GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/15/2026 11:40 PM Page 1
Grafarholtsblaðið 8. tbl. 15. árg. 2026 ágúst - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
Magnað að sjá hvernig dalalæðan smokraðist sér inn eftir Úlfarsárdalnum á dögunum.
Dalalæðan í Úlfarsárdalnum
Dalalæða er þoka sem að myndast oft á kyrrum kvöldum og nóttum eftir sólríkan dag þegar að raki við yfirborð nær að þéttast. Oft má sjá Dalalæðu leggja upp úr skurðum eða mýrum. Dalalæða er yfirleitt um mittisdjúp og flæðir hún fallega yfir umhverfi sitt. Árið 2008 var haldin kosning um fegursta orðið í íslensku máli. Orðið Dalalæða vann orðið kærleikur með naumindum. GHB Mynd Sigga Hanna
Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki
Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844
,,Mahoný’’
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/19/2026 11:37 AM Page 2
2
Grafarholtsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.
Kjósum eftir níu daga Íslendingar ganga til kosninga eftir níu daga varðandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Margir eru búnir að fá sig fullsadda af karpinu á milli já og nei hreyfinganna og hafa miklar yfirlýsingar verið gefnar út og innistæðan oft lítil. Mikla athygli hefur framganga Kristrúnar Frostadóttur vakið. Fyrir síðustu kosningar var hún með miklar yfirlýsingar varðandi Ísland og ESB og sagði þá meðal annars að Evrópuaðild væri ekki á dagskrá. Kristrún vakti mikla athygli þegar hún kom fram á svið stjórnmálanna. Framganga hennar í tengslum við Evrópumálin og atkvæðagreiðsluna hefur gert það að verkum að ekki er hægt að treysta hennar orðum. Hún hefur eins og margir aðrir réðherrar í núverandi stjórn gengið á bak orða sinna og það er með því versta sem komið getur fyrir stjórnmálamenn. Í vikunni hækkaði peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands stýrivextina enn einu sinni. Í dag eru vextirnir 8% og verðbólgan 5,3%. Ásgeir Jónsson og hans fólk í Seðlabankanum hefur algjörlega brugðist hlutverki sínu við stjórn efnahagsmála og með réttu ætti seðlabankastjóri að segja af sér. Hann er ekki rétti maðurinn til að koma málum aftur í lag á Íslandi. Hann hefur fengið mörg tækifæri til þess en með hverri ákvarðanatöku seðlabankans versnar ástandið. Valkyrjurnar þrjár hafa ekki staðið undir nafni. Inga Sæland má þó eiga það að hún hefur barist fyrir því að fá einkunnagjöf skólanna í tölustafi í stað bókstafa. Það var löngu kominn tími til að taka upp tölustafina á ný. Það hefur vakið mikla furðu að kennarastéttin með formann sambands þeirra í fararbroddi hefur gert lítið úr þessari ákvörðun og mótmælt breytingunum harðlega. Alveg er það kostuleg framkoma en nemendur og foreldrar þeirra fagna Stefán Kristjánsson eðlilega breytingunum.
gv@skrautas.is
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Nýr taktur í borginni
- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það hefur verið nóg að gera í Ráðhúsinu í sumar. Nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar í júní og strax var hafist handa við að breyta vinnubrögðum og forgangsröðun borgarinnar. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með Hildi Björnsdóttur stíga inn í hlutverk borgarstjóra. Hún hefur frá fyrsta degi sýnt skýra forystu, ákveðni og kjark til að takast á við verkefni sem hafa setið á hakanum. Það skiptir máli að borgarstjóri hafi skýra sýn á hvert eigi að stefna en sé jafnframt tilbúinn að hlusta og bregðast við þegar þess er þörf. Fyrir mér snýst þetta þó ekki fyrst og fremst um það sem gerist inni í Ráðhúsinu. Mælikvarðinn á árangur borgarstjórnar á að vera það sem borgarbúar finna fyrir úti í hverfunum. Þar er grunnþjónustan í fyrsta sæti. Börnin okkar eiga að fá góða þjónustu í leik- og grunnskólum, götur og gangstéttir eiga að vera í lagi, íþróttaog tómstundastarf þarf að hafa góða aðstöðu og borgarbúar eiga að geta treyst því að brugðist sé við þegar eitthvað þarfnast úrbóta. Við fengum ágætt dæmi um þetta strax í upphafi kjörtímabilsins. Í júní slasaðist 93 ára kona illa á illa farinni gangstétt við Langarima í Grafarvogi. Íbúar höfðu áður bent á ástand stéttarinnar án þess að úrbætur hefðu verið gerðar. Hildur brást hratt við og lét flýta framkvæmdum. Skömmu síðar hafði langur kafli gangstéttarinnar verið
Eins höfum við í sumar byrjað að taka til í rekstri borgarinnar og einfalda stjórnsýsluna. Það er nauðsynlegt. Reykjavíkurborg veltir gríðarlegum fjármunum og okkur ber skylda til að fara vel með hverja krónu. Markmiðið er ekki að spara sparnaðarins vegna heldur að tryggja að stærsti hluti fjármuna borgarinnar fari þangað sem þeir eiga heima: í þjónustu við borgarbúa. Við höfum jafnframt sett skýrari áherslu þegar kemur að grunnskólunum. Frá þessu hausti verður símafrí í grunnskólum borgarinnar. Það er einföld en mikilvæg breyting sem ég tel að geti haft jákvæð áhrif á skólastarfið, samskipti barnanna og líðan þeirra. Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. endurnýjaður. Þetta kann að virðast lítið mál í stóra samhenginu en fyrir mér segir það heilmikið. Borgarbúar eiga ekki að þurfa að berjast árum saman við kerfið til að fá sjálfsagða hluti lagfærða. Borgin á að hlusta, bregðast við og leysa málin. Þannig vinnubrögð viljum við sjá í öllum hverfum borgarinnar. Það eru ekki alltaf málin sem skapa stærstu fyrirsagnirnar, en þetta eru verkefnin sem fólk finnur fyrir á hverjum einasta degi.
VISSIR ÞÚ?
En þetta er aðeins byrjunin. Reykjavík er fyrst og fremst borg hverfanna. Þau eru ólík og hafa ólíkar þarfir, en alls staðar á fólk að geta treyst því að borgin sinni grunnþjónustunni vel og hlusti á íbúana þegar ákvarðanir eru teknar um nærumhverfi þeirra. Ég er ákaflega stoltur af fyrstu mánuðum nýs meirihluta enda snýst stefnan nú um fólkið sem býr í borginni, hverfin og grunnþjónustuna. Það er sú Reykjavík sem við ætlum að byggja og rækta. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 1:27 PM Page 3
a l a s t ú u r ö v l A
20-50% afsláttur
nún
Verð áður: 24.759 Ve
8 0 18.570
% 25ttu r afslá
Samanfellanlegur stigi 2,9m, 10 þrep. Samanbrotinn aðeins 77cm0,8mm
Verð áð
Verð áður: 42.995
% 21.498 50ttu 21 498 ur afslá
% 5.1 25ttu r afslá
LuT uT To ool Borðsög 1.800W W,, 255mm blað
9
0 % 1.980 34ttu r
Vinnubo Ber 100kg. 640x605x820mm
á
garð ðinum!
Bílaþvottakústur anlegt 1,15-1,8m stækka skaft. Hraðtengi
Verð áður: 14.999 9
% 11.250 25ttu 0 r
% 7.9 20ttu 999 r afslá
Colorex SKÖLD 9L. Endingargóð þakmálning
Birt með
afslá
Verð áð Ve ður: 9.998
Verð áður: 4.849
Colorex x BETOPAINT Útimáln ning 9L Fyrir krefjand di aðstæður
2 40% 2.910 afsláttur
75
% 9.923 30ttu t r afslá
LED Vinnuljós L 6 600Lm USB hleðsla
Skrúfstykki 15cm 14kg.
Verð áð Ve ður: 9.115
% 5.4 40ttu 469 r
Verð áður: 11.9
% 9.596 20ttu ur afslá
Colorex PROJE Málarahvítt 10L Þekur betur
afslá
Verð áður: 9.895
% 7.916 20ttu r slá afs
Verð áður: 17.895 Ve
Tro Tr oT Te T ec hitablásari með snúning 2kW TFC19E
% 13.4 25ttu 422 13.422 r afslá
Verð áður: 15.995
11 197
Verð á áður: 45.990
% 34 25ttu 4.493 r afslá
Tro Tr oT Te T ec B Bónvél PPOS 10-120W W mótor 245mm bónpúði. 3.600 rpm Verð áður: 78.579
% 62.864 20ttu 62 864 ur
Bláar Hjólbörrur m/ósprengjan nlegu dekki max 156 lítrarr
afslá
Verð áður: 29.995
Mr.Clever WC sett. Innbyggður kassi, skál án skolbrúnar & hæglokandi seta.
% 22.497 25ttu r
STM 16 60 WPS háþrýsstidæla 2500W 160bör. Stór pallabur og margt fleira fylgir y .
afslá
Gíraffi Slípivél 720W. Stiglaus snúningur 0-1050 RPM, M1 14 4 tengi
Verð áður: 19 Ve
% 11.9 40ttu r afslá
Verð áður: 19.995 Ve
% 15.996 20ttu ur
Lu uT To T ool Mini hj 600W Sagar s
afslá
Verð áður: 99.995
% 74.997 25ttu r afslá
Hrærivél ffy yrir múrefni og málningu. 1600W Snúningshraði 0-660 rpm.
fi
mótor. Verð áður: 27.999
% 19.880 29ttu 0 r afslá
Verð áður: 64.995
% 38.997 40ttu r afslá
Kaliber Silverr,, 3 brennarar gasgrill m/hliðarhellu. 11,5kW. Ryðfríar hurðir og frontur
Kletthálsi 7 110 Reykjavík Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-16 Sími: 412 2500
Verð áður: 13.090
% 25ttu r afslá
Selhella 6 221 Hafnarfjörðu ur Virkir dagar opið 08-18 0 Laugardagar opið ð 10-16 Sími: 412 2500
9.818
Ceravid handlaug ar45x36 cm blönduna tæki & vatnslás fylgiir
Verð áður: 42 Ve 2.390
% 31.793 25ttu r afslá
Sturtuhorn rú únað 80x80 6mm hert gler og sturtubotn
BoLoco einfaldur gri. stálvaskur. Borð til hæg Stærð 66x43x18,5cm 5cm Stál 0,8mm
Fuglavík 18 230 Reykjanesbæ ær Virkir dagar opið 08-18 0 Laugardagar opið 10-14 Sími: 421 1090
Gott verð rð ffy yrir allla, alltaf!
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/17/2026 7:18 PM Page 4
4
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Ballettinn er góður grunnur fyrir framtíðina - vetrarstarfið hefst 10. september Ballettskóli Eddu Scheving er nú á þremur stöðum. Í Grafarvogi, Kópavogi og Skipholti. Ballettskóli Eddu Scheving var stofnaður árið 1961 og í rúm 20 ár hefur skólinn haft útibú fyrir forskólaaldur í Grafarvogi en það er fyrir aldurinn 2-6 ára. Kennsla fer fram í íþróttahúsi Hamrakóla á föstudögum en alla aðra daga vikunnar fer kennsla fram í húsnæði skólans í Skipholti 50c. Skólinn er einnig með starfsemi í Kópavogi. Veturinn skiptist í tvær 12 vikna annir og endar haustönnin með foreldrasýningu í kennslusal en á vorin er skólinn með glæsilegar nemendasýningar í Borgarleikhúsinu. Skólinn sérhæfir sig í kennslu í klassískum ballett en býður einnig upp
á jazzballett og söngleikjadans fyrir forskóla og jazz/modern fyrir eldri nemendur. Hörku þjálfum fyrir ballerínur sem geta ekki hætt að dansa á aldrinum 20-30 ára. Pilates tímar verða í boði. Ballettfitness fyrir fullorðna og svo eru Silfursvanir sem er prógramm fyrir 65 ára og eldri. Vetrarstarfið hefst 10. September, skoða má allar upplýsingar á síðu skólans https://bsch.is/ Brynja Scheving er skólastjóri Ballettskólans. Hún hefur kennt öll árin sem skólinn hefur verið í Grafarvogi og ásamt henni er alltaf einn til tveir aðstoðarkennarar. ,,Ballettinn er góður grunnur fyrir svo margt og hvort sem börnin halda áfram að æfa ballett síðar eða ekki þá er
víst að grunnurinn sem þau fá er mjög góður. Í forskólanum læra börnin grunnstöður og æfingar í klassískum ballett sem hæfa þeirra aldri og þroska en skipt er í hópa eftir aldri. Þau gera æfingar sem liðka og styrkja, læra að standa í röð og fylgja settum reglum. Litlum sporum og æfingum er svo fléttað inn í litla látbragðsdansa og leiki eins og blóm, fiðrildi, mýs og kisur sem dæmi. Þetta er mjög þroskandi og skemmtilegt prógramm, sérhannað fyrir þennan aldur. Svo eftir því sem þau eldast og þroskast tekur meiri alvara við,” segir Brynja. Myndirnar sýna nemendur skólans á glæsilegri nemendasýningu skólans í Borgarleikhúsinu. En á nemendasýningunum sem eru án efa hápunktur vetrarins koma allir nemendur fram frá 3ja ára aldri.
Ballerínur framtíðarinnar.
Nemendur sem koma fram á sýningunum eru frá 3ja ára aldri.
Íslensk Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 1:27 PM Page 5
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 10:25 PM Page 6
6
Grafarholtsblaðið
Fréttir
Skálinn Gufunesi:
Heiðarlegur hádegismatur - ,,Við kappkostum að vinna sem mest af matnum frá grunni” Í Gufunesinu rís nú upp blómleg íbúðabygg í takt við skapandi greinar því kvikmyndaiðnaðurinn íslenski hefur
komið sér upp aðstöðu á heimsmælikvarða á svæðinu Í glæsilegu húsi sem áður hýsti
Skálinn í Gufunesi nýtur mikilla vinsælda í hádeginu en opið frá 11.30 til 13.30 á virkum dögum.
Benedikt Jónsson matreiðslumeistari stýrir eldhúsinu í Skálanum Gufunesi.
skrifstofur Áburðaverksmiðju ríkisins hefur nú verið opnaður glæsilegur veitinga- og veislusalur sem kallast SKÁLINN GUFUNESI Þar eru margreyndir fagmenn búnir að koma sér fyrir og bjóða m.a. upp á hefðbundinn íslenskan heimilismat í hádeginu alla virka daga – frá 11:30 – 13:30. „Við tókum við húsnæðinu í lok síðasta árs og opnuðum dyrnar í mars – ætluðum að prófa og sjá hvort það væri markaður fyrir strangheiðar-legan góðan íslenskan heimilismat“ segir Benedikt Jónsson matreiðslumeistari sem stýrir eldhúsinu í Skálanum en hann var yfirkokkur Orkukveitu Reykjavíkur um áratuga-skeið og er öllum hnútur kunnugur í matreiðslu. „Við erum ekki að flækja hlutina – viljum bara gera góðan íslenskan heimilismat sem við kappkostum að vinna frá grunni svo gæðin skili sér alla leið í maga ánægðra viðskipta-vina. Við bjóðum upp á veglegt hlaðborð; góðar súpur, heimabakað brauð, ferskan
salatbar, kjöt- og fiskrétti á hverjum degi ásamt meðlæti. Við rúllum matseðlinum alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi en þó þannig að á föstudögum er alltaf sami seðillinn - hægeldað nauta ribeye, djúpsteiktur fiskur í orly deigi, viðeigandi meðlæti og îs í eftirrétt. Svo má ekki gleyma kaffinu og sæta bitanum en við bökum nýja köku á hverjum degi til að bjóða upp á með kaffinu – sem verður að vera gott því engin máltíð er fullkomnuð án þess að fá gott kaffi og sætan bita með“ segir Benedikt „Við vissum ekkert hvernig viðtökurnar yrðu og opnuðum í hádeginu – frá 11:30 til 13:30 til að sjá hvernig það myndi ganga. Við höfum ekki auglýst okkur að neinu ráði en það er óhætt að segja að við séum í skýjunum með viðtökurnar – frá því við opnuðum í mars hefur verið stöðug fjölgun gesta – sem bendir vonandi til þess að viðskiptavinirnir séu ánægðir. Síg-andi lukka er best - við erum ekki að auglýsa mikið því besta auglýsingin eru
ánægðir viðskiptavinir og góður almannarómur. Við ætlum að halda okkur við það.“ „Við erum líka með salarleigu og veisluþjónustu – en salurinn í Skálanum hentar vel í ýmsa viðburði og er sveigjanlegur við getum minnkað/stækkað salinn þannig að hann henti litlum og stórum hópum – allt frá 20-200 í sæti eða hátt í 300 fyrir standandi gesti. Svo er veislu-þjónustan okkar klár í flest – allt frá pinnamat í 5 rétta lúxusveislur og allt þar á milli. „Við ákváðum að byrja að bjóða upp á mat í hádeginu en við höfum fengið hvatningu um að opna á kvöldin líka. Við erum að skoða það en við ætlum að taka eitt skref í einu – hvað framtíðin ber í skauti sér er óvíst en við erum að huga að næstu skrefum,“ segir Benedikt að lokum Það verður fróðlegt að sjá hver þróunin verður hjá þeim í Skálanum – hægt er að skoða salinn, matseðla dagsins/vikunnar á www.skalinngufunesi.is og svo á Facebook síðu staðarins.
Frábær árangur afrakstur mikillar vinnu - hjá Dansskóla Birnu Björns Dansskóli Birnu Björns skrifaði nýjan kafla í sögu skólans með stórkostlegum árangri á Dance World Cup, einni stærstu og virtustu alþjóðlegu danskeppni heims fyrir born og ungmenni, keppnin var gríðarlega hörð á öllum sviðum. Nemendur skólans náðu glæsi-legum árangri og fögnuðu meðal annars heimsmeistaratitli auk þess að vinna inn nokkur silfur og brons og hafna í 4. 5. og 6. sæti. Þessi frábæri árangur er afrakstur mikillar vinnu, aga og ástríðu bæði nemenda og danshöfundar. Þetta er stór og mikill sigur fyrir okkur öll. Skólinn leggur mikla áherslu á ,,muscial theathre” og
nemendur hans keppa mikið í ,,song and dance” flokkum en einnig er keppt í ,,comercial - showstopper - jazz” ofl. Dansskólinn setur upp stórar og metnaðarfullar sýningar á hverju ári í Borgarleikhúsinu. Söngleikjadeildin setur upp söngleiki í desember og leiðir sýningarnar í Borgarleikhúsinu. Þess má geta að dansskólinn á 30 ára afmæli um þessar mundir og margt spennandi að gerast í haust. Inntökupróf fyrir næsta heimsmeist-aramót verður strax í haust. Danskennslan er á Bíldshöfða í glæsilegu húsnæði hjá Dansskóla Köru og einnig í Garðabæ, Kópavogi og Vesturbæ Reykjavíkur.
Frábær tilþrif ungra dansara hjá Birnu Björns.
Nemendur Dansskóla Birnu Björns náðu glæsilegum árangri og fögnuðu meðal annars heimsmeistaratitli
Glæsilegir ungir dansarar sem eiga framtíðina fyrir sér.
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/17/2026 11:43 PM Page 7
Grafarholtsblaðið 2. tbl. 11. árg. 2022 febrúar
Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Grafarholtsblaðið er lesið á hverju heimili Mest lesni fjölmiðillinn í hverfinu? Auglýsingar skila árangri í Grafarholtsblaðinu
698-2844 - gv@skrautas.is
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 4:29 PM Page 8
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 4:30 PM Page 9
SA
N A M BÓKAÐU NÚÚNA Á KEILUHOLLLIN.IS
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/17/2026 6:57 PM Page 10
10
Grafarholtsblaðið
Fréttir
Áður en við segjum já - eftir Ernu Bjarnadóttur Þegar við göngum að kjörborðinu 29. ágúst eigum við að horfa fram á veginn. Spurningin er ekki aðeins hvort við viljum hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið heldur líka hvaða Evrópusamband við sjáum fyrir okkur eftir fimm, tíu eða fimmtán ár. Það er það samband sem Ísland myndi hugsanlega ganga inn í. Evrópa stendur nú þegar frammi fyrir stórum efnahagslegum áskorunum. Samkeppnishæfni gagnvart Banda-
ríkjunum og Asíu er vaxandi áhyggjuefni og ESB hefur sjálft sett aukna samkeppnishæfni og einföldun regluverks ofarlega á dagskrá. Um leið blasir við mikil stækkun sambandsins til austurs og á VesturBalkanskaga. Mörg umsóknarríkjanna eru mun tekjulægri en núverandi aðildarríki og stækkunarferlið kallar þegar á fjárframlög ESB til að undirbúa þau fyrir aðild. Stækkunin mun óhjákvæmilega hafa áhrif á forgangsröðun og fjármál sambandsins til
VISSIR ÞÚ?
AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM.
framtíðar. Í Þýskalandi, stærsta hagkerfi Evrópu, hafa áhrifamiklar raddir að undanförnu gagnrýnt vaxandi skrifræði, áhættufælni og hægagang og kallað eftir umbótum til að styrkja samkeppnishæfni. Þetta er hluti af stærri umræðu innan Evrópu um hvort regluverkið sé farið að hamla fjárfestingum, nýsköpun og vexti. Þetta skiptir Ísland máli. Hugverkaiðnaðurinn er orðinn ein mikilvægasta vaxtargrein íslensks þjóðarbús. Verðmætasköpun hans byggist á hugviti, hraða, frumkvæði og getu fyrirtækja til að sækja tækifæri á alþjóðlega markaði. Innan greinarinnar hafa jafnframt komið fram áhyggjur af því að sívaxandi reglubyrði geti dregið úr nýsköpunarkrafti og samkeppnishæfni. Íslensk fyrirtæki eru almennt lítil á evrópskan mælikvarða og í besta falli meðalstór. Kostnaður við flókið regluverk getur því vegið hlutfallslega þungt á þau. Fyrir Ísland skiptir miklu að skapa umhverfi þar sem ný fyrirtæki
geta orðið til, vaxið hratt og sótt tækifæri um allan heim. Evran kemur hvorki með aðildarsamningi né sjálfri aðildinni að ESB. Upptaka hennar er sérstakt ferli sem tekur tíma og krefst þess að ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Þegar evran er nefnd sem ávinningur hugsanlegrar aðildar er því verið að tala um framtíð sem gæti verið talsvert langt undan. Enginn veit hvernig efnahagslegt eða pólitískt umhverfi Evrópu verður þá. Ný reglugerð ESB um umbúðir og umbúðaúrgang er lýsandi dæmi um þá þróun sem veldur mér áhyggjum. Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki geta nýjar kröfur um skráningu, ábyrgð og umsýslu vegna sölu yfir landamæri haft verulegan kostnað í för með sér og jafnvel orðið til þess að þau sjái sér ekki lengur hag í að selja vörur inn á einstaka markaði innan ESB. Ísland á áfram að rækta náið samstarf við Evrópu en jafnframt styrkja tengsl sín við önnur lönd og
Erna Bjarnadóttir. sækja viðskipti og tækifæri um allan heim. Þegar við tökum ákvörðun 29. ágúst eigum við því að horfa til framtíðar. Spurningin er ekki aðeins hvort við viljum hefja aðildarviðræður heldur líka: Hvaða Evrópusamband erum við hugsanlega að ganga inn í? Ég tel hagsmunum Íslands betur borgið með því að varðveita eigið svigrúm og mun því segja nei 29. ágúst. Erna Bjarnadóttir Hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar
KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
Bókaðu tíma í sjónmælingu Þú getur bókað tíma í sjónmælingu með stuttum fyrirvara í verslunum Eyesland í Kringlunni, Glæsibæ, Spönginni, Granda og á Keflavíkurflugvelli. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.
Spönginni Kringlan Grandi Glæsibær Keflavíkurflugvöllur
eyesland.is
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 10:40 PM Page 11
11
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Þjónusta Þroskaþjálfans er afar víðtæk og tekur á þeim þáttum er einstaklingurinn þarf á að halda hverju sinni.
Þroskaþjálfinn flytur í Reyrengi 30:
Aukinn stuðningur fyrir einstaklinga með sérþarfir Þroskaþjálfinn ehf var stofnaður árið 2020 og var fyrst til húsa í Gylfaflöt 5 en hefur fært starfsemi sína að Reyengi 30. 112 í Grafarvogi. Eigendur eru Friðþór Vestmann Ingason og Ragnheiður Jónsdóttir Þroskaþjálfar. Áhersla er lögð á að hjálpa foreldrum að greina þarfir barns, efla og nýta sín eigin bjargráð með því að styðja þau að sjálfstæði og að lokum að fræða foreldra um þau þjónustuúrræði sem gætu gagnast þeim. Þroskaþjálfinn ehf. er óháð þjónustu og einstaklingsmiðuð stuðningur, sem vinnur að því að styrkja og efla einstakar fjölskyldur. Starfsmenn Þroskaþjálfans ehf. eru liðsmenn fjölskyldna og veita aðgengilega lausnamiðaða aðstoð eftir bestu getu og kunnáttu. Einnig er í boði almenn ráðgjöf til foreldra og hægt að panta sér tíma fyrir slíka fundi. ,,Megintilgangurinn með þjónustunni er að börn og fjölskyldur þeirra geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu, stuðning við nám barna og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim,” segja þau Ragnheiður og Friðþór. Þjónusta Þroskaþjálfans ehf. er einstaklingsmiðuð og hefur hver einstaklingur sinn þroskaþjálfa þegar hann er komin í þjónustu okkar. ,,Þjónusta Þroskaþjálfans er afar víðtæk og tekur á þeim þáttum er einstaklingurinn þarf á að halda hverju sinni. Allt er breytilegt segjum við og allt er hægt með góðri þjálfun og einstaklingsmiðari nálgun. Starfsemi okkar er hugsuð sem aukinn stuðningur fyrir einstaklinga með sérþarfir og einnig fyrir þá sem þurfa stuðning í félagsfærni og/eða öðrum þáttum er tengist lífi og námi einstaklings.”
Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
Friðþór Westmann Ingason og Ragnheiður Jónsdóttir.
Starfsmenn Þroskaþjálfans ehf. eru liðsmenn fjölskyldna og veita aðgengilega lausnamiðaða aðstoð eftir bestu getu og kunnáttu.
Spönginni
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 1:23 PM Page 12
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
2025
Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.
Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!
Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800
eignaumsjon.is umsjon is
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 4:32 PM Page 13
Nei takk VIÐ AÐILDARVIÐRÆÐUM Nokkrir punktar Aukin óvissa
Kostnaður telst í milljörðum
Aðildarferli væri skref í átt að gjörbreyttu umhverfi undirstöðuatvinnuvega landsins. Það gæti dregið úr fjárfestingu í landbúnaði, matvælaframleiðslu, fiskvinnslu og fleiri greinum.
Ríkisstjórnin áætlar að beinn kostnaður við aðildarviðræður muni nema tveimur milljörðum króna sem er líklega vanmat. Kostnaður sveitarfélaga, samtaka og fyrirtækja sem þurfa að leggja fram vinnu í aðildarferlinu hefur ekki verið metinn.
Biðstaða í utanríkismálum
Þjóðin klofin næstu ár
Gerð fríverslunarsamninga er á forræði ESB og taki Ísland stefnuna inn fyrir tollmúra ESB er ólíklegt að erlend ríki vilji ræða fríverslun við Ísland.
Nei takk í ágúst leggur málið til hliðar, en já þýðir að tekist verður á um framtíð Íslands af vaxandi þunga næstu misseri. Aðildarviðræður við ESB ættu ekki að vera á dagskrá nema aukinn meirihluti landsmanna hafi áhuga á aðild og meirihluti sé fyrir aðild á Alþingi.
Röng forgangsröð Aðildarviðræður kalla á mikla vinnu hjá ráðuneytum, ríkisstofnunum, sveitarfélögum, aðilum vinnumarkaðar og hagsmunasamtökum. Þetta mun óhjákvæmilega bitna á brýnni verkefnum.
Óljós ávinningur Ísland hefur nú þegar aðgang að innri markaði ESB og yrði fyrsta landið í áratugi sem sækist eftir aðild án þess að hafa fjárhagslegan hag af því. Aðildargjöld myndu nema tugum milljarða árlega og ESB áformar verulegar hækkanir á þeim.
Meirihluti vill ekki ESB
Óljóst samningsumboð Í aðildarviðræðunum sem hófust 2009 samþykkti Alþingi skýr markmið og línur sem ríkisstjórnin mátti ekki víkja frá í aðildarviðræðum. Ríkisstjórninni var einnig skylt að upplýsa Alþingi reglulega um gang viðræðna. Segi þjóðin já í ágúst er óljóst hvort þessir fyrirvarar halda.
Samningur breytir ekki ESB Aðildarsamningur breytir því ekki að stór og vaxandi hluti ríkisvalds flyst til ESB, áhrif Íslands í ESB yrðu hverfandi lítil, tollar ESB koma á 70% allra vörunúmera í stað aðeins 10% í dag. Ísland mun greiða með sér tugi milljarða árlega til ESB. Aðildarsamningur breytir því ekki að ESB hefur dregist aftur úr öðrum hagkerfum og að efnahagshorfur þar eru slæmar. Auk þess er ESB í stöðugri þróun í átt að aukinni miðstýringu og hervæðingu.
Meirihluti landsmanna vill ekki ganga í ESB. Minnihluti þingmanna styður aðild og einn af ríkisstjórnarflokkunum er andvígur aðild. Engin sátt er um að hefja aðildarferlið.
Aðild hentar ekki Íslandi Nokkrir punktar Ólíkar aðstæður
Efnahagsleg stöðnun
Hagkerfi Íslands byggir á auðlindum og landið er fjarri meginlandi Evrópu. Aðstæður okkarr,, tækifæri og áskoranir krefjast öðruvísi löggjafar og skjótari viðbragða en hægt er að búast við af embættismönnum í Brussel. Við þurfum að stýra okkar eigin málum. Regluverk og stjórnsýsla ESB er hvort tveggja of dýrt og viðamikið fyrir Ísland.
Hagvöxtur í ESB hefur verið helmingi hægari en í Bandaríkjunum og á Íslandi. Ástæðurnar eru margar, svo sem íþyngjandi regluverk, hátt orkuverð, skortur á nýsköpun og fyrirtækjaflótti.
Tollar hækka To ESB er tollabandalag sem leggur tolla á um 70% af öllum innfluttum vörutegundum en Ísland á aðeins um 10% vörutegunda. Við aðild myndi tollur á kínverska rafbíla hækka úr 0% í allt að 45%. To Tollur á föt úr 0% í 12% á skó í allt að 17%. Rafhjól úr 0% í 10-70%, o.fl. mætti nefna. Kolefnistollar ESB falla á áburð, sement o.fl. Verðlag innan ESB verður því almennt hærra en utan þess. Tekjur af tollum renna að 3/4 til ESB. Te
Ólíkir hagsmunir
Áhrifaleysi Íslands er áhyggjuefni því hagsmunir okkar og ESB eru ólíkir. Ísland ræður yfir auðugum fiskimiðum, stórri efnahagslögsögu og hreinni orku. Allt er þetta af skornum skammti í ESB. Þjóðartekjur Íslands á íbúa eru tvöfalt hærri en meðaltalið í ESB. Reikna verður með að ESB taki hag heildarinnar fram yfir hagsmuni Íslands. Evran er vandamál
Hervæðing Bæði ummæli leiðtoga og viðhorfskannanir sýna vilja til að stofna sameiginlegan her í ESB. Stór og dýr átaksverkefni til að efla vígbúnað aðildarríkja og samstarf þeirra á þessu sviði eru í gangi.
Hagkerfi Íslands er kraftmikið og sveiflukennt. Með krónu hefur hagkerfið jafnað sig hraðar eftir áföll. Með evru leiða áföll frekar til atvinnuleysis, gjaldþrota og búferlaflutninga í stað verðbólgu. Peningastefna sem tekur ekkert mið af aðstæðum okkar getur valdið miklu tjóni.
Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum heimssyn@heimssyn.is Kennitala: 680602-5810 Banki: 101 -26-5810 Frjáls framlög vel þegin
Tugmilljarða framlög til ESB Árlega myndi Ísland greiða ESB 0,7% af þjóðarframleiðslu, 0,3% af VSK-tekjum og 75% af innheimtum tollum. Samtals um 50 milljarða króna árlega. Við fengjum aðeins brot af því til baka því við stöndum mun betur en hin aðildarríkin. ESB hefur kynnt áform um að hækka þessi gjöld um meira en helming. Við þetta bætast framlög til átaksverkefna ESB, oft tugir milljarða árlega.
Útganga bæði erfið og dýr Útganga Breta úr ESB var bæði erfið og dýr sem staðfestir að innganga í ESB er verður ekki auðveldlega aftur tekin. Auk þess eru engin ákvæði í reglum ESB um hvernig tryggja eigi örugga útgöngu fyrir þau ríki sem hafa tekið upp evru.
Áhrifaleysi Ísland yrði fámennasta ríki ESB og hefði minnst áhrif. Við ættum eitt sæti af 28 í leiðtogaráðinu, eitt af 28 sætum í ráðherraráðinu en aðeins 1/1000 af atkvæðavæginu. Ísland fengi sex þingmenn af 720 og mætti tilnefna fulltrúa í framkvæmdastjórn ESB en hann mætti ekki ganga erind da Íslands.
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 4:36 PM Page 14
14
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Langa með stökku kryddjurta-, pistasíu- og parmesan toppingi - frábær uppskrift sem vert er að prófa Þessi fiskrettur er einstaklega ferskur, góður og sumarlegur.
Topping
Í þessari uppskrift fær fiskurinn Langa ferskt og stökkt topping úr kryddjurtum, pistasíum, kapers, sítrónu og parmesan sem lyftir réttinum á næsta stig. Ég notaði ferska löngu frá Fisk og sælkerabúðinni Öldunni í Spönginni sem er alltaf frábær grunnur fyrir góðan fiskrétt. Berið fram með kartöflum og fersku salati fyrir einfaldan en glæsilegan kvöldverð. Langa með stökku kryddjurta-, pistasíu- og parmesan toppingi
• 40 gr. pistasíur, grófsaxaðar. • 2–3 hvítlauksrif, pressuð eða smátt söxuð. • 2 msk. fersk steinselja, söxuð. • 2 msk. ferskt dill, saxað. • 2 msk. fersk basilíka, söxuð. • 1 msk fersk mynta, söxuð. • 2 msk. kapers, grófsaxaðir. • Rifinn börkur af 1 sítrónu. • Safi úr ½ sítrónu. • 50 gr fínt rifinn parmesan. • 2–3 msk ólífuolía. • Smá salt og pipar.
Hráefni • 600–800 gr. lönguflök. • Salt og nýmalaður svartur pipar. • 1 msk. ólífuolía.
Aðferð 1. Hitið ofninn í 180°C. 2. Kryddið lönguna með salti og Í þessari uppskrift fær fiskurinn Langa ferskt og stökkt topping úr kryddjurtum, pistasíum, kapers, sítrónu og parmesan sem lyftir réttinum á næsta stig.
pipar og leggið í eldfast mót. Dreypið
smá ólífuolíu yfir. 3. Blandið öllum hráefnunum fyrir toppingið saman í skál þar til það verður safaríkt og vel blandað. 4. Dreifið toppinginu jafnt yfir fiskinn. 5. Bakið í 15–20 mínútur, eða þar til fiskurinn flagnar auðveldlega.
6. Kreistið smá ferskan sítrónusafa yfir rétt áður en borið er fram. Berið fram með Bökuðum kartöflum eða kartöflumús - Stóru fersku salati eða ofnbökuðu grænmeti
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). - Auka sítrónubátum Þessi samsetning af kryddjurtum, kapers, pistasíum, sítrónu og parmesan gerir fiskinn bæði ferskan, stökkari og fullan af bragði. Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instragram.com/janast
,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,,
!+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('
Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR
Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar
Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is '"+*%'$ " "',%$! ! '"(*
! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/15/2026 5:21 PM Page 15
15
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Rekstraruppgjör tryggir rétta kostnaðarskiptingu í húsfélögum Ein af grunnforsendum góðs reksturs húsfélaga er að hver eigandi greiði sinn réttmæta hlut af sameiginlegum kostnaði samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Til að tryggja það kveða fjöleignarhúsalög á um að árlega skuli gera rekstraruppgjör hússjóðs og jafna frávik milli áætlaðs kostnaðar og raunútgjalda. „Rekstraruppgjörið er mikilvægt til að tryggja að kostnaður skiptist með réttum hætti milli eigenda og að enginn greiði meira eða minna en honum ber samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu,“ segir Ágústa Katrín Auðunsdóttir, forstöðumaður fjármálasviðs Eignaumsjónar. Húsgjöld byggja á rekstrar- og framkvæmdaáætlun sem samþykkt er á aðalfundi húsfélags. Þar sem um áætlun er að ræða verða nær alltaf
einhver frávik milli innheimtra húsgjalda og raunverulegs kostnaðar. Samkvæmt 49. gr. fjöleignarhúsalaga skal þessi munur jafnaður við árlegt heildaruppgjör reikninga húsfélagsins. Passað upp á eigið fé hverrar eignar Eignaumsjón sérhæfir sig í rekstrarog kostnaðaruppgjöri húsfélaga. Með uppgjörinu kemur fram hvort eigandi hafi greitt meira eða minna en honum bar á árinu og hvort inneign eða skuld hafi myndast gagnvart hússjóðnum. „Með uppgjörinu sjá eigendur skýrt hver staða þeirra er gagnvart húsfélaginu. Það stuðlar að gagnsæi og eykur traust á rekstri húsfélagsins,“ segir Ágústa. Jafnframt er haldið utan um eigið fé hverrar eignar í bókhaldi húsfélagsins. Þannig er tryggt að hver íbúð eða
atvinnueining greiði nákvæmlega þann kostnað sem henni ber og að fjármunir einstakra deilda eða stigaganga nýtist eingöngu þeim sem eiga rétt á þeim. Rekstraruppgjör er lagt fram á aðalfundi húsfélags. Að fundi loknum er uppgjörið jafnað þannig að eigendur sem skulda greiða mismuninn, en þeir sem eiga inneign fá hana jafnaða á móti húsgjöldum. Tryggir gagnsæi og traustan rekstur Að sögn Ágústu verður rekstur húsfélaga jafnan flóknari eftir því sem eignirnar eru stærri og fjölbreyttari. Í minni húsfélögum sé fyrst og fremst verið að halda utan um rekstur sameignar sem skiptist á alla eigendur, en í stærri og flóknari félögum þurfi einnig að halda utan um sameignir sem aðeins tilheyra ákveðnum deildum eða
Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:
„Rekstraruppgjörið er mikilvægt til að tryggja að kostnaður skiptist með réttum hætti milli eigenda og að enginn greiði meira eða minna en honum ber samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu,“ segir Ágústa Katrín Auðunsdóttir, forstöðumaður fjármálasviðs Eignaumsjónar. stigagöngum. „Meginmarkmiðið er samt alltaf það sama; að halda utan um fjármuni hvers eignarhluta með skýrum hætti og
Dýrin og haustið: þegar húsið tæmist á ný Nú þegar ágúst líður og septembermánuður er á næsta leiti er sumarfríinu formlega lokið. Fólk snýr aftur til vinnu, skólarnir opna á ný og hversdagsrútínan tekur völdin. Fyrir okkur mörg þýðir þetta fyllri dagatöl og fyrr á fætur en fyrir loðnu fjölskyldumeðlimina okkar getur þessi breyting verið ruglingsleg. Eftir vikur eða jafnvel mánuði þar sem einhver var nánast alltaf heima standa hundar og kettir skyndilega frammi fyrir tómu húsi klukkustundum saman. Þessi umskipti geta valdið dýrum raunverulegu álagi. Hundar sem eru óvanir einveru sýna það stundum með gelti eða spangóli, óróleika, að naga húsgögn eða skó, eða jafnvel að gera þarfir sínar innandyra þótt þau séu vön að vera þrifin. Kettir bregðast oft öðruvísi við, verða fráhverfari, sofa meira eða minna sníkja athygli þegar loksins er komið heim. Þetta er ekki þrjóska eða óhlýðni, heldur einfaldlega merki um að dýrið er að aðlagast breyttum aðstæðum. Nokkur einföld ráð geta gert umskiptin léttbærari fyrir bæði dýr og eigendur: Byrjið smátt og smátt. Ef hægt er, æfið stuttar fjarvistir fyrstu dagana frekar en að fara beint í heilan vinnudag. Þannig fær dýrið tækifæri til að venjast einverunni í skrefum. Haldið í föstu punktana. Sömu tímar fyrir göngutúra, fóðrun og háttatíma
gefa dýrinu öryggistilfinningu, jafnvel þótt allt annað breytist í kringum það. Þreytið þau aðeins áður en lagt er af stað. Góður morgungöngutúr eða leikur fyrir hunda og virkur leikur með veiðistöng eða leysir fyrir ketti, gerir það líklegra að dýrið hvíli sig meðan enginn er heima. Gefið heilanum eitthvað að gera. Nammibollar, feluleikföng, tyggjuleikföng eða einfaldlega að fela nokkur nammistykki um íbúðina getur haldið huga dýrsins uppteknum drjúga stund. Hugsið um umhverfið. Útvarp eða róleg tónlist í bakgrunni, aðgangur að glugga með útsýni og þægilegur hvíldarstaður geta gert gæfumuninn, sérstaklega fyrir ketti sem njóta þess að fylgjast með fuglum og mannlífi. Ef hegðunin breytist verulega eða er viðvarandi. Til dæmis mikið gelt eða eyðilegging á húsgögnum getur verið merki um vanlíðan, þá er alltaf skynsamlegt að leita ráða hjá dýralækni eða atferlissérfræðingi. Stundum getur líka verið gagnlegt að athuga með nágranna eða aðra hundaeigendur í hverfinu um að skiptast á að kíkja við eða fara saman í hádegisgöngutúr. Með smá umhyggju og fyrirhyggju getur haustið orðið ljúf breyting fyrir alla fjölskylduna, líka þá loðnu.
tryggja rétta kostnaðarskiptingu,“ segir Ágústa og áréttar að rekstraruppgjör sé því mun meira en formlega lagaskylda.
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
Uppl. í síma 698-2844
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/19/2026 11:48 AM Page 16