GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2025 2:33 PM Page 1
Grafarvogsblaðið 10. tbl. 36. árg. 2025 október
Ódýri ísinn
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]`
Þessar litlu hnátur skemmtu sér vel í Fótboltaskóla Fjölnis í sumar.
GV-mynd Þorgeir Örn Tryggvason
Fjör í fótboltaskóla
Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` 112 Reykjavík H b^ *,* -*-* Sími 575 8585 ;Vm *,* -*-+
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
www.bilavidgerdir.is
Þjónustuaðili
lll#[b\#^h
- sjá bls. 6
Lyf á lægra verði! Leggjum áherslu á mjög góða þjónustu
Fiskréttir dagsins
Gott vöruúrval Hægt að panta lyf á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300
Einkarekið apótek
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2025 3:51 PM Page 2
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Leikur að öryggi borgarbúa við Höfðabakka
Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.
Félagasamtök í USA meira virði en Ljósið Íslenskir stjórnmálamenn opinbera það oft þegar þeir komast til valda að þeir kunna ekki að fara með peninga. Fjölmargar undarlegar ákvarðanir undanfarin misseri færa rök fyrir þessari fullyrðingu. Hægt er að nefna mörg dæmi þessa en hér verða tiltekin nokkur dæmi. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Í fyrra greiddi ríkið tæpar 200 milljónir til Ljóssins í formi aukafjárframlags en 474 milljónir í heildina til Ljóssins. Nú hefur verið ákveðið að stroka þessa aukafjárveitingu út til Ljóssins og því verða þessi mikilvægu samtök fyrir þessari 200 milljóna skerðingu í ár. Á meðan þessar hörmungar ganga yfir Ljósið ákveður ríkisstjórn Íslands að gefa félagasamtökum í útlöndum himinháa upphæð í styrk. Tilkynnt hefur verið um 150 milljóna króna fjárstuðning Íslands við alþjóðleg félagasamtök í New York. Þá er allt í einu til nóg af peningum og þessi forgangsröðun er algjörlega forkastanleg. Og ofan í kaupið er tilkynnt í fréttum að formaður þessara félagasamtaka sé með 40 milljónir í laun á ári. 3,4 milljónir á mánuði. Það skiptir sem sagt meira máli að styrkja félagasamtök í útlöndum en að hjálpa Íslendingum sem hafa orðið fyrir gríðarlegu áfalli í lífinu og eiga um sárt að binda þegar hinn íllvígi sjúkdómur krabbamein er annars vegar. Og svo er það Úkraína. Þangað senda íslenskir stjórnmálamenn tæpa 20 milljarða króna til stríðsreksturs samkvæmt fréttum sem hér birtast. Kannski ekki há upphæð enda nóg til af seðlum á Íslandi. Í þessum málum varð sprenging þegar núverndi ríkisstjórn tók við. Og þar fór Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, fremst í flokki og fer enn. Lokatölur kosninga varla birtar þegar hún var komin í faðm vina sinna í Evrópusambandinu og tilbúin að svíkja kosnngaloforðin á Íslandi. Á þeim tíma sem hún hefur verið við völd hefur hún varið miklum hluta hans erlendis, smjaðrandi fyrir erlendum stjórnmálamönnum og reynt að gera sig gildandi eins og væri hún fulltrúi stórþjóðar. Og ekki nóg um Úkraínu. Ríkisstjórn Þorgerðar Katrínar fannst ekki nóg komið varðandi Úkraínu. Þar sem að nóg er til af peningum á Íslandi ákvað ríkisstjórnin að henda 60 milljónum í stuðning við verkefnið ,,römpum upp Úkraínu.” Hvað eiginlega í veröldinni er það? Er það forgangsverkefni hjá íslenskum stjórnvöldum að styrkja þarfir hjólastólafólks í Úkraínu? Hefðu samtök fatlaðra á Íslandi ekki þegið þessa peninga? Eru 20 milljarðarnir í hernaðarbröltið ekki nóg? Þessar ákvarðanir sem nefndar eru hér eru dæmi um illa ígrundaðar og heimskulegar ákvarðanir. Og lengi væri hægt að halda áfram. Ekki var hún gáfuleg ákvörðunin hjá meirihlutanum í borginni varðandi gatnamótin við Höfðabakka og Bæjarháls. Þrengingarnar þar hafa hrikalegar afleiðingar á umferðina um gatnamótin og íbúar í úthverfunum sem þetta varðar eru yfir sig reiðir. Þessi framkoma gagnvart fólki gengur ekki. En hjá stjórnmálamönnum sem eru í heilögu stríði við einkabílinn er þetta bara allt í lagi. Og fólk hefur ekki séð mikið ennþá. Ef borgarlínan verður að veruleika á fyrst eftir að heyrast í fólki. Gatnakerfið í borginni er þegar sprungið og enn á eftir að taka margar akreinar úr notkun og þá fyrst byrjar ballið. Ekki er enn vitað hvað Borgarlínan mun kosta. Það veit enginn. Uppi eru getgátur og enginn veit hver eða hvernig á að greiða fyrir borgarlínuna. Hvernig hugsa stjórnmálamenn sem taka svona ákvarðanir? Líklega hugsa þeir bara ekki neitt. Eigum við ekki að skipta þessu fólki út? Það gerum við aðeins með því að kjósa það ekki í komandi kosningum. Stefán Kristjánsson
gv@skrautas.is
- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
Umdeildar framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls hafa valdið miklum umferðartöfum og óánægju meðal borgarbúa. Þar voru fjarlægðir beygjuvasar, svokölluð framhjáhlaup hægri beygju, sem gera ökumönnum kleift að taka hægri beygju án þess að bíða á ljósi til að viðhalda eðlilegu flæði í umferðinni. Nú bendir allt til þess að breytingarnar hafi verið framkvæmdar án þess að fyrir lægju fjárheimildir til verksins. Kallar á athugun ráðuneytis sveitarstjórnarmála Til að bæta gráu ofan á svart var skýrsla verkfræðistofunnar Cowi, sem sýndi skýrt hvaða áhrif breytingarnar hefðu á umferð, ekki lögð fram þegar málið var tekið fyrir í skipulagsráði. Hún var skilgreind sem „vinnugagn“ og því haldið frá kjörnum fulltrúum minnihlutans. Hér er um alvarlegan trúnaðarbrest að ræða sem að mati undirritaðs kallar á athugun ráðuneytis sveitarstjórnarmála. Það er grafalvarlegt þegar upplýsingum sem varða öryggi og daglegt líf borgarbúa er haldið frá kjörnum fulltrúum minnihlutans í fjölskipuðu stjórnvaldi. Slíkt vinnulag brýtur gegn öllum meginreglum um gagnsæi og ábyrgð í stjórnsýslu. Óskað eftir áliti borgarlögmanns Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn hefur óskað eftir áliti borgarlögmanns á því hvort ráðist hafi verið í framkvæmdirnar án lögmætra heimilda og hvaða afleiðingar það kann að hafa. Samkvæmt gögnum sem borist hafa var einungis veitt heimild til að endurnýja umferðarljósastýringar á gatnamótunum, en ekki til að fjarlægja beygjuvasa eða breyta gatnamótunum sjálfum. Þrátt fyrir það var ráðist í verkið, sem hefur aukið tafir og skapað glundroða í umferðinni. Ábendingar um öryggi hundsaðar Skammt frá gatnamótunum er staðsett slökkvistöð höfuðborgarsvæðisins sem þjónar eystri byggðum, m.a. Árbæ, Grafarvogi og Breiðholtinu. Þrengingar þessar geta haft áhrif á viðbragðstíma slökkviliðsins og þar með á öryggi borgarbúa. Slíkar breytingar hefðu átt að sæta ítarlegri greiningu og formlegri afgreiðslu áður en ráðist var í verkið. Undirritaður gerði formanni skipulagsráðs og oddvita Flokks fólksins grein fyrir þessum áhyggjum á sínum tíma, en á það var ekki hlustað. Ef fjárheimildir hafa skort er hér um að ræða sambærilegt mál og svo-
beygjur héldust sýndi helmingi minni tafir, en sú niðurstaða var ekki kynnt borgarfulltrúum minnihlutans. Að velja útfærslu sem eykur tafir, sérstaklega þar sem slökkvistöð er skammt frá gatnamótunum, sýnir skort á faglegri forgangsröðun.
Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. nefnt braggamál, þar sem framkvæmdum var hrundið af stað án samþykkta. Slíkt vinnulag brýtur gegn reglum um góða stjórnsýslu og grefur undan trausti borgarbúa. Málið þarfnast skoðunar af hálfu innri endurskoðunar og öðrum viðeigandi eftirlitsaðilum. Greining sýndi auknar tafir Í skýrslu verkfræðistofunnar Cowi kemur fram að breytingarnar myndu valda allt að 240 metra biðröðum síðdegis og 80 metra biðröðum að morgni. Sviðsmynd þar sem hægri
Krafan um gagnsæi og ábyrgð Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn krefst þess að upplýst verði hvort heimildir hafi verið til staðar þegar framkvæmdirnar hófust, hvernig kostnaði var háttað og hvort fullt tillit hafi verið tekið til öryggissjónarmiða. Að mati undirritaðs þurfa viðeigandi eftirlitsaðilar, ráðuneytið, innri endur-skoðun Reykjavíkurborgar og Umboðs-maður Alþingis, að skoða málið í heild sinni, enda hefur framkvæmdin bein áhrif á öryggi og lífsgæði borgarbúa. Svo virðist sem ráðist hafi verið í verkið án fjárheimilda og lykilgögnum var haldið frá kjörnum fulltrúum við ákvarðanatöku. Stjórnsýslan í málinu kallar því á athugun allra þessara aðila, enda er það hlutverk þeirra að tryggja rétt borgarbúa og gæta þess að stjórnsýslan sé fagleg og sanngjörn. Það er óásættanlegt að ráðist sé í framkvæmdir af þessu tagi án heimilda og án þess að kjörnum fulltrúum sé gerð grein fyrir forsendum þeirra. Borgin verður að sýna ábyrgð, virða stjórnsýslulega ferla og endurheimta traust borgarbúa á faglegri og gagnsærri stjórnsýslu. Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Gatnamótin umdeildu við Höfðabakka og Bæjarháls.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/8/2025 10:00 PM Page 3
! 987 6594434217 40-,+ ++14+386*)(17 ' %9,$#3*'$7 "9(7 4! '"3 9+ "7 '-!( "7 + 83"!86$3834217 6 3(69 414+ 7 , ,86 17 34+144 3"38144 7 -0( ( 87 # -89, 387 '-!(187 ,818 9146 3$ 14+37 +7 # 6$, 2 8 9 7"9(79146 $ 7! 6041 , 187 - 8+1437 +7 6 38 3+7 '7 *9 96 8 7 *)(1( 63"914387 8 -) )837 # 4 6 7 + ( (387 + 4+ 91(18 +7 6 98$37 94+14+ 7 *1(7 - 8+143 7 8,++( 7 8 91"1 17 7 9666 7 9 186 37 6*)(1 7 # 818 6 1+3+34+387 3873 791447 ,8187 7 8837 +79 281
*1(7 18 1 $# 63427 987 40 7 # -0 16 !67 7 )( "7 "9(7 6$# + ( "7 144+38(17 + 63"91+14 9+ "7 3$+38(1 7 69"7 -0( 887 557 7 4 3 9+ ! 60417 +7 2088") 387 6 42187 342,837 7 ' "1(-)4 "7 6# " 7 -!(184387 98 7 # -89, 387 3( 6 )8(7 +7 6$15 3 3+1 7 3 387 "9(7 + 1 3 7 * 42 ( " 1448 14+ "7 +7 6* "7 9(37 6 83 3 4 3 9 1 7 8 ! 814+ 87 !6614 467 987 "9(7 6*3 3 $$ 47 69"7 6 946 '6 946$7 6$1 ,8(17 + +7 417 6 ( 3 7 67 *98(37 -' 36 )(1 ,8187 )5 9+37 7 -1 891(387 '7 63"91+14 9+81 -' 3+9,"6 7 42187 6*)(14 7 387 69"7 3 (*9 3(+94+17 *98( 87 3( 3 7 83 9(6 6 (* " 7 , 87 98 7 ' "76 1+3+ 4+ "
!
!
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/8/2025 10:01 PM Page 4
4
GV
Mataruppskriftir
Haustsúpa er snilldarmatur - frábær réttur sem vert er að prófa Mer finnst alveg upplagt að birta hér uppskrift af góðri súpu þar sem þær eru svo mikill snilldarmatur, hollar og góðar og ljúft að fá ser heita suúu þegar haustlægðirnar fara að detta inn hver af annarri. Dásamleg Haustsúpa toppuð með ristuðum fræjum: Innihald: 1-2 msk. Ólífuolía. 1 laukur (smátt saxaður). 2–3 hvítlauksrif (pressuð eða söxuð). 2 gulrætur (sneiddar smátt). 1 meðalstór sæt kartafla (í litlum bitum). 1 dós niðursoðnir tómatar (eða 2 ferskir, skornir). 1 msk. fersk basilika (smátt söxuð). 1 msk. fersk steinselja (smátt söxuð). 1 tsk. þurrkað timjan. 1 dós hvítar baunir eða linsubaunir (valfrjálst). 1 lítri grænmetissoð (eða vatn + kraftur). Salt og pipar eftir smekk.
Handfylli af spínati eða grænkáli (í lokin). Leiðbeiningar: Hitið ólífuolíu í potti og steikið lauk og hvítlauk í um 2 mínútur eða þar til laukurinn er orðin glær. Bætið við gulrótum og sætri kartöflu, steikið í aðrar 2–3 mínútur. Hellið tómötum, grænmetissoði, kollageni út í, ásamt linsubaununum ( ef þær eru ósoðnar). Láta sjóða í 15–20 mínútur, eða þar til grænmetið er mjúkt og baunirnar soðnar. Ef þú notar soðnar tilbúnar baunir bætið þeim þá út í, í lokin ásamt ferskum kryddjurtum og spínati. Smakkið til með salti og pipar. ⸻ Borið fram með: Ristuðum graskers og sólblómafræjum ( hitið á meðalhita á pönnu í um 5 mínútur, hrærið reglulega í. Verði ykkur að góðu. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is www.instagram.com/janast
Haustsúpan er sannkölluð snilld og um að gera að prófa.
- Gæðin skipta máli -
Máta t ðu í verslun unum u okkar k Sæktu u á Kefl f av fla víkurffllugvelli Kringlan Glæsibær Gr Grand dii Spöngin Keflavíkurfl efflav ku fllu ugv vö ölllu ur wwwey ww ww w..ey ye esland.is
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 5/2/2025 6:39 PM Page 7
Stærrðin skiptir ek kki máli
Breiðhöfða 13
Á Nesdekki Brreiðhöf iðhöfða ð 13 finnur þú eitt fullkomnasta hjólbarðaverkstæ æði landsins þar sem fag gmenn okkar þjónusta b bíla af öllum stærðum og gerðum. Bókaðu tíma á nesdekk.is
Skannaðu QR kóðann til að bóka tíma á netinu
Skoðaðu u úrvalið o og bókaðu tíma í dekkjas skipti á ne esdekk.is Breiðhöfði 13
110 Reykjavík 590 2080
Stæ ærðin skiptir ekki máli á Breiðhöfffð ða 13.
nesdekk.iis / 561 4200
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/12/2025 1:58 PM Page 6
6
Fréttir
GV
Glundroði á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls - eftir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls sýnir að vinstri meirihlutinn í borgarstjórn hefur ekki gleymt eystri hverfum borgarinnar eins og margir héldu. Við endurhönnun gatnamóta á Höfðabakka gafst tækifæri til að þrengja að umferð, sem vinstri meirihlutinn gat ekki látið ónotað. Þrengingin hefur í för með sér umferðaröngþveiti á gatnamótunum og stórauknar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar, ekki síst á umferð til og frá Grafarvogi, Árbæ og Breiðholti. Umrædd lokun tveggja beygjuakreina á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 26. marz sl. Þar lögðumst við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
eindregið gegn þrengingunni og bentum á að hún drægi úr umferðarflæði og ylli óþarfa töfum á umferð. Um leið og beygjuakreinunum var lokað, jukust umferðartafir gífurlega á gatnamótunum. Í ljósi þess lagði ég til um miðjan ágúst að hætt yrði við þrengingu gatnamótanna og umræddar beygjuakreinar yrðu látnar halda sér. Borgarfulltrúar meirihlutans, Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins og Flokks fólksins, felldu tillöguna á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 3. september sl. Ekkert samráð við íbúa Ráðist var í þrengingu gatnamótanna án samráðs við ýmsa aðila, sem hún hefur neikvæð áhrif á. Ekki var t.d. haft samráð við Íbúasamtök Gra-
farvogs þrátt fyrir að ljóst væri að breytingin hefði mikil áhrif á íbúa hverfisins. Ekki var heldur haft samráð við slökkviliðið þrátt fyrir að það starfræki slökkvistöð skammt frá gatnamótunum og sendi oft bifreiðar í neyðarakstri um þau. Þá var hvorki haft samráð við atvinnufyrirtæki í Hálsahverfi né Strætó bs. um þrenginguna. Gögnum haldið leyndum Komið hefur í ljós að í aðdraganda breytinganna fékk Reykjavíkurborg verkfræðistofuna Cowi til að greina áhrif mismunandi útfærslna á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls. Cowi skilaði skýrslu um málið í desember 2024 en þar kom skýrt fram að lokun beygjuakreina myndi lengja
Hemmi þjálfar konurnar í Fjölni
Fótboltaskóli Fjölnis í vetur
Hermann Hreinson var nýlega ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Liðið spilaði í 2.deild í sumar og endaði í 4. sæti auk þess að spila í A-úrslitum um sæti í Lengjudeildinni.
Nú nýlega hófst fótboltaskóli Fjölnis, en Fjölnir mun í vetur bjóða uppá fótboltaskóla fyrir krakka fædda 20222023. Tilgangurinn með skólanum er að kynna okkar yngsta fólki fyrir fótbolta og öllu sem hann hefur að bjóða. Ætlast er til að foreldrar aðstoði krakkana sína og taki þátt með þeim eins og þau þurfa. Allar æfingar verða inni í íþróttahúsinu í Dalhúsum á laugardögum kl. 09:00-09:45 12 æfingar verða fyrir áramót á tímabilinu frá 13. september til 20. desember. Þjálfari er Ingvi Þór og munu iðkendur á unglingsaldri í félaginu aðstoða hann.
Margar uppaldar Fjölnisstelpur fengu að láta ljós sitt skína með liðinu í sumar og er það von Fjölnis að Hemmi, sem er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu, hjálpi til við koma liðinu upp á næsta stig.
Hermann Hreinsson.
bílaraðir og valda stórauknum umferðartöfum á gatnamótunum. Augljóst er að greining Cowi var lykilgagn við að meta afleiðingar hugsanlegra breytinga á gatnamótin. Þrátt fyrir það var þessi greining ekki kynnt fyrir kjörnum fulltrúum í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar þegar ákvörðun var tekin um þrenginguna. Var greiningin ekki kynnt í ráðinu fyrr en í september, þegar framkvæmdum við þrenginguna var nánast lokið. Slík stjórnsýsla er auðvitað afleit. Umferðartafaskattur vinstri flokkanna Ætla má að árlegur kostnaður einstaklinga vegna umferðartafa á höfuðborgarsvæðinu sé ekki undir
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisfloksins. sjötíu milljörðum króna en að þjóðhagslegur kostnaður sé mun hærri. Stærstur hluti þessa kostnaðar er óþarfur þar sem hann er til kominn vegna aðgerða eða aðgerðaleysis borgaryfirvalda. Slíkur kostnaður er því viðbótarskattur á borgarbúa, sem leggst þyngst á íbúa í eystri byggðum og þá ekki síst á íbúa í Grafarvogi. Ljóst er að vinstri meirihlutinn í borgarstjórn hefur hækkað þennan umferðartafaskatt verulega með þrengingu gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls.
Spjallað saman í Knattspyrnuskóla Fjölnis.
Hér eru eflaust á ferðinni framtíðar knattspyrnuhetjur Fjölnis.
Fiskverslunin í Spönginni breytist fljótlega í Aldan fisk & sælkeraverslun.
Aldan fisk & sælkeraverslun opnar á næstunni í Spönginni
Fiskverslunin í Spönginni, gengur nú í gegnum breytingar, en verslunar-stjórinn Páll Pálsson hefur nú alfarið tekið við rekstrinum. Ný verslun tekur við í Spönginni og mun hún bera nafnið – Aldan fisk & sælkeraverslun. Að sögn Páls er markmiðið að endur-
nýja og efla verslunina með áherslu á gæði, ferskleika og framúrskarandi þjónustu.
Undirbúningur stendur nú yfir og verður verslun Öldunnar opnuð með breyttu sniði á næstunni.
„Við ætlum að byggja ofan á gamla hefð og gera verslunina enn betri. Við viljum að Aldan verði staður þar sem fólk kemur ekki bara til að kaupa fisk, heldur líka til að njóta góðrar þjónustu og fá innblástur í eldhúsinu.“
Páll býður alla viðskiptavini, nýja sem gamla, hjartanlega velkomna og hlakkar til að taka á móti bæjarbúum í nýrri og endurbættri verslun í Spönginni 13.
Góðar vinkonur ræða málin í knattspyrnuskólanum.
Grafarvogsblaðið Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/8/2025 10:02 PM Page 5
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2025 4:06 PM Page 8
8
GV
Fréttir
X ' "#JJ! !
Arna Dís.
Elín Katla.
Linda María.
Glæsilegur árangur - hjá keppendum Fjölnis í listhlaupi á skautum
O"$88; ć 8 0; ć ; 8; /; = ÚÜÛ/ 8 ' / 8 (
Haustmótið, fyrsta mót tímabilsins í listhlaupi á skautum var haldið í Laugardal síðustu helgina í september. Fjölnir var með 27 keppendur í 9 flokkum. Sumir voru að keppa í fyrsta sinn, margir að keppa með ný prógröm og jafnvel í nýjum flokkum. Það er aðdáunarvert að fylgjast með þessum hetjum á stóra svellinu með fulla stúku að einblína á sig, aleinum og berskjölduðum. Í flokkum ætluðum 12 ára og yngri fá keppendur ekki gefin upp stig heldur fá allir þátttöku verðlaun. Þau fá stigin sín síðan send og geta þar með keppt við sjálfa sig. Í öðrum flokkum hrepptum við 3 gull, 2 silfur og 1 brons. Báðir landsliðs meðlimir okkar, Arna Dís og Elín Katla, tryggðu sér áfram sæti í hæfileikamótun landsliðsins. Einnig setti Elín Katla Íslandsmet fyrir stigafjölda í flokknum sínum, Advanced Novice. Júlía Sylvía og Manuel Pizza eru einnig byrjuð á sínu keppnistímabili og náðu persónulegu stigameti um
daginn. Parið stóð sig með stakri prýði á úrtökumóti fyrir Ólympíuleikana í Beijing, en náðu því miður ekki sæti á leikunum. Þau eru búin að staðfesta keppnisrétt sinn á EM með þessu og eru einungis 5,51 stigum frá lágmarki inn á HM. Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og hlökkum til næsta móts. Alþjóðlega mótið Northern Lights Trophy fer fram 30.október-2.nóvember í Egilshöll. Keppendur koma víða að til að keppa og ljóst er að þetta verður frábær skemmtun. Aðgangur er ókeypis. Skautahlaup haustönn 2025 hjá Fjölni Ungmennafélagið Fjölnir býður upp á skemmtilegar skautahlaups æfingar í Egilshöll, Grafarvogi. Hvort sem þú ert algjör byrjandi eða með reynslu, þá eru þessar æfingar fyrir þig! Þetta er tilvalinn tími til að byrja á skautum eða skerpa á tækni og bæta
snerpu og hraða! Hverjum er námskeiðið ætlað? Æfingarnar eru opnar öllum, hvort sem þú ert algjör nýliði að prófar í fyrsta skipti eða hefur áratuga reynslu. Við leggjum sérstaka áherslu á að kenna byrjendum alla þá tækni sem þarf til að læra á skauta og ná tökum á greininni. Engin fyrri reynsla þarf til að byrja og hægt er að fá lánaða skauta á staðnum. Hvað leggjum við áherslu á? Áhersla verður lögð á snerpu, hraða og tækni. Byrjaðu daginn á skautum! Frábær leið til að fá góða hreyfingu, bæta þrek og byrja daginn á jákvæðum nótum. Æfingar og tímasetning: • Hvenær: Föstudaga kl. 06:30 07:30. • Tímabil: 3. október - 19. desember (allt í allt 11 æfingar). • Staðsetning: Skautasvellinu í Egilshöll. Þjálfari: Andri Freyr Magnússon.
Í Metabolic verður venjulegt fólk að hversdagshetjum Metabolic Reykjavík er hóptímaæfingastöð þar sem venjulegt fólk verður að hversdagshetjum. Okkar ástríða er að hjálpa uppteknu nútímafólki að koma markvissri hreyfingu inn í daglegt líf án öfga eða átaksnámskeiða. Við elskum að sjá fólk verða smám saman sterkara, hraðara og úthaldsmeira og við vitum að þessi líkamlegi styrkur þeirra smitar jákvætt frá sér inn í öll önnur hólf daglegs lífs. Hjá okkur er barnahorn, sem er mikið notað, en börnin geta fylgst með foreldrum sínum æfa úr sófanum og við viljum alltaf ýta undir gott heilsuuppeldi. Þegar börnin eru orðin nógu gömul geta þau svo komið með mömmu og pabba á æfingarnar.
Hefðbundin æfingatafla eru 20 hóptímar á viku, fyrir utan að iðkendur geta komið á eigin tíma inn í sal á milli hóptíma. Þess utan eru 2-4 POP UP tímar yfir mánuðinn með athyglisverðu og góðu efni sem tengist æfingunum okkar og styður við heilbrigða nálgun á hreyfingu. Í þessum mánuði eru á dagskrá hjá okkur tækninámskeið í lyftingum, sérstök hjólaæfinga-helgi á assault hjólum, og í lok mánaðar er mobility og endurheimt. Þetta allt ásamt öðrum þemadögum eins og Bleika deginum þar sem við mætum öll í bleikum fatnaði og Hrekkjavöku, en þá ætlum við að vera með eitthvað skemmtilega hryllilegt þema. (Frétt frá Metabolic)
Hefðbundin æfingatafla eru 20 hóptímar á viku hjá Metabolic.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/8/2025 10:04 PM Page 9
LóðaLóð mörk
Lágmark 2,80 m
Stétt/stígur
Lágmark 42 4,2 20 m
Akbraut
ðaLágmark Lóð mörrk 2,80 m
Stétt/stígur
Hugum m að gróðrri við ið lóðarmörk lóð k Trjágróður og runnar sem vaxa út fyrir lóðarmörk geta skapað óþægindi fyrir vegfarendur. Umferðarmerki eiga að sjást vel og gróður má ekki byrgja götulýsingu. Gæta þarf að lágmarkshæð trjágróðurs og runna þar sem vélsópar, snjóruðningstæki og sorphirðubílar þurfa að fara um. Hugsum út fyrir garðinn svo leiðin sé greið allt árið!
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/trjagrodur
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2025 10:19 PM Page 10
10
Laugarnar í Reykjavík
Fréttir
GV
Norðurlandamót barnaskólasveita:
Bronsverðlaunin til Rimaskóla
Heilsurækt
Opnum snemma
Slökun
Lokum seint
Skáksveit Rimaskóla endaði í 3. sæti á Norðurlandamóti barnaskólasveita og vann til bronsverðlauna á jöfnu og spennandi móti þar sem bestu skáksveitir hvers Norðurlandanna kepptu innbyrðis. Mótið fór fram helgina 12. - 14. september. Að þessu sinni var teflt í Helsinki í Finnlandi. Norski Slemdal barnaskólinn hafði nokkra yfirburði á mótinu en skólarnir í 2. - 6. sæti börðust um hin verðlaunasætin. Í skáksveit Rimaskóla á mótinu tefldu þau Tristan Fannar Jónsson, Emilía Embla B. Berglindardóttir, Sigrún Tara Sigurðardóttir, Emilía Sigurðardóttir og Tara Líf Ingadóttir. Fjórar stelpur og einn strákur sem vakti mikla athygli fyrir fjölda stúlkna. Rimaskóla krakkarnir komu vel undirbúnir til leiks, sýndu baráttu og þolinmæði, yfirvegaða taflmennsku og vandaða tækni" sögðu þeir Helgi Árnason fararstjóri og Björn Ívar Karlsson skákkennari sem fylgdu krökkunum til Finnlands. Teflt var í húsnæði finnska skáksambandsins og sýnt beint frá öllum skákum mótsins. Gist var á glænýju hóteli Sokos - Tripla sem er inni í einhverju stærsta verslunar-og veitingastaða "molli" á Norðurlöndum. Virkilega ánægjuleg og vel heppnuð skákferð hjá krökkunum. Þetta var í 17. skipti sem Rimaskóli vinnur sér þátttöku á Norðurlandamóti grunn-og barnaskólasveita. Skólinn hefur í sex skipti unnið sigur, tvívegis endað í öðru sæti og 5 sinnum náð bronsverðlaunum.
Fjör
Leikur
Skáksveit Rimaskóla f.v. Björn Ívar Karlsson skákkennari, Tara Líf Ingadóttir, Emilía Sigurðardóttir, Sigrún Tara Sigurðardóttir, Emilía Embla B. Berglindardóttir og Tristan Fannar Jónsson. Krakkarnir eru 12 og 13 ára gömul.
Rimaskólasveitin tilbúin í síðustu umferðina gegn finnska skólanum. Baráttan um 3. sætið.
Fækkum nagladekkjum í umferðinni Reykjavíkurborg hefur sett sér metnaðarfull markmið til næstu ára um að bæta loftgæði í borginni og vill hvetja íbúa til að taka þátt í þeirri vegferð. Eitt af fyrstu og mikilvægustu skrefunum er að draga verulega úr notkun nagladekkja, sem spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum, sérstaklega yfir vetrartímann. Nú á næstu vikum flykkjast borgarbúar með bíla sína á dekkjaverkstæði til að undirbúa sig fyrir veturinn, en mikilvægt er að vanda valið á dekkjum. Slæm áhrif nagladekkja á loftgæði Nagladekk, sem eru algeng yfir vetrarmánuðina, valda miklu sliti á malbiki sem leiðir til losunar svifryks í andrúmsloftið. Svifryk, fínar agnir sem myndast við slíkt slit, hafa bein áhrif á loftgæði og heilsu borgarbúa, sérstaklega þeirra sem þjást af öndunarfærasjúkdómum. Á undanförnum árum hefur bílum á götum borgarinnar fjölgað og loftgæði í Reykjavík versnað umtalsvert þegar notkun nagladekkja er mest, og því er mikilvægt að leita lausna. Vissir þú að naglar hjálpa ekki í snjó? Á undanförnum árum hafa orðið miklar framfarir í dekkjaframleiðslu og þá
sérstaklega á vetrardekkjum án nagla. Naglar í dekkjum hjálpa ekki til við akstur í snjó heldur aðeins við ákveðin skilyrði við ísingu á götum. Utan við svifryksmyndun og slæm loftgæði, valda nagladekk miklu sliti á götum sem eykur viðhald og kostnað. Dekkin stórauka umferðarhávaða og auka þannig ónæði fyrir íbúa. Þá eyða bílar á nagladekkjum meira eldsneyti. Þess vegna mælir Reykjavíkurborg frekar með góðum ónegldum dekkjum undir borgarbílinn. Aðrar aðgerðir til að bæta loftgæði Hlutfall nagladekkja á götum borgarinnar spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum. Hins vegar hefur Reykjavíkurborg innleitt fjölmargar aðrar aðgerðir til að ná fram markmiðum sínum um betri loftgæði, t.d. aðgerðir til að minnka útblástur, auknir innviðir fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur, uppsetningu loftgæðamæla o.fl. Markmið Reykjavíkurborgar er að fækka nagladekkjum í umferðinni og bæta loftgæði til frambúðar með fjölbreyttum aðgerðum. Með þátttöku íbúa vonast borgin til að skapa hreinna og heilnæmara umhverfi fyrir öll.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2025 10:33 PM Page 11
11
GV
Fréttir
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
!
Á myndinni má sjá Brynju Bjarney Vignisdóttir verslunarstjóra á Olís Gullinbrú og Árna Guðmundsson varaformann íbúðaráðs Grafarvogs. GV-mynd Ólafur Már Svavarsson
Glans opnar í Grafarvogi við Olís Gullinbrú Grafarvogsblaðið Glans opnaði formlega nýja og stórglæsilega bílaþvottastöð hjá Olís við Gullinbrú í lok september. Stöðin er nýjasta kynslóð snertilausra þvottastöðva og er öll hin glæsilegasta. Þetta er þriðja Glans-stöðin sem Olís opnar, hinar tvær eru við Langatanga í Mosfellsbæ og á Selfossi.
„Við Grafarvogsbúar erum virkilega ánægð með þessa nýju Glans þvottastöð, hún er góð viðbót við þá þjónustu sem Olís Gullinbrú hefur þegar verið að veita,“ segir Árni Guðmundsson, varaformaður íbúaráðs Grafarvogs.
Viðtökurnar í Grafarvogi hafa verið frábærar og greinilegt að íbúar Grafarvogs fagna þessari viðbót við þá þjónustu sem Olís er að veita, ásamt því að þvottastöðin er opin allan sólarhringinn.
Glans er nú með frábært opnunartilboð í gangi og býður 50% afslátt af fyrsta mánuðinum í áskrift sem kostar þá 3.245 kr. í stað 6.490 kr. Stakur þvottur er einnig með 50% afslætti og kostar 1.745 kr. í stað 3.490 kr. Bæði
er hægt að ganga frá greiðslu í Olís – ÓB appinu með afsláttarkóðanum Gullinbrú eða í greiðsluvél við þvottastöðina. „Við erum ótrúlega ánægð að hafa opnað hér í Grafarvogi þessa glæsilegu bílaþvottastöð og óskum við Grafarvogsbúum innilega til hamingju með hana. Þessi stöð er þriðji áfangi í þeirri vegferð sem við erum í með Glans og fljótlega munum við opna í Bæjarlind og á Skúlagötu,“ segir Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís.
Garðeigendur bera ábyrgð á sínum gróðri Eftir því sem dagarnir styttast og veturinn nálgast er rétt að minna á ábyrgð garðeigenda á gróðri við lóðamörk. Með góðu viðhaldi tryggjum við að gróðurinn prýði en valdi ekki hindrunum eða hættu á götum og stígum. Samkvæmt byggingareglugerð þurfa garðeigendur að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis
heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ Helstu reglur varðandi gróður á lóðarmörkum eru: • Gróðurinn má ekki gera umferðarmerki minna sýnileg né skyggja á götulýsingu • Gangandi og hjólandi þurfa að eiga greiða leið um göngustíga • Þar sem vélsópar eða snjóruðningstæki fara um, skal lágmarkshæð gróðurs yfir stígum vera 2,80 metrar
• Á akbraut (og þar sem sorphirða, slökkvilið eða sjúkrabílar fara), má gróður ekki vera lægri en 4,20 metrar • Hávaxnar trjátegundir má ekki planta nær lóðamörkum aðliggjandi lóða en 3,00 metrar. Íbúar Reykjavíkur eru beðnir um að fara yfir trjá- og runnavöxt á lóðinni sinni og athuga hvort greinar eða gróður fari yfir gangstéttar, götulýsingu eða umferðarmerki. Saman tryggjum við öryggi vegfarenda og gott borgarumhverfi!
Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/12/2025 1:34 PM Page 12
12
Tólf spor – Andlegt ferðalag
Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Síðasti opni sporafundur vetrarins verður 22. október kl. 19.30. í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Eftir það verða fundir og hið eiginlega sporastraf hefst. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.
GV
Fréttir Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi:
Stórtónleikar í Grafarvogskirkju 13. nóvember Fimmtudaginn 13. nóvember verða tuttugustu og fyrstu árlegu stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjör-gynjar í Grafarvogskirkju. Tónleik-arnir hefjast klukkan 19:30. Gegnum árin hafa landskunnir tónlistarmenn komið fram og hafa þeir ávallt gefið sína vinnu og gert tónleikana að veruleika öll þessi ár. Meðal flytjenda í ár eru Baggalútur sem eiga ekki ófáa smelli undanfarin ár, Emmsjé Gauti sem fer ekki með neina Klisju, Páll Rósinkranz, Greta Salóme tekur nokkur lög, stórtenórinn Gissur Páll tekur nokkur lög, Guðrún Árný stýrir m.a. fjöldasöng að sínum hætti. Kristján Kristjánsson (KK) mætir með kassagítarinn, Guðrún Gunnarsdóttir sem hefur glatt marga með söng sínum og Þór Breiðfjörð er gæti mögulega tekið söngleikjalög. Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti Grafarvogs-kirkju, annast undirleik. Hún mun væntanlega bæði grípa í flygil kirkjunnar og hið frábæra orgel kirkjunnar.
aðaláhersla verið stuðningur við æsku landsins. Fyrstu árin voru verkefnin bundin við Grafarvog. M.a. Skátafélagið Vogabúar, Skólahljómsveit Grafarvogs, Foldaskóli og Fjölnir. Klúbburinn vann einnig fjölmörg verk við byggingu Grafarvogskirkju. Lagði parket og flísar í kjallara, innréttaði fundaraðstöðu á 2. hæð sem kallaður var Lionssalurinn, en þar hélt Fjörgyn félagsfundi sína um margra ára skeið. Salurinn var m.a. einnig notaður fyrir fermingarfræðslu, en nýtist í dag sem skrifstofa og fundarsalur. Upp úr 1995 beindi klúbburinn verkefnum sínum meira að Barna-spítala Hringsins (BH) með ýmsum tækjagjöfum. Á meðfylgjandi myndum eru dæmi um búnað sem Fjörgyn hefur afhent spítalanum Frá 2003 hefur klúbburinn aðallega stutt við BUGL (barna- og unglingageðdeild LSH). Klúbburinn hefur gefið margvíslegan búnað sem nýtist í starfi á BUGL og fjármagnað bíla sem not-
aðir eru til að þjónusta skjólstæðinga BUGL. Síðastliðið sumar veitti klúbburinn 4 milljón króna styrk til kaupa á nýrri bifreið til afnota fyrir meðferðarteymi á BUGL. Fjölmargir aðrir aðilar hafa notið stuðnings frá klúbbnum m.a. Ljósið, Stuðlar, Eir, SPOEX, Umhyggja, Dropinn, Blindrafélagið, Sólheimar, Kraftur, o.fl. Þá hefur Fjörgyn í samstarfi við Grafarvogkirkju og Íslensku Kristskirkjuna tekið þátt í matargjöfum til fjölskyldna í Grafarvogi allt frá árinu 1991. Án stuðnings fjölmargra styrktaraðila þar á meðal ykkar lesendur góðir væri þetta ekki mögulegt. Sjáumst á tónleikunum 13. nóvember næstkomandi klukkan 19:30. Fyrir hönd félaga í Lionsklúbbnum Fjörgyn, Þór Steinarsson
Felix Bergsson verður kynnir á tónleikunum. Að vanda mun Lionsklúbburinn Fold vera með veitingasölu til styrktar sínum líknarsjóði. Fold hefur m.a. styrkt Konukot. Í 35 ára sögu Fjörgynjar hafa margir aðilar notið stuðnings gegnum fé sem safnast hefur á stórtónleikum Fjörgynjar. Brot úr sögu Fjörgynjar Frá stofnun klúbbsins 1990 hefur
Leikföng á barnadeild LSH.
Unnið við fyrstu áhorfendasvæði við Fjölnisvöllinn.
Unnið við skátaheimili Vogabúa.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2025 10:35 PM Page 13
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2025 11:01 PM Page 14
14
GV
Fréttir
Afar snyrtileg og björt íbúð við Rósarima - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11
Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 5758585, kynnir í einkasölu íbúð með bílskúr við Rósarima 6 Reykjavík. Um er að ræða 94,4 fm eign sem skiptist í 3ja herbergja 72,2 fm íbúð, 16,8 fm bílskúr og 5,4 fm sér geymslu. Matshluti 01-0106, fastanr. 2221817. Húsið var málað að utan fyrir tveimur árum síðan og þá var einnig skipt um glugga. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir, löggiltur fasteignasali, á anna@fmg.is og í síma 892-8778. Nánari lýsing Um er að ræða afar snyrtilega og bjarta íbúð, komið er inn í hol með flísum á gólfi og stórum skáp. Þaðan er komið inn í stofu/borðstofu með parketi á gólfi.
Á baði er tengt fyrir þvottavél og þurrkara og þar er góð innrétting þannig að vélarnar eru upphækkaðar. Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfium.
Stíf tífluþ luþjón ónusta usta Röra ramynd yndir Dælubíll VALUR HELGASON stifla.is | 896 1100
Eldhús er opið og þar er góð innrétting með góðu skápaplássi, tengt er fyrir uppþvottavél, flísar eru á milli skápa og korkur á gólfi. Útgengt er á suðaustursvalir úr eldhúsi, á svalagólfi eru flísar og gler skjólveggur er við handrið og á sitt hvorri hlið á svölum. Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtuklefa og innréttingu við vask. Á baði er tengt fyrir þvottavél og þurrkara og þar er góð innrétting þannig að vélarnar eru upphækkaðar. Á herbergisgangi er parket á gólfi og einnig er parket á hjónaherbergi og barnaherbergi. Í báðum svefnherbergjum eru góðir fataskápar. Veggskápar í barnaherbergi fylgja ekki með. Íbúðinni fylgir fullgerður 16,8 fm bílskúr með hita og rafmagni, flísum á gólfi, vaski og vaskaborði. Sjálfvirkur hurðaopnari og inngönguhurð. Innréttingar í bílskúr fylgja ekki með í kaupunum. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og einnig 5,4 fm sér geymsla. Sameign er snyrtileg.. Eins og áður sagði var húsið málað að utan og skipt um glugga fyrir tveimur árum síðan. Búið er að setja öryggismyndavélar í og við húsið.
Eldhús er opið og þar er góð innrétting með góðu skápaplássi.
Útgengt er á suðaustursvalir úr eldhúsi, á svalagólfi eru flísar og gler skjólveggur er við handrið og á sitt hvorri hlið á svölum.
Sigrún Stella EinarsÁrni Þorsteinsson Ólafur Kristjánsdóttir Löggiltur fastrekstrar-hagfræðingur. son löggiltur H^\g c HiZaaV eigna-, fyrirtækja- og M.Sc. löggiltur fasteigna- fasteigna- og skipaskipasali s. 8240610:^cVghY ii^g og skipasali og löggiltur sali s. 786-1414 A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459
He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906
Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778
Óskum eftir öllum gerðum eigna á skrá, mikil eftirspurn
GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU 121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.
H b^ *,* -*-*
GYÐUFELL - 2ja HERBERGJA Góð 64,2 fm tveggja herbergja í búð á 4.hæð. Parket, flísar og dúkur á gólfum, yfirbyggðar suður svalir. Nýtt þak er á húsinu. Sérmerkt bílastæði.
DESJAMÝRI MOSFELLSBÆ 42 fm lager/geymsluhúsnæði. Húsnæðið er allt hið snyrtilegasta og er með stórum innkeyrslu og inngöngudyrum. Afgirt sameiginleg lóð með rennihliði.
FLÉTTURIMI - 3ja HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Mjög björt og falleg 95,6 fm, 3.herbergja í búð á 2.hæð. Parket og flísar á gólfum og innréttingar er góðar. Suð-austur svalir. Stæði í lokaðri bílageymslu með bílarafmagni.
]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`
LJÓSHEIMAR - 4. HERB. - ÚTSÝNI 105,8 fm, 4.herbergja endaíbúð á 6.hæð. Falleg nýleg hvít innrétting í eldhúsi og nýleg gólfefni. Nýlega endurnýjað baðherbergi. Þrjú svefnherbergi. Staðsetning í hjarta Reykjavíkur.
lll#[b\#^h
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2025 1:23 PM Page 15
Náðu í Olís – ÓB appið og fáðu 50% afslátt af fyrsta mánuð í áskrift með því að skr k á afsláttarkóðann látt kóð “Gullinbru”
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2025 1:22 PM Page 16