



![]()




2. tbl. 15. árg. 2026 febrúar - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Jón Erik Sigurðsson á fleygiferð í sviginu á Ólumpíuleikunum í Cortina.
Framarinn frábær
VISSIR ÞÚ?
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
- sjá bls. 11

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00



Spönginni
Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.
Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.
Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf.
Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssongv@skrautas.is
Prentun: Landsprent ehf.
Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.
Dreifing: Póstdreifing.
Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.
Núna þegar að þrír mánuðir eru í sveitastjórakosningar er rétt að minna kjósendur á að þar gefst kærkomið tækifæri til að leysa vanhæfa stjórnmálamenn frá störfum. Stjórnmálamenn sem hafa ítrekað sýnt það á síðustu árum að þeir kunna ekki að fara með peningana okkar. Pólitík snýst um forgangsröðun, hvernig farið er með þá peninga sem þjóðin hefur yfir að ráða. Á undanförnum árum hefur það komið greinilega í ljós, trekk í trekk, að kjósendur hafa valið vanhæft fólk til forystu.
Maður veit eiginlega ekki hvar á að byrja. Borgarlínan er nærtækt dæmi. Búið er að eyða hundruðum milljóna í undirbúning þessa fyrirbæris sem mun aldrei skila sér, hvorki fjárhagslega né í bættum samgöngum. Enginn veit hvað Borgarlínan kemur til með að kosta og ekki er enn búið að ákveða hver á að borga brúsann. Almenningur mun hafna Borgarlínunni frá fyrsta degi og í uppsiglingu er mesta skipulagsslys í sögu höfuðborgarsvæðisins.
Troða á Borgarlínunni niður í rótgróin hverfi þar sem umferðarmál eru nú þegar í algjörum ólestri. Dæmið um Suðurlandsbrautina er þekkt og algjörlega galið. Fyrirtæki við brautina eru þegar farin að skipuleggja flótta af svæðinu. Viðskiptavinir munu ekki skila sér þegar búið verður að fækka akreinum um helming og allt mun stíflast á þessu svæði þegar framkvæmdir hefjast og munu taka nokkur ár.
Enn er tími til að forða þessu stóra slysi. Kjósendur verða að greiða atkvæði þeim flokkum sem vilja staldra við og hætta jafnvel við þetta rugl.
Talað er um að Borgarlínan muni kosta 250-300 milljarða. Þeir vita sem vilja að áætlanir á Íslandi standast aldrei. Borgarlínan mun því kosta 400500 milljarða þegar upp er staðið.
Enn er tími til að hætta við. Talandi um peninga. Stjórnmálamenn sem fara með völdin á Íslandi í dag kunna ekki að fara með peninga. Nánast daglega er greint frá afglöpum ráðherra og fer utanríkisráðherrann þar í fararbroddi. Hún ver meiri tíma erlendis en heima fyrir. Á sama tíma og sjúklingar komast ekki að á bráðamóttöku Landsspítalans spreðar Þorgerður Katrín milljörðum í vopnakaup. Vopnin eru notuð til að drepa unga rússneska og úkraínska hermenn. Það verður að koma svona stjórnmálamönnum frá við fyrsta tækifæri.
Stefán Kristjánsson
- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Í grein sem ég ritaði sl. haust undir yfirskriftinni „Hættuleg þrenging að umferð við Höfðabakka“ fjallaði ég um alvarlegar afleiðingar þeirra breytinga við Höfðabakka og Bæjarháls sem þá voru fyrirhugaðar en hafa nú orðið að veruleika. Þar benti ég á að með því að fjarlægja beygjuvasa og þrengja að umferð væri verið að skapa tafir, auka slysahættu og tefja neyðarakstur – allt í nafni öryggis sem þegar var tryggt með öðrum úrræðum. Sú þróun sem varað var við hefur því miður raungerst.
Umferð um Höfðabakka verri en áður
Eftir umfangsmiklar framkvæmdir við Höfðabakka, meðal annars við Bæjarháls, Dvergshöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú, er umferð á svæðinu nú þyngri en áður. Bílar raðast eftir öllum Höfðabakkanum, oft langt inn í Grafarvog og niður Ártúnsbrekku og umferð hefur í auknum mæli leitað inn í íbúðahverfi þegar ökumenn reyna að komast hjá teppum á stofnæðinni. Þrátt fyrir að umferðaröryggi og skilvirkni eigi að vera leiðarljós slíkra framkvæmda hefur hvorugt batnað. Þvert á móti er niðurstaðan verri en áður. Meðal annars hafa Íbúasamtök Grafarvogs sent borgarfulltrúum formlega áskorun um endurskoðun breytinganna, án þess að svör hafi borist. Það er ekki boðlegt.

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins..
Borgin vissi af afleiðingunum Komið hefur fram að borgaryfirvöld vissu fyrir fram að við það að fjarlægja beygjuvasana myndu tafir aukast í umferð. Greining sem unnin var fyrir borgina sýndi jafnframt að biðtími á háannatíma gæti farið úr um níu sekúndum í allt að 92 sekúndur. Sú greining var hins vegar ekki lögð fram eða kynnt borgarfulltrúum og
almenningi við ákvörðunartökur.
Jafnframt liggur fyrir að engin slys á gangandi eða hjólandi vegfarendum hafa orðið í þeim beygjuvösum sem fjarlægðir voru, þrátt fyrir áratugalanga notkun. Það dregur verulega í efa þau rök sem breytingarnar voru byggðar á. Hver sekúnda skiptir máli
Það skiptir máli að það sé sérstök áhersla lögð á áhrif neyðaraksturs. Ég tala þar af reynslu sem fyrrverandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður þegar ég segi að hver sekúnda skiptir máli þegar á reynir. Ákvarðanir sem auka líkur á töfum við slíkar aðstæður eru einfaldlega ekki ásættanlegar. Ég tel mikilvægt að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda verði náð með uppfærðri og snjallari ljósastýringu og nýtingu rauntímagagna, án þess að fórna þeim beygjuvösum sem í áraraðir hafa tryggt gott umferðarflæði. Tími til að staldra við Höfðabakki er ein af lykiltengingum borgarinnar. Allar breytingar á slíkum stofnæðum verða að byggjast á faglegum gögnum, heildarsýn og raunverulegu mati á afleiðingum. Þegar niðurstaðan er verri en áður ber að staldra við, hlusta á íbúa og leiðrétta kúrsinn.
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins












































































































Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur valið Viktor Frey Sigurðsson, markvörð Fram, í landsliðshópinn fyrir komandi æfingaleik gegn Mexíkó.
Framarar eru virkilega stoltir og ánægðir fyrir hönd Viktors en hann átti
alveg hreint frábært tímabil í Bestu deildinni á síðasta ári. Ekki er ofsagt að Viktor Freyr var einn besti leikmaður Fram á síðustu leiktíð og miklar vonir eru bundnar við hann í framtíðinni.
Viktor er afar vel að þessu vali
kominn og óskum við honum innilega til hamingju með kallið í landsliðið. Framarar bíða spenntir eftir að fylgjast með þessum snjalla markverði í Bestu deildinni í sumar og vonandi ná Framarar að standa sig vel í spennandi keppni þeirra bestu á Íslandi. Áfram Fram!



Stundum er sagt að við, mannfólkið, séum ,,ekkert nema vaninn”!
Og það er að einhverju leyti rétt; líkaminn er heimsins besti hagfræðingur og leitar í sífellu leiða til að spara orku, hann fer því ósjálfrátt oft í sömu aðgerðir og áður - til einföldunar.
Leiddu hugann að dæmigerðum degi í þínu lífi. Hvaða hegðun hefur með tímanum breyst í venju? Getur verið að þú keyrir alltaf sömu leiðina í vinnuna? Eða að þú leggir í sama stæðið? Þetta eru dæmi um hvernig hugurinn hefur einfaldað líf þitt. Með því sparast orka og þú þarft aldrei að muna sérstaklega eftir því hvar þú lagðir bílnum, því líklega er hann alltaf á sama stað.
Þegar kemur að heilsusamlegum venjum er af mörgu að taka, því svo miklu meira er hægt að gera í daglegu lífi til að

bæta heilsu, heldur en að mæta í ræktinaþó svo að ég mæli eindregið með því líka!
Ef þú gerir það að venju að útbúa vikumatseðil og gerir svo innkaup vikunnar í einni ferð, er ólíklegra að þú takir vonda ákvörðun í lok dags sem gæti leitt til skyndibita í kvöldmatinn.
Ef þú gerir það að vana að ganga upp stigann í stað þess að taka lyftuna, þá leggur þú í hvert sinn inn á heilsubankann hjá þér. Áður en þú veist af er það, að taka stigann, orðinn hluti af þínum persónuleika - þú verður, með tímanum, manneskjan sem tekur stigann frekar en lyftuna.
Heimfærðu þetta á hvaða athöfn sem er sem þú gerir oft yfir vikuna eða jafnvel daglega.
Tannburstun er gott dæmi! Þú getur líklega ekki hugsað þér að sleppa því!? Það er einmitt eitthvað sem þú hefur vanið þig á með hjálp foreldra, skóla og samfélagsins alls. Það er hluti af þér og þínum daglegum


Við mælum með að kíkja við í þjálfunarstöðinni Metabolic Reykjavík, þar færðu fyrstu tvær vikurnar í þjálfun alveg fríar og getur þannig mátað æfingarnar á eigin skinni án allra skuldbindinga.
venjum. Það þýðir líka að þú hefur heilbrigðari tennur lengur.
Með þessum skrifum vil ég hvetja þig að velja þér hollari kostinn í lífinu almennt! Þraukaðu erfiðar tvær, þrjár vikur meðan þú ert að koma vananum inn í systemið þitt, en svo mun heilsan þakka þér seinna og verðlauna þig með heilbrigðari líkama langt inn í æviskeiðið. Það er nefnilega ekkert auðvelt að vera heilsulaus. Veldu þér erfitt, núna eða seinna!
Hvort sem það er stiginn, eða aukning í grænmetisneyslu, fjölgun göngutúra yfir vikuna eða betri svefnvenjur. Komdu þér upp góðum venjum og svo munu þær skapa þig og þín lífsgæði!
Þetta virkar nefnilega líka í hina áttina. Þegar þú velur þér sófann og snakkið fram yfir hreyfingu og hollustu ertu líka að venja líkamann og hugann á þá athöfn.
Veldu vel, því vaninn mun móta þig, þína heilsu og líðan. Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Á dögunum var valinn æfingahópur tvö til að taka þátt í æfingu í Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.
FRAMarar eru stoltir af því að eiga einn fulltrúa í þessum úrtakshópi Íslands en markvörðurinn Birnir Leó Arinbjarnarson var valinn frá Fram að þessu sinni.


Birnir Leó Arinbjarnarson.
Æfingin fór fram í Miðgarði þriðjudaginn 17. febrúar undir stjórn Aldísar Ylfu Heimisdóttur, þjálfara í Hæfileikamótun. Framarar eru stoltir af því að eiga tvo fulltrúa í þessari umferð tvö í Hæfileikamótun N1 og KSÍ, Bryndýs Día Elmarsdóttir og Alfa Karen Pétursdóttir. Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 karla, valdi á dögunum leikmannahóp sem kom saman til úrtaksæfinga dagana 16. – 18. febrúar sl. Æfingarnar fóru fram í Miðgarði, Garðabæ.























































- eftir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Helsta markmið borgarstjórnar ætti að vera að taka sem flestar ákvarðanir, sem létta venjulegu fólki lífið. Sumar ákvarðanir vinstri meirihlutans í borgarstjórn eru hins vegar til þess fallnar að flækja líf borgaranna og gera það erfiðara og dýrara.
Höfðabakki er mikilvæg umferðartenging milli Grafarholts-Úlfarsárdals og annarra hverfa í austurhluta borgarinnar. Undanfarna mánuði hafa ýmsar breytingar verið gerðar á götunni í tengslum við framkvæmdir þar. Margar þessar breytingar eru til þess fallnar að þrengja að umferð og skapa umferðartafir og jafnvel umferðaröngþveiti eins og dæmin sanna.
Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls hefur verið til mikillar óþurftar, skapað umferðaröngþveiti á gatnamótunum og stórauknar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar.
Opna þarf beygjuakreinar að nýju Áðurnefnd þrenging var vísvitandi gerð í því skyni að tefja fyrir umferð og er því í fullu samræmi við stefnu vinstri meirihlutans í borgarstjórn. Áður en ráðist var í framkvæmdirnar var gerð úttekt á mismunandi útfærslum væntanlegra breytinga. Í úttektinni kom skýrt fram að lokun beygjuakreina við HöfðabakkaBæjarháls myndi lengja bílaraðir og valda stórauknum umferðartöfum á gatnamótunum.
Við borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðumst gegn þrengingu gatnamótanna á sínum tíma. Þá höfum við ítrekað lagt til að umræddar beygjuakreinar verði opnaðar að nýju en meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalista-flokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna hefur fellt þær tillögur. Meirihlutinn er því ekki fær um að horfast í augu við eigin mistök og leiðrétta þau vegna kreddufullrar afstöðu til umferðarmála.
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á fleiri gatnamótum á Höfðabakka, sem eru til þess fallnar að tefja fyrir umferð að óþörfu og skapa jafnvel hættu. Um er að ræða gatnamótin við Bíldshöfða, Dvergshöfða, Stórhöfða og Vesturlandsveg. Akreinar hafa verið þrengdar en miðeyjur

Kjartan Magnússon.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á fleiri gatnamótum við Höfðabakka, sem eru til þess fallnar að tefja fyrir umferð að óþörfu og skapa jafnvel hættu. Um er að ræða gatnamótin við Bíldshöfða, Dvergshöfða, Stórhöfða og Vesturlandsveg.
stækkaðar. Stöðvunarlínur hafa verið færðar til með þeim afleiðingum að enn frekari tafir á umferð hljótast af.
Vanstillt umferðarljós


















Að auki eru umferðarljós á Höfðabakka vanstillt með þeim afleiðingum að enn frekari umferðartafir verða við götuna. Á álagstímum ríkir hreinlega ófremdarástand á Höfðabakka og aðliggjandi götum eins og t.d. Vesturlandsvegi. Reglu-lega kemur fyrir að bílaröð á Vesturlandsvegi á leið til austurs, nær niður Ártúnsbrekku og tengist við bílaröð, sem myndast við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Afleiðingin er sú að umferð leitar inn í íbúahverfi í mun meiri mæli en áður.
Tafirnar kosta tugmilljarða Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu hafa aukist mjög undanfarin ár vegna stefnu vinstri flokkanna í borgarstjórn. Kostnaður einstaklinga vegna slíkra tafa er ekki undir sjötíu milljörðum króna árlega en þjóðhagslegur kostnaður er mun hærri. Þessi mikli kostnaður er í raun aukaskattur á borgarbúa, sem leggst þyngst á íbúa í GrafarholtiÚlfarsárdal og aðra íbúa eystri hverfa.































































































































































- frábær uppskrift sem vert er að prófa
Þessar próteinríku brownies eru fullkomin blanda af sætu, mjúku og saðsömu – án þess að vera of þungar. Gríska jógúrtin gefur þeim extra prótein og mýkt, á meðan möndlumjölið og kakóið skapa djúpt og gott bragð. Hvítu súkkulaðibitarnir bráðna örlítið í ofninum og gera hvern bita sérstaklega ljúffengan.
Þær henta einstaklega vel:
- Sem hollara nammi með kaffinu.
- Eftir æfingu þegar þig langar í eitthvað sætt og próteinríkt.
- Í nestisboxið.
- Þegar þig langar í einfalt og fljótlegt bakkelsi.
Geymast vel í ísskáp í 3–4 daga – og má líka frysta.
Innihald (ca. 9 stk.)
• 2 egg.
• 150 gr. grísk jógúrt frá Arna.
• 50 gr. möndlumjöl.
• 30 gr. kakó.
• 40–60 gr. sæta að eigin vali (td hunang, hlynsíróp.)
• 40 gr. haframjöl eða meira möndlumjöl.
• 1 tsk. lyftiduft.
• 1 tsk. vanilla.
• 40–60 gr. hvítt súkkulaði, saxað.
• Smá salt.
Aðferð:
Hitið ofn í 180 gráður. Þeytið egg og sætu létt saman. Bætið grískri jógúrt og vanillu út í.
Blandið þurrefnum saman og hrærið út í deigið. Hrærið hvítu súkkulaði varlega saman við. Hellið í lítið form (klætt bökunarpappír). Bakið í 18–22 mínútur – miðjan má vera örlítið blaut.
Kælið og skerið í bita.
Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast







Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir
Staðsetning lagna og dýptarmælingar
Þekking og áratuga reynsla
Framarar áttu glæsilegan fulltrúa í svigkeppni vetrarólympíuleikanna í Cortina á Ítalíu á dögunum.
Jón Erik Sigurðsson gerði sér lítið fyrir og náði 25. sæti í keppninni í svigi og er þetta besti árangur Íslendings í svigi í tvo áratugi.
Aðstæður til keppni voru mjög erfiðar og verulega krefjandi. Eftir fyrri ferðina var Jón Erik í 30. sæti og bætti hann því árangur sinn verulega í síðari ferðinni.
Þess má geta að keppendur í sviginu voru 96 talsins og féll um helmingur þeirra úr keppni.
Jón kom í mark á tímanum 1:04,51 mínútu í fyrri ferðinni en hann bætti sig umtalsvert í seinni ferðinni þar sem hann kom í mark á tímanum 1:01,12 mínútum. Samtals skíðaði hann á tímanum 2:05,63 mínútum.
Jón Erik keppti í stórsvigi og svigi á leikunum og gekk honum ekki eins vel í stórsviginu þar sem hann féll úr keppni en svigið er aðalgrein Jóns Eriks.
Jón Erik kom í Ólympíuþorpið í Bormio þann 6. febrúar og dvaldi þar við æfingar og undirbúnings fyrir keppnia. Eins og fyrr var getið er þetta besti


árangur sem Íslendingur hefur náð í alpagreinum í 20 ár. Björgvin Björgvinsson frá Dalvík hafnaði í 22. sæti í svigi á Vetrarólympíuleikunum í Tórínó árið 2006. Við óskum Jóni Erik innilega til hamingju með stórbrotinn árangur.
Jón Erik í Fram kominn í markið á vetrarólympíuleikunum í Cortina á Ítalíu. Hann hafnaði í 25. sæti í svigkeppni leikanna sem er besti árangur Íslendings í greininni í 20 ár.


Hvenær veit ég að það er kominn tími til að skipta um fóður hjá hundinum mínum?
Hundaeigendur velta oft fyrir sér
hvort að fóðrið sem þau eru að bjóða sínum ferfætlingum er í raun að henta þeim. Ef hundurinn þinn er með viðkvæma meltingu, óstöðugan hægðagang eða einfaldlega virðist ekki alveg upp á sitt besta getur svarið oft leynst í fóðrinu.
Hér kynnum við tvær vinsælar fóðurlínur frá Dr. Clauder's sem hafa reynst sérstaklega vel fyrir hunda sem þurfa milda og vandlega samsetta næringu sem kemur meltingakerfinu í jafnvægi
• Dr.Clauder's Sensitive Lamb & Rice er frábær kostur fyrir hvolpa og

fullorðna hunda sem þurfa jafnvægi og auðmeltanleika.
Fóðrið er laust við hveiti og inniheldur prebiotic trefja sem styðja við meltinguna og hjálpa líkamanum að nýta næringuna til fulls.
Dr.Clauder's Sensitive Lamb & Rice fæst í þessum útgáfum:
o - Lamb & Rice Junior, fyrir hvolpa frá 8.viku.
o - Lamb & Rice Adult, fyrir fullorðna hunda.
o - Lamb & Rice Adult Mini, (Nýtt hjá Dýrabæ!) fyrir fullorðna hunda sem kjósa minni bita.
• Fyrir einstaklega viðkvæma hunda mælum við hiklaust með Dr.Clauder's Hyposensitive Duck & Potato.
Kornlaust fóður sem byggir á einum próteingjafa stuðlar að

auðmeltanleika, tryggir hámarks næringanýtingu og getur skipt sköpum fyrir hunda með fæðuóðol.
Dr. Clauder's Hyposensitive fæst einnig í Mini útgáfu fyrir minnstu hundana.
Að skipta um fóður þarf ekki að vera flókið, en rétt val getur haft ótrúleg áhrif á daglega líðan hundsins þíns. Þegar skipt er um fóður er mikilvægt að gera það rétt og með vellíðan hundsins í forgrunni.
Best er að byrja á að blanda 25% af nýja fóðrinu við 75% af því gamla fyrstu tvo dagana, fara síðan í 50/50 næstu tvo daga og loks 75% nýtt og 25% gamalt áður en skipt er alveg yfir í 100% nýtt fóður – svo lengi sem allt gengur vel. Sjá töflu.
Hver hundur er einstakur og getur
aðlögunin tekið mislangan tíma. Fylgstu vel með líðan og hægðum; ef maginn er viðkvæmur er gott að taka skref til baka og gefa breytingunni aðeins meiri tíma. Ef hundurinn tekur nýja fóðrinu vel má hins vegar halda rólega áfram. Til að styðja enn betur við meltinguna mælum við með góðgerlum, sérstaklega fyrir viðkvæma maga. Góðgerlakrem frá Dr. Clauder’s inniheldur róandi kamillu og humla ásamt FOS og Yucca Shidigera sem hjálpa til við að byggja upp heilbrigða þarmaflóru og stuðla að jafnvægi í meltingu. Auðvelt er að gefa kremið daglega með fóðri eða eitt og sér. Einföld viðbót sem getur skipt miklu máli fyrir vellíðan hundsins.

