum öll ólíkir og sjálfstæðir einstaklingar með skoðun á því hvað við viljum gera og hvenær. Hlutverk leiðbeinenda Smiðjunnar er að styðja og styrkja starfsmenn og tækifæri þeirra í daglegu starfi. Einstaklingsmiðuð nálgun er lykilatriði í okkar starfi. Við erum þakklát fyrir tækifærin í samfélaginu og erum opin fyrir frekari þróun á störfum okkar og samstarfi við fyrirtæki og/eða stofnanir í framtíðinni. Við höfum notið þess að auka sýnileika á okkur og okkar störfum í samfélaginu. Allir geta einhvað, enginn getur allt. Árlegi jólaviðburður okkar var föstudaginn 5. desember síðastliðinn. Í ár byrjaði dagurinn okkar á jóla kósý í Smiðjunni, heitt kakó með rjóma og að skreyta piparkökur. Það er notalegt að eiga piparkökur með kaffinu í desember. Því næst var mæting í Klif í hátíðlegan hádegismat. Í ár voru breytingar og mannekla og tók því Matarlist restaurant að sér að elda matinn fyrir okkur í ár. Á matseðli var kalkúnabringa, rjómasósa, karteflur, rauðkál, grænar baunir og ferskt salat. Í eftirrétt var dýrindis gulrótarkaka. Að matnum loknum

hugmyndum á hverjum stað fyrir sig auk þeirrar aðstöðu sem er fyrir hendi. Töluverð reynsla er komin á samstarf Símenntunar og vinnustaða fatlaðra og ganga námskeiðin almennt hnökralaust fyrir sig. Í Ólafsvík hefur námskeiðahald verið með nokkuð fjölbreyttum en þó einnig stöðugum hætti eins og áður hefur komið fram. Þá hafa verið ýmis hreyfinga- og íþróttanámskeið, t.d. dans og sund auk frjálsra íþróttatíma í íþróttahúsinu haldin síðustu ár. Tækifærin á námskeiðahaldi eru óþrjótandi en stólar að öllu leyti á mátt samfélagsins til að leiðbeina starfsfólki Smiðjunnar í námskeiðum. Því er mjög gleðilegt hversu vel hefur tekist til að halda námskeið undanfarin ár. Ívar Örn Reynisson, verkefnastjóri Símenntunar á Vesturlandi

komu Valentina tónlistarskólastjóri og Jenni tónlistarkennari við Tónlistarskóla Snæfellsbæjar og héldu einka jólatónleika fyrir okkur. Dýrðleg stund með ljúfum jólatónum. Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna og komuna. Jólaleg hefð sem er að skapast hjá okkur með tónlistarskólanum. Því næst var pakkaleikur, áður en við vorum með fjölskyldukaffi í lok dags. Alltaf notalegt að breyta til og gera vel við sig og sína. Virkni og hæfing er fjölbreytt hugtak sem er sí breytilegt í daglegu lífi og starfi. Hreyfing er einnig mikilvæg og höfum við verið með fastan einn tíma á viku í íþróttahúsi Snæfellsbæjar fyrir frjálsa hreyfingu. Með leiðsögn og stuðning frá leiðbeinendum Smiðjunnar er leitast við að finna hreyfingu sem veitir hverjum og einum gleði. Frjáls hreyfing er allskonar, dans – göngutúr - hlaup - körfubolti – badmington – eltingarleikur – keila – blak – fótbolti – stöðvar o.s.frv. Ásamt því leggjum við áherslu á að fara gangandi á milli staða þegar veður og færi er gott. Þar sem við erum búsett á Íslandi þá er veðurfar ansi misjafnt yfir árið. Á nýju ári langar okkur að auka tækifæri á hreyfingu innanhúss í Smiðjunni. Með því að fjárfesta í göngubretti

og nokkrum öðrum minni hlutum til að stuðla að reglulegri hreyfingu starfsmanna í húsi. Við vildum koma því á framfæri hér að neðan að við erum að safna fyrir eftirfarandi hlutum: -Göngubretti. -Æfingahjól (notað við stól eða handa æfingar). -Titringsplatti (notað sem jafnvægisbretti og auka blóðflæði). -Æfingateygjur. -Spjaldtölvu (1-2 stk). -Skjávarpa (í stað sjónvarps). -Útibekkur fyrir framan Smiðjuna. Fyrir áhugasama veitir Þórheiður E. Sigurðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi Smiðjunnar frekari upplýsingar um söfnun. Hægt er að hringja í s.433-8866 á dagvinnutíma eða senda tölvupóst á thorheidur@fssf.is Að lokum viljum við þakka fyrir stuðninginn á liðnu ári, innlitin – varninginn – tækifærin og áhugann á okkar starfi. Við stefnum á að vera enn sýnilegri á nýju ári. Hlökkum til nýs árs og tækifæra. Megi hátíð ljóss og friðar veita ykkur gleði og kærleika. Gleðileg jól.

Rauðakrossdeild Snæfellsbæjar óskar íbúum Snæfellsbæjar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Um leið viljum við vekja athygli á 1717 - hjálparsíma og netspjall Rauða krossins, þar er hægt að hafa samband vegna alls þess sem þér liggur á hjarta og fá sálrænan stuðning, ráðgjöf, hlustun og upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru í íslensku samfélagi.

Ekkert vandamál er of stórt eða lítið fyrir Hjálparsímann 1717 og netspjall Rauða krossins en árlega berast um 15 þúsund mál inn á borð 1717 sem eru jafn ólík og þau eru mörg. Hjálparsíminn er alltaf opinn, trúnaði og nafnleynd er heitið og hann er ókeypis. The Red Cross Helpline 1717 is a dedicated phone and chat for those who need someone to talk to in confidentiality. No matter is too big or small for the helpline. Annually we receive about 15.000 contacts that are as diverse as they are many. Our volunteers are professionally trained, well-experienced and from all walks of life. Żaden problem nie jest zbyt duży, lub zbyt mały dla Telefonu Zaufania 1717 i czatu internetowego Czerwonego Krzyża a co roku odbieramy około 15 tysięcy spraw, tak różnych jak jest ich wiele. Wyszkoleni i doświadczeni wolontariusze w każdym wieku odpowiadają na telefony 1717.


Jólatréssala UMF Víkings Árleg jólatréssala Ungmennafélags Víkings fór fram í húsnæði Ragnars og Ásgeirs í Ólafsvík þriðjudaginn 16. desember. Stjórn ungmennafélagsins sér um sölu á jólatrjánum en fjöldi fólks gerði sér ferð til þess að næla sér í Nordmannsþinur fyrir jólin. Tinna Ýr Gunnarsdótt

ir og Margrét Eva Einarsdóttir, stjórnarmeðlimir ungmennafélagsins stóðu vaktina og smellti blaðamaður Jökuls meðfylgjandi mynd af þeim með fallegu tré sem átti eftir að rata heim með heppnum viðskiptavin. SJ

Óskum öllum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Snæfellingum óskum við gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Opnunartími yfir hátíðar: 23. desember: 08:00 - 16:00 24. desember: 08:00 - 12:00 25. desember: Lokað 26. desember: Lokað 27. desember: Lokað 28. desember: Lokað 29. desember: 08:00 - 16:00 30. desember: 08:00 - 16:00 31. desember: 08:00 - 12:00 1. janúar: Lokað

Smiðjan Fönix sími 436 6500 Smiðjugötu 6, Rifi


Æskujól En væntingar mínar vörðu svo skammt, að velta um hlutum mér var tamt. Ég fálmaði, reyndi að fell´ekki um koll fallega könnu, ég skynjaði hroll. Því ölið jóla nú allt um flaut og allur matur í kominn graut. Fjölskyldan horfði á fitu og öl fljóta um dúkinn, þetta var böl! Stjörf ég vildi ei standa þar en stökkva í faðminn eilífðar. Er gat ég mig hrært ég geystist á brott en gat það nú verið, ég steig á skott! Því kötturinn hafði kjötið í komist og var að mjaka því að bælinu sínu en bitinn var stór og borðið í kringum var reiður kór. Á rófu kattarins rann ég skeið og rak mig í jólatréð um leið. Myndin er tekin í félagsheimilinu Snæfelli á Arnarstapa. Höfundur er fremst á myndinni um tíu ára aldur og önnur börn úr sveitinni. Jólasveinninn er Finnbogi G. Lárusson á Laugarbrekku sem lék jólasvein árum saman, börnum og fullorðnum til gleði.

Kvæðið byggir ekki á sönnum atburðum nema að því leiti að æskuminningar geta oft verið blandnar tilfinningar. Mínar æskuminningar um jól eru næstum að öllu leiti góðar, fullar af spenningi og hreinni gleði, einhverri friðhelgi og stemmingu sem er erfitt að lýsa en ég get enn fundið á þessum árstíma. Þó gerðust óhöpp og eitt af þeim var að kviknaði í gardínum í eldhúsinu heima þegar við systur vorum að tendra kerti í glugganum. Mamma var að skúra og gerði sér lítið fyrir og skvetti úr skúringafötunni á bálið sem var orðið all nokkuð í glugganum. Þetta felldi nokkurn skugga á jólahátíðina það árið og hef ég farið varlega með kerti síðan. Gleðilega hátíð og pössum upp á börnin okkar og kerti. Mig langar að setja hér ljóð á blað um lífið á jólum og segja það sem kemur í hugann er kveiki á kerti sem varpar birtu frá. Ennþá geymast þær inni í mér æskumyndir frá desember. Í huga mínum er húsið breytt, held það sé orðið jólaskreytt. Pappír á borðum og pukrað er með pakka sem höfum aldrei séð. Við liggjum á gjægjum og laumumst að sjá hvar lætur hún mamma böggla þrjá. Svo þarf að klæða sig, kjóllinn er blár, ég kvarta því flókið er mitt hár. Skórnir meiða og skera minn hæl, þau skeyt´ekki um mitt háa væl. Mamma og pabbi meta það svo að mig skuli greiða, snyrta og þvo. Svo skulum borða sauðina er sótuðu lengi við taðköggla. Rauðar beður og roðið kál, ég rétti mig eftir sósuskál með uppstúf ljósum og allt um sinn ég ætla að færa á diskinn minn.

Það féll á kerti sem fangaði grein og funi sá var ein stjarna nein en logandi víti er lagðist á allt er leyfði að væri eldinum falt. En ég kunni ráðið sem kenndi ég skjótt og koppinn ömmu nú sótti fljótt. Svo lét ég vaða á logana heita, lyktin var mikil, þetta var keita. En lukkan var ekki að leika mig við og létt var það ekki svo næturgagnið. Afa, sem reyndi eldinn að kæfa, endilega fékk gusan að hæfa. Þá mamma og pabbi mættu á bálið og munduðu fötu og það var sko málið. Með skúringavatni og skrúbbinn að veði var skaðræðisvaldurinn lagður að beði. Og allt var svo hljótt og ósköpin mörg, ég ætlaði væru þau dálítið örg. Þá brosti hann afi, þá brosti hún amma, þá breyttust þau líka pabbi og mamma. Mig tóku í fang sér og töluðu lengi, töluðu um að ég pakkana fengi. Þerruðu andlit mitt, þurrkuðu tárin sem þýtt hefur allt fyrir mig gegnum árin. Nú fer ég í bæinn og fylli á tæki og fokdýrar rafhlöður í verslun sæki. Skynjarar allir skulu nú hljóma ef skyndilega fer tréð að ljóma. Þá sest ég við borðið og sauðinn minn snæði og sötra svo ölið í ró og næði. Ólína Gunnlaugsdóttir


Jólagjafir lionsklúbbsins Ránar Þann 1. desember fór verkefna- og líknarnefnd Lionsklúbbsins Ránar á stúfana með sinn árlega jólaglaðning en í ár skipa þær Lára Hallveig Lárusdóttir, Rakel Óladóttir og Þórey Úlfarsdóttir nefndina. Ár hvert er farið með slíka aðventusendingu á dvalarheimilið Jaðar og Smiðjuna dagþjónustu. Í ár er þó örlítil breyting á og færðu þær bæði starfsmönn-

um og leiðbeinendum Smiðjunnar glaðning og íbúum þjónustuíbúðakjarna fyrir fatlaða að Ólafsbraut glaðning. Skellti verkefna- og líknarnefnd Ránar sér í búðir til að versla allskyns jólalegan varning, veitingar í föstu og fljótandi formi og verkefni sem hægt er að dunda sér við á meðan beðið er eftir jólunum. Þessari árlegu aðventu sendingu klúbbsins er

Sameiginlegt jólaball í Snæfellsbæ Sunnudaginn 28. desember kl. 16.00 - 17.30 verður sameiginlegt jólaball á vegum félagasamtaka í Snæfellsbæ. Jólaballið verður á Klifi Hefðbundin dagskrá: Veitingar, jólasveinar og dansað í kringum jólatré. Miðaverð er 500 kr. og enginn posi, börn skulu vera í fylgd með fullorðnum. Allir velkomnir - Góða skemmtun Kvenfélag Ólafsvíkur Kvenfélag Hellissands Lionsklúbburinn Rán Lionsklúbbur Nesþinga

ætlað að gleðja heimilisfólk á Jaðri, íbúa þjónustukjarnans og starfsmenn og leiðbeinendur Smiðjunnar í aðdraganda jólanna. Eins og alltaf var gjöf-

unum tekið fagnandi enda fáir sem slá hendinni á móti jólalegu góðgæti til að gæða sér á á aðventunni. SJ


Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Jólaspurningar Hver er þín uppáhalds jólaminning?

Þegar ég átti jól með allri fjölskyldunni minni, þá vorum við 26 í heildina. Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

Eftirminnilegasta jólagjöfin var þegar foreldrar mínir gáfu mér og systur minni hvolp þegar við vorum lítil. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn?

Þökkum viðskiptin á árinu. Óskum öllum gleðilegrar hátíðar og gæfuríks komandi árs.

Ég elska að fá lax og þegar ég er í Frakklandi þá er uppáhaldið mitt foie gras. Dylan Romain Hvað kemur þér í jólaskap?

Snjór og jólaljós koma mér í jólaskap. Hver er þín fyrsta jólaminning?

Þegar jólasveinninn kom heim til mín.

Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá þér?

Kannski All I Want For Christ­ mas is You. Hvaða hefð finnst þér ómissandi á aðfangadag?

Ég veit það ekki, en mér finnst bara gaman að vera með fjöl­skyld­unni.

Útgerðin u t ge rd i n . s h o p


Jólasögusamkeppnin

Einu sinni fyrir langa löngu í litlu þorpi á norðurpólnum bjuggu tveir krakkar sem hétu Kláus og Snædís. Þau bjuggu ein, þar sem foreldrar þeirra höfðu látist úti á sjó tveimur árum áður en þessi saga hefst. Kláus var einu ári eldri og passaði þess vegna systur sína og safnaði peningum fyrir mat. Kláus vann hjá manni sem hét Sveinn, Sveinn veiddi rostunga og Kláus tók skinnið og tennurnar af. Einn fallegan veðurdag fóru þau

Jólastjarnan systkinin í göngutúr. Þau ætluðu bara að labba upp á hæðina og aftur til baka, sem var ekki mjög langt. Þegar þau voru komin upp á hæðina settust þau niður, tóku upp nestispoka og fengu sér nesti. Það var ekki mikið til af mat, svo þau skiptu einu brauði á milli sín. Þegar þau voru búin að borða og seðja hungrið stóðu þau upp og héldu af stað heim á leið. Þau voru ný lögð af stað þegar snjórinn féll undan Kláusi og hann datt ofan í holu. Snædís kallaði á hann í von um að hann væri í lagi. Þegar Kláus svaraði ekki kallaði hún aftur, og þá sagði Kláus að hann væri ómeiddur og að hún yrði að ná í aðstoð til að hjálpa honum upp. Þegar Snædís fór, byrjaði Kláus að skoða sig um. Hann sá að þetta var hellir og gekk dýpra inn í hellinn. Hann var kominn nokkuð langt inn þegar hann ákvað að snúa við. Hann sneri sér við og brá rosalega þegar hann sá að það stóð lítill maður fyrir framan hann. „Hæ.“ Sagði maðurinn og brosti sínu breiðasta brosi. „Hver ert þú?“ Spurði Kláus og var

mjög hissa að sjá einhvern ofan í helli í jörðinni. Maðurinn kynnti sig og sagðist heita Álfur og að hann og vinir hans byggju í hellinum og að það væri þorp lengra inn í hellinn. Kláus var forvitinn og spurði Álf hvort hann gæti sýnt sér þorpið. Álfur kinkaði kolli og hélt af stað. Kláus elti hann. Þegar þeir komu í þorpið sá Kláus helling af fólki, allir jafn litlir og Álfur. Kláus spurðu Álf af hverju allir væru svona smávaxnir og reyndi að móðga ekki Álf. Álfur sagði að það væri vegna þess að þeir væru ekki menn, heldur álfar. Álfur spurði Kláus hvort hann vildi koma og kíkja heim til sín og Kláus samþykkti kurteislega. Á leiðinni heim til Álfs sá Kláus að allir álfarnir voru leiðir og sumir jafnvel grátandi. Kláus spurði Álf hvers vegna þeir væru allir leiðir og Álfur svaraði að það væri vegna þess að tröllin stálu jólastjörnunni sem veitti öllum töfra jólanna. „ Jólanna?“ Spurði Kláus. „Jólin eru tilfinning sem lætur þér líða vel.“ Sagði Álfur. „Stjarnan lætur alla finna fyrir jólunum.“ Bætti hann við. Kláus sagðist geta hjálpað, en Álfur afþakkaði og sagði að hann eigi aldrei eftir að geta barist við tröllin. Kláus tók þessum orðum sem áskorun og var nú staðráðinn í að ná töfrum jólanna aftur. Kláus græjaði dótið sitt og lagði af stað. Hann fékk góðar kveðjur frá álfunum sem fögnuðu hástöfum yfir því að hann ætlaði að bjarga jólunum, en samt eru sumir álfar sem trúðu því ekki að hann gæti náð því og að hann myndi ekki snúa aftur. Kláus kíkti á kortið sem Álfur gaf honum og sá að hann var alveg að verða kominn. Þegar hann kom á staðinn sér hann jólastjörnuna, en það voru tvö tröll að verja hana. Kláus varð mjög hissa að sjá að tröllin voru ekkert mikið stærri en hann, heldur bara svipað stór og Sveinn. Kláus tók eftir því að tröllin voru sofandi, þannig að hann læddist fram hjá í von um að vekja þau ekki. Hann var kominn alveg að stjörnunni, en þegar hann tók hana upp vöknuðu tröllin. Kláus hljóp eins hratt og hann gat, því hann vissi að ef tröllin næðu honum var hann búinn að vera – og jólin eflaust líka. Hann hljóp og hljóp þar til hann sá ljós. Það var gat í loftinu og sólarljós-

ið skein í gegnum það. Hann varð að komast að ljósinu áður en tröllin næðu honum. Kláus var alveg að verða kominn að ljósinu þegar annað tröllið greip í fótinn á honum og fór að draga hann aftur á bak. Kláus hélt að þetta væru endalokin, en síðan fann hann að tröllið sleppti takinu. Hann opnaði augun og sá að hitt tröllið hafði hlaupið á það sem hélt honum og þau lentu bæði í sólarljósinu og urðu að steini. Kláus hélt áfram en var búinn að villast og vissi ekkert hvar hann væri. Hann tók upp kortið en vissi ekkert hvar hann væri staddur á því. Kláus hélt áfram að ganga þar til hann heyrði raddir. Hann gekk í átt að röddunum og sá Snædísi og Svein. „Hvar varstu eiginlega?“ Spurði Snædís með tón sem var blanda af reiði og fögnuði. „Ég var skíthrædd um að eitthvað hefði komið fyrir þig.“ Kláus sagðist ekki hafa tíma og hélt áfram að ganga. Snædís elti hann og spurði hvað væri eiginlega í gangi. Kláus sagði henni alla söguna og sýndi henni stjörnuna (sem hún var samt alveg örugglega búin að sjá áður þar sem hún var svo stór). Snædís trúði ekki Kláusi og hélt að hann væri bara að hrekkja hana – þar til þau komu að þorpinu. Hún trúði ekki sínum eigin augum. Kláus fór til álfanna og sýndi þeim stjörnuna. Álfarnir glöddust og fögnuði því að stjarnan var komin aftur. „Þú ert hetja!“ Kallaði einn. „Húrra fyrir Kláusi!“ sagði annar. Álfur spurði Kláus hvort hann vildi ekki búa hjá sér og vernda töfra jólanna. Kláus var himinlifandi og játaði því. Hann kom líka með þá hugmynd að dreifa jólatöfrunum um allan heim svo allir gætu notið þeirra. Álfarnir voru til í það og saman hjálpuðust þeir allir að við að dreifa jólatöfrunum. Snædís fór aftur í þorpið og sagði Sveini hvað gerðist. Saman létu þau fréttirnar berast þar til allur heimurinn vissi af þessu. Kláus varð frægur og var kallaður Santa Kláus og fékk það hlutverk að dreifa pökkum um allan heim – en hann var samt ekki einn í því þar sem álfarnir hjálpuðu til við að smíða pakkana. Endir Sævar Hjalti Þorsteinsson 8. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar


Viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum óskum við gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu.


Kvennasveitin Skaði með jólatónleika

Það var kátt á hjalla í Vatnsholti föstudagskvöldið 5. desember þegar kvennasveitin Skaði bauð til söngskemmtun-

ar. Kvennasveitin Skaði er skipuð 13 kátum konum af Snæfellsnesi og syngja þær undir stjórn Hólmfríðar Friðjónsdóttur. Efn-

isdagskráin á tónleikunum var fjölbreytt og skemmtileg með jólalegu ívafi, vel var mætt á tónleikana og voru tónleikagestir

hugfangnir af flutning sveitarinnar.

SJ


Annáll Umf. Víkings Ungmennafélagið Víkingur hefur átt mjög gott og farsælt ár. Við erum stolt af því starfi sem við bjóðum upp á. Iðkendur okkar eru í kringum 160 börn. Við bjóðum upp á fótbolta- sund- íþróttaskóla -blak og svo vorum við með námskeið fyrir yngri börnin sem hét íþróttafjör, ásamt því að bjóða upp á auka morgunæfingar fyrir eldri krakkana í fótboltanum. Þjálfarateymið okkar í fótboltanum tók nokkrum breytingum á árinu, Brynjar Kristmunds hætti hjá okkur eftir farsælt og gott starf síðustu árin og inn kom Tomasz Luba sem er frábær þjálfari með flotta framtíðarsýn, Aron Gauti okkar heldur áfram hjá okkur og stendur sig vel auk þess sem Asmer og Hreinn Ingi komu inn, Asmer tók sér svo pásu frá þjálfun og nú í lok árs réðum við Helenu Ólafsdóttur inn en hún mun þjálfa snillingana okkar í 8.fl og byrjar svo með stelpuæfingar eftir áramót sem við erum spennt fyrir, við erum svo áfram með aðstoð-

ar strákana okkar sem standa sig vel. Helga Guðrún er áfram með sundið og stendur sig vel þar og Leó okkar sér um íþróttaskólann, í blakinu eru Stefanía Viðars og Katrín Reyes að þjálfa og fer blakið mjög vel af stað og mikill áhugi. Við héldum glæsilegt konukvöld sem tókst heldur betur vel og keyptum við boli fyrir

alla okkar iðkendur fyrir ágóðan af því kvöldi. Við hlökkum til næsta árs með öllum snillingunum okkar og horfum björtum augum til framtíðar. Við þökkum fyrir alla sem standa við bakið á okkur og aðstoða okkur á einn eða annan hátt, ungmennafélag gengur ekki upp án sjálfboðaliða.

Stjórn Umf Víkings sendir öllum okkar iðkendum, fjölskyldum þeirra og bæjarbúum öllum hugheilar jóla og nýárskveðjur með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða. Fyrir hönd stjórnar.

Tinna Ýr Gunnarsdóttir

Kæru íbúar Snæfellsbæjar, okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári Jólakveðja

BALATÁ


JólaBingó soroptimista á Jaðri Soroptimistaklúbbur Snæfellsness hélt á dögunum jólabingó á Hjúkrunarheimilinu Jaðri í Snæfellsbæ. Soroptimistasystur komu færandi hendi með glæsilega vinninga en á meðal þeirra voru léttvínsflöskur, gjafabréf, konfekt og snyrtivörur. Að bingói loknu buðu þær íbúum og gestum upp á lagtertu, brauð-

rétt og heitt súkkulaði. Klúbburinn hefur undanfarin ár einnig verið með upplestur úr bókum fyrir íbúa og er það fyrir löngu orðinn fastur liður í félagsstarfinu innan heimilisins. Íbúar og starfsfólk á Jaðri þakka kærlega fyrir komuna, skemmtunina og veitingarnar. JJ

Sendi ykkur öllum bestu jóla og nýárskveðjur. Þakka fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Kveðja, Clemens

Jólaspurningar gerði á gamla mátann en svo var amma með drekkhlaðið borð af tertum og heitt súkkulaði ( það mátti sko alls ekki segja kakó við hana). Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

Ég á erfitt með að gera upp á milli jólagjafa en leikskólagjafirnar frá því að Bjarki var yngri eru svolítið uppáhalds. Elva Ösp Magnúsdóttir Hvað kemur þér í jólaskap?

Jólabakstur og jólalög Hver er þín fyrsta jólaminning?

Þegar við vorum að skreyta jólatréð á þorláksmessu og þegar var svo kveikt á því á aðfangadag. Hver er þín uppáhalds jólaminning?

Það er þegar fjölskyldan fór á aðfangadagskvöld eftir að hafa opnað jólapakkana til Láru ömmu og Jónasar afa. Þar hittust allir, karlarnir settust í eldhúsið að smakka á rjúpunum sem amma

Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn?

Gljáður hamborgarhryggur með kóksósu sem við erum alltaf með á aðfangadag. Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá þér?

Geimferðalangur Hvaða hefð finnst þér ómissandi um jólin?

Við Marinó höfum í nokkur ár boðið fjölskyldum okkar heim í hádeginu á aðfangadag eftir jólahappadrætti Lionsklúbbsins og er það orðið að skemmtilegri hefð.


Jól í Frakklandi Fyrsti fyrirboði jólanna í Frakklandi á sér stað þann 4. desember en þá er hveitikorni sáð í rakann bómull á litlum disk. Kornið spírar fram að jólum en vöxtur kornsins á að spá fyrir um ríkulega uppskeru og nýtt ár en einnig merki um fjárhagslega velmegun. Aðventudagatal er notað til þess að telja niður daga til jóla en það hefur þróast með tímanum. Súkkulaði er komið í stað fallegra mynda sem foreldrar okkar þekkja og í dag bjóða margar verslanir upp á dagatöl uppfull af leikföngum, snyrtivörum og öðru slíku. Nokkrum dögum fyrir jól kaupum við nýfellt jólatré og skreytum það með jólakúlum og krönsum. Á aðfangadag förum við í miðnæturmessu í kirkju og svo kemur

jólasveinn aðfaranótt 25. desember sem setur gjafir undir jólatréð.

Jólajata

Jólajata.

Það er sterk hefð í Frakklandi að setja upp Jólajötu fyr-

ir hátíðina. Framsetningin samanstendur af leir styttum í stíl sem má rekja til arkitektúrs og umhverfis í héraðinu Provence í Frakklandi. Á mörgum stöðum hafa verið settir upp helgileikir með leikurum í hefðbundn-

um búningum. Þá er lagið “Petit Papa Noel” sungið eftir Tino Rossi.

Máltíðin

Fjölskyldur safnast saman að kvöldi 24. desember og nýt-


ur samveru þar til jóladegi lýkur. Það er tækifæri sem er nýtt til að deila stórum, að því er virðist endalausum máltíðum. Hefðbundnir forréttir eru meðal annars reyktur lax, foi gras og sjávarréttardiskar. Fylltur kalkúnn með kastaníu hnetum og kartöflum er oft aðalrétturinn og að því loknu ostabakki. Í eftirrétt er yfirleitt “Bûche” sem er svampkaka fyllt með bragðbættum rjóma og hjúpuð súkkulaði. Máltíðinni er rennt niður með þurru og sætu hvítvíni, rauðvíni og kampavíni. Þrettándinn lokar jólahátíðinni þann 6. janúar og er hefð fyrir því að snæða saman „galette des rois“ sem er fyllt smjördeigsterta með möndlukremi. Í suður Frakklandi er það Gâteau des rois sem er fyllt brioche brauð með sykri og sykruðum ávöxtum. Inni í brauðinu

er baun falin og yngsta barn fjölskyldunnar lokar augunum og velur þann sem fær sneið. Sá sem fær baunina er kosinn drottning eða kóngur og fær að klæðast pappa kórónu á meðan gleðinni stendur. Síðan við fluttum til Íslands höfum við notið þess að skreyta húsið okkar með jólaljósum sem sjást að utan, skreyta jólatréð og setja upp jólajötu með fígúrum sem ég erfði frá ömmu minni. Á aðfangadagskvöld munum við fá að njóta kvöldsins og upplifa jólasiði með íslenskum vinum okkar og í staðinn dekrum við þau með frönskum kvöldverði á gamlárskvöld.

Galette des rois

Bûche

Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin.

Jólaspurningar

“Joyeux Noël !” Isabelle og Erwin

Halla Karen Gunnarsdóttir Hvað kemur þér í jólaskap?

Kerti - mikið af kertum, notaleg samvera með fjölskyldu og vinum og jólasnjór. Hver er þín fyrsta jólaminning?

Jólasveinarnir sem komu heim til mín á Selfossi á aðfangadag með pakka handa mér, óðu inn á skítugu stígvélunum sínum og vöktu stóra bróðir minn. Fannst það ótrúlega fyndið og sagði öllum sem ég hitti frá þessu. Hver er þín uppáhalds jólaminning?

Þegar ég var nýbúin að eignast barn rétt fyrir jólin og við vorum saman fjölskyldan í litla jólalega húsinu okkar í rólegheitum

Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

Skíði sem ég fékk frá mömmu og pabba, fannst þetta risastór gjöf sem ég notaði í mjög mörg ár. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn?

Erum búin að prófa annað en hamborgarahrygg en erum búin að hafa hann síðustu ár aftur, enda bæði alin upp við hann á aðfangadag og erfitt að breyta. Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá þér?

Löngu liðnir dagar með Jóhönnu Guðrúnu. Hvaða hefð finnst þér ómissandi um jólin?

Það verður alltaf að vera möndlugrautur í hádeginu á aðfangadag.


Jólasögusamkeppnin

Lísa hvarf segir Kári. Eva stóra systir hans kemur hlaupandi Eva “hvar sástu hana síðast ?“ Kári “ég sá hana við eldiviðin niðri í stofu, hún var að leika með Silvíu prakkara álfinn okkar. svo fór ég upp í herbergi að ná í einn hlut svo þegar að ég kom til baka var hún horfin” “en prakkara álfurinn?” spyr Eva “ hún er líka horfinn !” Eva og Kári fara og leita út um allt húsið, út í garði, í kjallaranum og allstaðar sem þeim dettur í hug. Þau finna ekki Lísu, hún er týnd og systkinunum finnst jólin vera ónýt. Mamma og pabbi eru á leiðinni heim, þau verða að finna hundinn þeirra hana Lísu áður en foreldrarnir koma heim. Eva og Kári fara yfir til ömmu sinnar og afa til að segja þeim fréttirnar, þau segja þeim frá óhappinu og amma trúir ekki sínum eigin eyrum hún var i sjokki að hundurinn þeirra væri týndur, “ eru þið búin að leita út um allt krakkar. Eva og Kári segja að þau séu búin að því og meirað segja spurt nágranna hvort þeir hafi séð Lísu. Amma og afi fara strax í útiföt og út að hjálpa þeim að leita. Þau leituðu öll í langan tíma en fundu ekki neitt, á endanum gáfust þau upp og fóru heim enda komið kvöld, mamma og pabbi voru komin heim og komin hátta tími á Evu og Kára, svo þegar að mamma og pabbi komu til að segja góða nótt spurðu þau foreldra sína hvar Lísa væri, hvort þau hefðu séð hana, Foreldrarnir segja að þau hafi ekki ennþá fundið hana. Vika er liðinn og ekki er enn búið að finna Lísu, Eva og Kári eru búin að búa til auglýsingar til að dreifa út um allan bæ, þar er mynd af Lísu og upplýsingar um að hún sé týnd og símanúmerið

Jólasaga 2025 hjá mömmu og pabba. Eva og Kári átta sig á því að það eru einungis fimm dagar til aðfangadags, Eva fer upp í herbergi sitt og fer að gráta, Kári kemur inn í herbergi til hennar og segir henni að Lísa finnist örugglega fyrir aðfangadagskvöld. Hver veit kannski kemur einhver með hana. Eva óttast að Lísa eigi ekki eftir að finnast aftur, en hún óskar þess að hún finnist og komi aftur heim “ það er eina jólagjöfin sem ég óska mér “ segir Eva. Lísa er steinsofandi og vaknar við einhver sem er að tala “ Þú ert loksins vöknuð” segir ókunnug rödd“, ,,hver er að tala við mig” hugsar Lísa og lítur í kringum sig hvar er ég, hvar eru Eva og Kári, Lísa lítur í kringum sig á fullu en finnur þau ekki ,,ef þú ert að leita af Evu og Kára þá eru þau ekki hér, þau eru heima hjá sér, þú ert hér hjá mér prakkaraálfinum þeirra” segir Silvía. Eva og Kári eru enn upp í herbergi, Kári er ennþá að hugga systur sína. Mamma og pabbi koma upp í herbergi, “ ertu enn að gráta Eva mín segir mamma “ viljið þið ekki koma niður í stofu í kósý. Kári og Eva segjast vilja fara koma niður í kósý til að gleyma sér í smá stund. Mamma setur skemmtilega jólamynd í gang, pabbi poppar og þau gleyma sér á meðan þau horfa á myndina. Fjórir daga til jóla, Kári og Eva eru enn að leita af Lísu, foreldrar þeirra hafa nú haft samband við lögregluna til að auglýsa eftir henni. þrír dagar eru til jóla, Kári og Eva ákveða að rannsaka málið og finna húfuna sem prakkaraálfurinn á við hliðina á eldiviðnum, þau taka húfuna og geyma hana á skrifborðinu hennar Evu, þegar að þau leita meira finna þau bjölluna hennar Silvíu sem þau setja líka á borðið hjá húfunni. Þegar að þau svo fara að skoða svæðið sem eldiviðurinn er geymdur sjá þau ólina hennar Lísu þar. Þau leggja hana á borðið hjá hinu dótinu sem þau fundu og lögðu höfuðið í bleyti og hugsa hvað þetta gæti þýtt. Tveir dagar til jóla, Eva og Kári eru spennt fyrir jólunum en eru ennþá að leita af Lísu, í gær fundu þau ól, húfu og bjöllu, svo að þau hugsa “ Lísa hefur misst ólina sína og Silvía jólahúfuna sína og bjöll-

una Lísa er stödd í bólinu sinu á hlýjum stað innan dyra “ jæja þú ert vöknuð” er þetta nokkuð Silvia sem er að tala við mig hugsar Lísa. Silvía stendur við glugga með heitt kakó í bolla og horfir út. Silvía “ núna eru bara tveir dagar í að þú ferð heim” “ ef þú ert að spá afhverju ég tók þig þá er málið að Evu og Kára fannst ég ekki vera að hrekkja þau nóg, að skreyta tréð með klósettpappír eða nærbuxum var ekki nóg. Svo ég ákvað að bæta mig aðeins, ég ætlaði að gera þetta í fyrra en þá varstu bara lítill hvolpur, en núna ertu orðin eldri, ég ætlaði nefnilega að fá verðlaunin besti prakkarinn jólin 2025. Einn dagur til jóla. Eva og Kári voru ekki að skilja að þetta væri að gerast um jólinn að Lísa væri týnd. Mamma þeirra og pabbi voru hjá ömmu og afa í skötuveislu en Eva og Kári vildu alls ekki fara því það er svoooo vond lykt, það var líka hangikjöt í matin en lyktin af skötunni yfirgnæfði allt og þau vildu alls ekki fara.

Aðfangadagur er runninn upp og Eva og kári stökkva fram úr rúmunum sínum og halda að Lísa sé komin heim, þau fara beint að staðnum þar sem hún liggur alltaf við hliðiná eldiviðnum, en hún er ekki þar, allt í einum kemur eitthvað niður úr strompnum, þetta er Silvía og Lísa , Eva og Kári kúsa Lísu segja við hana að þau hafi saknað hennar lengi. Um kvöldið þegar að Eva og Kári eru komin í sitt fínasta púss og klukkan slær sex halda þau jól, fá góðan mat og opna pakka og brosa út af eyrum af gleði að Lísa sé komin heim, þau gefa henni ólina sína. Silvía fær bikar fyrir að vera mesti prakkara álfurinn þessi jólinn og segir vinum sínum að gera svona hrekk næstu jól, kannski getum við tekið foreldrana, en þá segja hinir prakkara álfarnir að það megi alls ekki og að þá sé hún búin að fara yfir línuna, reyndar hafi hún gert það núna en Silvía þarf að lofa að gera aldrei aftur svona hrekk. Dagbjört Unnur Guðjónsdóttir 6. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar


Jólasögusamkeppnin

Jólasaga fengu dót i skóinn jólasveinarnir fóru i hellinn og fengu mandarinur og nammi hjá grilu mömmu og leppalúða pabba. Jólasveinar eru góðir við alla krakka.

Einu sinni voru jólasveinar að gefa bönum i skóinn þeir fengu jólapiparköku með skrauti þeir sungu og dönsuðu krakkarnir

Ketkrókur var að gefa börnunm gjafir en gaf óvart táfýlusokka það var vond lykt af sokkunum þá setti af hann mandarínu ofan á sokkinn þá kom mandarínulykt. Jólasveinarnir fóru í hellinn og fengu mandarínur Kolfinna Kristný Jónsdóttir 6. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar

Gleðilega hátíð

Takk fyrir samskiptin og samveruna á árinu sem er að líða.


Golfárið 2025 hjá GJÓ Golfárið hjá GJÓ var afar viðburðaríkt og markaði mikilvægan áfanga í uppbyggingu starfseminnar. Á árinu var haldið áfram markvissu starfi við uppbyggingu nýs golfvallar, en framkvæmdir hafa gengið vel og verið í samræmi við áætlanir, þrátt fyrir þær áskoranir sem veður og aðstæður á svæðinu geta skapað. Samhliða uppbyggingu vallarins hefur orðið ánægjuleg fjölgun iðkenda, þar sem fólk á öllum aldri hefur bæst í hóp félagsmanna. Í sumar var greinilega mikill áhugi á golfíþróttinni og góð þátttaka í æfingum og viðburðum, sem endurspeglast vel í starfsemi klúbbsins. Þetta var jafnframt síðasta tímabilið sem leikið var á Fróðárvelli, sem hefur um árabil verið miðpunktur golfstarfsins í Snæfellsbæ. Umhirða vallarins var til fyrirmyndar í sumar og nutu kylfingar góðra aðstæðna fram á síðasta dag, sem var fallegur endapunktur í sögu vallarins. Formlegt starf á vellinum hófst 29. maí með sjómannadagsmóti og gekk mótahald sumarsins afar vel. Alls voru haldin 15 mót yfir tímabilið og var Landsbankamótaröðin þar á meðal, sem

naut góðrar þátttöku og góðrar stemningar. Mótin voru mikilvægur hluti af félagslífinu og komu bæði heimamönnum og gestum saman. Unnið var að mótun brauta, flata og teiga, auk annarrar nauðsynlegrar undirstöðuaðstöðu. Á árinu var jafnframt pantað einingahús sem mun verða golfskáli við nýja golfvöllinn, auk þess sem gert er ráð fyrir sérstakri vélageymslu. Þá verður á nýja vellinum komið upp æfingasvæði sem mun bæta verulega möguleika bæði nýrra og reynslumeiri kylfinga til æfinga. Verkefnið hefur notið góðs af öflugu samstarfi við Snæfellsbæ, verktaka og sjálfboðaliða,

sem allir hafa lagt sitt af mörkum til framgangs þess. Þá var einnig ráðist í umbætur á aðstöðu golfhermisins í lok nóvember, sem bætir verulega möguleika félagsmanna til æfinga yfir vetrartímann og styður við áframhaldandi vöxt og áhuga á golfíþróttinni. Það er klúbbnum sérstakt ánægjuefni að einn af burðarásum starfsins, Hjörtur Ragnarsson, hlaut viðurkenningu Golfsambands Íslands sem sjálfboðaliði ársins. Viðurkenningin er vel að verðleikum komin og undirstrikar mikilvægi sjálfboðastarfsins fyrir starfsemi klúbbsins.

Stefnt er að því að nýi golfvöllurinn verði opnaður fyrir leik á næsta tímabili og ríkir mikil tilhlökkun meðal félagsmanna. Með tilkomu hans skapast enn betri aðstaða fyrir golfiðkun í Snæfellsbæ og er þetta mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu íþrótta- og tómstundastarfs á svæðinu. Að lokum vill stjórn GJÓ þakka öllum þeim sem komu að starfinu á árinu, þar á meðal sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og Snæfellsbæ fyrir gott samstarf. Horft er björtum augum til næsta golfárs og vonast til áframhaldandi góðs gegnis.


Við óskum starfsmönnum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Kristinn J. Friðþjófsson ehf.


Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Hraðbúðin Hellissandi


Haldið í hefðir á Sólvöllum Ein af áherslunum á leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði er hæglæti og hafa þau verið að tileinka sér það í desember en þó haldið í gamlar hefðir sem tengjast jólunum. Í desember er oft mikið um að vera og reyna þau eftir fremsta megni að hafa rútínu í leikskólanum en þó með skipulögðu uppábroti inná milli. Aðventan byrjaði á að þau fengu leiksýninguna Jól í tösku eftir Þórdísi Arnljótsdóttur sem

sýndi þeim og sagði frá íslensku jólasveinunum og mömmu þeirra, henni Grýlu. Foreldrafélag leikskólans bauð upp á sýninguna sem var bæði fróðleg og skemmtileg fyrir börn og starfsfólk. Fleira sem hefur verið á döfinni í desember er kaffihúsaferð í Sögumiðstöðina þar sem boðið var upp á kakó, vöfflur og rjóma. Þau fóru í kirkjuheimsókn þar sem Sr. Karen Hjartardóttir sagði sögu

Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur Happdrættismiðar í leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur eru komnir í sölu, sölustaðir eru: Verslunin Kassinn, Verslunin Hrund og Hampiðjan. Úrdráttur í leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur fer fram í félagsheimilinu Klifi á aðfangadag kl. 11. Útgefnir miðar 2.500, aðeins dregið úr seldum miðum. Lionsklúbbur Ólafsvíkur

og svo máluðu þau piparkökur saman. Opið hús var í desember þar sem foreldrum og forráðamönnum var boðið á leikskólann til að skoða listaverk og svipmyndir frá árinu. Boðið var upp á föndur og notalega samverustund í leikskólanum. Í desember var jólasamsöngur þar sem allar deildir leikskólans sungu og dönsuðu við íslensk jólalög, bæði gömul og ný. Þá var einnig jólaflæði þar sem settar voru upp stöðvar sem allar tengjast jólunum og börnin fengu að velja sér stöð eftir áhuga og dvelja á hverri stöð eftir sínu eigin úthaldi. Jólaballið okkar var haldið 19. desember þar sem dansað var í kringum jólatré og jólasveininn lét sjá sig. Í leikskólanum er haldið í íslenskar hefðir og eitt af því er að kynna íslensku jólasveinanna og taka umræðuna. Skyrgámur kom í heimsókn í leikskólann og færði börnunum skyr

með smá subbuskap sem vakti mikla kátínu meðal barnanna og Bjúgnakrækir kom og færði börnunum íslensk bjúgu beint út úr sveitinni. Á Sólvöllum hafa þau einnig verið að föndra jólagjafir til foreldra og hefur verið lagt upp með að efla raddir barnanna um hvað verður í pakkanum. Börnin fengu aukið sjálfstæði og eftir því sem þau verða eldri hafa þau frjálsari hendur með hvað fer í pakkann. Á elstu deildinni fengu börnin alveg frjálsar hendur á jólaverkstæðinu og eru jólagjafirnar í ár fjölbreyttar gjafir beint frá hjartanu. Leikskólinn Sólvellir eru á Instagram undir nafninu leikskolinnsolvellir og reyna þau að vera duglega að segja og sýna frá starfinu þar og geta áhugasamir fylgst með. Jólakveðjur frá nemendum og starfsfólki leikskólans Sólvalla í Grundarfirði


Barnastarf kirkjunnar á aðventunni Barnastarf kirkjunnar á að­ vent­unni hefur verið líflegt og skemmti­ legt. Nóg hefur verið um að vera en aðventan hófst með sameiginlegum kirkju­skóla Ólafsvíkur- og Ingjalds­ hóls­ presta­ kalls og Setbergsprestakalls í Grundarfjarðarkirkju. Tóku þau Séra Ægir Örn Sveins­son og Séra Karen Hjartar­ dóttir á móti börnunum með mikilli gleði og var þar sungið, dansað og hlustað á jólasögur. Þrír rauðklæddir sveinar mættu svo í kirkjuskólann og glöddu börn og fullorðna með góðgæti og látum. Kirkjurnar tóku vel á móti leikskóla- og grunnskólabörnum á aðventunni í heimsóknir, hvort sem það var til þess að eiga notalega stund saman við piparkökuskreytingar eða í söng og sögustund tóku Séra Ægir Örn og Séra Karen á móti börnunum með opnum örmum. Á þriðja sunnudag í aðventu, þann 14. desember áttu söfnuðirnir í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli saman notalega

stund á Ingjaldshóli þar sem blandað var saman helgihaldi, jólasögum, tónlist og söng ásamt dásemdar veitingum sem notið var í góðum félagsskap. Þessi fjölskylduviðburður vakti mikla lukku og er eflaust kominn til að vera áfram ómissandi þáttur í aðventunni hjá Ólafsvíkur- og Ingj-

aldshólsprestakalli. Þá var síðasti jólakirkjuskóli Setbergsprestakalls haldinn miðvikudaginn 17. desember í Grundarfjarðarkirkju og síðasta kirkjuskólasamveran fyrir jól í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli var svo fimmtudaginn 18. desember í safnaðarheimili Ingjaldshólskirkju. Þar

áttu börnin notalega samverustund með jólalegu ívafi. Í lok stundarinnar var börnum og foreldrum boðið að skreyta og borða piparkökur sem féll vel í kramið hjá viðstöddum. SJ


Pólska jólafjölskyldan Pólska samfélagið á Snæfellsnesi kom aftur saman í einstökum viðburði sem kallast „Pólska jólafjölskyldan“. Þessi árlega samkoma, sem er fastur liður í dagatali samfélagsins, hefur orðið að fallegri hefð sem bæði börn og fullorðnir hafa beðið eftir með óþreyju. Viðburðurinn var skipulagður af pólska samfélagshópnum „ Jestesmy w Kontakcie“, sem hefur starfað á Snæfellsnesi í 11 ár. Á hverju ári er jólasamkoman tækifæri til að upplifa pólskar hefðir saman, viðhalda tungumálinu og byggja upp tengsl milli pólskra fjölskyldna. Útgáfan í ár, eins og fyrri útgáfur, var haldin í einstaklega gleðilegu og hlýlegu andrúmslofti, fullu af brosum, samræðum og skemmtun. Ein af þeim stundum sem mest var beðið eftir var koma jólasveinsins, í fylgd með hjálparálfinum, sem kom börnunum á óvart þegar hún mætti á bíl. Þessi óvenjulega óvænta uppákoma vakti mikla spennu og gleði. Börnin gátu jafnvel far-

ið í bíltúr með henni og það var svo mikill hlátur og gleði að – eins og þau sögðu í gríni – hreindýrin hefðu kannski fundið fyrir smá öfund. Jólasveinninn færði ekki aðeins börnunum gjafir, heldur einnig foreldrum þeirra, sem táknrænt undirstrikaði að töfrar jólanna ná til allra. Gjafirnar voru útbúnar þökk sé þátttöku foreldra og stuðningi pólska sendiráðsins í

Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðnu ári.

Reykjavík og pólsku verslunarinnar Mini Market, sem skipuleggjendur þakka innilega. Pólsk jólasálmar og jólalög fylltu herbergið hlýju og tilfinningum sem sköpuðu einstaka stemningu. Einnig var spiluð tónlist og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum -, og leikurinn „gallópandi hreindýr“ var sérstaklega vinsæll. Foreldrar buðu upp á hátíðar-

veitingar - borð full af heimabökuðum bakkelsi og hefðbundnum kræsingum hvöttu til samræðna og félagsskapar. Börnin tóku þátt í treflaleikjum og listnámskeiðum og bjuggu til litrík jólakort full af ímyndunarafli og metnað. Skipuleggjendur leggja áherslu á að langvarandi starfsemi „ Jesteśmy w Kontakcie“ hópsins og árlegu hátíðarsamkomum, sýnir mikilvægi samfélags, gagnkvæms stuðnings og ræktunar pólskra hefða erlendis. Það er þökk sé svona verkefnum að pólska samfélagið á Snæfellsnesi helst náið hvert öðru - óháð fjarlægð frá heimalandi sínu. Að lokum sendum við öllum lesendum okkar og íbúum Snæfellsness hlýjustu óskir um góða heilsu, frið, fjölskylduhlýju og gleði. Megi komandi jól verða tími vonar, góðvildar og sameiginlegrar gæsku, og megi nýja árið færa farsæld og frekari tækifæri til samveru. Agnieska Imgront


Desember í leikskóla Snæfellsbæjar

Desember mánuður hefur verið ansi viðburðaríkur í leikskóla Snæfellsbæjar. Jólaþema í starfinu hófst strax í fyrstu viku jólamánaðarins þegar piparkökur voru bakaðar og skreyttar, bæði til að njóta í kaffitíma á leikskólanum og til þess að taka með heim. Elsti árgangur í leikskóla Snæfellsbæjar fór í þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi ásamt börnum á yngstu deild Grunnskóla Snæfellsbæjar og skreyttu jólatréð með jólaskrauti

sem þau föndruðu sjálf í leikskólanum, þemað í ár var flóra Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Þá fóru elstu tveir árgangarnir í kirkjuheimsókn, Krílakot í Ólafsvíkurkirkju og Kríuból í Ingjaldshólskirkju þar sem Séra Ægir Örn Sveinsson tók vel á móti þeim. Eftir heimsóknina var jólakósý fyrir öll börnin á leikskólanum þar sem þau fengu köku og heitt súkkulaði í notalegri kaffihúsastund. Einnig tóku elstu tveir árgangarnir þátt í jólaútvarpi

GSNB, í þættinum sínum sungu þau jólalög og sögðu brandara og höfðu virkilega gaman af. Jólaljósagangan var á sínum stað en þá ganga börnin ásamt starfsfólki um bæinn með led kerti og syngja jólalög. Stoppað var meðal annars á Jaðri, ráðhúsi Snæfellsbæjar, Smiðjunni dagþjónustu, Hraðbúð Hellissands, Versluninni Kassanum og Hampiðjunni og vöktu börnin mikla kátínu hvert sem þau fóru. Árlegur möndlumeistari

var krýndur á hverri deild innan leikskólans eftir að möndlugrauturinn var borinn á borð og þemadagar voru hvern föstudag í aðdraganda jólanna. Þá mættu börn og starfsfólk ýmist í jólasokkum, í rauðum fötum og með jólasveinahúfur, öllum til mikillar gleði. Jólakósý og huggulegheit hafa einkennt desember á leikskóla Snæfellsbæjar, nóg hefur verið að gera í jólaföndri á leikskólanum en börnin hafa fönd-


rað og skreytt fyrir sínar deildir, jólaskraut til að taka með heim að ógleymdum gjöfunum fyrir foreldrana sem rata fallega

skreyttar undir jólatréð heima. Jólaball á báðum starfsstöðum var svo haldið síðustu vikuna fyrir jól þar sem börn og starfs-

fólk mættu í sínu fínasta pússi, sungu og dönsuðu saman. Jólasveinarnir mættu í heimsókn, tóku sporið með þeim og færðu

svo öllum börnunum mandarínu og jólagjöf sem foreldrafélag leikskólans aðstoðaði þá við að útbúa.


Lífleg aðventa í Grunnskóla Grundarfjarðar

Það var mikið um að vera á aðventunni hjá nemendum og starfsfólki í Grunnskóla Grundarfjarðar þetta árið eins og vanalega. Jóladagskráin hófst þann 5. desember þegar farið var í vasaljósagöngu upp í skógræktina í Grundarfirði þar sem nemandi á unglingastigi las jólasögu fyrir samnemendur sína. Þegar notalegri sögustundinni var lokið fengu allir kakó og piparkökur. Þann 8. desember keppti ung-

lingastig skólans við starfsmenn í æsispennandi blakleik sem nemendur unnu við mikinn fögnuð samnemenda. Á aðventunni hittast allir nemendur skólans og nemendur Eldhamra, leikskóladeildarinnar innan skólans, vikulega ásamt starfsmönnum á sal og syngja saman jólalög og eiga þar saman hátíðlega stund. Í aðdraganda jólanna fóru nemendur á Eldhömrum, 1. og 2. bekk í kærleiksgöngutúr um Grundarfjörð og hengdu hjörtu

með fallegum skilaboðum á hurðahúna bæjarbúa sem vakti mikla lukku. 11. desember var svo jólafatadagur þar sem nemendur og starfsfólk mætti í sínum jólalegustu fötum og mættu margir mjög skrautlegir og jólalegir. Nemendaráð Grunnskóla Grundarfjarðar hélt jólabrunch fyrir unglingastigið við mikla ánægju og svo sáu nemendur allir um að skipulegga vel heppnaðan íþróttadag innan skólans

sem haldinn var 17. desember. Jólatónleikar nemenda á miðstigi voru svo haldnir 18. desember og svo var jóladagskránni lokað þann 19. desember með litlu jólunum áður en allir héldu heim í jólafrí. Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Grundarfjarðar óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Gleðilega hátíð & takk fyrir árið. Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýju ári. Starfsfólk Lýsulauga


Óskum öllum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Stafnafell ehf.


GUÐMUNDUR JENSSON SH 717

Við óskum öllum Snæfellingum gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs. Þökkum starfsfólki okkar og viðskiptavinum samstarfið á árinu sem er að líða.

Aðventan í Þjóðgarðinum Jólagleðin hefur verið við völd í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi í desember. Í upphafi mánaðarins mættu elstu börnin á leikskóla Snæfellsbæjar og nemendur í 1. til 4. bekk í Grunnskóla Snæfellsbæjar í heimsókn í fylgd kennara sinna. Dýrmæt hefð hefur skapast yrir því í þjóðgarðsmiðstöðinni að börnin séu fengin til að setja tóninn fyrir jólahátíðina með heimatilbúnu skrauti. Ár hvert er valið þema sem tengist þjóðgarðinum og í ár varð flóra Snæfellsjökulsþjóðgarðs fyrir valinu. Nemendur skreyttu jólatréð með stolti ásamt kennurum og starfs-

fólki þjóðgarðsins. Gengið var svo í kringum fallega skreytt tréð og sungið í kringum vel skreytt tréð. Eva Dögg Einarsdóttir, yfirlandvörður, sagði börnunum frá ýmsum fróðleiksmolum um gróðurfar þjóðgarðsins og gæddi hópurinn sér á mandarínum á meðan hlustað var af mikilli athygli. Gleðileg samveran með börnunum er falleg hefð sem er orðin mikilvægur og kærkominn hluti af undirbúningi jólanna í þjóðgarðinum. Jólatréð sem prýðir þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi í ár kemur frá Skógræktarfélagi Stykkishólms en Björn Ásgeir, formaður félagsins, afhenti

Snæfellsjökulsþjóðgarði tréð í Sauraskógi í byrjun desember. Sunnudaginn 7. desember, annan sunnudag aðventunnar, bauð Snæfellsjökulsþjóðgarður til aðventustundar á Malarrifi. Þar gafst fjölskyldum kostur á að njóta samverunnar með útiveru á Malarrifi. Farið var í ratleik um svæðið þar sem börn og fullorðnir tóku virkan þátt áður en haldið var inn í gestastofuna í heitt súkkulaði og smákökur. Þá var önnur aðventustund miðvikudaginn 17. desember í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Boðið var til notalegrar samverustundar fyrir börn og

fjölskyldur þar sem föndrað var jólaskraut og hlustað á jólatónlist. Þetta var huggulega barnastund með jólalegu ívafi og glöð börnin fóru stolt með bjöllur heim til að skreyta. Þriðja aðventustund Snæfellsjökulsþjóðgarðs var svo 21. desember, fjórða sunnudag aðventu, þegar farið var í sögugöngu með landverði frá Djúpalóni yfir í Dritvík. Útiveran var tilvalin leið til að skilja amstur hversdagsins í aðdraganda jólanna eftir og núllstilla sig fyrir hátíðarnar. SJ


Annáll HSH 2025 Í byrjun árs 2025 var íþróttafólk HSH heiðrað að Langaholti. Nýbreytni var í ár þar sem haldinn var sérstakur viðburður fyrir hóf Íþróttamanneskju ársins. Þau sem voru kjörin að þessu sinni voru: Anna María Reynisdóttir - Blakíþróttamanneskja HSH Arnar Geir Diego Ævarsson - Skotíþróttamanneskja HSH Asmer Begic - Knattspyrnumanneskja HSH Rögnvaldur Ólafsson - Kylfingur HSH Siguroddur Pétursson - Hestaíþróttamanneskja HSH Snjólfur Björnsson - Körfuknattleiksmanneskja HSH Siguroddur Pétursson var kjörinn Íþróttamanneskja HSH 2024. Siguroddur hefur staðið sig gríðarlega vel á árinu í hestamennskunni. Á alþjóðlegum stöðulista á World Feng (alþjóðlegur gagnagrunnur íslenska hestsins) er hann á meðal 20 efstu í fjórum greinum. Að auki voru þær Björg Gunnarsdóttir, Ingunn Ýr Angantýsdóttir og Kristín Halla Haraldsdóttir kjörnar Vinnuþjarkar HSH en saman hafa þær myndað gott teymi þjálfara í frjálsum íþróttum á svæði HSH. Öll aðildarfélög HSH fengu tækifæri til þess að tilnefna sjálfboðaliða úr þeirra félagi sem sjálfboðaliða HSH 2024 og var öllu þessu frábæra fólki veitt Silfurmerki HSH fyrir þeirra ómetanlega starf. Birta Antonsdóttir - UMF. Snæfell Fannar Hilmarsson - UMF. Víkingur Ólafsvík Jón Pétur Pétursson - UMF. Grundarfjarðar Ragnar Smári Guðmundsson - Vestarr Unnsteinn Guðmundsson - Skotfélag Snæfellsness Þann 30. janúar var haldið námskeið á teams fyrir gjaldkera aðildarfélaga ÍA, UMSB, HSH og UDN. Var þetta sameiginlegt verkefni á Vesturlandi en Guðmunda Ólafsdóttir sá um námskeiðið. Um miðjan febrúar stóð HSH fyrir fyrirlestri fyrir þjálfara og stjórnarmeðlimi aðildarfélaga HSH. Fyrirlesturinn bar heitið 360° íþróttamaður en fyrirlesarar voru þau Einar Örn Guðmundsson, sjúkraþjálfari og Margrét Lára Viðarsdóttir, sálfræðingur og íþróttafræðingur. Helstu atriði fyrirlestursins voru sam-

skipti, ofálag, álagsmeiðsli, sjálfstraust, svefn, félagsleg tengsl og jákvætt sjálfstal. Fyrirlesturinn var haldinn bæði í Grundarfirði og Stykkishólmi og var ágætis mæting. Janúarmót HSH í frjálsum íþróttum var haldið í Stykkishólmi sunnudaginn 26. janúar. Um 60 krakkar tóku þátt á mótinu og stóðu sig með prýði. Ársþing HSH var haldið þann 7. apríl 2025 í Samkomuhúsinu í Grundarfirði þar sem almenn þingstörf fóru fram. Að auki veittu ÍSÍ og UMFÍ heiðursviðurkenningar. Jón Pétur Pétursson - Silfurmerki ÍSÍ Ólafur Tryggvason - Silfurmerki ÍSÍ Tryggvi Gunnarsson - Gullmerki ÍSÍ Kristján Ríkharðsson - Starfsmerki UMFÍ Sigríður Guðbjörg Arnardóttir - Starfsmerki UMFÍ Gunnar Kristjánsson - Gullmerki UMFÍ Garðari Svanssyni var veitt fyrsta Gullmerki HSH fyrir hans störf í þágu HSH síðustu 30 árin. Garðar Svansson hætti í stjórn á þinginu en hann hefur starfað fyrir héraðið síðan 2. maí 1995. Þá var þeim Halli Pálssyni og Gunnari Kristjánssyni veit Gullmerki HSH fyrir þeirra störf í þágu héraðsins. Gunnhildur Gunnarsdóttir lauk störfum sem framkvæmdastjóri HSH þann 1. ágúst en tekin var sú ákvörðun að ráða ekki inn starfsmann í hennar stað að sinni. Stjórn HSH mun taka ákvörðun um hvenær verður ráðinn nýr framkvæmdastjóri á næstu mánuðum allt eftir því hvernig málin þróast. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Egilsstöðum í ágústbyrjun en um 20 þátttakendur tóku þátt í ár á vegum HSH. HSH keypti merkt eyrnabönd fyrir keppendur. Almenn ánægja var með mótið, keppendur stóðu sig vel og voru héraðinu til sóma. Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir tók að sér að vera verkefnastjóri á landsmótinu í ár fyrir hönd HSH og stóð sig með prýði. Stjörnuleikar “Allir með” voru haldnir í Stykkishólmi en dagurinn er hugsaður fyrir börn með sérþarfir, fatlanir ásamt þeim börnum sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi ásamt fjölskyldum þeirra. Dagurinn er fyrir leik gleði og samveru, mætingin var góð og fóru öll börn glöð heim. Formenn og framkvæmdastjórar íþróttahéraða á Vesturlandi vinna í nánu samstarfi við Svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vesturlandi. Nú er unnið að sameiginlegri fræðsludagskrá en áætlað er að erindi verði haldin fyrir stjórnir, foreldra og iðkendur í byrjun árs 2026. Að lokum þökkum við öllum þeim sjálfboðaliðum og styrktaraðilum sem hafa staðið með okkur árið 2025 fyrir frábært samstarf og vonumst til þess að það verði enn betra á næsta ári. Stjórn HSH þakkar Gunnhildi fyrir frábært samstarf og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi sem Svæðisfulltrúi íþróttahéraða á Vesturlandi. f.h. HSH Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson, Formaður HSH


Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Sjálfstæðisfélögin í Snæfellsbæ

1987 - 1994

Stofndagur 5. apríl 1994

LIONSKLÚBBURINN RÁN

Lionsklúbbur Ólafsvíkur

Lionsklúbburinn Rán, Ólafsvík

ÓLAFSVÍK

21. janúar 1973

Skotfélag Snæfellsness

Kvenfélag Hellissands

Útgerðarfélagið Ingibjörg ehf.

INGIBJÖRG SH-174

Soroptimistaklúbbur Snæfellsness


Annáll Ungmennafélags Grundarfjarðar Á árinu hefur verið mikið um að vera hjá félaginu. Félagið hefur boðið upp á æfingar í sex íþróttagreinum auk íþróttaskóla - þ.e. í fótbolta, blaki, frjálsum, fimleikum, rafíþróttum og badminton. Aðsókn í íþróttir er góð og erum við með þónokkur börn að æfa hjá félaginu sem hafa ekki búsetu í Grundarfirði. Einnig er góð aðsókn í blak hjá meistaraflokki kvenna, en við erum bæði með 1. deildar lið og 5. deildar lið sem er að keppa á Íslandsmótinu. Þess má geta að fyrsti hluti Íslandsmótsins í 5. deild fór fram í Grundarfirði og Ólafsvík í umsjá UMFG. Þá voru æfingabúðir í blaki haldnar í Grundarfirði í mars og tóku flestir okkar iðkenda þátt í því. Í maí hélt stór hópur á Ísafjörð í seinni hluta Íslandsmótsins þar sem okkar iðkendur stóðu sig með stakri prýði og sigruðu 26 leiki af 33 sem þeir spiluðu. Þá var hérðasþing HSH haldið í Grundarfirði í umsjá UMFG. Félagið hélt uppskeruhátíð sína þann 17. júní eins og hefur verið. Þar var Grundar- og Kvernárhlaup, sundmót UMFG og að lokum voru grillaðar pylsur og safi og iðkendum voru gefnar gjafir. Í sumar fóru iðkendur okkar á fjölmörg mót með Snæfellsnessamstarfinu ásamt því að taka þátt í Íslandsmótinu. Spilaðir voru þónokkrir leikir á Grundarfjarðarvelli sem ber að fagna þar sem mikil vinna hefur verið lögð í völlinn og hann kominn í gott stand. Í sumar fengum við einnig aðstöðuhús með klósettum og geymslu á Grundarfjarðarvöll sem mun koma til með að nýtast félaginu vel. Þar getum við sett upp sjoppu aðstöðu og þjálfarar þurfa ekki að fara langar leiðir eftir tækjum og tólum sem þarf til að halda úti æfingum á vellinum. Moli frá KSÍ kíkti í heimsókn til okkar í sumar og hélt eina æfingu fyrir krakkana, vel var mætt á æfinguna hjá honum. Haustið byrjaði af krafti og var ákveðið að fjölga æfingum í badminton þar sem að iðkendum fer alltaf fjölgandi. Þar sem aðsókn í íþróttir er jafn góð og raun ber vitni þurftum við að flytja nokkrar æfingar á helgar og er nú æft á bæði laugardögum og sunnudögum. 1.deildin í meistaraflokk kvenna byrjaði einnig haustið af krafti og standa þær í 2.sæti í riðlinum. Vel hefur verið mætt í stúkuna á heimaleiki og hefur stemningin verið mjög góð. Alexandra

í fyrsta sinn þar sem spilaður verður tvíliðaleikur þar sem liðin verða skipuð einu barni og einum fullorðnum. Góð skráning er á mótið. Við erum alltaf að bæta í og við erum stolt af okkar starfi. En til þess að starfsemi sem þessi gangi upp þurfum við stóran hóp góðra sjálfboðaliða og það er ekki sjálf-

Björg Andradóttir hefur spilað stórt hlutverk í liði UMFG á leiktíðinni og hefur einnig verið valin í tvö landsliðsverkefni í blaki á þessu ári og er að fara nú í janúar til Dublin í enn eitt verkefnið með landsliðinu. Barnablakið fór á fyrsta hluta Íslandsmótsins í byrjun nóvember sem var haldið í Kópavogi og Reykjavík. Annar hlutinn verður haldinn á Akureyri í febrúar og þriðji hlutinn í U12 og U14 í Grundarfirði og Ólafsvík og U16 á Húsavík. Framtíðin í blakinu er björt hjá félaginu. Í október ákvað félagið að bjóða iðkendum sínum og fjölskyldum að horfa saman á landsleik Íslands vs Frakklands í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Vel var mætt á viðburðinn, en hugmyndin var að gera eitthvað skemmtilegt með iðkendum okkar og þjappa þannig hópinn saman. Á síðustu misserum hefur félagið verið að vinna að stofnun píludeildar. Farið var í leit að hentugu húsnæði og var lendingin að fá húsnæði á leigu hjá Grundarfjarðarbæ að Grundargötu 30. Góðir sjálfboðaliðar hafa unnið gott starf við að útbúa aðstöðuna og hefur félagið hlotið styrki frá bæði Hvatasjóði UMFÍ og frá Lions til uppbyggingar á deildinni. Þá hafa einnig fyrirtæki og einstaklingar styrkt verkefnið til að gera það framkvæmanlegt. Við erum einnig heppin með þá fjölmörgu sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að eyða tíma sínum í að standsetja húsnæðið. Félagið hefur fest kaup á fjórum Scolia kerfum ásamt spjöldum og ætlum við að bjóða upp á píluæfingar fyrir börn og ungmenni þegar að aðstaðan er klár. Þá hefur skíðadeild UMFG unnið þrekvirki á árinu og safnað fyrir heilu aðstöðuhúsi. Húsið er nú komið upp og mun koma að góðum notum þegar snjórinn gerir loksins vart við sig. Við ætlum að enda árið á að halda badminton jólamót félagsins

gefið. Við viljum að lokum þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem eru alltaf boðnir og búnir að aðstoða félagið við hin ýmsu verkefni sem félagið tekur sér fyrir hendur. Fyrir hönd UMFG Ingibjörg Eyrún

Jólaspurningar

Íris Ósk Jóhannsdóttir Hvað kemur þér í jólaskap?

Jólaskapið kemur þegar Halldór og Íris setja upp stjörnuna fyrir utan hjá sér. Hver er þín fyrsta jólaminning?

Það var frekar óvenjulegt að pabbar væru við uppvaskið þegar ég var að alast upp, en pabbi vaskaði alltaf upp um jólin (þakklát fyrir breytta tíma).

Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

Ætli það séu ekki jólin sem við Sif fengum alveg eins kúrekaskó sem vakti mikla lukku enda vorum við mættar í göngu túr á jóladag í öllum sköflunum og hálkunni en komust heilar heim. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn?

Aspas súpan hennar mömmu. Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá þér?

Hver er þín uppáhalds jólaminning?

Styttist í það – Baggalútur.

Ég á dásamlegar minningar með elsku afa um jólin, við afi settum saman jólatréð okkar og skreyttum það alltaf saman.

Hvaða hefð finnst þér ómissandi á aðfangadag?

Að mæta til messu og fara í kirkjugarðinn.


Aðventan á Jaðri

Aðventan á Jaðri hefur verið viðburðarík en við höfum bæði gefið okkur tíma í rólegar jólastundir sem og skemmtilega jólastemmingu. Vikulega höfum við fengið nemendur úr 8. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar í heimsókn. Þetta er annað árið í röð sem við fáum að taka á móti krökkunum og er það undir þeim komið hvað þau vilja gera með íbúum. Í ár voru þetta fimm skipti og var bekknum skipt niður. Allir hóparnir kusu að spila og fór það svo að nemendur kenndu íbúum nýtískuleg spil og íbúar kenndu þeim sem ekki kunnu að spila Ólsen Ólsen. Við fengum einnig heimsókn á hverjum sunnudegi á aðventunni frá Davíð Guðmundssyni en hann hefur verið að semja hugvekjur sem hann deildi með íbúum. Krakkar af Leikskólanum Krílakoti sungu fyrir okkur í byrjun desember þegar þau voru á sinni árlegu jólaljósagöngu. Krakkarnir komu í tveimur hollum og fengu allir piparkökur og djús fyrir að deila þessum ljúfa söng með okkur. Þar að auki hélt Soroptimistafélag Snæfellsness Jólabingó á Jaðri í desember, við fórum á Jólaljósarúnt með stoppi á kaffihúsinu Elju, bökuðum jólasmákökur og svo margt fleira. Skógræktarfélag Ólafsvíkur hefur verið svo rausnarlegt undanfarin ár að gefa heimilinu tré sem stendur nú við nýja inngang hússins. Tréð er svakalega tignarlegt, skreytt með öllum regnbogans litum og hafa ófáir gestir hælt því. Við höfum nýtt hvert tækifæri

sem gefst til þess að gæða okkur á dásemdar jólaglöggi og sætindum sem Lionsklúbburinn Rán færði okkur í byrjun mánaðarins. Við héldum jólakvöldstund þar sem íbúum var boðið upp á jólaglögg, sungið var með jólalögum og að sjálfsögðu voru kræsingarnar á boðstólunum. Fiskmarkaður Snæfellsbæjar færði heimilinu síld sem íbúar munu gæða sér á næstu vikurnar. Síldin var smökkuð á litlu jólum Jaðars sem voru haldin 17. desember . Íbúar, matargestir og starfsmenn komu þá saman á hátíðlegri stundu og glöddust í góðra vina hópi. Anna matráður hafði borið á borð alvöru jólaveislu fyrir gesti. Fullorðnir nemendur úr Tónlistarskóla Snæfellsbæjar sungu og spiluðu á meðan fólkið naut matarins, Gerður Þórðardóttir las

skemmtilega jólasögu og svo komu jólasveinar með pakka fyrir íbúa. Starfsmenn Smiðjunnar færðu heimilinu jólaskraut og falleg kerti sem nýttust vel við þetta hátíðlega tilefni. Kvenfélag Ólafsvíkur styrkti heimilið fyrir stuttu og gaf nýtt sparistell. Gamla stellið var komið til ára sinna og mikil þörf að

skipta því út. Við erum þakklát og meir fyrir allar gjafir og heimsóknir sem okkur berast allt árið um kring og viljum koma því á framfæri að við finnum fyrir miklum kærleik frá velunnurum heimilisins. Takk kærlega fyrir okkur og gleðileg jól.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1187tbl_Jola by Steinprent - Issuu