GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/21/2026 12:11 AM Page 1
Grafarvogsblaðið 1. tbl. 37. árg. 2026 janúar
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Hver óskaði eftir meiri töfum á Höfðabakka?
Ódýri ísinn
]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]` Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` 112 Reykjavík H b^ *,* -*-* Sími 575 8585 ;Vm *,* -*-+
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
www.bilavidgerdir.is
Þjónustuaðili
lll#[b\#^h
- sjá bls. 9
Lyf á lægra verði! Leggjum áherslu á mjög góða þjónustu Gott vöruúrval Hægt að panta lyf á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300
Spönginni Grafarvogi
Einkarekið apótek
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/21/2026 11:48 AM Page 2
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Umferð um Höfðabakka Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.
Stórkostleg frammistaða á EM Enn einn ganginn er allt orðið vitlaust á Íslandi þegar íslenska landsliðið í handknattleik er að etja kappi við bestu landslið heims á stórmóti. Strákarnir okkar hafa verið stórkostlegir í leikjum sínum gegn Ítalíu, Póllandi og Ungverjalandi. Þegar þetta er skrifað er leikurinn gegn Króatíu eða Svíþjóð innan seilingar en Ísland leikur einnig gegn Slóveníu og Sviss í milliriðlinum. Úrslitaleikurinn í F-riðli gegn Ungverjum var spennutryllir frá fyrstu mínútu og ekki fyrir hjartveika að horfa á atganginn. Lengi vel í fyrri hálfleik leit út fyrir að gjörsamlega vanhæfir dómarar frá Norður Makedóníu myndu fara með leikinn fyrir okkur en okkar menn svöruðu arfaslakri dómgæslu inn á vellinum á stórkostlegan hátt. Sérstaklega Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður og Gísli Þorgeir Kristjánsson sem báðir sýndu stórkostleg tilþrif. Framundan eru miklir spennuleikir og mikil handboltaveisla sem öll íslenska þjóðin tekur þátt í. Þúsundum saman flykkjast Íslendingar á leikina og veita okkar mönnum ómetanlegan stuðning. Er nú svo komið að ekki eru lengur til miðar á leikina í milliriðlinum og enga flugmiða að fá hjá Icelandair lengur. Allt uppselt. Snorri Steinn Guðjónsson er að gera frábæra hluti með íslenska liðið sem virðist vera mun sterkara í dag en á síðustu stórmótum. En það eru skakkaföll í gangi. Elvar Örn Jónsson leikur ekki fleiri leiki á mótinu vegna meiðsla en hann meiddist illa á hendi í fyrri hálfleik gegn Ungverjum. Þetta er sérstaklega slæmt fyrir varnarleik íslenska liðsins. Þá er stórskyttan Þorsteinn Leó Gunnarsson enn meiddur en vonandi getur hann leikið með liðinu í einhverjum leikjum í milliriðlinum. Fleiri íslenskir þjálfarar eru að gera það gott á EM og þeir Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason eru komnir með Króatíu og Þýskaland í milliriðlana. Við Íslendingar erum ekki á flæðiskeri staddir hvað þjálfara í heimsklassa varðar. Framundan eru spennandi tímar í íslenskum handbolta. Vissulega möguleikar á að gera frábæra hluti en í afar mikilvægum leikjum þar sem spennan og kröfurnar eru langt yfir meðallagi er ekkert pláss fyrir mistök. Við vonum það besta en verðum að reyna að halda okkur á jörðinni. Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is
hefur aldrei verið verri - eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks Undanfarnar vikur og mánuði hafa staðið yfir framkvæmdir á gatnamótum við Höfðabakka, meðal annars við Bæjarháls, Dvergshöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú. Nú þegar verkinu er lokið blasir við staða sem íbúar Grafarvogs og nærliggjandi hverfa hafa lýst miklum áhyggjum af.
En íbúasamtökin hafa ekki fengið svar. Þetta er ekki boðlegt. Þegar íbúasamtök í stærsta hverfi borgarinnar beina formlegri áskorun til borgarstjórnar eiga svör að berast. Og það án tafar.
Varaformaður Íbúasamtaka Grafarvogs benti á í grein sem hann skrifaði á Vísi.is fyrir um það bil mánuði síðan að framkvæmdirnar hefðu leitt til þess að bílar raðist nú eftir öllum Höfðabakkanum, oft langt inn í Grafarvog og niður Ártúnsbrekku. Þessu til viðbótar leitar umferð inn í hverfin sjálf — Höfðahverfið, Bryggjuhverfið og Kvíslahverfið — þar sem ökumenn reyna að komast hjá teppum. Niðurstaðan er einfaldlega erri en áður Þrátt fyrir að umferðaröryggi og skilvirkni eigi að vera leiðarljós slíkra framkvæmda hefur hvorugt batnað. Niðurstaðan er einfaldlega verri en áður. Stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs hefur þegar sent borgarfulltrúum form-
Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. lega áskorun um að endurskoða þessar breytingari til að endurheimta eðlilegt umferðarflæði og tryggja öryggi allra vegfarenda.
Tími til kominn að taka í taumana Höfðabakki er ein af mikilvægustu tengingum austur- og norðurhluta borgarinnar. Allar breytingar á slíkum lykilstofnæðum eiga að vera vel ígrunduðar, faglega rökstuddar og byggðar á skýrum markmiðum um öryggi og skilvirkni. Það sem hefur verið gert uppfyllir ekki þau skilyrði. Ég tek undir áhyggjur íbúanna og varaformanns Íbúasamtaka Grafarvogs og styð heils hugar þá kröfu að borgin taki málið upp að nýju. Grafarvogur og nærliggjandi hverfi eiga betra skilið en að bera byrðar af mistökum í skipulagi sem hafa hvorki bætt öryggi né flæði. Þetta þarf að laga. Og það þarf að gerast strax. Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
VISSIR ÞÚ?
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/16/2026 9:02 PM Page 3
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/17/2026 3:09 PM Page 4
4
GV
Mataruppskriftir
Ljúfur og kryddaður morgunmatur - frábær réttur sem vert er að prófa Morgunmaturinn er af mörgum talinn mikilvægasta máltíð dagsins. Ljúfur og kryddaður morgunmatur fyrir þá sem vilja hafa sem minnst fyrir morgunmatnum og græja hann kvöldinu áður og fá kaffibollann með morgunmatnum og fá þannig góða orku inn í daginn ásamt trefjum og prótein -mettandi og næringarríkur morgun-grautur Innihald: ½ bolli hafrar. 1 espresso hazelnut Sjöstrand kaffi eða annað sambærilegt gott kaffi. 2 msk. hampfræ. 1/4 bolli mjólk.
1 bolli grísk jógúrt með kaffi og súkkulaði bragði. 1–2 tsk. hunang eða önnur sæta. Smá kakóduft og nokkrar saxaðar heslihnetur til að toppa. Aðferð: Blandið öllu nema kakóduftinu vel saman í litla skál og hrærið vel. Toppið með örlitlu kakódufti og söxuðum heslihnetum. Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast
Morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins að margra mati.
Spönginni Grafarvogi Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).
Bókaðu tíma í sjónmælingu í verslunum Eyesland í Kringlunni, Granda, Glæsibæ eða í Spönginni.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/19/2026 3:32 PM Page 5
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/20/2026 12:00 PM Page 6
6
Fréttir
GV
Sundabraut á forsendum Grafarvogsbúa - Dóra Björt Guðjónsdóttir
Við mælum með að kíkja við í þjálfunarstöðinni Metabolic Reykjavík, þar færðu fyrstu tvær vikurnar í þjálfun alveg fríar og getur þannig mátað æfingarnar á eigin skinni án allra skuldbindinga.
Nýtt ár - gömul markmið? Það hefur lengi verið hefð fyrir því að setja áramótaheiti í upphafi nýs árs. Það er ágætt að setja sér áramótaheiti, eins og margir kannast við, þá förum við mörg hver full af eldmóði inn í nýtt ár með heitið í huga, en svo á metnaðurinn til með að dvína þegar líður á. Eflaust kannast einhver ykkar við það að setja sama eða svipað heiti ár eftir ár. Þá er eitthvað í ferlinu ekki að virka, við erum ekki að ná árangri með áramótaheitin með þessum hætti. Ég er hér til að hvetja þig til að gera öðruvísi áramótaheit þetta árið. Hvernig væri að skrifa niður lista yfir hluti sem þú vilt gera á árinu framundan? Það má skrifa niður fleiri en eitt atriði og svo velja topp fimm til að byrja á. Þetta gætu verið atriði eins og að: fara í utanlandsferð á stað sem þig hefur lengi langað, hlaupa í einu utanvegahlaup næsta sumar eða geta lyft eigin þyngd í réttstöðulyftu innan ársins.
Allt ofantalið er það sem má kalla frammistöðu drifin markmið. Markmið sem leiðir þig á þann stað að getir gert eitthvað sem þú gast ekki áður. Þú þarft til dæmis kannski að hefja reglulegan sparnað til að komast í útlandaferðina
og til að geta gert réttstöðu, þarftu að æfa lyftingar reglulega. Það eru líka til annars konar markmið, svokölluð hegðunarmarkmið, þau gætu til dæmis verið að: borða að minnsta kosti þrjá skammta af grænmeti á dag, mæta í ræktina þrisvar í viku eða fara í tvo göngutúra yfir vikuna. Þessi markmið henta vel þeim sem vita að breytt hegðun muni hafa góð áhrif á líf og lífsgæði - en langar ekki endilega að fara í utanvegahlaup og hafa ekki áhuga, eins og er, á frammistöðu tengdum markmiðum í ræktinni. Það sem mestu máli skiptir er að markmiðið sem þú velur, henti þér og að skrefin að þeim séu einföld og það sé eitthvað sem þig raunverulega langar að gera. Segjum sem svo að þú ætlir að setja þér markmið að mæta í ræktina þrisvar í viku, þá er líklega best fyrir þig að
velja rækt sem er nálægt heimili þínu eða er í leiðinni fyrir þig þegar þú ferðast til og frá vinnu til dæmis. Hreyfingin þarf líka að vera nógu skemmtileg og passlega krefjandi til að þú getir hugsað þér að mæta aftur og aftur. Þegar þú stendur við markmiðin þín, þá gerast líka góðir hlutir innra með þér. Að standa við eigin loforð gagnvart sjálfum sér er mjög sjálfseflandi. Ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja í heilsutengdu markmiðunum þínum, mæli ég með að kíkja við í þjálfunarstöðinni Metabolic Reykjavík, þar færðu fyrstu tvær vikurnar í þjálfun alveg fríar og getur þannig mátað æfingarnar á eigin skinni án allra skuldbindinga. Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík
góðar almenningssamgöngur vegna Sundabraut er eitt allra stærsta uppbyggingar í Úlfarsárdal. Vel hannaðar mótvægisaðgerðir samgönguverkefni sem Reykjavík hefur staðið frammi fyrir í áratugi. skipta íbúa í Reykjavík miklu máli Hún vekur sterk viðbrögð, sumir sjá og allt þetta kostar og sá kostnaður í henni lausn á umferðavanda en verður Sundabrautarverkefnið að aðrir óttast áhrif hennar á borgina bera. Mótvægisaðgerðir eru hluti af og lífsgæði íbúa. Ég hef sjálf haft því verkefni sem Sundabrautin er og áhyggjur af neikvæðum áhrifum það þarf að taka tillit til þeirra þegar hennar á Reykjavík. Þess vegna kemur að ákvarðanatöku, skipulagi skiptir útfærslan öllu máli. og fjármögnun. Lífsgæði Forsenda vinnunnar er viljayfir- Reykvíkinga eru í húfi. lýsing ríkisins og ReykjavíkurborÞað vill enginn búa við hraðbraut gar frá árinu 2021. Þar er meðal an- í gegnum sitt hverfi. Íbúar vilja gönnars kveðið á um að verkefnið skuli gu- og hjólavænt, öruggt og heilbyggja á samráði næmt umhverfi. við íbúa og Það er stefna mótvægisaðgerðum Reykjavíkur og til að mæta hún verður að mögulegum endurspeglast í neikvæðum áhriútfærslu fum. Þetta eru ekki Sundabrautar. aukaatriði, heldur Vegagerðin grunnforsendur. getur ekki ein Umræðan um valið leið út frá Sundabraut er að hagræði eða mínu mati ekki kostnaði einum komin á þann stað saman. að íbúar eða Verkefnið verður yfirvöld geti tekið að byggja á sátt, upplýsta afstöðu samráði og þeim milli valkosta. Enn skuldbindingum vantar heildstæða sem þegar liggja umfjöllun um misfyrir. munandi valkosti út Sundabraut frá áhrifum þeirra í mun stytta ferðir, samhengi við rauntengja VesturDóra Björt Guðjónsdóttir. hæfar land og Suðurmótvægisaðgerðir. land og auka Samráð við íbúa á að vera lykilþát- fýsileika þess að búa utan höfuðbortur í þessu verkefni og íbúar hafa garsvæðisins og vinna í Reykjavík. eðlilegar áhyggjur sem þarf að taka En fyrir okkur sem búum í borginni alvarlega. Ennfremur vantar þessar skiptir miklu máli hvernig brugðist nauðsynlegu upplýsingar til að hægt er við mögulegum neikvæðum áhrisé að mynda sér upplýsta afstöðu. fum. Sundabraut má ekki skemma Ég skil vel áhyggjur íbúa, hvort Reykjavík. Hún verður að bæta líf sem er í Grafarvogi, Gufunesi, Lau- Reykvíkinga. gardal eða annars staðar. Ég er sjálf Sundabraut þarf að vera á forsíbúi í Grafarvogi og veit hversu endum Reykvíkinga. mikil áhrif stórar samgönguframkvæmdir geta haft á daglegt Dóra Björt Guðjónsdóttir líf fólks. Meginforsenda fyrir mig er Íbúi í Grafarvogi, borgarfulltrúi sú að Sundabraut risti ekki hverfi í Samfylkingarinnar og frambjóðandi sundur. Slík útfærsla gengur gegn í 3.-4. sæti í forvali Samþeirri borgarstefnu sem Reykjavík fylkingarinnar hefur markað um heilnæmt, öruggt og mannvænt umhverfi. Þess vegna hef ég í samtölum mínum við Vegagerðina ítrekað lagt áherslu á að horfa til lausna og mótvægisaðgerða. Sundabraut gæti farið í göngum undir Gufunesið að megninu til og Hallsveg væri hægt að setja í stokk eða þá að hægt væri að hafa framlengingu Hallsvegar einungis fyrir almenningssamgöngur. Þetta myndi vernda umliggjandi íbúðahverfi og koma í veg fyrir að Hallsvegur kljúfi það í sundur með umferðarþyngslum. Að sama skapi kæmi þetta til móts við þörf fyrir
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/19/2026 9:45 PM Page 7
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/20/2026 3:23 PM Page 8
8
GV
Fréttir
gul gata
Allar almennar bílaviðgerðir
Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR
Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar
Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is
Framhaldshópar hjá Fjölni.
Jólasýning á svellinu Fjölnisskautarar halda áfram að standa sig með einstakri prýði. Stjórn Skautasambands Íslands, í samvinnu við Afreksnefnd ÍSS, hafa valið Júlíu Sylvíu Gunnarsdóttur & Manuel Piazza sem skautapar ársins 2025. Einnig hafa þau valið Örnu Dís Gísladóttur og Elínu Kötlu Sveinbjörnsdóttur til að keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í Danmörku þann 27. janúar til 1. febrúar. Myndirnar sem fylgja eru frá hinni árlegu jólasýningu listskautadeildarinnar. Þema sýninganna voru íslensku jólasveinarnir og stóðu allir skautarar sig með prýði. Grýla, jólakötturinn, bræðurnir þrettán, fé og ég veit ekki hvað og hvað léku listir sínar á svellinu og var stemmingin mjög góð og skemmtileg. Milli jóla og nýárs voru jólaæfingabúðir. Kjörið tækifæri fyrir áhugasama að æfa skauta og voru allir velkomnir. Skráning fyrir vorönn er á Abler og æfingar hófust 5. janúar. Hægt er að prófa 1-2 æfingar frítt.
Framhaldshópar hjá Fjölni.
Sáttar skautadrottningar eftir vel heppnaða jólasýningu.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/17/2026 3:30 PM Page 9
9
GV
Fréttir
Hver óskaði eftir meiri töfum og þrengingum á Höfðabakka? - eftir Árna Guðmundsson Nú er meira en hálft ár síðan framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka hófust, íbúum að óvörum. Framkvæmdirnar hófust með hindrunum og þrengingum á gatnamótum Bæjarháls-Straums og Höfðabakka þar sem hægribeygjuvasar voru teknir af, miðeyjur þrengdar og akreinum fækkað. Í framhaldi var ráðist í þrengingar, lengingar á miðeyjum, eyju bætt við á Höfðabakkabrú, stöðvunarlínur færðar aftar með tilheyrandi töfum og fl. þh. Skipt var um umferðarljós, en nýju ljósin eru algerlega vanstillt og án umferðarskyjunar. Nú er nánast regla að stöðva þurfi á öllum ljósum á Höfðabakka, og oftar en ekki myndast því langar raðir með tilheyrandi töfum og vandræðum. Vegna þrenginganna ná tveir bílar sem koma úr gagnstæðum áttum eftir Stórhöfða eða Dvergshöfða vart að beygja upp Höfðabakkann á sama tíma, en slíkt var leikur einn fyrir
Árni Guðmundsson. þrengingarnar. Vegna færslu stöðvunarlína á Höfðabakkabrú lokast fyrir hægri beygju á vinstri afrein til vesturs Miklubraut ef fleiri en tveir bíða á rauðu ljósi á leið upp Höfðabakkann ! Í dag, um miðjan janúar 2026 er þessum framkvæmdum ekki lokið, og töluvert í land að ljúka frágangi víða, sem er óskiljanlegt. ,,Árangur” þessara framkvæmda eru stórauknar umferðartafir á svæðinu kringum Höfðabakkann svo langar bílaraðir myndast á álagstímum. Einnig hefur umferð um Sævarhöfðann (framhjá Bryggjuhverf-inu) og um Stórhöfðann stóraukist, enda leitar umferðin auðveldustu leiðarinnar framhjá tafastöðum. Ég veit að ég er ekki einn um að skilja ekkert í svona framkvæmdum, enda engu líkara en markmiðið sé að tefja og hindra akandi umferð sem mest. Nauðsynlegt var að laga gatnamótin við Höfðabakkann, bæði með tilliti til fækkunar slysa og betra umferðarflæðis, en þessar aðgerðir vinna þvert gegn því markmiði, því miður. Nú er stutt í borgarstjórnarkosningar og von mín er að alvöru stjórnmálafólk ( og flokkar ) sem ætla að ná góðum árangri í kosningunum hlusti á íbúa borgarinnar og fari að vinna með þeim að góðum verkum frekar en á móti, eins og þetta illa hannaða og afar slæma dæmi á Höfðabakkanum sýnir. Stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs sendi í haust áskorun á alla borgarfulltrúa um að endurgera þessar framkvæmdir með öryggi allra vegfarenda ásamt betra umferðaflæði að leiðarljósi. Engin viðbrögð hafa komið
við þeirri áskorun, því miður ! Árni Guðmundsson, varaformaður Íbúasamtaka Grafarvogs.
Vegna þrenginganna ná tveir bílar sem koma úr gagnstæðum áttum eftir Stórhöfða eða Dvergshöfða vart að beygja upp Höfðabakkann á sama tíma, en slíkt var leikur einn fyrir þrengingarnar.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/20/2026 3:26 PM Page 10
10
Fréttir
GV
Bronssætið á Atskákmóti taflfélaga 2025. Það er stórmeistarinn og Grafarvogsbúinn Bragi Þorfinnsson sem fer fyrir sveitinni ásamt fyrrum nemendum Rimaskóla.
Alltaf í baráttunni um verðlaunasæti
Spönginni
Nú á haustmánuðum 2025 keppti A skáksveit Fjölnis á tveimur Íslandsmótum Skáksambands Íslands. Annars vegar á Íslandsmóti skákfélaga og hins vegar á Atskákmóti taflfélaga. Fjölnismenn eru líkt og fyrri ár í fremstu röð á báðum þessara skákmóta. Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fór fram í Rimaskóla dagana 13. - 16. nóvember. Á bilinu 300 - 400 skákmenn og skákkonur kepptu fyrir taflfélögin sín í 5 deildum. Sem fyrr berjast skákmenn A sveitar Fjölnis um Íslandsmeistaratitilinn í Úrvalsdeild og eru í 2. sæti eftir fyrri hlutann, tveimur stigum á eftir KR-ingum. Síðari hluti mótsins fer fram dagana 5. - 8. mars 2026. Atskákmót taflfélaga 2025 fór fram dagana 24. og 25. nóvember. Líkt og fyrri ár stefndu Fjölnismenn á verðlaunasæti og var A sveit Fjölnis í hörkubaráttu um efstu sætin allan tímann. Í fyrra var það silfrið en núna bronsið, 3. sæti í jafnri baráttu. Skákdeild Breiðabliks vann mótið líkt og í fyrra og heimamenn í TR lentu í 2. sæti. Skemmtileg keppni á tveimur kvöldum. Eins og sést þá er rífandi stemning og baráttuandi alls staðar í starfi Skákdeildar Fjölnis bæði meðal eldri og yngri. Liðstjóri Fjölnis er Helgi Árnason formaður skákdeildarinnar.
A sveit Skákdeildar Fjölnis á Íslandsmóti skákfélaga. Sveitin stefnir að 3. Íslandsmeistaratitlinum í röð.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/19/2026 6:59 PM Page 11
11
GV
Fréttir
Endalaust bætist við í hóp skákmeistara í Rimaskóla Það er ekkert lát á því í Rimaskóla að alltaf bætast nýir skákmeistarar við í hópinn. Þetta sýndi sig vel á Jólaskákmóti Íþrótta-og tómstundaráðs Reykjavíkur sem haldið var í samstarfi við Taflfélag Reykjavíkur 14. desember. Skáksveitir Rimaskóla lentu allar í efstu sætum enda breiddin í skáksveitunum mikil og enga veika hlekki þar að finna. Hver skáksveit er skipuð 4 nemendum auk varamanna. Teflt er í þremur aldursflokkum og sendi Rimaskóli tvær skáksveitir í hvern flokk. Verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin og einnig fyrir bestu B sveitina. Er skemmst frá því að segja að Rimaskóli vann örugglega báða flokkana á barnaskólastigi og voru líka með sterkustu B sveitirnar. Á unglingastigi voru það hinar ósigrandi Rimaskólastelpur sem náðu 2. sæti á mótinu á eftir skáksveit Réttarholtsskóla en þessir tveir skólar voru með áberandi sterkustu skáksveitirnar. Skákáhuginn í Rimaskóla er eins og mörgum er kunnugt ekki nýr af nálinni en eykst bara og eflist með hverju ári. Skákkennari Rimaskóla er Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands en umsjónarmaður með skákstarfi skólans er Helgi Árnason fv. skólastjóri. Til viðbótar við þennan árangur þá vann Rimaskóli Reykjavíkurmót í byrjun ársins 2025, síðan Íslandsmót barnaskólasveita og endaði í verðlaunasæti á Norðurlandamóti barnaskólasveita í Helsinki í haust. Til hamingju Rimaskóli.
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
Um 150 skákkrakkar tefldu fyrir sína skóla á Jólaskákmóti ÍTR og TR. Rimaskólastrákarnir klæddust að sjálfsögðu Fjölnistreyjum enda allir í boltaíþróttum.
!
Einstakt. Í sterkum skáksveitum Rimaskóla á unglingastigi komast aðeins stelpur í liðið.
Grafarvogsblaðið Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844
2025
Stórefnilegir bekkjarbræður í 3. bekk Rimaskóla. Þeir státa einnig af því að vera Íslandsmeistarar barnaskólasveita í
Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fa fasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.
Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!
Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800
eignaumsjon.is umsjon is A sveit Rimaskóla á miðstigi vann jólaskákmótið örugglega og allar viðureignir. Krakkar í 5. - 7. bekk.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/20/2026 3:04 PM Page 12
12
GV
Fréttir
Keiluhöllin er fullt hús af skemmtun! Keiluhöllin Egilshöll hefur allt frá árinu 2012 verið einn vinsælasti afþreyingar-staðurinn á höfuðborgarsvæðinu. En á sama tíma heimili og höfuðvígi
Sportbarinn með stærsta Led skjá landsins Sportbarinn í Keiluhöllinni hefur í ár-
Pizzurnar í Keiluhöllinni eru ótrúlega góðar. Shake&Pizza sérhæfir sig í hágæða pizzum og einstöku úrvali mjólkur-hristinga. keiluíþróttarinnar sem nýtur stöðugra og vaxandi vinsælda hérlendis. Keilusalurinn í Keiluhöllinni er með stærri keilusölum í Evrópu og er vottaður keppnissalur með 22 keilubrautum af fullkomnustu gerð. Í Keiluhöllinni á Keilusamband Íslands aðsetur sitt og þar hefur íþróttin aðsetur, bæði til æfinga og keppni. Það er til marks um gæði Keiluhallarinnar sem keppnissalar að fjölmörg alþjóðleg keilumót hafa verið haldin þar ásamt öllum innanlandsmótum á vegum Keilusambands Íslands.
araðir verið samastaður ástríðufullra áhugamanna um knattspyrnu og aðrar íþróttir, er jafnframt heimili Dr. Football, þar sem hann heldur þar mánaðarlega sín vinsælu Pub Quiz. Doktorinn sjálfur, Hjörvar Hafliðason, er jafnframt brand ambassador Keiluhallarinnar þegar kemur að knattspyrnu. Fyrir skemmstu vígði Sportbarinn í Keiluhöllinni tvo nýja og stórglæsilega risaskjái sem beðið hefur verið eftir með óþreyju um allnokkurt skeið. Stærri skjárinn er engin smásmíði, heilir 7
Það er alltaf líf og fjör í Keiluhöllinni og þar eru í boði fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir og fólk á öllum aldri skemmtir sér konunglega. Shake&Pizza - heimili fjórðu bestu metrar að lengd og tæpir 2 metrar á bar landsins. pizzu í heimi breidd og er þeim eiginleikum gæddur ,,Ég hef lengi haft ambisjónir um að að geta sýnt frá mörgum viðburðum færa mig meira yfir í eftirlits- og gæðaPizzuelskandi Íslendingar þekkja samtímis. vottunariðnaðinn enda gef ég engan afShake&Pizza í Keiluhöllinni. Þessi Pílusvæðið Sportbarsins hefur einnig slátt þegar kemur að knattspyrnuáhorfi. framsækni pizzastaður á heimili sitt inni verið endurnýjað og stækkað, sem gerir Nú er það orðið að veruleika. Þegar Jói í Keiluhöllinni og fæðir viðskiptavini fleirum kleift að njóta aðstöðunnar og og félagar í Keiluhöllinni vígðu nýja riskeil-unnar, Sportbarsins og þeirra sem reyna fyrir sér í pílukasti. askjáinn þá var ljóst að þeir höfðu uppkoma einfaldlega út að borða í glæsilegSportbarinn er jafnframt vettvangur fyllt öll skilyrði til þess að hljóta, fyrstir um veitingasalnum. Shake&Pizza sérfastra fimmtudagsviðburða sem njóta hæfir sig í hágæða pizzum og einstöku Sportbara, hina virtu gæðavottun Dr. Foótrúlegra vinsælda. Má þar nefna spurnúrvali mjólkur-hristinga. Nú nýverið otball. Gæðavottunin byggir á nokkrum ingaleikinn Svara Bara, Dr. Football Pub frumsýndi Shake&Pizza nýjan kjúklykilbreytum og má þar nefna urrandi Quiz og Partýbingó Evu Ruzu og lingamatseðil þar sem hægt er að velja stemningu, breidd í drykkjaúrvali, lifHjálmars. um nýjar tegundir af kjúklingavængjum andi og skemmtilega þjónustu, glatt og kjúklingalundum sem eru bornar starfsfólk og framúrskarandi bílastæða Fyrsti gæðavottaði Sportbar landsins fram í himneskum sósum og má þar aðgengi. En það er vissulega nýi skjárnefna Buffalo Hot, Býfluguna, Cobra Í tilefni af komu nýja risaskjásins, inn sem að ýtir þeim yfir marklínuna og Kaí og Honey Butter Lemon Fire. ákvað Dr. Football að veita Sportbarnum siglir þessu heim,” segir Hjörvar Haflsérstaka gæðavottun sem gerir hann að iðason, Dr. Football. fyrsta Dr. Football gæðavottaða Sport-
Er Gufunes gleymda hverfið í Reykjavík? - eftir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ fór fram skömmu fyrir jólin og þá útskrifuðust þessir nemendur frá skólanum.
13 útskrifuðust fyrir jólin Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ fór fram föstudaginn 19. desember við hátíðlega athöfn í húsnæði skólans við Bjarkarholt 35 í Mosfellsbæ. Að þessu sinni voru 13 nemendur brautskráðir. Af félags- og hugvísindabraut voru brautskráðir tveir nemendur og einn af náttúruvísindabraut. Af opinni stúdentsbraut- almennu kjörsviði voru brautskráðir fimm nemendur og af íþróttaog lýðheilsukjörsviði 1 nemandi. Fjórir nemendur voru brautskráðir af umhverfis- og líffræðibraut. Við athöfnina voru flutt tónlistaratriði frá nemendum tónlistarskólans í Mosafellsbæ en hefð er fyrir því að nemendur tónlistarskólans flytji tónlist við góðar undirtektir á útskriftarhátíðum skólans enda um áralangt farsælt samtarf að ræða á milli skólanna. Fulltrúi kennara hélt ræðu fyrir hönd starfsmanna og einnig hélt nýstúdent ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Í ræðu nýráðins skólameistara Kristjáns Arnar Ingasonar sem hóf störf í desember s.l. kom m.a. fram ósk um bjarta framtíð til handa útskriftarnemum og nauðsyn þess að gefa sér góðan tíma til að íhuga næstu skref í lífinu. Að lokum var útskriftarnemendum óskað til hamingju með áfangann og árangurinn og óskað velfarnaðar í framtíðinni.
Gufunes er það hverfi í Reykjavík, sem vex hvað örast en þar búa nú um þúsund manns. Þegar uppbygging í hverfinu hófst, sparaði þáverandi borgarstjóri ekki stóru orðin um að Gufunes yrði mikið fyrirmyndarhverfi og að m.a. yrði það bíllaust. Annað hefur komið á daginn. Borgaryfirvöld hafa ekki staðið við fögur fyrirheit um margvíslega þjónustu í hverfinu og á það ekki síst við varðandi samgöngur. Komið hefur fram að íbúar upplifi sig sem strandaglópa innan eigin hverfis þar sem bílastæði eru af skornum skammti, almenningssamgöngur ekki í boði og gönguleiðir takmarkaðar. Bílastæðasjóður er sú borgarstofnun sem íbúar í Gufunesi verða helst varir við enda leggur hann mikla áherslu á að sekta þá sem neyðast til að leggja ólöglega vegna skortsins. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað tekið málefni Gufuness upp á vettvangi borgarstjórar og gagnrýnt úrræðaleysi vinstri meirihlutans í borgarstjórn vegna hverfisins. Fjölgun bílastæða Ljóst er að fjölga þarf bílastæðum í Gufunesi enda eru þau allt of fá eins og er. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 14. janúar sl. flutti undirritaður tillögu um aðgerðir í því skyni að fjölga bílastæðum í Gufunesi. Í tillögunni segir jafnframt að leitast skuli við að hafa bílastæðin
myrkri. Mikið er um hraðakstur á veginum sem og þunga umferð stórra bifreiða. Jafnframt var lagt til að göngu- og hjólastígur, sem liggur frá Gufuneshöfða að Gufunesvegi, verði lengdur til norðurs og þannig tengdur ört vaxandi íbúabyggð við Jöfursbás. Markmið okkar sjálfstæðismanna með tillöguflutningnum var að tryggja að áðurnefndar framkvæmdir færu fram á árinu 2026. Tillögunni var hins vegar vísað frá á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 3. desember með atkvæðum vinstri meirihlutans, þ.e. Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna. Kjartan Magnússon. eins nálægt fjölbýlishúsum við Jöfursbás og kostur er. Þá eru til skoðunar hjá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins hvernig hægt sé að koma á föstum strætisvagnaferðum í Gufuneshverfi. Bætum gönguleiðir Ráðast þarf í úrbætur fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur í Gufunesi enda er núverandi aðstaða þeirra til skammar. Í nóvember sl. lagði ég fram tillögu um að göngu- og hjólreiðastígur yrði lagður meðfram Gufunesvegi. Gangandi og hjólandi vegfarendur þurfa nú að fara eftir veginum, sem hefur augljósa hættu í för með sér, ekki síst í
Lögum óvirka ljósastaura Götulýsingu hefur verið ábótavant í Gufunesi og þá sérstaklega við Jöfursbás. Í desember sl. óskuðum við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eftir því að ráðist yrði í peruskipti á götulömpum við Jöfursbás. Þá þarf að skoða lýsingarmál í hverfinu í heild sinni. Ábendingar hafa borist frá íbúum í hverfinu vegna varhugaverðs ástands Gufunesbryggju. Í desember flutti ég tillögu um lagfæringar á bryggjunni í því skyni að auka öryggi sem um hana fara. Bryggjan er hættuleg á köflum, m.a. þarf að laga timburgólf hennar og fylla í holur og göt, sem skapa augljósa hættu. Jafnframt þarf að koma fyrir bjarghring yst á bryggjunni.
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/19/2026 2:24 PM Page 13
SA
N A M BÓKAÐU NÚÚNA Á KEILUHOLLLIN.IS
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/18/2026 9:54 PM Page 14
14
GV
Fréttir
Endaraðhús innst í götu á kyrrlátum stað - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11 Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir endaraðhúsið Garðsstaði 18, 112 Reykjavík, sem stendur innst í götu á kyrrlátum stað í grónu hverfi, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 223-5797 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar -og sameignarréttindi, birt stærð 161.1 fm. Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Nánari lýsing Forstofa er rúmgóð með fataskáp og skóhillu og flísum á gólfi. Sjónvarpshol er rúmgott, parket á
gólfi. Eldhús er rúmgott, eldhúsinnrétting er upprunaleg, parket á gólfi. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi, gengt er úr stofu út á suður sólpall þar sem er heitur pottur.
Bílskúr er rúmgóður með góðum hillum og gólf er málað.
Herbergin eru öll björt og rúmgóð með skápum, parket á gólfi. Baðherbergi er rúmgott með bæði sturtuklefa og baðkari, góðri innréttingu, gólf er flísalagt og veggir kringum baðkar og í sturtuklefa eru flísalagðir. Þvottahús er með góðri innréttingu og yfir því er geymsluloft, gólf er flísalagt.
Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson, rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteigna, -skipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is
Húsið stendur i grónu hverfi innst í botnlangagötu, stutt er í leikskóla, þjónusta svo sem verslanir apótek og heilsugæsla eru í Spöng.
Baðherbergi er rúmgott með bæði sturtuklefa og baðkari.
Eldhús er rúmgott, eldhúsinnrétting er upprunaleg, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi, gengt er úr stofu út á suður sólpall þar sem er heitur pottur.
Þvottahús er með góðri innréttingu og yfir því er geymsluloft, gólf er flísalagt.
Sigrún Stella EinarsÁrni Þorsteinsson Ólafur Kristjánsdóttir Löggiltur fastrekstrar-hagfræðingur. son löggiltur H^\g c HiZaaV M.Sc. löggiltur fasteigna- fasteigna- og skipaeigna-, fyrirtækja- og og skipasali og löggiltur sali s. 786-1414 skipasali s. 8240610:^cVghY ii^g A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459
He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906
Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778
G L E Ð I L EGT NÝTT ÁR
GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
BERJARIMI 3ja HERB. STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.
96 fm 3.herbergja íbúð á 2.hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar. Vestur svalir.
H b^ *,* -*-*
FERJUBAKKI - 4ra HERBERGJA Mjög góð 4ra herbergja íbúð. Þrjú svefnherbergi, parket og flísar á gólfum. Fínar innréttingar og skápar. Stórar suður svalir.
FLÉTTURIMI - 3ja HERB. STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Stór 3ja herbergja íbúð, 95,6 fm, á 2. hæð auk stæði í bílageymslu. Björt íbúð með parketi og flísum á gólfi og góðum innréttingum.
]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`
RÓSARIMI 3ja HERB. - BÍLSKÚR Mög falleg 3.herbergja íbúð ásamt bílskúr alls 94,4 fm. Hús nýlega málað að utan og skipt um glugga. Parket og flísar á gólfum og góðir skápar og innréttingar.
lll#[b\#^h
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/19/2026 9:49 PM Page 15
15
GV
Fréttir
Sterkari Grafarvogur - Bjarnveig Birta Bjarnadóttir býður sig fram í 3. sæti á lista Samfylkingar
Höfði fagnar 35 ára afmæli Kiwanisklúbburinn Höfði í Grafarvogi heldur um þessar mundir upp á 35 ára afmæli sitt. Klúbburinn var stofnaður árið 1990 og hefur alla tíð verið virkur þátttakandi í samfélagsþjónustu í Grafarvogi, þar sem áhersla hefur verið lögð á vináttu, mannúð og öfluga þjónustu. Kiwanis hugsjónin byggir á vináttu og samtakamætti með það að markmiði að láta gott af sér leiða. Undir merkjum hennar starfa hundruð þúsunda manna og kvenna um allan heim og þar á meðal félagar í Kiwanisklúbbnum Höfða. Saga klúbbsins endurspeglar skýrt þessi gildi, bæði í innra starfi og í stuðningi við nærsamfélagið, enn kjörorð klúbbsins er „BÖRNIN FYRST OG FREMST - Ræktarsemi og vinátta“. Tilkynning um stofnun Kiwanisklúbbs í Grafarvogi var send út 17. apríl 1990 og fékk klúbburinn nafnið Höfði, dregið af Gufuneshöfða. Klúbburinn var formlega vígður 20. október sama ár og hófu þá 26 Grafarvogsbúar störf innan hans. Í dag eru 20 virkir félagar í klúbbnum, þar af sjö stofnfélagar. Alls hafa um eða yfir 73 einstaklingar tekið þátt í starfi klúbbsins frá upphafi og er áhugasömum ávallt velkomið að kynna sér störf klúbbsins, eða endurvekja áhuga sinn og ganga til liðs við Höfða. Í gegnum árin hefur Kiwanisklúbburinn Höfði byggt upp sterka hefð fyrir samfélagsþjónustu og samveru. Félagar hafa lagt sig fram við að styðja góð málefni, skapa jákvæð áhrif í nærumhverfinu og efla samstöðu í hverfinu. Sameiginlegt átak hefur skilað áþreifanlegum árangri, enda á orðatiltækið „margt smátt gerir eitt stórt“ vel við starf klúbbsins. Aðspurðir um hvað Kiwanis standi fyrir svara félagar einróma: Höfði. Fjáraflanir klúbbsins hafa tekið breytingum í gegnum tíðina. Á fyrstu árum var meðal annars safnað með blómasölu, áburðardreifingu, sölu á reyktum og gröfnum laxi með heimsóknum og banka uppá hjá nágrönnum og nærumhverfi. Í dag er helsta fjáröflunarverkefnið „Maður á mann“, þriggja daga verkefni þar sem fjár er aflað í styrktarsjóð klúbbsins í anda gagnkvæms þakklætis. Fyrsta styrktarverkefni Kiwanisklúbbsins Höfða var til barnastarfs Grafarvogskirkju, þar sem klúbburinn gaf sýningartjald og sýningarvél. Jafnframt hefur klúbburinn um árabil stutt fjölskyldur fyrir jólin, upphaflega með matarkörfum en í dag með gjafakortum frá Bónus og Krónunni í samvinnu við kirkjuna. Fjöldi annarra verkefna hefur einnig notið stuðnings og er áætlað að um eða yfir 165 milljónir króna á núvirði hafi verið úthlutað úr Styrktarsjóði klúbbsins frá stofnun. Í tilefni af þessum tímamótum sendir Höfðafjölskyldan Grafarvogsbúum og landsmönnum öllum hlýjar kveðjur, með ósk um velfarnað, friðar og farsæla framtíð.
Í vor eru mikilvægar kosningar um framtíð Reykjavíkurborgar og þann 24. janúar fer fram prófkjör hjá Samfylkingunni, þar sem ég býð mig fram í 3. sæti. Nú gefst Grafarvogsbúum tækifæri til að hafa áhrif með því að kjósa sinn fulltrúa á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sjálf ólst ég upp í Breiðholti og bý núna með fjölskyldunni í Grafarvogi og get því með sanni sagt að ég elska úthverfin okkar. Einföldum lífið í úthverfunum Það er frábært að búa í Grafarvogi. Hér eru göngustígar langt frá hraðri bílaumferð, úrval af leikvöllum og útivistarsvæðum, bókasafn með góðri barnadeild og frábærir leik- og grunnskólar. Þó er margt sem má bæta.
ðir Strætó innan Grafarvogs séu tíðar og einnig niður í Gufunes. Hálftími á milli ferða er of langur tími. Gerum Strætó ókeypis fyrir börn undir 18 ára. Tryggjum að götur séu sópaðar og gangstéttum og innviðum í Grafarvogi sé vel haldið við. Bætum snjómokstur og söltun vega á veturna, ekki síst svo börn og eldra fólk geti komist auðveldlega á milli staða. Eflum mannlíf í Grafarvogi með því að skapa hvata til að hefja fjölbreyttan rekstur inni í hverfunum svo Grafarvogsbúar þurfi síður að sækja afþreyingu og þjónustu út fyrir hverfið. Bætum grænu svæðin með leikvöllum og gróðri. Það vantar fulltrúa Grafarvogs í borgarstjórn sem brennur fyrir því að gera Grafarvog að eftirsóknarverðari stað fyrir barnafjölskyldur til að setjast að.
Einföldum lífið í úthverfunum. Gerum það með því að tryggja að fer-
Betri rekstur og skýr forgangsröðun Samhliða því sem við styrkjum
úthverfin þarf að passa upp á reksturinn. Sem rekstrarstjóri hjá nýsköpunarfyrirtæki hef ég reynslu af því að passa upp á hverja krónu og
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir.
velta við öllum steinum í rekstrinum. Ég veit að dæmið þarf að ganga upp. Hjá borginni eru tækifæri til sparnaðar og hagræðingar sem verður að nýta. Ferlar eru orðnir flóknir og skriffinnska mikil. Þetta er dýr þróun verður að vinda ofan af og auka skilvirkni í úrvinnslu borgarinnar. Þá eru tækifæri til hagræðingar í innkaupum borgarinnar auk þess sem auka þarf eftirlit með verkefnum borgarinnar til að tryggja að fjárhagsáætlanir standist. Það er ekki hægt að fara í öll verkefni – verum óhrædd við að forgangsraða verkefnum eftir mikilvægi. Fjármagnið á að nýtast þar sem það raunverulega hefur áhrif. Nýtum fjármagnið til að hlúa betur að barnafjölskyldum í Grafarvogi, til að gera hverfið eftirsóknarvert fyrir barnafjölskyldur. Tölum Grafarvoginn upp og verum stolt af hverfinu okkar. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir.
Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:
Regluleg hreyfing skiptir öllu máli Í janúar þurfa hundar og kettir oft smá aukastuðning, alveg eins og við mannfólkið. Kuldinn, styttri dagar og minni hreyfing geta haft áhrif á orku, meltingu og liðleika. Bætiefni hjálpa líkamanum að halda jafnvægi og styðja við náttúruleg ferli sem skipta máli yfir veturinn. Rétt eins og við þurfum vítamín og steinefni til að dafna, þurfa gæludýrin okkar næringarríkan stuðning sem hentar þeirra líkamsstarfsemi. Við hjá Dýrabæ höfum tekið saman nokkra hluti sem er gott að huga að á nýju ári til að hjálpa dýrunum okkar að vera heilbrigð og hamingjusöm.
Brilliant Salmon Oil, eða Brillant Laxa Olían er sérstaklega góð á þessum tíma árs. Hún er rík af ómega 3 og ómega 6 fitusýrum sem styðja húð og feld, draga úr þurrki og kláða, bæta liðheilsu og styðja hjarta og æðakerfið. Fyrir mörg dýr er þetta einföld leið til að bæta bæði vellíðan og útlit á köldum mánuðum.
þess að skerða næringu eða bragðgæði. Formúlurnar innihalda trefjar sem stuðla að mettun, prótein sem halda vöðvamassa stöðugum og rétt stillt orkujafnvægi sem hjálpar dýrinu að léttast á öruggan og stöðugan hátt. Þetta er mild leið til að koma líkamanum aftur í gott jafnvægi án þess að dýrið upplifi hungur eða streitu.
Fyrir þau sem þurfa að létta sig eftir hátíðarnar eru Fat Dog Slim og Fat Cat Slim fórðið frá Barking Heads og Mewing Cats einstaklega góðar lausnir. Fóðrið er hannað til að styðja við þyngdarstjórnun án
Chewllagen beinin eru svo frábær viðbót fyrir hvern einasta hund. Þau eru unnin úr kollageni sem styður liðheilsu, styrkir sinar og brjósk og getur hjálpað eldri hundum að halda betri hreyfigetu.
Kollagenið er líka gott fyrir meltinguna og húðina, og beinin eru náttúruleg, próteinrík og henta vel sem hollt tygg sem heldur hundinum uppteknum og ánægðum. Að lokum skiptir regluleg hreyfing öllu máli. Göngutúrar, leikur og örvun halda líkamanum virkum og huga hamingjusömum. Með góð matarræði, réttum bætiefnum og daglegri hreyfingu fer árið af stað á réttum nótum fyrir alla loðna fjölskyldumeðlimi. Við hjá Dýrabæ getum aðstoðað ykkur við að finna rétta næringu og bætiefni fyrir ykkar gæludýr í næstu Dýrabæjar verslun eða á Dýrabær.is
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 1/21/2026 2:24 PM Page 16
Eirhöfði 3 og 5 SALA HEFST Í MARS Allt frá stúdíó upp í 昀mm herbergja íbúðir
eirhofdi.buseti.is