Skip to main content

Grafarvogsblaðið

Page 1

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2026 7:59 PM Page 1

Grafarvogsblaðið 10. tbl. 37. árg. 2026 október

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Ódýri ísinn

Mæðgur í sama liði

]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]` Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` 112 Reykjavík H b^ *,* -*-* Sími 575 8585 ;Vm *,* -*-+

Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili

lll#[b\#^h

- sjá bls. 12

Lyf á lægra verði! Leggjum áherslu á mjög góða þjónustu Gott vöruúrval Hægt að panta lyf á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300

Einkarekið apótek


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/14/2026 3:04 PM Page 2

2

Fréttir

GV

Grafarvogsblaðið 15, 23 eða 68 borgar-fulllíklega

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: sk@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: sk@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - sk@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.

Íþróttir og forvarnir Íþróttaiðkun barna og ungmenna er besta forvörn sem til er. Í íþróttastarfi eru ákveðnar reglur og skyldur í hávegum hafðar og ungir iðkendur læra að fara eftir reglunum, verði á því misbrestur hefur það jafnan afleiðingar í för með sér. Reglusemi er í hávegum höfð þegar íþróttir eru annars vegar og þeim sem ekki rata rétta veginn í þeim efnum er jafnan refsað á einhvern hátt. Þegar íþróttamenn eiga hlut að máli er jafnan helsta markmiðið að komast í landslið eða atvinnumennsku. Metnaðarfullir íþróttamenn setja stefnuna þangað og margir gera allt sem þeir geta til að ná háleitum markmiðum sínum. Á dögunum urðu einhverjir landsliðsmenn í landsliði karla í knattspyrnu uppvísir að því að brjóta agareglur landsliðsins. Einhverjir leikmenn landsliðsins fóru ,,út á lífið” á milli leikja í landsleikjahrinu og gerðu sér glaðan dag. Upp komst um þetta háttalag þeirra og greint var frá agabrotum leikmannanna í fjölmiðlum. Þar kom fram að Knattspyrnusambandi Íslands var kunnugt um þessi agabrot og málin voru rædd og skoðuð innan sambandsins. Niðurstaða KSÍ var að ræða málið við umrædda leikmenn og stjórnendur landsliðsins með það fyrir augum að komast að því hvað hefði gerst. Og í framhaldinu ákvað KSÍ að gera ekkert í málinu. Þetta er algjörlega óviðunandi niðurstaða hvernig sem á hana er litið. Og enn og aftur virðist KSÍ ófært um að finna réttu lausnina þegar upp koma vandamál innan hreyfingarinnar. Eina rétta niðurstaðan í málinu var auðvitað að refsa þeim leikmönnum sem brutu agareglur landsliðsins. Þó ekki væri nema fyrir þær sakir að sýna ungum knattspyrnumönnum afar slæmt fordæmi og móðga stóran hóp áhugamanna sem jafnan sækir leiki liðsins. Þeir leikmenn sem áttu í hlut eiga að stíga fram og biðjst afsökunar. Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is

trúar? Hver á að ráða?

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Á síðasta fundi borgarstjórnar, þriðjudaginn 6. október, var samþykkt sameiginleg tillaga Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að skora á Alþingi að breyta sveitarstjórnarlögum þannig að sveitarfélög geti sjálf ákveðið fjölda kjörinna fulltrúa sinna. Tillagan var samþykkt með 15 atkvæðum gegn þremur, með stuðningi Miðflokksins, en Samfylkingin sat hjá. Kjarni málsins er einfaldur að mínu mati. Sveitarfélögunum sjálfum á að vera treyst til að meta hvaða fjöldi kjörinna fulltrúa hentar best, með hliðsjón af kostnaði, skilvirkni og lýðræði. Umræðan fékk svo áhugavert framhaldslíf á Alþingi aðeins tveimur dögum síðar, fimmtudaginn 8. október. Þar fór fram fyrsta umræða um frumvarp Sigríðar Á. Andersen, þingmanns, sem myndi heimila Reykjavík að fara með fjölda borgarfulltrúa niður í 15, eins og þeir voru, í stað 23 að lágmarki eins og nú er. Þess má jafnframt geta að Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur áður og nú aftur lagt fram frumvarp á yfirstandandi þingi sem gengur enn lengra í þá átt að efla sjálfstjórn sveitarfélaga. Samkvæmt því yrði sveitarfélögunum sjálfum falið að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa, að uppfylltu því skilyrði að þeir væru að lágmarki þrír og ávallt oddatala. Frumvarpið liggur fyrir Alþingi og bíður fyrstu umræðu. Dagur og borgarfulltrúarnir 68 Í þingumræðunni tók Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar, til máls og setti fram nokkuð athyglis-verðan samanburð. Dagur benti á að í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur sætu samtals 56 kjörnir fulltrúar. Ef Reykjavík hefði hlutfallslega jafn marga fulltrúa miðað við íbúafjölda ættu borgarfulltrúarnir samkvæmt útreikningi hans að vera 68 talsins. Já, 68 borgarfulltrúar! Til samanburðar sitja 63 þingmenn á Alþingi Íslendinga, kjörnir í sex kjördæmum. Dagur var vissulega að setja fram samanburð en ekki formlega tillögu um slíka fjölgun. Hann spurði jafnframt hvers vegna borgarfulltrúar Reykvíkinga ættu að vera færri en þingmenn Reykjavíkur, sem

ákvæði, þótt annað mætti ætla af málflutningi Dags. Og jafnvel þótt allir hefðu verið sammála árið 2011 hlýtur að mega endurskoða lögin fimmtán árum síðar. Dagur velti því einnig upp hvort umræðan væri einhvers konar pólitísk keila gagnvart borgarstjórn Reykjavíkur. Það er nokkuð sérstök nálgun þegar haft er í huga að meirihluti borgarstjórnar hefur sjálfur samþykkt að skora á Alþingi að endurskoða lögin.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. eru 22. Þar má þó minna á að borgarfulltrúar eru nú þegar 23. Ég tel að slíkur talnasamanburður segi takmarkað um hversu margir borgar-fulltrúar þurfi að vera. Fleiri kjörnir fulltrúar tryggja ekki sjálfkrafa betri stjórnsýslu, aukið lýðræði eða meiri skilvirkni. Það skiptir ekki síður máli hvernig þeir sinna störfum sínum og hvaða árangri þeir skila fyrir borgarbúa. Var enginn ágreiningur árið 2011? Dagur rifjaði einnig upp að sveitarstjórnarlögin frá 2011 hefðu verið samþykkt á Alþingi með 42 atkvæðum gegn engu. Það er rétt að sveitarstjórnarlögin í heild nutu víðtæks stuðnings og voru samþykkt með 42 atkvæðum gegn engu. Hins vegar er mikilvægt að halda því til haga að þegar ákvæðið um fjölda sveitarstjórnarmanna, sem nú er til umræðu, var afgreitt sérstaklega við aðra umræðu á Alþingi var það samþykkt með 28 atkvæðum gegn 13. Þrír þingmenn greiddu ekki atkvæði og 19 voru fjarverandi eða skráðir í fjarvist. Enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með ákvæðinu. Það er því villandi að vísa til samhljóða samþykktar laganna í heild sem vísbendingar um að samstaða hafi ríkt um þetta tiltekna ákvæði. Þvert á móti sýnir atkvæðagreiðslan að um það var verulegur ágreiningur á Alþingi.Það var því sannarlega ágreiningur um þetta tiltekna

Sjálfstjórn sveitarfélaganna í forgrunni Frumvarp Diljár Mistar byggist á þeirri hugsun að sveitarfélögin sjálf eigi að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa sinna, þó aldrei færri en þrjá. Það gengur því lengra í sjálfstjórnarátt en frumvarp Sigríðar sem nú er rætt á Alþingi og endurspeglar í raun betur það sem borgarstjórn er nú að kalla eftir. Tillagan sem við samþykktum í borgarstjórn gerir ráð fyrir að sveitarfélög geti sjálf ákveðið fjöldann, að lágmarki fimm og að hámarki 31 fulltrúa. Með samþykkt hennar er ekki verið að ákveða fækkun borgarfulltrúa heldur óska eftir því að sveitarfélögin fái sjálf heimild til að taka slíka ákvörðun. Treystum borginni fyrir ákvörðuninni Árið 2018 var borgarfulltrúum í Reykjavík fjölgað úr 15 í 23. Átta árum síðar er full ástæða til að meta hvort sú breyting hafi reynst vel. Við eigum að horfa til kostnaðar, skilvirkni, lýðræðislegrar þátttöku og þess hversu vel kjörnir fulltrúar sinna hagsmunum borgarbúa. Mér finnst nokkuð sérstakt að sveitarfélögum sé treyst til að reka skóla, sinna velferðarþjónustu, skipuleggja heilu hverfin og ráðstafa milljörðum króna, en ekki til að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa sinna. Hvort borgarfulltrúar eigi að vera 15, 23 eða einhver annar fjöldi á að ráðast af því hvað þjónar borgarbúum best. Það er ákvörðun sem á heima hjá Reykjavíkurborg, ekki Alþingi. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/12/2026 8:54 PM Page 3


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/9/2026 5:48 PM Page 4

4

GV

Mataruppskriftir

Steinbítur frá Öldunni með „veisluhjúp” - frábær uppskrift sem vert er að prófa Þessi uppskrift er alveg sturluð og ég mæli með að fólk prófi hana og Steinbít frá Öldunni. Steinbítur fra Öldunni með „veislu“- hjúp Fiskurinn fyrir 4 • 800 gr. Steinbítur. • Salt og svartur pipar. • 1 msk. ólífuolía. • Smá sítrónusafi.

Stökki gúmmelaðishjúpurinn • 100 gr. mjúkt smjör. • 1 hvítlauksrif, pressað. • 5 gr. fersk steinselja, smátt söxuð. • 1 msk. vorlaukur, saxaður smátt. • 1 box basil, saxað smátt. • Rifinn börkur af 1 sítrónu og safi frá 1/2 sítrónu. • 1 tsk. Dijon-sinnep. • 1½ msk. hunang. • 50 gr. pankó raspur. • 50 gr. parmesan, fínt rifinn. • ½ tsk. paprika. • Smá salt og pipar. Steinbíturinn frá Öldunni er sannkallað lostæti. 5. Þrýstu ríflegu lagi af hjúpnum yfir Aðferð: hvern fiskbita. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). 1. Hitaðu ofninn í 200 gráður, blástur. 2. Þerraðu fiskinn vel og kryddaðu með salti og pipar. 3. Blandaðu öllu í hjúpinn saman. Hann á að vera þykkur og svolítið klessulegur.

Spönginni Grafarvogi

4. Settu fiskinn í eldfast mót og kryddaðu með salt og pipar.

6.Bakaðu í um 15–18 mínútur, eftir þykkt. 7.Settu undir grill í 1–2 mínútur í lokin þar til hjúpurinn er fallega gylltur og stökkur. Smá auka til að gera þetta að extra veislumat: Settu smá klípu af smjöri, 1 tsk. af hunangi og smá sítrónusafa í pönnu eftir að fiskurinn kemur úr ofninum. Bræd-

du saman og helltu örlitlu yfir fiskinn rétt áður en hann fer á borðið. Dásamlegur réttur sem kemur svo sannarlega á óvart. Frábært að bera fram með fersku salati og hrísgrjónum eða íslenskum nýjum kartöflum. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) Jana.is - Instragram.com/Janast


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2026 1:31 PM Page 5

Stæ ærðin sk kiptir ekki máli.

Breiðhöfða 13

Á Nesdekki Brreiðhöfða 13 finnur þú eitt fullkomnasta h hjólbar ðaverkstæ æði landsins þa ar sem hægt er að þjónusta bíla af öllu um stærðum og gerðum. ðum Bókaðu tíma á nesdekk.is

Bókað ðu tíma á netinu

B Bókaðu tím ma og skoð ðaðu d dekkjaúrva alið á nesde ekk.is Breiðhöfði 13

110 Reykjavík 590 2080

Stæ ærðin skiptir ekki máli á Brre eiðhöffða 13.

nesdekk.iis / 561 4200


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2026 10:41 AM Page 6

6

Fréttir

Af hverju velja sífellt fleiri að búa hjá Búseta? Búseti hefur vaxið hratt á undanförnum árum og sífellt fleiri uppgötva kosti þessa norræna búsetuforms sem sameinar húsnæðisöryggi, fjárhagslegan fyrirsjáanleika og þægindi í daglegu lífi. Nú gefst áhugasömum sérstakt tækifæri til að eignast búseturétt í glæsilegum nýjum íbúðum við Eirhöfða 3–5 á Ártúnshöfða, óháð því hversu lengi þeir hafa verið félagsmenn. Við ræddum við Elínborgu Önnu Rúnarsdóttur Erludóttur hjá Búseta um kosti búsetuformsins og þau spennandi tækifæri sem nú bjóðast. „Fólk áttar sig oft ekki á því hvað þetta er hagstætt fyrirkomulag“ - Elínborg Anna, hvað gerir Búseta að svona áhugaverðum valkosti á húsnæðismarkaði? „Það er fyrst og fremst þessi skemmtilega blanda af húsnæðisöryggi, þægindum og fjárhagslegum fyrirsjáanleika,“ segir Elínborg Anna. „Þegar fólk kaupir búseturétt eignast það verðmæta eign, en Búseti sér um rekstur fasteignarinnar og stóran hluta þeirra verkefna sem venjulega hvíla á herðum fasteignaeigenda. Þannig getur fólk notið þess að eiga sitt heimili án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öllum þeim skuldbindingum og óvæntu útgjöldum sem geta fylgt hefðbundnu eignarhaldi.“ Hún segir fyrirkomulagið eiga sér sterkar rætur á Norðurlöndunum og vinsældir þess hér á landi hafa aukist jafnt og þétt. „Enginn ákveður að selja heimilið þitt nema þú sjálfur“ - En hvað felst nákvæmlega í því að eiga búseturétt? „Þetta er atriði sem við þurfum stundum að útskýra. Búseturéttur er eignarréttur sem er tryggður með þinglýsingu. Það er eigandi búseturéttarins sem ákveður hvenær hann vill selja og flytja. Hann getur búið í íbúðinni eins lengi og hann kýs, svo framarlega sem hann uppfyllir skyldur sínar samkvæmt búsetusamningnum.“

Elínborg Anna segir annað mikilvægt atriði vera að búseturétturinn sé vísitölutengdur. „Þegar búseturétturinn er seldur er verðið uppreiknað samkvæmt þróun vísitölu neysluverðs, að teknu tilliti til þeirra uppgjörsreglna sem gilda. Þannig er búseturétturinn varinn gagnvart áhrifum verðbólgu. Þetta er kostur sem margir átta sig ekki á fyrr en við förum yfir fyrirkomulagið með þeim.“ „Þú færð ekki skyndilega milljónareikning vegna þaksins“ - Þið leggið líka mikla áherslu á fyrirsjáanleika í rekstri. Hvað felst í því? „Þetta er einn allra stærsti kosturinn að mínu mati,“ segir Elínborg Anna. „Í hefðbundnu fjölbýlishúsi getur komið upp sú staða að skipta þurfi um þak, glugga eða ráðast í aðrar stórframkvæmdir. Þá geta eigendur allt í einu staðið frammi fyrir reikningum upp á margar milljónir króna. Hjá Búseta er þessu öðruvísi háttað. Félagið sér um utanhússviðhald fasteignanna og fyrir því er safnað með reglulegum framlögum í viðhaldssjóði. Þannig þarf fólk ekki að óttast óvænta stóra reikninga vegna utanhússviðhalds.“ Og hvað er innifalið í mánaðarlega búsetugjaldinu? „Allt nema rafmagnsnotkun íbúðarinnar! Þar eru meðal annars fjármagnskostnaður fasteignarinnar, fasteignagjöld, hiti, hússjóður, tryggingar, þjónusta og framlög í viðhaldssjóð.“

GV

„Það þarf ekki að greiða milljónir í fasteignasöluþóknun“ - En hvað ef fólk vill síðar flytja í stærri eða minni íbúð? „Þá kemur enn einn kosturinn í ljós,“ segir Elínborg Anna og brosir. „Þarfir fólks breytast í gegnum lífið. Ungt par byrjar kannski í tveggja herbergja íbúð, stækkar svo við sig þegar fjölskyldan stækkar og minnkar aftur við sig þegar börnin flytja að heiman. Við erum með fjölbreytt úrval íbúða, allt frá minni íbúðum upp í rúmgóðar fjölskylduíbúðir og jafnvel sérbýli.“ Hún segir það líka mun hagkvæmara að skipta um húsnæði innan félagsins en margir geri sér grein fyrir. „Búseti annast umsýslu vegna sölu og kaupa búseturétta og fyrir það er greitt hóflegt þjónustugjald. Fólk þarf því ekki að greiða háar fasteignasöluþóknanir sem geta hlaupið á milljónum króna.“ Um 4.000 manns búa hjá Búseta - Búseti hefur stækkað mikið undanfarin ár. Hverjir eru helst að velja þetta búsetuform? „Það er í raun fólk á öllum aldri og öllum stigum lífsins. Við erum með ungt fólk að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði, barnafjölskyldur og eldra fólk sem vill minnka við sig og einfalda lífið.“

,,Ég held að það komi fólki skemmtilega á óvart, hversu fallegar og vandaðar íbúðirnar eru og hversu margir kostir fylgja því að vera hjá Búseta,“ segir Elínborg Anna Rúnarsdóttir Erludóttir markaðsstjóri hjá Búseta.

Elínborg Anna segir um 4.000 ein-

Hún segir mikilvægt að bera saman heildarkostnað þegar fólk skoðar mismunandi húsnæðiskosti. „Það er auðvelt að horfa eingöngu á greiðslubyrðina af húsnæðisláni og gleyma öllum öðrum útgjöldum. Hjá Búseta er þessi kostnaður tekinn saman í eitt mánaðarlegt gjald. Það einfaldar heimilisbókhaldið verulega.“

Frá afhendingu á Eirhöfða til Búseta. Frá vinstri Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri, Rafn Hermannsson forstöðumaður Eignaumsjónar, Anna S. Garðarsdóttir Blomsterberg fjármálastjóri, Linda Björk Unnarsdóttir sérfræðingur á samskiptasviði og Hlynur Örn Björgvinsson verkefnastjóri. staklinga nú búa í húsnæði á vegum Búseta og starfsemina ná til allra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins. „Við leggjum mikla áherslu á vandaðar byggingar, góða hönnun og fjölbreytt úrval íbúða. Þessi norræna leið að öruggu heimili hefur greinilega sannað gildi sitt og sífellt fleiri uppgötva kosti hennar.“ Nýjar íbúðir við Eirhöfða – sérstakt tækifæri - Nú eruð þið að bjóða nýjar íbúðir við Eirhöfða 3–5. Hvað gerir þær áhugaverðar? „Við erum virkilega ánægð með þetta verkefni. Hér er um að ræða glæsilegar, vandaðar og vel hannaðar íbúðir á einu helsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.“

Elínborg Anna bendir á að Ártúnshöfði og Elliðaárvogur séu að þróast í nýjan og spennandi borgarhluta þar sem íbúðabyggð, þjónusta og útivist

fléttast saman. „Staðsetningin er frábær, stutt í Elliðaárdalinn, göngu- og hjólaleiðir og helstu samgönguæðar borgarinnar. Hér er spennandi tækifæri til að eignast heimili í nýju hverfi sem á eftir að vaxa og dafna á komandi árum.“ „Þú þarft ekki að hafa verið félagsmaður árum saman“ - En þarf fólk ekki að vera með mjög gamalt félagsnúmer til að fá íbúð hjá Búseta? „Jú, almennt skiptir félagsnúmer máli við úthlutun íbúða og því er skynsamlegt að ganga snemma í félagið. En þegar margar nýjar íbúðir koma í sölu samtímis, eins og þegar heilt fjölbýlishús er tekið í notkun, geta skapast sérstök tækifæri.“ Hún segir nokkrar glæsilegar íbúðir enn lausar við Eirhöfða 3–5 og þær standi nú áhugasömum til boða óháð

aldri félagsnúmers. „Það þýðir að fólk sem er nýgengið í Búseta, eða ákveður að ganga í félagið núna, getur átt raunhæfan möguleika á að eignast búseturétt í glænýrri íbúð. Slík tækifæri gefast ekki á hverjum degi.“ - Hvað myndirðu segja við fólk sem hefur ekki áður velt Búseta fyrir sér? „Ég myndi einfaldlega hvetja það til að kynna sér þetta vel og koma að skoða íbúðirnar við Eirhöfða. Ég held að það komi fólki skemmtilega á óvart, bæði á því hversu fallegar og vandaðar íbúðirnar eru og hversu margir kostir fylgja því að vera hjá Búseta.“ Hún brosir að lokum og bætir við: „Heimilið á að vera staðurinn þar sem maður nýtur lífsins, ekki uppspretta endalausra áhyggjuefna. Það er í raun kjarninn í því sem Búseti stendur fyrir.“


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/12/2026 5:45 PM Page 7

EIRHÖFÐI 3 3-5 110 Reykjavík k

Nokkrar glæsileg gar 3ja herbergja íb búðir óseldar Ve erð rð frá krr.. 13.269.000 13 269 000 og mánaðarlegt mánað ðarlegt búsetug gjald gj jald frá krr.. 292.000. 292 000 Flestar íbúðanna eru með stæði í bílageymslu. Skoða íbúðir

1 2 . n óve em b er 2 0 2 6 k l . 1 9 : 3 0

m i ða v e r ð 7. 50 0 k r


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/11/2026 9:50 PM Page 8

8

GV

Fréttir

gul gata

Allar almennar bílaviðgerðir Endurvinnslustöð Sorpu við Lamhagaveg var hönnuð með það að leiðarljósi að hafa öryggi og flæði sem best fyrir bæði gesti og starfsfólk.

Ný endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg:

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Hönnuð frá grunni með gesti í huga SORPA opnaði nýja endurvinnslustöð við Lambhagaveg 14 þann 1. september síðastliðinn, og hefur stöðin þegar tekið á móti fjölda gesta. Stöðin á Lambhagavegi á sér nokkra sérstöðu. Hún er fyrsta endurvinnslustöðin sem SORPA hefur fengið tækifæri til að byggja og hanna alveg frá grunni. Stöðin var hönnuð með það að leiðarljósi að hafa öryggi og flæði sem best fyrir bæði gesti og starfsfólk. Öryggi og gott flæði Stöðin er byggð á tveimur pöllum þannig að bílar gesta eru aðskildir frá gámaflutningabílum og öðrum

Tólf spor – Andlegt ferðalag

Tólf spor – Andlegt ferðalag. Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Fyrsti opni spora fundur vetrarins verður 7. október kl. 19.30. Í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Þrjú næstu miðvikudagskvöld verða opnirfundir til frekari viðkynningar. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.

þjónustutækjum. Þannig dregur úr skörun í umferðinni og umhverfið verður öruggara fyrir alla. Stöðin er einnig hringlaga. Gestir aka einfaldlega hringinn, stoppa við þá gáma sem þeir þurfa og halda svo áfram án þess að teppa umferð annarra. Þrjú innkeyrsluhlið gera það að verkum að biðraðir styttast og heimsóknin tekur skemmri tíma. Allt á einum stað Á Lambhagavegi er tekið á móti öllum sömu flokkum og á stærri endurvinnslustöðvum SORPU, t.d. pappír og pappa, plasti, málmum, timbri, garðaúrgangi, raftækjum, spilliefnum, textíl og öðrum flokkum. Það þýðir að gestir geta losað sig við

nánast allt sem fellur til á heimilinu sem og framkvæmdarrusli, í einni ferð Góði hirðirinn er einnig með starfsemi á stöðinni, með áherslu á framkvæmdaefni og búnað sem nýtist við framkvæmdir og viðhald. Þar er bæði hægt að gefa nothæfa hluti áfram og finna efni í næsta verkefni á góðu verði, sem er hringrásarhagkerfið í verki. Verið velkomin Stöðin er opin frá kl 09-19 alla daga. Við hvetjum öll til að kíkja við, kynnast nýju stöðinni og hjálpa okkur að koma sem mestu aftur inn í hringrásina. Takk fyrir að flokka!


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2026 1:24 PM Page 9


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/14/2026 3:32 PM Page 10

10

Fréttir

GV

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is Bræðurnir þrír í varnarlínu sem héldu hreinu í leik gegn Leikni. Mjög sjaldgæft er að þrír bræður leiki saman í liði.

Þrír bræður í varnarlínu Fjölnis ,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,, !+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('

Bræðurnir Birgir Þór Jóhannsson (f. 2007), Bragi Már Jóhannsson (f. 2008) og Brynjar Elí Jóhannsson (f. 2010) voru allir í byrjunarliði Fjölnis þegar 2. flokkur karla mætti Leikni Reykjavík.

Bræðurnir skipuðu varnarlínu liðsins saman í leiknum, sem lauk með 3–0 sigri Fjölnis. Það er fátítt að þrír bræður leiki saman í sama liði og því var leikurinn sérstakur fyrir þá.

Veselin Chilingirov hjá Fjölni næstu þrjú árin Veselin Chilingirov, jafnan kallaður Vesko, hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fjölnis til þriggja ára. Hann hefur komið að uppbyggingu starfsins hjá bæði yngri flokkum og meistaraflokkum félagsins. Í sumar leiddi Vesko meistaraflokk kvenna til sigurs í 2. deild og tryggði liðið sér þar með sæti í Lengjudeildinni á næsta ári. Samhliða hefur verið unnið að uppbyggingu yngri flokka starfsins. Samkvæmt upplýsingum frá Fjölni hefur iðkendum fjölgað verulega og áhersla verið lögð á að skapa umhverfi þar sem leikmenn geta þroskast bæði sem knattspyrnumenn og einstaklingar. Í tilkynningu félagsins er framlag Vesko til starfsins metið mikils og fagmennska hans, metnaður og áhugi á þróun leikmanna sérstaklega nefnd. Með nýja samningnum mun hann áfram taka þátt í uppbyggingu knattspyrnustarfs Fjölnis.

Veselin Chilingirov skrifar undir hjá Fjölni.

'"+*%'$ " "',%$! ! '"(*

! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2026 1:58 PM Page 11

11

GV

Fréttir

Hverfi fyrir alla ævi - Eftir Sigrúnu Ástu Einarsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann leikskóla- og daggæsluráðs Reykjavíkur

Við fjölskyldan völdum Grafarvoginn vegna þess að hér er fjölskylduvænt umhverfi, græn svæði og andrými. Ég vil að fjölskyldur sem velja Grafarvoginn njóti þess að búa hér áfram, líka þegar börnin eru vaxin úr grasi. Til þess þarf þjónustan í hverfinu að taka mið af fleirum en barnafjölskyldum. Þjónustan í daglegu lífi Það er auðvelt að tala almennt um góða nærþjónustu. Hún fær skýrari merkingu þegar við hugsum um venjulegan dag. Kemst barnið í leikskóla? Er leiðin í skólann örugg? Hefur unglingurinn einhvern stað til að hitta vini sína? Getur sá sem á erfitt með gang komist leiðar sinnar? Leikskólamálin standa mér nærri sem formanni leikskóla- og daggæsluráðs. Foreldrar þurfa að geta treyst þjónustunni og börnin eiga að fá góða menntun og umönnun. Leikskólinn er fyrsta menntastigið og þar er lagður grunnur að öllu námi síðar á skólagöngunni. Sókn í menntamálum þarf því að hefjast þar, með því að efla málþroska, orðaforða og undirstöður læsis í gegnum leik og daglegt starf. Þarfirnar breytast með árunum Þegar börnin eldast breytist hvers þau þurfa við. Unglingar eiga að hafa aðstöðu til að hittast og sinna áhugamálum sínum, líka þeir sem æfa ekki íþróttir. Við þurfum að heyra frá þeim sjálfum hvað þeim finnst vanta og hvað þau vilja sjá í hverfinu.

Borgin þarf að sinna sínu Íþróttafélög, foreldrafélög og sjálfboðaliðar eiga líka stóran þátt í hverfislífinu. Borgin á að auðvelda þeim starfið og sjá til þess að aðstaðan sé í lagi. Hún verður um leið að sinna sínum eigin verkefnum:

viðhalda skólahúsnæði, halda gönguleiðum greiðum og tryggja að íbúar geti treyst grunnþjónustunni. Þessu ætla ég fylgja eftir í borgarstjórn. Við eigum að geta notið þess að búa í Grafarvogi þótt þarfir

okkar breytist með árunum. Mælikvarðinn á gott hverfi er ekki aðeins hversu margir vilja flytja þangað, heldur líka hversu margir vilja og geta búið þar alla ævi.

Ö l garðverk Öl kfæri kf

Sigrún Ásta Einarsdóttir

Sigrún Ásta Einarsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar

Frábært úrval

! f a t l l a erði -

ærum af garðverkfæ

v u ð ó g á i ð Gæ

Eldri íbúar eiga sömuleiðis að geta tekið þátt í félagslífinu og notið útivistar. Þá skiptir aðgengið máli. Vel hirt gönguleið, góð lýsing og bekkur til að hvíla sig á geta ráðið miklu um hvort fólk treystir sér út. Þjónusta nýtist lítið ef erfitt er að komast að henni.

Lavor háþrý ýstidælur

Colorex r málning og vi v ðarvörn Úrrva val af flísum

Grafarvogsblaðið

Vín ínyl- og ha arðparket

Ritstjórn og Auglýsingar Sími 698-2844

G Gott verð fyrir alla a, alltaf!

Sérfræðinga ar í múrefnum


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2026 7:54 PM Page 12

12

GV

Fréttir

Daníel Ágúst Halldórsson.

Daníel Ágúst snýr aftur til Fjölnis Körfuknattleiksmaðurinn Daníel Ágúst Halldórsson er genginn aftur til liðs við Fjölni og mun leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili. Daníel er uppalinn hjá félaginu en hefur undanfarin ár leikið bæði hér á landi og erlendis. Hann lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og hefur einnig reynslu úr efstu deild á Íslandi með Þór Þorlákshöfn og Haukum. Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, segir reynslu Daníels verða mikilvæga fyrir ungan leikmannahóp félagsins. „Daníel hefur sótt sér mikla reynslu bæði hérlendis og erlendis og mun koma til með að miðla henni áfram til yngri leikmanna.“ Daníel segist þakklátur fyrir að snúa aftur á heimaslóðir eftir erfið meiðsli. „Ég er spenntur fyrir því að vinna að markmiðum með liðinu, leggja mitt af mörkum og taka þátt í því að byggja upp góðan hóp. Það verður líka sérstaklega gaman að fá að spila með vinum mínum aftur og njóta þess að vera á vellinum.“

Arna Rún Eyþórsdóttir skrifar undir.

Hulda Ósk Bergsteinsdóttir skrifar undir.

Arna Rún og Hulda Ósk framlengja við Fjölni Körfuknattleikskonurnar Arna Rún Eyþórsdóttir og Hulda Ósk Bergsteinsdóttir hafa framlengt samninga sína við Fjölni. Þær verða báðar í lykilhlutverki hjá liðinu í baráttunni í Bónus-deildinni á komandi tímabili. Arna Rún hefur samið til tveggja ára. Hún hefur þegar látið að sér kveða með meistaraflokki þrátt fyrir

ungan aldur og hefur jafnframt leikið með yngri landsliðum Íslands. Hulda Ósk er reynslumesti leikmaður liðsins og tók við fyrirliðahlutverkinu í sumar. Hún hefur verið mikilvægur hluti af uppbyggingu liðsins undanfarin ár og mun nú leiða ungan leikmannahóp Fjölnis. Þetta verður í annað sinn sem hún leikur með félaginu í efstu deild.

Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, segir framlengingarnar mikilvægar fyrir áframhaldandi uppbyggingu liðsins. Hann lýsir Örnu Rún sem ungum og metnaðarfullum leikmanni og Huldu sem leiðtoga sem sé fyrirmynd fyrir yngri leikmenn félagsins. „Það er frábært að fá að spila áfram með Fjölni og vera hluti af þessum

hópi. Ég er spennt fyrir komandi tímabili!“ segir Arna Rún. Hulda Ósk tekur í sama streng og segir spennandi áskoranir bíða liðsins. „Við erum með mjög ungt lið, þannig verður sérstaklega gaman að fylgjast með efnilegu stelpunum okkar stíga upp og sýna öllum hvað í þeim býr.“

Mikael Breki samdi við Fjölni til 2029 Mikael Breki handsalar samninginn við Fjölni til 2029.

Miðjumaðurinn Mikael Breki Jörgensson hefur framlengt samning sinn við Fjölni um þrjú ár og gildir samningurinn út keppnistímabilið 2029. Knattspyrnumaðurinn Mikael er fæddur árið 2006 og uppalinn hjá Fjölni, þar sem hann lék með yngri flokkum félagsins. Hann var valinn leikmaður ársins hjá liðinu eftir nýliðið tímabil. Gunnar Már Guðmundsson, þjálfari meistaraflokks, segir framlenginguna mikilvæga fyrir félagið. Hann lýsir Mikael sem fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og segir hann hafa lagt mikið á sig og tekið stórum framförum. „Ég er mjög ánægður með að hafa framlengt við Fjölni og spenntur fyrir því að hjálpa liðinu að komast upp í Lengjudeildina á komandi tímabili,“ segir Mikael Breki.

Mæðgur léku saman með Fjölni Mæðgurnar Elísabet Erla Grétarsdóttir og Sigrún Agatha Árnadóttir léku saman í liði Fjölnis þegar liðið mætti Skautafélagi Akureyrar í fyrsta leik sínum í Toppdeild kvenna í íshokkí á tímabilinu. Elísabet Erla, sem er 14 ára, lék þar sinn fyrsta meistaraflokksleik. Með

Guðmundur G. Sigurbergsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Fjölnis á dögunum.

Framkvæmdastjóri Fjölnis lætur af störfum

henni á ísnum var móðir hennar, Sigrún Agatha, sem er margreynd landsliðskona í íshokkí. Samkvæmt upplýsingum frá Fjölni er þetta í fyrsta sinn sem mæðgur leika saman með kvennaliði félagsins í íshokkí. Þær gætu átt fleiri leiki saman í vetur.

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

Guðmundur G. Sigurbergsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Fjölnis þann 30. september eftir tveggja ára starf hjá félaginu. Guðmundur tók við starfinu á erfiðum tíma í rekstri félagsins og hafa fjármál þess verið í brennidepli undanfarin ár. Í tilkynningu frá stjórn Fjölnis er Guðmundi þakkað fyrir góð störf og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. Stjórn Fjölnis hefur hafið leit að nýjum framkvæmdastjóra. Formaður aðalstjórnar mun sinna brýnustu verkefnum þar til nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa.

Mæðgurnar Elísabet Erla Grétarsdóttir og Sigrún Agatha Árnadóttir.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/14/2026 3:36 PM Page 13

13

GV

Fréttir

KK á útkíkkinu. Hann mætir á stórtónleikana í Grafarvogskirkju 12. nóvember.

Stórtónleikar Lions

Stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Grafarvogskirkju Fimmtudaginn 12. nóvember verða hinir árlegu stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Grafarvogskirkju til stuðnings BUGL og líknarsjóði klúbbsins. Tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Miðasala er á TIX.is. Fyrstu tónleikar klúbbsins voru 2003 og þetta er í 22. sinn sem þeir eru haldnir, en hlé var gert á tónleikahaldi á Covidárunum. Gegnum árin hafa landskunnir tónlistarmenn komið fram og hafa þeir ávallt gefið sína vinnu til styrktar málefninu. Flytjendur í ár eru söngdívan Dísella Lárusdóttir og stórtenórinn Gissur Páll. Kristján Kristjánsson (KK) mætir með kassagítarinn sinn. Einnig mun Mugison stíga á fjöl. Feðgarnir Herbert Guðmundsson og Guðmundur Herberstsson hafa slegið í gegn að undanförnu. Páll Óskar mun birtast, einnig Rebekka Blöndal. Karlakórinn Esja mun láta heyra vel í sér. Frést hefur að Gunni og Felix mæti. Loks er þess að geta að fram kemur á tónleikunum ung söngkona, Aþena Rut Friðriksdóttir, sem verður ævinlega þakklát fyrir þjónustu BUGL, en ákveðið teymi þar reyndist henni ómetanlegur styrkur í veikindum. Með framlagi sínu á tónleikunum vill Aþena þakka aðstoðina við að ná bata. Í hópi undirleikara eru Steingrímur Teague, Ásgeir Ásgeirsson, Pálmi Sigurhjartarson og Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti Grafarvogskirkju. Lára mun væntanlega grípa bæði í flygil og hið frábæra orgel

GV Ritstjórn/Auglýsingar Sími 698-2844 Herbert Guðmundsson þenur raddböndin í Grafarvogskirkju 12. nóvember. kirkjunnar. Felix Bergsson verður kynnir á tónleikunum. Að vanda mun Lionsklúbburinn Fold vera með veitingasölu til styrktar sínum líknarsjóði. Fold hefur m.a. styrkt Konukot, Bergið og Einstök börn. Fyrir hönd félaga í Lionsklúbbnum Fjörgyn Þór Steinarsson Páll Óskar verður á sínum stað 12. nóvember.

Mugison hinn eini sanni skemmtir gestum á tónleikunum í Grafarvogskirkju 12. nóvember.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/13/2026 4:22 PM Page 14

14

GV

Fréttir

Hin snyrtilegsta eign og mjög vel við haldið - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11

Eignin er staðsett í verslunar- og þjónustugötu, stutt frá nýju innkeyrslunni í bæinn á Akranesi.

VISSIR ÞÚ?

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST.

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir í einkasölu húseignina Smiðjuvellir 17 sem er stálgrindahús klætt með yleiningum. Heildarstærð hússins samkvæmt nýjum teikningum og eignaskiptasamningi er 1.625,1 fm. og skiptist á sjö fastanúmer. Í húsinu starfa í dag sjö fyrirtæki, eigandi 2297079 rekur eigið fyrirtæki í sínum eignarhluta en leigusamningar eru við önnur fyrirtæki í húsinu. Eignin er öll hin snyrtilegasta og er vel viðhaldið. Eignarhluti F2297078 er skipt upp í 4 eignir, og verða eignir 0101 F2297078, 0102 F2544646, 0103 F2544647 og 0201 F2544648 allar í matshluta 01

Sameiginlegur inngangur er í húsið frá bílastæði. Á neðri hæð er bílasala, golfhermir og atvinnuhúsnæði fyrir smá iðnað eða verkstæði, á efrihæð tengt aðstöðunni fyrir golfhermirinn er pílukasts aðstaða og salur þar sem nú er æfingaaðstaða brasilískt jiu jitsu og jóga. Gólfefni eru flísar, parket og máluð gólf. Vandaður frágangur er á öllu húsinu. Fastanúmer 229-7079 Þar var starfrækt trésmiðaverkstæði og skiptist eignin í afgreiðslu, vinnusal, kaffistofu og snyrtingu auk geymslulofts sem er yfir hluta húsnæðisins. Vandaður frágangur er á öllum innréttingum.

Fastanúmer 229-7080 er skipt upp í 2 eignir, og verða eignir 0105 F2297080 og 0106 F2544650. Í húsinu starfa fjögur fyrirtæki , rafmagnsverkstæði, snyrtistofa og skrifstofa á annarri hæð og eru leigusamningar við þau öll, einnig er í húsinu starfrækt bílaþvottastöð í sal sem er um 80 fm og í sal sem er 112 fm. Bílaþvottastöðin er með skrifstofuaðstöðu í 50 fermetra millilofti yfir 112 fm salnum. Vandaður frágangur er á öllum innréttingum, gólf eru með flísum, harðparketi eða máluð.

Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Fasteignamiðlun Grafarvogs

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

GV

Smiðjuvellir 17 er mjög snyrtileg eign.

Ritstjórn og auglýsingar 698-2844

Sigrún Stella EinarsÁrni Þorsteinsson Ólafur Kristjánsdóttir Löggiltur fastrekstrar-hagfræðingur. son löggiltur H^\g c HiZaaV eigna-, fyrirtækja- og M.Sc. löggiltur fasteigna- fasteigna- og skipaskipasali s. 8240610:^cVghY ii^g og skipasali og löggiltur sali s. 786-1414 A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459

He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

SUÐURLEIÐ - BYGGINGALÓÐ 11.085 fm byggingalóð við Suðurleið í Tjarnarbyggð rétt við Selfoss. Lóðin er gróin og á henni er tjörn. Lóðin er fyrir heilsárshús og lögheimili.

H b^ *,* -*-*

Ó K E Y P I S S Ö L U V E R Ð M AT

SMÁRARIMI - EINBÝLI OG BÍLSKÚR Virkilega fallegt og vel skipulagt 188,2 fm einbýlishús á einni hæð með bílskúr. Fallegar innréttingar og gólfefni. 130 fm afgirtur sólpallur. Bílaplan er steypt og með hitalögn.

HER-

BURKNAVELLIR - 3ja HERB. - STÓR SÓLPALLUR

FORNIBÆR - 4HA JÖRÐ MEÐ HEILSÁRSHÚSI OG SKEMMU

Björt og falleg 87,6 fm 3. herbergja íbúð með stórum suður svölum á efstu hæð. Parket og flísar á gólfum og fallegar innréttingar. Útsýni.

90 fermetra 3. herbergja íbúð á fyrstu hæð með stórum sólpalli til suðurs og versturs. Fallegar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar. Geymsla og þvottahús innan íbúðar.

Jörðin er rétt fyrir utan Selfoss og liggur að sjó. Gott 78 fm heilsárshús og 160 fm skemma eru á jörðinni. Nánari upplýsingar veitir Anna F. Gunnarsdóttir í síma 892-8778 og á anna @fmg.is

FANNBORG BERGJA

-

3ja

]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`

lll#[b\#^h


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2026 2:00 PM Page 15

15

GV

Fréttir

Blóðsykurmælingar - í Húsgagnahöllinni 21. nóvember Blóðsykurmælingar í boði Lionsklúbbanna Fold og Fjörgyn verða í boði laugardaginn 21. nóvember á Bíldshöfða 20 (Húsgagnahöllin) milli 11:00 og 16:00. Sykursýkisvarnir er eitt af höfuðverkefnum Lions um allan heim og eru ýmsir viðburðir því tengdu á dagskrá hjá Lionsklúbbum svo sem fræðsla og mælingar blóðsykurs. Lionsklúbburinn Fjörgyn hóf að bjóða upp á blóðsykurmælingar árið 2012 og höfum við gert það árlega eftir það að undanskildum Covid árunum og höfum við fengið aðstöðu í verslunarkjarnanum Bíldshöfða 20 en þar hafa Krónan, JYSK og Húsgagnahöllin veitt okkur húsaskjól fyrir þetta verkefni. Frá árinu 2017 höfum við átt í góðu samstarf við Lionsklúbbinn Fold við mælingarnar og höfum við ávallt skilað af okkur flestum mælingum á landsvísu. Þessi þjónusta er að öllu leiti í boði klúbbanna og höfum við átt því

láni að fagna að hafa gott aðgengi að heilbrigðis starfsmanni sem hefur verið okkur til halds og trausts og veitt þeim ráðgjöf sem þess þurfa. Á þessum árum höfum við mælt blóðsykur í 6081 einstaklingum, 3591 konur og 2490 karlar, Þetta er fólk á öllum aldri frá barnsaldri og yfir nírætt og kemur fólk í sumum tilfellur á staðinn þegar það veit að þessi þjónusta okkar er í boði. Þetta er verkefni er mjög góð og öflug kynning fyrir Lions hreyfinguna og veitir það okkur félögunum mikla ánægju að fá að taka þátt í þessu verkefni. Í ár bjóða Lionsklúbbarnir Fjörgyn og Fold upp á blóðsykurmælingar á Bíldshöfða 20 laugardaginn 21. nóvember n.k. og hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur. Fyrir hönd félaga í Fjörgyn og Fold Guðmundur Helgi Gunnarsson

Félagar í Lionsklúbbunum Fjörgyn og Fold bjóða upp á blóðsykurmælingar í Húsgagnahöllinni þann 21. nóvember nk.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Heilbrigðar tennur hjá hundum og köttum Góð tannhirða er mikilvæg fyrir vellíðan hunda og katta. Með reglulegri umhirðu og réttum vörum má draga úr uppsöfnun tannskánar og tannsteins. Hjá Dýrabæ finnur þú fjölbreyttar lausnir sem auðvelt er að gera að hluta af daglegri rútínu. Tanngel og vatnsbætiefni Veldu tannkrem eða tanngel sem er sérstaklega ætlað dýrum. Gott er að leita að VOHC-viðurkenningu frá Veterinary Oral Health Council. Hún staðfestir að rannsóknargögn sýni virkni gegn uppsöfnun tannskánar og/eða tannsteins, eftir því sem kemur fram á vörunni. Fyrir dýr sem taka illa í tanngel geta vatnsbætiefni frá TropiClean verið þægileg viðbót við tannhirðuna. Tannhirða í matarskálinni Fóður getur líka verið hluti af tannhirðunni. Canagan Dental fyrir hunda og ketti inniheldur ProDen PlaqueOff® og er ætlað að styðja við daglega tannheilsu. Canagan Dental fyrir hunda

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

hefur hlotið VOHC-viðurkenningu fyrir virkni gegn tannskán og tannsteini. Veldu fóður sem hentar aldri og þörfum dýrsins. Nagbein og tannhirðunammi Fyrir hunda sem elska að naga eru fjölbreyttar vörur í boði, meðal annars frá Dr. Clauder’s, Yora og Antos Cerea. Veldu rétta stærð fyrir hundinn og skoðaðu innihaldslýsinguna sérstaklega ef hann er viðkvæmur eða með fæðuofnæmi. Hafðu alltaf eftirlit með hundinum þegar hann nagar. Ferskt kattagras Kattagras er skemmtileg viðbót fyrir kisur sem hafa gaman af að narta í gróður, en kemur ekki í stað tannhirðu. Ferskt, tilbúið kattagras fæst í verslunum Dýrabæjar á höfuðborgarsvæðinu. Sé tannsteinn þegar til staðar er rétt að láta dýralækni meta þörf á tannhreinsun. Komdu við hjá Dýrabæ, við hjálpum þér að finna tannhirðuvörur sem henta þínu dýri.

Uppl. í síma 698-2844

GV Ritstjórn og auglýsingar

Sími 698-2844


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 10/10/2026 2:01 PM Page 16

Velko omin á nýja omin nýja endurrvinnslustöð Nú höfum við opnað nnýja og heldur betur glæsilega endurvinnslustöð við La ambhagaveg 14. Við hlökkum til að sjá vana flokkara, nýja a flokkara og allt þar á milli. Takk fyrir að flokka a! g

or ut p or

Ba uh a

Lambhag gavegur

us

K


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsblaðið by Skrautás Ehf. - Issuu