

![]()


3. tbl. 37. árg. 2026 mars






Allar almennar bílaviðgerðir Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Spöngin 11 112 Reykjavík Sími 575 8585


Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.
Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is
Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf.
Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is
Prentun: Landsprent ehf.
Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.
Dreifing: Póstdreifing.
Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.
Hvað ætlar þú að kjósa?
Það er kunnara en frá þurfi að segja að þann 16. maí verður blásið til kosninga. Borgarstjórnarkosningarnar eru sérstaklega spennandi að þessu sinni fyrir margra hluta sakir.
Töluvert er um mannabreytingar á framboðslistum í Reykjavík. Skoðanakannanir gefa vísbendingu um breytingar í höfuðborginni. Margir eru þeirrar skoðunar að breytinga sé þörf en aðrir eins og gengur telja að allt sé í góðu lagi og halda beri áfram á sömu braut.
Kannanir sýna að Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í borginni um þessar mundir. Mörg ný andlit eru á framboðslista flokksins, fólk sem ekki hefur áður starfað í stjórnmálum en er vel þekkt úr mannlífi borgarinnar.
Það vakti nokkra athygli þegar tveir reyndustu borgarfulltrúar flokksins hlutu ekki náð hjá skipuleggjendum listans.
Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon gengu í kjölfarið til liðs við Miðflokkinn en ljóst er að ferill þessara borgarfulltrúa er á enda runninn. Mörgum finnst þetta skrítin framkoma við svo öfluga stjórnmálamenn og þetta muni koma niður á fylgi Sjálfstæðisflokksins. Það kemur í ljós eftir tæpan mánuð.
Miðflokkurinn hefur verið á miklu flugi á landsvísu undanfarið og margt bendir til þess að flokkurinn fái mjög góða útkomu í Reykjavík. Ari Edwald er þar nýr leiðtogi og ljóst er að hann nýtur vinsælda meðal borgarbúa. Verður fróðlegt að sjá hver útkoman verður.
Það verður líka mjög fróðlegt að sjá hvernig Samfylkingin kemur út úr þessum kosningum. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var felld í leiðtogakosningu innan flokksins og Pétur Marteinsson, nýliði í stjórnmálum, kjörinn í hennar stað til að leiða listann. Svo virðist sem Samfylkingin eigi í erfiðleikum með hann í fararbroddi og margir fylgjendur Samfylkingarinnar telja að illa hafi verið sótt að Heiðu Björgu.
Reikna má með að Borgarlínan og önnur skipulagsmál verði aðal kosningamálið. Borgarlínan er mjög umdeild og margir eru þeirrar skoðunar að hætta beri við framkvæmdina. Enginn veit hver kostnaðurinn verður og enn á eftir að semja um hver eigi að borga brúsann.
Grafarvogsblaðið mun birta aðsendar greinar þann 16. apríl og þann 14. maí í síðasta blaði fyrir kosningarnar.
Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is
- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu eru meðal mikilvægustu innviðamála sem við stöndum frammi fyrir. Þau snerta daglegt líf þúsunda borgarbúa, atvinnulíf, umhverfi og framtíð borgarinnar. Þess vegna verður umræðan um þau að byggjast á raunsæi, ábyrgð og skýrri forgangsröðun.
Undanfarin ár hefur Borgarlínan verið sett fram sem meginlausn á samgönguvanda höfuðborgarsvæðisins. Í þeirri umræðu hafa þó sífellt fleiri spurningar vaknað um kostnað, forsendur og áhrif verkefnisins á borgarbúa og fyrirtæki. Nú blasir við að verkefnið, eins og það hefur verið útfært, hefur í reynd siglt í strand. Það er ekki vegna þess að borgarbúar séu andvígir bættum almenningssamgöngum. Þvert á móti vill fólk skilvirkar og hagkvæmar samgöngur sem bæta raunverulega ferðatíma og tengingar. Vandinn er sá að verkefni sem áttu að vera lausn hafa í vaxandi mæli orðið að tákni um óraunsæjar forsendur, síhækkandi kostnað og óljósa fjármögnun. Tillaga um viðræður og endurmat Af þeim sökum lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram tillögu á fundi borgarstjórnar 3. mars sl. um að hefja formlegar viðræður við ríkisstjórn og nágrannasveitarfélög um stöðu, fjármögnun og forsendur Samgöngusáttmálans.
Markmiðið er einfalt! Það felst í því að fá skýr svör um hvernig standa eigi að fjármögnun verkefna, hvaða framkvæmdir eigi að hafa forgang og með hvaða hætti tryggja megi raunverulegar samgöngubætur fyrir borgarbúa.

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Höfuðborgarskattur á borgarbúa? Það getur ekki verið sjálfgefið að lausnin felist í nýjum gjöldum á borgarbúa. Hugmyndir um umferðar- eða flýtigjöld eru í raun tillaga um sérstakan höfuðborgarskatt á fólk sem þarf að komast til og frá vinnu, skóla eða heimili sínu. Slíkar hugmyndir verða að standast bæði sanngirni og raunhæfni.
Samgöngur eru grunninnviðir. Þær eru ekki lúxusvara sem fólk á að greiða aðgangseyri að, nema um sé að ræða af-
markaða framkvæmd sem raunverulega styttir leið og býður upp á valkost, líkt og Hvalfjarðargöngin gerðu á sínum tíma. Dæmi um slíkt gæti verið Sundabraut.
Borgarbúar greiða nú þegar skatta og gjöld sem eiga að standa undir uppbyggingu innviða. Það er því ekki ásættanlegt að reistur verði sérstakur gjaldamúr í kringum borgina.
Raunhæfar lausnir
Í stað þess að festa okkur í verkefni sem hefur vaxið úr hófi fram þarf að horfa á heildarmyndina. Það þýðir að hraða framkvæmdum sem bæta raunverulega umferðarflæði og öryggi, svo sem umbótum á stórum gatnamótum, mögulegum Miklubrautargöngum og innleiðingu snjallrar ljósastýringar sem getur aukið skilvirkni án þess að þrengja að borgarbúum.
Tími til að staldra við Borgarbúar eiga rétt á því að samgönguverkefni séu byggð á traustum grunni. Þeir eiga rétt á því að ákvarðanir séu teknar með hagsmuni þeirra að leiðarljósi, en ekki út frá hugmynda-fræðilegum tilraunum sem síðar reynast dýrkeyptar. Þess vegna er tímabært að staldra við og endurmeta stöðuna. Borgarlínuverkefnið, eins og það hefur verið sett fram, hefur siglt í strand. Borgarbúar þurfa bættar samgöngur og það án frekari tafa.
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
































- frábær uppskrift sem vert er að prófa
Skötuselurinn er bakaður í sósu með hunangi, sinnepi og sítrónu sem gefur ljúft og gott jafnvægi milli sætu og sýru. Hentar vel bæði dags daglega og við hátíðleg tilefni.
2 skammtar.
350 gr. Fiskur (Skötuselur, roð- og beinlaus).
5 gr. Steinselja (fersk eða frosin).
0.5 stk. Sítróna (safinn.
0.5 msk. Kapers.
1 tsk. Hunang (eða eftir smekk).
4 gr. Sinnep (dijon eða annað).
4 gr. Kryddblanda (að eigin vali).
0.25 tsk. Salt.
0.25 tsk. Pipar.
3 msk. Olía (t.d. kaldpressuð ólífuolía).
Hitið ofninn í 200 gráður.
Skerið skötuselinn í hæfilega bita og raðið bitunum í eldfast mót.
Skolið steinselju og saxið smátt, hvort sem hún er fersk eða frosin. Kreistið safann úr sítrónunni.
Hrærið síðan saman í skál steinselju, sítrónusafa, kapers, hunangi, sinnepi, kryddblöndu, salti, pipar og olíu.
Hellið blöndunni yfir fiskinn.
Bakið fiskinn í 15 til 20 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn.
Hægt er að bera réttinn fram með blöndu af ofnbökuðum sætum kartöflum, spergilkáli og lauk – eða öðru grænmeti sem til er í ísskápnum og gott er að nýta.
Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

Skötuselur er hið mesta hnossgæti og sannkallaður veislumatur. Þessi réttur frá Jönu er sérlega girnilegur.



























































































































































Í heimi sem einkennist iðulega af sífelldum samanburði og útlitsdýrkun, höfum við hjá Metabolic Reykjavík valið að fara aðra leið. Við trúum því að líkamsrækt eigi að vera griðastaður þar sem fókusinn færist frá því hvernig við „lítum út“ yfir í það hvað við „getum gert“. Þessi áherslubreyting er undirstaðan í öllu okkar starfi.
Af hverju eru engir speglar?
Margir mæta í ræktina og eyða stórum hluta tímans í að rýna í spegilinn – ekki bara til að athuga tækni, heldur til að dæma eigið útlit eða bera sig saman við aðra í salnum. Hjá okkur eru engir speglar af þremur meginástæðum: 1. Aukin líkamsvitund: Þegar þú sérð þig ekki í spegli neyðist þú til að finna fyrir hreyfingunni. Þú lærir að treysta eigin líkama, finna hvar þunginn liggur og hvernig vöðvarnir vinna saman. Þetta skapar dýpri tengingu milli hugar og líkama. 2. Minni sjálfsgagnrýni: Speglar geta ómeðvitað kallað fram neikvæðar hugsanir um eigið útlit, sérstaklega þegar maður
hvað við útlitið, heldur til að styrkja vélina sem þú býrð í.
3. Andlegt frelsi: Það ríkir ákveðið frelsi í því að svitna, puða og leggja sig

Frammistaða umfram útlit
Hjá Metabolic fögnum við því sem líkaminn getur. Við einblínum á frammistöðu vegna þess að hún veitir varanlegri gleði og hvatningu en frekar en tölur á vigt eða spegilmynd.
Þegar við tölum um frammistöðu eigum við ekki við að allir þurfi að vera afreksfólk. Við eigum við þá sigra sem skipta máli í hversdeginum: Að geta tekið upp þunga poka án þess að fá verk í bakið, að finna úthaldið aukast í fjallgöngunni, eða að ná að klára æfingu sem virtist ómöguleg mánuði áður.
Af hverju frammistaða?
● Hlutlæg markmið: Það er miklu skemmtilegra að fagna því að ná að þyngja um 5 kíló á stönginni eða klára 10 sekúndum hraðar en síðast, heldur en að elta óljósa útlitshugmynd.

Grafarvogurinn er eitt fallegasta svæði höfuðborgarinnar. Þar er fuglalíf afar fjölbreytt og þar hafa m.a. sést Fálkar og Gráhegrar.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, borgarstjóra og Líf Magneudóttur, formanni Umhverfisog skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
● Sjálfstraust: Að finna styrkinn vaxa veitir sjálfstraust sem smitast út í allt annað lífinu. Þú ferð að líta á líkamann sem verkfæri sem þarf að næra og hvíla svo

er undir álagi. Án þeirra hverfur þessi truflun. Þú mætir ekki til að „laga“ eitt-
fram án þess að pæla í því hvort hárið sé út í loft eða hvernig andlitið litast á síðustu metrunum. Þú ert til staðar fyrir þig, ekki fyrir áhorfendur.

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.
hann geti staðið sig vel, frekar en eitthvað sem þarf að skammta mat til að hann minnki.
● Allir keppa við sjálfa sig: Þegar mælikvarðinn er frammistaða, þá skiptir engu máli hvar þú byrjar. Sigurinn liggur í þínum eigin framförum.
Samfélag venjulegs fólks
Við leggjum metnað í að Metabolic sé staður fyrir venjulegt fólk. Hér mætast kennarar, iðnaðarmenn, foreldrar og ömmur á jafnréttisgrundvelli. Við erum samfélag sem hvetur hvert annað áfram á þeirri forsendu að allir eiga skilið að líða vel í eigin skinni.
Ef það er eitthvað sem á vel við þig, komdu þá til okkar. Skráðu þig í frípassa áskrift og byrjaðu að æfa strax í dag. Við lofum að við tökum vel á móti þér!
Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði á dögunum friðlýsingu Grafarvogs. Vogurinn er friðlýstur sem friðland og nær friðlýsingin til vogsins innan við Gullinbrú. Friðlýsingin var unnin í samstarfi Reykjavíkurborgar og Náttúruverndarstofnunar.
Verndargildi Grafarvogs er hátt, en svæðið er eitt af fáum svæðum í borginni þar sem enn finnast tiltölulega óraskaðar leirur. Leirur eru viðkomustaður farfugla, einkum vaðfugla, og fóstra ríkulegt fuglalíf árið um kring. Vogurinn er þannig mikilvægur viðkomu- og fæðuöflunarstaður fyrir fjölda fuglategunda, en margar þeirra fuglategunda sem nýta svæðið eru á válista eða í yfirvofandi hættu. Má þar m.a. nefna fýl, hvítmáf, sendling og svartbak.
Stórir hópar af rauðbrysting, sanderlu, lóuþræl, stelk, jaðrakan og sandlóu eru einnig reglulega á leirunum á fartíma, bæði um vor og á haustin. Þá er Grafarvogurinn lykilsvæði fyrir heiðlóur á haustin er þær hópa sig þar fyrir brottför. Einnig hafa sést þar Fálkar og Gráhegrar.
Grafarvogur er enn fremur vinsælt útivistarsvæði og er friðlýsingunni líka ætlað að tryggja aðgengi almennings að svæðinu til náttúruupplifunar, fuglaskoðunar og fræðslu.
Hið friðlýsta svæði er 0,5 km² að stærð. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Vogurinn er ljómandi gott dæmi um friðlýsingu sem stuðlar að líffræðilegri fjölbreytni, því hér tryggjum við samastað fyrir ýmsar fuglategundir sem nýta voginn til að nærast og hvílast. Fólk nýtur þess líka að ganga meðfram voginum og með þessari friðlýsingu tryggjum við að náttúrulega umhverfið standi óbreytt, okkur og fuglunum til góða. Vogurinn er ekki aðeins falleg vík í borgarlandinu heldur hluti af stærra vistkerfi – stoppistöð í ferðalagi fugla milli landa og heimsálfa, lykilbúsvæði bæði varpfugla og farfugla sem reiða sig á svæðið til fæðuöflunar og hvíldar. Slík svæði eru sífellt sjaldgæfari, sérstaklega í borgarumhverfi, og þess vegna skiptir vernd þeirra máli.“
- eftir Brynjar Níelsson sem skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnakosningunum 16. maí
Borgarstjórnarkosningar eru á næsta leyti og borgarbúar þurfa að taka ákvörðun hvort þeir vilji sömu öfl áfram eða breytingar við stjórn borgarinnar. Ég hef búið í Reykjavík alla ævi og mér er annt um borgina. Ég ákvað að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í þeirri von að geta haft áhrif og tekið þátt í nauðsynlegum breytingum.
Ef marka má skoðanakannanir vilja tæplega þrír að hverjum fjórum borgarbúa sjá beytingar. Þannig hefur það einnig verið í seinustu tvennum kosningum þar sem meirihlutanum sem hafnað var fékk ný varahjól undir bílinn þannig að hann skrölti áfram. Af því má draga þá ályktun að það verða engar breytingar við stjórn borgarinnar nema að Sjálfstæðisflokkurinn fái afgerandi fylgi í næstu kosningum.
Nú vita borgarbúar að skipulagsmál í borginni hafa verið í lamasessi í langan tíma. Virðingarleysi gagnvart íbúum og vilja þeirra hefur verið með þeim hætti að mörgum ofbýður. Borgin hefur komið í veg fyrir nauðsynlegar samgöngubætur, þétt byggð óhóflega og með eigin aðgerðum gert borgarbúum ógerlegt að komast til og frá vinnu og með börnin í skóla og tómstundir. Allt gert í þeim tilgangi að þröngva eigin hugmyndafræði upp á íbúana í þeirra óþökk. Við þetta verður ekki unað lengur.
Margt annað kann að hafa áhrif á niðurstöðu kosninga en skipulagsmál. Varla heldur nokkur maður því fram að rekstur og fjámál borgarinnar hafi verið til eftirbreytni. Árangur í rekstri grunn- og leikskóla hefur verið slakur og sennilega nokkur heimsmet verið

sett í klúðri í þeim málum. Önnur þjónusta eins og sorpmál, hreinsun gatna og snjómokstur, sem skiptir okkur öll máli, hefur ekki verið til fyrirmyndar. Svona mætti lengi telja.
Nýr meirihluti með Sjálfstæðisflokkinn í fararbroddi mun þurfa að fara í allsherjar tiltekt í rekstri borgarinnar og í skipulagsmálum. Þá
verður lögð áhersla á að sinna lögbundnum skyldum borgarinnar betur en ekki þröngvað óraunhæfri pólitískri hugmyndafræði einstakra borgarfulltrúa upp á íbúa borgarinnar. Það verður hlustað á vilja borgarbúa og tekið tillit til hagsmuna íbúa í hverju hverfi. Reykjavík er nefnilega borgin okkar allra.

Brynjar Níelsson skipar 3. sætið í lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnakosningarnar í Reykjavík.





Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll
þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir
Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla
Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is



585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r eynslu
eignaumsjonis Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f umsjon is eigna
Í síðustu viku fóru fjórir efnilegir leikmenn úr Fjölni á reynslu til norska félagsins Sandefjord. Um er að ræða þá Baltasar Þór Laufarsson (2009), Brynjar Elí Jóhannsson (2010), Elvar Inga Pétursson (2010) og Frosta Hjaltason (2010).
Strákarnir æfðu með U17 ára liði félagsins við frábærar aðstæður á Jotun Arena vellinum, en þjálfari liðsins er Axel Örn Sæmundsson sem er að hefja sitt annað tímabil með liðið. Auk æfinga með liðinu fengu þeir einnig tækifæri til að spila æfingaleik gegn Start, þar sem Sandefjord hafði betur í skemmtilegum leik, 4–3.
Leikmennirnir stóðu sig gríðarlega vel á reynslunni og var greinilegt að þeir nýttu ferðina vel bæði til að læra og kynnast nýju umhverfi. Það verður spennandi að fylgjast með framvindu þeirra á næstunni.
Með í för voru einnig þrír þjálfarar úr Fjölni: Matthías Ásgeir Ramos Rocha, yfirþjálfari karla, Unnar Jóhannsson þjálfari 3. flokks og afreksþjálfari, auk Veigars Arnar Rúnarssonar þjálfara í kvennaflokkum félagsins. Ferðin var því einnig góð tengslamyndun og lærdómstækifæri fyrir bæði leikmenn og þjálfara.

Tennisspilarinn Daniel Pozo hefur verið að láta að sér kveða á innlendum vettvangi að undanförnu og sýnt stöðugar framfarir í sínum leik.
Fyrsta mót ársins á vegum Tennissambands Íslands var Vormót HMRTSÍ, þar sem Daniel náði góðum

árangri og lék sig alla leið í úrslit. Þar mætti hann Rafni Kumar Bonifacius, sem er efsti leikmaður landsins um þessar mundir.
Leikurinn reyndist afar jafn og spennandi og gaf góða mynd af þeirri þróun sem Daniel hefur verið í á síðustu misserum. Úrslitasætið undirstrikar sterka byrjun hans á tímabilinu og gefur fyrirheit um áframhaldandi árangur á árinu.



2. flokkur karla hjá Fjölni varð nýlega Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu árið 2026 eftir sannfærandi 5–0 sigur á Fylki í úrslitaleik mótsins. Fjölnismenn fóru sterkir í gegnum mótið og töpuðu ekki leik á leið sinni í úrslitin. Í riðlakeppninni vann liðið þrjá leiki og gerði eitt jafntefli. Í úrslitaleiknum var Fjölnir með yfirhöndina frá upphafi og skoraði fimm mörk. Aron Sölvi skoraði tvö mörk en einnig sko-
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur samið við Momolaoluwa Adesanmi, eða Mo, um áframhaldandi veru hjá félaginu á komandi tímabili. Mo gekk til liðs við Fjölni á síðasta ári eftir langvarandi meiðsli og vann sig smám saman aftur inn í liðið. Hún hefur einnig leikið með Fjölni í Lengjudeildinni árið 2022 og hefur alls spilað 28 leiki fyrir félagið.
Samkvæmt þjálfara liðsins er Mo sterkur varnarmaður sem gefur liðinu mikið í leikjum og er jafnframt mikilvæg fyrirmynd fyrir yngri leikmenn innan félagsins.
Jafnframt hefur Fjölnir samið við þær Helenu Fönn Hákonardóttur og Ísabellu Rós Bjarkadóttur til ársins 2027. Þær eru báðar fæddar árið 2010 og hafa verið áberandi í liðum félagsins í yngri flokkum, auk þess að hafa fengið tækifæri til að æfa og spila með meistaraflokki.

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir heldur áfram að bæta árangurinn sinn á hlaupabrautinni..
Christina Alba
að bæta sig á hlaupabrautinni
Christina Alba Marcus Hafliðadóttir heldur áfram að sýna stöðugar framfarir á hlaupabrautinni og staðfesti frábæra formið sitt á Nike móti FH sem fram fór í Kaplakrika fimmtudaginn 19. febrúar.
Christina hljóp 60 metra á 7,41 sekúndu og bætti þar með sinn eigin árangur enn frekar, aðeins nokkrum dögum eftir að hún setti Íslandsmet í 60 metra hlaupi í flokki 18–19 ára stúlkna á Meistaramóti Íslands 15–22 ára. Þar hljóp hún á 7,44 sekúndum og bætti fyrra met um 3 sekúndubrot. Tíminn 7,41 sekúnda er aðeins 6/100 frá Íslandsmeti kvenna í greininni, sem er 7,35 sekúndur, og undirstrikar hversu hratt Christina er að nálgast besta árangur landsins frá upphafi.
Hlaup Christinu var stigahæsta afrek Nike mótanna þetta tímabilið með 1.081 stig og hlaut hún verðlaun frá Nike fyrir þann árangur.

ruðu þeir Elmar Daði, Daníel Tal og Tómas Aris. Með sigrinum tryggði liðið sér Reykjavíkurmeistaratitilinn og markaði sterka byrjun á tímabilinu.




Það var nú aldeilis fjörið á Þorrablóti Grafarvogs. Þetta góða fólk var í miklu stuði og skemmti sér vel.
Þorrablót Grafarvogs fór fram föstudaginn 17. janúar og var afar vel

heppnað. Um 1.200 manns sóttu hátíðina, sem staðfesti enn á ný að blótið er einn stærsti og vinsælasti viðburður hverfisins. Gestir nutu hefðbundins þorramatar, skemmtunar og góðrar stemningar fram á kvöld. Blótið var skipulagt af heimafólki með sterkri þátttöku sjálfboðaliða og einkenndist kvöldið af miklum samheldni og
gleði. Þorrablót Grafarvogs hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem mikilvægur samfélagsviðburður og samkomustaður íbúa úr öllum aldurshópum, þar sem hefðir og félagslíf hverfisins fá að njóta sín. Við birtum hér nokkrar myndir frá Þorrablótinu eins og við lofuðum í síðasta blaði enda af nógu að taka.







Stúlknamót Reykjavíkur í skák:
Emilía Embla B. Berglindardóttir, skákkona Fjölnis 2025 og liðsmaður öflugrar skáksveitar Rimaskóla vann titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2026 á fjölmennu móti sem Taflfélag Reykjavíkur hélt. Emilía tefldi í opnum flokki á Stúlkna-og drengjameistaramóti Reykjavíkur og átti góðan dag við taflborðið. Hún bætti 50 skákstigum við ELÓ stigin sín og það á aðeins einu skákmóti.
Emilía Embla er á 14. aldursári og tefldi í 1. sinn í landsliðsflokki á Íslandsmóti kvenna fyrr í vetur. Í næsta mánuði teflir hún á Norðurlandamóti stúlkna ásamt tveimur bekkjarsystrum sínum í Rimaskóla. GV óskar Emilíu Embla til hamingju með Reykjavíkurmeistaratitilinn.

Emilía Embla með sigurlaunin eftir glæsilegan árangur.

A sveit Rimaskóla, þeir bekkjarbræður Sævar Svan, Patrekur, Kristófer Jökull og Mikael
um úr hendi Jóhönnu Bjargar forseta Skáksambands Íslands.
Íslandsmót barnaskólasveita í skák var haldið í Rimaskóla laugardaginn 14. mars og voru 22 skáksveitir skráðar til leiks, um 100 krakkar í yngstu bekkjum grunnskólans. pnin um Íslandsmeistaratitilinn reyndist að þessu sinni æsispennandi og voru það fjórir grunnskólar sem skiptust á um forustuna. Auk liðs Rimaskóla voru það skáksveitir Landakotsskóla, Hvaleyrarskóla og Vesturbæjarskóla. Eftir 6 umferðir af 7 náði Rimaskóli forustunni og hélt henni í lokaumferðinni með 4-0 sigri. Ungir skáksnillingar hafa verið fjölmennir í hópi þátttakenda á skákæfingunum Fjölnis og þar eru Rimaskólakrakkar nokkuð áberandi. Þetta sýndi sig vel á þessu Íslandsmóti yngstu bekkja. Auk þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn var skáksveit Rimaskóla líka í efsta sæti B og C sveita.
Allt upp á 10 - einbeiting, áhugi og ánægja til staðar. Skákæfingar Skákdeildar Fjölnis eru skemmtilegar og skila árangri. Umsjón með skákæfingum Rimaskólakrakka hafa þeir Helgi Árnason fv. skólastjóri og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands. Til hamingju ungu skáksnillingar Rimaskóla.


B sveit Rimaskóla.

Í 1. umferð mættust A og B skáksveitir Rimaskóla



























Fjöldi nýrra húsa eru þegar risin og fleiri eru á leiðinni þegar eitt stærsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur tekur á sig nýja mynd.
Á svæðinu við Borgarhöfða er nýtt borgarhverfi farið að taka á sig skýra mynd. Þar sem áður voru aðallega iðnaðarhús hafa nú þegar risið ný íbúðarhús og fleiri eru á leiðinni á næstunni. Uppbyggingin er ein sú stærsta sem framundan er í Reykjavík og gæti á næstu árum umbreytt svæðinu í eitt líflegasta íbúðahverfi borgarinnar.
svæðinu.
gar þeirra íbúða sem nú þegar eru að komnar í sölu upp á opið og fallegt útsýni. Eftir því sem hverfið þróast og byggist upp eykst eftirspurn eftir slíkum staðsetningum.




Grafarvogsblaðið
Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844

Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að umbreyta svæðinu úr hefðbundnu iðnaðarsvæði yfir í nútímalegt borgarhverfi þar sem íbúðir, þjónusta og atvinnustarfsemi fara saman. Slík blönduð byggð hefur víða reynst skapa líflegri og sterkari hverfi þar sem stutt er í daglega þjónustu, verslun og samgöngur.
Það sem gerir þróunina sérstaklega áhugaverða er að hún er ekki lengur aðeins framtíðarsýn heldur er hún þegar hafin. Nú þegar hefur fjöldi húsa verið reistur á svæðinu og byggðin farin að taka á sig mynd. Samhliða því eru fleiri verkefni í undirbúningi og uppbygging mun halda áfram á næstu árum.
Fyrir þá sem eru að skoða húsnæðismarkaðinn gæti einmitt verið góður tími til að skoða svæðið núna á fyrstu stigum uppbyggingarinnar.
Fyrstu húsin sem rísa eru staðsett á jaðri byggðarinnar eins og hún mun þróast til framtíðar og því bjóða mar-

Kjartan Ísak Guðmundsson.
Á meðal þeirra aðila sem vinna að nýjum verkefnum á svæðinu eru meðal annars Sérverk, Klasi, Umbra og ÞG Verktakar. Uppbygging þessara aðila mun á næstu árum bæta verulega við íbúðarframboð á
Staðsetningin er einnig einn stærsti styrkleiki svæðisins. Borgarhöfði er miðsvæðis með góðar tengingar við helstu samgönguæðar borgarinnar og stutt í fjölbreytta þjónustu, útivist og atvinnusvæði. Fyrir marga getur það verið spennandi kostur að flytja inn í hverfi sem er í örri þróun og taka þátt í mótun nýs samfélags frá upphafi. Fyrir íbúa í Grafarvogs og nágrenni gæti uppbyggingin einnig haft jákvæð áhrif þar sem svæðið mun styrkja þjónustu, atvinnulíf og samgöngutengingar á þessu svæði borgarinnar.
Við sem störfum á fasteignamarkaði höfum þegar fundið fyrir auknum áhuga á svæðinu og erum nú þegar farin að selja eignir á Borgarhöfða. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér tækifærin á svæðinu er velkomið að hafa samband við okkur hjá Mikluborg til að fá frekari upplýsingar um þær eignir sem þegar eru komnar á markað og þau verkefni sem eru á leiðinni í sölu.
Kjartan Ísak Guðmundsson. Höfundur er löggiltur fasteignasali hjá Mikluborg og hefur fylgst náið með þróun og uppbyggingu á Borgarhöfða.
Grafarvogur er eitt fjölmennasta hverfi borgarinnar og hefur frá upphafi verið skipulagt sem fjölskylduvænt lágreist úthverfi með góðri nálægð við bæði náttúru og útivistarsvæði. Hér hefur myndast sterk hverfisvitund og samhent samfélag þar sem fólk ber umhyggju fyrir umhverfi sínu og nágrönnum.
Undanfarin ár hafa hins vegar komið fram umfangsmikil áform um þéttingu byggðar í hverfinu sem myndu raska þessu jafnvægi. Þau áform hafa vakið miklar áhyggjur meðal íbúa og orðið kveikjan að einni mestu íbúasamstöðu sem sést hefur. Ég hef tekið virkan þátt í þeirri baráttu; gengið í hús, rætt við íbúa, tekið þátt í íbúafundum, sett upp upplýsingasíðuna okkargrafarvogur.com og komið fram í fjölmiðlum til að vekja athygli á málinu. Mark-
miðið hefur alltaf verið að upplýsa íbúa og tryggja að rödd okkar fái að heyrast. Viðbrögðin hafa verið skýr. Þúsundir athugasemda í Skipulagsgátt vegna þéttingaráforma borgarinnar sýna að andstaðan er víðtæk. Fólk í Grafarvogi lætur sig einfaldlega varða hvernig hverfið okkar þróast og vill hafa raunveruleg áhrif á framtíð hverfisins. Það sem hefur valdið mörgum vonbrigðum er að þrátt fyrir þessa miklu þátttöku íbúa hefur meirihluti borgarstjórnar haldið áfram að keyra þéttingarstefnuna áfram. Í borgarstjórn Reykjavíkur er aðeins einn flokkur sem hefur staðið með íbúum Grafarvogs í þessari baráttu; Sjálfstæðisflokkurinn. Allir aðrir flokkar í borgarstjórn hafa setið í meirihlutum sem keyrt hafa málið áfram þrátt fyrir skýra og vaxandi andstöðu
íbúa.
Baráttan fyrir Grafarvog varð kveikjan að ákvörðun um að taka virkan þátt í stjórnmálum til að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir um framtíð borgarinnar. Í dag skipa ég 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar Reykjavíkur.
73% borgarbúa vilja breytingar Ég tók ákvörðun um að bjóða fram krafta mína vegna þess að ég tel að Reykjavík þurfi breytingar. Ég er ekki ein um þá skoðun. Nýleg könnun Gallup sýnir að 73% borgarbúa vilja breyttar áherslur í stjórn borgarinnar.
Borgarbúar eiga rétt á skilvirkari rekstri borgarinnar, meiri áherslu á góða grunnþjónustu og betri þjónustu við íbúa, fjölskyldur og fyrirtæki.
– hagsmunasamtök fasteignaeigenda
Heimilið er griðastaður. Allir vilja eiga góð samskipti við nágranna sína. Húsin eru okkar skjól og þar viljum við finna vellíðan eftir amstur dagsins. Í öllum húsum geta komið upp vandamál og ágreiningur risið við nágranna, sem getur haft mikil áhrif á samskipti. Þegar ekki leysist úr ágreiningi getur verið gott fyrir húsfélag eða einstaka íbúðareigendur að geta leitað til óháðra sérfræðinga, hvort heldur það er að bera upp fyrirspurnir eða fá aðstoð við að leysa úr vandræðum.
Húseigendafélagið er hagsmunafélag fasteignaeigenda á Íslandi og hefur verið starfandi í yfir 100 ár. Þar hefur myndast fagleg þekking og reynsla á málefnum fasteignaeigenda og hefur félagið starfandi lögfræðinga sem gefa ráð og aðstoða við úrlausn ágreiningsmála, hvort heldur innan húsfélags eða við utanaðkomandi aðila. Á hverju ári fær Húseigendafélagið hundruð erinda þar sem félagsmenn eru með fyrirspurnir eða leita eftir lögfræðiaðstoð er varða fasteignir þeirra.
Nú fer senn að koma sá tími þar sem húsfélög huga að aðalfundi. Samkvæmt lögum um fjöleignarhús ber að halda aðalfund ár hvert, fyrir apríllok. Aðalfundur húsfélags er mikilvægur vettvangur fyrir ákvörðunartökur og nauðsynlegt að standa rétt að þeim málum til að forðast misskilning og óþarfa ágreining. Húseigendafélagið býður húsfélögum upp á altæka húsfundaþjónustu þar sem aðstoð er veitt við undirbúning aðal- og húsfunda og fundarboðun.
Lögfræðingur Húseig-endafélagsins stýrir fundi og lögfræð-ingur eða annar sérfræðingur ritar fundargerð. Húsfélög hafa í auknum mæli leitað eftir þessari þjónustu hjá Húseigendafélaginu og hefur hún reynst vel. Oft er uppi einhverskonar samskiptavandi eða misskilningur milli fólks sem erfitt er að finna lausn á. Þá getur verið ómetanlegt að fá hlutlausan aðila til að stíga inn, stýra umræðum og tryggja að ákvarðanir séu teknar með lögmætum hætti. Á húsfundum sem Húseigendafélagið
Í vetur hafa félagar í leikfélagi Borgarholtsskóla, Appolo, staðið í ströngu við æfingar á leikverkinu Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í leikstjórn Báru Lindar Þórarinsdóttur. Uppfærslan var frumsýnd þriðjudaginn 10. mars við frábærar viðtökur áhorfenda í Hlöðunni í Gufunessbæ. Verkið var fyrst sýnt á Broadway árið 1941 og kvikmyndað á svipuðum tíma. Það hefur síðan verið fært margoft á svið við góðan orðstír. Sagan er stórskemmtileg en þar segir af fjörugum systrum á áttræðisaldri, Abbý og Mörtu, sem af einskærri góðmennsku eitra fyrir herramönnum til að lina þjáningar þeirra. Þegar fændi þeirra, leikhúsgagnrýnandinn Mortimer, finnur lík í gluggabekknum hjá þeim fer í gang atburðarás þar sem hvert spenghlægilega atvikið tekur við af öðru. Næstu sýningar verða 23., 24. og 25. mars og er hægt að nálgast miða á Tix.is. Hér er komið fyrirtaks tækifæri fyrir unnendur leiklistar að njóta menningar og eiga bráðskemmti-lega kvöldstund í nærumhverfi sínu.
stýrir leysast gjarn-an mál og deilur sem hafa kannski verið í gangi í húsfélaginu í langan tíma. Hægt er að fræðast nánar um húsfundaþjónustuna á heimasíðu Húseigendafélagsins – huso.is
Húseigendafélagið er fyrst og fremst almenn hagsmunasamtök fasteignaeig-enda hér á landi sem stendur vörð um hagsmuni félagsmanna sinna. Fyrir flesta er fasteign þeirra verðmætasta eign og mikilvægt að til staðar sé öflugt hagsmunafélag sem fasteignaeigendur geta leitað í og berst fyrir þeirra hag. Húseigendafélagið eru frjáls félagasamtök, nýtur engra opinberra styrkja og er alfarið haldið uppi af félagsmönnum.
Ef það er vandamál í húsfélaginu þínu, ef þig vantar upplýsingar eða aðstoð varðandi réttarstöðu þína –eða ef þú vilt styrkja almenna hagsmunabaráttu fasteignaeigenda hér á landi þá skaltu skrá þig í Húseigendafélagið.
Með áratuga reynslu úr atvinnulífinu í stefnumótun, rekstri og stafrænni umbreytingu tel ég mig geta lagt mitt af mörkum til slíkra breytinga. Slíkar umbreytingar gerast ekki með vilja-yfirlýsingum eða fallegum fyrir-heitum heldur með því að greina stöðuna heiðarlega, fara yfir ferla og rekstur í grunninn og vinna markvisst að umbótum með skilvirkni og ábyrgð að leiðarljósi.
Það er nákvæmlega sú nálgun sem Reykjavíkurborg þarf núna og aðeins sterkur Sjálfstæðisflokkur í borgar-stjórn getur leitt þær breytingar.
Grafarvogur er einstakt hverfi. Mikilvægt er að vernda þau gæði sem hafa gert hverfið að því sem það er í dag og tryggja að framtíð þess verði mótuð í samstarfi við íbúana sem þar búa.

Sigrún Ásta Einarsdóttir.
Komist ég í borgarstjórn mun ég beita mér fyrir því að málefni Grafarvogs fái sterka rödd og að uppbygging í Reykjavík byggi á raunverulegu samráði við íbúana. Sigrún Ásta Einarsdóttir skipar 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Húseigendafélagið býður húsfélögum upp á altæka húsfundaþjónustu þar sem aðstoð er veitt við undirbúning aðal- og húsfunda og fundarboðun..

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir endaraðhúsið Garðsstaði 18, 112 Reykjavík, sem stendur innst í götu á kyrrlátum stað í grónu hverfi, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 223-5797 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar -og sameignarréttindi, birt stærð 161.1 fm.
Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing
Forstofa er rúmgóð með fataskáp og skóhillu og flísum á gólfi. Sjónvarpshol er rúmgott, parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott, eldhúsinnrétting er upprunaleg, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi, gengt er úr stofu út á suður sólpall þar sem er heitur pottur.
Herbergin eru öll björt og rúmgóð með skápum, parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með bæði sturtuklefa og baðkari, góðri innréttingu, gólf er flísalagt og veggir kringum baðkar og í sturtuklefa eru flísalagðir. Þvottahús er með góðri innréttingu og yfir því er geymsluloft, gólf er flísalagt.
Bílskúr er rúmgóður með góðum hillum og gólf er málað.
Húsið stendur i grónu hverfi innst í botnlangagötu, stutt er í leikskóla, þjónusta svo sem verslanir apótek og heilsugæsla eru í Spöng.
Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson, rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteigna, -skipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is


Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali s. 8240610

Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906


Árni Þorsteinsson rekstrar-hagfræðingur. M.Sc. löggiltur fasteignaog skipasali og löggiltur leigumiðlari s. 898 3459


Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteigna- og skipasali s. 786-1414
Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.





Spöngin 11 - 112 Reykjavík Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst

SMIÐJUVELLIR AKRANESI
Góð fjárfesting - alls 1724,1 fm. eign sem skiptist á þrjú fastanúmer, 774,2 fm.,112 fm og 837,9 fm. Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki.

BERJARIMI 3ja HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
96 fm 3.herbergja íbúð á 2.hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.
Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar. Vestur svalir.

FLÉTTURIMI - 3ja HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
Stór 3ja herbergja íbúð, 95,6 fm, á 2. hæð auk stæði í bílageymslu.
Björt íbúð með parketi og flísum á gólfi og góðum innréttingum.

RÓSARIMI 3ja HERB. - BÍLSKÚR
Mög falleg 3.herbergja íbúð ásamt bílskúr alls 94,4 fm. Hús nýlega málað að utan og skipt um glugga. Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar.
Fjörfiskar í Fjölni er verkefni sem fór af stað síðasta haust fyrir styrk frá Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Markmiðið að bjóða börnum í leikskóla og yngstu deild grunnskóla og fjölskyldum þeirra upp á tækifæri til hreyfingar í nærumhverfinu.
Fjörfiskar byggja á einfaldri en öflugri hugmynd: Að skapa vettvang þar sem börn og fjölskyldur þeirra geta komið saman, leikið sér og hreyft sig án skráningar, skipulags, æfingagjalda eða skuldbindinga. Fyrirmyndin er sótt til Mosfellsbæjar þar sem boðið hefur verið upp á Fjölskyldutíma í Varmá í ein 10 ár. Engar kröfur eru gerðar um fyrri þátttöku í íþróttum og öll eru velkomin, óháð bakgrunni eða efnahag. Þannig er leitast við að búa til jákvætt umhverfi til hreyfingar fyrir þau börn sem standa utan skipulagðs íþróttastarfs og fyrir fjölskyldur með annað móðurmál en íslensku. Tveir menntaðir íþróttafræðingar sjá um að setja upp salinn með fjölbreyttum leik- og hreyfistöðvum. Börnin fá að klifra, hlaupa, kasta, hoppa
og leika sér á eigin forsendum á meðan foreldrar taka virkan þátt eða fylgjast með. Lögð er áhersla á jákvæða upplifun, félagsleg tengsl og hreyfigleði. Þess vegna leggjum við upp með að þessir tímar séu símalausir og tímanum sé varið saman.

Reynslan af fyrstu tímum verkefnisins sýnir að áhuginn fyrir slíkum tímumm er til staðar. Mæting hefur verið góð og andrúmsloftið hlýlegt. Frekari upplýsingar um næstu tíma er hægt að finna á Fjörfiskar í Fjölni á facebook. Sveinn Þorgeirsson og Anna Margrét Guðmundsdóttir sjá um að setja upp salinn með fjölbreyttum leikog hreyfistöðvum.

Páskar eru handan við hornið og vorið er loksins farið að banka upp á. Dagarnir orðnir lengri, morgnarnir bjartari og meiri tími til að njóta útiverunnar, eitthvað sem að gæludýrin eru ekki síður spennt fyrir en við.
Þegar árstíðir breytast er gott að huga að búnaði og endurnýja fyrir ævintýrin sem liggja framundan. Vorveðrið getur enn reynst óútreiknanlegt og léttir hundajakkar eða gallar geta gert gæfumun á rigningardögum!
Fallegu og vönduðu PAIKKA kápurnar og heildgallar fyrir hunda eru fullkominn kostur á vordögum. Þeir eru vind- og vatnsheldir sem gefur hundinum þínum frelsi til að njóta útiverunnar í hvaða veðri sem er og gefur þér hugarró með hreinan og þurran hund.
Það skiptir öllu máli að búnaðurinn fyrir hundinn sé þægilegur! Okkar vinsælu HALTI beilsi eru sterk, stillanleg og hönnuð með líffræði hundsins í huga. Beislið liggur þægin-


lega á bringunni og skerðir ekki náttúrulegar hreyfingar hundsins á meðan þú hefur enn fulla stjórn, hvort sem þið eruð í daglegum göngutúr, úti að hlaupa eða á löngu ferðalagi. Handfangið á bakinu er einstaklega hentugt fyrir aukastjórn og þægindi.
Beislið hefur þrjá hentuga festipunkta og samsvarandi HALTI taumur er fullkominn með í hverskonar ferðir! Tvöfaldur endi taumsins veitir hámarks sveigjanleika með eða án teygjuhluta sem auðvelt er að aðlaga
að ykkar göngustíl.
Hvort sem þið eruð að skipuleggja lengri göngutúra eða einfaldlega njóta bjartari kvölda þá hjálpum við þér og gæludýrinu þínu að undirbúa ykkur fyrir vorið.
Óskum ykkur og gæludæyrunum gleðilegra páska og yndislegs vors!
Kær Kveðja Sara Úlfars



Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

