Skip to main content

Grafarvogsblaðið 2. tbl. 2026

Page 1


Grafarvogsblaðið Grafarvogsblaðið

2. tbl. 37. árg. 2026 febrúar

Spöngin 11 112 Reykjavík Sími 575 8585

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477 www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Grafarvogsblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is

Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.

Burt með Borgarlínuna

Núna þegar að þrír mánuðir eru í sveitastjórakosningar er rétt að minna kjósendur á að þar gefst kærkomið tækifæri til að leysa vanhæfa stjórnmálamenn frá störfum. Stjórnmálamenn sem hafa ítrekað sýnt það á síðustu árum að þeir kunna ekki að fara með peningana okkar.

Pólitík snýst um forgangsröðun, hvernig farið er með þá peninga sem þjóðin hefur yfir að ráða. Á undanförnum árum hefur það komið greinilega í ljós, trekk í trekk, að kjósendur hafa valið vanhæft fólk til forystu.

Maður veit eiginlega ekki hvar á að byrja. Borgarlínan er nærtækt dæmi. Búið er að eyða hundruðum milljóna í undirbúning þessa fyrirbæris sem mun aldrei skila sér, hvorki fjárhagslega né í bættum samgöngum. Enginn veit hvað Borgarlínan kemur til með að kosta og ekki er enn búið að ákveða hver á að borga brúsann. Almenningur mun hafna Borgarlínunni frá fyrsta degi og í uppsiglingu er mesta skipulagsslys í sögu höfuðborgarsvæðisins.

Troða á Borgarlínunni niður í rótgróin hverfi þar sem umferðarmál eru nú þegar í algjörum ólestri. Dæmið um Suðurlandsbrautina er þekkt og algjörlega galið. Fyrirtæki við brautina eru þegar farin að skipuleggja flótta af svæðinu. Viðskiptavinir munu ekki skila sér þegar búið verður að fækka akreinum um helming og allt mun stíflast á þessu svæði þegar framkvæmdir hefjast og munu taka nokkur ár.

Enn er tími til að forða þessu stóra slysi. Kjósendur verða að greiða atkvæði þeim flokkum sem vilja staldra við og hætta jafnvel við þetta rugl.

Talað er um að Borgarlínan muni kosta 250-300 milljarða. Þeir vita sem vilja að áætlanir á Íslandi standast aldrei. Borg-arlínan mun því kosta 400-500 milljarða þegar upp er staðið.

Enn er tími til að hætta við. Talandi um peninga. Stjórnmálamenn sem fara með völdin á Íslandi í dag kunna ekki að fara með peninga. Nánast daglega er greint frá afglöpum ráðherra og fer utanríkisráðherrann þar í fararbroddi. Hún ver meiri tíma erlendis en heima fyrir. Á sama tíma og sjúklingar komast ekki að á bráðamóttöku Landsspítalans spreðar Þor-gerður Katrín milljörðum í vopnakaup. Vopnin eru notuð til að drepa unga rússneska og úkraínska hermenn. Það verður að koma svona stjórnmálamönnum frá við fyrsta tækifæri. Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is

Endurskoða ber umferðarskipulag

við Höfðabakka

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Í grein sem ég ritaði sl. haust undir yfirskriftinni „Hættuleg þrenging að umferð við Höfðabakka“ fjallaði ég um alvarlegar afleiðingar þeirra breytinga við Höfðabakka og Bæjarháls sem þá voru fyrirhugaðar en hafa nú orðið að veruleika. Þar benti ég á að með því að fjarlægja beygjuvasa og þrengja að umferð væri verið að skapa tafir, auka slysahættu og tefja neyðarakstur – allt í nafni öryggis sem þegar var tryggt með öðrum úrræðum. Sú þróun sem varað var við hefur því miður raungerst.

Umferð um Höfðabakka verri en áður

Eftir umfangsmiklar framkvæmdir við Höfðabakka, meðal annars við Bæjarháls, Dvergshöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú, er umferð á svæðinu nú þyngri en áður. Bílar raðast eftir öllum Höfðabakkanum, oft langt inn í Grafarvog og niður Ártúnsbrekku og umferð hefur í auknum mæli leitað inn í íbúðahverfi þegar ökumenn reyna að komast hjá teppum á stofnæðinni.

Þrátt fyrir að umferðaröryggi og skilvirkni eigi að vera leiðarljós slíkra framkvæmda hefur hvorugt batnað. Þvert á móti er niðurstaðan verri en áður. Meðal annars hafa Íbúasamtök Grafarvogs sent borgarfulltrúum formlega áskorun um endurskoðun breytinganna, án þess að svör hafi borist. Það er ekki boðlegt.

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins..

Borgin vissi af afleiðingunum

Komið hefur fram að borgaryfirvöld vissu fyrir fram að við það að fjarlægja beygjuvasana myndu tafir aukast í umferð. Greining sem unnin var fyrir borgina sýndi jafnframt að biðtími á háannatíma gæti farið úr um níu sekúndum í allt að 92 sekúndur. Sú greining var hins vegar ekki lögð fram eða kynnt borgar-

fulltrúum og almenningi við ákvörðunartökur.

Jafnframt liggur fyrir að engin slys á gangandi eða hjólandi vegfarendum hafa orðið í þeim beygjuvösum sem fjarlægðir voru, þrátt fyrir áratugalanga notkun. Það dregur verulega í efa þau rök sem breytingarnar voru byggðar á.

Hver sekúnda skiptir máli

Það skiptir máli að það sé sérstök áhersla lögð á áhrif neyðaraksturs. Ég tala þar af reynslu sem fyrrverandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður þegar ég segi að hver sekúnda skiptir máli þegar á reynir. Ákvarðanir sem auka líkur á töfum við slíkar aðstæður eru einfaldlega ekki ásættanlegar. Ég tel mikilvægt að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda verði náð með uppfærðri og snjallari ljósastýringu og nýtingu rauntímagagna, án þess að fórna þeim beygjuvösum sem í áraraðir hafa tryggt gott umferðarflæði. Tími til að staldra við Höfðabakki er ein af lykiltengingum borgarinnar. Allar breytingar á slíkum stofnæðum verða að byggjast á faglegum gögnum, heildarsýn og raunverulegu mati á afleiðingum. Þegar niðurstaðan er verri en áður ber að staldra við, hlusta á íbúa og leiðrétta kúrsinn.

Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

Próteinríku ,,brownies” eru fullkomin blanda

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Þessar próteinríku brownies eru fullkomin blanda af sætu, mjúku og saðsömu – án þess að vera of þungar. Gríska jógúrtin gefur þeim extra prótein og mýkt, á meðan möndlumjölið og kakóið skapa djúpt og gott bragð. Hvítu súkkulaðibitarnir bráðna örlítið í ofninum og gera hvern bita sérstaklega ljúffengan.

Þær henta einstaklega vel:

- Sem hollara nammi með kaffinu.

- Eftir æfingu þegar þig langar í eitthvað sætt og próteinríkt.

- Í nestisboxið.

- Þegar þig langar í einfalt og fljótlegt bakkelsi.

Geymast vel í ísskáp í 3–4 daga – og má líka frysta.

Innihald (ca. 9 stk.)

• 2 egg.

• 150 gr. grísk jógúrt frá Arna.

• 50 gr. möndlumjöl.

• 30 gr. kakó.

• 40–60 gr. sæta að eigin vali (td hunang, hlynsíróp.)

• 40 gr. haframjöl eða meira möndlumjöl.

• 1 tsk. lyftiduft.

• 1 tsk. vanilla.

• 40–60 gr. hvítt súkkulaði, saxað.

• Smá salt.

Aðferð:

Hitið ofn í 180 gráður. Þeytið egg og sætu létt saman. Bætið grískri jógúrt og vanillu út í.

Blandið þurrefnum saman og hrærið út í deigið. Hrærið hvítu súkkulaði varlega saman við. Hellið í lítið form (klætt bökunarpappír). Bakið í 18–22 mínútur – miðjan má vera örlítið blaut.

Kælið og skerið í bita.

Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

Þessar próteinríku ,,brownies” eru fullkomin blanda af sætu, mjúku og saðsömu – án þess að vera of þungar í maga.
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).
Þú velur vanann - svo velur vaninn þig

Stundum er sagt að við, mannfólkið, séum ,,ekkert nema vaninn”!

Og það er að einhverju leyti rétt; líkaminn er heimsins besti hagfræðingur og leitar í sífellu leiða til að spara orku, hann fer því ósjálfrátt oft í sömu aðgerðir og áður - til einföldunar.

Leiddu hugann að dæmigerðum degi í þínu lífi. Hvaða hegðun hefur með tímanum breyst í venju? Getur verið að þú keyrir alltaf sömu leiðina í vinnuna? Eða að þú leggir í sama stæðið? Þetta eru dæmi um hvernig hugurinn hefur einfaldað líf þitt. Með því sparast orka og þú þarft aldrei að muna sérstaklega eftir því hvar þú lagðir bílnum, því líklega er hann alltaf á sama stað.

Þegar kemur að heilsusamlegum venjum er af mörgu að taka, því svo miklu meira er hægt að gera í daglegu lífi til að bæta heilsu, heldur en að mæta í ræktina -

þó svo að ég mæli eindregið með því líka!

Ef þú gerir það að venju að útbúa vikumatseðil og gerir svo innkaup vikunnar í

einni ferð, er ólíklegra að þú takir vonda ákvörðun í lok dags sem gæti leitt til skyndibita í kvöldmatinn.

Ef þú gerir það að vana að ganga upp stigann í stað þess að taka lyftuna, þá leggur þú í hvert sinn inn á heilsubankann hjá þér. Áður en þú veist af er það, að taka stigann, orðinn hluti af þínum persónuleika - þú verður, með tímanum, manneskjan sem tekur stigann frekar en lyftuna.

Heimfærðu þetta á hvaða athöfn sem er sem þú gerir oft yfir vikuna eða jafnvel daglega.

Tannburstun er gott dæmi! Þú getur líklega ekki hugsað þér að sleppa því!? Það er einmitt eitthvað sem þú hefur vanið þig á með hjálp foreldra, skóla og samfélagsins alls. Það er hluti af þér og þínum daglegum venjum. Það þýðir líka að þú hefur heilbrigðari tennur lengur.

Með þessum skrifum vil ég hvetja þig að

Við mælum með að kíkja við í þjálfunarstöðinni Metabolic Reykjavík, þar færðu fyrstu tvær vikurnar í þjálfun alveg fríar og getur þannig mátað æfingarnar á eigin skinni án allra skuldbindinga.

velja þér hollari kostinn í lífinu almennt!

Þraukaðu erfiðar tvær, þrjár vikur meðan þú ert að koma vananum inn í systemið þitt, en svo mun heilsan þakka þér seinna og verðlauna þig með heilbrigðari líkama langt inn í æviskeiðið. Það er nefnilega ekkert auðvelt að vera heilsulaus. Veldu þér erfitt, núna eða seinna!

Hvort sem það er stiginn, eða aukning í grænmetisneyslu, fjölgun göngutúra yfir vikuna eða betri svefnvenjur. Komdu þér upp góðum venjum og svo munu þær skapa þig og þín lífsgæði!

Þetta virkar nefnilega líka í hina áttina. Þegar þú velur þér sófann og snakkið fram yfir hreyfingu og hollustu ertu líka að venja líkamann og hugann á þá athöfn.

Veldu vel, því vaninn mun móta þig, þína heilsu og líðan. Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Þorgeir Örn ráðinn markaðsstjóri Fjölnis

Aðalstjórn Fjölnis hefur ráðið Þorgeir Örn Tryggvason í markaðstjóra félagsins. Í starfi sínu mun hann leiða markaðs-, kynningar- og fjáröflunarstarf félagsins í nánu samstarfi við skrifstofu, stjórnir deilda og sjálfboðaliða.

Þorgeir er uppalinn Fjölnismaður og hefur um árabil komið að starfi félagsins í fjölbreyttum hlutverkum. Hann hefur reynslu sem iðkandi, þjálfari, sjálfboðaliði og stjórnarmaður, auk þess að hafa sinnt markaðs- og kynningarmálum fyrir einstakar deildir innan félagsins. Sú reynsla veitir honum góða innsýn í starfsemi félagsins, menningu þess og þarfir ólíkra deilda.

Þorgeir lauk MMM-gráðu í markaðsstjórnun og MLM-gráðu í forystu og stjórnun árið 2024 frá Háskólanum á Bifröst. Hann starfaði áður hjá tryggingarfélaginu Sjóvá en hefur síðasta árið byggt upp eigið fyrirtæki á sviði markaðsmála, efnisgerðar og ljósmyndunar. Samhliða því hefur hann starfað sem aðstoðarkennari við Háskólann á Bifröst í áfanganum Stefnumótun og framtíðarsýn. Í starfi markaðsstjóra mun Þorgeir leggja áherslu á að efla samræmda ímynd Fjölnis, styrkja upplýsingamiðlun og styðja við markaðs- og fjáröflunarstarf allra deilda félagsins. Þá verður lögð áhersla á aukinn sýnileika, faglega efnisgerð og skýrari ramma utan um samstarf við styrktaraðila og samfélagið í kringum félagið. Aðalstjórn Fjölnis bindur vonir við að reynsla Þorgeirs, tenging hans við félagið og þekking á markaðsmálum muni styrkja starf- semi Fjölnis enn frekar á komandi árum.

Helgi Snær og Patryk.

Sömdu við Fjölni

Þrír öflugir knattspyrnumenn hafa samið við Fjölni nú nýverið. Þetta eru öflugir leikmenn sem munu vonandi styrkja lið Fjölnis í sumar. Helgi Snær, sem fæddur er árið 1999, er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Hann kemur til félagsins frá KFG en á jafnframt að baki fyrri sögu hjá Fjölni. Helgi Snær hefur leikið alls 45 leiki í 1. deild með Fjölni, Þrótti Vogum og Magna. Þá á hann einnig um 45 leiki í 2. deild með ÍR og KFG. Til gamans má geta þess að Helgi Snær var bikarmeistari með 2. flokki Fjölnis árið 2018, Íslandsmeistari í innanhússknattspyrnu árið 2019 og 4. deildarmeistari með Vængjum Júpíter árið 2023. Patryk er fæddur árið 2000 og leikur sem hafsent. Hann er uppalinn hjá Leikni í Reykjavík þar sem hann hefur leikið 45 leiki í meistaraflokki og skorað 2 mörk. Um er að ræða öflugan og hávaxinn varnarmann sem bætir styrk og festu í varnarleik liðsins.

Oskar, sem er 24 ára, kemur til liðsins frá Kára á Akranesi þar sem hann lék 18 leiki í 2. deild síðasta sumar. Auk þess hefur hann spilað í meistaraflokki með Aftureldingu og Selfossi, en hann er uppalinn hjá ÍA. Oskar er fjölhæfur leikmaður sem kemur með dýrmæta reynslu inn í lið Fjölnis.

Vel tekið á því í Metabolica.
Þorgeir Örn Tryggvason er nýr markaðsstjóri Fjölnis.

almennar bílaviðgerðir

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir

Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf.

Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Ánægðir sigurvegarar í handboltakeppni Rimaskólaleikanna.

Rimaskólaleikarnir

Sjálfstæði og frumkvæði er eitthvað sem Rimskælingum er alls ekki ókunnugt. Fyrir nokkrum árum ákváðu nemendur í unglingadeild að það væri bara alls ekki nóg um að vera utan kennslustunda og tóku þá upp á sitt einsdæmi að skipuleggja íþróttamót til að keyra upp stemninguna.

Þáverandi 10. bekkur reið á vaðið og fékk leyfi til að etja kappi í íþróttasal skólans. Nemendurnir sáu um skipulag og safna í lið í hverjum árgangi með góðfúslegri hjálp kennara skólans. Keppt var í frímínútum og matarhléi og fylltu nemendur stúkuna til að fylgjast með félögum sínum berjast í bökkum hvort við annað, eða jafnvel gegn kennaraliðinu víðfræga. Þetta skapaði menningu fyrir hvatningu og öflugum skólabrag í bland við hressilegt keppnisskap sem Rimskælingum einum er lagið. Áræðni og dugnaður réð ríkjum og lífgaði hressilega upp á annars ágætt félagslíf nemenda. Núna síðast var efnt til handboltamóts til heiðurs frammistöðu íslenska landsliðsins og fór fram æsispennandi keppni. Í fyrsta sinn frá stofnun leikanna báru nýliðarnir í unglingadeild, áttundubekkingarnir, sigur úr býtum yfir galvösku kennaraliði í úrslitum mótsins. Eftir harða keppni lögðu nemendur í 8. ABB kennarana 10 - 9 og eru því yngstu sigurvegarar mótsins frá upphafi.

Framtíðar landsliðsmarkvörður Íslands?

Glæsileg tilþrif í handboltakeppninni.

Fjölnisstrákarnir í 9. og 11. flokki sem tryggðu sér sigurinn í bikarkeppninni í körfuknattleik. Glæsilegur árangur og framtíðin er björt hjá Fjölni í körfuknattleiknum.

Tveir titlar á einum degi

Fjölnir átti stóran lokadag í VÍS bikarvikunni í körfuknattleik þegar félagið tryggði sér tvo bikarmeistaratitla í Smáranum í Kópavogi. Fyrri leikur dagsins fór fram í 9.

Birgir Þór Jóhannesson.

Birgir Þór framlengir

við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við varnarmanninn Birgi Þór Jóhannsson til næstu þriggja ára.

Birgir Þór, sem er fæddur árið 2007, er hraður og leikinn varnarmaður sem hefur staðið sig afar vel með liðinu á undirbúningstímabilinu í vetur.

Frammistaða hans hefur vakið athygli innan félagsins og þykir ljóst að hann er einn af efnilegri leikmönnum liðsins. Með samningnum tryggir Fjölnir sér áframhaldandi uppbyggingu á ungum og metnaðarfullum leikmanni sem félagið bindur miklar vonir við á komandi árum.

Samningsframlengingin er liður í þeirri stefnu Fjölnis að byggja sterkan kjarna fyrir framtíðina.

– Fjölnir VÍS bikarmeistari í 9. og 11. flokki karla í körfubolta

flokki drengja þar sem Fjölnir lagði ÍA 78–66, áður en 11. flokkurinn innsiglaði daginn með dramatískum 79–77 sigri gegn KR í lokaleik vikunnar.

Í úrslitaleik 9. flokks var leikurinn jafn framan af, en Fjölnir var skrefinu á undan allan tímann og byggði smám

saman upp forskot sitt eftir hlé. Með sterkum þriðja leikhluta og yfirvegaðri lokakafla tryggðu Fjölnisdrengir sér öruggan sigur. Óttar Ingimar Davíðsson fór fyrir liðinu með stórleik, 28 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar, og var valinn maður leiksins.

Síðar um daginn lauk bikarvikunni með hreinum spennuleik í 11. flokki karla þar sem Fjölnir og KR skiptust á forystu allt til loka.

Þegar sex sekúndur voru til leiksloka, var staðan jöfn 77-77. Þá tók Benóný Gunnar Óskarsson af skarið og skoraði sigurkörfu Fjölnis

um leið og lokaflautið gall. Benóný var jafnframt valinn maður leiksins með 20 stig og 11 fráköst.

Með þessum sigrum staðfesti Fjölnir öflugt starf í yngri flokkum og lauk VÍS bikarvikunni með fullkomnum hætti, tveir leikir, tveir titlar. Til hamingju Fjölnisstrákar.

Spönginni

Þorrablót Grafarvogs

Það var mikið stuð á Þorrablóti Grafarvogs og þessir röndóttu gestir skemmtu sér konunglega.

Stuð á Þorrablótinu

Þorrablót Grafarvogs fór fram föstudaginn 17. janúar og var afar vel

heppnað. Um 1.200 manns sóttu hátíðina, sem staðfesti enn á ný að blótið er einn stærsti og vinsælasti viðburður hverfisins.

Gestir nutu hefðbundins þorramatar, skemmtunar og góðrar stemningar fram á kvöld. Blótið var skipulagt af heimafólki með sterkri þátttöku sjálfboðaliða og einkenndist kvöldið af miklum samheldni og gleði. Þorrablót Grafarvogs hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem mikilvægur samfélagsviðburður og samkomustaður íbúa úr öllum aldurshópum, þar sem hefðir og félagslíf hverfisins fá að njóta sín.

Við birtum hér nokkrar myndir frá Þorrablótinu og jafnvel fleiri myndir í Grafarvogsblaðinu í mars.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á fleiri gatnamótum við Höfðabakka, sem eru til þess fallnar að tefja fyrir umferð að óþörfu og skapa jafnvel hættu. Um er að ræða gatnamótin við Bíldshöfða, Dvergshöfða, Stórhöfða og Vesturlandsveg.

- eftir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Helsta markmið borgarstjórnar ætti að vera að taka sem flestar ákvarðanir, sem létta venjulegu fólki lífið. Sumar ákvarðanir vinstri meirihlutans í borgarstjórn eru hins vegar til þess fallnar að flækja líf borgaranna og gera það erfiðara og dýrara. Höfðabakki er mikilvæg umferðartenging milli eystri hverfa borgarinnar, t.d. Grafarvogs, Árbæjar og Breiðholts. Undanfarna mánuði hafa ýmsar breytingar verið gerðar á götunni í tengslum við framkvæmdir þar. Margar þessar breytingar eru til þess fallnar að þrengja að umferð og skapa umferðartafir og jafnvel umferðaröngþveiti eins og dæmin sanna. Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls hefur verið til mikillar óþurftar og skapað umferðaröngþveiti á gatnamótunum og stórauknar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar.

Opna þarf beygjuakreinar að nýju Áðurnefnd þrenging var vísvitandi gerð í því skyni að tefja fyrir umferð og er því í fullu samræmi við stefnu vinstri meirihlutans í borgarstjórn. Áður en ráðist var í framkvæmdirnar var gerð úttekt á mismunandi útfærslum væntanlegra breytinga. Í úttektinni kom skýrt fram að lokun beygjuakreina við Höfðabakka-Bæjarháls myndi lengja bílaraðir og valda stórauknum umferðartöfum á gatnamótunum.

Við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðumst gegn þrengingu gatnamótanna á sínum tíma. Þá höfum við ítrekað lagt til að umræddar beygjuakreinar verði opnaðar að nýju en meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna hefur fellt þær tillögur. Meirihlutinn er því ekki fær um að horfast í augu við eigin mistök og leiðrétta þau vegna kreddufullrar afstöðu til umferðarmála.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á fleiri gatnamótum á Höfðabakka,

sem eru til þess fallnar að tefja fyrir umferð að óþörfu og skapa jafnvel hættu. Um er að ræða gatnamótin við Bíldshöfða, Dvergshöfða, Stórhöfða og Vesturlandsveg. Akreinar hafa verið þrengdar en miðeyjur stækkaðar. Stöðvunarlínur hafa verið færðar til með þeim afleiðingum að enn frekari tafir á umferð hljótast af.

Vanstillt umferðarljós

Að auki eru umferðarljós á Höfðabakka vanstillt með þeim afleiðingum að enn frekari umferðartafir verða við götuna. Á álagstímum ríkir hreinlega ófremdarástand á Höfðabakka og aðliggjandi götum eins og t.d. Vesturlandsvegi. Reglulega kemur fyrir að bílaröð á Vesturlandsvegi á leið til austurs, nær niður Ártúnsbrekku og tengist við bílaröð, sem myndast við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.

Kjartan Magnússon.

inu hafa aukist mjög undanfarin ár vegna stefnu vinstri flokkanna í borgarstjórn. Kostnaður einstaklinga vegna slíkra tafa er ekki undir sjötíu milljörðum króna árlega en þjóðhags-

Á álagstímum ríkir hreinlega ófremdarástand á Höfðabakka og aðliggjandi götum eins og t.d. Vesturlandsvegi.

inn í íbúahverfi í mun meiri mæli en áður.

Tafirnar kosta tugmilljarða Umferðartafir á höfuðborgarsvæð-

legur kostnaður er mun hærri. Þessi mikli kostnaður er í raun aukaskattur á borgarbúa, sem leggst þyngst á Grafarvogsbúa og aðra íbúa eystri hverfa.

SAMAN

Eign í grónu hverfi og

stutt í skóla og leikskóla

- til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir

þriggja herbergja íbúð á annari hæð að Berjarima 4, 112 Reykjavík, ásamt stæði í lokaðri bílageymslu, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 204-0217 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi, birt stærð er 126.1 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, búr/þvottahús tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Nánari lýsing

Forstofa er flísalögð og með góðum

fataskáp.

Eldhús er með góðum innréttingum. Parket er á gólfi, inn af eldhúsi er þvottahús og búr.

Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð og gengt er út á vestursvalir úr stofu, parket á gólfi.

Herbergin eru á sér gangi og fyrir framan þau er ágætt vinnuhorn, parket á gólfi.

Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með innbyggðum skápum, dúkur á gólfi.

Barnaherbergi er bjart og rúmgott með skáp, dúkur á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf

með baðkari og góðri innréttingu. Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Eignin er í grónu hverfi, stutt er í skóla og leikskóla og þjónustu í Spönginni svo sem verslanir og heilsugæslu.

Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteigna-skipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is

Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali s. 8240610

Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906

Árni Þorsteinsson rekstrar-hagfræðingur. M.Sc. löggiltur fasteignaog skipasali og löggiltur leigumiðlari s. 898 3459

Ólafur Kristjánsson löggiltur fasteigna- og skipasali s. 786-1414

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.

ÓKEYPIS

SMIÐJUVELLIR AKRANESI

Góð fjárfesting - alls 1724,1 fm. eign sem skiptist á þrjú fastanúmer, 774,2 fm.,112 fm og 837,9 fm.

Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki.

SÖLUVERÐMAT

GARÐSSTAÐIR - RAÐHÚS MEÐ BÍLSKÚR

161,1 fm 4ra herbergja endaraðhús með bílskúr á kyrrlátum stað. Fallega skipulagt hús, þrjú svefnherbergi ágætar innréttingar og gólfefni. Sólpallar og heitur pottur.

FLÉTTURIMI - 3ja HERB.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

Stór 3ja herbergja íbúð, 95,6 fm, á 2. hæð auk stæði í bílageymslu. Björt íbúð með parketi og flísum á gólfi og góðum innréttingum.

RÓSARIMI 3ja HERB. - BÍLSKÚR

Mög falleg 3.herbergja íbúð ásamt bílskúr alls 94,4 fm. Hús nýlega málað að utan og skipt um glugga. Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar.

Spöngin 11 - 112 Reykjavík Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst
Svalir ery mjög rúmgóðar.
Eldhús er með góðum innréttingum. Parket er á gólfi, inn af eldhúsi er þvottahús og búr.
Stofan er mjög rúmgóð.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð og gengt er út á vestursvalir úr stofu, parket á gólfi.

Jafnaðarstefnan og Grafarvogur

Þegar uppbygging í Grafarvogi hófst var tekin ákvörðun um að hér yrði hverfi þar sem fólk gæti lifað góðu daglegu lífi, alið upp börn og notið nálegðar við náttúruna. Sú hugsun að skipulag borgar snúist um að hámarka lífsgæði fólks hefur því mótað Grafarvog frá upphafi. Grafarvogur er frábær – enda afrakstur markvissrar stefnu um sterkt hverfi, fjölskylduvænt skipulag og sameiginlega innviði. Það er einmitt kjarni jafnaðarstefnunnar í borgarmálum.

Mig grunar að óánægja fólks sem segist vera orðið þreytt á núverandi borgarstjórn stafi af því að samtal íbúa og borgarstjórnar hefur rofnað. Fólk upplifir að ekki sé hlustað á áhyggjur þeirra og forgangsröðun borgarstjórnar taki ekki mið af þeim. Þá hefur Grafarvog skort sterkan fulltrúa sinna

hagsmuna í borgarstjórn, sem er óhræddur við að taka samtalið og hlusta á íbúa í hverfinu. Lausnin er að mínu mati ekki að hafna hugmyndafræði Samfylkingarinnar – þvert á móti. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar þurfa að virkja aftur samtalið við borgarbúa, ekki síst í úthverfunum, og byggja áfram á jafnaðarstefnunni. Jafnaðarstefnan í sinni skýrustu mynd felur í sér lýðræði þar sem íbúar fá raunverulegt vægi í ákvarðanatöku og hverfi eru byggð upp með þarfir fólks í fyrirrúmi.

Gleymum því ekki að jafnaðarstefnan hefur skapað bestu samfélög og borgir heimsins. Flest viljum við búa í borg þar sem að börn fá sömu tækifæri óháð efnahag foreldra og hafa aðgang að öflugu frístunda- og íþróttastarfi, þar sem fólk fær stuðning þegar

bjátar á, eldra fólk fær að lifa með reisn, almenningssamgöngur eru raunverulegur valkostur og stutt er í þjónustu og afþreyingu. Að Reykjavík sé borg meðal borga. Það gerist ekki af sjálfu sér, heldur með þrotlausri vinnu borgarfulltrúa í anda jafnaðarstefnunnar. Hverfum ekki af braut, en höfum kjark og þrótt til að gera betur með virku samtali við Grafarvogsbúa.

Nú hefur Samfylkingin lengi haft forystu í Reykjavík og endurnýjun í borgarstjórnarflokknum ekki verið nægilega góð – fyrr en nú. Í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík var kosið um sex sæti og fjórir nýliðar hlutu kjör með yfirgnæfandi stuðning. Listinn einkennist því af ferskleika, í bland við reynslu. Í hópnum er mikill samhljómur um að færa stjórnmálin nær fólkinu og leggja

aukna áherslu á daglegt líf íbúa. Ég fagna því, enda sannfærð um að jafnaðarstefnan eigi mikilvægt erindi um ókomna tíð.

Höldum áfram að efla sérkenni Grafarvogs og tryggjum að gildi hverfisins lifi. Virkjum samtalið við íbúa Grafarvogs, hlustum og byggjum áfram framúrskarandi borg í anda jafnaðarstefnunnar.

Höfundur greinarinnar er Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, býr í Rimahverfinu og mun skipa 6. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir.

Er hundurinn þinn með viðkvæman maga?

Hvenær veit ég að það er kominn tími til að skipta um fóður hjá hundinum mínum?

Hundaeigendur velta oft fyrir sér hvort að fóðrið sem þau eru að bjóða sínum ferfætlingum er í raun að henta þeim.

Ef hundurinn þinn er með viðkvæma meltingu, óstöðugan hægðagang eða einfaldlega virðist ekki alveg upp á sitt besta getur svarið oft leynst í fóðrinu.

Hér kynnum við tvær vinsælar fóðurlínur frá Dr. Clauder's sem hafa reynst sérstaklega vel fyrir hunda sem þurfa milda og vandlega samsetta næringu sem kemur meltingakerfinu í jafnvægi

• Dr.Clauder's Sensitive Lamb & Rice er frábær kostur fyrir hvolpa og

fullorðna hunda sem þurfa jafnvægi og auðmeltanleika. Fóðrið er laust við hveiti og inniheldur prebiotic trefja sem styðja við meltinguna og hjálpa líkamanum að nýta næringuna til fulls.

Dr.Clauder's Sensitive Lamb & Rice fæst í þessum útgáfum:

o - Lamb & Rice Junior, fyrir hvolpa frá 8.viku.

o - Lamb & Rice Adult, fyrir fullorðna hunda.

o - Lamb & Rice Adult Mini, (Nýtt hjá Dýrabæ!) fyrir fullorðna hunda sem kjósa minni bita.

• Fyrir einstaklega viðkvæma hunda mælum við hiklaust með Dr.Clauder's Hyposensitive Duck & Potato. Kornlaust fóður sem byggir á einum próteingjafa stuðlar að auðmeltanlei-

ka, tryggir hámarks næringanýtingu og getur skipt sköpum fyrir hunda með fæðuóðol.

Dr. Clauder's Hyposensitive fæst einnig í Mini útgáfu fyrir minnstu hundana.

Að skipta um fóður þarf ekki að vera flókið, en rétt val getur haft ótrúleg áhrif á daglega líðan hundsins þíns. Þegar skipt er um fóður er mikilvægt að gera það rétt og með vellíðan hundsins í forgrunni.

Best er að byrja á að blanda 25% af nýja fóðrinu við 75% af því gamla fyrstu tvo dagana, fara síðan í 50/50 næstu tvo daga og loks 75% nýtt og 25% gamalt áður en skipt er alveg yfir í 100% nýtt fóður – svo lengi sem allt gengur vel. Sjá töflu.

Hver hundur er einstakur og getur

aðlögunin tekið mislangan tíma. Fylgstu vel með líðan og hægðum; ef maginn er viðkvæmur er gott að taka skref til baka og gefa breytingunni aðeins meiri tíma. Ef hundurinn tekur nýja fóðrinu vel má hins vegar halda rólega áfram. Til að styðja enn betur við meltinguna mælum við með góð-gerlum, sérstaklega fyrir viðkvæma maga. Góðgerlakrem frá Dr. Clauder’s inniheldur róandi kamillu og humla ásamt FOS og Yucca Shidigera sem hjálpa til við að byggja upp heilbrigða þarmaflóru og stuðla að jafnvægi í meltingu. Auðvelt er að gefa kremið daglega með fóðri eða eitt og sér. Einföld viðbót sem getur skipt miklu máli fyrir vellíðan hundsins.

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook