Skip to main content

Grafarvogsbladid 6.tbl 2008

Page 1

Grafarvogsblaðið 6. tbl. 19. árg. 2008 - júní

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

Þjónustuaðili

Á dögunum hófst skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf í öllum frístundaheimilum ÍTR fyrir 6 - 9 ára börn og í frístundaklúbbi fyrir 10 - 16 ára fötluð börn og ungmenni á vegum Gufunesbæjar. Við segjum nánar frá á bls. 11.

]Xjk\`^eX$ jXcXe el _m\i]` He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-* ;Vm *,* -*-+

lll#[b\#^h

Falleg gjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki Falleg glæsilegum Glæsilegflugubox flugubox úr meðléttum flugumviði eftirmeð Kristján Gíslason ogGröfum gjöfulum flugum eftir Kristján Gíslason. nöfn veiðimanna og fyrirtækja á boxin Mikið úrval. nánará áwww.Krafla.is www.krafla.is Sjón er söguSjá ríkari

5 tegundir boxa - 26 laxaflugur - 18 laxaflugur - 20 Kröflur - 15 tvíkrækjur - 25 silungaflugur Framleiðandi: Skrautás ehf. - Sími: 587-9500 -

www.krafla.is


2

GV

Fréttir

Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf.. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Merkilegur dagur 17. júní er nýlega liðinn og aldrei þessu vant rigndi hátíðahöldin ekki niður í höfuðborginni. Þvert á móti var veður með allra besta móti. Þessi dagur, þjóðhátíðardagur Íslendinga er afar merkilegur dagur. Ákveðið var á sínum tíma árið 1944 að heiðra Jón Sigurðsson með því að gera afmælisdag hans að þjóðhátíðardegi Íslendinga. Sú staðreynd ein, að við Íslendingar skulum eiga þjóðhátíðardag, er merkileg því mjög mörg lönd eiga engan slíkan dag enda þurftu þau ekki að hafa fyrir því á nokkurn hátt að öðlast sjálfstæði og fullveldi á sínum tíma. Nægir hér að nefna Svíþjóð sem dæmi. Mjög mikilvægt er að Íslendingar haldi sem lengst í fastar venjur á 17. júní og breyti þeim hvergi. Það er mjög mikilvægt að viðhalda öllum okkar venjum á þessum degi og gefa þar hvergi eftir. Halda í alla íslenska siði svo lengi sem þess er nokkur kostur. Ástæða er til að minnast á þetta hér þegar sótt er að okkur úr ýmsum áttum og nýjar kynslóðir koma með nýja siði og gleyma öðrum eða sinna þeim í engu. Ánægjulegt er þó til þess að vita að ekki eiga allir gamlir og góðir íslenskir siðir undir högg að sækja. Ungt fólk í dag hefur enn gaman af þorrablótum, sviða- og pungaáti, kæstri skötu á jólum, bolluáti einn dag á ári og saltkjötsáti svo eitthvað sé nefnt. Vonandi lifa allar okkar hefðir varðandi 17. júní sem allra lengst um ókomin ár.

Verslanamiðstöðin Torgið í Hverafold. Hér opnar Nettó snemma í haust.

Nettó í stað Nóatúns í Torginu Hverafold

Verslið í ykkar Veggjakrotið var fluttheima frá Hótel Borg að Egilshöllinni byggð Stefán Kristjánsson, ritstjóri Grafarvogsblaðsins

gv@centrum.is

- Nettó opnar í Torginu með haustinu

,,Þeir hjá Nóatúni ákváðu að taka sér góðan tíma í að loka verslun sinni í Hverafoldinni og við því er ekkert að gera. Við hjá Nettó fáum húsnæðið afhent þann 1. ágúst og hefjumst þá strax handa við að gera verslunina klára. Við reiknum síðan með að opna um mánaðamótin ágúst/september ef allt gengur eftir,’’ sagði Kjartan Már Kjartansson, staðgengill framkvæmdastjóra og forstöðumaður stjórnunarsviðs hjá Samkaup sem á og

- dæmafár sóðaskapur verktaka og frægur gámur mættur við Egilshöll

Verktaki sem lengi var við störf við Hótel Borg í miðbæ Reykjavíkur hefur nú flutt sig bæjarleið að Egilshöll í Grafarvogi. Margir þekkja gáminn ljóta á myndunum sem þrengt hefur að umferð ökutækja fyrir utan Borgina í um 18 mánuði og verið lítið augnayndi svo vægt sé til orða tekið. Nú þegar verktakinn hefur flutt sig yfir í Grafarvoginn ákvað hann að taka gáminn ljóta með og blasir hann nú við gestum og gangandi við

Egilshöll. Þessi gámur var við Hótel Borg í eitt og hálft ár með veggjakroti en var fjarlægður eftir að birtar voru myndir af honum í fjölmiðlum. Nú er þessi gámur sem sagt kominn að Egilshöll á mjög áberandi stað og blasir við frá Víkurvegi og þeim unglingum sem þar eru á ferð í ríkum mæli. Verktakinn hefur ekki séð sóma sinn í því að mála gáminn en sér vonandi að sér sem fyrst og málar gáminn.

Íbúar í Grafarvogi hafa haft samband við okkur og lýst yfir mikilli óánægju með þennan sóðaskap verktakans. ,,Mér finnst þetta mikil óvirðing sem varktakinn sýnir okkur Grafarvogsbúum með þessu. Það hefði verið lítið mál að mála gáminn ef menn hefðu einhvern snefil af sómatilfinningu,’’ sagði einn íbúinn. Vonandi er hér um einstakt tilvik að ræða. Nóg er af bölvuðu veggjakrotinu fyrir í Grafarvogi og þegar stórt vandamál í hverfinu.

rekur Nettó lágvöruverðsverslanirnar í samtali við Grafarvogsblaðið. Nóatún hefur til margra ára rekið verslun í Hverafoldinni og með góðum árangri lengst af. Síðustu árin og misserin hefur versluninni hins vegar hrakað og þá sérstaklega annáluðu kjötborði verslunarinnar til margra ára. Kjartan Már segir að í nýju Nettó versluninni í Grafarvoginum verði lögð mikil áhersla á gott úrval af kjöti og vöruúrval verði

mikið í versluninni. Nettó verslunin í Hverafoldinni verður sjötta Nettó verslun fyrirtækisins en fyrir eru Nettóverslanir í Reykjavík, Kópavogi, Grindavík, á Akureyri og á Hornafirði. Auglýst verður eftir verslunarstjóra á næstu dögum og fljótlega hafist handa við ráðningu almennra starfsmanna. Í Nettó Hverafold verður, eins og í öðrum Nettó verslunum, lögð áhersla á lágt verð, gott vöruval og góða þjónustu.

Gámurinn ljóti við Hótel Borg þar sem hann var í eitt og hálft ár.

... og mættur við Egilshöllina í Grafarvogi.


ÏHA:CH@ A6B76@?yI Ì <ÓÁJ K:GÁ>

(%

)%

@; k^aa^`gnYYVÂVg aVbWVa¨g^hhcZ^ÂVg &(.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ &..- @G#$@<#

@; aVbWV` i^aZiijg gVhe^ &&.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ &... @G#$@<#

K>CH¡A6HI6 <G>AA@?yI>Á Ï 7ÓCJH

*%

@H [Zgh`i aVbWV[^aaZi ').- `g#$`\# JEEH@G>;I Ì lll#Wdcjh#^h /A6B76;>AA:I Ï HB?yG9:><>

6;HAÌIIJG

&&.-

@H [gdh^c aVbWVhk^Â &.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ (.. @G#$@<#

@H [gdh^Â aVbWVa¨g^ hcZ^Âjb &&.- `g#$`\#

+.-

)-.

CVjiVVi [Zgh`i cVjiV]V`` +.- `g#$`\#

@H [gdh^cc aVbWVW \jg )-. `g#$`\# B:G@I K:GÁ +.. @G#$@<#

%BA *. @G# 7 % * G > 6J N@@

@JG

C 76@6Á Ï 7ÓCJH

>C

C

<D

G 9 H

').-

6;HAÌIIJG

6;HAÌIIJG

*. EZeh^ B6M *%%ba *. `g# :\^ah VeeZah c *%%BA *. `g# EZeh^ 8A6HH>8 *%%BA *. `g#

&(. 7 cjh cÅWV`VÂ^g hc ÂVg HÖ@@JA6Á> $ @6G6B:AAJ &(. `g# hi`#

6;<G:>ÁHAJIÏB>/ ;>BBIJ96<6 &'#%%"&-#(%


4

Matgoggurinn

GV

Ostafylltur lax og holl og góð skyrterta - að hætti Jóhanns og Helgu Jóhann Egill Hólm og Helga Jónsdóttir eru matgoggar okkar að þessu sinni. Uppskriftir þeirra fara hér á eftir. Nú er grilltíminn runnin upp og þá er nauðsynlegt að borða líka einhvern fisk. Fjölskyldan borðar saman fisk flestalla þriðjudaga og er laxinn vinsæll af grillinu. Skyrtertan er fljótleg og einstaklega bragðgóð og auðvitað bráðholl. Ostafylltur grillaður lax, með ofnsteiktum sætum kartöflum og grænmeti, borinn fram með fersku salati að eigin vali og hvítlaukssósu. Skyrterta með jarðarberjum er frábær eftirréttur.

Lax - grillaður í fiskigrillklemmu - 2 laxaflök Laxinn er penslaður með sítrónuolíu báðum meginn og kryddaður með ferskum pipar og salti. Gráðostur hrærður saman við hreinan rjómaost (má nota piparost eða kryddaðan rjómaost ef gráðostur fellur ekki að smekk fólks). Ostablandan sett ofan á annað flakið og hitt lagt ofan á þannig að roðið snúi út báðum meginn. Áður en laxinn er settur í klemmuna er roðið penslað vandlega með sítrónuolíu. Grillað við meðalhita í ca 10 mínútur á hvorri hlið. Nauðsynlegt er að pensla klemmuna með sítrónuolíu nokkrum sinn-

Valgerður og Lárus eru næstu matgoggar Jóhann Egil Hólm og Helga Jónsdóttir, Krosshömrum 13a, skora á Valgerði Baldursdóttur og Lárus Blöndal, Logafold 107, að vera matgoggar næsta mánaðar og koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim þessar girnilegu uppskriftir í Grafarvogsblaðinu í júlí.

Jóhann Egill Hólm og eiginkona hans, Helga Jónsdóttir. um á meðan grillað er.

Ofnsteiktar kartöflur og grænmeti 2 stórar sætar kartöflur. 2 rauðar paprikur. 2 rauðlaukar. 1 askja sveppir. 1 zukkini. 8- 10 hvítlauksrif. Grænmeti grófsaxað og sett í eldfast mót kryddað með cumin fræi (Pottagaldrar), pipar og ítalskri kryddblöndu, 2-3 matsk. af ólífuolíu blandað saman við. Bakað í ofni við 180° í 20 mínútur, muna að forhita ofninn. Gott er að

GV-mynd PS

hræra í blöndunni 1-2 sinnum á meðan eldað er. Köld hvítlaukssósa 2 ds. sýrður rjómi 18%. 2 matsk. mæjónes. 2 hvítlauksrif - smátt söxuð. 1 tesk. dill. sítrónusafi. 1 tesk. dijonsinnep. 2 tesk. hunang. Öllu blandað saman.

¾ pakki homeblest súkkulaðikex. Kirsuberjasósa - fæst bæði í fernum og krukkum. Jarðarber. Kexið er mulið smátt í matvinnsluvél - sett í piedisk. Rjóminn er þeyttur og skyrinu blandað saman við og sett yfir kexmylsnuna. Kirsuberjasósu hellt yfir og skreytt með jarðarberjum. Geymt í kæli í nokkrar klukkustundir ( gott að útbúa daginn áður).

Skyrterta

Verði ykkur að góðu, Jóhann Egill og Helga

1 stór dós vanilluskyr frá KEA. 1 peli rjómi - þeyttur.

3 + ! 0 ! 2 ) . . ! 5 ' , Æ 3 ) . ' ! 3 4 / & !

lll#[b\#^h

]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]` =_{ ;VhiZ^\cVb^Âajc <gV[Vgkd\h hiVg[Vg kVci [ a` bZÂ WgZ^ÂV d\ ]VaY\ ÂV gZnchaj V[ [VhiZ^\cVk^Âh`^eijb d\ Zg bZicVÂjg d``Vg VÂ k^Âh`^eiVk^c^g [^cc^ [ng^g [V\bZcch`j! gn\\^ d\ {c¨\_j h aj[Zga^cj# 6Â ÄZ``_V `dhi^ <gV[Vgkd\h d\ Ä_ cV <gV[Vgkd\hW jb hZb WZhi Zg bZicVÂjg d``Vg# Ãjg[^g Ä h`dÂjc d\ kZgÂbVi [VhiZ^\cVg Ä{ kZgÂjg Äk h^cci ]gVii d\ gj\\aZ\V#

<ZgÂj Ä{ h_{a[h \Âj `g [j VÂ Ä c [VhiZ^\cVk^Âh`^ei^ h j gj\\jb ] cYjb [V\VÂ^aV! Z``^ h¨iiV Ä^\ k^Â b^ccV#

H^\g c HiZaaV :^cVghY ii^g A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^

@Vga 9 ^ @Vgahhdc H ajbVÂjg

He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+


GOLFKORT K AUPÞINGS

Þín forgjöf þegar þú verslar

\da[`dgi#^h

Golfkort Kaupþings er fullgilt kreditkort fyrir kylfinga, hlaðið golftengdum fríðindum. Kortið er gefið út í samstarfi við Golfsamband Íslands og því fylgja margvísleg fríðindi án aukakostnaðar fyrir korthafa. Sæktu um Golfkortið á golfkort.is, í síma 444 7000 eða næsta útibúi Kaupþings.


6

GV

Fréttir

Heklurnar á Landsmóti.

Laus pláss í Heklunum

Kvennakórinn Heklurnar er lítill kór sem var stofnaður í febrúar árið 2003. Kórinn er til heimilis í Mosfellsbæ, en félagar koma einnig úr ýmsum öðrum bæjarfélögum, allt frá Reykjavík og upp í Kjós. Stjórnandi kórsins hefur frá upphafi verið Björk Jónsdóttir söngkona. Heklurnar kalla sig ,,kórinn sem bakar ekki’’ því að í lögum kórsins er kveðið á um að ekki sé stunduð fjáröflun af neinu tagi. Þess í stað greiða kórkonur mánaðargjald, sem stillt er í hóf og að auki nýtur kórinn styrks frá Mosfellsbæ, eins og fleiri kórar í bænum. Á síðasta ári gengu Heklurnar í Gígjuna, landssamband íslenskra kvennakóra. Heklurnar hafa aðstöðu til æfinga í sal Varmárskóla og eru æfingar eitt kvöld í viku, kl. 20-22 á þriðjudagskvöldum. Einu sinni að vetrinum fara Heklur í æfingabúðir frá föstudagskvöldi til sunnudags og voru æfingabúðirnar síðastliðinn vetur á Laugarvatni. Kórinn tekur sér frí frá æfingum yfir sumarið, en fyrsta æfing í haust verður þann 9. september. Laust pláss er fyrir áhugasamar söngkonur í öllum röddum. Upplýsingar veitir formaður kórsins: Bjarney Magnúsdóttir í síma 844 9530. Heimasíða Heklnanna er http://heklurnar.blogcentral.is

Körfubolta skóli Fjölnis Körfuboltaskólinn er fyrir stráka og stelpur frá 9 ára til 12 ára (fædd ´99 - ´96). Skólinn er frá kl. 08.30 - 12.00 (virka daga) og verður í íþróttashúsinu í Dalhúsum. Krakkarnir eiga að taka með sér nesti t.d samlokur, ávexti, djús og hafa með sér vatnsbrúsa. Ekkert nammi, gos eða orkudrykki. Krakkarnir eiga að vera í stuttbuxum og bol en gott er hafa með sér æfingagalla, förum út ef veður er mjög gott. Einnig eiga þau að taka með sér sundföt. Á síðasta degi hvers námskeiðs verðum við með pylsuugrill og skemmtilegheit. Bárður Eyþórsson er umsjónarmaður skólans. Bárður er þjálfari m.fl.karla hjá Fjölni og hefur gríðarlega mikla reynslu sem þjálfari. Honum til aðstoðar eru ungir efnilegir þjálfarar og leikmenn Fjölnis. Námskeiðin: 9. júní - 13. júní, kr. 5000,-. 16. júní - 20. júní, kr. 5000,-. 7. júlí - 11. júlí, kr. 5000,-. 5. ágúst - 8. ágúst, 4 dagar námskeið kr. 4000,-. 11. ágúst - 15. ágúst, kr. 5000,-. 18. ágúst - 21. ágúst, 4 dagar, námskeið kr. 4000,-. það er takmarkað pláss! Hægt er að nálgast skráningarblað á heimasíðu Fjölnis www.fjolnir.is Á síðunni eru nánari upplýsingar um skólann og skráningarferlið. Einnig er hægt að fá upplýsingar á skrifstofu Fjölnis Dalhúsum 2, sími 567-2085 eða sentda tölvupóst á halldor@fjolnir.is

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og formaður ÍTR, flutti ávarp er körfuboltavöllurinn var formlega tekinn í notkun. GV-myndir SK

Nýr óvenjulegur körfuboltavöllur tekinn í notkun við Rimaskóla:

Glæsilegt og þarft framtak

Föstudaginn 13. júní sl. opnaði Kjartan Magnússon, formaður ÍTR, formlega nýjan körfuboltavöll við Rimaskóla í Grafarvogi. Hér er um afar sérstaka nýung að ræða sem á örugglega eftir að ryðja sér enn frekar til rúms hérlendis. Völlurinn er lagður efni frá bandaríska fyrirtækinu Sport Court og eru sex körfur af gerðinni Collegiate Slam System á vellinum. Þetta er fyrsti völlur þessarar tegundar sem tekinn er í notkun í Reykjavík en samkvæmt okkar heimildum er einn slíkur völlur í Reykjanesbæ. ,,Ég varð strax heillaður af þessum velli og útfærslunni á honum. Sá svona völl fyrir mér á skólalóðum

hér í Reykjavík og mér finnst það sérstaklega ánægjulegt að nú skuli svona völlur vera kominn í gagnið hér í Grafarvogi,’’ sagði Björn Gíslason, varaborgarfulltrúi og stjórnarmaður í ÍTR, í samtali við Grafarvogsblaðið er völlurinn var tekinn í notkun. Umræddur völlur kostar 3 milljónir. Efnið á vellinum hefur þann kost að knattrak er ekki eins hávært og á malbiki sem dregur úr angri við nágranna vallanna. Þá er hægt með lítilli fyrirhöfn að stilla hæðir á körfunum að þörfum hvers og eins. Forráðamenn Körfuknattleiksdeildar Fjölnis eru mjög ánægðir með völlinn enda áhuginn á körfubolta óvíða meiri en í Grafarvogi.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og formaður ÍTR, flutti ávarp er körfuboltavöllurinn var formlega tekinn í notkun. GV-myndir SK

Björn Gíslason, varaborgarfulltrúi D-lista, átti hugmyndina að körfuboltavellinum við Rimaskóla, sem nú er orðinn að veruleika.

Fjármálastjórn Reykjavíkurborgar til fyrirmyndar Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2007, fyrsta heila ár Sjálfstæðismanna við stjórnun borgarinnar, sýnir á ótvíræðan hátt algjöran viðsnúning í rekstri borgarinnar. Á tímabili R-listans var viðvarandi hallarekstur og skuldasöfnun, (sjá meðfylgjandi línurit) en nú má sjá bestu rekstrarafkomu um árabil. Rekstrarafgangur á Aðalsjóði borgarinnar er tæpir 16,5 miljarðar króna í hagnað. Á síðasta ári R-listans var hinsvegar 2,4 miljarða króna tap. Eftir kosningar 2006 var tekið skipulega á fjármálum borgarinnar, án þess að skera niður þjónustu. Rekstrarniðurstaðan er ein besta útkoma sem Reykjavíkurborg hefur skilað og ein glæsilegasta niðurstaða sem sveitarfélag hér á landi sem hefur skilað um árabil. Ef frá eru teknar tekjur af sölu á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun sem eru 10 miljarðar,

er afgangurinn 6,3 miljarðar sem er frábær árangur. Ástæður þessarar frábæru útkomu er ekki bara gott árferði. Þrjú atriði skipta hér lykilmáli í góðri fjármálastjórnun. Aðhaldssemi og ítarleg yfirferð á rekstri og fjármálastjórn borgarinnar á öllum sviðum skilaði góðum árangri á árinu. Samheldni og skilningur á grundvallaatriðum í rekstri gerir það að verkum að hægt verður að byggja upp enn betri þjónustu enn áður á grundvelli góðs árang-

Ragnar Sær Ragnarsson, varaborgarfulltrúi, skrifar: urs. Hagstæð ytri skilyrði, hagnaður af sölu hlut borgarinnar í Landsvirkjun

eins og áður segir hefur auðvitað einnig hjálpað til. Góð rekstrarafkoma hefur skapað borgarbúum góðri ávöxtun af hagnaði og hagnaðurinn hefur verið lagður til hliðar og ávaxtaður með möguleika á að byggja upp og auka þjónustu við borgarbúa. Þetta er meðal annars forsenda þess að hægt hefur verið að lækka álögur á borgarbúa

s.s. leikskólagjöld sem nú eru þau lægstu á landinu, fargjöld í strætisvagna, fasteignagjöld og fleira. Niðurstaða ársreikningsins sýnir að öflug fjármálastjórn og ráðdeild sem einkennt hafa rekstur og fjármálastjórn borgarinnar á síðasta ári skipta sköpum. Það er mikilvægt að halda áfram á sömu braut. Einungis þannig verður Reykjavík áfram í farabroddi íslenskra sveitarfélaga. Ragnar Sær Ragnarsson varaborgarfulltrúi


9

8

GV

Fréttir

GV

Fréttir

Sumarfrístund Gufunesbæjar fer vel af stað Sannkölluð afmælisveisla. Skólinn bauð krökkunum upp á pítsur og Mjólkursamsalan skaffaði hollustudrykk.

Mánudaginn 9. júní hófst skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf í öllum frístundaheimilum fyrir 6 - 9 ára börn og í frístundaklúbbi fyrir 10 - 16 ára fötluð börn og ungmenni á vegum Gufunesbæjar. Þetta er breyting frá þeim tilboðum sem áður hafa verið um leikja- og ævintýranámskeið á sumrin. Sumarfrístundin fer vel af stað, þátttaka er góð og mikil ánægja hjá börnum og starfsmönnum.

Rimaskóli 15 ára

Stanslaus skemmtidagskrá nemenda stóð yfir í tvær klukkustundir og byggðist upp á tónlist og dansi.

Glæsileg afmælishátíð var haldin í Rimaskóla föstudaginn 30 .maí í tilefni af 15 ára afmæli skólans. Hátíðin hófst með pítsuveislu í boði skólans. Auk pítsunnar þá færði Rimaskóli með stuðningi Hróa hattar öllum nemendum skólans að gjöf jójó með merki skólans 15 ára. Skólahljómsveit Grafarvogs undir stjórn Einars Jónssonar og þjóðlagasveit Tónlistarskóla Grafarvogs undir stjórn Wilmu Young spiluðu á hátíðarsvæðinu. Síðan tók við tveggja tíma skemmtidagskrá nemenda í íþróttahúsi skólans þar sem meirihluti krakkanna sýndi hæfni sína í tónlist og söng. Júlíus Vífill Ingvarsson formaður Menntaráðs Reykjavíkur var heiðursgestur afmælishátíðarinnar og skemmti hann sér konunglega að eigin sögn. Júlíus hélt ávarp og færði skólanum myndarlegan blómvönd. Helgi Árnason skólastjóri frá upphafi flutti ávarp og rifjaði upp fyrstu verk sín í starfi skólastjóra sem voru m.a. að velja skólanum einkunnarorð og láta hanna merki skólans, verk sem ennþá standa í fullu gildi. Íslandsmeistarar Rimaskóla í skák buðu gestum upp á tafl sem

að fjölmargir gestir þáðu. Í hátíðarsal Rimaskóla var einstaklega glæsileg sýning á verkefnum nemenda í myndlist, textíl og smíði. Uppsetning muna og fjölbreytileiki verka heillaði alla gesti skólans. Að lokum bauð Foreldrafélag Rimaskóla öllum nemendum aðgang að hoppukastala og þátttöku í árlegu Rimaskólahlaupi. Í tilefni afmælisins voru vígðir vandaðir sýningaskápar sem að mestu er gjöf Foreldarfélags Rimaskóla til skólans. Magnús G.Guðfinnsson formaður Foreldrafélags Rimaskóla afhenti skólastjóra gjöfina. Skáparnir eiga að rúma eggja-steina-og plöntusafn Rimaskóla. Það voru Reyðfirðingarnir Óskar og Sæmundur Ágústssynir sem söfnuðu nánast öllum tegundum íslenskra eggja, steina og plantna og ekkja Óskars færði skólanum söfnin að gjöf fyrir nokkrum árum síðan. Í tilefni afmælisins sungu nemendur 4.- 6. bekkjar nokkur lög inn á geisladisk og kom diskurinn út í kringum afmælishátíðina.

Júlíus Vífill formaður Menntaráðs var heiðursgestur Rimaskóla á afmælishátíðinni. Hann lýsti yfir hrifningu sinni með velheppnaða hátíð og færði Helga Árnasyni skólastjóra blómvönd frá Menntaráði Reykjavíkur.

Mikill metnaður. Nemendur Rimaskóla vinna á hverju ári flotta og nytsamlega hluti í textílmennt undir leiðsögn kennaranna Sivjar Heiðu og Ölmu.

Skráning fer fram á Rafrænni Reykjavík á slóðinni http://rafraen.reykjavik.is Opið verður í öllum frístundaheimilum fram til 4. júlí og aftur frá 11. ágúst. Frá 7. júlí til 8. ágúst verður opið í þremur frístundaheimilum, Regnbogalandi í Foldaskóla, Tígrisbæ í Rimaskóla og Vík í Víkurskóla fyrir börn úr öllum hverfahlutum auk þess sem frístundaklúbburinn verður starfræktur í allt sumar með aðsetur í Fjörgyn í Foldaskóla. Allar nánari upplýsingar um sumarstarf Gufunesbæjar er að finna á vefslóðinni www.itr.is/sumar

Skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf er í boði í frístundaheimilunum.

Dagur með dýrum - skemmtilegar stundir í sveitinni.

Þessir hressu krakkar nutu þess sem í boði var á þeirra frístundaheimili.

Hér var eitthvað skrítið að sjá í fjörunni.

Opið hús á Hallsholti

Foreldrafélagið afhenti skólanum vandaða sýningarskápa fyrir eggja-fugla og steinasafn Rimaskóla.

R

Þessar Rimaskólastúlkur léku með Skólahljómsveit Grafarvogs á afmælishátíðinni en hljómsveitin hélt einnig upp á 15 ára afmæli sitt fyrr í vor.

Börn og foreldrar þeirra skemmtu sér frábærlega.

Sundið klikkar aldrei.

ÍK

UR P

TS

V R E Y K JA

Starfsfólk Gufuneskirkjugarðs

DÆ

K

Fjaran heillar alltaf enda margt sem þar er hægt að skoða.

Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma hafa tekið í notkun nýja þjónustuhúsið á Hallsholti. Grafarvogsbúum er boðið að skoða húsið G þann 21. júní 2008 frá kl. 13:00 - 16:00 K J U A R ÐA IR og fræðast um starfsemina.

MA

Lára Katrín í 6. bekk fékk jójó að gjöf frá skólanum líkt og allir nemendur. Jójó æði greip um sig á skólalóðinni.

RÓF

AS


10

GV

Fréttir

Víkurskóli fékk Grænfánann í annað skiptið Föstudaginn 23. maí fékk Víkurskóli afhentan grænfánann í annað sinn. Grænfáninn er viðurkenning fyrir starf skólans í umhverfismálum. Fulltrúar frá Landvernd afhentu umhverfisráði skólans fánann. Viðstaddir voru nemendur og starfsfólk skólans, fræðslustjóri og skrifstofustjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar ásamt fulltrúa foreldra. Nemendur Víkurskóla sungu tvö lög við afhendinguna, fulltrúi nemenda úr umhverfisráði Sigrún Sól Vigfúsdóttir sagði frá vinnu umhverfisráðs í vetur og næstu skrefum í umhverfismálum.

Samstarfsverkefni Víkurskóla og leikskólans Hamra Sunnudaginn 1. júní voru hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkur afhent við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Víkurskóli var í hópi sex grunnskóla sem fengu verðlaun og fékk skólinn verðlaunin fyrir samstarfsverkefni við leikskólann Hamra sem kallað er einstaklingsmiðuð skólabyrjun. Tvisvar í viku fara elstu hópar leikskólans út í Víkurskóla þar sem starfa saman leik- og grunnskólakennarar með börnin. Unnið er eftir kennsluaðferð sem kölluð er söguaðferð og börnin

Fulltrúi Víkurskóla með hvatningarverðlaunin. læra í gegnum leik. Verkefni vetrarins voru: um leikskólann, ævintýrið

um Hlina kóngsson, hafið og húsdýrin. Víkurskóli hefur fjórum sinnum

hlotið hvatningarverðlaun menntaráðs fyrir verkefni sín.

Energy i Norden fékk Hvatningarverðlaun Það var svo sannarlega orka í loftinu dagana 19.-23. maí er 7. bekkur Borgaskóla ásamt foreldrum og kennurum sínum, Hjördísi Guðmundsdóttur, Sóleyju Stefánsdóttur og Elísabetu Kristjánsdóttur, stuðningsfulltrúa tóku á móti vinum sínum frá Danmörku og Noregi. Það urðu fagnaðarfundir því þetta var í þriðja skiptið sem þessi hópur hitt-

ist. Öll löndin voru heimsótt í verkefninu. 7. bekkur hefur verið samstarfi við Blåvandshukskole á Jótlandi og Kaland barne og umgdomsskule í Noregi s.l. tvö ár. Þema samstarfsins hefur verið Energy i Norden og hafa nemendur skipst á upplýsingum og fræðslu um mismunandi orku, orkunotkun og vistvernd landanna. Af

Dönum fræddust þau um vindmyllur og gas, af Norðmönnum um olíuvinnslu og vatnsaflsvirkjanir og okkar framlag var um jarðhita og vatn og notkun þess sem vistvænnar orku. Foreldrarnir höfðu skiplagt móttöku fyrir allan hópinn nær hundrað manns, nemendur, kennarar og foreldrar. Þeir buðu upp a glæsilegt

hlaðborð veitinga. Norrænu nemendurnir gistu hjá 7. bekkingunum. Við tók svo dagskrá þar sem hópurinn var saman í leik og fræðslu, m.a. tók Orkuveitan vel á móti þeim og fóru þau að Gvendarbrunnum, skoðuðu sig þar um og síðan Hellisheiðarvirkjun. Að auki sýndu nemendur gestum sínum markverða staði í Reykjavík og fóru með þau í bæjarferð. Þetta verkefni var styrkt af NordPlus Junior og er ómetanlegt framlag til aukinna samskipta og kynna milli þjóða og landa. Verkefnið hefur auðgað starfið í skólanum og veitt nemendum ómetanlega innsýn í líf og starf jafnaldra sinna á hinum Norðurlöndunum. Starfsfólk og foreldrar hafa unnið þétt saman og veitt verkefninu mikinn stuðning. Menntaráð veitti þessu verkefni Hvatningarverðlaun þann 1. júní s.l. við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu. En þar tóku skólastjóri, Inga Þórunn Halldórsdóttir og kennarar árgangsins á móti þeim. Við þá athöfn voru einnig veitt nemendaverðlaun ráðsins og fékk Agnes Guðlaugsdóttir

5VB þau. Agnes hefur verið til mikillar fyrirmyndar í námi en ekki síður í samskiptum og lagni við að leysa mál og stýra hópastarfi í árgangnum.

Einstakur árangur Tíu nemendur Borgaskóla í 9. bekk fengu 9.0 og yfir þar af sjö einkunnina 10,0 á samræmdu prófi í stærðfræði í vor. Þessir nemendur; Alexander Elís Ebenesarson, Elva Björk Þórhallsdóttir, Gísli Þór Þórðarson, Iðunn Brynjarsdóttir, Júlía Árnadóttir, Kristinn Páll Sigurbergsson, Signý Rut Kristjánsdóttir, Sunna Víðisdóttir, Sæunn Sif Heiðarsdóttir og Valgerður Tryggvadóttir höfðu í allan vetur stefnt að þessu prófi og töldu sig vera vel undirbúna. Samt er þessi árangur einstakur og sýnir hvað hægt er að gera með góðum undirbúningi og mikilli vinnu. Berghildur Valdimarsdóttir, kennari kenndi hópnum í vetur og sagði hún að þetta væru mjög góðir nemendur. Samvinna við þá hefði verið einstök.

Hópurinn við Hellisheiðarvirkjun.

SPRON styður handboltann SPRON og Handknattleiksdeild Fjölnis hafa gert styrktarsamning til þriggja ára og er SPRON þar með aðalstyrktaraðili deildarinnar. SPRON hefur staðið duglega við bakið á deildinni í vetur og á sinn þátt í því hversu góð umgjörðin er orðin um

starf deildarinnar. SPRON styrkti með myndarlegum hætti handboltamótin sem deildin hélt síðastliðinn vetur. Ber þar hæst SPRON skólamótið í handbolta sem haldið var í annað sinn í september. Þar mættu um 400 börn á aldrinum 6-16 ára úr

sjö skólum í Grafarvogi; Borgaskóla, Engjaskóla, Foldaskóla, Hamraskóla, Húsaskóla, Rimaskóla og Víkurskóla. Skólamótið verður haldið í þriðja sinn fyrstu helgina í september og hefur öllum skólunum í Grafarvogi verið sent bréf um það.

Súsanna Antonsdóttir viðskiptastjóri SPRON í Spönginni og Ragnheiður Þórarinsdóttir formaður Handknattleiksdeildar Fjölnis handsala hér samninginn. Með þeim á myndinni eru Dagrún og Oddný, starfsmenn SPRON í Spönginni.


PIPAR • SÍA • 81168 • Ljósmynd: Sigfús Pétursson

Sigurjón Ólafsson Búrfellsstöð Sýning á starfi og verkum myndhöggvarans Sigurjóns Ólafssonar í tilefni af því að hann hefði orðið 100 ára á árinu. Lágmyndin á Búrfellsstöð er verk Sigurjóns og er stærsta lágmynd á Íslandi.

Kynnið ykkur raforkuframleiðslu og sjáið einnig skemmtilegar sýningar í Blöndustöð, Kröflustöð, Laxárstöð, Ljósafossstöð við Sog og Gestastofu Fljótsdalsstöðvar í Végarði. Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Végarður er opinn frá kl. 9-17 alla daga vikunnar. Heimsókn til Landsvirkjunar er ókeypis.

Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum eru á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.

Handhafi Íslensku gæðaverðlaunanna 2007


12

GV

Fréttir

Hressir krakkar á Ollamótinu.

Sunddeild Fjölnis 10 ára

Tannréttingar Þórir Schiöth tannlæknir hefur hafið störf við tannréttingar á Tannlæknastofunni Spönginni 33 í Grafarvogi. Þórir starfar eingöngu við tannréttingar og viðtalstíma má panta í síma: 577 1666

Sunddeild Fjölnis átti 10 ára afmæli þann 16. júní. Af því tilefni hélt hún upp á afmælið á sínu árlega Ollamóti um helgina 7. og 8. júní sl. Um 200 keppendur voru skráðir til leiks og fór mótið fram í sýnishornaveðri í Grafarvogslaug. Mótið var síðasta mótið sem hægt var að keppa á til þess að ná lágmörkum inn á Aldursflokkameistaramót Íslands sem haldið verður í Reykjanesbæ dagana 19. - 23. júní. Þar ætlar Sunddeildin sér stóra hluti og fer með glæsilegan hóp sundmanna til keppni. Ollamótið er sérstaklega sniðið fyrir yngri sundmenn sem ekki eru að keppa á stóru mótunum. Í hádeginu báða dagana var sundsýning hjá yngstu iðkendunum og var mikill metnaður í gangi hjá þeim. Þar sýndu þeir hvað þeir hafa lært í vetur og að lokinni sýningunni á sunnudeginum var öllum keppendum 8 ára og yngri afhentur veglegur verðlaunagripur fyrir þátttökuna á mótinu. Síðan var þeim boðið upp á grillaðar pylsur og svala. Þegar mótinu var lokið var öllum keppendum og velunnurum sunddeildarinnar boðið í veglega kaffiveislu sem haldin var í anddyri laugarinnar. Þar höfðu foreldrar tekið saman höndum og búið til glæsilegt kökuhlaðborð ásamt því

Það er nokkuð ljóst að Sunddeild að vegleg afmæliskaka var í boði. Fjölnis hefur slitið barnsskónum og Gaman var að sjá fólk á öllum aldri framtíðin er björt. gæða sér á góðgætinu út um allt andFh. Sunddeildar Fjölnis, dyri og sátu menn bara á gólfinu ef Ingibjörg Kristinsdóttir ekki vildi betur til. Jón Karl Ólafswww.fjolnir.is/sund son, varaformaður Fjölnis, færði sunddeildinni blómvönd af þessu tilefni frá aðalstjórn félagsins. Formaður sunddeildarinnar, Sævar Hilmarsson, hafði á orði að deildin stæði vel í dag, gróskumikið starf færi þar fram og að ekki skorti hæfileikana hjá sundmönnum. Því til stuðnings sagði hann frá því að Sigrún Brá Sverrisdóttir hefði náð B-lágmörkum inn á Ólympíuleikana í Peking, sem fram fara í ágúst, í 200 metra skriðsundi þegar hún synti á alþjóðlegu mótaröðinni Mare Nostrum í Mónakó. Er þetta fyrsti ófatlaði Fjölnismaðurinn sem nær þeim árangri. Sunddeildin hefur í gegnum tíðina átt efnilega sundmenn s.s. Kristínu Rós Hákonardóttur, Bjarka Birgisson og Louisu Ísaksen. Þetta er þó bara brot af þeim sundmönnum sem skarað hafa Sigrún Brá Sverrisdóttir - hefur náð bfram úr í sundhreyfingunni og lágmörkum inn á Ólympíuleikana í PekFjölnir hefur haft yfir að ráða. ing í ágúst - fyrst Fjölnismanna.

Skólahreystinámskeið í Egilshöll Opið í sumar frá

8-16 afi@mi.is

Breyttur opnunartími! Opið: Mán. 9-20 og þri.-fös. 8-16 – Lokað á laugardögum í sumar

Í júlí stendur Icefitness fyrir skólahreystinámskeiðum í Egilshöll. Námskeiðin eru fyrir stráka og stelpur á aldrinum 9 til 13 ára / 4. til 7. bekkur. Skólahreystivöllurinn verður uppsettur á gerfigrasinu. Þarna gefst krökkum tækifæri, sem ekki eru orðin nógu gömul, til að keppa í Skólahreysti og spreyta sig. Þetta eru fjölbreytt og skemmtileg námskeið þar sem farið er vel í alla þætti skólahreysti. Einnig verður fræðsla um heilbrigt líferni og mikilvægi hollrar og góðrar fæðu. Í lok hvers námskeiðs fá krakkarnir skólahreystibol og viðurkenningarskjal. Einnig er boðið upp á hollustuhlaðborð seinasta daginn. Námskeiðið er tvískipt eftir aldri: Árg. 1997-1998 kl. 10:00 - 12:00 Árg. 1996 - 1997 kl. 13:00 - 15:00 Námskeiðið verður vikuna 7. júlí - 11. júlí. Skráning er hafin. ATH!! Takmarkaður fjöldi. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á skolahreysti@skolahreysti.is Stjórnandi námskeiðs: Kristinn Freyr Guðmundsson IAK einkaþjálfari. Allar upplýsingar gefur Lára Berglind Helgadóttir í síma 663-1112. Apastiginn er erfiður í Skólahreysti.


SUNDSUMAR Í GRAFARVOGSLAUG www.itr.is w itr is

sími 411 5000

Sumarafgreiðslutími: Virka daga kl. 6:30–22:30 Helgar kl. 8:00–20:30


14

GV

Fréttir

Glæsileg íbúð við Veghús - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs í Spönginni

Fasteignamiðlun Grafarvogs í Spönginni er með 5 herbergja íbúð með bílskúr í Veghúsum til sölu. Um er að ræða sérlega glæsilega eign. Íbúðin við Veghús er 127,9 fm 4ra til 5 herbergja íbúð á 2. hæð í fjöleignahúsi í Grafarvogi ásamt 25,7 fm innbyggðum bílskúr. Komið er inn í hol með rúmgóðum fataskápum. Eldhúsið er með fallegri innréttingu og borðkrók. Flísalagt er á milli skápa. Út af eldhúsinu er borðstofa og þaðan er opið inn í rúmgóða og bjarta stofuna. Lítið útskot er frá stofunni sem nýtt er sem sólstofa. Þaðan er gengið út á flísalagðar suður svalir. Inn af stof-

Tengt er fyrir þvottavél á baðinu.

unni er svefnherbergi. Á sér gangi eru tvö svefnherbergi og er annað þeirra með föstum skápum og að auki eru skápar frammi á ganginum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og með sturtu, baðkari, vegghengdu salerni og innréttingu. Tengt er fyrir þvottavél á baðinu. Fallegt parket, flísar og dúkur er á gólfum. Sameignin er mjög snyrtileg og þar er sameiginleg hjólageymsla. Bílskúrinn er með rafdrifnum hurðaopnara. Íbúðin er í góðu og grónu hverfi og er stutt að fara í skóla, leikskóla, íþróttahús, sundlaugina og aðra þjónustu.

Falleg innrétting er í eldhúsi.

Stofan er björt og rúmgóð.

Flísalagðar suður svalir.

Höfuðlausnir bjóða velkomin til starfa Elis Veigar og reynsluboltann Ingibjörgu!

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


15

GV

Fréttir

Froðuball félagsmiðstöðvanna Það var heldur betur stemning í Egilshöllinni 30. maí síðastliðinn. Félagsmiðstöðvar Gufunesbæjar héldu þá sitt árlega lokaball og var þemað í þetta skiptið ,,froða’’. Og nóg var af froðunni sem fór greinilega afar vel í unglingahópinn því rúmlega fjögur hundruð unglingar komu í hús. Dj-Grétar Geir sá um tónlistina en þar að auki komu reykvélar og auðvitað froðuvélin fræga mikið við sögu. Fróðir menn segja að þetta hafi verið eitt af fjölmennustu böllum sem Gufunesbær hefur haldið fyrir unglinga í hverfinu. Meðfylgjandi myndir sýna vel stemninguna sem var á ballinu.

Kirkjugarðar Reykjavíkur óska eftir starfskrafti sem fyrst til starfa í nýrri þjónustubyggingu í Gufuneskirkjugarði Helstu starfssvið eru: Daglegar ræstingar Almenn eldhússtörf Símsvörun og afleysing á skrifstofu Umsækjandi þarf að geta unnið á tölvu

Þessir krakkar skemmtu sér vel á froðuballinu.

Vinnutími er frá kl. 09:00 til 13:00 með stöku frávikum Laun eru samkvæmt kjarasamningi Eflingar Umsækjandi þarf að hefja störf sem allra fyrst Óskað er eftir að umsóknir berist við fyrsta tækifæri með upplýsingum um aldur og fyrri störf merkt: Kirkjugarðar Reykjavíkurprófstsdæma Sigurjón Jónasson, rekstrarstjóri Vesturhlíð 8, 105 Reykjavík.

Það var mikil stemning í Egilshöllinni á lokaballi félagsmiðstöðvanna eins og sjá má á þessum myndum.

Frá Heilsugæslustöðinni Grafarvogi Guðrún og Vigfús Þór við altarisgöngu í Grafarvogskirkju.

Sr. Guðrún sett inn í embætti

Á Sjómannadaginn var Guðrún Karlsdóttir, nýr prestur í Grafarvogskirkju, sett inn í embætti með formlegum hætti af prófastinum Gísla Jónassyni. Guðrún hóf störf við kirkjuna 15. apríl en var ,,ýtt úr vör’’ 1. júní á Sjómannadaginn. Mikið var um dýrðir þar sem fjórir prestar þjónuðu við guðsþjónustuna og síðan var boðið upp á hádegisverð eftir messu.

Grennandi meðferð

Rétt verð 55.700 kr.

Sumartilboð

29.200 kr. hringið

núna í síma 577 7007

CELLÓNUDD: Kemur blóðrásinni af stað, hjálpar til við frekara niðurbrot og losar líkamann við eiturefni. HÚÐBURSTUN: Opnar húðina og gerir leirnum kleift að fara vel inn í hana. HLJÓÐBYLGJUR: Brjóta niður fitu. VAFNINGAR: Leir er borinn á húðina sem gerir hana stinna, silkimjúka og er jafnframt mjög vatnslosandi. Síðan er notaður Universal líkamsvafningur en með honum missir þú að minnsta kosti 16 cm í hvert skipti. FLABÉLOS: Að lokum er gott að fara í nokkrar mínútur í Flabélos tækið.

Síðdegisvaktin í sumar Því miður verðum við að fella niður síðdegisvaktina Því miður verðum við að fella niður síðdegisvaktina kl 16-18 á kl. 16-18 á Heilsugæslustöðinni í Grafarvogi alla Heilsugæslustöðinni í Grafarvogi alla miðvikudaga fimmtudaga fimmtudaga og föstudaga á tímabilinu og föstudaga á tímabilinu júní tilvegna og með 17 ágúst vegna 10. júlí til og með 8.27ágúst sumarleyfa. sumarleyfa. Síðdegisvaktin hins vegar óbreytt Síðdegisvaktin verðurverður hins vegar opin opin óbreytt mánudaga, miðvikudaga. Þeir semaðþurfa mánudaga ogþriðjudaga þriðjudaga.ogÞeir sem þurfa á þjónustu haldaá þjónustu aðtíma halda ofangreindan tíma er bent á Læknaofangreindan er bent á Læknavaktina á Smáratorgi sem er vaktina á Smáratorgi sem er sameiginleg vaktþjónusta sameiginleg vaktþjónusta heimilis og heilsugæslulækna alls heimilis- og heilsugæslulækna alls höfuðborgarsvæðisins höfuðborgarsvæðisins eftir kl 1700 alla virka daga svo og allan eftir kl. 17 alla virka daga svo og allan daginn daginn um helgar og hátíðisdaga. um helgar og hátíðisdaga.

Vinsamlegast geymið auglýsinguna


Verð kr. 4.352.000,við auglýsum ekki verð frá...


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsbladid 6.tbl 2008 by Skrautás Ehf. - Issuu