Ráðstöfun séreignar inn á lán Mikilvægt að yfirfara sjóðfélagayfirlit Ný lífeyrisreiknivél Bókaðu viðtal Ávöxtun fyrstu níu mánuði ársins Fræðslufundir í Neskaupstað
Fréttabréf Haust 2026
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
Starfamessa Austurlands Fylgdu okkur á Facebook Tilgreind séreign hjá öðrum vörsluaðilum Undirbúðu framtíðina – kíktu á vefinn!
|
Haust 2026
Ráðstöfun séreignar inn á lán Skatturinn hefur opnað að nýju fyrir almennar umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. • Heimildina má nýta í allt að tíu ár, eða samtals 120 mánuði. Fyrri nýting sambærilegra skattfrjálsra úrræða dregst frá tíu ára tímabilinu. • Heimilt er að ráðstafa allt að 500.000 kr. á einstakling inn á lánið. • Hámarksfjárhæðir breytast árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs, fyrst árið 2027. • Sérstakt sameiginlegt hámark fyrir hjón eða sambúðarfólk er ekki í nýja úrræðinu. • Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort fyrir sig.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Til að nýta heimildina afturvirkt þarf að senda inn umsókn í síðasta lagi 30. nóvember næstkomandi. Eftir þann tíma gildir umsóknin frá þeim mánuði sem hún berst. Meðal skilyrða er að umsækjandi eigi að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu, sé með skráð lögheimili þar og að lánið sé tryggt með veði í húsnæðinu. Nánari upplýsingar og umsókn eru á vef Skattsins og Island.is.
Mikilvægt að yfirfara sjóðfélagayfirlit Réttindi sjóðfélaga byggja á þeim iðgjöldum sem skila sér til Stapa. Það er því afar mikilvægt að rýna vel yfirlit frá sjóðnum og bera þau saman við iðgjöld sem dregin eru af launum. Ef iðgjöld hafa ekki skilað sér er mikilvægt að hafa samband við sjóðinn innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits. Yfirlitin eru birt tvisvar á ári undir Skjöl á sjóðfélagavef og á Ísland.is. Sjóðfélagar með skráð netfang í Mínar upplýsingar á vefnum fá sendan tölvupóst þegar nýtt yfirlit er birt. Sjóðfélagi getur óskað eftir að fá yfirlit í bréfapósti með því að skrá það undir Mínar upplýsingar á sjóðfélagavef eða með því að hafa samband við sjóðinn.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Ný lífeyrisreiknivél Stapi hefur í samstarfi við Aurbjörgu tekið í notkun nýja lífeyrisreiknivél á sjóðfélagavef. Reiknivélin gerir sjóðfélögum kleift að skoða á einum stað áætlaðar greiðslur úr mismunandi tegundum lífeyris. Þannig er auðveldara að sjá hvernig ólíkar forsendur hafa áhrif á tekjur og fjárhagslega stöðu þegar líður að starfslokum. Góð yfirsýn er mikilvægur grunnur að upplýstum ákvörðunum. Með því að kynna sér stöðuna tímanlega geta sjóðfélagar skoðað hvaða möguleikar standa þeim til boða og metið hvort ástæða sé til að gera breytingar á sparnaði eða áformum um starfslok. Nýja lífeyrisreiknivélin er liður í því að gera þessar upplýsingar skýrari og aðgengilegri fyrir sjóðfélaga. Reiknivélin er enn í þróun og áfram verður unnið að endurbótum. Meðal nýjunga er að hún sýnir áætlaðar greiðslur frá Tryggingastofnum miðað við núgildandi reglur. Hafa ber í huga að niðurstöður eru áætlanir en engu að síður gagnlegt verkfæri til að bera saman ólíkar sviðsmyndir og undirbúa framtíðina.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Bókaðu viðtal Stapi hefur tekið upp þá nýbreytni að á vef sjóðsins er hægt er að bóka viðtal vegna lífeyrismála. Í boði er að bóka staðarviðtöl á Akureyri og í Neskaupstað og einnig samtöl í gegnum Teams fjarfundabúnað eða síma. Eftir sem áður er alltaf hægt að koma við á skrifstofum okkar, hafa samband í síma 460-4500 eða í tölvupósti á stapi@stapi.is. Við leggjum okkur fram um að sinna öllum erindum eins vel og kostur er.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Ávöxtun fyrstu níu mánuði ársins Ávöxtun tryggingadeildar fyrstu níu mánuði ársins nam um 2,6% samanborið við 1,5% ávöxtun á sama tíma í fyrra. Innlend skuldabréf skiluðu góðri ávöxtun. Innlend hlutabréf áttu hins vegar erfitt uppdráttar vegna hás vaxtastigs og þrálátrar verðbólgu. Bjartsýni um hjöðnun verðbólgu og lækkandi vexti gekk ekki eftir í haust, meðal annars vegna olíuverðshækkana og aðgerða hins opinbera sem juku verðbólguþrýsting. Á erlendum mörkuðum einkenndist þróunin annars vegar af hækkandi olíuverði og auknum verðbólguþrýstingi og hins vegar af áframhaldandi tækniframförum og uppbyggingu á sviði gervigreindar. Hlutabréf í tækni- og gervigreindargeiranum leiddu ávöxtunina og var ávöxtun erlendra hlutabréfa ágæt í viðkomandi gjaldmiðlum. Styrking krónunnar dró þó úr ávöxtun erlendra eigna í krónum. Á fyrstu níu mánuðum ársins styrktist krónan um 4% gagnvart bandaríkjadal og um tæp 8% gagnvart evru. Varfærna séreignasafnið skilaði um 3,3% nafnávöxtun á
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
3% Innlend skuldabréf
32,9%
2,6% NAFNÁVÖXTUN
45,4%
Innlend hlutabréf Erlend skuldabréf Erlend hlutabréf Skammtímabréf og innlán
4,6% 14,2%
tímabilinu og áræðna safnið um 2,7%. Innlána séreignasafnið skilaði um 4% ávöxtun, sem rekja má til hagstæðra innlánskjara. Ávöxtun tilgreindrar séreignar var um 2%. Í heild var staða sjóðsins traust eftir fyrstu níu mánuði ársins þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður. Góð ávöxtun innlendra skuldabréfa og innlána studdi við afkomuna, en þróun innlendra hlutabréfa og styrking krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum drógu úr heildarávöxtun.
Fræðslufundir í Neskaupstað
Starfamessa Austurlands
Í haust hefur mikið verið um að vera hjá Stapa á Austurlandi. Sjóðurinn hélt fræðslufundi í Múlanum í Neskaupstað 15. og 16. september. Þar var m.a. farið yfir réttindakerfi sjóðsins, skiptingu lífeyrisréttinda, tilgreinda séreign og lífeyrisgáttina.
Stapi tók í fyrsta sinn þátt í Starfamessu Austurlands sem fór fram íþróttahúsinu í Neskaupstað 25. september sl. Þangað mættu nemendur úr 9. og 10. bekk grunnskólanna á svæðinu og einnig úr fyrstu tveimur bekkjum framhaldsskólanna.
Fundirnir voru vel sóttir og sköpuðust á þeim góðar umræður um lífeyrismál, réttindi sjóðfélaga og þá þjónustu sem Stapi býður upp á. Við þökkum Austfirðingum góðar móttökur.
Megin markmið starfamessunnar er að kynna nemendum störf og starfsgreinar í heimabyggð ásamt því að efla samstarf á milli skóla og atvinnulífs. Mörg fyrirtæki á svæðinu tóku þátt og almenn ánægja er með hvernig til tókst.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Tilgreind séreign hjá öðrum vörsluaðilum Sjóðfélagar sem velja að greiða hluta af samtryggingariðgjaldinu í tilgreinda séreign geta sjálfir ákveðið hvar sá hluti er ávaxtaður. Tilgreinda séreignin getur því verið í vörslu hjá Stapa eða hjá öðrum vörsluaðila, allt eftir vali hvers sjóðfélaga. Við hvetjum sjóðfélaga til að kynna sér vandlega kostnað og gjaldtöku vörsluaðila áður en ákvörðun er tekin. Hjá sumum vörsluaðilum getur umtalsverður hluti iðgjalda farið í kostnað, sérstaklega fyrstu árin. Það getur skipt miklu máli þar sem iðgjöld sem greidd eru inn í upphafi, fá lengstan tíma til að ávaxtast. Kostnaður í byrjun sparnaðartímans getur því haft veruleg áhrif á þá fjárhæð sem safnast upp til lengri tíma.
“
Kostnaður vörsluaðila getur haft veruleg áhrif á þá fjárhæð sem safnast upp.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Fylgdu okkur á Facebook Stapi er að stíga sín fyrstu skref á samfélagsmiðlum og hefur opnað Facebook-síðu. Þar munum við miðla fréttum, fræðslu og gagnlegum upplýsingum um lífeyrismál, réttindi sjóðfélaga, þjónustu og viðburði á vegum sjóðsins. Við hvetjum sjóðfélaga til að fylgja okkur á Facebook og fá þannig upplýsingar um það sem er efst á baugi hjá sjóðnum.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Undirbúðu framtíðina – Kíktu á vefinn! Á sjóðfélagavefnum getur þú skoðað margvíslegar upplýsingar um eign þína hjá sjóðnum og ýmislegt fleira.
Mundu að skrá netfangið þitt á sjóðfélagavefin n!
Réttindi þín til eftirlauna
Samkeppnishæf íbúðalán
– Skoðaðu áunnin lífeyrisréttindi – Reiknaðu framtíðarlífeyri – Fáðu yfirsýn yfir öll réttindi í samtryggingasjóðum
– Upplýsingar um lánsrétt eru á vefnum – Skoðaðu stöðu lánsins þíns og greidda gjalddaga – Fylgstu með aukainnborgunum – Þú getur skoðað vexti og endurgreiðsluform lánsins – Reiknaðu hvernig afborgun þróast miðað við mismunandi verðbólguspá
Réttindi þín byggjast á greiddum iðgjöldum – Fylgstu með að iðgjöld skili sér frá launagreiðanda – Iðjaldayfirlit sýnir greiðslur sem berast til sjóðsins – Sjóðfélagayfirlit eru birt í Skjölum
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
Haust 2026
Strandgötu 3, 600 Akureyri og Bakkavegi 5, 740 Neskaupstað
Afgreiðslutími skrifstofu: Akureyri kl. 9:00–12:30 og 13:00–15:00. Neskaupstaður kl. 9:00–12:00 460 4500 Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
|
www.stapi.is
stapi@stapi.is
Haust 2026 Umbrot og teikningar: Blek hönnunarstofa – blekhonnun.is Ljósmyndir: Gyða Henningsdóttir og Einar Guðmann