Skip to main content

Grafarvogsblaðið 6. tbl. 2026

Page 1


Grafarvogsblaðið Grafarvogsblaðið

6. tbl. 37. árg. 2026 júní Ódýri ísinn

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477 www.bilavidgerdir.is - sjá bls. 9

Spöngin 11 112 Reykjavík Sími 575 8585

Þjónustuaðili

Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Katrín Magnúsdóttir, frambjóðandi Miðflokksins.

Grafarvogsblaðið

líklega

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: sk@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Netfang Grafarvogsblaðsins: sk@skrautas.is

Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - sk@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.

Breytingar og bein Jónasar

Það eru líklega breyttir tímar framundan í Reykjavík. Úrslit kosninganna 16. maí voru ótvíræð, íbúar í Reykjavík öskruðu á breytingar. Sjálfstæðisflokkurinn vann stóran sigur, Miðflokkurinn einnig en Samfylkingin tapaði miklu fylgi. Breytinga var krafist frá þeim stjórnarháttum sem verið hafa allsráðandi í Ráðhúsinu undanfarna áratugi.

Eftir kosningarnar áttu margir von á samstarfi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Margir Sjálfstæðismenn áttu síður von á því að Hildur Björnsdóttir myndi leita til Viðreisnar og Framsóknar en Miðflokks.

En af hverju valdi hún Viðreisn og Framsóknarflokkinn?

Við höfum öruggar heimildir fyrir því að framganga ákveðinna aðila í Miðflokknum undir lok kosningabaráttunnar hafi skapað mikla ólgu, heift og efasemdir innan Sjálfstæðisflokksins. Í okkar blöðum, Árbæjarblaðinu og Grafarvogsblaðinu, var frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Björn Gíslason, sakaður um mjög alvarlega hluti varðandi gatnamótin við Höfðabakka og Bæjarháls af frambjóðanda Miðflokksins, Katrínu Magnúsdóttur. Strax eftir kosningarnar kom í ljós að þessar ásakanir voru hreinar lygar og Katrín biður Björn afsökunar á þessum ósannindum í blöðunum í dag.

Að öðru. Frétt varðandi stórskáldið Jónas Hallgrímsson. Upp hafa komið efasemdir varðandi líkamsleifar hans og að bein hans sem hvíla á Þingvöllum séu ekki hans. Jónas lést af slysförum í Kaupmannahöfn um miðja nítjándu öldina, 1845 og hann var jarðsettur þar. Síðar var farið fram á að bein hans yrðu flutt til Íslands og var það gert og beinin jarðsett að Hrauni í Öxnadal, fæðingarstað skáldsins. Og enn eru framundan áform um að grafa bein Jónasar upp en nútíma tækni ræður yfir getu til að skera úr um hvers beinin eru og eyða öllum vafa. Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is

Nýtt upphaf í Reykjavík

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Nýr meirihluti hefur tekið við stjórn Reykjavíkur og með því hefst nýr kafli í sögu borgarinnar.

Í nýafstöðnum kosningum kölluðu Reykvíkingar eftir breytingum. Þeir kölluðu eftir aukinni þjónustu, ábyrgari rekstri og borgarstjórn sem hlustar betur á fólkið sem býr í borginni. Nú hefst sú vinna.

Það sást vel á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar þar sem lagður var grunnur að nýjum áherslum og nýrri stefnu fyrir borgina.

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur áherslu á að færa Reykjavík aftur nær sínum mikilvægustu verkefnum. Hlutverk borgarinnar er fyrst og fremst að tryggja öfluga grunnþjónustu, standa vörð um innviði og skapa umhverfi þar sem allar kynslóðir geta blómstrað. Á fyrsta fundi borgarstjórnar, 2. júní sl., voru tekin fyrstu skrefin í þá átt. Þar var meðal annars lagður grunnur að nýju leikskóla- og daggæsluráði, auk þess sem öldungaráð var endurvakið. Það eru mikilvæg skilaboð til eldra fólks í Reykjavík enda er það skoðun undir-ritaðs að eldra fólk eigi að hafa beina aðkomu að mótun þjónustunnar sem það nýtur.

Þá voru fyrstu skrefin tekin að hagræðingu og stjórnkerfisbreytingum í borgarkerfinu. Reykjavík á að vera þjón-

ustustofnun fyrir borgarbúa þar sem fjármunir eru nýttir í grunnþjónustu borgarinnar.

Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Samgöngumál eru einnig ofarlega á dagskrá. Við í Sjálfstæðisflokknum höfnum sérstakri gjaldtöku á umferð innan borgarmarkanna á núverandi gatnakerfi. Það er grundvallarmunur á slíkri gjaldtöku og einkaframkvæmdum, þar sem nýir innviðir eru byggðir og notendur hafa val um aðra gjaldfrjálsa leið, t.d.

eins og Hvalfjarðargöng.

Við teljum að borgarbúar eigi ekki að sæta gjaldtöku fyrir akstur um innviði sem þegar eru til staðar og hafa verið byggðir upp með skattfé. Borgarstjórn fól því borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, að hefja viðræður við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fjármögnun hans. Fram undan eru fjölmörg mikilvæg verkefni. Samstarf við atvinnulíf um fjölbreyttari lausnir í leikskóla- og daggæslumálum, lengri opnun sundlauga, sterkari innviðir og aukinn áhersla á það sem snertir daglegt líf fólks með beinum hætti.

Það skiptir máli að Reykjavík sé borg þar sem fólk finnur að hlutirnir virki. Borg þar sem þjónustan er aðgengileg, hverfin sterk og stjórnsýslan skilvirk.

Nýr meirihluti er ekki myndaður til að viðhalda sama ástandi heldur til að bæta það sem betur má fara og horfa fram á veginn með breytingar að leiðarljósi.

Ég hvet borgarbúa til að kynna sér verkefni nýs meirihluta á verkefnalisti.is og fylgjast með þeirri vegferð sem nú er hafin.

Það eru góðir tímar fram undan í Reykjavík.

Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

Björn

Sólskinsþorskur með mangósalsa og lime

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Litríkur og sumarlegur réttur sem er bæði léttur og bragðmikill — fullkominn fyrir gott sumarkvöld.

Rétturinn er fyrir 4

Þú þarft:

1 kg þorskhnakka.

2 msk. ólífuolía.

1 tsk. paprikukrydd.

2 hvítlauksgeira.

½ tsk. chiliflögur. salt og pipar.

1 lime.

Mangósalsa:

1 þroskað mangó.

½ rauð paprika.

½ rauðlaukur.

Handfylli af fersku kóríander eða steinselju.

Safi úr ½ lime.

Smá salt.

Meðlæti:

Hrísgrjón eða couscous.

Grænt salat.

Aðferð: Hitið ofninn í 200 gráður. Penslið þorskhnakkana með ólífuolíu og kryddið með papriku, chiliflögum, smátt söxuðum hvítlauk, salti og pipar. Setjið í eldfast mót og bakið í 12–15 mínútur.

Skerið mangó, papriku og rauðlauk í litla bita og blandið saman við lime-safa og ferskum kryddjurtum.

Kreistið lime yfir fiskinn áður en hann er borinn fram.

Kokkurinn Halli mælir: Mangósalsað gefur ferskt og suðrænt bragð sem passar einstaklega vel með íslenskum þorski.

Einnig hægt að bæta við grískri jógurt ef þú vilt létta mangó sósu í stað salsa.

„Léttur sumarmatur sem gleður alla við borðið.”

Verði ykkur að góðu! Halli hjá Aldan Fiskverslun

Spönginni Grafarvogi

Sólskinsþorskur með mangósalsa og lime er einstaklega góður réttur.

f l o G ð i

Ze og Maui Jim frá Þú finnur gott úrva k ó í f í verslunum Eyesla eal al af útivistargleraugu s u and. um

Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.

Besta ráðið í sumar:

Mjög sterkur grunnur til

njóta útivistar!

Sumarið kallar hátt á okkur. Löngu björtu kvöldin og smávegis lofthiti dregur okkur í útilegur, hlaup í fersku lofti, grill hittinga og alls konar ævintýri. Það er nákvæmlega þetta sem lífið snýst um! En áður en þú hendir ræktar skónum innst í skápinn og geymir þangað til í september, bið ég þig að staldra aðeins við.

Galdurinn við að njóta sumarsins í botn er nefnilega ekki að velja á milli þess að vera inni í sal eða úti í náttúrunni – heldur að láta þetta tvennt vinna saman.

Metó leggur grunninn fyrir sumarævintýrin

Hvers vegna æfum við hjá Metabolic Reykjavík? Við gerum það til að byggja

krökkunum eða hundinum. Ef við hættum alveg að mæta yfir sumarið gerist tvennt:

Metó, jafnvel þótt það sé sjaldnar en á veturna, heldurðu vöðvunum við, liðunum mjúkum og hjartanu sterku.

Við ætlum saman á fjöll í júní!

Við elskum útivist alveg jafn mikið og þú. Þess vegna ætlum við að nýta það sem við höfum verið að byggja upp í vetur og taka samfélagið með okkur út undir bert loft.

Metabolic er með virkan og skemmtilegan fjallgönguhóp í sumar og við erum með hvorki meira né minna en þrjár skipulagðar göngur á dagskrá núna í júní!

Þetta er fullkomið tækifæri til að:

● Prófa hvað Metabolic-formið er að gera fyrir þig úti á svæðinu.

● Hitta vinalega fólkið úr salnum í

upp líkama sem virkar. Við æfum fyrir lífið sjálft. Styrkurinn og úthaldið sem þú byggir upp í salnum mun nefnilega hjálpa þér upp brekkurnar í fjall-göngunni, halda bakinu góðu þegar þú sefur á dýnu í tjaldvagninum og gefur þér aukna orku í að hlaupa um með

1. Útivistin verður erfiðari og líkaminn stirðari.

2. Við mætum á algjörum núllpunkti í september og þurfum að eyða öllu haustinu í að vinna upp það sem tapaðist. Með því að halda reglunni og mæta í

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.

allt öðru umhverfi.

● Njóta náttúrunnar með frábærum hópi þar sem enginn er að flýta sér og allir eru á eigin forsendum.

Finndu ÞITT sumarjafnvægi Lykillinn er sveigjanleiki. Þú þarft ekki að mæta fimm sinnum í viku ef það passar ekki við sumaráætlunina þína. Mættu tvisvar eða þrisvar. Notaðu Metabolic sem akkeri til að viðhalda kraftinum, og notaðu svo dagana í hlaup, hjólreiðar, sund eða hvaðeina sem þér finnst skemmtilegast að brasa í sólinni.

Ekki setja heilsuna í sumarfrí. Nældu þér í sumar áskrift á frábæru tilboðsverði núna í júní, smelltu þér inn á heimasíðuna www.metabolicreykjavik.is

Hlökkum til að sjá þig í salnum – og á fjöllum í júní!

Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Nýr samningur Fjölnis við Olís

Fjölnishlaup Olís fór fram á Uppstigningardag í 38. sinn og tókst einstaklega vel til. Tæplega 400 þátttakendur tóku þátt í hlaupinu þar sem fólk á öllum aldri kom saman og skapaði frábæra stemningu í Grafarvogi.

Fjölnishlaupið er einn elsti og rótgrónasti viðburður Fjölnis og hefur verið fastur liður í starfi félagsins í áratugi.

Nýverið skrifuðu Fjölnir og Olís undir nýjan fjögurra ára samstarfssamning sem tryggir að hlaupið muni áfram bera nafnið Fjölnishlaup Olís á komandi árum. Hlaupið er afar mikilvægur viðburður fyrir bæði félagið og samfélagið í Grafarvogi og er áframhaldandi stuðningur Olís því gríðarlega dýrmætur fyrir áframhaldandi uppbyggingu og framkvæmd hlaupsins.

Þorgeir Orn, markaðsstjori Fjolnis og Þyri Drofn forstoðukona markaðsmala hja Olis, handsala samstarfið næstu 4 arin

Krumma í 40 ár

Krumma ehf var stofnað árið 1986 undir nafninu Barnasmiðjan ehf af hjónunum Elínu Ágústsdóttur, leikskólakennara / tækniteiknara og Hrafni Ingimundarsyni, vélfræðingi. Hjónin vildu sjá breytingu í vöruúrvali á leiktækjum og leikföngum á íslenskum markaði.

Fyrirtækið byrjaði í bílskúrnum hjá þeim hjónum þar sem þau bjuggu í Kópavogi. Í bílskúrnum smíðuðu þau leiktæki fyrir börn undir merkinu KRUMMA-GULL. Hrafn sá um hönnun leiktækjanna og bar leikgildi þeirra undir Elínu. Smíði leiktækjanna var í höndum þeirra beggja fyrstu fimm árin. Fyrsta leiktækið var tvöfalt vegasalt sem fór á leikskólann Marbakka í Kópavogi þar sem Elín starfaði sem leikskólakennari. Hún var ósátt við vegasöltin í leikskólanum og taldi þau hina verstu slysagildru. (mynd)

Það er hugsjón hjá þeim hjónum að framleiða góð leiktæki og að hafa í boði góð leikföng og kennslugögn fyrir börn. Það má segja að þau hafi unnið

ákveðið brautryðjandastarf í öryggi barna á leiksvæðum með sinni framleiðslu.

Fljótlega fluttu þau starfsemina úr bílskúrnum í 100 fermetra húsnæði á Kársnesbraut janúar 1983 sem síðan urðu 400 fermetrar. Þar framleiddu þau rennibrautir, rólur, kastala, klifurgrindur, sandkassa og ýmis önnur leiktæki.

Árið 1998 framleiddi KRUMMA 60 gerðir af leiktækjum Hjónin voru einu starfsmenn fyrirtækisins fyrstu tvö árin en nú eru starfsmenn að jafnaði um 25 og fleiri yfir sumartímann. Í tímans rás breyttist nafn fyrirtækisins

í KRUMMA ehf

Árið 1993 fluttu þau reksturinn í um 1000 fermetra húsnæði að Gylfaflöt 7 í Grafarvogi og opnuðu þá einnig leikfangaverslun sem sérhæfir sig í vönduðum og þroskandi leikföngum. Lögð er mikil áhersla á að leikföngin hjálpi börnum að læra samskipti og rökhugsun, örva ímyndunarafl og sköpunarkraft þeirra. Árið 1993 hlaut fyrirtækið, fyrst íslen-

skra fyrirtækja, viðurkenninguna „Öryggi barna á okkar ábyrgð“ fyrir markvissa stefnu í framleiðslu á leiktækjum. Meðal þeirra sem stóðu að viðurkenningunni eru Foreldrasamtökin, Landlæknisembættið, Slysavarnarfélag Íslands og Umferðarráð. Í lok ársins 2001 varð KRUMMA fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá vottun samkvæmt evrópska staðlinum EN 1176 um leikvallasvæði. Árið 2002 hlutu þau viðurkenninguna Bernskugull fyrir brautryðjendastarf í þágu bara veitt af Bernskunni - Íslandsdeild OMEP. Bernskugull er veitt einstaklingi, félagi eða stofnun sem gengið hefur fram fyrir skjöldu og stuðlað að með ýmsum hætti að andlegri og líkam-

legri velferð ungra barna. KRUMMA hefur verið í fararbroddi að bjóða hágæða tæki og búnað fyrir leik- og grunnskóla bæði innan- sem og utandyra. Einnig hefur KRUMMA framleitt og selt í almennigsgarða, þjóðgarða og opin leiksvæði. Af framleiðslunni má nefna hjólagrindur, hjólagrindarskýli, mörk, körfuboltakörfur, bekki og borð ásamt ýmsum gerðum af leiktækjum. Auk eigin framleiðslu eru í boði hágæða leiktæki, útihúsgögn og öryggisundirlög sem framleitt eru í Evrópu. KRUMMA setur börnin alltaf í fyrsta sæti og býður þeim ávallt gæðavörur. Mikil áhersla er lögð á opinn leik barna og margar kynslóðir leikskólakennara hafa notað einingakubbana (Unit Blocks) og holukubbana (Hollow Blocks) frá Community Playthings með góðum árangri. Plus-Plus kubbar, Kapla

kubbar, CollectA dýrin, Rubens Barn dúkkur og Brio lestir eru frábær dæmi um leikföng sem eru í boði. Allt leikföng og kennsluefni sem hvetja börnin til að læra og skapa. KRUMMA er að færa út kvíarnar og stækka á lykilsviðum sem skipta sköpum fyrir nám, framtíð og líðan barna. Krumma starfrækir einnig leikfangaverslun þar sem í boði eru gæðavörur, leikföng og námsgögn fyrir börn sem einnig eru notuð í leik- og grunnskólum. Lögð er mikil áhersla á að leikföngin hjálpi börnum að læra samskipti og rökhugsun, örva ímyndunarafl og sköpunarkraft þeirra. Sífellt er verið að bæta við vöruúrvalið og fyrir valinu eru vörur sem efla þroska og hvetja fjölskyldur til að verja meiri tíma saman. Árið 2024 tók Christy BookTsang við sem framkvæmdastjóri KRUMMA.

Hrafn Ingimundarson, Christy Book-Tsang og Elín Ágústsdóttir.
Hrafn Ingimundarson og Elín Ágústsdóttir, eigendur Krumma.
Frá opnun risakastala í Gufunesi.
Fyrsta leiktæki vegasalt. Elín Ágústsdóttir og Hrafn Ingimundarson þegar Krumma ævintýrið byrjaði.

Er stí昀að?

FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll

þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir

Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf.

Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Láttu okkur sjá um

húsfélagið!

2 s 800 erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He a@eignaumsjon.i t að senda póst á thjonust innig er hæg E linu. 4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r eynslu 5 ára þekkingu og r ið erum með 2 V eignaumsjonis Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f umsjon is eigna

Grillhorn Grafarvogsblaðsins í samstarfi

Nautalund De Luxe

NAUTALUND DE LUXE

Hún liggur undir rifjunum á nautinu og er álagið á vöðvanum frekar lítið og lundin því oft kölluð latasti vöðvi skepnunnar.

ELDUNARLEIÐBEININGAR

Hitið grillið mjög vel, lokið lundinni á háum hita í ca. 1-2 mínútur á hvorri hlið. Lækkið svo hitann á grillinu í ca. 100 gráður og klárið eldun í ca. 52 gráðum í kjarna. Látið steikina hvíla í 5 mínútur.

KRYDDSMJÖR

300 gr. mjúkt smjör. 10 gr. fersk steinselja, söxuð. 10 gr. ferskur graslaukur, saxaður. 20 gr. hvítlauksolía. 10 gr. hunang. ½ tsk. karrý. 5 gr. salt.

AÐFERÐ

Setjið smjörið í hrærivél og hrærið í ca. 2-3 mínútur, þangað til smjörið verður ljóst á litinn, setjið þá öll kryddin saman við og hrærið vel saman. Pakkið smjörinu inn í plastfilmu, rúllið upp og kælið.

Grilluð nautalund De Luxe frá Kjötkompaníinu er algjört salgæti.

Katrín dregur dylgjur um

Björn Gíslason

til

baka og biðst afsökunar

Katrín Magnúsdóttir, sem skipaði 8. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum, hefur beðist afsökunar á dylgjum um Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðis-flokksins sem birtust í þessu blaði í aðdraganda kosninganna.

Björn staðfestir jafnframt í samtali við blaðið að oddviti Miðflokksins í Reykjavík, Ari Edwald, hafi persónulega beðið hann afsökunar símleiðis vegna málsins. Að öðru leyti vildi Björn ekki tjá sig um málið.

fullyrt að Björn hefði samþykkt þrengingar við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls. Fullyrðingin var sett fram sem hluti af gagnrýni á skipulags- og samgöngumál borgarinnar.

Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Katrín Magnúsdóttir, frambjóðandi Miðflokksins.

Sagði Björn hafa stutt þrengingar Í grein sem birtist í Árbæjarblaðinu og Grafarvogsblaðinu var

Málið vakti athygli enda hefur Björn Gíslason borgarfulltrúi, sem þá sat í minnihluta, ítrekað gagnrýnt

þreng-ingar gatna og breytingar á umferð-arskipulagi í Árbæ og Höfðabakka á opinberum vettvangi. Viðurkennir misskilning og biðst velvirðingar

Katrín hefur nú birt afsökunarbeiðni þar sem hún viðurkennir að um misskilning hafi verið að ræða um hlutverk innkaupa- og framkvæmda-ráðs Reykjavíkurborgar.

„Í grein minni í Árbæjarblað-

inu/Grafarvogsblaðinu kom fram að Björn Gíslason hefði samþykkt þrengingar á Bæjarhálsi. Sú ályktun byggði á misskilningi um hlutverk innkaupa- og framkvæmdaráðs og bið ég Björn velvirðingar á því,“ skrifar Katrín á Facebook-síðu íbúa í Árbæ og Grafarvogs.

Þá liggur fyrir að innkaupa- og framkvæmdaráð fer með eftirlit með útboðs- og innkaupaferlum en tekur ekki pólitískar ákvarðanir um hvaða framkvæmdir ráðist er í hverju sinni.

Við styðjum handboltann í Fjölni

Handboltavetrinum lýkur

- vorpistill formanns

Þessari fyrirsögn má taka á tvo vegu. Í fyrsta lagi að nú er keppnistímabilinu sé formlega lokið og enn bjartari tímar gætu verið framundan hjá deildinni. Á aðalfundi félagsins var sama stjórn kjörin áfram, sem er gríðarlega mikils virði fyrir litla deild eins og okkar þar sem þekkingin helst innan hennar. Verkefni næsta vetrar verður að byggja starfið áfram upp innan frá. Barnaog unglingaráð er í öruggum rekstri og endaði síðasta almanaksár réttu megin við núllið — traustur grunnur til að byggja á. Fastur liður hjá Barnaog unglingaráði er Vorhátíðin, sem fór fram 18. maí síðastliðinn með pylsum, viðurkenningum og handboltaþrautum fyrir krakkana.

Meistaraflokkur karla féll út í umspili um sæti í efstu deild eftir vaska framgöngu gegn Stjörnunni, 1-2 í einvíginu. Liðið hafði þá einnig barist um sæti meðal fjögurra liða á lokahelgi bikarmótsins en tapaði fyrir ÍR í 8liða úrslitum. Á lokahófinu sem fram fór í maí var Aðalsteinn Örn valinn bestur, Heiðmar Björgvinsson valinn efnilegastur og Ólafur Malmquist besti liðsfélaginn. Þá var Óli Fannar Pedersen bestur í liði Vængja sem er venslalið félagsins. Stefnt er að því að efla umgjörð liðsins enn frekar næsta

vetur með tímabærri endurnýjun í hópi þeirra sem koma að starfinu. Meistaraflokkur kvenna átti einnig prýðilegt tímabil. Liðið endaði með 14 stig og 6 sigra sem er sami stigafjöldi og árið áður. Liðið féll út með minnsta mun í bikarnum gegn Víkingi í hörku leik. Nýr þjálfari var ráðinn á vordögum til að taka við af Gunnari Val og Stefáni sem stýrt hafa liðinu undanfarin ár. Eru þeim færðar sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf. Við liðinu tekur Þór Guðmundsson og bindur deildin miklar vonir við störf hans með liðinu næstu tímabil. Á lokahófi var Berglind Benediktsdóttir valin best og Sara Kristín Pedersen efnilegust og besti liðsfélaginn.

Þrír sjálfboðaliðar útnefndir af deildinni fengu Gullmerki á aðalfundi félagsins sem fram fór þriðjudaginn 28. apríl. Það voru þeir Róbert Línberg Runólfsson, Halldór Torfi Pedersen og Magnús Þór Arnarson sem hlutu þann heiður fyrir óeigingjarnt starf í þágu deildarinnar. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir þeirra framlag.

Með bestu Fjölniskveðju, Sveinn Þorgeirsson formaður handknattleiksdeildar Fjölnis

Fyrsta vetri Fjörfiskanna í Fjölni er að ljúka og óhætt að fullyrða að fjöldi barna og fullorðinna hafi notið góðs af. Verkefni hlaut upphaflega styrk frá Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar og síðar Lýðheilsusjóði. Þess vegna var hægt að bjóða upp á kostnaðarlausa þátttöku. Síðasti tíminn í vor er ráðgerður laugardaginn 30. maí nk. á hefðbundnum tíma frá kl. 9:30-11:00.

Með umsjón verkefnisins fara Sveinn Þorgeirsson og Anna Margrét Guðmundsdóttir, íþróttafræðingar. Í viðtali segja þau að „verkefnið hafi fengið að vaxa og þroskast mikið í vor. Mæting var með mesta móti og má segja að nokkrir tímar hafi verið uppseldir. Meginmarkmiðið, að búa til umhverfi fyrir ung börn og foreldra þeirrra til að eiga góða stund saman í leik sem er drifinn áfram af börnunum hafi tekist“. Einn liður í því var að biðja foreldra um að leggja símanum þegar inn í salinn var komið og einbeita sér að leiknum og fylgjast með því sem barnið tekur uppá. Það var ríkur skilningur á þessari beiðni og þau telja að það hafi átt sinn þátt í að búa til gott umhverfi. Við það sköpuðust einnig aðstæður fyrir foreldra og nágranna að spjalla saman. Þau vilja að lokum koma á framfæri þökkum til barnanna og forráðamanna sem tóku þátt og Hamraskóla fyrir að hýsa verkefnið.

Emil Orri Sveinsson klífur hestinn í Hamraskóla.

Tvö silfur til Fjölnis

Lokahelgi Íslandsmóts U14 í íshokkí fór fram nýlega þar sem lið Fjölnis, Björninn AAA og Ísbjörninn AA, luku keppnistímabilinu með glæsilegum árangri. Bæði lið enduðu mótið í 2. sæti og tryggðu sér silfurverðlaun eftir frammistöðu sem liðunum og íshokkídeild Fjölnis má vera afar stolt af.

Liðin hafa tekið miklum framförum yfir tímabilið og það hefur verið gaman að fylgjast með leikmönnum vaxa og dafna bæði sem einstaklingar og liðsheild. Í lokaumferðunum mættu þau sterkum andstæðingum og mörgum krefjandi leikjum, en sýndu á sama tíma mikla seiglu, baráttuanda og aukna færni þegar mest á reyndi. Árangurinn er frábær uppskera eftir veturinn og sýnir vel það öfluga starf sem unnið er innan íshokkídeildar Fjölnis.

N NGI I R H AR SÓL AN L AL M U N Ó J Þ Ð I V f t u | utfor@utfor.is | 551 1266 s. | Fossvogi | esturhlíð 2 V NN .isfor.

Svala Margrét fulltrúi Fjölnis valin í æfingahóp U15 landsliðs Íslands

Svala Margrét Jónsdóttir (2011) var valin í æfingahóp U15 landsliðs Íslands sem kom saman til æfinga dagana 21. og 22. apríl.

Valið er frábær viðurkenning á þeirri vinnu og framförum sem hún hefur sýnt á undanförnum misserum.

Svala er afar efnilegur markvörður sem hefur verið áður verið valin í verkefni af þessu tagi. Hún hefur staðið sig vel og sýnt fram á mikinn metnað.

Lokahóf í körfunni eftir mjög góðan vetur

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hélt lokahóf sitt á dögunum þar sem leikmenn, sjálfboðaliðar og aðrir sem lagt hafa sitt af mörkum til starfs deildarinnar voru heiðraðir fyrir veturinn. Á hófinu voru veitt verðlaun til leikmanna meistaraflokka karla og kvenna fyrir frammistöðu sína á tímabilinu 2025–2026. Katla Lind Guðjónsdóttir og Garðar Kjartan Norðfjörð hlutu viðurkenningu fyrir mestu framfarir, Aðalheiður María Davíðsdóttir og Guðlaugur Heiðar Davíðsson voru valin bestu varnarmenn tímabilsins og Leilani Kapinus, Sigvaldi Eggertsson og Vikar Máni Steffensen fengu verðlaun sem mikilvægustu leikmenn liðanna. Einnig voru fjölmargir sjálfboðaliðar heiðraðir fyrir mikilvægt framlag sitt til deildarinnar. Heimir, Alexíus og Jökull fengu sérstaka viðurkenningu fyrir störf sín við ritaraborð og dómgæslu á yngriflokkaleikjum í vetur. Þá voru Linda Bergdís, Soffía Auður, Ásgerður Sófusdóttir og Berglind Hreiðarsdóttir einnig heiðraðar fyrir fjölbreytt og mikilvægt starf í þágu félagsins.

Verðlaunahafar a lokahofi korfuknattleikdsdeildarinnarjpg

Þorgeir Orn, markaðsstjori Fjolnis og Valdis Maria, solustyra hja Olgerðinni, handsala nyjan samning.

Ölgerðin áfram í öflugu samstarfi við Fjölni

Fjölnir og Ölgerðin hafa endurnýjað samstarfssamning sinn og er um að ræða enn veglegri samning en áður, sem nær nú yfir fleiri deildir og viðburði innan félagsins.

Ölgerðin hefur um langt skeið verið einn helsti styrktaraðili Fjölnis og hefur samstarfið skipt miklu máli fyrir starfsemi félagsins. Vörur fyrirtækisins eru áberandi á leikdögum og viðburðum á vegum Fjölnis og gegna einnig mikilvægu hlutverki í sjoppusölu deildanna, sem er stór þáttur í fjáröflun félagsins. Þorgeir Örn Tryggvason, markaðsstjóri Fjölnis, segir ánægjulegt að samstarfið sé að stækka enn frekar og að nýi samningurinn muni styrkja starf deildanna og auka möguleika félagsins til áframhaldandi uppbyggingar. Þá segir Valdís María Einarsdóttir, sölustjóri á fyrirtækjasviði Ölgerðarinnar, að fyrirtækið sé stolt af því að efla samstarfið við Fjölni og styðja við öflugt starf félagsins.

Svala Margret var fulltrui Fjolnis i U15 landsliði kvenna.

Aðalfundur Fjölnis 2026: Jákvæð rekstrarstaða og heiðurs-

til sjálfboðaliða

Jarþrúður Hanna, formaður Fjölnis.

Aðalfundur Fjölnis fór fram í vor í

Miðjunni, félagsrými Fjölnis í Egilshöll.

Formaður aðalstjórnar, Jarþrúður Hanna, fór yfir það helsta í starfi félagsins á árinu

2025 og framkvæmdastjóri kynnti

ársreikning þess.

Annað árið í röð er hagnaður af rekstri og því óhætt að segja að bjartar horfur eru í fjármálum félagsins. Félagið í heild

skilaði 40,9 m.kr. rekstrarafgangi á árinu 2025 samanborið við 6,3 m.kr. afgang á árinu 2024. Árskýrslu félagsins má finna á heimasíðu Fjölnis.

Líkt og venjan er á aðalfundi félagsins voru veittar heiðursviður-kenningar fyrir

óeigingjarnt starf sjálfboðaliða fyrir félagið. Á hátíðinni voru veitt silfur- og gullmerki félagsins fyrir framúrskarandi

framlag til starfs Fjölnis í gegnum árin. Silfurmerki félagsins hlutu Sigurður

Einar Guðbrandsson úr knattspyrnudeild, Sigríður Sigurðardóttir og Alana Elín Steinarsdóttir úr tennisdeild, Kristín Fossdal og Hafdís Baldursdóttir úr íshokkídeild, ásamt Arnari B. Sigurðssyni úr körfuknattleiksdeild. Sjá má aðra silfurmerkishafa hér. Gullmerki félagsins hlutu Þorsteinn Yngvi Guðmundsson úr karatedeild, Róbert Línberg Runólfsson, Halldór Torfi Pedersen, Magnús Þór Arnarson og Sveinn Þorgeirsson úr handknattleiksdeild, Rakel Hákonardóttir úr listskautadeild, ásamt Gunnari Jónatanssyni og Boga Nils Bogasyni úr aðalstjórn félagsins.

Handknattleiksdeild Fjölnis hélt nýverið lokahóf sitt, þar sem leikmenn, þjálfarar og stuðningsfólk komu saman til að fagna vel heppnuðu tímabili. Stemningin var frábær og gleðin rík, enda margt til að minnast eftir veturinn.

Á hófinu voru veittar viðurkenningar til leikmanna sem sköruðu fram úr á tímabilinu:

• Besti leikmaður karla: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson.

• Besti leikmaður kvenna: Berglind Benediktsdóttir.

• Besti leikmaður Vængja: Óli Fannar Pedersen.

• Efnilegasti leikmaður karla: Heiðmar Björgvinsson.

• Efnilegasti leikmaður kvenna: Sara Kristín Pedersen. • Besti liðsfélagi kvenna: Sara

Kristín Pedersen.

• Besti liðsfélagi karla: Ólafur Malmquist.

Spönginni

Fasteignamiðlun Grafarvogs 23 ára

Að verða 23 ára er frábært þegar maður er ung manneskja, þvílíkur aldur! Lífið rétt að byrja þótt um fullorðinn einstakling sé að ræða og fyrir marga á þessum aldri er lífið bara spennandi áskorun.

Fyrirtæki fagna þessum aldri með öðrum hætti, það er ekki lengur ungt að finna sig á markaði heldur orðið fullorðið og finnur fyrir sjálfstrausti. Það eru mörg ár með sigrum og ósigrum að baki og reynsla komin. Við hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs fögnum á þessu ári, okkar 23 ára afmæli.

Fyrirtækið hóf starfsemi sína árið 2003 og var Sverrir Kristjánsson fasteignasali kenndur við Fasteignamiðlun stofnandi hennar. Árið 2007 keypti Sigrún Stella Einarsdóttir reksturinn af Sverri og hélt honum áfram í óbreyttri mynd. Var skrifstofan þá í Spönginni 37 á annari hæð en árið 2014 flutti starfemin á 1.hæð í Spönginni 11 við hliðina á Bónus og þar erum við enn. Árið 2018 hóf Árni Þorsteinsson fasteignasali og rekstrarhagfæðingur störf hjá okkur og fljótlega keypti hann sig inn í reksturinn og eru Árni og Sigrún Stella eigendur að jöfnu. Á þessum 23 árum höfum við séð

Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali s. 8240610

Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906

Árni Þorsteinsson rekstrar-hagfræðingur. M.Sc. löggiltur fasteignaog skipasali og löggiltur leigumiðlari s. 898 3459

Grafavoginn vaxa og dafna og eins er gaman að hafa fylgt Spönginni verslunarmiðstöð að allan þennan tíma og séð margar góðar breytingar orðið þar. Þetta er mjög öflug verslunarmiðstöð með fjölbreytta þjónustu fyrir þetta stóra hverfi í Reykjavík.

Við höfum eins og nafnið gefur til kynna lagt áherslu á að vera hverfis fasteignasala og hefur þeirri viðleitni verið mjög vel tekið af Grafarvogsbúum í gegnum þessi 23 ár og erum við afar þakklát fyrir það. Nú er bara að halda áfram að eldast og dafna.

Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteignasali hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs.

Árni Þorsteinsson löggiltur fasteignasali hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs.

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs.

Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteignasali hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs.

Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteigna- og skipasali s. 786-1414

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.

Spöngin 11 - 112 Reykjavík Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst

ÓKEYPIS SÖLUVERÐMAT

SMIÐJUVELLIR AKRANESI

Góð fjárfesting - alls 1724,1 fm. eign sem skiptist á þrjú fastanúmer, 774,2 fm.,112 fm og 837,9 fm. Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki.

BERJARIMI 3ja HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

96 fm 3.herbergja íbúð á 2.hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar. Vestur svalir.

FLÉTTURIMI - 3 HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

95.6 fm þriggja herbergja íbúð auk stæði í lokuðu bílahúsi með bílarafmagni. Falleg íbúð með parketi og flísum á gólfum og ágætum innréttingum. Stórar svalir.

FORNIBÆR - 4HA JÖRÐ MEÐ HEILSÁRSHÚSI OG SKEMMU

Jörðin er rétt fyrir utan Selfoss og liggur að sjó. Gott 78 fm heilsárshús og 160 fm skemma eru á jörðinni. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir í síma 892-8778 og á anna @fmg.is

Fasteignamiðlun Grafarvogs er í Spönginni 11 við hliðina á Bónus.

Kiwanisklúbburinn Höfði í Grafarvogi fagnar 35 ára afmæli

Kiwanisklúbburinn Höfði í Grafarvogi heldur um þessar mundir upp á 35 ára afmæli sitt. Klúbburinn var stofnaður árið 1990 og hefur alla tíð verið virkur þátttakandi í samfélagsþjónustu í Grafarvogi, þar sem áhersla hefur verið lögð á vináttu, mannúð og öfluga þjónustu.

Kiwanis hugsjónin byggir á vináttu og samtakamætti með það að markmiði að láta gott af sér leiða. Undir merkjum hennar starfa hundruð þúsunda manna og kvenna um allan heim og þar á meðal félagar í Kiwanisklúbbnum Höfða. Saga klúbbsins endurspeglar skýrt þessi gildi, bæði í innra starfi og í stuðningi við nærsamfélagið, enn kjörorð klúbbsins er „BÖRNIN FYRST OG FREMST - Ræktarsemi og vinátta“.

Tilkynning um stofnun Kiwanisklúbbs í Grafarvogi var send út 17. apríl 1990 og fékk klúbburinn nafnið Höfði, dregið af Gufuneshöfða. Klúbburinn var formlega vígður 20.

október sama ár og hófu þá 26 Grafarvogsbúar störf innan hans. Í dag eru 20 virkir félagar í klúbbnum, þar af sjö stofnfélagar. Alls hafa um eða yfir 73 einstaklingar tekið þátt í starfi klúbbsins frá upphafi og er áhugasömum ávallt velkomið að kynna sér störf klúbbsins, eða endurvekja áhuga sinn og ganga til liðs við Höfða.

Í gegnum árin hefur Kiwanisklúbburinn Höfði byggt upp sterka hefð fyrir samfélagsþjónustu og samveru. Félagar hafa lagt sig fram við að styðja góð málefni, skapa jákvæð áhrif í nærumhverfinu og efla samstöðu í hverfinu. Sameiginlegt átak hefur skilað áþreifanlegum árangri, enda á orðatiltækið „margt smátt gerir eitt stórt“ vel við starf klúbbsins. Aðspurðir um hvað Kiwanis standi fyrir svara félagar einróma: Höfði.

Fjáraflanir klúbbsins hafa tekið breytingum í gegnum tíðina. Á fyrstu árum var meðal annars safnað með blómasölu, áburðardreifingu,

sölu á reyktum og gröfnum laxi með heimsóknum og banka uppá hjá nágrönnum og nærumhverfi. Í dag er helsta fjáröflunarverkefnið „Maður á mann“, þriggja daga verkefni þar sem fjár er aflað í styrktarsjóð klúbbsins í anda gagnkvæms þakklætis.

Fyrsta styrktarverkefni Kiwanisklúbbsins Höfða var til barnastarfs Grafarvogskirkju, þar sem klúbburinn gaf sýningartjald og sýningarvél. Jafnframt hefur klúbburinn um árabil stutt fjölskyldur fyrir jólin, upphaflega með matarkörfum en í dag með gjafakortum frá Bónus og Krónunni í samvinnu við kirkjuna. Fjöldi annarra verkefna hefur einnig notið stuðnings og er áætlað að um eða yfir 165 milljónir króna á núvirði hafi verið úthlutað úr Styrktarsjóði klúbbsins frá stofnun.

Í tilefni af þessum tímamótum sendir Höfðafjölskyldan Grafarvogsbúum og landsmönnum öllum hlýjar kveðjur, með ósk um velfarnað, friðar og farsæla framtíð.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar

Ferðalag innanlands með hundinn,

en kötturinn passar heimilið

Ferðalög innanlands geta verið skemmtileg fyrir alla fjölskylduna og líka gæludýrin, ef það er vel undirbúið. Hundar geta oft komið með í ferðalagið, en kettir eru yfirleitt öruggari heima í sínu umhverfi.

Hér eru helstu atriði sem gott er að hafa í huga.

Hundur með í ferðalagið Þegar hundurinn fer með skiptir öryggi, þægindi og rútína mestu máli. Hafðu hundinn öruggan í bílnum, stoppaðu reglulega fyrir vatn og hreyfingu og taktu með það sem hann þekkir best.

Forðastu að skilja hundinn eftir einann í heitum bíl.

Þegar kötturinn passar heimilið. Flestum köttum líður best heima. Undirbúðu heimilið vel, hafðu nóg af mat og vatni og tryggðu að sá sem passar köttinn hafi skyrar leiðbeiningar.

Gott er að skilja líka eftir símanúmer og upplýsingar um dýralækni ef eitthvað kemur uppá.

Góður undirbúningur gerir ferðalagið og dvölina heima þægilegri, öruggari og skemmtilegri fyrir alla.

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsblaðið 6. tbl. 2026 by Skrautás Ehf. - Issuu