Skip to main content

Grafarvogsblaðið 1.tbl 2016

Page 1

GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 00:22 Page 1

Graf­ar­vogs­blað­ið 1. tbl. 27. árg. 2016 - janúar

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Ódýri ísinn

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is

Kristján Örn íþróttamaður Fjölnis 2015 Handknattleiksmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson var á dögunum valinn

íþróttamaður Fjölnis árið 2015. Kristján Örn er með efnilegri hand-

knattleiksmönnum landsins í dag og hefur verið að gera mjög góða hluti með

Þjónustuaðili

liði Fjölnis og yngri landsliðum Íslands. Sjá nánar á bls. 8.

T T ÍT MA FRRÐ VE

KRAFTMIKLAR JÁKVÆÐAR ÞRAUTSEIGAR

TRAUSTAR GLAÐAR

]X j k \ ` ^ eX $ j X c X e e l _ m \ i] `

www.fr.is

Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-* ;Vm *,* -*-+

VANDVIRKAR HVETJANDI ÁRANGURSMIÐAÐAR

Hlíðasmára 8 og Spönginni 13

Þórdís Davíðsdóttir

Sylvía G. Walthersdóttir

Sölufulltrúi 862 1914 / thordis@fr

Löggiltur fasteignasali. 477 7779 / sylvia@fr.is

lll#[b\#^h


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 15:11 Page 2

2

GV

Fréttir

Graf­ar­vogs­blað­ið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Höfðabakki 3 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Sólveig J. Ögmundsdóttir - solveig@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur og Landsprent. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 og 112.

Skipta þarf um stráka Íslenska landsliðið í handbolta reið ekki feitu hrossi frá Evrópumótinu í Póllandi. Strákarnir okkar komust ekki í milliriðlakeppnina og er það í fyrsta skipti í 12 ár sem íslenska landsliðið í handbolta kemst ekki upp úr riðlakeppni á stórmóti. Þetta er vitanlega hrikalega lélegur árangur og þegar svo illa gengur þarf að leita logandi ljósi að ástæðum fyrir slæmu gengi liðsins og reyna síðan að bæta strax það sem aflaga fór. Ljóst er að það eru kynslóðaskipti framundan í íslenska landsliðinu og margir leikmenn hljóta að hafa leikið sinn síðasta landsleik í Póllandi sl. þriðjudagskvöld. Við þurfum líka að skipta um þjálfara en það var átakanlegt að sjá hve illa Aron Kristjánsson réð við hlutverk sitt á EM í Póllandi. Að mínu mati var Aron þjálfari lélegasti hluti íslenska liðsins á mótinu. Hlutir sluppu fyrir horn í fyrsta leiknum gegn Noregi en í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi fór allt úrskeiðis. Varnarleikurinn hefur aldrei verið lélegri hjá íslenska landsliðinu. Ég hef fylgst með íslenska landsliðinu frá því snemma á níunda áratugnum þegar uppgangur landsliðsins hófst og ég hef aldrei séð íslenska liðið lélegra en í leikjunum á EM gegn Hvíta-Rússlandi og Króatíu. Og líklega hefur því aldrei verið ver stjórnað en á þessu móti í Póllandi. Á ögurstundu þegar varnarleikur liðsins klikkaði algjörlega var ekkert varaplan með í farteskinu. Keyrt var á sömu vörninni allan leikinn gegn Hvít-Rússum. Reyndar voru smávægilegar breytingar gegn Króötum en ekkert gekk. Þá var þjálfari liðsins og reyndar allur varamannabekkurinn afar máttlaus og líflaus á mótinu. Engin dirfska var til staðar í ákvarðanatökum, mannskapurinn allur því miður steingeldur og stundum var eins og hreinlega vantaði áhuga til að gera góða hluti. Það að íslenska landsliðið skuli hafa tapað jafn rosalega mikilvægum leik og gegn Króatíu á fyrstu 15 mínútum leiksins er vægast sagt áhyggjuefni. Sæti í milliriðli og von um Ólympíusæti var ekki nóg til að kveikja neista í íslenska liðinu. Ekki einu sinni hjá ungum og efnilegum leikmanni eins og Aroni Pálmasyni sem var átakanlega lélegur gegn Króötum og skoraði ekki mark. Talað er um Aron sem einn af 10 bestu leikmönnum heims í dag. Ég leyfi mér að efast stórlega um það mat eins og staðan er í dag. Það eru kynslóðaskipti framundan og nú á að nota tækifærið og skipta inn mörgum ungum leikmönnum sem eru byrjaðir að lemja á dyrnar. Og leit að nýjum þjálfara hlýtur að vera hafin. Þar verður að vanda valið ekki síður en á nýjum framtíðar leikmönnum landsliðsins.

Hamraskóli brýtur blað í skólasögu Reykjavíkur:

Fyrstur til að fá fjórða Græna skref borgarinnar Góðir gestir heimsóttu Hamraskóla í dag, það voru þau Skúli Helgason formaður Skóla- og frístundaráðs, Helgi Grímsson sviðstjóri og Helena W. Óladóttir verkefnastjóri sjálfbærni frá Skóla- og frístundasviði. Skúli afhenti Hamraskóla viðurkenningu og blóm fyrir fjórða Græna skref borgarinnar sem er lokaskrefið og skólinn fyrsti grunnskólinn til þess að ná þessum áfanga. Umhverfisstjórnunarkerfið Græn skref byggist á fjölmörgum aðgerðum sem snerta níu þætti sem hafa áhrif á umhverfið og eru innleidd í fjórum áföngum. Með samstilltu átaki tókst að vinna þessi skref í umhverfisvernd og verður áhersla lögð á að halda áfram á sömu braut. Hér fyrir neðan er lýsing á áherslum og markmiðum verkefnisins: • Gera starfssemi Reykjavíkurborgar umhverfisvænni. • Auka vellíðan starfsmanna og bæta starfsumhverfi þeirra. • Draga úr kostnaði í rekstri Reykjavíkurborgar. • Innleiða áherslur í umhverfismálum sem þegar hafa verið samþykktar. • Vinnustaðir fái viðurkenningu fyrir metnað sinn í umhverfismálum. • Vinnustaðir borgarinnar geti innleitt aðgerðir á mismunandi hátt eftir umfangi og eðli starfsseminnar. • Aðgerðir Reykjavíkurborgar í umhverfismálum séu sýnilegar. • Reykjavíkurborg verði fyrirmynd annarra í umhverfismálum.

Hamraskóli er fyrsti grunnskólinn til að fá fjórða græna skrefið.

Stefán Kristjánsson, ritstjóri Grafarvogsblaðsins

gv@skrautas.is Frá afhendingu viðurkenningarinnar í Hamraskóla.


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 18/01/16 18:43 Page 3

Í myrkri og kulda er gott að hlýja sér við Beauty Angel ljósið

Kuldi eykur álag á húðina. Beauty Angel ljósið örvar bandvef í húðinni og eykur kollagenframleiðslu svo

húðin verður mýkri, rakari og fallegri. Ljósið fyllir líkamann þægilegum yl sem endist út daginn.

Fossaleyni 1 / Egilshöll - 112 Reykjavík Sími: 544-2422 www.beauty-angel.is

Beauty Angel ljósið hefur jákvæð áhrif á orku og hug og léttir þér lund í skammdeginu.


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 00:14 Page 4

4

Matgoggurinn

GV

Indverskur kjúlli, Naan brauð og súkkulaði ,,kaka” - að hætti Ásthildar og Eiríks Ásthildur Björnsdóttir og Eiríkur Jónsson, Jöklafold 23, eru matgoggar okkar að þessu sinni og hér eru uppskriftir þeirra. Indverskur kjúklingur, naan brauð og súkkulaði eftirréttur Við ákváðum að bjóða upp á þennan frábæra kjúklingarétt sem kemur skemmtilega á óvart. Ekki eru allir hrifnir af elduðum bönunum en þessi samsetning er æði. Í eftirrétt kemur svo létt súkkulaði ,,kaka” sem er einhversstaðar mitt á milli mousse og ostaköku. Uppskriftirnar eru héðan og þaðan en kjúklingaréttinn smökkuðum við fyrst hjá góðum vini okkar. Vonum að ykkur finnist hann jafn góður og okkur. Kjúklingaréttur fyrir 6 manns 6 stk. kjúklingabringur. 2 stk. gul paprika. 2 stk. bananar í sneiðum. 250 ml. rjómi. 2 tsk. karrý. 1 1/2 tsk. Sambal Oelek (chili mauk). 1 1/2 dl. Mango chutney. Salt, pipar og hvítlauksduft til að krydda kjúklinginn, allt eftir smekk. Kjúklingurinn er steiktur á pönnu eða í ofni, skorinn í bita/ræmur og settur í eldfast mót. Gul paprika skorin í bita og sett yfir kjúllann og bönunum raðað þar yfir.

Karrý, mango chutney og sambal oelek blandað saman í skál. Rjómi þeyttur og blandaður við kryddin. Öllu svo hellt yfir kjúllann og bakað við 190 gráður í um það bil 30 mínútur (fylgjast með). Naan brauð 6 stk 1 tsk. þurrger. 2 tsk. sykur. 2 bollar hveiti. 1 tsk. fínt salt. 1/8 tsk. lyftiduft. 3 msk. jógúrt. 2 msk. ólífuolía. Hvítlaukssmjör til að pensla brauðið með. Flögusalt. Setja í stóra skál 3/4 bolla volgt vatn, 1 tsk sykur og ger, leyfa því að leysast upp og freyða, um það bil10 mínútur. Á meðan, sigta hveiti, 1 tsk. af sykri, salti og lyftidufti í skál. Blanda síðan jógúrti og olíu við gerblöndu, hella því svo saman við hveitiblönduna og vinna saman men gaffli (á að vera klístrað). Strá hveiti á borð/bretti og velta deigi nokkrum sinnum, hnoða þangað til allt er orðið vel samblandað, setja aftur í skálina, plastfilmu yfir og láta standa í 2-4 klst. við stofuhita. Skipta svo deigi í 6 hluta og rúlla út, hafa hveiti á borði, væta fingur með vatni og ,,banka” brauðið báðum megin með vatninu, setja á heita pönnu í 30 sekúndur

Matgoggarnir Eiríkur, Rebekka, Aron og Ásthildur. til 1 mínútu, snúa við og setja lok yfir í aðrar 30 sekúndur til 1 mínútu. Pensla svo með smjöri og strá salti yfir. Gott að leggja klút í skálina sem brauðið er borið fram í.

og smakka til, e.t.v. setja meiri stevíu. Setja í form/skál og kæla. Þeyta 3/4 bolla af rjóma og setja smá stevíu saman við. Setja í sprautupoka og

sprauta fallega yfir kökuna. Rífa 70% súkkulaði yfir ef vill. Verði ykkur að góðu. Ásthildur og Eiríkur

Rakel og Brynjar eru næstu matgoggar

Súkkulaði ,,kaka” 2-4 msk. rjómi. 3 msk. hunang. 2 bollar ricotta ostur. 1 tsk. vanilludropar. 1/8 tsk. stevía. 85 gr. ósætt dökkt súkkulaði. 1/4 tsk. gróft sjávarsalt. 3/4 bolli þeyttur rjómi (til að setja ofan á). . Bræða súkkulaði. Setja allt annað í múlínex og blanda vel. Bæta súkkulaði útí

Ásthildur Björnsdóttir og Eiríkur Jónsson, Jöklafold 23, skora á Rakel Maríu Axelsdóttur og Brynjar eiginmann hennar, Jöklafold 15, að vera næstu matgoggar. Við munum birta uppskriftir þeirra í næsta blaði sem dreift verður í febrúar.

Útsala

allt að

50% afsláttur

Kringlunni - Smáralind - Skeifunni - Spönginni


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 18/01/16 14:27 Page 5

SÉRÞEKKING OG FAGMENNSKA FAGMENNSKA YSAMÁL Í SL LYSAMÁL YSAMÁ UM SLYSAMÁLUM

slys gar sl lys Þegar ys ber að garði þá aðstoðum aðs toðum við þig alla lleið: eið: Við sækjum um endur endurgreiðslu greiðslu á öllum útlögðum k ostnaði. kostnaði. Fáum ttekjutap ekjutap þitt gr eitt. greitt. Innheimtum bætur vvegna egna varanlegra afl eiðinga. varanlegra afleiðinga.

Arna Pálsdóttir lögmaður Sviðs Sviðsstjóri stjóri skaðabót skaðabótasviðs asviðs

FYRSTA VIÐTAL FYRST TA VIÐ VIÐT ÐT TAL AL FRÍTT Engar bætur – engin þóknun

415 2200 Nánar á www www.opus.is .opus.is – opus@opus.is

Austurstræti 17 \ Sími 415 2200


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 00:21 Page 6

6

GV

Fréttir

Krakkarnir fjölmenntu á námskeiðið hjá Fjölni og allir skemmtu sér vel.

Vinsælt handboltanámskeið endurtekið

Handknattleiksdeild Fjölnis stóð fyrir árlegu jólanámskeiði þannn 28. og 29. desember síðast liðinn. Að þessu sinni var farin sú leið að bjóða upp á námskeiðið frítt, og var boðið upp á skráningu á netinu. Skemmst er frá því að segja að fyrirkomulagið sló í gegn og 80 iðkendur voru skráðir á aldrinum 6-9 ára. Flest þeirra voru byrjendur og fengu þau góða handleiðslu í grunnatriðum

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)

íþróttarinnar frá okkar reyndu þjálfurum. Hópnum var skipt eftir aldri, í 1. og 2. bekk, þ.e. 8. flokk og svo 3. og 4. bekk sem er 7. flokkur. Fjöldinn skiptist nokkuð jafnt milli þessara hópa sem og kynjaskiptingin. Mikil gleði var á námskeiðinu sem þótti heppnast afar vel. Það er vonandi að námskeiðið hafi kveikt áhuga hjá sem flestum ungum Grafarvogsbúum

því við nú í janúar hefst EM í handbolta karla þar sem Ísland er þátttakandi líkt og svo oft áður. Hver veit nema einhver verðandi landsliðsstjarna hafi skorað sín fyrstu mörk í handbolta nú um hátíðarnar? Handknattleiksdeildin þakkar kærlega fyrir viðtökur námskeiðisins og lítum við svo á að á okkur sé skorað að bjóða upp á sambærilegan viðburð um páskana.

Úlfar Jón kjörinn íshokkímaður ársins Íshokkímaður ársins fyrir árið 2015 er sóknarmaðurinn Úlfar Jón Andrésson. Úlfar Jón er fæddur 2. apríl 1988 og er því 27 ára að aldri. Úlfar Jón, hefur allan sína tíð búið í Hveragerði og sótt æfingar þaðan síðan hann hóf að æfa íshokkí sex ára að aldri með Skautafélagi Reykjavíkur. Undanfarin ár hefur Úlfar leikið með Birninum í Grafarvogi með mjög góðum árangri ásamt því að starfa að þjálfun fyrir félagið í yngri flokkum.

Úlfar spilaði 42 unglingalandsliðsleiki fyrir Íslands hönd á sínum tíma. Sextán ára var Úlfar valinn í karlalandslið Íslands og hefur frá þeim tíma leikið 46 landsleiki en síðast lék hann með landsliðinu í undankeppni Ólympíuleikanna í nóvember síðastliðum. Úlfar hefur allan sinn leikferil verið þekktur fyrir baráttu sína og vinnusemi inn á ísnum ásamt því að vera góður liðsfélagi. Úlfar Jón Andrésson.

H^\g c HiZaaV :^cVghY ii^g

A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^

Sigurður Nathan Jóhannesson sölumaður 868-4687

Spöngin 11 - 112 Reykjavík He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Sími 575 8585. Fax 575 8586 H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+

Margir kaupendur á skrá vegna eigna í Grafarvogi

LAUFRIMI 3ja HERBERGJA 88,7 fm þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sér inngangi, útgengt er á verönd í suð-vestur. Sér inngangur.

H b^ *,* -*-*

BARÐASTAÐIR EINBÝLI Á EINNI HÆÐ OG BÍLSKÚR Glæsilegt einbýli á einni hæð með innbyggðum bílskúr og sólskála. Stór sólpallur sem snýr til suðurs og vesturs. Á pallinum er heitur pottur. Fallegt útsýni er til austur í átt að Esjunni. Húsið er skráð 172,4 fermetrar og þar af er bílskúr 38,3 fermetrar. GLÆSILEGAR OG VANDAÐAR INNRÉTTINGAR.

DVERGABORGIR 5 HERBERGJA Endaíbúð á tveimur hæðum. Íbúðin er á 3. og efstu hæð ásamt risi. Sér inngangur af opnum svalagangi. Tvö baðherbergi. Fjögur svefnherbergi. Stofa og sjónvarpshol. Tvennar stórar svalir. Mikið útsýni.

LOGAFOLD - GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS 304,3 fm einbýlishús. Glæsileg lóð með stórum sólpöllum. Fimm svefnherbergi. 51 fm bílskúr. Glæsilegar innréttingar og gólfefni. Eignin stendur innst í botnlanga.

FRÓÐENGI - 5 HERBERGJA - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Stór fimm herbergja íbúð á efstu hæð með bílastæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er á tveim hæðum og hefur nánast öll verið endurnýjuð á seinustu árum.

EIGN FYRIR VANDLÁTA.

Sameign og húsið sjálft hefur fengið gott viðhald. Tvennar suðursvalir.

]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`

lll#[b\#^h


Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 17:34 Page 11


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. JanĂşar.qxd 19/01/16 14:21 Page 8

8

GV

FrÊttir �Þróttamenn årsins og FjÜlnismaður årsins hjå FjÜlni 2015:

Kristjån Örn og Hermann Um åramótin var �Þróttamaður årsins hjå FjÜlni valinn. Valið fer Þannig fram að deildirnar tilnefna hjå sÊr íÞróttamann årsins og senda Það til valnefndar sem velur svo íÞróttamann årsins. � valnefndinni eru einstaklingar úr aðalstjórn FjÜlnis, en Þau eru Birgir Gunnlaugsson, varaformaður FjÜlnis, Laufey JÜrgensdóttir og Målfríður Sigurhansdóttir af skrifstofu FjÜlnis. �Þróttamaður FjÜlnis årsins 2015 er Kristjån Örn Kristjånsson úr handknattleiksdeild. Kristjån Örn Kristjånsson (Donni), er afreksmaður FjÜlnis Þetta årið. 2015 var stórt år fyrir Donna, bÌði hÊrlendis og erlendis. Donni lÊk stórt og myndarlegt hlutverk í FjÜlnisliðinu sem lÊk í umspili um laust sÌti í Olísdeild karla síðastliðið vor. Liðið lÊk hÜrkurimmu gegn Selfyssingum í undanúrslitunum Þar sem sigurmark Donna å lokasekúndum í oddaleik fyrir fullu húsi í Dalhúsum er með eftirminnilegri augnablikum årsins. Stór alÞjóðleg afrek Donna með U19 landsliði �slands gera Það að verkum að

hann gerir meira tilkall til Þessararar nafnbótar en aðrir innan okkar raða. Donni var leikmaður Þess fråbÌra U19 landsliðs sem vann Opna Evrópumótið í SvíÞjóð í júlí Þar sem langflest af sterkustu liðum Evrópu mÌttu til leiks og mótið hefur Því verið kallað óopinbert Evrópumót landsliða í Þessum aldursflokki. Seinna atriðið með landsliðinu var årangur liðsins å Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í ågúst síðastliðnum en liðið nåði Þeim merka åfanga að sÌkja bronsverðlaun å Það mót. Þetta er í 27 skipti sem valið fer fram. � fyrra var Arndís �r HafÞórsdóttir frjålsíÞróttakona valinn íÞróttamaður årsins og Brynjar Þór Friðriksson úr handknattleiksdeild FjÜlnismaður årsins. Afreksmenn hverrar deildar 2015 eru eftirfarandi; Fimleikadeild: Sigurður Ari Stefånsson. Knattspyrnudeild: Viðar Ari Jónsson. Sunddeild: Jón Margeir Sverrisson. Tennisdeild: Hera BjÜrk Brynjarsdóttir. Skåkdeild: HÊðinn Steingrímsson. KÜrfuboltadeild: Garðar Örn Svein-

Allir verðlaunahafarnir åsamt formanni FjÜlnis. bjÜrnsson. Karatedeild: Viktor Steinn Sighvatsson. Handboltadeild: Kristjån Örn Kristjånsson. FrjålsíÞróttadeild: Ingvar Hjartarson.

Hermann Kristinn FjÜlnismaður årsins 2015

Tilnefningar til FjÜlnismaður årsins 2015 voru að Þessu sinni: Búi Guðmundsson - knattspyrna. Hermann Kristinn Hreinsson – fÊlagið/knattspyrna. Steinar Davíðsson - karfa. Sveinn Þorgeirsson - handbolti. FjÜlnismaður årsins 2015 er Hermann

Kristinn Hreinsson. Hermann hóf stÜrf hjå FjÜlni 1991 varð síðar annar af Þjålfarateyminu Lalli og Hemmi en Það teymi var fyrir knattspyrnuna hjå FjÜlni jafnmikilvÌgt og Harry og Heimir fyrir leynilÜggubransann og Halli og Laddi fyrir skemmtanabransann. 6. flokkur karla með garpa eins og Gunna Må innanborðs var fyrsta Þjålfaraverkefnið sem Hemmi tók að sÊr og skilaði svo vel að nÌr allir nema Gunnar Mår eru lÜngu hÌttir í fótbolta en eru engu að síður góðir og gegnir íÞróttamenn í leik og starfi enda kennarinn fråbÌr í alla staði. Hemmi hefur Þjålfað vel flesta yngri flokka fÊlagsins bÌði karla og kvenna megin, og sýnt yfirburði sína sem kennari, fÊlagi og vinur. Titlarnir sem

Hemmi Ìtlaði að skila í hús eru aðeins fleiri en raun ber vitni, metnaðurinn mikill og trúin óbilandi. à rangurinn er engu að síður så besti í allri sÜgu fÊlagsins fyrr og síðar. à stórum landsmótum í Eyjum og å Akureyri å Hemmi mÜrg �slandsmet í hårgreiðslu og kappåti, en kappinn er fyrirmynd í Üllum verkefnum hvort sem er í leik eða starfi. Hemmi gerði hlÊ å Þjålfun sinni fyrir FjÜlni um sinn en sneri aftur tvíefldur 2007 og tók Þå einnig við starfi íÞróttafulltrúa fÊlagsins. Sem íÞróttafulltrúi hefur Hemmi hleypt lífi í að auðga íÞróttir í huga ungs fólks með fråbÌrum årangri. Sem Þjålfari heldur hann í gullnar hefðir, UngmennafÊlagsandinn sjålfur uppljómaður, FjÜlni allt, �slandi allt.

Landsliðsstyrkur AIS veittur í Þriðja skipti

à myndinni må sjå, efri rÜð frå vinstri; Svein Þorgeirsson verkefnisstjóra AIS, à stríði Glódísi, Theu Imani, Berglindi, Andreu og Bryndísi skólameistara. � neðri rÜð frå vinstri er Hulda Hrund, Helgi, Hjalti og Úlfur Gunnar. à myndina vantar Kristjån Örn Kristjånsson, Svein Aron Gudjohnsen og Bryndísi Bolladóttur.

Það er åvallt gaman að veita viðurkenningar og fagna Því sem vel er gert. Eitt slíkt tilefni var í dag, 12. janúar Þegar Þeim nemendum sem tóku Þått í landsliðsverkefnum í sinni grein å síðustu Ünn í Borgarholtsskóla var veittur 25.000 kr. styrkur frå AIS. � år voru Það 10 einstaklingar sem hlutu styrkinn fyrir eftirfarandi verkefni. à stríður Glódís, Andrea Jacobsen og Berglind Benediktsdóttir fóru allar með U18 åra landsliðinu í handknattleik í Ìfingaferð til Póllands nú í desember. Úlfur Kjartansson fór með U18 åra til Þýsklands til að taka Þått í móti milli jóla og nýårs og gekk Það vel. Kristjån Örn Kristjånsson keppti með U20 å heimsmeistaramótinu í Rússlandi í lok ågúst síðast liðnum. Þar nåðist fråbÌr årangur Þar sem drengirnir lÜnduðu 3ja sÌtinu. Thea Imani Sturludóttir fór með A-landsliði kvenna til Noregs síðast liðið haust. Þess må geta að hún er um leið fyrsta A-landsliðsleikmaður afreksíÞróttasviðs í handbolta. Fyrir hefur afrekið eignast leikmenn í kÜrfuknattleik karla. Hulda Hrund Arnarsdóttir fór til Sviss með U19 í knattspyrnu í september síðastliðnum og Helgi Guðjónsson tók Þått með U17 í undankeppni EM í október sem fram fór hÊr å landi. Sveinn Aron Guðjonhsen spilaði með U19 åra landsliði �slands í knattspyrnu í undankeppni EM 2016. Þar vannst einn leikur, eitt jafntefli og eitt tap. Bryndís Bolladóttir sundkona fÌr fyrsta styrkinn sem fer til einstaklingsgreina å afreksíÞróttasviðinu. Hún hefur tekið Þått í metnaðarfullum Ìfingabúðum nú um åramótin og fór með landsliðinu til Bergen í Noregi í desember.

Vottað rÊttinga- og og målningarverkstÌði Vottað målningarverkstÌði viðgerðir er rÊttinga- o g målningarverkstÌði målningarverkstÌði vottað vottað af Bílgreinasambandinu. Bílgreinasambandinu. GB Tjóna Tjónaviðgerðir og V ið tr yggjum håmar ksgÌði með Því að nota fyrsta flokks tÌkjabúnað o g efni. Við tryggjum håmarksgÌði og S tyðjumst við tÌk niupplýsingar fr amleiðanda um hvernig hvernig skuli skuli staðið að viðgerð. Styðjumst tÌkniupplýsingar framleiðanda

Tjónasko oðun Við skoðum bílinn og undirbúum tjónamatið sem sent er til tryggingafÊlaga.

RÊtting og målning m efftir tir stÜðlum framleiðenda Við vinnum og notum aðeins viðurkennd efni og tÌkjabúnað sem stenst ítrustu krÜfur.

Framrúðuskipti Skiptum um framrúður og Ünnumst Sjåum jåum um Üll annars konar rúðuskipti. S rúðutjón jafnt límdar rúður sem og aðrar, åsamt glerhreinsun å bíl.

BílaÞvottur / djúphreinsun Bjóðum við upp å almennan bílaÞvott, djúphreinsun, bón ofl.. Frír Þvottur fylgir Üllum viðgerðum.

MÜssun / snyrting å lakki Við bjóðum upp å råðleggingar og gerum tilboð í lakkmÜssun og blettanir. DekkjaÞjónusta Sparaðu tíma. Við getum skipt um dekk å bílnum å meðan hann er í viðgerð.

$RAGHÉLS s 2EYKJAVÓK SÓMI NETFANG TJON TJON IS s WWW TJON IS

InnrÊttingar / åklÌði TÜkum að okkur viðgerðir å sÌtum, innrÊttingum ofl. Småviðgerðir Samhliða viðgerðum getum við skoðað åstand helstu slitflata og ÜryggisÞåtta, s.s. bremsur.


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 14:21 Page 9

FRAMÚRSKARANDI AKSTURSUPPLIFUN ER AÐALSMERKI MAZDA

MAZDA3 FRÁ 3.190.000 KR. SKYACTIV Technology

Mazda3 er brautryðjandi á marga vegu. Framúrskarandi aksturseiginleikar Mazda halda bílnum límdum við veginn á !"#$%&'()*+,-%+.'$,$%+/(00,/%12#/$!(+$,%3$%4!11%#"%1'!/"#%-56#/#78%)"%'!(/#%9#:;#<%!/%=/!,$%3$.0>#%?(/,/%4#$$% sem vill algjöra stjórn því stýrissvörunin er frábær og viðbragðið næmt. Útlit Mazda3 þykir sérstaklega vel heppnað. Útlínur bílsins gæla við augað enda er Mazda3 smíðaður í anda KODO =@$$A$#/,$$#/%1! %,$$B631,$%!/%#?%=/!(C$0A D%'/#?+,%E0%6,2A/"%B6!++#+F0A/18% Mazda3 er sportlegur fólksbíll með spennandi akstureiginleika, háþróaðan öryggisbúnað, notendavænt upplýsinga'!/CD%!,$1+#'#%!6;1$!(+,1$G+,$0A%E0%?(/1+#%7E''1%4.0,$;,8

Komdu og reynsluaktu Mazda3

Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 12:46 Page 10

10

GV

Fréttir Fundargerðir Hverfisráðs Grafarvogs:

Vantar kynningu á breytingum í sorphirðu Þriðjudaginn 12. janúar, var haldinn 125. fundur hverfisráðs Grafarvogs. Fundurinn var haldinn í Miðgarði í Grafarvogi og hófst fundurinn kl. 17:15. Viðstödd voru Bergvin Oddsson, Guðbrandur Guðmundsson, Gísli Rafn Guðmundsson. Auk þeirra sátu fundinn Trausti Harðarson áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallavinar, Ingibjörg Sigurþórsdóttir framkvæmdarstjóri Miðgarðs, Margrét Richter, sérfræðingur fjármála og rekstrar í Miðgarði sem einnig ritaði fundargerð. Þetta gerðist: 1.

Lagt var fram svar, dagsett 4. janúar 2016, frá Skóla- og frístundasviði við fyrirspurn áheyrnafulltrúa framsóknar og flugvallarvina varðandi sundkennslu barna og unglinga í Grafarvogi. Eftirfarandi bókun var gerð frá áheyrnarfulltrúa framsóknar og flugvallavina: Það gengur ekki upp að börn og unglingar sem búa í barnmörgum íbúahverfum austarlega í Reykjavík eins og í Grafarvogi þar sem 20% barna og unglinga Reykjavíkurborgar búa og fleiri

nálægum hverfum, séu keyrð hægri, vinstri milli hverfa í skólasund og fá meira að segja skerta skólasundkennslu á sama tíma og verið sé að hefja byggingu á viðbótarsundlaug við Sundhöll Reykjavíkur í miðborginni þótt í því hverfi sé engin skortur á sundlaugarmannvirkjum til sundkennslu grunnskólanema. Kl 17:15 tekur Jóhannes Óli Garðarsson, áheyrnarfulltrúi Korpúlfa samtaka eldri borgara í Grafarvogi, sæti á fundinum. Kl 17: 24 tekur Herdís Anna Þorvaldsdóttir sæti á fundinum. 2. Lagt var fram svar, dagsett 5. janúar 2016, frá Skóla- og frístundasvið við fyrirspurn áheyrnafulltrúa framsóknar og flugvallarvina varðandi þátttöku barna í tónlistarnámi. Eftirfarandi bókun var gerð frá áheyrnarfulltrúa framsóknar og flugvallarvina: Fyrir liggur að 11,5% barna og unglinga á aldrinum 6 til 15 ára stunda tónlistarnám í Grafarvogi en 14,8% aldurs-

ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS

;&<=%>??&(@A(BCD"E/F0 Útfararþjónusta síðan 1996

ALÚÐ * VIRÐING *(GH;I1G J%"#&F"(%>K'.!"

hópsins stundar tónlistarnám ef tekið er með tækifæri til náms í skólahljómsveitum. Þátttaka í Grafarvogi er lítillega lægri en að meðaltali í Reykjavík sem er 15,7% en hæst er þátttakan í Vesturbænum 20,1% og Kjalarnesi 22,3%. Börn og unglingar í hverfinu á aldrinum 6 til 15 ára, virðast nýta tækifæri til tónlistarnáms um það bil í meðallagi. Af heildarfjölda 373 tónlistarskólanemendum í Grafarvogi eru 272 á aldursbilinu 6 til 15 ára gamlir. Skólaárið 2014 – 2015 voru sæti í Skólahljómsveit Grafarvogs ekki fullnýtt. Mikið og gott starf fer fram í þeim tveimur tónlistaskólum sem í hverfinu eru auk Skólahljómsveitarinnar sem staðsett er í Húsaskóla en ljóst er að hvetja má börn og unglina enn frekar til tónlistanáms og styðja enn betur við tónlistanám í hverfinu. 3. Umræða var um snjómokstur í Grafarvoginum. Eftirfarandi bókun var gerð frá Hverfisráð Grafarvogs: Hverfisráð Grafarvogs ítrekar mikilvægi þess að bæði götur og gangstéttir séu vel ruddar í hverfinu svo allir vegfarendur eigi greiða leið að komast á milli staða. Hverfisráð fær oft ábendingar um að gangstéttir séu ekki ruddar og eins að snjóruðningstæki skilji oft eftir hrauka meðfram ruddum brautum sem jafnvel gera bílastæði ófær.

flokkun sorps og endurvinna það. Framkvæmd aðgerða í þessa átt þarf að vanda til að árangur verði góður. Hverfisráðið telur að þær aðgerðir sem boðaðar voru nú um áramótin hafi ekki verið nægilega vel kynntar fyrir íbúum og falli því í grýttan jarðveg. Áramót eru ekki heppilegur tími til að gera svona breytingar. Hverfisráð hvetur Umhverfis- og skipulagssvið til að staldra við og undirbúa þessar aðgerðir betur með hvatningu að leiðarljósi. 5. Umræða var um fundartíma hverfisráðs og ákveðið var að halda áfram að hafa fundartímana á þriðjudögum kl 17:00. Stefnumótunarfundur verður haldinn laugardaginn 13. febrúar, kl.10:30 til 14:00 í Miðgarði. 6. Eftirfarandi tillaga var lögð fram af áheyrnarfulltrúa framsóknar og flugvallavina: Hverfisráð Grafarvogs vill leggja það til við Menningar- og ferðamálaráð að komið verði fyrir skóhillum og læstum skóskápum auk útifatahengjum inni við inngang inn á borgarbókasafn Spönginni og gestir bókasafnsins verði annað hvort að fara úr útiskóm sínum eða setja utan um skó sína hlífar meðan þeir skoða og velja sér bækur á safninu.

Sambærileg og almennt er regla í skólum borgarinnar og heilsugæslustöðvum borgarinnar. Tillagan var samþykkt. Eftirfarandi tillaga var lögð fram af áheyrnarfulltrúa framsóknar og flugvallavina: Hverfisráð Grafarvogs óskar eftir kynningu á öllum framkvæmdum/verkefnum Umhverfis og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sem áætlaðar eru í Grafarvogi árið 2016. Tillagan var samþykkt. Ákveðið að boða fulltrúa USK á næsta fund ráðsins. Eftirfarandi tillaga var lögð fram af Hverfisráði Grafarvogs: Hverfisráð Grafarvogs skorar á borgarráð að beita sér fyrir því að póstnúmer í Bryggjuhverfi verði beytt úr 110 í 112 en til vara 114 þar sem það tilheyrir þjónustusvæði Grafarvogs og Kjalarnes. Tillagan var samþykkt. Fundi slitið kl. 18:33 Bergvin Oddsson Guðbrandur Guðmundsson Gísli Rafn Guðmundsson Herdís Anna ÞorvaldsdóttirElísabet Gísladóttir

Kl 17: 33 tekur Elísabet Gísladóttir sæti á fundinum.

L"?#.2304

)6@(MMNN(9(675(68:8 Sverrir Einarsson

(+++,&#-/%0',0. ;!!"'(.C!"%$%0'F0''(

Kristín Ingólfsdóttir

ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR !"#"$%"&'()"(*(+++,&#-"%"%.#/-",0.(*(123"%4()5)()678(9(675(68:8

4. Umræða var um sorphirðumál í Grafarvogi. Eftirfarandi bókun var gerð frá Hverfisráð Grafarvogs: Hverfisráð Grafarvogs fagnar öllum tilraunum borgaryfirvalda til að auka

Meðlimir Brassbandsins eru hressir og flutningur bandsins afar góður

Brassbandið í stuði í Grafarvogskirkju

Brassband Reykjavíkur hélt nýárstónleika í Grafarvogskirkju laugardaginn 16. janúar sl. Brassbandið er ung lúðrasveit, sem stofnuð var á gömlum grunni. Vorið 2013, þegar Skólahljómsveit Grafarvogs fagnaði 20 ára afmæli, kom hópur stofnmeðlima sveitarinnar saman til að spila á afmælistónleikunum. Þeim tókst svo vel upp að ákváðið var að stofna nýja lúðrasveit – sem fékk heitið Brassband Reykjavíkur. Sveitin er brassbrand að enskri fyrirmynd, eingöngu skipuð málmblásturshljóðfærum, rétt eins og skólahljómsveitin var í upphafi undir stjórn Jóns Hjaltasonar. Í dag er brassbandið fullskipað band, og hefur fengið sterka blásara til liðs við sig úr öllum áttum. Þó eru tengslin við Skólahljómsvetina mjög sterk, og Brassbandið nýtur þess að fá að æfa í húsakynnum hennar. Tónleikarnir í Grafarvogskirkju voru nýárstónleikar, þar sem leikin var sígild nýárstónlist. Brassband Reykjavíkur fagnaði sem sagt nýja árinu með stæl, með sígildum völsum, mörsum og polkum, á tónleikum í Grafarvogskirkju og kunnu tónleikagestir vel að meta leik Brassbandsins. Verk Strauss-feðga léku stórt hlutverk á tónleikunum. Þar má nefna Radetzkymars föðursins og þekkta valsa og polka Johanns Strauss yngri, svo sem Dónárvalsinn, Tritsch-Tratsch-polka og Keisaravalsinn. Litli bróðir hans Josef Strauss skaut einnig upp kollinum. Auk þess var Florentiner-marsinn á dagskránni og naut sín einstaklega vel í flutningi brassbands.


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janรบar.qxd 20/01/16 01:33 Page 11

11

GV

Frรฉttir

Skรณlahljรณmsveit Grafarvogs sรก um tรณnlistarflutning.

Fjรถlmenni mรฆtti รก รพrettรกndabrennuna viรฐ Gufunes รญ รกgรฆtu veรฐri.

Fjรถr รก รพrettรกndanum

Ung dama sรฝnir jรณlasveininum kyndilinn sinn.

Brennan var stรณr og myndarleg aรฐ venju.

Gรณรฐ stemning var รก รพrettรกndabrennunni viรฐ Gufunesbรฆinn laugardaginn 9. janรบar รพegar haldin var รกrleg brenna รก vegum รพjรณnustumiรฐstรถรฐvarinnar Miรฐgarรฐs, frรญstundamiรฐstรถรฐvarinnar Gufunesbรฆjar, Skรณlahljรณmsveitar Grafarvogs, รญรพrรณttafรฉlagsins Fjรถlnis, skรกtafรฉlagsins Hamars og hverfastรถรฐvarinnar. Vegna veรฐurs var ekki hรฆgt aรฐ halda brennuna รก รพrettรกndanum sjรกlfum. Viรฐ Hlรถรฐuna รญ Gufunesbรฆ lรฉk Skรณlahljรณmsveitin nokkur vel valin lรถg og foreldrafรฉlag Skรณlahljรณmsveitarinnar sรก um aรฐ heitt kakรณ og kyndlar vรฆru รญ boรฐi. Skrรบรฐganga fรณr frรก Hlรถรฐunni aรฐ brennustรฆรฐi รพar sem Sรถngvasveinar spiluรฐu og sungu og sรญรฐustu jรณlasveinunum sรกst bregรฐa fyrir รก leiรฐ sinni til fjalla. Brennan var glรฆsileg aรฐ vanda og fjรถldi fรณlks lagรฐi leiรฐ sรญna รก brennuna รญ frรกbรฆru veรฐri.

Herlegheitunum lauk formlega meรฐ glรฆsilegri flugeldasรฝningu. Aรฐstandendur vilja fรฆra รถllum รพeim

sem รก einhvern hรกtt komu aรฐ รพessum viรฐburรฐi og studdu hann bestu รพakkir.

Jรณlasveinar voru รก vappi รก leiรฐ sinni til fjalla.

+ "/ร "3 ' & #3ร "3 .FJ T U B S B EFJ M EJ O G FS B G U VS B G T U B ยง "M M J S M FJ L J S OJ S ร & OT L B CPM U B OVN "M M U B G L B M EVS ร L S B OB OVN 4 U ร S T L FNNU J M FH 1VC 2VJ [ ร รถNNU VEร HVN #FT U V U S ร CB EPS B S M B OET J OT B M M B G ร T U VEB HB ' Z M HJ T U NFยง PL L VS ร ' B D FCPPL

(6ยฝ%* / 41035#"3


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 22:37 Page 12

12

GV

Fréttir Nýir eigendur Bláu Sjoppunnar:

,,Hjörtur giftist mér til fjár” - enski botinn og golf í beinni

Í fyrravor urðu eigendaskipti á Bláu sjoppunni við Starengi, hjónin Unnur Halldórsdóttir og Hjörtur Árnason keyptu reksturinn og hafa þau smám saman verið að bæta aðstöðuna. En hvaða fólk er þetta og hvers vegna fóru þau út í sjoppurekstur? ,,Við höfum eiginlega alltaf verið að atast eitthvað og erum óhædd að breyta til. Við kynntumst unglingar í Grímsnesinu 1969 og fyrsti kossinn var á útihátíð í Húsafelli. Hjörtur fór á Bændaskólann á Hvanneyri og ég í MR og skrifaði honum eldheit ástarbréf 3svar í viku. Ég hef oft grínast með það að hann hafi gifst mér til fjár, aðallega sauðfjár, því amma mín átti jörð og ekkert barna hennar tók við búinu. Við vorum sem sé kornung, innan við tvítugt, þegar við hófum búskap með kýr og kindur á Minni-Borg. Bjuggum þar í 7 ár, eignuðumst þrjú börn og marga vini. Mig langaði svo að læra meira og við brugðum búi 26 ára, fluttum til Svíþjóðar, þar sem foreldrar mínir höfðu nýlega sest að og undum hag okkar vel hjá Svíum og þar fæddist yngsti sonurinn. Ég las bókmenntir og uppeldisfæði og Hjörtur keyrði strætó og stóra trukka. “ Nú kemst Hjörtur að og það kemur bjartur glampi á andlitið þegar hann minnist á flottu sykurflutningabílana sem hann ók á Skáni en þau Unnur bjuggu í Lundi 1980-1983. Við heimkomuna voru breyttar aðstæður í land-

búnaði, kominn kvóti og búmark og erfitt að hefja á ný hefðbundinn búskap með kýr og kindur. Unnur kenndi við Ljósafosskóla í 4 ár og Hjörtur gerðist leiðsögumaður og ,,driverguide” og skrapp á vertíð þess á milli. Þegar börnin komust á unglingsár og við blasti að þau færu að heiman í skóla seldu þau jörðina og fluttu til Reykajvíkur. ,,Ég fór að vinna hjá Skeljungi og varð brátt rekstrarstjóri með útleigðum bensínstöðvum félagsins, og þar kviknaði líklega áhugi á sjoppurekstrinum,” segir Hjörtur. Unnur vann sem uppeldisráðgjafi í Rauðakrosshúsinu og svo stofnaði hún ásamt góðu fólki landssamtökin Heimili og skóli og var óþreytandi að brýna foreldra að sinna uppeldinu vel og hvetja stjórnmálamenn til dáða í skólamálum. ,,Heimili og skóli átti sko verulegan þátt í því að grunnskólar landsins eru einsetnir, að öll börn byrja skóladaginn á morgnana, en ekki síðdegis eins og tíðkaðist áður en líkega eru flestir búnir að gleyma þeim vanda sem fylgdi slíku vaktakerfi. Svo hvöttum við foreldra til að virða útivistartíma, leyfa ekki eftirlitslaus partý og ýttum af stað foreldraröltinu, en allt hefur það stuðlað að heilbrigðara lífi barna og unglingadrykkja er nú hverfandi,“ segir Unnur með stolti. 1997 tók Hjörtur við rekstri Shellstöðvarinnar í Borgarnesi og Unnur fylgdi honum ári seinna. Þar stóðu

Nú er hægt að horfa á enska boltann og golf í beinni í Bláu Sjöppunni við Starengi. þau vaktina til 2006, seldu mikið af kjötsúpu, heimilismat og pizzum. Dag nokkurn sagði Hjörtur ,,eigum við ekki að byggja hótel á Golfvellinum á Hamri?” - ,,Jú, gerðu það, þá þarf ég ekki að elda,” svaraði Unnur og þar með hófst ævintýrið á Hótel Hamri. Hótelið var reist á 6 mánuðum, 30 herbergi með veitingasal og fundaraðstöðu. Þau ráku það í 6 ár en fluttu svo til Reykjavíkur haustið 2011, Unnur fór í leiðsöguskólann og Hjörtur tók við rekstri gistiheimilis á Ásbrú. Nú starfar Unnur í gestamóttöku á hóteli, vinnur næturvaktir viku í senn. Hjörtur var kominn með fiðring að fara aftur í eigin rekstur og sá tækifæri í Bláu Sjoppunni. - Hvernig er svo að vera aftur kominn í sjoppurekstur? ,,Þetta er ekki sambærilegur rekstur við Shellstöðina, hér fer stærstur hluti

sölunnar í gegnum lúguna og við seljum afskaplega mikið af tóbaki, fólki þykir þægilegt að renna við og teygja sig í pakkann,” segir Hjörtur brosandi og Unnur bætir við ,,við vorum alveg hissa á þessu, héldum að allir væru hættir að reykja. Við erum smám saman að þróa starfsemina, viljum gjarnan fá fleira fólk inn í búðina og fengum Kjörís til okkar, því margir fara í sjoppur að kaupa ís. Við erum með ýmsa nauðsynjavöru, Lotto, mjólk, kaffi, smokka og fleira. Nú eru komnar græjur til að sýna enska boltann, golf og fleira skemmtilegt og við erum með sitthvað fleira á prjónunum sem kemur vonandi í ljós með vorinu.” - Er þetta ekki voðalega mikil vinna? ,,Jú, vissulega er í mörg horn að líta en við erum með gott fólk, duglegar

GV-mynd SK

menntaskólastelpur sem taka kvöld- og helgarvaktir og þaulreynda starfsmenn á daginn. Unnur sér um innkaupin, hún er komin með meirapróf á kerruna í Bónus og svo tökum við saman vaktir aðra hvora helgi, þá fá vinir og vandmenn kveðjur á Facebook um að kíkja í kaffi.” - Hvað með tómstundir? ,,Við spilum golf og Hjörtur fer tvisvar á ári í veiði, og svo er hann nýbúinn að endurnýja skíðin sín, Unnur les og yrkir gamanvísur eftir pöntunum. Hún orti t.d baráttusöng fyrir Fjölni fyrir mörgum árum og nýlega flutti hún afmælisdrápu um Safnaðarfélag Grafarvogskirkju. Við kveðjum þessi hressu hjón og hvetjum Grafarvogsbúa að kíkja til þeirra í Bláu sjoppuna.

Söfnunarkassarnir skynja þegar þeim er nóg boðið Dósasöfnunin skiptir skáta miklu máli og stöðugt fleiri setja dósir í gjafakassana. Dósasöfnun skáta gengur vel og til að tryggja að söfnunarkassarnir yfirfyllist ekki hafa verið settir í þá skynjarar sem senda boð þegar tími er kominn á tæmingu. „Það má segja að þeir skynji þegar þeim er nóg boðið,“ segir Torfi Jóhannsson framkvæmdastjóri Grænna skáta, sem heldur utan um dósasöfnun skátanna. Tvær kynslóðir söfnunarkassa. Nýir kassar taka meira magn og nú eru komnir í þá skynjarar Tvær kynslóðir söfnunarkassa. Nýir kassar taka meira magn og nú eru

Rúnar Geirmundsson

Sigurður Rúnarsson

komnir í þá skynjarar „Það er fátt leiðinlegra fyrir þá sem vilja gefa okkur dósir en að koma að yfirfullum kassa,“ segir Torfi og bætir við að hagræðið sé einnig töluvert. „Nú fáum við boð þegar þarf að tæma kassana og erum að fullnýta ferðirnar. Með þessu móti skila gjafadósirnar sér betur í skátastarfið,“ segir hann, en dósirnar eru helsta fjáröflun skátanna. Torfi segir þessa tækninýjung einnig öryggisatriði því einnig berist boð ef kassarnir fara á hliðina vegna veðurs eða af öðrum ástæðum. „Við viljum hafa gámana í lagi og pláss í þeim þegar velunnarar okkar koma með dósir,“

Elís Rúnarsson

Þorbergur Þórðarson

Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is

Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990

segir Torfi sem hefur til þessa notið velvilja vegfarenda sem hafa látið vita þegar gámar hafa fyllst hraðar en tæmingarplanið gerði ráð fyrir. Skynjararnir eru framleiddir af Finnska nýsköpunarfyrirtækið Enevo

sem hefur 5 ára reynslu í þróun og framleiðslu á sjálfvirkum skynjurum fyrir ruslatunnur. „Það er gaman að geta þess að framkvæmdastjóri og hugmyndasmiðurinn af þessum skynjurum, Fredrik Kekäläinen, er gamall skáti sjálfur og hann á tvo unga skáta. Hann er mjög

velviljaður þessu verkefni hjá Grænum skátum og fylgist vel með hvernig gengur,“ segir Torfi. Reynslan af þeim skynjurum sem settir hafa verið í gáma lofar góðu og hefur þetta nýja fyrirkomulag þegar skilað sér í skilvirkari umsjón og þjónustu.


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 01:32 Page 13

13

GV

Fréttir

Frábær árangur á karatemóti í Skotlandi Karateiðkendur í Fjölni hafa oft náð góðum árangri á mótum erlendis og til að mynda tóku sex iðkendur frá Fjölni og tveir frá Aftureldingu þátt í Kobe Osaka Championship í Grangemouth í Skotlandi. Auk íslenska hópsins voru keppendur frá Skotlandi og Englandi. Íslensku krakkarnir stóðu sig frábærlega og komust öll á verðlaunapall. Hópurinn kom heim með fern gull-

verðlaun, fern silfurverðlaun og hvorki meira né minna en sjö bronsverðlaun. Keppt var í hópkata, kata, kumite og gladiator. Í hópkata 10 - 11 ára hömpuðu þeir Arnór Már Atlason, Hákon Bjarnason og Óttarr Bergmann Ólafsson gullverðlaunum. Í kata 10 - 11 ára drengja sigraði Hermann Hoe Haraldsson, Arnór Már Atlason fékk silfurverðlaun og

Íslenski hópurinn ásamt Steven Morris og Paul Lapsley.

Strákarnir frá Fjölni og Aftureldingu. Frá vinstri: Þórður, Máni, Gústaf Karel, Óttarr Bergmann, Hákon, Hermann og Arnór Már.

þeir Hákon Bjarnason og Óttarr Bergmann Ólafsson fengu báðir bronsverðlaun. Sunna Guðlaugardóttir fékk bronsverðlaun í kata 10 - 11 ára stúlkna. Í kumite 10 - 11 ára drengja fékk Gústaf Karel Karlsson silfurverðlaun og Óttarr Bergmann Ólafsson bronsverðlaun. Í gladiator 10 - 11 ára drengja lentu þeir Hermann Hoe Haraldsson og Óttarr Bergmann Ólafsson báðir í þriðja sæti. Keppendurnir tveir frá Aftureldingu stóðu sig einnig mjög vel og lentu í öðru

sæti í kata 12 - 13 ára drengja, fyrsta og öðru sæti í kumite 12 - 13 ára drengja og fyrsta og þriðja sæti í gladiator 12 - 13 ára drengja. Karatedeild Fjölnis hvetur börn og fullorðna í Grafarvogi og nágrenni til að kynna sér starfsemi deildarinnar. Hægt er að hefja æfingar í janúar næstkomandi og fara æfingar karatedeildarinnar fram í Egilshöllinni. Allar nánari upplýsingar um karatedeildina er að finna á heimasíðu Fjölnis.

Hamast í snjónum meðan beðið var eftir strætó.

Glæsilegur hópur krakka í 6. bekk Hamraskóla sem voru sínum skóla til mikils sóma á Árbæjarsafni.

Skemmtileg ferð 6. bekkjar Hamraskóla á Árbæjarsafnið

Miðvikudaginn 2. desember fór 6. bekkur í Hamraskóla í ferð á Árbæjarsafnið til að upplifa jólastemmingu frá árinu 1959. Biðin eftir strætó í upphafi ferðarinnar reyndist óvenju löng þar sem strætóinn sem við biðum eftir kom aldrei vegna ófærðar.

Á meðan við biðum og biðum leiddist þó engum eins og sjá má á myndunum. Sumir grófu sig í snjónum, aðrir gerðu snjóengla og sumir fóru í snjókast. Að lokum gáfumst krakkarnir upp á biðinni og tóku annan strætó en til stóð að taka í upphafi ferðarinnar og

skiptu krakkarnir svo um strætó í Ártúni. Sýningin var mjög skemmtileg og segja má að mikil jólastemning hafi skapast þessa stund sem við vorum á safninu. Safnvörðurinn fræddi nemendur um það hvernig hefðbundinn aðfangadagur hefði verið árið 1959, alveg

frá því að heimilisfólk fór á fætur og þangað til það tók upp pakkana. Nemendur fengu að skreyta jólatréð, dreifa gjöfum og opna gjafir sem innihéldu týpískar gjafir frá árinu 1959. Heimleiðin gekk vel fyrir sig og nemendur voru skólanum sínum til mikils sóma allan tímann.

Jólastemning á Árbæjarsafni.

Krakkar elska að leika í snjónum.

Skipt­um­um­bremsuklossa­og­diska


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 00:26 Page 14

14

GV

Fréttir

Falleg og björt íbúð í Tröllaborgum - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs í Spönginni 11

TRÖLLABORGIR Falleg og björt 4ra herbergja íbúð með sér inngangi á 2. hæð í fallegu húsi við Tröllaborgir. Eignin er 102,8 fm., þar af er sér geymsla á jarðhæð 5,3 fm samkvæmt þjóðskrá. Gólfefni eru parket og flísar. sirka 30-35 fm sólpallur í suðaustur átt Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og hvítum fataskáp. Inn af forstofu er gengið inn í hol/gang með parket á gólfi. Hjónaherbergi er ágætlega rúmgott með parket á gólfi og rúmgóðum hvítum fataskáp. Barnaherbergin tvö eru með

Baðherbergi er mjög snyrtilegt og flísalagt í hólf og gólf.

parket á gólfi og hvítum fataskápum. Baðherbergi er mjög snyrtilegt, flísalagt í hólf og gólf, hvít sprautulökkuð innrétting, upphengdu salerni, handklæðaofn, og lokaður sturtuklefi, gólfhiti er inná baðherbergi. Eldhúsið er snyrtilegt með hvítri innréttingu með viðarkannti, góður eldhúskrókur er inní eldhúsinu, parket á gólfi. Stofa er með parket á gólfi, gengið er út á sólpall úr stofu sem er cirka 30-35 fm. sér geymsla fylgir íbúðinni í sameign Búið er að laga steypu í tröppum að utan, dren og regnvatnsrör. Ákveðið hefur verið að lagfæra steypu á húsinu utanverðu og er fjármagn til í húsfélagi fyrir þeim viðgerðum.

Sturtuklefinn er lokaður og mjög góður.

Eldhúsið er snyrtilegt með hvítri innréttingu með Stofa er með parket á gólfi, gengið er út á sólpall úr stofu viðarkannti. sem er cirka 30-35 fm.

Galdraslóð

Fyrirmyndar hópur sáttur að ferð lokinni.

Jólaferðin hjá Púgyn

Undanfarinn ár hefur Jólaferð verið fastur liður í starfinu í félagsmiðstöðinni Púgyn og í ár var þar engin undantekning. Púgyn er ein af félagsmiðstöðvum Gufunesbæjar og er staðsett í Kelduskóla. Ferðin er frábær leið til að sameinast og kveðja árið sem hefur verið viðburðaríkt í félagsmiðstöðinni og þétta hópinn enn frekar fyrir komandi ár. Í hádeginu þann 22.desember var mikil spenna meðal unglinganna þegar stigið var upp í rútu SBA Norðurleiða sem sá um að ferja mannskapinn með miklum sóma þennan dag. Rútan var

þétt setinn en rúmlega 50 unglingar komust í ferðina að þessu sinni og stigu þau með eftirvæntinga svip úr rútunni á fyrsta stoppi í Hafnarfirðinum. Þar fengu þau útrás í fimleikasalnum Litlu Björk, salurinn er með stóra púðagryfju, trampólín og fullt af öðrum áhöldum til fimleika og klifuriðkunar. Eftir það lá leiðin í Laugardalslaug þar sem slakað var vel á í pottunum. Nú var matarlystin orðin mikil meðal hópsins og var þá kjörið að fara með hópinn á Pizza Hut hlaðborð þar sem allir fóru saddir og glaðir út. Þá lá leiðin í Kelduskóla Vík þar sem hópur-

inn spilaði Boubble bolta sem er frábær skemmtun þar sem þátttakendur klæðast uppblásnum plastkúlum meðan spilaður er fótbolti. Þar lauk ferðinni og ungmennin gengur þreytt og sæl í jólafríið. Það sem vakti mesta lukku í þessari frábæru ferð var að hvert sem hópurinn fór var honum hrósað fyrir frábæra hegðun og framkomu. Unglingar í dag eru svo sannarlega til fyrirmyndar en það gleymist oft að fjalla um það enda virðast stóru fjölmiðlarnir einungs vilja fjalla um það neikvæða. Takk fyrir glæsilega ferð Púgyn þið eruð frábær!

Starfið í Galdraslóð, sem er eitt af frístundaheimilum Gufunesbæjar, staðsett í Kelduskóla/Vík, er komið á fullt eftir yndislegt jólafrí. Galdraslóð leggur upp með að bjóða krökkunum upp á fjölbreytta dagskrá og sem hefur vakið mikla lukku. Þar má nefna valdaga, smiðjudaga, kynjaskipta daga og reglulegar ferðir á svæðið við Gufunesbæinn. Frístundamiðstöðin Gufunesbær hefur undafarin misseri verið að byggja upp mjög góða aðstöðu til útináms og Galdraslóð hefur lagt upp með að nýta það svæði. Í haust var farið í hverri viku í skipulagðar ferðir með hópa á útisvæðið við Gufunesbæ. Þar var tekið vel á móti hópnum af starfsmönnum útisvæðisins, lagðar fyrir þrautir, ýtt undir reynslunám og hópefli, ásamt upplifun af því að verma sér við opinn eld, fá heitt kakó, nesti og grilla sykurpúða. Krakkarnir í Galdraslóð voru mjög ánægð með ferðirnar. Segja má að eftir hverja ferð var augljóst hversu jákvæð áhrif útinám og hópefli hafði á barnahópinn. Þessa náttúruparadís í Gufunesbænum verður áfram hluti af dagskrá Galdraslóðar og hvetjum alla Grafarvogsbúa til að gera slíkt hið sama. Elsti hópurinn fór í Kringluna fyrir jólin og keypti tvær gjafir til að setja undir jólatréð. Þessir krakkar voru flottir sendifulltrúar Galdraslóðar til að gera góðverk. Mikið var pælt í því hvernig jólagjafir ætti að kaupa, fyrir hvaða aldur og hvaða kyn. Niðurstaðan varð sú að kaupa eina gjöf fyrir ungabarn og aðra fyrir 9-10 ára. Gjöfunum var pakkað fallega inn, skrifuð var kveðja á merkimiðann frá öllum börnunum í Galdraslóð og það voru stoltir 4. bekkingar sem löbbuðu út úr Kringlunni þann daginn.

Kátir krakkar á Galdraslóð.


GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 00:17 Page 15

15

GV

Fréttir

Gleðileg kirkjuferð á aðventunni

Nemendur í 1. – 7. bekk Rimaskóla heimsóttu Grafarvogskirkju á aðventu í fylgd kennara og starfsmanna skólans. Allir kirkjugestir áttu þar saman góða jólastund. Nemendur skólans á mið-og unglingastigi fluttu glæsileg söng-og tónlistaratriði, flest við undirleik Rakelar Maríu Axelsdóttur tónmenntakennara skólans. Boðskapur jólanna var lesinn og kveikt á aðventukertum. Á milli atriða söng „Rimaskólakórinn" , það er allir viðstaddir uppáhalds jólalögin sín, Jólin alls staðar, Jólabros í jólaös og Guð verndar og vakir. Það skapast

heillandi jólalagastemmning í Rimaskóla sem öðrum grunnskólum þegar tónmenntakennarar æfa með krökkunum jólalögin og syngja þau á göngum og skólastofum. Sr Vigfús Þór sóknarprestur tók á móti Rimaskólakrökkum. Hann hrósaði nemendum fyrir ánægjulega og skipulagða dagskrá og góða hlustun. Helgi Árnason skólastjóri hafði umsjón með dagskránni. Nemendur í 1. – 7. bekk Rimaskóla voru líkt og fyrri ár til mikillar fyrirmyndar í kirkjuheimsókninni sem að þessu sinni bar upp á fallegan vetrarmorgun í Grafarvogi.

Ungur nemandi Rimaskóla kveikir á aðventukerti með aðstoð sóknarprestsins.

Birta María nemendi í 8. bekk Rimaskóla söng Halelujah eftir Leonard Choen. GV-mynd Gunnar Jónanatansson

!

Nemendur Rimaskóla fylgdust vel með öllum atriðum á dagskrá kirkjuheimsóknar Rimaskóla. GV-mynd Baldvin Örn Berndsen

#

GV-mynd Baldvin Örn Berndsen

Hljóðfæraleikarar úr Skólahljómsveit Grafarvogs spiluðu tvö jólalög. GV-mynd Gunnar Jónanatansson

"$

% "

70%-90% íbúa í Grafarvogi lesa Grafarvogsblaðið Þarft þú að koma skilaboðum áleiðis? Auglýsingin þín skilar árangri í G V

587-9500


Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 17:39 Page 16

1000g

1.298 kr.. stk. stk

1.398 krr. 10 stk.

Bónus Súkkulaðikaka, 1000 g

GLEÐILEGAN GLEÐI LEG GAN BÓN BÓNDADAG DADAG

1.598 krr. 500 g Bláber áber,, fersk, 500 g

195 kr. stk.

798

Euro Shopper Þeytirjómi, 250 g

Calinda Jarðarber, C fersk, 400 g

kr. 400 g

1.498 kr. kg

1.098 kr. kg

798

Bónus Grísalundir Ferskar

Bónus Grísakótilettur Fersk kar

Bónus Grísahakk Ferskt

1.379 kr. kg

Bónus Beikon

598 krr. kg

kr. kg

Ali Grísabógur Ferskur

Opnunartími í Bónus: Bónus: 4mU\KHNH -PTT[\KHNH" ! ! ࠮ - Z[\KHNH" ! ! ࠮ 3H\NHYKHNH" ! ! ࠮ :\UU\KHNH" ! ! =LYó NPSKH [PS VN TLó 24. 24. janúar LóH TLóHU IPYNóPY LUKHZ[


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook