Skip to main content

Grafarvogsblaðið 11. tbl. 2026

Page 1

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/16/2026 8:37 PM Page 1

Grafarvogsblaðið 11. tbl. 37. árg. 2026 nóvember

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Halla Tómasdóttir forseti Íslands, mætti á 30 ára afmælishátíð Borgarholtsskóla.

Borgó 30 ára

Ódýri ísinn

]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]` Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` 112 Reykjavík H b^ *,* -*-* Sími 575 8585 ;Vm *,* -*-+

Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili

lll#[b\#^h

- sjá bls. 14

Lyf á lægra verði! Leggjum áherslu á mjög góða þjónustu Gott vöruúrval Hægt að panta lyf á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300

Einkarekið apótek


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 1:48 AM Page 2

2

Fréttir

GV

Grafarvogsblaðið líklega

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: sk@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: sk@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - sk@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.

Voru gömlu jólin betri? Í mínu ungdæmi var það til siðs að setja upp jólaseríu á Þorláksmessu. Jólatréð var skreytt á sama degi og oftar en ekki fékk maður að vaka langt fram eftir aðfaranóttu aðfangadags. Jólarjúpurnar, sem undantekningalaust voru í matinn að kveldi aðfangadags, voru lagðar í nýmjólk daginn áður og látnar liggja í mjólkinni alla nóttina og til hádegis á aðfangadag. Loks voru þær soðnar og máltíðin heilaga hófst á slaginu sex og undir hljómaði messan í útvarpinu. Ein mesta eftirvæntingin í aðdraganda jóla var þegar faðir minn kom heim með stóran pappakassa af jólaeplum. Og oftar en ekki fylgdu með tveir stórir glerkútar af jólaöli frá Agli Skallagrímssyni. Nokkuð hóf réði ríkjum varðandi jólagjafir á mínu heimili. Alltaf fékk maður góða gjöf frá foreldrunum, stundum tvær en ekki mikið meira en það. Kannski nokkra pakka frá náskydum ættingjum. Það var gjarnan mikil ró yfir þessari skemmtilegu stund þegar farið var að opna pakkana og oftast var allt fallið í djúpa ró þegar messan hófst í sjónvarpinu klukkan tíu. Að henni lokinni var lagst til hvílu í nýþvegnum jólanáttfötum og að sjálfsögðu hreint á öllum rúmum. Það eru breyttir tímar. Enginn kippir sér upp við það í dag þegar fyrstu jólaseríurnar fara að sjást í lok október. Mikill stígandi er síðan í seríumálum eftir því sem líður á nóvember. Og jólatréð er gjarnan skreytt nokkrum vikum fyrir jól. Rjúpurnar eru hamflettar á Þorláksmessu og steiktar í nokkrar mínútur. Eplin og jólaölið heyra sögunni til. Fyrirferð jólagjafa er mun meiri í dag og heilu stofurnar fyllast af pökkum og margir missa af jólamessunni sem er oftast á matartíma. Voru gömlu jólin betri? Sumt en annað ekki. Aðalatriðið er að kærleikurinn vermi falltaf fyrsta sætið. Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is

Það þarf kjark til að taka erfiðar ákvarðanir

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það er auðvelt að tala um aðhald í opinberum rekstri. Öllu erfiðara er að fylgja orðunum eftir með raunverulegum aðgerðum. Það hefur nýr meirihluti í Reykjavík nú gert og sýnt að honum er alvara með að ná tökum á fjármálum borgarinnar. Umræður um hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Í Kastljósi á dögunum tókust á Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar. Þar kom skýrt fram sá grundvallarmunur sem er á því að tala um nauðsyn breytinga og því að axla ábyrgð á framkvæmd þeirra. Staðreyndirnar um fjárhag borgarinnar tala sínu máli. Á fyrstu sex mánuðum ársins var halli á rekstri borgarsjóðs 3,2 milljarðar króna. Vaxtagjöld og verðbætur námu 7,6 milljörðum króna á sama tímabili. Þetta eru fjármunir sem við viljum miklu fremur sjá nýtast í skólunum okkar, leikskólunum, íþróttamannvirkjum og þeirri þjónustu sem skiptir íbúa borgarinnar mestu máli. Við getum ekki haldið áfram á sömu braut og búist við annarri niðurstöðu. Frá því að nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar í júní hefur verið ráðist í umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar. Í þremur áföngum hefur verið ákveðið að fækka þar samtals um 130 stöðugildum, sem samkvæmt áætlunum mun lækka árlegan launakostnað um 2,3 milljarða króna.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Aðgerðirnar beinast þannig fyrst og fremst að yfirbyggingu og stjórnsýslu borgarinnar, með það að markmiði að verja grunnþjónustuna við íbúana. Enginn skyldi þó gera lítið úr því að á bak við þessar ákvarðanir er fólk. Það er erfitt að missa vinnuna og slíkar ákvarðanir verða aldrei teknar af léttúð. En ábyrgð stjórnmálamanna felst ekki aðeins í því að taka vinsælar ákvarðanir. Hún felst líka í því að gera það sem nauðsynlegt er, jafnvel þótt það sé óþægilegt. Það sem skiptir mestu er að hagræðingin skili raunverulegum árangri og að grun-

VISSIR ÞÚ?

nþjónusta borgarinnar verði varin. Það verður auðvitað að fylgjast vel með því að það markmið náist. Í Kastljósi taldi oddviti Samfylkingarinnar ekki tilefni til jafn umfangsmikilla aðgerða. Vissulega má deila um hraða breytinganna og einstakar útfærslur. En við þeirri spurningu verður ekki vikist: Hvernig eigum við að tryggja góða þjónustu til framtíðar ef við náum ekki stjórn á út gjöldunum í dag? Í hverfunum okkar blasir við þörfin fyrir viðhald skóla, leikskóla, íþróttamannvirkja og annarra innviða. Áratugalangur viðhaldshalli verður ekki lagaður með fögrum fyrirheitum einum saman. Til þess þarf fjármuni og skýra forgangsröðun. Við eigum að gera þá kröfu til borgaryfirvalda að skattfé okkar sé vel varið. Að hver króna nýtist eins vel og kostur er og að stjórnsýslan þjóni borgarbúum en verði ekki sjálfstætt markmið í sjálfu sér. Hagræðing er ekki markmið út af fyrir sig. Hún er leið til að skapa svigrúm fyrir það sem raunverulega skiptir máli. Ég tel því að rétt hafi verið að ráðast í þessar breytingar. Þær eru erfiðar, en nauðsynlegar. Og þegar upp er staðið mun árangurinn ekki mælast í fjölda skrifstofa eða stjórnendastaða, heldur í þeirri þjónustu sem íbúar Reykjavíkur fá fyrir skattfé sitt. Ábyrgð í dag er forsenda betri Reykjavíkur á morgun. Björn Gíslason fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 12:18 PM Page 3

æði Berðu saman verð og gæ

IP44

íurr i og útiseríu Inni-

IP65

l nga Ljósasla Lj

IP65

urfar ! r íslenskt verðsh íur fyrir errííu ise Útttis Ú eldni tn va 65 IP r og Höggþolnar peru Hö

FRÁ

2.989 kr.

Samtengjanlegar* með IP65 vatns- og rykvörn. 50 ljósa, 2.989 kr. Litir: Warm White 100 ljósa, 4.924 kr. Litir: Warm White, marglit og þrílit 200 ljósa, 6.995 kr. Litir: Warm White, marglit og þrílit

v Mestu gæðin – lægsta verðið


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2026 5:56 PM Page 4

4

GV

Mataruppskriftir

Smjörsteiktur skötuselur með kartöflusmælki og rjómalagaðri sveppasósu - frábær uppskrift sem vert er að prófa Smjörsteiktur skötuselur frá Öldunni með kartöflusmælki og rjómalagaðri sveppasósu. Þetta hljómar vægast sagt vel og við skorum á lesendur að prófa þessa geggjuðu uppskrift. 1 kg hreinsaður skötuselur. 1 msk olía. 1 msk smjör. 1 stk hvítlauks geiri.

1 grein rósmarín. Salt og pipar eftir smekk. Skötuselurinn er brúnaður á öllum hliðum í olíu á mjög heitri pönnu. Hitinn er lækkaður og bætið við smjöri, hvítlauk og rósmarín á pönn-una. Eftir um það bil 2 mínútur fer fiskurinn í ofninn og er bakaður í um það bil 7 mínútur við 200 gráðu hita.

Smjörsteiktur skötuselur frá Öldunni með kartöflusmælki og rjómalagaðri sveppasósu er lostæti. Rjómalöguð sveppasósa með imjan og parmesan

Rótargrænmeti 400 gr kartöflusmælki. 200 gr gulrætur. 1 msk olía. 2 msk smjör. 2 msk fínt skorið dill.

Spönginni Grafarvogi

Hráefni: 2 msk smjör. 1/2 msk olía. 300 gr sneiddir sveppir. Salt og pipar. 2 hvítlauksgeirar rifnir niður. 65 ml hvítvín. 125 ml fiski eða grænmetissoð. 250 ml rjómi. 30g rifinn parmesan. 2 tsk ferskt timjan.

Smælkið er forbakað við 180 gráðu hita í um það bil 20 mínútur eða þang-að til að þær eru tilbúnar. Síðan eru þær kældar og skornar í helming. Gulræturnar eru skornar í bita og steiktar í smjöri á rólegum hita eða þar til að þær eru eldaðar í gegn. Bætið við dillinu áður en blandan er borin fram.

Aðferð: 1. Hitið olíu og smjör á pönnu og steikið sveppina þar til þeir fara að

taka á sig fallega gylltan lit, eða um 4-5 mín. Rétt áður en þeir eru klárir þá fer hvítlaukur saman við þá ásamt smá salti og pipar. Steikið áfram í um eina mínútu. 2. Næst fer hvítvínið á pönnuna og sósan látin malla í um eina mínútu. Bætið þá fiski/grænmetis soði, rjóma og parmesan á pönnuna. Hrærið vel, lækkið aðeins hitann og leyfið þessu að malla á vægum hita í um 2-3 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. 3. Í lokin fer timjan í sósuna og salt og pipar eftir smekk.

Bóka k ðu tíma í sjónmælingu Þú getur bókað tíma í sjónmælingu með stuttum fyrirvara í verslunum Eyeslan a d í Glæsibæ, Spönginni og Granda a. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu. u

Spönginni

Grandi

Glæsibær


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/12/2026 8:47 PM Page 5

Stæ ærðin sk kiptir ekki máli.

Breiðhöfða 13

Á Nesdekki Brreiðhöfða 13 finnur þú eitt fullkomnasta h hjólbar ðaverkstæ æði landsins þa ar sem hægt er að þjónusta bíla af öllu um stærðum og gerðum. ðum Bókaðu tíma á nesdekk.is

Bókað ðu tíma á netinu

B Bókaðu tím ma og skoð ðaðu d dekkjaúrva alið á nesde ekk.is Breiðhöfði 13

110 Reykjavík 590 2080

Stæ ærðin skiptir ekki máli á Brre eiðhöffða 13.

nesdekk.iis / 561 4200


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2026 9:27 PM Page 6

6

Fréttir

GV

Saga Lionskl. Foldar - Stiklað á stóru í máli og myndum

Lionsklúbburinn Fold var stofnaður þann 16. maí 1990 í Grafarvogi og voru stofnfélagar 27. Lkl. Fold var stofnaður af áhugasömum og skapandi konum sem voru tilbúnar að láta til sín taka innan Lionshreyfingarinnar og í nærsamfélaginu. Á sama tíma eða 14. maí 1990 var Lionsklúbburinn Fjörgyn stofnaður. Þegar lagt var af stað með hugmynd að stofnun Lionsklúbbs í Grafarvogi þá stóð til að stofna blandaðan klúbb en þegar upp var staðið var búið að stofna tvo klúbba, kvennaklúbb og karlaklúbb, svo mikill var áhuginn á svæðinu. Stofnskrárhátíð klúbbanna var svo haldin sameiginlega þann 1. desember 1990. Síðan þá hafa þessir tveir klúbbar ávallt starfað mikið saman að ýmsum verkefnum. Lionsklúbbarnir Fold og Fjörgyn bjóða upp á blóðsykurmælingar öllum að kostnaðarlausu í nóvember ár hvert. Að þessu sinni laugardaginn 21. nóvember í Húsgagnahöllinni frá klukkan 11.00 til 16.00 og hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur. Þetta er fastur liður í átaksverkefni Lionshreyfingarinnar á Íslandi til að vinna að forvörnum gegn sykursýki. Foldarkonur hafa lengi tekið þátt í árlegum styrktartónleikum Fjörgynjarmanna í Grafarvogskirkju þar sem við sjáum um veitingasölu. Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur um árabil styrkt Barna- og unglingageðdeild Landspítalans með þessum tónleikum. Að þessu sinni verða tónleikarnir 12. nóvember næstkomandi. Í Lionsklúbbnum Fold hafa konur ávallt verið tilbúnar að vinna að markmiðum hreyfingarinnar ,,We Serve“ og lagt mikið á sig til að láta gott af sér leiða og styðja við þá sem minna mega sín í samfélaginu. Foldarkonur hafa aldrei talið eftir sér að leggja á sig vinnu við að afla fjár sem þær hafa síðan látið af hendi rakna til hinna ýmsu málefna. Dæmi um styrktarverkefni eru: Augndeild Landspítalans, Ljósið, Konukot, Samhjálp, Slysavarnarskóli Sjómanna, Hugarafl, Bergið Headspace og nú síðast félagið ,,Einstök börn“. Lionsklúbburinn Fold hefur ávallt tekið þátt í landssöfnun Lions ,, Rauð fjöður“ og styrkt LCIF (Alþjóða-hjálparsjóður Lions) sem er um leið styrkur til verkefna á alþjóðavettvangi. Aðalfjáröflun okkar er hið árlega Dömukvöld sem er haldið í febrúar ár hvert. Allur ágóði af kvöldinu fer beint til þess málefnis sem við ákveðum hverju sinni og er alltaf upplýst fyrirfram. Foldarkonur hafa alltaf kunnað að hafa gaman saman t.d með því að heimsækja fyrirtæki og stofnanir, aðra Lionsklúbba og margt fleira. Klúbburinn heldur fundi 1. mánudag í mánuði á Kringlukránni í Reykjavík klukkan 18:00. Fundirnir eru matarfundir. Við hvetjum konur til að kynna sér starfið okkar og ganga til liðs við Lionsklúbbinn Fold! Við leggjum áherslu á liðsheild, njóta þess að hittast og að hafa gaman saman um leið og við leggjum lið! Ef það eru ein-

hverjar konur þarna úti sem hafa áhuga á að kynnast Lionsklúbbnum Fold betur þá er velkomið að hafa samband við okkur. T.d við Arndísi Bjarnadóttur formann klúbbsins arnbjarn@simnet.is eða Anítu Knútsdóttur ritara anita.knuts@gmail.com Einnig er alltaf hægt að hringja á skrifstofu Lions á Íslandi sem er staðsett að Hlíðarsmára 14, Kópavogi. Sími þar er 561-3122 og heimasíðan er www.lions.is þar sem finna má mikið af góðum upplýsingum um starf Lionshreyfingarinnar. F.h stjórnar Hrund Hjaltadóttir

Alþingishúsið skoðað.

Birkifræsöfnun.

Fundur á Kringlukránni.

Heimsókn á Selfoss.

Dömukvöld.

Foldarkonur á jólafundi.

Við afhendingu gjafar til Bergsins Hedspace


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 3:29 PM Page 7


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/15/2026 8:04 PM Page 8

8

Fréttir

GV

gul gata

Allar almennar bílaviðgerðir A sveit Fjölnis, Atskákmeistarar taflfélaga. Aftari röð f.v. Sigurbjörn J. Björnsson, Jón Trausti Harðarson, Oliver Aron Jóhannesson og Dagur Ragnarsson. Fremri röð f.v. Bragi Þorfinnsson stórmeistari, Helgi Árnason liðsstjóri og Jóhann Arnar Finnsson (ljósmynd Tómas Tandri).

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Atskákmeistarar Íslands 2026 - Skákdeild Fjölnis

Skákdeild Fjölnis vann glæsilegan sigur á Atskákmóti Taflfélaga 2026 sem haldið var í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur laugardaginn 14. nóvember. Fjölnir A sveit vann allar sínar viðureignir, sjö talsins, og enduðu með 14 stig af 14 mögulegum. Eftir þrjár umferðir af sjö á mótinu reyndust úrslitin nær ráðin því að Fjölnir hafði þá unnið næstu sveitir, skáksveitir Breiðabliks og TR. Skákdeild Fjölnis, Íslandsmeistarar 2024 og 2025 var að vinna Atskákmótið í fyrsta sinn. Þessi frábæra frammistaða er ekki síst ánægjuleg þar sem flestir í sveitinni eru uppaldir Fjölnis-og Rimaskóla skákmenn. Stórmeistarinn og Grafarvogsbúinn Bragi Þorfinnsson var með fullt hús 7 vinninga og hefur hann reynst Skáksveit Fjölnis mikill styrkur frá því hann gekk til liðs við Fjölni nýlega. Fimm af sex liðsmönnum hækkuðu sig verulega á skákstigum. Skákdeild Fjölnis sendi einnig B sveit á Atskákmótið. Þessi unga og efnilega skáksveit náði 2. sæti B sveita. Til hamingju Skákdeild Fjölnis.

Efnilegir afrekskrakkar skipuðu B sveit Fjölnis . Barna-og unglingastarfið


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/16/2026 2:39 PM Page 9


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/16/2026 2:42 PM Page 10

10

GV

Fréttir

Jólakyrrð í Heiðmörk á aðventunni - fyrsta aðventuhelgin 28.-29. nóvember á Jólamarkaðnum í Heiðmörk

Hlýleg náttúrufegurð og jólastemning verður ráðandi á Jólamarkaðnum í Heiðmörk á aðventunni. Fyrsta aðventuhelgin, 28.-29. nóvember, verður sérstaklega helguð rólegri skógarstemningu. Boðið verður upp

á skógarbað, standandi jóga, göngu, leidda hugleiðslu og ljóðalestur. Óvíða er jólalegra en á Jólamarkaðnum í Heiðmörk. Margir kaupa þar jólatré beint úr skóginum eða gjafir á handverksmarkaðnum. Aðrir koma

fyrst og fremst til að njóta jólastemmningar í fallegu umhverfi, drekka kakó í jólakjallaranum eða setjast við varðeld í Rjóðrinu, þar sem rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum klukkan 14, bæði laugardaga og sunnudaga. Svo er tilvalið að nota tækifærið til að ganga um skóglendið, sem er ekki síður fallegt á veturna en sumrin. Þau sem vilja finna og fella sitt jólatré sjálf, geta svo farið í Jólaskóginn á Hólmsheiði. Margar fjölskyldur koma í Jólaskóginn ár eftir ár, enda hátíðlegt og skemmtileg samvinna að sækja sitt eigið tré í skóginn. Hægt er að setjast við varðeld á staðnum, gæða sér á kakói og smákökum eða jafnvel grilla sykurpúða yfir eldinum. Jólasveinar verða á ferli milli klukkan 13 og 14. Með Jólamarkaðnum í Heiðmörk og

Þessi flotti jólasveinn mætti í Heiðmörkina í fyrra og kemur eflaust aftir þegar Jólamarkaðurinn opnar. Jólaskóginum á Hólmsheiði vill Skógræktarfélag Reykjavíkur kynna fólk fyrir töfrum skógarins og skapa notalegar stundir á aðventunni.

Þessi fjölskylda náði sér í fallegt jólatré í Heiðmörkinni í fyrra.

Það er ýmislegt brallað á Jólamarkaðnum í Heiðmörk og börnin hafa gaman af.

Tekjurnar af jólatrjáasölunni renna svo beint til starfsemi þessara frjálsu félagasamtaka. Meðal annars skógræktar, landgræðslu og uppbyggingar útivistarsvæða í Heiðmörk og víðar.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/12/2026 8:51 PM Page 11


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/13/2026 6:50 PM Page 12

12

GV

Fréttir Aldan eins árs:

„Við erum ótrúlega stoltir af fyrsta árinu“ Aldan fisk- og sælkeraverslun í Spönginni fagnar eins árs afmæli um þessar mundir. Eigendurnir líta stoltir yfir fyrsta starfsárið, enda hafa viðtökurnar verið frábærar. „Við erum fyrst og fremst ótrúlega þakklátir fyrir þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið. Það er magnað að hugsa til þess að heilt ár sé liðið frá því við opnuðum. Tíminn hefur flogið áfram og þetta hefur verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt ár,“ segir Páll Pálsson, sem á og rekur Ölduna ásamt Haraldi Geir. Hann segir sérstaklega ánægjulegt hversu margir viðskiptavinir hafi orðið fastakúnnar.

„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að fólk sé ánægt og vilji koma aftur. Við höfum lagt mikinn metnað í að bjóða upp á ferskan fisk, spennandi fiskrétti og vandaðar sælkeravörur. Það er virkilega ánægjulegt að finna fyrir því trausti sem viðskiptavinirnir sýna okkur,“ segir Palli. Verslunin hefur þróast með viðskiptavinunum Á fyrsta árinu hefur úrvalið tekið breytingum og nýir réttir og vörur bæst við, meðal annars með hliðsjón af óskum og ábendingum viðskiptavina. „Við viljum að það sé alltaf spenn-

Fiskurinn frá Öldunni er girnilegur og gómsætur.

Páll Fannar (Palli) til vinstri og Haraldur Geir (Halli), eigendur Öldunnar í Spönginni. andi að koma í Ölduna og að fólk finni eitthvað gott í matinn, hvort sem er fyrir hversdaginn eða þegar gera á sérstaklega vel við sig,“ segir Halli, sem hefur lagt mikla áherslu á þróun fiskréttanna. „Við erum stoltir af því sem við höfum byggt upp, en við erum rétt að byrja. Markmiðið er að halda áfram að bæta okkur, þróa nýja rétti og bjóða upp á ferskasta fiskinn og flottustu fiskrétti landsins,“ bætir Halli við. Jólagóðgætið á leiðinni í Ölduna Á næstu dögum fara jólavörurnar að streyma í hús og verður úrvalið glæsilegt. Þar verður meðal annars að finna reyktan lax og grafinn lax ásamt ljúffengum sósum, auk hinnar vinsælu jólasíldar sem hefur slegið rækilega í gegn. „Jólasíldin hefur fengið alveg frábærar viðtökur og margir bíða

spenntir eftir henni. Hún verður að sjálfsögðu á sínum stað fyrir jólin,“ segir Palli. Einnig verður í boði humar í öllum stærðum og hin vinsæla humarsúpa. „Við viljum að fólk geti komið til okkar og fundið eitthvað virkilega gott á hátíðarborðið. Við leggjum sama metnað í gæðin og ferskleikann, hvort sem um er að ræða lax, síld, humar eða humarsúpu,“ segir Halli. „Við viljum einfaldlega segja takk“ Þegar eigendurnir líta yfir fyrsta árið stendur eitt upp úr: stuðningur viðskiptavinanna og þróun verslunarinnar. „Við viljum einfaldlega segja takk! Takk fyrir viðskiptin, góðu orðin og stuðninginn á þessu fyrsta ári. Við hlökkum til að halda áfram að bjóða ykkur það besta úr hafinu um ókomin ár,“ segja þeir félagar.

Uppskrift frá Öldunni · Ljúffeng heimagerð graflaxsósa Í lokin látum við hér fylgja með uppskrift að mjög góðri sósu með graflaxi: Hráefni: 3 msk. sætt sinnep · 1 msk. Dijonsinnep · 2 msk. púðursykur · 2 msk. hvítvínsedik · 1 dl bragðlítil olía · 2–3 msk. ferskt, saxað dill · salt og nýmalaður pipar eftir smekk. Aðferð: Blandið sinnepi, púðursykri og ed iki saman. Hellið olíunni rólega út í á meðan hrært er, þar til sósan verður mjúk og samfelld. Bætið dillinu saman við og smakkið til með salti og pipar. Best er að leyfa sósunni að standa í kæli í nokkrar klukkustundir áður en hún er borin fram. Fullkomin með góðum gröfnum laxi frá Öldunni! Verði ykkur að góðu!


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/13/2026 7:09 PM Page 13

JÓLLAMARKAÐ ÐUR - í Heiðmörkk Íslen nsk jólatré – Tröpp putré Handverksmarkaðu H ur Jólasveinar Ba ar nastund í Rjóðrin nu Opið allar a 12- 17. aðventuhelgar milli kl 1 Njótið fjölskyldustundar f í Heiðmörk með he m eitu súkkulaði og smákökum ið eldstæðið. ld ðið við Jólaskóg gvið eigið gurinn á Hólmsheiði – högg jólatré úr skóginum

www.heidmork.is/verslun ssala@heidmork.is | Sími 587 012 20

bílaþvottastöð


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 12:21 PM Page 14

14

GV

Fréttir

Pikkoló opnar í Grafarvoginum - sæktu matarinnkaupin þegar þér hentar í kælda afhendingarstöð Pikkoló við Olís Gullinbrú Pikkoló opnaði nýverið glænýja afhendingarstöð við Olís Gullinbrú. Grafarvogsbúar hafa tekið stöðinni einkar vel en þeir geta nú sótt ýmis konar spennandi mat- og dagvörur í kælda afhendingarstöð Pikkoló í sínu nærumhverfi. Þú einfaldlega verslar þínar uppáhalds ferskvörur á netinu, velur næstu Pikkoló-stöð sem afhendingarstað og sækir þegar þér hentar. Þú finnur Pikkoló bæði sem afhendingarstað hjá ýmsum verslunum eins og til dæmis Eldum Rétt en einnig er hægt að fara inn á markaðstorg Pikkoló og finna spennandi verslanir og smáframleiðendur sem afhenda

beint í Pikkoló. Fjölmargar spennandi vörur eru væntanlegar á markaðstorg Pikkoló fyrir jólin, þar á meðal verða allar helstu sælkeragjafirnar saman komnar á einn stað ásamt ljúffengum veislubökkum og öðrum jólakræsingum sem hægt verður að nálgast hjá Pikkoló. Pikkoló er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun á snjalldreifikerfi fyrir matvöruverslanir á netinu. Meginmarkmið Pikkoló er að hjálpa fólki að nálgast fjölbreytta mat- og dagvörur í nærumhverfi sínu með einföldum og umhverfisvænum hætti. Þetta gerir Pikkoló með því að tengja matvöruverslanir við snjall-

dreifikerfi Pikkoló sem samanstendur af hugbúnaði og kældum afhendingarstöðvum sem staðsettar eru í nærumhverfi fólks. „Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi sem fellur vel að framtíðarsýn okkar um að gera Olís að þægindamiðstöð framtíðarinnar,“ segir Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís. Ragna M. Guðmundsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Pikkoló, segir samstarfið mikilvægt skref í átt að sjálfbæru dreifikerfi fyrir netverslun með matvöru. „Við viljum að allir geti nálgast fjölbreyttar og ferskar matvörur í nærumhverfi sínu.“

Ný afhendingarstöð Pikkoló við Olís Gullinbrú.

Frístundaakstur á ekki að fara eftir hverfum - eftir Bjarnveigu Birtu Björnsdóttur borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Flestir foreldrar ungra barna þekkja það að missa tíma úr vinnunni seinnipartinn til að skutla á æfingar. Ég er þar engin undantekning. Þetta skutl er falinn kostnaður sem lendir á foreldrum og vinnustöðum þeirra, en ekki síst á börnunum sjálfum. Foreldrar eru nefnilega ekki allir í þeirri aðstöðu að geta stokkið úr vinnu um miðjan dag og þá eru það börnin sem missa af tækifæri til að komast á æfingu. Við erum flest sammála um að íþróttir og tómstundir skipti börn miklu máli og borgin styður við þær með ýmsum hætti, til dæmis með frístundakortinu. En þessi stuðningur gagnast lítið ef börnin komast ekki á æfingu. Ef við viljum að öll börn geti stundað íþróttir þurfum við að hugsa um hvernig þau komast á staðinn og hvernig við getum betur byggt upp

dag barnanna í kringum íþróttir og tómstundir. Grafarvogur situr eftir Reykjavíkurborg styrkir frístundaakstur um 30 milljónir króna á ári og í vor nýttu 663 börn sér frístundaakstur. Styrkurinn sem borgin veitir fer bara til félaga sem bjóða upp á akstur og því er honum ekki ráðstafað að neinu leyti til Grafarvogs þar sem Fjölnir sinnir ekki frístundaakstri. Í hverfunum þar sem aksturinn er í boði borga foreldrar frá um 7.000 krónum upp í rúmlega 18.000 krónur á önn fyrir hvert barn og erfitt er að sjá hvort þjónustan sé misjöfn eftir hverfum eða hvað það er sem veldur þessu misháa verði. Það liggur fyrir að engin stefna er til staðar varðandi frístundaakstur hjá

Reykjavíkurborg. Þjónustan fer alfarið eftir því hvað hvert félag hefur efni á og hversu vel því gengur að manna fylgdina. Frístundaaksturinn hefur ekki verið skoðaður út frá því hvar þörfin er mest en í svari borgarinnar segir sjálft að miðað við stærð Grafarvogs megi ætla að þörfin sé töluverð hér. Ein stefna fyrir alla borgina Úr þessu vildi ég bæta með tillögu í íþrótta- og útilífsráði um að borgin mótaði eina stefnu um frístundaakstur fyrir öll hverfi. Í stefnunni yrði skilgreint hvað frístundaakstur er og settar lágmarkskröfur, til dæmis um fylgd, biðtíma og upplýsingagjöf til foreldra. Styrkirnir ættu að taka mið af fjölda barna, vegalengdum og aðstæðum í hverju hverfi, en ekki af því hvað hvert félag ræður við. Borgin

gæti líka lækkað kostnaðinn með því að semja, í krafti stærðar sinnar, um aksturinn fyrir hönd félaganna eða bjóða hann út, samnýta ferðir og nýta samninga Strætó. Í tillögunni var líka lagt til að tengja frístundaheimilin betur við íþróttastarfið, svo tíminn frá tvö til fimm nýtist börnunum betur. Hér í Grafarvogi gæti það þýtt að starfsfólk frístundaheimilanna fylgdi börnunum á æfingar hjá Fjölni. Það myndi líka hjálpa frístundaheimilunum að bjóða upp á lengri vaktir og halda í gott starfsfólk. Þetta gæti jafnframt þýtt að starfið hjá Fjölni gæti færst fyrr á daginn svo þjálfarar geti sótt sér lengri vaktir. Meirihlutinn sagði nei Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og

Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Viðreisnar felldu tillöguna á fundi ráðsins þann 2. október. Á meðan engin stefna liggur fyrir þá ber enginn ábyrgð á því að þjónustan nái til allra hverfa. Ég mun halda áfram að ýta á eftir málinu, því fjölskyldur í Grafarvogi eiga að geta gengið að sömu þjónustu og fjölskyldur í öðrum hverfum borgarinnar. Þangað til sjáumst við áfram á planinu við Egilshöllina seinnipartinn. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og býr í Grafarvogi.

Afmælishátíð Borgarholtsskóla Mögulega rekur einhverja Grafarvogsbúa minni til þess þegar byrjað var að grafa grunn að glænýjum framhaldsskóla í hverfinu. Síðan eru þó liðin allmörg ár en í haust var þrjátíu ára starfsafmæli Borgarholtsskóla fagnað. Fyrsti kennsludagur í hinum nýreista skóla var 2. september 1996 og þann dag, þrjátíu árum seinna, hófst afmælishátíðin á afmælisköku og kórsöng. Fyrsta október var svo heljarinnar hátíðardagskrá í skólanum en til hennar var boðið forseta Íslands, barna- og menntamálaráðherra, forseta borgarstjórnar Reykjavíkur ásamt fjölmörgum vinum og velunnurum skólans. Dagskráin var fjölbreytt og tókst með eindæmum vel. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar flutti tónlist fyrir athöfnina og kór Borgarholtsskóla söng á milli atriða með liðsauka frá kórum frá Þýskalandi og Liechtenstein sem voru í heimsókn. Ræður voru fluttar þar sem skólastarfið var lofað í hástert. Einkum var hinni miklu fjölbreytni sem boðið er upp á í námsvali og vingjarnlegu viðmóti til hins margbreytta nemendahóps hrósað. Grafarvogsbúinn Kristmundur Axel flutti lag sitt „Komdu til baka“ ásamt félaga sínum Júlí Heiðari en þeir eru báðir fyrrum nemendur skólans. Lagið varð hlutskarpast í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2010 og var flutningurinn ógleymanlegur öllum sem á hlýddu. Einnig var heimildarmynd um sögu skólans frumsýnd þar sem núverandi nemendur tóku viðtöl við fyrrverandi nemendur með stórskemmtilegri útkomu. Margs er að minnast frá þessum þrjátíu starfsárum Borgarholtsskóla og ýmislegt hefur breyst. Einkunnarorð skólans og grunngildi eru þó ávallt í gildi en það er að sýna hverju öðru virðingu og kærleika ásamt því að gefa öllum tækifæri til að blómstra í Borgó.

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra ásamt nokkrum hressum nemendum Borgarholtsskóla. Mynd Snjókallinn.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/16/2026 2:44 PM Page 15

15

GV

Fréttir

Blóðsykurmælingar í boði Lionsklúbba - í Húsgagnahöllinni 21. nóvember Blóðsykurmælingar í boði Lionsklúbbanna Fold og Fjörgyn verða í boði laugardaginn 21. nóvember á Bíldshöfða 20 (Húsgagnahöllin) milli 11:00 og 16:00. Sykursýkisvarnir er eitt af höfuðverkefnum Lions um allan heim og eru ýmsir viðburðir því tengdu á dagskrá hjá Lionsklúbbum svo sem fræðsla og mælingar blóðsykurs. Lionsklúbburinn Fjörgyn hóf að bjóða upp á blóðsykurmælingar árið 2012 og höfum við gert það árlega eftir það að undanskildum Covid árunum og höfum við fengið aðstöðu í verslunarkjarnanum Bíldshöfða 20 en þar hafa

Krónan, JYSK og Húsgagnahöllin veitt okkur húsaskjól fyrir þetta verkefni. Frá árinu 2017 höfum við átt í góðu samstarf við Lionsklúbbinn Fold við mælingarnar og höfum við ávallt skilað af okkur flestum mælingum á landsvísu. Þessi þjónusta er að öllu leiti í boði klúbbanna og höfum við átt því láni að fagna að hafa gott aðgengi að heilbrigðis starfsmanni sem hefur verið okkur til halds og trausts og veitt þeim ráðgjöf sem þess þurfa. Á þessum árum höfum við mælt blóðsykur í 6081 einstaklingum, 3591 konur og 2490 karlar, Þetta Félagar í Lionsklúbbunum Fjörgyn og Fold bjóða upp á blóðsykurmælingar í Húsgagnahöllinni þann 21. nóvember nk. er fólk á öllum aldri frá barnsaldri og yfir nírætt og kemur fólk í sumum tilfellur á staðinn þegar það veit að þessi þjónusta okkar er í boði. Þetta er verkefni er mjög góð og öflug kynning fyrir Lions hreyfin-

guna og veitir það okkur félögunum mikla ánægju að fá að taka þátt í þessu verkefni. Í ár bjóða Lionsklúbbarnir Fjörgyn og Fold upp á blóðsykurmælingar á Bíldshöfða 20 laugardaginn 21. nóvember n.k. og

hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur. Fyrir hönd félaga í Fjörgyn og Fold, Guðmundur Helgi Gunnarsson

Konurnar í Fold og Fjörgyn við blóðsykurmælingar.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2026 5:43 PM Page 16

16

GV

Jólabækurnar

Stílarnir virkuðu - úr æviminningarbók Gunnars Inga Gunnarssonar læknis

Helvítis fantur ertu! eru æviminningar Gunnars Inga Gunnarssonar læknis, skráðar af Guðjóni Inga Eiríkssyni. Gunnar Ingi var lengi yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ og enn fremur um tíma læknir á Slysavarðstofunni og Læknavaktinni. Þá leysti hann af víða um land. Hann er með næmt auga fyrir því skoplega í tilverunni en hefur einnig séð dauðann í sinni óvenjulegustu mynd. Þá stóð hann sjálfur á bjargbrún tilverunnar af eigin völdum og stuttu síðar gerði undirheimamaður tilraunir til að koma honum fyrir kattarnef. Hér á eftir verður gripið niður í bókina og sjónum aðallega beint að hinu spaugilega sem þar er að finna: Botninn Ég lærði læknisfræðina við Gautaborgarháskóla og á hverju skyldi nám okkar svo hafa byrjað? Jú, fyrsta morguninn var okkur stefnt inn á öldrunardeild spítalans og þar vorum við beðnir um að skeina þá sjúklinga sem gætu ekki gert það sjálfir. „Við byrjum á botninum,“ sagði kennarinn, „og svo vinnum við okkur upp!“ Svona gullkorn varð að sjálfsögðu til þess að við gengum brosandi til verka og gerðum okkar besta. „Neyðartaskan“ Sumarið 1975 leysti ég af á heilsugæslustöðinni í Uddevalla, sem er strandbær skammt norðan við Gautaborg, og ók ég þarna á milli á morgnana og kvöldin á virkum dögum. Ég hafði varla stigið þar niður fæti í fyrsta sinn þegar ég var sóttur á heilsugæslustöðina og sagt að það lægi maður, sennilega látinn, við hraðbrautina. Mér hafði ekki einu sinni gefist tími til að fara úr yfirhöfninni, svo snögglega bar þetta að. Neyðartaskan — akúttaskan — blasti sem betur fer við mér. Ég greip hana og rauk af stað. Í svona tilfelli má engan tíma missa. Fólk hafði safnast saman í kringum þann sem lá þarna. Ég ruddi mér leið að manninum, kraup við hlið hans, opnaði töskuna og ætlaði að ná þar í hlustunarpípu og tunguspaða. Þau eru notuð til að halda öndunarvegi opnum, sérstaklega hjá þeim sem eru meðvitundarlausir. Í töskunni var þó fátt að finna, fyrir utan tvö dauð fiðrildi og eitt snuð! Þar var ekki eitt einasta læknisáhald. Ég lokaði töskunni strax. Vafalaust höfðu samt fleiri en ég séð ofan í töskuna og hvað skyldu þeir hafa haldið? Varla að þarna væri læknir á ferð, nema þá kannski töfralæknir, með ofurtrú á lækningamætti dauðra fiðrilda? Eða hafði hann ef til vill reiknað með því að þau væru á lífi í lokaðri og súrefnislausri töskunni en svo hefði

annað komið í ljós og þar með gat hann enga björg veitt? Látum snuðið liggja á milli hluta! Ég var í hálfgerðu sjokki. Sænskt heilbrigðisstarfsfólk trassaði ekki það sem sneri að öryggismálum. Þarna hafði samt eitthvað farið úrskeiðis. Það var lán í óláni að þessi vangá breytti engu í þetta sinn. Maðurinn var látinn þegar ég kom að honum og engin tól eða tæki hefðu getað hjálpað mér við að endurlífga hann. Svona byrjaði nú starfsferill minn í Uddevalla. Eftir þetta atvik varð mér alltaf litið ofan í neyðartöskuna, áður en ég þaut með hana af stað í útköll, hvort heldur þau væru í Svíþjóð eða á Íslandi — nema þá að ég hefði sjálfur gengið frá öllu í hana og vissi því upp á hár hvað í henni væri þegar „kallið kæmi“. Stílarnir Einhvern veginn er það svo að ég man alltaf eftir fyrsta sjúklingnum sem leitaði til mín á hverjum stað fyrir sig. Þórshöfn var þarna engin undantekning. Reyndar var tilfellið þar frekar óvenjulegt og það vatt upp á sig. Ég hafði lúmskt gaman af því. Læknishúsið á Þórshöfn var bæði bústaður læknisins og læknastofa og ég var að bera inn síðasta farangurinn okkar þegar ég heyri bíl skransa að baki mér. Ég sný mér við og sé að undir stýri er ungur piltur en í farþegasætinu situr roskinn maður, greinilega stór og mikill rumur því hann fyllti á alla kanta út í rýmið þeim megin. Hann var draghaltur og pilturinn studdi hann til sætis inni á læknastofunni. Þar skoðaði ég hann og fékk um leið lýsingu á því sem gerst hafði. Hann hafði farið niður um ís á hestbaki, lent þar undir hestinum og var nú sárþjáður í öðrum fætinum, sem hann óttaðist að væri brotinn. Áverkar bentu líka til þess að svo gæti verið. Því taldi ég réttast að taka röntgegnmynd af skaddaða svæðinu. Ég gerði ráð fyrir því að til væri röntgentæki í húsinu en ég var orðinn ansi efins um það, eftir margra mínútna leit, þegar ég nánast hrasaði um þannig apparat í dimmu skúmaskoti. Tækið var augljóslega komið til ára sinna og mér gekk bölvanlega að koma því í gang. Á meðan ég var að fikta við þetta ákvað ég að slá aðeins á létta strengi og segi við manninn: „Væri nú ekki tilvalið fyrir þig að greiða þér aðeins svo að þú lítir nú vel út á röntgenmyndinni?“ Hafi ég ekki vitað það áður, lærði ég það þarna, að spauga ekki við hvern sem er og allra síst við einhvern mér ókunnugan. Ég hafði nefnilega ekki fyrr sagt þetta heldur en maðurinn rífur stálgreiðu upp úr rassvasa sínum og fer að greiða sér! Það fór ekkert á milli mála að hann

Þann 1. desember 2008 afhenti Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Gunnari Inga lyklavöldin að hinum nýju heimkynnum Heilsugæslunnar Árbæ. Þarna fór ágætlega á með þeim en síðar áttu þau eftir að elda grátt silfur saman og að sjálfsögðu segir frá því í bókinni. og læknisfræðin höfðu átt litla eða enga samleið í gegnum árin. Jæja, eftir dúk og disk tókst mér að koma röntgentækinu í gagnið og stuttu síðar lá úrskurðurinn fyrir:

lokum svo að hann var sóttur þangað flugleiðis að beiðni Ólafs landlæknis þegar upp um hann komst. Þrátt fyrir að þessi ógæfusami maður hafi í eigin þágu hreinsað út úr

dlit hans. Ég gaf mig á tal við prestinn. Hann bað mig hljóðlega um að losa sig við allstóran dálk, sem stungið hafði verið í bak hans, rétt við hryggsúluna. Ég skildi strax að þessi hempuklæddi maður vildi skjóta þjónustu, lausa við athygli annarra. Hann hvíslaði því líka að mér að ég mætti hvorki nefna þetta við nokkurn mann né skrifa í sjúkraskýrslu. Þetta væri bara á milli okkar tveggja, mín og hans. Það var sjálfsagt að verða við þessari óvenjulegu beiðni. Hann vildi augljóslega af einhverjum ástæðum hlífa þeim sem verknaðinn framdi og hefur talið að ekki væri á harm hans bætandi eða aðra erfiðleika. Undir eðlilegum kringumstæðum hefði lögreglu verið gert viðvart. Þetta var ekkert annað en líkamsárás og gott ef hún flokkaðist ekki sem morðtilraun. Orðalaust fjarlægði ég dálkinn úr baki prestsins og leit svo rétt sem snöggvast af komumanninum. Ætlaði síðan að segja honum, að hann hefði verið heppinn, dálkurinn hefði stungist meðfram hryggjartindi og setið fastur í einum liðbol, án blæðingar og heilsutjóns. En þá var hann horfinn, guðsmaðurinn. Fatlinn Eitt sinn kom ég að læknastúdent á slysadeildinni sem var önnum kafinn við að setja skaddaðan fótlegg á rígfullorðnum manni í fatla! Það gekk honum frekar brösuglega, eins og vænta mátti.

maðurinn var mikið bólginn á fætinum en óbrotinn. Ég ætlaði að láta hann hafa bólgueyðandi töflur en lyfjaskápurinn var þá tómur. Á því var sú dapurlega skýring, að nokkru á undan komu minni á staðinn hafði verið þar læknanemi í afleysingum. Hann reyndist vera sjúkur á geði, meðal annars vegna mikillar neyslu á geðlyfjum og bara hvaða lyfjum sem hann í neyð sinni komst yfir. Fór að

lyfjaskápnum fann ég þar ofan á 20 stíla, rótsterka, sem höfðu annaðhvort farið fram hjá honum eða hann þá fúlsað við þeim. Sjúklingurinn minn fékk nú stílana í hendur og með fylgdu þau munnlegu skilaboð frá mér að það væri „einn á sólarhring“. Ég kvaddi hann síðan með þeim orðum að hann kæmi aftur til mín þegar hann væri búinn með stílana. Það gerði hann að þremur vikum liðnum, sagðist vera orðinn albata og þakkaði það stílunum. Bætti svo við: „En mikið svakalega var erfitt að stanga þá úr tönnunum!“ Með hníf í bakinu Eitt sinn birtist á slysadeildinni prestklæddur maður. Enginn sá hann koma. Hann hlaut að hafa laumað sér inn baka til, þar sem sjúkrabílarnir eiga aðkomu, og síðan farið með veggjum að einum skoðunarbekknum. Þarna var hann í hálfgerðum felum, hjúpaður henginu sem skildi þetta rými frá því næsta, svo aðeins sást í an-

Meintur tölvuleikur Fyrsti sjúklingurinn, sem til mín leitaði á Heilsugæsluna Árbæ, eftir að ég fékk þangað fyrstu borðtölvuna til að auðvelda mér starfið, var roskin kona. Ég vildi halda augnsambandi við hana og skáskaut mér því á stólnum fram hjá skrifborðinu, svo að stór og voldugur tölvuskjárinn væri ekki á milli okkar. Þegar mig vantaði upplýsingar um sjúkdómasögu konunnar og lyf henni ætluð, sem væri að finna í tölvunni, renndi ég mér síðan til baka. Það vildi þannig til að ég var hálfgerður klaufi á þetta nýja tækniundur, svo það tók mig talsverðan tíma að kalla fram á skjáinn það sem mig vanhagaði um. Þegar mér hafði loksins tekist það skáskaut ég mér á nýjan leik fram hjá skrifborðinu og baðst um leið afsökunar á þessari töf. Þegar þetta hafði óhjákvæmilega endurtekið sig — aftur með seinagangi — og það stefndi í þriðja skiptið, stundi konan upp: „Viltu ekki bara klára leikinn, vinur minn?“ Það skal tekið fram að ég á enn eftir að fara í tölvuleik!


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 1:34 PM Page 17

Baughús20 35 --Grafarvogi Hamravík Grafarvogi

Kjöreign fasteignasala kynnir rúmgott, bjart og vel skipulagt 197,6 m2 parhús á tveimur Kjöreign fasteignasala kynnir: Hamravík 20, falleg og rúmgóð 4ra herbergja hæðum á þessum vinsæla í Grafarvogi með virkilega útsýni. íbúðmeð meðsuðurgarði innbyggðum bílskúr á 2.stað hæð með sérinngangi frá fallegu svölum. Eignin skiptist í 152,8 m2 íbúðar hluta og innbyggðan bílskúr sem er 44,8 m2. Eignin Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús og skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, með útgengi út á fm svalir, baðherbergi. Rúmgóður bílskúr með tvö geymslu innaf.stofur Birt stærð er 151,3 og eler dhús, þvottahús, geymslu og bílskúr. Suðurgarður með góðum skjólgirðingum og sólpalli. íbúðin sjálf 119,2 fm, geymsla og bílskúr 32,1 fm. Verð 99,8 millj. Vinsæl staðsetnAllar upplýsingar gefur Ásta íog síma eða asta@kjoreign.is ing - stutt í skóla, leikskóla, Spöngina GR897-8061 Korpu fyrir golfunnendur.

897-8061 Sími 533-4040 - kjoreign.iskjoreign@kjoreign.is Sími 533-4040 - www.kjoreign.is - kjoreign@kjoreign.is

asta@kjoreign.is

Seríur í sérflokki í Múrbúðinni Jólaseríur Múrbúðarinnar hafa slegið í gegn bæði hvað varðar verð og gæði. Fallegar jólaseríur eru víða til. Seríur sem lifa af íslenskan vetur eru færri. Bjarmi hefur lýst upp íslensk heimili og fyrirtæki í meira en áratug og úrvalið hefur allan þann tíma verið valið og þróað með eitt í huga: Krefjandi íslenskt veðurfar. IP44 eða IP65? Munurinn sem skiptir öllu Hér liggur best geymda leyndarmálið í jólaseríuheiminum: Tvær útiseríur geta litið nánast eins út í hillunni – en önnur gefst upp í fyrsta storminum á meðan hin lýsir enn næsta vetur. Munurinn felst í tveimur stöfum og tveimur tölum: IP-merkingunni. Hvað segja tölurnar? IP stendur fyrir „Ingress Protection“ það er hversu vel tæki eða búnaður er varið gegn ryki og vatni. Fyrri talan segir til um vörn gegn ryki og föstum hlutum, sú síðari um vörn gegn vatni. Því hærri tölur, því betri vörn.

Finndu þinn Bjarma Bjarmi fæst í þremur útgáfum. Allar eru alvöru IP65-útiseríur með þykkum kapli og höggþolnum perum. Verð sem stenst allan samanburð Hagstætt verð á jólaseríum hefur lengi verið aðalsmerki Múrbúðarinnar og það breytist ekki með nýju nafni. • 100 ljósa IP65-sería: aðeins 4.924 kr. • 200 ljósa IP65-sería: aðeins 6.995 kr. Berðu saman IP-merkinguna, þykktina á kaplinum og verðmiðann. Því betur sem þú berð saman, því betur stendur Bjarmi. 2.000 ljós á einni kló Bjarma-seríurnar eru samtengjanlegar: tengdu allt að 10 seríur saman – samtals 2.000 ljós við einn spennubreyti. Hvort sem þú ætlar að vefja eitt tré, lýsa upp svalirnar eða klæða allt húsið í ljós, þá byrjar þú á einni kló.

Jólaseríurnar í Múrbúðinni eru ódýrar og mjög endingargóðar.

Hlýleg ljós og skreytingar fyrir jólin Nú er hægt að panta jólaskreytingar og ljósakrossa fyrir leiði í öllum görðum Kirkjugarða Reykjavíkur í vefverslun okkar á kirkjugardar.is og í síma: 585-2700. Skoðaðu úrvalið á kirkjugardar.is/thjonusta/vefverslun


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 3:37 PM Page 18

18

Fréttir

GV

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is

Ívar Ingimarsson.

Gunnar Björn Ólafsson.

Böðvar Óttar Steindórsson.

Ívar Ingimarsson ráðinn aðstoðarþjálfari Fjölnis Ívar Ingimarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Fjölni. Hann mun starfa með Gunnari Má Guðmundssyni, þjálfara liðsins. Ívar lék 29 A-landsleiki fyrir Ísland og á að baki atvinnumannaferil í Englandi með Brentford, Wolverhampton Wanderers, Brighton, Reading og Ip-

swich Town. Hjá Reading var hann lykilmaður í liðinu sem vann ensku B-deildina tímabilið 2005–2006 og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Undanfarin ár hefur Ívar sinnt þjálfun hér á landi. Hann var þjálfari hjá meistaraflokki kvenna hjá KR á árunum 2024–2025 og þjálfari 2. flokks hjá HK á árunum 2025–2026. Birgir Örn Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, segir ráðninguna falla að stefnu félagsins um að efla starfið innan frá og skapa gott umhverfi fyrir unga leikmenn. Gunnar Már telur jafnframt að reynsla og þekking Ívars muni styrkja þjálfarateymið og nýtast leikmannahópnum.

,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,, !+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('

Ívar segist spenntur fyrir verkefninu í Grafarvogi. „Ég hlakka til að takast á við verkefnið, vinna með Gunnari og leikmannahópnum og leggja mitt af mörkum til að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur.“

Gunnar Björn skrifar undir sinn fyrsta samning við Fjölni Handknattleiksmaðurinn Gunnar Björn Ólafsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Fjölni. Gunnar er uppalinn hjá Fylki og hefur leikið með yngri flokkum Fjölnis/Fylkis. Hann er jafnframt hluti af unglingalandsliði Íslands. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild Fjölnis er Gunnar sagður hafa tekið miklum framförum og eru dugnaður hans, metnaður og vinnusemi sérstaklega nefnd. „Ég er mjög glaður með að hafa skrifað undir minn fyrsta samning við Fjölni og er spenntur fyrir framtíðinni,“ segir Gunnar Björn.

og bindur vonir við áframhaldandi framfarir hans og fleiri tækifæri með liðinu á komandi árum. „Ég er mjög glaður með að hafa skrifað undir samning við Fjölni og bíð spenntur eftir komandi tímabilum með þessum spennandi hópi,“ segir Böðvar Óttar.

Simon Smidsgaard Hansen ráðinn rekstrarstjóri fimleikadeildar Simon Smidsgaard Hansen hefur verið ráðinn rekstrarstjóri fimleikadeildar Fjölnis. Hann hefur reynslu af rekstri íþróttafélaga, þjálfun og skipulagningu íþróttastarfs. Simon er Dani að uppruna en hefur búið og starfað á Íslandi undanfarin þrjú ár og talar íslensku reiprennandi. Hann er með B.S.- og M.S.-gráður í íþróttum og heilsu frá University of Southern Denmark og lauk nýlega miniMBA-námi í fjármálum, fjártækni og árangursstjórnun hjá Akademias. Frá árinu 2024 hefur Simon starfað sem skrifstofu- og rekstrarstjóri hjá Fimleikafélaginu Björk. Þar hefur hann borið ábyrgð á daglegum rekstri, fjárhagsáætlanagerð og skipulagi íþróttastarfs, auk samskipta við iðkendur, foreldra og samstarfsaðila. Áður starfaði hann sem þjálfari barna og ungmenna hjá Gerplu og við sölu og þjónustu hjá POWER. Simon er fyrrverandi úrvalsfimleikamaður og hefur því kynnst íþróttastarfinu bæði sem iðkandi og stjórnandi. Í starfi sínu leggur hann áherslu á góð samskipti, skýra umgjörð og faglegt og jákvætt umhverfi fyrir iðkendur, þjálfara og foreldra.

Böðvar Óttar skrifar undir sinn fyrsta samning við Fjölni Handknattleiksmaðurinn Böðvar Óttar Steindórsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk karla hjá Fjölni. Samningurinn gildir til tveggja ára. Böðvar er línumaður, fæddur árið 2010, og er meðal ungra leikmanna félagsins sem eru að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki. Meistaraflokksráð karla lýsir Böðvari sem metnaðarfullum leikmanni

'"+*%'$ " "',%$! ! '"(*

! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !

Simon Smidsgaard Hansen.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 12:15 PM Page 19

TAKK FYRIR ÍSLAND! - Indian Food Box 6 ára 6 ára afmæli 4. desember Sex ár eru liðin frá því að við opn-uðum dyrnar að Langarima 21, en að mörgu leyti líður okkur enn eins og á fyrsta deginum. Við finnum enn fyrir sömu gleðinni þegar við tökum á móti nágrönnum okkar og deilum með þeim bragðinu af indverskum heimilismat. Í gegnum árin höfum við séð börnin úr hverfisskólanum vaxa úr grasi. Að sjá kunnugleg andlit koma aftur og fjölskyldur verða hluta af daglegu lífi okkar hefur gert þennan stað að svo miklu meira en fyrirtæki. Grafarvogur er heimili okkar og okkur þykir vænt um að vera hluti af þessu samfélagi. Markmið okkar er enn

það sama: að bjóða góðan mat, hlýjar móttökur og stað þar sem fjölskyldum líður vel. Hlýja ykkar og áframhaldandi stuðningur hafa hjálp-að okkur að halda dyrunum opnum, bæði á góðum tímum og þegar á móti hefur blásið. Hver pönt-un, hver heimsókn, öll meðmælin og hvert hlýlegt orð hafa skipt okkur máli. Við erum líka enn að læra íslensku. Það er ekki alltaf auðvelt, en við höld-um áfram að reyna og lærum svolítið meira á hverjum degi. Takk fyrir þolinmæðina og hvatninguna. Takk, Ísland, fyrir að taka á móti okkur og hjálpa okkur að gera þetta land að heimili okkar. Allt frá fyrstu skrefunum í Grafarvogi til opnunar veitingastaðarins okkar í Kópavogi hefur stuðningur ykkar gert þessa vegferð mögulega. Við vonum að þið haldið áfram að styðja litla fyrirtækið okkar í hverfinu og hlökkum til að elda fyrir ykkur um ókomin ár. Indian Food Shop — bragð af Indlandi í eldhúsið þitt Indian Food Shop er hluti af Indian Food Box og er til húsa að Langarima 21. Markmið okkar er að auðvelda nágrönnum okkar að nálgast indverskt hráefni, svo sem krydd, hrísgrjón, linsubaunir og aðrar nauðsynjar í eldhúsið. Við viljum hjálpa fólki að kynnast indverskri matargerð heima hjá sér, finna kunnuglegt hráefni í nágrenninu og kaupa minna magn þegar það hentar betur. Þannig deilum við matarmenningu okkar með samfélaginu sem við köllum heimili okkar. Skoðaðu úrvalið á indianfoodshop.is. Pantað er fyrirfram og pantanir sóttar eftir staðfestingu.

Abhishek og Rajesh fagna sex ára afmæli Indian Food Box á Íslandi.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/15/2026 7:22 PM Page 20

20

GV

Fréttir

Emmessís og Fjölnir gera tveggja ára samning Ungmennafélagið Fjölnir og Emmessís hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning sem gildir til ársins 2028. Með samningnum verður Emmessís einn af aðalstyrktaraðilum félagsins og styður við starfsemi knattspyrnu-, körfuknattleiks- og handknattleiksdeilda þess. Emmessís hyggst flytja starfsemi sína í Grafarvog um áramótin og tengist samstarfið því aukinni þátttöku fyrirtækisins í hverfinu. Samningurinn felur meðal annars í sér merkingar á keppnisbúningum meistaraflokka og yngri flokka í öllum þremur boltagreinunum, auk auglýsinga á keppnisvöllum félagsins. Sérstök áhersla verður lögð á mótahald yngri flokka. Jólamót knattspyrnudeildar og bikarmót

6. flokks í handknattleik munu bæði bera heitið Emmessís-mótið. „Flutningurinn í Grafarvog markar ákveðin tímamót fyrir Emmessís og okkur finnst mikilvægt að láta gott af okkur leiða í hverfinu sem verður brátt okkar heimavöllur. Fjölnir er stór og mikilvægur hluti af samfélaginu í Grafarvogi og því er sérstaklega ánægjulegt að geta hafið þetta samstarf samhliða flutningunum,“ segir Ari Friðfinnsson, markaðsstjóri Emmessís. Markmið samstarfsins er að styðja við íþróttastarf Fjölnis og bæta umgjörð iðkenda, samhliða því að Emmessís festir rætur í Grafarvogi.

Fimm ungir leikmenn gera sína fyrstu samninga Brynjar Elí Jóhannsson, Elvar Ingi Pétursson, Frosti Hjaltason, Kjartan Jökull B. Magnússon og Steinar Kári Halldórsson hafa skrifað undir sína fyrstu samninga við knattspyrnudeild Fjölnis. Þeir eru allir fæddir árið 2010 og uppaldir hjá félaginu. Leikmennirnir hafa farið í gegnum yngri flokka Fjölnis og voru í lykilhlutverkum hjá 3. flokki karla á liðnu tímabili. Þeir hafa jafnframt leikið með 2. flokki félagsins. Samningarnir eru liður í áframhaldandi uppbyggingu Fjölnis, þar sem ungir leikmenn úr yngri flokkum fá tækifæri til að taka næstu skref hjá félaginu.

Emmessís er að flytja í Grafarvoginn um áramótin. Hér eru fulltrúar Fjölnis og Emmessíss þegar samningurinn var frágenginn.

Leikmennirnir fimm sem skrifuðu undir sína fyrstu samninga við Fjölni á dögunum.

Hallar – nýtt íbúðahverfi í Úlfarsárdal Kynning á vinningstillögu Nú er að hefjast skipulagsvinna í Höllum í Úlfarsárdal, þar sem ætlunin er að skapa eftirsóknarvert hverfi sem styrkir nærumhverfið og bætir lífsgæði íbúa og þeirra sem sækja svæðið.

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

Vinningstillaga að skipulagi hverfisins verður til sýnis í Bókasafni Dalskóla næstu vikur. Höfundar tillögunnar og starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur verða á staðnum til að svara spurningum gesta laugardaginn 21. nóvember kl. 12-14. Öll hjartanlega velkomin að koma og kynna sér framtíðarsýn hverfisins.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/13/2026 7:33 PM Page 21

21

GV

Fréttir

,,Ég passaði að hafa ólíkar hliðar á plötunni” Grafarvgsbúinn Sjana Rut fagnar 10 ára útgáfuferli með sinni fimmtu breiðskífu, Before I Fall in Love, sem er jafnframt hennar fyrsta plata á vínyl. ,,Platan er litrík blanda af skvísupoppi, diskói, 80’s-synthum og rafrænum danstónum en þó berskjölduð og strípuð á köflum. Hún fjallar um ástina í ýmsum myndum, en fyrst og fremst um að finna sjálfa sig aftur, opna sig fyrir lífinu og leyfa sér að njóta,” segir Sanja Rut í samtali við Grafarvogsblaðið. Lögin spanna ólíkar hliðar á ást, von, frelsi og nýju upphafi. Sum þeirra hafa fylgt Sjönu í mörg ár, á meðan önnur urðu til síðar. Saman mynda þau plötu sem er bæði persónuleg og létt og fyrst og fremst gerð til að njóta. ,,Eftir langan og þungan kafla í mínu lífi ákvað ég að ég þyrfti á léttleika að halda og því fannst mér tilvalið og gera plötu sem fjall-ar einmitt um það að læra elska lífið á ný. Ég passaði að hafa ólíkar hliðar á plötunni svo sem flestir gætu speglað sig í henni. Ég þurfti sjálf að læra að elska lífið aftur og vil svo sannarlega smita aðra af því,” segir Sanja Rut. Öll lög og textar eru eftir Sönju. Platan er hljóðrituð í Stúdíó Paradís og unnin af Sönju og Ásmundi Jóhannssyni. Pálmi Sigurhjartarson spilar einnig í þremur lögum á plötunni.

Sanja Rut.

Þessar verður þú að lesa! Helvítis fantur ertu! Bráðskemmtilegar - en líka sorglegar - frásagnir Gunnars Inga Gunnarssonar læknis.

Hernámsæskan Þjóðleg sveitamennska mátti sín lítils fyrir spjátrklæðnaði, ungslegum djasstónum, dillandi Coca Cola og töffaralegri framkomu. Hernámsæskan var orðin að veruleika. Landhelgisgæsla Íslands 1926 ‑ 2026 Magnaðar frásagnir af þorskastríðsátökum og og björgunarstörfum mörgu fleiru.

Bókaútgáfan Hólar holabok.is / holar@holabok.is


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/12/2026 8:55 PM Page 22

22

GV

Fréttir

Mjög vel skipulagt einbýlishús á einni hæð - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir mjög vel skipulagt einbýlishús á einni hæð að Smárarima 25, 112 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 227-0678 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu í opnu rými, þrjú góð svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og bílskúr. Eignin Smárarimi 25 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-0678, birt stærð eignar 188.2 fm. íbúð150,5 fm og bílskúr 37,7 fm. SKIPTI Á ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ Í GRAFARVOGI ÆSKILEG. Nánari lýsing Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi. Gestasalerni er innaf forstofu, flísar á gólfi. Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með

parketi á gólfi, gengt er úr stofu út á ca 130 fm. sólpall sem er fyrir sunnan og vestan húsið. Nýlega er búið að setja heitan pott við húsið. Eldhús er með vandaðri innréttingu og góðum tækjum, parket á gólfi. Þvottahús er með hvítri innréttingu, flísar á gólfi, innangengt er úr þvottahúsi inn í bílskúr. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, sturtuklefa og góðri innréttinu. Svefnherbergi er 3 og er sjónvarpshol í svefnherbergisálmu. Hjónaherbergi er með góðum nýlegum skápum, parket á gólfi. Tvö barnaherbergi, skápar í öðru, parket á gólfi. Gólfhiti með stýringum inn í herbergjum. Sólpallurinn er mjög stór, nýlega byggður. Bílskúr er mjög rúmgóður með rafmagns hurðaropnara, flísar á gólfi. Útgengt er úr bíl-

skúr út á lóð norðan við húsið. Bílaplan er steypt og lagt er fyrir hitalögn í plani. Á síðustu tveimur til þremur árum hefur baðherbergi, forstofa og gestasnyrting verið endurnýjuð, einnig var gengið frá heitum potti á sólpalli við húsið og þakkantur hússins endurnýjaður. Húsið stendur i grónu hverfi við botnlangagötu, stutt er í leikskóla, skóla og framhaldsskóla einnig er stutt í ýmsa þjónustu svo sem verslanir, veitingastaði, bókasafn, apótek og heilsugæslu í Spönginni. Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. löggiltur fasteigna- og skipasali löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteignaskipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is

130 fermetra sólpallur er sunnan og vestan við húsið og nýr heitur pottur.

Baðið er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, sturtuklefa og góðri innréttingu.

Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi, gengt er úr stofu út á ca 130 fm. sólpall sem er fyrir sunnan og vestan húsið.

Eldhús er með vandaðri innréttingu og góðum tækjum, parket á gólfi.

Sigrún Stella EinarsÁrni Þorsteinsson Ólafur Kristjánsdóttir Löggiltur fastrekstrar-hagfræðingur. son löggiltur H^\g c HiZaaV eigna-, fyrirtækja- og M.Sc. löggiltur fasteigna- fasteigna- og skipaskipasali s. 8240610:^cVghY ii^g og skipasali og löggiltur sali s. 786-1414 A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459

He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906

Ó K E Y P I S S Ö L U V E R Ð M AT

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

SUÐURLEIÐ - BYGGINGALÓÐ 11.085 fm byggingalóð við Suðurleið í Tjarnarbyggð rétt við Selfoss. Lóðin er gróin og á henni er tjörn. Lóðin er fyrir heilsárshús og lögheimili.

H b^ *,* -*-*

NORÐURÁS - 2-3 HERBERGJA 81,3 fm, björt 2-3 herbergja íbúð á efri hæð auk herbergis og fataherbergis í risi. Íbúðin er í litlu fjölbýli. Fínar innréttingar og gólfefni.

HER-

BURKNAVELLIR - 3ja HERB. - STÓR SÓLPALLUR

FORNIBÆR - 4HA JÖRÐ MEÐ HEILSÁRSHÚSI OG SKEMMU

Björt og falleg 87,6 fm 3. herbergja íbúð með stórum suður svölum á efstu hæð. Parket og flísar á gólfum og fallegar innréttingar. Útsýni.

90 fermetra 3. herbergja íbúð á fyrstu hæð með stórum sólpalli til suðurs og versturs. Fallegar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar. Geymsla og þvottahús innan íbúðar.

Jörðin er rétt fyrir utan Selfoss og liggur að sjó. Gott 78 fm heilsárshús og 160 fm skemma eru á jörðinni. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir í síma 892-8778 og á anna @fmg.is

FANNBORG BERGJA

-

3ja

]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`

lll#[b\#^h


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 3:43 PM Page 23

23

GV

Fréttir

Þrjár góðar ástæður fyrir því að taka þátt sem sjálfboðaliði Nýr handboltavetur er hafinn í Grafarvogi og með honum ótal verkefni sem handknattleiksdeild Fjölnis (HKD) getur ekki sinnt án sjálfboðaliða. Við í stjórninni viljum fá fleiri í hópinn – og hér eru þrjár ástæður fyrir því að þú ættir að slást í för með okkur. Númer 1 Að vinna verk sem skiptir samfélagið máli Það er ótrúlega margt sem þarf að gera innan einnar handboltadeildar á hverjum vetri. Nokkuð sem ætti að gefa hverjum sem er tækifæri til að láta til sín taka. Ef þú átt barn í deildinni ætti áhrifanna að gæta alla leið að eldhúsborðinu. Númer 2 Að tilheyra Það er mikilvægt að eiga stað þar sem öll kunna nafnið þitt. Fyrir þér gæti þessi staður verið Fjölnishöllin í Egilshöll og verkefnið handboltastarfið í Grafarvogi. Verkefnin eru ærin og ótæmandi, og mismikilvæg – allt frá sjoppunni og ritaraborðinu á leikjum til mótahalds og fjáröflunar – og stundum dugar að taka að sér einn leik í mánuði. Í starfi eins og okkar er nefnilega hægt að hafa umtalsverð

áhrif á stuttum tíma, en bestu verðlaunin koma síðar. Númer 3 Að gefa – og fá – til baka Að skuldbinda sig er nokkuð sem fullorðið fólk fer varlega í, og það réttilega. Við viljum ekki bregðast, - og viljum helst vera frjáls eins og fuglinn og gera það sem okkur þóknast. Á sama tíma finnst okkur eðlilegt að margvíslegt starf sé í boði í hverfisfélaginu, ár eftir ár. Við þurfum oftast ekki að hugsa mikið um þetta og tökum þessu mögulega sem gefnu, - á meðan aðrir standa vaktina. Við í stjórninni höfum einsett okkur að auka nýliðun í sjálfboðaliðastarfinu í deildinni. Lykilinn að því teljum við vera umhverfi sem einkennist af jákvæðni, þakklæti og virðingu. Sendu okkur línu á handboltiformadur@fjolnir.is og segðu hvað þú hefur áhuga á – við tökum vel á móti öllum og hlökkum til að kynnast þér. f.h. stjórnar HKD, Sveinn Þorgeirsson handboltiformadur@fjolnir.is

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Dýrin og kuldinn: Góð ráð fyrir veturinn Það hefur kólnað hressilega og frostið bítur í kinnarnar á göngunni í kringum Reynisvatn eða upp á Úlfarsfell. Dýrin okkar finna líka fyrir kuldanum. Með nokkrum einföldum ráðum verður veturinn þægilegri fyrir hunda, ketti og önnur dýr á heimilinu.

sköpum. Varúð á ísnum Reynisvatn og tjarnirnar í kring frjósa, en ísinn er oft ótraustur, sérstaklega fyrst á veturna. Hafðu hundinn í taumi nálægt vatninu. Ef hann fer út á ísinn, kallaðu hann til þín frekar en að fara út á eftir honum.

Loppurnar þurfa umhyggju Salt og sandur á gangstéttum geta ert þófana og valdið því að þeir springa. Skolaðu loppurnar með volgu vatni eftir göngutúrinn, sérstaklega milli tánna, og þurrkaðu þær vel. Þannig sleikir hundurinn heldur ekki saltið af loppunum. Smyrsl fyrir loppur heldur þófunum mjúkum og gott er að bera það á fyrir göngu. Hjá síðhærðum hundum hlaðast oft upp snjókögglar í hárunum milli þófanna. Það hjálpar að klippa þau hár stutt. Skór eru líka góður kostur fyrir hunda sem þola illa saltið.

Kettirnir leita í hlýjuna Kettir skríða gjarnan inn undir bíla og upp í vélarrúmið þar sem enn er hlýtt. Bankaðu létt á vélarhlífina áður en þú setur bílinn í gang. Margir útikettir kjósa að vera meira inni á veturna. Þá skiptir máli að kattasandurinn sé hreinn og að kisa fái nóg að leika sér.

Hlý föt fyrir þá sem þurfa Ekki þurfa allir hundar úlpu. Hundar með þykkan og tvöfaldan feld eru vel búnir frá náttúrunnar hendi. Smáhundar, snögghærðir hundar, hvolpar og eldri hundar kólna hins vegar fljótt. Ef hundurinn skelfur, lyftir loppunum eða vill snúa heim er honum kalt. Vel sniðin úlpa eða peysa sem hylur bakið og bringuna gerir mikið gagn. Raki kælir, svo þurrkaðu feldinn vel þegar heim er komið. Og sparaðu stuttu klippinguna þangað til í vor, því feldurinn er besta vörn hundsins gegn kuldanum. Sjáumst í myrkrinu Nú er dimmt bæði á morgnana og síðdegis. Endurskinsól, endurskinsvesti eða úlpa með endurskini gerir það að verkum að ökumenn sjá hundinn í tæka tíð. Lítið ljós á ólinni gerir enn betur. Sama gildir um útiketti: hálsól með endurskini getur skipt

Vatnsheld vetrarúlpa með endurskini heldur hundinum þurrum og sýnilegum í skammdeginu. Mynd: Dýrabær

GV

Frostlögur er hættulegur Frostlögur er sætur á bragðið og dýrin sækja í hann, en hann er mjög eitraður, jafnvel í litlu magni. Þurrkaðu strax upp ef hellist niður og geymdu brúsann þar sem dýrin ná ekki til. Vatn, fóður og hreyfing Vatn í skálum úti frýs fljótt, svo skiptu oft um það. Kanínur og önnur smádýr sem búa úti þurfa þurrt og vel einangrað skjól með nóg af heyi. Hundar sem eru mikið úti og á fullri ferð brenna meiru í kuldanum, en þeir sem hreyfa sig minna á veturna þurfa minna. Fylgstu með holdafarinu og stilltu skammtinn eftir því. Á dimmum dögum er gott að þreyta hugann líka. Feldu nammi um íbúðina og leyfðu hundinum að leita, eða notaðu leikföng þar sem hann þarf að leysa þraut til að ná í nammið. Gleymum ekki smáfuglunum Þegar snjór og frost liggja yfir öllu er erfitt fyrir smáfuglana að finna æti. Þrestir, starar og snjótittlingar þiggja korn, epli og fituríkt fóður. Ef þú byrjar að gefa, haltu því

Uppl. í síma 698-2844

Ritstjórn og auglýsingar Smáhundar og snögghærðir hundar kólna fljótt. Mynd: Dýrabær áfram reglulega því fuglarnir fara að treysta á þig. Kíktu við Starfsfólk Dýrabæjar í Spönginni 23 tekur vel á móti þér og hjálpar þér að finna réttu úlpuna, endurskinsólina eða smyrslið

fyrir loppurnar. Þú getur líka verslað á dyrabaer.is og fengið vörurnar sendar heim. Ókeypis heimsending um allt land yfir 7.000 kr. Dýrabær · Spönginni 23, 112 Reykjavík · Sími 511 2022 · dyrabaer.is

Sími 698-2844


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2026 1:00 PM Page 24


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook