Skip to main content

Hinar litriku Baleareyjar

Page 1

www.spain.info www.spain.info

2021

Hinar litríku

Baleareyjar Formentera, Ibiza, Majorka og Menorka

SES ILLETES – besta strönd í heimi?

POSIDONIA neðansjávarengin

España I1 ©Consell Insular de Formentera ÚTGEFANDI: TURESPAÑA NIPO: 115-21-036-5


www.spain.info

Kæru Spánarvinir. Enn og aftur nálgast jólin … Getur það verið rétt? Eftir það sem gerðist í fyrra, þegar heimsfaraldurinn „stal“ jólunum frá okkur og kom í veg fyrir að við gætum haldið þau eins og við erum vön, höfum við núna, á árinu 2021, tækifæri til að halda nokkurn veginn venjuleg jól. Þess vegna segjum við öðru sinni: Enn og aftur nálgast jólin og eins og venjulega sendum við hjá Ferðamálastofu Spánar ykkur hlýlegar jólakveðjur með þessum kynningarbæklingi sem þið hafið nú fengið í hendur. Í þetta sinn er hann tileinkaður BALEAREYJUM. Baleareyjar eru Miðjarðarhafseyjar í sinni tærustu mynd. Loftslagið, landslagið, matargerðarlistin, sagan … andi Miðjarðarhafsins svífur yfir því öllu. Ef þið þekkið ekki til þessara eyja getið þið fræðst um það sem á þeim leynist með aðstoð bæklingsins (og það er miklu meira en flestir halda) og fundið ykkur gilda ástæðu til að heimsækja þær. Þeir sem hafa aldrei komið til Baleareyja fara á mis við meira en þeir geta ímyndað sér.

Formentera – kyrrð og friður, Ibiza – stemning og fjör, Menorka – strendur og saga, og stærsta eyjan Majorka er full af gersemum. Meira að segja hafið umhverfis þær er sérstakt, bæði á yfirborðinu og undir því.

Ég get ómögulega gert upp á milli eyjanna fjögurra. Þær eru allar ólíkar og einstakar. Formentera – kyrrð og friður, Ibiza – stemning og fjör, Menorka – strendur og saga, og stærsta eyjan Majorka er full af gersemum. Meira að segja hafið umhverfis þær er sérstakt, bæði á yfirborðinu og undir því. Nú? Hafið þið aldrei heyrt minnst á Posidonia? Þá hafið þið enn meiri ástæðu til að lesa þennan bækling og glæða áhugann á að sjá fyrirbrigðið með eigin augum. Ef þið ákveðið að fara til Baleareyja mæli ég með að þið takmarkið ferðina ekki við eina eyju. Þegar þið hafið á annað borð tekið skrefið og ferðast alla þessa leið er um að gera að taka næsta skref og fara á aðra eyju. Þið munuð ekki sjá eftir því. Þið gætuð siglt á milli eyjanna og notið sólar og fallegs útsýnis. Á þessum tíma ársins er dimmt og kalt en við sýnum ykkur bjartar og litríkar myndir. Það var þó ekki með ráðum gert, svona eru Baleareyjar. Þið ættuð að ganga úr skugga um það sjálf.

GLEÐILEG JÓL! ©Consell Insular de Formentera

2 I España

España I 3


www.spain.info

Es Caló, lítið sjávarþorp

Hvert er besta meðalið við gráum hversdagsleika? Litir! Fullt af litum! Baleareyjar eru tilvalinn ákvörðunarstaður fyrir Íslendinga sem vilja lífga upp á hversdagslífið.

Uppgötvaðu litadýrðina á

BALEAREYJUM ‒ – gulbrúna stíga, grænan gróður og blágrænt haf

4 Insular I España ©Consell de Formentera

©Consell Insular de Formentera

Baleareyjar eru undan austurströnd Spánar, umluktar notalegu og tæru Miðjarðarhafinu. Gulbrúnir, steinlagðir stígar teygja sig yfir þær, þéttur, fagurgrænn gróður þekur þær og kristaltært blágrænt hafið umvefur þær. Eyjaklasinn er eins og lítil paradís sem bíður þess að einhver uppgötvi hana.

©Consell Insular de Formentera

Flakkaðu með fjölskyldunni á milli Majorku, Menorku, Ibiza og Formentera. Ef þið farið á allar eyjarnar getið þið notið þess besta sem hver þeirra hefur upp á að bjóða! Búðu þig undir draumaferðina! Hér má lesa meira um Baleareyjar: https://www.illesbalears.travel/en/baleares

España I 5


www.spain.info

© Consell Insular d´Eivissa and VM

Dalt Vila ©Consell Insular de Ibiza

IBIZA

staðir á heimsminjaskrá Ibiza er þekkt fyrir stanslaust næturlíf en vissir þú að á eyjunni eru staðir sem UNESCO hefur sett á heimsminjaskrá? Reyndar á eyjan fjóra staði á heimsminjaskrá – bæði menningar- og náttúruminjar. BÆRINN DALT VILA

FATAHÖNNUN FRÁ ADLIB

Gamli miðaldabærinn Dalt Vila er einstaklega áhugaverður með sínar þröngu og fremur bröttu götur, lítil og notaleg torg og vel varðveitta borgarveggi frá 16. öld. Gamli bærinn innan borgarveggjanna er hvítur og verðug myndefni blasa við á hverju götuhorni. Kíktu inn í einhverjar af litlu búðunum, njóttu rólegs hádegisverðar á kaffihúsi eða sittu bara og fylgstu með mannlífinu.

Hvítan lit bæjarins er einnig að finna í hönnunarflíkum frá Adlib. Fatnaðurinn frá Adlib er frumlegur og búinn til úr handunnum efnum þar sem hvíti liturinn er alls ráðandi. Hvert skyldi kjörorðið hjá Adlib vera? “Klæddu þig eins og þú vilt en gerðu það með stæl!”

6 I España

©Consell Insular d´Eivissa and MR

©Consell Insular d´Eivissa and MR

SALT ÚR GULLNÁMU MIÐJARÐARHAFSINS

SEGULMAGNAÐ SÓLSETUR

Láttu ekki hjá líða að smakka eðalsaltið frá Ibiza. Þetta náttúrulega hafsalt, sem er unnið í Ses Salines d´Eivissaþjóðgarðinum, inniheldur yfir 80 mismunandi steinefni og náttúruleg snefilefni úr gullnámu Miðjarðarhafsins. Það sést vel í smásjánni: Saltkristallarnir frá Ibiza eru langir og skörðóttir, og minna helst á strandlengjuna sem þeir fundust við! Saltið er hvítt eins og krít og hér og þar bregður fyrir bleiku bliki.

Sagt er að kalksteinskletturinn Es Vedrà skammt undan Cala d´Hort-ströndinni á suðurhluta Ibiza sé þriðji segulmagnaðasti staður í heimi. Þú gætir orðið fyrir einstakri reynslu á kvöldin þegar sólin sígur í hafið. Samkvæmt Pantone-fyrirtækinu er litur ársins gulur og ber nafnið “illuminating”. Þessi guli litur mun án nokkurs vafa veita þér hugljómun ef þú beinir augunum í átt að Es Vedrá að kvöldlagi.

SES SALINES-STRANDLENJGAN Þekktustu strendur Ibiza eru í Ses Salines-þjóðgarðinum. Ses Salines-strandlengjan er aðgrunn og þakin miklum, gullnum sandi sem afmarkast af dökkgrænum furutrjám. Njóttu þess að baða þig í kristaltærum sjónum, röltu út að vitanum og gakktu í gegnum skóginn þegar þú snýrð til baka á ströndina. Undir sandinum er rauður leirbotn og á Majorku muntu sjá sams konar rauðan lit á hinum sögulega 108 ára gamla sporvagni sem skröltir svo skemmtilega frá bænum Sóller til hafnarinnar.

FERJUSIGLINGAR FRÁ MAJORKU Það er jafn auðvelt að komast á Ses Illetes á Formentera, sem er ein af fegurstu ströndum í heimi, og það er að komast í fjörið á Ibiza. Á sumrin sigla ferjur frá Majorku bæði til Ibiza og Formentera.

España I 7


www.spain.info

©Consell Insular d´Eivissa and MSF

Njarðargrasengin Posidonia Oceanica eru hjarta vistkerfisins.

neðansjávarengin Eftir heimsókn okkar í hvíta bæinn er kominn tími til að við höldum á svolítið meira dýpi. Við komumst nefnilega ekki hjá því að minnast á hafið. Á fagurbláan litinn sem umvefur Baleareyjar og breiðir úr sér nánast ógreinanlega eins og blævængur í fjölmörgum grænum litbrigðum. Þessi litbrigði eru alls engin tilviljun vegna þess að hafsbotninn á milli Ibiza og Formentera er heimkynni einnar stærstu lífrænu heildar sem til er á jörðinni, hins fagurgræna njarðargrass sem bylgjast svo fallega neðansjávar og er á heimsminjaskrá UNESCO.

8 I España

Gróðurbreiðurnar eru meira en 100.000 ára gamlar og framleiða súrefni handa ótal lífverum og veita þeim skjól. Njarðargrasengin, Posidonia Oceanica, eru hjarta vistkerfisins. Þau ljá hafinu jafnframt blágænan ljóma og gera það kristaltært. Fá hafsvæði eru eins ákjósanleg til köfunar og þetta. Sagt er að einn ferkílómetri af sjávargróðurbreiðunum framleiði meira súrefni en einn ferkílómetri af skógi á landi!

©Consell Insular de Formentera

España I 9


www.spain.info

Formentera er minnst Furueyja, eins og Baleareyjarnar í suðvestri eru kallaðar. Grikkir gáfu eyjunum þetta nafn þegar þeir uppgötvuðu þær því að þær voru þaktar miklum furuskógum.

Vitinn Cap de Barbaria

Cala Saona

Því er haldið fram að sé paradís til hljóti hún að líkjast Formentera!

©Consell Insular de Formentera

FORMENTERA þegar einfaldleikinn er bestur

Formentera er 19 kílómetra löng og strandlengjan, sem er 69 kílómetrar á lengd, er nánast ekkert annað en dásamlegar baðstrendur! Hingað skaltu koma ef þú þráir að njóta ósnortinnar og friðsællar náttúru. Á eynni eru til dæmis miklu fleiri reiðhjól en bílar, þar eru smábæir en engar borgir, og þú getur farið í gönguferðir eða reiðtúra og veitt fuglafræðingnum innra með þér útrás.

10 I España

Punta Rasa klettarnir

©Consell Insular de Formentera

España I 11


www.spain.info

Hjólað á Ses Illetes-ströndina sem er talin sú fegursta í heimi.

Fjölskylda nýtur útsýnisins á útsýnisstað á veginum sem liggur að La Mola á Formentera.

©Consell Insular de Formentera

©Turespaña

©Consell Insular de Formentera

©Consell Insular de Formentera

Ekki verður hjá því komist að minnast aftur á hafið. Á fagurbláa litinn sem umlykur Baleareyjarnar og breiðir úr sér nánast ógreinanlega eins og blævængur í margs konar grænum litbrigðum.

Allar myndir á blaðsíðunni: ©Consell Insular de Formentera

Torre (turninn) de sa Gavina

©Consell Insular de Formentera

Cami de Sa Pujada ©Consell Insular de Formentera

12 I España

FJÁRSJÓÐUR UNDIRDJÚPANNA

Racó de Sa Pujada

©Consell Insular de Formentera

Hinn raunverulegi fjársjóður leynist þó undir yfirborði hafsins. Grasbreiðurnar Posidonia sem vaxa í sjónum og eru á heimsminjaskrá UNESCO er hvergi að finna nema hér á þessum stað. Þessi átta kílómetra langa lífræna heild er meira en 100.000 ára og teygir sig alla leið frá Ibiza til Formentera.

España I 13


www.spain.info

Migjorn

Es Caló, lítið sjávarþorp

Cala Saona

Allar myndir á opnunni: ©Consell Insular de Formentera

Playa Caló de s’Oli

14 I España

Migjorn Sant Francesc Xavier VEISLA FYRIR BRAGÐLAUKANA Gefðu þér tíma til að njóta hægeldaðs matar á Formentera. Á boðstólum er til dæmis þurrkaður fiskur og steiktur kolkrabbi sem þú gætir jafnvel látið steikja upp úr sínu eigin svarta bleki. Njóttu þess að fá þér glas af rósavíni eyjarskeggja eða flaó en það er sérstök ostakaka með piparmyntubragði sem þeir eyjarskeggjar baka. Láttu tímann sigla sinn sjó!

FERJUR TIL FORMENTERA FRÁ IBIZA OG MAJORKU Á SUMRIN Það kann að virðast óþarflega þungt í vöfum að ekki sé hægt að komast með ferju til Formentera nema frá Ibiza (og Majorku að sumarlagi) en það hefur sýnt sig að þetta fyrirkomulag skiptir sköpum í því að varðveita sérstakt andrúmsloft eyjarinnar.

España I 15


www.spain.info

SES ILLETES – besta strönd í heimi?

Við fullyrðum án þess að hika að helsti kostur Formentera séu strendurnar. Ströndin Ses Illetes ber þó af þeim öllum. Hún er í þjóðgarðinum Ses Salines sem nær frá suðurhluta Ibiza til norðurhluta Formentera.

Allar myndir á opnunni: ©Consell Insular de Formentera

Ströndin hefur margoft verið kosin fegursta strönd í heimi. Það er engin tilviljun. Blágrænn sjórinn er lygn og grunnur og Ses Illetes-ströndin er nánast fullkomin með sinn hvíta, fíngerða sand sem rennur svo mjúklega á milli tánna. Hún er oft kölluð bleika ströndin því þar sem hvítur sandurinn og blágrænt hafið mætast leikur um hana einstakur bleikur ljómi.

16 I España

España I 17


www.spain.info

©Turespaña

MAJORKA

©Fundación Mallorca Turismo

Útsýnispalla er alls staðar að finna á Majorku en þeir voru settir upp svo að gestirnir gætu skynjað kraftinn sem felst í hvítu og blágrænu umhverfi Miðjarðarhafsins.

(endur)uppgötvaðu eftirlætisorlofsstaðinn! Eyjan er umlukt grænbláu hafi og skartar gullinni sandströnd og höfuðborginni Palma sem iðar af lífi.

SIERRA DE TRAMUNTANA-FJALLGARÐURINN

Majorka er hvarvetna falleg. Hvert sem litið er blasir við okkur fegurð sem jafnast á við fegurstu ljósmyndir á póstkorti og gildir einu hvort við erum á gangi um erilsamar göturnar í Palma eða stödd á einhverri af rúmlega 300 ströndum eyjarinnar.

EINN AF ELSTU SPORVÖGNUM HEIMS Jafnt ungir sem aldnir hafa gaman af að taka sér far með einum elsta sporvagni heims og aka með honum frá borginni Sóller til hafnarinnar í þriggja kílómetra fjarlægð.

18 I España

©Turespaña

Miðja vegu á milli iðandi mannlífsins í höfuðborginni Palma og hins tæra hafs við strendurnar er til önnur Majorka sem margir vita ekki um. Það er eyja hins töfrandi græna landslags við Sierra de Tramuntanafjallgarðinn. Þar er að finna Majorku hinna blómstrandi möndlutrjáa, dásamlegra lítilla sveitabæja, bylgjandi kornakra og ólífulunda sem þekja hvern krók og kima fyrir framan grjótstallana í fjallshlíðunum. Fjallgarðurinn Sierra de Tramuntana teygir sig yfir norðvesturhluta Majorku og er á heimsminjaskrá UNESCO. Allir sem hafa gaman af einstakri upplifun ættu að gera sér ferð þangað.

STEINLÖGÐU STÍGARNIR RUTAS DE PEDRA EN SEC Á Majorku er fjölbreytt úrval af merktum göngustígum sem gera jafnt stórum sem smáum kleift að uppgötva náttúrufegurð eyjarinnar á sínum eigin hraða. Steinlögðu stígarnir Rutas de Pedra en Sec eiga það sameiginlegt að steypa kom hvergi við sögu við lagningu þeirra. Um er að ræða yfir 100 km af stígum sem eru bæði merktir og ómerktir og eiga það flestir sameiginlegt að liggja meðfram Tramuntanafjallgarðinum.

España I 19


www.spain.info

ÓLÍFUOLÍAN FRÁ SIERRA DE TRAMUNTANA Gleymdu ekki að smakka gullið frá Majorka. Ólífuolía hefur verið framleidd í Sierra de Tramuntana í þúsund ár og með notkun hennar færist öll matargerð upp á hærra stig.

ALDARGAMALL ÁFENGISLAUS LÍKJÖR Viljirðu rifja upp ilminn af Majorku gætirðu útbúið áfengislaust tilbrigði við líkjör eyjarinnar Licor de Hierbas de Mallorca. Frumgerðin hefur verið framleidd og fullkomnuð síðan í lok 19. aldar og hvorki meira né minna en 20 mismunandi kryddjurtir eru notaðar í hana, en þú getur komist nálægt henni með því að nota kryddjurtir sem þú þekkir. Settu svolítið rósmarín og garðablóðberg – ásamt smávegis af anís ef þú þorir – út í góða jómfrúarolíu, lokaðu augunum og láttu þig dreyma um Majorku.

©Es Picarol Siney

©Vinya Son Alegre

Allir áhugamenn um hönnun ættu að íhuga gistingu á hinu glæsilega verslunarhóteli Es Picarol Sineu þar sem meira að segja hótelhundurinn Samba á sinn eigin instagram-reikning!

©Es Picarol Siney

Sa Creu Nova-hótelið er sannkölluð perla með fallegum garði og sundlaug.

©Turespaña

©Sa Creu Nova

©Sa Creu Nova

MATARMARKAÐURINN Í SINEU

LÍFRÆNT RÆKTAÐ VÍN

DÁSAMLEGT SALT

Gættu þess að missa ekki af vikulega markaðnum í Sineu. Þar geturðu gert margs konar góð kaup, fræðst um ólífuolíu, smakkað fjölmargar tegundir hennar frá ólífubýlinu Olisolivellas og gætt þér á helstu réttum eyjarskeggja á veitingastaðnum Bon Bar þar sem næsti nágranninn er sjórinn.

Langar þig að bragða á víni frá Majorku? Við mælum með víni frá vínekrunum Vinya Son Alegre þar sem framleidd eru framúrskarandi lífrænt ræktuð vín.

Við mælum einnig með heimsókn í saltvinnsluna Flor de Sal sem er spennandi fyrir unga jafnt sem aldna. Þar geturðu kynnt þér og smakkað mismunandi tegundir af salti sem bragðast ekki einungis dásamlega heldur eru einnig dásamlegar útlits!

20 I España

Þegar þú hefur krossað við allt á listanum yfir það sem þú ætlaðir að sjá á Majorku er kominn tími til að halda til næstu eyjar. Þú heldur ferðinni áfram frá hafnarbænum Alcúdia og siglir með ferjunni til Ciutadella á Menorku.

España I 21


www.spain.info

©FFTMENORCA

TALAYOT-MENNINGIN segir sérstaka sögu um forsögulega íbúa Menorku og tímabil í sögu Baleareyja sem spannar 2.200 ár. Eyjarskeggjar sem voru uppi á Talayot-menningarskeiðinu reistu mannvirki úr jötunsteinum – háar turnlaga byggingar úr stórum steinum. Yfir 1.500 fornar minjar hafa verið grafnar upp. Það er ekki lítið á þessari smáu eyju! “Einstakt í heiminum” – Það er engin tilviljun að yfirskriftin að umsókninni um að Talayot-menningin á Menorku yrði sett á heimsminjaskrá UNESCO væri orðuð nákvæmlega svona. ©FFTMENORCA

MENORKA Dýfðu tánum í grænbláan fjörð

Strendurnar á suðurhluta eyjunnar eru þaktar hvítum sandi og umkringdar grænbláu hafi og kyrrlátum furutrjálundum. Margir þeirra eru nánast eins og ósnortnar perlur sem bíða þess að verða uppgötvaðar.

Landslagið á Menorku getur heillað allra reyndustu ferðamenn upp úr skónum því það er svo tilkomumikið. Það er sama hvort þú tekur stefnuna inn í land eða kemur þér fyrir á sandströnd og færð þér svalandi fótabað.

Hin undurfagra Menorka býr yfir ósnortinni náttúru og fjölmörgum möguleikum fyrir norrænar fjölskyldur til könnunarferða sem hressa bæði líkama og sál.

22 I España

©Turespaña

España I 23


www.spain.info

Matargerðarlistin á Menorku er tilvalin ástæða til að heimsækja eyjuna og taka til matar síns!

Flakkað á milli Baleareyja

©Turespaña

Hefðbundnar uppskriftir frá Menorku, sem hafa varðveist frá einni kynslóð til annarrar, segja ótvíræða sögu um gott hráefni á eynni. Einkennisréttur Menorku er sjávarrétturinn CALDERETA DE LANGOSTA, humarkássa! Þú ættir endilega að prófa veitingastaðina Ses Voltes í Ciutadella, Sa Pedrera d´es Pujol og Sa Cantina Gallery.

Majorka er tengd við aðrar Baleareyjar með bæði flugi og ferjusiglingum. Viljirðu komast til Menorku geturðu tekið ferju þangað frá norðurhluta Majorku.

©Turespaña

Við mælum með að þú haldir ekki á brott frá Menorku án þess að smakka ostinn Mahón sem framleiddur er á eynni. Vel er við hæfi að fara í fræðslu- og smökkunarferð á ostabúinu Binillubet.

©Ses Voltes

Dreymir þig um eitthvað ljúffengt í glasi í náttúrulegum helli? Þá skaltu kanna hellinn Cova d´en Xoroi.

©Turespaña

Ef þú hefur áhuga á listum ættirðu ekki að missa af listagalleríinu Hauser & Wirth á hinni litlu og heillandi eyju Illa del Rei.

Láttu ekki hjá líða að skoða plönturíki eyjarinnar í þjóðgarðinum S´Albufera d´es Grau.

Skemmtilegt er að rölta innan um risastórar sandstyttur í Lithica enda höfða þær til allra aldurshópa.

Hefurðu heyrt talað um menorquinas? Það eru þægilegir og snotrir sandalar sem eru framleiddir á eynni og eru fallegur minjagripur frá Menorku. ©Turespaña

24 I España

Ætlirðu að sigla frá Formentera til Majorku stóru systur hennar gengur sérstök ferja á milli eyjanna allt sumarið. Á milli Ibiza og Formentera ganga ferjur oft á dag svo það er leikur einn að flakka á milli Baleareyja!

FERÐASTU TIL BALEAREYJA MEÐ ÖRUGGUM HÆTTI Spænsk yfirvöld hafa sett upp sína eigin vefsíðu með upplýsingum um öruggar ferðir til Spánar og öryggi á ferðalögum um Spán. Baleareyjar eru vitaskuld þar með taldar. Farðu inn á vefsíðuna og lestu nýjustu uppfærslur um hvað ber að gera til að tryggja fjölskyldunni öryggi í fríinu. https://travelsafe.spain.info/en/

©Turespaña

España I 25


26 I España


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook