Skip to main content

BaejarbladidJokull1183tbl

Page 1


Seinnipart sunnudagsins 23. nóvember barst björgunarsveitum á Snæfellsnesi útkall vegna einstaklings sem komist hafði í sjálfheldu neðan við Eyrarhyrnu, á milli

Kolgrafarfjarðar og Grundarfjarðar. Á myndinni má sjá hve erfiðar aðstæður hafa verið til björgunar en nánar er sagt frá verkefninu og fleiri myndir á innsíðum.

Á bæjarstjórnarfundi Snæfellsbæjar 18. nóvember var tillaga ráðningarnefndar Snæfellsbæjar um ráðningu nýs hafnarstjóra samþykkt. Ráðningarnefnd samþykkti samhljóða að ráða Þórð Tryggva Stefánsson í stöðuna. Þórður er með háskólapróf í rekstrarfræðum frá Samvinnuháskólanum á Bifröst frá 1990. Hann hefur yfir þrjátíu ára reynslu af stjórnunar- og rekstrarstörfum, meðal annars sem skrifstofustjóri hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur hf., framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsness hf. og sem sjálfstæður atvinnurekandi með rekstur Söluskála ÓK. Þórður hefur setið í hafnarnefnd bæjarins og gegndi þar formennsku um tíma. Hagvangur sá um umsóknarferlið og mat á umsækjendum fyrir hönd Snæfellsbæjar. Tólf umsóknir bárust um starfið.

Undur Snæfellsjökuls í Þjóðgarðsmiðstöðinni

Opnunarhátíð nýrrar fræðslusýningar í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi fór fram laugardaginn 22. nóvember. Sýningin ber nafnið Undur Snæfellsjökuls og er skemmtileg fræðsla um þjóðgarðinn, náttúruna og umhverfið. Undirbúningur sýningarinnar hófst í byrjun árs en hún er unnin í samstarfi við hönnunarfyrirtækið Yoke í Kaupmannahöfn. Margir lögðu hönd á plóg við þróun og uppsetningu sýningarinnar enda stórt verkefni sem unnið hefur verið að lengi. Sýningin samanstendur af skúlptúr af þjóðgarðinum sem er gætt lífi með ljósum og hljóðum úr náttúru svæðisins. Undir skúlptúrnum get börn fundið þrívíddar verur sem hafa á einn eða annan hátt tengingu við svæðið. Á veggjum eru fræðsluspjöld um menningu og náttúrulíf þjóðgarðsins

en einnig skjáir þar sem hægt er að hlusta á viðtöl við heimamenn. Til sýnis eru einnig mismunandi grjót og tegundir sands sem finna má á Íslandi. Stór skjár hefur vakið athygli margra gesta þar sem viðkomandi leikur tröll sem verður að steini við sólarupprás. Í sýningunni er því mikið um að vera og óhætt að segja að allir geti fundið eitthvað sem vekur áhuga. Við opnun sýningarinnar fluttu ávarp Ragnhildur þjóðgarðsvörður, Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Náttúruverndarstofnunnar, Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar og

Nína Aradóttir jöklajarðfræðingur og fræðslufulltrúi.

Díana Metta Guðmundsdóttir og Kolbeinn Henrý Ólafsson sáu svo um að klippa á borðann. JJ

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Að ntuhátíð

Hin árlega Aðventuhátíð Kvenfélags Ólafsvíkur verður haldin í Ólafsvíkurkirkju sunnudaginn 30. nóvember 2025 kl 18:00 ATHUGIÐ BREYTTAN TÍMA .

Á dagskránni verða tónlistaratriði, jólasaga, hugvekja, skólakórinn og eira.

Veitingar í safnaðarheimilinu að lokinni dagskrá.

He um að ntuna með n alegri stund í kirkjunni.

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

í Snæfellsbæ og Grundarfirði, Blaðið kemur út vikulega.

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

frammi

Tendrun ljósa á jólatrjám

Jólaljós verða tendruð við hátíðlega athöfn 30. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu, í Snæfellsbæ.

Nýtt fyrirkomulag var á viðburðinum í fyrra og verður viðburðurinn með sambærilegum hætti í ár.

Skipulagður hefur verið einn stærri jóla- og aðventuviðburður þar sem fjölskyldur í Snæfellsbæ sameinast um að tendra ljós og dansa í kringum jólatréð. Að þessu sinni verður viðburðurinn haldinn í Tröð á Hellissandi í samvinnu við Skógræktar- og landverndarfélagið undir Jökli.

Viðburðurinn hefst kl. 16:00 og eru allir íbúar velkomnir í huggulega fjölskyldu- og aðventustund í Tröð á Hellissandi fyrsta sunnudag í aðventu.

Vantar allar tegundir fasteigna á söluskrá.

Sérbýli, hæðir og íbúðir á Snæfellsnesi. Áratuga reynsla mín og ágæti minna samstarfsmanna hentar stórum hópi fólks í fasteignahugleiðingum. Traustir vinnuferlar ásamt Vildarkorti Lindar sem veitir 30% afslátt hjá stórum fyrirtækjum. Hringdu í mig ef þarf að selja fasteignir.

Nánari upplýsingar á www.fastlind.is

Aðventufögnuði frestað

Aðventufögnuði sem vera átti n.k. fimmtudag í Snæfellsbæ hefur verið frestað vegna veðurs. Veðurspár gera ráð fyrir norðaustan hvassviðri og það er ekki huggulegt veður til að rölta á milli verslana og þjónustuaðila.

Í auglýsingu sem birtist í síðasta tölublaði Jökuls voru bæjarbúar hvattir til að eiga notalega stund í heimabyggð, gera góð kaup og njóta lífsins fyrir jólin, verslanir og þjónustuaðilar ætla að hafa lengri opnunartíma og bjóða upp á ýmis tilboð.

Þegar þetta er skrifað er ekki búið að ákveða hvenær Aðventufögnuðurinn verður haldinn en upplýsingar um það munu birtast á heimasíðu Snæfellsbæjar og á samfélagsmiðlum.

Við hvetjum bæjarbúa til að heimsækja þjónustuaðila í

Hjörtur Ragnarsson, stjórnarmeðlimur í Golfklúbbnum Jökli Ólafsvík, hlaut nýlega viðurkenninguna sjálfboðaliði ársins hjá Golfsambandi Íslands árið 2025. Viðurkenningin var afhent á golfþingi GSÍ þann 15. nóvember síðastliðinn sem fór fram á Berjaya Reykjavik Natura hótelinu.

sveitarfélaginu því að með því að eiga viðskipti í heimabyggð styrkjum við rekstrargrundvöll verslana og aukum líkur á að þjónusta haldist í samfélaginu.

FRESTAÐ

Hjörtur hefur lagt á sig mikla vinnu fyrir golfklúbbinn og hefur unnið ásamt öðrum í nær sex ár að því að koma nýjum golfvelli á laggirnar. Hann hefur lagt ómælda vinnu, elju og alúð í verkefnið. Alla sumarmánuði hefur hann verið á nýja vellinum og unnið við að slá röffið, leggja vökvunarkerfi eða sinna öðrum nauðsynlegum verkum til að hægt sé að koma vellin -

um í gagnið. Hvar sem aðstoð vantar er Hjörtur klár til verks. Hann hefur forgangsraðað starfinu hjá golfklúbbnum fram yfir eigin þátttöku í golfmótum og valið að setja samfélagið og völlinn í fyrsta sæti. Hann hefur sýnt einstaka vinnusemi og áhuga á að styrkja golf hreyfinguna og klúbbinn sinn og fær því þessa verðskulduðu viðurkenningu fyrir. Hjörtur Guðmundsson, nafni hans, tók við viðurkenningunni fyrir Hjört Ragnarsson á golfþinginu sjálfu en á meðfylgjandi mynd er Hjörtur sjálfur kominn með viðurkenninguna í hendurnar.

SJ

Byggár.
Bílskúr
659 kr. kg.

Skrifstofa umboðsmanns barna hélt Barnaþing í Hörpu dagana 20. og 21. nóvember. Barnaþingið var haldið í fjórða skipti í ár en um 350 börn á aldrinum 11 til 15 ára fá boð um að sækja þingið. Börnin sem fengu boð voru valin með slembivali barna af öllu landinu úr Þjóðskrá. Með því viljum er stefnt að því að gefa börnum í þessum aldurshópi jafna möguleika á að sækja þingið og tryggja að fjölbreyttur hópur barna taki þar þátt. Kristinn Freyr Daðason frá Rifi var meðal þeirra barna sem fékk boð um þátttöku.

Á barnaþinginu voru réttindi barna rædd og börnum á Íslandi gefið tækifæri á að tjá skoðanir sínar, upplifanir og taka þátt í umræðum við fullorðna. Markmið barnaþings er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja

Barnaþing 2025

þau í umræðu um málefni sem snerta þau. Þingið var sett á Alþingi þann 20. nóvember, á alþjóðlegum degi barna, þar sem þau fengu að skoða þinghúsið, hitta forseta Alþingis og fræðast um þingstörfin. Þann 21. nóvember hittu börnin þingmenn í Hörpunni og áttu góðar umræður um símanotkun og fleiri málefni barna. Að lokum voru unnar tillögur um hvernig hægt sé að búa til betra samfélag fyrir börn. Niðurstöður barnaþings verða svo kynntar ríkisstjórninni sem mikilvægt framlag til stefnumótunar um málefni barna. Meðfylgjandi mynd er af Kristni Frey ásamt Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í Hörpunni.

SJ

RAF H LÖÐ UR Í REYKSKYNJARA

Um leið og lionsmenn bjóða happdrættismiða til sölu um næstu helgi munu þeir í samstarfi við Sjóvá bjóða íbúum Ólafsvíkur fríar rafhlöður í reykskynjara

H A P PA DRÆ T T I S MI Ð A R

Eins og undanfarin ár verður Lionsklúbbur Ólafsvíkur með leikfangahappadrætti fyrir börnin á aðfangadagsmorgun

LIONS

JÓLADAGATÖLIN

Gengið verður í hús í Ólafsvík um næstu helgi og lionsdagatölin boðin til sölu.

Verð kr. 800,-

Jólaljós

Gengið verður í hús og happdrættismiðar og dagatöl seld föstudag 28. nóv. og sunnudag 30. nóv verð kr.800

tendruð í Snæfellsbæ á sunnudag

Jólatrjám hefur nú verið komið upp í þéttbýliskjörnum Snæfellsbæjar. Senn líður að jólum en næstkomandi sunnudag er fyrsti sunnudagur aðventu og verða ljósin á trjánum þá tendruð að gömlum sið. Nýr háttur er á skipulagi viðburðarins í Snæfellsbæ en í stað þess að hafa tvo viðburði, einn á Hellissandi og einn í Ólafsvík eins og áður hefur ver-

ið, er skipulagður einn stærri jólaog aðventu viðburður fyrir samfé lagið í heild sinni. Í fyrra var við burðurinn haldinn í fyrsta sinn með þessum hætti, þá í Ólafsvík og í ár verður hugguleg fjölskyldu og aðventustund haldin í Tröð á Hellisandi. Þar verða jólaljósin tendruð, dansað í kringum jóla tréð, sungið og fagnað komu jól anna við hátíðlega athöfn.

Pólskur tryggingaráðgjafi í Ólafsvík

Við bjóðum pólskumælandi íbúum og fyrirtækjaeigendum í Ólafsvík og nágrenni að koma við í útibúinu okkar í Ólafsvík, Ólafsbraut 19 og fá persónulega ráðgjöf og þjónustu tengda tryggingum.

Þjónusturáðgjafinn Katarzyna Krolikowska verður á svæðinu miðvikudaginn 3. desember kl. 10∶00–16∶00.

Verið öll hjartanlega velkomin. Starfsfólk Sjóvá

Sjóvá Ólafsvík Ólafsbraut 19

3. desember kl. 10∶00–16∶00

Partýbingó UMFG

Blakdeild Ungmennafélags Grundarfjarðar hélt partýbingó síðastliðið laugardagskvöld. Partýbingóið fór fram í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og var það fjáröflunarkvöld fyrir deildina en allur ágóði kvöldsins fór í rekstur liðsins. Mikil stemning var á bingóinu, spilað var bingó, dregið úr happadrætti og leikmenn meistaraflokks kvenna sáu um að allir skemmtu sér vel. Þar að auki var treyja Önnu Maríu Reynisdóttir boðin upp en hún hefur verið lykilmaður í

liðinu til margra ára, verið valin íþróttamaður Grundarfjarðar og HSH og á farsælan feril í blakinu. Sala treyjunnar gekk vonum framar en bjóðendur sameinuðust um kaupin og greiddu samanlagt 415 þúsund fyrir treyjuna. Hinriki Konráðssyni, íþrótta og tómstundafulltrúa Grundarfjarðarbæjar, var afhent treyjan á skemmtikvöldinu og mun hún verða römmuð inn og hengd upp í íþróttahúsi Grundarfjarðar. SJ

Akstursstyrkur

Vélarbilun í Hildi SH

Skipið Hildur SH 777 í eigu Hraðfrystihúss Hellissands bilaði norðvestur af Skaga, sem er nesið á milli Húnaflóa og Skagafjarðar, sunnudaginn 23. nóvember. Rétt fyrir klukkan 10 að sunnudagsmorgni barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar aðstoðarbeiðni frá Hildi SH 777 vegna bilunar í vél skipsins. Áhöfn björgunarskipsins Húnabjargar á Skagaströnd var kölluð

vegna íþróttaog tómstundaiðkunar barna

Íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar geta sótt árlega um sérstakan akstursstyrk til að koma til móts við kostnað sem fellur til vegna aksturs barna til Ólafsvíkur eða Hellissands í íþróttaog tómstundaiðkun.

Árlegur styrkur er nú 40.000 krónur og skulu umsóknir berast bæjarritara í tölvupósti.

Í umsókn þarf að koma fram nafn foreldris / forráðamanns, nafn barns / barna, kennitala og reikningsnúmer þar sem leggja á styrkinn inn.

Einnig þarf að fylgja staðfesting um að barn sé skráð í tómstundaiðkun norðan heiða.

Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433 6900 eða á netfanginu lilja@snb.is

út og var björgunarskipið komið að Hildi um hádegisbil. Skamma stund tók að koma taug á milli skipana og var stefnan svo sett til Skagastrandar. Hildur er töluvert stærra skip en Húnabjörgin og um klukkan sjö að sunnudagskvöldi var Húnabjörgin enn að mjaka Hildi inn til hafnar á Skagaströnd, tæpum átta tímum eftir útkall.

Vill þitt fyrirtæki taka á móti gjafabréfum frá Snæfellsbæ?

Í ár tekur Snæfellsbær upp nýtt fyrirkomulag við jólagjafir starfsfólks sem miðar að því að gleðja starfsfólk í aðdraganda jóla, veita því val um nýtingu og styrkja starfandi fyrirtæki og þjónustuaðila í sveitarfélaginu.

Snæfellsbær auglýsir því eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Snæfellsbæ sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsfólks Snæfellsbæjar.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin frá 15. desember 2025 til 30. júní 2026.

Skráningarfrestur fyrirtækja er til 30. nóvember 2025.

Nánari upplýsingar veitir Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi, í síma 866 6655 eða á netfanginu heimir@snb.is

Skráning fyrirtækja fer fram í sama netfangi.

Styrkir á Snæfellsnes úr Hvatasjóði

Tvö verkefni af Snæfellsnesi hlutu styrk úr Hvatasjóði UMFÍ fyrir stuttu. Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn. Er þetta þriðja úthlutun úr sjóðnum á árinu en styrkþegar voru tilkynntir 20. nóvember síðastliðinn. UMFG sótti um og fékk styrk 500.000 króna styrk fyrir uppbyggingu píludeildar innan félagsins. Stjórnarmeðlimir félagsins hafa unnið hörðum höndum undanfarið að stofnun deildarinnar og byggja upp aðstöðu fyrir deildina. Þegar aðstaðan verður tilbúin mun félagið bjóða upp á barna og ungmennastarf en Pílufélag Grundarfjarðar mun einnig nota þá aðstöðu. UMFG sótti einnig um styrk til Lionsklúbbs Grundarfjarðar sem

styrktu deildina um 300.000 krónur.

HSH sótti um styrk í Hvatasjóð og fékk 300.000 krónur til þess að efla samstarf íþróttafélaga á Snæfellsnesi. Verkefnið kalla þau Sterkara samstarf – Sterkara Snæfellsnes.

52 verkefni fengu styrki úr sjóðnum í þessari úthlutun fyrir 27,8 milljónir króna. 71 umsóknir bárust í heildina.

Á meðfylgjandi mynd eru vinkonurnar Kolfinna og Berdís þegar þær tóku þátt í Stjörnuleikunum „Allir með“ í Stykkishólmi. Verkefnið er einnig styrkt af Hvatasjóði UMFÍ ásamt fleirum. Stjörnuleikarnir er skemmtilegur íþróttadagur sem er hugsaður fyrir börn á öllum aldri með sérþarfir og þau börn sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi. Lukkudýr „Allir með” verkefnisins er ofurskemmtilega fígúran Sóli og er hann með þeim á myndinni.

JJ

Útkall vegna göngumanns í sjálfheldu

Seinnipart sunnudagsins 23. nóvember barst björgunarsveitum á Snæfellsnesi útkall vegna einstaklings sem komist hafði í sjálfheldu neðan við Eyrarhyrnu, á milli Kolgrafarfjarðar og Grundarfjarðar.

Sjö félagar frá Lífsbjörg tóku þátt í verkefninu ásamt félögum úr Björgunarsveitunum Klakk frá Grundarfirði og Elliða frá Eyja- og Miklaholtshreppi. Einstaklingur sem hafði verið á göngu í Kórklettum hafði runnið niður þar sem töluverð ísing var á steinum og grjóti og því krefjandi hálka í brattlendinu. Göngumaðurinn var ekki í nægilega öruggri aðstöðu til að komast upp né niður og kallaði því til aðstoðar björgunarsveitanna. Meðlimir Klakks voru fyrstir á svæðið og komust fljótt að einstaklingnum sem var þar í sjálfheldu á meðan meðlimir Lífsbjargar og Elliða báru frekari búnað og línur upp fjallið. Sveit-

viðeigandi tryggingum var lokið treysti einstaklingurinn sér til að síga niður með aðstoð björgunarsveitarmanna. Björgunin gekk fljótt og örugglega fyrir sig og vel gekk að koma einstaklingnum úr hættu og niður hlíðina. Um hálftíma eftir að sjálfboðaliðar hófu að aðstoða einstaklinginn við að síga niður voru þau komin að björgunarsveitabílunum.

Aðstæður voru ágætar og viðraði vel en tók að dimma þegar leið á björgunaraðgerðir. Meðferðis hafði björgunarsveitin Klakkur vel útbúinn dróna með öflugri hitamyndavél sem meðal annars er hægt að nýta til að staðsetja einstaklinga í aðstæðum sem þessum. Björgunaraðgerðir gengu eins og best verður á kosið og áttu sveitirnar af nesinu sem tóku þátt í þessari björgun virkilega gott samstarf. Meðfylgjandi myndir eru í eigu björgunarsveitarinnar Lífsbjargar og björgunar-

Launafólk athugið

DESEMBERUPPBÓT 2025

Félagsmenn Verkalýðsfélags Snæfellinga eiga rétt á desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum.

Desemberuppbót miðað við fullt starf er:

Starfsmenn á almennum markaði - 110.000 krónur. Greiðist eigi síðar en 15. desember

Starfsmenn ríkisins - 110.000 krónur. Greiðist 1. desember ár hvert.

Starfsmenn sveitarfélaga - 140.000 krónur. Greiðist eigi síðar en 1. desember.

Members of the union Verkalýðsfélag Snæfellinga are entitled to a December bonus according to collective agreements. The December bonus according to a full time job is:

Employees of the general labour market – 110.000 kr.

Employees of the government – 110.000 kr.

Employees of the municipality - 140.000 kr.

Sædís norskur

- Bílaviðgerðir

- Skipaþjónusta

- Almenn suðuvinna

- Smurþjónusta

- Smábátaþjónusta

- Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is

S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Efni og auglýsingum í Jökul

þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.

Það er í lagi að skila fyrr. norskur bikarmeistari í fótbolta. Lið hennar, Vålerenga, sigraði lið Rosenborg 2-0 í bikarúrslitum síðastliðinn sunnudag. Er þetta annað árið í röð sem liðið hlýtur þennan titil. Sædís lék fyrri hálfvinnumennsku í tvö ár og unnið þrjá titla en hún varð einnig norskur meistari með liðinu í fyrra. Næsti leikur Sædísar er á móti París FC í Meistaradeildinni. JJ

AEG og Samsung ryksugur Verð frá 17.900,-

Samsung sjónvörp í úrvali:

50” frá

55” frá

65” frá

75” frá 99.990,89.990,114.990,159.990,-

AEG þvottavél 7000, 9kg, svört Verð: 129.900,-

AEG þurrkari 9000, 9kg, svartur Verð: 149.900,-

AEG þurrkari og þvottavél saman Verð: 259.990,-

VERSLUN ÓLAFSVÍK

Ólafsbraut 19 - s. 436 1214 - olafsvik@hampidjan.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook