

![]()


5. tbl. 37. árg. 2026 maí

























Spöngin 11 112 Reykjavík Sími 575 8585




Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
Þjónustuaðili













- viðtal við Einar Þorsteinsson fyrrum borgarstjóra og oddvita
Framsóknar í Reykjavík, hverfin og það sem skiptir máli
Þegar þú tókst við sem borgarstjóri fórstu strax að hitta íbúa í hverfunum. Hvað sat helst eftir úr fundinum í Grafarvogi?
Það sem situr eftir hjá mér er ekki bara það sem var sagt heldur hvernig það var sagt. Ég fann fyrir stolti yfir hverfinu, en líka ákveðinni þreytu. Fólk vill halda í það sem gerir Grafarvog sérstakan, en það vill líka sjá að ákveðnir hlutir lagist.
Ég bý sjálfur í úthverfi og þekki þetta vel. Þetta snýst ekki um stórar yfirlýsingar heldur snýst þetta um daglegt líf. Að koma heim úr vinnu, versla, sækja börn úr dagvistun, skóla, frístund eða af æfingum. Ef þetta flæðir ekki, þá finnur maður fyrir því strax.
Hvað var það sem íbúar lögðu mesta áherslu á?
Samgöngur komu mjög sterkt inn. Fólk talaði um tafir á leiðinni heim, um gatnamót sem teppa umferð og um tengingar sem einfaldlega virka ekki nógu vel. Ég heyrði sérstaklega talað um Gufunes, þar sem íbúar hafa ítrekað bent á vandamál án þess að sjá raunverulegar úrbætur. Það er til dæmis að mínu mati alveg glórulaust að tryggja ekki stóru nýju hverfi eins og Gufunesinu strax tengingu við almenningssamgöngur.
Þetta eru hlutir sem fólk upplifir á hverjum degi og það er ekkert flókið við þetta: fólk vill einfaldlega komast heim til sín án þess að eyða óþarflega miklum tíma í bíl.
Þú hefur líka talað um þróun hverfanna. Hvernig sérðu Grafarvog
þróast?
Mér finnst mjög mikilvægt að segja það skýrt: Grafarvogur á ekki að vera fórnarlamb þéttingar sem tekur ekki mið af vilja íbúa. Þetta er hverfi sem byggir á ákveðnum lífsgæðum – rými, nálægð við náttúru og fjölskylduvænu umhverfi.
Ég finn að það er ótti hjá fólki um að farið verði of hratt og of langt í þéttingu, til dæmis í kringum Spöngina og á svæðum sem í dag þjóna hverfinu vel. Við þurfum að vanda okkur. Uppbygging á að styrkja hverfið ekki veikja það. Við tókum þetta strax til okkar og gott dæmi um þa var þegar farið var af stað með ákveðnar þéttingarhugmyndir þá var íbúum hleypt mun fyrr að í ferlinu, eða strax á hugmyndastigi. Íbúarnir voru hvattir til að kynna sér málið vel og segja sína skoðun. Við hlustuðum og tókum við athugasemdum, og var beðið eftir endurskoðun hugmyndanna til samæmis við vilja íbúa þegar nýr meirihluti tók við. Hvað með þjónustu í hverfinu?
Það er eitthvað sem ég tengi mjög sterkt við. Þegar maður býr í úthverfi skiptir miklu máli að geta sinnt daglegum erindum nálægt heimili. Fólk talaði um Spöngina að þar þurfi að gera meira, gera svæðið fallegra og líflegra. Sama á við um svæðið á bak við verslunarmiðstöðina við Logafold. Það svæði mætti glæða lífi og það má vel sjá það fyrir sér sem öflugan samkomustað fyrir hverfisbúa t.d. leiksvæði fyrir yngstu börnin, tónlist úr tónlistaskólanum og margt fleira skemmtilegt . Þetta eru ekki stórar hugmyndir –þetta eru einfaldar umbætur sem bæta
daglegt líf sem ætti að vera hægt að ráðast hratt og örugglega í.
Náttúran er líka stór hluti af aðdráttarafli Grafarvogs. Algjörlega. Í samtölum mínum við Grafarvogsbúa hefur það komið mjög skýrt fram hvað svæði eins og Gufunes og strandlengjan skipta miklu máli fyrir fólk. Þetta eru staðir sem fólk notar daglega til göngu, hreyfingar eða bara til að anda. Svo var stigið mikilvægt skref á dögunum þegar Grafarvogurinn var friðaður og það studdum við í Framsókn eindregið.
Við verðum að passa upp á þetta. Þegar stórar ákvarðanir eru teknar, til dæmis um samgöngur eða uppbyggingu, má þetta ekki gleymast. Íþróttalífið í Grafarvogi er sterkt. Hvernig horfir þú á það? Það er einn af hornsteinum hverfisins. Fjölnir skiptir gríðarlega miklu máli. Ekki bara fyrir þá sem eru í íþróttum hverju sinni heldur fyrir samfélagið allt. Börn og ungmenni alast upp í þessu umhverfi, eignast vini og læra aga og samvinnu.
Við eigum að styðja betur við Fjölni og tryggja að félagið hafi aðstöðu og umgjörð sem passar við það hlutverk sem það gegnir. Það þarf að bæta aðstæður í Dalhúsum og hefja það samtal við Fjölni strax eftir kosningar.
Þetta er fjárfesting í samfélaginu, ekki bara íþróttum.
Talandi um fjárfestingu og fjármál borgarinnar. Þú varst kallaður þrotabússtjórinn þegar þú tókst við?



Haha já það er hárrétt. Ég tók við afleitu búi Samfylkingarinnar – 16 milljarða halla. Og það var augljóst að rekstur borgarinnar var ekki nægilega agaður, fókusinn fór oft í stór og dýr verkefni á meðan hlutir sem skipta fólk mestu máli sátu á hakanum. Á 18 mánuðum sneri ég þessu við. Það var oft ekkert auðvelt, en þetta snýst um pólitíska stefnu og aga. Okkur tókst að skila borgarsjóði í 5 milljarða afgangi. Það er gríðarlegt afrek þótt ég segi sjálfur frá og að sjá nýjustu fréttir af því hvernig vinstri meirihlutanum undir stjórn Samfylkingar tókst að taka 10 milljarða niðursveiflu eru ofsaleg vonbrigði.
En áfram gakk. Við verðum að færa fjármagnið úr gæluverkefnum og aftur út í hverfin. Fyrst þarf að tryggja að grunnurinn sé í lagi; viðhald gatna og gangstétta, samgöngur sem virka, skólar og þjónusta í hverfunum. Það er
það sem fólk finnur fyrir á hverjum degi. Fólk sem ég talaði við í Grafarvogi var ekki að biðja um eitthvað flókið. Það var að biðja um að borgin virki betur. Það krefst skýrari forgangsröðunar og meiri ábyrgðar í rekstri. Ég tel að það sé hægt. Við sýndum að það er hægt. En þá þarf að hafa kjark til að forgangsraða og halda sig við það. Ef þú dregur þetta saman – hvað situr eftir?
Að fólk vill einfaldlega sjá að hlutirnir gerist. Að það sé hlustað en líka að það sé brugðist við. Fyrir mig er þetta mjög skýrt. Ég vil leggja áherslu á hverfin, bæta það sem skiptir máli í daglegu lífi og gera það með skynsemi og ábyrgð. Grafarvogur er frábært hverfi. Verkefnið er að passa upp á sérstöðu þess og gera hverfið enn betra.

















skilað rams B F gars ði bor BORG sókn sner sjóði með ekst ri við r








ða 5 milljar trinum í bo gangi a af ginni og or .






- segir Ari Edwald, borgarstjóraefni Miðflokksins
Árlegur skattur vegna borgarlínu gæti numið um hálfri milljón króna á fjölskyldu í Grafarvogi, segir Ari Edwald, efsti maður á lista Miðflokksins, í samtali við Grafarvogsblaðið um málefni hverfisins.
Ari bjó sjálfur í Grafarvogi á annan áratug og þekkir því vel til hverfisins. Skömmu eftir kosningar mun hann flytja í Seljahverfi þar sem hann hefur fest kaup á húsi ásamt unnustu sinni, Ingibjörgu Davíðsdóttur alþingismanni.
Ari telur að Grafarvogur og önnur eystri hverfi borgarinnar séu vanrækt og jafnvel gleymd hverfi hjá borgarstjórn. ,,Þetta komi fram með ýmsum hætti, t.d. varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja, sem gekk afar seinlega fyrir sig. Samgöngumálin hafa einnig verið vanrækt og það kemur hvað eftir annað í ljós að vinstri meirihlutinn hefur engan metnað gagnvart úthverfunum og lítur frekar á þau eins og einhver olnbogabörn í borginni. Á þessu kjörtímabili vaknaði vinstri meirihlutinn loks af Þyrnirósarsvefni sínum varðandi Grafarvoginn en það
kom ekki til af góðu. Vinstri flokkarnir fengu nefnilega þá grillu að það væri sniðugt að nota hverfið sem vettvang fyrir ofurþéttingaráform sín. Þessi áform þrengja mjög að grónum hverfum og grænum svæðum. Miðflokkurinn vill að borgin falli skilyrðislaust frá öllum þéttingaráformum vinstri meirihlutans í Grafarvogi og vill tryggja að fullt samráð verði haft við íbúa hverfisins í framtíðinni vegna breytinga á skipulagi,“ segir Ari. Ari er einnig andvígur ofurþéttingaráformum vinstri meirihlutans í Keldnalandi og segir fyrirhugað skipulag þar algerlega óraunhæft. ,,Þarna stefna vinstri flokkarnir að mjög þéttri byggð, sem mun hafa neikvæð áhrif á önnur hverfi Grafarvogs og þá einkum Foldahverfi og Húsahverfi. Í drögum að samgönguskipulagi Keldnalands er aðeins gert ráð fyrir rúmlega tvö þúsund bílastæðum í 12 þúsund manna hverfi. Reiknað er með að í Keldnalandi verði 5,4 íbúar á hvern fólksbíl en á landsvísu eru 1,6 íbúar á hvern bíl. Þetta eru vægast sagt galin áform hjá
vinstri flokkunum, sem valda munu miklum vandræðum verði þau að veruleika.
Miðflokkurinn vill hverfa frá þessum áformum um ofurþéttingu í Keldnalandi en skipuleggja hóflega uppbyggingu þar í samræmi við fyrri byggð í Grafarvogi, sem hefur reynst mjög vel.“
Hinn 6. maí sl. samþykkti meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs tillögu um breytingu á deiliskipulagi vegna nýrra lóða fyrir fjölbýlishús við Starengi og Hverafold. Ari segir að þetta sýni að vinstri flokkunum sé full alvara með að fylgja eftir áformum sínum um ofurþéttingu í Grafarvogi.
Borgarlínuskatt? – Nei takk!
Ari segir mikilvægt að frambjóðendur til borgarstjórnar hafi skýra stefnu í helstu málaflokkum svo að kjósendur viti fyrir hvað þeir standi. Samgöngumálin séu dæmi um þetta en þar tali Miðflokkurinn skýrum rómi. ,,Við tökum eindregna afstöðu gegn svokallaðri borgarlínu, ekki síst vegna þeirrar

miklu viðbótarskattheimtu sem hún myndi hafa í för með sér. Ólíklegt er að kostnaður við borgarlínu verði undir 200 milljörðum króna. Fjármagna á verkefnið með nýjum skatti, sem myndi leggjast þyngst á íbúa Grafarvogs og annarra eystri hverfa borgarinnar. Kostnaður fjölskyldu í Grafarvogi vegna skattsins gæti numið um hálfri milljón króna á ári miðað við kynntar forsendur. Þessi skattur yrði því margfalt hærri en kílómetragjaldið, sem ríkið hóf að innheimta um sl. áramót.

Miðflokkurinn vill hlífa Reykvíkingum við þessum borgarlínuskatti og talar því skýrt gegn borgarlínu. Stefna miðflokksins er að bæta strætó; leiðarkerfið, vagnana og biðstöðvarnar, auka tíðni, nýta snjallljósastýringu og fjölga forgangsakreinum hægra megin við umferð. Þessi leið er mun ódýrari en Borgarlína og hefur ekki sama rask í för með sér.“
Heimgreiðslur og samræmd próf Miðflokkurinn vill afnema svokölluð vaxtarmörk og auka lóðaframboð í borginni. Einnig vill hann draga úr margvíslegri gjaldheimtu á íbúðakaupendur og stuðla þannig að því sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Þéttingarstefnan hefur eins og umferðartafir kostað borgarbúa gríðarlegar fjárhæðir. Þá leggur flokkurinn áherslu á dagvistarmál og vill m.a. semja um rekstur vinnustaðatengdra leikskóla og taka upp heimgreiðslur fyrir foreldra, sem hafa ekki fengið leikskólarými fyrir börn sín við tólf mánaða aldur. Áhersla verði einnig lögð á að efla grunnskólann, t.d. með því að bæta starfsaðstæður kennara svo þeir geti einbeitt sér að kennslu. Þá verði samræmd próf tekin upp við lok grunnskólagöngu og einkunnir gefnar í tölustöfum.
Málefni Grafarvogs í forgang Ari segir að of lengi hafi málefni Grafarvogs og annarra eystri hverfa verið vanrækt en Miðflokkurinn vilji breyta því. ,,Vinstri meirihlutinn gekk t.d. gegn eindregnum óskum Grafarvogsbúa varðandi mörk vegna friðlýsingar í Grafarvogi og hafði þau of þröng. Við teljum að vilji Grafarvogsbúa eigi að ráða í þessum efnum.
Auka þarf umferðarflæði og umferðaröryggi í Grafarvogi, t.d. á Strandvegi og Víkurvegi. Þá þarf að bæta tengingar Gufuneshverfis við önnur hverfi Grafarvogs og fjölga bílastæðum þar. Bæta þarf aðstæður til íþróttaiðkunar í Grafarvogi og það er forgangsmál að leggja fullgildan knattspyrnuvöll með áhorfendaaðstöðu við Egilshöll í þágu Fjölnis,“ segir Ari að lokum.

- eftir Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar í Reykjavík
Ég fór í pólitík út af mygluðum leikskóla. Reyndar er sagan flóknari. Eftir að ég eignaðist barn áttaði ég mig fá því á hversu vondum stað leikskólar í Reykjavík eru. Við fjölskyldan byrjuðum á því að bíða í 33 mánuði eftir plássi í hverfinu. Mánuði eftir að drengurinn var kominn í hverfisleikskólann var okkur foreldrum tilkynnt að sú skólabygging væri nánast ónýt og að þessi 60 barna leikskóli yrði því fluttur í þarnæsta hverfi. Slatti af starfsfólkinu fylgdi ekki með. Eftir örfáa mánuði á nýja staðnum var okkur svo tillkynnt að sú bygging væri á niðurrifsáætlun borgarinnar. Niðurstaðan: næstum því þrjú ár í biðröð eftir leikskólaplássi og á einu ári mun strákurinn minn hafa verið í þremur leikskólabyggingum, tvær þeirra vel myglaðar og að hruni komnar.
Þessi staða er ekki bundin við hverfið mitt í 108. Þetta er staðan úti um alla borg. Innviðir eru í molum, borgin hefur ekki sinnt viðhaldi og grundvallaratriðum. Á sama tíma og við fjölskyldan höfum verið í þessari stöðu stæra borgaryfirvöld sig af því að inntökualdur á leikskóla sé að færast niður í borginni og að vel gangi að ná tökum á vandanum. Það er einfaldlega ekki rétt og hljómar meira eins og gaslýsing en sannleikur. Samfylkingin hefur meira og minna haldið á þessum málaflokki síðustu þrjú kjörtímabil og siglt honum í strandsem og öðru.
Hvert í ósköpunum hafa peningarnir farið? Reykjavíkurborg fjárfestir að jafnaði fyrir 20 milljarða á ári. Þetta hljómar sem há tala en þegar horft er á ástand innviða í hverfum borgarinnar flækjast málin. Hvert í ósköpunum hafa þessir peningar farið miðað við ástandið á húsum, mygluna, brotnar gangstéttir og þar fram eftir götunum? Að okkar mati hafa of mörg hégómaverkefni fengið framgöngu, eitthvað sem er næs en ekki nauðsynlegt. Þegar kemur að því að forgangsraða peningum í fjárfestingar munum við horfa á hverfin í heild og forgangsraða í þágu barna í borginni. Ef borg er góð fyrir börn, er hún góð fyrir öll.
Reykjavíkurborg hefur um 200 milljarða króna í tekjur á ári þegar allt er talið: útsvarið, tekjur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, arðgreiðslur og einskiptistekjur. 200 milljarðar króna er auðvitað svimandi há fjárhæð samanborið við heimilisbókhaldið en megnið af peningunum fer strax aftur í rekstur á nauðsynlegum verkefnum á borð við leik- og grunnskóla, velferðarþjónustu, sorphirðu og þjónustu við fatlað fólk.
Mestmegnis eru þetta verkefni sem Reykjavík ber samkvæmt lögum að sinna.
Á sama tíma fer of mikið fjármagn í löng og yfirmannafrek skipurit og flækjur innan borgarkerfisins. Við í Viðreisn ætlum að forgangsraða fjármunum borgarinnar með öðrum hætti: við ætlum að setja minni pening í kerfið og meiri pening í fólkið. Markmið okkar er skýrt: Reykjavíkurborg á að njóta stærðarhagkvæmni sem langstærsta sveitarfélagið þegar kemur að rekstri á þjónustu við íbúa. Staðan er einfaldlega ekki þannig í dag.
Við viljum að þessir 200 milljarðar sem borgin fær í tekjur á ári hverju skili sér með sem skilvirkustum hætti aftur út í hverfi borgarinnar - að þeir fari í grunnþjónustu við borgarbúa. Við erum að tala um sundlaugarnar, leikskólana, grunnskólana, velferðina og það að halda borginni okkar hreinni og fínni. Við erum líka að tala um eignir Reykjavíkurborgar.
Eignasjóður borgarinnar er eitt stærsta fasteignafélag landsins og þar leynast mörg af djásnum Reykjavíkur; söfn, skólabyggingar og íþróttamannvirki. Borgin hefur markvisst sleppt því að halda byggingum sínum við og eytt peningunum í annað. Það er því
ljóst að innviðaskuld fjölmargra mannvirkja borgarinnar hleypur á tugum milljarða. Viðreisn ætlar að setja stjórn yfir fasteignir borgarinnar þannig að ljóst sé hvar ábyrgðin liggur. Í framkvæmdum borgarinnar, sem einkum eru á vegum Eignasjóðs, viljum við að gagnsæi ríki með mælaborði framkvæmda.
Við bjóðum okkur fram til þess að taka ábyrgð 13 prósent landsmanna treysta borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta vantraust þarf ekki að koma á óvart þegar litið er til Braggans, Brákarborgar og Græna gímaldsins - sem eru þrjú helstu klúður síðustu ára í Reykjavík. Ótrúlegt en satt benda kjörnir fulltrúar á hvern annan þegar spurt er: hver ber ábyrgð á þessum húsum? Ef við skiljum ekki hvernig þetta gerðist, hvernig eigum við þá að fyrirbyggja að svona gerist aftur?
Í mínum huga er ljóst að skerpa þarf á ábyrgðarkeðju innan borgarinnar þannig að ljóst sé á hverju pólitíkin beri ábyrgð á og á hverju stjórnkerfið beri ábyrgð á. Við í Viðreisn bjóðum okkur fram til að taka ábyrgð á því sem gerist í borginni á meðan við sitjum í borgarstjórn. Það er mikilvægur liður í því að snúa vantrausti í traust.

Björg Magnúsdóttir.
Annar mikilvægur hlekkur í því að byggja upp traust er að treysta á móti. Við í Viðreisn ætlum að gera það. Við ætlum að treysta fagfólkinu í skólunum, við ætlum að treysta atvinnulífinu, við ætlum að treysta fólki sem vill skapa og gera borgina skemmtilegri og treysta fjölskyldum til að lifa sínu lífi.
Snúum Reykjavík við Allir sjá að eitthvað er að en það er ekki nóg. Það er ekkert mál að greina og tala um vandamálin við eldhúsborðið eða á samfélagsmiðlum. Annað er að bjóða fram lausnir. Við í Viðreisn bjóðum fram lausnir til þess að snúa Reykjavík við. Við erum teymi sem getur unnið saman og látið
þessar lausnir raungerast.
Við erum ekki að leita að þægilegri innivinnu heldur bjóðum við okkur fram til að mæta glöð og peppuð í vinnuna á hverjum degi fyrir borgarbúa. Við bjóðum okkur fram til þess að búa til skemmtilegri og betri borg sem Reykvíkingar eru stoltir af og velja að búa í.
Ég hvet þig til að kynna þér málefnin okkar nánar á vidreisnreykjavik.is - og svo setja X við C þann 16. maí næstkomandi.
Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík


- eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins
Stundum er sagt að bestu knattspyrnudómararnir séu þeir sem áhorfandinn tekur ekki eftir. Þeir leyfa leiknum að fljóta og grípa ekki inn í nema ýtrasta nauðsyn krefji. Þeir skapa umgjörð þar sem leikmennirnir – ekki dómarinn – eru í aðalhlutverki.
Sama má segja um hið opinbera. Hlutverk borgaryfirvalda í Reykjavík er ekki að þvælast fyrir íbúunum í hversdeginum, heldur að gera þeim kleift að lifa sínu lífi, upplifa drauma og þrár án
í Reykjavík
afskipta. Reykjavíkurborg á ekki að hafa skoðun á barnaafmælum eða hvort bjóða eigi upp á pylsur í grillveislum.
Okkar hlutverk er hið sama og knattspyrnudómarans. Sjá til þess að lífið fljóti og að borgararnir verði fyrir sem minnstum afskiptum frá borgaryfirvöldum.
Hvert er hlutverk borgarinnar?
Íbúar í Reykjavík eiga rétt á því að
fái eitthvað fyrir skattpeninginn. Götur á að þrífa reglulega, ruslið skal tæma, snjó að moka, gras að slá og arfa að reyta. Stefnu borgaryfirvalda um „viljandi villt“, þarf að afnema, enda ekkert annað en umbúðir utan um skort á vilja og getu til að hirða almennilega um borgarlandið.
Við þurfum að sjá til þess að fólk fái leikskólapláss í sínum hverfum og að samgöngur gangi greiðar fyrir sig. Hvort tveggja tekur auðvitað tíma eftir


áratuga óstjórn í þessum málaflokkum, en strax þarf að hefjast handa við að leysa úr flækjunum.
Sama gildir um húsnæðismarkaðinn. Tölur sýna að borgarbúar vilja ekki ofurþéttingu, og margra hæða hús. Þá dreymir um eigið húsnæði, og þar skipta hlutir eins og bílastæði og góð ljósvist miklu máli. Auðvitað má þétta þar sem það á við, en við verðum að hverfa frá þeirri ofurþéttingarstefnu sem hér hefur verið rekin undanfarin ár.
Að lifa á sínu forsendum
Tryggja þarf að íþróttaaðstaða í öllum hverfum borgarinnar sé fyrsta
flokks. Íþróttamiðstöðvar og sundlaugar eru lykilþáttur í lífi Reykvíkinga. Sama gildir um grænu svæðin sem eru hverfunum okkar svo mikilvæg. Þau þarf að vernda hvað sem það kostar. Reykjavíkurborg á að sinna sínu grunnhlutverki en láta íbúana að öðru leyti í friði. Reykjavík á að vera borg þar sem grunnþjónustan virkar, og íbúar komast leiðar sinnar stóráfallalaust. Borgaryfirvöld eru ekki í aðalhlutverki, heldur íbúarnir.
Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík











































































































































































Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: sk@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.
Netfang Grafarvogsblaðsins: sk@skrautas.is
Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322.
Útlit og hönnun: Skrautás ehf.
Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - sk@skrautas.is
Prentun: Landsprent ehf.
Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.
Dreifing: Póstdreifing.
Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.
Næsta laugardag verður gengið til sveitastjórnakosninga og landsmenn fá tækifæri til að tjá sig í kjörklefanum og meta frammistöðu stjórnmálamanna síðustu fjögur árin.
Kosningarnar í Reykjavík vekja eðlilega mestan áhuga og útlit er fyrir að kosningarnar verði mjög spennandi í Reykjavík.
Kjósendur hafa í skoðanakönnunum síðustu vikurnar lagt ríka áherslu á að breytinga sé þörf í Reykjavík. Um 73% kjósenda segjast vilja breytingar. Mörg framboðin segjast vilja breytingar og nú er bara að sjá hverjir veljast til meirihluta starfa í borginni og hvort einhverjar breytingar eigi sér stað.
Þessar kosningar verða mjög mikilvægar fyrir úthverfin í Reykjavík. Að margra mati hefur verið valtað yfir íbúa í úthverfunum í mörgum málum, til að mynda í þéttingarmálum. Allir muna eftir græna gímaldinu í Breiðholti, gatnamótunum við Bæjarháls og Höfðabakka og hvernig mál hafa gengið fyrir sig hjá Fram í Úlfarsárdal og Fylki í Árbænum.
Núna síðustu dagana fyrir kosningarnar hefur verið rokið til í nokkrum málum og reynt að bjarga andlitum.
Slík viðbrögð korteri fyrir kosningar kalla á verðskuldað vantraust.
Íbúar í úthverfunum þurfa að kjósa rétt á laugardaginn og hafa í huga hvernig mál hafa þróast síðustu fjögur árin. Og kjósendur þurfa að íhuga vel hvaða flokk er best að kjósa með raunverulegar breytingar í huga.
Það eru margir óánægðir og aðeins er ein leið fær til að gera breytingar. Það er að kjósa flokk sem íbúar treysta. Það er spennandi laugardagur framundan og ekki aðeins kosningar. Þann daginn er söngvakeppni Evrópu líka á dagskrá. Ég kýs að hundsa hana en mun nýta atkvæði mitt með breytingar í huga. Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is
- eftir Sigrúnu Ástu Einarsdóttur, Grafarvogsbúa og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins
Við fjölskyldan, eins og svo margir aðrir íbúar Grafarvogs, völdum voginn góða vegna þess að hér er lágreist og fjölskylduvæn byggð með grænum svæðum og andrými til útivistar. Þegar við keyptum kynntum við okkur deiliskipulagið vel, meðal annars vegna græna svæðisins við heimili okkar. Nú ætlar meirihlutinn að byggja á þessum svæðum þrátt fyrir skýr mótmæli íbúa.
Á miðvikudaginn í síðustu viku, 6. maí 2026, var deiliskipulag fyrir fyrstu þéttingarreitina í Grafarvogi afgreitt úr skipulagsráði til auglýsingar. Annars vegar í Hverafold og hins vegar við Starengi. Þar með hefur meirihlutinn formlega hafið innleiðingu þéttingaráforma sinna í Grafarvogi og það þrátt fyrir yfirlýsingar um að draga ætti þessi áform til baka. Þetta er aðeins byrjunin, því enn eru fjölmargir þéttingarreitir í Grafarvogi í skipulagsferli eins og gögn borgarinnar eru til vitnis um.
Þéttingaráformin komin til framkvæmda
Við Starengi er gert ráð fyrir 18 íbúðum í allt að fjögurra hæða fjölbýlishúsi á opnu svæði. Við Hverafold á að reisa tvö fjölbýlishús með alls 39 íbúðum, á allt að fjórum hæðum, auk þess sem bílastæðum er fækkað um 73 en 72 hjólastæði koma í staðinn.
Þá sýna ný gögn borgarinnar fram á aukið skuggavarp yfir svæðin og
breytingar á ásýnd hverfisins. Þetta

eru því ekki smávægilegar breytingar heldur afgerandi breyting á karakter hverfisins sem íbúar hafa mótmælt harðlega síðustu tvö árin. Nú gengur Samfylkingin hús úr húsi og segir íbúum annað en það sem blasir við í gögnum borgarinnar.
Verndum grænu svæðin í Grafarvogi Þetta snýst ekki um að vera á móti uppbyggingu. Þetta snýst um skynsemi og jafnvægi. Um að græn svæði sem börnin okkar og fjölskyldur nota á degi hverjum séu ekki fórnarkostnaður í skipulagsleik sem er teiknaður upp án tengingar við daglegt líf íbúa.
Grafarvogur á ekki að bera byrðarnar af misheppnaðri þéttingarstefnu borgarinnar.
Það er líka ástæða þess að ég ákvað að bjóða mig fram. Ég vil að borgin vinni með hverfunum, að tekið sé mark á íbúum og að ákvarðanir séu byggðar á traustum grunni. Baráttan í Grafarvogi sýndi mér hins vegar svart á hvítu að ef við erum ekki inni í salnum þar sem ákvarðanirnar eru teknar þá er hætta á að hverfið okkar verði fyrir barðinu á þéttingarstefnu meirihlutans. Aðeins einn flokkur staðið með íbúum Í borgarstjórn Reykjavíkur hefur aðeins einn flokkur staðið með íbúum Grafarvogs og sagt skýrt að þétting á grænum svæðum í Grafarvogi sé óásættanleg. Sjálfstæðisflokkurinn er líka eini flokkurinn sem hafnar þéttingaráformum borgarinnar að fullu á grænum svæðum í Grafarvogi. Á meðan aðrir flokkar hafa annaðhvort stutt þessi áform eða setið hjá hefur Sjálfstæðisflokkurinn staðið með íbúunum frá fyrsta degi.
Á kjördag höfum við tækifæri til að breyta og tryggja að Grafarvogur eigi sterka rödd í borgarstjórn. Ef við bregðumst ekki við núna munu fleiri græn svæði fylgja í kjölfarið. Fjölmennum á kjörstað, stöðvum þéttingu á grænum svæðum í Grafarvogi og kjósum Sjálfstæðisflokkinn. Sigrún Ásta Einarsdóttir
ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00







- frábær uppskrift sem vert er að prófa
Hér er ein ljúffeng uppskrift sem vert er að prófa við fyrsta tækifæri.
Yfir nóttu hafrar með kaffi og kakói.
Þetta er einföld og bragðgóð uppskrift að yfir nóttu höfrum með kaffiskoti og kakói – fullkomin fyrir morguninn þegar þú vilt eitthvað fljótlegt en orkumikið.
Þetta er morgunmatur sem kveikir á þér – en heldur þér líka í jafnvægi.
Hráefni (1 skammtur)
• 1 dl hafrar.
• 1 dl mjólk (eða plöntumjólk).
•
½ dl sterkt kaffi (kælt ).
• 1 msk. kakó.
• 1–2 tsk. hunang eða annað sætuefni.
• ½ tsk. vanilludropar (valfrjálst).
• Smá klípa salt.
Aðferð
1. Settu allt hráefnið í krukku eða
skál.
2. Hrærið vel saman.
3. Settu í ísskáp yfir nótt (minnst 4 klst).
4. Hrærið aftur áður en þú borðar –bættu við mjólk ef þú vilt þynnra.
Hugmyndir af toppum á þennan dásamlega morgunverð:
- Heslihnetur eða möndlur.
- Smá kakóduft.
- Bananabita.
- Kókosflögur. - Ber.
Þessi morgunverður gefur þér: Jafna og stöðuga orku. Fókus + ró í einu. Smá ,,treat” tilfinningu sem gerir morguninn skemmtilegri.
Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi





Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.
Sumarið og samfelldnin: Hreyfing fyrir lífið, ekki bara fyrir tímabilið Sumarið á Íslandi er dásamlegur tími. Dagarnir lengjast, sólin hækkar á lofti og við fyllumst mörg hver nýrri orku. Með hærra hitastigi og fríum fylgir hins vegar oft sú gildra að við setjum heilsuna og rútínuna í „sumarfrí“. Við hugsum jafnvel að nú sé tíminn til að slaka á öllum viðmiðum, bara njóta og byrja svo af krafti í september.
En hvað ef við breytum þessari nálgun? Hvað ef hreyfing væri ekki eitthvað sem við gerum til að „verða tilbúin fyrir sumarið“, heldur eitthvað sem við gerum til að njóta sumarsins – og lífsins alls – betur?
Forðastu „byrjunarreitinn“ í september
Við þekkjum þetta mörg. Eftir nokkurra vikna eða mánaða hlé frá skipulagðri hreyfingu er eins og maður sé á byrjunarreit þegar haustið bankar upp á. Þreytan er fljótari að láta á sér kræla, vöðvarnir eru stífir og tilhugsunin við að mæta aftur

það upp frá grunni á hverju hausti! Samfelldni er lykillinn að því að líkaminn haldi áfram að vinna með okkur, en ekki á móti okkur.
Við hreyfum okkur fyrir lífið – ekki útlitið
tekst að takast á við verkefni dagsins.
● Orka í ævintýrin: Við hreyfum okkur svo við getum gengið á fjöll, leikið við börnin eða barnabörnin, hjólað um landið og notið útivistar án þess að líkaminn setji okkur takmörk. Að vera frjáls í eigin skinni.
● Andlegt jafnvægi: Sumarið getur verið annasamt með ferðalögum og hittingum. Regluleg hreyfing er akkerið okkar; hún gefur okkur andlegt rými og heldur stressinu í skefjum. Veitir okkur hugarró.
● Líkaminn er verkfæri, ekki sýningargripur: Þegar við hættum að einblína á spegilmyndina og förum að einblína á getuna, þá verður hreyfingin ánægjulegri. Við mætum vegna þess að okkur þykir vænt um líkamann og viljum halda honum starfhæfum til langs tíma. Musteri sálarinnar.

virðist óyfirstíganleg.
Með því að halda regluseminni áfram yfir sumarmánuðina – jafnvel þótt við drögum aðeins úr eða mætum á öðrum tímum – getum við komið í veg fyrir þetta bakslag. Það er miklu auðveldara að viðhalda forminu en að þurfa að byggja
Hjá Metabolic Reykjavík leggjum við áherslu á að hreyfing sé fjárfesting í lífsgæðum. Þegar við hreyfum okkur með það að markmiði að líða vel, styrkja vöðva og bæta hjartaheilsu ásamt þeirri andlegu, þá skiptir minna máli hvernig við lítum út í sundfötum og meira máli hvernig okkur

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.
Reglusemi með sveigjanleika
Að halda áfram í sumar þýðir ekki að þú þurfir að fórna öllu hinu. Það snýst um að finna jafnvægið. Kannski mætirðu sjaldnar, eða kemur í morguntímana svo þú eigir eftirmiðdaginn fyrir gleði og grill.
Aðalatriðið er að rjúfa ekki tengslin við þína eigin vellíðan og persónulega uppbyggingu.
Látum sumarið vera tíma þar sem við ræktum styrkinn okkar, höldum rútínunni lifandi og mætum septembermánuði með forskot. Ekki vegna þess að við „þurfum“ að líta út á ákveðinn hátt, heldur vegna þess að okkur líður svo miklu betur þegar við erum á hreyfingu.
Sjáumst hress í Metabolic í allt sumar –þar sem við keppum bara við okkur sjálf!
Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðanum, prófaðu tvær vikur frítt! Og finndu muninn á líkama og sál. Við hlökkum til að taka á móti þér!
Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík
- eftir Helga Áss Grétarsson, frambjóðanda Miðflokksins
Borgarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí og í aðdraganda þeirra hefur Miðflokkurinn meðal annars lagt áherslu á breytta samgöngustefnu, stöðvun ofurþéttingar byggðar og að tekið sé til í rekstri Reykjavíkurborgar. Síðastnefnda atriðið er mikilvægt þar eð ólíkt öðrum framboðum býður Miðflokkurinn upp á oddvita sem hefur áralanga og farsæla reynslu af því að stýra stórum rekstrareiningum.
En hvaða spurning er mikilvægust fyrir kjósendur?
Það er nokkuð ljóst að kosningabaráttan í höfuðborginni hefur verið eilítið óreiðukennd. Ein ástæðan er að kjósendur geta valið á milli fjölmargra framboða, samtals 11. Í því skyni fjarlægja óreiðutilfinn-inguna verður að greina mikilvægustu spurninguna sem kjósendur verða að svara. Þegar það er gert er ljóst að Samfylkingin og meðreiðarsveinar þess flokks hafa stýrt borgarsjóði um langt árabil. Valdamestu starfsmenn borgarkerfisins hafa verið ráðnir í tíð meirihluta vinstri-flokkana í borginni. Spurningin er því, vilja kjósendur

Helgi Áss Grétarsson.
Miðflokkurinn er svarið! Raunverulegar breytingar geta eingöngu orðið í kjölfar þess að Miðflokkurinn standi sterkt að vígi í borgarstjórn að kosningum loknum.

XM frekar en meira af því sama! Mynd tekin af ruv.is
viðhalda þessum valdastrúktur, sem er alltumlykjandi við stjórn borgarinnar?
Við mat á þeirri spurningu verður til þess að líta að uppstillingar framboðslista Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar gefa til kynna að ekki sé útilokað að nýr meirihluti samanstandi af þeim tveimur flokkum ásamt Samfylkingunni. Í slíkum meirihluta yrði áframhald á stefnu Samfylkingarinnar í skipulags- og samgöngumálum, enda alþekkt að oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í borgarstjórn hafi lítið sem ekkert á móti þeirri stefnu.
Spurningin sem kjósendur standa frammi fyrir er því raun og veru þessi, viltu að Samfylkingin haldi áfram að stjórna borginni, eftir atvikum með nýjum varadekkjum, svo sem eins og Sjálfstæðisflokknum? Eða viltu stuðla að raunverulegum breytingum?
Setjum X við M enda er tækifærið núna til að bjarga borginni!
Höfundur skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.



Leggjum áherslu á
mjög góða þjónustu
Gott vöruúrval
Hægt að panta lyf
á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300
- eftir Bjarnveigu Birtu Bjarnadóttir sem skipar 6. sæti
á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík
Ég bý í Rimahverfinu í Grafarvogi, hverfi þar sem ég elska að búa og við fjölskyldan höfum stofnað til heimilis. Mig langar að byrja á því að tala um fílinn í herberginu. Þéttingaráform í Grafarvoginum voru kynnt með offorsi í tíð Einars Þorsteinssonar, samráð við íbúa var ekki fullnægjandi og fólk upplifði að það ógnaði lífsgæðum sínum. Því þarf að bregðast við. Nú bjóðum við í Samfylkingu fram nýtt fólk og nýjar áherslur, við höfum sagt skýrt að þétting þarf að vera hófleg og raunverulegt samráð viðhaft. Við viljum á nýju kjörtímabili vera með mánaðarlega viðtalstíma og færanlegar skrifstofur í hverfum borgarinnar. Til að íbúar finni að við leggjum okkur fram við að vera aðgengileg. Þá ætlum við að tryggja að skipulag hverfa fari í gegnum ítarlegar kynningar og samráð. Við vitum að það er löng hefð fyrir íbúasamráði í Grafarvogi, hér var fyrsta íbúaráðið sett á stokk og hér eru öflug íbúasamtök. Svo má líka nýta hverfisskipulag. Í hverfisskipulagi er mikil áhersla lögð á fjölbreytt og mikið samráð sem miðar að því að íbúar á öllum aldri og aðrir hagsmunaaðilar fái tækifæri til að taka þátt í mótun borgarumhverfis og koma sýnum sjónarmiðum á framfæri.
Þetta ætlum við að gera en þó vera raunsæ með það að frá aldamótum hefur börnum í Grafarvogi fækkað um 2000 og það þarf að bregðast við því. Sérstaða hverfisins gerir það að gífurlega barnvænu hverfi og við viljum að hér séu raunveruleg tækifæri fyrir ungt fólk til að stofna til heimilis. Þannig tryggjum við að hverfið haldi áfram að vaxa og dafna og lýðfræðilegan fjölbreytileika hverfisins, að hér búi barnafjölskyldur til jafns við ungt og eldra fólk.
Þetta er ekki sjálfgefið Eins og ég sagði þá elska ég að búa í Rimahverfinu – það er ekki að ástæðulausu.
Hér geta börnin mín labbað og hjólað í skólann án þess að fara yfir þungar umferðargötur. Hér get ég tekið ákvörðun um að kíkja með börnin á bókasafnið eftir leikskóla á meðan ég stend í fatahenginu að sækja þau. Hér get ég farið fótgangandi í matvörubúð og strætó nr. 6 sem keyrir beina leið niður í miðbæinn stoppar á 10 mínútna fresti. Þetta er ekki sjálfgefið og þegar við styrkjum hverfið þurfum við samtímis að varðveita þessa sérstöðu þess. Sú samfélagsgerð sem við höfum
byggt upp í Reykjavík er heldur ekki sjálfgefin. Hér mælist jöfnuður og styrkur velferðarþjónustu einn sá mesti meðal höfuðborga í Evrópu.
Borgin hefur verið leiðandi meðal sveitarfélaga í uppbyggingu húsnæðis fyrir tekjulága og þjónustu við eldra fólk. Við höfum byggt upp samfélag sem veitir fólki stuðning og gefur öllum tækifæri til þess að blómstra, af því erum við stolt.
Við ætlum að sækja fram Með nýjum fyrirliða, Pétri Marteinssyni ætlum við að sækja fram. Samfylkingin vill byggja upp borg sem gerir okkur stolt. Þar sem við tökum ábyrgð hvert á öðru og pössum upp það sem við eigum hérna saman.
Við ætlum að setja börnin í fyrsta sæti. Lögfestum leikskólastigið í skrefum á næsta kjörtímabili, bætum í uppbyggingu og viðhald leikskólahúsnæðis og setjum aukið fjármagn í mönnun. Þá ætlum við að auka stuðning inn í skólastofunum og taka íslenskukennslu barna af erlendum up-
pruna föstum tökum. Það er fjárfesting til framtíðar.
Samfylkingin vill byggja upp húsnæðismarkað þar sem allir geta fundið sér heimili við hæfi. Í kosningaáherslum okkar er lagt upp með að byggja um 6.000 nýjar íbúðir í Reykjavík á næstu fjórum árum. Auk þess hefur náðst tímamótasamkomulag milli ríkis og borgar um uppbyggingu allt að 1.400 íbúða á reitum innan borgarinnar sem eru í eigu ríkisins.
Áfram verður lögð áhersla á stuðning við uppbyggingu óhagnaðardrifinna leigufélaga til að tryggja fleirum húsnæðisöryggi.
Í samgöngumálum er eina leiðin áfram. Tveimur árum eftir að síðustu endurskoðun samgöngusáttmálans lauk, sem tók tvö ár, vilja ýmis framboð nú hefja það ferli aftur, með fleiri nefndum og meiri töfum. Það kemur ekki til greina af hálfu okkar í Samfylkingunni, við sýnum ábyrgð til að bæta umferðarflæði, stytta ferðatíma og auka öryggi borgarbúa.

Bjarnveig Birta Bjarnadóttir.
Pössum upp á það sem við eigum saman Kosningarnar í vor snúast um hvert við viljum stefna sem borg og línurnar eru skýrar. Sumir flokkar boða harða hægri beygju. Slíkur meirihluti sem leggst gegn því að við byggjum íbúðir fyrir alla tekjuhópa, lætur stórfyrirtæki sjá um leikskólanna og ræðst í mikla eignasölu bitnar alltaf verst á venjulegu fólki og því sem við eigum hérna saman. Hinn valkosturinn eru breytingar á grunni jafnaðarmennsku þar sem við tryggjum að kerfið virki fyrir fólkið.
Þar sem við breytum því sem breyta þarf en byggjum áfram fyrir alla tekjuhópa, hlúum að eldra fólki, valdeflum börnin okkar og stöndum vörð um bestu eignir Reykvíkinga. Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru og pössum upp á hvort annað. Ekkert af því sem við höfum er sjálfgefið. Ég vil borg sem gerir okkur stolt, þar sem sterk velferð og ábyrgur rekstur fer hönd í hönd. Þannig byggjum við betri borg fyrir alla borgarbúa.
Höfundur er Grafarvogsbúi og skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar





















































































Ég býð mig fram til borgarstjórnar því mér finnst sjónarmið Grafarvogsbúa og annarra íbúa of oft ekki fá næga athygli í ákvörðunum borgarinnar. Ég er fjölskyldufaðir, á þrjár dætur og fjögur barnabörn, og vil leggja mitt af mörkum til að gera borgina enn betri – ekki síst fyrir komandi kynslóðir. Það er einfaldlega hægt að gera mun betur á mörgum sviðum.
Ég hef víðtæka reynslu af rekstri sveitarfélaga. Á árunum 2011–2025 starfaði ég sem stjórnandi hjá Kópavogsbæ þar sem ég leiddi stafræna umbreytingu, upplýsingatækni og þjónustu. Ég vann að umbótum á þjónustuferlum með það að markmiði
að einfalda líf íbúa og bæta upplifun þeirra með góðum árangri. Góð þjónusta á að vera grunnstoð í allri starfsemi sveitarfélaga. Ég hef sérstakan áhuga á skólamálum. Konan mín og systir eru grunnskólakennarar og ég kenndi sjálfur við háskóla í 11 ár. Ég stýrði einnig átaki í breyttum kennsluháttum í Kópavogi og hef góða innsýn í áskoranir og tækifæri í skólastarfi.
Í Kópavogsbæ sá ég meðal annars um uppbyggingu á vöruhúsi gagna sem gerði stjórnendum kleift að hafa betri og áreiðanlegri gögn til ákvarðanatöku. Ýmis mælaborð voru síðan sett ofan á gögnin, sem gerði kleift að mæla árangur í starfseminni
og bregðast hraðar við ef eitthvað fór að fara aflaga. Ég leiddi meðal annars verkefnið „Hvert fara peningarnir“ árið 2016. Með því verkefni opnaði Kópavogsbær bókhald sitt upp á gátt og varð fyrsti opinberi aðilinn á Íslandi til að gera slíkt. Í kjölfarið lagði ég mig fram við að aðstoða aðra við að fara sömu leið og kom meðal annars að því að styðja Reykjavíkurborg í slíkri innleiðingu.
Ég vil sjá aukið gagnsæi og gott aðgengi að upplýsingum til að styðja við ákvörðunartöku og hagræðingu. Góð þjónusta við borgarbúa er mér afar hugleikin og ég vil nýta rafrænar mælingar á þjónustustigi til að geta brugðist við og aðlagað þjónustu að þörfum borgarbúa.

Árið 2022 var ég skipaður í Íbúaráð Grafarvogs. Þar sá ég fljótt að þrátt fyrir skýrar ábendingar og breiða samstöðu íbúa var oft lítið brugðist við – og stundum farið í þveröfuga átt.
Íbúaráðið sendi meðal annars skýr skilaboð um eftirfarandi mál til borgarstjórnar:
• Aðstaða fyrir allar samgöngur eru
í ólestri í Gufunesi.
• Við viljum göng undir sundin í stað brúar.
• Við viljum enga þéttingu byggðar nema með samþykki nærumhverfisins.
• Við viljum styðja óskir Fjölnis um færslu á aðalleikvangi félagsins.
• Við viljum að íbúakosning um uppsetningu myndavélaeftirlit verði virt.
• Við viljum breytt skipulag á Keldnahverfinu.
• Við viljum öruggari umferð í Grafarvogi og raunverulegar umbætur.
• Við viljum að www.grafarvogur.is lýsi gæðum hverfisins betur.
Engin jákvæð viðbrögð hafa borist frá borgarstjórn vegna allra þessara mála. Þvert á móti hefur borgarstjórn hunsað vilja Íbúaráðs í flestum tilfellum.
Grafarvogur er þó frábær staður til að búa á. Hér er sterkt og fjölskylduvænt samfélag, góðir skólar og leikskólar og öflugt íþrótta- og menningarlíf. Við njótum strandlengjunnar, stíganna, golfvallanna og alls þess sem gerir hverfið einstakt. Þetta viljum við vernda og efla.

Ég býð mig fram til að nýta þessa reynslu í þágu borgarbúa. Það skiptir máli að hafa góða þekkingu og reynslu í borgarstjórn. Ég mun leggja mig allan fram til að ná árangri – ef mér verður treyst fyrir því verkefni og vinna málefnalega með öllum þeim sem þangað veljast.
Ingimar Þór Friðriksson Höfundur skipar 1. sætið á G-lista Góða dagsins í Reykjavík.








1. sæti – Ingimar Þór Friðriksson
Þekking í stað flokkspólitíkur
Ingimar hefur undanfarin 15 ár starfað sem stjórnandi hjá Kópavogsbæ við að bæta þjónustuferla og styrkja innviði bæjarins með góðum árangri en bærinn er leiðandi í þessum málum á landsvísu.
2. sæti – Hjördís Dröfn
Sjálfbær rekstur borgarinnar
Einföldum skipulag borgarinnar, hagræðum í rekstri, drögum úr skuldasöfnun og leggjum áherslu á traustar stjórnsýsluaðferðir.
3. sæti – Torfi Markússon Bætum umferðina, næg bílastæði og aðgát í þéttingu byggðar
Við viljum að íbúar geti valið sér raunhæfa samgöngumáta.
4. sæti – Nathalia B. Tómasdóttir
Grunnskólinn
Endurskoða skóla án aðgreiningar, meta árangurinn og taka svo upplýsta ákvörðun um breytingu.
5. sæti – Jón L. Árnason
Eldri borgarar
Mikilvægt er að eiga gott samtal við eldri borgara um hverjar þarfir þeirra eru. Það munum við m.a. gera með reglulegum viðhorfskönnunum.
6. sæti – Björn Jóhann Þórsson
Skemmtilegri borg
Styðjum fjölbreytta menningu og ýtum undir sköpun.
Eflum fræðslu og forvarnir og styðjum við lýðheilsu í víðum skilningi. Hlustum á íþróttafélögin og bregðumst við.
Hann hefur meðal annars leitt stafræna umbreytingu, innleitt notkun gervigreindar og stýrt átaki í breyttum kennsluháttum.
Þekking í stað flokkspólitíkur
Ingimar þekkir þjónustuferla sveitarfélaga vel og veit hvernig má bæta þá og lækka kostnað.
Til að bæta rekstur borgarinnar þarf skýra stefnu, mælanleg markmið og hæft fólk í borgarstjórn.
Þetta eru lykilforsendur við sjálfbæran rekstur og betri þjónustu til lengri tíma.
Þekking í stað flokkspólitíkur
Áríðandi er að bæta samgönguvandamál bæði fyrir bíla og almennings samgöngur. Hægt er að útfæra lausnir án þess að þrengja að umferðinni með snjallljósastýringum og álíka lausnum.
Að fá Ingimar inn í borgarstjórn er gríðarlegt tækifæri fyrir borgarbúa – þar kemur inn djúp þekking á rekstri og skýr sýn á hvernig má bæta þjónustu og nýta fjármuni betur.
Betri vinnustaður
Árangur borgarinnar byggir á öflugu starfsfólki. Við viljum skapa vinnuumhverfi þar sem það nýtur trausts, stuðnings og góðra starfsskilyrða.
Góður vinnustaður er forsenda góðrar þjónustu.
Góð viðmið um birtu íbúða er skilyrði.
Þétting byggðar á aðeins að eiga sér stað í góðri sátt við íbúa og innviði hverfa.
Við viljum tryggja raunhæft skipulag hverfa með að lágmarki 1,5 bílastæði á hverja íbúð, og heimila uppbyggingu bílastæðahúsa þar sem það á við.
Grunnskólinn er ein mikilvægasta þjónusta borgarinnar og hefur afgerandi áhrif á framtíð samfélagsins.
Við viljum styrkja stuðning við nemendur með fjölbreyttan bakgrunn, þar á meðal þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.
Þekking í stað flokkspólitíkur
Við viljum styðja við það að fólk geti búið sem lengst heima og þá með þjónustu. Mikilvægt er að sporna við félagslegri einangrun eldra fólks.
Við viljum eiga samtal við eldri borgara um breytingar á húsnæðisþörf þeirra á efri árum.
Við viljum fjölga góðum dögum í Reykjavík, góð lýðheilsa og gott menningarlíf er stór þáttur í því.
Við leggjum því mikið upp úr öflugu íþróttastarfi og viljum leggja okkar á vogarskálarnar til efla það.
Auðvelda þarf aðgang efnaminni og erlendra barna að skipulögðu frístundastarfi.
Fjölga skólaúrræðum fyrir fötluð börn sem þess óska.
Þjónusta við borgarbúa
Mikilvægasta hlutverk Reykjavíkurborgar er að veita íbúum góða og áreiðanlega þjónustu. Við viljum setja þjónustuna í forgang og tryggja að hún taki mið af raunverulegum þörfum borgarbúa.
Til að mæta óskum íbúa viljum við gera reglulega þjónustukannanir. Við munum mæla árangur þjónustunnar markvisst og birta niðurstöður með gagnsæjum hætti. Þetta á við um alla þjónustuþætti borgarinnar, þar á meðal meðferð ábendinga og erinda frá íbúum.
X
- eftir Elísabetu Gísladóttur, formann Íbúasamtaka Grafarvogs
Reynsla mín sem fulltrúi íbúa í austurhluta Reykjavíkur á ég erfitt með að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að rödd íbúanna hafi ítrekað verið hundsuð í skipulagsmálum borgarinnar. Samráð er kynnt með stórum orðum, en oftar en ekki virðist niðurstaðan þegar ákveðin fyrir fram. Slíkt grefur undan trausti og það með réttu.
Samráð eða sýndarmennska? Íbúar eru kallaðir til funda, beðnir um umsagnir og hvattir til þátttöku. En þegar á reynir virðist framlag þeirra hafa lítil sem engin áhrif. Ítrekuð og skýr andstaða hefur verið hunsuð. Þetta er ekki virkt lýðræði heldur formsatriði sem þjónar fyrst og fremst því hlutverki að réttlæta fyrir fram ákveðnar niðurstöður. Ef borgaryfirvöld ætla að tala um samráð þurfa þau að vera tilbúin að hlusta á rök og breyta áformum þegar meirihluti íbúa er mótfallinn þeim.
Ofurþétting gegn vilja íbúa Þétting byggðar hefur færst frá því að vera eitt af skipulagsverkfærum yfir í að verða markmið í sjálfu sér t.d. eins og að koma borgarlínu fyrir eins og í tilfelli Keldna. Í grónum hverfum er hún knúin áfram þrátt fyrir augljósa andstöðu og án þess að innviðir fylgi eftir eða gætt sé að lýðheilsulegum kröfum. Afleiðingin er aukið álag, skerðing á lífsgæðum og verri aðstæður fyrir íbúa.
Samþykktir án trausts
Þegar stór verkefni mæta víðtækri andstöðu er eðlilegt að staldra við og endurmeta. Í Reykjavík virðist hins vegar ríkja sú afstaða að þegar eitthvað hefur verið samþykkt, þá sé það óhagganlegt sama hvað íbúar benda á.
Slík nálgun er bæði ólýðræðisleg og skaðleg.
Samgöngur í ólestri Í Grafarvogi og Gufunesi er staðan þegar orðin alvarleg og óviðunandi. Umferðarteppur eru daglegt vandamál, bæði innan hverfa og utan hverfis. Borgaryfirvöld vinna markvisst að því að þrengja og tefja umferð, án þess að raunhæfar lausnir komi í staðinn. Undarlegar ljósastýringar og illa útfærðar breytingar á gatnamótum gera stöðuna verri. Það er óásættanlegt að skipulag geri ráð fyrir þúsundum nýrra íbúa án þess að tryggja greiðar samgöngur fyrst.
Nýjasta útspilið að fækka akgreinum Fækkun akreina og tilraunir sem taka ekki mið af raunverulegum aðstæðum í hverfum borgarinnar bitna beint á íbúum. Fyrir marga er bíllinn ekki lúxus heldur nauðsyn. Það þarf að taka mið af því í skipulagi.
Bílastæðaskortur, tilbúið vandamál Stefnan um að draga úr bílastæðum við nýbyggingar og teppa bílastæði sem eru fyrir hefur skapað fyrirsjáanleg vandamál. Íbúar keppast um fá stæði, álag á götur eykst og óánægja vex. Þetta er mikil afturför og skipulagsmistök sem í einhverjum tilfellum má lagfæra.
Óheiðarleiki í kynningu á nýjum samgönguframkvæmdum
Umræða um Sundabraut sýnir vel vandann: Blásið var til fjölmenns fundar og stórar ákvarðanir eru ræddar án þess að að sýnd væri heildarmyndin á því hvernig skipulagsyfirvöld hugsa sér að útfæra þær eða hvaða áhrif þær hafa á hverfin. Íbúar Grafarvoshverfis
óttast nú með réttu að friðhelgi nærumhverfis þeirra verði látið víkja fyrir afdrifaríkum vegaframkvæmdum þegar skera á hverfið niður með opnun Hallsvegar upp á Vesturlandsveg til að umferð nýrrar byggðar Hallarhverfis verði hleypt í gegn. Íbúar Grafarvogs höfnuðu þessari aðför að hverfinu fyrir tuttugu árum síðan og gera enn.
Græn svæði undir stöðugri ásókn Það er orðið augljóst að Reykjavík hefur gengið of langt í að fórna grænum svæðum fyrir uppbyggingu. Svæði sem áður voru talin óumdeilanleg náttúruverðmæti eiga nú undir högga að sækja. Þar nægir að nefna Keldur en fleiri náttúruperlur liggja í valnum.
Sú ákvörðun að friðlýsa aðeins ræmu af fjöru þessa svæðis ber keim af skammsýni. Hún var kynnt sem vernd, en í raun var hún takmörkuð málamiðlun sem skilur eftir verðmæt svæði berskjölduð. Þetta var ekki framsýn eða fagleg nálgun heldur hálfkák sem þjónar fyrst og fremst áframhaldandi uppbyggingarþrýstingi.
Hér erum við að tala um lífríki og náttúru sem verður ekki endurheimt þegar hún er á annað borð farin. Að skipta út slíkum verðmætum fyrir malbik og þéttingu er ekki þróun heldur afturför.
Við skorum á næsta meirihluta í borgarstjórn að sýna kjark og ábyrgð. Afturkalla þær samþykktir sem hafa verið gerðar og stækka verndunarsvæðið og tryggja raunverulega, heildstæða friðlýsingu sérstaklega við ósnortnar strendur Keldna. Og minnum á að stundar skammsýni í skipulagi getur haft óafturkræfar afleiðin-

Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs.
gar til framtíðar.
Innviðir á eftir áætlun Það gengur ekki að byggja ný hverfi fyrir þúsundir íbúa án þess að tryggja grunninnviði. S.s. Leikskóla, skóla, og samgöngur. Þá er ekki nægilega hugað að þörfum og aðgengimálum eldri borgara og öryrkja.
Flugvöllur allra landsmanna Flugvöllurinn í Reykjavík má ekki verða fórnarlamb skammtímahugsunar eða lóðabrasks. Hann er lífæð landsbyggðarinnar og gegnir lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu, öryggi og samgöngum um land allt. Ekki má þrengja frekar að flugvellinum með byggingum á, og við flugvallarsvæðið. Sem höfuðborg ber okkur skylda til að standa vörð um þessa mikilvægu innviði ekki veikja þá eða vega að rekstraröryggi þeirra í þágu skammtímagróða.
E listi embættismanna.
Það vaknar æ oftar sú spurning hvort kjörnir fulltrúar ráði í raun fer-
ðinni eða hvort embættiskerfið hafi tekið yfir? Þegar kosnir fulltrúar nenna ekki að kynna sér málefnin en treysta fyrst og fremst á að embættismannakerfið leiðbeini þeim og taki ákvarðanirnar. Við hvetjum nýja borgarfulltrúa að kynnar sér málefnin sjálf og hafa samráð við íbúa.
Austurhlutinn skiptir máli
Meirihluti borgarbúa býr í austurhlutanum, en margir upplifa að sjónarmið þeirra vegi minna. Það er hvorki sanngjarnt né skynsamlegt.
Valdið er nú hjá íbúum Kæru íbúar: Nú verður valdið hjá okkur þann 16. maí,! Höfum í huga þegar gengið verður að kjörborðinu að það skiptir máli að velja fólk sem hlustar, sýnir ábyrgð og starfar í þágu íbúa með velferð okkar og lífsgæði að leiðarljósi.
Elísabet Gísladóttir formaður Íbúasamtaka Grafarvogs
Sjálfstæðisflokkurinn studdi þrengingu
Höfðabakka-Bæjarháls
- eftir Katrínu Magnúsdóttur, frambjóðanda Miðflokksins
Björn Gíslason borgarfulltrúi og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar skrifar fastar greinar í þetta blað um borgarmál. Greinarnar eru yfirleitt góðar og taka á þeim málum sem eru ofarlega á baugi hjá okkur úthverfabúum. Í síðasta blaði fjallaði Björn um bílastæðastefnu Reykjavíkurborgar og gagnrýndi hana



harðlega. Sagði hann réttilega að Reykjavíkurborg hefur undanfarin ár skipulagt miklu færri bílastæði í nýjum hverfum en þörf er fyrir. Björn nefndi Keldnaland og fleiri þéttingarreiti í efri byggðum. Björn benti á skortstefnu í bílastæðamálum sem Reykjavíkurborg hefur innleitt og vandræði vegna hennar.
Stuðningur við þrengingu Höfðabakka Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls er ein galnasta framkvæmd vinstri meirihlutans á kjörtímabilinu. Björn hefur gagnrýnt þessa framkvæmd harðlega í fjölmiðlum og m.a. hér í blaðinu.
Þessi gagnrýni Björns kom á óvart vegna þess að sjálfur studdi hann þrengingu gatnamótanna í borgarstjórn. Á fundi Innkaupa- og framkvæmdaráðs Reykjavíkur 22. maí 2025 samþykkti Björn þrengingu gatnamóta Höfðabakka-Bæjarháls ásamt öðrum framkvæmdum á Höfðabakka og gerði engan fyrirvara við atkvæði sitt. Hann segir því ett en gerir annað.
Stuðningur við skortstefnu bílastæða Þegar grein Björns er lesin vaknar sú spurning hvort hann sé í röngum flokki. Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Hildur Björnsdóttir styður nefnilega skortstefnuna í bílastæðamálum þótt Björn geri það ekki. Árið 2021 gekk Hildur í lið með Samfylkingunni og öðrum vinstri flokkum þegar samþykkt var í borgarstjórn að bílastæðum í borginni skyldi fækkað. Á kjörtímabilinu hefur oddvitinn síð-
an setið hjá þegar vinstri meirihlutinn hefur fækkað bílastæðum í íbúagötum. Hildur sat einnig í dómnefnd vegna verðlaunasamkeppni um Keldnalandið en útkoman úr þeirri vinnu var að aðeins ætti að hafa rúmlega 2.000 bílastæði fyrir 12.000 íbúa. Björn skrifaði einnig um Borgarlínu hér í blaðið nýlega. Hjá Birni kom ekki fram andstaða við verkefnið sem slíkt heldur sagði hann mikilvægt að fá á hreint hvernig ætti að standa að fjármögnun Borgarlínunnar. Þarna er Björn sammála Hildi oddvita sínum sem hefur stutt Borgarlínu og sagt að það þurfi bara að laga verkefnið. Stuðningur við Borgarlínuskatt Borgarlínan myndi kosta nokkur hundruð milljarða króna og hana á að fjármagna með nýjum skatti Þessi skattur mun leggjast þyngst á okkur íbúum í úthverfum Reykjavíkur. Ekki fer mikið fyrir andstöðu við Borgarlínuskattinn í grein Björns. Hann tekur ekki afstöðu gegn skattinum heldur segir bara að það geti ekki verið ,,sjálfgefið að lausnin felist í nýjum gjöldum á borgarbúa.“ Segir Björn að slíkar hugmyndir verði að standast bæði sanngirni og raunhæfni. Þar höfum við það. Það er mjög lin afstaða til skattlagningar þegar kjörinn fulltrúi segir að hún sé ekki ,,sjálfgefin“ og verði að vera bæði sanngjörn og raunhæf. Miðflokkurinn þorir Við íbúar efri byggða þurfum ekki stjórn-

Katrín Magnúsdóttir.
málamenn sem skrifa eitt en gera annað. Við þurfum ekki borgarfulltrúa sem segjast vera á móti Borgarlínu, fækkun bílastæða og þrengingu gatnamóta en kjósa síðan samt alla þessa hluti. Við þurfum borgarfulltrúa sem þora að kjósa gegn Borgarlínu, fækkun bílastæða og þrengingu gatnamóta. Það þorum við í Miðflokknum. Við gerum það sem við segjumst ætla að gera. Höfundur eru frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.




verk Öl Ö kf kfæri



































Frábært ú l m


rðverkfæ f ga a
æru rva













r háþrý Lavo ýstidælur












og slá Sláttu á r u rf



















l Color Ú g og v rex má a vi














yl- og ha a












ga Sérfræð a







G lla r a Gott verð fyri lltaf! a, a




Saga Sundabrautar er löng og
einkennileg að mörgu leyti. Deilur um Sundabrautina hafa lengi einkennst af flokksdráttum og skotgröfum. Hugmyndin var fyrst sett fram árið 1975 og síðar var Sundabrautin skilgreind sem þjóðbraut, og þar með á ábyrgð ríkisins en ekki Reykjavíkurborgar.
Úthverfin í Reykjavík hafa lengi beðið eftir þessari framkvæmd enda mun hún leiða af sér mun minni umferðartafir á Vesturlandsvegi. Þetta er því mjög mikilvæg samgöngubót fyrir öll úthverfi borgarinnar, sérstaklega þau sem eru austan Elliðaár og hefði átt að koma til framkvæmda miklu fyrr. Nú, loks 50 árum síðar, 13. október 2025, kom út Umhverfismat –samantektarskýrsla Vegagerðarinnar um þessa framkvæmd.
Niðurstaða umhverfismats Vegagerðarinnar er að allir aðalvalkostir teljast uppfylla markmið framkvæmdarinnar. En það kemur vissulega mikið á óvart að brú er talin uppfylla markmiðin betur en göng.
Stöldrum hér aðeins við. Íbúaráð Grafarvogs hafði rætt aðalvalkosti framkvæmdanna ítarlega. Ráðið komst einróma að þeirri niðurstöðu að göng væru mun fýsilegri kostur. En í hverju felst þessi mikli munur á afstöðu Íbúaráðs og niðurstöðum Vegagerðarinnar?
Í skýrslu um umhverfismatið kemur fram að sett eru sex meginmarkmið sem valkostirnir (göng eða brú) þurfa að uppfylla. Byggt á þessum markmiðum kemst Vegagerðin sem sagt að þeirri niðurstöðu að brú uppfylli markmiðin betur en gögn. Í þessum samanburði er niðurstaða Vegagerðarinnar að brúin sé besti kosturinn í þremur markmiðum af sex, sjá meðfylgjandi töflu.
Ef markmiðin sjálf eru skoðuð má þó sjá að mikið vantar. Það vantar að uppfæra markmið framkvæmdarinnar með hliðsjón af nútímakröfum um lýðheilsu íbúa, náttúruvernd og færð. Í raun vantar að setja eftirfarandi markmið fram:
• Íbúar geti notið ósnortinnar strandlengju
• Íbúar geti notið kyrrðar og friðs ofanjarðar (ekkert suð yfir 30 Db)
• Íbúar hafi trygga samgöngubót sem ekki þarf að loka fyrirvaralaust vegna veðurs
Með einföldu mati, sem auðvitað þyrfti að vinna betur, þar sem einnig er lagt mat á þessi viðbótar markmið þá myndu Sundagöng að öllum líkindum teljast betri kostur. Afar mikilvægt er að setja rétt markmið þegar jafn mikilvæg undirbúningsvinna er unnin eins og umhverfismat er í þessu tilfelli. Þegar framkvæmdirnar og breytingin á umhverfinu eru óaf-
turkræfar. Því er mikilvægt að rýna markmiðin vel og ná samstöðu um þau áður en útreikningar og samanburður er gerður á mögulegum valkostum. Markmiðin leiða niðurstöðuna – og því er lykilatriði að þau séu rétt í upphafi. Ef forsendurnar eru rangar verður niðurstaðan það einnig. Það er líklega ástæðan fyrir niðurstöðu Vegagerðarinnar.
Þessu til viðbótar teljum við sem skrifum þessa grein að brú myndi ekki bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta. Jú, hægt er að ganga og hjóla yfir brúna, en þá í miklum umferðarhávaða og berskjöldun fyrir óblíðu veðri. Mun vænlegra er að ganga eða hjóla í friði, ró og í mildara veðri meðfram strandlengjunni og fara yfir voginn undir Gullinbrú. Eins og Grafarvogsbúar eru vanir að gera. Sú leið býður upp á mun ánægjulegri upplifun í ósnortnu umhverfi og meiri veðursæld.
Við sem skipum G-lista Góða dagsins munum beita okkur fyrir því að opnað verði á umhverfismatið eins og það var unnið og bæta við þeim markmiðum sem hér eru talin fram og hefja í kjölfarið gangnagerð. Höfundar: Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, skipar 2. sæti á G-lista Góða dagsins Torfi Markússon, skipar 3. sæti á G-lista Góða dagsins
Helgina 24. – 26. apríl fóru skátar í Skátafélaginu Vogabúum ásamt nokkrum foreldrum í hina árlegu félagsútilegu í Félagsheimilið Brún í Andakíl. Skátarnir lentu í skemmtilegri svaðilför þegar móinn sem þau gengu um breyttist í mjög leðjukennda mold sem þeir sukku ofaní. Einum skátanum þurfti að hjálpa úr forinni þar sem kuldaskórinn hans varð eftir þegar hann reyndi að komast áfram.
Póstaleikur og HIKE
Skátarnir upplifðu fjöldan allan af ævintýrum í útilegunni. Verkefnin sem þau tóku á sig voru fjölbreytt eins og póstaleikurinn sem farið var í á laugardagsmorgninum. Verkefnin á póstunum fólust í að tjalda, súrra saman trönur eins og gert er á skátamótum til að hafa hverja tjaldbúð sem veglegasta.
Öll fengu þau að höggva trjádrumba með exi í eldivið og tálga með vasahnífum. Á einum póstinum fóru þau í fjöruga leiki.
Eftir hádegi var farið í gönguferð sem kallast HIKE hjá skátum. Í stað þess að ganga eftir reiðstíg var ákveðið
að ganga um ósnortna náttúru þar sem skátarnir þurftu að komast undir gaddavírsgirðingu sem var áskorun fyrir suma. Þegar komið var fram hjá girðingunni var jörðin enn blaut eftir veturinn þar sem var mold og undirlagið var eitt stórt drullusvað. Mörgum þótti mjög gaman að vappa um í leðjunni. Athygli skátanna var dregin frá leðjunni með því að hvetja þá til að kanna hvað fyndist á svæðinu. Þau fundu ullarbendu, bein og hrossatað svo eitthvað sé nefnt. Dagurinn endaði síðan með kvöldvöku þar sem sýnd voru frumsamin skemmtiatriði áhorfendum til mikillar gleði.
Sumardagurinn fyrsti
Skátafélagið hélt sumardaginn fyrsta hátíðlegan þann 23. apríl í Gufunesbæ. Hoppukastalar voru á svæðinu, trúður skemmti gestum, tónlist leikin af Skólahljómsveit Grafarvogs og trúbadorar spiluðu á hátíðarsvæðinu. Eldur logaði glatt inni í lundi þar sem hægt var að grilla sykurpúða og tálga úr tré. Landsmót skáta verður haldið í sumar á Akureyri og af því tilefni voru skátarnir með sjoppu á staðnum, þar

sem seldar voru pylsur, sykurpúðar og hið sívinsæla candyfloss. 17. júní mun félagið verða með hátíð á nýjan leik í Frístundagarðinum Gufunesbæ þegar við Íslendingar fögnum þjóðhátíðardeginum.
Útilífsskólinn og næsti vetur Skátastarfinu fer að ljúka þennan veturinn. Útilífsskólinn tekur við í sumar þar sem börn í Grafarvoginum, Grafarholti og Úlfarsárdal geta tekið þátt í eina eða fleiri vikur í sumar. Kassaklifur er einn af hápunktum útilífsskólans þegar börnin fara í klifurbelti og stafla gömlum goskössum upp og vatnsbyssustríðið sem hefur slegið í gegn. Skráning er í fullum gangi á heimasíðu Vogabúa – www.vogabuar.is. Félagið heldur úti Facebooksíðu undir heitinu Skátafélagið Vogabúar.
Skátastarfið í Vogabúum heldur síðan áfram næsta vetur. Veturinn mun hefjast með kynningarfundi í lok ágúst fyrir öll sem hafa áhuga að kynna sér skátastarf. Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar og vonumst til að kynnast nýjum og áhugasömum skátum næsta vetur þegar vetrarstarfið hefst á ný.



Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir.Torfi Markússon.
Tafla: Niðurstaða umhverfismats Vegagerðarinnar og viðbótarmarkmið um lýðheilsu, náttúruvernd og færð


Hlýlegt var í lundinum á sumardeginum fyrsta.

Öryggi tryggt í kassaklifri í öryggisbelti.

Laxaflugur




IðaKraflagulKraflarauðKraflaorange




KraflabláKraflagrænIðaSkröggur








GrænfriðungurElsaGrímabláGrímagul
Kolskeggur

Kraflakeilutúpa-Tungsten(Mjögþung)Kraflakeilutúpa-Tungsten(Mjögþung)Kraflakeilutúpa-Tungsten(Mjögþung)Kraflakeilutúpa-Tungsten(Mjögþung)
Tungstenkeilutúpur ,,Íslenska landsliðið’’í silungaflugum

Beygla

SilungaKraflableik

Beykir



SilungaKraflaorange KrókurinnMýsla
Kíktu á Krafla.is
- Gjöfular, fallegar og sterkar flugur - Íslensk hönnun
íslensk fluguveiði
Skrautás ehf. Sími: 587-9500 Uppl. í síma 698-2844 og 699-1322



Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll
þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir
Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf.
Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is



húsfélagið!
Láttu okkur sjá um 2 s 800 erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He a@eignaumsjon.i t að senda póst á thjonust innig er hæg E linu. 4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r eynslu 5 ára þekkingu og r ið erum með 2 V eignaumsjonis Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f umsjon is eigna

Lambakonfektið klikkar ekki og kemur með sumarið til okkar! Það er vöruliður sem hefur fylgt okkur frá stofnun fyrirtækisins og er það einn vinsælasti vöruliðurinn okkar í dag.
ELDUNARLEIÐBEININGAR
Stillið grillið á meðalhita og raðið konfektinu á grillið, það er gott að hafa þolinmæði í þetta og elda á medium hita, því við viljum ekki brenna þetta lostæti. Gott er að velta konfektinu í ca. 8 mínútur á grillinu og setja jafnvel í 3-4 mínútur á efri hæðina á grillinu þar sem er hita minna svæði ef það er svoleiðis svæði á grillinu.
HVÍTLAUKS LIME SÓSA
Mayones 200 gr.
Sýrður rjómi 100 gr.
Salt 6 gr.
Hvítlauksolía 20 gr.
Limesafi úr hálfu fersku lime.
Steinselja fersk söxuð fínt.
Blandið öllu saman og hrærið vel, sósan er best þegar hún hefur fengið að vera í kæli yfir nótt.
Nokkur góð ráð við val á kjöti:
Það er góð regla að spyrja kjötkaupmanninn hvað steikin sem þú ert að kaupa er búin að hanga/meyrna í langan tíma. Ef kaupmaðurinn getur ekki svarað því þá ertu ekki á réttum stað. Svarið sem þú vilt heyra er að vöðvinn sé búinn að hanga að lágmarki í 25 daga.
Það sem skilar einnig góðu bragði og mikilli mýkt í kjötið er fitan, því er okkar slagorð ,,Í fitunni felast gæðin."
Liturinn á kjöti sem er tilbúið til neyslu er yfirleitt rauð/matt/burg-
undy rautt.
Forðastu steik sem er fitulaus og skærrauð á litinn, annars ertu að fara að slást við steikina á disknum eftir eldun.
Ef þú ert með sérþarfir vertu þá ekki feimin/n við að bera fram þínar óskir, hlutverk kjötkaupmannsins er að koma til móts við allar séróskir.
Okkar ráð er: Kauptu gott kjöt og eldaðu það á einfaldan máta.
Eldunartips:
Númer eitt, tvö og þrjú - veljið gott kjöt á grillið! Gæðin svíkja þig ekki. Passið að þrífa grillið vel eftir
hverja notkun. Notið alltaf kjarnhitamæli til að hitta á réttu steikninguna, ef þið eigið hann ekki þá er best að drífa sig að kaupa einn slíkan.
Ef þú ert með nautasteik, gefðu þér góðan tíma í eldamennskuna, það er yfirleitt best að elda steikina á lágum hita og fá jafna steikningu í gegnum allan vöðvann.
Okkar ráð er að loka steikinni á miklum hita og lækka svo hitann í 80-100 gráður og klára eldun. Láta steikina hvíla í 5-10 mínútur, fer eftir stærð.





































































































































Eignaumsjón og Húseigendafélagið hafa gert með sér samkomulag um samstarf og samvinnu og munu beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á. Samkomulagið hefur þegar tekið gildi.
Auk þess að beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á, nær samkomulagið einnig til eftirfarandi þátta:
• Eignaumsjón fær aðgang að lögfræðingum Húseigendafélagsins fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar, skv. gjaldskrá Húseigendafélagsins.
• Húseigendafélagið leigir fundasali hjá Eignaumsjón á hagstæðu verði og Eignaumsjón fær aðgang að fundarstjórum sem Húseigendafélagið hefur í starfi, eftir nánara samkomulagi hverju sinni.
• Eignaumsjón getur boðið viðskiptavinum sínum upp á námskeið Húseigendafélagsins gegn hagstæðu gjaldi og fær aðgang að eldra fræðsluefni og greinaskrifum Húseigendafélagsins til
úrvinnslu.
Húseigendafélagið, sem er yfir 100 ára gamalt og telur um 10.000 félagsmenn, hefur í áratugi barist fyrir bættum hag félagsmanna sinna, einkum með bættri löggjöf, og sinnt fræðslu til félagsmanna og almennings.
Eignaumsjón er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við hús- og rekstrarfélög og hefur verið brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi í 25 ár. Í dag hefur félagið umsjón með daglegum rekstri ríflega 1.350 félaga með hátt í 32.000 eignarhlutum.
Að lokum má til gamans geta þess að Húseigendafélagið var einn af stofnendum Eignaumsjónar árið 2000, en stofnendurnir höfðu allir reynslu af að þjóna eigendum fasteigna og höfðu áður rekið Ráðgjafarþjónustu húsfélaga, Húsráð, um nokkurra ára skeið.
Hafðu samband við okkur!


Lokahelgi Íslandsmóts U14 í
íshokkí fór fram um á dögunum þar sem lið Fjölnis, Björninn AAA og Ísbjörninn AA, luku keppnistímabilinu með glæsilegum árangri.
Bæði lið enduðu mótið í 2. sæti og tryggðu sér silfurverðlaun eftir frammistöðu sem liðunum og íshokkídeild Fjölnis má vera afar stolt af.
Liðin hafa tekið miklum framförum yfir tímabilið og það hefur verið gaman að fylgjast með leikmönnum vaxa og dafna bæði sem einstaklingar og liðsheild.
Í lokaumferðunum mættu þau
sterkum andstæðingum og mörgum krefjandi leikjum, en sýndu á sama tíma mikla seiglu, baráttuanda og aukna færni þegar mest á reyndi.
Árangurinn er frábær uppskera eftir veturinn og sýnir vel það öfluga starf sem unnið er innan íshokkídeildar Fjölnis.
Við óskum öllum leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum innilega til hamingju með silfurverðlaunin og glæsilegt tímabil.
Íshokkíframtíðin hjá Fjölni er sannarlega björt.
















tjó íb gaæðin X G garstjórn í bor ön ir þína h fyyr ð starf a af TIL AÐ NÁ BETRI ÁRANGRI Í BORGINNI da um eftir umboði kjósen ið ósk V gu mannauðs. og eflin ekstri gu í r durskipulagnin óun, en ramþr æna f r staf ætur á þjónustu, ela í sér umb ni sem f erkef il v umfangsmik ð leiða ynslu af a atugare a ár ar haf dur okk rambjóðen
SGÆÐI UKIN LÍF UR • BETRI ÁRANGUR • A AÐRAR ÁHERSL



























- eftir Brynjar Níelsson frambjóðanda Sjálfstæðisflokks
Erfitt er að greina vilja borgarbúa í komandi kosningum þegar horft er til skoðanakannana undanfarið. Undanfarna áratugi hefur Samfylkingin verið í forystu í stjórn borgarinnar með öðrum flokkum. Í hverjum kosningum hefur meirihlutinn fallið en samt skrölt áfram með nýju varadekki, hvort sem það er kennt við Pírata, Viðreisn, Framsókn eða Flokk fólksins.
Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að tæplega þrír af hverjum fjórum borgarbúum vilji raunverulegar breytingar á stjórn borgarinnar. Borgarbúar virðast líta svo á að allt sem skiptir þá máli sé í skrúfunni, hvort sem það lýtur að fjármálum borgarinnar, álögum á borgarbúa, leik-og grunnskólum, umferðar-og skipulagsmálum og þjónustu sem varða borgarbúa miklu.
Þrátt fyrir þessa skoðanakönnun verður ekki annað ráðið að þessir flokkar sem hafa stjórnað borginni öll þessi ár séu enn með meirihluta samkvæmt öðrum könnunum. Það mun því engu breyta við stjórn borgarinnar þótt atkvæði færist frá Samfylkingu yfir til Vinstri grænna, Sósíalista, Pírata, Flokk fólksins eða Viðreisnar sem hafa starfað með þeim öll þessi ár. Áfram mun þessi sami meirihluti skrölta að óbreyttu.
Sjálfstæðisflokkurinn komi nægilega sterkur út úr kosningunum. Þótt staða Sjálfstæðisflokksins sé sterk í þessum nýju skoðanakönnunum er hún ekki nægilega sterk til að tryggja breyt-ingar. Þeir sem horfa til hægri í tilverunni og vilja raunverulegar og áþreifanlegar breytingar í borginni ættu nú að nýta tækifærið og tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn verði kjöl-festan í stjórn borgarinnar eftir næstu kosningar.
Á framboðslista Sjálfstæðisflokksins eru óvenju samhentur hópur sem er
með skýr markmið. Kynntur hefur verið nákvæmur tímasettur verkefna-listi fyrir næsta kjörtímabil þar sem horft er til hagsmuna og vilja borgarbúa. Sjálfstæðisflokkurinn var þekktur þegar hann stjórnaði borginni fyrir að standa við fyrirætlanir sínar. Enginn ástæða er til að ætla að það verði ekki þannig áfram fái hann styrk til að vera ráðandi afl við stjórn borgarinnar eftir kosningarnar.
Brynjar Níelsson





Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844

Í komandi borgarstjórnarkosningum verður kosið um breytingar. Vilja borgarbúar það sama eða vilja þeir raunverulegar breytingar. Öllum ætti að vera það augljóst að það verða ekki breytingar á stjórn borgarinnar nema
- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Íbúar í úthverfum Reykjavíkur þekkja það vel að daglegt líf tekur sífellt meiri tíma. Að koma börnum í skóla og tómstundir, aka til vinnu eða einfaldlega komast á milli staða er orðið mun erfiðara en það þarf að vera og var áður fyrr. Umferðin þyngist, tafir aukast og ákvarðanir virðast of oft teknar án þess að horft sé til þess hvernig fólk lifir raunverulega í borginni.
Þetta finna íbúar í Árbæ og Norðlingaholti, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal, Breiðholti og víðar fyrir á hverjum degi. Á sama tíma hefur borgarstjórnarmeirihlutinn lagt megináherslu á að þrengja að umferð, fækka bílastæðum og þétta byggð án þess að innviðir ráði við fjölgunina. Fólk upplifir sífellt meiri tafir og meiri flækjur í stað betri samgangna.
Þessu er vel hægt að breyta og það strax, enda eru þetta pólitískar ákvarðanir. Við getum lagað umferðina strax Sjálfstæðisflokkurinn vill fara aðra leið. Við viljum borg sem byggir á skynsemi, jafnvægi og raunverulegum þörfum fólks. Borg þar sem markmiðið er að auðvelda fólki lífið í stað þess að gera það flóknara.
Þess vegna höfum við lagt fram skýran aðgerðalista í samgöngumálum.
Á fyrstu 100 dögunum ætlum við að endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og kalla eftir gagnsæi í fjármögnun hans. Borgarbúar eiga rétt á að vita hvað framkvæmdin kostar og hver borgar reikninginn.
Við viljum einnig hafna fyrirhuguðu deiliskipulagi við Suðurlandsbraut sem


mun auka álag á þegar þunga umferð. Þá ætlum við að vinda ofan af þrengingum á gatnamótum við Höfðabakka strax, þar sem breytingar hafa haft augljós áhrif á flæði og tafir í umferð. Við munum stytta gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni svo ekki verði rukkað eftir klukkan 18 og fjarlægja aðskotahluti úr bílastæðum sem hafa

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
þrengt að aðgengi fólks og fyrirtækja. Þá viljum við afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara til að auðvelda uppbyggingu og minnka álag á göturými í íbúðahverfum.
Sveigjanlegri mætingartími
En þetta snýst ekki eingöngu um bíla.
Þetta snýst um að samgöngukerfið allt virki betur.
Á næstu tólf mánuðum viljum við flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg, bæta snjómokstur og hreinsun gatna, bæta lýsingu á gönguleiðum barna og nýta tæknilausnir og gervigreind til að bæta þjónustu Strætó út frá raunverulegri notkun.
Við ætlum enn fremur að vinna með Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Landspítalanum að betri dreifingu álags í umferðinni með sveigjanlegri mætingartíma. Það þarf ekki alltaf flóknar og dýrar lausnir til að bæta umferðina, stundum þarf einfaldlega að skipuleggja hlutina betur.
Til lengri tíma þurfum við síðan að ráðast í alvöru innviðauppbyggingu. Þar eru Miklubrautargöng, mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðaveg og uppbygging Sundabrautar lykilverkefni.
Við viljum jafnframt endurskoða Borgarlínuna frá grunni og byggja upp hraðvagnakerfi á sérakreinum sem bætir almenningssamgöngur án þess að þrengja að annarri umferð.
Góð borg tryggir fjölbreytta valkosti og greiðar samgöngur fyrir alla.
Reykjavík á að vera borg sem virkar fyrir fjölskyldur í úthverfunum, fyrir atvinnulífið og fyrir allt það fólk sem heldur samfélaginu gangandi á hverjum degi.
Við getum gert betur. Og við eigum að gera það strax.
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Spönginni


Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir endaraðhúsið Garðsstaði 18, 112 Reykjavík, sem stendur innst í götu á kyrrlátum stað í grónu hverfi, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 223-5797 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi, birt stærð 161.1 fm. íbúðin er 134,9 fm.og bílskúr er 26,2 fm.
Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing
Forstofa er rúmgóð með fataskáp og
skóhillu og flísum á gólfi. Sjónvarpshol er rúmgott, parket á gólfi. Eldhús er rúmgott, eldhúsinnrétting er upprunaleg, parket á gólfi. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi, gengt er úr stofu út á suður sólpall þar sem er heitur pottur.
Herbergin eru öll björt og rúmgóð með skápum, parket á gólfi. Baðherbergi er rúmgott með bæði sturtuklefa og baðkari, góðri innréttingu, gólf er flísalagt og veggir kringum baðkar og í sturtuklefa eru flísalagðir.
Þvottahús er með góðri innréttingu og yfir því er geymsluloft, gólf er
flísalagt.
Bílskúr er rúmgóður með góðum hillum og gólf er málað.
Húsið stendur i grónu hverfi innst í botnlangagötu, stutt er í leikskóla, þjónusta svo sem verslanir apótek og heilsugæsla eru í Spöng.
Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. löggiltur fasteigna- og skipasali löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteignaskipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is


Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali s. 8240610

Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906


Árni Þorsteinsson rekstrar-hagfræðingur. M.Sc. löggiltur fasteignaog skipasali og löggiltur leigumiðlari s. 898 3459


Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteigna- og skipasali s. 786-1414
Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.





Spöngin 11 - 112 Reykjavík Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst

SMIÐJUVELLIR AKRANESI
Góð fjárfesting - alls 1724,1 fm. eign sem skiptist á þrjú fastanúmer, 774,2 fm.,112 fm og 837,9 fm.
Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki.

BERJARIMI 3ja HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
96 fm 3.herbergja íbúð á 2.hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.
Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar. Vestur svalir.

FLÉTTURIMI - 3 HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
95.6 fm þriggja herbergja íbúð auk stæði í lokuðu bílahúsi með bílarafmagni. Falleg íbúð með parketi og flísum á gólfum og ágætum innréttingum. Stórar svalir.

FORNIBÆR - 4HA JÖRÐ MEÐ HEILSÁRSHÚSI OG SKEMMU
Jörðin er rétt fyrir utan Selfoss og liggur að sjó. Gott 78 fm heilsárshús og 160 fm skemma eru á jörðinni. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir í síma 892-8778 og á anna @fmg.is
Björn Gíslason borgarfulltrúi og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar skrifar fastar greinar í þetta blað um borgarmál. Greinarnar eru yfirleitt góðar og taka á þeim málum sem eru ofarlega á baugi hjá okkur úthverfabúum. Í síðasta blaði fjallaði Björn um bílastæðastefnu Reykjavíkurborgar og gagnrýndi hana harðlega. Sagði hann réttilega að Reykjavíkurborg hefur undanfarin ár skipulagt miklu færri bílastæði í nýjum hverfum en þörf er fyrir. Björn nefndi Keldnaland og fleiri þéttingarreiti í efri byggðum. Björn benti á skortstefnu í bílastæðamálum sem Reykjavíkurborg hefur innleitt og vandræði vegna hennar.
Stuðningur við þrengingu Höfðabakka Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls er ein galnasta framkvæmd vinstri meirihlutans á kjörtímabilinu.
Björn hefur gagnrýnt þessa framkvæmd harðlega í fjölmiðlum og m.a. hér í blaðinu.
Þessi gagnrýni Björns kom á óvart vegna þess að sjálfur studdi hann þrengingu gatnamótanna í borgarstjórn. Á fundi Innkaupa- og framkvæmdaráðs Reykjavíkur 22. maí 2025 samþykkti Björn þrengingu gatnamóta Höfðabakka-Bæjarháls ásamt öðrum framkvæmdum á Höfðabakka og gerði engan fyrirvara við atkvæði sitt. Hann segir því ett en gerir annað.
Stuðningur við skortstefnu bílastæða Þegar grein Björns er lesin vaknar sú spurning hvort hann sé í röngum flokki. Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
Hildur Björnsdóttir styður nefnilega skortstefnuna í bílastæðamálum þótt Björn geri
það ekki. Árið 2021 gekk Hildur í lið með Samfylkingunni og öðrum vinstri flokkum þegar samþykkt var í borgarstjórn að bílastæðum í borginni skyldi fækkað. Á kjörtímabilinu hefur oddvitinn síðan setið hjá þegar vinstri meirihlutinn hefur fækkað bílastæðum í íbúagötum. Hildur sat einnig í dómnefnd vegna verðlaunasamkeppni um Keldnalandið en útkoman úr þeirri vinnu var að aðeins ætti að hafa rúmlega 2.000 bílastæði fyrir 12.000 íbúa.
Björn skrifaði einnig um Borgarlínu hér í blaðið nýlega. Hjá Birni kom ekki fram andstaða við verkefnið sem slíkt heldur sagði hann mikilvægt að fá á hreint hvernig ætti að standa að fjármögnun Borgarlínunnar. Þarna er Björn sammála Hildi oddvita sínum sem hefur stutt Borgarlínu og sagt að það þurfi bara að laga verkefnið.
Stuðningur við Borgarlínuskatt
Borgarlínan myndi kosta nokkur hundruð milljarða króna og hana á að fjármagna með nýjum skatti Þessi skattur mun leggjast þyngst á okkur íbúum í úthverfum Reykjavíkur.
Ekki fer mikið fyrir andstöðu við Borgarlínuskattinn í grein Björns. Hann tekur ekki afstöðu gegn skattinum heldur segir bara að það geti ekki verið ,,sjálfgefið að lausnin felist í nýjum gjöldum á borgarbúa.“ Segir Björn að slíkar hugmyndir verði að standast bæði sanngirni og raunhæfni. Þar höfum við það. Það er mjög lin afstaða til skattlagningar þegar kjörinn fulltrúi segir að hún sé ekki ,,sjálfgefin“ og verði að vera bæði sanngjörn og raunhæf. Miðflokkurinn þorir
Við íbúar efri byggða þurfum ekki stjórnmálamenn sem skrifa eitt en gera

Við hjá Dýrabæ erum gífurlega stolt af því að segja frá því að Canagan hefur verið valið „Best Wet Food“ hjá hinum virtu Your Cat Product Awards 2026. Þetta eru ekki hvaða verðlaun sem er, því það eru neytendurnir sjálfir, kattaeigendur sem vilja dýrunum sínum það allra besta – sem greiða atkvæðin.
Af hverju vann Canagan?
Verðlaunin staðfesta það sem viðskiptavinir okkar hafa vitað lengi: Canagan er í algjörum sérflokki þegar kemur að gæðum og bragði.
Hágæða prótein: Blautmaturinn inniheldur raunverulegt kjöt og fisk í „hu-
man-grade“ gæðum sem þú sérð um leið og þú opnar dósina. Náttúruleg næring: Fóðrið er þróað með líffræðilegar þarfir katta í huga –hátt kjötinnihald (allt að 65%), engin kornvara og engin gerviefni. Ómótstæðilegt bragð: Jafnvel kröfuhörðustu kettir elska bragðið af Canagan, hvort sem það er túnfiskur, kjúklingur eða villibráð. Canagan hefur verið kosið númer eitt í Bretlandi og nú er blautmaturinn formlega sá besti samkvæmt Your Cat verðlaununum 2026.
Gefðu kettinum þínum verðlaunamat!

Kettir eru kjötætur í eðli sínu og góður blautmatur skiptir sköpum fyrir vökvabúskap þeirra og almenna heilsu. Með Canagan ertu ekki bara að gefa þeim mat, heldur ertu að tryggja þeim
bestu mögulegu næringuna sem völ er á. Kíktu við í Dýrabæ eða pantaðu á netinu og leyfðu kettinum þínum að smakka það besta!



annað. Við þurfum ekki borgarfulltrúa sem segjast vera á móti Borgarlínu, fækkun bílastæða og þrengingu gatnamóta en kjósa síðan samt alla þessa hluti.
Við þurfum borgarfulltrúa sem þora að kjósa gegn Borgarlínu, fækkun bílastæða og þrengingu gatnamóta. Það þorum við í Miðflokknum. Við gerum það sem við segjumst ætla að gera.
Höfundur eru frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur















ylkinginSamf R y a









vík kj e í





















































































Ste l kvrk k velferð k –







Bj u kkæ•L sto lfil ðbantsomk R t o ótjh s klaónra bf k ykey víja








































muúl•H gg•y B lródðlme a rauyra mf afu gryrjiöko aaeup t km





