Skip to main content

Grafarvogsblaðið 7. tbl. 2026

Page 1

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/30/2026 5:57 PM Page 1

Grafarvogsblaðið 7. tbl. 37. árg. 2026 júlí

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Brugðist skjótt við í Langarima

Ódýri ísinn

]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]` Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` 112 Reykjavík H b^ *,* -*-* Sími 575 8585 ;Vm *,* -*-+

Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili

lll#[b\#^h

- sjá bls. 9

Lyf á lægra verði! Leggjum áherslu á mjög góða þjónustu Gott vöruúrval Hægt að panta lyf á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300

Einkarekið apótek

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 7/1/2026 1:56 PM Page 2

2

Fréttir

GV

Grafarvogsblaðið Öryggi íbúa á alltaf líklega

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: sk@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: sk@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - sk@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.

Upphafið lofar góðu Þrjá mál hafa verið mjög áberandi í umræðunni síðustu vikurnar. Hvalveiðar, Evrópusambandið (ESB) og vösk framganga nýs meirihluta í Reykjavíkurborg. Hildur Björnsdóttir og liðsmenn hennar í nýjum meirihluta í borginni voru varla búnir að koma sér fyrir í ráðhúsinu þegar ráðist var í tiltektir og í að efna kosningaloforð. Sársaukafullar uppsagnir upplýsingafulltrúa og fleiri starfsmanna borgarinnar. Því var lýst yfir fyrir síðustu kosningar að ráðist yrði strax í hagræðingu við rekstur borgarinnar kæmist Hildur og félagar til valda. Byrjunin lofar góðu. Framganga Hildar á dögunum varðandi gangstéttina í Langarima í Grafarvogi vakti mikla athygli. Sannarlega breytt vinnubrögð borgarinnar þegar úthverfin eiga í hlut. Hvalveiðar hófust á dögunum og ekki leið á löngu að erlendur ofstækismaður lýsti yfir komu hans manna á miðin en sjálfur þorði hann ekki um borð. Íslendingar eiga að halda löglegum hvalveiðum áfram og veiða þesar örfáu langreyðar sem úthlutað var. Það verður hins vegar að gera þær kröfur til þess aðila sem veiðarnar stundar að hann geri það á mannsæmandi hátt. Ef Kristján Loftsson getur ekki tryggt að hvalir sem skotið er á deyi svo til samstundis ber yfirvöldum hér á landi að afturkalla leyfi hans strax til hvalveiða. Það er mjög alvarlegt mál ef skotmörk hvalveiðimanna okkar þurfa að berjast fyrir lífi sínu í langan tíma og eiga í löngu dauðastríði. Það er einfaldlega ekki í boði. Og svo er það ESB og slagurinn um atkvæði landsmanna í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Já, það eru margir ákveðnir í að segja já en bera fer á ógleði þegar frasinn um að kíkja í pakkann er nefndur. Nei, líklega er bara best að kjósa með Íslandi, ganga í lið með auðlindum okkar, langtíma hagsmunum þjóðarinnar Stefán Kristjánsson og fullveldi. gv@skrautas.is

að vera í forgangi - eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það á aldrei að þurfa alvarlegt slys til að minna okkur á það sem við vitum öll. Borgin verður að halda grunninnviðum sínum í lagi.

af nálinni. Íbúar höfðu bent á það og reynslan sýnir að þar höfðu fleiri lent í óhöppum. Slíkar ábendingar eiga ekki að fara í skúffu. Þær eiga að vera hluti af virku samtali milli borgarinnar og fólks-

Fjármunir eiga að fara í hverfin Hildur Björnsdóttir hefur boðað að nýr meirihluti muni tryggja aukið fjármagn til viðhalds gangstétta í næstu fjárfestingaáætlun borgarinnar. Það er löngu tímabært. Víða hefur viðhaldi verið frestað um of og verkefnin safnast upp, en nú þarf að forgangsraða uppbyggingu, viðhaldi og þjónustu við íbúa.

Slysið við Langarima í Grafarvogi, þar sem eldri kona slasaðist alvarlega þegar hjólastóll hennar fór um illa farna gangstétt, er alvarlegt mál. Íbúar eiga að geta farið örugglega um sitt eigið hverfi, hvort sem þeir ganga, nota hjólastól, ýta barnavagni, hjóla eða fara um á hlaupahjóli. Brugðist við án tafar Þegar fregnir bárust af slysinu lét Hildur Björnsdóttir borgarstjóri bregðast strax við. Viðhaldi á gangstéttinni var flýtt, framkvæmdin sett í forgang og vinnuvélar mættu á svæðið án tafar. Þannig eiga borgarfyfirvöld að vinna þegar öryggi íbúa er í húfi. Hlusta, taka ákvörðun og framkvæma. Viðbrögðin skipta máli. Þau senda íbúum Grafarvogs skýr skilaboð um að ábendingar þeirra séu teknar alvarlega og að ekki sé dregið að ganga í mál þegar aðstæður eru orðnar óviðunandi. Þetta skiptir ekki síst máli fyrir eldra fólk, fólk með fatlanir og fjölskyldur með börn sem verða oft fyrst fyrir barðinu á lélegu aðgengi og óöruggum leiðum. Ábendingar íbúa skipta máli Ástandið við Langarima var ekki nýtt

sinna því sem skiptir fólk máli í daglegu lífi. Öruggum gönguleiðum, góðu aðgengi, hreinu umhverfi og traustum innviðum.

Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sett sér það markmið að færa forgangsröðun fjármuna í hverfin. Það þýðir að leggja meiri áherslu á viðhald, þjónustu og öryggi. Ekki verður allt lagað á einum degi, en það verður að vera ljóst hvert stefnir og að brugðist sé við þegar þörf krefur.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. ins sem býr í hverfunum. Grafarvogur er stórt og fjölbreytt hverfi með fjölskyldum, eldri borgurum, skólum, íþróttastarfi og öflugu mannlífi. Til að hverfið geti dafnað þarf borgin að

VISSIR ÞÚ?

Málið við Langarima er dæmi um það hvernig hlutirnir eiga að ganga fyrir sig. Þegar vandinn verður ljós er brugðist við. Þegar öryggi fólks er í hættu er verkið sett í forgang. Það er sú nálgun sem Grafarvogur á skilið. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/25/2026 8:54 PM Page 3

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/26/2026 7:45 PM Page 4

4

GV

Mataruppskriftir

Ferskleiki, litir og næring á sumardiskinn - frábær uppskrift sem vert er að prófa Á sumrin sækjum við oft í einfaldar lausnir sem eru bæði bragðgóðar og næringarríkar. Þessi granateplasalsa er ein af þeim uppskriftum sem ég gríp reglulega til þegar mig langar að bæta ferskleika, lit og lífi við máltíðina. Granatepli er ríkt af andoxunarefnum og gefur salsanu fallegan lit og safaríkt bragð. Eplið bætir við stökkri áferð, sítrónan gefur ferska sýru og kóríander ásamt chili skapa spennandi bragðsamspil. Útkoman er létt og ljúffeng salsa sem passar með grilluðum fiski, kjúklingi, kjöti eða sem fersk viðbót við salöt og aðra sumarrétti. Stundum þarf ekki flóknar uppskriftir til að gera matinn aðeins meira spennandi. Nokkur fersk hráefni geta breytt einfaldri máltíð í litríka og næringarríka upplifun.

Granateplasalsa • Fræ úr 1 granatepli • 1 epli, skorið í litla bita • Handfylli af fersku kóríander, saxað • Smá chili eftir smekk • 2–3 msk marineraður rauðlaukur • Góð sletta af ólífuolíu • Safi úr ½–1 sítrónu • Salt og pipar eftir smekk Blandaðu öllu saman og leyfðu bragðinu að njóta sín í nokkrar mínútur áður en borið er fram. Njóttu með uppáhalds sumarmatnum þínum og leyfðu litunum og ferskleikanum að fá að njóta sín á disknum. Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instragram.com/janast Granateplasalsa bætir við lit, ferskleika og lífi við máltíðina.

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

Spönginni Grafarvogi

Allt að 50%

Grandi

Glæsibær

Kringlan

Spöng

Keflavíkurflugvöllur

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/25/2026 9:08 PM Page 5

sumarið! Verð áðurr: 39.998

999 % 31.9 20ttu r afslá

Lavor háþrrýstidæla Space 180bör 2500W

tapakki! a Risa aukahlu

3.565

Verð áður: 2.499

Allir blómapotttar

% 1.875 25ttu r

30% afsláttur

Pallahreinsir Hagmanss Trralltvatt – 4 lítrar T

afslá

Garðverkfæri sett með hnjápúða 4 stk.

Ve V erð áður: 2.998

2.549 15% ttur afslá

Verð áður: 28.2

% 22.61 20ttu r

Hagmans Premium V & viðarvörn 3L

afslá

Stigi - 3x7 þrep

Verð áður: 15.995

% 11.197 30ttu ur f lá

ð

Verð áðu ur: 3.995

% 3.1 20ttu 196 r

Verð áður: 5.897

afslá

% 4.423 25ttu r afslá

Hitabyssa a-T Trrotec HyStream m 200

Oden Eðalviðarvörn & pallaolía 2,7L

Verð áður: 37.465 Ve

% 27.72 26ttu 25 r afslá

Verð áð Ve ður: 11.995

596 9.5

Verkfærasett í tösku 187 styk kki

Hjólböru ur 90L með óspreng gjanlegt dekk

Verð áður: 67.999

40.800 % 4 40ttu r afslá

Verð áður: 25.429

% 19.835 22ttu r afslá

Trrappa Pro 4 þrep (Blá) T

Verð áður: 24.995

Verð áður: 17.899

50%r 8.950 S afsláttu

Kletthálsi 7 110 Reykjavík Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-16 Sími: 412 2500

LuT Lu To T ool Gráðukúttsög 305mm blað 1600W 3

Selhella 6 221 Hafnarfjörðu ur Virkir dagar opið 08-18 0 Laugardagar opið ð 10-16 Sími: 412 2500

Tec Hjólsög PCS oT Trro T 190mm 10-1400W

Fuglavík 18 230 Reykjanesbær Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-14 Sími: 421 1090

997 % 14.9 40ttu r afslá

IR 2400 Palla-/Svalahitari 2,4kW

Gott verð rð ffy yrir allla, alltaf!

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og mynd dvillur.

Allt fyrir

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/29/2026 9:54 PM Page 6

6

Fréttir

GV

Trotec dagar í Múrbúðinni - 20 til 50% afsláttur

Það er fátt sem gleður handlagna Íslendinga meira en góð verkfæri á góðu verði. Nú er komið að einni skemmtilegustu hefð ársins hjá Múrbúðinni: Trotec dagarnir eru mættir aftur – og þeir verða stærri, betri og gulir eins og sólin á góðum sumardegi. Öll rafmagnsverkfæri frá Trotec eru með 20–50% afslætti, og það er ekki lítið þegar um er að ræða eitt vinsælasta verkfæramerki landsins. Þýskt merki sem hefur sannað sig á Íslandi Það er engin tilviljun að Trotec sé mest selda merkið í rafmagnsverkfærum hjá Múrbúðinni. Hvort sem verið er að bora í steypu, saga timbur, brjóta niður steypu nú eða pússa timbur, þá hefur Trotec reynst traustur félagi í verkið.

Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.

Orkan í jafnvægi, takk!

Sumarferðalög á Íslandi bjóða upp á langar keyrslur, óvænt ævintýri og dásamlegar stundir á flakki um hreina náttúruna. En við þekkjum þetta flest: Eftir nokkra tíma í bílnum fer maginn að láta á sér kræla og skyndilausnin á næstu bensínstöð virðist freistandi. Þótt það sé algjörlega hluti af sumrinu að njóta og leyfa sér að slaka á, þá er ekki víst að borgari og franskar í hverju einasta stoppi sé það sem við ættum endilega að láta eftir okkur. Þegar við eyðum löngum dögum á ferðinni er auðvelt að gleyma næringunni, sem endar oft í orkufalli, stanslausri nartþörf og þreytu. Lykillinn að því að halda orkunni stöðugri – og mæta fersk í næsta stopp eða fjallgöngu – er að huga vel að tveimur hlutum: próteini og trefjum. Öflugasta tvennan í bílinn: Prótein og trefjar Ef við lifum á kexi, snakki eða einföldum kolvetnum á ferðalaginu fáum við snögga orku sem hrynur jafnharðan niður aftur. Það leiðir af sér meira nart og jafnvel pirring. Með því að tengja saman prótein og trefjar býrðu til fullkomið eldsneyti

sem endist. ● Af hverju prótein?

Prótein er fyllsta næringarefnið okkar. Það heldur blóðsykrinum stöðugum og tryggir að vöðvarnir fái það byggingarefni sem þeir þurfa til að viðhalda styrknum úr Metabolic-salnum. ● Af hverju trefjar? Trefjar hægja á meltingunni sem þýðir að orkan úr matnum síast jafnt og þétt út í

Snjallt nestisbox sem geymir bæði

kerfið í stað þess að valda orkutoppum og dýfum. Auk þess eru refjar algjört lykilatriði til að halda meltingunni gangandi og

Það þarf ekki að vera flókið að borða vel á ferðalögum. Með því að skipuleggja nestisboxið aðeins áður en lagt er af stað spararðu bæði peninga og kemur í veg fyrir skyndiákvarðanir. Hér eru nokkrar frábærar hugmyndir sem sameina prótein og trefjar: ● Grænmeti og dýfa: Skerið niður gulrætur, sellerí, papriku eða gúrkur (trefjar) og dýfið í próteinríkt skyr- eða kotasælubaserað jógúrt-dip (prótein). ● Ávextir og hnetur: Epli eða perur (trefjar) passa fullkomlega með lúku af möndlum eða hnetum (prótein og hollar fitur). ● Heilhveiti- eða hrökkbrauð: Toppað með vel af skinku, osti eða eggi. Hér færðu trefjarnar úr grófa korninu og próteinið ofan á. ● Harðfiskur: Þjóðlegt, próteinríkt og geymist nánast endalaust í hanskahólfinu. ● Hreint skyr eða próteindrykkir: Fullkomið og svalt til að grípa með í kæliboxið eða kaupa í næstu búð hvar sem er á

koma í veg fyrir þráláta sumar þembu.

landinu.

Af hverju Trotec? • Frábært verð samanborið við gæði, þú færð mikið fyrir peninginn, og enn meira núna því það er 20 – 50% afsláttur! • Trotec býður breiða línu af rafmagnsverkfærum og hægt er að nota sömu rafhlöðuna í flest öll rafhlöðutæki frá Trotec. • Trotec hefur sannað sig við íslenskar aðstæður • Vel hönnuð tæki sem eru fullkomin fyrir öll verk á heimilinu. Þetta er ástæðan fyrir því að Trotec hefur orðið fastur liður í verkfærakössum landsmanna. Trotec dagar – rétti tíminn til að uppfæra verkfærakassann Ef það er eitthvað sem Íslendingar kunna, þá er það að nýta góð tilboð. Trotec dagarnir eru fullkomið tækifæri til að: • Uppfæra gömul verkfæri sem eru farin að hiksta. • Bæta við sérhæfðum tækjum sem þú hefur lengi ætlað að kaupa. • Fá gæðavörur á verði sem sést ekki oft. • Gera sig kláran fyrir sumarið og framtíðina. Múrbúðin – þar sem góð verkfæri eiga heima Múrbúðin hefur lengi verið heimavöllur þeirra sem vilja gæði, þjónustu og faglega ráðgjöf. Við vitum að góð verkfæri skipta máli. Þau spara tíma og þau gera verkefnin skemmtilegri. Komdu og finndu þitt Trotec verkfæri Trotec dagarnir eru rétti tíminn til að gera góð kaup. Þú færð þýsk gæði, og áreiðanleika og það á verði sem lætur mann brosa út að eyrum. Trotec dagar í Múrbúðinni – þýsk gæði á íslensku verði.

Jafnvægi en ekki öfgar Þetta snýst ekki um að mega aldrei fá sér neitt djúsí á ferðalaginu – sumarið á að vera skemmtilegt og matur á að veita gleði. Galdurinn liggur í jafnvæginu. Ef þú tryggir að grunnurinn (morgunmaturinn og millimálin í bílnum) sé næringarríkur, þá er ekkert mál að njóta góðs kvöldverðar eða ísrúnts á áfangastað án þess að það hafi áhrif á líðan. Nærðu líkamann eins og verkfærið sem á að bera þig á vit sumarævintýranna. Gefðu honum gæða eldsneyti svo meltingin og orkan verði í toppstandi í sumar! Sjáumst hress í Metabolic á milli ferðalaga. Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðanum á milli útileganna og ferðalaganna. Við hlökkum til að taka á móti þér!

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.

Reynslan talar sínu máli Við spurðum Svavar Þórisson verslunarstjóra, sem hefur fylgst náið með Trotec frá því merkið kom fyrst til landsins, hvað skýri vinsældirnar. Hann þurfti ekki að hugsa sig lengi um: „Viðskiptavinir eru ótrúlega ánægðir með Trotec. Það sem fólk segir aftur og aftur er að verkfærin séu kraftmikil, endingargóð og svo spillir verðið ekki fyrir. Þetta eru traustar græjur sem gera það sem þær eiga að gera,“ segir Svavar Þórisson. Þessi orð Svavars endurspegla það sem margir hafa upplifað: Trotec er merki sem stendur undir væntingum.

„Viðskiptavinir okkar eru ótrúlega ánægðir með Trotec,” segir Svavar Þórisson verslunarstjóri Múrbúðarinnar.

Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Trotec dagar eru núna í Múrbúðinni – þýsk gæði á íslensku verði.

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/27/2026 10:41 PM Page 7

Þessar Þessarverða þurfa að að vera vera í fluguboxinu þínu í boxinu þínu í sumar Laxaflugur

Iða

Krafla gul

Krafla rauð

Krafla orange

Krafla blá

Krafla græn

Iða

Skröggur

Grænfriðungur

Elsa

Gríma blá

Kolskeggur Gríma gul

Tungsten keilutúpur

Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung)

,,Íslenska landsliðið’’ í silungaflugum Beygla

Beykir

SilungaKrafla bleik

SilungaKrafla orange

Kíktu á Krafla.is - Gjöfular, fallegar og sterkar flugur - Íslensk hönnun

Krókurinn

Mýsla

íslensk fluguveiði Skrautás Sími:og587-9500 Uppl. í símaehf. 698-2844 699-1322

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/25/2026 9:12 PM Page 8

8

GV

Matreiðsla

gul gata

Allar almennar bílaviðgerðir Nauta Ribeye steikin frá Kjötkompaníinu er vel fitusprengd og stórkostleg á grillið.

Grillhorn Grafarvogsblaðsins í samstarfi með Kjötkompaníinu:

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Nauta Ribeye Nauta ribeye er steik sem klikkar ekki og er ein sú vinsælasta hjá okkur. Við val á steik er mjög mikilvægt að velja vel fitusprengdan vöðva og vel hanginn, ekki undir 25 dögum. Þessi vöðvi er mjög bragðmikill og góður, vöðvinn einkennist af fituauganu sem er í miðjum vöðvanum og aðskilur framfile og cap vöðvann. Fituaugað getur verið misstórt, það fer eftir því hvar skorið hefur verið á ribeye vöðvann. ELDUNARLEIÐBEININGAR Hitið grillið mjög vel og lokið steikinni á miklum hita í ca 2 mínútur á hvorri hlið, lækkið svo í lægsta hita og klárið eldun í 52 gráður í kjarna, í ca 3-4 mínútur á hvorri hlið.

neyslu er yfirleitt rauð/matt/brugnum rautt. Forðastu steik sem er fitulaus og skærrauð á litinn, annars ertu að fara að slást við steikina á disknum eftir eldun. Ef þú ert með sérþarfir vertu þá ekki feimin/n við að bera fram þínar óskir, hlutverk kjötkaupmannsins er að koma til móts við allar séróskir. Okkar ráð er: Kauptu gott kjöt og eldaðu það á einfaldan máta. Eldunartips Númer eitt, tvö og þrjú - veljið gott kjöt á grillið! Gæðin svíkja þig ekki.

Passið að þrífa grillið vel eftir hverja notkun. Notið alltaf kjarnhitamæli til að hitta á réttu steikninguna, ef þið eigið hann ekki þá er best að drífa sig að kaupa einn slíkan. Ef þú ert með nautasteik, gefðu þér góðan tíma í eldamennskuna, það er yfirleitt best að elda steikina á lágum hita og fá jafna steikningu í gegnum allan vöðvann. Okkar ráð er að loka steikinni á miklum hita og lækka svo hitann í 80-100 gráður og klára eldun. Láta steikina hvíla í 5-10 mínútur, fer eftir stærð.

PORTOBELLO FYLLTUR MEÐ GORGONZOLA Takið stilkinn af sveppunum og fyllið með gorgonzola osti, hvítlauksolíu og fersku timían. Grillið portobello sveppinn í ca 12-14 mínútur á meðal hita eða þar til osturinn er farinn að krauma í sveppnum.

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is

Nokkur góð ráð við val á kjöti: Það er góð regla að spyrja kjötkaupmanninn hvað steikin sem þú ert að kaupa er búin að hanga/meyrna í langan tíma. Ef kaupmaðurinn getur ekki svarað því þá ertu ekki á réttum stað. Svarið sem þú vilt heyra er að vöðvinn sé búinn að hanga að lágmarki í 25 daga. Það sem skilar einnig góðu bragði og mikilli mýkt í kjötið er fitan, því er okkar slagorð ,,Í fitunni felast gæðin.” Liturinn á kjöti sem er tilbúið til

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/30/2026 8:07 PM Page 9

9

GV

Fréttir

Nýr meirihluti lætur verkin tala

- eftir Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann umhverfis- og skipulagsráðs og Sigrúnu Ástu Einarsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann leikskóla- og daggæsluráðs Fyrstu vikur nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík hafa einkennst af hraðri innleiðingu þeirra verkefna sem kynnt voru samhliða meirihlutasáttmálanum. Með sérstökum verkefnalista hefur meirihlutinn sett sér skýr tímamörk og markmið, með það að leiðarljósi að auka gagnsæi og gera borgarbúum auðveldara að fylgjast með framvindu verkefna. Á 100 daga verkefnalistanum hefur þegar verið lokið við að endurvekja öldungaráð Reykjavíkurborgar, að íslenski fáninn verði dreginn daglega að húni við Ráðhús Reykjavíkur, samþykkja að símafrí í grunnskólum verði innleitt strax við upphaf nýs skólaárs í haust og samþykkja að lengja opnunartíma

sundlauga til kl. 22.00 um helgar frá og með 1. september. Af þeim verkefnum sem eru hafin má nefna samningaviðræður við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili, en þar er unnið að umgjörð um nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn og endurskoðun deiliskipulags Suðurlandsbrautar eftir að fyrirliggjandi tillögu var hafnað. Einnig er vinna farin í gang við heildstæða endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík og viðhaldsátak á gangstéttum í öllum hverfum borgarinnar. Í kjölfar alvarlegs slyss í Grafarvogi var strax ráðist í lagfæringar á gangstétt við Langarima og verður áfram unnið markvisst að því að bæta aðgengi og

öryggi gangandi vegfarenda með auknu fjármagni í næstu fjárfestingaáætlun. Í síðustu viku voru kynntar breytingar á stjórnskipulagi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara með það að markmiði að einfalda stjórnsýsluna, auka skilvirkni og gagnsæi, draga úr yfirbyggingu og tryggja betri nýtingu fjármuna borgarinnar. Með þessum fyrstu skrefum sýnir nýr meirihluti að áhersla er lögð á að standa við þau verkefni sem kynnt voru við myndun meirihlutans og skila áþreifanlegum árangri strax í upphafi kjörtímabilsins. Það eru margar erfiðar ákvarðanir sem þarf að taka við stjórn borgarinnar. Nýr meirihluti ber ábyrgð á því að fara vel með skattfé borgarbúa og tryggja góða grunnþjónustu. Aðlaga

Sigrún Ásta Einarsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Guðný María Jóhannsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

þarf rekstur borgarinnar að breyttu starfsumhverfi, einfalda skipulagið og stytta boðleiðir. Þetta verkefni

krefst kjarks og við erum tilbúin að takast á við það.

Hildur lét bregðast strax við eftir slys við Langarima Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lét flýta lagfæringum á gangstétt við Langarima í Grafarvogi strax eftir að fregnir bárust af alvarlegu slysi þar í síðustu viku. Kona á tíræðisaldri slasaðist þegar hjólastóll hennar fór um ójafna og sprungna gangstétt. Í kjölfarið var ákveðið að setja framkvæmdina í forgang og hófst vinna við að rífa upp skemmda hluta stéttarinnar án tafar. Með þessu hefur nýr borgarstjóri sýnt að brugðist verði hratt við þegar öryggi íbúa er í húfi. Ástand stéttarinnar hefur lengi verið áhyggjuefni í hverfinu. Íbúar hafa bent á hættuna sem ójafnar og sprungnar gangstéttir geta skapað, ekki síst fyrir eldra fólk, fólk í hjólastólum, foreldra með barnavagna og börn á hjólum eða hlaupahjólum. Málið við Langarima er jafnframt dæmi um þá áherslu sem Hildur Björnsdóttir og nýr meirihluti hafa boðað um að setja viðhald, öryggi og grunnþjónustu við íbúa framar í forgangsröð borgarinnar.

Langur kafli á gangstétt varð þess valdandi að eldri kona féll á gangstéttina úr hjólastól og slasaðist töluvert. Nýr meirihluti brást skjótt við og hóf viðgerðir á umræddum kafla sem er einn af mörgum köflum sem þurfa viðgerða við. Það er slæmt ef nánast ófærar gangstéttar eru farnar að valda slysum á fólki og þá þarf auðvitað að bregðast skjótt við aðgerðarleysi síðasta meirihluta í borginni.

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/25/2026 9:13 PM Page 10

10

Við styðjum handboltann í Fjölni

Fréttir

GV

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir er efnileg á hlaupabrautinni.

Alba tryggði sér sæti á HM U20 - og á 5. besta tíma Íslandssögunnar

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir, spretthlaupari úr Fjölni, hefur náð eftirtektarverðum árangri á hlaupabrautinni á þessu ári og tryggði sér um síðustu helgi þátttökurétt á Heimsmeistaramóti U20. Alba vakti athygli fyrr á árinu þegar hún tryggði sér sæti á Heimsmeistaramóti fullorðinna innanhúss í 60 metra hlaupi. Þar keppti hún á sínu fyrsta stórmóti á alþjóðavettvangi. Þann 30. maí síðastliðinn tók hún þátt í European Challenger Championships í Mónakó þar sem hún hafnaði í öðru sæti í 100 metra hlaupi. Alba náði þeim árangri þrátt fyrir

mótvind og varð í verðlaunasæti í sterkri keppni. Á móti á Laugum um síðustu helgi hljóp Alba 100 metrana á 11,71 sekúndu og bætti þar með lágmarkið fyrir Heimsmeistaramót U20, sem er 11,78 sekúndur. Tíminn er jafnframt sá fimmti besti sem íslensk kona hefur náð frá upphafi. Með þessum árangri hefur Alba tryggt sér þátttökurétt á Heimsmeistaramóti U20 síðar á árinu og bætt enn einum áfanganum við feril sinn. Hún er jafnframt meðal efnilegustu spretthlaupara landsins um þessar mundir.

Handknattleikskonan Hildur Sóley Káradóttir.

Hildur Sóley áfram hjá Fjölni næstu tvö árin Handknattleikskonan Hildur Sóley Káradóttir hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni til næstu tveggja ára. Hildur gekk til liðs við Fjölni frá Haukum fyrir síðasta tímabil og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins frá fyrstu tíð. Hún hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn leik, hraða og góða skotnýtingu og skipað sér í mikilvægt hlutverk innan hópsins. Mikil ánægja ríkir hjá félaginu með að Hildur hafi ákveðið að halda áfram í Grafarvogi. Magnús Þór Arnarsson, fyrir hönd meistaraflokksráðs kvenna, segir að Hildur hafi sett mark sitt á liðið frá fyrsta degi. „Strax frá komu sinni setti Hildur mark sitt á leik liðsins. Það er mikil ánægja að hún hafi ákveðið að halda áfram með liðinu næstu tvö árin,“ segir Magnús. Hildur segist sjálf hlakka til áframhaldandi verkefna með liðinu. „Ég er spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að vaxa sem leikmaður og vera hluti af þessari frábæru liðsheild,“ segir hún. Framlenging Hildar er mikilvægt skref fyrir Fjölni sem vinnur nú að undirbúningi fyrir næsta tímabil og styrkingu leikmannahópsins. Félagið bindur vonir við að Hildur verði áfram stór hluti af uppbyggingu liðsins á komandi árum.

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/25/2026 9:16 PM Page 11

Ö l garðverk Öl kfæri kf

Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar

Frábært úrval

! f a t l l a i erð

ærum af garðverkfæ

v u ð ó g á ði

Gæ

Lavor háþrý ýstidælur

Colorex r málning og vi v ðarvörn Úrrva val af flísum

Vín ínyl- og ha arðparket

G Gott verð fyrir alla a, alltaf!

Sérfræðinga ar í múrefnum

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/29/2026 10:57 PM Page 12

12

GV

Fréttir frá Fjölni

Sigursælir flokkar í körfubolta hjá Fjölni á liðnu tímabili, 9. flokkur kvenna og 10. flokkur karla. Framtíðin er björt hjá Fjölni og sterkt starf í yngri flokkunum mun skila sér í framtíðinni.

Sannir meistarar

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

Halldór Boði Jónsson og Oliver Máni Bergdal Pálsson.

- sterkur árangur hjá yngri flokkum Fjölnis í körfubolta

Tveir leikmenn Fjölnis valdir í fyrsta æfingahóp U15 landsliðsins

Yngri flokkar körfuknattleiksdeildar Fjölnis náðu góðum árangri á nýafstöðnu tímabili en bæði 9. flokkur kvenna og 10. flokkur karla fögnuðu eftirminnilegum sigrum. Sameiginlegt lið Fjölnis og Skallagríms í 9. flokki kvenna tryggði sér sæti í 1. deild á næsta tímabili með sigri á Hamar/Þór í úrslitaleik um laust sæti. Liðið hafnaði efst í sínum riðli eftir sterkt tímabil. 1.flokkur karla varð einnig deildarmeistari eftir öruggan 95–53 sigur á Skallagrími í úrslitaleik 3. deildar. Liðið átti afar gott tímabil og tapaði aðeins einum leik. Árangurinn er enn ein staðfesting á því öfluga starfi sem unnið er í yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Fjölnis og gefur góð fyrirheit fyrir komandi ár.

Knattspyrnumennirnir Halldór Boði Jónsson og Oliver Máni Bergdal Pálsson úr Fjölni hafa verið valdir í fyrsta æfingahóp U15 landsliðs karla í knattspyrnu. Hópurinn var valinn af Ómari Inga Guðmundssyni landsliðsþjálfara og er skipaður leikmönnum fæddum árið 2012. Úrtaksæfingar fara fram dagana 25. og 26. júní á Avisvellinum í Laugardal. Valið kemur í kjölfar Hæfileikamóts KSÍ og N1 sem fram fór fyrr á árinu og markar upphaf landsliðsverkefna hjá þessum árgangi. Halldór Boði og Oliver Máni eru meðal þeirra leikmanna sem fengið hafa tækifæri til að sýna sig á fyrsta stigi landsliðsstarfsins og eru jafnframt fulltrúar Fjölnis í hópnum. Á undanförnum árum hafa fjölmargir leikmenn úr yngri flokkum Fjölnis fengið tækifæri í landsliðsverkefnum KSÍ og er val þeirra Halldórs og Olivers enn eitt dæmið um þann mannauð sem kemur upp úr starfi félagsins í Grafarvogi.

Kjartan Óli hársbreidd frá HM Kjartan Óli Bjarnason hefur verið að gera góða hluti að undanförnu í 400 metra hlaupi. 30. maí s.l. keppti hann a smáþjóðaleikunum í Mónakó og hljóp á 48.45 sekúndum en það er einnar sekúndu bæting frá hans besta árangri og lenti hann þar 4. sæti sem er mjög góður árangur. Þann 24. júní sl. keppti Kjartan Óli síðan í Osló á Boysen Memorial mótinu í Noregi og bætti sig aftur! Þá um 1.01 sekúndu og er því einungis 0,04 sekúndum frá því að komast á Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum undir 20 ára.

Kjartan Óli Bjarnason.

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/29/2026 10:57 PM Page 13

13

GV

Fréttir frá Fjölni

Halldór Karl áfram með meistaraflokk kvenna Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við Halldór Karl Þórsson sem þjálfara meistaraflokks kvenna fyrir komandi keppnistímabil. Halldór tók við liðinu fyrir síðasta tímabil og stýrði því alla leið í úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild. Liðið vakti athygli fyrir sterkan árangur og byggði að stórum hluta á uppöldum leikmönnum úr röðum félagsins. Að sögn Arnars, formanns körfuknattleiksdeildar Fjölnis, verður áfram lögð áhersla á að þróa þann leikmannahóp sem fyrir er. „Í fyrra voru 11 af 14 leikmönnum liðsins uppaldar og við ætlum að halda áfram að byggja á þeim grunni. Við höfum fulla trú á okkar leikmönnum í því verkefni að fara upp um deild. Halldór sýndi það í fyrra að hann er rétti maðurinn til að stýra þessu unga og efnilega liði áfram,“ segir Arnar. Halldór segist hlakka til að halda áfram með liðið á komandi tímabili. „Ég er mjög spenntur fyrir að taka einn vetur í viðbót með þessu skemmtilega liði. Við sýndum það í úrslitakeppninni að liðið er tilbúið í að stíga næsta skref og við stefnum enn hærra á næsta tímabili,“ segir Halldór. Með framlengingunni heldur Fjöl-

Spönginni Halldór Karl Þórsson verður áfram þjálfari kvennaliðs Fjölnis. nir áfram þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað undanfarin ár í kvennakörfuboltanum, þar sem áhersla hefur

verið lögð á að þróa unga og efnilega leikmenn úr eigin röðum félagsins.

GV Ritstjórn/Auglýsingar Sími 698-2844

Fjölnir vann til fjölda verðlauna á Reykjavíkurmóti TSÍ Keppendur tennisdeildar Fjölnis náðu frábærum árangri á Reykjavíkurmóti TSÍ 2026 og unnu til fjölda verðlauna bæði í einstaklings- og liðakeppni. Stærsti árangurinn kom í liðakeppni meistaraflokks þar sem Daniel Pozo og Eygló Dís Ármannsdóttir tryggðu Fjölni Reykjavíkurmeistaratitilinn. Sigurinn vakti sérstaka athygli þar sem þetta var í fyrsta sinn sem þau léku saman fyrir hönd félagsins í flokknum. Daniel bætti við sig Reykjavíkurmeistaratitli í einliðaleik karla eftir sigur í úrslitaleik, en Paula Marie Moreno Monsalve varð Reykjavíkurmeistari í einliðaleik kvenna. Fjölnir fagnaði einnig sigri í U18 liðakeppni þar sem Paula Marie Moreno Monsalve, Juan Pablo Moreno Monsalve og Bjartur Hálfdánsson skipuðu sigurliðið. Þá urðu Inga Eiríksdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Ása Björg Guðlaugsdóttir Reykjavíkurmeistarar í 30+ flokki. Auk þess hafnaði lið Fjölnis í öðru sæti í 40+ karla flokki. Árangurinn endurspeglar þá breidd sem hefur byggst upp innan tennisdeildar Fjölnis, þar sem leikmenn félagsins náðu góðum árangri í öllum aldursflokkum, frá yngri flokkum upp í meistaraflokk og öldungaflokka.

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/25/2026 9:18 PM Page 14

14

GV

Fréttir

Hin snyrtilegsta eign og mjög vel við haldið - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11

Eignin er staðsett í verslunar- og þjónustugötu, stutt frá nýju innkeyrslunni í bæinn á Akranesi.

VISSIR ÞÚ?

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST.

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir í einkasölu húseignina Smiðjuvellir 17 sem er stálgrindahús klætt með yleiningum. Heildarstærð hússins samkvæmt Þjóðskrá er 1724,1 fm. og skiptist á þrjú fastanúmer sem eru 229-7078 sem er 774,2 fm. 229-7079 sem er 112 fm og 229-7080 sem er 837,9 fm.

Eignin er öll hin snyrtilegasta og er vel viðhaldið.

Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki, eigandi 229-7079 rekur eigið fyrirtæki í sínum eignarhluta en leigusamningar eru við önnur fyrirtæki í húsinu.

Gólfefni eru flísar, parket og máluð gólf. Vandaður frágangur er á öllu húsinu.

Eignarhluti 229-7078 Sameiginlegur inngangur er í húsið frá bílastæði á neðri hæð er bílasala og veislueldhús á efrihæð er salur þar sem nú er æfingaaðstaða brasilískt jiu jitsu og jóga.

Lóð er 7.222,6 m² -og er sameiginleg leigulóð. Malbikað plan, hellulagðar gangstéttar. Eignin er staðsett í verslunar- og þjónustugötu, stutt frá nýju innkeyrslunni í bæinn á Akranesi. Hafið samband við Árna Þorsteinsson löggiltan fasteignasala á arni@fmg.is og í síma 898-3459 eða Sigrúnu Stellu Einarsdóttur löggiltan fasteignasala á stella@fmg.is og í síma 824-0610 til að bóka skoðun.

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

GV

Smiðjuvellir 17 er mjög snyrtileg eign.

Ritstjórn og auglýsingar 698-2844

Sigrún Stella EinarsÁrni Þorsteinsson Ólafur Kristjánsdóttir Löggiltur fastrekstrar-hagfræðingur. son löggiltur H^\g c HiZaaV eigna-, fyrirtækja- og M.Sc. löggiltur fasteigna- fasteigna- og skipaskipasali s. 8240610:^cVghY ii^g og skipasali og löggiltur sali s. 786-1414 A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459

He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

Ó K E Y P I S S Ö L U V E R Ð M AT

Seld GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU 121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.

H b^ *,* -*-*

SMIÐJUVELLIR AKRANESI Góð fjárfesting - alls 1724,1 fm. eign sem skiptist á þrjú fastanúmer, 774,2 fm.,112 fm og 837,9 fm. Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki.

FANNBORG BERGJA

-

3ja

HER-

Björt og falleg 87,6 fm 3. herbergja íbúð með stórum suður svölum á efstu hæð. Parket og flísar á gólfum og fallegar innréttingar. Útsýni.

FLÉTTURIMI - 3 HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU 95.6 fm þriggja herbergja íbúð auk stæði í lokuðu bílahúsi með bílarafmagni. Falleg íbúð með parketi og flísum á gólfum og ágætum innréttingum. Stórar svalir.

]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`

FORNIBÆR - 4HA JÖRÐ MEÐ HEILSÁRSHÚSI OG SKEMMU Jörðin er rétt fyrir utan Selfoss og liggur að sjó. Gott 78 fm heilsárshús og 160 fm skemma eru á jörðinni. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir í síma 892-8778 og á anna @fmg.is

lll#[b\#^h

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/29/2026 10:31 PM Page 15

15

GV

Fréttir

Öflugir samstarfsaðilar Hagkaup og Fjölnir skrifuðu undir samning til þriggja ára.

Skrifað undir samning Fjölnis og Sonik til loka árs 2028.

Fjölnir hefur á undanförnum vikum gengið frá þremur umfangsmiklum samstarfssamningum við fyrirtæki í atvinnulífinu sem ætlað er að styðja við áframhaldandi uppbyggingu félagsins á komandi árum. Um er að ræða samstarf við Hagkaup, Grant Thornton og Sonik, en samningarnir gilda allir til ársins 2028 eða lengur. Samningarnir ná til ólíkra þátta í starfsemi félagsins, allt frá barna- og unglingastarfi til viðburðahalds, tækniþjónustu og afreksstarfs. Hagkaup hefur gert þriggja ára samstarfssamning við knattspyrnudeild Fjölnis og verður meðal annars nafnaaðili Þorramóts félagsins fyrir 8. flokk, sem framvegis mun bera heitið Hagkaupsmótið. Grant Thornton hefur sömuleiðis samið við knattspyrnudeildina til þriggja ára og verður einn af aðalstyrktaraðilum deildarinnar á samningstímanum. Samstarfið er ætlað að styðja við áframhaldandi uppbyggingu barna-, unglinga- og meistaraflokksstarfs félagsins. Þá hafa Fjölnir og tæknifyrirtækið Sonik undirritað samstarfssamning til loka árs 2028. Sonik hefur um árabil komið að fjölmörgum viðburðum á veg-

Undirskrift fagnað við Grant Thornton til þriggja ára. um félagsins og mun áfram sinna verkefnum á sviði tækniþjónustu, viðburðalausna og stafrænnar miðlunar. Samningarnir eru hluti af þeirri vinnu sem hefur staðið yfir hjá félaginu að efla tekjugrunn og styrkja umgjörð íþrótta- og félagsstarfs í Grafarvogi. Fjölnir er eitt fjölmennasta íþróttafélag landsins með

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Eruhundarnir í alvörunni litblindir? Hundar eru ekki beint litblindir, hinsvegar sjá þeir heiminn öðruvísi en maðurinn. Hundar eru með takmarkað litaskyn en mannskepnan, við höfum þrjár megin gerðir af litakeilum í augunum, hundar hafa annars vegar bara tvær megin keilur. Þetta þýðir að fyrir hundi þá er heimurinn að mestu leyti blár, gulur, grár og svartur! Afhverju? Sjón hunda mótast af þróunarsögu þeirra sem rándýr, þeir eru með fleiri stafi og færri keilur. Þróunin fórnaði breiðu litasviði fyrir einstaklega öflugum skynfærum. Þetta gerir þeim kleift að sjá töluvert betur í myrkri og að greina örsmáar hreyfingar úr mikilli fjarlægð. Keilurnar tvær eru næmar fyrir bláum og gulum ljósbylgjum. Þar sem þá vantar rauðar og grænar keilur, þá virðist litir eins og rauður, appelsínugulur og grænn vera

dofnir eða renna saman í tóna af brúnu og gráu. Hvað get ég gert til að tryggja að hundurinn minn sjái leikföngin sín betur? Það sem þú getur gert er að kaupa leikföng sem eru gul eða blá, sérstaklega ef mikið er leikið úti í grasi. Þegar rauður eða appelsínugulur bolti lendir á grænu grasi þá er erfiðara fyrir hundinn að finna leikfangið. Það er samt ekki alslæmt! Hundar eru gáfaðri en við gefum okkur, og þegar þeir finna ekki leikfangið með augunum þá reynir það á lyktarskynið þeirra, sem er um 10.000x til 100.000x betra en hjá okkur! (fer eftir tegundum). Við hjá Dýrabæ erum meira en tilbúin að aðstoða þig að finna bestu leikföngin fyrir dýrið þitt, enda eiga dýrin alltaf það besta skilið!

þúsundir iðkenda í fjölmörgum greinum og skipta samstarfsaðilar lykilmáli í áframhaldandi þróun starfseminnar. Að sögn forsvarsmanna félagsins endurspegla nýju samningarnir traust atvinnulífsins á því starfi sem unnið er innan Fjölnis og munu þeir skapa aukið svigrúm til uppbyggingar á næstu árum.

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Uppl. í síma 698-2844

GV Ritstjórn og auglýsingar

Sími 698-2844

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6/25/2026 9:39 PM Page 16

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsblaðið 7. tbl. 2026 by Skrautás Ehf. - Issuu