Skip to main content

BaejarbladidJokul1222tbl

Page 1

1222. tbl - 26. árg.

23. september 2026

s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Réttir hafnar á Snæfellsnesi

Réttir eru hafnar víða um land og er Snæfellsnes engin undantekning, réttað var um liðna helgi á norðanverðu Snæfellsnes og um næstu helgi verður réttað að sunnanverðu. Myndina tók Ísabella Una Halldórsdóttir í Þæfusteinsrétt, á innsíðum blaðsins má finna fleiri myndir frá réttum.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111


Sögugerð í grunnskólanum Í haust hafa nemendur 4. bekkjar í Grunnskóla Snæfellsbæjar unnið með sögugerð. Nemendur lásu og kynntu sér Herramannabækurnar eftir Roger Hargreaves með því að skoða innihald textans, myndirnar og sérstaklega heiti sögupersónanna sem endurspeglast í bókunum. Eftir að hafa lagt mikla vinnu í undirbúning og kynningarvinnu var komið að þeim að láta reyna á að búa til sína eigin sögu um Herramennina. Nemendur 4. bekkjar sköpuðu persónu og skrifuðu sögu sem passaði við heiti þeirra persónu. Þau teiknuðu persónuna í stíl upprunalegu bókanna. Sagan var síðan sett inn í bók í sömu stærð og Herramannabækurn-

ar og myndskreyttu nemendur bækurnar með sínum teikn-

ir samtal ungmenna við ráðamenn. Þá er þetta frábært tækifæri til að kynnast öðrum ungmennum, njóta og hafa gaman. Þátttakendur munu ræða stöðu ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum auk þess sem boðið verður upp á kynningar sem tengjast málefnum ungs fólks og ungmennaráða. Fjöldi þátttakenda um helgina er takmarkaður við 40 ungmenni en Snæfellsbær mun eiga 5 fulltrúa á þinginu og Grundarfjarðarbær einn. SJ

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

nutu góðs af og fengu að hlýða á sögurnar. Meðfylgjandi myndir eru frá Grunnskóla Snæfellsbæjar.

SJ

Síðasta skip sumarsins

Ungmennaþing haldið í Borgarnesi Ungmennaþing Vesturlands verður haldið í Borgarnesi næstkomandi helgi, 25 til 27.september. Ungmennaþingið er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV. Það er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands og er ætlað ungu fólki á aldrinum 14 til 25 ára. Markmið með þinginu er að fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman, stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks á öllu Vesturlandi og skapa vettvang fyr-

ingum. Eftir þetta skapandi og skemmtilega verkefni fegnu nemendur 4. bekkjar að lesa afraksturinn upp fyrir bekkjarfélaga sína auk þess sem 1., 2. og 3. bekkur

Þriðjudaginn 22. september lagði síðasta skemmtiferðaskip sumarsins leið sína í Grundarfjarðarhöfn. Töluverð umferð hefur verið af skemmtiferðaskipum um Breiðafjörðinn í sumar og er Grundarfjarðarhöfn orðinn vinsæll áningarstaður en þar stoppuðu 75 skemmtiferðaskip á tímabilinu 17. maí til 22. september. Þetta síðasta skip heitir Spitsbergen og var í sinni þriðju heim-

sókn til Grundarfjarðar. Skipið er 100,54 metrar að lengd, 22,27 metrar að breidd og tekur 335 farþega auk 65 starfsmanna. Grundarfjarðarhöfn er um þessar mundir kynnt markvisst fyrir erlendum ferðaþjónustuaðilum. Höfnin býður upp á einstaka aðstöðu í hjarta Breiðafjarðar, í návígi við Kirkjufell og þá fjölbreyttu náttúru og upplifun sem Snæfellsnes hefur fram að færa. SJ


Helluhóll 14c á Hellissandi laust til leigu fyrir 60 ára og eldri

Snæfellsbær auglýsir lausa til umsóknar endaíbúð í raðhúsum við Helluhól 14 á Hellissandi. Húsið er um 122 fermetrar að meðtöldum innbyggðum bílskúr.

Lýsing:

Skipulag er opið og gott, íbúðarrými er samtals um 91 fermetrar og bílskúr um 31 fermetrar.

3 svefnherbergi Gólfhiti Upptekin loft Steypt bílaplan Sólpallur Parket og flísar á gólfum Innbyggð raftæki í eldhúsinnréttingu

Húsið er fullbúið með flísalögðu baðherbergi ásamt flísum á þvottahúsi og bílskúr. Önnur gólf eru parketlögð. Húsið stendur til boða sem leiguíbúð fyrir 60 ára og eldri. Húsið er laust til afhendingar. Nánari upplýsingar veita Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, og Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í netföngunum kristinn@snb.is og lilja@snb.is. Einnig hægt að nálgast þau í síma 433 6900 á opnunartíma Ráðhúss Snæfellsbæjar.

Snæfellsbær


Þorrablótsnefnd 2026 hefur loksins lokið störfum Nefndin kom fyrst saman á haustdögum 2025 og ákvað nokkur föst atriði, en það var ekki fyrr en á milli jóla og nýárs sem alvara var komin í nefndina, enda fullt af ungu og efnilegu fólki sem stóð að þorrablótinu í Klifi í ár. Æfingar gengu vel og kom Dóra Unnars inn á lokametrunum og slípaði okkur aðeins til. Góð mæting var á blótið og átti nefndin smá hagnað frá fyrra ári og nú. Því var farið í það að fjárfesta í tveimur sjónvörpum, sextán nýjum kösturum á sviðið og tveimur fjarstýrðum kösturum í sal. Nefndarmenn sáu svo um að koma þessu á sinn stað og var sú vinna kláruð nú um helgina. Arna Tómasdóttir og Máni Þorkelsson sáu um að panta ljósin og segja þau að þessi ljós ættu að nýtast vel í Klifinu við ýmsa viðburði. Við þökkum kærlega fyrir okkur og óskum nýrri nefnd velfarnaðar enda af nógu að taka. Fróðhreppingafélagið Kvenfélag Ólafsvíkur Leikfélagið Lauga Lionsklúbbur Ólafsvíkur Lionsklúbburinn Rán

Fjólublár bekkur í Ólafsvík

Víða um landið má sjá fjólubláa bekki en tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun. Vitundarvakning og umræða er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu. Bekkirnir eru verkefni Heilahjálpar, sam-

taka um heilabilun sem stofnuð voru árið 1985. Hlutverk samtakanna er að gæta hagsmuna einstaklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra. Samtökin vinna að því að auka skilning stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim áskor-

unum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra glíma við frá degi til dags og með fjólubláu bekkjunum vekja þau athygli á málstaðnum. Nú er Ólafsvík komin í hóp 34 annarra staða á landinu sem hýsa slíkan bekk en honum hefur verið

komið fyrir á blettinumi þar sem Átthagastofan stóð við Kirkjutún. Til stendur að fara í frekar framkvæmdir á lóðinni en í millitíðinni er hægt að fá sér sæti á fjólubláum bekknum, ná andanum og draga að sér ferskt sjávarloftið. SJ


Réttir Fjölmenni var í réttunum um liðna helgi en réttað var víða. Í Snæfellsbæ var réttað í Ólafsvíkurrétt, Þæfusteinsrétt á Rifi og í Tungurétt og í Grundarfirði var réttað á Mýrum og í Hrafnkelsstaðarétt. Leitarfólk og bændur fóru tímanlega af stað í blíðskaparveðri og gerði fjöldi fólks sér svo ferð í réttirnar sjálfar þar sem ýmist var fylgst með gangi mála eða aðstoðað við að reka féð. Það var að vanda líf

og fjör við réttirnar, boðið var upp á veitingar fyrir svanga dugnaðarforka sem höfðu tekið þátt í smalamennskunni sem og þau sem fylgdust með. Réttað verður Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Grafarrétt í Breiðuvík, Klofningsrétt í Beruvík og Ölkeldurétt í Staðarsveit laugardaginn 26. september. Þá fara seinni leitir á Mýrum og Hrafnkelsstaðarétt fram laugardaginn 3. október. SJ

Ljósm: Hafsteinn

Ljósm: Finnur Gauti

Ljósm: Guðrún Kolbrún

Ljósm: Pétur Steinar

Ljósm: Pétur Steinar

Ljósm: Finnur Gauti

Ljósm: Hafsteinn

Ljósm: Sigurborg Kristín

Ljósm: Sverrir

Ljósm: Sverrir


Íþróttavika Evrópu í fullum gangi Dagana 23. til 30. september mun Íþróttavika Evrópu eða European Week of Sport fara fram. Íþróttavikan er haldin ár hvert í yfir 40 löndum en markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. ÍSÍ, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, hefur undanfarin ár hlotið styrk í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins vegna Íþróttaviku Evrópu. Grundarfjarðarbær og Snæfellsbær taka þátt í Íþróttavikunni líkt og undanfarin ár. Snæfellsbær gerir sömuleiðis heilsu hátt undir höfði þessa vikuna og heldur heilsuviku Snæfellsbæjar í níunda skipti samhliða Íþróttaviku Evrópu. Í heilsuvikunni er lögð áhersla á að kynna íþróttir, hreyfingu og heilsutengda viðburði sem eru nú þegar í boði í Snæfellsbæ og standa vonir til að allir geti fundið viðburð við hæfi eða sem vekur áhuga. Jafnframt býður Snæfellsbæjar frítt í sund alla vikuna og þá

verða áhugaverðir fyrirlestrar og sérfræðingar á svæðinu sem vert er að kynna sér. Íbúar eru hvattir til að nýta vikuna og skella sér í sund, stunda útivist eða aðra hreyfingu og anda að sér fersku lofti. Auk ýmissa viðburða taka fjölmörg fyrirtæki þátt í Heilsuvikunni með afsláttum á íþrótta- og heilsutengdum vörum, hvort sem það tengist líkamlegri heilsu, andlegri heilsu, heilbrigðum matarvenjum eða heilsusamlegum lífsstíl. Heilsuvikan snýst um meira en bara hreyfingu og eru öll hvött til að hreyfa sig, brosa, hafa gaman og taka þátt í þeim fjölbreyttu viðburðum sem boðið verður upp á. Heilsuvikan er kjörið tækifæri til að nýta vikuna til að gera eitthvað gott fyrir líkama og sál, koma sér upp góðum venjum og styðjum um leið við fyrirtæki í heimabyggð. Dagskrá fyrir heilsuvikuna í Snæfellsbæ má finna í blaðinu. Meðfylgjandi mynd er frá krakkafit æfingu í crossfitstöðinni CF Snb á Rifi. SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Dragnót í september Vefsíðan Aflafréttir er íslenskur vefmiðill og fréttavefur sem fjallar meðal annars um sjávarútveg og aflabrögð. Þar er reglulega birtar aflatölur og listar með yfirliti og tölfræði um afla fiskiskipa og báta. Mánudaginn 21. september birti Gísli Reynisson, umsjónarmaður Aflafrétta, lista um veiði dragnótaskipa það sem af er september. Sagði hann að góð veiði væri víða um land hjá bátunum, 32 dragnótabátar eru á listanum og 13 þeirra eru frá Snæfellsbæ. Þrír bátar á landsvísu eru komnir með yfir 170 tonna afla það sem af er mánuðinum. Þessir þrír bátar eru allir úr Snæfellsbæ en allir eru þeir á veiðum fyrir norðan, að mestu að eltast við ýsuna. Efstur á lista er Bárður SH 81 með 184,5 tonn í heildarafla í september eftir 14 róðra en Bárður hefur verið að landa á Hvammstanga og Skagaströnd. í 2. sæti á listanum er Magnús SH 205 sem hefur verið að landa á

Skagaströnd, með 177,9 tonn í heildarafla eftir 16 róðra. Númer 3 á listanum er svo Hildur SH 777 með 172,4 tonn í september eftir 7 róðra og landar Hildur á Skagaströnd þessa dagana. SJ

Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617


Landsmót slysavarnadeildanna í Vestmannaeyjum 2026 Dagana 11.–13. september héldu félagar úr slysavarnadeildunum Sumargjöf og Helgu Bárðar til Vestmannaeyja á Landsmót slysavarnadeildanna. Þar sameinuðust slysavarnafélagar víðs vegar að af landinu í fræðandi og skemmtilegri helgi. Það var slysavarnadeildin Eykyndill í Vestmannaeyjum sem sá um Landsmótið að þessu sinni og á deildin miklar þakkir skildar fyrir frábærar móttökur og vel skipulagða dagskrá. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, setti mótið formlega á föstudeginum og þar með var helgin komin af stað. Á laugardeginum var boðið upp á fjölbreyttar og áhugaverðar málstofur. Við gátum valið úr fræðslu um meðal annars slysavarnir og verkefni, æskulýðs- og félagsstarf, Neyðarlínuna, lýðheilsu kvenna, grindarbotninn og boccia. Málstofurnar voru góð leið til að fræðast, fá nýjar hugmyndir og deila reynslu sem nýtist í mikilvægu starfi slysavarnadeildanna. Um kvöldið var svo komið að hátíðarkvöldverði og skemmtun í Höllinni. Þar sáu leikkonurn-

ar og meðlimir hljómsveitarinnar Heimilistónar, Elfa Ósk Ólafsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir, um veislustjórn og veislugestir fengu að njóta hljómsveitarinnar Brimnes, sem lék fyrir dansi í sannkölluðum þjóðhátíðaranda. Helgin var því blanda af fræðslu, samveru, hlátri, góðum félags-

Styrktartónleikar í kirkjunni

Í tilefni að 60 ára afmæli Ólafsvíkurkirkju langar Sóknarnefnd Ólafsvíkur að setja upp nýtt eldhús og ýmislegt fleira til þess að bæta aðstöðuna. Því hefur nefndin ákveðið að bjóða til notalegra styrktartónleika fimmtudaginn 24. september klukkan 19:30. Fram koma einsöngvarar, tónlistaratriði, Skólakór Snæfellsbæjar, Kirkjukór Ólafsvíkur og óvænt atriði. Á tónleikunum verða nýir hátalarar

skap og skemmtun. Það er alltaf dýrmætt að hitta félaga úr öðrum slysavarnadeildum, kynnast því sem þau eru að gera og sækja sér innblástur fyrir áframhaldandi starf heima í héraði. Við í SVD. Sumargjöf og Helgu Bárðar þökkum Eykyndli kærlega fyrir frábært Landsmót og einstaklega góðar móttökur í Eyjum. Við komum heim með fullt af góðum minningum, nýjum hugmynd-

um og enn meiri áhuga á mikilvægu starfi slysavarnadeildanna. Við viljum koma því á framfæri að það er alltaf pláss fyrir fleiri þátttakendur í deildunum. Næsta Landsmót verður haldið á Ísafirði 2028. F.h. svd Sumargjafar Irma Dögg Toftum, formaður.

F.h. svd Helgu Bárðadóttir Rebekka Unnarsdóttir, formaður.

Bændaglíma Vestarr

einnig vígðir sem kirkjan fékk að gjöf. Það verður ekki formlegur aðgangseyrir en tekið verður við frjálsum framlögum við inngang. Eftir tónleikana verður boðið upp á kaffi og djús í safnaðarheimilinu. Þeir sem sjá sér ekki fært að koma en vilja styrkja er bent á reikning Ólafsvíkurkirkju rkn. 0194-26-76 og kennitalan er 5002694999. JJ

Bændaglíma Vestarr fór fram á Bárarvelli sunnudaginn 20. september. 13 leikmenn tóku þátt í mótinu, þau Anna María Reynisdóttir og Ásgeir Ragnarsson voru bændur og drógu þau í lið. Leikið var 18 holur í Texas fyrirkomulagi og var það lið Önnu Maríu sem fór með sigur úr býtum. Að keppni lokinni var grillað hamborgara og pylsur við golfskálann og gert upp starfsárið. Garðar Svansson fór yfir árið sem var að líða, framkvæmdir,

mót og árangur Vestarr. Þá þakkaði hann starfsfólki, sjálfboðaliðum og velunnurum fyrir allt það frábæra starf og framlag á árinu til klúbbsins og vallarins. Anna María Reynisdóttir, gjaldkeri Vestarr, sagði þá frá því að þann 18. september hafi síðasta greiðsla á láninu vegna kaupa á Grundarfjarðarvelli verið greidd og því væri Vestarr skuldlaus. Meðfylgjandi mynd er frá Golfklúbbnum Vestarr af þátttakendum Bændaglímunnar. SJ


23. - 30. september 2026

Dagskrá íþróttaviku Evrópu og Snæfellsbæjar 2026 Skógræktarskokk - 23. september kl. 17:00 Hlaupahópur Snæfellsbæjar leiðir létt skokk frá íþróttahúsinu í skógræktina í Ólafsvík. Danskvöld með Jóni Pétri - 23. september kl. 20:00 Stórkostlegt kvöld með Jóni Pétri í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Dans, skemmtun og gleði fyrir fullorðna. Hundaganga - 24. september kl. 17:00 Hundaganga frá Hundahorninu á Rifi. Allir í taum og gengið hringinn í kringum Rif. Dívurnar í sundlauginni - 23. og 28. september kl. 17:45 Hress hópur kvenna stundar sundleikfimi tvisvar í viku. Allar konur velkomnar. Kennari er Suad Begic. Kvennablak - 23. og 28. september kl. 18:10 Öflugur hópur stundar blak tvisvar í viku. Vel er tekið á móti öllum konum sem vilja mæta á æfingar. Sundleikfimi eldri borgara - 24. og 29. september kl. 10:50 Líf og fjör í sundlauginni og heimsmálin rædd í heita pottinum. Tímarnir eru undir handleiðslu Suad Begic.

Alla vikuna ætlar Ungmennafélagið Víkingur að bjóða krökkum upp á holla og hressa næringu eftir æfingar.

frítt í

sund alla vikuna

Heilsumiðstöðin Lind Anna Björk hjá Heilsmiðstöðinni Lind í Ólafsvík hefur skipulagt glæsilega viðburði hjá sér og hefur fengið fagaðila til að koma vestur og bjóða upp á sérfræðiþjónustu sína hér í Snæfellsbæ frá 23. 30. september. Meðal annars er hægt að fara í Bowen meðferð, höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, kviðnudd, stjörnuspekilestur, heilun, tarot lestur og englareiki. Nánari upplýsingar má finna hjá Önnu Björk í síma 865-7786 eða á Facebook-síðunni Bowen Anna.

Eldri borgarar í íþróttahúsinu - 25. og 28. september kl. 10:50 Opinn tími fyrir eldri borgara í Snæfellsbæ. Allir velkomnir. Fyrirlestur í Heilsumiðstöðinni Lind - 27. september kl. 20:00 Kynning í Heilsumiðstöðinni Lind um kviðnudd og hugleiðslu inn á innri líffæri líkamans með Höllu Himintungl. Hámarksfjöldi 22 - skráning hjá Önnu Björk.

Við bendum á glæsilega dagskrá CF SNB. Frítt í stöðina alla vikuna. Sólarsport verður með fría kennslu í tækjasal 23. - 25. september frá kl. 13:00 - 14:00. Ýmis fyrirtæki í Snæfellsbæ verða með afslætti og tilboð á heilsutengdum vörum alla vikuna.

Þú ert frábær! Fyrirlestur 28. september Peppandi fyrirlestur um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu með Kristjáni Hafþórssyni sem hefur haldið áhrifaríka fyrirlestra um allt land á síðustu árum auk þess sem hann heldur úti hlaðvarpinu Jákastið. Fyrirlestur fyrir ungmenni frá kl. 17:00 - 18:00 Opinn fyrirlestur fyrir íbúa frá kl. 20:00 - 21:00 Fyrirlestrarnir eru Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokul1222tbl by Steinprent - Issuu