Skip to main content

Grafarvogsblaðið 4. tbl. 2026

Page 1


Á Nesdekki Br

ða 13 reiðhöf

s S ÁNdkkiB tir ek skip tær iðhöfð13 kki máli rðin

finnur þú eitt f

ullkomnasta

hjólbarðaverkstæ

æði landsins

stærðum ta b þjónus ag þar sem f

bíla af öllum ar gmenn okk

ðum. og ger

aðu tíma á Bók nesdekk.is

Breiðhöfða 13 h

Bikarmeistarar Fjölnis í listskautum. Glæsilegur hópur og glæsilegur árangur.

Fjölnir er bikarmeistari í listskautum 2026 – fjórða árið í röð!

Helgina 27.–29. mars fór Vormót ÍSS fram á Akureyri. Alls tóku 36 keppendur frá Fjölni þátt í mótinu, þar af margir sem voru að stíga sín fyrstu

skref í keppni. Farið var í hópferð líkt og venjan er og er þetta ferð sem margir skautarar bíða spenntir eftir allt árið.

astrákarnir í Fjölni stóðu sig mjög vel á Scania Cup í Svíþjóð sem fram fór um páskana. Mótið var mjög sterkt og Fjölnisliðið vann tvo leiki af fimm.

9. flokkur drengja hjá Fjölni keppti á

Scania Cup 2026

Fjölnis tók þátt í hinu vinsæla Scania Cup körfuboltamóti í Södertälje yfir páskana. Liðið stóð sig ágætlega og vann tvo af fimm leikjum sínum, en mætti sterkri samkeppni frá liðum víðs vegar um Norðurlöndin.

Þrátt fyrir að ná ekki alveg sama árangri og í bikarkeppninni hér heima, þar sem þeir stóðu uppi sem meistarar, kemur liðið reynslunni ríkara úr ferðinni og vel stemmt fyrir komandi úrslitakeppni.

Nokkrir leikmenn liðsins stóðu upp úr sóknarlega, en Víkingur Eldon Arnarsson var með um 20 stig að meðaltali í leik, Jónatan Montoro skoraði um 18 stig að jafnaði og Ólafur Thorarensen var með um 15 stig í leik. Þeir voru meðal stigahæstu leikmanna í sínum aldursflokki á mótinu. Mótið bauð upp á bæði krefjandi og skemmtilega leiki og lauk með skemmtidegi í Stokkhólmi á annan dag páska.

Keppendur Fjölnis stóðu sig með mikilli prýði á mótinu og voru félaginu til fyrirmyndar jafnt innan sem utan íssins.

Með þeim árangri sem skautarar Fjölnis náðu á Vormóti ÍSS, ásamt góðum árangri á öðrum mótum tímabilsins, tryggði félagið sér bikarmeis-

taratitilinn í listskautum árið 2026. Þetta er fjórða árið í röð sem Fjölnir hampað þessum glæsilega titli.

Þrjú fengu silfurmerki KSÍ á aðalfundi knattspyrnudeildar

Á aðalfundi knattspyrnudeildar Fjölnis í gær voru þrír einstaklingar heiðraðir með silfurmerki KSÍ fyrir framlag sitt til knattspyrnunnar. Silfurmerki KSÍ er veitt einstaklingum sem hafa unnið vel og dyggilega að eflingu knattspyrnuíþróttarinnar í áratug eða lengur.

Viðurkenninguna hlutu: Hildigunnur Smáradóttir, Sigurður Einar Guðbrandsson, Sigurður Rúnar Sveinsson Það var Halldór Breiðfjörð Jóhannsson, stjórnarmaður KSÍ, sem afhenti heiðursmerkin.

Fjölnir óskar þeim innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar fyrir mikilvægt framlag til félagsins og knattspyrnunnar.

Verðlaunahafar með merkin sín ásamt fulltrúa KSÍ.

Sundabraut í göngum og

enga ofurþéttingu í Grafarvogi

,,Miðflokkurinn vill falla skilyrðislaust frá öllum ofurþéttingarhugmyndum í Grafarvogi og vera í nánu samráði við íbúa hverfisins um málefni þess. Taka þarf ríkt tillit til staðaranda hverfisins og hagsmuna núverandi íbúa, t.d. með því að ganga ekki á græn svæði, sem mörg hver eru rótgróin og ein helsta ástæða þess að fólk valdi hverfið til búsetu. Margir þéttingarreitir, sem vinstri meirihlutinn hefur til skoðunar, ganga þvert gegn þessum sjónarmið og koma því ekki til greina að mati Miðflokkins,“ segir Ari Edwald efsti maður á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Ari segir einnig að endurskoða þurfi áform núverandi borgarstjórnarmeirihluta varðandi Keldnaland. ,,Þar hefur ofurþétting einnig verið höfð að leiðarljósi og frá henni þarf að hverfa. Til dæmis er óraunhæft að ætla að vel innan við helmingur íbúa þar verði á bíl eins og miðað er við. Tryggja þarf gott umferðarskipulag í Keldnalandi og næg bílastæði fyrir íbúa. Með svo þéttri byggð er auk þess hætta á að umferð og bílastæðamálum í Grafarvogi verði stefnt í fullkomið uppnám.“

Ari bjó í Grafarvogi

Ari er vel kunnugur málefnum Grafarvogs enda bjó hann í hverfinu í á annan áratug og nefnir mörg dæmi um það sem betur megi fara. Borgarstjórn hafi því miður vanrækt Grafarvoginn eins og fleiri úthverfi en Miðflokkurinn vilji bæta úr því. Fjölnir hafi t.d. árum saman óskað eftir því að fá fullgildan keppnisvöll ásamt áhorfendaaðstöðu við Egilshöll en borgin dregið lappirnar í málinu.

Ari á fjölbreyttan starfsferil að baki og hefur komið að stjórnun og rekstri margra fyrirtækja og stofnana. Að loknu námi gegndi hann starfi aðstoðarmanns dómsmálaráðherra og sjávarútvegsráðherra og öðlaðist þannig mikla reynslu af stjórnsýslu. Síðar gegndi hann starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífins, 365 miðla, Mjólkursamsölunnar og Ísey útflutnings. Hann hefur einnig sinnt ritstörfum og var á sínum tíma ritstjóri Stúdentablaðsins og seinna Viðskiptablaðsins.

Ari segir að í öllum þessum störfum hafi hann öðlast dýrmæta reynslu, sem muni nýtast vel í borgarstjórn. ,,Þessi ólíku störf áttu það sameiginlegt að þau snerust um mikilvæga hagsmuni. Rík krafa var gerð um árangur og oft þurfti að ráðast í miklar breytingar til að bæta rekstur og þjónustu. Þá skipti öllu máli að standa rétt að slíkum breytingum og oft þurfti að sætta andstæð sjónarmið. Rekstur Reykjavíkurborgar er erfiður og ekki verður undan því vikist að ráðast í miklar umbætur, t.d. í fjár-

- segir Ari Edwald, borgarstjóraefni Miðflokksins

málum, samgöngumálum og skólamálum. Ég býð mig fram í þetta umbótastarf og tel að reynsla mín úr atvinnulífi, félagsmálum og stjórnsýslu muni gagnast vel í þeirri vinnu,“ segir Ari.

Enga ofurþéttingu

Miðflokkurinn hyggst knýja fram breytingar í skipulagsmálum og samgöngumálum í Reykjavík sem eru í miklum ólestri að sögn Ara. ,,Mörg undanfarin ár hafa Samfylkingin og aðrir vinstri flokkar fylgt stefnu ofurþéttingar í skipulagsmálum, sem hefur haft ýmsar slæmar afleiðingar víða í borginni. Græna gímaldið í Breiðholti er ein birtingarmynd þessara stefnu og nú virðist röðin vera komin að Grafarvogi.

Samhliða ofurþéttingarstefnunni er þrengt að fjölskyldubílnum sem langflestir Reykvíkingar velja til að komast leiðar sinnar um borgina. Bílastæðum er markvisst fækkað í grónum hverfum og ný hverfi eru skipulögð með allt of fáum bílastæðum til að gera fólki erfiðara fyrir að eiga bíl. Vinstri meirihlutinn hefur nú þegar þrengt að umferð á

Höfðabakka og fleiri umferðaræðar eru í sigtinu, t.d. Suðurlandsbraut.“

Sundabraut í göng

Miðflokkurinn vill flýta gerð Sundabrautar, þau verði í göngum og að útfærslan verði valin í góðu samstarfi við Grafarvogsbúa að sögn Ara. Hann vill einnig útvíkka mörk vegna friðlýsingar Grafarvogs í samræmi við óskir Íbúasamtaka Grafarvogs og Íbúaráðs Grafarvogs þar að lútandi.

Úrbætur á gatnamótum í Grafarvogi Miðflokkurinn leggur einnig áherslu á úrbætur í samgöngumálum í Grafarvogi. ,,Bæta þarf umferðarflæði og umferðaröryggi á gatnamótum Strandvegar-Rimaflatar-Gufunesvegar og Strandvegar-Hallsvegar, t.d. með því að breyta þeim í hringtorg. Einnig þarf að huga að úrbótum á hringtorgum við Egilshöll sem eru fullþröng að margra áliti.

Þá verður að bæta tengingar nýja hverfisins í Gufunesi við önnur hverfi Grafarvogs. Fjölga þarf bílastæðum í Gufunesi svo íbúar þar geti lagt við heimili sín. Einnig þarf að leggja gangstétt meðfram Gufunesvegi þar

sem er mikil umferð og þungaflutningar,“ segir Ari.

Gegn borgarlínuskatti

Miðflokkurinn tekur eindregna afstöðu gegn svokallaðri borgarlínu að sögn Ara. ,,Borgarlínan mun kosta hundruð milljarða króna, arðsemi hennar er neikvæð og ávinningurinn í besta falli óljós. Þá er a.m.k. hálfur áratugur í að hún verði að veruleika. Mun hagkvæmara og fljótlegra er að efla núverandi strætókerfi með ýmsum hætti, t.d. lagningu fleiri strætó-akreina og að veita strætó sjálfvirkan forgang á umferðarljósum.

Íslendingar borga nú þegar einhverja hæstu gjöld á bíla sem þekkjast í heiminum. Samt eru hugmyndir um að leggja á nýjan skatt, sem á að fjármagna þessa dýru borgarlínu. Þessi skattur mun líklega leggjast þyngst á íbúa Grafarvogs og annarra eystri hverfa Reykjavíkur. Frekari skattpíning er það síðasta sem Reykvíkingar þurfa og því hafnar Miðflokkurinn alfarið slíkum borgarlínuskatti,“ segir Ari.

Heimgreiðslur eru sanngirnismál Ari hefur mikinn áhuga á skólamálum og vill taka til hendi þar. ,,Íslendingar reka eitt dýrasta grunnskólakerfi í heimi en námsárangur er samt langt frá því að vera viðunandi. Við þurfum að ná meiri árangri og þá verður ekki hjá því komist að gera breytingar á skipulagi skólastarfsins. Bekkir eru nú mjög blandaðir og mestallur tími margra kennara fer í að hjálpa verst stöddu nemendunum. Það getur þýtt að miðlungsnemendur fái ekki þá þjónustu sem þeir þurfa, hvað þá afburðanemendur. Þessu þarf að breyta og tryggja að allir fái viðeigandi kennslu.

Við í Miðflokknum viljum takast á við leikskólavandann með fjölbreytilegum lausnum. Borgin á ekki að hafna fyrirtækjareknum leikskólum eins og vinstri meirihlutinn hefur gert, heldur taka þeim fagnandi. Þá á að efla dagforeldrakerfið og taka upp heimgreiðslur til foreldra. Heimgreiðslur eru sanngirnismál enda auka þær valfrelsi foreldra á viðkvæmu aldursskeiði barnsins og létta á almenna leikskólakerfinu,“ segir Ari Edwald að lokum.

Ari Edwald á gömlum heimaslóðum í Funafold en hann bjó í á annan áratug í Grafarvogi.

bílaviðgerðir

hagstæðu verði.

FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll

allt sem þú þarft fyrir

Þú færð allt fyrir vorverkin hjá Múrbúðinni

á

þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir

Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf.

Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is Er stí昀að?

Láttu okkur sjá um

húsfélagið!

Vorið hefur loks bankað upp á og þá er gott að geta fundið allt fyrir vorverkin á einum stað.

Meira úrval af blómapottum sem nota má inni og úti Blómapottarnir hjá Múrbúðinni hafa notið mikilla vinsælda og í ár hefur úrvalið verið aukið mikið. Ný sending er komin af vinsælu portúgölsku leirpottunum, sem hafa slegið í gegn hér á Íslandi og má búast við að þeir seljist fljótt upp.

Áburður og grasfræ – á lægra verði Múrbúðin leitast við að bjóða alltaf lægsta verðið á áburði og grasfræi. Hvort sem þig vantar Blákorn, Graskorn eða grasfræ þá getur ferð í Múrbúðina marg borgað sig. Þú færð líka mjög sniðuga áburðar- og frædreifara hjá Múrbúðinni.

Mosatætari og mosaeyðir – Lykillinn að fallegri grasflöt Múrbúðin byrjaði að selja mosatætara fyrir nokkrum árum. Mosatætararnir hafa notið mikilla vinsælda enda er ekkert verkfæri betra til að hreinsa mosa úr grasflötum. Til að koma í veg fyrir að mosi nái sér á strik þá býður Múrbúðin uppá Growell Trippel M sem dregur verulega úr vexti mosa í grasflötum og styrkir grasvöxtin.

Pallahreinsir sem gerir kraftaverk og nú líka helluhreinsir

stéttar og steypta fleti. Auðvelt er að bera efnið á. Einungis þarf að tengja garðslöngu við brúsann og skrúfa frá. Brúsinn er með innbyggðum úðara þannig að það er auðvelt og fljótlegt að bera helluhreinsinn á. Hvort sem þú ert að hreinsa pallinn, hellulögnina eða steypta innkeyrslu þá er gott að nota öfluga háþrýstidælu með pallabursta, sem auðvita fæst hjá Múrbúðinni. Garðverkfæri á ótrúlega hagstæðu verði verkfæri og tæki. Múrbúðin hefur um

árabil boðið garðverkfæri á ótrúlega hagstæðu verði. Það er sama hvort þú þarft nýja sláttuvél, sláttuorf, hekklippur, hjólbörur nú eða bara strákúst, þá er ólíklegt að þú finnir garðverkfæri á hagstæðara verði en hjá Múrbúðinni. Komdu í Múrbúðina og undirbúðu vorverkin!

Það er óhætt að mæla með ferð í Múrbúðina, þar finnur þú allt sem þú þarft fyrir vorverkin og með réttu tækjunum verður garðvinna bæði skemmtileg og árangursrík og garðurinn þinn

s 800 erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He a@eignaumsjon.i t að senda póst á thjonust innig er hæg E linu. 4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r eynslu 5 ára þekkingu og r ið

2 V eignaumsjonis Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f umsjon is eigna

Þau sem hafa prófað pallahreinsinn frá Hagmans nota ekkert annað til að hreinsa pallinn hjá sér. Hagmans pallahreinsirinn er einfaldur í notkun og mjög áhrifaríkur. Margir vita að það er best að hreinsa pallinn þegar það er rigning eða úði. Ástæðan er sú að það þarf að bleyta pallinn áður en pallahreinsir er borinn á hann. Það er því sniðugt að hreinsa pallinn þegar það rignir svo hann sé tilbúinn fyrir pallaolíu þegar það styttir upp. Þú færð auðvita úrvals sænska pallaolíu í Múrbúðinni.

Múrbúðin býður nú einnig uppá nýtt efni frá Growell, en það hreinsiefni fyrir

eru mættar í Múrbúðina á ótrúlega hagstæðu verði.

Smærri verkfærin fyrir garðinn eru í miklu úrvali í Múrbúðinni og þar færðu
Sláttuvélarnar

verk Öl Ö kf kfæri

Frábært ú l m

rðverkfæ f ga a

æru rva

r háþrý Lavo ýstidælur

og slá Sláttu á r u rf

l Color Ú g og v rex má a vi

yl- og ha a

ga Sérfræð a

G lla r a Gott verð fyri lltaf! a, a

Fjölnir hlýtur hvatningarverðlaun KSÍ

Ungmennafélagið Fjölnir hefur hlotið hvatningarverðlaun KSÍ í dómaramálum árið 2025, sem eru veitt árlega í aðdraganda ársþings Knattspyrnusambands Íslands. Viðurkenningin er veitt félögum sem sýna metnað, framtíðarsýn og markvissa uppbyggingu í dómaramálum.

Dómaraverðlaunum KSÍ er skipt í tvo flokka: Fyrirmyndarfélag í dómaramálum og Hvatningarverðlaun í dómaramálum. Fjölnir hlýtur hvatningarverðlaunin fyrir markvisst starf og jákvæða þróun í dómgæslu innan félagsins. Á árinu 2025 tók Fjölnir stórt skref í uppbyggingu dómaramála með því að fá Oddberg Eiríksson, fyrrverandi FIFA aðstoðardómara, til starfa sem dómarastjóra félagsins. Oddbergur hefur komið inn með mikinn kraft, skýra sýn og faglegt skipulag sem hefur styrkt dómgæsluna innan Fjölnis til muna. Oddbergur er sömuleiðis þjálfari í yngri flokkum og því mikill liðsfengur fyrir félagið.

Undir hans stjórn hefur Fjölnir lagt aukna áherslu á fræðslu og þjálfun dómara, meðal annars með fjölgun dómaranámskeiða, sem hefur skilað sér í auknum fjölda virkra dómara, bæði karla og kvenna. Þessi þróun styrkir ekki aðeins starf Fjölnis heldur einnig knattspyrnuna í heild sinni. Viđurkenning KSÍ er staðfesting á því mikilvæga starfi sem unnið er innan félagsins og hvatning til áframhaldandi uppbyggingar á sviði dómaramála. Á myndinni eru Oddbergur Eiríksson, dómarastjóri Fjölnis, og Ingi Rafn Ingibergsson, starfsmaður KSÍ í dómaramálum.

Hafðu samband við okkur!

Spönginni
Oddbergur Eiríksson hefur komið inn með mikinn kraft, skýra sýn og faglegt skipulag sem hefur styrkt dómgæsluna innan Fjölnis til muna.

Íslensk Hönnun

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar

á www.Krafla.is (698-2844)

Að kunna að hlusta

eftir Brynjar Níelsson frambjóðanda Sjálfstæðisflokks

Við borgarbúar höfum þurft að þola ýmislegt síðustu áratugina. Á grundvelli pólitískrar hugmyndafræði meirihlutans hefur okkur verið gert erfitt að komast á milli staða. Ofurþétting byggðar hefur verið knúin fram í andstöðu við flesta borgarbúa. Þrengt hefur verið að umferð einkabílsins með dýrum aðgerðum og samgöngubætur verið látnar sitja á hakanum. Leikskólinn hefur siglt í strand af því að meirihlutinn hefur verið fastur í úreltri hugmyndafræði. Hefur verið komið í veg fyrir að fyrirtæki og einkaaðilar geti rekið dagvistun fyrir yngstu börnin og leikskóla, sem hefur skaðað mjög hagmsmuni foreldra og atvinnulífsins. Borgin rekur dýrasta grunnskóla í OECD en námsárangur verður lakari með hverju árinu.

Að auki hefur tekist að svæla mörg fyrirtæki úr borginni vegna hærri fasteignaskatta og skorti á skipulögðum lóðum fyrir atvinnuhúsnæði. Borgin hefur einnig vanrækt að skipuleggja lóðir svo hægt sé að byggja fjárhagslega viðráðanlegar íbúðir fyrir ungt fólk. Það hefur valdið húsnæðiskreppu og verið ein helsta ástæða verðbólgu og hærri vaxta, sem allir landsmenn þurfa að þola. Önnur mikilvæg þjónusta eins og snjómokstur, viðhald gatna og sorphirða nær ekki einu sinni slöku meðallagi. Verst af öllu er kannski slæleg fjármálastjórn sem hefur leitt til þess að rekstur borgarinnar er ekki sjálfbær. Afleiðingin er sú að mjólka hefur þurft fyrirtæki í eigu borgarinnar með óhóflegum arðgreiðslum, sem mun

Svokölluð Borgarlína hefur verið mjög til umræðu án þess að að skýrt hafi verið fyrir borgarbúum hvað í henni felst. Hún snýr ekki eingöngu að því að bæta almenningsamgöngur, eins og sumir kunna að halda, heldur er hún hluti af verulega breyttu skipulagi borgararinnar með áherslu á ofurþéttingu byggðar og útrýmingu einkabílsins í borginni. Borgarlínuhugmyndir meirihlutans muni kosta hærri fjárhæðir en við höfum nokkurn tíma séð og rekstur hennar ósjálfbær. Borgarlínuhugmyndir núverandi meirihluta mun valda óbætanlegu tjóni fyrir borgarbúa.

Sjálfstæðisflokkurinn er skýr í andstöðu sinni við Borgarlínuna, þótt

sumir haldi öðru fram. Það breytir því ekki að sjálfstæðismönnum er mjög í mun að bæta almenningssamgöngur og flýta fyrir mikilvægustu samgöngubótunum samkvæmt samgöngusáttmálanum, sem mun verða til verulegra hagsbóta fyrir borgarbúa og aðra sama hvaða samgöngumáta hver og einn kýs. Í þessu sambandi eru raunsæi og skynsemi lykilorðin. Sjálfstæðisflokkurinn gengur samhentur til komandi borgarstjórnarkosninga. Á framboðslista flokksins er fjölbreyttur hópur með víðtæka reynslu. Því fólki er vel treystandi til að laga það sem aflaga hefur farið síðustu áratugina. Og sem meira er, það kann að hlusta. Brynjar Níelsson

Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844

Brynjar Níelsson.

Bílastæðastefna sem gengur ekki upp

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Það er ekki tilviljun hvernig bílastæðamálum er háttað í nýjum hverfum Reykjavíkur. Sú þróun á sér skýra stoð í Aðalskipulagi Reykjavíkur, þar sem gert er ráð fyrir að bílastæðakröfur taki mið af staðsetningu og þéttleika byggðar og geti verið lægri en áður tíðkaðist. Þetta er meðvituð stefna sem birtist í nýjum uppbyggingarsvæðum þar sem færri bílastæði eru skipulögð en lengi var venjan.

Á sama tíma liggur fyrir að bílaeign hér á landi er með því hæsta sem þekkist. Fjöldi bifreiða á hvern íbúa er mjög hár og raunveruleikinn sá að flest heimili eiga bíl og mörg fleiri en einn. Þessi staðreynd hefur ekki breyst þrátt fyrir stefnumörkun á skipulagsstigi og bendir til þess að eftirspurn eftir bílastæðum sé áfram raunveruleg og viðvarandi, óháð því hvaða væntingar eru settar fram.

Samhliða þessu er verið að byggja upp og fyrirhugað að byggja ný hverfi, til dæmis í Keldnalandi, á þéttingarreitum í efri byggðum og á Höfðanum, þar sem ekki er gert ráð fyrir sambærilegu aðgengi að bílastæðum. Í slíkum verkefnum virðist gert ráð fyrir breyttri hegðun íbúa án þess að forsendur fyrir þeirri breytingu séu til staðar. Það er einfaldlega gengið út frá því að fólk muni breyta lífsstíl sínum en án þess að raunhæfir valkostir séu til staðar.

Skortstefna í bílastæðamálum

Reikningsdæmið er einfalt og gengur

ekki upp. Ef færri bílastæði eru skipulögð en eftirspurn stendur til, skapast skortur.

Afleiðingarnar eru fyrirsjáanlegar.

Bílar hverfa ekki, þeir leita annað. Álag færist yfir í nærliggjandi götur og hverfi

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

þar sem innviðir voru ekki hannaðir fyrir slíkt álag. Vandinn leysist því ekki heldur flyst til. Þá skapast einnig aukið álag á umferð, meiri leit að stæðum, meiri tími sem fer í að finna bílastæði og þar með aukin mengun og óþarfa akstur.

Samhliða þessu blasir við önnur þróun sem erfitt er að horfa fram hjá. Borgaryfirvöld hafa á sama tíma markvisst

dregið úr fjölda bílastæða með því að umbreyta stæðum með blómakerum og svokölluðum kleinuhringjum. Þannig er ekki aðeins verið að takmarka framboð í nýjum hverfum heldur rýra þau gæði sem áður voru fyrir hendi. Þetta er ekki tilviljun heldur stefna sem hefur raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks.

Slík nálgun býr til vítahring. Minna framboð leiðir ekki sjálfkrafa til minni eftirspurnar heldur til meiri þrýstings. Íbúar neyðast til að leggja lengra frá heimili sínu, nýta götur sem ekki voru hannaðar fyrir slíkt eða keppa um takmörkuð gæði sem áður voru sjálfsögð. Þetta dregur úr lífsgæðum og skapar ónauðsynlegan núning í daglegu lífi.

Hér í úthverfum blasir þetta sérstaklega við. Þetta eru ekki miðborgarsvæði þar sem allt er í göngufæri heldur hverfi þar sem daglegt líf krefst þess að fólk komist leiðar sinnar með einföldum hætti. Að skipuleggja slík svæði með færri bílastæðum en raunveruleg notkun gefur tilefni til er ekki framsýni heldur misræmi sem mun óhjákvæmilega koma fram í daglegu lífi íbúa í efri byggðum. Slíkt misræmi getur jafnframt haft áhrif á verðmæti eigna, aðdráttarafl hverfa og traust til skipulagsyfirvalda.

Skipulag þarf að byggja á raunveruleikanum, ekki forsendum sem ganga ekki upp. Björn Gíslason borgarfulltrúi

Spönginni

3ja herbergja íbúð og stæði í lokuðu bílahúsi

- til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir eignina Flétturimi 1, 112 Reykjavík, sem er 95.6 fm þriggja herbergja íbúð á annari hæð auk stæðis í lokuðu bílahúsi nánar tiltekið eign merkt 02-08, fastanúmer 204-0132 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, þvottahús/búr innaf eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla.

Nánari lýsing:

Forstofa með fataskáp og parket á gólfi.

Eldhús með ljósri innréttingu, flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi.

Hjónaherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.

Barnaherbergi er með parketi á gólfi.

Þvottahús er innan íbúðar. Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla.

Stæði er í lokuðu bílahúsi og búið er að leggja bílarafmagn í bílahúsið.

Stutt er í leikskóla, skóla, sundlaug og íþróttamiðstöð.

Verslanir og þjónusta eru í Spönginni og golfvellir eru steinsnar frá í Grafarholti og á Korpúlfstöðum.

Hafið samband við Árna Þorsteinsson löggiltan fasteignasala á arni@fmg.is og í síma 898-3459 eða Sigrúnu Stellu Einarsdóttur löggiltan fasteignasala á stella@fmg.is og í síma 824-0610 til að bóka skoðun.

Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali s. 8240610

Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906

Árni Þorsteinsson rekstrar-hagfræðingur. M.Sc. löggiltur fasteignaog skipasali og löggiltur leigumiðlari s. 898 3459

Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteigna- og skipasali s. 786-1414

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.

SMIÐJUVELLIR AKRANESI

Góð fjárfesting - alls 1724,1 fm. eign sem skiptist á þrjú fastanúmer, 774,2 fm.,112 fm og 837,9 fm.

Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki.

Spöngin 11 - 112 Reykjavík Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst

BERJARIMI 3ja HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

96 fm 3.herbergja íbúð á 2.hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.

Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar. Vestur svalir.

GARÐSTAÐIR - ENDARAÐHÚS MEÐ BÍLSKÚR

Bjart 161,1 fm, 4.herbergja endaraðhús. Þrjú svefnherbergi, mikil lofthæð með innfelldum ljósum í stofu og borðstofu, garður í rækt með sólpalli.

FORNIBÆR - 4HA JÖRÐ MEÐ HEILSÁRSHÚSI OG SKEMMU

Jörðin er rétt fyrir utan Selfoss og liggur að sjó. Gott 78 fm heilsárshús og 160 fm skemma eru á jörðinni. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir í síma 892-8778 og á anna @fmg.is

Baðherbergi er með ljósri innréttingu og ljósum flísum.
Eldhús með ljósri innréttingu, flísar á gólfi.
Íbúðin í Flétturima 1 er mjög skemmtileg og vel skipulögð.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi.

Nú skal gengið til kosninga

Á fjögurra ára fresti gefst okkur

Reykvíkingum kostur á því að kjósa okkur borgarstjórn til fjögurra ára. Kosningaréttur okkar er mikils virði og víða um heim er fólk að berjast fyrir þeim réttindum, sem okkur þykja sjálfsögð lágmarksréttindi. Eins og t.a.m. að kjósa okkur fulltrúa. Því ber okkur að vanda valið og nýta okkur kosningaréttinn.

Því miður hefur okkur Grafarvogsbúum ekki borið gæfa til þess að geta kosið okkur fulltrúa úr okkar hópi í borgarstjórn í langan tíma.

Á sínum tíma áttum við okkar fulltrúa Hilmar Guðlaugsson og síðar Guðlaug Þór Þórðarson.

Nú hefur Sjálfstæðisflokknum auðnast að bjóða okkur Grafarvogsbúum glæsilegan valkost. Sigrún Ásta

Einarsdóttir er í níunda sæti framboðslista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í næsta mánuði. Við ættum því öll að sameinast um að láta

- eftir Emil Örn Kristjánsson

Sjálfstæðisflokknum eftir okkar atkvæði og tryggja okkur öflugan fulltrúa í borgarstjórn.

Áherzluatriði flokksins fara enda saman við óskir okkar Grafarvogsbúa, sem hafa verið ítrekað hunzaðar af sitjandi meirihluta.

Við viljum að horfið verði frá gengdarlausum þéttingaráformum.

Við viljum vernda græn svæði í hverfinu okkar.

Við viljum að lausn verði fundin á legu Sundarbrautar í sátt við íbúa, án þess að stóraukinni umferð af Vesturog Suðurlandsvegi verði veitt í gegnum hverfið.

Við viljum að Grafarvogurinn og strandlengja hans verði friðuð. Ekki bara vogurinn sjálfur.

Við viljum að uppbygging í Keldnalandi verði endurskoðuð og látið verði af óraunhæfum þéttingaráformum.

Við viljum efla íþrótta- og tómstundastarf í hverfinu okkar undir foryztu Ungmennafélagsins Fjölnis.

Og síðast en ekki sízt, við viljum að búsetuforsendum okkar sé ekki raskað og að allar skipulagsbreytingar verði í fullri sátt víð íbúa. Við, sem byggjum þetta hverfi, höfum fjárfest í fasteignum í lágreistri og dreifðri byggð og sættum okkur ekki við að búsetuforsendum okkar sé kollsteypt af borgarfulltrúum og embættismönnum, konum og körlum, sem enga þekkingu hafa af hverfinu okkar.

Við, alla vega flest okkar, hafa kosið að búa hér vegna þess að hér eru þær forsendur, sem okkur hugnast. Ekki vegna þess að við fengum ekki íbúð í hundraðogeinum.

Höfundur er leiðsögumaður, fararstjóri og frumbyggi í Rimahverfi.

Emil Örn Kristjánsson.

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Að hlaupa með hundinum sínum er meira en bara líkamsrækt. Þetta er frábær leið til að styrkja tengslin ykkar á meðan þið hreyfið ykkur saman. Hvort sem þið farið út í ferska loftið, njótið útiverunnar eða eigið einfaldlega góða stund saman, þá er þetta gefandi fyrir bæði mann og hund. En áður en lagt er af stað er gott að undirbúa sig aðeins, því það gerir upplifunina bæði öruggari og skemmtilegri.

Er hundurinn þinn tilbúinn að hlaupa?

Áður en þú reimar á þig hlaupaskóna er mikilvægt að huga að líkamlegu ástandi hundsins.

Aldur: Ekki er mælt með löngum hlaupum fyrir hvolpa sem eru enn að vaxa eða eldri hunda með liðavandamál.

Tegund: Sumar tegundir, eins og stuttlappa hundar, þola síður mikla áreynslu. Aðrar tegundir, eins og retrieverar og fjárhundar, eru oft náttúrulega hreyfanlegri.

Heilsa: Gott er að ganga úr skugga um að hundurinn sé ekki með vandamál í mjöðmum, liðum eða hjarta. Fljótlegt tékk hjá dýralækni getur verið góð hugmynd áður en byrjað er. Áhugi: Ekki eru allir hundar sjálfkrafa spenntir fyrir því að hlaupa. Sumir þurfa rólega aðlögun, þolinmæði og jafnvel nokkra nammobita til að fá áhuga.

Veldu rétt umhverfi

Það skiptir miklu máli hvar þið hlaupið. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga: Í borginni eða á gangstéttum: Hafðu hundinn við hliðina á þér, helst þeim megin sem snýr frá umferð, til öryggis. Í garði eða á öruggum stíg: Ef reglur á svæðinu leyfa má hundurinn hlaupa örlítið á undan, svo lengi sem hann heldur athyglinni á þér.

Virðið reglur á svæðinu: Á sumum stöðum þarf hundurinn alltaf að vera í taumi. Kynntu þér reglurnar áður en þið leggið af stað. Athugaðu truflanir: Hjól, skokkarar

og aðrir hundar geta auðveldlega tekið athygli hundsins. Hann þarf að læra að fylgja þér þrátt fyrir spennandi áreiti.

Að læra að hlaupa saman

Það þarf smá æfingu að læra að hlaupa saman. Best er að byrja rólega og kenna hundinum grunninn:

• Byrjið á röskum göngutúrum til að venjast hraðanum.

• Kennið góða staðsetningu, til dæmis vinstra megin, við hliðina á þér eða örlítið á undan, eftir því hvað er öruggast.

• Verðlaunið góða hegðun með hrósi eða litlu nammi þegar hundurinn hleypur rólega við hliðina á þér. Þannig byggirðu upp jákvæða tengingu við hlaupin.

Nauðsynlegur búnaður fyrir þægileg hlaup Réttur búnaður getur skipt miklu máli. Fyrir meiri þægindi og öryggi getur verið sniðugt að nota hlaupagerði um mittið og teygjanlegan taum sem er hannaður fyrir hunda. Slíkur búnaður hentar vel í göngur, skokk eða gönguferðir utandyra með hundinum. Stillanlegt belti með endurskinsröndum eykur sýnileika og teygjutaumur hjálpar til við að dempa snögg tog. Á sumum beltum fylgja einnig litlir vasar eða hólf sem henta vel fyrir síma, vatnsflösku eða nammi. Það einfaldar allt og gerir útiveruna þægilegri.

Skipulagðu fyrstu hlaupatúrana vel Eins og með alla nýja hreyfingu er lykillinn að árangri að fara rólega af stað. Þannig minnkarðu líkur á meiðslum eða því að áhuginn detti niður hjá ykkur báðum.

• Byrjið á stuttum vegalengdum og hóflegum hraða.

• Fylgstu vel með hundinum. Mikil mæði, hægari hraði eða áhugaleysi þýðir að það sé kominn tími á hvíld.

• Hafðu alltaf vatn með fyrir bæði þig og hundinn. Svona heldurðu þessu skemmtilegu

• Breyttu stundum um leið svo hundurinn haldi forvitni og áhuga.

• Bættu við leikpásum eða leyfðu honum að þefa aðeins, það skiptir hann máli.

• Vertu sveigjanleg/ur, suma daga er góður göngutúr alveg nóg.

• Hafðu þetta jákvætt, þetta snýst ekki um afrek heldur að eiga góða stund saman.

Að hlaupa sem lið

Að hlaupa með hundinum sínum er meira en bara hreyfing. Þetta er sérstök samverustund þar sem þið vinnið saman sem lið. Með góðum undirbúningi, því að hlusta á hundinn og virða hans hraða getið þið byggt upp dýrmætar minningar, eitt skref og eina loppu í einu.

Grafarvogsblaðið Grafarvogsblaðið

í öll hús í Grafarvogi 4. tbl. 37. árg. 2026 apríl

Spöngin 11 112 Reykjavík Sími 575 8585

Allar almennar bílaviðgerðir Bifreiðaverkstæði Grafarvogs Þjónustuaðili Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477 www.bilavidgerdir.is

Dreift ókeypis

Fréttir

Grafarvogsblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is

Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.

Það hanga ekki allir á netinu

Í blaðinu að þessu sinni eru kosningarnar fyrirferðamiklar og margir frambjóðendur hafa falast eftir birtingum á greinum í okkar blöðum. Við þessum beiðnum höfum við orðið í öllum tilfellum.

Frambjóðendur flokkanna eru misjafnlega duglegir að hafa samband við okkur. Mestur áhugi fyrir hverfablöðum okkar er meðal frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins og frambjóðendur Miðflokksins eru einnig áhugasamir og telja hverfablöðin góðan vettvang til að koma skoðunum sínum á framfæri við kjósendur.

Það vekur furðu að ekki heyrist frá sumum flokkunum og þeir láta sem blöðin séu ekki til. Það er auðvitað þeirra mál en ekki okkar.

Talandi um hverfablöðin. Í fyrra voru gefin út sjö hverfablöð í Reykjavík. Um mitt árið í fyrra var útgáfu fjögurra hverfablaða hætt. Eftir standa blöðin okkar þrjú, Grafarvogsblaðið, Árbæjarblaðið og Grafarholtsblaðið.

Til þessa hefur útgáfa blaðanna gengið vel. Fyrirtæki átta sig enn á því að það hanga ekki allir á netinu og fólk vill fá sitt hverfablað.

Skilningsleysi opinberra aðila er hins vegar algjört. Sem dæmi um það er að ríkið styrkir einkarekna fjölmiðla.

Borgin hefur veitt okkar blöðum lítinn styrk í gegnum árin. Þegar ríkið greiðir út styrkinn til okkar dregur það styrkinn frá borginni frá. Þetta er auðvitað meira en glórulaust og þegar farið er fram á að þessu verði breytt er það viðurkennt að þetta mætti betur fara en ekkert gert í málinu.

Ríki og Reykjavíkurborg eru mjög léleg þegar kemur að því að auglýsa í blöðunum. Erfiðlega gengur að ná sambandi við aðila, sérstaklega hjá borginni. Í Kópavogi, Mosfellsbæ og Garðabæ eru hverfablöðin til dæmis löðrandi í auglýsingum frá viðkomandi yfirvöldum.

Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is

Verndum grænu svæðin

- eftir Sigrúnu Ástu Einarsdóttur, Grafarvogsbúa og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn hafnar fyrirhuguðum þéttingaráformum í Grafarvogi Það er snemma kvölds í Grafarvogi. Börn eru að leika sér á grasinu, foreldrar fylgjast með á bekk, einhver gengur með hundinn sinn og annar er á skokki eftir langan vinnudag. Þetta eru augnablikin sem skipta máli og grænu svæðin ramma þau inn.

Fyrir ári síðan spurði ég: Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík? Því miður erum við enn í dag minnt á að það sem við tökum sem gefnum hlut er ekki sjálfgefið.

Ekki auðir reitir – heldur lífsgæði Græn svæði eru ekki „auðir reitir“ á skipulagskorti. Þau eru hluti af lífi okkar. Þar leika börnin okkar sér, þar hittum við nágranna, þar náum við andanum. Við vitum þetta öll, en rannsóknir staðfesta það líka. Græn svæði draga úr streitu, bæta andlega heilsu og hvetja til hreyfingar. Þau bæta loftgæði, styðja við líffræðilega fjölbreytni og skapa jafnvægi í borgarumhverfi sem annars getur orðið þungt og þétt. Þess vegna skipta þessi svæði máli. Ekki bara í dag heldur til framtíðar.

Grafarvogur er einstakur

Grafarvogur er skipulagður sem fjölskylduvænt hverfi þar sem náttúran er hluti af daglegu lífi. Enn í dag eru hér víðfeðm græn svæði og nálægð við náttúruperlur sem gefa hverfinu sér-

stöðu sem fá önnur hverfi búa yfir. En þessi sérstaða er viðkvæm. Þegar gengið er á græn svæði verður ekki aftur snúið. Þess vegna verðum við að huga ekki aðeins að þörfum nútímans heldur næstu kynslóða allra.

Friðun Grafarvogsins Brýnt er að útvíkka friðun á Grafarvoginum upp fyrir göngustíg, eins og Guðlaugur Þór lagði til sem umhverfisráðherra. Þar er að finna einstakt fuglalíf, viðkvæma náttúru og menningarminjar sem segja sögu svæðisins. Við þurfum að tryggja að uppbygging á

AÐ KEILAN Á

Keldnalandi sé í sátt við náttúruna, raski ekki því einstaka fuglalífi sem þar er og að íbúar svæðisins geti notið einstakrar náttúru sem þar er. Ég hef staðið vörð og mun halda áfram Ég hef tekið virkan þátt í baráttunni fyrir grænum svæðum í Grafarvogi. Ég hef hlustað á íbúa, staðið með þeim og beitt mér fyrir því að rödd hverfisins heyrist. Þetta er mál sem skiptir mig miklu. Þetta snýst um hverfið mitt. Um daglegt líf okkar. Ég vil að börnin í borginni hafi rými til að leika sér úti, fjarri áreiti tölva og snjalltækja, það er á okkar ábyrgð að tryggja þeim það umhverfi og ganga ekki á þau svæði. Sterk hverfi verða ekki til af tilviljun, þau verða til þegar fólk stendur saman og verndar það sem skiptir máli. Þannig er Grafarvogur.

Kjördagur snýst um forgangsröðun Ég býð mig fram til borgarstjórnar því ég vil standa vörð um þessi gæði. Ég hef gert það, Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur gert það og mun halda því áfram. Með sterkum Sjálfstæðisflokki í borgarstjórn getum við tryggt raunverulegar breytingar, verndað græn svæði, styrkt hverfin og sett hagsmuni íbúa í fyrsta sæti. Í vor veljum við ekki bara fólk, við veljum hvaða gildi eiga að ráða. Verndum það sem skiptir máli. Höfnum þéttingunni í Grafarvogi. Sigrún Ásta Einarsdóttir

UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST.

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

Sigrún Ásta Einarsdóttir.

Mataruppskriftir

Grænmetis- og kjúklingasúpa með graskeri

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Hér kemur ein extra ljúffeng súpuuppskrift eftir stórsteikur páskanna.

Hráefni (4–6 skammtar)

2 msk. ólífuolía.

1 laukur, saxaður.

1 púrrulaukur, sneiddur.

2 hvítlauksrif, smátt söxuð.

300 gr. grasker (butternut eða annað), teningar.

2 gulrætur, sneiddar.

1 stór sæt kartafla, teningar.

1 paprika (appelsínugul eða rauð), teningar.

1 dós (400 gr.) niðursoðnir tómatar.

1 lítri kjúklingasoð (eða grænmetissoð)( kraftur og vatn).

2 kjúklingabringur, skornar í bita.

1 tsk. paprikuduft.

½ tsk. cumin.

½ tsk. timían eða rósmarín.

Salt og pipar eftir smekk.

Auka sem ég mæli alveg með:

1 dl. rauðar linsubaunir (gera súpuna þykkari og próteinríkari).

Handfylli ferskt grænt í lokin.

Safi úr ½ sítrónu til að fríska upp á bragðið.

Aðferð Hitaðu olíu í stórum potti. Mýktu lauk og púrrulauk í 3–4 mínútur. Bættu hvítlauk út í síðustu mínútuna.

Settu kjúklingabitana út í, kryddaðu og brúnaðu létt. Settu grasker, gulrætur, sæta kartöflu og papriku í pottinn. Hrærið saman.

Helltu niðursoðnum tómötum og soði yfir. Bættu linsubaunum út í ef þú ætlar að nota þær.

Láttu malla í 20–25 mínútur þar til allt er mjúkt.

Bættu babyleaves / spínati / grænkáli út í síðustu 2–3 mínúturnar. Smakkaðu til með salti, pipar og smá sítrónusafa.

Næringar + Prótein úr kjúklingi og linsubaunum.

Beta-karótín úr graskeri, gulrótum og sætum kartöflum.

Trefjar sem styðja meltingu.

Súpan er fullkomin sem máltíð í hádeginu eða léttur kvöldmatur.

Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

Grænmetis- og kjúklingasúpan hennar Jönu er algjört salgæti.
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

rædd í Metabolica. Þar mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri. Vertu á undan sumrinu:

Þegar fyrstu vorboðarnir minna á sig og daginn fer að lengja, fyllast margir nýrri orku. Við förum að huga að útivist, sumarbústöðum og fjallgöngum. En oft gerist það að við bíðum þar til sólin er farin að skína hátt á lofti með að huga að eigin heilsu – og þá getur brekkan virtst dálítið brött.

Hjá okkur í Metabolic Reykjavík trúum við því að besta leiðin til að njóta sumarsins sé að leggja grunninn strax í dag. Ekki með boðum og bönnum eða öfgafullu „átaki“, heldur með því að byggja upp styrk og þol sem þjónar þér í raunverulegu lífi.

Meira en bara æfingastöð

Margir tengja orðið „Metabolic“ við mikla ákefð og svita, og jú, við fáum púlsinn vissulega upp! En eftir 15 ár í bransanum veit ég að lykillinn að árangrinum sem lifir með þér, er jafnvægi. Í stöðinni okkar við

verkjalaus. Markmiðið er að þú gan-

gir út af æfingu með meiri orku en þú komst með inn.

Af hverju að byrja núna?

Það er algeng mýta að við þurfum að vera „komin í form“ áður en við

● Vekja líkamann af dvala: Byggja upp grunnstyrk sem verndar liðamót og bakið þegar garðverkin eða gönguferðirnar byrja.

● Auka orkuna jafnt og þétt: Það tekur líkamann nokkrar vikur að aðlagast nýjum venjum. Með því að byrja strax ertu komin með blússandi orku þegar útilegutímabilið hefst.

● Finna samfélagið: Grafarvogurinn er frábært hverfi og í Metabolic myndast dýrmætur vinskapur. Það er miklu auðveldara að mæta þegar þú veist að það er beðið eftir þér með bros á vör.

Þjálfun fyrir raunverulegt fólk

Við vitum að lífið er áskorun. Milli vinnu, skutls og heimilisreksturs getur verið erfitt að forgangsraða sjálfum sér. Þess vegna leggjum við áherslu á skilvirkar æfingar þar sem hver mínúta telur. Hjá okkur er engin dómharka – bara hvatning, fagmennska og hlýja.

Stórhöfða leggjum við áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur.

Við sameinum kraftinn úr styrktarþjálfun og mýktina sem líkaminn þarf á að halda til að vera liðugur og

mætum í skipulagða þjálfun. Raunveruleikinn er sá að við mætum einmitt til að byggja okkur upp með aðstoð þjálfara! Með því að byrja núna, áður en sumarfríin skella á, nærðu að:

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.

Við hjálpum þér að fínstilla væntingarnar. Stundum er sigurinn fólginn í því að mæta og hreyfa sig aðeins, þótt nóttin hafi verið erfið eða vinnudagurinn langur. Það er þessi samfella sem skilar árangri til lengri tíma.

Vertu velkomin í hópinn

Ég hvet þig til að nýta vorið í að fjárfesta í þér. Ekki vegna þess að þú „þurfir“ að breyta þér, heldur vegna þess að þú átt skilið að líða vel, finna styrkinn og hafa orku í allt það skemmtilega sem sumarið ber í skauti sér.

Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðanum, prófaðu tvær vikur frítt! Og finndu muninn á líkama og sál. Við hlökkum til að taka á móti þér!

Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Hver notar

ekki hálfan bíl?

- eftir Helga Áss Grétarsson, frambjóðanda Miðflokksins

Að frumkvæði meirihlutans í borgarstjórn var rætt um það á fundi umhverfis- og skipulagsráðs að „rýmka viðmið fyrir íbúðahúsnæði um allt að 0,5 bílastæði á íbúð“, samanber frétt á visir.is sem birt var 19. mars síðastliðinn.

Um málið var einnig fjallað á grafarvogur.net undir fyrirsögninni: „Óvænt útspil! Meirihlutinn leggur til að bílastæðum verði fjölgað við nýbyggingar. Vel í lagt, hálft stæði á íbúð.“ Sem sagt, korteri fyrir kosningar, hyggst núverandi meirihluti borgarstjórnar auka möguleika íbúa í nýbyggingum að hafa stæði fyrir bílinn sinn.

Er möguleg stefnubreyting trúverðug?

Tillögur að breytingum á reglum fjölda bíla- og hjólastæða voru kynntar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 18. mars 2026. Við skoðun á fundargerð fundarins eru tillögurnar sjálfar ekki aðgengilegar almenningi. Það er tortryggilegt. Efni tillagnanna er hins vegar rakið í áðurnefndri frétt á visir.is.

Fyrir nýbyggingar í hverfum á borð við Grafarvog er eftirfarandi lagt til:

• Bílastæði fyrir eins herbergja íbúð fari úr 0,5 í 0,75;

• Bílastæði fyrir tveggja herbergja íbúð fari úr 0,75 í 1;

• Bílastæði fyrir þriggja og fjögurra herbergja íbúðir fari úr 1 í 1,5; Hámarksviðmið bílastæða hækkar einnig lítillega samkvæmt tillögunum. Þessi mögulega stefnubreyting er ekki trúverðug í aðdraganda borgarstjórnarkosninga. Vinstri-meirihlutar borgarstjórnar, með Samfylkinguna í broddi fylkingar, hafa um langa hríð staðið fyrir stefnu um að halda fjölda bílastæða í lágmarki, ekki síst í nýbyggingum.

Tillaga að minnismerki á toppi Esju! Á áðurnefndum fundi umhverfis- og skipulagsráðs 18. mars síðastliðinn var samþykkt að koma fyrir styttu í Hljómskálagarðinum sem minnismerki um kvennabaráttuna. Einnig er fyrirhugað að setja upp styttu af tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur í Miðborg Reykjavíkur. Í ljósi áhuga núverandi meirihluti

í

leggja eftirfarandi til: Reykjavíkurborg láti gera minnismerki um hálft bílastæði og komi því fyrir á toppi Esju. Minnismerkið skal vera nægjanlega stórt svo allir borgarbúar geti séð það á toppi borgarfjallsins. Markmiðið með gerð minnismerkisins er að minna okkur á hversu gjöful stefna núverandi borgaryfirvalda hafa verið gagnvart hagsmunum notenda fjölskyldubílsins. Minnismerkið gæti heitið: Hver notar ekki hálfan bíl? Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Helgi Áss Grétarsson.

Málin
borgarstjórnar á styttum, bæði að bæta við styttum
borgarlandinu og taka niður gamlar styttur, vil ég til gamans

SAMAN

Frelsi og val í samgöngum

- eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Samkvæmt mælingum Vegagerð—arinnar eykst umferð ár frá ári - það finnum við öll á eigin skinni. Árið 2019 var áætlað að tæplega níu milljónum klukkustunda yrði sóað í umferðartafir innan höfuðborgarinnar árlega. Umferðartafir á annatíma höfðu aukist um nærri 50% á örfáum árum. Þessar tafir samsvöruðu um 40 klukkustund-um –eða heilli vinnuviku - á hvern höfuðborgarbúa árlega.

Undanfarið hefur ástandið einungis versnað enda engar teljandi samgöngubætur átt sér stað í Reykjavík síðustu tvo áratugi. Sjálfstæðisflokk-urinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða enda lífsgæðamál fyrir fólkið í Reykjavík. Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Stokkum spilin!

Sjálfstæðisflokkurinn vill stokka spilin og forgangsraða verkefnum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæð-isins uppá nýtt. Tryggja þarf að brýnustu og arðbærustu verkefni sáttmálans njóti forgangs. Flýta þarf mislægum gatnamótum við Sprengi-sand, Miklubrautargöngum og innleið-ingu snjallra ljósastýringa. Samhliða þarf að afturkalla þrengingar við Höfðabakka, bæta umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum og tryggja nauðsynlegt viðhald á samgönguinn-viðum borgarinnar.

Við teljum meirihlutann í Reykjavík hafa siglt Borgarlínu í strand og viljum endurskoða verkefnið frá grunni. Innleitt verði nýtt hagkvæmt hrað-vagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að almennri umferð. Mark-miðið verði að gera almenningssam-göngur að raunhæfum valkosti fyrir fleiri. Ferðir verði tíðari, biðskýli betri, þjónustan öflugri og dregið úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Sjálfstæðis-flokkurinn hafnar yfirvofandi þreng-ingum á almennri umferð, svo sem á Suðurlandsbraut eða Gullinbrú.

Breytt bílastæðastefna

Sjálfstæðisflokkurinn hyggst kollvarpa bílastæðastefnu borgarinnar svo

hún mæti betur þörfum íbúa og atvinnulífs. Við viljum fella brott reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og tryggja aukinn sveigjanleika. Við viljum jafnframt vinda ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborg sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjald-skyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði.

Sundabraut án tafar

Hildur Björnsdóttir.

Fjölbreyttar þarfir og frjálsir valkostir

Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja uppbyggingu Sundabrautar strax enda þjóðhagslega arðbær samgönguframkvæmd og mikilvæg tenging fyrir fjölmörg hverfi í Reykjavík. Brautin mun efla Reykjavík sem höfuðborg allra landsmanna, styrkja samkeppnis-hæfni borgarinnar og stöðu almanna-varna. Útfærslu þarf að vinna í sátt við íbúa og atvinnulíf en Sjálfstæðisflokk-urinn aðhyllist gangalausnir.

Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa borg sem virkar fyrir fólk og fyrirtæki. Höfuðborg, þar sem fólk getur leitað hamingjunnar á eigin forsendum. Borg sem byggir á frjálsum valkostum – og býður lífsgæðin sem felast í greiðum samgöngum. Borg þar sem níu milljón klukkustundum er ekki sólundað í umferðartafir - heldur varið í verðmætasköpun og gæðastundir.

Samgönguvandann þarf að leysa með hraði – það er lífsgæðamál fyrir okkur öll.

Hildur Björnsdóttir. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook