Skip to main content

Grafarholtsblaðið 6. tbl. 2026

Page 1


Grafarholtsblaðið

Grafarholtsblaðið

6. tbl. 15. árg. 2026 júní - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf

nánar á Krafla.is og í síma 698-2844

Íslenskt birki

Grafarholtsblaðið Grafarholtsblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssongv@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.

Breytingar og bein Jónasar

Það eru líklega breyttir tímar framundan í Reykjavík. Úrslit kosninganna 16. maí voru ótvíræð, íbúar í Reykjavík öskruðu á breytingar. Sjálfstæðisflokkurinn vann stóran sigur, Miðflokkurinn einnig en Samfylkingin tapaði miklu fylgi. Breytinga var krafist frá þeim stjórnarháttum sem verið hafa allsráðandi í Ráðhúsinu undanfarna áratugi.

Eftir kosningarnar áttu margir von á samstarfi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Margir Sjálfstæðismenn áttu síður von á því að Hildur Björnsdóttir myndi leita til Viðreisnar og Framsóknar en Miðflokks.

En af hverju valdi hún Viðreisn og Framsóknarflokkinn?

Við höfum öruggar heimildir fyrir því að framganga ákveðinna aðila í Miðflokknum undir lok kosningabaráttunnar hafi skapað mikla ólgu, heift og efasemdir innan jálfstæðisflokksins. Í hverfablöðum okkar var frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Björn Gíslason, sakaður um mjög alvarlega hluti varðandi gatnamótin við Höfðabakka og Bæjarháls af frambjóðanda Miðflokksins, Katrínu Magnúsdóttur. Strax eftir kosningarnar kom í ljós að þessar ásakanir voru hreinar lygar og Katrín biður Björn afsökunar á þessum ósannindum í tveimur hverfablöðum í dag.

Að öðru. Frétt varðandi stórskáldið Jónas Hallgrímsson. Upp hafa komið efasemdir varðandi líkamsleifar hans og að bein hans sem hvíla á Þingvöllum séu ekki hans.

Jónas lést af slysförum í Kaupmannahöfn um miðja nítjándu öldina, 1845 og hann var jarðsettur þar. Síðar var farið fram á að bein hans yrðu flutt til Íslands og var það gert og beinin jarðsett að Hrauni í Öxnadal, fæðingarstað skáldsins. Og enn eru framundan áform um að grafa bein Jónasar upp en nútíma tækni ræður yfir getu til að skera úr um hvers beinin eru og eyða öllum vafa.

Stefán Kristjánsson

Nýtt upphaf í Reykjavík

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Nýr meirihluti hefur tekið við stjórn Reykjavíkur og með því hefst nýr kafli í sögu borgarinnar.

Í nýafstöðnum kosningum kölluðu Reykvíkingar eftir breytingum. Þeir kölluðu eftir aukinni þjónustu, ábyrgari rekstri og borgarstjórn sem hlustar betur á fólkið sem býr í borginni. Nú hefst sú vinna.

Það sást vel á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar þar sem lagður var grunnur að nýjum áherslum og nýrri stefnu fyrir borgina.

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur áherslu á að færa Reykjavík aftur nær sínum mikilvægustu verkefnum. Hlutverk borgarinnar er fyrst og fremst að tryggja öfluga grunnþjónustu, standa vörð um innviði og skapa umhverfi þar sem allar kynslóðir geta blómstrað. Á fyrsta fundi borgarstjórnar, 2. júní sl., voru tekin fyrstu skrefin í þá átt. Þar var meðal annars lagður grunnur að nýju leikskóla- og daggæsluráði, auk þess sem öldungaráð var endurvakið. Það eru mikilvæg skilaboð til eldra fólks í Reykjavík enda er það skoðun undirritaðs að eldra fólk eigi að hafa beina aðkomu að mótun þjónustunnar sem það nýtur. Þá voru fyrstu skrefin tekin að hagræðingu og stjórnkerfisbreytingum í borgarkerfinu. Reykjavík á að vera þjónustustofnun fyrir borgarbúa þar sem

fjármunir eru nýttir í grunnþjónustu borgarinnar. Samgöngumál eru einnig ofarlega á

dagskrá. Við í Sjálfstæðisflokknum höfnum sérstakri gjaldtöku á umferð innan borgarmarkanna á núverandi gatnakerfi. Það er grundvallarmunur á slíkri gjaldtöku og einkaframkvæmdum, þar sem nýir innviðir eru byggðir og notendur hafa val um aðra gjaldfrjálsa

leið, t.d. eins og Hvalfjarðargöng.

Við teljum að borgarbúar eigi ekki að sæta gjaldtöku fyrir akstur um innviði sem þegar eru til staðar og hafa verið byggðir upp með skattfé. Borgarstjórn fól því borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, að hefja viðræður við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fjármögnun hans.

Fram undan eru fjölmörg mikilvæg verkefni. Samstarf við atvinnulíf um fjölbreyttari lausnir í leikskóla- og daggæslumálum, lengri opnun sundlauga, sterkari innviðir og aukinn áhersla á það sem snertir daglegt líf fólks með beinum hætti.

Það skiptir máli að Reykjavík sé borg þar sem fólk finnur að hlutirnir virki. Borg þar sem þjónustan er aðgengileg, hverfin sterk og stjórnsýslan skilvirk. Nýr meirihluti er ekki myndaður til að viðhalda sama ástandi heldur til að bæta það sem betur má fara og horfa fram á veginn með breytingar að leiðarljósi.

Ég hvet borgarbúa til að kynna sér verkefni nýs meirihluta á verkefnalisti.is og fylgjast með þeirri vegferð sem nú er hafin.

Það eru góðir tímar fram undan í Reykjavík. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Mikið fjör í Úlfarsárdalnum

Lið Fram hefur komið einna mest á óvart í Bestu deild karla í knattspyrnu

það sem af er leiktíðinni.

Núna hefur liðið leikið 9 leiki á Íslandsmótinu og er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar.

Framliðið þykir leika mjög skemmtilega knattspyrnu undir stjórn hins frábæra þjálfara Rúnars Kristinssonar. Liðið er til alls líklegt í sumar og verður afar fróðlegt að sjá hvað framhaldið ber í skauti sér. Nú er yfirstandndi hlé í deildinni vegna landsleikja en næsti leikur Fram er á dagskrá 15. júni á Akureyri gegn KA.

Áhorfendur hafa verið duglegir að mæta á leiki Fram liðsins á Lambhagavelli í Úlfarsárdal í sumar. Það er hverju liði afar mikilvægt að eiga dygga stuðningsmenn og kraftmiklir og jákvæðir áhorfendur geta verið ígildi tólfta leikmannsins í liðinu.

Áhorfendur hafa fengið mikið fyrir sinn snúð í sumar. Oftar en ekki hefur Framliðið skorað mikið af mörkum og unnið marga leiki. Það er ekki sjálfgefið að áhorfendur mæti á völlinn og styðji sitt lið. Vonandi halda íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal áfram að styðja sitt lið.

Áhorfendur í Úlfarsárdal hafa verið duglegir við að hvetja sitt lið áfram.

Það hefur verið mikið fjör á heimaleikjum Fram í sumar eins og sjá má enda gengi liðsins afar gott. Myndir KST
Framarar á öllum aldri hafa mætt í stúkuna og skemmt sér vel.

Láttu okkur sjá um

Nokkrir ungir knattspyrnuguttar í Fram voru ánægðir með lífið á dögunum þegar þeir fengu að fylgja leikmönnum Fram inn á völlinn fyrir leikinn gegn Breiðablik sem Fram vann 4-3. Guttarnir voru vel sáttir og fannst mikið til þes koma að fá að leiða hetjur sínar inn á völlinn. Víst má telja að þetta augnablik lifi lengi í minningu guttanna og líði þeim seint eða aldrei úr minni. Og allir voru svo sáttir með úrslitin eftir stórgóðan leik.

f l o G ð i

Ze og Maui Jim frá Þú finnur gott úrva k ó í f í verslunum Eyesla eal al af útivistargleraugu s u and. um

verk Öl Ö kf kfæri

og slá Sláttu á r u rf

Frábært ú l m

rðverkfæ f ga a

æru rva

r háþrý Lavo ýstidælur

l Color Ú g og v rex má a vi

yl- og ha a

ga Sérfræð a

G lla r a Gott verð fyri lltaf! a, a

Krumma

Krumma ehf var stofnað árið 1986 undir nafninu Barnasmiðjan ehf af hjónunum Elínu Ágústsdóttur, leikskólakennara / tækniteiknara og Hrafni Ingimundarsyni, vélfræðingi. Hjónin vildu sjá breytingu í vöruúrvali á leiktækjum og leikföngum á íslenskum markaði.

Fyrirtækið byrjaði í bílskúrnum hjá þeim hjónum þar sem þau bjuggu í Kópavogi. Í bílskúrnum smíðuðu þau leiktæki fyrir börn undir merkinu KRUMMA-GULL. Hrafn sá um hönnun leiktækjanna og bar leikgildi þeirra undir Elínu. Smíði leiktækjanna var í höndum þeirra beggja fyrstu fimm árin. Fyrsta leiktækið var tvöfalt vegasalt sem fór á leikskólann Marbakka í Kópavogi þar sem Elín starfaði sem leikskólakennari. Hún var ósátt við vegasöltin í leikskólanum og taldi þau hina verstu slysagildru. (mynd) Það er hugsjón hjá þeim hjónum að framleiða góð leiktæki og að hafa í boði góð leikföng og kennslugögn fyrir börn.

Það má segja að þau hafi unnið ákveðið brautryðjandastarf í öryggi barna á leiksvæðum með sinni framleiðslu.

Fljótlega fluttu þau starfsemina úr bílskúrnum í 100 fermetra húsnæði á Kársnesbraut janúar 1983 sem síðan urðu 400 fermetrar. Þar framleiddu þau rennibrautir, rólur, kastala, klifurgrindur, sandkassa og ýmis önnur leiktæki.

Árið 1998 framleiddi KRUMMA 60 gerðir af leiktækjum

Hjónin voru einu starfsmenn fyrirtækisins fyrstu tvö árin en nú eru starfsmenn að jafnaði um 25 og fleiri yfir sumartímann. Í tímans rás breyttist nafn fyrirtækisins í KRUMMA ehf Árið 1993 fluttu þau reksturinn í um 1000 fermetra húsnæði að Gylfaflöt 7 í Grafarvogi og opnuðu þá einnig leikfangaverslun sem sérhæfir sig í vönduðum og þroskandi leikföngum. Lögð er mikil áhersla á að leikföngin

hjálpi börnum að læra samskipti og rökhugsun, örva ímyndunarafl og sköpunarkraft þeirra.

Árið 1993 hlaut fyrirtækið, fyrst íslenskra fyrirtækja, viðurkenninguna „Öryggi barna á okkar ábyrgð“ fyrir markvissa stefnu í framleiðslu á leiktækjum. Meðal þeirra sem stóðu að viðurkenningunni eru Foreldrasamtökin, Landlæknisembættið, Slysavarnarfélag Íslands og Umferðarráð. Í lok ársins 2001 varð KRUMMA fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá vottun samkvæmt evrópska staðlinum EN 1176 um leikvallasvæði.

Árið 2002 hlutu þau viðurkenninguna Bernskugull fyrir brautryðjendastarf í þágu bara veitt af BernskunniÍslandsdeild OMEP. Bernskugull er veitt einstaklingi, félagi eða stofnun sem gengið hefur fram fyrir skjöldu og stuðlað að með ýmsum hætti að andlegri

og líkamlegri velferð ungra barna. KRUMMA hefur verið í fararbroddi að bjóða hágæða tæki og búnað fyrir leik- og grunnskóla bæði innan- sem og utandyra. Einnig hefur KRUMMA framleitt og selt í almennigsgarða, þjóðgarða og opin leiksvæði. Af framleiðslunni má nefna hjólagrindur, hjólagrindarskýli, mörk, körfuboltakörfur, bekki og borð ásamt ýmsum gerðum af leiktækjum. Auk eigin framleiðslu eru í boði hágæða leiktæki, útihúsgögn og öryggisundirlög sem framleitt eru í Evrópu. KRUMMA setur börnin alltaf í fyrsta sæti og býður þeim ávallt gæðavörur. Mikil áhersla er lögð á opinn leik barna og margar kynslóðir leikskólakennara hafa notað einingakubbana (Unit Blocks) og holukubbana (Hollow Blocks) frá Community Playthings með góðum árangri. Plus-Plus kubbar, Kapla

kubbar, CollectA dýrin, Rubens Barn dúkkur og Brio lestir eru frábær dæmi um leikföng sem eru í boði. Allt leikföng og kennsluefni sem hvetja börnin til að læra og skapa.

KRUMMA er að færa út kvíarnar og stækka á lykilsviðum sem skipta sköpum fyrir nám, framtíð og líðan barna. Krumma starfrækir einnig leikfangaverslun þar sem í boði eru gæðavörur, leikföng og námsgögn fyrir börn sem einnig eru notuð í leik- og grunnskólum. Lögð er mikil áhersla á að leikföngin hjálpi börnum að læra samskipti og rökhugsun, örva ímyndunarafl og sköpunarkraft þeirra. Sífellt er verið að bæta við vöruúrvalið og fyrir valinu eru vörur sem efla þroska og hvetja fjölskyldur til að verja meiri tíma saman. Árið 2024 tók Christy Book-Tsang við sem framkvæmdastjóri KRUMMA.

Hrafn Ingimundarson, Christy Book-Tsang og Elín Ágústsdóttir.
Hrafn Ingimundarson og Elín Ágústsdóttir, eigendur Krumma.
Frá opnun risakastala í Gufunesi.
Fyrsta leiktæki vegasalt.

Nautalund De Luxe

NAUTALUND DE LUXE

Hún liggur undir rifjunum á nautinu og er álagið á vöðvanum frekar lítið og lundin því oft kölluð latasti vöðvi skepnunnar.

ELDUNARLEIÐBEININGAR

Hafðu samband við okkur!

KRYDDSMJÖR

Hitið grillið mjög vel, lokið lundinni á háum hita í ca. 1-2 mínútur á hvorri hlið. Lækkið svo hitann á grillinu í ca. 100 gráður og klárið eldun í ca. 52 gráðum í kjarna. Látið steikina hvíla í 5 mínútur.

½ tsk. karrý. 5 gr. salt.

AÐFERÐ

300 gr. mjúkt smjör. 10 gr. fersk steinselja, söxuð. 10 gr. ferskur graslaukur, saxaður. 20 gr. hvítlauksolía. 10 gr. hunang.

Setjið smjörið í hrærivél og hrærið í ca. 2-3 mínútur, þangað til smjörið verður ljóst á litinn, setjið þá öll kryddin saman við og hrærið vel saman. Pakkið smjörinu inn í plastfilmu, rúllið upp og kælið.

Grilluð nautalund De Luxe frá Kjötkompaníinu er algjört salgæti.

Sólskinsþorskur með mangósalsa og lime

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Litríkur og sumarlegur réttur sem er bæði léttur og bragðmikill — fullkominn fyrir gott sumarkvöld.

Rétturinn er fyrir 4

Þú þarft:

1 kg þorskhnakka.

2 msk. ólífuolía.

1 tsk. paprikukrydd.

2 hvítlauksgeira. ½ tsk. chiliflögur. salt og pipar. 1 lime.

Mangósalsa: 1 þroskað mangó. ½ rauð paprika.

½ rauðlaukur.

Handfylli af fersku kóríander eða steinselju.

Safi úr ½ lime.

Smá salt.

Meðlæti:

Hrísgrjón eða couscous.

Grænt salat.

Aðferð: Hitið ofninn í 200 gráður. Penslið þorskhnakkana með ólífuolíu og kryddið með papriku, chiliflögum, smátt söxuðum hvítlauk, salti og pipar. Setjið í eldfast mót og bakið í 12–15 mínútur.

Skerið mangó, papriku og rauðlauk í litla bita og blandið saman við lime-safa og ferskum kryddjurtum.

Kreistið lime yfir fiskinn áður en hann er borinn fram.

Kokkurinn Halli mælir: Mangósalsað gefur ferskt og suðrænt bragð sem passar einstaklega vel með íslenskum þorski.

Einnig hægt að bæta við grískri jógurt ef þú vilt létta mangó sósu í stað salsa. „Léttur sumarmatur sem gleður alla við borðið.”

Verði ykkur að góðu! Halli hjá Aldan Fiskverslun

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla

Sólskinsþorskur með mangósalsa og lime er einstaklega góður réttur.

Glimmrandi fram mistaða

Framarar sitja öryggir í þriðja sæti í Bestu deild karla í knattspyrnu. Er þetta líklega besta staða Fram eftir 9 umferðir í Bestu deildinni frá upphafi hennar.

Fram hefur unnið 6 leiki í deildinni, gert jafntefli tvívegis og tapað einum leik. Jafnteflin komu gegn ÍA og KR og sigrarnir gegn Keflavík, ÍBV, FH, Val, Stjörnunni og Breiðablik. Eina tapið var gegn Þór á Akureyri.

Framliðið skorar mikið af mörkum en liðið hefur skorað 2,8 mörk að meðaltali í leik. Aðeins Víkingur og KR hafa skorað fleiri mörk í sumar. Fram sem áður segir í þriðja sætinu sem stendur, fimm stigum á undan Breiðabliki í 4. sæti. Framliðið hefur spilað mjög góðan fótbolta í sumar og vonandi verður áfrmhald á því.

Næsti leikur er útileikur á Akureyri gegn KA 15. júní og síðan er heimaleikur gegn Víkingum í Úlfarsárdal þann 21. júní. Kvennalið Fram er í næst neðsta sæti í Bestu deild kvenna með 4 stig. Þór/KA er neðst með 2 stig. Næsti

Spöng:

Ferðalag innanlands með hundinn,

en kötturinn passar heimilið

Ferðalög innanlands geta verið skemmtileg fyrir alla fjölskylduna og líka gæludýrin, ef það er vel undirbúið.

Hundar geta oft komið með í ferðalagið, en kettir eru yfirleitt öruggari heima í sínu umhverfi.

Hér eru helstu atriði sem gott er að hafa í huga.

Hundur með í ferðalagið Þegar hundurinn fer með skiptir öryggi, þægindi og rútína mestu máli. Hafðu hundinn öruggan í bílnum, stoppaðu reglulega fyrir vatn og hreyfingu og taktu með það sem hann

þekkir best.

Forðastu að skilja hundinn eftir einann í heitum bíl.

Þegar kötturinn passar heimilið.

Flestum köttum líður best heima.

Undirbúðu heimilið vel, hafðu nóg af mat og vatni og tryggðu að sá sem passar köttinn hafi skyrar leiðbeiningar.

Gott er að skilja líka eftir símanúmer og upplýsingar um dýralækni ef eitthvað kemur uppá.

Góður undirbúningur gerir ferðalagið og dvölina heima þægilegri, öruggari og

Kenny Chophard hefur farið á kostum með Fram í sumar og var óheppinn að skora ekki 4 mörk gegn Blikum í síðasta leik
Framstúlkur fagna marki í Bestu deildinni í sumar.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook