GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.2.2022 11:57 Page 1
Fjölbreytt úrval ú af hunda- og kattamat auk ná n ttúrulegra bætiefna
Smáralind • Kringlunni • Spönginni • Reykjanesbæ • Akranesi
Sími 511 11121 • www.dyrabaer.is
Grafarvogsblaðið 2. tbl. 33. árg. 2022 - febrúar
Ódýri ísinn
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]` Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-* ;Vm *,* -*-+
lll#[b\#^h
Hjálpið sorphirðumönnum Óvenju mikill snjór í Grafarvogi hefur gert sorphirðumönnum mjög erfitt fyrir undanfarið. Mjög mikilvægt er að Sjá nánar á bls. 8 íbúar moki frá ruslageymslum sínum til að tryggja að sorp sé tekið.
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
bffo o.is 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][
W[d5W[d#^h
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
www.bilavidgerdir.is BG
BG
TT S VO
SV
UÐ ÞJÓNU
STA
OT TUÐ ÞJÓNUS
Þjónustuaðili
TA
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GA AT TA) · 200 2 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn veiðimanna á boxin - Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki
Upplýsingar í síma 698-2844
,,Mahoný’’
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.2.2022 11:36 Page 2
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Leiðhamrar 39 - Sími 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Einar Ásgeirsson og fleiri. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.
Fleiri tæki í moksturinn Vetur konungur hefur heldur betur minnt á sig undanfarna daga og vikur. Gríðarlegt magn af snjó er í úthverfum borgarinnar og Grafarvogurinn er þar alls engin undantekning. Og það er ekki í fyrsta skipti sem íbúar í Grafarvogi finna fyrir því að þeir eru ekki í forgangi hjá borginni. Margir hafa haft samband við okkur á Grafarvogsblaðinu og lýst yfir mikilli óánægju með snjómokstur í hverfinu. Enn eru einhverjar götur og gangstígar sem ekki er búið að moka og verður þetta að teljast afar slök frammistaða hjá borginni. Og oft þegar svo moksturstæki birtast eru vinnubrögðin vægast sagt slök. Fulltrúi borgarinnar hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarna daga og borið sig illa. Fram hefur komið að margir aðilar sem eiga réttu tækin til snjómoksturs hafa ekki verkefni fyrir þau yfir vetrartímann. Borgin á að fá þessa aðila til liðs við sig og flýta mokstri eins og hægt er. Sérstaklega í miklum hvellum eins og gerst hefur í tvígang með stuttu millibili. Mikil ófærð hefur verið í Grafarvogi undanfarið og dæmi um að götur sem mokaðar voru í fyrri hvellinum hafi verið illfærar eftir moksturinn. Og alls ekkert tillit er tekið til gangandi vegfarenda. Allur snjórinn af götunum er ruddur upp á gangstéttar sem gerir þær algjörlega ófærar fyrir gangandi fólk sem verður síðan að ganga á götunum með tilheyrandi slysahættu. Hér er þó jákvæður punktur í lokin. Íbúi í úthverfi borgarinnar hringdi inn á eina útvarpsstöðina og sagðist hafa yfir að ráða góðu tæki til að moka snjó. Gallinn væri hins vegar sá að hann hefði ekkert að gera í öllum snjónum. Gagnrýndi hann borgina fyrir að nýta ekki öll þau tæki sem til væru þegar snjó kyngdi niður. Þessi sami íbúi sagðist oft moka alla götuna hjá sér og sínum nágrönnum en vildi fá fleiri verkefni. Ég vildi að svona snillingur byggi í minni götu. Síminn hjá þessum aðila er 5753000.
Björn Gíslason gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:
Bættar samgöngur og aukið lóðaframboð Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður Fylkis, sækist eftir þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu sem haldið verður í næsta mánuði.
og áður sem varaborgarfulltrúi hef ég öðlast yfirgripsmikla þekkingu á málefnum borgarinnar. Rekstur borgarinnar snertir flest svið mannlegs lífs eins og gefur að skilja.
Björn er fæddur 5. apríl 1955 og ólst upp í Vogahverfinu í Reykjavík. Hann stundaði íþróttir af kappi á sínum yngri árum og spilaði handbolta með Fram. Björn er kvæntur Karólínu Gunnarsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Ég mun beita mér fyrir bættum samgöngum og auknu lóðaframboði.
Björn er trésmiður að mennt en hann hlaut meistararéttindi árið 1982. Hann hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur árið 1981 og varð þar varðstjóri og síðar sviðsstjóri. Hjá slökkviliðinu sótti Björn margvísleg námskeið og sinnti fjölbreyttum störfum, meðal annars kennslu, forvörnum og stjórnun á sviði almannavarna. Hann var framkvæmdastjóri SHS fasteigna ehf. frá árinu 2001. SHS fasteignir eru dótturfélag Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Félagið stóð meðal annars að byggingu Björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð þar sem allir lykilaðilar í björgunarstörfum á Íslandi starfa. Á kjörtímabilinu hefur Björn setið í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði og öldungarráði. Þá situr hann nú í umhverfis- og heilbrigðisráði, Innkaupaog framkvæmdaráði, íbúðaráði Árbæjar og Norðlingaholts og er varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Enn fremur á Björn sæti í stjórn Húsnæðisog mannvirkjastofnunar og leigufélagsins Bríet. „Í störfum mínum sem borgarfulltrúi
ir að þetta gengur ekki upp en við þessu verður að bregðast strax. Þá mun ég halda áfram að beita mér fyrir auknu aðgengi barna og ungmenna að íþrótta- og tómstundastarfi með þátttöku borgarinnar. Jafnframt er mikilvægt að lýðheilsa og lífsgæði eldri borgara séu í fyrirrúmi en stuðla verður að aðgengi aldraðra að skipulagðri íþróttastarfsemi. Frá árinu 2011 hef ég verið formaður íþróttafélagsins Fylkis þar sem mikil gróska hefur verið í íþróttastarfi. Ásamt öflugu fólki ruddi ég þar brautina fyrir rafíþróttadeild félagsins sem hefur gefið börnum í Árbæ, sem áður stunduðu engar íþróttir eða tómstundir, vettvang við hæfi. Enn fremur legg ég áherslu á að í leik- og grunnskóla verði nám sem hæfir öllum og fjölbreytni í skólastarfi. Fleiri valkostir verði í boði þegar kemur að námsleiðum og fjölbreytt rekstrarform skóla. Umgjörð skólastarfs verði í nútímalegu formi og umhverfi þess tryggt með fullnægjandi viðhaldi á skólahúsnæði.
Með þessum áherslum tel Björn Gíslason borgarfullttrúi Sjálfstæðiség að Sjálfstæðisflokkurinn flokksins í Reykjavík. geti náð árangri í því endurHúsnæðisverð heldur áfram að hækka reisnarstarfi sem brýn þörf er fyrir á þrátt fyrir vaxtahækkanir, framboð af komandi kjörtímabili í borginni.“ íbúðum hefur minnkað hratt og er 70% minna en fyrir ári síðan. Það sjá það all-
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA
Stefán Kristjánsson
gv@skrautas.is
keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.2.2022 15:54 Page 3
SPENNANDI VIÐBURÐIRR Í HVERJUM MÁNUÐI
ALLT LTAF GAMAN Fylgstu með dagskránni á Facebooksíð íðu Keilluhallarinnar. facebook.com/keiluhollin manlega á keeiluhollin@keiluhollin.is Bókaðu borð tíím
RISAFJÖLLSKYLDU
LL R U K P A V SEP
BOLTA LTTAATTILBOÐ Á
STÓRSKEMMTILEGT FÓTBOLTAQUIZ HJÖRVVAARS HAFLIÐA
ÖLLUM LEIKJUM Í BEINNI
RISSA Hörður og Pétur úr Bandmönnuum halda uppi stuði og stemninguu á sinn einstaka hátt.
12” PIZZA MEÐ 2. ÁLEGGGJUM 1.990 KR.
BINNGÓ SVEPPA
PIZZA & SHAKE 3.7790 KR.
FULLORÐINS Ú ÁFAN ÚTG
VENJUULEGIR KJÚKLINGAVVÆ ÆNGIR
PÖBB QUIZ
NEI. HÆTTU NÚ ALVVEG VILLI NAGLBÍTUR
DDJ. J. ÓR ÓRA ÓRA ÚL Ú ÍÍAA
10 STK. / 20 STK.
1.490 KR. / 2.490 KR. EÐLA MEÐ NACHOS 1.590 KR. STÓR Á KRANA 990 KR. GOS MEÐ ÁFYLLLINGU 290 KR.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.2.2022 00:02 Page 4
4
Fréttir
GV
Fjölnisfréttir - góður árangur í mörgum greinum Alltaf er nóg um að vera í íþróttunum. Strákarnir í meistaraflokki í handboltanum hafa átt góða daga og nælt sér í hvert stigið á eftir öðru og sitja þeir nú í öðru sæti deildarinnar og verður spennandi að fylgjast með harðri baráttu um sæti í Olís deildinni næsta vetur. Þá átti Fjölnir flotta fulltrúa á Reykjavíkurleikunum sem fóru fram í Laugardalnum í sundi, karate, frjálsíþróttum, skák og listskautum. Eydís Magnea Friðriksdóttir lenti í 1. sæti í Kata og 4. sæti í Kumite, Gabríel Sigurður Pálmason lenti í 3. sæti í Kata. Listskautakeppendurnir áttu allir einstaklega góða keppni og voru að bæta sín persónulegu met til muna, þar lenti Rakel Sara Kristinsdóttir í 1. sæti í flokki Intermediate Women. Guðmundur Ágúst Thoroddsen vann gullverðlaun í 200m hlaupi fullorðinna, Pétur Óli Ágústsson tók bronsverðslaun í 60 m og 600m hlaupi undir 16 ára. Bjarni Anton Theódórsson lenti í 2. sæti í 400 m hlaupi fullorðinna. Kjartan Óli Ágústsson lenti í 3. sæti í 800 m hlaupi karla. Vilhelmína Þór Óskarsdóttir lenti í 2. sæti í 400 m hlaupi kvenna. Helga Þóra Sigurjónsdóttir lenti í öðru sæti í hástökki kvenna. Guðný Lára Bjarnadóttir var í 5. sæti í 800 m hlaupi kvenna.
farabikarinn. Aldursflokkameistarar 2021 voru í flokki: Sveina: Viljar Fannarsson 171 stig fyrir 50 og 100m skriðsund. Meyja: Álfrún Lóa Jónsdóttir 587 stig fyrri 100m skriðsund og 50m skriðsund. Drengja: Ásberg Halldór Hansson 685 stig fyrir 1500m skriðsund og 200m skriðsund. Telpna: Hugrún Guðmundsdóttir 703 stig fyrri 300m skriðsund og 100m skriðsund. Pilta: Hringur Birgir Kristinsson 909 stig fyrri 800m skriðsund og 200m fjór-
Á aðalfundi Sunddeildarinnar sem fram fór á dögunum voru aldursflokkameistarar 2021 verðlaunaðir og tveir Brynjar Óli Kristjánsson og Jón Bald Freysson spisundmenn fengu fram- la varnarleik.
Óðinn Freyr Heiðmarsson tekur skot. sund. Stúlkna Coco Margaret Johannsson 1155 stig fyrir 100m skriðsund og 50m skriðsund. Karla: Kristinn Þórarinsson 1447 stig fyrir 50m baksund og 100m bringusund. Kvenna Ingunn Jónsdóttir 1200 stig fyrir 200m bringusund og 50m bringusund. Afreksmaður fatlaðra Kristján Helgi Jóhannsson 865 stig fyrir 50m og 100m skriðsund. Framfarabikar deildarinnar fengu þau Hugrún Guðmundsdóttir og Guðmundur Oliver Ágústson. Tveir sundmenn fengu styrk hjá Aquasport í gegnum samning deildarinnar en það voru þau Egill Jónasson og Svava Björg Lárusdóttir. Við óskum öllu þessu sundfólki hjartanlega til hamingju með árangurinn sinn.
Frá vinstri: Andrea Marín Einarsdóttir, Benjamin þjálfari, Rakel Sara Kristinsdóttir gullverðlaunahafi í Intermediate Women(í appelsínugulum kjól).
ELDRIBORGARAR ATHUGIÐ! ÞAÐ ER
35% AFSLÁTTUR FYRIR ELDRIBORGARA Einnig er frí sjónmæling við kaup á glerjum
SÍMI: 5 700 900 • PROOPTIK.IS
KÍKTU VIÐ OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
PROOPTIK - SPÖNGINNI
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 30/04/21 22:10 Page 9
GJAFAKORT HREYFINGAR Gefðu þeim sem þér þykir vænt um dásamlegt dekur eða heilsurækt hjá Hreyfingu
HREYFING
ÁLFHEIMAR 74
104 REYKJAVÍK
HREYFING.IS
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.2.2022 10:24 Page 6
6
Fréttir
GV
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um miðjan mars:
Þjónusta Reykjavíkurborgar er komin í vítahring sem þarf að rjúfa Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir gefur kost á sér í oddvitasætið í borginni. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hún er gift Einari Friðrikssyni lækni en sonur hennar er Vilhjálmur Andri Jóhannsson.
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og situr í velferðarráði, ofbeldisvarnarnefnd, aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks og innkauparáði Reykjavíkurborgar. Hún hefur meðal annars verið aðstoðarmaður rannsakenda við Háskóla Íslands, flugfreyja hjá Icelandair, innheimtufulltrúi hjá Tollstjóranum í Reykjavík og förðunarfræðingur í Body Shop.
Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, árin 2017 - 2021. Samhliða náminu var Ragnhildur Alda virk í stúdentapólitík fyrir Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta og sat meðal annars í Háskólaráði Háskóla Íslands fyrir hönd Vöku árin 2018 - 2020. Einnig stofnaði Ragnhildur Alda geðfræðslufélagið Hugrúnu ásamt góðum hópi stúdenta og sat í stjórn félagsins árin 2016 - 2018.
Ragnhildur Alda fæddist í Reykjavík 30. júlí 1990. Hún er með B.Sc. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið meistaranámi í þjónustustjórnun við viðskiptafræðideild frá sama skóla. Ragnhildur Alda er fyrsti varaborgar-
Ragnhildur Alda hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var varaformaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, árin 2015 - 2017 og sat í stjórn
„Ég ætla að vera alda breytinga. Borgin er ein stærsta þjónustustofnun landsins en hefur fallið í þá gryfju að láta forræðishyggju móta stefnumörkun í húsnæðis-, samgöngu- og skólamál-
um. Sjálfstæðismenn vilja raunhæfar lausnir og raunhyggju í rekstri Reykjavíkuborgar og að þessu mun ég starfa. Það þarf að nálgast samgöngumálin kreddulaust og innleiða snjöll umferðaljós sem munu bæta umferðarflæði allra óháð samgöngumáta og láta af fækkun bílastæða. Borgarbúum fer bara fjölgandi og við verðum að leyfa Reykjavík að stækka í takt við húsnæðisþarfir þeirra og byggja utan þéttingarreita. Það er eina leiðin til að snúa þessari lóðaskortsstefnu við sem hefur sprengt upp húsnæðisverð í Reykjavík á kostnað heimilanna. Í þessu samhengi verður Sundabraut
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. einmitt mjög mikilvæg tenging að frekara byggingarlandi. Bregðast þarf strax við þeim vanda sem nú blasir við leikskólum borgarinnar, stytta biðlista og sinna viðhaldi skólahúsnæðis og skólalóða. Þjónusta Reykjavíkurborgar er komin í vítahring sem þarf að rjúfa. Reykjavík nútímans á að vera til þjónustu reiðubúin.”
Sundabraut styður við þéttingu byggðar - eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur Þau sem eldri eru en tvævetra eru kannski hætt að hlusta á loforð um Sundabraut, nýja leið út úr Reykjavík sem eykur bæði aðgengi að borginni og út úr henni. Í hjarta mínu trúi ég því að verið sé að taka stór skref í átt að Sundabrautinni með nýrri félagshagfræðigreiningu sem sýnir hversu hagkvæmt verkefni Sundabraut er, hvort sem farið verður í brú eða göng. Hlutverk Reykjavíkurborgar í því verkefni er að verja hagsmuni borgarbúa, ekki síst þeirra sem verða fyrir áhrifum af Sundabrautinni með aukinni umferð í nærumhverfinu. Og fá skipulag um Sundabraut samþykkt sem allir hagaðilar fá tækifæri til að hafa áhrif á. Skipulagið þarf auðvitað að taka tillit til
þeirrar byggðar sem er í Reykjavík, bæði hvað varðar Vogana en ekki síður Grafarvog, þannig að Grafarvogsbúar hafi áfram gott aðgengi að útivistarsvæði sínu við ströndina. Göng eða brú hefur hvort um sig kosti og galla. Falleg brú gæti orðið eitt helsta einkenni Borgarlandsins, sem yrði líka hægt að hjóla eða ganga yfir. Á meðan göng trufla síður umhverfi þeirra sem búa nálægt Sundabraut. Þá þarf að meta áhrif brúar eða ganga á Sundahöfn og notkun hennar sem stórskipahöfn. Tengir Reykjavík betur saman Einn helsti kostur Sundabrautar yrði að tengja hverfi Reykjavíkur betur saman á sama tíma og hún getur styrkt þéttingu byggðar. Grafarvogur og Kjalarnes
myndu með Sundabraut færast töluvert nær miðborginni. Umferðarálag myndi á sama tíma dreifast meira á einhverjum stöðum, þó Sundabraut hefði lítil áhrif á öðrum. Miklar breytingar eru að verða á Ártúnshöfðanum, þar sem atvinnuhúsnæði er að víkja fyrir íbúðahúsnæði. Þetta er mjög eðlileg þróun í vaxandi borg, að landfrekt atvinnuhúsnæði flytjist þar sem landsvæðið er rýmra og ódýrara, á meðan verðmætara land er byggt upp sem ný hverfi. Þetta sjáum við, auk Ártúnshöfðans, á Kársnesinu í Kópavogi og í Hraununum í Hafnarfirði. Lítill og meðalstór iðnaður á samt að eiga sér stað innan borgarmarkanna og gott svæði er fyrir hendi á Esjumelum.
Samkeppnishæfni Esjumelanna myndi styrkjast verulega við að fá Sundabraut og tengjast þannig Reykjavík betur. Með þægilegri fjarlægð, getur Reykjavík stutt við fjölgun fyrirtækja sem annars gætu fundið sér stað í nágrannasveitarfélögunum. Ein stærsta breytingin yrði svo á umferð þungaflutninga, sem myndu í mun minna magni skríða upp Ártúnsbrekkuna og í gegnum Mosfellsbæ, á leið vestur og norður um land. Í greinargerð Mannvits og Cowi kemur fram að sendiferðabílar og þungaflutningar myndu spara um 30 þúsund km. í akstri á ári, miðað við að ferðum fjölgaði ekki, með því að fara beinni leið upp á Kjalarnes. En við viljum ekki bara færa meng-
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. unina og umferðarvandann úr Mosfellsbæ og í Vogana eða Grafarvog. Því þarf að undirbúa Sundarbraut vel og gera hana þannig úr garði, að umhverfisáhrifin verði sem minnst. Því er næsta skref að vinna umhverfismat og fara í víðtækt samráð við íbúa í nærumhverfinu og aðra hagaðila. Höfundur er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar
Góð þjónusta skiptir öllu máli - eftir Valgerði Sigurðardóttur Á þessu kjörtímabili hefur áfram hefur verið haldið að skerða þá þjónustu sem Reykjavíkurborg veitir íbúum Grafar-
vogs. Norðanverður Grafarvogur hefur ekki farið varhluta af því. Þar hefur skóla verið lokað í Staðahverfi og geta börn á
bffo o.is 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][
W[d5W[d#^h
BG
BG
S
UÐ ÞJÓNU V OT T S
SV
TA
OT TUÐ ÞJÓNUS
TA
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GA ATTA) · 200 2 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
grunnskólaaldri því ekki sótt skóla í sitt hverfi líkt og áður var. Það var gert til þess að draga úr kostnaði hjá Reykjavíkurborg. Alltaf er gott að draga úr kostnaði en að byrja á grunnþjónustunni sem sveitarfélaginu ber skylda til að reka er óskiljanlegt, víða má spara í rekstri Reykjavíkurborgar án þess að það bitni á þjónustu við börn. Sparnaður kjörtímabilsins var því gerður með því að loka skóla í Grafarvogi. Samkvæmt nýju aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er fyrirhuguð þétting í Sóleyjarima, þar er nú heimild til þess að byggja fimm hæða fjölbýli. Víða má þétta byggð í Grafarvogi en að setja fimm hæða fjölbýlishús á þennan græna reit sem ekki er í samræmi við neina byggð í nágrenninu er ekki boðlegt. Þessu hafa íbúar mótmælt og við Sjálfstæðismenn gerðum það sömuleiðis en allt kom fyrir ekki og skipulagið var samþykkt. Við það tækifæri sagði Dagur B Eggertsson borgarstjóri „Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur til 2040 leggur
grunn að kraftmeiri og grænni uppbyggingu borgarinnar en dæmi eru um í sögu hennar,“ . Ekki er auðvelt að sjá græna uppbyggingu í þessum áformum í Sóleyjarrima. Stætó fór síðan í sparnað og jú viti menn það var gert með því að breyta leiðakerfinu í norðanverðum Grafarvogi og skerða þannig þjónustu við íbúa þar. Miklir peningar eru nú settir í hönnun á borgarlínu og er allt tal um komu hennar og gæði ekkert annað en hlægilegt þegar ekki er hægt að halda úti þeirri þjónustu sem Stætó er að sinna í dag. Á meðan verið er að tala um að bæta almenningssamgöngur með borgarlínu er þjónusta Strætó skert. Ef þjónustan sem strætó veitir er ekki góð þá gefur það auga leið að notendum mun ekki fjölga. Notendum mun því ekki fjölga hér í norðanverðum Grafarvogi samhliða þessum breytingum. Gangbrautir, sorphirða, grendarstöðvar, þrif og umhirða, þar þarf að
Valgerður Sigurðardóttir.
gera betur án þess þó að það kosti okkur skattgreiðendur mikið. Góð þjónusta skiptir öllu máli og Reykjavíkurborg getur svo sannarlega gert betur þegar kemur að Grafarvogi. Valgerður Sigurðardóttir Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og íbúi í Grafarvogi
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.2.2022 10:21 Page 7
7
GV
Fréttir
Höfði flytur í Hafnarfjörð
Er hleðsla h rafbíla hau usverkur u í hú úsfélaginu?
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á dögunum að fjármála- og áhættustýringarsviði yrði falið að meta kosti þess og galla að selja Malbikunarstöðina Höfða hf. og að leitað yrði til óháðra ráðgjafa vegna verkefnisins. Þá var staðfest samkomulag Reykjavíkurborgar við malbikunarstöðina um brottflutning hennar frá Sævarhöfða 6-10 í Reykjavík.
Við aðsttoðum við að leysa málið með hagsmu uni húsfélagsins a að leiðarljósi
Malbikunarstöðin Höfði hf. hefur haft afnot af lóðinni við Sævarhöfða 6-10 á grundvelli óskráðs ótímabundins afnotasamnings við Reykjavíkurborg. Borgin og malbikunarstöðin hafa nú gert með sér samkomulag um brottflutning malbikunarstöðvarinnar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á nýju 20 þúsund manna hverfi á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog, þar sem gert er ráð fyrir blandaðri byggð með íbúðum og léttri þjónustustarfsemi.
.
Hefur Malbikunarstöðin Höfði hf. keypt lóð á iðnaðarsvæði við Álfhellu í Hafnarfirði fyrir starfsemi sína og er flutningur þegar hafinn. Samkvæmt meirihlutasáttmála núverandi borgarstjórnarmeirihluta var lögð áhersla á að leggja Malbikunarstöðinni Höfða fyrst til nýja lóð og kanna í kjölfarið kosti og galla þess að selja fyrirtækið.
Malbikunarstöðin Höfði flytur til Hafnarfjarðar.
,- ,, ,, 1 ,,, ,, ,, 0%0
01
210/.-,+(0'&,/%,$," , %,$, 1 ., 1, /
70%-90% íbúa í Grafarvogi lesa Grafarvogsblaðið Þarft þú að koma skilaboðum áleiðis? Auglýsingin þín skilar árangri í G V
698-2844 / 6991322 / gv@skrautas.is
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 13.2.2022 13:09 Page 8
8
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is
GV
Fréttir
s. 5 11 53 00
Aðstæður eru oft erfiðar fyrir sorphirðufólk og mikilvægt að fólk moki vel frá ruslageymslum sínum.
Moka frá ruslageymslum
Sorphirða í Reykjavík var lengi vel á eftir áætlun vegna þeirra vetraraðstæðna sem nú eru ríkjandi. Nauðsynlegt er að huga að greiðu aðgengi að tunnum til að tryggja að sorphirða geti farið fram. Íbúar eru því beðnir um að moka snjó frá sorptunnum, geymslum og skýlum og gæta að því að gönguleið sé greið. Nauðsynlegt er að hreinsa snjó og klaka
og hálkuverja gönguleiðir. Til dæmis þarf að gæta að því að hægt sé að opna þau hlið og hurðir sem liggja að tunnunum. Líka er hætta á því að hurðir og tunnur hafi frosið fastar. Þar sem er ómokað og starfsfólk kemst ekki að tunnum getur svo farið að sleppa þurfi að tæma tunnurnar. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum mætir starfsfólk sorphirðunnar oft erfiðum aðstæðum við vinnu sína.
Unnið á laugardaginn Unnið var laugardaginn 12. febrúar og það sorp sem ekki náðist að hirða þá færist yfir á áætlun í þessari viku. Hægt er að sjá losunardaga eftir hverfum í sorphirðudagatali á vef Reykjavíkurborgar. Þar inn koma líka tilkynningar sem varða sorphirðu, til dæmis ef um seinkun er að ræða.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.2.2022 17:41 Page 9
9
GV
Fréttir
Laufskálar í Grafarvogi fá hvatningaverðlaun - þrjú frábær þróunarverkefni í leikskólum fá viðurkenningu Á Degi leikskólans nýverið, var þremur leikskólum í borginni veitt hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framúrskarandi fagstarf með börnum.
Þetta voru leikskólarnir Drafnarsteinn, Stakkaborg og Laufskálar sem er í Rimahverfi í Grafarvogi.
Leikskólinn Laufskálar í Grafarvogi fékk hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Ég get, sjáðu mig! sem eflir sjálfstraust og sjálfsmynd barna. Alexandra Briem og Skúli Helgason afhentu verðlaunin.
Börnin í Laufskálum dást að myndverki Einars Baldurssonar sem skólinn fékk í verðlaun fyrir verkefnið Ég get, sjáðu mig. grænt tjald og framtíðardraumurinn arstarfi. Þetta mun vera í fimmtánda Sjálfsraust og sterk sjálfsmynd í verði sýnilegur með „tölvutöfrum“. Í skipti sem verðlaunin eru veitt fyrir fráumsögn dómnefndar segir m.a.: Laufskálum bært leikskólastarf. ,,Ég get, sjáðu mig! er lifandi dæmi Verkefnið Ég get, sjáðu mig! í leik- um verkefni sem eflir sjálfstraust og Verðlaunin eru í formi viðurkenningskólanum Laufskálum snýst um að styrkir sjálfsmynd barna. Hér er á arskjals og málverks eftir Einar Baldhvert barn kemur í leikskólann með hlut ferðinni framsækin áhersla og nýsköp- ursson listamann á Sólheimum. að eigin vali í tösku sem heitir Sýna og un sem er gott mótvægi við aukna einsjá. Börnin læra að bera virðingu og veru á tímum Covid og aukinn skjátíma Dómnefnd var skipuð Alexöndru sýna kurteisi og tillitssemi þegar þau barna.” Briem, Diljá Ámundadóttur Zoega, Elhlusta á aðra þegar hlutirnir eru sýndir ínu Oddnýju Sigurðardóttur, Jórunni og skoðaðir. Nýjasti hluti verkefnisins Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur Pálu Jónasdóttur, Erni Þórðarsyni, Ander að börnin segja frá því hvað þau langi veitir árlega hvatningarverðlauna fyrir reu Sigurjónsdóttur og Albínu Huldu að verða þegar þau eru orðin stór. Tekin framsækið skóla- og frístundastarf til að Pálsdóttur. er mynd af börnunum í búningum við stuðla að stöðugu nýbreytni- og þróun-
2 FYRIR 1
af margskiptum glerjum
SÍMI: 5 700 900
FRÍ LING SJÓNMÆ P VIÐ KAU UM Á GLERJ
KÍKTU VIÐ OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! A PROOPTIK - SPÖNGINNI Ö
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.2.2022 10:04 Page 10
10
GV
Fréttir
Mikilvægt að þekkja Biblíuna Til sölu notuð Inogen One G4 súrefnisvél Lítið notuð - aðeins 478 klst. Framleiðir 90% súrefni. Taska, tvær stórar auka rafhlöður fylgja og hleðslutæki fyrir bíl. Ný yfirfarin af Donna ehf.
- eftir sr. Örnu Ýrr Sigurðardóttur prest í Grafarvogssókn Nú er í gangi bókaáskorun á Facebook, sem ég hef tekið þátt í. Hún gengur út á það að á hverjum degi í 7 daga setur þú inn kápumynd einhverrar bókar sem hefur haft mikil áhrif á þig. Svo skorar þú á nýjan vin/vinkonu á hverjum degi að taka við keflinu. Nú er ég búin að setja inn 6 bækur af 7. Þá skaut allt í einu upp kollinum hugsunin: En hvað með Biblíuna? Ertu alveg að gleyma henni? Því að auðvitað er það sú bók sem hefur haft mest áhrif á mig í gegnum tíðina og hefur alla dag. Og ég er ekki alveg búin að ákveða mig, hvort ég set hana inn síðasta daginn. En þá fór ég að skoða listann af bókum sem ég hef sett inn, og áttaði mig á einu: Þær eru allar á einn eða annan hátt um trú. Þær byggja kannski ekki beint á Biblíunni, en þær eru allar undir áhrifum frá henni og trú á einhvern hátt. Sumar fjalla kannski frekar um
Upplýsingar í síma 699-7734 eða 699-1322
ÚTFARARSTOFA ÍS SLANDS www.utforin.is AUÐBREKKA 1,, KÓPAVOGI
Síðan
1996
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 896 8242
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útffarar sé þess óskað
Jóhanna Eiríksdóttir
Alúð
Sverrir Ein narsson
Virðing
Traust
Jón G. Bjarnason
Reynsla
ÚTFARARSTOFA HA FNARFJARÐAR www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
Grafarvogskirkja.
trúleysi eða gagnrýni á trú og trúarhræsni, sumar fjalla um hið yfirnáttúrulega og ævintýralega, en aðrar eru hreinn og beinn trúarvitnisburður, eins og t.d. Harry Potter bækurnar. Það hljómar kannski undarlega, en í mínum huga eru þær bækur með djúpa trúarlega og guðfræðilega merkingu þó hvergi sé talað um Guð. Og þannig er það með svo mikið af góðum bókmenntum. Þær eru undir áhrifum frá trú og Biblíunni og segja okkur einhvern trúarlegan og tilvistarsannleika sem hefur djúp áhrif á okkur. Þannig hefur Biblían haft ótrúlega víðtæk áhrif á bókmenntir og menningu heimsins í tæp tvöþúsund ár, og vonandi mun hún hafa það áfram. Þess vegna er líka mikilvægt að við þekkjum Biblíuna og sagnaheim hennar, því að oft er vísað í eitthvað sem þar er að finna og þegar við áttum okkur á þeim tengingum verður veruleiki og
sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. merking þess sem við lesum enn dýpri og skiljalegri. Sunnudaginn 16. febrúar er Biblíudagurinn í íslensku kirkjunni. Þá lyftum við Biblíunni og gildi hennar upp og tölum um hana í kirkjum landsins. Í Grafarvogskirkju verður útvarpsguðsþjónusta kl. 11 þann dag og þið eruð öll velkomin þangað, ef þið komist ekki hvetjum við ykkur til að kveikja á útvarpinu og hlusta. Það er mikilvægt að þekkja Biblíuna sem bókmenntaverk, en það er ennþá mikilvægara að skynja boðskap hennar um kærleika Guðs. Ég hvet þig til að kíkja á þá góðu bók.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.2.2022 11:21 Page 11
11
GV
Fréttir
Grunnþjónusta í forgang og almenn virðing fyrir borgurunum - segir Marta Guðjónsdóttir sem býður sig fram í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Marta Guðjónsdóttir hefur verið áberandi borgarfulltrúi á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka. Hún hefur skrifað fjölda greina í dagblöð og hverfablöðin, ekki síst Grafarvogs-, Grafarholts og Árbæjarblaðið, hefur látið málefni þessara hverfa til sín taka, haldið uppi harðri gagnrýni á tafatímann í umferðinni, auk þess sem hún fjallar gjarnan um skipulags- og lóðamál og málefni leikskóla og grunnskólamál. Marta sækist nú eftir öðru sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins, vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Blaðamaður hitti Mörtu á dögunum, spjallaði við hana um stöðuna í borgarpólitíkinni og helstu hugðarefni hennar í þeim efnum. - Hver verða helstu kosningamálin í vor, Marta? ,,Nú vill svo einkennilega til að við höfum verið í góðu árferði á landsvísu, þrátt fyrir heimsfaraldur. Engu að síður hefur Reykjavíkurborg verið að safna gífurlegum skuldum, án þess að standa í opinberum stórframkvæmdum. Svona alvarleg skuldastaða kemur alltaf niður á almenningi: í hærri sköttum og álögum, verri þjónustu og vanrækslu af ýmsu tagi, s.s. eins og á viðhaldi skólabygginga, skólalóða, göngustíga og annarra mannvirkja. Það þarf því að bregðast strax við þessari alvarlegu stöðu. Við þurfum annars vegar að lækka þessar skuldir á raunhæfan hátt, en við þurfum einnig að stöðva skuldasöfnun. Það gerum við með því að hagræða í rekstri og draga úr óþarfa gæluverkefnum á
ýmsum sviðum. Þegar skuldafeninu sleppir held ég að helstu kosningamálin muni snúast um skipulagsmál, samgöngumál, lóða- og húsnæðismál og síðast en ekki síst biðlista á leikskólunum.” - Er hægt að hægja á eða jafnvel stöðva tafatímann í umferðinni, sem lengist í hverjum mánuði? ,,Já. Hann er því miður að verulegu leyti heimatilbúinn. Í meira en áratug hafa borgaryfirvöld fylgt þeirri stefnu að að berjast fyrir Borgarlínu en leggja um leið stein í götu okkar þegar kemur að stofnbrautum. Þetta hægir mjög á ferðum fólksbíla og almenningsvagna og er gert til að reyna að fækka fólksbílum í umferðinni. Okkar stefna snýst hins vegar um að greiða fyrir allri umferð - óháð ferðamáta. Í þeim efnum er ýmislegt hægt að gera strax til að auka umferðarflæðið. Við þurfum t.d. nútíma umferðarljós sem nýta snjalltækni í umferðarstýringu til hins ítrasta. Tvær ljósastýrðar gangbrautir yfir Miklubraut, við Stakkahlíð og Klambratrún, draga feikilega mikið úr umferðarflæði Miklubrautar og er því miður ætlað að gera það. Undirgöng eða göngubrýr á þessum stöðum myndu borga sig upp á nokkrum vikum. Ýmislegt fleira má gera til að auka umferðarflæði stofnbrauta, en það verður að vera pólitískur vilji til þess.” - Hvernig sérðu fyrir þér að hægt sé að leysa húsnæðisvandann og lóðaskortinn? ,,Þarna komum við aftur að heima-til-
búnum vanda. Aðalskipulagið frá 2013 kvað á um að nánast öll uppbygging og þétting ætti að vera miðsvæðis vestan Elliðaáa. Ekki er gert ráð fyrir úthlutun lóða fyrir fjölbreytta byggð í nýjum hverfum. Þessi stefna hefur leitt af sér mikinn húsnæðisskort og gífurlegar hækkanir á húsnæð-isverði. Við þurfum því sem allra fyrst að úthluta lóðum á hagkvæmu verði fyrir fjölbreytta byggð í nýjum hverfum til að mæta húsnæðisþörfinni. Það er allur galdurinn.” - Biðlistar á leikskólum hafa verið viðvarandi vandi. Áttu einhver svör við því? ,,Enn og aftur komum við að pólitískum vilja en hann er upphafið og endirinn á þessu öllu saman. Borgar-yfirvöldum ber að veita borgarbúum tiltekna grunnþjónustu en hún versnar með hverju árinu. Þar með er verið að leggja skyldur borgaryfirvalda á borgar-búa sjálfa. Fjöldi foreldra þarf að aka í önnur hverfi með börnin sín á leikskóla og aðrir þurfa t.d. að fá ömmur og afa til að hlaupa í skarðið. Meirihlutinn hefur gefist upp á því að stytta biðlista á leik-skóla og sinna viðhaldi skólabygginga. Það er jafnréttismál að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla þannig að öll börn 12 mánaða og eldri verði tryggð leikskólavist. Til að vinda ofan af þessum vanda þurfum við fyrst og síðast gjörbreytt viðhorf, setja þarf grunnþjónustu í forgang og almenna virðingu fyrir borgurunum, tíma þeirra og fjármunum.
Föndurgleði er mikil í Kastala.
Föndur, íþróttir og snjór
Í frístundaheimilinu Kastala er mikil föndurgleði og sköpun meðal barnanna. Reglulega eru föndursmiðjur og hafa börnin fengið að búa til ýmsa hluti úr allskonar efnivið, má þar helst nefna; perlur, leir, pappamassi, vír, og spýtuafgangar. Börnin fá aðstoð frá starfsmanni við að skapa það sem hugur þeirra girnist. Listaverk barnanna fara síðan með þeim heim þar sem foreldrar og fjölskylda fá að njóta þeirra. Nokkur listaverk hafa einnig ratað á sýningu á Borgarbókasafninu í Spönginni sem og á hjúkrunarheimilið Eir en við erum í góðu samstarfi við þau. Nú er lífshlaupið farið af stað og margir starfsstaðir og grunnskólar sem taka þátt í því, við erum þar engin undantekning. Mikill áhugi skapaðist meðal barnanna þegar við horfðum á íslenska landsliðið keppa í handbolta á EM 2022 og nú sýnum við frá ýmsum greinum á Vetrarólympíuleikunum í Kína. Snjórinn hefur loksins heiðrað okkur með sinni nærveru og förum við þá oft út að renna en á skólalóðinni í Húsaskóla er mjög góð brekka. Stutt frá okkur er einnig skíðabrekka Grafarvogs og fara börnin í skipulagðar ferðir þangað til að renna. Einnig búa börnin til snjókarla og snjóvirki og fá að fara út með litað vatn til að skreyta snjóinn. Það má með sanni segja að það er ávallt líf og fjör í Kastala.
Litað vatn skreytir snjóinn.
,,Við þurfum sem allra fyrst að úthluta lóðum á hagkvæmu verði fyrir fjölbreytta byggð í nýjum hverfum til að mæta húsnæðisþörfinni. Það er allur galdurinn,” segir Marta Guðjónsdóttir.
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGR A keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
Hverfaheimsóknir borgarstjóra Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, flytur starfsstöð sína út í hverfi borgarinnar næstu vikur og mánuði. Hann byrjaði í Hlíðahverfi á dögunum og mun heimsækja starfsstöðvar og stofnanir í hverfunum.
beinu streymi og geta þeir sem ætla sér að taka þátt í fjarfundunum sett inn spurningar á viðburðasíðu hverfafundanna. Íbúar eru hvattir til að taka þátt. Hverfavikur sem eru framundan:
Frá 31. janúar til 2. febrúar hafði borgarstjóri ásamt nánasta samstarfsfólki aðsetur á Kjarvalsstöðum. Á meðan á veru hans stendur í hverfunum mun borgarstjóri m.a. hitta fulltrúa foreldrafélaga, heimsækja skóla og leikskóla, taka hús á íþróttafélögum og stofnunum í hverfunum og fleira. Íbúar eru velkomnir á fundina en jafnframt er bent á að fundirnir verða í
Hverfavika Grafarholt-Úlfarsárdalur 14. – 16. febrúar Hverfavika Árbær 22. – 24. febrúar Hverfavika Laugardalur 31. febrúar – 2. mars Hverfavika Breiðholt 8.– 10. mars Hverfadagur Kjalarnes 17. mars Hverfavika Grafarvogur 29. – 31. mars Hverfavika Miðborg 4. – 6. apríl
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.2.2022 22:26 Page 12
12
Fréttir
GV
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t ffor.is .
VIÐ ÞJÓNUM ALL AN SÓL AR HR INGIN N Gluggar eru stórir í Guddumóa, sérstaklega hannaðir fyrir börnin.
Hér fyrir þig! Heilsugæslan í Spönginni er opin alla virka daga á milli kl. 8 og 17 Við minnum á dagvakt hjúkrunarfræðinga og lækna kl. 8-16 fyrir skemmri erindi, bráð vandamál og erindi sem þola litla bið. Í ljósi núverandi faraldurs mælumst við til Covid sýnatöku við flensulík einkenni og/eða öndunarfærasýkingar-einkenni. Hægt að hringja síðan og fá ráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi og koma ef þörf er á.
Ný ævintýri byrja í Guddumóa
Það er loksins komið að því sem börnin og starfsfólkið á leikskólanum Funaborg við Funafold höfum beðið með óþreyju! Við erum búin að fylgjast með uppbyggingu hússins okkar í skóginum frá því að grunnurinn var tekinn. Hvert einasta handtak smiða, pípara og rafvirkja hefur verið undir eftirliti barnanna í gegnum stóra gluggann á Funaborginni. Á skógarhúsinu okkar Guddumóa eru líka stórir gluggar, sérstaklega hannaðir með börn í huga og þar geta börnin setið og horft inn í skóginn, það er eiginlega eins og að sitja inni í málverki. Húsið er byggt og hannað sem ein deild fyrir elstu börn leikskólans og þar er gott rými fyrir 24 börn. Þó svo að hádegismaturinn sé fluttur á milli húsa úr eldhúsi Funaborgar, þá höfum við öll tæki til þess að leika okkur svolítð í eldhúsinu, baka og elda grautinn á morgnana. Nafnið á húsinu er gamalt nafn úr botni Grafarvogsins. Öll nöfnin á deildum og svæðum í Funaborginni eru einmitt nöfn úr Grafarvoginum. Nú erum við flutt í nýja húsið okkar í skóginum og nú mega ævintýrin byrja! Til hamingju við, til hamingju Funaborgarar (Frétt frá Funaborg)
Síðdegisvakt lækna og hjúkrunarfræðinga er opin á milli kl. 16 og 17 alla virka daga. Skráning á vaktina er frá kl. 15:30 Við tökum vel á móti þér á heilsugæslunni þinni í Grafarvogi VINSAMLEGAST ATHUGIÐ VEGNA COVID19: Ef þið veikist með versnandi kvef, hósta eða hita þá mælum við með að hringja í okkur í síma 513 5600 til að fá símtal við hjúkrunarfræðing. Sjá einnig upplýsingar á Covid.is vefsíðunni Utan dagvinnutíma hringja í símanúmer 1700 Vinsamlegast fylgist vel með uppfærðum fréttum og tilkynningum frá embætti sóttvarnarlæknis Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í Simbað sæfara í Hamraskóla.
Viðburðarríkur vetur Það verður seint annað sagt en að veturinn hafi verið viðburðarríkur hjá okkur á frístundaheimilinu Simbað sæfara. Það hafa aldrei verið fleiri börn skráð til leiks en í byrjun vetrar en við náðum samtals 110 börnum þegar mest var. Við viljum helst ekki nefna Covid en veiran skæða hefur heldur betur snert starfið okkar í vetur með tilheyrandi hólfaskiptingu, veikindum og rakningu. Samhliða því þá fluttum við frístundaheimilið í heild sinni innan Hamraskóla og erum við núna komin í draumarýmið okkar. Við viljum nýta tækifærið og þakka foreldrum, forsjáraðilum og skólanum fyrir að hafa staðið þétt við bakið á okkur í öllu þessu fjöri. Við höfum ekki bara staðið í stappi í vetur heldur höfum við líka fengið að takast á við skemmtileg og gefandi verkefni. Það er okkur sérstök ánægja að í haust urðum við fyrsta frístundaheimilið til þess að fá Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Regnbogavottunin er staðfesting á því að Simbað sæfari sé hinseginvæn stofnun. Við fengum virkilega góða og praktíska fræðslu frá borginni sem kom meðal annars inn á forréttindi, öráreiti og mikilvægi þess að fjölbreytileiki sé endurspeglaður í viðfangsefnum og fyrirmyndum. Við erum afskaplega stolt af því að hafa fengið vottunina og skorum við á aðrar stofnanir borgarinnar að fara í gegnum ferlið. (Frétt frá Simbað sæfara)
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.2.2022 22:54 Page 13
13
GV
Fréttir
Jagúar nóbelskáldsins gerður upp í Borgó - verkefnið hefur vakið mikla athygli Nemendur í bifreiðasmíði og bílamálun í Borgarholtsskóla vinna um þessar mundir hörðum höndum að því að gera upp Jagúar-bifreið sem var í eigu Halldórs Laxness. Verkefnið er samstarfsverkefni Borgarholtsskóla og Gljúfrasteins, húss skáldsins. Verkefnið er unnið undir handleiðslu reynslumikilla kennara í bíliðngreinum. Jagúarinn er árgerð 1968 og var því kominn tími á yfirhalningu. Nemendur eru mjög áhugasamir um verkefnið
enda gefur það þeim innsýn inn í handbragð og aðferðir sem beitt var við bílaframleiðslu á sjöunda áratugnum ásamt því sem þau fá tækifæri til að koma við sögu þessarar sögulegu bifreiðar. Nemendur rifu alla innréttingu úr bílnum en hluti hennar er úr við og verður hún send annað í viðgerð. Þessa dagana er verið að pússa ryð, ryðbæta og sparsla í dældir. Bíllinn verður svo málaður og settur saman áður en honum verður skilað auk þess sem nemendur
og kennarar í bifvélavirkjun fara yfir vél, bremsur og aðra hluta gangverks. Verkefnið er óvenjustórt nemendaverkefni en því miðar vel áfram þó óvíst sé um verklok. Verkefnið hefur vakið mikla athygli og kom RÚV í heimsókn 26. janúar og gerði innslag um það sem birtist í fréttum þá um kvöldið. Meðfylgjandi mynd var tekin þann dag.
Uppgerð Jagúarsins nóbelskáldsins í Borgarholtsskóla hefur vakið mikla athygli.
Hverfið Gufunes ehf. reisir hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur í Gufunesi:
Fyrsta skólfustungan að nýjum íbúðum fyrir unga fólkið
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og fulltrúar byggingafélagins Hverfið Gufunes ehf tóku í dag skóflustungu að nýju íbúðarhúsnæði við Jöfursbás 9 í Gufunesi. Framkvæmdirnar marka upphafið að byggingu á 62 nýjum vistvænum íbúðum í Gufunesi. Á svæðinu verða þrjú fjölbýlishús á þremur hæðum og á miðju landinu verður útvistar- og leiksvæði fyrir börnin. Í fyrsta áfanga verða byggðar 14 íbúðir og næstu tveimur áföngum verða
byggðar 48 íbúðir. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar verði afhentar í árslok 2022 og verkefnið taki 3 ár í heild
Haft er eftir Hilmari S Sigurðssyni , framkvæmdastjóra Hverfið Gufunes ehf. að hér er um að ræða hagkvæmt og vandað húsnæði fyrir fyrstu kaupendur á íbúðamarkaði. „Gufunesið býður upp á mikla nálægð við nátturuna og sjóinn, ásamt því að vera í tengslum við skapandi iðnað, frumkvöðlastarfsemi og
menningu“. Hverfið Gufunes ehf. er félag sem stofnað var utan um verkefnið. Byggingarverktakinn Hoffell ehf mun annast allar framkvæmdir við byggingarnar og verða húsin byggð úr einingum að skandinavískri fyrirmynd, en Hoffell er í samstarfi við öflugan framleiðanda byggingarkerfa á norðurlöndum. Teiknistofa Arkitekta hannar verkefnið ásamt verkfræðistofunni Eflu.
Júlíus Þór Júlíusson framkvæmdastjóri Hoffell ehf., Dagur B Eggertsson borgarstjóri, Hilmar S Sigurðsson framkvæmdastjóri Hverfið Gufunes ehf. og Jóhann Einar Jónsson framkvæmdastjóri Teiknistofu Arkitekta ehf.
GULLNESTI Ódýri ísinn Grillið í Grafarvogi Grillið í Grafarvogi - Gylfaflöt 1 - Sími: 567-7974
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.2.2022 23:24 Page 14
14
GV
Fréttir
Mjög vel skipulögð og björt íbúð - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11
Fasteignamiðlun Grafarvogs s: 5758585 kynnir þriggja herbergja 83,4 m² íbúð á annarri hæð í Laufengi 23, 112 Reykjavík: Vel skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð með rúmgóðum svölum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu og sturtuhengi, upphengt salerni, handlaug með góðri hvítri innréttingu og dökkri borðplötu. Efri skápar með glærum hurðum. Stór spegill með lýsingu fyrir
ofan. Handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla: er innan íbúðarinnar, góðar hillur á þremur veggjum og rúmar því vel.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi og sérgeymsla er innan íbúðar. Góðir skápar eru í íbúðinni. Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Mjög snyrtilegt og bjart stigahús og lóð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegu geymslurými á háalofti (dekkjageymsla). Öll þjónusta er í nærumhverfi í göngufjarlægð, s.s. leikskóli og grunnskóli, verslana miðstöðin Spöngin og Egilshöll. Nánari lýsing: Parket er á allri íbúðinni nema flísar á baðherbergisgólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Forstofa: Góður innfelldur nýlegur skápur fyrir yfirhafnir.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu sem er hvít og beyki.
Stofa: Rúmgóð og björt. Hún tengir saman önnur rými íbúðarinnar. Þar er gengið út á góðar norðvestur svalir. Herbergi 1: Er með nýlegum innfelldum skáp eftir einum vegg. Herbergi 2: Fataskápur, fatahengi, vegghillur, rúllugardína og gardínustöng. Eldhús: er með snyrtilegri innréttingu sem er hvít og beyki. Ágætur borðkrókur og tveir gluggar. Tengi fyrir uppþvottavél, ofn og keramik helluborð.
Rúmgóðar svalir og gott útsýni. Ágætur borðkrókur og tveir gluggar eru í eldhúsi.
Sigrún Stella Einars- Árni Þorsteinsson rekdóttir Löggiltur faststrar-hagfræðingur. M.Sc. eigna-, fyrirtækja- H^\g c HiZaaV og löggiltur fasteigna- og :^cVghY ii^g skipasali s. 8240610 skipasali og löggiltur A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459
Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteigna- og skipasali s. 786-1414
He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Jón Einar Sverrisson löggiltur fasteignaog skipasali s: 862-6951
HRÍSRIMI - SÉRHÆÐ BÍLSKÚR Einstök 6-7 herbergja fasteign á tveimur hæðum með tvö fö ldum bílskú r, tvennum svölum og sólpall. Eignin er 260,3 fm, glæsilega innréttuð og með vönduðum gólfefnum.
H b^ *,* -*-*
MIKIL EFTIRSPURN EFTIR EIGNUM Í GRAFARVOGI
LAMBHAGAVEGUR ATVINNUHÚSNÆÐI - LEIGA (mynd horft til norðurs) Í nýju húsi sem er til afhendingar, alls 1.479 fm til leigu í 3. hæða lyftuhúsi fyrir verslun, skrifstofur og lager að Lambhagavegi Reykjavík. Leigutakar geta haft áhrif á innra skipulag.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR - ATVINNUHÚSNÆÐI Bjart og vel skipulagt verslunarhúsnæði á jarðhæð á horni Skólavörðustígs og Týsgötu. Eignin er samkvæmt þjóðskrá 104,8 fm. Húsið stendur á eignarlóð.
Seld
Seld
HRÍSRIMI - 4-5 HERBERGJA - bílageymsla
FLÉTTURIMI - 3ja HERBERGJA
Falleg og vel skipulögð 4 til 5 herbergja íbúð með sér inngangi á 2. hæð í litlu tveggja hæða fjölbýli með fjórum íbúðum. Eignin er 95,8 fm. auk bílastæðis í lokaðri bílageymslu.
Virkilega falleg 85,2 fm þriggja herbergja íbúð á efstu hæð. Vandaðar innréttingar, hátt til lofts og falleg gólfefni. Suðvestur svalir.
]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`
lll#[b\#^h
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 12.2.2022 23:29 Page 15
Kirkjufréttir Í vetur verður mikið um að vera í Grafarvogssöfnuði eins og ávallt og þú ert velkomin(n) í kirkjuna þína Nú getur allt starf í Grafarvogskirkju og Kirkjuselinu hafist á ný! Guðsþjónustur í kirkjunni Alla sunnudaga eru guðsþjónustur í kirkjunni kl. 11:00. Guðsþjónustuhald þar er fjölbreytt og messuformið klassískt. Kór Grafarvogskirkju leiðir þar söng. 20. febrúar kl. 11:00. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Árni Heiðar Karlsson. 27. febrúar kl. 11:00. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson. 6. mars 11:00. Sr. Magnús Erlingsson þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Árni Heiðar Karlsson. 13. mars kl. 11:00. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson. Einnig verður útvarpað frá guðsþjónustu þennan dag á Rás 1 kl. 11. Guðsþjónustur í Kirkjuselinu í Spöng Selmessa er alla sunnudaga á veturna í Kirkjuselinu kl. 13:00. Messuformið er létt og einfalt. Vox Populi leiðir þar söng. 20. febrúar kl. 13:00. Sr. Magnús Erlingsson þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Árni Heiðar Karlsson. 27. febrúar kl. 13:00. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Hákon Leifsson. 6. mars kl. 13:00. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Árni Heiðar Karlsson. 13. mars kl. 13:00. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Hákon Leifsson. Sunnudagaskólinn Sunnudagaskólinn er á neðri hæð kirkjunnar alla sunnudaga kl. 11:00. Brúðuleikhús, tónlist, sögur, leikir og annað skemmtilegt. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Valbjörn Snær Lilliendahl og undirleikari er Stefán Birkisson. Helgistundir á þriðjudögum í Kirkjuselinu Helgistundir eru alla þriðjudaga í Kirkjuselinu í Spöng kl. 10:30. Stundirnar eru opnar öllum. Kyrrðarstundir á þriðjudögum í Grafarvogskirkju Kyrrðarstundirnar eru í Grafarvogskirkju alla þriðjudaga kl. 12:00. Það er notaleg stund með fyrirbænum, altarisgöngu og tónlist. Tekið er við fyrirbænaefnum í kirkjunni alla daga. Kyrrðarstundirnar eru opnar öllum og á eftir er boðið upp á léttan hádegisverð á afar vægu verði. Barna- og unglingastarfið Mikið starf er í boði fyrir börn og unglinga í Grafarvogssöfnuði. Þar er æskulýðsfélag og starf fyrir börn á öllum aldri vikulega í allan vetur. Nánari upplýsingar um starfið og dagskrár eru að finna á heimasíðu kirkjunnar www.grafarvogskirkja.is Eldri borgarar Opið hús í kirkjunni alla þriðjudaga kl. 13:00 – 15:00 fyrir eldri borgara og önnur sem áhuga hafa. Stundin hefst á helgistund og samsöng í kirkjunni. Þá er boðið upp á handavinnu, spil og spjall. Síðan er kaffi og veitingar í boði á vægu verði. Upplagt er að skella sér í kyrrðarstund í hádeginu fyrir opna húsið. Djúpslökun Djúpslökunin er á alla fimmtudaga kl. 17:00 – 18:00 á neðri hæð kirkjunnar. Tímarnir hefjast á léttum jóga æfingum sem henta öllum. Umsjón hefur Jarþrúður Karlsdóttir jógakennari. Tímarnir eru gjaldfrjálsir og opnir öllum. Morgunsöngur (tíðasöngur) Alla virka morgna kl. 10:00 er boðið upp á morgunbæn og tíðasöng með gregorsku tónlagi í kapellu kirkjunnar. Þessi stund er opin öllum og notalegt að byrja daginn á morgunbæn í góðum hópi. Frekari upplýsingar eru veittar í kirkjunni eða hjá sr. Flóka Kristinssyni í síma 846 2020. Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju Við Grafarvogssöfnuð er öflugur Barna- og unglingakór. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á netfangið barnakorgrafarvogskirkju@gmail.com Börn 6-8 ára æfa kl. 16:40 – 17:20 Börn 9-10 ára æfa kl. 16:40 – 17:40 Börn 11-15 ára æfa kl. 17:30 – 18:45 Hægt er að bæta við fleiri börnum í skemmtilegan og metnaðarfullan kór! Kór Grafarvogskirkju og Vox Populi Kirkjukórinn æfir á miðvikudögum kl. 19:30 og nánari upplýsingar veitir Hákon Leifsson hakon@vortex.is Vox Populi – æfingar verða auglýstar síðar. Upplýsingar veitir Árni Heiðar Karlsson - arniheidar@gmail.com Nýir félagar eru hjartanlega velkomnir! Prjónaklúbbur Grafarvogskirkju Prjónaklúbbur er í Grafarvogskirkju annan hvern fimmtudag kl. 20:00. Hann er fyrir þau sem langar að hittast og spjalla um og yfir handavinnu. Við bjóðum nýja og eldri þátttakendur hjartanlega velkomin og viljum sjá sem allra flest og einmitt þig! Sjá nánar á Facebooksíðu Prjónaklúbburinn í Grafarvogskirku. Dagsetningar næstu vikna eru: 17. febrúar – 3. mars – 17. mars – 31. mars. Aðalfundur Safnaðarfélags Grafarvogssafnaðar 21. febrúar kl. 20:00 Stjórn Safnaðarfélags Grafarvogskirkju boðar til aðalfundar mánudaginn 21. febrúar næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Grafarvogskirkju og hefst klukkan 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Grafarvogsbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í gefandi starfi Safnaðarfélagsins.
Prestar safnaðarins Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur gudrun@grafarvogskirkja.is Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur arna@grafarvogskirkja.is Sigurður Grétar Helgason prestur sigurdur@grafarvogskirkja.is Magnús Erlingsson prestur magnus.erlingsson@kirkjan.is Sími: 587 9070 Netfang: grafarvogskirkja@grafarvogskirkja.is Heimasíða: www. grafarvogskirkja.is Likesíða á facebook: Grafarvogskirkja Grafarvogi Instagram: grafarvogskirkja_grafarvogi Vekomin í kirkjuna þína!
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 15.2.2022 11:38 Page 16
UR SAFSLLÁTTU MÆLIS % AFM 20% um! o Tacttix vöru af ölllum Trruper og Tactix topplyyklasettt 33 hlutir
20
% Truperr verkfæraabelti
20
k. e nú frá kr Verð Ve
55 455 4 569
% AF
ður frá Áður Á
20
%
kr.
Áður
AF
kr.
ur Áður
3 983 1.9 2.479
%
20
32 10.7 10 4155 13.415
AF
AF
Kúbein
e nú frá kr. Verð
799999
kr.
20
%
Áður frá
Tactix “heavy duuty„ járnsög
8 758 1.758 1 2.198
a x skrrúfjárnasett Tactix
8 28 42 535
20
%
AF
kr.
Áður
20
20
%
kr.
Áður
20
%
% AF
Hefftibyssa
9 1.189 951 Áðuur
S Strekkibönd
e nú frá krr.. Verð
41.769 1.415 769
rðarþol Burð hveerrar hillu 3220kg
Áður frá
kr.
Áður fráá
1.999 2 499 2.499
ð v rð Gott ver ffyyrir allla í 20
AF
e nú frá kr. Verð
AF
kr.
AF
ctix verkfærrataska
6 6.28 7.858
kr.
kr.r
Áður
20
% AF
% AF
Trilla – 1000kg max
59 6.9 8.6999
ekki Hillureekki 152,5xx76x30,5cm
2002 – 2022
kr.
Áður
20
%
596 9.5 11..995 11
AF
Truper vinnkill með hallamáli
kr.
Áður
20
07 .4 1.407 1.759
eru ekki endilega af vvörunni á lægsta verði y vörumyndir ý g verðð / sýndar g til um lægsta Verð frá segir
%
20
%
Skiptilyklar
Klauffhamrar
e nú frá kr. Verð
k. Veerð nú frá kr
n frá kr. Veerð nú
Áður frá
0 20
%
575 719 Áður frá
Áður frá
i ÞÞvingur
ú frá kr. Veerð nú
678
20
20 Straummælir
Truper skkófla samanbrrjótanleg
375 5.375 6 719 6.719 Áður
kr.
0 20
%
Boltaklippur
e nú frá kr. Verð
863 1.863 2 329 2.329 Áður frá
kr.
AF
kr.
AF
Áður frá
AF
kr.r
AF
AF
agir TTaactix handsagir
Ve nú frá krr.. Verð
902 1128 Áður frá
kr.
9 903 1.9 2 379 2.3 Áður
20
%
%
2.719 3 399 3.399 Áður
kr.
20
AF
Blikkklippur 3 stk sett
AF
%
AF
9 99 999 1.999 2.4 2.499
%
20
%
%
20 %
Áður frá 848 kr. Á
20
e nú frá krr.r. Verð
111.3988 1.1
kr.
AF
Truper sleggjur
Meitlar
335
kr.
Áður
AF
20
%
kr.
Truper skotlínaa og kalkbrúsi
AF
5 1.575 1 969 1.969 Áður
kr.
V YFIR ÞÚSUND VÖRUNÚMER! Sendum um land allt – murbudin.iis
fyrir alla í Gott verrð fy
20ár
2002 – 2022