

Jólaljósin tendruð

Sunnudaginn 30. desember voru tæplega 300 manns saman komin í skógræktinni Tröð á Hellisandi. Tilefnið var fyrsti sunnudagur aðventu en líkt og undanfarin ár er tendrað á ljósum á jólatrjám sveitarfélaga á þessum degi. Eins og flestum er kunnugt

er nýr háttur er á skipulagi tendr un jólatrjáa í Snæfellsbæ. Í stað þess að hafa tvo viðburði, einn á Hellissandi og einn í Ólafsvík eins og áður hefur verið, er nú skipulagður einn stærri jóla- og aðventu viðburður fyrir samfélagið í heild sinni. Í fyrra fór við-
Við erum byrjuð taka á móti jólakveðjum í jólablað Jökuls. Vinsamlegast hafið samband fyrir föstudag 19. desember steinprent@simnet.is og 436 1617
en nú var gleðin færð í Tröðina á Hellissandi. Þó skína ljósin skært á þremur hefðbundnu trjám Snæfellsbæjar, við Höskuldarbraut á Hellissandi, við tjörnina á Rifi og á Sáinu í Ólafsvík.
Þann fyrsta í aðventu voru ljósin á stæðilegu tré í Tröð tendruð, fjölmenni var á skógræktarsvæðinu en þó að hvassviðri hafi gengið yfir norðanvert Snæfellsnesið þennan dag var skjólsælt í Tröðinni. Anna Þóra Böðvarsdóttir og Lúðvík Smárason, hjónin á Gilbakka, seldu köldum en sælum gestum heitt súkkulaði og börn og fullorðnir léku sér í nýföllnum snjónum sem kom eins og pantaður aðfaranótt fyrsta í aðventu.
Jón Haukur Hilmarsson setti tón-
inn og spilaði og söng á meðan gengið var í kringum jólatréð en það var Ægir Þór Þórsson, eigandi Topphljóð, sem sá til þess að tónlistin skilaði sér um alla skógræktina. Þegar gengið hafði verið nokkra hringi í kringum litríkt tréð mættu rauðklæddir vinir til byggða, tóku sporið með börnunum og komu sér svo fyrir með pokana sína og færðu börnum og öðrum sem höfðu sýnt sínar bestu hliðar sælgæti og mandarínur. Í veðurblíðunni og jólalegu umhverfinu voru eflaust fáir sem ekki fundu jólaandann en viðstaddir héldu heim með bros á vör, tilbúin að halda inn í nýhafna aðventu og hátíð ljóss og friðar. SJ
jólatónleikar kóranna á snæfellsnesi
Jólatónleikaröð Kóranna á Snæfellsnesi voru haldnir í síðustu viku í Ólafsvíkurkirkju, Grundarfjarðarkirkju og í Stykkishólmskirkju. Tónleikarnir eru sameiginlegt verkefni Karlakórsins Kára, Kirkjukórs Grundarfjarðarkirkju, Kórs Ingjaldshólskirkju, Kirkjukórs Ólafsvíkur og Kórs Stykkishólmskirkju. Stjórnendur og meðleikarar voru þau Elena Makeeva, László Petö, Linda María Nielsen, Þorkell Máni Þorkelsson og Veronica Osterhammer. Kórarnir tóku hátíðleg lög í bland við hressa jólaslagara. Veronica Osterhammer og Linda María Nielsen sungu einsöng á tónleikunum og Anastasia Kiakhidi flutti einleik á flautu. Góð mæting var á alla þrjá tónleikana sem komu hlustendum án efa í jólaskap.


Íslandsmót ungmenna

Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
ember í Miðgarði í Garðabæ. Alls tóku 97 keppendur þátt sem kepptu í fimm aldursflokkum og voru tíu Íslandsmeistarar krýndir, strákar og stelpur. Taflfélag Snæfellsbæjar átti þar tvo fulltrúa, þá Kristófer Óskarsson og Viglund Orra Heimisson. Þeir kepptu í U12 ásamt 17 öðrum drengjum og 3 stelpum og stóðu þeir sig virkilega vel.
drengja í flokknum og Kristófer fór með 3,5 vinninga úr 7 umferðum og lenti í 8. sæti drengja. Þeir mega vera virkilega stoltir af þessum árangri á mótinu og er það greinilegt að skákkennslan hjá Taflfélagi Snæfellsbæjar og markvissar æfingar iðkenda eru að skila sér.
Pólskur tryggingaráðgjafi í Ólafsvík
Við bjóðum pólskumælandi íbúum og fyrirtækjaeigendum í Ólafsvík og nágrenni að koma við í útibúinu okkar í Ólafsvík, Ólafsbraut 19 og fá persónulega ráðgjöf og þjónustu tengda tryggingum.
Þjónusturáðgjafinn Katarzyna Krolikowska verður á svæðinu miðvikudaginn 3. desember kl. 10∶00–16∶00.
Verið öll hjartanlega velkomin. Starfsfólk Sjóvá
Sjóvá Ólafsvík Ólafsbraut 19

3. desember kl. 10∶00–16∶00
hestamannafélagsins Snæfellings
Uppskeruhátíð hestamanna félagsins Snæfellings fór fram í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík föstudaginn 28. nóvember síðast liðinn. Starfssvæði hestamanna félagsins Snæfellings er Snæfells nes- og Hnappadalssýsla og komu félagsmenn saman í Ólafsvík til að gera upp keppnisárið. Hefð er fyrir því að veita knöpum í barna, unglinga og ungmenna flokki í félaginu hvatningarverð laun fyrir þátttöku í mótum á af stöðnu tímabili auk þess sem veitt er viðurkenningar fyrir efstu hrys surnar og efstu hestana í hverj um flokki. Þá voru veitt verðlaun fyrir knapa ársins, Þotuskjöldinn fyrir óeigingjarnt starf innan fé lagsins og ræktunarbú ársins hjá Snæfelling.
Knapar sem hlutu viðurkenn ingu í barnaflokki voru þær Tinna Unnsteinsdóttir og Bjartey Ebba Júlíusdóttir. Í unglingaflokki hlutu þau Ari Gunnarsson Osterhammer, Haukur Orri Heiðarsson Bergmann, Sól Jónsdóttir, Elín Una Eggertsdóttir, Kristín Lára Eggertsdóttir og Rebecca Luise Lehmann viðurkenningu. Knapar sem hlutu svo viðurkenningu í ungmennaflokki voru þær Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir, Hera Guðrún Ragnarsdóttir og Valdís María Eggertsdóttir.


Efsta 5 vetra hryssan var Ísbrá frá Stykkishólmi, í eigu Elísabetar Láru Björgvinsdóttur og Valntínusar Guðnason. Efsta 6 vetra hryssan var Blíða frá Bergi í eigu Önnu Dóru Markúsdóttur og Jóns Bjarna Þorvarðarsonar og efsta hryssan í flokki 7 vetra og eldri var Sjá frá Hömluholti en ræktandi hennar er Gísli Guðmunds-
Efni og auglýsingum í Jökul
þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.
Það er í lagi að skila fyrr.
son og eigendur Björn Haukur Einarsson og Forsæti ehf. Þá var efsti 4 vetra hesturinn Garpur frá Bergi, ræktandi og eigandi hans er Jón Bjarni Þorvarðarson. Efsti 5 vetra hesturinn var Njörður frá Hrísakoti, ræktaður og í eigu Sifjar Matthíasdóttur. Efsti 6 vetra hesturinn var Aríus frá Bjarnarhöfn, ræktaður af Herborgu Sigríði Sigurðardóttur og eigandi er Júlíus Brjánsson. Síðast en ekki síðast var Glátoppur frá Miðhrauni efsti hesturinn í flokki 7 vetra og eldri, ræktandi er Ólafur Ólafsson og eigendur eru Máni Hilmarsson og VM Islandshästar AB.
Þotuskjöldinn í ár hlaut Högni Högnason fyrir óeigingjarnt starf sitt í þágu félagsins. Starf félags-
manna er ekki alltaf sýnilegt en að baki hestaeigendafélaganna liggur oft mikil vinna í frítíma fólks og á þessu byggjast félögin. Högni Högnason er alltaf tilbúinn að rétta fram hjálparhönd ef þarf á að halda, bæði fyrir félagið og alla hestamenn á svæðinu. Þá var Siguroddur Pétursson valinn knapi ársins og hrossræktunarbúið Berg var valið ræktunarbú ársins hjá Snæfelling. 40 hross frá Snæfellsnesi og Hnappadalssýslu voru sýnd í ár, þar af 5 frá Bergi og öll unnu þau fyrstu verðlaun. Berg var einnig tilnefnt sem hrossaræktunarbú ársins á landsvísu.
Akstursstyrkur vegna íþróttaog tómstundaiðkunar
barna
Íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar geta sótt árlega um sérstakan akstursstyrk til að koma til móts við kostnað sem fellur til vegna aksturs barna til Ólafsvíkur eða Hellissands í íþróttaog tómstundaiðkun.
Árlegur styrkur er nú 40.000 krónur og skulu umsóknir berast bæjarritara í tölvupósti.
Í umsókn þarf að koma fram nafn foreldris / forráðamanns, nafn barns / barna, kennitala og reikningsnúmer þar sem leggja á styrkinn inn.
Einnig þarf að fylgja staðfesting um að barn sé skráð í tómstundaiðkun norðan heiða.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433 6900 eða á netfanginu lilja@snb.is

Vignir semur við Val

gengið til liðs við þjálfarateymi Vals í fótbolta. Vignir tekur við hlutverki aðstoðarþjálfara og yfirþjálfara U19 liðsins eða 2. flokks og mun einnig sinna lykilhlutverki sem „Transition Coach“ milli U19 liðsins og meistaraflokks karla en það er mikilvægt hlutverk sem tryggir að efnilegir leikmenn úr yngri flokkum nái réttu skrefunum inn í meistaraflokk. Vignir bætir mikilli reynslu við þjálfarateymi Val, bæði sem leikmaður og þjálfari ásamt sterkum faglegum menntunarbakgrunni.

gráðu, meistarapróf í íþróttavísindum og BS í næringarfræði. Sem leikmaður spilaði hann meðal annars með Víkingi Ólafsvík og Þór og hefur meðal annars þjálfað meistaraflokk kvenna hjá Gróttu, KR og Stjörnunni. Síðast starfaði Vignir með Vestra á afstöðnu tímabili þar sem hann öðlaðist mikla reynslu með hápunktum og lágpunktum. Vignir kveðst spenntur fyrir því að vinna með Val þar sem hann mun hlúa vel að leikmönnum framtíðarinnar.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111
1. des dagur reykskynjarans
HMS og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna taka höndum saman þann 1. desember ár hvert og ýta út vör árlegu forvarnarátaki á degi reykskynjarans. Markmiðið er að fræða landsmenn um brunavarnir og hvetja fólk til að prófa reykskynjara heimilisins að lágmarki einu sinni á ári. Mikilvægt er að skipta reglulega um
rafhlöðu vegna þess að þetta öryggistæki getur bjargað mannslífum. Slökkvilið Snæfellsbæjar hvetur íbúa til að yfirfara reykskynjara á heimilum fyrir aðventuna því það er eitt af því sem má aldrei gleymast í undirbúningi jólanna þegar íbúar eru duglegir við að lýsa upp skammdegið með jólaskreytingum, kertum og aðventukrönsum.
Í lok nóvember fóru nemendur 5. og 9. bekkjar Grunnskóla Snæfellsbæjar í heimsókn í 3 veggi listrými og skoðuðu þsr sýningu listakonunnar Elsu Dórótheu Gísladóttur. Sýningin nefnist Snerting og var unnin úr mánaðardvöl hennar á vinnustofu í Varanasi á Indlandi. Í vinnustofunni kafaði Elsa ofan í notkun litagjafa og litarefni í daglegu lífi í Indlandi, sem er sterkur hluti af menningararfi og sjálfsmynd Indverja. Elsa dvaldi svo í vinnustofu á Hellissandi í sumar þar sem hún vann með gerð litarefnis undir leiðsögn David Kremer frá fyrirtækinu Kremer Pigments. Kremer Pigments er þýskt fyrirtæki sem framleiðir litarefni, meðal annars úr steinefnum frá Snæfellsnesi. Bjarni Sigurbjörnsson, eigandi að 3 veggjum, leiddi 5. bekk í gegnum sýninguna og endaði leiðsögnin svo hjá nýjum skúlptúr Jo Kley við Krossavík, Frelsisleiðinni. 9. bekkur fékk á meðan leiðsögn Ragnheiðar Guðmundsdóttir, eiganda 3 veggja og textílkennara við Grunnkóla Snæfells-
Heimsókn í 3 veggir

bæjar. Skoðuðu þau sýninguna Snertingu, vinnustofu Ragnheið ar og enduðu svo í Þjóðgarðsmið stöðinni á Hellisandi og skoðuðu nýju grunnsýninguna þar.
SJ




Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ hefur gefið frá sér tilkynningu vegna varasamra aðstæðna á Snæfellsjökli. Ferðalög um jökulinn geta verið varsöm allan ársins hring vegna margvíslegrar hættu sem þar má finna. Þegar styttist í jólafrí er viðbúið að umferð vélsleða, jeppa og annarra tækja um jökulinn fari vaxandi. Lífsbjörg vill að því tilefni koma því framfæri að vegna snjólaga geta aðstæður verið sérstaklega hættulegar núna. Hættuleg ísing er á jöklinum og á nærliggjandi svæðum, sprunguhætta er mikil og snjóbreiður hylja jökulsprungur. Björgunarsveitin hvet-
ur fólk til að halda sig frá ferðum á jökulinn nema fyrir þá sem ætla sér gangandi og eru með viðeigandi búnað, þekkingu og reynslu af slíkum ferðum. Benda þau á að önnur nærliggjandi svæði líkt og í kringum Geldingafell og Sandsúlur gætu verið fær á tækjum en vegna ísingar þarf að fara sérstaklega varlega. Á næstu vikum og mánuðum munu aðstæður væntanlega batna þegar snjóað hefur meira en benda þó á að ferðalög um jökulinn séu ávallt varasöm þó að hættan minnki þegar nær dregur vori.
Frá byrjun skólaárs haust hefur unglingastig Lýsudeildar Grunn skóla Snæfellsbæjar lært um stjórnarkerfið á Íslandi og þrí skiptingu valds og þar á meðal var fræðsla ums stjórnmálaflokka, framboð og kosningar. Lokaverk efni nemenda í þessari námslotu var að nemendur skyldu stofna sína eigin stjórnmálaflokka, velja sér listabókstaf, finna slagorð og mynda stefnu um ýmis kjarna mál efni. Flokkarnir fóru svo í fram boð til alþingis, háðu harða kosn ingabaráttu í sínu kjördæmi, Lýsu kjördæmi, sem endaði svo með kosningum.
Í Lýsukjördæmi komast þrír þingmenn inn á þing og tveir flokkar voru í framboði, Framtíðarflokkurinn XX og Lýðræðisbandalagið XL. Frambjóðendur beggja flokka tóku þátt í framboðsfundi þar sem þeir kynntu stefnu sína fyrir kjósendum og var fundurinn vel sóttur. Eftir kynningar var pallborð þar sem hægt var að spyrja frambjóðendur um stefnumálin og að lokum opnuðu flokkarnir kosningaskrifstofur þar sem hægt var að spjalla og gæða sér á veitingum sem frambjóðendur buðu uppá.
Pólitík á Lýsu

Að kosningu lokinni fór talning strax fram í vitna viðurvist og undir stjórn formanns kjörstjórnar Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeildar sem var fengin á staðin sem óháður aðili við talninguna. Við talninguna voru auð og ógild atkvæði 13%, Framtíðarflokkurinn hlaut 45% atkvæða og náði tveimur inn á þing og Lýðræðisbandalagið hlaut 42% atkvæða, sem tryggði þeim einn þingmann. Verkefnið þótti takast vel og var áhugi mikill, jafnt hjá frambjóðendum og kjósendum
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
