GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.3.2022 10:28 Page 1
Grafarvogsblaðið 3. tbl. 33. árg. 2022 - mars
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
Ódýri ísinn
]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]` Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-* ;Vm *,* -*-+
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
lll#[b\#^h
Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
Verður Fjölnir deildarmeistari? Stelpurnar í körfuboltanum í Fjölni eru komnar í fremstu röð á Íslandi og þær eiga góða möguleika á að verða deildarmeistarar. Þegar aðeins tvær umferðir eru eftir er
www.bilavidgerdir.is
Þjónustuaðili
Fjölnir í efsta sæti. Þegar deildarkeppninni lýkur tekur úrslitakeppnin við og Fjölnir er þegar með þátttökurétt þar í úrslitum fjögurra liða. Sjá nánar á bls. 15
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 18.-19. mars 2022
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.3.2022 11:22 Page 2
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Leiðhamrar 39 - Sími 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Einar Ásgeirsson og fleiri. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.
Úthverfin annars flokks Dæmi um lítilsvirðingu borgaryfirvalda gagnvart úthverfunum og efri byggðum Reykjavíkur er skandallinn varðandi snjómoksturinn undanfarnar vikur. Eða öllu heldur snjómoksturinn sem aldrei varð að veruleika. Sumar götur voru aldrei mokaðar. Í aðrar komu eitt og eitt tæki í nokkrar mínútur og vinnubrögðin þannig að betra hefði verið að moka ekkert. Snjómoksturinn gekk hins vegar mjög vel í miðborginni. Og í Hlíðunum var mokað daginn eftir að mikli snjórinn féll. Ekki sama Jón og séra Jón. Yfirmaður mokstursmála hjá borginni kom fram í fjölmiðlum grátbiðjandi um þolinmæði íbúanna sem komust ekki í vinnuna frá heimilum sínum. Meirihluti í borginni hverju sinni verður að hafa manndóm í sér til að útvega nægilega mörg tæki til snjómoksturs og þarf í þessa fáu daga á ári þegar allt verður ófært. Þessi aulagangur varðandi snjómoksturinn á raunar ekki að koma neinum á óvart. Það er stefna meirihlutans í Reykjavík að leggja höfuðáherslu á miðbæinn og láta efri byggðir mæta afgangi. Og á meðan að þessir meirihlutaflokkar fá meirihluta í borginni verðum við íbúarnir í efri byggðum líklega að sætta okkur við óréttlætið sem í þessari stefnu felst. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um komandi helgi er mjög áberandi í blaðinu að þessu sinni og mikill áhugi fram-bjóðenda að koma sínum skilaboðum að í blaðinu. Sjálfstæðismenn hafa uppgötvað mikilvægi hverfablaða og nýtt sér þau óspart. Aðra sögu er að segja af frambjóðendum annarra flokka sem hafa nánast aldrei samband við þau blöð sem við gefum út þótt þau standi öllum opin. Þeir sem ætla sér að kjósa í prófkjörum ættu að kynna sér vel hvaða frambjóðendur eru hlynntir framkvæmdum og framförum í úthverfunum og líklegir til að sýna málefnum úthverfanna áhuga. Það þarf að fjölga þeim mjög í Ráðhúsinu eftir kosn-ingarnar í maí sem hlynntir eru úthverfunum og Stefán Kristjánsson efri byggðum.
gv@skrautas.is
Björn Gíslason býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 18. og 19. mars:
Skipulags- og lóðastefna verður að efnahagsvanda Árið 2013 samþykkti borgarstjórn nýtt aðalsskipulag fyrir Reykjavík. Megin forsenda þess fólst í því að auka þéttingu nýrrar byggðar úr 50% í 90%. Um þetta segir í nefndu skipulagi: „Gert er ráð fyrir að 90% allra nýrra íbúða rísi innan núverandi þéttbýlismarka í stað 50% áður.“ Við sjálfstæðismenn vöruðum mjög við þessari þéttingarstefnu og töldum hana hafa í för með sér mun minna lóðaframboð, hækkun á lóðaverði, mikla hækkun á húsnæðisverði, hækkun á leigumarkaði, húsnæðisskort, einkum meðal ungs fólks í Reykjavík, fyrirtækja- og fólksflótta úr borginni, einkum meðal ungs fólks sem er að hefja búskap, mikla hækkun á fasteignamati og þar með á fasteignasköttum, verri umhverfisgæði í nýjum hverfum og ásókn í opin, græn svæði. Þessi varnaðarorð okkar sjálfstæðis-manna má finna og lesa skýrum stöfum í bókun okkar við afgreiðslu á tillögunni í borgarstjórn þann 26. nóvember 2013. En nýtt aðalskipulag var samþykkt og því fór sem fór. Þessi samþykkt er einhver sú örlagaríkasta sem um getur í borgarstjórn á seinni árum. Sjaldan, ef nokkurn tíma, hafa varnaðarorð í bókunum minnihlutans ræst eins rækilega og í þessu tilviki. Lóðaskorturinn hefur verið viðvarandi og er nú meiri en í langan tíma en á síðasta ári var einungis úthlutað 450 lóðum í Reykjavík. Húsnæðisverð hefur aldrei hækkað jafn
ferðarmengun.Auk þess sem fjöldi fyrirtækja hefur flúið borgina á þessum tíu árum. Og þetta er ekki allt! Húsnæðisverð-bólgan sem hófst í Reykjavík hefur breiðst út um landið. Hún er megin ástæðan þess að verðbólgudraug-urinn hefur verið vakin upp og er aftur komin á kreik. Hún er megin ástæðan fyrir þeirri staðreynd að Seðlabankinn hefur neyðst til að hækka vexti og því miður enn sem komið er, með litlum árangri. Þéttingarstefna meirihlutans er því orðin að helsta efnahagsvanda þjóðarinnar. Það er því löngu Björn Gíslason borgarfullttrúi Sjálfstæðisflokksins í orðið tímabært að láta Reykjavík. núverandi meirihluta í borgarstjórn taka pokann mikið í Íslandssögunni og sama er að segja um sinn og fá þar nýjan meirihluta með nýja og leiguverð. Ungt fólk hefur hafið sinn búskap inn ábyrga stefnu. á heimilum foreldra sinna og síðan flúið í Björn Gíslason hundraða vís í önnur sveitarfélög, allt frá Selfossi borgarfulltrúi, og Suðurnesjum og upp á Akranes, akstur þess sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðistil og frá vinnu hefur orðið allt að 10-20 sinnum flokksins í Reykjavík. lengri en áður með tilheyrandi tímaskatti og um-
Lára Bryndís nýr organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir hefur verið ráðin organisti við Grafarvogssókn. Þar með verða tveir organistar í fullu starfi við sóknina. Lára Bryndís Eggertsdóttir byrjaði ung að læra á píanó og 14 ára gömul tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í Langholtskirkju. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með hæstu einkunn vorið 2002 undir handleiðslu Harðar Áskelssonar. Lára Bryndís flutti árið 2018 aftur heim til Íslands eftir 10 ára búsetu í Danmörku þar sem hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014. Einnig starfaði hún sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum. Fyrst eftir heimkomuna var Lára Bryndís organisti Hjallakirkju í Kópavogi, en starfar nú tímabundið við Neskirkju í Reykjavík uns hún tekur við stöðu organista og kórstjóra í Grafarvogskirkju. Meðfram organistastörfunum kennir Lára orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Lára hefur haldið fjölmarga einleikstónleika á orgel, bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum. Árið 2014 stóð hún fyrir tónlistarverkefninu „Ég heyrði þytinn frá vængjum þeirra“, þar sem sjö íslensk tónskáld sömdu orgelverk að beiðni Láru, og gaf út samnefndan geisladisk. Lára Bryndís mun m.a. stjórna kórnum Vox Populi sem fyrst og fremst syngjur í Kirkjuselinu í Spöng auk þess að sinna hefðbundu starfi organista í samvinnu við Hákon Leifsson tónlistartsjóra Grafarvogssóknar. Það er mikil tilhlökkun og fengur í að fá þennan færa organista til starfa við söfnuðinn ekki síst í ljósi þesss að í maí mánuði næstkomandi verður glæsilegt 33 radda snemm rómanstíkt 19. aldar pípuorgel sett upp í Grafarvogskirkju. Lára Bryndis mun hefja störf í Grafarvogssókn 1. apríl og við bjóðum hana hjartanlega velkomna. (Fréttatilkynning frá Grafarvogskirkju)
Lára Bryndís Eggertsdóttir.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 11.3.2022 13:53 Page 3
SPENNANDI VIÐBURÐIRR Í HVERJUM MÁNUÐI
ALLT LTAF GAMAN Fylgstu með dagskránni á Facebooksíð íðu Keiluhallarinnar. facebook.com/keiluhollin manlega á keeiluhollin@keiluhollin.is Bókaðu borð tíím
PÖBB QUIZ
ÖLSKYLDU RISAFJÖL
RULL K P A V P E S
NEI. HÆTTU NÚ ALVE VG STÓRSKEMMTILEGT FÓTBOLLTTAQUIZ HJÖRVVAARS HAFLIÐA
RISA Hörður og Pétur úr Bandmönnum halda uppi stuði og stemningu á sinn einstaka hátt.
BINGÓ SVEPPAA FULLORÐINS ÚTGÁFAN
VILLI NAGLBÍTUR
DDJ. J J. ÓRA ÓR ÓRA Ú ÍÍAA ÚL
SHAKE&PIZZA GÓÐAN DAGINN HEIMTÖKUUTILBOÐ SHAKE&PIZZA
s ha k e p i z z a . is
# s h a k e a n d p i z za
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.3.2022 17:23 Page 4
4
Fréttir
GV
Fáein orð um framkvæmdir, viðhald, þjónustu, skuldir og skatta - Marta Guðjónsdóttir býður sig fram í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Góð borgarstjórn fjárfestir af hagkvæmni og skilvirkni í innviðum samfélagsins, heldur við mannvirkjum borgarinnar á sómasamlegan hátt, sinnir grunnþjónustu og bætir helst þjónustuna við borgarbúa, greiðir skuldir sínar og heldur gjöldum og sköttum í lágmarki.
láta verkin tala. Vanræksla á viðhaldi kemur fram í myglufaraldri í grunnskólum og leikskólum sem og í vanhirtum skólalóðum. Sorphirða verður æ dýrari á meðan sorp er sjaldnar hirt, og misheppnað ævintýrið með GAJA – gas- og jarðgerðarstöð, hefur kostað borgar-búa 4,2 milljarða.
Framkvæmdir viðhald og þjónusta Frammistaða núverandi borgarstjórn-armeirihluta er andstæða alls þessa. Hann situr með hendur í skauti og talar, fremur en að
Önnur þjónusta við borgarbúa er eftir þessu: Snjómokstur borgarinnar fennir í kaf þessa fáu daga á ári sem við þörfnumst hans. Íbúar í efri hverfum fengu heldur betur að
kynnast því þegar snjóinn kyngdi niður nú á dögunum. Grasslætti er víða illa sinnt á sumrin og svifryksmengun hefur aukist til muna vegna þess að umferðargötur eru ekki þrifnar. Skuldir og skattar Borgarstjórn greiðir ekki skuldir heldur safnar þeim. Í byrjun þessa kjörtímabils skuldaði Reykjavíkurborg 299 milljarða en skuldar nú, í lok þess, ríflega 400 milljarða. Hér ætti að vera nóg upp talið til að gefa meirihlutanum í borgarstjórn falleinkunn. En við eigum samt eftir að botna þessa öfugmæla vísu. Á meðan ekkert er gert til að styrkja innviði samfélagsins, - á meðan sameiginlegar eignir okkar eru í niðurníðslu, - á meðan þjónustan við okkur dregst saman og verður sífellt dýrari, - og á meðan skuldaklafinn þyngist – dag frá degi, er borgin að setja met í skattheimtu: Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem leggur hæsta, löglega útsvar á launþega. Hún leggur langhæstu álagningu á atvinnuhúsnæði, og fasteignaskattar í borginni hafa hækkað um tæplega 100% á tíu árum. Árið 2013 innheimti Reykjavíkurborg 11,6 milljarða í fasteignaskatt, en árið 2020 var sú upphæð komin í 22 milljarða. Hvernig í ósköpunum er hægt að gera
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. ekki neitt, vanrækja sómasamlegt viðhald, Meirihlutinn í borgarstjórn á heldur ekki draga úr þjónustu og safna skuldum, en auka að komast upp með það. jafnframt skattheimtuna á sama tíma? Við kæmust ekki upp með að reka heimili okkar Höfundur: Marta Guðjónsdóttir svona. borgarfulltrúi
2 FYRIR 1
af margskiptum glerjum
SÍMI: 5 700 900
FRÍ LING SJÓNMÆ P VIÐ KAU UM Á GLERJ
KÍKTU VIÐ OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! A PROOPTIK - SPÖNGINNI Ö
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.3.2022 17:42 Page 5
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík 18-19 mar s
Marta Guðjónsdóttirr 2. sæti Ég gef kost á mér í annað sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. „Ég hef einlægan áhuga á því að fá að vinna áfram að stefnumálum Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og taka þátt í því að snúa af vegferð núverandi meirihluta. Ég Ég gvil rekstri borgarinnar virðingu fyrir framlagi skattborgara. samgöngustefnu fyrir íalla í efmeira kost aðhald á sér íí annað sætið í prófogkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík,Égvevil gnaheildstæða borgar stjór nar kosninganna vorr.ferðamáta . stað núverandi stefnu, sem hægir á umferð fólksbíla og almenningsvagna, eykur mengun og dregur úr umferðaröryggi. Þá vil ég tryggja nægt framboð „Ég hef einlægan áhuga á því að fá að vinna áfram að stefnumálum Sjálfstæðisflokksins í borgar stjór n og taka þátt í því að snúa af vegferð lóða í borginni fyrir fjölbreytta íbúðabyggð í nýjum hverfum og framsækna menntastefnu sem mætir þörfum nútímans. Ég vil auk þess bæta mjög núverandi meirihluta. Ég vil meira aðhald í rekstri borgarinnar og virðingu fyrir framlagi skattborgara. Ég vil heildstæða samgöngustefnu fyrir þjónustu við eldri borgara og gera hana persónulegri og skilvirkari.“
alla ferðamáta í stað núverandi stefnu, sem hægir á umferð fólksbíla og almenningsvagna, eykur mengun og dregur úr umferðarör yggi. Þá vil ég tr yggja nægt framboð lóða í borginni fyrir fjölbreytta íbúðabyggð í nýjum hverfum og framsækna menntastefnu sem mætir þörfum nútímans. Ég Helstu markmið: vil auk þess bæta mjög þjónustu við eldri borgara og gera hana per sónulegri og skilvir kari.“
1. Aðhald í rekstri og virðing fyrir framlagi skattborgara
5. Nægt framboð lóða á hagkvæmu verði
„Snúa verður frá óheyrilegri skuldasöfnun, sem er að sliga rekstur borg- markmið: „Reykjavíkurborg hefur því miður ekki mætt þörfum markaðarins sem Helstu arinnar, og kemur m.a. fram í vanrækslu á viðhaldi fasteigna eins og endurspeglast í háu fasteigna- og leiguverði. Tryggja þarf nægt framboð eldri hverfum þarf að vinnahverfum í góðri sáttá við íbúa í stað þess að fyrir kveikjafjölbreytta ófriðarbál skólum og leikskólum, þjónustu ogfrhærri sköttum.“ byggingalóða í nýjum hagkvæmu verði Aðhald í rekstriskertri og virðing fyrir amlagi skattborgara um alla borg.og Sinna þarf eftir spur n eftir fjölbr eyttum úðar kostum oúr g trborginni. yggja íbúðabyggð stöðva þannig flótta fólks ogíbfyrirtækja .“ „Snúa verður frá óheyrilegri skuldasöfnun, sem er að sliga rekstur borgarinnarr,, og 2. Heildstæð fyrirfasteigna alla ferðamáta nægt framboð lóða í borginni. Reykjavíkurborg hefur því miður ekki mætt þörfum kemur m.a. samgöngustefna fram í vanrækslu á viðhaldi eins og skólum og leikskólum, 6. Menntastefna sem mætir þörfumognútímans mar kaðarins sem endur spe glast í háu fasteignaleiguverði í dag.“ sker tri þjónustu og hær ri sköttum.“ „Góðar samgöngur auka lífsgæði allra, þær stytta ferðatíma, auðvelda verslun og þjónustusamgöngustefna innan borgarinnarfyrir og stytta „Leikskólar án biðlista eru lífskjarajafnréttismál og því forgangMenntastefna sem mætir þörfum nog útímans Heildstæð alla fviðbragðstíma erðamáta neyðarþjónustu. Góðar samgöngur bæta jafnframt öryggiauðvelda ef náttúruvá að leysa þanneru vanda er kominn. þarf biðlistum og „Leikskólar án biðlista lífskjarsem a- ogupp jafnréttismál og því Eyða forgangsatriði að „Góðar samg öngur auka lífsgæði allr a, þær stytta ferðatíma, ver slun eða satriði hætta steðjar að og því þarf að tryggja skynsamlegar fjárfestingar allra sinna almennu og eðlilegu viðhaldi skólabygginga, sem núverandi meirileysa þann vanda sem upp er kominn. Eyða þarf biðlistum og sinna almennu og og þjónustu innan borgarinnar og stytta viðbragðstíma neyðarþjónustu. samgönguinnviða. Núverandi samgöngustefna hefur hægt á umferð, hluti hefur gefistskóla uppbygá.ging Þáa,þarf að brúa bilið milli fæðingarorlofs eðlile gu viðhaldi sem núver andi meirihluti hefur gefist upp á. Þá og leikGóðar samgöngur bæta jafnframt ör yggi ef náttúr uvá eða hætta steðjar að aukið mengun og dregið úr umferðaröryggi. Snúum af þeirri braut með skóla þannig að öll börn 12 mánaða og eldri verði tryggð leikskólavist. þarf að br úa bilið milli fæðingaror lofs og leikskóla þannig að öll bör n 12 mánaða og því þarf að tr yggja skynsamlegar fjárfestingar allra samgönguinnviða. nýjustu tækni í ljósastýringum, mislægum gatnamótum við Bústaðaveg – Enn fremur verðum við að auka sveigjanleika í skólastarfi og sjálfstæði og eldri verði tr yggð leikskólavist. Enn fremur verðum við að auka sveigjanleika í Núverandi samgöngustefna hefur hægt á umferð, aukið mengun og dregið Reykjanesbraut, á Miklubraut og með undirgöngum eða og göngubrúm skóla.“ skólastarfi og sjálfstæði skóla.“ úr umferðarör yggi. Snúum af þeir ri braut og fjárfestum strax í nýjustu tækni þar sem ínú eru ljósastýrðar gangbrautir yfir Miklubraut. ljósastýringum, nauðsynle gum framkvæmdum á stofnbrautum og setjum 7. fasteignaskatt á eldri borgara PerHætta sónulegað ri leggja og skilvirkari þjónusta við eldri borgara Sundabraaut í forgang.” 3. Raunhæfar lausnir í almenningssamgöngum „Afnemum þann síívvaxandi fasteignaskatt sem lagður er á eldri borgara og ger um „Afnemum fasteignaskatt lagður er áÞjónusta eldri borgara fólki kleift að bþann úa semsívaxandi lengst þar sem það hefur komiðsem sér upp heimili. Raunhæfar lausnir í almenningssamgöngum „Hægt er að stórbæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu ogvið gerum fólki búaeinstaklingsmiðuðum sem lengst þar sem komið sér upp eldri bor gara kleift þarf aðað mæta þörfumþað þeirhefur ra og uppfylla „Hægt er að stórbæta almenningssamgöngur á höfuðborgar svæðinu með með skipulagsbreytingum á Strætó, fyrir brot af þeim kostnaði sem Borg- heimili. Þjónusta við eldri borgara þarf að mæta einstaklingsmiðuðum kröfur nútímasamfélags“ skipulagsbreytingum á Strætó, fyrir brot af þeim kostnaði sem Borgar lína kemur arlína kemur til með að kosta. Almenningssamgöngur eiga að auka skilþörfum þeirra og uppfylla kröfur nútímasamfélags“ til með að kosta. Almenningssamgögur eiga að auka skilvir kni í umferð ekki hægja virkni í umferð ekki hægja á öðrum samgöngukostum, líkt og núverandi Standa vörð um grænu svæðin í borginni á öðr um samgöngukostum, líkt og núverrandi stefna gerir ráð fyrirr.. Núverandi stefna gerir ráð fyrir. Núverandi hugmyndir um Borgarlínu eru tíma8. Standa vörð um grænu svæðin í borginni „ Opin græn svæði er u lungu þéttbýlis og ómetanleg umhverfisgæði. Núverandi hugmyndir um Borgar línu er u tímaskekkja í þeir ri samgöngubyltingu sem nú er í skekkja í þeirri samgöngubyltingu sem nú er í deiglunni.“ þétting byggðar herrjjar hins vegar á slík svæði s.s. á Elliðaárdalinn, Laugardalinn, deiglunni.“ „ Opin græn svæði eru lungu þéttbýlis og ómetanleg umhverfisgæði. Öskjuhlíð og náttúr ulega fjör u við Skerrjjafjörð. Ég mun standa vörð um þessar 4. Skipulagsstefna í sátt við borgarbúa Núverandi þétting byggðar herjar hins vegar á slík svæði s.s. á Elliðaárnáttúr uper lurr,, ósnor tnar fjör ur og opin græn svæði innan hverfa.“ Skipulagsstefna í sátt við borgarbúa dalinn, Laugardalinn, Öskjuhlíð og náttúrulegar fjörur. Ég mun standa „Borgar skipulaþarf g þarfaðaðsinna sinna bæði og þörfum borgarbborgarbúa. úa. Þéttingu í Þétt„Borgarskipulag bæðióskum óskum og þörfum vörð um þessar náttúruperlur, ósnortnar fjörur og opin græn svæði innan ingu í eldri hverfum þarf að vinna í góðri sátt við íbúa í stað þess að hverfa.“ kveikja ófriðarbál um alla borg..“
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.3.2022 13:48 Page 6
6
Fréttir
GV
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 18. og 19. mars:
Gleymdu byggðirnar Það kom eflaust fáum á óvart þegar fréttir bárust nýlega af því að Kjalanesbúar væru alvarlega að íhuga að slíta sig frá Reykjavík, enda er ekki óalgengt að heyra aðra borgarbúa austan Elliðaár gæla við þessar hugmyndir líka. Og af hverju ekki? Reykjavík fellur á þjónustuprófinu í einföldustu málum. Vinkona mín sem er nýflutt í Kópavog vissi ekki hvert hún ætlaði þegar hún fékk nýja ruslatunnu einungis tveimur tímum eftir að hún pantaði hana. Hún hefur búið víða í Reykjavík og sagði að meðalbiðtími þar sé í það minnsta mánuður. Hér má ekki gleyma að um er að ræða sama
fyrirtækið Sorpu, bara mismunandi útibú. „Er ekkert mokað hérna? Gangstéttirnar eru betur ruddar á Akureyri en göturnar hér í Reykjavík“ var það fyrsta sem önnur vinkona mín sagði við mig þegar hún kom í heimsókn til Reykjavíkur eftir að hafa búið fyrir norðan í ár. Eftir fylgdu fjölmargir brandarar um hvernig hálfrar aldar gamlir sveitavegir á heiðinni eru auðveldari yfirferðar en íbúagötur efribyggða í smá snjóþyngslum. Þessi torfæra á vegunum er svo helsta uppgefna ástæða þess að ruslabíllinn hefur víst ekki treyst sér til að tæma ruslið í efri byggðum. Íbúar þurfa því fyrst að
þola það að borgin ráði ekki við að moka göturnar og svo að borgin treysti sér ekki til þess að tæma ruslið af því að hún mokar ekki göturnar. Að borga meira fyrir minna Þetta er rauði þráðurinn í gegnum upplifun fólks af grunnþjónustu Reykjavíkur en verður oft sérlega slæmt austan Elliðaár. Þar eru til mýmörg dæmi bæði stór og lítil. Til að mynda þegar Strætó breytti um leiðakerfi núna nýlega ákváðu þeir að fækka strætó stoppistöðvum í efribyggðum. Hundaeigendur hafa kvartað undan því að það verði sífellt erfiðara að finna ruslatunnur til að losa
sig við afrakstur göngutúrsins. Á sumrin verður þó áherslumunurinn kannski einna helst augljósastur. Það sést vel á slættinum og fjölda blómabeða hvaða hverfi eru í forgangi hjá ráðhúsinu. Þá segja sumir að tími sé komin til að girða bara af grasblettina og setja nokkrar ær á beit, þær séu betri í slættinum en borgin. Borgarmörkin við Elliðaár eða Hvalfjörð? Þéttingarstefnan í hugarheimi meirihlutans virðist vera svo inngróin orðin að landsbyggðin byrji við Elliðaár. Er ekki rétt að víkka aðeins sjóndeildarhringinn og átta sig á því að borgar-
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. mörkin ná upp að Hvalfirði? Nái ég kjöri í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þann 18. og 19. mars lofa ég að efri byggðir verði ekki lengur gleymdu byggðirnar. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Helga Margrét Marzellíusardóttir gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 18. og 19. mars:
Setjum nýjan tón í vor
Mikilvægasta hlutverk stjórnmálamanna er að sætta sjónarmið. Ná að leiða saman hugmyndir. Miðla málum. Á undanförnum árum hefur borið meira á átakastjórnmálum en áður þekktist hér á landi. Málefnaleg umræða víkur í sífellt meiri mæli fyrir upphrópunum og átökum. Minna fer fyrir þeim sem geta, og þora, að eiga samtalið. Sumir hafa fleygt því fram að átakastjórnmál séu afleiðing minnkandi áhuga fólks á stjórnmálum. Pólitíkusar þurfa jú að fanga athygli kjósenda með
einhverjum hætti og ef athyglin fer þverrandi er vafalaust freistandi fyrir suma að láta hærra í sér heyra. Þannig sé þróunin óumflýjanleg. Undir þetta get ég þó alls ekki tekið. Átakasækni og upphrópanapólitík undanfarinna ára dregur þvert á móti enn úr áhuga almennings á stjórnmálum hér í borginni. Af þessari braut verðum við að snúa. Á undanförnum árum hef ég stýrt kórum og leitt fjölmenna hópa tónlistarfólks í hinum ýmsu verkefnum og fagnaði meðal annars 10 ára afmæli
með Hinsegin kórnum í fyrra. Ég hef því haft það fyrir atvinnu að skapa samhljóm og veit hvað það er að miðla málum, taka tillit til ólíkra sjónarmiða og leita lausna. Sjálfstæðisflokkurinn stendur nú frammi fyrir nokkurri endurnýjun. Viðbúið er að á efstu sætum listans verði að minnsta kosti nokkrir nýliðar í stjórnmálum. Nú er tækifæri fyrir okkur sjálfstæðismenn að rifja upp okkar gamla góða slagorð „stétt með stétt,“ og að endurheimta kjölfestusess flokksins í íslenskum stjórnmálum.
Dagar hreins meirihluta Sjálfstæðisflokksins í borginni eru kannski taldir, í bili hið minnsta, en hann á helling inni. Sjálfstæðisflokkurinn á aldrei aftur að lenda í því að gjörsigra kosningar en koma ekki til greina sem samstarfsflokkur annarra flokka í borginni. Aðeins þannig getur flokkurinn fellt núverandi meirihluta og hafið nauðsynlega tiltekt í borginni. Til þess þurfa Sjálfstæðismenn að velja fólk sem getur sætt sjónarmið. Leitt saman hugmyndir. Miðlað málum. Unnið með öðrum. Prófum eitthvað nýtt. Sendum lista-
Helga Margrét Marzellíusardóttir. mann í Ráðhúsið. Helga Margrét Marzellíusardóttir Höfundur gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík
Velsæld barna í forgang - eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar í borgarstjórn Eitt stærsta verkefni sveitarfélaga er að sinna börnum. Í Reykjavík eru börn sett í forgang og við sjáum það á þeim verkefnum sem Viðreisn og núverandi meirihluti hefur lagt áherslu á. Bilið brúað Eitt helsta kosningamál Viðreisnar var að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Það á að veita barnafólki góða þjónustu. Það er ekki nóg að vera með ódýrustu leikskóla-
gjöldin meðal stærstu sveitarfélaga landsins. Til að ná þessu takmarki hefur starfsfólki á leikskólum þegar verið fjölgað um 350 á kjörtímabilinu. En við þurfum að gera betur. Við höfum tímasettar áætlanir um að opna 850 ný leikskólarými í ár, m.a. með því að opna sjö nýja leikskóla. Þannig munum við ná að bjóða öllum 12 mánaðar börnum leikskólapláss strax í haust og lækka meðalaldur barna við inntöku úr 19 mánuðum í 15 mánaða.
Á kjörtímabilinu hefur fjölgað um 133 leikskólarými í sjálfstætt starfandi leikskólum. Viðreisn styður sjálfstæða skóla og vill gjarnan að þeim fjölgi. Því á Reykjavík nú við viðræðum við þessa leikskóla um að fjölga leikskólaplássum enn frekar. Betri borg fyrir börn Verið er að stórefla grunnskóla borgarinnar til að taka betur utan um börnin. Með betri borg fyrir börn er verið að færa þjónustu við börn nær
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGR A keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
börnunum sjálfum og inn í skólana. Við erum líka að gera skólunum betur kleift að auka þjónustu sína og takast á við fjölbreytileikann meðal nemendahópsins. Á sama tíma fá skólastjórnendur aukið faglegt frelsi og ábyrgð til að mæta þessum fjölbreytileika með auknu teymisstarfi fagfólks á sviðum velferðar, heilbrigðis og skóla. Þetta aukna utanumhald um börnin okkar mun kosta meiri pening og við erum þegar búin að tryggja skólum það fjármagn. Betra skólahúsnæði Í gangi er eitt stærsta viðhaldsátak sem sést hefur. Of mikil viðhaldsskuld safnaðist saman í kjölfar efnahagshrunsins og það er komið að skuldadögum. Það er búið að meta ástand allra skólabygginga í borginni, hvort sem það eru leikskólar, grunnskólar eða frístund og greina hvar viðhalds er þörf. Þar sem þetta er risaframkvæmdaverkefni mun það taka um fimm ár að ná að klára öll útistandandi viðhaldsverkefni. En að þeim tíma loknum vonumst við til að vera búin að ná í skottið á viðhaldsskuldinni sem fékk því miður að safnast allt of lengi upp. Börnin okkar munu þá búa við meira öryggi og heilnæmara húsnæði. Fyrsta skrefið var að taka upp mun skýrari verklags-
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. ferla þegar grunur um myglu í húsnæði kemur upp. Það hefur leitt til þess að í dag er meira rask á skólastarfi en áður en kosturinn er að börnin og starfsfólk er strax tekið út úr óheilnæmum raka og farið er strax í viðgerðir. Á komandi kjörtímabili þurfum við að halda áfram á þessari stefnu. Að fjölga starfsmönnum leikskóla, og leikskólaplássum hjá sjálfstætt starfandi skólum, auka sjálfstæði skólastjórnenda og færa þjónustuna við börn til þeirra og stuðla þannig að enn betri borg fyrir börn. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar og formaður borgaráðs
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10.3.2022 22:05 Page 7
Helga Margrét Marze ellíusardóttir í 5. sæti
Vinnu Vin um sam man n Styðjum við fjölbreytileika á framboðslista - sendum listamanninn í Ráð ðhúsið!
Prófkjörr Sjálfstæðisflokksins í Reyk kjjav vík 18. - 19. mars
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.3.2022 12:08 Page 8
8
Fréttir
Mikilvægt að efla fjölbreyttar samgöngur fyrir alla
GV
- Valgerður Sigurðardóttir íbúi Grafarvogs sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Kæru íbúar Grafarvogs, Ég óska eftir stuðningi ykkar til að skipa áfram 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Við hjónin höfum búið í Grafarvogi í tæplega tvo áratugi. Við eigum þrjú börn og einn hund. Það er hvergi betra að búa en í Grafarvogi, samfélagið er einstakt og náungakærleikur mikill. Nálægðin við náttúruna er mögnuð hérna í Grafarvogi, laxveiðiáin, selirnir, laupur hrafnsins, varp spörfuglanna ásamt svo fjölda mörgu sem náttúran gefur okkur sem hér búum.
Á líðandi kjörtímabil hef ég beitt mér í málum er varða viðhald á skólahúsnæði í eigu Reykjavíkurborgar, eins barðist ég fyrir að skólanum í Staðahverfi væri ekki lokað, lagði til að byggt yrði húsnæði fyrir þá sem eru að komast á virðulegan aldur í Foldahverfinu þar sem auð lóð stendur og fyrirhugað var að byggja heilsugæslustöð, verndun á strandlengjunni við botn Grafarvogs, bættu geðheilbrigði borgarbúa og styttri biðlistum því börn eiga ekki heima á biðlistum. Ég hef einnig lagt áherslu á að betur sé hugað að úthverfum borgarinnar sem oft virðast gleymast verða fyrir þjónustuskerðing-
um. Þéttum varlega Það eru lífsgæði að búa í borg og hefur aðgengi að fallegum grænum svæðum eins og Reykvíkingar gera. Við verðum að varðveita þau og huga vel að þéttingu byggðar og hvort að innviðir þoli þéttinguna. Lífsgæði okkar eru ekki mæld í því hversu þétt við byggjum. Lækkum skatta Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem innheimtir hámarksútsvar eða 14,52%. Stór fyrirtæki hafa valið að yfirgefa Reykjavík á
Kjósum Valgerði áfram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík er nú framundan. Við höfum verið svo heppinn að í síðustu borgarstjórnarkosningum þá eignuðumst við íbúar í Grafarvogi borgarfulltrúa. Ég er ekki hlutlaus þar sem Valgerður er góð vinkona mín en nákvæmlega af þeirri ástæðu ætla ég að hvetja ykkur Sjálfstæðismenn til þess að mæta á kjörstað og nýta ykkur atkvæðarétt ykkar þann 18. mars og 19. mars næstkomandi. Valgerður er að óska eftir 3. sætinu og þið finnið nafnið hennar neðst á kjörseðlinum. Kosið verður í félagsheimili Sjálfstæðismanna í Hverafold í Grafarvogi. Á kjörtímabilinu hefur Valgerður verið dugleg að beita sér fyrir málefnum þeirra sem búa í efri byggðum og okkar allra Grafarvogsbúa. Hún er öflug og ég vil hvetja ykkur til að kynna ykkur hennar áherslur á valgerdur.is. Það er mikilvægt fyrir okkur íbúa Grafarvogs að við tryggjum Valgerði góða kosningu og hún verði áfram borgarfulltrúi. Áfram Valgerður. Karólína Natalía Karlsdóttir, íbúi í Grafarvogi
Valgerður Sigurðardóttir. undanförnum árum og færa starfsemi sína annað. Skattpíningarstefnu vinstriflokkanna verður að linna.
um óháð því hvort fólk notar eigin bifreið, almenningssamgöngur, reiðhjól eða annað.
Eflum gæði grunnþjónustunar Börn eiga ekki heima á biðlistum. Bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu er of löng og það þarf að laga strax. Við þurfum að efla heimaþjónustu fyrir aldraða og þá sem þurfa á henni að halda. Við verðum að hlúa mun betur að barnafjölskyldum og þeim sem eru komnir á efri ár heldur en nú er gert.
Húsnæðismál Mikilvægt er að íbúar hafi kost á að eignast eigið húsnæði og að Reykjavíkurborg tryggi nægt framboð lóða. Þannig er slegið á þær miklu hækkanir sem hafa orðið á húsnæðismarkaði vegna þeirra vöntunar á framboði lóða sem hefur verið varanlegt vandamál í Reykjavík um árabil.
Samgöngur fyrir alla Mikilvægt er að efla fjölbreyttar samgöngur fyrir alla. Á liðnum árum hefur ekki verið hugað að fjölbreyttum samgöngumátum, það þarf að fjölga valkost-
Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fer fram 18. - 19. mars.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10.3.2022 22:10 Page 9
Valgerð ður Sig gurða ardótttir borga ar fulltrúi ósskar eftir á áframhalda andi stuðn ningi
3 3.
sæti
íp prófkjö öri Sjálfsstæðisflokk ksins
í Reykjav R kj vík ík Ég, Va algerður Sigurðardóttir, Grafarvogsbúi óska eftir þínum stuðningi í 3. sæti prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjav vík. Prófkjör fer fram dagana 18 8. og 19. mars í húsnæði hú ði Sjálfstæðisflokksin Sjálf t ði fl kk ins í Hverafold H f ld 1-3 13
Mætum á kjörstað ð nýtum atkvæðisrétttinn Síðust en ekki síst.... ...á kjörseðlinum
Bætum þ þjónustu við bo orgarbúa: Aukum m flæðið í umferð ðinni Tryggju um framboð lóða a Heilsusa amlegt skólahúsnæði Bætt viiðhald á borgarbyggingum byggingum Styttum m boðleiðir innan ker fisins Ábyrgu ur rekstur Reykjavíkurborgar Hlúum að geðheilbrigði borgarbúa Græn svæði s í forgang
ww ww.valgerdu ur.is
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.3.2022 13:58 Page 10
10
GV
Fréttir
Breytt vinnubrögð — ný hugsun - Friðjón Friðjónsson býður sig fram í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Þjónusta borgarinnar á að vera fyrir Reykvíkinga en Reykvíkingar eru ekki í þjónustu fyrir borgina. Ég gef kost á mér til að taka þátt í þeirri breytingu sem er nauðsynlegt að verði í nálgun Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og stjórnun borgarinnar sjálfrar. Bæði þurfa að koma til breytt vinnubrögð og ný hugsun. Reykjavík hefur breyst og þróast á undanförnum árum og við þurfum að taka mið af þeim breytingum. Reykjavík á að vera nútímaleg og skemmtileg borg sem tekur mið af ólíkum þörfum. Einstrengingsháttur og yfirlæti núverandi meirihluta verður að linna og borgin þarf að tileinka sér þjónustumiðað viðhorf. Reykjavík þarf að þróast og stækka, en mannfjöldaþróun undanfarinna ára hefur verið höfuðborginni í óhag. Sveitarfélögin allt í kringum Reykjavík, allt frá Akranesi að Árborg og
Reykjanesbæ, hafa nánast öll stækkað og eflst en mannfjöldaþróun í höfuðborginni verið undir fjölgun á landsvísu. Það er skýrasta vísbendingin um að illa ígrunduð þéttingarstefna borgarinnar vinnur gegn markmiðum sínum. Fólk finnur ekki húsnæði í Reykjavík og flytur því annað. Þess vegna þarf að brjóta nýtt land undir ný hverfi, samhliða hófsamri þéttingu sem nýtir innviði eldri hverfa betur. Keldnaland, Úlfarsárdalur og Geld-inganes eru ekki bara framtíðar-byggingarlönd borgarinnar, heldur svæði sem þarf að undirbúa strax til að vinda ofan af húsnæðisvandanum. Næsta borgarstjórn á að gera stórhuga áætlanir í samstarfi við velferð-arfélög um þjónustu- og heilsuhverfi fyrir aldraða, 500 íbúðir eða jafnvel mun fleiri, þannig að skilyrði skapist fyrir þorpssamfélagi með verslun, veitingum og þjónustu sem ýtir undir hreyfingu og
félagsskap. Maður er manns gaman á við okkur öll, sama á hvaða aldri við erum. Þannig byggjum við til framtíðar, þannig hreyfum við húsnæðismarkaðinn svo yngra fólk geti keypt íbúðir og einbýli þeirra sem eru eldri og þannig bætum við lífsgæði þeirra sem eldri eru. Undir svona byggð á að brjóta nýtt land, byggja utarlega í borginni. Slík byggð eykur ekki á morgun- eða eftirmiðdagsumferðina, né kallar hún á skóla eða leikskóla. Byggð sem þessi losar húsnæði í eldri hverfum og virkar því sem nokkurs konar þétting án þess að heilu hverfin séu sett á annan endann vegna tilrauna glæruglaðra pólitíkusa við að troða fjölbýlishúsum á staði sem þau komast ekki. Reykjavík er að missa frá sér fólk sem vill búa í sérbýli, eiga garð og yrkja hann. Við þurfum fjölbreyttari úrræði en dýrar lúxusíbúðir miðsvæðis. Það þarf líka að taka rekstur borgar-
Friðjón R Friðjónsson sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. innar til gagngerrar endurskoðunnar. Ég tel að reynsla mín af rekstri eigin fyrirtækis muni nýtast vel í borgarstjórn. Við þurfum fólk í borgarstjórn sem hefur borgað laun, en ekki bara þegið.
Friðjón R Friðjónsson framkvæmdastjóri og varaþingmaður og frambjóðandi í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Fjölbreytt námskeið á Skóhlífadögum í Borgó Á hverri vorönn eru haldnir skóhlífadagar í Borgarholtsskóla en það eru þemadagar skólans. Skóhlífadagarnir draga nafn sitt af því að á fyrstu árum skólans voru allir nemendur í bláum skóhlífum úr plasti og setti það sterkan svip á ganga skólans en einnig er þetta hugsað sem dagar þar sem verið er að hlífa nemendum frá hefðbundnu skólahaldi. Þessa daga er hefðbundin kennsla lögð niður en í stað hennar er boðið upp á fjölbreytt námskeið. Skóla-
skylda er þessa daga og verður hver nemandi að velja sér þrjú námskeið til að mæta á. Námskeiðin, sem boðið var upp á í ár voru að venju mjög fjölbreytt, til dæmis skóhornasmíði, skák, jóga, hugleiðsla og sjálfsvarnarnámskeið fyrir stelpur. Einnig var boðið upp á kvikmyndasýningar á ýmsum tungumálum, fuglaskoðun, vatnamælingar í Úlfarsá, fótbolta, badminton, trampólín fitness, skíði og skauta svo eitthvað sé nefnt. Fyrirlestrar voru í
Íris Þöll Hróbjartsdóttir og Eliza Reid forsetafrú.
Framúrskarandi árangur hjá Borgó
FEKÍ, Félag enskukennara á Íslandi, efnir árlega til smásagnakeppni á ensku meðal nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Í ár var þema samkeppninnar „Dear world“ og náði Íris Þöll Hróbjartsdóttir, nemandi á fyrsta ári í kvikmyndagerð í Borgarholtsskóla, þeim frábæra árangri að vinna smásagnakeppnina með söguna „2241“. Fimmtudaginn 3. mars tók Íris Þöll við verðlaunum fyrir fyrsta sætið í flokki framhaldsskóla á Bessastöðum úr hendi Elizu Reid forsetafrúar. Þetta er annað árið í röð sem að nemandi frá Borgarholtsskóla vinnur þessa keppni. Nemendur Borgarholtsskóla hafa verið einstaklega sigursælir í þessari keppni og nánast á hverju ári lenda nemendur í Borgarholtsskóla í einhverjum af þremur efstu sætunum. Skólaárið 2020-2021 vann Sara Sóley Ómarsdóttir, nemandi í grafískri hönnun, fyrstu verðlaun í sömu keppni með söguna „A Time for Wonder“ og árið 2016 vann Kristján Örn Kristjánsson, fyrrverandi nemandi Borgarholtsskóla á afreksíbraut og núverandi landsliðsmaður í handbolta, keppnina. Það er því óhætt að segja að mikill sköpunarkraftur ríki í Borgó á hinum ýmsu sviðum.
Slegið á létta strengi á skautaæfingu á skóhlífadögum í Borgarholtsskóla.
boði um ýmislegt, svo sem um karlmennskuna, Samtökin '78, morðóð pör, nám og störf erlendis og Betra líf með Begga Ólafs. Auk þessa voru ferðir farnar úr skólanum, meðal annars á fjöll, bæði á jeppum og vélsleðum og heimsóknir farnar í Hörpu og á Þjóðminjasafnið. Skóhlífadagar brjóta upp hversdaginn og veita nemendum og kennurum kærkomna hvíld frá hefðbundnu námi.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10.3.2022 22:12 Page 11
Friðjón R. Friðjónsson 2. sæti
Prófkjör Sjálffsstæðisflokksins í Reykjavík
18. og 19. mars 2022
Átak í húsnæðism málum aldrraðrra a Staða aldraðra er eitt stærsta verkefni stjórnmálanna á næstu árum, hvort sem er í landsmálum eða á sve eitarstjórnarstiginu. Það er skylda borgarinnar að bjóða upp á aðstæður svo hægt g sé é að þróa fjölbreytt úrræði fyrir eldra fólk. Það þarf að gera meira en fjölga hjúkrunarrým mum og auka heimahjúkrun, það þarf að byggja þjónustukjarna með ólíkum búsetulau usnum eftir þörfum og aðstæðum svo fólk geti færst á milli þjónustustiga án þesss að yfirgefa heimili sitt eða maka. Reykjavík getur lagt siitt af mörkum með því að gera borgina aldursvæna. Næsta borgarstjórn á að gera a stórhuga áætlanir í samstarfi við velferðarfélög um þjónustuog heilsuhverfi fyrir ald draða, 500 íbúðir eða jafnvel mun fleiri, þannig að skilyrði skapist fyrir þorpssamfélagi m með verslun, veitingum og þjónustu sem ýtir undir hreyfingu og félagsskap. Maður er m manns gaman á við okkur öll, sama á hvaða aldri við erum. Þannig byggjum við til framtíðarr,, þannig hreyfum við húsnæðismarkaðinn svo yngra fólk geti keypt íbúðir og ein nbýli þeirra sem eru eldri og þannig bætum við lífsgæði þeirra sem eldri eru. Undir svona byggð á a að brjóta nýtt land, byggja utarlega í borginni, til dæmis á Geldinganesi, Keldum,, Kjalarnesi eða við Blikastaði. Slík byggð eykur ekki á morguneða eftirmiðdagsumferrðina, né kallar hún á skóla eða leikskóla. Byggð sem þessi losar húsnæði í eldri hverfu um og virkar því sem nokkurs konar þétting án þess að heilu hverfin séu sett á anna an endann vegna tilrauna glæruglaðra pólitíkusa við að troða fjölbýlishúsum á staði sem þau komast ekki.
Breytt vinnub brögð — ný hugsun Friðjón R. Friðjónsso on í 2. sæti Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykja e v vík
18. og 19. mars 2022
fridjon.is facebook.com/fridjon2
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.3.2022 15:11 Page 12
12
GV
Fréttir
Yfirvofandi vegatollar á íbúa - Gjaldtaka hefst á þessu ári
- Baldur Borgþórsson býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Við íbúar í efri byggðum fengum heldur kaldar kveðjur nýverið og horfum nú fram á að þurfa að borga vegatoll í hvert einasta sinn sem við bregðum okkur af bæ.
kvæmt þessu. Gjaldtökubúnaður verður settur upp víðsvegar á höfðuðborgarsvæðinu, en samkvæmt áætlun verðan ofangreind gatnamót þau fyrstu í röðinni.
Birt voru áform um nýja gjaldtöku á þá sem hyggjast nota bílinn sinn á komandi árum og kynntar voru hugmyndir um gjald upp á allt að kr. 675 fyrir hverja ferð sem ekið er um lykilgatnamót borgarinnar. Stefnt er að því að gjaldtakan hefjist þegar á þessu ári. Þetta þýðir sem dæmi: Í hvert sinn sem íbúar aka um gatnamót Sæbrautar/Reykjanesbrautar og Vesturlandsvegar/Miklubrautar er rukkað gjald upp á allt að kr. 675. Kostnaður getur því hæglega numið hálfri milljón eða meiru á ári sam-
Gjaldið hefur gengið undir ýmsum nöfnum: Vegatollur Tafargjald Flýtigjald Að endingu hefur starfshópur um borgarlínu komist að niðurstöðu um að nafnið skuli vera flýtigjald. Það hljómar jú svo jákvætt. Raunin er reyndar sú að það er ekkert jákvætt við flýtigjald. Flýtigjaldið er nefnilega alls ekki neitt flýti. Það er refsiskattur og þvingunartæki sem mun kosta borgarbúa stórfé árlega.
Baldur Borgþórsson sækist eftir 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.
Refsiskattur sem beint er gegn fólki og fjölskyldum sem vilja gjarnan njóta þeirra lífsgæða sem bíllinn sannarlega er og hátt í 90% borgarbúa kjósa að njóta. Í hvaða tilgangi er verið að vega með svo grófum hætti að valfrelsi borgarbúa? Svarið er einfalt: Borgarlína Talsmenn borgarlínu gera sér fulla grein fyrir að bíllinn muni áfram verða vinsælasti kostur borgarbúa. Við það á ekki að una. Því á að grípa til þvingunaraðgerða og þeim gefið nafnið flýtigjald. Stór hluti borgarbúa mun því mögulega missa fjárhagslega getu til að eiga bíl og njóta þeirra lífsgæða og frelsis sem því fylgir. Íbúar munu þó eiga eitt svar við
þessari yfirvofandi frelsisviptingu. Öflugt svar. Að kjósa það fólk sem skipar sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til að leiða nýjan meirihluta í borgarstjórnarkosningum þann 14.maí næstkomandi. Fólk sem hafnar hverskyns þvingunum og forræðishyggju. Fólk sem ætlar að leyfa borgarbúum sjálfum að velja það sem hentar þeim og þeirra fjölskyldu best hverju sinni. Nú ríður á að við íbúar efri byggða tökum höndum saman og segjum Nei Takk við þessari aðför að frelsi okkar. Höfundur er varaborgarfulltrúi og sækist eftir 5.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þann 18-19.mars næstkomandi.
Hvernig væri að hóa í vini og vandamenn og spila borðspil? Nú er hægt að fá alls konar borðspil lánuð á Borgarbókasafninu í Spönginni sem og öðrum útibúum. Spilin eru lánuð út eins og hvert annað safnagagn (bók, tímarit, dvd-diskur, hljóðbók, cddiskur) og þeir sem eiga gilt bókasafnskort geta fengið spil að láni. Svo má auðvitað mæla sér mót í rúmgóðum húsakynnum safnsins og spila. Spilin eru fjölbreytt, fyrir ýmsa aldurshópa og fólk með mismunandi áhugamál. Harry Potter-spilin eru alltaf vinsæl og fjölskylduspilið Azul fyrir 8 ára og eldri hefur slegið í gegn. Áhugasömum um farsóttir má benda á spilið Pandemic, þar sem markmiðið er að
bjarga mannkyninu, hvorki meira né minna! Í spilinu Enchanted Forest (Ævintýraskógurinn) gefast leikmönnum 4 ára og eldri tækifæri til að kíkja undir trén í skóginum og sjá hvaða hlutir leynast þar – og finna út hvaða ævintýrum þau tilheyra. Hið sívinsæla Twister klikkar ekki, en þar gildir að vera nógu liðugur og geta teygt sig og togað á alla kanta. Fleiri spil eru í boði í Spönginni, svo má leita til annarra safna og fá send spil þaðan. Borðspilunum fylgja leiðbeiningar á íslensku, ensku og pólsku, stundum fleiri tungumálum, þau eru til útláns í 30 daga í senn. Ef lægðirnar halda
Borðspilunum fylgja leiðbeiningar á íslensku, ensku og pólsku, stundum fleiri tungumálum. áfram að hrella okkur mælum við með að ná sér í spil á safnið. Svo nálgast páskarnir með samveru og jafnvel sumarbústaðaferðum, því ekki að kippa eins og einu spili með sér?
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
Borðspilin eru til útláns í 30 daga í senn.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10.3.2022 22:14 Page 13
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 14.3.2022 23:08 Page 14
14
GV
Fréttir frá Fjölni
Stockholm Trophy - Fjölnishópurinn í Stokkhólmi.
Stórglæsilegur árangur Fjölnis í Stokkhólmi - á skautamótinu ,,Stockholm Trophy”
Nítján skautarar úr listskautadeild Fjölnis héldu til Stokkhólms í vikunni til að taka þátt á skautamótinu Stockholm Trophy sem fram fór í Nacka Ishall í Stokkhólmi. Alls voru 223 keppendur frá fimm löndum skráðir á mótið. Keppt var í 19 flokkum og átti Fjölnir fulltrúa í 8 keppnisflokkum. Með þeim í för voru þjálfararnir Benjamin og Helga Karen ásamt fararstjórum og foreldrum.
heim reynslunni ríkari. Í flokki Novice C voru 5 keppendur og áttum við þar þrjá fulltrúa, það voru: Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir, Íris María Ragnarsdóttir og Ísabella Jóna Sigurðardóttir. Þær áttu allar góðan dag og bættu sig frá seinasta móti og enduðu á að taka öll sætin á verðlaunapallinum. Íris María var í 1. sæti, Ásta Lovísa í 2. sæti og Ísabella Jóna í 3. sæti.
Keppnin hófst á fimmtudag, en þá keppti meirihluti Fjölnisstúlkna. Í flokki Springs C voru alls 12 keppendur og áttum við sex fulltrúa, það voru: Arna Dís Gísladóttir, Elisabeth Rós Giraldo Ægisdóttir, Ermenga Sunna Víkingsdóttir, Perla Gabriela Giraldo Ægisdóttir, Sóley Björt Heimisdóttir og Una Lind Otterstedt. Þar mátti sjá bætingu hjá þeim öllum frá seinasta móti. Arna Dís endaði í 2. sæti og Perla Gabriela í 3. sæti.
Í flokki Junior C voru alls þrír keppendur en þar kepptu Rakel Sara Kristinsdóttir og Andrea Marín Einarsdóttir sem áttu stórgóðan dag. Rakel Sara tók 1. sætið í flokknum og Andrea Marín 2. sætið.
Í flokki Debs C voru alls 10 keppendur og áttum við fjóra fulltrúa, Edil Mari Campos Tulagan, Lilju Harðardóttur, Liva Lapa og Selmu Kristínu S. Blandon. Þær áttu einnig góðan dag og koma
Á föstudeginum áttum við þrjá keppendur í þremur flokkum. Elín Katla Sveinbjörnsdóttir keppti í flokki Springs B en þar voru 27 keppendur. Elínu gekk vel og bætti sig frá seinasta móti og endaði í 13. sæti með 22,27 stig. Berglind Inga Benediktsdóttir keppti í flokki Debs B en þar voru 20 keppendur. Berglind átti mjög góðan dag og skautaði gott prógram sem skilaði henni
1. sæti í sínum flokki með 38,23 stig. Tanja Rut Guðmundsdóttir keppti í flokki Junior B en þar voru 14 keppendur. Tanja skautaði vel sem skilaði henni 5. sætinu með 31,80 stig. Á laugardegi áttum við aðeins einn keppanda, Elvu Ísey Hlynsdóttur sem keppti í Advanced Novice stuttu prógrami, en þar voru 25 keppendur. Þetta er annað mót Elvu í flokki Advanced Novice. Elva átti góðan dag og sat í 19. sæti með 22,49 stig eftir stutta prógramið. Á sunnudeginum keppti Elva í frjálsu prógrami og átti einnig góðan dag en fyrir frjálsa prógramið fékk hún 36,83 stig og endaði í 21. sæti með samanlagt 59,32 stig fyrir bæði prógröm. Elva gerði nýtt persónulegt stigamet í báðum prógrömum en hún bætti sig um rúm 11 stig í heildareinkunn.
Stockholm Trophy - Ásta Lovísa (silfur), Íris María (gull), Ísabella Jóna (brons) á verðlaunapalli (eldri stelpur).
Þetta er frábær árangur hjá okkar iðkendum og erum við afar stolt af frammistöðu þeirra á mótinu. Við óskum keppendum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Við búum yfir efnilegum skauturum sem verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni!
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGR A keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
Stockholm Trophy - Arna Dís (silfur) og Perla Gabriela (brons) á verðlaunapalli (yngri stelpur).
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.3.2022 11:03 Page 15
15
GV
Fréttir
Úrslitakeppnin nálgast í handbolta og körfubolta:
Verður Fjölnir deildarmeistari í lok mars? Spennandi verður að fylgjast með liðunum okkar í handbolta og körfubolta en nú fer að styttast í úrslitakeppnina. Meistaraflokkur karla í handbolta spilar í Grill 66 deildinni og hefur átt gott tímabil og er í harðri baráttu um að komast í efstu deild. Meistaraflokkur kvenna hefur farið erfiðlega af stað og verður erfitt fyrir þær að eiga möguleika á úrslitakeppninni. Meistaraflokkur karla í körfubolta spilar í 1. deild og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Meistaraflokkur kvenna í körfubolta spilar í Subway deildinni og eins og er sitja þær á toppi deildarinnar. Það hefur verið mjög skemmtilegt að fylgjast með stelpunum í Fjölni í vetur og sem stendur eru þær efstar í efstu deild kvenna, Subway deildinni, með 30 stig þegar 22 leikjum er lokið af 24. Fjölnir hefur þegar tryggt sér réttinn til að leika í úrslitakeppni fjögurra liða
um Íslandsmeistaratitilinn. Hin liðin sem leika í úrslitakeppninni eru Haukar, Valur og Njarðvík. Haukar og Valur eru með 28 stig og eiga þrjá leiki eftir en Njarðvík er með 26 stig og á tvo leiki eftir. Fjölnir á tvo leiki eftir fyrir úrslitakeppnina. Gegn Grindavík á útivelli 26. mars og heimaleik gegn Val 30. mars. Það er því góður möguleiki á að Fjölnisstúlkum takist að vinna deildarmeistaratitilinn í lok þessa mánaðar og yrði það þá fyrsti deildarmeistaratitill félagsins í efstu deild kvenna í boltaíþrótt. Haukar eru ríkjandi Íslansmeistarar og eiga eftir að leika gegn Grindavík, Val og Breiðabliki. Valskonur eiga eftir að leika gegn Keflavík í Keflvík, Haukum á heimavelli og Fjölni í Grafarvogi. Það verður spennandi að fylgjast með liðunum með vorinu og hvetjum við alla Grafarvogsbúa til að mæta í stúkuna og hvetja okkar lið til sigurs.
Frá bikarmótinu í hópfimleikum.
Fjölniskonur hafa staðið sig frábærlega í körfunni í vetur og spennandi möguleikar eru framundan.
Íslandsmót skákfélaga fór fram í Egilshöll:
300 skákmenn á öllum aldri og af báðum kynjum Íslandsmóti skákfélaga 2022 lauk um helgina eftir spennandi taflmennsku í Úrvalsdeild og 1. - 4. deild. Alls tóku rúmlega 300 skákmenn á öllum aldri og báðum kynjum þátt í mótinu, sátu að tafli í hverri umferð. Teflt var í Egilshöll við bestu aðstæður í hand-og körfuboltahöll Fjölnis, Fjölnishöll. Skákdeild Fjölnis bauðst eins og svo oft áður til að halda mótið og Egilshöllin fær lof allra skákmanna hvað varðar góðar aðstæður. Ungar skákkonur í Fjölni héldu utan um veitingareksturinn líkt og sl. haust og nutu aðstoðar foreldra sinna. Stefnan er sett á skákmót erlendis og veitingasalan söfnun til þess verkefnis. Fjölnismenn sendu 3 skáksveitir til leiks á Íslandsmótinu. A sveitin hefur
undanfarin ár alltaf verið í fremstu röð og tefldi í nýstofnaðri Úrvalsdeild 6 skáksveita. Sigurvegarar Úrvalsdeildar eru Íslandsmeistarar og ein sveit fellur niður í 1. deild. Skákdeild Fjölnis stefndi á bronsið, 3. sæti og hélt því allt til síðustu umferðar. í 10. umferð tefldi A sveitin við Taflfélag Reykjavíkur, efstu sveitina, og varð að vinna viðureignina til að halda 3. sætinu. TR varð að sigra til að landa Íslandsmeistaratitlinum. Svo fór að TR vann með minnsta mun 4,5 - 3,5. Ein skák skipti því máli v. 3. og 4. sætið og hvaða lið hreppti Íslandsmeistaratitilinn. Fjölnismenn ánægðir að vera áfram í deild hinna bestu og stefna að því að halda sig á þeim stað. B sveit Fjölnis tefldi í 2. deild. Þar
Bikarmót í hópfimleikum
Helgina 26. – 27. febrúar fór fram Bikarmót í hópfimleikum, keppt var í efri flokkum og meistaraflokki. Mótið var haldið í íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum í glæsilegri umgjörð og mikilli stemmingu. Þetta var fysta fimleikamótið í um tvö ár þar sem ekki hafa verið einhvernskonar samkomutakmarkanir og voru þjálfarar, dómarar og áhorfendur alveg í skýjunum með grímulaust líf. Fjölnir átti 3 lið á mótinu og stóðu þau sig öll frábærlega. Liðið okkar í 1. flokki var örstutt frá því að tryggja sér keppnisrétt á Norðurlandamóti unglinga. En liðið er ungt og efnilegt og verður gaman að fylgjast með þeim vaxa. Á sunnudeginum var svo bein útsending á RÚV frá keppni í meistaraflokkum. En þar bar hæst sigur Stjörnunnar í kvennaflokki.
Meistaramót Íslands
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram í lok febrúar og átti Fjölnir nokkra keppendur á mótinu. Bjarni Anton Theódórsson, Vilhelmína Þór Óskarsdóttir, Kjartan Óli Ágústsson og Helga Þóra Sigurjónsdóttir unnu öll til verðlauna í sínum flokkum á mótinu. Bjarni vann brons í 200m hlaupi karla. Kjartan Óli vann silfur í 400m hlaupi karla og brons í 800m hlaupi karla. Vilhelmína vann tvenn bronsverðlaun í 200m og 400m hlaupi kvenna. Helga Þóra vann silfur í hástökki kvenna.
Hart barist við taflborðin á Íslandsmóti skákfélaga í skák í Egilshöllinni.
setti Covid heldur betur strik í reikninginn því að helmingur sveitarinnar ,,lá í því” og Covid felldi Fjölni B niður um deild. Vinnum okkur örugglega upp til baka á næsta ári. Í C sveitinni voru að mestum hluta grunnskólaungmenni sem fengu smjörþefinn af alvöru skákkeppni. Stóðu sig vel, vöktu ábyggilega mesta athyglina með efnilegri taflmennsku, flottri framkomu og gullfallegum Fjölnisbúningum. Við Grafarvogsbúar getum verið stolt af okkar skákstarfi. Erum bæði með þrususveitir í efri deildum og blómlegt skáklíf, drengja og stúlkna í barna-og unglingastarfi. Áfram Fjölnir
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10.3.2022 22:18 Page 16
'( '' '' , ''' '' '' +!(+ +,
-,+*)('&#+"!'* ' ' ' ' ' , )' ,' *
70% Grafarvogsbúa lesa Grafarvogsblaðið Mest lesni fjölmiðillinn í 20.000 manna hverfi? Auglýsingarnar skila árangri í GV gv@skrautas.is/ 698-2844
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 14.3.2022 16:47 Page 17
NÓ
I SÍRÍUS
Síríus Rjómasúkkulaði meeð trompbitum hlýtur að vera ein af uppfi finningum aldarinnar! Það var því augljóst að viið þyrftum að bjóða upp á það sem páskaeegg. Nú spilum við út öð ster öðru t ku ttrompii en n það þ ð er hvorki meir i a néé minna i en pásk á kaeegg gg með ð ster t kum trompbitum! Það er ekki hlaupið að því að trompa þesssa tvennu! Rjómasúkkulaði fyylgir ekki með eggi.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.3.2022 13:21 Page 18
18
GV
Fréttir
„Inn með sælu og út með sút“ - eftir sr. Sigurð Grétar Helgason, prest í Grafarvogssókn Það er óhætt að segja að vetur konungur hafi rækilega minnt á sig síðustu vikur. En eitt er víst að á eftir vetri kemur vor og brátt kveðjum við tíma myrkurs og kulda og fögnum bjartari dögum, hlýju þeirra og birtu. Brátt munu grösin og blómin þjóta upp á ný og gera umhverfi okkar yndislegt. Undanfarin tvö ár hafa á mínu heimili orð brúðunnar Engilráðar hljómað nokkuð regluelga, „inn með sælu og út með sút“. Ástæðan sjálfsagt öllum ljós, ótrúleg tvö ár að baki, tími er við öll höfum þurft á stuðningi og hvatningu að halda. Engilráð er jú til heima hjá mér ásamt 50 öðrum skemmtilegum tuskudýrum sem eiga hvert sitt nafn og hvíla í rúmfataskúffu dóttur minnar og þau fá reglulega að líta dagsins ljós, dóttur minni og öðrum til skemmtunar. Er ég hugsa til þessarar ágætu vinkonu dóttur minnar, þá minnist ég margra sólskinsstunda er hún var með hana í hendi, sneri henni að pabba sínum er hefur stundum verið þungt hugsi og sagði, „pabbi mundu, inn með sælu og út með sút“ og ekki aðeins það því hvatningunni fylgdi oft faðmlag um pabba háls. Og þetta virkar, börnin hjálpa okkur gjarnan að opna
ÚTF FARARSTO OF FA ÍSLANDS www.utforin.is Auðb brekku 1, Kópavogi Sólarhringsvakt: 581 1 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræ æðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson S: 896 8242
Jóhanna Eiríksdóttir
Jón G. Bjarnason S: 793 4455
ÚTF FARARSTOF FA AH HAFNARFJARÐAR www.utfararstofa.is Doffrahellu 9b, Hafnarfirði
Grafarvogskirkja.
augu okkar fyrir öllu því undursamlega sem umlykur okkur. Þau geta svo vel sýnt okkur hversu gott er að ljóma af jákvæðni, þakklæti fyrir það sem við höfum og gleði, þau sýna okkur svo vel hversu gott er að sjá það besta og sýna það besta, þannig bætum við umhverfi okkar og samfélag og aðrir í kringum okkur njóta ríkulega af. En þegar það er farið að birta loksins til í okkar ágæta heimi, þá kemur enn ein ógnin. Það er óskiljanlegt að svo virðist að friður í okkar veröld heyri til undantekninga. Þar sjáum við skelfilegar afleiðingar vegna, pólitískra refskáka, orrusta og vígvéla. Brölt þjóða og misvitra leiðtoga til sigurs valda hörmungum sem dynur yfir mannkynið dag eftir dag. Svo virðist vera að þar sem maðurinn tekur stjórnina, þá virðist mannvitið truflast og og snýst öndvert gegn lífinu sjálfu. En á sama tíma og þessi skelfing er að gerast þá hefur heimurinn í raun aldrei haft betri tækifæri til að allir menn, jarðarbúar búi við mannsæmandi aðstæður. En hvers vegna er það ekki gert og hvers vegna þarf þessi skipan að vera með þessum hætti eins og hún er í dag? Satt best að segja þá veit ég það ekki en það sem ég veit er að
sr. Sigurður Grétar Helgason. við getum lagt okkar af mörkum fyrir að mannkynið geti lifað í friði. Það er ekki síst að biðja fyrir friði í okkar veröld. Bænin er máttug, hún virkar og hún er kraftur. Hún grundvallast og speglast í samskiptum okkar hvert við annað. Biðjum fyrir friði í okkar heimi og að allir jarðarbúar geti lifað mannsaæmandi líf. Því að hvar sem hinn þjáði er, öllum sem líða og eru þurfandi ber okkur að hlúa að, hjálpa og sinna. Þetta var og er kjarninn í því, sem Jesús kenndi og eru ekki nýjar fréttir. Guð lífsins. Lít til okkar sem erum kvíðin og óttaslegin. Blessa íbúa Úkraínu. Gef að þau sem hafa völd til að stöðva stríð nýti þau til góðs. Guð kom til þeirra er nú óttast um líf sitt og framtíð og veit þeim skjól. Hjálpa okkur Guð að standa saman og vinna að friði í heiminum, hvert með sínum hætti. Friðarins Guð. Gef frið á jörðu. Gef frið í hjörtu allra þinna barna í Jesú nafni. Amen.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11.3.2022 21:37 Page 19
Íbúafundur borgarstjóra í Grafarvogi Borgarstjóri býður til opins íbúafundar fimmtudaginn 31. mars kl. 20.00 í Rimaskóla. Á fundinum kynnir borgarstjóri það sem er efst á baugi í hverfinu og mun eiga samtal við íbúa um framtíð hverfisins. Íbúar geta sent fyrirspurnir á netfangið ibuafundir@reykjavik.is eða borið þær fram á fundinum sjálfum. Heitt verður á könnunni frá kl. 19.30 en fundinum verður einnig streymt á vef Reykjavíkurborgar. Nánari dagskrá og streymi má finna á reykjavik.is/ibuafundir
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.3.2022 14:29 Page 20
20
Fréttir
GV
Hildur Björnsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t ffor.is .
VIÐ ÞJÓNUM ALL AN SÓL AR HR INGIN N
Hverfi sem virka
Reykjavík samanstendur af mörgum ólíkum hverfum sem öll hafa sín sérkenni - og sitt aðdráttarafl. Borgaryfirvöld eiga að ýta undir þessi sérkenni og haga skipulagsstefnu eftir því. Ég vil að
Hér fyrir þig! Heilsugæslan í Spönginni er opin alla virka daga á milli kl. 8 og 17 Við minnum á dagvakt hjúkrunarfræðinga og lækna kl. 8-16 fyrir skemmri erindi, bráð vandamál og erindi sem þola litla bið. Í ljósi núverandi faraldurs mælumst við til Covid sýnatöku við flensulík einkenni og/eða öndunarfærasýkingar-einkenni. Hægt að hringja síðan og fá ráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi og koma ef þörf er á.
borgin verði endurskipulögð á forsendum hverfanna – á grundvelli sérstöðu þeirra og styrkleika. Öll borgarhverfi verði þróuð með það fyrir augum að unnt verði að nálgast helstu verslun og þjónustu í 15 mínútna göngufæri. Forsendur 15 mínútna hverfa eru gjarnan blönduð byggð þar sem íbúðarhúsnæði, vinnustaðir og þjónusta eru í nálægð hvert við annað. Fjölgun vinnustaða í austurhluta borgarinnar mun hafa jákvæð áhrif á þessa þróun. Aukin fjarvinna, sem vafalaust verður varanleg afleiðing heimsfaraldurs, mun jafnframt skapa enn frekari forsendur fyrir fjölbreytta hverfisþjónustu – enda munu starfsmenn verja fleiri vinnudögum innan hverfa. Á valdatíma vinstri meirihlutans í borginni sem nú nær aftur til ársins 1994, með örstuttum hléum, hefur hverfiskjörnunum verið leyft að drabbast niður, ekki síst í austurborginni. Fyrir því eru ýmsar skýringar, ekki síst ósveigjanlegt leyfiskerfi, og sligandi fasteignagjöld. Í stuttu máli hefur ekki verið gætt að því að skapa smærri atvinnurekendum ásættanlegt rekstrarumhverfi – og borgarstjóri hefur sýnt efri byggðum borgarinnar fullkomið áhugaleysi. En það eru ekki bara hverfiskjarnarnir sem eru vitnisburður þess að borgarmeirihlutinn hafi gleymt hverfunum í Reykjavík. Borgarstjóra er tamt að tala
um stórar hugmyndir, en á það til að gleyma daglegu amstri borgarbúa. Gangandi og akandi geta ekki gengið að því vísu að götur í hverfunum séu ruddar að vetri til. Foreldrar geta ekki treyst á að börn þeirra fái leikskólapláss þegar þau hafa aldur til, og þurfa jafnvel að aka bæjarhluta á milli loksins þegar að því kemur. Húsnæðisskortur hefur hrakið fjölskyldur til annarra sveitarfélaga. Einstrengingsháttur í samgöngumálum, og sú staðreynd að langflestir stórir vinnustaðir hafa verið skipulagðir í vesturborginni, valda sömuleiðis óþarfa umferðartöfum. Loforð um Sundabraut hafa verið að engu höfð. Við þurfum að greiða úr samgöngum en jafnframt fækka óþarfa ferðum í Reykjavík. Það er lífsgæðamál fyrir fólkið í borginni að þurfa ekki sífellt að sækja langt yfir skammt. Mikilvæg samgöngubót, og jafnframt sú ódýrasta, er að styrkja hverfiskjarnana, skipuleggja nýja stóra vinnustaði í austurborginni og tryggja öfluga grunnþjónustu innan hverfa. Sjóndeildarhringur borgarstjóra virðist enda þar sem austurborgin byrjar. Breytum því. Við þurfum hverfi sem virka, í Reykjavík sem virkar. Hildur Björnsdóttir Höfundur gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík
Síðdegisvakt lækna og hjúkrunarfræðinga er opin á milli kl. 16 og 17 alla virka daga. Skráning á vaktina er frá kl. 15:30 Við tökum vel á móti þér á heilsugæslunni þinni í Grafarvogi VINSAMLEGAST ATHUGIÐ VEGNA COVID19: Ef þið veikist með versnandi kvef, hósta eða hita þá mælum við með að hringja í okkur í síma 513 5600 til að fá símtal við hjúkrunarfræðing. Sjá einnig upplýsingar á Covid.is vefsíðunni Utan dagvinnutíma hringja í símanúmer 1700 Vinsamlegast fylgist vel með uppfærðum fréttum og tilkynningum frá embætti sóttvarnarlæknis
Hildur Björnsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10.3.2022 22:44 Page 21
HILDUR
BJÖRNSDÓTTIR
1. SÆTI
REYKJAVÍK SEM VIRKAR
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
VEGNA BORGARSTJÓRNARKOSNINGA FER FRAM DAGANA 18. OG 19. MARS NK.
GULLNESTI Ódýri ísinn Grillið í Grafarvogi Grillið í Grafarvogi - Gylfaflöt 1 - Sími: 567-7974
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10.3.2022 23:02 Page 22
22
GV
Fréttir
Einstök og björt og tvöfaldur bílskúr - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11
Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir einstaka og bjarta 6-7 herbergja fasteign á tveimur hæðum með tvö fö ldum bílskú r, tvennum svölum og sólpall, ́i þríbý lishú si að Hrísrima 35. Eignin er 260,3 fm samkvæmt þjó ðskrá og er á aðalhæð hússins og efri hæð, húsið stendur innst í botnlanga.
efri hæð baðherbergi sem er flísalagt og með innré ttingu og sturtuklefa. ́I kjallara er rú mgott þvottahú s og stó r geymsla sem hægt er að breyta í aukaíbúð. Mjög stutt er ́i skó la, leikskó la, strætóstoppistöð og alla helstu verslun og þjó nustu. Eignin stendur á parhúsalóð og er heimild til að byggja lítin geymsluskúr í garðinum sem hægt væri
að nýta til dæmis sem viðbótar geymslu, fyrir vélsleða eða listamannaaðstöðu. Með eigninni getur fylgt mjög hagstæður leigusamningur með traustum leigjendum. Möguleiki er á að útbúa stúdíóíbúð með sólskála í kjallara og eru allar lagnir til staðar ásamt teikningum af hugmynd að útfærslu.
Komið er inn ́i forstofu, þaðan er gengið inn ́i forstofuherbergi á hægri hönd og gestasnyrtingu á vinstri hönd, einnig er gengið ú r forstofu inn ́i opið rý mi þar sem eru eldhú s, stofa, borðstofa og sjó nvarpshol, innaf sjó narpsholinu er hjó naherbergi með sér (en suite) baðherbergi. A ́ efri hæð eru tvö herbergi opið rý mi ásamt baðherbergi, en efri hæðin gæti nýst vel fyrir börn og unglinga. ́I kjallara er stó r geymsla sem hægt er að breyta í aukaíbúð og sameiginlegt þvottahú s. Ná nari lý sing Forstofa er flísalö gð og með innbyggðum fataská p. Gestasnyrting er með lítilli innré ttingu, gó lf er flísalagt og gluggi er á gestasnyrtingunni. Forstofuherbergi er með parketi á gó lfi. Eldhú s er með gó ðri hvítri innré ttingu, parket á gó lfi, eldunareyju, borðkrók, og útgengt er ú r eldhú si ú t á rú mgó ðan só lpall. Borðstofa er rú mgó ð við hlið eldhúss með parket á gó lfi. Stofa er einstaklega bjö rt og rú mgó ð með háum gluggum, fallegum arni og ú tgengt á vestursvalir, parket á gó lfi. Sjó nvarpshol er rú mgott, parket á gó lfi. Svefnherbergi hjó na er rú mgott með gó ðum ská pum, parket á gó lfi og gengt er ú t á vestursvalir. Inn af svefnherbergi hjóna er flísalagt baðherbergi með sturtuklefa og baðkari og gó ðum innré ttingum. A ́ efri hæð er opið rý mi sem gæti nýst sem sjónvarpsherbergi eða leikjaherbergi, tvö björt og rú mgó ð herbergi með harðparketi á gó lfum, hvort herbergi er með gluggum á tveim hliðum, gengt er ú t á suðursvalir af efri hæð, einnig er á
Sigrún Stella Einars- Árni Þorsteinsson rekdóttir Löggiltur faststrar-hagfræðingur. M.Sc. eigna-, fyrirtækja- H^\g c HiZaaV og löggiltur fasteigna- og :^cVghY ii^g skipasali s. 8240610 skipasali og löggiltur A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459
Stofa er einstaklega bjö rt og rú mgó ð með háum gluggum. Eldhú s er með gó ðri hvítri innré ttingu, parket á gó lfi.
Stofa er með fallegum arni.
Útgengt er á vestur svalir úr stofu.
Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteigna- og skipasali s. 786-1414
He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Jón Einar Sverrisson löggiltur fasteignaog skipasali s: 862-6951
MIKIL EFTIRSPURN EFTIR EIGNUM Í GRAFARVOGI
Seld HRÍSRIMI - SÉRHÆÐ BÍLSKÚR Einstök 6-7 herbergja fasteign á tveimur hæðum með tvö fö ldum bílskú r, tvennum svölum og sólpall. Eignin er 260,3 fm, glæsilega innréttuð og með vönduðum gólfefnum.
H b^ *,* -*-*
LAMBHAGAVEGUR ATVINNUHÚSNÆÐI - LEIGA (mynd horft til norðurs) Í nýju húsi sem er til afhendingar, alls 1.479 fm til leigu í 3. hæða lyftuhúsi fyrir verslun, skrifstofur og lager að Lambhagavegi Reykjavík. Leigutakar geta haft áhrif á innra skipulag.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR - ATVINNUHÚSNÆÐI Bjart og vel skipulagt verslunarhúsnæði á jarðhæð á horni Skólavörðustígs og Týsgötu. Eignin er samkvæmt þjóðskrá 104,8 fm. Húsið stendur á eignarlóð.
LAUFENGI - 3.HERBERGJA Mjög góð 3ja herbergja 83,4 fm íbúð á 2. hæð. Stórar svalir. Geymsla og þvottahús innan íbúðar. Parket og flísar á gólfum og nýlegir skápar og baðherbergi nýlega endurgert.
]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`
LAUTASMÁRI - 3ja HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Mjög vel skipulögð 94.8 fm 3ja herbergja íbúð á 5. hæð. Útsýni. Rúmgóðar suður svalir. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Eignin er laus fljótlega.
lll#[b\#^h
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.3.2022 13:10 Page 23
Kirkjufréttir Guðsþjónustur í kirkjunni Alla sunnudaga eru guðsþjónustur í kirkjunni kl. 11:00. Guðsþjónustuhald þar er fjölbreytt og messuformið klassískt. Kór Grafarvogskirkju leiðir þar söng. Selmessur í Kirkjuselinu í Spöng Selmessa er alla sunnudaga á veturna í Kirkjuselinu kl. 13:00. Messuformið er létt og einfalt. Vox Populi leiðir þar söng. Sunnudagaskólinn Sunnudagaskólinn er á neðri hæð kirkjunnar alla sunnudaga kl. 11:00. Brúðuleikhús, tónlist, sögur, leikir og annað skemmtilegt. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson. Fermingar: Fermingar hefjast sunnudaginn 3. apríl og verða sem hér segir: 3. apríl kl. 10:30 og kl. 13:30, 9. apríl kl. 10:30 og kl. 13:30, 10. apríl kl. 10:30 og kl. 13:30, 14. apríl kl. 10:30 kl. 13:30 og 19. júní kl. 10:30 og 13:30 Páskadagskrá: Skírdagur: Kvöldmáltíð í kirkjunni kl. 20:00. Við deilum máltíð til minningar um síðustu kvöldmáltíð Krists. Í lok stundar verður allt borið út af altarinu, ljósin slökkt og við göngum út í nóttina. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Föstudagurinn langi: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Magnús Erlingsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn syngur. Lestur Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar kl. 13:00 – 18:00. Leikin verður tónlist. Laugardagur: Páskavaka kl. 23:00 í Grafarvogskirkju. Prestur: Sr. Magnús Erlingsson. Páskavakan er Guðsþjónustan þar sem ljósið er borið inn í kirkjuna á táknrænan hátt og útdeilt til kirkjugesta, þeim til blessunar og helgunar. Páskadagur: Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju að morgni páskadags kl. 08:00. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson. Hátíðarguðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Eir kl. 10:30. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Upprisuhátíð í Kirkjuselinu kl. 13:00. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Helgistundir á þriðjudögum í Kirkjuselinu Helgistundir eru alla þriðjudaga í Kirkjuselinu í Spöng kl. 10:30. Stundirnar eru opnar öllum. Kyrrðarstundir á þriðjudögum í Grafarvogskirkju Kyrrðarstundirnar eru í Grafarvogskirkju alla þriðjudaga kl. 12:00. Það er notaleg stund með fyrirbænum, altarisgöngu og tónlist. Tekið er við fyrirbænaefnum í kirkjunni alla daga. Kyrrðarstundirnar eru opnar öllum og á eftir er boðið upp á léttan hádegisverð á afar vægu verði. Barna- og unglingastarfið Mikið starf er í boði fyrir börn og unglinga í Grafarvogssöfnuði. Þar er æskulýðsfélag og starf fyrir börn á öllum aldri vikulega í allan vetur. Nánari upplýsingar um starfið og dagskrár eru að finna á heimasíðu kirkjunnar www.grafarvogskirkja.is Eldri borgarar Opið hús í kirkjunni alla þriðjudaga kl. 13:00 – 15:00 fyrir eldri borgara og önnur sem áhuga hafa. Stundin hefst á helgistund og samsöng í kirkjunni. Þá er boðið upp á handavinnu, spil og spjall. Síðan er kaffi og veitingar í boði á vægu verði. Upplagt er að skella sér í kyrrðarstund í hádeginu fyrir opna húsið. Djúpslökun Djúpslökunin er á alla fimmtudaga kl. 17:00 – 18:00 á neðri hæð kirkjunnar. Tímarnir hefjast á léttum jóga æfingum sem henta öllum. Umsjón hefur Jarþrúður Karlsdóttir jógakennari. Tímarnir eru gjaldfrjálsir og opnir öllum. Morgunsöngur (tíðasöngur) Alla virka morgna kl. 10:00 er boðið upp á morgunbæn og tíðasöng með gregorsku tónlagi í kapellu kirkjunnar. Þessi stund er opin öllum og notalegt að byrja daginn á morgunbæn í góðum hópi. Frekari upplýsingar eru veittar í kirkjunni eða hjá sr. Flóka Kristinssyni í síma 846 2020. Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju Við Grafarvogssöfnuð er öflugur Barna- og unglingakór. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á netfangið barnakorgrafarvogskirkju@gmail.com Börn 6-8 ára æfa kl. 16:40 – 17:20 , Börn 9-10 ára æfa kl. 16:40 – 17:40, Börn 11-15 ára æfa kl. 17:30 – 18:45. Hægt er að bæta við fleiri börnum í skemmtilegan og metnaðarfullan kór! Ævintýranámskeið í sumar Ævintýranámskeið fyrir börn verða í boði í sumar eins og fyrri sumur. Nánari tilhögun námskeiðanna og dagsetningar verður auglýst síðar en velkomið er að hafa samband við æskulýðsfulltrúa kirkjunnar í netfangið asta@grafarvogskirkja.is Kór Grafarvogskirkju og Vox Populi Kirkjukórinn æfir á miðvikudögum kl. 19:30 og nánari upplýsingar veitir Hákon Leifsson hakon@vortex.is Vox Populi – æfingar verða auglýstar síðar. Upplýsingar veitir Árni Heiðar Karlsson - arniheidar@gmail.com Nýir félagar eru hjartanlega velkomnir! Prjónaklúbbur Grafarvogskirkju Prjónaklúbbur er í Grafarvogskirkju annan hvern fimmtudag kl. 20:00. Hann er fyrir þau sem langar að hittast og spjalla um og yfir handavinnu. Við bjóðum nýja og eldri þátttakendur hjartanlega velkomin og viljum sjá sem allra flest og einmitt þig! Sjá nánar á Facebooksíðu Prjónaklúbburinn í Grafarvogskirku. Dagsetningar næstu vikna eru: 17. mars – 31. mars.
Prestar safnaðarins Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur gudrun@grafarvogskirkja.is Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur arna@grafarvogskirkja.is Sigurður Grétar Helgason prestur sigurdur@grafarvogskirkja.is Magnús Erlingsson prestur magnus.erlingsson@kirkjan.is Sími: 587 9070 Netfang: grafarvogskirkja@grafarvogskirkja.is Heimasíða: www. grafarvogskirkja.is Likesíða á facebook: Grafarvogskirkja Grafarvogi Instagram: grafarvogskirkja_grafarvogi Vekomin í kirkjuna þína!
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.3.2022 13:12 Page 24
! ! !