Skip to main content

Grafarholtsblaðið 7. tbl. 2026

Page 1

GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/29/2026 4:02 PM Page 1

Grafarholtsblaðið 7. tbl. 15. árg. 2026 júlí - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Eru hundarnir okkar litblindir? - sjá bls. 11

Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki

Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844

,,Mahoný’’


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 7/1/2026 1:54 PM Page 2

2

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Grafarholtsblaðið Meirihlutinn gengur Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.

Upphafið lofar góðu Þrjá mál hafa verið mjög áberandi í umræðunni síðustu vikurnar. Hvalveiðar, Evrópusambandið (ESB) og vösk framganga nýs meirihluta í Reykjavíkurborg. Hildur Björnsdóttir og liðsmenn hennar í nýjum meirihluta í borginni voru varla búnir að koma sér fyrir í ráðhúsinu þegar ráðist var í tiltektir og í að efna kosningaloforð. Sársaukafullar uppsagnir upplýsingafulltrúa og fleiri starfsmanna borgarinnar. Því var lýst yfir fyrir síðustu kosningar að ráðist yrði strax í hagræðingu við rekstur borgarinnar kæmist Hildur og félagar til valda. Byrjunin lofar góðu. Framganga Hildar á dögunum varðandi gang-stéttina í Langarima í Grafarvogi vakti mikla athygli. Sannarlega breytt vinnubrögð borgarinnar þegar úthverfin eiga í hlut. Hvalveiðar hófust á dögunum og ekki leið á löngu að erlendur ofstækismaður lýsti yfir komu hans manna á miðin en sjálfur þorði hann ekki um borð. Íslendingar eiga að halda löglegum hvalveiðum áfram og veiða þesar örfáu langreyðar sem úthlutað er. Það verður hins vegar að gera þær kröfur til þess aðila sem veiðarnar stundar að hann geri það á mannsæmandi hátt. Ef Kristján Loftsson getur ekki tryggt að hvalir sem skotið er á deyi svo til samstundis ber yfirvöldum hér á landi að afturkalla leyfi hans strax til hvalveiða. Það er mjög alvarlegt mál ef skotmörk hvalveiðimanna okkar þurfa að berjast fyrir lífi sínu í langan tíma eiga í löngu dauðastríði. Það er einfaldlega ekki í boði. Og svo er það ESB og slagurinn um atkvæði landsmanna í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Já, það eru margir ákveðnir í að segja já en bera fer á ógleði þegar frasinn um að kíkja í pakkann er nefndur. Nei, líklega er bara best að kjósa með Íslandi, ganga í lið með auðlindum okkar, langtíma hagsmunum þjóðarinnar og fullveldi. Stefán Kristjánsson

gv@skrautas.is

hreint til verks í bílastæðamálum

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Á síðasta fundi borgarstjórnar fyrir sumarleyfi samþykkti borgarstjórn tillögu nýja meirihlutans um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík. Með henni er nýr meirihluti að ganga hreint til verks og hefja nauðsynlegar úrbætur í málaflokki sem snertir daglegt líf fjölda borgarbúa, atvinnurekenda og gesta borgarinnar. Tillagan felur í sér skýr og raunhæf skref. Gjaldskyldutími bílastæða í miðborginni verður styttur í samráði við íbúa og hagaðila, rafrænir greiðslumátar verða einfaldaðir og horfið verður frá ósveigjanlegum reglum um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Daglegt líf í eystri hverfum Fyrir íbúa í hverfum á borð við Árbæ, Grafarvog, Grafarholt og Úlfarsárdal snúast bílastæðamál ekki um hugmyndafræði. Þau snúast um daglegt líf fólks. Til að mynda að komast til og frá vinnu, skutla börnum á æfingar, sækja þjónustu og eiga kost á að fara í miðborgina þegar tilefni er til þess. Það er löngu orðið tímabært að horfast í augu við að sú stefna að fækka bílastæðum og torvelda aðgengi hentar ekki öllum borgarbúum. Aðstæður fólks eru ólíkar eftir hverfum. Margir íbúar í austurhluta borgarinnar þurfa einfaldlega að reiða sig á bílinn í sínu daglega lífi, hvort sem það er vegna vinnu, barna, tímafrekra ferða eða þess að almenningssamgöngur henta ekki alltaf ferðavenjum þeirra.

þörfum fólksins sem þar býr. Fjölskyldur eiga ekki að búa við það að bílastæði séu af skornum skammti vegna reglna sem

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. gera ekki ráð fyrir daglegu lífi þeirra.

Þá felur tillagan sem samþykkt var einnig í sér að veittur verði 90 prósenta afsláttur af gatnagerðargjaldi vegna stæða í bílakjöllurum. Sú breyting getur skipt miklu fyrir uppbyggingu og aukið sveigjanleika þar sem þörfin er mest. Aðgengileg miðborg fyrir alla Jafnframt verður unnið að því að bæta aðgengi að miðborginni. Skoðað verður hvar hægt sé að koma bílastæðum aftur í notkun, lýsing og eftirlit í bílastæðahúsum verða bætt og svigrúm fyrir vörudreifingu og sendla verður jafnframt skoðað. Miðborgin á að vera aðgengileg öllum borgarbúum, líka þeim sem búa lengra frá henni. Við eigum að byggja borg þar sem ólíkir ferðamátar geta farið saman. Nýr meirihluti ætlar að hlusta betur á íbúa, taka mið af ólíkum aðstæðum í hverfum borgarinnar og ráðast í raunverulegar úrbætur. Það er það sem borgarbúar kölluðu eftir og það er sú stefna sem þessi meirihluti vinnur eftir og Reykjavík þarf á að halda. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Ekki pólitískar kreddur Borgin verður að taka mið af þessum veruleika. Það er ekki hægt að skipuleggja Reykjavík eftir einni forskrift og ætla að sama lausn henti alls staðar. Árbær, miðborgin, Grafarvogur, Grafarholt, Úlfarsárdalur, Breiðholt og önnur hverfi hafa ólíkar þarfir. Borgarskipulag verður að byggjast á því hvernig fólk lifir og ferðast í raun, ekki pólitískum kreddum um hvernig það eigi að lifa. Það er hlutverk okkar sem borgarfulltrúa að leysa vandamál, ekki að búa þau til með pólitískum kreddum eða verja þau með því að berja hausnum við steininn. Sveigjanleiki í uppbyggingu Þetta skiptir ekki síst máli fyrir uppbyggingu í hverfunum. Nýjar íbúðir þurfa að taka mið af raunverulegum


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/26/2026 7:30 PM Page 3


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/29/2026 3:58 PM Page 4

4

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Nýr meirihluti lætur verkin tala

- eftir Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann umhverfis- og skipulagsráðs og Sigrúnu Ástu Einarsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann leikskóla- og daggæsluráðs Fyrstu vikur nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík hafa einkennst af hraðri innleiðingu þeirra verkefna sem kynnt voru samhliða meirihlutasáttmálanum. Með sérstökum verkefnalista hefur meirihlutinn sett sér skýr tímamörk og markmið, með það að leiðarljósi að auka gagnsæi og gera borgarbúum auðveldara að fylgjast með framvindu verkefna. Á 100 daga verkefnalistanum hefur þegar verið lokið við að endurvekja öldungaráð Reykjavík-urborgar, að íslenski fáninn verði dreginn daglega að húni við Ráðhús Reykjavíkur, samþykkja að símafrí í grunnskólum verði innleitt strax við upphaf nýs skólaárs í haust og samþykkja að lengja opnunartíma sundlauga til kl.

22.00 um helgar frá og með 1. september. Af þeim verkefnum sem eru hafin má nefna samningaviðræður við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili, en þar er unnið að umgjörð um nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn og endurskoðun deiliskipulags Suður-landsbrautar eftir að fyrirliggjandi tillögu var hafnað. Einnig er vinna farin í gang við heildstæða endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík og viðhaldsátak á gangstéttum í öllum hverfum borgarinnar. Í kjölfar alvarlegs slyss í Grafarvogi var strax ráðist í lagfæringar á gangstétt við Langarima og verður áfram unnið markvisst að því að bæta aðgengi og öryggi

gangandi vegfarenda með auknu fjármagni í næstu fjárfest-ingaáætlun. Í síðustu viku voru kynntar breytingar á stjórnskipulagi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara með það að markmiði að einfalda stjórnsýsluna, auka skilvirkni og gagnsæi, draga úr yfirbyggingu og tryggja betri nýtingu fjármuna borgarinnar. Með þessum fyrstu skrefum sýnir nýr meirihluti að áhersla er lögð á að standa við þau verkefni sem kynnt voru við myndun meirihlutans og skila áþreifanlegum árangri strax í upphafi kjörtímabilsins. Það eru margar erfiðar ákvarðanir sem þarf að taka við stjórn borgarinnar. Nýr meirihluti ber ábyrgð á því að fara vel með skattfé borgarbúa og tryggja góða

Sigrún Ásta Einarsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Guðný María Jóhannsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

grunnþjónustu. Aðlaga þarf rekstur borgarinnar að breyttu starfsumhverfi, einfalda skipulagið og stytta

boðleiðir. Þetta verkefni krefst kjarks og við erum tilbúin að takast á við það.

Íslensk Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/26/2026 7:32 PM Page 5

sumarið! Verð áðurr: 39.998

999 % 31.9 20ttu r afslá

Lavor háþrrýstidæla Space 180bör 2500W

tapakki! a Risa aukahlu

3.565

Verð áður: 2.499

Allir blómapotttar

% 1.875 25ttu r

30% afsláttur

Pallahreinsir Hagmanss Trralltvatt – 4 lítrar T

afslá

Garðverkfæri sett með hnjápúða 4 stk.

Ve V erð áður: 2.998

2.549 15% ttur afslá

Verð áður: 28.2

% 22.61 20ttu r

Hagmans Premium V & viðarvörn 3L

afslá

Stigi - 3x7 þrep

Verð áður: 15.995

% 11.197 30ttu ur f lá

ð

Verð áðu ur: 3.995

% 3.1 20ttu 196 r

Verð áður: 5.897

afslá

% 4.423 25ttu r afslá

Hitabyssa a-T Trrotec HyStream m 200

Oden Eðalviðarvörn & pallaolía 2,7L

Verð áður: 37.465 Ve

% 27.72 26ttu 25 r afslá

Verð áð Ve ður: 11.995

596 9.5

Verkfærasett í tösku 187 styk kki

Hjólböru ur 90L með óspreng gjanlegt dekk

Verð áður: 67.999

40.800 % 4 40ttu r afslá

Verð áður: 25.429

% 19.835 22ttu r afslá

Trrappa Pro 4 þrep (Blá) T

Verð áður: 24.995

Verð áður: 17.899

50% 8.950 afsláttur

Kletthálsi 7 110 Reykjavík Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-16 Sími: 412 2500

LuT Lu To T ool Gráðukúttsög 305mm blað 1600W 3

Selhella 6 221 Hafnarfjörðu ur Virkir dagar opið 08-18 0 Laugardagar opið ð 10-16 Sími: 412 2500

Tec Hjólsög PCSS oT Tro Tr 190mm 10-1400W

Fuglavík 18 230 Reykjanesbær Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-14 Sími: 421 1090

997 % 14.9 40ttu r afslá

IR 2400 Palla-/Svalahitari 2,4kW

Gott verð rð ffy yrir allla, alltaf!

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og mynd dvillur.

Allt fyrir


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/28/2026 10:55 PM Page 6

6

Grafarholtsblaðið

Fréttir

Hólmsheiðarhlaup Fram og Ultraform Hólmsheiðarhlaup Fram og Ultraform fór fram fimmtudaginn 18.júní. Um 500 hlauparar tóku þátt í þremur vegalengdum 6km, 10km og 22km. Hlauparar voru ræstir frá Guðríðarkirkju og hlupu um Hólmsheiðina, Úlfarsfellið og enduðu á glæsilegum leikvangi Fram. Frábær stemning var i hlaupinu eins og sést á

myndunum sem hægt er að skoða með þvi að smella á hlekkinn eða fara inn á facebook síðu hlaupsins. Starfsfólk hlaupsins kom frá almenningsíþróttadeild Fram, skokkhóp Fram, blakdeild Fram og Ultraform, barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar sá um að grilla hamborgara fyrir hlaupara.

Arnar Pétursson kom fyrstur í mark í 22 km hlaupinu.

Allt að 50%

Grandi

Glæsibær

Kringlan

Spöng

Keflavíkurflugvöllur


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/26/2026 8:03 PM Page 7

7

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Er vandamál í þínu húsfélagi? Hafðu samband við okkur!

Nauta Ribeye steikin frá Kjötkompaníinu er vel fitusprengd og stórkostleg á grillið.

Grillhorn Grafarholtsblaðsins í samstarfi með Kjötkompaníinu:

Nauta Ribeye Nauta ribeye er steik sem klikkar ekki og er ein sú vinsælasta hjá okkur. Við val á steik er mjög mikilvægt að velja vel fitusprengdan vöðva og vel hanginn, ekki undir 25 dögum. Þessi vöðvi er mjög bragðmikill og góður, vöðvinn einkennist af fitu-auganu sem er í miðjum vöðvanum og aðskilur framfile og cap vöðvann. Fituaugað getur verið misstórt, það fer eftir því hvar skorið hefur verið á ribeye vöðvann.

Liturinn á kjöti sem er tilbúið til neyslu er yfirleitt rauð/matt/brugnum rautt. Forðastu steik sem er fitulaus og skærrauð á litinn, annars ertu að fara að slást við steikina á disknum eftir eldun. Ef þú ert með sérþarfir vertu þá ekki feimin/n við að bera fram þínar óskir, hlutverk kjötkaupmannsins er að koma til móts við allar séróskir. Okkar ráð er: Kauptu gott kjöt og eldaðu það á einfaldan máta.

ELDUNARLEIÐBEININGAR Hitið grillið mjög vel og lokið steikinni á miklum hita í ca 2 mínútur á hvorri hlið, lækkið svo í lægsta hita og klárið eldun í 52 gráður í kjarna, í ca 3-4 mínútur á hvorri hlið.

Eldunartips Númer eitt, tvö og þrjú - veljið gott kjöt á grillið! Gæðin svíkja þig ekki.

Passið að þrífa grillið vel eftir hverja notkun. Notið alltaf kjarnhitamæli til að hitta á réttu steikninguna, ef þið eigið hann ekki þá er best að drífa sig að kaupa einn slíkan. Ef þú ert með nautasteik, gefðu þér góðan tíma í eldamennskuna, það er yfirleitt best að elda steikina á lágum hita og fá jafna steikningu í gegnum allan vöðvann. Okkar ráð er að loka steikinni á miklum hita og lækka svo hitann í 80-100 gráður og klára eldun. Láta steikina hvíla í 5-10 mínútur, fer eftir stærð.

!

PORTOBELLO FYLLTUR MEÐ GORGONZOLA Takið stilkinn af sveppunum og fyllið með gorgonzola osti, hvítlauksolíu og fersku timían. Grillið portobello sveppinn í ca 1214 mínútur á meðal hita eða þar til osturinn er farinn að krauma í sveppnum. Nokkur góð ráð við val á kjöti: Það er góð regla að spyrja kjötkaupmanninn hvað steikin sem þú ert að kaupa er búin að hanga/meyrna í langan tíma. Ef kaupmaðurinn getur ekki svarað því þá ertu ekki á réttum stað. Svarið sem þú vilt heyra er að vöðvinn sé búinn að hanga að lágmarki í 25 daga. Það sem skilar einnig góðu bragði og mikilli mýkt í kjötið er fitan, því er okkar slagorð ,,Í fitunni felast gæðin.”

Spönginni


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/28/2026 11:29 PM Page 8

8

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Trotec dagar í Múrbúðinni - 20 til 50% afsláttur Það er fátt sem gleður handlagna Íslendinga meira en góð verkfæri á góðu verði. Nú er komið að einni skemmtilegustu hefð ársins hjá Múrbúðinni: Trotec dagarnir eru mættir aftur – og þeir verða stærri, betri og gulir eins og sólin á góðum sumardegi. Öll rafmagnsverkfæri frá Trotec eru með 20–50% afslætti, og það er ekki lítið þegar um er að ræða eitt vinsælasta verkfæramerki landsins. Þýskt merki sem hefur sannað sig á Íslandi Það er engin tilviljun að Trotec sé mest selda merkið í rafmagnsverkfærum hjá Múrbúðinni. Hvort sem verið er að bora í steypu, saga timbur, brjóta niður steypu nú eða pússa timbur, þá hefur Trotec

reynst traustur félagi í verkið. Reynslan talar sínu máli Við spurðum Svavar Þórisson verslunarstjóra, sem hefur fylgst náið með Trotec frá því merkið kom fyrst til landsins, hvað skýri vinsældirnar. Hann þurfti ekki að hugsa sig lengi um: „Viðskiptavinir eru ótrúlega ánægðir með Trotec. Það sem fólk segir aftur og aftur er að verkfærin séu kraftmikil, endingargóð og svo spillir verðið ekki fyrir. Þetta eru traustar græjur sem gera það sem þær eiga að gera,“ segir Svavar Þórisson. Þessi orð Svavars endurspegla það sem margir hafa upplifað: Trotec er merki sem stendur undir væntingum. Af hverju Trotec? • Frábært verð samanborið við

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is

„Viðskiptavinir okkar eru ótrúlega ánægðir með Trotec,” segir Svavar Þórisson verslunarstjóri Múrbúðarinnar. verkfæri gæði, þú færð mikið fyrir peninginn, Múrbúðin hefur lengi verið Trotec dagarnir eru rétti tíminn til og enn meira núna því það er 20 – heimavöllur þeirra sem vilja gæði, að gera góð kaup. Þú færð þýsk gæði, 50% afsláttur! þjónustu og faglega ráðgjöf. Við og áreiðanleika og það á verði sem • Trotec býður breiða línu af vitum að góð verkfæri skipta máli. lætur mann brosa út að eyrum. rafmagnsverkfærum og hægt er að Þau spara tíma og þau gera verkefnin Trotec dagar í Múrbúðinni – þýsk nota sömu rafhlöðuna í flest öll skemmtilegri. gæði á íslensku verði. rafhlöðutæki frá Trotec. Komdu og finndu þitt Trotec • Trotec hefur sannað sig við íslenskar aðstæður • Vel hönnuð tæki sem eru fullkomin fyrir öll verk á heimilinu. Þetta er ástæðan fyrir því að Trotec hefur orðið fastur liður í verkfærakössum landsmanna. Trotec dagar – rétti tíminn til að uppfæra verkfærakassann Ef það er eitthvað sem Íslendingar kunna, þá er það að nýta góð tilboð. Trotec dagarnir eru fullkomið tækifæri til að: • Uppfæra gömul verkfæri sem eru farin að hiksta. • Bæta við sérhæfðum tækjum sem þú hefur lengi ætlað að kaupa. • Fá gæðavörur á verði sem sést ekki oft. • Gera sig kláran fyrir sumarið og framtíðina. Múrbúðin – þar sem góð verkfæri eiga heima

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

Fyrsta leiktæki vegasalt.

Trotec - þýsk gæði á íslensku verði.


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/26/2026 7:35 PM Page 9

Ö l garðverk Öl kfæri kf

Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar

Frábært úrval

! f a t l l a i erð

ærum af garðverkfæ

v u ð ó g á i ð æ G

Lavor háþrý ýstidælur

Colorex r málning og v viðarvörn Úrrva val af flísum

Vín ínyl- og ha arðparket

G Gott verð fyrir alla a, alltaf!

Sérfræðinga ar í múrefnum


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/26/2026 7:48 PM Page 10

10

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Ferskleiki, litir og næring á sumardiskinn - frábær uppskrift sem vert er að prófa Á sumrin sækjum við oft í einfaldar lausnir sem eru bæði bragðgóðar og næringarríkar. Þessi granateplasalsa er ein af þeim uppskriftum sem ég gríp reglulega til þegar mig langar að bæta ferskleika, lit og lífi við máltíðina. Granatepli er ríkt af andoxunarefnum og gefur salsanu fallegan lit og safaríkt bragð. Eplið bætir við stökkri áferð, sítrónan gefur ferska sýru og kóríander ásamt chili skapa spennandi bragðsamspil. Útkoman er létt og ljúffeng salsa sem passar með grilluðum fiski, kjúklingi, kjöti eða sem fersk viðbót við salöt og aðra sumarrétti. Stundum þarf ekki flóknar uppskriftir til að gera matinn aðeins meira spennandi. Nokkur fersk hráefni geta breytt einfaldri máltíð í litríka og næringarríka upplifun.

Granateplasalsa • Fræ úr 1 granatepli • 1 epli, skorið í litla bita • Handfylli af fersku kóríander, saxað • Smá chili eftir smekk • 2–3 msk marineraður rauðlaukur • Góð sletta af ólífuolíu • Safi úr ½–1 sítrónu • Salt og pipar eftir smekk Blandaðu öllu saman og leyfðu bragðinu að njóta sín í nokkrar mínútur áður en borið er fram. Njóttu með uppáhalds sumarmatnum þínum og leyfðu litunum og ferskleikanum að fá að njóta sín á disknum. Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instragram.com/janast Granateplasalsa bætir við lit, ferskleika og lífi við máltíðina.

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

Spönginni Grafarvogi

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/28/2026 11:02 PM Page 11

11

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Heimsmeistaramót Hyrox 2026 Framarar áttu fjóra fulltrúa á heimsmeistaramóti Hyrox sem fór fram í Stokkhólmi dagana 18. – 21. júní síðastliðinn. Um 6700 keppendur víðsvegar að úr heiminum tóku þátt. Ásdís Guðnadóttir og María Ingimundardóttir kepptu í parakeppni í aldursflokknum 60-64 ára og urðu í 3. sæti af 50 pörum.

HYROX er nýtt æfingaform sem nýtur vaxandi vinsælda. Á síðasta keppnistímabili kepptu um 1,5 milljón manns á Hyrox mótum um allan heim og innan við 1% af þeim fjölda fær keppnisrétt á árlegu Heimsmeistaramóti. Hyrox æfingaformið líkist Crossfit að hluta, það er byggt á endurteknum lotum af styrktar- og úthaldsæfingum.

Jóna Hildur Bjarnadóttir og Margrét Björk Svavarsdóttir urðu í 5. sæti af 32 pörum í aldursflokknum 55-59 ára.

Keppendur þurfa góða hlaupagetu og styrk þar sem unnið er á háu álagi í stöðugu flæði, yfir lengri tíma (>50 mín).

Hress hópur hlaupara í Fram að loknu heimsmeistaramóti.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Eru hundarnir í alvörunni litblindir? Hundar eru ekki beint litblindir, hinsvegar sjá þeir heiminn öðruvísi en maðurinn. Hundar eru með takmarkað litaskyn en mannskepnan, við höfum þrjár megin gerðir af litakeilum í augunum, hundar hafa annars vegar bara tvær megin keilur. Þetta þýðir að fyrir hundi þá er heimurinn að mestu leyti blár, gulur, grár og svartur! Afhverju? Sjón hunda mótast af þróunarsögu þeirra sem rándýr, þeir eru með fleiri stafi og færri keilur. Þróunin fórnaði breiðu litasviði fyrir einstaklega öflugum skynfærum. Þetta gerir þeim kleift að sjá töluvert betur í myrkri og að greina örsmáar hreyfingar úr mikilli fjarlægð. Keilurnar tvær eru næmar fyrir bláum og gulum ljósbylgjum. Þar sem þá vantar rauðar og grænar keilur, þá virðist litir eins og rauður, appelsínugulur og grænn vera dofnir eða renna saman í tóna af brúnu og

gráu. Hvað get ég gert til að tryggja að hundurinn minn sjái leikföngin sín betur? Það sem þú getur gert er að kaupa leikföng sem eru gul eða blá, sérstaklega ef mikið er leikið úti í grasi. Þegar rauður eða appelsínugulur bolti lendir á grænu grasi þá er erfiðara fyrir hundinn að finna leikfangið. Það er samt ekki alslæmt! Hundar eru gáfaðri en við gefum okkur, og þegar þeir finna ekki leikfangið með augunum þá reynir það á lyktarskynið þeirra, sem er um 10.000x til 100.000x betra en hjá okkur! (fer eftir tegundum). Við hjá Dýrabæ erum meira en tilbúin að aðstoða þig að finna bestu leikföngin fyrir dýrið þitt, enda eiga dýrin alltaf það besta skilið!

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Uppl. í síma 698-2844

GV Ritstjórn og auglýsingar

Sími 698-2844


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/26/2026 7:36 PM Page 12


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarholtsblaðið 7. tbl. 2026 by Skrautás Ehf. - Issuu