GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/7/2026 1:19 PM Page 1
Grafarvogsblaðið 9. tbl. 37. árg. 2026 september
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
Ódýri ísinn
Skákin blómstrar
]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]` Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` 112 Reykjavík H b^ *,* -*-* Sími 575 8585 ;Vm *,* -*-+
Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
www.bilavidgerdir.is
Þjónustuaðili
lll#[b\#^h
- sjá bls. 8 og 10
Lyf á lægra verði! Leggjum áherslu á mjög góða þjónustu Gott vöruúrval Hægt að panta lyf á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300
Einkarekið apótek
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/8/2026 6:09 PM Page 2
2
Fréttir
GV
Grafarvogsblaðið líklega
Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: sk@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: sk@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - sk@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.
Ófremdarástand Á meðan nýmyndaður meirihluti í Reykjavík leggst yfir rekstur borgarinnar og dregur saman í rekstrinum í hagræðingarskyni gefur ríkisstjórnin í sem aldrei fyrr og hækkar kílómetragjald um 16%, annað árið í röð og boðar 5,2% hækkun á opinberum gjöldum um næstu áramót. Á meðan ríkisstjórnin boðar þessar hækkanir upp á 5,2% er yfirlýst verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands 2,5%. Hvernig á að vera hægt að lækka verðbólgu í landinu þegar ríkisstjórnin gengur fram með þessum hætti? Á þessum tímum, þegar yfirlýst kosningaloforð eru einskis virði og vextir og verðbólga æða áfram er ekki skrítið að spurt sé; Hvar er sleggjan og planið? Hvar eru efndir kosningaloforða? Og síðan dundu á okkur niðurstöður PISA könnunar á dögunum. Útkoma Íslands þar var hræðileg svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Í ljós kom að aðeins rétt rúmur helmingur barna býr yfir lágmarks hæfni þegar lesskilningur er annars vegar við fimmtán ára aldur. Um helmingur 15 ára barna skilur sem sagt ekki það sem hann les. Nákvæmt hlutfall er 56%. Fyrir áratug var þetta sama hlutfall 78%. Ef litið er til hinna svokölluðu OECD-ríkja og hinna Norðurlandanna er Ísland langt undir meðaltali og skrapar í raun botninn. Hvernig getur staðið á því að þessi staða er komin upp? Það er greinilega eitthvað mikið að hjá okkur og við erum greinilega á kolrangri braut sem við verðum að komast af sem fyrst. Hver ber ábyrgðina? Eru einhverjar líkur á að einhver axli ábyrgð á þessari hrikalegu stöðu? Ljóst er að stjórnendur menntamála á Íslandi undanfarin ár bera hér helstu ábyrgðina. Nú verður fólk sem stjórnar þessum málum að girða sig Stefán Kristjánsson í brók og laga þessi mál. gv@skrautas.is
Sársaukafullar en nauðsynlegar breytingar - eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það er ekkert gleðiefni þegar fólk missir vinnuna. Á bak við hvert starf er einstaklingur og fjölskylda og því ber að ræða þær breytingar sem nú eiga sér stað hjá Reykjavíkurborg af virðingu og yfirvegun.
um 900 milljóna króna hagræðingu á ári. Breytingarnar ná til 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi starf. Þetta eru stórar og sársaukafullar ákvarðanir. Það þýðir ekkert að fegra það. En þessar 900 milljónir nema aðeins um 15% af þeirri hagræðingu sem nauðsynlegt er að ná. Það sýnir umfang verkefnisins.
En ábyrgð kjörinna fulltrúa felst líka í því að taka erfiðar ákvarðanir þegar þær eru nauðsynlegar. Staðreyndin er sú að óbreyttur rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar er ekki sjálfbær til lengri tíma. Tölurnar sýna það ágætlega. Rekstrarniðurstaða A-hlutans var neikvæð um 5,3 milljarða króna árið 2025. Veltufé frá rekstri nam 6,9% af tekjum, undir 7,5% markmiði fjármálastefnu borgarinnar. Það verður þó að halda því til haga að óvenjuhá gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga hafði veruleg áhrif á niðurstöðu ársins. Þróunin á þessu ári undirstrikar hins vegar vandann enn frekar. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 var rekstrarniðurstaða A-hlutans neikvæð um tæpa 4,6 milljarða króna og tæplega 1,6 milljörðum verri en áætlað hafði verið. Nettó fjármagnsgjöld voru ein og sér rúmum 1,5 milljörðum króna yfir áætlun. Þetta eru ekki tölur sem ábyrgir stjórnendur geta horft fram hjá.
Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Við getum ekki frestað nauðsynlegum ákvörðunum Fjármálaskrifstofa borgarinnar hefur metið að ná þurfi 5–6 milljarða króna hagræðingu á ári til að markmið fjármálastefnu Reykjavíkurborgar náist. Það setur þær erfiðu ákvarðanir sem nú hafa verið teknar í mikilvægt samhengi. Nýlegar breytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði eiga að skila
VISSIR ÞÚ?
Við sjálfstæðismenn höfum um árabil kallað eftir því að yfirbygging borgarinnar verði minnkuð, stjórnsýslan einfölduð og fjármunum forgangsraðað í þágu grunnþjónustunnar. Nú er verið að taka nauðsynleg skref í þá átt. Hagræðing er ekki markmið í sjálfu sér. Hún snýst ekki um að skera niður fyrir sakir niðurskurðar. Hún snýst um að skapa sjálfbæran rekstur, tryggja að hver króna skattgreiðenda nýtist betur og verja þá þjónustu sem skiptir borgarbúa mestu máli, grunnþjónustuna. Það væri auðveldara að fresta erfiðum ákvörðunum, halda áfram á sömu braut og ýta vandanum á undan sér. En það væri ekki ábyrg stjórnun. Ábyrgðin felst stundum í því að taka sársaukafullar ákvarðanir í dag til þess að tryggja sterkari fjárhag og betri grunnþjónustu á morgun. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/8/2026 6:41 PM Page 3
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 8/30/2026 11:19 PM Page 4
4
GV
Mataruppskriftir
Lúxus lax með engifer-, lime- og hunangshjúp
karamelluseraðan hjúp má setja grillstillingu á í 1–2 mínútur í lokin. Fylgist vel með því hunangið getur brúnast hratt. 8. Látið laxinn hvíla í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram. 9. Toppið með miklu fersku kóríanderi, chili og ferskum lime-safa rétt áður en hann fer á borðið. Meðlæti sem passar sérstaklega vel Ég myndi bera þennan lax fram með: • Jasmín- eða basmatihrísgrjónum. • Léttu gúrku- og avókadósalati. • Edamame-baunum. • Lime- og kóríandersalati. • Eða einföldu grænu salati með sesam/lime-dressingu.
- frábær uppskrift sem vert er að prófa Þetta er einstaklega safaríkur og bragðmikill lax þar sem sæta, salta, súra og örlítið sterka bragðið blandast saman. Engifer, lime og chili gefa ferskleika en hunangið karamelliserast fallega í ofninum. Sesamfræin og kasjúhneturnar gefa svo hjúpnum dásamlegt crunch. Hráefni - Laxinn • 1 veglegt laxaflak frá sælkera og Fiskbúðinni Aldan. • Salt og nýmalaður svartur
pipar.Instragram.is • Örlítið af ólífuolíu. Engifer- og limehjúpurinn • 2–3 msk. ferskt engifer, fínt rifið. • 2 msk. tamari eða góð sojasósa. • 2 msk. ferskur lime-safi. • 1–2 msk. akasíuhunang. • 1 ferskur chili, smátt saxaður. • 1–2 msk. sesamfræ. • 2–3 kaffir-lauf, mjög fínt söxuð (má sleppa). • ½–1 dl. kasjúhnetur, gróft saxaðar
Spönginni Grafarvogi
Lúxuslaxinn hennar Jönu er sannkallað lostæti. engifer, tamari, lime-safa, hunangi og Ofan á chili. Smakkið til. Hjúpurinn á að vera bragðmikill – saltur, sætur, ferskur og • Góður slatti af fersku kóríander. örlítið sterkur. • Lime í bátum. 4. Bætið sesamfræjum og kaffir• Mögulega smá ferskur chili. laufum saman við. Ef blandan er mjög þykk má bæta við örlitlum lime-safa. Aðferð 5. Smyrjið hjúpnum ríkulega yfir allan laxinn. Stráið síðan söxuðum 1. Hitið ofninn í 200 gráður. kasjúhnetum yfir. 2. Setjið laxinn á bökunarpappír og 6. Setjið í ofn og bakið í um 15–20 kryddið létt með salti og pipar. Ekki mínútur, eftir stærð og þykkt flaksins. nota of mikið salt þar sem tamari/so- Laxinn á að vera safaríkur og rétt eldjasósan er sölt. aður í miðjunni. 3. Blandið saman í skál rifnu 7. Fyrir fallegan, gylltan og örlítið
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). Gott ráð Það er líka mjög gott að setja smá af hjúpnum til hliðar áður en hann fer á óeldaðan laxinn og bera hann fram sem sósu með matnum. Þá fær maður enn meira af þessu góða engifer-, lime- og hunangsbragði. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) Jana.is - Instragram.com/Janast
Bókaðu tíma í sjónmælingu Þú getur bókað tíma í sjónmælingu með stuttum fyrirvara í verslunum Eyesland í Kringlunni, Glæsibæ, Spönginni, Granda og á Keflavíkurflugvelli. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.
Spönginni Kringlan Grandi Glæsibær Keflavíkurflugvöllur
eyesland.is
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/8/2026 6:41 PM Page 5
GULLNESTI Ódýri ísinn Grillið í Grafarvogi Grillið í Graf ar vogi - Gylfa flöt 1 - Sími: 567-7974
') )* '*&$!%* #)(*"( 70%-90%
íbúa í Grafarvogi lesa Grafarvogsblaðið Þarft þú að koma skilaboðum áleiðis? Auglýsingin þín skilar árangri í G V
698-2844 / 6991322 / sk@skrautas.is
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/5/2026 9:35 PM Page 6
6
Fréttir
GV
Þakka skal það sem vel er gert - eftir Elísabetu Gísladóttur, formann ÍG Nú, á fyrstu mánuðum nýrrar borgarstjórnar, vil ég lýsa ánægju minni með þá ákvörðun hennar að taka kröfur íbúa Grafarvogs til greina. Þar ber sérstaklega að nefna að fallið hefur verið frá skipulagsáformum á nokkrum þéttingarreitum sem íbúar hverfisins lögðust eindregið gegn og mótmæltu harðlega. Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.
Besta fjárfestingin er í góðri heilsu - ný önn að hefjast hjá Metabolic Reykjavík!
Ný önn er að hefja göngu sína hjá Metabolic og spennandi tímar eru fram undan. Við höfum nýtt tímann vel í sumar í stækkun, lagfæringar og búnaðarkaup sem við búumst við að muni falla vel í kramið hjá ykkur. Þegar kemur að því að rækta líkamann og bæta lífsgæðin er ein meginregla sem stendur upp úr: Góð heilsa er alltaf besta fjárfestingin sem þú gerir fyrir sjálfa þig. Orkan sem þú notar á æfingunni skilar líklega bestu ávöxtun sem völ er á. Því þó það hljómi kannski ótrúlega, þá færðu mun meiri orku til langs tíma þegar þú ræktar líkamann reglulega. Við leggjum okkar lóð á vogarskálarnar í buddunni Okkur finnst að hreyfing eigi að vera aðgengileg, skemmtileg og raunhæfur hluti af
í gildi hjá okkar áskrifendum. Ótímabundin áskrift lækkar mest Til að gera þér enn auðveldara fyrir að taka skrefið og halda stöðugleika í æfingunum, lækkum við verðið á ótímabundnum áskriftum: - Nýtt mánaðarverð: 16.990 kr. (var 20.990 kr.) Þetta þýðir að þú færð sömu gæðaþjálfunina, öfluga félagsskapinn og alla okkar sérsniðnu æfingatíma á miklu hagstæðara verði — og enn lægra verð býðst ef þú staðgreiðir árskort. hversdagslífinu. Þess vegna viljum við koma til móts við okkar fólk og lækka öll okkar verð! Það á bæði við um nýjar áskriftir og líka samninga sem eru nú þegar
Hvers vegna Metabolic? Hjá Metabolic snýst þjálfunin ekki um óraunhæfar kröfur eða að pína líkamann, heldur um að byggja upp varanlegan styrk,
bæta úthaldið og rækta góða heilsu á þínum forsendum. Hvort sem þú ert að snúa aftur eftir stutta pásu, vilt dýpka núverandi rútínu eða ert að stíga þín fyrstu skref í ræktinni, þá tekur hópurinn okkar vel á móti þér.
Á okkur var hlustað Það sýnir hversu miklu samtakamáttur íbúa getur skilað þegar við stöndum saman. Við munum áfram láta rödd okkar heyrast og gefumst ekki upp þegar kemur að því að verja friðhelgi heimila okkar, fjölskyldna og nærumhverfis. Ákvarðanir um skipulag hverfisins verða að vera teknar í raunverulegu samtali við fólkið sem þar býr og við komum til með að fylgja því eftir. Nú þegar haustið gengur í garð Þegar skólarnir eru að hefja starfsemi sína er sérstaklega mikilvægt að foreldrar, forráðamenn og við öll séum vel á verði í umferðinni. Mikilvægt er að börnin séu sýnileg og að farið sé vandlega yfir umferðarreglurnar með þeim. Þegar ég var barn var mér kennt að nema staðar við götuna, horfa til beggja hliða og hlusta áður en farið var rólega yfir. Þetta eru einföld en mikilvæg skilaboð sem eiga enn fullt erindi til okkar. Ungmennin okkar á fleygiferð Því miður ber nokkuð á því að börn og ungmenni þjóti um á reiðhjólum og rafhlaupahjólum, stundum með hettuna dregna yfir höfuðið og heyrnartól í eyrunum. Dæmi eru um að þau fari yfir götur án þess að líta vandlega til beggja hliða eða bara ekki. Ökumenn bera sannarlega mikla ábyrgð og þurfa ávallt að sýna fyllstu aðgát. Jafnframt þurfum við að brýna fyrir börnum okkar og ungmennum að vera vakandi, líta vel í kringum sig og bera ábyrgð á eigin öryggi. Nú þegar daginn tekur að stytta þurfum við einnig að minna á ljósabúnað hjóla og notkun endurskinsmerkja. Alltof oft birtist dökkklædd manneskja skyndilega úr myrkrinu á reiðhjóli eða rafhlaupahjóli, án ljósa eða endurskinsmerkja. Við slíkar aðstæður getur ökumaður átt mjög erfitt með að sjá viðkomandi í tæka tíð. Samtakamáttur foreldra gegn unglingadrykkju Við þurfum einnig að vera vakandi
Elísabet Gísladóttir, formaður ÍG. gagnvart unglingadrykkju, enda gefa ýmis dæmi tilefni til að hafa áhyggjur af neikvæðri þróun hennar. Fyrir nokkrum árum tóku foreldrar í hverfinu höndum saman til að draga úr hópsöfnunum, foreldralausum samkvæmum og brotum á lögbundnum útivistartíma barna. Samstaðan skipti miklu máli. Þá gátu unglingarnir síður sagt: „Allir hinir mega fara en ekki ég, af því að ég á svo leiðinlega foreldra!“ Þegar foreldrar standa saman verða mörkin skýrari og börnin finna að sömu viðmið gilda víða. Það auðveldar foreldrum að standa fast á sínu og veitir ungmennunum öryggi, jafnvel þótt þau séu ekki alltaf ánægð með reglurnar á þeirri stundu. Agi er elska. Skýr mörk eru ekki sett til að stjórna börnum heldur til að vernda þau og leiðbeina þeim. Vernd ungmennanna okkar hefst fyrst og fremst á heimilunum. Þar skiptir mestu að foreldrar fylgist með, þori að spyrja og gefi sér tíma til að hlusta. Gott og kærleiksríkt samtal getur vissulega verið áskorun, sérstaklega þegar ungmenni virðast ekki vilja hlusta. En orðin síast inn og geta síðar orðið þeim að leiðarljósi þegar á reynir. Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Öryggi og velferð barna og ungmenna eru sameiginlegt verkefni okkar allra. Með því að standa saman, hlusta hvert á annað og sýna ábyrgð, festu og kærleika getum við verndað nærumhverfi okkar og búið unga fólkinu öruggari framtíð. Elísabet Gísladóttir Formaður Íbúasamtaka Grafarvogs
Við meira að segja gefum þér fyrstu tvær vikurnar frítt! Skráðu þig í frípassa án allra skuldbindinga áður en þú bindur þig í áskrift. Eða komdu við hjá okkur, þó ekki væri nema til að kíkja í kaffi og færa okkur eina nýja afsökun í stóru afsökunarbókina okkar — þar sem við geymum allar fyndnustu og fáránlegustu afsakanirnar fyrir því af hverju fólk mætir ekki á æfingu! Ný önn er fullkomið tækifæri til að byrja upp á nýtt, setja sjálfa þig í forgang og fjárfesta í eigin vellíðan.
Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.
Prófaðu nýja önn með okkur – skráning í frípassa er hafin!
Spönginni
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/8/2026 6:42 PM Page 7
''
+ " ' k . + % '
=+X @ %$$, =+ $$, + ( $$, + (% % 5 o' + ' +
6+ 6 ( ( Z
+
+ +
+
+
=. k k+'"'! +'"'!0+Z !0+Z +
+
% 6 .0! +
+
"+ X ,")."
'' + + +
+
+
+
+
+
+
X
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/7/2026 1:15 PM Page 8
8
GV
Fréttir
gul gata
Allar almennar bílaviðgerðir
Heiðar Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Icewear og Guðmundur G. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.
Er stí昀að?
Icewear nýr samstarfsaðili Fjölnis
Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar
Ungmennafélagið Fjölnir og Icewear hafa gert með sér samstarfssamning um íþróttafatnað fyrir íþróttagreinar félagsins. Samningurinn tekur til keppnis- og æfingafatnaðar fyrir handbolta, körfubolta og knattspyrnu, auk þjálfara- og félagsfatnaðar fyrir allar deildir Fjölnis.
FJARLÆGJUM STÍFLUR
Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is
Einnig verður unnið að þróun æfinga- og keppnisfatnaðar fyrir frjálsíþróttadeild félagsins og æfingarfatnaðar fyrir fimleika- og listskautadeildir. Fjölnisfatnaður verður fáanlegur í nýrri verslun Icewear Sport í Fákafeni, þar sem félagsmenn geta keypt fatnað og fengið hann merktan.
Jafnframt verður opnuð sérstök Fjölnissíða á vef Icewear með yfirliti yfir úrvalið. Stefnt er að því að verslunin opni seinni hluta september.
tast félaginu og okkar stóra hópi iðkenda vel,“ segir Guðmundur G. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.
Fjölnir verður eitt af fyrstu íþróttafélögum landsins til að keppa í fatnaði frá Icewear þvert á íþróttagreinar. Icewear var jafnframt tilnefnt sem besta íslenska vörumerkið árið 2025.
Heiðar Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Icewear, segir fyrirtækið stolt af því að hefja samstarf við eitt af stærstu íþróttafélögum landsins. „Það er mikill metnaður hjá báðum aðilum og við lítum á þetta sem upphafið að öflugu og farsælu samstarfi. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að taka þátt í vegferð félagsins og sjá vörur okkar verða hluta af daglegu starfi þess, allt frá yngstu iðkendum upp í afreksfólk,“ segir Heiðar Þór.
„Við erum mjög ánægð með að fá Icewear til liðs við Fjölni. Það skiptir okkur miklu máli að félagsmenn hafi gott aðgengi að vönduðum Fjölnisfatnaði og að þjónustan sé einföld og aðgengileg. Við hlökkum til samstarfsins og teljum að það muni ný-
Skákæfingar hjá Fjölni Tólf spor – Andlegt ferðalag
Tólf spor – Andlegt ferðalag. Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Fyrsti opni spora fundur vetrarins verður 7. október kl. 19.30. Í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Þrjú næstu miðvikudagskvöld verða opnirfundir til frekari viðkynningar. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.
Hinar vinsælu skákæfingar Skákdeildar Fjölnis byrjuðu að nýju 10. september og verða þær í boði í vetur alla fimmtudaga í Rimaskóla frá kl. 16:30 - 18:10. Æfingarnar eru fyrir alla þá grunnskólakrakka sem hafa náð tökum á grunnatriðum skáklistarinnar og farnir að tefla sér til ánægju. Gott skipulag og leiðbeinendur á öllum aldri eiga stóran þátt í vinsældum æfinganna sem Helgi Árnason formaður skákdeildarinnar hefur umsjón með. Á öllum æfingum verður boðið upp á veitingar í skákhléi og í lok hverrar æfingar er efnt til ,,verðlaunaveislu". Skák er skemmtileg og áhugaverð æfing sem leiðir til árangurs. Æfum okkur heima og mætum á æfingar Skákdeildar Fjölnis.
Skákæfingar hjá Fjölni verða á fimmtudögum í vetur.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/6/2026 11:07 PM Page 9
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/3/2026 9:11 PM Page 10
10
Fréttir
GV
2025
Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.
Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!
Fjölniskrakkarnir sem heimsóttu Gautaborg og tefldu vinaskákmótið.
Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800
eignaumsjon.is umsjon is
Fjölniskrakkar heimsóttu Gautaborg og tefldu vinaskákmót Skákdeild Fjölnis efndi til hópferðar ungmenna deildarinnar til Gautaborgar dagana 20. - 23. ágúst.
Þar var vel tekið á móti hópnum og efnt til tveggja daga skákmóts. Teflt var á 13 borðum, fjórar til sex umferðir. Teflt var í þremur styrkleikaflokkum, A, B og C. Sænsku strákarnir sýndu stelpunum og strákunum íslensku enga miskunn, voru talsvert stigahærri og unnu okkur stórt.
Teflt var í skáksal skáksambands Gautaborgar við góðar aðstæður. Góð æfingaferð fyrir veturinn. Það var í samstarfi Helga Árnasonar og Haraldar Berggren, forsvarsmanns Taflfélags Gautaborgar, sem þessi áhugaverða skákog
skemmtiferð var skipulögð. Skákferðin var líka hugsuð sem skemmtiferð og góður tími gafst til að spila Laser-tag og eyða dagstund í Liseberg skemmtigarðinum. Krakkarnir höfðu safnað fyrir ferðinni með veitingasölu á íslenskum skákmótum í Rimaskóla. Þetta er fimmta árið í röð sem Skákdeild Fjölnis efnir til utanlandsferðar þar sem skákmót og skemmtun eru á dagskránni. Frábær ferð til Gautaborgar og áhugi beggja aðila á að halda góðu samstarfi áfram.
,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,, !+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('
Á efstu borðum voru tefldar lengri skákir og árangurinn bestur.
Séð yfir skáksalinn þar sem teflt var á 13 borðum.
'"+*%'$ " "',%$! ! '"(*
! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/6/2026 8:58 PM Page 11
Ö l garðverk Öl kfæri kf
Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar
Frábært úrval
! f a t l l a i erð
ærum af garðverkfæ
v u ð ó g á ði
Gæ
Lavor háþrý ýstidælur
Colorex r málning og vi v ðarvörn Úrrva val af flísum
Vín ínyl- og ha arðparket
G Gott verð fyrir alla a, alltaf!
Sérfræðinga ar í múrefnum
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/6/2026 11:08 PM Page 12
12
GV
Fréttir frá Fjölni
Fjölmenni kvaddi Emil eftir sex ára starf hjá Fjölni Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
Rúmlega 200 manns komu saman í Egilshöll sunnudaginn 16. ágúst til að kveðja Emil Alengård, fráfarandi yfirþjálfara íshokkídeildar Fjölnis. Emil hóf störf hjá Fjölni árið 2020 og hefur síðan komið að þjálfun flestra flokka deildarinnar. Kveðjuhófið fór fram samhliða lokahátíð Icelandic Hockey Festival, sem haldið var í Egilshöll dagana á undan. Pétur Magnússon, formaður íshokkídeildar Fjölnis, flutti ávarp við athöfnina og Andrea Kristjánsdóttir talaði fyrir hönd iðkenda. Emil fékk að gjöf blóm og kveðjugjafir frá deildinni og foreldrafélaginu.
Emil Alengård, fráfarandi yfirþjálfara íshokkídeildar Fjölnis.
Skráning fyrir haustönn hafin hjá Fjölni. Skráning fyrir haustönnina er inn á Abler snjallforritinu og inn á abler.io/shop/fjolnir þar er hægt að finna helstu upplýsingar um kostnað og það sem er í boði hjá félaginu.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/6/2026 11:28 PM Page 13
13
GV
Fréttir frá Fjölni
Breytingar hjá Fjölni Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmanna- og þjálfarahópi karlaliðs Fjölnis í handbolta fyrir komandi tímabil. Arnviður Bragi Pálsson hefur gengið til liðs við félagið, Viktor Alex Ragnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari og þrír leikmenn hafa framlengt samninga sína.
Spönginni
GV
Arnviður, sem jafnan er kallaður Addi, kemur til Fjölnis frá Þór Akureyri. Hann er skytta og sterkur varnarmaður sem Fjölnismenn gera ráð fyrir að styrki liðið beggja vegna vallarins. Viktor Alex verður aðstoðarþjálfari Gunnars Vals Arnarsonar og mun jafnframt sjá um markmannsþjálfun liðsins. Hann þekkir vel til leikmannahópsins eftir að hafa komið inn í þjálfarateymið á síðari hluta síðasta tímabils.
Pétur Þór Óskarsson og Eiríkur Emil Hákonarson.
Ritstjórn/Auglýsingar Sími 698-2844
Þá hefur Ari Magnússon framlengt samning sinn við Fjölni um eitt ár. Ari kom frá HK fyrir síðasta tímabil og vann sér inn mikilvægt hlutverk í liðinu eftir því sem leið á veturinn. Ungu Fjölnismennirnir Pétur Þór Óskarsson og Eiríkur Emil Hákonarson hafa einnig framlengt samninga sína við félagið til tveggja ára. Pétur Þór er markmaður, fæddur árið 2009, en Eiríkur Emil er örvhentur hornamaður. Báðir eru uppaldir hjá Fjölni og hafa fengið tækifæri með meistaraflokki félagsins.
Arnviður Bragi Pálsson.
Fjölnir Íslandsmeistari í flokki 14 ára stúlkna
Átta keppendur frá Fjölni tóku þátt í Meistaramóti Íslands 11–14 ára í frjálsum íþróttum, sem haldið var í Borgarnesi dagana 15.–16. ágúst. Fjölnir varð stigahæsta félag mótsins í flokki 14 ára stúlkna og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í aldursflokknum. Keppendur félagsins unnu einnig til fjölda Íslandsmeistaratitla og verðlauna í einstaklingsgreinum og boðhlaupi. Þá bættu margir þeirra sinn persónulega árangur í ýmsum greinum.
Ari Magnússon.
;9B56= 7@9 B56= 7@ 5D ( A 5D
Fjölnisstúlkur - Íslandsmeistarar í flokki 14 ára stúlkna 2026.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/6/2026 11:29 PM Page 14
14
GV
Fréttir
Vel skipulagt einbýlishús á einni hæð að Smárarima - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11 Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir vel skipulagt einbýlishús á einni hæð að Smárarima 25, 112 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 2270678 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu í opnu rými, þrjú góð svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og bílskúr. Eignin Smárarimi 25 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-0678, birt stærð eignar 188.2 fm. íbúð150,5 fm og bílskúr 37,7 fm. Nánari lýsing Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi. Gestasalerni er innaf forstofu, flísar á gólfi. Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með
parketi á gólfi, gengt er úr stofu út á ca.130 fm. sólpall sem er fyrir sunnan og vestan húsið. Nýlega er búið að setja heitan pott við húsið. Eldhús er með vandaðri innréttingu og góðum tækjum, parket á gólfi. Þvottahús er með hvítri innréttingu, flísar á gólfi, innangengt er úr þvottahúsi inn í bílskúr. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, sturtuklefa og góðri innréttinu. Svefnherbergi er 3 og er sjónvarpshol í svefnherbergisálmu. Hjónaherbergi er með góðum nýlegum skápum, parket á gólfi. Tvö barnaherbergi, skápar í öðru, parket á gólfi. Gólfhiti með stýringum inn í herbergjum. Sólpallurinn er mjög stór, nýlega byg-
gður. Bílskúr er mjög rúmgóður með rafmagns hurðaropnara, flísar á gólfi. Útgengt er úr bílskúr út á lóð norðan við húsið. Bílaplan er steypt og lagt er fyrir hitalögn í plani. Á síðustu tveimur til þremur árum hefur baðherbergi, forstofa og gestasnyrting verið endurnýjuð, einnig var gengið frá heitum potti á sólpalli við húsið og þakkantur hússins endurnýjaður. Húsið stendur i grónu hverfi við botnlangagötu, stutt er í leikskóla, skóla og framhaldsskóla einnig er stutt í ýmsa þjónustu svo sem verslanir, veitingastaði, bókasafn, apótek og heilsugæslu í Spönginni.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi, gengt er úr stofu út á ca.130 fm. sólpall sem er fyrir sunnan og vestan húsið.
Sigrún Stella EinarsÁrni Þorsteinsson Ólafur Kristjánsdóttir Löggiltur fastrekstrar-hagfræðingur. son löggiltur H^\g c HiZaaV eigna-, fyrirtækja- og M.Sc. löggiltur fasteigna- fasteigna- og skipaskipasali s. 8240610:^cVghY ii^g og skipasali og löggiltur sali s. 786-1414 A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459
He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906
Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778
SUÐURLEIÐ - BYGGINGALÓÐ 11.085 fm byggingalóð við Suðurleið í Tjarnarbyggð rétt við Selfoss. Lóðin er gróin og á henni er tjörn. Lóðin er fyrir heilsárshús og lögheimili.
H b^ *,* -*-*
Ó K E Y P I S S Ö L U V E R Ð M AT
SMIÐJUVELLIR AKRANESI Góð fjárfesting - alls 1724,1 fm. eign sem skiptist á þrjú fastanúmer, 774,2 fm.,112 fm og 837,9 fm. Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki.
HER-
BURKNAVELLIR - 3ja HERB. - STÓR SÓLPALLUR
FORNIBÆR - 4HA JÖRÐ MEÐ HEILSÁRSHÚSI OG SKEMMU
Björt og falleg 87,6 fm 3. herbergja íbúð með stórum suður svölum á efstu hæð. Parket og flísar á gólfum og fallegar innréttingar. Útsýni.
90 fermetra 3. herbergja íbúð á fyrstu hæð með stórum sólpalli til suðurs og versturs. Fallegar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar. Geymsla og þvottahús innan íbúðar.
Jörðin er rétt fyrir utan Selfoss og liggur að sjó. Gott 78 fm heilsárshús og 160 fm skemma eru á jörðinni. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir í síma 892-8778 og á anna @fmg.is
FANNBORG BERGJA
-
3ja
]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`
lll#[b\#^h
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/6/2026 2:10 PM Page 15
15
GV
Fréttir
Fjölniskonur í Bónusdeild - spennandi vetur framundan
Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur ákveðið að þiggja sæti í Bónus deild kvenna fyrir komandi keppnistímabil. Undanfarin tvö ár hefur markviss uppbygging átt sér stað á kvennastarfi körfuboltadeildarinnar. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en meistaraflokkur kvenna lék til úrslita um sæti í Bónus deildinni síðastliðið vor og hefur sýnt að liðið á fullt erindi meðal þeirra bestu. Í kjölfar þeirra breytinga sem orðið hafa á deildarkeppninni undanfarna daga bauðst Fjölni
sæti í efstu deild og hefur félagið ákveðið að þiggja það. Deildin lítur á þetta sem mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu kvennakörfunnar innan félagsins. Fram undan er spennandi verkefni þar sem leikmenn, þjálfarar, sjálfboðaliðar og stuðningsfólk munu sameinast um að gera liðið samkeppnishæft í deild þeirra bestu. Nú er tækifærið til að fylkja sér á bak við liðið og styðja við áframhaldandi framþróun kvennakörfunnar í Grafarvogi.
Kvennalið Fjölnis í körfubolta leikur á meðal þeirra bestu í Bónusdeildinni á komandi vetri.
Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:
Sleikimottur eru snilldin ein LickiMat var upprunalega hannað í samstarfi við dýralækna til að bæta tannheilsu hunda. Sleikjuhreyfingin örvar munnvatn og losar um endorfín sem róa dýrið, og mottan hefur orðið eitt vinsælasta tólið gegn kvíða og til að hægja á áti. Marga mottur þola uppþvottavél og frysti, hentar bæði hundum og köttum. Lickimat – snilldin á sleikimottunni Hvað er svona sniðugt við Lickimat? Þetta er sleikimotta með munstri sem gerir matartímann að leik í stað þess að klárast á 10 sekúndum. Einfalt en ótrúlega áhrifaríkt fyrir bæði hunda og ketti. Afhverju að nota hana? Hún hægir á átinu, sem er frábært fyrir dýr sem gleypa matinn of hratt. Sleikihreyfingin losar líka endorfín og róar taugakerfið, fullkomið fyrir kvíðna hunda, flugeldahræðslu, bílferðir eða baðferðir eða bara til að róa niður orkubolt-
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
ana. Auk þess veitir hún andlega örvun og heldur leiðindum í skefjum. Hvað er sett á sleikimottuna? Allt blautt og maukkennt: blautfóður eða pate frá Dr. Clauder's og Canagan, nammi í mauki, kotasæla eða náttúruleg jógúrt án sætuefna. Tips & trikk: • Frystu mottuna í 1-2 klst. fyrir extra langvarandi skemmtun. • Festu hana á flísar/vegg með sogskálinni. • Notaðu sem róandi tól í baði eða klóasnyrtingu. • Byrjaðu á einföldu munstri, erfiðari útgáfur koma síðar. 🐾 🐾 Fæst í næstu Dýrabær-verslun! 🐾 🐾 🐾 🐾 🐾 🐾
Uppl. í síma 698-2844
GV Ritstjórn og auglýsingar
Sími 698-2844
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 9/9/2026 6:19 PM Page 16
BknaTT BA T T A AR R tts p yrna