Skip to main content

Grafarholtsblaðið 5. tbl 2026

Page 1


Grafarholtsblaðið

Grafarholtsblaðið

5. tbl. 15. árg. 2026 maí - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Kjósum rétt þann 16. nóvember

- sjá bls. 10

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

„Knatthúsið verður gríðarleg lyftistöng fyrir Fram“

- viðtal við Einar Þorsteinsson fyrrum borgarstjóra og oddvita Framsóknar í Reykjavík um Grafarholt, Úlfarsárdal og stöðu Reykjavíkur

Hvernig metur þú stöðuna í hverfum Reykjavíkur í dag – er borgin að mæta daglegum þörfum fólks?

Ég ætla að leyfa mér að svara þessari spurningu fyrst og fremst sem íbúi. Ég bý sjálfur í úthverfi og þekki mjög vel hvernig dagurinn lítur út – að keyra í vinnu, sækja börn, fara á æfingar, stoppa í búðinni.

Þegar eitthvað í þessu flæði gengur ekki upp, þá finnur maður það strax. Sem dæmi má nefna þegar maður getur ekki farið út með ruslið af því tunnan er full. Maður hefur áhyggjur af börnum að labba heim af æfingum af því göngustígar eru illa lýstir. Þetta eru mál sem hljóma smávægileg en eru í raun risamál fyrir okkur íbúa í borginni.

Ég vildi fá betri tilfinningu fyrir því hvernig íbúar raunverulega upplifa borgina sína þegar ég tók við sem borgarstjóri og þess vegna fór ég strax af stað með íbúafundi í hverfinum. Það voru frábærir fundir, og ég átti einstaklega góðan fund með íbúum hér í þessu hverfi.

Hvað einkenndi fundinn með íbúunum hér?

Það sem einkennir þennan fund – og raunar fleiri – er hversu raunhæfar kröfurnar eru.

Fólk var ekki að biðja um stórar breytingar á kerfinu eða einhverjar flóknar lausnir. Það er að benda á hluti sem eiga að vera sjálfsagðir.

Á sama tíma var mjög sterk tilfinning fyrir því hvað hverfið hefur upp á að bjóða – náttúran, útivistin og rólegt umhverfi. Það var greinilegt að

þið eruð mjög stolt af þessu hverfi og viljið varðveita það og byggja það betur upp. En það sem kom jafn skýrt fram er að borgin er ekki að klára verkefni sem það byrjar á og það er mikið áhyggjuefni finnst mér.

Hvernig birtist það í samtölunum?

Það birtist í mjög konkret hlutum.

Það var talað um að það vanti einfaldlega grunnþjónustu – eins og matvöruverslun. Það var talað um göngustíga sem eru hálfkláraðir, lýsingu sem er ófullnægjandi og samgöngur sem eru ekki í takt við þarfir hverfisins.

Og svo koma stærri verkefni sem fólk hefur beðið eftir lengi – eins og uppbygging á ákveðnum svæðum og íþróttaaðstöðu.

Þetta var ekki eitt vandamál. Þetta var mynstur.

Þú segir „mynstur“ – hvað áttu við með því?

Að þetta er ekki tilviljun.

Þegar svona svipuð skilaboð koma úr mismunandi hverfum þá er það vísbending um að eitthvað sé ekki að virka í kerfinu sjálfu. Það sem ég sé er að það vantar skýrari forgangsröðun.

Það vantar meiri fókus á að klára verkefni og halda utan um grunninn í rekstrinum.

Þú nefndir íþróttaaðstöðu áðan.

Íþróttamálin hafa verið stórt umræðuefni í borginni, en ekki síst áralangar deilur um aðstöðu Fram í Úlfarsárdal sem nú virðast loksins

vera að leysast með áformum um nýtt knatthús – hvaða lærdóm dregur þú af þeirri vegferð og þinni aðkomu að henni?

Ég er afar stoltur af því að hafa náð að tryggja að staðið verður við loforð borgarinnar um að byggja knatthúsið sem verður boðið út fljótlega. Hönnun og undirbúningi er að ljúka og þetta gerbreytir öllu fyrir Fram.

Þetta var orðinn áralangur ágreiningur sem hafði áhrif á félagið, iðkendur og hverfið allt. Fólk var búið að heyra loforð aftur og aftur – en sá ekki framgang.

Þegar ég kom að þessu máli var mitt markmið mjög skýrt: að koma því út úr pattstöðu. Það þýddi að setjast niður með félaginu, fara yfir hvað væri raunhæft og ná samkomulagi sem báðir aðilar gætu staðið við. Það tókst – og það er auðvitað mjög ánægjulegt að sjá að nú sé verið að stíga næstu skref, þar á meðal með knatthúsi.

En lærdómurinn er stærri en þetta eina verkefni.

Hann er sá að borgin þarf að vera fyrirsjáanlegur og traustur samstarfsaðili. Þegar samningar eru gerðir þarf að fylgja þeim eftir. Þegar verkefni eru sett af stað þarf að klára þau.

Íþróttafélög eins og Fram eru ekki bara að byggja mannvirki – þau eru að byggja upp samfélag. Þar eru börn og ungmenni að alast upp, mynda tengsl og finna sig.

Þess vegna skiptir máli að borgin standi með þeim – ekki bara í orði, heldur í verki.

Þú hefur talað um að rekstur borgarinnar skipti lykilmáli. Þú tókst sjálfur við borginni á erfiðum tíma fjárhagslega?

Já ef ég á að vera hreinskilin þá tók ég við borginni á afleitum tíma enda var gert grín að mér og ég kallaður þrotabússtjórinn. En við fórum bara strax í það að ná utan um reksturinn. Það þurfti að setja skýrari ramma, draga úr halla og byggja upp aga. Það skilaði sér í því að reksturinn batnaði og við náðum jákvæðri niðurstöðu á tiltölulega stuttum tíma.

Úr 16 milljarða halla yfir í 5 milljarða afgang. Þetta er gríðarlegt afrek en sýnir fyrst og fremst að þetta er vel hægt ef fólk vill. Þetta gerist ekki af sjálfu sér.

Það er líka mikið áhyggjuefni að sjá hvernig núverandi meirihluta undir stjórn Samfylkingarinnar tókst að klúðra þessu og er komin aftur í 5

milljarða halla. Já, og það er áhyggjuefni.

Þetta sýnir hvað það er stutt í að jafnvægið fari aftur ef maður heldur ekki fast utan um það. Ef þú horfir fram á næstu ár – hvað þarf að gerast til að mæta óskum íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal?

Það þarf að gera tvennt samtímis. Annars vegar að halda aga í rekstrinum – tryggja að borgin standi á traustum grunni. Hins vegar að hraða umbótum í hverfunum – sýna í verki að það sé verið að bregðast við. Þetta er hægt með forgangsröðun, við þurfum einfaldlega að færa fjármagnið úr gæluverkefnum í miðborginni yfir í úthverfin. Fólk þarf að sjá breytingar. Ekki bara heyra um þær.

Skilaboðin eru mjög einföld: gera betur, gera hraðar – og klára það sem er byrjað á.

Einar og Magnea.
Einar og Magnea (2. sæti) með stjórn Fram.
Frá íbúafundi í borginni.

A ÞETTTA UM BET I A SNÝ TR ÝST

ÍÞRÓÓTTTAAÐ TA T ÐSTTÖÖÐU

fyrir F ram ÍÞR F am Nýt Fr ys RÓ msókn le tt knatthú alan sti ár ra s fyrir F Ö nga deilu am mun um aðstööðu am.

U

Borgarlínuskattur kæmi hart niður í Grafarholti og Úlfarsárdal

- segir Ari Edwald, borgarstjóraefni Miðflokksins

Árlegur skattur vegna borgarlínu gæti numið um hálfri milljón króna á fjölskyldu í Grafarholti og Úlfarsárdal, segir Ari Edwald, efsti maður á lista Miðflokksins, í samtali við Grafarholtsblaðið um málefni hverfisins.

Ari bjó í Grafarvogi á annan áratug en hefur nú fest kaup á húsi í Seljahverfi ásamt unnustu sinni, Ingibjörgu Davíðsdóttur alþingismanni.

Ari telur að Grafarholt-Úlfarsárdalur og önnur eystri hverfi borgarinnar séu vanrækt og jafnvel gleymd hjá borgarstjórn. ,,Þetta kemur fram með ýmsum hætti, t.d. varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja, sem hefur gengið afar seinlega fyrir sig í Grafarholti og Úlfarsárdal. Samgöngumálin eru einnig vanrækt og það kemur hvað eftir annað í ljós að vinstri meirihlutinn hefur engan metnað gagnvart úthverfunum og lítur frekar á

þau eins og einhver olnbogabörn í borginni. Nýlega vaknaði vinstri meirihlutinn loks af Þyrnirósarsvefni sínum varðandi Grafarholt-Úlfarsárdal en það kom ekki til af góðu. Vinstri flokkarnir hafa nefnilega fengið þá grillu að það sé sniðugt að nota hverfið sem tilraunastofu fyrir ofurþéttingaráform sín. Þeir boða nú allt að fjögur þúsund íbúða byggð í Höllum í Úlfarsárdal. Þar yrði um algera ofurþéttingu að ræða enda var aðeins gert ráð fyrir um 1.100 íbúðum á svæðinu í fyrra skipulagi. Með svo þéttri byggð yrði umferð og bílastæðamálum í Grafarholti og Úlfarsárdal stefnt í fullkomið uppnám.

Til samanburðar má geta þess að í öllum Grafarvogi eru um átta þúsund íbúðir og um 4.500 í Árbæjarhverfi. Miðflokkurinn hafnar slíkri ofurþéttingu í Höllum en vill skoða hóflega

uppbyggingu í víðtæku samráði við íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal,“ segir Ari.

Borgarlínuskatt? – Nei takk!

Ari segir mikilvægt að frambjóðendur til borgarstjórnar hafi skýra stefnu í helstu málaflokkum svo að kjósendur viti fyrir hvað þeir standi. Samgöngumálin séu dæmi um þetta en þar tali Miðflokkurinn skýrum rómi. ,,Við tökum eindregna afstöðu gegn svokallaðri borgarlínu, ekki síst vegna þeirrar miklu viðbótarskattheimtu sem hún myndi hafa í för með sér. Ólíklegt er að kostnaður við borgarlínu verði undir 200 milljörðum króna. Fjármagna á verkefnið með nýjum skatti, sem myndi leggjast þyngst á íbúa Grafarholts-Úlfarsárdals og annarra eystri hverfa borgarinnar. Kostnaður fjölskyldu í Grafarholti-Úlfarsárdal

vegna skattsins gæti numið um hálfri milljón króna á ári miðað við kynntar forsendur. Þessi skattur yrði því margfalt hærri en kílómetragjaldið, sem ríkið hóf að innheimta um sl. áramót. Miðflokkurinn vill hlífa Reykvíkingum við þessum borgarlínuskatti og talar því skýrt gegn borgarlínu. Stefna miðflokksins er að bæta strætó; leiðarkerfið, vagnana og biðstöðvarnar, auka tíðni, nýta snjallljósastýringu og fjölga forgangsakreinum hægra megin við umferð. Þessi leið er mun ódýrari en Borgarlína og hefur ekki sama rask í för með sér.“

Heimgreiðslur og samræmd próf Miðflokkurinn vill afnema svokölluð vaxtarmörk og auka lóðaframboð í borginni. Einnig vill hann draga úr margvíslegri gjaldheimtu á íbúða-

Ari segir að of lengi hafi málefni Grafarholts-Úlfarsárdals og annarra eystri hverfa verið vanrækt en Miðflokkurinn vilji breyta því.

kaupendur og stuðla þannig að því sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Þéttingarstefnan hefur eins og umferðartafir kostað borgarbúa gríðar-legar fjárhæðir. Þá leggur flokk-urinn áherslu á dagvistarmál og vill m.a. semja um rekstur vinnustaða-tengdra leikskóla og taka upp heim-greiðslur fyrir foreldra, sem hafa ekki fengið leikskólarými fyrir börn sín við tólf mánaða aldur. Áhersla verði einnig lögð á að efla grunnskólann, t.d. með því að bæta starfsaðstæður kennara svo þeir geti einbeitt sér að kennslu. Þá verði samræmd próf tekin upp við lok grunnskólagöngu og einkunnir gefnar í tölustöfum.

Málefni Grafarholts-Úlfarsárdals í forgang

Ari segir að of lengi hafi málefni Grafarholts-Úlfarsárdals og annarra eystri hverfa verið vanrækt en Miðflokkurinn vilji breyta því. ,,Vinstri flokkarnir hafa t.d. hvað eftir annað hafnað tillögum um að breyta skipulagi til að heimila rekstur stórrar matvöruverslunar á Bauhaus-reit. Miðflokkurinn vill leyfa þessa stórverslun og gera þannig íbúum hverfisins kleift að njóta verslunar með lágu verði og miklu vöruúrvali.

Miðflokkurinn vill einnig hraða framkvæmdum við knatthús og áhaldahús Fram og taka þau í notkun árið 2028. Þessi hús átti að taka í notkun árið 2020 samkvæmt samningi Fram og Reykjavíkurborgar en þau eru ekki enn risin.

Bæta þarf umferðarskipulag í Grafarholti og Úlfarsárdal. Ráðast þarf í úrbætur á gatnamótum VíkurvegarÞúsaldar-Reynisvatnsvegar annars vegar og Þúsaldar-Vínlandsleiðar hins vegar. Þarna gætu hringtorg verið rétta lausnin. Einnig þarf að laga gatnamót Úlfarsbrautar og Urðarbrunns og fjölga bílastæðum á Fram-svæðinu.

Síðast en ekki síst þarf að huga að ýmsum frágangi í Úlfarsárdal, sem hefur lengi verið ábótavant. Gera þarf stífari kröfur til verktaka um frágang á byggingarlóðum inni í hverfinu. Þá þarf borgin einnig að standa við sitt, t.d. að ljúka göngustígagerð í Úlfarsárdal, þar sem enn eru ófrágengnir stígar þrátt fyrir að hverfið sé orðið tuttugu ára gamalt,“ segir Ari að lokum.

Ari Edwald.

Peningana aftur út í hverfin

- eftir Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar í Reykjavík

Ég fór í pólitík út af mygluðum leikskóla. Reyndar er sagan flóknari. Eftir að ég eignaðist barn áttaði ég mig fá því á hversu vondum stað leikskólar í Reykjavík eru. Við fjölskyldan byrjuðum á því að bíða í 33 mánuði eftir plássi í hverfinu. Mánuði eftir að drengurinn var kominn í hverfisleikskólann var okkur foreldrum tilkynnt að sú skólabygging væri nánast ónýt og að þessi 60 barna leikskóli yrði því fluttur í þarnæsta hverfi. Slatti af starfsfólkinu fylgdi ekki með. Eftir örfáa mánuði á nýja staðnum var okkur svo tillkynnt að sú bygging væri á niðurrifsáætlun borgarinnar. Niðurstaðan: næstum því þrjú ár í biðröð eftir leikskólaplássi og á einu ári mun strákurinn minn hafa verið í þremur leikskólabyggingum, tvær þeirra vel myglaðar og að hruni komnar.

Þessi staða er ekki bundin við hverfið mitt í 108. Þetta er staðan úti um alla borg. Innviðir eru í molum, borgin hefur ekki sinnt viðhaldi og grundvallaratriðum. Á sama tíma og við fjölskyldan höfum verið í þessari stöðu stæra borgaryfirvöld sig af því að inntökualdur á leikskóla sé að færast niður í borginni og að vel gangi að ná tökum á vandanum. Það er einfaldlega ekki rétt og hljómar meira eins og gaslýsing en sannleikur. Samfylkingin hefur meira og minna haldið á þessum málaflokki síðustu þrjú kjörtímabil og siglt honum í strand - sem og öðru.

Hvert í ósköpunum hafa peningarnir farið? Reykjavíkurborg fjárfestir að jafnaði fyrir 20 milljarða á ári. Þetta hljómar sem há tala en þegar horft er á ástand innviða í hverfum borgarinnar flækjast málin. Hvert í ósköpunum hafa þessir peningar farið miðað við ástandið á húsum, mygluna, brotnar gangstéttir og þar fram eftir götunum? Að okkar mati hafa of mörg hégómaverkefni fengið framgöngu, eitthvað sem er næs en ekki nauðsynlegt. Þegar kemur að því að forgangsraða peningum í fjárfestingar munum við horfa á hverfin í heild og forgangsraða í þágu barna í borginni. Ef borg er góð fyrir börn, er hún góð fyrir öll.

Reykjavíkurborg hefur um 200 milljarða króna í tekjur á ári þegar allt er talið: útsvarið, tekjur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, arðgreiðslur og einskiptistekjur. 200 milljarðar króna er auðvitað svimandi há fjárhæð samanborið við heimilisbókhaldið en megnið af peningunum fer strax aftur í rekstur á nauðsynlegum verkefnum á borð við leik- og grunnskóla, velferðar-

þjónustu, sorphirðu og þjónustu við fatlað fólk. Mestmegnis eru þetta verkefni sem Reykjavík ber samkvæmt lögum að sinna.

Á sama tíma fer of mikið fjármagn í löng og yfirmannafrek skipurit og flækjur innan borgarkerfisins. Við í Viðreisn ætlum að forgangsraða fjármunum borgarinnar með öðrum hætti: við ætlum að setja minni pening í kerfið og meiri pening í fólkið. Markmið okkar er skýrt: Reykjavíkurborg á að njóta stærðarhagkvæmni sem langstærsta sveitarfélagið þegar kemur að rekstri á þjónustu við íbúa. Staðan er einfaldlega ekki þannig í dag.

Við viljum að þessir 200 milljarðar sem borgin fær í tekjur á ári hverju skili sér með sem skilvirkustum hætti aftur út í hverfi borgarinnar - að þeir fari í grunnþjónustu við borgarbúa. Við erum að tala um sundlaugarnar, leikskólana, grunnskólana, velferðina og það að halda borginni okkar hreinni og fínni. Við erum líka að tala um eignir Reykjavíkurborgar.

Eignasjóður borgarinnar er eitt stærsta fasteignafélag landsins og þar leynast mörg af djásnum Reykjavíkur; söfn, skólabyggingar og íþróttamannvirki. Borgin hefur markvisst sleppt því að halda

byggingum sínum við og eytt peningunum í annað. Það er því ljóst að innviðaskuld fjölmargra mannvirkja borgarinnar hleypur á tugum milljarða. Viðreisn ætlar að setja stjórn yfir fasteignir borgarinnar þannig að ljóst sé hvar ábyrgðin liggur. Í framkvæmdum borgarinnar, sem einkum eru á vegum Eignasjóðs, viljum við að gagnsæi ríki með mælaborði framkvæmda.

Við bjóðum okkur fram til þess að taka ábyrgð 13 prósent landsmanna treysta borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta vantraust þarf ekki að koma á óvart þegar litið er til Braggans, Brákarborgar og Græna gímaldsinssem eru þrjú helstu klúður síðustu ára í Reykjavík. Ótrúlegt en satt benda kjörnir fulltrúar á hvern annan þegar spurt er: hver ber ábyrgð á þessum húsum? Ef við skiljum ekki hvernig þetta gerðist, hvernig eigum við þá að fyrirbyggja að svona gerist aftur?

Í mínum huga er ljóst að skerpa þarf á ábyrgðarkeðju innan borgarinnar þannig að ljóst sé á hverju pólitíkin beri ábyrgð á og á hverju stjórnkerfið beri ábyrgð á. Við í Viðreisn bjóðum okkur fram til að taka ábyrgð á því sem gerist í borginni á meðan við sitjum í borgarstjórn. Það er mikilvægur liður í því að snúa

vantrausti í traust.

Annar mikilvægur hlekkur í því að byggja upp traust er að treysta á móti. Við í Viðreisn ætlum að gera það. Við ætlum að treysta fagfólkinu í skólunum, við ætlum að treysta atvinnulífinu, við ætlum að treysta fólki sem vill skapa og gera borgina skemmtilegri og treysta fjölskyldum til að lifa sínu lífi.

Ég hvet þig til að kynna þér málefnin okkar nánar á vidreisnreykjavik.is - og svo setja X við C þann 16. maí næstkomandi.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík

Snúum Reykjavík við Allir sjá að eitthvað er að en það er ekki nóg. Það er ekkert mál að greina og tala um vandamálin við eldhúsborðið eða á samfélagsmiðlum. Annað er að bjóða fram lausnir. Við í Viðreisn bjóðum fram lausnir til þess að snúa Reykjavík við. Við erum teymi sem getur unnið saman og látið þessar lausnir raungerast. Við erum ekki að leita að þægilegri innivinnu heldur bjóðum við okkur fram til að mæta glöð og peppuð í vinnuna á hverjum degi fyrir borgarbúa. Við bjóðum okkur fram til þess að búa til skemmtilegri og betri borg sem Reykvíkingar eru stoltir af og velja að búa í.

Björg Magnúsdóttir.
Björg ræðir við RÚV um stefnu flokksins í borginni.
Mynd Gunnar Bjarki

Reykjavíkurborg er aukaleikari

- eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins

í Reykjavík

Stundum er sagt að bestu knattspyrnudómararnir séu þeir sem áhorfandinn tekur ekki eftir. Þeir leyfa leiknum að fljóta og grípa ekki inn í nema ýtrasta nauðsyn krefji. Þeir skapa umgjörð þar sem leikmennirnir – ekki dómarinn – eru í aðalhlutverki.

Sama má segja um hið opinbera. Hlutverk borgaryfirvalda í Reykjavík er ekki að þvælast fyrir íbúunum í hversdeginum, heldur að gera þeim kleift að lifa sínu lífi, upplifa drauma og þrár án afskipta. Reykjavíkurborg á

ekki að hafa skoðun á barnaafmælum eða hvort bjóða eigi upp á pylsur í grillveislum.

Okkar hlutverk er hið sama og knattspyrnudómarans. Sjá til þess að lífið fljóti og að borgararnir verði fyrir sem minnstum afskiptum frá borgaryfirvöldum.

Hvert er hlutverk borgarinnar?

Íbúar í Reykjavík eiga rétt á því að grunnþjónustunni sé sinnt, og að þeir

á að þrífa reglulega, ruslið skal tæma, snjó að moka, gras að slá og arfa að reyta. Stefnu borgaryfirvalda um „viljandi villt“, þarf að afnema, enda ekkert annað en umbúðir utan um skort á vilja og getu til að hirða almennilega um borgarlandið.

Við þurfum að sjá til þess að fólk fái leikskólapláss í sínum hverfum og að samgöngur gangi greiðar fyrir sig. Hvort tveggja tekur auðvitað tíma eftir áratuga óstjórn í þessum málaflokkum, en strax þarf að hefjast handa við að

VISSIR ÞÚ?

Björnsdóttir.

leysa úr flækjunum.

Sama gildir um húsnæðismarkaðinn. Tölur sýna að borgarbúar vilja ekki ofurþéttingu, og margra hæða hús. Þá dreymir um eigið húsnæði, og þar skipta hlutir eins og bílastæði og góð ljósvist miklu máli. Auðvitað má þétta þar sem það á við, en við verðum að hverfa frá þeirri ofurþéttingarstefnu sem hér hefur verið rekin undanfarin ár.

Að lifa á sínu forsendum

Tryggja þarf að íþróttaaðstaða í öllum hverfum borgarinnar sé fyrsta flokks. Íþróttamiðstöðvar og sundlaugar eru lykilþáttur í lífi Reykvíkinga. Sama gildir um grænu

svæðin sem eru hverfunum okkar svo mikilvæg. Þau þarf að vernda hvað sem það kostar.

Reykjavíkurborg á að sinna sínu grunnhlutverki en láta íbúana að öðru leyti í friði. Reykjavík á að vera borg þar sem grunnþjónustan virkar, og íbúar komast leiðar sinnar stóráfallalaust.

Borgaryfirvöld eru ekki í aðalhlutverki, heldur íbúarnir.

Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

AÐ JEFFREY „THE DUDE“ LEBOWSKI ÞOLDI EKKI EAGLES.

Hildur
Hildur á meðal fólks á fallegum degi í Reykjavík.

Grafarholtsblaðið Grafarholtsblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssongv@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.

Kjósum rétt á laugardaginn

Næsta laugardag verður gengið til sveitastjórnakosninga og landsmenn fá tækifæri til að tjá sig í kjörklefanum og meta frammistöðu stjórnmálamanna síðustu fjögur árin.

Kosningarnar í Reykjavík vekja eðlilega mestan áhuga og útlit er fyrir að kosningarnar verði mjög spennandi í Reykjavík.

Kjósendur hafa í skoðanakönnunum síðustu vikurnar lagt ríka áherslu á að breytinga sé þörf í Reykjavík. Um 73% kjósenda segjast vilja breytingar. Mörg framboðin segjast vilja breytingar og nú er bara að sjá hverjir veljast til meirihluta starfa í borginni og hvort einhverjar breytingar eigi sér stað.

Þessar kosningar verða mjög mikilvægar fyrir úthverfin í Reykjavík. Að margra mati hefur verið valtað yfir íbúa í úthverfunum í mörgum málum, til að mynda í þéttingarmálum. Allir muna eftir græna gímaldinu í Breiðholti, gatnamótunum við Bæjarháls og Höfðabakka og hvernig mál hafa gengið fyrir sig hjá Fram í Úlfarsárdal og Fylki í Árbænum.

Núna síðustu dagana fyrir kosningarnar hefur verið rokið til í nokkrum málum og reynt að bjarga andlitum. Slík viðbrögð korteri fyrir kosningar kalla á verðskuldað vantraust.

Íbúar í úthverfunum þurfa að kjósa rétt á laugardaginn og hafa í huga hvernig mál hafa þróast síðustu fjögur árin. Og kjósendur þurfa að íhuga vel hvaða flokk er best að kjósa með raunverulegar breytingar í huga.

Það eru margir óánægðir og aðeins er ein leið fær til að gera breytingar. Það er að kjósa flokk sem íbúar treysta. Það er spennandi laugardagur framundan og ekki aðeins kosningar. Þann daginn er söngvakeppni Evrópu líka á dagskrá. Ég kýs að hundsa hana en mun nýta atkvæði mitt með breytingar í huga. Stefán Kristjánsson

Gerum borgarbúum lífið einfaldara

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Íbúar í úthverfum Reykjavíkur þekkja það vel að daglegt líf tekur sífellt meiri tíma. Að koma börnum í skóla og tómstundir, aka til vinnu eða einfaldlega komast á milli staða er orðið mun erfiðara en það þarf að vera og var áður fyrr. Umferðin þyngist, tafir aukast og ákvarðanir virðast of oft teknar án þess að horft sé til þess hvernig fólk lifir raunverulega í borginni.

Þetta finna íbúar í Árbæ og Norðlingaholti, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal, Breiðholti og víðar fyrir á hverjum degi.

Á sama tíma hefur borgarstjórnarmeirihlutinn lagt megináherslu á að þrengja að umferð, fækka bílastæðum og þétta byggð án þess að innviðir ráði við fjölgunina. Fólk upplifir sífellt meiri tafir og meiri flækjur í stað betri samgangna.

Þessu er vel hægt að breyta og það strax, enda eru þetta pólitískar ákvarðanir.

Við getum lagað umferðina strax Sjálfstæðisflokkurinn vill fara aðra leið. Við viljum borg sem byggir á skynsemi, jafnvægi og raunverulegum þörfum fólks. Borg þar sem markmiðið er að auðvelda fólki lífið í stað þess að gera það flóknara.

Þess vegna höfum við lagt fram skýran aðgerðalista í samgöngumálum. Á fyrstu 100 dögunum ætlum við að endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og kalla eftir gagnsæi í fjármögnun hans. Borgarbúar eiga rétt á að vita hvað framkvæmdin kostar og hver borgar reikninginn. Við viljum einnig hafna fyrirhuguðu

deiliskipulagi við Suðurlandsbraut sem mun auka álag á þegar þunga umferð. Þá ætlum við að vinda ofan af þrengingum á gatnamótum við Höfðabakka strax, þar sem breytingar hafa haft augljós áhrif á flæði og tafir í umferð. Við munum stytta gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni svo ekki verði rukkað eftir klukkan 18 og fjarlægja

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

aðskotahluti úr bílastæðum sem hafa þrengt að aðgengi fólks og fyrirtækja. Þá viljum við afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara til að auðvelda uppbyggingu og minnka álag á göturými í íbúðahverfum.

Sveigjanlegri mætingartími

En þetta snýst ekki eingöngu um bíla.

Þetta snýst um að samgöngukerfið allt virki betur. Á næstu tólf mánuðum viljum við flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg, bæta snjómokstur og hreinsun gatna, bæta lýsingu á gönguleiðum barna og nýta tæknilausnir og gervigreind til að bæta þjónustu Strætó út frá raunverulegri notkun. Við ætlum enn fremur að vinna með Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Landspítalanum að betri dreifingu álags í umferðinni með sveigjanlegri mætingartíma. Það þarf ekki alltaf flóknar og dýrar lausnir til að bæta umferðina, stundum þarf einfaldlega að skipuleggja hlutina betur. Til lengri tíma þurfum við síðan að ráðast í alvöru innviðauppbyggingu. Þar eru Miklubrautargöng, mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðaveg og uppbygging Sundabrautar lykilverkefni. Við viljum jafnframt endurskoða Borgarlínuna frá grunni og byggja upp hraðvagnakerfi á sérakreinum sem bætir almenningssamgöngur án þess að þrengja að annarri umferð. Góð borg tryggir fjölbreytta valkosti og greiðar samgöngur fyrir alla. Reykjavík á að vera borg sem virkar fyrir fjölskyldur í úthverfunum, fyrir atvinnulífið og fyrir allt það fólk sem heldur samfélaginu gangandi á hverjum degi.

Við getum gert betur. Og við eigum að gera það strax.

Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.

Hreyfing fyrir lífið

Sumarið og samfelldnin: Hreyfing fyrir lífið, ekki bara fyrir tímabilið Sumarið á Íslandi er dásamlegur tími. Dagarnir lengjast, sólin hækkar á lofti og við fyllumst mörg hver nýrri orku. Með hærra hitastigi og fríum fylgir hins vegar oft sú gildra að við setjum heilsuna og rútínuna í „sumarfrí“. Við hugsum jafnvel að nú sé tíminn til að slaka á öllum viðmiðum, bara njóta og byrja svo af krafti í september.

En hvað ef við breytum þessari nálgun? Hvað ef hreyfing væri ekki eitthvað sem við gerum til að „verða tilbúin fyrir sumarið“, heldur eitthvað sem við gerum til að njóta sumarsins – og lífsins alls – betur?

Forðastu „byrjunarreitinn“ í september

Við þekkjum þetta mörg. Eftir nokkurra vikna eða mánaða hlé frá skipulagðri hreyfingu er eins og

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir.Torfi Markússon.

Sundabrautar

Hjá Metabolic Reykjavík leggjum við áherslu á að hreyfing sé fjárfesting í lífsgæðum. Þegar við hreyfum okkur með það að markmiði að líða vel, styrkja vöðva

stressinu í skefjum. Veitir okkur hugarró.

● Líkaminn er verkfæri, ekki sýningargripur: Þegar við hættum að einblína á spegilmyndina og förum að einblína á getuna, þá verður hreyfingin ánægjulegri. Við mætum vegna þess að okkur þykir vænt um líkamann og viljum halda honum starfhæfum til langs tíma. Musteri sálarinnar.

Reglusemi með sveigjanleika Að halda áfram í sumar þýðir ekki að þú þurfir að fórna öllu hinu. Það snýst um að finna jafnvægið. Kannski mætirðu sjaldnar, eða kemur í morguntímana svo þú eigir eftirmiðdaginn fyrir gleði og grill. Aðalatriðið er að rjúfa ekki tengslin við þína eigin vellíðan og persónulega uppbyggingu.

Látum sumarið vera tíma þar sem

maður sé á byrjunarreit þegar haustið bankar upp á. Þreytan er fljótari að láta á sér kræla, vöðvarnir eru stífir og tilhugsunin við að mæta aftur virðist óyfirstíganleg.

Með því að halda regluseminni áfram yfir sumarmánuðina – jafnvel þótt við drögum aðeins úr eða mætum á öðrum tímum – getum við komið í veg fyrir þetta bakslag. Það er miklu auðveldara að viðhalda forminu en að þurfa að byggja það upp frá grunni á hverju hausti! Samfelldni er lykillinn að því að líkaminn haldi áfram að vinna með okkur, en ekki á móti okkur.

Við hreyfum okkur fyrir lífið – ekki útlitið

og bæta hjartaheilsu ásamt þeirri andlegu, þá skiptir minna máli hvernig við lítum út í sundfötum og meira máli hvernig okkur tekst að takast á við verkefni dagsins.

● Orka í ævintýrin: Við hreyfum okkur svo við getum gengið á fjöll, leikið við börnin eða barnabörnin, hjólað um landið og notið útivistar án þess að líkaminn setji okkur takmörk. Að vera frjáls í eigin skinni.

● Andlegt jafnvægi: Sumarið getur verið annasamt með ferðalögum og hittingum. Regluleg hreyfing er akkerið okkar; hún gefur okkur andlegt rými og heldur

við ræktum styrkinn okkar, höldum rútínunni lifandi og mætum septembermánuði með forskot. Ekki vegna þess að við „þurfum“ að líta út á ákveðinn hátt, heldur vegna þess að okkur líður svo miklu betur þegar við erum á hreyfingu.

Sjáumst hress í Metabolic í allt sumar – þar sem við keppum bara við okkur sjálf!

Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðanum, prófaðu tvær vikur frítt! Og finndu muninn á líkama og sál. Við hlökkum til að taka á móti þér!

Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Saga Sundabrautar er löng og einkennileg að mörgu leyti. Deilur um Sundabrautina hafa lengi einkennst af flokksdráttum og skotgröfum. Hugmyndin var fyrst sett fram árið 1975 og síðar var Sundabrautin skilgreind sem þjóðbraut, og þar með á ábyrgð ríkisins en ekki Reykjavíkurborgar. Úthverfin í Reykjavík hafa lengi beðið eftir þessari framkvæmd enda mun hún leiða af sér mun minni umferðartafir á Vesturlandsvegi. Þetta er því mjög mikilvæg samgöngubót fyrir öll úthverfi borgarinnar, sérstaklega þau sem eru austan Elliðaár og hefði átt að koma til framkvæmda miklu fyrr. Nú, loks 50 árum síðar, 13. október 2025, kom út Umhverfismat – samantektarskýrsla Vegagerðarinnar um þessa framkvæmd. Niðurstaða umhverfismats Vegagerðarinnar er að allir aðalvalkostir teljast uppfylla markmið framkvæmdarinnar. En það kemur vissulega mikið á óvart að brú er talin uppfylla markmiðin betur en göng. Stöldrum hér aðeins við. Íbúaráð Grafarvogs hafði rætt aðalvalkosti framkvæmdanna ítarlega. Ráðið komst einróma að þeirri niðurstöðu að göng væru mun fýsilegri kostur. En í hverju felst þessi mikli munur á afstöðu Íbúaráðs og niðurstöðum Vegagerðarinnar?

Í skýrslu um umhverfismatið kemur fram að sett eru sex meginmarkmið sem valkostirnir (göng eða brú) þurfa að uppfylla. Byggt á þessum markmiðum kemst Vegagerðin sem sagt að þeirri niðurstöðu að brú uppfylli markmiðin betur en gögn. Í þessum samanburði er niðurstaða Vegagerðarinnar að brúin sé besti kosturinn í þremur markmiðum af sex, sjá meðfylgjandi töflu.

Ef markmiðin sjálf eru skoðuð má þó sjá að mikið vantar. Það vantar að uppfæra markmið framkvæmdarinnar með hliðsjón af nútímakröfum um lýðheilsu íbúa, náttúruvernd og færð. Í raun vantar að setja eftirfarandi markmið fram:

• Íbúar geti notið ósnortinnar strandlengju

• Íbúar geti notið kyrrðar og friðs ofanjarðar (ekkert suð yfir 30 Db)

• Íbúar hafi trygga samgöngubót sem ekki þarf að loka fyrirvaralaust vegna veðurs

Með einföldu mati, sem auðvitað þyrfti að vinna betur, þar sem einnig er lagt mat á þessi viðbótar markmið þá myndu Sundagöng að öllum líkindum teljast betri kostur. Afar mikilvægt er að setja rétt markmið þegar jafn mikilvæg undirbúningsvinna er unnin eins og umhverfismat er í þessu tilfelli. Þegar framkvæmdirnar og breytingin á umhverfinu eru óafturkræfar. Því er mikilvægt að rýna markmiðin vel og ná samstöðu um þau áður en útreikningar og samanburður er gerður á mögulegum valkostum. Markmiðin leiða niðurstöðuna – og því er lykilatriði að þau séu rétt í upphafi. Ef forsendurnar eru rangar verður niðurstaðan það einnig. Það er líklega ástæðan fyrir niðurstöðu Vegagerðarinnar. Þessu til viðbótar teljum við sem skrifum þessa grein að brú myndi ekki bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta. Jú, hægt er að ganga og hjóla yfir brúna, en þá í miklum umferðarhávaða og berskjöldun fyrir óblíðu veðri. Mun vænlegra er að ganga eða hjóla í friði, ró og í mildara veðri meðfram strandlengjunni og fara yfir voginn undir Gullinbrú. Eins og Grafarvogsbúar eru vanir að gera. Sú leið býður upp á mun ánægjulegri upplifun í ósnortnu umhverfi og meiri veðursæld. Við sem skipum G-lista Góða dagsins munum beita okkur fyrir því að opnað verði á umhverfismatið eins og það var unnið og bæta við þeim markmiðum sem hér eru talin fram og hefja í kjölfarið gangnagerð.

Höfundar: Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, skipar 2. sæti á G-lista Góða dagsins Torfi Markússon, skipar 3. sæti á G-lista Góða dagsins

Tafla: Niðurstaða umhverfismats Vegagerðarinnar og viðbótarmarkmið um lýðheilsu, náttúruvernd og færð

Sterk velferð –stolt Reykjavík

- eftir Pétur Marteinsson, oddvita

Samfylkingarinnar í Reykjavík

Reykjavík er frábær borg. Á síðustu árum og áratugum hefur hún vaxið og dafnað á fjölmörgum sviðum. Tímabilið 2019–2024 var eitt mesta uppbyggingartímabil í sögu borgarinnar og Reykjavík hefur á síðustu árum verið á meðal þeirra borga í Evrópu sem eru hlutfallslega í örustum vexti. Þessu vaxtartímabili hafa fylgt stóraukin lífsgæði fyrir borgarbúa og landsmenn alla, sem eiga höfuðborgina saman. En því hafa líka fylgt áskoranir sem margir borgarbúar finna fyrir á hverjum degi. Það er skortur á ákveðinni tegund af húsnæði. Sívaxandi umferð er mörgum erfið og leikskólakerfið er ekki að virka eins og við öll viljum. Hér er einungis stiklað á stóru. Flóknari samfélagsgerð fylgja einfaldlega flóknari verkefni.

Vel rekin borg og öflugt atvinnulíf

Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að halda vel á rekstri borgarinnar svo hægt sé að standa undir þeim kröfum sem íbúar gera til hennar þegar kemur að innviðafjárfestingu og þjónustuveitingu. Allar lykiltölur um fjármálalegt heilbrigði sýna stöðu Reykjavíkur vera betur rekna en meira og minna öll önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem flestum er stýrt af Sjálfstæðisflokknum.

Það þarf þó að gera betur og við í Samfylkingunni leggjum sérstaka áherslu á að einfalda lífið fyrir fólk og fyrirtæki eftir komandi kosningar. Að hagræða í yfirbyggingu án þess að það bitni á gæðum þjónustu, létta á og stytta biðtíma. Borgin á að vera með atvinnulífinu í liði, ekki hindra framgang þess.

Það kemur ekki til greina að rífa upp sáttmálann

Sú mikla fjölgun íbúa sem orðið hefur í Reykjavík og í nágrannasveitarfélögum hennar hefur gert það að verkum að umferðin hefur þyngst hratt. Frá árinu 2016 hafa um 70 bílar bæst við umferðina á höfuðborgarsvæðinu í hverri viku.

Vegna þessa var ráðist í að gera samgöngusáttmála fyrir svæðið allt. Hann var gerður 2019 með það fyrir augum að liðka fyrir einkabílnum, almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi. Í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna árið 2022 var sáttmálinn tekinn upp að nýju og endurskoðaður og hann var undirritaður, að uppistöðu af fulltrúum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks frá ríki og sveitarfélögum, fyrir tæpum tveimur árum. Nú tveimur árum eftir að þeirri endurskoðun lauk, sem tók tvö ár, vilja ýmis framboð hefja það ferli aftur, með fleiri nefndum og meiri töfum. Það kemur ekki til greina af hálfu okkar í Samfylkingunni vegna þess að það væri gríðarlega ábyrgðarlaust og myndi fresta úrbótum fyrir alla, sama hvernig

þeir ferðast frá A til B, um mörg ár.

Börnin í fyrsta sæti

Við ætlum að lögfesta rétt barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi í samstarfi við ríkið, taka upp systkinaforgang, bæta vinnuaðstæður og fjölga leikskólaplássum um 1.500 á kjörtímabilinu til að bjóða yngri börnum inn á leikskóla.

Þessar áherslur koma í kjölfar Reykjavíkurleiðarinnar svokölluðu sem kynnt var fyrr á árinu og hefur það markmið að gera leikskóla borgarinnar að aðlaðandi vinnustað, að minnka bil milli vinnutíma starfsfólks og vistunartíma barna, bæta mönnunarstöðu og um leið mæta foreldrum á jafnræðisgrundvelli út frá efnahagslegri stöðu þeirra.

Vel hefur verið tekið í leiðina og skráning nýs vistunartíma verið umfram áætlanir.

Byggjum húsnæði fyrir fólk

Samfylkingin vill byggja upp húsnæðismarkað þar sem allir geta fundið sér heimili við hæfi, þar sem húsnæðisöryggi er tryggt, meðal annars

með óhagnaðardrifinni uppbyggingu. Í kosningaáherslum okkar er lagt upp með að byggja um 6.000 nýjar íbúðir í Reykjavík á næstu fjórum árum. Auk þess hefur náðst tímamótasamkomulag milli ríkisstjórnarinnar, sem leidd er af Samfylkingunni, og borgarinnar um uppbyggingu allt að 1.400 íbúða á reitum innan borgarinnar sem eru í eigu ríkisins.

Með þessum áherslum verður til stöðug og fyrirsjáanleg uppbygging þar sem markmiðið er að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði og mæta raunverulegri þörf allra borgarbúa.

Verjum árangurinn og sækjum fram En fyrst og síðast þarf Reykjavík að vera borg sem gerir okkur stolt. Þar sem við einblínum á það sem skiptir mestu máli og tökum ábyrgð hvert á öðru. Setjum börnin í fyrsta sæti, byggjum fyrir alla tekjuhópa og hlúum að fólkinu sem byggði landið.

Pétur Marteinsson er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Það er afar mikilvægt að þeir flokkar sem boða kúvendingar komist ekki í aðstöðu til að grafa undan því samfélagi sem við höfum byggt upp. Harkaleg U-beygja til hægri, þar sem við hættum að byggja fyrir alla hópa, seljum eignir og látum stórfyrirtæki sjá um leikskólana bitnar alltaf verst á venjulegu fólki og því sem við eigum saman.

Mótvægið við því eru breytingar á grunni jafnaðarmennsku. Þar sem við pössum upp það sem við eigum hérna saman og tryggjum að kerfið virki fyrir fólkið. Við í Samfylkingu bjóðum fram nýtt fólk, nýjar áherslur en sama markmið: Sterk velferð – stolt Reykjavík.

Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík

Samfylkingin ætlar að létta á kerfinu.

Grafarholtið og Úlfarsdalurinn eru dásamleg hverfi – og við viljum halda þeim þannig

Ég býð mig fram til borgarstjórnar því mér finnst sjónarmið íbúa úthverfa of oft ekki fá næga athygli í ákvörðunum borgarinnar. Ég er fjölskyldufaðir, á þrjár dætur og fjögur barnabörn, og vil leggja mitt af mörkum til að gera borgina enn betri – ekki síst fyrir komandi kynslóðir. Það er einfaldlega hægt að gera mun betur á mörgum sviðum.

Ég hef víðtæka reynslu af rekstri sveitarfélaga. Á árunum 2011–2025 starfaði ég sem stjórnandi hjá Kópavogsbæ þar sem ég leiddi stafræna

umbreytingu, upplýsingatækni og þjónustu. Ég vann að umbótum á þjónustuferlum með það að markmiði að einfalda líf íbúa og bæta upplifun þeirra með góðum árangri. Góð þjónusta á að vera grunnstoð í allri starfsemi sveitarfélaga. Ég hef sérstakan áhuga á skólamálum. Konan mín og systir eru grunnskólakennarar og ég kenndi sjálfur við háskóla í 11 ár. Ég stýrði einnig átaki í breyttum kennsluháttum í Kópavogi og hef góða innsýn í áskoranir og tækifæri í skólastarfi. Í Kópavogsbæ sá ég meðal annars um

uppbyggingu á vöruhúsi gagna sem gerði stjórnendum kleift að hafa betri og áreiðanlegri gögn til ákvarðanatöku. Ýmis mælaborð voru síðan sett ofan á gögnin, sem gerði kleift að mæla árangur í starfseminni og bregðast hraðar við ef eitthvað fór að fara aflaga. Ég leiddi meðal annars verkefnið „Hvert fara peningarnir“ árið 2016. Með því verkefni opnaði Kópavogsbær bókhald sitt upp á gátt og varð fyrsti opinberi aðilinn á Íslandi til að gera slíkt. Í kjölfarið lagði ég mig fram við að aðstoða aðra við að fara sömu leið og kom meðal annars að því að styðja Reykjavíkurborg í slíkri innleiðingu.

Ég vill sjá aukið gagnsæi og gott aðgengi að upplýsingum til að styðja við ákvörðunartöku og hagræðingu.

Góð þjónusta við borgarbúa er mér afar hugleikin og ég vil nýta rafrænar mælingar á þjónustustigi til að geta brugðist við og aðlagað þjónustu að þörfum borgarbúa.

Árið 2022 var ég skipaður í Íbúaráð Grafarvogs. Þar sá ég fljótt að þrátt fyrir skýrar ábendingar og breiða samstöðu íbúa var oft lítið brugðist við – og stundum farið í þveröfuga átt. Sömu sögu er að segja frá öðrum Íbúaráðum. Lítið brugðist við bókunum Íbúaráðanna.

Grafarholtið og Úlfarsárdalurinn eru frábærir staðir til að búa á. Hér er sterkt og fjölskylduvænt samfélag, góðir skólar og leikskólar og öflugt íþróttaog menningarlíf. Við njótum Úlfarsfellsins, Reynisvatns, Hólmsheiðarinnar, sundlaugarinnar, stíganna, bókasafnsins, golfvallarins og alls þess sem gerir hverfið einstakt. Þetta viljum við vernda og efla.

Ég býð mig fram til að nýta þessa reynslu í þágu borgarbúa. Það skiptir máli að hafa góða þekkingu og reynslu í borgarstjórn. Ég mun leggja mig allan fram til að ná árangri – ef mér verður

Þór Friðriksson..

treyst fyrir því verkefni og vinna málefnalega með öllum þeim sem þangað veljast. Ingimar Þór Friðriksson Höfundur skipar 1. sætið á G-lista Góða dagsins í Reykjavík.

Frá vinstri Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, Árman Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Ingimar Þór Friðriksson Ljósmynd: Haraldur Guðjónson Birt í Viðskiptablaðinu 16.09.2016. Í faðmi fjölskyldunnar. Ljósmynd: Ingimar Þór Friðriksson

Ljósmynd: Ingimar Þór Friðriksson (félagi tók myndina).

Hola í höggi á 17. holu í Grafarholti.
Ingimar

Traustur rekstur | Virðum vilja íbúa

1. sæti – Ingimar Þór Friðriksson

Þekking í stað flokkspólitíkur

Ingimar hefur undanfarin 15 ár starfað sem stjórnandi hjá Kópavogsbæ við að bæta þjónustuferla og styrkja innviði bæjarins með góðum árangri en bærinn er leiðandi í þessum málum á landsvísu.

2. sæti – Hjördís Dröfn

Sjálfbær rekstur borgarinnar

Einföldum skipulag borgarinnar, hagræðum í rekstri, drögum úr skuldasöfnun og leggjum áherslu á traustar stjórnsýsluaðferðir.

3. sæti – Torfi Markússon Bætum umferðina, næg bílastæði og aðgát í þéttingu byggðar

Við viljum að íbúar geti valið sér raunhæfa samgöngumáta.

4. sæti – Nathalia B. Tómasdóttir

Grunnskólinn

Endurskoða skóla án aðgreiningar, meta árangurinn og taka svo upplýsta ákvörðun um breytingu.

5. sæti – Jón L. Árnason

Eldri borgarar

Mikilvægt er að eiga gott samtal við eldri borgara um hverjar þarfir þeirra eru. Það munum við m.a. gera með reglulegum viðhorfskönnunum.

6. sæti – Björn Jóhann Þórsson

Skemmtilegri borg

Styðjum fjölbreytta menningu og ýtum undir sköpun.

Eflum fræðslu og forvarnir og styðjum við lýðheilsu í víðum skilningi. Hlustum á íþróttafélögin og bregðumst við.

Hann hefur meðal annars leitt stafræna umbreytingu, innleitt notkun gervigreindar og stýrt átaki í breyttum kennsluháttum.

Þekking í stað flokkspólitíkur

Ingimar þekkir þjónustuferla sveitarfélaga vel og veit hvernig má bæta þá og lækka kostnað.

Til að bæta rekstur borgarinnar þarf skýra stefnu, mælanleg markmið og hæft fólk í borgarstjórn.

Þetta eru lykilforsendur við sjálfbæran rekstur og betri þjónustu til lengri tíma.

Þekking í stað flokkspólitíkur

Áríðandi er að bæta samgönguvandamál bæði fyrir bíla og almennings samgöngur. Hægt er að útfæra lausnir án þess að þrengja að umferðinni með snjallljósastýringum og álíka lausnum.

Að fá Ingimar inn í borgarstjórn er gríðarlegt tækifæri fyrir borgarbúa – þar kemur inn djúp þekking á rekstri og skýr sýn á hvernig má bæta þjónustu og nýta fjármuni betur.

Betri vinnustaður

Árangur borgarinnar byggir á öflugu starfsfólki. Við viljum skapa vinnuumhverfi þar sem það nýtur trausts, stuðnings og góðra starfsskilyrða.

Góður vinnustaður er forsenda góðrar þjónustu.

Góð viðmið um birtu íbúða er skilyrði.

Þétting byggðar á aðeins að eiga sér stað í góðri sátt við íbúa og innviði hverfa.

Við viljum tryggja raunhæft skipulag hverfa með að lágmarki 1,5 bílastæði á hverja íbúð, og heimila uppbyggingu bílastæðahúsa þar sem það á við.

Grunnskólinn er ein mikilvægasta þjónusta borgarinnar og hefur afgerandi áhrif á framtíð samfélagsins.

Við viljum styrkja stuðning við nemendur með fjölbreyttan bakgrunn, þar á meðal þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.

Þekking í stað flokkspólitíkur

Við viljum styðja við það að fólk geti búið sem lengst heima og þá með þjónustu. Mikilvægt er að sporna við félagslegri einangrun eldra fólks.

Við viljum eiga samtal við eldri borgara um breytingar á húsnæðisþörf þeirra á efri árum.

Við viljum fjölga góðum dögum í Reykjavík, góð lýðheilsa og gott menningarlíf er stór þáttur í því.

Við leggjum því mikið upp úr öflugu íþróttastarfi og viljum leggja okkar á vogarskálarnar til efla það.

Auðvelda þarf aðgang efnaminni og erlendra barna að skipulögðu frístundastarfi.

Fjölga skólaúrræðum fyrir fötluð börn sem þess óska.

Þjónusta við borgarbúa

Mikilvægasta hlutverk Reykjavíkurborgar er að veita íbúum góða og áreiðanlega þjónustu. Við viljum setja þjónustuna í forgang og tryggja að hún taki mið af raunverulegum þörfum borgarbúa.

Til að mæta óskum íbúa viljum við gera reglulega þjónustukannanir. Við munum mæla árangur þjónustunnar markvisst og birta niðurstöður með gagnsæjum hætti. Þetta á við um alla þjónustuþætti borgarinnar, þar á meðal meðferð ábendinga og erinda frá íbúum.

X

erl leið Ertu á

? endis

sóttáK

á KEF og ð

Eyesl

land í Kringlunni, G

Kefla Spön

Mátað avíkurflugvelli á Du

Glæsibæ, slunum

nginni eða á Granda

a og sæktu á

ðu gleraugun í vers uty free verði.

Hallar – uppbygging

sem þarf að endurskoða

- eftir Söfu Jemai, frambjóðanda

Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals hafa um langt skeið búið við friðsælt umhverfi, gott grenndarsamfélag og nálægð við náttúru. Nú stendur til að reisa risavaxið hverfi í svokölluðum Höllum, skammt frá núverandi byggð, þar sem áætlað er að um tíu þúsund manns muni búa. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum miklar áhyggjur af þessum áformum og teljum brýnt að íbúar fái raunverulega rödd í þessu máli.

Sjöföldun byggingarmagns

Samkvæmt fyrra aðalskipulagi átti að reisa 562 íbúðir á þessum reit. Nú er gert ráð fyrir allt að 4.000 íbúðum –sem jafngildir sjöföldun á byggingarmagni. Þetta er gríðarleg breyting sem krefst miklu meiri umræðu og samráðs en borgaryfirvöld hafa hingað til boðið upp á. Það er einfaldlega óábyrgt að samþykkja svo stórfellda breytingu á skipulagi án þess að sýna fram á hvernig innviðir muni þjóna nýjum hverfisbúum.

Innviðir og þjónusta vantar

Tíu þúsund manna hverfi kallar á minnst tvo nýja grunnskóla og nærri fjórföldun á leikskólaplássum. Enginn hefur útskýrt hvernig þetta verður fjármagnað eða hvenær þessi þjónusta verður til staðar. Umferðarálag á Vesturlandsveg og tengigötur mun aukast verulega, en samgönguáætlun er í besta falli á frumstigi. Bílastæðastefna borgaryfirvalda gerir illt verra – hún miðast við að fólk noti almenningssamgöngur sem enn eru ekki til staðar á svæðinu.

Fjölbreytni, ekki einhæfni

Sjálfstæðisflokkurinn er ekki á móti uppbyggingu sem slíkri. Við viljum sjá húsnæði rísa í Reykjavík og vitum vel að framboðsskorttur er raunverulegt vandamál. En lausnin er ekki að safna þúsundum íbúða á einn reit í stórum blokkum sem líkjast meira gettóbyggð en líflegum borgarhluta.

Við teljum að uppbygging eigi að

vera fjölbreytt og blönduð –einbýlishús, raðhús, minni fjölbýlishús og stærri byggingar eiga að standa hlið við hlið. Þetta skapar heilbrigðara samfélag þar sem fjölskyldur á ólíkum lífsskeiðum og með ólík efnahagsskilyrði geta átt sér heimili. Einsleitar stórar blokkir leiða til einsleitni í samfélaginu sjálfu.

Hvað viljum við?

Sjálfstæðisflokkurinn vill að skipulag í Höllum taki mið af þörfum íbúa sem þegar búa á svæðinu. Við krefjumst þess að innviðir – skólar, samgöngur, þjónusta – séu tryggðir áður en byrjað að grafa fyrir húsagrunnum. Við viljum blandaða

byggð sem endurspeglar fjölbreytni samfélagsins, ekki einhæfa risablokk sem skákar öllu í kring. Uppbygging á að vera í þágu fólksins – ekki skipulagsfræðinga sem teikna á blaði án tengsla við raunveruleikann. Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal eiga skilið betra.

Safa Jemai Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Grillhorn Árbæjarblaðsins:

Lambakonfektið

Lambakonfektið klikkar ekki og kemur með sumarið til okkar! Það er vöruliður sem hefur fylgt okkur frá stofnun fyrirtækisins og er það einn vinsælasti vöruliðurinn okkar í dag.

ELDUNARLEIÐBEININGAR

Stillið grillið á meðalhita og raðið konfektinu á grillið, það er gott að hafa þolinmæði í þetta og elda á medium hita, því við viljum ekki brenna þetta lostæti. Gott er að velta konfektinu í ca. 8 mínútur á grillinu og setja jafnvel í 3-4 mínútur á efri hæðina á grillinu þar sem er hita minna svæði ef það er svoleiðis svæði á grillinu.

HVÍTLAUKS LIME SÓSA

Mayones 200 gr.

Sýrður rjómi 100 gr. Salt 6 gr.

Hvítlauksolía 20 gr.

Limesafi úr hálfu fersku lime. Steinselja fersk söxuð fínt.

Blandið öllu saman og hrærið vel, sósan er best þegar hún hefur fengið að vera í kæli yfir nótt.

Nokkur góð ráð við val á kjöti:

Það er góð regla að spyrja kjötkaupmanninn hvað steikin sem þú ert að kaupa er búin að hanga/meyrna í langan tíma. Ef kaupmaðurinn getur ekki svarað því þá ertu ekki á réttum stað. Svarið sem þú vilt heyra er að vöðvinn sé búinn að hanga að lágmarki í 25 daga.

Það sem skilar einnig góðu bragði og mikilli mýkt í kjötið er fitan, því er okkar slagorð ,,Í fitunni felast gæðin."

Liturinn á kjöti sem er tilbúið til neyslu er yfirleitt

rauð/matt/burgundy rautt.

Forðastu steik sem er fitulaus og skærrauð á litinn, annars ertu að fara að slást við steikina á disknum eftir eldun.

Ef þú ert með sérþarfir vertu þá ekki feimin/n við að bera fram þínar óskir, hlutverk kjötkaupmannsins er að koma til móts við allar séróskir.

Okkar ráð er: Kauptu gott kjöt og eldaðu það á einfaldan máta.

Eldunartips:

Númer eitt, tvö og þrjú - veljið gott kjöt á grillið! Gæðin svíkja þig ekki. Passið að þrífa grillið vel eftir

hverja notkun. Notið alltaf kjarnhitamæli til að hitta á réttu steikninguna, ef þið eigið hann ekki þá er best að drífa sig að kaupa einn slíkan.

Ef þú ert með nautasteik, gefðu þér góðan tíma í eldamennskuna, það er yfirleitt best að elda steikina á lágum hita og fá jafna steikningu í gegnum allan vöðvann.

Okkar ráð er að loka steikinni á miklum hita og lækka svo hitann í 80-100 gráður og klára eldun. Láta steikina hvíla í 5-10 mínútur, fer eftir stærð.

Lamba konfektið frá Kjötkompaníinu er frábært á grillið.
Safa Jemai.

Vinna saman að hagsmunamálum eigenda fasteigna

Eignaumsjón og Húseigendafélagið hafa gert með sér samkomulag um samstarf og samvinnu og munu beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á. Samkomulagið hefur þegar tekið gildi.

Auk þess að beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á, nær samkomulagið einnig til eftirfarandi þátta:

• Eignaumsjón fær aðgang að lögfræðingum Húseigendafélagsins fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar, skv. gjaldskrá Húseigendafélagsins.

• Húseigendafélagið leigir fundasali hjá Eignaumsjón á hagstæðu verði og Eignaumsjón fær aðgang að fundarstjórum sem Húseigendafélagið hefur í starfi, eftir nánara samkomulagi hverju sinni.

• Eignaumsjón getur boðið viðskiptavinum sínum upp á námskeið Húseigendafélagsins gegn hagstæðu gjaldi og fær aðgang að eldra fræðsluefni og greinaskrifum Húseigendafélagsins til úrvinnslu. Húseigendafélagið, sem er yfir 100 ára gamalt og telur um 10.000 félagsmenn, hefur í áratugi barist fyrir bættum hag félagsmanna sinna, einkum með bættri löggjöf, og sinnt fræðslu til félagsmanna og almennings.

Hildur Ýr Viðarsdóttir, formaður Húseigendafélagsins og Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, að lokinni undirritun samkomulags félaganna.

Eignaumsjón er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við hús- og rekstrarfélög og hefur verið brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi í 25 ár.

Í dag hefur félagið umsjón með daglegum rekstri ríflega 1.350 félaga með hátt í 32.000 eignarhlutum.

Að lokum má til gamans geta þess að Húseigendafélagið var einn af stofnendum Eignaumsjónar árið 2000, en stofnendurnir höfðu allir reynslu af að þjóna eigendum fasteigna og höfðu áður rekið Ráðgjafarþjónustu húsfélaga, Húsráð, um nokkurra ára skeið.

Borgarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí og í aðdraganda þeirra hefur Miðflokkurinn meðal annars lagt áherslu á breytta samgöngustefnu, stöðvun ofurþéttingar byggðar og að tekið sé til í rekstri Reykjavíkurborgar.

Síðastnefnda atriðið er mikilvægt þar eð ólíkt öðrum framboðum býður Miðflokkurinn upp á oddvita sem hefur áralanga og farsæla reynslu af því að stýra stórum rekstrareiningum.

En hvaða spurning er mikilvægust fyrir kjósendur?

Það er nokkuð ljóst að kosningabaráttan í höfuðborginni hefur verið eilítið óreiðukennd. Ein ástæðan er að kjósendur geta valið á milli

fjölmargra framboða, samtals 11. Í því skyni fjarlægja óreiðutilfinninguna verður að greina mikilvægustu spurninguna sem kjósendur verða að svara. Þegar það er gert er ljóst að Samfylkingin og meðreiðarsveinar þess flokks hafa stýrt borgarsjóði um langt árabil. Valdamestu starfsmenn borgarkerfisins hafa verið ráðnir í tíð meirihluta vinstri-flokkana í borginni. Spurningin er því, vilja kjósendur viðhalda þessum valdastrúktur, sem er alltumlykjandi við stjórn borgarinnar?

Við mat á þeirri spurningu verður til þess að líta að uppstillingar framboðslista Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar gefa til kynna að ekki sé útilokað að nýr meirihluti samanstandi af þeim tveimur flokkum ásamt

Samfylkingunni. Í slíkum meirihluta yrði áframhald á stefnu Samfylkingarinnar í skipulags- og samgöngumálum, enda alþekkt að oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í borgarstjórn hafi lítið sem ekkert á móti þeirri stefnu.

Spurningin sem kjósendur standa frammi fyrir er því raun og veru þessi, viltu að Samfylkingin haldi áfram að stjórna borginni, eftir atvikum með nýjum varadekkjum, svo sem eins og Sjálfstæðisflokknum? Eða viltu stuðla að raunverulegum breytingum?

Miðflokkurinn er svarið! Raunverulegar breytingar geta eingöngu orðið í kjölfar þess að Miðflokkurinn standi sterkt að vígi í borgarstjórn að kosningum loknum.

Setjum X við M enda er tækifærið núna til að bjarga borginni!

Höfundur skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Helgi Áss Grétarsson frambjóðandi Miðflokksins.
XM frekar en meira af því sama! Mynd tekin af ruv.is

Verðlaunahafar hjá Fram í meistaraflokki kvenna.

Best hjá Fram í handboltanum

Lokahóf Handknattleiksdeildar

Fram var haldið á dögunum. Þar komu leikmenn, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar og styrktaraðilar saman og gerðu sér glaðan dag.

Venju samkvæmt voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi leikmenn auk þess sem veittar voru viðurkenningar fyrir áfangaleiki.

Veitt verðlaun voru eftirfarandi; Meistaraflokkur karla

Besti leikmaður: Ívar Logi Styrmisson.

Mikilvægasti leikmaður: Breki Hrafn Árnason.

Efnilegasti leikmaður: Max Emil Stenlund. Meistaraflokkur kvenna

Besti leikmaður: Harpa María Friðgeirsdóttir.

Mikilvægasti leikmaður: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín.

Efnilegasti leikmaður: Dagmar

Pálsdóttir. Þá hlaut Valgerður Arnalds viðurkenningu eftir að hafa spila yfir 100 leiki fyrir meistaraflokk.

U-lið karla

Besti leikmaður: Arnþór Sævarsson. Haukur í horni: Alex Unnar Hallgrímsson. U-lið kvenna

Besti leikmaður: Sara Rún Gísladóttir. Haukur í horni: Arna Sif Jónsdóttir. Á lokahófinu kvöddum við einnig Sunnu Jónsdóttur og Rúnar Kárason, sem bæði lögðu skóna á hilluna við lok tímabils. Það var ánægjulegt að sjá Sunnu, sem á að baki farsælan feril hér heima og erlendis, ljúka ferlinum hjá Fram á nýliðnu tímabili. Hún var meðal annars Íslandsmeistari með Fram árið 2013 áður en hún fór utan í atvinnumennsku.

DAAGI D GÓÐA

TIL AÐ NÁ BETRI ÁRANGRI Í BORGINNI da um eftir umboði kjósen ið ósk V gu mannauðs. og eflin ekstri gu í r durskipulagnin óun, en ramþr æna f r staf ætur á þjónustu, ela í sér umb ni sem f erkef il v umfangsmik ð leiða ynslu af a atugare a ár ar haf dur okk rambjóðen

tjó íb gaæðin X G garstjórn í bor ön ir þína h fyyr ð starf a af

SGÆÐI UKIN LÍF UR • BETRI ÁRANGUR • A AÐRAR ÁHERSL .is gdf . w w

Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)

Yfir nóttu hafrar

með kaffi og kakói

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Hér er ein ljúffeng uppskrift sem vert er að prófa við fyrsta tækifæri.

Yfir nóttu hafrar með kaffi og kakói.

Þetta er einföld og bragðgóð uppskrift að yfir nóttu höfrum með kaffiskoti og kakói – fullkomin fyrir morguninn þegar þú vilt eitthvað fljótlegt en orkumikið.

Þetta er morgunmatur sem kveikir á þér – en heldur þér líka í jafnvægi.

Hráefni (1 skammtur)

• 1 dl hafrar.

• 1 dl mjólk (eða plöntumjólk).

• ½ dl sterkt kaffi (kælt ).

• 1 msk. kakó.

• 1–2 tsk. hunang eða annað sætuefni.

• ½ tsk. vanilludropar (valfrjálst).

• Smá klípa salt.

Aðferð

1. Settu allt hráefnið í krukku eða

skál. 2. Hrærið vel saman.

3. Settu í ísskáp yfir nótt (minnst 4 klst).

4. Hrærið aftur áður en þú borðar –bættu við mjólk ef þú vilt þynnra.

Hugmyndir af toppum á þennan dásamlega morgunverð:

- Heslihnetur eða möndlur.

- Smá kakóduft.

- Bananabita.

- Kókosflögur.

- Ber.

Þessi morgunverður gefur þér: Jafna og stöðuga orku. Fókus + ró í einu. Smá ,,treat” tilfinningu sem gerir morguninn skemmtilegri.

Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla

Yfir nóttu hafrar með kaffi og kakói sem gerir morguninn skemmtilegri.
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

Gerum Sjálfstæðisflokkinn að

kjölfestu nýrrar borgarstjórnar

- eftir Brynjar Níelsson, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Erfitt er að greina vilja borgarbúa í komandi kosningum þegar horft er til skoðanakannana undanfarið. Undanfarna áratugi hefur Samfylkingin verið í forystu í stjórn borgarinnar með öðrum flokkum. Í hverjum kosningum hefur meirihlutinn fallið en samt skrölt áfram með nýju varadekki, hvort sem það er kennt við Pírata, Viðreisn, Framsókn eða Flokk fólksins.

Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að tæplega þrír af hverjum fjórum borgarbúum vilji raunverulegar breytingar á stjórn borgarinnar. Borgarbúar virðast líta svo á að allt sem skiptir þá máli sé í skrúfunni, hvort sem það lýtur að fjármálum borgarinnar, álögum á borgarbúa, leikog grunnskólum, umferðar-og skipulagsmálum og þjónustu sem varða borgarbúa miklu.

Þrátt fyrir þessa skoðanakönnun

verður ekki annað ráðið að þessir flokkar sem hafa stjórnað borginni öll þessi ár séu enn með meirihluta samkvæmt öðrum könnunum. Það mun því engu breyta við stjórn borgarinnar þótt atkvæði færist frá Samfylkingu yfir til Vinstri grænna, Sósíalista, Pírata, Flokk fólksins eða Viðreisnar sem hafa starfað með þeim öll þessi ár. Áfram mun þessi sami meirihluti skrölta að óbreyttu.

Í komandi borgarstjórnarkosningum verður kosið um breytingar. Vilja borgarbúar það sama eða vilja þeir raunverulegar breytingar. Öllum ætti að vera það augljóst að það verða ekki breytingar á stjórn borgarinnar nema

Sjálfstæðisflokkurinn komi nægilega sterkur út úr kosningunum. Þótt staða Sjálfstæðisflokksins sé sterk í þessum nýju skoðanakönnunum er hún ekki nægilega sterk til að tryggja breytingar. Þeir sem horfa til hægri í

tilverunni og vilja raunverulegar og áþreifanlegar breytingar í borginni ættu nú að nýta tækifærið og tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn verði kjölfestan í stjórn borgarinnar eftir næstu kosningar.

Á framboðslista Sjálfstæðisflokksins eru óvenju samhentur hópur sem er með skýr markmið. Kynntur hefur verið nákvæmur tímasettur verkefnalisti fyrir næsta kjörtímabil þar sem horft er til hagsmuna og vilja borgarbúa.

Sjálfstæðisflokkurinn var þekktur þegar hann stjórnaði borginni fyrir að standa við fyrirætlanir sínar. Enginn ástæða er til að ætla að það verði ekki þannig áfram fái hann styrk til að vera ráðandi afl við stjórn borgarinnar eftir kosningarnar.

Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Canagan er besti blautmat-

urinn að mati kattaeigenda!

Við hjá Dýrabæ erum gífurlega stolt af því að segja frá því að Canagan hefur verið valið „Best Wet Food“ hjá hinum virtu Your Cat Product Awards 2026. Þetta eru ekki hvaða verðlaun sem er, því það eru neytendurnir sjálfir, kattaeigendur sem vilja dýrunum sínum það allra besta – sem greiða atkvæðin.

Af hverju vann Canagan?

Verðlaunin staðfesta það sem viðskiptavinir okkar hafa vitað lengi: Canagan er í algjörum sérflokki þegar kemur að gæðum og bragði.

Hágæða prótein: Blautmaturinn inniheldur raunverulegt kjöt og fisk í „human-grade“ gæðum sem þú sérð um

leið og þú opnar dósina.

Náttúruleg næring: Fóðrið er þróað með líffræðilegar þarfir katta í huga –hátt kjötinnihald (allt að 65%), engin kornvara og engin gerviefni.

Ómótstæðilegt bragð: Jafnvel kröfuhörðustu kettir elska bragðið af Canagan, hvort sem það er túnfiskur, kjúklingur eða villibráð.

Canagan hefur verið kosið númer eitt í Bretlandi og nú er blautmaturinn formlega sá besti samkvæmt Your Cat verðlaununum 2026.

Gefðu kettinum þínum verðlaunamat!

Kettir eru kjötætur í eðli sínu og góður blautmatur skiptir sköpum fyrir

vökvabúskap þeirra og almenna heilsu.

Með Canagan ertu ekki bara að gefa þeim mat, heldur ertu að tryggja þeim bestu mögulegu næringuna sem völ er

á. Kíktu við í Dýrabæ eða pantaðu á netinu og leyfðu kettinum þínum að smakka það besta!

ylkinginSamf R y a

vík kj e í

Ste l kvrk k velferð k –

Bj u kkæ•L sto lfil ðbantsomk R t o ótjh s klaónra bf k ykey víja

muúl•H gg•y B lródðlme a rauyra mf afu gryrjiöko aaeup t km

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarholtsblaðið 5. tbl 2026 by Skrautás Ehf. - Issuu