Skip to main content

Grafarvogsblaðið 6.tbl 2015

Page 1

GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 08/06/15 23:03 Page 1

Graf­ar­vogs­blað­ið 6. tbl. 26. árg. 2015 - júní

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Ódýri ísinn

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is Hluti 189 nemenda sem útskrifaðist frá Borgarholtsskóla í vor.

189 nemendur útskrifaðir frá Borgarholtsskóla

Alls voru 189 nemendur útskrifaðir frá Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Margir nemendur skólans náðu afbragðs-

Þjónustuaðili

góðum árangri en dúx að þessu sinni varð Brynhildur Ásgeirsdóttir með 9,39 í meðaleinkunn. Sjá nánar á bls. 2

Góðar snyrtivörur frá Coastal Scents Frábær gjöf fyrir veiðimenn ]X j k \ ` ^ eX $ j X c X e e l _ m \ i] `

Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Veiðibúðin Krafla - Höfðabakka 3 - Krafla.is (698-2844)

Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-* ;Vm *,* -*-+

Höfðabakka 3 - Sími: 587-9500

lll#[b\#^h

Við gerum tilboð í þínar tryggingar Hafðu samband í síma 537 9980 Umboðsaðilar Viðskiptatengsl | Stórhöfða 17 | vidskiptatengsl@vidskiptatengsl.is | vidskiptatengsl.is


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/06/15 02:36 Page 2

2

GV

Fréttir

Graf­ar­vogs­blað­ið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Höfðabakki 3 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Sólveig J. Ögmundsdóttir - solveig@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur og Landsprent. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 og 112.

Skin og skúrir Það hafa skipst á skin og skúrir í Grafarvoginum síðustu vikurnar og jákvæðir og neikvæðir hlutir verið að gerast eins og gengur. Grafarvogsbúar fengu kaldar kveðjur frá versluninni Nettó á Grafarvogsdaginn þegar dyr verslunarinnar voru ekki opnaðar þann daginn og Nettó er horfið á braut úr Hverafoldinni. Reiðir lesendur Grafarvogsblaðsins hafa haft samband við okkur og eru ekki kátir með gang mála. Kjaftasögur hafa verið á kreiki þess efnis að verslunin Iceland hafi um nokkurt skeið íhugað að opna verslun í Grafarvoginum. Eigandi Iceland staðfesti í samtali við Grafarvogsblaðið að það hefur aldrei staðið til að Iceland opnaði í Grafarvogi og slíkt er ekki til skoðunar. Bónus er þar með eina lágvöruverðsverslunin í Grafarvogi og heldur tryggð við Grafarvogsbúa. Bónus hefur lengi rekið góða verslun í Grafarvogi og gerir það væntanlega áfram. Grafarvogsbúar hafa kunnað vel að meta það sem Bónus hefur verið að gera í hverfinu, en auk þess að reka góða verslun fyrir okkur íbúana, þá hefur Bónus stutt vel við bakið á íþróttafólki í hinum ýmsu deildum Fjölnis og Bónus á mikinn heiður skilið fyrir þann stuðning í gegnum árin. En þrátt fyrir að ýmis þjónusta hafi verið á hraðferð úr Grafarvogi undanfarin misseri og ár þá eru jákvæðir hlutir líka í farvatninu. Unnið er þessa dagana að standsetningu vínbúðar í Spönginni og verður þess ekki mjög langt að bíða að þar opni vínbúð sem saknað hefur verið frá ársbyrjun 2009 þegar sá ótrúlegi atburður átti sér stað að Vínbúðin gafst upp í 20 þúsund manna hverfi og lokaði. Sagði sú ákvörðun á sínum tíma mun meira um rekstur Vínbúðarinnar en Grafarvogsbúa, svo mikið er víst. Það jákvæðasta í Grafarvogi um þessar mundir er gott gengi Fjölnis í Pepsídeildinni í knattspyrnu. Fjölnir er í 3. sæti og vonandi verður framhald á góðu gengi liðsins. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Grafarvogsblaðsins

gv@skrautas.is

Útskriftarnemar af afreksíþróttasviði ásamt Sveini Þorgeirssyni verkefnisstjóra og Höllu Karen Kristjánsdóttur íþróttakennara.

189 nemendur útskrifaðir frá BHS:

Kærustuparið fékk 9,39 og 9,35 í einkunn Laugardaginn 23. maí voru 189 nemendur útskrifaðir frá Borgarholtsskóla. Útskriftahópurinn var fjölbreyttur, ungt fólk, en einnig fólk á miðjum aldri sem var að ná sér í starfsréttindi eða að endurmennta sig. Að þessu sinni voru líka í fyrsta sinn útskrifaðir nemendur sem numið hafa hagnýta margmiðlun í tvö ár, en um er að ræða námsbraut sem hugsuð er fyrir þá sem vilja öðlast hæfni í hönnun og miðlun efnis með stafrænni tækni. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar undir stjórn Daða Þórs Einarssonar lék fyrir gesti og Aron Hannes Emilsson nemandi á félagsfræðibraut söng tvö lög, Forrest Gump og frumsamið lag, en Aron varð í 2. sæti í söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í apríl sl. Margir nemendur fengu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og ástundun, en það var Brynhildur Ásgeirsdóttir sem hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi. Brynhildur útskrifaðist af málabraut með einkunina 9,39. Menningarfulltrúi Þýska sendiráðsins færði Brynhildi viðurkenningu fyrir frábæran árangur í alþjóðlegu þýskuprófi sem hún þreytti fyrir skömmu. Bryndís Sigurjónsdóttir minnti útskriftarnema á að áfram þurfi að afla sér þekkingar og auka þannig hæfni og kunnáttu. Menntun er í eðli sínu leit að svörum og þekkingu. Bryndís benti jafnframt á að samfélagið þarfnist fólks sem hugsar sjálfstætt og öðruvísi en fjöldinn. Bryndís sagðist vonast til að nemendur hefðu uppgötvað hæfileika sína, sköpunargáfu og ástríðu og öðlast færni til nýta sér þessa eiginleika sjálfum sér og samfélaginu til góðs. Hún hvatti nemendur til að vera sjálfstæða í hugsun og nýta sér allar mögulegar leiðir til að ná settum markmiðum. Brynhildur Ásgeirsdóttir og Daníel Freyr Swenson nýstúdentar fluttu ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Sigríður

Guðnadóttir grunnskólakennari og útskriftarnemi úr hagnýtri margmiðlun flutti ávarp fyrir hönd dreifnámsnema. Rakel Lúðvíksdóttir talaði fyrir hönd 10 ára stúdenta. Eins og áður sagði var Brynhildur

Ásgeirsdóttir dúx skólans með 9,39 í meðaleinkunn en kærasti hennar, Jón Pálsson, gaf henni lítið eftir með 9,35 í meðaleinkunn. Bæði fengu þau fjölda verðlauna við útskriftina.

Brynhildur Ásgeirsdóttir og kærasti hennar, Jón Pálsson. Bæði náðu þau frábærum árangri á stúdentsprófi í Borgarholtsskóla.


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/06/15 10:23 Page 3

GULLN­ESTI Ódýri­ísinn­í­bænum Sumarið er ísinn

i m r o f ð u a r b í Ís Smábarnaís

Lítill ís

125,-

185,-

Stór ís

255,-

Þú velur

Gamla ísinn Vanilluís eða Jarðarberjaís

e k a Sh Lítill

r u f e r a ð g Bra Lítill

Miðstærð

Miðstærð

Stór

430,- 540,- 650,-

Stór

680,- 780,- 880,-

ÍS 1 Lítri 850,-

Grillið í Grafarvogi - Gylfaflöt 1 - Sími: 567-7974


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 08/06/15 22:51 Page 4

4

Matgoggurinn

GV

Urtandabringur, saltfiskur og skyrbúðingur - að hætti Hilmars og Petrínu Hjónin Petrína Erla Reynisdóttir og Hilmar Gunnarsson, Leiðhömrum 35, eru matgoggar okkar að þessu sinni.

4 stk. urtandabringur. Salt og pipar. 0,5 dl. rúsínur. 0,5 dl. niðursoðinn perlulaukur. Smjör til steikingar. Hálfur poki af klettasalat.

4 stk. meðalstórar hasselback kartöflur. 2 stk. paprika (rauð og græn). 2 stk. rauðlaukur. 1 stk. hvítlaukur. 1 búnt vorlaukur. 1 stk. kúrbítur. 1 askja konfekttómatar. Svartar steinlausar ólífur. Ólífuolía til steikingar. 800 gr þorskhnakkar. Pipar. 2 dl. hveiti. 0,5 dl. hrásykur. Smjör til steikingar.

Urtandabringurnar eru kryddaðar varlega með salti og pipar, brúnaðar í smjöri á pönnu. Settar í eldfast mót og bakaðar í ofni við 180 gráðu hita í 2 mínútur.

Kartöflurnar þvegnar og þurkaðar, skerið þvert ofan í kartöflurnar með stuttu millibili niður í hálfa kartöflu. Raðið á ofnplötu, penslið með olíu og kryddið með salti og pipar.

Rúsínurnar og perlulaukurinn eru léttsteikt í smjöri. Klettasalat sett á disk og bringurnar í sneiðum ofan á ásamt rúsínunum og perlulauknum.

Bakað við 180 gráður í 35 mínútur. Grænmetið skorið niður (ekki fínt) og léttsteikt í ólífuolíu. Gætið þess að ofelda ekki grænmetið, láta það halda lit. Sett í eldfast mót.

Bæði eru þau þekktir gæðakokkar og við skorum að venju á lesendur að prófa uppskriftir þeirra. Urtandabringur á klettasalati í forrétt

Matgoggarnir

Saltfiskur á grænmetisbeði í aðalrétt

Petrína Erla Reynisdóttir og Hilmar Gunnarsson. Saltfiskurinn er skorinn í um það bil 100 gramma stykki. Hveiti og hrásykri er blandað saman og komið fyrir í plastpoka. Saltfiskurinn er settur í pokann og velt upp úr blöndunni. Fiskurinn steiktur þannig að hann verði gyltur á báðum hliðum. Saltfiskurinn settur ofan á grænmetið í eldfasta mótinu og bakað við 180 gráður í 10 mínútur. Skyrbúðingur í eftirrétt 250 gr. makkarónukökur. 0,5 dl sólberjasaft. 0,5 kg bláberjaskyr. 0,5 l rjómi. Bláber til skreytingar. Makkarónukökurnar malaðar í matvinnsluvél, síðan settar í desertskál og

bleytt í þeim með sólberjasafanum. Athugið að skilja smá eftir af makkarónunum, um það bil 0,5 dl, til að nota síðar í skreytingu. Bláberjaskyrið hrært í hrærivél og rjóminn þeyttur létt í matvinnsluvélinni, Síðan er honum blandað saman við bláberjaskyrið hægt og rólega með sleif.

Skyrblandan sett ofan á makkarónurnar, restin af makkarónunum dreift yfir og að lokum einnig bláberjunum. Geymt í ísskáp þangað til rétturinn er borinn fram. Verði ykkur að góðu, Petrína og Hilmar

Halldór og Bryndís eru næstu matgoggar Hilmar H. Gunnarsson og Petrína Erla Reynisdóttir, Leiðhömrum 35, skora á Halldór Jörgenson og Bryndísi Reynisdóttur, Jöklafold 7, að vera næstu matgoggar. Við birtum uppskriftir þeirra í blaðinu í júlí.


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 09/06/15 16:36 Page 5

5

GV

Fréttir

Sjómannadagurinn 2015 – Kveðjumessa Lenu Rósar Matthíasdóttur í Grafarvogskirkju:

Af hjartans auðmýkt þakka ég samfylgdina sr. Lena Rós Matthíasdóttir var með kveðjumessu í Grafarvogskirkju sl. sunnudag. Hún starfaði um 10 ára skeið í Grafarvogi og hennar er sárt saknað. Hér fer á eftir kveðjuræðan sem Lena Rós flutti á sjómannadaginn: Ég veit ekki hvað ykkur datt í hug þegar þið heyrðuð guðspjallið lesið hér áðan. Kannski einhver ykkar hafi af vorkunnsemi látið hugann reika til Jesú. Hann hafði jú gengið langar vegalengdir, mætt mörgu fólki, predikað og kennt, læknað og hlustað hvar sem fólk á vegi hans varð og mátti að auki þola aðfinnslur og aðkast þeirra sem vildu hann burt. Hann var úrvinda af þreytu. Kannski datt ykkur í hug að það hefði nú verið yndælt að geta boðið honum heim, í uppábúið rúm, í mjúkar amerískar springdýnur og færa honum ristað brauð og djús, horfa á hann sporðrenna því á meðan þið nuddið á honum fæturnar. Kannski hvarflaði hugur ykkar meira í áttina að lærisveinunum, að hugleysi þeirra eða trúmennsku. Þeir voru jú trúfastir vinir, hvort tveggja í senn námsmenn hjá Jesú og samstarfsmenn í hreyfingu hans. Þeir gerðu sitt gagn í þjónustunni og komu honum undan fjöldanum og út í bátinn með álíka fumlausum hætti og lífverðir Kim Kardashian hefðu gert. En þeir urðu líka hræddir um að báturinn myndi farast. Kannski var það eitthvað allt annað sem þú hugsaðir, mundirðu kannski skyndilega eftir ferðinni með gamla Herjólfi hér um árið í bandbrjáluðu veðri, þegar þú ætlaðir að æla út fyrir borðstokkinn en fékkst allt á skóna? - Já, þær geta verið svo ótalmargar myndirnar sem birtast okkur þegar við lesum þetta litla en ríkulega myndræna guðspjall um Jesú og storminn. Sjálf varð ég hugsi yfir viðbrögðum lærisveinanna og óttanum sem birtist í orðum þeirra. Það er engu líkara en þessir menn hafi aldrei migið í saltan sjó. Þeir virðast missa tökin, hætta að stóla á sjálfa sig og sína kunnáttu en varpa ábyrgðinni allri yfir á sofandi manninn. Mér finnst það alltaf jafn skrítið, þegar ég hugsa um það, sumir þeirra voru nefnilega vanir fiskimenn áður en þeir gengu til liðs við Jesú. Voru þeir strax búnir að gleyma því hvernig þeir ættu að bera sig að? Því ef þú hefur alist upp við útgerð, eða stundað sjósókn, þá veistu að lífið snýst um bátinn, veðrið og fiskinn. Þú andar að þér hafinu og þekkir það eins og lófann þinn. Umræðan við matarborðið er umræða um afla dagsins, um hrefnuna sem sinnti óvenju nálægt, um selinn sem reif netin. Verðið á kílóinu, bilaða kranann á bryggjunni og um það hvernig við matreiðum lostætið sem borið var heim í hús þann daginn. Þú lest veðrið úr tunglinu, skýjunum, sjólaginu, háttarlagi dýra og fugla. Án afláts andarðu að þér sjónum og getur ekki annað. Hann er lífið þitt. Allt þetta í milli þess sem greint er frá skóladeginum, prakkarastrikunum eða sögunum sem við heyrðum út í búð í gær. Fjölskyldusagan og fiskisagan fléttast saman í eina litríka frásögn sem fjallar um sorgir og sigra í rammsöltum hversdeginum. Ég var svo heppin að fá að kynnast þessari hlið íslenskrar alþýðumenningu og upplifði það á eigin skinni að standa af mér ölduna með pabba úti á sjó. Þá hafði ég frá blautu barnsbeini unnið mig upp í landvinnslunni úr því að moka salti í það að fella netin með mömmu og fannst ég stór þegar ég fékk að hausa í fyrsta sinn. Já, það var sko fullorðins að handhausa þorsk. En það ekki fyrr en ég fékk að prufa að vera á handfærum með pabba, og ég upplifði á einu augabragði að breytast úr töffara í ákaflega hjartasmáa og huglausa mús, að ég vissi hvað var að vera fullorðinn. Við höfðum verið á skaki við mynni Héðinsfjarðar þegar stormviðrið skall á með slíkum hvelli að illilega varð stætt um borð. Aldrei hafði ég upplifað svona sjó fyrr og hafði ekki heldur ímyndunarafl til að skilja hvernig smábátur mögulega gæti haldið stefnu í slíku róti. Ég fór eitthvað að væla og pabbi skipaði mér niður í lúkar og sagði mér að halda þar til þangað til við kæmum inn fyrir fjarðarkjaftinn í Ólafsfirði. Ég gleymi því seint hve hrædd ég var um pabba. Það var svo

skrítið að ég hugsaði ekkert um eigin afdrif, en gerði mig þeim mun uppteknari af hugmyndum um það hvað myndi gerast ef pabbi drukknaði. Hvernig mömmu myndi reiða af, hverju pabbi myndi missa af og hversu sárt systur mínar myndu gráta hann. Það var akkúrat þá sem ég áttaði mig á að ég var að verða fullorðin. Því kannski er það ekki fyrr en maður stendur frammi fyrir örlögum ástvina að maður áttar sig á því í hverju það felst að vera fullorðinn. Allt í einu skildi ég setninguna hafið gefur og hafið tekur og fannst ég hafa upplifað mikla hetjudáð að hafa hætt að væla og látið mig hafa það að hýrast í lúkarnum gegnum allan veltinginn. Þegar ég svo les guðspjall dagsins þá skynja ég þennan sama ótta hjá lærisveinunum. Óttann sem vaknar vegna þeirra sem maður elskar mest. Var það kannski þannig ótti sem rak þá til að vekja meistarann. Ekki að þeir hafi verið svo hræddir um sjálfa sig, heldur um hann. Þeir voru jú þarna hans vegna. Setningin: ,,Við förumst“ felur þá í sér sorgina yfir því að möguleikar hans sem þeir elskuðu mest yrðu að engu. Var það ekki kannski einmitt kærleikur og hetjudáð sem stýrði þeim í að öskra á hann ,,Ræs“? Ef ég gef mér það og leyfi mér síðan að taka hugsunina aðeins lengra og spyrja sjálfa mig, hvað ef báturinn væri íslenskt samfélag í dag, hvað ef hinn sofandi leiðtogi væri ríkisstjórnin okkar og lærisveinarnir værum ég og þú. Þá finn ég um leið að það er einmitt þessi sami ótti sem gerir að verkum að almenningur hrópar af öllum kröftum á tvísýnum tímum? Kærleikur og hetjudáð og ábyrgðartilfinning gagnvart þeim sem við elskum mest eru drifkrafturinn sem knýr okkur til að hrópa frá öllum þessum útifundum, bloggsíðum, net- og fjölmiðlum. En óánægjan verður ekki til í tómarúmi. Lág laun og veik staða velferðarkerfisins eru sennilega þeir þættir sem valda mestri óánægju á Íslandi í dag. Möguleikar unga fólksins okkar að koma sér þaki yfir höfuðið eru hverfandi. Leigumarkaðurinn löngu sprunginn og leiguverð svo hátt að flestum reynist erfitt að leggja til hliðar og safna til íbúðarkaupa. Þessi sama óánægja með bág kjör og erfiða lífsafmkomu hefur orðið allt of mörgum fjölskyldum hvati til þess að yfirgefa landið. ,,Er það nema von”, segir Jón Steinsson, hagfræðingur við Columbia háskóla, ,,að fólk sé óánægt þegar þjóðin lætur það yfir sig ganga, ár eftir ár, að veiðiheimildum sé úthlutað til útgerðanna langt undir sannvirði. Laun gætu verið hér mun hærri og velferðarkerfið mun betur sett ef þjóðin fengi að njóta arðsins af þeim auðlindum sem hún á. Nú vill ríkisstjórnin taka stórt skref í þá átt að festa þetta kerfi enn frekar í sessi. Þess vegna er tími til kominn að landsmenn segi hingað og ekki lengra og leggi sitt lóð á vogarskálarnar til að sópa burt úr sjávarútvegi okkar þeirri spillingu sem þar ríkir. Því það er spilling að leigja makrílkvóta með 80 % afslætti. Kvótann á að bjóða upp svo að þjóðin fái markaðsverð fyrir veiðiheimildirnar“. (Tilvitnun lýkur) Við getum flest verið sammála hinum unga hagfræðingi um að Fiskveiðiauðlindin sé og eigi áfram að vera þjóðareign. Við getum örugglega líka flest verið sammála um það að sá arður sem af þjóðareigninni skapast ætti að nýtast til að byggja upp gott velferðarsamfélag. Sú hugmynd ætti alls ekki að þurfa að vera skoðun nokkurra einstaklinga sem á samfélagsmiðlum fá útrás fyrir vanþóknun sína og reiði, heldur er um að ræða réttlætismál og baráttumál okkar allra, algerlega óháð því hvort við höfum nokkurn tíma migið í saltan sjó eða ekki. Því í reynd fjallar stóra makrílfrumvarpið um afkomumöguleika komandi kynslóða hér á landi. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um kvótasetningu á makríl er eiginlega sniðið til þess að ala á sundurlyndi og ójöfnuði og fer beinlínis gegn niðurstöðu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem á sínum tíma sagði misbrest hafa verið á því, að gætt hafi verið sanngirni (við upptöku kvótakerfisins) þegar tímabundnar aflaheim-

ildir breyttust í varanlegar aflaheimildir. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna komst sumsé að því að þáverandi yfirvöld hefðu beitt þegna landsins óréttlæti. Það er alvarlegt mál að ríkisstjórn lands skuli fá á sig þann dóm að vinna gegn

því að þeir skyldu halda að báturinn myndi farast. Enda leit hann aldrei á sig sem venjulegan mann og birtist heldur ekki fólki sem venjulegur maður. Vinir hans upplifðu Guð tala í gegnum hann og fundu hvernig hann öruggur hvíldi í

sr. Lena Rós Matthíasdóttir kvaddi Grafarvogssöfnuð á dögunum með kröftugri ræðu í Grafarvogskirkju og voru þar mörg orð í tíma töluð. heill landsmanna. Maður skyldi því ætla að þær ríkisstjórnir sem á eftir komu hefðu reynt að bæta fyrir vitleysuna, en sú hefur ekki enn orðið raunin. Og það sem meira er, með þessu nýjasta frumvarpi virðir ríksstjórn Íslands að vettugi varnaðarorð Mannréttindadómstólsins og gengur enn lengra í vitleysunni með því að reyna að festa óréttlætið enn frekar í sessi, fjöldanum til óheilla og örfáum til sigurs. Jesús sofnaði í bátnum, hann virtist vera algerlega sultuslakur þegar hann vaknaði, líkt og honum væri alveg sama um hætturnar allt um kring. En þrátt fyrir það þá hlustaði hann á lærisveina sína. Hann virtist reyndar stórmóðgaður yfir

varðveislu Guðs hvort sem var í logni eða stormviðri lífsins. Við getum lært margt af honum þar og lagt okkur fram um að hvíla í Guði jafnvel þótt pólitískt stormviðri skeki tilveru okkar. En takið eftir því að jafnvel þótt Jesús væri sultuslakur og undrandi á viðbrögðum lærisveinanna, þá hlustaði hann á þá og á rökin þeirra og kom til móts við þarfir þeirra. Hann lægði vindinn svo þeim liði vel. Landinu okkar er auðvelt að líkja við bát sem siglir hægt en örugglega um heimsins höf, í logni sem stormi og stundum í stórkostlega úfnum sæ. Ekki allir þola álagið frá öldurótinu, og líkt og tölur frá hagstofu sýna eru alltf of margir Íslendingar farnir frá borði vegna

stormviðrisins undanfarin misseri. Hinir sem eftir standa hrópa á yfirvöld að vakna. – En það er nýtt fyrir mér að nota bátinn sem líkingu fyrir landið, því alla tíð hef ég litið á hann sem líkingu fyrir kirkjuna. Ég sé hana eins og risastóra galeiðu og finnst ég vera heppin að hafa fengið að grípa í árina hér í Grafarvoginum frá ársbyrjun 2004 til ársloka 2014. Hér hef ég séð margar góðar hendur munda árar. Allir hafa þessir dyggu þjónar lagt sitt lóð á vogarskálarnar, hvert á sínum hraða á sínum tíma, stigið um borð og aftur frá borði. Og áfram siglir fleyið. Stundum gat virkilega gefið á bátinn og það kom fyrir að ég hrópaði á meistarann, hvort hann væri ekki örugglega vakandi. En þegar ég lít yfir tímann minn hér sé ég að lengst af fylgdi okkur blíður blær og lygn sjór. Ég sagði einhvern tíma frá því í blaðaviðtali hversu hissa ég væri á því að mörgum árum eftir vígslu hlakkaði enn í mér þegar ég stingi lyklinum í skráargatið á skrifstofunni minni að morgni dags. Ég upplifði raunverulegan unaðshroll yfir því að mega þjóna hér, fá að vera ein af árunum um borð. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. En nú hef ég tekið við nýrri ár í nýju landi og þarf að læra annan takt, pínulítið öðruvísi áralag og finn að það gerir mig hæfari ræðara um borð í þessari sömu risastóru galeiðu sem hin kristna kirkja er. En hvort sem við finnum okkur við árina í kirkjuskipinu eða ríkisgaleiðunni, skulum við hvert og eitt reyna að bæta áralagið og skipta máli. Ég finn það með mig, að þótt ég sé farin er ég hvergi nærri hætt að róa á Íslandsmiðum. Ég finn æ meiri þörf fyrir að staðsetja mig með þeim sem hrópa hæst á sofandi leiðtoga. Bara að þeir skynji að þar fara lærisveinar sem af kærleika og umhyggju fyrir landi og þjóð, hrópa fullum hálsi ,,RÆS... við förumst!“. Kæru Grafarvogsbúar! Af hjartans auðmýkt þakka ég samfylgdina og bið ykkur öllum Guðs blessunar! Gleðilegan sjómannadag!

Hvað segir þú? Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Krónunni við Bíldshöfða, föstudaginn 12. júní milli kl. 17 – 19. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúarnir Björn Gíslason og Elísabet Gísladóttir taka við ábendingum um borgarmál og það sem betur má fara.

Elísabet.

Kjartan.

Björn.

Sjálfstæðisfélag Grafarvogs. Sjálfstæðisfélagið í Árbæ, Selási, Ártúnsholti og Norðlingaholti.


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/06/15 10:58 Page 6

6

GV

Frétt­ir

Verið velkomin í Spöngina! )"0""( "" ( * # # ") & * # +

$

Skutlum okkur

í sumarlesturinn! Borgarbókasafn hvetur börn til að lesa yfir sumarið og viðhalda þannig lestrarfærninni. Þegar bók er fengin að láni geta börnin skrifað nafn, aldur og símanúmer á blað sem þau gera skutlu úr og skutla henni í net. Í lok sumars eru dregin út Verðlaun nöfn nokkurra þátttakenda í sumarlok og fá þeir verðlaun. Spönginni 41, sími 411 6230 spongin@borgarbokasafn.is www.borgarbokasafn.is

Þarft þú að losna við köngulær?

Fyrirmyndarkrakkar í 7. bekk í Hamraskóla.

­Sigursælir­7.­bekkingar­í­Hamraskóla

7. bekkur úr Hamraskóla hlaut nýverið verðlaun fyrir leikna stuttmynd sem þau sendu inn í samkeppnina „Tóbakslaus bekkur“. Allir tóbakslausir 7., 8., og 9. bekkir í skólum landsins gátu tekið þátt. Keppnin var fyrst haldin í Finnlandi fyrir 35 árum en Ísland er nú með í 16. sinn. Í ár tóku 240 bekkir víðsvegar um landið þátt. Á skólaárinu þurftu bekkirnir að staðfesta fimm sinnum að þeir

væru tóbakslausir og voru þá með í útdrætti um vinninga. Vinningarnir voru húfur frá 66° Norður en auk þess fengu allir þátttakendur pennaveski að gjöf. 10 bekkir frá 9 skólum sem sendu inn lokaverkefni unnu til verðlauna. Verðlaunaupphæðin nemur 5000 kr. fyrir hvern skráðan nemanda í bekknum sem þeim er frjálst að ráðstafa að vild. Þessa sömu stuttmynd sendi bekkurinn inn

í kvikmyndahátíð grunnskóla í Reykjavík (Taka 2015) og var hún valin sem besta stuttmyndin í yngri flokknum. Alls bárust um 100 myndir í keppnina og er það metþátttaka. Myndirnar kepptu til sigurs í fjórum flokkum yngri og eldri nemenda; leiknum stuttmyndum, hreyfimyndum, heimildarmyndum og tónlistarmyndböndum. Kvikmyndahátíðin var haldin í 35. sinn í Bíó Paradís þann 28. maí síðastliðinn.

H^\g c HiZaaV :^cVghY ii^g

A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^

Daníel Fogle sölumaður 663-6694

FLÉTTURIMI - 5 HERB.- STÆÐI Í OPNU BÍLSKÝLI 102,6 fm íbúð á 2. hæð ásamt opnu bílskýli. Fjögur svefnherbergi. Þvottahús innan íbúðar. Lítið fjölbýli.

H b^ *,* -*-*

Sigurður Nathan Jóhannesson sölumaður 868-4687

BAKKASTAÐIR

Spöngin 11 - 112 Reykjavík He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Sími 575 8585. Fax 575 8586 H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+

Mikil eftirspurn eftir eignum i Grafarvogi. Okkur vantar allar gerðir eigna á skrá

ÓLAFSGEISLI- EINBÝLI MEÐ BÍLSKÚR

Falleg fjögurra herbergja 115,4 fm íbúð með Fallegt 205,6 fm einbýlishús á tveimur hæðum sérinngangi á jarðhæð með garði. Parket og innst í botnlanga. náttúruflísar á gólfum. Fjögur svefnherbergi og tvær stofur. Hægt er Vandaðar innréttingar. að bæta við einu svefnherbergi.

HÁRGREIÐSLUSTOFA Í GRAFARVOGI (MYND 564) Stofan nýtur sérstöðu, er með eina bestu aðstöðu landsins varðandi hársnyrtingu barna. Stofan er mjög vel tækjum búin og með vönduðum húsgögnum. Tíu klippistólar eru á stofunni og einnig aðstaða fyrir förðun. LAUS FLJÓTLEGA

]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`

LAUGAVEGUR - SÉRSTÖK MIÐBÆJARÍBÚÐ Glæsileg endaíbúð á fjórðu hæð og í risi við Laugaveg ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er einstök og innréttuð á glæsilegan hátt.

lll#[b\#^h


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 09/06/15 19:02 Page 7

7

GV

Fréttir

Lokahátíð frístundaheimilanna í Grafarvogi og opnun leikkastala Kátir krakkar af frístundaheimilum Gufunesbæjar tóku þátt í opnunarhátíð á nýjum leikkastala á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ. Aðstæður í „sveitinni” í Gufunesi eru að verða mjög góðar til útivistar. Mikil uppbygging og uppgræðsla hefur átt sér stað á svæðinu á undanförnum árum og má segja að Grafar-

vogsbúar séu að eignast skemmtilegan og fjölskylduvænan almenningsgarð. Formaður hverfisráðs Grafarvogs, Bergvin Oddsson, opnaði leikkastalann formlega og renndi sér niður eina rennibrautina í því tilefni. Tæplega 500 börn mættu á svæðið og léku sér í frábæru veðri.

Margt var í boði fyrir krakkana á lokahátíðinni.

Alvöru nudd og dekur Býð upp á eftirfarandi þjónustu: Heilnudd - 60 mínútur Partanudd - 45 mínútur Svæðanudd - 30 mínútur Heilun 30 mínútur Andlitsbað með maska og nuddi 6500 kr. (tilboð í júní) Aðstoð við mataræði og heilsu Tek einnig kúnna eftir kl. 18.00 og um helgar. Uppl. í síma 782-1050

Mikill fjöldi mætti í útivistarparadísina í Gufunesi á lokahátíð frístundaheimilanna.


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 09/06/15 22:12 Page 8

8

Gler lifir

Fréttir

GV

að eilífu

KOMUM ÞVÍ Í ENDURNÝTINGU Sigurvegarar í 10 km hlaupi.

GV-myndir Hjörtur Stefánsson

Góð stemmning í Fjölnishlaupinu

Fjölnishlaupið var ræst í 27. sinn frá Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi þann 21. maí í ágætis veðri. Fjórða árið í röð var brautarmetið slegið í 10 km hlaupinu, nú af Arnari Péturssyni, ÍR, sem hljóp á sínum persónulega besta tíma 31:55 mín. Munaði þar einungis 5 sekúndum á fyrra brautarmeti Ingvars Hjartarsonar, Fjölni, sem hann hafði sett árið áður. Í öðru sæti var Hugi Harðarson, Fjölni, einnig á persónulegri bætingu 35:59 mín. Í þriðja sæti var svo Ingvar Hjartarson, Fjölni, á tímanum 36:19 mín, en hann hafði meiðst í hlaupinu og kom haltrandi í mark. Í kvennaflokki sigraði Helga Guðný Elíasdóttir, Fjölni, á tímanum 41:44 mín. Önnur var Ingveldur H. Karlsdóttir, ÍR-skokk, á tímanum 42:52 mín og þriðja var Guðrún Ólafsdóttir, Boot Camp, á tímanum 45:15 mín. Alls luku 96 keppendur 10 km hlaupinu. Í skemmtiskokkinu komu systkinin Árni Kjartan Bjarnason og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR, nánast hnífjöfn fyrst í mark. Næst á eftir þeim kom systir þeirra Signý Lára Bjarnadóttir. Alls tók 61 keppandi þátt í skemmtiskokkinu og var mikil gleði meðal þátttakenda. Öll úrslit má nálgast á marathon.is/powerade og hlaup.is

Glaðir þátttakendur í Fjölnishlaupinu.


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/06/15 01:03 Page 9

Langmesta úrval landsins af íslenskum flugum í 10 m löngu fluguborði

Vandaðar vörur og verð fyrir alla Íslenskar flugur í hæsta gæðaflokki Flugustengur frá Echo, Vision og Scott Fluguhjól frá Nautilus, Echo og Vision Flugulínur frá Vision, Echo og Airflo Fatnaður frá Vision ZO-ON og Aquaz

Glæsileg íslensk flugubox - Gröfum nöfn veiðimanna á boxin sem eru frábær persónuleg gjöf

Veiðibúðin Krafla - Höfðabakka 3 - Sími: 587-9500


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 07/06/15 00:48 Page 10

10

GV

Fréttir

Glersöfnun á öllum 57 grenndarstöðvunum

Ekki gleyma að taka lokin af krukkunum því best er að glerið sé sem hreinast þegar það fer til endurvinnslu.

Rúnar Geirmundsson

Sigurður Rúnarsson

Elís Rúnarsson

Þorbergur Þórðarson

Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110 & 893 8638

Glersöfnun í sérstaka glergáma á grenndarstöðvum hefur gengið vel í Reykjavík en tilraun hefur verið gerð með slíka gáma á fjórum stöðum í borginni. Nú hefur umhverfis- og skipulagsráð samþykkt að koma á glersöfnun á öllum 57 grenndarstöðvum í borginni. Ekki gleyma að taka lokin af krukkunum því best er að glerið sé sem hreinast þegar það fer til endurvinnslu. Ekki gleyma að taka lokin af krukkunum því best er að glerið sé sem hreinast þegar það fer til endurvinnslu. Söfnun glers verður innleidd í áföngum til ársins 2020. Nú þegar er hægt að skila öllu gleri á endurvinnslustöðvar SORPU bs. auk fjögurra grenndarstöðva. Grenndarstöðvum þar sem hægt er að skila gleri mun fjölga í átta á

þessu ári, þær verða 22 í lok árs 2017 og árið 2020 munu allar 57 grenndarstöðvarnar státa af glersöfnun. Það verður æ einfaldara fyrir borgarbúa að skila endurvinnanlegum efnum til endurvinnslu en alls búa 85% Reykvíkinga í 500 metra fjarlægð frá grenndar- eða endurvinnslustöð eða minna. Að meðaltali er fjarlægðin 329 m. Talið er að árið 2014 hafi rúmlega eitt þúsund tonn af gleri og steinefnum fallið til frá heimilum í Reykjavík og verið urðuð með blönduðum heimilisúrgangi í Álfsnesi. Efla verkfræðistofa vann mat á umhverfisáhrifum og ávinningi af söfnun, útflutningi, flokkun og endurvinnslu umbúðaglers frá Íslandi. Samkvæmt matinu er talsverður ávinningur af því út frá umhverfislegu sjónar-

horni að flokka, safna, flytja út og endurvinna gler frá Íslandi. Markmiðið með að koma á glersöfnun á grenndarstöðvum er tvíþætt, annars vegar að minnka hlut glers í blönduðum heimilisúrgangi með því að auðvelda íbúum skil á gleri og hins vegar að skoða forsendur þess að endurvinna glerið í stað þess að endurnýta það í burðarlag. Í gámana má skila hvers konar gleri sem fellur til á heimilum, s.s. sultukrukkum, lýsisflöskum og öðrum glerflöskum án skilagjalds auk alls kyns öðrum ílátum úr gleri. Glerið má hvort sem er vera glært eða litað en glerílátin þurfa að vera hrein og best er að taka allan málm, svo sem lok og tappa af.

­

www.utfarir.is • runar@utfarir.is

) "

Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990

) "

– við elskum dósir!

Skýringar Glerflokkun

) "

Aðrar grenndarstöðvar

Söfnunarkassar í þínu hverfi: Spöngin • Gagnvegur 2 • Dalhús • Langirimi

Kjalarnes

) "

Endurvinnslustöðvar 400 200

Tilraun á glersöfnun á grenndarstöðvum

0

400

800

1.200

1.600

2.000 Metrar

"H:\bv245\2015_verkefni\Eygerður\glersöfnun\gler_grennd.mxd" HA 4.3.2015


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janรบar.qxd 09/06/15 18:59 Page 11

11

GV

Frรฉttir Kรกtir krakkar:

Langar รพig aรฐ styrkja sjรกlfsmyndina og auka sjรกlfstraust รพitt? Um er aรฐ rรฆรฐa sjรกlfsstyrkingarnรกmskeiรฐ fyrir bรถrn og unglinga รญ Reykjavรญk sem vilja รถรฐlast frelsi til aรฐ vera รพeir sjรกlfir. โ Marga krakka langar aรฐ styrkja sjรกlfsmyndina og auka sjรกlfstraustiรฐ, lรฆra aรฐ รพekkja styrkleika sรญna og kosti. ร eim er kennt aรฐ lรฆra aรฐ hรถndla gagnrรฝni, hรถfnun og standa meรฐ sjรกlfum sรฉr. Nรกmskeiรฐiรฐ er รญ senn fjรถlbreytt, frรฆรฐandi og skemmtilegt og hentar aรฐ sjรกlfsรถgรฐu bรฆรฐi stรบlkum og drengjum 10-16 รกra. Auk รพess sem รกรฐur hefur veriรฐ nefnt er markmiรฐ meรฐ nรกmskeiรฐinu aรฐ efla fรฉlagsfรฆrni, samskiptahรฆfni og tilfinningaรพroska. ร aรฐ er byggt upp meรฐ skemmtilegum fyrirlestrum og leikjum, fariรฐ verรฐur รญ hรณpeflisleiki og sjรกlfstyrkingarleiki. Lรฉtt hressing innifalin og grillveisla verรฐur

svo รญ lokin. Reynslumiklir leiรฐbeinendur: Bryndรญs Knรบtsdรณttir: Hรกrgreiรฐslumeistari og kennari. Elva Bjรถrk Traustardรณttir: B.Sc. grรกรฐa รญ nรฆringarfrรฆรฐi. Gyรฐa Kristinsdรณttir: Snyrtifrรฆรฐingur og fรถrรฐunarmeistari. Ragnheiรฐur Guรฐfinna Guรฐnadรณttir: Fรฉlagssรกlfrรฆรฐingur. Sjรถfn Jรณnsdรณttir: ร รพrรณttaรพjรกlfari og listhรถnnuรฐur. ร sta Sigurรฐardรณttir: Fusion Fitness Instructor, einkaรพjรกlfari og Zumba kennari. Hilmar H. Gunnarsson: ร รพrรณttakennari og einkaรพjรกlfari. Nรกmskeiรฐin standa รญ viku, รพaรฐ eru fjรณrir tรญmar รก dag og er aldurs- og kynja-

skipt aรฐ hluta fyrir alla kรกta krakka รญ Reykjavรญk. Fariรฐ er รญ Veggsport, Skemmtigarรฐinn รญ Grafavogi og hellarnir รก Reykjanesi eru skoรฐaรฐir. Leiรฐbeinendur hafa viรฐtaka og faglega reynslu af รพvรญ aรฐ vinna meรฐ bรถrnum og unglingum. ร eir Pรกll ร skar Hjรกlmtรฝsson og Magnรบs Stefรกnsson verรฐa lรญka meรฐ okkur en รพeir รฆtla aรฐ halda fyrilestur um einelti og eru foreldrar velkomnir meรฐ bรถrnum sรญnum รก รพennan fyrilestur. Nรกmskeiรฐin hefjast 22. jรบnรญ og fara fram รญ Veggsport Stรณrhรถfรฐa 18. Skrรกningar fara fram รก heimasรญรฐunni www.katirkrakkar.is, รพar sem finna mรก nรกnari upplรฝsingar um nรกmskeiรฐiรฐ. Einnig er til fรฉsbรณkarsรญรฐan Kรกtir krakkar samfรฉlag. Hรถfum gaman saman รญ sumar!

ร eir Pรกll ร skar Hjรกlmtรฝsson og Magnรบs Stefรกnsson verรฐa meรฐ fyrirlestur um einelti og eru foreldrar velkomnir meรฐ bรถrnum sรญnum.

Framรบrskarandi hrรกefni - topp รพjรณnusta - sanngjarnt verรฐ

/Hร รณ ร ZR]LYZS\U Iรปรณ\Y \WWm SHUKZPUZ TLZ[H ย Y]HS HM ZยคSRLYH ร ZRP O]VY[ ZLT OHUU LY THYPULYHรณ\Y x VRRHY SQย ษ LUN\ RY`KK\T LรณH MLYZR\Y ILPU[ ย Y OHร U\ =LYPรณ OQHY[HUSLNH ]LSRVTPU x ]LYZSHUPY VRRHY x /SxรณHZTmYH VN :Wย UNPUUP

/SxรณHZTmYH 2}WH]VNP VN :Wย UNPUUP 9L`RQH]xR :xTP c OHร K'OHร K PZ c ^^^ OHร K PZ c ]Pรณ LY\T m


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janรบar.qxd 10/06/15 10:48 Page 12

12

GV

Frรฉttir Prooptik รญ Spรถnginni:

Framรบrskarandi รพjรณnusta og mjรถg lรกg verรฐ ร Spรถnginni Grafarvogi hefur gleraugnaverslunin Prooptik veriรฐ starfrรฆkt frรก รกrinu 2006. Viรฐ hittum Guรฐrรบnu Bjรถrgvinsdรณttur verslunarstjรณra sem sagรฐi okkur frรก Prooptik verslunarkeรฐjunni. ร riรฐ 1987 var fyrsta Prooptik verslunin opnuรฐ รญ ร รฝskalandi. Siรฐan รพรก hefur Prooptik vaxiรฐ og dafnaรฐ og er um รพessar mundir stรฆrsta verslunarkeรฐjan รก

gleraugnamarkaรฐi รญ ร รฝskalandi. ร riรฐ 2006 opnaรฐi fyrsta Prooptik verslunin รก ร slandi. Fyrirtรฆkiรฐ starfrรฆkir nรบ fjรณrar gleraugnaverslanir รก hรถfuรฐborgarsvรฆรฐinu. Verslanir Prooptik eru staรฐsettar รญ Spรถnginni Grafarvogi, Kringlunni og Hagkaupshรบsinu Skeifunni. ร febrรบar s.l. opnaรฐi sรญรฐan nรฝ verslun viรฐ hliรฐina รก Hagkaup รญ Smรกralind. Guรฐrรบn Bjรถrgvinsdรณttir verslunarstjรณri รญ Prooptik รญ Spรถnginni. ,,Hjรก okkur รญ Prooptik geta viรฐskiptavinir valiรฐ รบr miklu รบrvali umgjarรฐa auk รพess aรฐ fรก sjรณnmรฆlingar hjรก sjรณntรฆkjafrรฆรฐingum. Sjรณnmรฆlingar eru frรญar fyrir รพรก sem kaupa gleraugu,โ segir Guรฐrรบn รญ samtali viรฐ Grafarvogsblaรฐiรฐ. ,,Hjรก Prooptik leggjum viรฐ okkur fram viรฐ aรฐ bjรณรฐa lรกgt verรฐ fyrir hรกgรฆรฐaumgjarรฐir og framรบrskarandi รพjรณnustu. Mikil รกhersla er lรถgรฐ รก aรฐ

viรฐskiptavinir sรฉu รกnรฆgรฐir meรฐ verรฐ, gรฆรฐi og รพjรณnustu. ร รก erum viรฐ meรฐ sรฉrtilboรฐ รก vรถldum umgjรถrรฐum auk 0 krรณnu tilboรฐa fyrir gler รกn rispu- og speglavarna fyrir 18 รกra og yngri sem njรณta endurgreiรฐslu frรก Sjรณnstรถรฐ ร slands,โ segir Guรฐrรบn. Hjรก Prooptik geta viรฐskiptavinir valiรฐ รบr miklu รบrvali merkjavรถru รก gรณรฐu verรฐi eins og Ray Ban, Michael Kors, Jill

GV-myndir SK Sander, Levis svo eitthvaรฐ sรฉ nefnt. ,,ร รก erum viรฐ sรฉrstaklega stolt af Reykjavik Eyes tรญtanรญum umgjรถrรฐum okkar sem eru รญslensk hรถnnun. Viรฐ bjรณรฐum Grafarvogsbรบa sรฉrstaklega velkomna og tรถkum vel รก mรณti รพeim รญ verslun okkar รญ Spรถnginni,โ segir Guรฐrรบn Bjรถrgvinsdรณttir verslunarstjรณri.

Reykjavik Eyes tรญtanรญum umgjarรฐirnar hjรก Prooptik eru glรฆsileg รญslensk hรถnnun.

ร TFARARSTOFA ร SLANDS

;&<=%>??&(@A(BCD"E/F0 ร tfararรพjรณnusta sรญรฐan 1996

ALร ร * VIRร ING *(GH;I1G J%"#&F"(%>K'.!" L"?#.2304

)6@(MMNN(9(675(68:8 Sverrir Einarsson

(+++,&#-/%0',0. ;!!"'(.C!"%$%0'F0''(

Kristรญn Ingรณlfsdรณttir

ร TFARARSTOFA HAFNARFJARร AR !"#"$%"&'()"(*(+++,&#-"%"%.#/-",0.(*(123"%4()5)()678(9(675(68:8

ร aรฐ er grรญรฐarlega mikiรฐ รบrval รญ Prooptik Spรถnginni og verรฐin รพar eru frรกbรฆr.

Vottaรฐ mรกlningarverkstรฆรฐi Vottaรฐ rรฉttinga- og og mรกlningarverkstรฆรฐi viรฐgerรฐir er rรฉttinga- o g mรกlningarverkstรฆรฐi mรกlningarverkstรฆรฐi vottaรฐ vottaรฐ af Bรญlgreinasambandinu. Bรญlgreinasambandinu. GB Tjรณna Tjรณnaviรฐgerรฐir og V iรฐ tryggjum tryggjum hรกmar ksgรฆรฐi meรฐ รพvรญ aรฐ nota fyrsta flokks tรฆkjabรบnaรฐ o g efni. Viรฐ hรกmarksgรฆรฐi og S tyรฐjumst viรฐ tรฆk niupplรฝsingar fr amleiรฐanda um hvernig hvernig skuli skuli staรฐiรฐ aรฐ viรฐgerรฐ. Styรฐjumst tรฆkniupplรฝsingar framleiรฐanda

Tjรณnasko oรฐun Viรฐ skoรฐum bรญlinn og undirbรบum tjรณnamatiรฐ sem sent er til tryggingafรฉlaga.

Rรฉtting og mรกlning m efftir tir stรถรฐlum framleiรฐenda Viรฐ vinnum og notum aรฐeins viรฐurkennd efni og tรฆkjabรบnaรฐ sem stenst รญtrustu krรถfur.

Framrรบรฐuskipti Skiptum um framrรบรฐur og รถnnumst annars konar rรบรฐuskipti. S Sjรกum jรกum um รถll rรบรฐutjรณn jafnt lรญmdar rรบรฐur sem og aรฐrar, รกsamt glerhreinsun รก bรญl.

Bรญlaรพvottur / djรบphreinsun Bjรณรฐum viรฐ upp รก almennan bรญlaรพvott, djรบphreinsun, bรณn ofl.. Frรญr รพvottur fylgir รถllum viรฐgerรฐum.

Mรถssun / snyrting รก lakki Viรฐ bjรณรฐum upp รก rรกรฐleggingar og gerum tilboรฐ รญ lakkmรถssun og blettanir. Dekkjaรพjรณnusta Sparaรฐu tรญma. Viรฐ getum skipt um dekk รก bรญlnum รก meรฐan hann er รญ viรฐgerรฐ.

$RAGHร LS s 2EYKJAVร K Sร MI NETFANG TJON TJON IS s WWW TJON IS

Skiptยญumยญumยญbremsuklossaยญogยญdiska

Innrรฉttingar / รกklรฆรฐi Tรถkum aรฐ okkur viรฐgerรฐir รก sรฆtum, innrรฉttingum ofl. Smรกviรฐgerรฐir Samhliรฐa viรฐgerรฐum getum viรฐ skoรฐaรฐ รกstand helstu slitflata og รถryggisรพรกtta, s.s. bremsur.


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 07/06/15 01:54 Page 13

13

GV

Fréttir Skákdeild Fjölnis:

Hefur ekki undan að fagna titlum Skákdeild Fjölnis hefur ekki haft undan að fagna glæsilegum sigrum og áföngum skákmeistara deildarinnar á öllum meistaramótum heima og erlendis nú í maímánuði. Fyrst ber að nefna glæsilegan árangur stórmeistarans Héðins Steingrímssonar sem vann afar öruggan sigur á Íslandsmótinu 2015 í landsliðsflokki dagana 14. - 22. maí. Mótið var það sterkasta í áraraðir og auk Héðins tefldu stórmeistaranir Jóhann Hjartarson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Jón L. Árnason, Henrik Danielsen og Lenka Ptasnikova á mótinu. Héðinn sem teflt hefur með Skákdeild Fjölnis í 1. deild síðan 2007 hlaut 9,5 vinninga af 11 mögulegum og varð 1,5 vinningi fyrir ofan næsta mann. Auk þess að vera Íslandsmeistari í skák 2015 þá er Héðinn hraðskák-og atskákmeistari Íslands, árangur sem enginn íslenskur skákmaður hefur náð á einu ári. Héðinn tryggði sér landsliðssæti með þessum góða árangri og teflir fyrir Íslands hönd á Evrópumóti landsliða í Laugardalshöll í nóvember n.k. Nansý Davíðsdóttir skákdrottning Fjölnis og efnilegasta skákkona landsins fór mikla frægðarför til Danmerkur á Norðurlandamót stúlkna 2015 og vann þar yngsta flokkinn með talsverðum yfirburðum. Þetta er þriðja árið í röð sem Nansý fagnar þessum sigri. Hrund Hauksdóttir sem einnig teflir með Skákdeild Fjölnis varð í 2. sæti í elsta flokki á sama móti. Loks ber að nefna að Skákdeild Fölnis átti sigurvegara í báðum flokkum á Meistaramóti Skákskóla Íslands, móti sem allir efnilegustu skákmenn Íslands 20 ára og yngri tóku þátt í lok maímánaðar. Jón Trausti Harðarson 17 ára vann mótið ásamt félaga

sínum og jafnaldra Degi Ragnarssyni fráfarandi meistara. Í tveggja skáka einvígi þeirra um meistaratitilinn hafði Jón Trausti betur. Í stigalægri flokk Meistaramótsins landaði Jóhann Arnar Finnsson sigri en hann er núverandi Skákmeistari Rimaskóla og ásamt Nansý í sveit skólans sem teflir í haust á Norðurlandamóti grunnskóla í Danmörku. Sigurvegararnir ungu á Meistaramóti Skákskóla Íslands unnu til veglegra verðlauna, utanlandsferða og peningaupphæðar sem á að nýtast þeim til að taka þátt í alþjóðlegum skákmótum erlendis.

Fjöldi fólks tók þátt í Góðgerðarvikunni.

Unglingarnir láta sig mannréttindi varða

Í febrúar síðastliðnum var haldin Góðgerðarvika í félagsmiðstöðvum Gufunesbæjar. Þar náðu unglingarnir í hverfinu að safna styrkjum sem síðan voru gefnir til góðs málefnis.

Jóhann Arnar Finnsson sigurvegari á Meistaramóti Skákskóla Íslands yngri flokk. Jóhann Arnar mun tefla með skáksveit Rimaskóla á NM grunnskóla í Danmörku í september.

Sem hluta af þessari viku hafði svokallað Góðgerðarráð samband við Amnesty International á Íslandi þar sem þau vildu taka þátt í fleiri verkefnum. Þá var nýlega yfirstaðið verkefnið Bréfamaraþon þar sem hundruð þúsunda manna víða um heim skrifa bréf til

stjórnvalda sem brjóta gróflega á mannréttindum fólks. Unglingarnir í félagsmiðstöðvunum tóku þátt í að safna undirskriftum á bréfum til stuðnings Moses sem er ungur piltur frá Nígeríu en hann var pyntaður og dæmdur til dauða með hengingu eftir átta ár í fangelsi. Hann var ásakaður um að stela þremur farsímum og öðrum samskiptabúnaði. Hægt er að lesa allt um málið á

www.amnesty.is. Þann 29. maí bárust þær fréttir að búið er að náða Moses og að honum verður sleppt úr haldi á næstu dögum. Unglingar í Grafarvogi söfnuðu alls 5.219 undirskriftum af þeim 12.469 sem komu frá Íslandi og getum við því verið mjög stolt af þeirra þátttöku í þessu máli. Unglingar láta sig varða málefni mannúðar um allan heim og vonum við að það verði um ókomna tíð.

Héðinn Steingrímsson t.h. stórmeistari tekur við Íslandsmeistarabikarnum 2015 eftir glæsilegan sigur í Landsliðsflokki í skák. Mynd Pálmi R. Pétursson

Nansý: Norðurlandameistari stúlkna 3. árið í röð, Nansý Davíðsdóttir fyrirliði Rimaskóla, Íslandsmeistara grunnskólasveita sem teflir á NM grunnskóla í haust.

Njóttu sumarsins Sumarið er yndislegur tími en sólin getur þurrkað og reynt mikið á óvarða húð. Þar sem húðin er stærsta líffæri mannslíkamans er afar mikilvægt að hugsa vel um hana og vernda eins og kostur er. Við bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.

Okkar metnaður er að veita ávallt faglega og góða þjónustu.

Hlökkum til að sjá þig í sumar!

Efnilegustu skákmenn Íslands í flokki 20 ára og yngri, Jón Trausti og Dagur Ragnarsson, sigurvegarar á Meistaramóti Skákskóla Íslands 2015. GV-mynd Gunnar Björnsson

Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00

Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 07/06/15 01:30 Page 14

14

GV

Fréttir

Einbýli á einni hæð auk bílskúrs - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs í Spönginni 11 FANNAFOLD EINBÝLI Á EINNI HÆÐ AUK BÍLSKÚRS

Einbýli á einni hæð auk bílskúrs í botnlanga. Stór garður í vestur og austur. Húsið er 124,1 fm auk 29,5 fm bílskúrs sem breytt hef-

Eldhús er með góðum borðkrók og var eldhúsinnrétting endurnýjuð 2010.

Stofan er stór og björt, útgengt er út í garð frá stofu til vesturs.

ur verið í tvö góð svefnherbergi svo í dag eru fimm svefnherbergi í eigninni. Hægt er að breyta bílskúr til baka ef vilji er til þess. Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum. Þvottahús með innréttingu er inn af forstofu, gott pláss er í þvottahúsi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er innan þvottahúss og á lofti, lúgan fyrir það er einnig í þvottahúsi. Eldhús er með góðum borðkrók og var eldhúsinnrétting endurnýjuð 2010. Dökkar korkflísar eru á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu. Innbyggður ískápur er í innréttingu sem fylgir með. Baðherbergi var endurnýjað að hluta árið 2007. Skipt var um sturtuklefa og upphengt salerni sett upp. Innrétting á baði er upprunaleg. Hjónaherbergi er rúmgott með gluggum í vestur og fataskápum. Barnaherbergi eru tvö og er fataskápur í einu þeirra. Dúkur er á gólfi í barnaherbergjum. Stofan er stór og björt, útgengt er út í garð frá stofu til vestur. Inn af stofu er borðstofa og er útgengt frá henni út hellulagða verönd til austur. garðurinn nær allan hringinn í kringum húsið. Heildarstærð lóðar er 747 fermetrar og er garðurinn í góðri rækt. Hellulagt plan er fyrir framan og grasflöt fyrir aftan hús. Fyrir aftan hús er búið að steypa plötu og er gert ráð fyrir sólskála á teikningum að stærð 23,4 fm. Bílskúr hefur verið breytt í tvö svefnherbergi svo heildarfjöldi svefnherbergja er fimm miðað við núverandi skipulag. Hægt er að breyta bílskúr til baka. Lagnakjallari er undir húsinu sem gerir viðhald og breytingar á lögnum nokkuð þægilegri. Heilt yfir er ástand hússins mjög gott en mála þarf glugga og þakkant að aftan og skemmd er í parketi á gangi við baðherbergi. Bílskúrshurð, gluggar ásamt þakkanti að framan var máluð síðasta sumar.

Feðgakvöld í Fjörgyn

Míní Grafarvogsleikarnir Fimmtudaginn 28. maí voru MíníGrafarvogsleikarnir haldnir hátíðlegir í blíðskaparveðri á útivistarsvæðinu við frístundamiðstöðina Gufunesbæ. Um er að ræða keppni í anda Grafarvogsleikanna sem félagsmiðstöðvarnar halda á haustin, þar sem unglingar félagsmiðstöðva Gufunesbæjar etja kappi í hinum ýmsu þrautum. Helsti munurinn er sá að á MíniGrafarvogsleikunum eru það krakkar af miðstiginu (5. - 7.bekkur) sem keppa sín á milli fyrir hönd sinnar félagsmiðstöðvar. Þær þrautir sem keppt var í að þessu sinni voru meðal annars stígvélakast, kassabílarallý, kappát og Nerf-skotkeppni auk þess sem allir keppendur gæddu sér á grilluðum pylsum. Það voru krakkarnir frá Dregyn sem stóðu uppi sem sigurvegarar á Míni-Grafarvogsleikunum þetta árið og er þeim hér með óskað til hamingju með þann frábæra árangur.

Inn af stofu er borðstofa og er útgengt frá henni út hellulagða verönd.

Þriðjudagskvöldið 26. maí var haldinn glænýr viðburður í félagsmiðstöðinni Fjörgyn sem hlaut nafnið Feðgakvöld. Þar mættu strákarnir úr Fjörgyn með pabba, afa eða annan nákominn í félagsmiðstöðina og var ýmislegt brallað saman. Það var grillað, farið í brjóstsykursgerð og endað á „minute to win it“ keppni þar sem feðgar kvöldins voru krýndir. Kvöldið heppnaðist mjög vel og þetta er viðburður sem áhugi er á að þróa áfram. Fyrr í vetur var haldið Mæðgnakvöld í Fjörgyn og eru þetta viðburðir sem gefa foreldum tækifæri til að kynnast því sem krakkarnir þeirra eru að gera í félagsmiðstöðinni sinni og starfsfólk og foreldrar fá einnig tækifæri til að kynnast betur.

Bubble-bolti er góð skemmtun.

Bubble-bolti í Sigyn hitti algjörlega í mark

Félagsmiðstöðin Sigyn bauð unglingunum sínum upp á Bubble bolta föstudaginn 22. maí. Íklædd risastóri uppblásinni plastkúlu var farið í fótbolta, boðhlaup og almennt sprikl í íþróttasalnum í Rimaskóla. Eftir rúmlega klukkutíma keyrslu í þessum kúlum voru unglingarnir orðnir vel þreyttir og sveittir. Allir komust ómeiddir frá þessari gleði og er klárt mál að það verður aftur boðið upp á þessa skemmtun sem hitti svo sannarlega í mark hjá unglingunum.

Flottur hópur á feðgakvöldi.

Þessir feðgar voru sælir og glaðir.


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 09/06/15 14:41 Page 15

15

GV

Fréttir

Vorhátíðin tókst vel í Húsaskóla Hin árlega vorhátíð var haldin í húsaskóla á fimmtudaginn. Dagskáin hófst með ávarpi skólastjóra sem þakkaði meðal annars Korpúlfum fyrir samvinnuna á skólaárinu. Sólin skein og var mikil gleði. Fólki bauðst að ganga um skólann, hitta starfsfólk og skoða stofur barnanna og verk sem þau hafa unnið á líðandi vetri. Hoppukastalar og veltibíll voru á svæðinu og börnin seldu pulsur, ís og sætmeti til fjáröflunar. Vorhátiðin var fjölsótt og skemmtu nemendur og fullorðnir sér mjög vel.

Korpúlfum var þakkað fyrir samvinnuna á skólaárinu.

Listaverk nemenda voru til sýnis.

Hoppukastali og leiktæki voru á sínum stað.

Ánægðir nemendur í Húsaskóla.

Brugðið á leik í hoppukastalanum.

Þessi stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann.

A Appið ppið oogg Ne Netbankinn tbankinn

Við bjóðum bjóðum gó góða ða þjónustu við flö flötina tina Netbankanum og Í Netbankanum og Appinu Appinu getur getur þú sinnt fjármálunum hvar og og hvenær hvenær sem þér hvar þér hentar. hentar. Hvort Hvor t sem þú ert er t á teig, teig, í hádegismat hádegismat í vinnunni eða eða á ferðalagi ferðalagi í útlöndum geturðu geturðu sinnt öllum helstu bankaviðskiptum bankaviðskiptum í tölvunni tölvunni eða eða snjalltækjum. snjalltækjum. Þú sérð sérð stöðuna stöðuna á reikningunum reikningunum þínum, millifærir, millifærir, borgar borgar reikninga, reikninga, sinnir sparnaði eða eða skoðar skoðar nýjustu nýjustu vildartilboðin. vildar tilboðin. Kynntu þér þér Appið A ppið og og Netbankann á islandsbanki.is Kynntu

islandsbanki.is

Netspjall

Sími 440 4000

FFacebook acebook


GV 1. tbl. Jan 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 09/06/15 19:06 Page 16

(. -

&*.-

`g# )% Äkdi iVg

` g# ) h i ` #

?DG96C IVccWjghiVg ) i`

( *.

` g# ) ( % \

' *.

` g# , ,% \

'. ` g# . h i ` #

.`g# hi`#

7ÓCJH Hb H {]g ] ^c\^g b h ``j ` aV a Â^ . hi`#e`

,. * `g# ) m ' aig#

&.- ` g# &#* a i g#

&.- ` g# '#% a i g#

*. `g# ( m '%%\


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsblaðið 6.tbl 2015 by Skrautás Ehf. - Issuu