Skip to main content

Keflavík knattspyrna 2018

Page 1

KEFLAVÍK


Nýtt í Nettó

Lífrænar kaffiblöndur

www.netto.is Búðakór • Grandi • Mjódd • Salavegur • Hafnarfjörður • Hrísalundur • Glerártorg • Húsavík • Höfn • Iðavellir • Grindavik • Krossmói • Borgarnes • Ísafjörður • Egilsstaðir • Selfoss


Þú finnur Nettó verslanir á 16 stöðum á landinu www.netto.is

Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Ísafjörður


NÝ KYNSLÓÐ

STUÐNINGSMANNA Í KEFLAVÍK

PEPPSQUADKEFBOIS Áhorfendur á leikjum keflavíkur í knattspyrnu í sumar hafa vafalaust tekið eftir því að á hverjum leik má finna kyrfilega merkta eldhressa unga stráka lemjandi trommur og hvetjandi liðið sitt áfram af miklum móð. Þarna er á ferðinni stuðningsmannasveitin Peppsquadkefbois. Í sveitinni eru um 15 strákar á aldrinum 15-16 ára sem hafa ástríðu fyrir sínu félagi og vilja leggja sitt af mörkunum til að skapa góða stemningu á leikjum félagsins. Þeir mæta á alla leiki heima og úti hjá bæði karla- og kvennaliðunum og láta ekki sitt eftir liggja til að hjálpa liðunum. Peppsquadkefbois er líklega yngsta stuðningsmannasveit landsins og sú sem leggur mest á sig til að styðja við sitt lið. Þeir mæta á alla heimaleiki, fá sér hamborgara og gos í boði knattspyrnudeildarinnar, eru fyrstir út á völl og fara síðastir af honum. Þeir mæta einnig á all flesta útileiki en ferðaskrifstofan Travice hefur styrkt þá veglega með að sjá þeim fyrir rútu í alla leiki. Það er mikill akkur fyrir hvaða félag sem er að eiga að öfluga stuðningsmenn. Keflavíkurliðin eru ung og efnileg og það sama má svo sannarlega segja um stuðningsmannasveitina sem mun vonandi halda uppteknum hætti um ókomin ár.

4


FÁANLEGT Í ÖLLUM HELSTU MATVÖRUVERSLUNUM www.teogkaffi.is


STELPURNAR OKKAR Í U17 OG U19 Í meistaraflokki kvenna hjá Keflavík eru 4 stúlkur sem hafa verið taka þátt í verkefnum á vegum yngri landsliða. Þetta eru þær Anita Lind Daníelsdóttir fædd 1999 og Sveindís Jane Jónsdóttir, Íris Una Þórðardóttir og Katla María Þórðardóttir sem eru allar fæddar 2001. Anita Lind hefur verið í verkefnum á vegum U19. Í september á síðasta ári var undankeppni Evrópumótsins haldið í Þýskalandi og urðu þær í öðru sæti í sínum riðli og tryggðu sér sæti í milliriðlinum.Í mars var æfingamót á La Manga á Spáni þar sem spilaðir voru 3 leikir. Milliriðillinn var spilaður

í Póllandi og var einungis 1 lið sem gat tryggt sér sæti í lokakeppninni. Þrátt fyrir 2 sigra og 1 tap náðu íslensku stúlkurnar ekki að tryggja sér áfram í lokakeppnina en Noregur vann alla sína leiki. Eins og staðan er í dag þá er ekki verkefni fyrir U21 landslið kvenna og því næsta stökk að komast í æfingahóp A landsliðs. Íris Una, Katla María og Sveindís Jane fóru allar á Norðurlandamót U16 í júlí 2017 sem haldið var í Oulu í Finnlandi. Í framhaldi af Finnlandi fóru þær allar með U17 á undankeppni EM sem haldið var í

6

Aserbaídsjan í október 2017 og tryggðu þær sér sæti í milliriðlinum sem haldinn var í Þýskalandi í mars 2018. Því miður náðu þær ekki að tryggja sér sæti í lokakeppninni. Katla fór einnig á æfingamótið með Anitu til La Manga í mars. Stelpurnar okkar stefna að því að halda áfram að spila fyrir Íslands hönd en næg verkefni eru framundan hjá U19 en undankeppni fyrir EM 2019 hefst nú í október. Framtíðin er því björt hjá ungu landsliðskonunum okkar og er Keflavík ákaflega stolt af þeirra framlagi fyrir Íslands hönd.


HVAÐ ER LIÐSHEILD? Að setja saman lið getur verið flókið ferli, hvort sem um ræðir þjálfara íþróttafélags eða landsliðs. Ef við skoðum þau lið sem hafa staðið upp úr undanfarin ár þá í mínum huga er bara eitt sem sameinar þessi lið, framúrskarandi liðsheild. Ekki verða nefnd nein dæmi í þessu samhengi heldur er lesandanum gefið það frjálsræði, að hugsa um fyrsta liðið sem kemur í hugann og kryfja það aðeins út frá liðsheildinni. Ef þjálfarar hópíþrótta væru teknir á tal að þá væru þeir sammála um að enginn árangur náist nema að það lið sem þjálfarann hefur í höndunum búi yfir mjög sterkri liðsheild. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á hugtakinu en fræðimenn eru langt frá því að vera sammála um hvaða þættir einkenni árangursríka liðsheild. Hvernig verður

þá til sterk liðsheild og er möguleiki að búa hana bara til út frá heimspekilegum hugsunum þjálfara um hvernig eigi að spila sem lið með hóp af mönnum sem allir vilja byrja inn á? Þrátt fyrir misjafnar skoðanir, þá er ekki til neitt rétt svar við þeirri spurningu, annað en að það er traust falið á þjálfara liðsins til þess að púsla saman hóp leikmanna til þess að ná árangri, út frá hugmyndum hans um hvernig eigi að þjálfa einstaklinga, sem síðan mynda liðsheild. Ef við tökum þjálfunarhlutann algjörlega til hliðar, því það eru ótrúlega margar leiðir til þess að þjálfa einstaklinga þá eru nokkur atriði sem standa upp úr og skipta máli þegar kemur að því að búa til sterka liðsheild. Fyrsta sem kemur upp í hugann er virðing, hug-

Skál fyrır hollustu

8

UNNAR STEFÁN SIGURÐSSON ÞJÁLFARI 2. FLOKK KARLA KEFLAVÍK tak sem er ekki auðvelt að útskýra. Að bera ábyrgð á orðum sínum og gjörðum, virða skoðanir annarra jafnvel þó að við séum ekki sammála og auðvitað gullna reglan að koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Það mætti segja að virðing sé upplifun frekar en hegðun og því alls ekki víst að það sé viðmælandanum að kenna ef við upplifum virðingarleysi, ekki allir kunna að koma að orði og segja hluti á þann hátt sem okkur líkar. Þeir allra hæfustu tryggja að orð og gjörðir séu til þess fallnar að túlkun sé þannig að enginn misskilningur verði. Næsta sem kemur í hugann er fórnin, að leggja allt í sölurnar, dugnaður. Það skemmtilega við íslenskuna að það er hægt leika sér mikið með orðin. Að líkja því við að fórna sér við dugnað er eitthvað sem kemst nálægt því sem að leikmenn eiga að gera inn á vellinum. Hver hefur ekki heyrt í stúkunni, hann fórnaði sér í tæklinguna fyrir liðið eða þessi er virkilega duglegur? Persónulega fannst mér frábær ummæli landsliðsþjálfara okkar, Heimis Hallgrímssonar, þegar hann talar um Keflvíkinginn Samúel Kára Friðjónsson og hverjir væru helstu kostir Samúels. Þar nefnir Heimir að helsti kostur Samúels sé að hann er ósérhlífinn, sem mætti túlka sem svo að Samúel sé tilbúinn að gera það sem þarf til fyrir liðsheildina. Hann fórni sjálfum sér svo að liðinu gangi vel og liðsheildin verði sem sterkust. Samskipti eru gífurlega mikilvægur þáttur í okkar lífi og vissulega mikilvægur þáttur þegar kemur að því að mynda sterka liðsheild. Jafnvel er því haldið fram að góðir samskiptahæfileikar innan hóps hafi mikið að segja um frammistöðu og framfarir íþróttamanna. Þar kemur hlutverk þjálfarans sterkt til sögunnar, það skiptir engu máli hversu góður þjálfari hann er, skipulagning æfinga eða uppstilling fyrir leiki, ef hann getur ekki átt í góðum samskiptum við aðra þá kemur ekkert til með að ganga upp. Öll höfum við okkar hlutverk en eru þau nægilega skýr þegar kemur að því að framfylgja tilætlaðri hegðun í ákveðnum stöðum, hvort sem að þau eru formleg eða óformleg? Kennari, læknir og stjórnendur fyrirtækja hafa öll skýr hlutverk, sama mætti segja um þjálfara, aðstoðarþjálfara og sjúkraþjálfara. Allir gegna þeir formlegum hlutverkum innan hópsins sem eru skilgreind innan liðsins. Óformlega hlutverkið er ekki eins auðvelt að skilgreina og gífurlega mismunandi eftir hópum innan mismunandi íþróttagreina. Fyrirliðinn (sem er ekkert endilega sá sem er með fyrirliðabandið), sáttasemjarinn (sér um að miðla deilum milli liðsmanna) og gleðipinninn (sá sem heldur uppi stuðinu á æfingum, er alltaf


brosandi) eru hlutverk sem eru mikilvægur þáttur í að setja saman sterka liðsheild. Ekkert af þessum hlutverkum hefur minna eða meira vægi innan liðsins en öll þurfa þau að vera til staðar til þess að mynda sterka liðsheild. Eitt vinsælast hugtak íslenskunnar í dag er markmið, það eiga allir að setja sér markmið. Það hefur verið stimplað í okkur að ef þú setur þér ekki markmið þá kemst þú ekkert áfram í þessu lífi, komir ekki til með að upplifa drauma þína. Að mörgu leiti er ég sammála en velti samt sem áður fyrir mér hvort að það sé möguleiki, þegar kemur að liði sem saman stendur jafnvel af 22 einstaklingum, að setjast niður og gera sameiginleg markmið sem allir innan hópsins eiga að fylgja. Flest erum við sammála um að setja sér markmið virki en leiðin til að ná settum markmiðum er langt frá því að vera auðvelt, slíkt krefst skuldbindingar, þrautseigju og þættir sem hafa áhrif eins og persónueinkenni, félagsleg áhrif og fyrri frammistaða og jafnvel fyrri reynsla á að hafa sett sér markmið og ekki náð þeim. Því er mikilvægt allir liðsmenn séu sameinaðir á hvað skal stefna og hvaða leið skuli fara að að settu markmiði eða markmiðum. Huga þarf vandlega hvernig markmiðin skuli sett fram, eitthvað sem hvetur einstaklinginn áfram, fær hann/hana til að halda sig við það sem sett var niður á blað og á endanum, hvernig eigi að ná settum markmiðum. Margt sem þarf að huga að þegar markmið

eru sett en mikilvægt að þau séu sveigjanleg og raunsæ. Rannsóknir sýna að aðkoma þjálfara er mikilvæg þegar kemur að þessum hluta liðsheildarinnar. Að lokum ber að nefna gildi,

það sem við sem hópur teljum að eigi að vera ímynd liðsheildarinnar, það sem hópurinn stendur fyrir og endurspeglast innan vallar sem utan. Sérhver menning, sérhver einstaklingur hefur í heiðri ólík gildi, hvort sem að þau séu skráð eða skilgreind af einstaklingnum eða hópnum. Það sem hópurinn telur eftirsóknarvert í fari liðsins og eigi að sjást inn á vellinum byggist t.d. á þeim gildum eða jafnvel viðmiðum sem að hópurinn telur vera mikilvægt. Hvort sem gildin okkar séu ljós eða ekki þá hafa þau mikil áhrif á hegðun okkar og ákvarðanir. Einstaklingar hafa ólík gildi, viðmið okkar eru ólík og mætti því segja að ekkert sé mikilvægara, til að mynda sterka liðsheild, en að koma sér saman um hvaða gildi eigi að hafa að leiðarljósi fyrir liðið þá veit einstaklingur, þegar leikmaðurinn reimar á sig skóna, gerir sig kláran fyrir æfingu eða leik, stígur inn á völlinn, hvað sé ætlast til af honum – hvaða gildi hann eigi að sækja, ekki sín eigin heldur gildi liðsins. Ef allir leikmenn liðsins eru á leið í sömu átt, vita hvað er ætlast til af þeim, trúi ég því að liðsheildin verði sem sterkust. En eins og þið hafið lesið þá er langt frá því auðvelt að setja saman sterka liðsheild, setja saman sigurlið. Að lokum vil ég vísa í ummæli eins af sigursælastu þjálfurum NBA deildarinnar, Phil Jackson: The strength of the team is each individual member. The strength of each member is the team. Njótið fótboltasumarsins.

Gleðilegt grillsumar Njóttu grillsumarsins með ljúffenga grillkjötinu frá Norðlenska

– VERÐI ÞÉR AÐ GÓÐU

9


NATASHA ANASI

„HEFÐI EKKI GETAÐ VALIÐ BETRI STAÐ TIL AÐ KOMA TIL“ Meistaraflokki kvenna barst góður liðsstyrkur þegar Natasha Anasi kom yfir til Keflavíkur frá Vestmannaeyjum. Reyndar fóru félagsskiptin fram í fyrra en hún var þá barnshafandi og spilaði þar af leiðandi ekki nema þrjá leiki í lok tímabilsins eftir að hafa eignast dótturina Harper Eyju í júní 2017. Natasha er frá Arlington í Texas hún er fædd 2. október 1991 og er því að verða 27 ára. Sambýlismaður hennar er Rúnar Ingi Erlingsson saman eiga þau dótturina Harper Eyju og einnig á Rúnar Ingi soninn Óliver Daða. Natasha byrjaði að æfa fótbolta aðeins fimm ára gömul þegar aðstoðakennari í leikskólanum bauð henni að taka þátt með liðinu The Shooting Stars og hefur hún ekki stoppað síðan. Í unglingaflokkum lék hún með liði Dallas Texans og í háskóla með Duke Blue Devils. Natasha segir muninn á því að spila í Bandaríkjunum og á Íslandi helst felast í leikstílnum. Hérna er fókusinn mikill á uppbyggingu og eru margir leikmenn góðir tæknilega séð, en í Bandaríkjunum er meiri áhersla lögð á líkamlegt atgervi og styrk. Eftir að hafa lokið BA gráðu í stjórnmálafræði frá Duke University árið 2014 langaði hana að prófa að spila fótbolta erlendis. Af þeim stöðum sem stóðu henni til boða í atvinnumennsku ákvað Natasha að taka sénsinn á Íslandi eftir að hafa kynnt sér málið vel og talað við leikmenn sem spiluðu hérlendis. Hefur hún ekki séð eftir þeirri ákvörðun. Natasha hóf ferilinn á Íslandi í júlí 2014 og lék þá með ÍBV í Vestmannaeyjum. Árið 2016 dró ástin hana til Keflavíkur þar sem Rúnar Ingi býr. En þar sem hún varð barnshafandi var ljóst að hún þyrfti að taka sér pásu frá boltanum. Hún hafði samband við þjálfara Keflavíkur og athugaði hvort hún mætti æfa með þeim eins lengi og hún gæti og komið svo inn af full-

um krafti eftir barnsburð. Natasha segir að hún hefði ekki getað valið betri stað til að koma til þar sem allir tóku henni svo vel og voru bæði hjálpsamir og þolinmóðir. Aðspurð um hvernig hún upplifi klúbbinn,liðið og þjálfarana segir hún að sér finnist Keflavík vera frábær klúbbur og öll umgjörð verði betri með árunum og hún telji klúbbinn vera sína aðra fjölskyldu. Þrátt fyrir að Keflavík sé með margar ungar stelpur í framlínunni eru þær samt sem áður með mikla reynslu. Allir innan teymisins hvort sem eru þjálfarar, leikmenn eða stjórn hafa mikinn metnað til þess að komast í efstu deild og vinna í sameiningu markvisst að því. Í framtíðinni sér Natasha fyrir sér að setjast að í Reykjanesbæ þar sem hún elskar staðinn og fólkið hér. Finnst henni bærinn vera mikill íþróttabær þar sem íbúarnir hafa einlægan áhuga á íþróttum og er stefnan að ala Harper Eyju upp ásamt bróður hennar Óliver Daða í þessu umhverfi. Natasha hefur átt mjög góðan tíma hérna. Hún ferðast mikið um Ísland og finnst fegurð landsins næstum óraunveruleg. Veðrið er kannski ekki alltaf eins og best er á kosið en hún segir fegurð þjóðarinnar bæta það upp. Til gamans má geta að Natasha spáir Belgum heimsmeistaratitlinum í ár.

10


ALLTAF RÉTTA AUGNABLIKIÐ PRÓTEINRÍKT – FITULAUST

#iseyskyr


HVAR SKRIFA ÉG UNDIR? Þegar óskað var eftir því að ég tæki við þjálfun meistaraflokks karla hjá Keflavík þurfti ég ekki langan umhugsunartíma. Hugsanir um slæma stöðu liðsins, ýmis konar áföll og mögulega gagnrýni úr ýmsum áttum reyndu að læðast að mér en viku snögglega allar fyrir öðrum sem snérust um persónulegar áskoranir, tækifæri til að láta gott af sér leiða og þann heiður að komast í klúbb þeirra Joe Hooley, Hólmberts Friðjónssonar, Guðna Kjartanssonar, Kjartans Mássonar, Sigurðar Björgvinssonar og fleiri goðsagna sem hafa stýrt okkar einstaka félagi í gegnum tíðina. Mín fyrsta og eina spurning var: „Hvar skrifa ég undir?“ Félagið var gagnrýnt af sérfræðingum fyrir leiktíðina fyrir að hafa ekki bætt meiri styrkingu við leikmannahópinn þar sem talað var um að við þyrftum 5-6 Pepsi-klassa leikmenn til þess að verða samkeppnishæfir eftir að hafa sigrast á Inkasso deildinni undir stjórn Guðlaugs Baldurssonar. Ekkert varð úr styrkingunni og frá þeim tímapunkti hafa leikmenn eins og Einar Orri, Sigurbergur, Juraj, Marko og Jeppe annað hvort lítið getað spilað eða yfirgefið félagið, auk þess sem Lasse var um tíma frá vegna heilsuleysis. Allt leikmenn sem áttu að vera í lykilhlutverkum. Það er því ekkert óeðlilegt að á brattann sé að sækja. Í fyrsta leiknum undir minni stjórn voru 8 leikmenn í byrjunarliðinu, sem hafa spilað 2.flokks leik fyrir félagið og í hörkuleik gegn ÍBV tóku níu leikmenn 22 ára eða yngri þátt og sama átti við um 13 af 18 í hóp. Ég get ekki sakað leikmenn um að hafa gefið eftir, þeir hafa svarað kalli mínu um að láta ekki bugast

12


og að fara inn í hvern einasta leik til að vinna hann og ég gef mig ekkert í því að það hefði ekki þurft mikla sveiflu til að við hefðum landað töluvert fleiri stigum. Það er hins vegar staðreynd að á stundum erum við að tapa leikjum á reynsluleysi og í einhverjum tilfellum hefur mótstreymið náð yfirhöndinni gagnvart einbeitingunni. Það sem við erum að gera þessa dagana er að sýna leikmönnum fram á mistökin og möguleikana til að laga þau og búa þannig til reynslu, sem mun fylgja þeim inn í leiki framtíðarinnar. Það er mikill kraftur í æfingunum og meðvitað markmið allra sem að koma að enginn dagur fari til spillis. „Mikilvægasti einstaklingurinn í hverju knattspyrnufélagi er sá sem borgar sig inn á leikina“, sagði Bill Shankly fyrrum þjálfari Liverpool einhvern tímann og þar er ég honum sammála. Eitt af mínum fyrstu verkum var því að boða áhugafólk til fundar á Sunnubrautinni til að fara yfir stöðuna, svart á hvítu, hver mín sýn á framhaldið væri, hvað ég færi fram á frá leikmönnum og hvers ég vonaðist til að stuðningsmenn myndu leggja á vogarskálarnar. Þar kom ástríðan fyrir félaginu á meðal fólks vel í ljós, því mæting var frábær og þó nokkrir með „Sannur Keflvíkingur“ trefil. Aðsókn á leikina og stuðningur hefur síðan verið framar öllum hefðum ef miðað er við stigasöfnun og eftir leikinn í Grindavík sá formaður knattspyrnudeildar þar á bæ ástæðu til að senda mér eftirfarandi skilaboð: „..ég vildi bara koma til skila til þín umræðunni í gær eftir leik. Það var talað um áhangendur Keflavíkur sem fylgdu ykkur á leikinn. Þeir stóðu sig frábærlega að okkar mati og eiga heiður skilið fyrir stuðninginn. Í stöðunni 3-0 voru þeir enn að hvetja og það er eitthvað sem gerist bara hjá alvöru stuðningsmönnum“

Verið velkomin í Bílar & Hjól Við gerum við bílinn þinn og grillum fyrir okkur sjálfa

Tjónaskoðun Rétting Sprautun Þjónustuverkstæði fyrir

Það blæs á móti í dag en ef enginn í hópi þjálfara, leikmanna og stuðningsmanna hvorki hleypur undan bagga, gefur eftir né hættir að gera kröfur, þá munum við uppskera á endanum eins og til er sáð. Það er enginn með hvítt handklæði á lofti hjá félaginu, enda fást þau ekki í Keflavík. Njarðarbraut 11a Reykjanesbær - S:421-1118 - bilaroghjol.is

13


David Beckham var mín fyrirmynd 1. Nafn? Arnór Ingvi Traustason

Mitt lið hefur alltaf verið Manchester United

2. Gælunafn? Flestir kalla mig Nóri

16. Hverjum er erfiðast að spila á móti? Ég hef spilað við þá nokkra sem eru erfiðir viðureignar. Held ég segi Luka Modric, hann var ekkert skemmtilegur að eiga við.

3. Lið? Malmö FF 4. Með hvaða liðum hefurðu spilað? Ég hef komið við í nokkrum löndum. Þetta byrjaði allt saman í Njarðvík áður en ég færði mig yfir til Keflavíkur. Þaðan fór ég á lán til Sandnes Ulf í Noregi. Fór svo til IFK Norrköping, eftir það lá leiðin til Austurríkis þar sem ég spilaði fyrir Rapid Vienna. Fór svo til AEK Athens í Grikklandi og er núna kominn til Malmö FF. 5. Hvenær byrjaðirðu að æfa fótbolta? Byrjaði í boltaskóla Freys þegar ég var 4 ára 6. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik í meistaraflokki? 13. september 2010 á móti Fram á Laugardalsvelli. 7. Hvernig takkaskó notar þú? Ég er að spila í Nike Mercurial Superfly 8. Hver var fyrirmyndin þín í fótbolta þegar þú varst yngri? Íslenskur: Eiður Smári var svakalegur á þeim tíma sem ég var að alast upp og ég leit mikið upp til hans. Erlendur: David Beckham var mín fyrirmynd. 9. Hver er besti fótboltamaður í heimi? Það er hægt að þræta um þetta fram og aftur en Cristiano Ronaldo 10. Hvernig bíl áttu? Ég keyri um á Volkswagen Tiguan hérna í Svíþjóð 11. Hver er uppáhaldsdrykkurinn þinn? Vatn er minn uppáhaldsdrykkur 12. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Sunnudagslærið hjá mömmu 13. Hver er uppáhaldssjónvarpsþátturinn þinn? Þeir eru tveir, Peaky Blinders og Breaking Bad 14. Uppáhalds tónlistarmaður? Drake fær þann heiður 15. Uppáhaldsliðið þitt í ensku deildinni?

17. Hver hefur verið uppáhaldsliðsfélagi þinn í þeim liðum sem þú hefur spilað með? Nicklas Bärkroth heitir hann og spiluðum við saman hjá IFK Norrköping. 18. Hver er frægasta treyja sem þú hefur átt? Ég er ekki nægilega duglegur að skipta um á treyjum. Skipti vanalega við leikmenn sem ég þekki eða hef spilað oft á móti.

ARNÓR INGVI TRAUSTASON

19. Hver er besti leikmaður sem þú hefur spilað með? Gylfi Þór Sigurðsson 20. Hver er frægastur í símanum þínum? Gylfi,Aron og Eiður 21. Hver er skemmtilegastur í landsliðinu? Það er erfitt að gera upp á milli. Allir frábærir. 22. Hver var herbergisfélagi þinn á HM? Við vorum allir með okkar eigið herbergi á HM. Hins vegar erum við Hörður Björgvin saman í öðrum landsliðsverkefnum og höfum verið í mörg ár frá yngri landsliðunum. 23. Skemmtilegt atvik sem hefur gerst í leik sem þú hefur spilað? Ég lenti í því að ég var að spila æfingaleik með Sandnes Ulf og við vorum að vinna þann leik nokkuð þægilega. Einn af hafsentunum okkar tekur þá upp á þvi að skokka bakvið markið okkar og pissa. Klárar það og fær svo gult spjald fyrir. Furðulegt atvik.

14


FAGKEPPNI MEISTARAFÉLAGS KJÖTIÐNAÐARMANNA 8. OG 9. MARS 2018

KJÖTMEISTARI ÍSLANDS 2018 ER ODDUR ÁRNASON, SS Oddur er fagmaður fram í fingurgóma og hlaut titilinn Kjötmeistari Íslands 2018 en að auki fékk hann verðlaun fyrir bestu vöruna í tveimur flokkum. Fyrir bestu vöruna úr nauti: reykgrafið landnámsnaut og fyrir bestu vöruna úr lambi: Tindfjallahangikjet. Enn fremur hreppti hann verðlaun fyrir athyglisverðustu nýjung ársins: Sveitakonfekt. B ESTA SK

IN K AN

2018

VAL ALMEN

NINGS

Hunangsskinka er með hunangskeim, úr grísainnanlærisvöðva og aðeins úr íslensku kjöti.

En það eru fleiri fyrirmyndarfagmenn hjá SS, af 31 vöru sem send var inn hlutu 30 vörur verðlaun. Þar má meðal annars nefna að Jónas Pálmar Björnsson hlaut verðlaun fyrir bestu vöruna úr hrossa-/folaldakjöti fyrir grafið lakkrísfolald. Við hjá SS erum stolt af árangri okkar fagmanna og óskum þeim hjartanlega til hamingju.

Tindfjallahangikjet er þurrkað lambalæri, saltað með sjávarsalti, tvíreykt og þurrkað. Verkunartíminn er langur, frá 2–3 mánuðum.


JACK WILSHERE

ERFIÐASTUR 1. Nafn? Samúel Kári Friðjónsson 2. Gælunafn? Ég er yfirleitt kallaður Sammi 3. Lið? Vålerenga 4. Með hvaða liðum hefurðu spilað? Ég hef spilað með Keflavík, Reading og Vålerenga 5. Hvenær byrjaðirðu að æfa fótbolta? Ég byrjaði í fótbolta 4 ára gamall 6. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik í meistaraflokki? Ég spilaði minn fyrsta Pepsi deilarleik þegar ég var 17 ára. 7. Hvernig takkaskó notar þú? Adidas Nemezis 8. Hver var fyrirmyndin þín í fótbolta þegar þú varst yngri? a. Íslenskur Það er mjög erfitt að velja einhvern einn. En ég leit alltaf upp til Gumma Steinars og Eiðs Smára. b. Erlendur Ronaldinho og Xavi. 9. Hver er uppáhaldsdrykkurinn þinn? Nocco er minn uppáhalds í augnablikinu. 10. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Plokkfiskur. 11. Hver er uppáhaldssjónvarpsþátturinn þinn? Narcos er í miklu uppáhaldi.

20. Skemmtilegt atvik sem hefur gerst í leik sem þú hefur spilað? Það er eitt atvik sem ég man vel eftir. Það var þegar ég og Elías vorum í 5. flokki að spila gegn Njarðvík og ákvaðum eftir að við tókum miðju að gera þríhyrning upp allan völlinn og enduðum á

12. Uppáhalds tónlistarmaður? Michael Jackson. 13. Uppáhaldsliðið þitt í ensku deildinni? Liverpool. 14. Hverjum er erfiðast að spila á móti? Erfiðasti andstæðingurinn var Jack Wilshere. 15. Hver hefur verið uppáhaldsliðsfélagi þinn í þeim liðum sem þú hefur spilað með? Ég geri aldrei upp á milli vina í þeim liðum sem ég hef spilað, þetta eru allt frábærir einstaklingar.

því að gera það við markmanninn einnig og skoruðum. Það hefur alltaf setið fast í minni mér og ég veit að hann mun aldrei gleyma því. Ég gæti líka nefnt rauða spjaldið gegn Val í minum fyrsta leik í Pepsi en ég held að allir muna eftir því haha.

SLÁÐU Á HUNGRIÐ

16. Hver er frægasta treyja sem þú hefur átt? Eins og er þá er það treyja frá Romelu Lukaku sem ég fekk þegar ég spilaði gegn Man Utd fyrir einu og hálfu ári.

ENGINN VIÐBÆTTUR SYKUR

17. Hver er besti leikmaður sem þú hefur spilað með? Gylfi Sigurðsson og Royston Drenthe.

20G AF PRÓTEINI

18. Hver er skemmtilegastur í landsliðinu? Allir strákarnir eru frábærir, innan sem og utan vallar. 19. Hver var herbergisfélagi þinn á HM? Við vorum einir í herbergi í Rússlandi, en á Íslandi var ég með Frederik Schram.

16


NÝTT

ÖFLUG SÓLARVÖRN

FYRIR ANDLIT


ÞESSI SKORAR HÁTT! 84% Prótein - engin aukaefni

Enzymedica 210x148 Lyfja copy.pdf

1

10/05/2018

09:16

– Meltingarensím Ein öflugustu meltingarensím á markaðnum í dag Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem loftmyndun, uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu.

Digest Gold • Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum. • Gegn fjölþættum meltingarvandamálum • Handhafi Vity* verðlaunanna 10 ár í röð. • Inniheldur ATPro (ATP, Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase).

Þetta svínvirkar! „Mér finnst rosalega gott að fá mér bjór með pizzu en því miður þá verð ég alltaf svo útþaninn eftir það. Ég er ekki mikið fyrir að borða einhver bætiefni, en eftir að konan var búin ýta þessa að mér nógu oft, ákvað ég að prófa að taka eitt hylki af Digest Gold fyrir máltíðina og viti menn, þetta bara svínvirkaði“ Haraldur Egilsson

Digest Spectrum • Hentar vel þeim sem glíma við ýmis fæðuóþol. • Hentar allri fjölskyldunni. • Styður meltingu á glúteini, laktósa, kaseini, próteini og fenól, sem og grænmetis og bauna. • Viðurkennt af Autism Hope Aliance.

Digest Basic

Digest

• Bætir meltingu og frásog næringarefna. • Gegn ónotum, lofti og uppþembu. • Henta einnig fyrir börn.

• Tvöfalt meiri styrkur en í Digest Basic. • Eykur orku. • Lítil hylki sem auðvelda inntöku. *Sú vara sem smásalar kjósa oftast sem bestu vöru ársins í hverjum flokk


áfram ísland!

Gómsætur súkkulaði fótbolti með skemmtilegum spurningaspjöldum og Nóa nammi. Fullkomið með boltanum.


TIL HAMINGJU!


PEPSI 2019


fastus.is

VERTU „PRÓ“ Í ELDHÚSINU ÞÍNU Professional Secrets er einstök áhaldalína hönnuð af atvinnukokkum með gæði og hagkvæmni að leiðarljósi. Frábærar vörur á góðu verði.

Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is


STYÐUR SITT LIÐ ALLA LEIÐ

Rúnar Ingi Hannah er flestum Keflvíkingum að góðu kunnur. Hann hefur frá blautu barnsbeini reynt að mæta á alla þá Keflavíkurleiki sem hann hefur tök á og styður sitt lið alla leið. Raunar er hann svo mikill Keflvíkingur að það er eina liðið sem hann heldur með eins og hann orðar það sjálfur. Rúnar er einn meðlima strákabandsins Breiðbandið sem samdi einmitt stuðningsmannalag liðsins árið 2005. Lag sem hefur fylgt Keflavíkurliðinu alla tíð síðan. Rúnar flutti með fjölskyldu sinni í núverandi húsnæði á Sunnubrautinni árið 2009. Þar hefur hann komið sér upp glæsilegri aðstöðu í bílskúrnum sem er ólík flestu því sem fólk er almennt með í bílskúrnum sínum enda minnir hann frekar á breskan bar heldur en hefðbundin bílskúr. Þar hefur Rúnar sankað að sér alls kyns munum sem flestir hafa einhverja tengingu við Keflavík þó inná milli megi finna aðra muni og treyjur sem hafa alls konar merkingu í augum Rúnars eða þeirra sem hafa beðið hann um að geyma fyrir sig hluti. „Margir hafa samband við mig og biðja mig um að geyma fyrir sig einhverja hluti sem þeir hafa ekki pláss fyrir. Þannig að margir þessara muna sem má sjá hérna inni eru ekki í minni eigu heldur eingöngu í geymslu fyrir vini og vandamenn“. Keflvíkingur frá blautu barnsbeini Aðspurður segir Rúnar að fyrsta minning hans frá Keflavíkurvellinum var þegar hann var ungur polli á Baugholtinu, „Ein elsta minning sem ég tengi við Keflavík er þegar við fórum nokkrir ungir strákar niður á völl og þar var Steini Bjarna markvörður að æfa útspörkin. Hann stóð í öðrum teignum með nokkra bolta og sparkaði þeim frá marki. Við stóðum þar og söfnuðum þeim saman og röðuðum þeim upp fyrir hann. Hann hljóp svo yfir og sparkaði þeim í hina áttina og við endurtókum leikinn. Þarna var hann í aukaæfingum sem skila mönnum betri árangri“. Rúnar hefur mætt á völlinn alveg fast frá því að hann var um 16-17 ára og hefur gert það

allt götur síðan nema í 4 ár þegar hann bjó Danmörku í fjögur ár. „ Það var alltaf svo erfitt að fylgjast með þessu úr fjarlægð og ég man hvað ég hlakkaði alltaf til þegar á myndi flytja heim aftur að fylgjast með Keflavík spila í úrvalsdeildinni. Ég flyt heim í júlí 2002 og þeir falla það ár. Ég var svo svekktur þar sem ég hlakkaði svo til að fylgjast með þeim í alvöru bolta“. Spurður um hver væri eftirminnilegast leikur sem hann hefði farið á stendur ekki á svari hjá Rúnari. „Það er bara einn leikur sem kemur til greina, það er seinni bikarúrslitaleikurinn 1997. Ég fæ alltaf gæsahúð þegar ég rifja þetta upp. Þetta var svo sérstakt það sem það voru tveir leikir. Við byrjuðum íslandsmótið vel og unnum að mig minnir fyrstu 6 leikina en svo náðum við bara í örfá stig eftir það. Þetta átti að vera formsatriði fyrir ÍBV að klára þetta sem þá voru með langbesta liðið á landinu. Við náum að jafna í fyrri leiknum þegar Gestur jafnar eftir mistök hjá Gunnar (undir) Sig í markinu hjá ÍBV. Gestur sparkar

24

í jörðina snýr sér við og er alveg brjálaður en hann lekur inn. Þetta var eina skiptið sem það var gert að spilaður var aukaleikur 5 október 1997. Það var skítkalt, ÍBV fékk víti sem þeir klikka á og leikurinn endar jafntefli. Framlengt og vítaspyrnukeppni. Allt var í járnum og Kiddi Guðbrands átti að taka síðasta vítið sem hefði tryggt okkur sigur. Ég var nú ekki alveg sáttur þar sem ég minntist þess að hann hefði klikkað á víti þremur árum áður á móti Breiðablik það var það fyrsta sem mér datt í hug. En ég hef aldrei séð mann jafn ákveðinn að hann ætlaði að skora. Ég sá það á herðablöðunum hans að hann myndi skora. Hann tók tvö skref aftur á bak og negldi boltanum í markið. Það var eins og það hefði verið kveikt í stúkunni. Ég var að frjósa úr kulda en þarna varð mér sjóðheitt á sekúndubroti. Þetta var geggjað. Þetta var svo sérstakt þar sem þetta gerðist svo snöggt. Ég man ekkert eftir þetta mark. Man ekkert hvað ég gerði eftir á, hvernig við fögnuðum eða neitt. Eftir þetta hefur Kiddi Guðbrands alltaf verið upp


Safnið hans Rúnars ber þess skýrt merki að hann er gegnheill Keflvíkingur sem styður sitt lið fram í fingurgóma, Sannur Keflvíkingur.

VINSÆLU MATARPAKKARNIR FRÁ

EINN TVEIR & ELDA

Settu saman þinn eigin matarpakka! WWW.EINNTVEIR.IS

AFHENDUM Á SUÐURNESJUM!

25


Don´t over think it Nánast allt sem er í skúrnum hjá Rúnari hefur hann búið til sjálfur. Smíðað barinn, bjó til setubekk og annað sem hann viljað fá til að fullkomna útlitið á barnum. Miklar pælingar liggja að baki öllu sem er að finna þarna inni. Múrsteinamunstrið sem er á veggjunum var keypt erlendis og flutt inn af vini hans. Græni liturinn var vandlega valinn þar sem ekki mátti vera hvaða græni litur sem er á veggjunum. En það er ein setning sem Rúnar tók til sín þegar hann var að lesa sér til um hvernig írskir barir eru settir upp og mikið af hlutum skreyta veggina hún var Don´t over think it. Þannig að ég er ekkert að raða hlutum að mikilli kostgæfni. Þegar ég fæ nýjan hlut þá er ég ekkert að ofhugsa þetta heldur set þetta bara þar sem er pláss.

áhaldsleikmaðurinn minn. Hann var ekki endilega með mestu hæfileikana en hann var með stærsta Keflavíkurhjartað og fór í hvern leik til að berjast. Þannig vil ég sjá að menn séu klárir í að berjast í hverjum leik. Kiddi var þannig leikmaður alltaf tilbúinn til að berjast og svo færði hann mér þetta augnablik sem ég fæ gæsahúð af að hugsa um enn þann dag í dag. Hvernig kom þetta til? En hvernig kom það til að Rúnar breytti bílskúrnum sínum í þetta glæsilega afdrep, sem Rúnar leggur áherslu á að sé alls ekki svokallaður „mancave“ heldur fjölskyldurými sem allir meðlimir fjölskyldunnar nýti sér. Hann er í raun ekki viss um hvort átti hugmyndina að þessu hann eða konan hans. „Málið er að bróðir konunnar rak knattborðsstofu Keflavíkur í Grófinni á sínum tíma og þegar við vorum að byrja á að stinga okkur saman þá vorum við mikið þar. Það var svo alltaf draumur okkar þegar við myndum eignast hús að vera með billiard borð. Svo þegar við flytjum hérna inn kemur upp sú hugmynd að breyta skúrnum og í svona stofu. Við bæði fengum bara glampa í augun og fór beint í að teikna upp hvernig ég vildi hafa þetta. Ég fór í fæðingaorlof sumarið 2010 og þá hófust framkvæmdir. Fyrst þurfti að smíða smá útigeymslu og opna upp á háaloft til að búa til geymslurými og færa þvottahús þannig að það fór þó nokkur tími í undirbúningsvinnu.

Alveg frá upphafi þá var ég duglegur að láta vita af því að ég væri að smíða svona fjölskyldurými og vantaði billiardborð. Ég þekki marga og margir eru góðhjartaðir og fljótlega var hringt frá Lögreglunni þar sem þeir voru að tæma lögreglustöðina á Grænás. Þeir voru með billiard borð og því kom borðið mjög snemma. Það þurfti aðeins setja það saman en það lá í bútum í miðjunni meðan á framkvæmdum stóð.

26

Auglýsti eftir Keflavíkurtreyjum Fyrst til að byrja með var þetta allt mjög tómlegt en þar sem ég er svo mikill Keflvíkingur þá langaði mig að safna Keflavíkurtreyjum. Ég átti nokkrar stuðningsmannatreyjur sem voru prentaðar í kringum úrslitaleiki í bikarnum í körfunni og svona, ég keypti þetta allt. Fyrst var ekkert í loftinu en ég setti eina treyju, svo auglýsti ég eftir treyjum. Svo byrjuðu bara að detta inn treyjur, fólk frétti af þessu og ég er búinn að fá Keflavíkurdót úr öllum áttum. Svo set ég þetta á síðuna og fæ meira og meira. Þetta er orðið miklu stærra og meir en ég hafði gert mér í hugarlund.


Fyrstu treyjurnar sem fóru upp voru gamlar treyjur sem ég átti. Í annarri spilaði Goggi Birgis og í hinni Jakob Jónharðs, þetta hef ég keypt þegar ég fór að styðja liðið og verið var að selja gamlar treyjur. En svo eru komnar nokkrar sögulegar treyjur eins og t.d. frá Óla Þór Magnússyni sem hann spilaði í. En hver er merkilegasta treyjan sem er í safninu. Persónulegasta treyjan er líklega treyja sem ég hannaði sjálfur fyrir hönnunarsamkeppni Henson sem var haldin 2004 eða 2005. Þetta var sigurtreyjan í þessari samkeppni, þarna fékk ég 75 þúsund kall, fartölvu og flugmiða útí heim. Svo er ég með tvær treyjur sem eru í eigu mágs míns Burkna Birgissonar, annars vegar Bayern Munchen treyja sem kemur í gegnum Ásgeir Sigurvinsson, árituð af Jurgen Klinsman og svo ein frá Austur Þýskalandi númer 10 sem að Ulf Kirsten spilaði í. Þetta eru merkilegar treyjur sem ég er að geyma. Vantar treyju frá KFK Elstu menn muna að hér áður fyrr voru tvö lið í yngri flokkunum, KFK og Ungó. Ég er með forláta Ungó treyju sem sómir sér vel í loftinu. Ungó var nú yfirleitt með betra lið en mjög margir harðir og flottir í KFK. Það eina sem mig langar virkilega í safnið er gömul KFK treyja og ég ætla að nota tækifærið og auglýsa eftir KFK treyju sem ég er tilbúinn til að geyma fyrir einhvern á mjög góðum og skemmtilegum stað. Á öll staupglös frá Þorrablótum Keflavíkur

Það eru ekki bara fótboltatreyjur sem Rúnar geymir í safninu sínu heldur eru minjagripir úr sögu liðsins hvert sem litið er. Ég á til dæmis öll glösin frá Þorrablótunum og passa mig alltaf á því að labba út með nokkur þannig glös. Það er örugglega auðveldasta sala sem menn geta gert ef þeir eru með einhverja muni merkta Keflavík að banka upp á hjá mér, ég er mjög auðveld bráð. Einhverjir gáfu út Keflavíkurlykil sem ég á, hér eru spilastokkar, hér er fatabót ef það er merkt Keflavík þá vil ég haf það í safninu. Til dæmis á ég hérna bindi sem að Gummi í löggunni kom með. Meistaraflokkurinn lét útbúa þetta bindi mig minnir að hann hafi sagt 1982 og þetta svona einstakt sem maður finnur hvergi. Svo er ein skemmtileg treyja sem er hérna á veggnum en það prjónuð Keflavíkurtreyja sem konan prjónaði þegar elsti strákurinn var nýfæddur. Hann er reyndar núna orðinn 23 ára og passar ekki lengur í hana. Kjartan Másson kom líka með alls konar hluti, fána frá leikjum platta með merkinu þetta er alls konar dót sem ég hef fengið frá öllum áttum. Það væri gaman að geta talið upp alla sem hafa gefið eitthvað í safnið en ég þori því ekki þar sem ég myndi pottþétt gleyma einhverjum. En svo er líka gaman að því þegar menn koma með nýlega hluti. T.d. kom Sindri markvörður með markmannshanska sem hann notaði í leik með undir 21 árs landsliðinu og spurði hvort að þetta ætti ekki að vera hjá mér. Allt sem tengist Keflavík á heima hér.

Gullmolar í leikskrám Ég hef safnað leikskrám í gegnum tíðina. Eitthvað hef ég svo fengið gefins en einnig hef ég keypt eitthvað af þessu á Ebay. Það er reyndar þannig að það er erfiðara að fá leikskrár frá heimaleikjunum en útileikjunum. En ég á leikskrá frá Keflavík – Real Madrid og svo frá Keflavík – Everton, svo á ég útileikskránna frá Everton leiknum en þetta er auðvitað alveg frábær saga þegar við vorum að keppa við þessi stórlið. Þetta fær maður hér og þar. Til dæmis kom þessi Real Madrid leikskrá í gegnum Noreg og skotland og sagan segir að sá sem hafi átt þessa leikskrá hafi verið Jóhannes Eðvaldsson, bróðir Atla Eðvalds. Sá sem seldi mér hana sagði það. Hvort hún er sönn er erfitt að staðfesta en engin ástæða til að láta söguna gjalda þess. Svo á ég öll stuðningsmannaskírteinin þar sem ég hef verið stuðningsmaður í áraraðir.

ER VINNINGUR Í ÞINNI ÖSKJU? Leitaðu að vinningsmiða næst þegar þú kaupir sælgætisöskju frá Góu. Þú gætir unnið svifbretti eða gómsætan sælgætisglaðning.

27


GRÍÐARLEGA ÁNÆGÐUR MEÐ STUÐNINGSMENNINA

Hólmar Örn eða Bói eins og hann er yfirleitt kallaður er reynslumesti leikmaður Keflavíkur liðsins. Hann hefur spilað vel yfir þrjú hundruð leiki langflesta með Keflavík en hann spilaði einnig í þrjú tímabil með FH auk þess að reyna fyrir sér lítillega í atvinnumennsku. Bói hefur spilað alla leiki liðsins á tímabilinu. Aðspurður um hvernig honum hefði sumarið verið var hann ekki sáttur við gengi liðsins, „ það er í einu orði hræðilegt og afskaplega fátt sem hefur glatt mann. Við styrktum okkur ekki nægjanlega mikið fyrir tímabilið. Liðin í Pepsi deildinni eru betur skipulögð og leikmenn eru mun betri“. En hvað þarf að vera til staðar svo Keflavík geti orðið Pepsi deildar klúbbur til framtíðar? „Til að Keflavík festi sig í sessi til frambúðar sem Pepsi deildar klúbbur þurfa að vera ákveðin grunn atriði til staðar. Sterkur leikmannahópur, fær þjálfari og öflug stjórn og kraftmiklir stuðningsmenn sem styðja við bakið á liðinu. Það er góður efniviður í Keflavík og mikið af efnilegum stelpum og strákum sem eru að taka sín fyrstu skref í meistaraflokki“. En er raunhæft að byggja lið upp eingöngu á heimamönnum? „Það gæti tekið langan tíma að byggja upp lið eingöngu á heimamönnum. Það þyrftu að koma upp nokkrir öflugir árgangar uppúr starfinu hjá okkur svo það sé raunhæft. Þó að við Keflvíkingar erum og eigum að vera stolt af okkar leikmönnum þá tel ég gott að hafa góða blöndu af heimamönnum og aðkomumönnum . Við þekkjum það að aðkomumenn geta komið með annað DNA inní hópinn sem er nauðsynlegt.“ Bói var hluti af mjög góðu liði sem var uppbyggt að miklu leiti af heimamönnum er raunhæft að við sjáum það aftur í bráð? „Ég veit ekki hvort það sé raunhæft að við sjáum það á næstunni en ég vona það svo sannarlega“. Aðspurður segir Bói að stemningin í klúbbnum hafi oft verið betri og það gildi líka um stemninguna í leikmannahópnum enda gengið verið afskaplega erfitt. „umgjörðin er nokkuð góð en við þurfum að fara að fá alvöru stúku. Við erum að dragast aftur úr öðrum liðum hvað þetta varðar“. Hvað varðar restina af tímabilinu og standið á honum sjálfur segist Bói vera í fínu standi en það taki þó lengri tíma að jafna sig eftir leiki. „Við nálgumst restina af tímabilinu þannig að við förum í hvern leik til þess að vinna hann“. Bói vildi að lokum þakka stuðningsmönnum fyrir stuðninginn á tímabilinu og sérstaklega þeim sem eru enn að mæta, „vonandi halda þeir því áfram og við förum að vinna leiki. Áfram keflavík“.

28

Hólmar Örn eða Bói eins og hann er yfirleitt kallaður er reynslumesti leikmaður Keflavíkur liðsins.


VIÐ ERUM FULL BJARTSÝNI OG HLÖKKUM TIL Nú við lok tímabilsins er yfir margt að fara. Síðustu sex ár hefur verið mikil uppbygging í kvennaboltanum og gríðarlega miklar framfarir hjá leikmönnum okkar. Þær byrjuðu ungar og hafa blómstrað og bætt sig. Kvennaráð er samansett af sjö einstaklingum sem eru öll að vinna að því að gera kvennaboltann sýnilegri og fagmannlegri. Einnig höfum við nokkrar hjálparhellur sem hægt er að hóa í ef þarf. Viðmót fólks í bæjarfélaginu hefur vaxið og verið betra en að sjálfsögðu viljum við sjá fleiri á kvennaleikjum til að styðja við bakið á stelpunum okkar og hvetja þær til sigurs. Leikmannahópurinn hefur ver-

ið svo til sá sami síðustu ár sem er frábært og við erum mjög sátt með okkar þjálfara og aðstoðarfólk. Samvinna okkar við stjórnina hefur verið til fyrirmyndar en eins og við vitum er alltaf hægt að bæta ýmislegt. Okkur gekk glimrandi vel í sumar og erum við gríðarlega stolt af stelpunum að enda í öðru sæti í deildinni. Við erum virkilega spennt að fara með þeim upp um deild. Við erum full bjartsýni og hlökkum til að fara í Pepsi deildina á næsta ári með stæl og gleði í hjarta því við erum sannir Keflvíkingar. Benedikta Benediktsdóttir Formaður Kvennaráðs Keflavíkur

ÐU GR Æ A L L I NT R M U AR G ÍS

30


GUNNAR MAGNÚS JÓNSSON ÞJÁLFARI KVENNALIÐS KEFLAVÍKUR

EINSTAKUR HÓPUR

Gunnar Magnús Jónsson tók við sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur árið 2016. Síðan þá hefur hann, liðð og hópurinn í kringum liðið unnið markvisst að því að koma liðinu aftur í deild þeirra bestu. Árið 2017 var liðið nálægt því að komast upp en fyrir núverandi tímabil var markmiðið alltaf skýrt. Nú væri komið að því að Keflavík kæmist í hóp þeirra bestu. „Við ætluðum okkur upp í fyrra það var alveg ljóst en það gekk ekki en þá var farið beint eftir síðasta tímabil í að tryggja að hópurinn myndi haldast saman. Það eru hjá okkur nokkrar ungar og efnilegar landsliðsstelpur sem lið voru að seilast eftir. Þegar það var tryggt þá fórum við strax af stað við undirbúninginn“. Aðspurður um hvort eitthvað hefði verið gert öðruvísi í undirbúningi svaraði Gunnar að ekki hefðu verið gerðar miklar breytingar. Hópurinn var nokkurn veginn sá sami á milli ára en það var lagð frekari áhersla á styrktarþjálfun og aðeins farið öðruvísi í einhver atriði í þjálfun. „Munurinn á milli ára er ekki síst að útlendingarnir sem eru hjá okkur og komu seint inn í fyrra komu snemma til æfinga fyrir þetta tímabil. Við höfum ekki verið að gera það áður. Oftar en ekki hafa þær verið að koma rétt um mánuði fyrir mót en núna voru þær komnar snemma í febrúar og gátu þá tekið allt undirbúningstímabilið með okkur. Þær voru líka búnar að fá smjörþefinn og þekktu umhverfið aðeins. Þetta skipti miklu máli enda gegna þær mikilvægu hlutverki hjá okkur. Þær stóðu sig vel í fyrra allar og því mikilvægt að fá þær aftur“.

sumar sem er með reynslu úr þeirri deild. Hún var til dæmis kosin í lið ársins í Pepsi deildinni 2016 með ÍBV. Hennar áhrif og það að hafa svona stelpur eins og hana og hina þrjár sem komu til okkar með ungu stelpunum okkar er það sem okkur hefur vantað síðustu tvö ár og ég vil meina ástæðan fyrir því að við fórum ekki upp þá. En ef maður horfir á það í dag þá er maður hálf feginn að við fórum ekki upp áður, sérstaklega fyrir tveimur árum þegar við vorum í hörku einvígi við Haukana. Núna er liðið tilbúið tel ég“. Markmiðið var að vinna deildina En markmiðið hjá liðinu núna var alveg skýrt. Nú skal farið upp í Pepsi deild? „Já það var alveg ljóst. En það hafði verið mikið talað um það síðustu tvö ár að við ætluðum upp í Pepsi. Alltaf verið að tala um Pepsi deildina en við breyttum aðeins innan hópsins núna. Við hættum að tala um Pepsi og settum okkur það markmið bara að vinna deildina. Það var markmið sumarsins. Pepsi deildin var tekin úr umræðunni og við gáfum út það markmið að við ætluðum að vinna deildina. Það reyndar náðist ekki en við vorum nú með það sem varamarkmið að komast upp sem var alveg ásættanlegt.“

Natasha gríðarlegur leiðtogi Frammistaða Nathösu Anasi á tímabilinu hefur ekki farið framhjá neinum. Að öðrum ólöstuðum hefur hún verið einhver mikilvægasti leikmaður liðsins. Hversu mikilvægt er að hafa svona leikmann í herbúðum liðsins? „Ég hef sagt það oft áður en maður hefur sjaldan kynnst öðrum eins leiðtoga og leikmanni eins og henni. Hún er auðvitað með reynslu úr Pepsi deildinni og er eini leikmaðurinn okkar í

tMarkmiðið að komast á toppinn á K2 Stelpurnar sýndu í allt sumar mikla einbeitingu og sigurvilja. Var eitthvað sem var gert á þessu tímabili sem var öðruvísi en hafði verið gert áður? „Það var eitt nokkuð skemmtilegt sem við unnum með allt tímabilið sem við höfum nú ekki rætt áður fyrir utan hópinn. Ég fékk

32


hann til mín á afreksbrautina í FS hann John Snorra, eina Íslendinginn sem hefur klifrað á topp K2 fjallsins á landamærum Kína og Pakistan. Ég hef aldrei orðið jafn heillaður af nokkrum fyrirlestri og hjá honum. Fjallganga snýst svo mikið um einbeitingu og að halda fókus. Ef þú heldur ekki einbeitingu þegar þú tekst á við svona verkefni eins og að klífa K2 þá ertu bara dauður. Hann var að klífa fram hjá líkum menn voru að hrynja niður í kringum hann en hann þurfti alltaf að halda fókus á verkefnið sem var fyrir höndum. Þetta unnum við með allt tímabilið. Við vorum alltaf í fjallgöngu. Svo um mitt tímabilið þá fékk ég John Snorra til að koma og spjalla við stelpurnar. Þær voru kannski orðnar aðeins þreyttar á að hlusta á mig tala um þetta en eftir að þær heyrðu hann segja sögu sína þá tikkaði eitthvað inn hjá þeim og við héldum fjallgöngunni áfram allt tímabilið. Við teiknuðum upp mynd fyrir hvern leik. Hvað við værum komnar langt og ef við misstum fókus þá væri hætt við því að við myndum falla niður hlíðina. Þetta hélt fókus hjá mér og hélt fókus hjá liðinu. Þetta var orðið svo innprentað í okkur að stundum í leikjum þá kallaði ég inná völlinn, K2 og þær hrukku við og skildu skilaboðin. Það náðist að halda fókus mjög vel allt tímabilið.“

SÉRHÆFÐIR Í ÖLLUM BÍLRÚÐUSKIPTUM, FRAMRÚÐUR SEM OG AÐRAR BÍLRÚÐUR.

Deildin jafnari og erfiðari Í ár var annað árið sem að spiluð er deildarkeppni en áður voru þetta riðlar hafði það áhrif. „Deildin í ár var jafnari en áður og í raun öll liðin þannig að við gátum alveg tapað fyrir þeim fyrir utan kannski eitt eða tvö. Það sem kom mest á óvart var samt kannski með skagaliðið það var mikið umræða um það þegar þær ákváðu að færa heimaleikina sína inní höllina. Fyrir alla sem eru í fótbolta þá er upplifum að spila á skagavellinum enda sögufrægur og skemmtilegur völlur en þær tóku þessa ákvörðun. Við spiluðum þar við þær í brakandi blíðu á skipaskagnaum inní höllinni. Þeim hafði gengið vel þarna og þetta var mikilvægur leikur fyrir okkur. En það var þá enn sætara að vinna þær sannfærandi. Enda við þaulvön því að spila inni í höllum.

ÁRATUGA REYNSLA...

Bílrúðuþjónustan ehf Grófinni 15c, 230 Reykjanesbæ // 421 7879 // 863 3455

Ungur hópur sem þurfti að þroskast hratt Hópurinn samanstendur að stærstum hluta að ungum stelpum sem þó hafa verið að spila saman í þrjú ár. Hvernig metur Gunnar hópinn og hvað hefur breyst á þeim tíma sem hann hefur stjórnað liðinu? „Þetta var miklu erfiðara í hitt í fyrra, skárra í fyrra og svo small þetta í sumar. Ég hef sagt það við stelpurnar allan minn tíma hérna að þær eru að leika stórt hlutverk þrátt fyrir ungan aldur og því þurftu þær að vera fljótar að þroskast. Af því að þær eru með gríðarlega hæfileika þessar stelpur og góðar í fótbolta en það er það sem skilur oft á milli, það er reynslan. Það skipti líka miklu máli að fá þessa eldri leikmenn inn til að hjálpa yngri stelpunum. Í fyrra og hitt í fyrra þá voru elstu stelpurnar 22 og 23 og það voru bara örfáar. En nú er þetta búið að blandast vel og maður gleymir oft að lykilleikmenn í liðinu eru sumar hverjar bara 17 ára. En þær eru bara það góðar að maður gerir kröfur á þær og biður þær um að drífa sig að þroskast. En þetta er munurinn á okkur og sumum öðrum liðum sem hafa ekki styrkt sig með eldri stelpum eins og við gerðum með útlendingana. Hérna er mikill efniviður en ef við hefðum ekki styrkt liðið á réttum stöðum með þessum stelpum þá er ekki víst að við hefðum komist upp og þá væru þessar lykilstelpur okkar bara farnar. Þetta gerir líka okkar stelpur bara betri, ekki bara í leikjum heldur líka á æfingum að fá aukin gæði utan frá. Þessar stelpur eru nánast allar héðan af Suðurnesjunum og því gott að fá nýtt blóð inn í þetta. En það er mikið álag á þessum stelpum sem eru að spila í landsliðunum. Þær fá ekki mikið frí þar sem þær eru að mæta á æfingar á jafnvel nokkrum landsliðum og þeirra tímabil er ekki enn búið þar sem það eru landsliðsverkefni sem bíða í október.

HM2018

ÉG TEK LÝSI ALLA DAGA Alfreð Finnbogason

Landsliðsmaður í knattspyrnu

Við ætlum ekki í Pepsi deildina til að vera með Stelpurnar okkar munu á næsta ári spila í deild þeirra bestu í fyrsta skipti í nokkur ár hefur Gunnar sett hópnum einhver markmið? „ Það er í sjálfu sér ekki búið að setja nein markmið fyrir næsta ár. En ég segi fyrir mitt leiti að ég er ekki að fara í Pepsi deildina bara til að vera með eða til þess að kljást í einhverri botnbaráttu. Raunhæft markmið er að festa sig í sessi í deildinni og sjá hvar við stöndum. Deildin er í raun

LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR

33


tvískipti. Það eru nokkur lið sem bera höfuð og herðar yfir önnur í deildinni og svo er stór hluti nokkuð jafn. Ég tel til dæmis að við hefðum alveg getað staðið okkur í deildinni gagnvart þessu liðum í neðri hlutanum á þessu ári. Markmiðið er að reyna að halda þessum hóp saman að mestu leiti en við þurfum líklega aðeins að styrkja hópinn og breikka hann“. En er Gunnar bjartsýnn á að halda öllum þessum efnilegu stelpum hjá klúbbnum? „ Já ég held að þessar stelpur sem hafa staðið í þessu með okkur síðustu ár vilji prófa sig með sínu liði í þessari deild. Við erum búin að fara í þessa vegferð saman og núna loksins er markmiðinu náð og þá hljótum við að vilja sjá hvort við eigum ekki erindi í þetta. Það eru einhverjar stelpur samningslausar og þessar erlendu stelpur sem eru með okkur hafa lýst yfir áhuga á að taka slaginn með okkur. Við förum í að skoða þetta á næstu dögum. En þetta eru öflugar stelpur og okkar vilji stendur til að halda þeim. Við erum líka að sjá nokkrar mjög flottar stelpur að koma upp. Það er í raun í fyrsta skipti núna sem við erum að sjá nokkuð af ungum stelpum koma upp. Þetta hefur breyst mikið til batnaðar hjá keflavík síðustu ár. Við munum sjá nokkrar efnilegar stíga skrefið með okkur á næsta ár. Þetta er einstakur hópur“.

er bara eins og fjölskylda í raun og veru. Þegar stelpurnar finna að það er fólk sem er tilbúið að leggja allt í sölurnar til að hjálpa þeim við verkefnið þá er það frábært. Við þjálfararnir finnum auðvitað fyrir þessu líka. Ég er með frábært lið í kringum mig, Hauk aðstoðarþjálfara, Ómar markmannsþjálfara, Helga í styrktarþjálfun og svo höfum við síðustu tvö ár verið að fara til Helgu Margrétar í Metabolic. Svo erum við með gott aðgengi að sjúkraþjálfun. Þessi umgjörð er mjög góð og hefur farið stórlega batnandi síðustu ár. Þetta skiptir mjög miklu máli. En það er margt sem má enn bæta. Til dæmis aðgengi að vellinum til æfinga og þess háttar það má bæta þetta ennþá. Við erum ennþá nokkuð á eftir öðrum liðum hvað þetta varðar. Við erum líka að sjá að það eru fleiri að átta sig á því að það er svakalega skemmtilegt að fylgjast með þessu liði og kvennaboltanum og við heyrum sífellt af fleirum og fleirum sem koma og fara á leikina og skemmta sér þvílíkt vel. Það verður gaman að sjá hvernig þetta verður á næsta ári þegar við verðum í Pepsi og strákarnir í Pepsi. Þegar við horfum á körfuna þá er ekki mikill munur á fjölda áhorfenda á strákum og stelpum. En þetta hefur batnað mikið og vonandi munum við bæta enn meira í á næsta ári. Vonandi munu líka fjölmiðlar taka betur við sér ekki síst hér á svæðinu. Þetta kemur í svona skorpum, stundum er umfjöllunin mjög góð en stundum er eins og þetta gleymist hreinlega. En það var til dæmis mjög flott umfjöllun þegar við tryggðum okkur upp. Það er mikilvægt að fá alla með okkur, áhorfendur, fjölmiðla og aðra til að hjálpa okkur í þessu verkefni sem við erum að fara í.

Umgjörðin fer batnandi „Það er fólk í kringum liðið í kvennaráðinu og víðar sem gjörsamlega lifir fyrir þetta og er búið að eyða ómældum tíma og kröftum í þetta verkefni með okkur. Svona stuðningur smitast auðvitað útí liðið, þetta

34


Sjóvá Reykjanesbæ

440 2450

Sjóvá er efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni. Við gleðjumst yfir því að viðskiptavinir okkar séu ánægðari.

Gerum tryggingar betri


FITAID ALHLIÐA ÍÞRÓTTADRYKKUR

Glútamín & BCAA Fyrir endurheimt vöðva

Steinefni

Magnesíum, kalk, kalíum Fyrir vöðva, bein & taugakerfi

Ríkur af vítamínum og steinefnum. Náttúrulegur drykkur án allra óæskilegra aukaefna.

Omega-3 & CoQ10 Fyrir hjarta & æðakerfið

C & E vítamín

Fyrir eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins

Inniheldur 35 kaloríur og 40mg af koffíni úr grænu tei. Drykkur sem stuðlar að uppbyggingu líkamans eftir æfingar. Vegan.

Túrmerik & quercetin Bólgueyðandi

D vítamín

Fyrir eðlilega starfsemi vöðva & ónæmiskerfisins

Sölustaðir: Fjarðarkaup, Hagkaup, Iceland, Krónan, Melabúðin, Nettó og allar helstu líkamsræktar- og crossfit stöðvar


Afgreiðsla Samskipa er opin virka daga frá kl. 8-16 Við minnum á að sendingar þurfa að berast a.m.k. 2 klst fyrir brottför. Nánari upplýsingar um brottfarartíma á www.samskip.is

Saman náum við árangri


EINN SKEMMTILEGASTI DAGUR SEM ÉG HEF UPPLIFAÐ

ÓGLEYMANLEG KEFLAVÍKURSTEMMNING BALDUR SIGURÐSSON RIFJAR UPP TÍMABILIÐ 2006 Tímabilið 2006 með Keflavík. 12 ár síðan. Þegar ég fékk símtalið um að skrifa um þetta ár var ég fljótur að svara því játandi. Heiður að fá að skrifa um þetta tímabil sem endaði svo glæsilega með bikarmeistaratitli. Þegar símtalinu lauk fór að renna á mig tvær grímur þegar ég fór að hugsa til baka. 12 ár síðan. Allar minningar frá þessu ári dragast saman í eina sterka minningu frá bikarúrslitadeginum. Það er vont að segja að þær falli í skuggann á þessum degi, frekar að þessi dagur lifir svo sterkt í minningunni að heilinn hefur ósjálfrátt notað allt pláss í minninu fyrir þennan dag. Skiljanlega. Þvílíkur dagur sem það var! Það var því lítið annað að gera en að fara inn á KSÍ og skoða Íslensk Knattspyrna 2006 og rifja upp þetta ár. Eftir 10 mín skoðun fer allt á fullt. Þvílíkt ár, þvílíkur hópur, þjálfarar og áhorfendur. Undirbúningstímabilið þetta ár var með hefðbundnu sniði eins og gengur og gerist í íslenska boltanum. Bolti, lyftingar og hlaup fyrir áramót. Meiri bolti, erfiðari lyftingar og erfiðari hlaup fram í miðjan feb þar til Lengjubikarinn byrjaði og þá hægt og rólega fóru æfingar að léttast og lundin með. Allt til þess að vera í toppstandi í fyrsta leik. Ég fullyrði að Keflavík hefur verið með langbestu aðstöðu landsins síðan að höllin var byggð í kringum aldamótin. Þvílík snilld og forréttindi að æfa allar æfingar inni í húsi yfir vetrartímann við bestu aðstæður. Í seinni tíð hefur maður áttað sig betur á hversu mikil munaðarvara svona hús er. Kannski sérstaklega þegar aldurinn

færist yfir og líkaminn mótmælir kulda og snjó alltaf örlítið meira með hverju árinu. Í dag hefur höllunum fjölgað allverulega, sem er vel, en árið 2006 bjuggu fá lið við slíkan munað. Ef minnið svíkur mig ekki vorum við líka ósigrandi í höllinni. Ég efast reyndar um að Keflavík hafi tapað leik í höllinni í svona 10 ár eftir að hún var tekin í notkun. Einnig var nýbúið að stofna íþróttaakademíu með topp lyftingaraðstöðu við hliðina á Reykjaneshöllinni og því var svo sannarlega allt til alls. Útihlaupin fóru fram á steypuhringnum umhverfis völlinn. 500 metra hringur. Vegalengdir voru af ýmsum meiði. Í byrjun vetrar, lengri vegalengdir eins og 6 kílómetra hlaup og svo þegar nær tímabili dró styttist alltaf vegalengdin og endaði í 500-1000 metra sprettum. Þetta ár var mikill í hugur í mönnum. Árið á undan ,fyrsta árið mitt í Keflavík, hafði gengið vonum framar vill ég meina. Eftir bikarmeistaratitil 2004 hurfu margir af lykilleikmönnum á brott og því hófst allmikil endurnýjun á liðinu þann vetur. Guðjón Þórðarson hafði tekið við og átti að stýra skútunni en hljóp frá borði 3 dögum fyrir mót til Englands. Þáverandi stjórnarmenn héldu lengi í þann sið að fá sér koníak þegar liðið hans Guðjóns tapaði leik. Koníakið hefur þó líklega fengið að standa óopnað nú í allmörg ár. Kristján Guðmundsson sem var aðstoðarþjálfari Guðjóns tók við liðinu með Kidda Guðbrands með aðstoðarþjálfara og Rakjo Stanisic sem markmannsþjálfara. Í teyminu voru einnig Falur Daðason sjúkraþjálfari, Þórólfur „Dói“ Þor-

38

steinsson með búningana og Jón Örvar Arason liðsstjóri. Toppteymi. Leikstíll Guðjóns var hefðbundinn „Guðjóns“ fótbolti. 5-4-1, senda langt, hlaupa og tækla. Kristján gerði hárrétt í stöðunni með þann hóp sem hann hafði og gaf mönnum frelsi. Við vorum með tekníska og léttleikandi menn sem þurftu að fá að spila boltanum með jörðinni, fá að vera léttleikandi stemmningsliðið sem hefur alltaf einkennt Keflavíkurliðið. Niðurstaðan varð 4. Sæti. Flottur árangur. Eins og ég tók fram að ofan var mikill hugur í stjórn, þjálfurum og leikmönnum að gera enn betur árið 2006. Kjarninn í liðinu frá árinu áður var öflugur og skipaður mörgum úr gullaldarkynslóðinni ásamt öðrum snillingum. Leikmenn liðisins voru í stafrófsröð: Baldur Sigurðsson: Óhæfur að skrifa umsögn um sjálfan mig. Branislav Milisevic: Örfættur júggi sem hljóp 100 metrana á innan við 11 sek. Góður drengur sem hafði komið til liðsins árið 2005. Buddy Farah: Ástralskur miðvörður sem átti að verða mikill hvalreki fyrir liðið. Stóðst ekki undir væntingum og var farinn um mitt mót. Daníel Severino: Ástralskur kantmaður sem einnig átti að styrkja liðið mikið. Ágætis leikmaður en karakterinn ekki á sama leveli. Davíð Örn Hallgrímsson: Ungur uppalin framherji. Harðduglegur og naskur markaskorari. Einar Orri Einarsson: Einar Orri var 17 ára á þessum tíma. Gríðarlegt efni og góður drengur sem hefur verið óheppinn með meiðsli.


Verið mikilvægur fyrir Keflavíkurliðið í mörg ár og einn besti maður liðsins. Geoff Miles: Vinstri bakvörður sem kom frá Haukum. Ágætis leikmaður sem fór um mitt sumar að mig minnir. Guðjón Árni Antoníusson: Grjótharður bakvörður og einstakur karakter. Leikmaður sem allir þjálfarar vilja hafa í sínu liði. Átti frábæran feril með Keflavík. Gummi Steinars: Magnaður leikmaður sem þarf ekki að kynna. Frábær skotmaður enda skaut hann alltaf þegar hann sá markið, hvort sem það var af 5 metrum eða 50 metrum. Guðmundur Viðar Mete: Einn skemmtilegasti karakter sem ég hef spilað með. Hann var í fýlu einn daginn og glaðasti drengur í heimi þann næsta. Frábær varnarmaður sem hefði getað verið í atvinnumennsku allan sinn feril, en var óheppinn með meiðsli. Hallgrímur Jónasson: Við Haddi bjuggum saman meðan við spiluðum báðir með Keflavík. Höfum oft rætt hversu skemmtilegur tími þetta var. Haddi spilaði vinstri bakvörð þetta sumar þrátt fyrir að vera uppalin miðjumaður. Frábær leikmaður sem átti farsælan feril í atvinnumennsku. Hólmar Örn Rúnarsson: Bói spilaði með okkur fram í ágúst og fór þá verðskuldað til Silkeborg í Danmörku. Einstaklega góður spilari og ég held ég sé ekki að móðga neinn þegar ég segi að betri mann í klefa er ekki hægt að finna. Hrikalega fyndinn og skemmtilegur. Jónas Guðni Sævarsson: Einstakur leikmaður og leiðtogi. Var langbesti maður vallarins í bikarúrslitaleiknum 2006. Spiluðum marga leiki saman á miðjunni á ferlinum og betri

makker er ekki hægt að finna. Kenneth Gustafsson: Sænskt varnartröll sem reyndist okkur vel. Góður á boltann og skemmtilegur í hóp. Hef sjaldan verið jafn feginn og þegar Stjáni hafði Kenneth á miðjunni og mig í hafsent á móti Mainz á útivelli 2005. Við fengum að elta boltann býsna mikið í þeim leik. Magnús Sverrir Þorsteinsson: Maggi var frábær leikmaður sem var gott að hafa í sínu liði og vont að hafa á móti sér. Gat búið til mörk úr engu. Teknískur með lágan þyngdarpunkt og virkilega gaman að spila með honum. Ólafur Jón Jónsson: Óli var virkilega efnilegur leikmaður. Rann ekki í honum blóðið utan fótboltans en inn á vellinum þegar hann fékk boltann í lappirnar náði enginn boltanum af honum. Var virkilega efnilegur. Ólafur Þór Berry: Ungur hafsent sem átti framtíðina fyrir sér. Var mikið efni. Ómar Jóhannsson: Frábær markvörður sem þarf ekki að kynna fyrir Keflvíkingum. Skemmtilegur í hóp og gríðarlega mikilvægur fyrir Keflavík í fjöldamörg ár. Ragnar Magnússon: Ungur og efnilegur hafsent. Sterkur og fínn á boltanum. Í dag einn okkar besti flugmaður. Stefán Örn Arnarsson: Öxlin eins og hann var kallaður. Góður og harðduglegur markaskorari sem ég náði vel saman við. Stóð sig vel tímann sem hann spilaði með Keflavík. Símun Samuelsen: Færeyska undrabarnið. Ég man þegar sá Símun fyrst þegar hann kom á reynslu til Keflavíkur. Ég hafði ekki mikla trú á honum. En sá átti eftir að troða sokk ofan í mig. Galdramaður með boltann, klobbaði menn hægri vinstri og einstaklega

39

skemmtilegur drengur. Frábær fyrir Keflavík þau ár sem hann spilaði þar. Þórarinn Kristjánsson. Tóta þarf ekki að kynna. Markaskorari af guðs náð. Var hann ekki kallaður 500 kallinn líka? Þetta ár höfðum við gríðarlega trú á því að við gætum náð árangri um sumarið. Hópurinn var góður og samheldnin í liðinu góð. Sérstaklega þegar líða tók á sumarið. Það kom fljótlega í ljós að útlendingarnir Buddy Farah og Danny Severino gerðu liðinu ekki gott. Höfðu lítinn áhuga á öðru en að koma sér burt sem fyrst. Það var því góð ákvörðun að losa þá burt úr félaginu í kringum mánaðarmótin júní/júlí. Það getur skipt sköpum að hitta á góða útlendinga. Þeir geta gefið liðinu nýja vídd. En eins og alltaf er þetta ákveðið lottó. Þetta árið duttum við því miður ekki í lukkupottinn með þessa tvo en tek það þó fram að þeir sem voru fyrir Kenneth, Branko, Símun og tyrkinn Mete stóðu sig vel. Þrátt fyrir mikla trú var árangurinn í fyrri umferðinni ekki góður. Eftir 8 leiki vorum við í fallsæti. Haldinn var krísufundur. Hvað var í gangi? Liðið var betra en árangurinn hafði sýnt. Málin voru rædd og farið yfir framhaldið. Níundi leikurinn og sá síðasti í fyrri umferðinni var á móti Breiðablik á heimavelli. Við blómstruðum í leiknum og rúlluðum yfir þá 5-0. Við tókum einnig stórsigur í næsta leik á móti ÍBV 6-2. Þarna vorum við komnir á beinu brautina og við fórum að skríða upp töfluna. Frá Breiðabliks leiknum unnum við 4 leiki og gerðum 2 jafntefli. Eftir það unnum við ekki leik. Hvað breyttist? Jú við vorum komnir í bikarúrslit á móti KR. Til að klára að fjalla um deildina þá enduðum við í 4. sæti eins og árið á undan. Það voru viss vonbrigði því við höfðum klárlega lið til að gera betur og við unnum bæði FH og KR þetta ár sem enduðu í 1. og 2. sæti. Eftir sigurinn á móti FH í c.a. 14 umferð mættum við Víkingi í undaúrslitum bikarsins á Laugardalsvelli. Við höfðum slegið út Leikni Reykjavík og Skagann á leið okkar og leikurinn við Skagann var sérstaklega eftirminnilegur þar sem við unnum á endanum 4-3 á útivelli. Við unnum síðan stórsigur á Víkingum 4-0 í undanúrslitunum og


bikarúrslitaleikur staðreynd. Eftir á að hyggja var kannski eðlilegt fyrir svona ungt lið eins og við vorum, að gengið í deildinni myndi dala eftir að þetta varð ljóst. Ég man sjálfur að ég gat varla sofið á nóttunni út af spenningi fyrir úrslitaleiknum sem þó var langt í, en þá var bikarúrslitaleikurinn ætíð síðasti leikur ársins. Vikan fyrir úrslitaleikinn var mikil stemmningsvika þar sem t.d. Rósa hans Ómars markmanns klippti og litaði hárið á flestum þannig að hver klippingin var annarri hræðilegri. Svona „stunt“ virkar ekki fyrir öll lið en virkaði fullkomnlega fyrir hópinn okkar. Gríðarlega samheldinn hópur sem var alveg sama um álit annarra. Ekta Keflavík. Ekta Keflavíkurstemmning. Þær voru margar skemmtilegar klippingarnar sem Rósa bauð upp á en sú „versta“ var klárlega á honum Hadda vini mínum. Dóa klipping af bestu gerð með hárið litað appelsínugult. Óborganlegt. Allur bikarúrslitadagurinn er ógleymanlegur. Ég var haugstressaður. Það sem mig langaði til að vinna. Mótherjarnir voru KR með Teit Þórðason sem þjálfara en KR hafði endað tímabilið í 2. Sæti. Voru þéttir fyrir varnarlega og tóku marga 1-0 sigra þetta tímabilið. Við vorum klárlega „underdog-inn“ í þessu einvígi. Það var gott veður þennan dag, eiginlega frábært veður þrátt fyrir að leikurinn færi fram í lok september. Sól og logn og frábærar

aðstæður og PUMA sveitin í essinu sínu eins og þeir höfðu verið allt sumarið. Bikarúrslitaleikurinn er magnaður leikur. Það eru forréttindi að fá að spila þennan leik. Rauður dregill þegar labbað er inn á völlinn, þjóðsöngurinn spilaður, einhverjir embættismenn labba og heilsa leikmönnum og allir þeir sem hafa einhvern áhuga á fótbolta í bæjarfélaginu mæta á völlinn og styðja sitt lið. Algjör landsliðsstemmning. Að leiknum sjálfum. Stjáni þjálfari gaf okkur einföld skilaboð fyrir leikinn. Við áttum að loka á hægri bakvörð KR og leyfa vinstri bakverðinum að koma upp með boltann. Sigþór Júlíusson hafði tekið fram skóna og byrjað að spila með KR um mitt sumar og staðið sig vel í hægri bakverðinum. Í vinstri bakverðinum

var ungur leikmaður með minni reynslu. Fótbolti þarf ekki að vera flókinn. Einföld skilaboð geta skilað góðum árangri sem það gerði svo sannarlega í þessum leik. Við byrjuðum leikinn af gríðarlegum krafti og vorum betri í byrjun. Leikplanið gekk fullkomnlega eftir. KR náði engu flæði í sinn leik. Það var svo á 21. Mínútu sem að Gaui Tona skoraði eftir horn og mér tókst svo að tvöfalda forystuna á 30. Mínútu. Djöfull var tilfinningin góð að skora í þessum leik. Eftir þetta átti KR ekki séns. Við sigldum heim 2-0 sigri án vandræða og bikarmeistaratitill 2006 staðreynd. Og það var fagnað. Inn í klefa eftir leik, í rútunni á leið til Keflavíkur, á planinu fyrir framan Sparisjóðinn og um kvöldið. Einn skemmtilegasti dagur sem ég hef upplifað. Ógleymanleg Keflavíkurstemmning.

Salötin & Hummusinn

*GERIR

KRAFTAVERK*

/ Fyrir DAGLEGT BRAUÐ / FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO

40


3529-FRE – VERT.IS

Freyju Draumur. Eftirlæti Íslendinga í yfir 30 ár | freyja.is


UPPSKRIFT AÐ SIGURLIÐI Knattspyrna er tjáningarform og vekur upp tilfinningar sem erfitt er að lýsa. Þessi ráðgata er líklega ástæðan fyrir því að knattspyrna er vinsælasta íþróttagrein í heimi og fleiri hundruð milljón manna fylgjast með þegar mest stendur til. Þess vegna höfum öll skoðanir á því hvernig liðinu okkar gengur og hvort leikmenn þess, þjálfari, eða stjórn eru að standa sig. Við viljum upplifa eitthvað skemmtilegt þegar við mætum á völlinn. Í huga mínum er skemmtilegasta upplifunin þannig að þegar að vel samsett flétta af hæfileikum og baráttu leiðir til þess að gott marktækifæri skapast sem á endanum leiðir til marks, þá magnast upp tilfinningar sem ekki er með nokkrum hætti hægt að gera grein fyrir. Þegar þetta gerist þá rísa allir upp sem einn og fagna með liðinu sínu eins og óðir væru. Leiði það til sigurs gerir það tilfinninguna enn betri. Verði sigrarnir svo margir að það skili titli í hús er tilfinningin nánast fullkomnuð og þá ærist við stuðningsfólkið. Þá finnst okkur eins og að við eigum hlut í því að skila titlinum heim í bæinn okkar. Það er fátt sem jafnast á við það að fylgjast með Keflavík skora mörk, landa sigrum og koma með titla heim. Af þessu höfum við Keflavíkingar góða reynslu og þekkjum vel hvað þetta er góð tilfinning og hvað það skapar góðan hug í kringum allt okkar samfélag. Svona upplifun viljum við ná að vekja upp sem allra oftast. En það er langt frá því að það sé jafn auðvelt að koma þessu í framkvæmd eins og það er að lýsa því. Það þarf margt að koma til og ganga upp, svo að titillinn skili sér á endanum heim til Keflavíkur. En ég hef þá staðföstu trú að á bakvið þetta sé til uppskrift sem við vitum flest hvað inniheldur, en það gengur misjafnlega vel að blanda innihaldinu þannig saman að úr verði sigurlið. Yfirstandi keppnistímabil hefur verið rússíbanareið af velgengni og mótlæti. Þannig er fót-

boltinn og það dregur okkur að þessari íþrótt, hvort sem við erum leikmenn, stuðningsmenn, eða sjálfboðaliðar við stjórnunarstörf. Hjá stelpunum okkar hefur tekist að setja saman sigurlið sem nú er búið að tryggja sér sæti í efstu deild tímabilið 2019. Það er aðdáunarvert að sjá hvernig þeim hefur tekist að þétta hópinn og skapa þá sigra sem þurfti til að komast alla leið upp í efstu deild. Þar er vinnunni hinsvegar hvergi nærri lokið og nú þarf að hefjast handa strax við það að byggja upp liðið fyrir næsta tímabil svo það nái að festa sig í sessi meðal hinna bestu. Hjá strákunum okkar hefur mótlætið verið meira og erfiðu tímabili er nú að ljúka. Þar brugðust margar af mikilvægustu stoðum liðsins á miðju tímabili sem leiddi til þess að aðrir leikmenn þurftu að axla meiri ábyrgð en upp var lagt með. Þrátt fyrir það að velgengnin hafi látið á sér standa, hefur það verið aðdáunvert að fylgjast með okkar yngstu og elstu leikmönnum takast á við þessar áskoranir með því að hengja ekki haus og gefast ekki upp. Það er nefnilega þannig að hinn sanni karakter leikmanna kemur í ljós þegar þeir tapa leikjum. Ég hef ekki áhyggjur af þessum mótbyr sem við höfum gengið í gegnum og veit að þessir leikmenn sem hafa staðið vaktina á knattspyrnuvellinum eru nú allir reynslunni ríkari og munu hefjast strax handa við að undirbúa uppbyggingu á sigurliði í samvinnu við þjálfara og stjórn. Fyrir stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur hefur þetta tímabil verið lærdómsríkt. Innan raða stjórnarinnar er mikill metnaður fyrir því að byggja upp sigurlið karla og kvenna sem ætlar að keppa meðal hinna bestu og verða að fyrirmynd og stolti samfélagsins okkar. Að okkar mati þarf þrennt að koma til svo að það verði mögulegt. Í fyrsta lagi þarf samstöðu okkar allra um þau markmið sem stefnt er að, því árangur liðsins mun ávalt takmarkast af þeim fjölda sjálfboðaliða og velunnara sem leggja okkur lið.

Í öðru lagi verðum við að vera árangursmiðuð, því við megum ekki gleyma því að það eru sigrar sem vekja upp tilfinningarnar sem við sækjumst eftir. Í þriðju lagi verður virðingin að vera okkar leiðarljós, því með því komum við vel fram við hvort annað, njótum við samverunnar og náum jafnvel andstæðingum okkar til að koma til liðs við okkur þegar á reynir. Kæra stuðningsfólk. Allt innhaldið sem þarf í uppskriftina að sigurliði er til hjá Keflavík nú þegar í dag. Enda værum við ekki sjötta sigursælasta lið í knattspyrnu á landinu ef svo væri ekki. Í okkar klúbbi er mikið til að góðu fólki sem kann til vel til verka. Sannir Keflavíkingar vita vel hvað þarf til að ná árangri og ég hvet þá til að leggja okkur lið og láta í ljós skoðanir sínar og tilfinningar. Stöndum saman í því að ná þeim árangri sem við þráum, njótum tilverunnar á meðan við byggjum upp og berum virðingu fyrir öllu í kringum okkur. Áfram Keflavík. f.h. stjórnar Knattspyrnudeildar Keflavíkur Sigurður Garðarsson, formaður

Fyrir okkur sem erum alltaf í boltanum y

Vítamín og bætiefni Gula miðans eru sérstaklega valin og þróuð fyrir íslenskar aðstæður. Þau fást í öllum apótekum, heilsuvörubúðum og í heilsuhillum verslana.

42


ORKA-BRENNSLA-RECOVERY KOFFEIN Eykur orku og einbeitingu!

CARNITINE Flytur fitu inn í frumur líkamans til að auðveldara sé að brenna henni sem orku. Rannsóknir sýna að Carnitine er sérlega áhrifaríkt við að brenna kviðfitu. Flýtir einnig endurheimtum (recovery) eftir æfingar. Fleiri Kostir 1: Eykur úthald. 2: Örvar fitubrennslu. 3: Fyrirbyggir vöðvaniðurbrot. 4: Heldur jafnvægi á blóðsykri. 5: Hefur jákvæð áhrif á einbeitingu og minni.

GRÆNT TE Eykur grunnbrennslu líkamans ásamt því að vera vatnslosandi. Fleiri Kostir 1: Öflugt andoxunarefni. 2: Styrkir hjarta og æðakerfi. 3: Styrkir ónæmiskerfið og minnkar líkur á flensu.

BETA ALANINE Eykur úthald og styrk. Fleiri Kostir 1. Blokkerar mjólkursýru. 2. Minnkar vöðvaþreytu. 3. Flýtir endurheimtum (recovery) eftir hreyfingu.

NÝTT


Bíókvöld?

VERT

Þetta verður veisla

WWW.HUMARSALAN.IS

HÁGÆÐA HRÁEFNI Sérfræðingar í sjávarfangi 44


KOMDU í bragðgott ferðalag KJÖTR

- PY L

ÍKAR

SUR

-

…með kjötríku grillpylsunum frá Kjarnafæði Leyfðu bragðlaukunum að ferðast til fjarlægra landa!

Kjarnafæði hf. | Svalbarðseyri | 601 Akureyri | Sími 460 7400 | www.kjarnafaedi.is


WWW.GLUGGAVINIR.IS

GLUGGAR OG HURÐIR Á GÓÐU VERÐI Á LAGER Hlíðasmára 11, 201 Kópavogi // 571 0888 // 571 0813


ESJ

VÖRUBÍLAR ehf. Selvík 1 • 230 Reykjanesbæ • Sími 894 1337 Netfang: einarsjons@internet.is

REYKJANESAPÓTEK

Kjartansson ehf // Viðskiptaþjónusta Suðurlands // Bónstöð Keflavíkur // GHÁ verktaka Pípulagnir Svavars og Birgis // R.Sól slf. // Steypusögun Suðurnesja // J.S.Gunnarsson Álftavík // Arka Heilsuvörur


VIÐ ERUM STOLTIR STUÐNINGSAÐILAR KNATTSPYRNUDEILDAR KEFLAVÍKUR


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Keflavík knattspyrna 2018 by steini - Issuu