Skip to main content

Grafarholtsblaðið 11. tbl. 2026

Page 1

GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/15/2026 9:23 PM Page 1

Grafarholtsblaðið 11. tbl. 15. árg. 2026 nóvember - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Nýja hverfið Hallar - sjá bls. 6

Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki

Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844

,,Mahoný’’


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2026 1:54 AM Page 2

2

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Grafarholtsblaðið Það þarf kjark til að Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.

Voru gömlu jólin betri? Í mínu ungdæmi var það til siðs að setja upp jólaseríu á Þorláksmessu. Jólatréð var skreytt á sama degi og oftar en ekki fékk maður að vaka langt fram eftir aðfaranóttu aðfangadags. Jólarjúpurnar, sem undantekningalaust voru í matinn að kveldi aðfangadags, voru lagðar í nýmjólk daginn áður og látnar liggja í mjólkinni alla nóttina og til hádegis á að-fangadag. Loks voru þær soðnar og máltíðin heilaga hófst á slaginu sex og undir hljómaði messan í útvarpinu. Ein mesta eftirvæntingin í aðdraganda jóla var þegar faðir minn kom heim með stóran pappakassa af jólaeplum. Og oftar en ekki fylgdu með tveir stórir glerkútar af jólaöli frá Agli Skallagrímssyni. Nokkuð hóf réði ríkjum varðandi jólagjafir á mínu heimili. Alltaf fékk maður góða gjöf frá foreldrunum, stundum tvær en ekki mikið meira en það. Kannski nokkra pakka frá náskydum ættingjum. Það var gjarnan mikil ró yfir þessari skemmtilegu stund þegar farið var að opna pakkana og oftast var allt fallið í djúpa ró þegar messan hófst í sjónvarpinu klukkan tíu. Að henni lokinni var lagst til hvílu í nýþvegnum jólanáttfötum og að sjálfsögðu hreint á öllum rúmum. Það eru breyttir tímar. Enginn kippir sér upp við það í dag þegar fyrstu jólaseríurnar fara að sjást í lok október. Mikill stígandi er síðan í seríumálum eftir því sem líður á nóvember. Og jólatréð er gjarnan skreytt nokkrum vikum fyrir jól. Rjúpurnar eru hamflettar á Þorláksmessu og steiktar í nokkrar mínútur. Eplin og jólaölið heyra sög-unni til. Fyrirferð jólagjafa er mun meiri í dag og heilu stofurnar fyllast af pökkum og margir missa af jólamess-unni sem er oftast á matartíma. Voru gömlu jólin betri? Sumt en annað ekki. Aðalatriðið er að kærleikurinn vermi falltaf fyrsta sætið. Stefán Kristjánsson

gv@skrautas.is

taka erfiðar ákvarðanir

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það er auðvelt að tala um aðhald í opinberum rekstri. Öllu erfiðara er að fylgja orðunum eftir með raunverulegum aðgerðum. Það hefur nýr meirihluti í Reykjavík nú gert og sýnt að honum er alvara með að ná tökum á fjármálum borgarinnar. Umræður um hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Í Kastljósi á dögunum tókust á Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar. Þar kom skýrt fram sá grundvallarmunur sem er á því að tala um nauðsyn breytinga og því að axla ábyrgð á framkvæmd þeirra. Staðreyndirnar um fjárhag borgarinnar tala sínu máli. Á fyrstu sex mánuðum ársins var halli á rekstri borgarsjóðs 3,2 milljarðar króna. Vaxtagjöld og verðbætur námu 7,6 milljörðum króna á sama tímabili. Þetta eru fjármunir sem við viljum miklu fremur sjá nýtast í skólunum okkar, leikskólunum, íþróttamannvirkjum og þeirri þjónustu sem skiptir íbúa borgarinnar mestu máli. Við getum ekki haldið áfram á sömu braut og búist við annarri niðurstöðu. Frá því að nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar í júní hefur verið ráðist í umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar. Í þremur áföngum hefur verið ákveðið að fækka þar samtals um 130 stöðugildum, sem samkvæmt áætlunum mun lækka árlegan launakostnað um 2,3 milljarða króna.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Aðgerðirnar beinast þannig fyrst og fremst að yfirbyggingu og stjórnsýslu borgarinnar, með það að markmiði að verja grunnþjónustuna við íbúana. Enginn skyldi þó gera lítið úr því að á bak við þessar ákvarðanir er fólk. Það er erfitt að missa vinnuna og slíkar ákvarðanir verða aldrei teknar af léttúð. En ábyrgð stjórnmálamanna felst ekki aðeins í því að taka vinsælar ákvarðanir. Hún felst líka í því að gera það sem nauðsynlegt er, jafnvel þótt það sé óþægilegt. Það sem skiptir mestu er að hagræðingin skili raunverulegum árangri og að grunnþjónusta borgarinnar verði varin. Það

VISSIR ÞÚ?

verður auðvitað að fylgjast vel með því að það markmið náist. Í Kastljósi taldi oddviti Samfylkingarinnar ekki tilefni til jafn umfangsmikilla aðgerða. Vissulega má deila um hraða breytinganna og einstakar útfærslur. En við þeirri spurningu verður ekki vikist: Hvernig eigum við að tryggja góða þjónustu til framtíðar ef við náum ekki stjórn á út gjöldunum í dag? Í hverfunum okkar blasir við þörfin fyrir viðhald skóla, leikskóla, íþróttamannvirkja og annarra innviða. Áratugalangur viðhaldshalli verður ekki lagaður með fögrum fyrirheitum einum saman. Til þess þarf fjármuni og skýra forgangsröðun. Við eigum að gera þá kröfu til borgaryfirvalda að skattfé okkar sé vel varið. Að hver króna nýtist eins vel og kostur er og að stjórnsýslan þjóni borgarbúum en verði ekki sjálfstætt markmið í sjálfu sér. Hagræðing er ekki markmið út af fyrir sig. Hún er leið til að skapa svigrúm fyrir það sem raunverulega skiptir máli. Ég tel því að rétt hafi verið að ráðast í þessar breytingar. Þær eru erfiðar, en nauðsynlegar. Og þegar upp er staðið mun árangurinn ekki mælast í fjölda skrifstofa eða stjórnendastaða, heldur í þeirri þjónustu sem íbúar Reykjavíkur fá fyrir skattfé sitt. Ábyrgð í dag er forsenda betri Reykjavíkur á morgun. Björn Gíslason fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2026 4:53 PM Page 3

æði Berðu saman verð og gæ

IP44

íurr Innii- og útiseríu

IP65

l nga Ljjósasla L

IP65

urfar ! r íslenskt verðsh íur fyrir errííu ise Útttis Ú eldni tn va r og IP65 Höggþolnar peru Hö

FRÁ

2.989 kr.

Samtengjanlegar* með IP65 vatns- og rykvörn. 50 ljósa, 2.989 kr. Litir: Warm White 100 ljósa, 4.924 kr. Litir: Warm White, marglit og þrílit 200 ljósa, 6.995 kr. Litir: Warm White, marglit og þrílit

v Mestu gæðin – lægsta verðið


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/15/2026 8:16 PM Page 4

4

Jólabækurnar

Grafarholtsblaðið

Helvítis fantur ertu! eru æviminningar Gunnars Inga Gunnarssonar læknis, skráðar af Guðjóni Inga Eiríkssyni. Gunnar Ingi var lengi yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ og enn fremur um tíma læknir á Slysavarðstofunni og Læknavaktinni. Þá leysti hann af víða um land. Hann er með næmt auga fyrir því skoplega í tilverunni en hefur einnig séð dauðann í sinni óvenjulegustu mynd. Þá stóð hann sjálfur á bjargbrún tilverunnar af eigin völdum og stuttu síðar gerði undirheimamaður tilraunir til að koma honum fyrir kattarnef. Hér á eftir verður gripið niður í bókina og sjónum aðallega beint að hinu spaugilega sem þar er að finna: Botninn Ég lærði læknisfræðina við Gautaborgarháskóla og á hverju skyldi nám okkar svo hafa byrjað? Jú, fyrsta morguninn var okkur stefnt inn á öldrunardeild spítalans og þar vorum við beðnir um að skeina þá sjúklinga sem gætu ekki gert það sjálfir. „Við byrjum á botninum,“ sagði kennarinn, „og svo vinnum við okkur upp!“ Svona gullkorn varð að sjálfsögðu til þess að við gengum brosandi til verka og gerðum okkar besta. „Neyðartaskan“ Sumarið 1975 leysti ég af á heilsugæslustöðinni í Uddevalla, sem er strandbær skammt norðan við Gautaborg, og ók ég þarna á milli á morgnana og kvöldin á virkum dögum. Ég hafði varla stigið þar niður fæti í fyrsta sinn þegar ég var sóttur á heilsugæslustöðina og sagt að það lægi maður, sennilega látinn, við hraðbrautina. Mér hafði ekki einu sinni gefist tími til að fara úr yfirhöfninni, svo snögglega bar þetta að. Neyðartaskan — akúttaskan — blasti sem betur fer við mér. Ég greip hana og rauk af stað. Í svona tilfelli má engan tíma missa. Fólk hafði safnast saman í kringum þann sem lá þarna. Ég ruddi mér leið að manninum, kraup við hlið hans, opnaði töskuna og ætlaði að ná þar í hlustunarpípu og tunguspaða. Þau eru notuð til að halda öndunarvegi opnum, sérstaklega hjá þeim sem eru meðvitundarlausir. Í töskunni var þó fátt að finna, fyrir utan tvö dauð fiðrildi og eitt snuð! Þar var ekki eitt einasta læknisáhald. Ég lokaði töskunni strax. Vafalaust höfðu samt fleiri en ég séð ofan í töskuna og hvað skyldu þeir hafa haldið? Varla að þarna væri læknir á ferð, nema þá kannski töfralæknir, með ofurtrú á lækningamætti dauðra fiðrilda? Eða hafði hann ef til vill reiknað með því að þau væru á lífi í lokaðri og súrefnislausri töskunni en svo hefði annað komið í ljós og þar með gat hann enga björg veitt? Látum snuðið liggja á milli hluta! Ég var í hálfgerðu sjokki. Sænskt heilbrigðisstarfsfólk trassaði ekki það sem sneri að öryggismálum. Þarna hafði samt eitthvað farið úrskeiðis. Það var lán í óláni að þessi vangá breytti engu í þetta sinn. Maðurinn var látinn þegar ég kom að honum og engin tól eða tæki hefðu getað hjálpað mér við að endurlífga hann. Svona byrjaði nú starfsferill minn í Uddevalla. Eftir þetta atvik varð mér alltaf litið ofan í neyðartöskuna, áður en ég þaut með hana af stað í útköll, hvort heldur þau væru í Svíþjóð eða á Íslandi — nema þá að ég hefði sjálfur gengið frá öllu í hana og vissi því upp á hár hvað í henni væri þegar „kallið kæmi“. Stílarnir Einhvern veginn er það svo að ég man alltaf eftir fyrsta sjúklingnum sem leitaði til mín á hverjum stað fyrir sig. Þórshöfn var þarna engin undantekning. Reyndar var tilfellið þar frekar óvenjulegt og það vatt upp á sig. Ég hafði lúmskt gaman af því. Læknishúsið á Þórshöfn var bæði bústaður læknisins og læknastofa og ég var að bera inn síðasta farangurinn okkar þegar ég heyri bíl skransa að baki mér. Ég sný mér við og sé að undir stýri er ungur piltur en í farþegasætinu situr roskinn maður, greinilega stór og mikill rumur því hann fyllti á alla kanta út í rýmið þeim megin. Hann var draghaltur og pilturinn studdi hann til sætis inni á læknastofunni. Þar skoðaði ég hann og

Þann 1. desember 2008 afhenti Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Gunnari Inga lyklavöldin að hinum nýju heimkynnum Heilsugæslunnar Árbæ. Þarna fór ágætlega á með þeim en síðar áttu þau eftir að elda grátt silfur saman og að sjálfsögðu segir frá því í bókinni.

Stílarnir virkuðu - æviminningar Gunnars Inga Gunnarssonar læknis fékk um leið lýsingu á því sem gerst hafði. Hann hafði farið niður um ís á hestbaki, lent þar undir hestinum og var nú sárþjáður í öðrum fætinum, sem hann óttaðist að væri brotinn. Áverkar bentu líka til þess að svo gæti verið. Því taldi ég réttast að taka röntgegnmynd af skaddaða svæðinu. Ég gerði ráð fyrir því að til væri röntgentæki í húsinu en ég var orðinn ansi efins um það, eftir margra mínútna leit, þegar ég nánast hrasaði um þannig apparat í dimmu skúmaskoti. Tækið var augljóslega komið til ára sinna og mér gekk bölvanlega að koma því í gang. Á meðan ég var að fikta við þetta ákvað ég að slá aðeins á létta strengi og segi við manninn: „Væri nú ekki tilvalið fyrir þig að greiða þér aðeins svo að þú lítir nú vel út á röntgenmyndinni?“ Hafi ég ekki vitað það áður, lærði ég það þarna, að spauga ekki við hvern sem er og allra síst við einhvern mér ókunnugan. Ég hafði nefnilega ekki fyrr sagt þetta heldur en maðurinn rífur stálgreiðu upp úr rassvasa sínum og fer að greiða sér! Það fór ekkert á milli mála að hann og læknisfræðin höfðu átt litla eða enga samleið í gegnum árin. Jæja, eftir dúk og disk tókst mér að koma röntgentækinu í gagnið og stuttu síðar lá úrskurðurinn fyrir: maðurinn var mikið bólginn á fætinum en óbrotinn. Ég ætlaði að láta hann hafa bólgueyðandi töflur en lyfjaskápurinn var þá tómur. Á því var sú dapurlega skýring, að nokkru á undan komu minni á staðinn hafði verið þar læknanemi í afleysingum. Hann reyndist vera sjúkur á geði, meðal annars vegna mikillar neyslu á geðlyfjum og bara hvaða lyfjum sem hann í neyð sinni komst yfir. Fór að lokum svo að hann var sóttur þangað flugleiðis að beiðni Ólafs landlæknis þegar upp um hann komst. Þrátt fyrir að þessi ógæfusami maður hafi í eigin þágu hreinsað út úr lyfjaskápnum fann ég þar ofan á 20 stíla, rótsterka, sem höfðu annaðhvort farið fram hjá honum eða hann þá fúlsað við þeim. Sjúklingurinn minn fékk nú stílana í hendur og með fylgdu þau munnlegu skilaboð frá mér að það væri „einn á sólarhring“. Ég kvaddi hann síðan með þeim orðum að hann

okkar tveggja, mín og hans. Það var sjálfsagt að verða við þessari óvenjulegu beiðni. Hann vildi augljóslega af einhverjum ástæðum hlífa þeim sem verknaðinn framdi og hefur talið að ekki væri á harm hans bætandi eða aðra erfiðleika. Undir eðlilegum kringumstæðum hefði lögreglu verið gert viðvart. Þetta var ekkert annað en líkamsárás og gott ef hún flokkaðist ekki sem morðtilraun. Orðalaust fjarlægði ég dálkinn úr baki prestsins og leit svo rétt sem snöggvast af komumanninum. Ætlaði síðan að segja honum, að hann hefði verið heppinn, dálkurinn hefði stungist meðfram hryggjartindi og setið fastur í einum liðbol, án blæðingar og heilsutjóns. En þá var hann horfinn, guðsmaðurinn. Fatlinn Eitt sinn kom ég að læknastúdent á slysadeildinni sem var önnum kafinn við að setja skaddaðan fótlegg á rígfullorðnum manni í fatla! Það gekk honum frekar brösuglega, eins og vænta mátti.

kæmi aftur til mín þegar hann væri búinn með stílana. Það gerði hann að þremur vikum liðnum, sagðist vera orðinn albata og þakkaði það stílunum. Bætti svo við: „En mikið svakalega var erfitt að stanga þá úr tönnunum!“ Með hníf í bakinu Eitt sinn birtist á slysadeildinni prestklæddur maður. Enginn sá hann koma. Hann hlaut að hafa laumað sér inn baka til, þar sem sjúkrabílarnir eiga aðkomu, og síðan farið með veggjum

að einum skoðunarbekknum. Þarna var hann í hálfgerðum felum, hjúpaður henginu sem skildi þetta rými frá því næsta, svo aðeins sást í andlit hans. Ég gaf mig á tal við prestinn. Hann bað mig hljóðlega um að losa sig við allstóran dálk, sem stungið hafði verið í bak hans, rétt við hryggsúluna. Ég skildi strax að þessi hempuklæddi maður vildi skjóta þjónustu, lausa við athygli annarra. Hann hvíslaði því líka að mér að ég mætti hvorki nefna þetta við nokkurn mann né skrifa í sjúkraskýrslu. Þetta væri bara á milli

Meintur Fyrsti tölvuleikur sjúklingurinn, sem til mín leitaði á Heilsugæsluna Árbæ, eftir að ég fékk þangað fyrstu borðtölvuna til að auðvelda mér starfið, var roskin kona. Ég vildi halda augnsambandi við hana og skáskaut mér því á stólnum fram hjá skrifborðinu, svo að stór og voldugur tölvuskjárinn væri ekki á milli okkar. Þegar mig vantaði upplýsingar um sjúkdómasögu konunnar og lyf henni ætluð, sem væri að finna í tölvunni, renndi ég mér síðan til baka. Það vildi þannig til að ég var hálfgerður klaufi á þetta nýja tækniundur, svo það tók mig talsverðan tíma að kalla fram á skjáinn það sem mig vanhagaði um. Þegar mér hafði loksins tekist það skáskaut ég mér á nýjan leik fram hjá skrifborðinu og baðst um leið afsökunar á þessari töf. Þegar þetta hafði óhjákvæmilega endurtekið sig — aftur með seinagangi — og það stefndi í þriðja skiptið, stundi konan upp: „Viltu ekki bara klára leikinn, vinur minn?“ Það skal tekið fram að ég á enn eftir að fara í tölvuleik!


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/12/2026 8:36 PM Page 5


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/15/2026 9:22 PM Page 6

6

Grafarholtsblaðið

Fréttir

Opið hús og samráð um skipulag í Höllum Skipulagsvinna í Höllum er að hefjast, framtíðarsýn er í mótun og þróun nýs hverfis. Fyrstu hugmyndir voru kynntar í skipulagsgátt í lok árs 2025 en vinningstillaga Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA, bar sigur úr bítum í hugmyndaleit um þróun skipulags vorið 2026.

Höfundar tillögunnar og starfsfólk umhverfisog skipulagssviðs

Reykjavíkur verða á staðnum til að svara spurningum gesta.

Markmið uppbyggingar er að efla húsnæðismarkað og nýta land vel með blandaðri og fjölbreyttri byggð, tengdri góðum almenningssamgöngum og náttúrugæðum svæðisins. Opið hús í bókasafni Dalsskóla Opið hús var haldið í bókasafni Dalsskóla, þriðjudaginn 17. nóvember og það verður endurtekið laugardaginn 21. nóvember kl. 1214. Þetta er liður í samráðsferli við íbúa og hagsmunaaðila við þróun skipulagsins.

Svona mun Hallahverfið koma til með að líta út.

Grafarholtsblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844

Bóka k ðu tíma í sjónmælingu Þú getur bókað tíma í sjónmælingu með stuttum fyrirvara í verslunum Eyeslan a d í Glæsibæ, Spönginni og Granda a. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu. u

Spönginni

Grandi

Glæsibær


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2026 4:55 PM Page 7


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/15/2026 8:59 PM Page 8

8

Jólabækurnar

Grafarholtsblaðið

Fuglinn sem talar íslensku

Út var að koma hjá Bókaútgáfunni Hólum barnabókin Ævintýraheimur íslenskra fugla 2. Sigurður Ægisson er höfundur textans en indónesíska listakonan Ratih Dewanti teiknaði myndirnar; hún er jafnframt líffræðingur að mennt. Hér er örlítið sýnishorn.

Jaðrakan Jaðrakaninn er kúnstugur. Í gömlum heimildum segir, að enginn fugl hafi marg breyttara kvak, „og tali hann 9 tungur“. Hann á varpheimkynni á Íslandi, á nokkrum stöðum í Evrópu og um miðbik Asíu, allt austur að Kamtsjatkaskaga. Margir halda að jaðrakaninn sé tiltölulega nýr landnemi hér, en það er ekki rétt, fuglinn hefur um aldir verið í Árnesog Rangárvallasýslum. En, að talið er vegna loftslagsbreytinga upp úr 1920, fór hann svo að dreifast út fyrir það svæði, fyrst til Kjósarsýslu og Borgarfjarðarsýslu, á árunum 1920– 1930. Um 1940 er talið að jaðrakanar hafi verpt í Skagafjarðarsýslu og í kringum 1950 í Snæfells- og Hnappadalssýslu, um 1963 við Mývatn, og upp úr 1970 á Héraði. Nú er tegundin komin um landið allt. Íslenski jaðrakaninn er eindreginn farfugl sem kemur til landsins í seinni hluta aprílmánaðar. Hreiðrinu, sem að mestu er ófóðruð laut ofan í þúfnakolli, er valinn staður í grónum mýrum, flóum með þurrum blettum í, röku graslendi og jafnvel blautu kjarrlendi. Eggin eru yfirleitt 3–4 talsins, örsjaldan fimm. Þau eru græn eða dökkbrún að grunnlit, alsett svarbrúnum doppum og flekkjum, litlum og stórum. Báðir hinir verðandi foreldrar sjá um að liggja á þeim.

Útungunartíminn er 22–24 dagar og ungarnir verða fleygir 25–35 daga gamlir. Ungfuglar eru rauðmóleitir á hálsi og bringu. Aðalfæða hinna fullorðnu er ánamaðkar, burstaormar, skordýralirfur og vatnabobbar. Í september eru flestir jaðrakanar horfnir af landi brott. Vetrarheimkynni þeirra eru aðallega í Vestur-Evrópu, sérstaklega á Bretlandseyjum, Atlantshafs- og Ermarsundsströnd Frakklands, helstu árósum á Spáni og í Portúgal og allt suður til Marokkó. Jaðrakaninn kemur víða fyrir í þjóðtrúnni, einkum vegna raddarinnar. Áður fyrr þóttust menn jafnvel greina orð úr hljóðum fuglsins eða þaðan af meira, jafn vel hvort ár væru færar eða ófærar, því að ef hann sagði: „Vadd’ ekki, vadd’ ekki“, þá var áin ófær, en Jaðrakan. ef hann sagði: „Vættu þig, vættu þig,“ þá var áin fær og allt í lagi að vaða hana. Hann kunni sumsé að tala íslensku.

okkar og eyru hvert vor og sumar með líflegu atferli sínu. Hann tilheyrir spörfuglum, eins og auðnutittlingurinn, snjótittlingurinn og þúfutittlingurinn og fleiri — já, og meira að segja krummi, sem er þeirra langstærstur. Skógarþrösturinn á varpheimkynni um norðanverða Evrópu og Asíu, nánar tiltekið allt frá Íslandi og Færeyjum, um Bretlandseyjar, og þaðan frá Skandinavíu og langleiðina að Kyrrahafi. Vetrarheimkynnin eru í

mannabústöðum, enda er þar helst æti að finna á þeim árstíma, en þegar líða tekur á apríl fara þeir að dreifast. Skógarþrösturinn er annars útbreiddur um allt land, en þó algengastur í birkiskógum, einkum ef þar er að finna ríkulegan botngróður. Hann kann þó einnig bærilega við sig í lágvaxnara kjarri. Varpið hefst í maí. Eggin geta verið 3–7 að tölu, en eru oftast 4–6. Þau eru blágræn að lit, alsett smágerðum,

ungarnir, sem eru hreiðurfælnir, mataðir af foreldrunum í 7–10 daga. Talið er að sérstæð fæða tjaldsins ráði hér mestu um. Við sjávarsíðuna lifir hann mikið á sandmaðki og öðrum burstaormum, krabba dýrum og ýmsum skeldýrum, einkum þó kræklingi og hjartaskel. Inn til landsins eru hins vegar ánamaðkar og skordýr þýðingarmesta fæðan. Ungarnir verða fleygir 28–35 daga gamlir og sjálfstæðir litlu þar á eftir. Sá þáttur

Skógarþröstur. Tjaldur. Suður- og Vestur-Evrópu, í Norðvesturrauðbrúnum dílum. Útungun tekur 10– getur reyndar dregist uns þeir eru orðnir Afríku og í Litlu-Asíu og þar austur og 14 daga og sér hin verðandi móðir ein 26 vikna gamlir. norður af. um þá hlið mála, en karlfuglinn á það til Bróðurpartur íslenska stofnsins Hann er að mestu leyti farfugl og er að gæta hreiðursins, án þess samt að yfirgefur landið á veturna og dvelur á þegar byrjaður að sjást hér í lok mars, taka beint við álegunni, þurfi fjörusvæðum Vestur-Evrópu. einkum fyrir austan og sunnan, en kvenfuglinn að bregða sér frá. Ungarnir Töluverður hópur, eða um 30%, verður Líklega þekkja flest börn hér á landi meginparturinn kemur þó ekki fyrr en í koma hálfnaktir og ósjálfbjarga úr þó eftir, aðallega á Suðvestur- og skógarþröstinn, þennan áberandi og apríl. Fyrst eftir heimkomuna eru eggjum, en þeir vaxa hratt. Báðir Vesturlandi. duglega, fiðraða vin, sem gleður augu fuglarnir gjarnan á vappi nærri sjó eða foreldrar afla þeim fæðu eftir ábrot. Tjaldurinn er ekki félagslyndur á Þeir verða fleygir á 8–13 dögum, en eru varptíma en um leið og eggtíð sleppir samt ennþá háðir foreldrum sínum um mat næstu daga. Þeir fá ekki hinn ein kennandi, rauðgula blett á hliðarnar fyrr en síðsumars. Skógarþrösturinn nærist einkum á bjöllum, ánamöðkum, áttfætlum og skordýralirfum, á meðan þeirra nýtur við. Þegar tekur að hausta leita fuglarnir í berjamó og eru líka töluvert í kringum sveitabæi; í grýttar fjörur safnast þeir aðallega í hrakningum. Í október og nóvember taka þeir sem ætla í farflug stefnu til vetrarheimkynnanna, en hinir, sem hafa ákveðið að verða eftir, halda inn í þéttbýlið. Þeir sem fara utan dvelja á veturna á Írlandi og í Skotlandi og einnig í Vestur-Frakklandi, í Portúgal kveður við annan tón. og á Spáni, eins og hluti Í maí árið 1927 birtist í tímaritinu 19. meginlandsstofnanna. Þeir eru samt júní eftirfarandi grein eftir Ólínu ekki alveg staðbundnir á þessum Andrésdóttur: vetrarstöðvum, heldur reika um, eftir Það er eitt orð í okkar kæra og fagra fæðu framboði og veðurfari. móðurmáli, sem ég held að hljómi Íslensk þjóðtrú er fáorð um fegurst í sálum okkar að undanteknu skógarþröstinn. Þó vilja sumir meina að orðinu: móðir. Þetta litla orð er: Vor, af ýmsu í fari hans megi lesa veðurspá. sem hefur í för með sér hina dásamlegu Þetta er jafnframt fuglinn sem Jónas þrenning: líf, ljós og yl. En þau eru ekki Hallgrímsson, skáld og allstaðar jafnfögur vorin; ég hefi ekki náttúrufræðingur, kallaði „vorboðann víða verið né farið, og veit því ekki um ljúfa“, í kvæði sínu, „Ég bið að heilsa“ fegurð þeirra í ókunnum héruðum, en eða „Nú andar suðrið“. þar sem ég hefi dvalið, er fegurð þeirra sitt með hverju móti. Ég hefi séð fegurst vor í Vestureyjum á Breiðafirði, mér finnst þau hvergi muni vera fegurri Íslenski tjaldurinn er að mestu leyti og ef ég ætti að lýsa þeim í einni farfugl sem kemur hingað til lands setningu myndi ég segja: Þau eru eilíf gjarnan í mars og byrjun apríl. Á vorin vaka og söngur. og sumrin er hann einkennisfugl mikils Hinn fyrsti vorboði, sem þangað hluta af ströndum Íslands, en er einnig kemur er tjaldurinn, hann kemur um og að finna inn til landsins; hann sést fyrir sumarmál, eftir því hve snemma Nú er að hefjast skipulagsvinna í Höllum í Úlfarsárdal, þar sem ætlunin jafnvel í þéttbýli. Varptíminn hefst seint vorar. Þá er það einn góðan veðurdag, er að skapa eftirsóknarvert hverfi sem styrkir nærumhverfið og bætir í apríl eða í byrjun maí og er hreiðrið að börnin koma inn með miklum asa og ekki nema örlítil dæld sem fuglarnir lífsgæði íbúa og þeirra sem sækja svæðið. fögnuði, og segja að tjaldurinn sé búa til með því að nudda kviðnum við kominn. sand eða möl eða annan hentugan Í æsku minni stökk alt unga fólkið þá Vinningstillaga að skipulagi hverfisins verður til sýnis í Bókasafni jarðveg. Oft er um nokkrar upp, eins og stutt væri á fjöður í hjarta hreiðurskálar að ræða, en kvenfuglinn Dalskóla næstu vikur. Höfundar tillögunnar og starfsfólk umhverfis- og þess, og út var hlaupið. Þá sáum við svo látinn um að velja þá bestu; hún er skipulagssviðs Reykjavíkur verða á staðnum til að svara spurningum þennan hraðfleyga, fagra og elskulega síðan fóðruð með nokkrum fugl, snúast eins og snarkringlu yfir gesta laugardaginn 21. nóvember kl. 12-14. skeljabrotum eða völum. Eggin eru höfðum okkar, undir hinum dýrlega oftast þrjú en geta verið 1–4 og jafnvel heiðbláa vorhimni, og heyrðum hann fimm, sem þó mun heyra til Öll hjartanlega velkomin að koma og kynna sér framtíðarsýn hverfisins. endurtaka sí og æ: „Blítt, blítt.“ undantekninga. Þau eru grá eða Já, vorið var sannarlega komið, það ljósbrún, alsett svörtum dröfnum. heyrðum við og sáum, og sá krakkinn, Álega hefst um leið og öll eggin eru sem best gat sungið, byrjaði þá komin og sjá báðir hinir verðandi umsvifalaust: foreldrar um þá hlið mála. „Vorið er komið og grundirnar gróa“, Útungunartíminn er 21–27 dagar. Ólíkt og að vísunni lokinni hljóp hver til því sem gerist hjá flestum öðrum sinnar vinnu. tegundum vaðfugla eru nýfæddir

Skógarþröstur

Hallar

– nýtt íbúðahverfi í Úlfarsárdal

Kynning á vinningstillögu

Tjaldur


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2026 4:56 PM Page 9

Stæ ærðin sk kiptir ekki máli.

Breiðhöfða 13

Á Nesdekki Brreiðhöfða 13 finnur þú eitt fullkomnasta h hjólbar ðaverkstæ æði landsins þa ar sem hægt er að þjónusta bíla af öllu um stærðum og gerðum. ðum Bókaðu tíma á nesdekk.is

Bókað ðu tíma á netinu

B Bókaðu tím ma og skoð ðaðu d dekkjaúrva alið á nesde ekk.is Breiðhöfði 13

110 Reykjavík 590 2080

Stæ ærðin skiptir ekki máli á Brre eiðhöffða 13.

nesdekk.iis / 561 4200


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/15/2026 8:19 PM Page 10

10

Grafarholtsblaðið

Fréttir

Fótboltaspurningar Hér á eftir eru brot úr bókinni Fótboltaspurningar 2026 en hún er eftir Guðjón Inga Eiríksson. (Svör í lok kafla). 1. Hvaða lið var á toppi Bestu deildar karla eftir þrjár umferðir keppnistímabilið 2025 og hafði aldrei áður verið í því sæti, en féll síðan úr deildinni í lok tímabilsins og það með sjálfan bikarmeistaratitilinn í farteskinu? 2. Óskar Borgþórsson og Valdimar Þór Ingimundarson hafa farið mikinn í liði Víkings í Reykjavík á undanförnum misserum. Hvert er uppeldisfélag þeirra? 3. Hvaða bandaríska knattspyrnukona og miðvallarspilari gekk í raðir Þróttar í Reykjavík sumarið 2026 eftir að hafa gert hið sama þrívegis áður, árin 2021, 2023 og 2025? 4. Í hvaða bæjarfélagi er Orkumótið haldið? 5. Við hvaða drykk var bikarkeppni neðri deildar karla á Íslandi kennd keppnistímabilið 2026? 6. Breiðablik hefur oftast orðið Íslandsmeistari kvenna, eða alls 20

Þessar verður þú að lesa! Helvítis fantur ertu! Bráðskemmtilegar - en líka sorglegar - frásagnir Inga Gunnars Gunnarssonar læknis.

sinnum fram að keppnistímabilinu 2026. Í öðru sæti á þeim lista er Valur með 14 titla. Hvaða lið kemur þar á eftir með sex Íslandsmeistaratitla? 7. Hvaða leikmaður Manchester United átti flestar stoðsendingar í Úrvalsdeildinni keppnistímabilið 2025-2026, eða 21 stoðsendingu, sem þess utan er met í deildinni? 8. Þegar liðunum í ensku úrvalsdeildinni keppnistímabilið 2026-2027 er raðað upp í stafrófsröð hlýtur Arsenal, Englandsmeistarinn 2026 fremsta sætið. Hvaða lið kæmi næst? 9. Hvert er millinafn norsku markamaskínunnar Erling Haaland? 10. Spánn varð heimsmeistari eftir 1-0 sigur á Argentínu í framlengdum úrslitaleik. Hvaða varamaður skoraði sigurmarkið? Svör: 1. Vestri. 2. Fylkir.

Spurningabókin Hér á eftir eru brot úr Spurningabókinni 2026 en hún er eftir Guðjón Inga Eiríksson. (Svör í lok kafla). 1. Hver verður útkoman þegar sléttu tölurnar á teningi eru lagðar saman? 2. Á hvernig undirlagi er íþróttin krulla leikin? 3. Hvaða Reykjavíkurlið varð Íslandsmeistari í handbolta karla árið 2025, tólf árum eftir að hafa síðast unnið þann titil? 4. Hvaða fyrirbæri eru Flugslóði, Bylgjunetja og Gráblika? 5. Hvaða þriggja stafa orð hæfir best 10 vindstigum? 6. Hvaða tignarlegi fugl er oft nefndur „Konungur fuglanna“? 7. Hvað kallast afkvæmi bjarndýra? 8. Krumpa prumpuskrímsli, í teiknimyndaþáttunum Skrímsli, hjálpar fólki í vanda en hverju sturtar hún ofan

í sig áður en hún rýkur prumpandi af stað í hjálparstörfin? 9. Í hvaða landi búa Doddi, Eyrnastór og Lási lögga? 10. Um hvaða prest, sem leysir sakamál á milli kirkjulegra athafna, skrifaði enski rithöfundurinn G. K. Chesterton fimm smásagnasöfn á árunum 1910-1936, en upp úr sögum hans hafa verið gerðir sjónvarpsþættir og hafa þeir notið mikilla vinsælda? Svör: 1. 12. 2. Svelli. 3. Fram. 4. Ský. 5. Rok. 6. Haförn. 7. Húnar. 8. Rúsínum. 9. Leikfangalandi. 10. Séra Brown.

VISSIR ÞÚ? Hernámsæskan Þjóðleg sveitamennska mátti sín lítils fyrir spjátrungslegum dillandi klæðnaði, djasstónum, Coca Cola töffaralegri og framkomu. Hernámsæskan var orðin að veruleika. Landhelgisgæsla Íslands 1926 ‑ 2026 Magnaðar frásagnir af þorskastríðsátökum og og björgunarstörfum mörgu fleiru.

Bókaútgáfan Hólar holabok.is / holar@holabok.is

3. Katie Cousins. 4. Vestmannaeyjum. 5. Gatorade. 6. KR. 7. Bruno Fernandes. 8. Aston Villa.

AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM. KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/13/2026 6:57 PM Page 11

11

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Aldan eins árs:

„Við erum ótrúlega stoltir af fyrsta árinu“ Aldan fisk- og sælkeraverslun í Spönginni fagnar eins árs afmæli um þessar mundir. Eigendurnir líta stoltir yfir fyrsta starfsárið, enda hafa viðtökurnar verið frábærar. „Við erum fyrst og fremst ótrúlega þakklátir fyrir þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið. Það er magnað að hugsa til þess að heilt ár sé liðið frá því við opnuðum. Tíminn hefur flogið áfram og þetta hefur verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt ár,“ segir Páll Pálsson, sem á og rekur Ölduna ásamt Haraldi Geir. Hann segir sérstaklega ánægjulegt hversu margir viðskiptavinir hafi orðið fastakúnnar.

„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að fólk sé ánægt og vilji koma aftur. Við höfum lagt mikinn metnað í að bjóða upp á ferskan fisk, spennandi fiskrétti og vandaðar sælkeravörur. Það er virkilega ánægjulegt að finna fyrir því trausti sem viðskiptavinirnir sýna okkur,“ segir Palli. Verslunin hefur þróast með viðskiptavinunum Á fyrsta árinu hefur úrvalið tekið breytingum og nýir réttir og vörur bæst við, meðal annars með hliðsjón af óskum og ábendingum viðskiptavina. „Við viljum að það sé alltaf spenn-

Fiskurinn frá Öldunni er girnilegur og gómsætur.

Páll Fannar (Palli) til vinstri og Haraldur Geir (Halli), eigendur Öldunnar í Spönginni. andi að koma í Ölduna og að fólk finni eitthvað gott í matinn, hvort sem er fyrir hversdaginn eða þegar gera á sérstaklega vel við sig,“ segir Halli, sem hefur lagt mikla áherslu á þróun fiskréttanna. „Við erum stoltir af því sem við höfum byggt upp, en við erum rétt að byrja. Markmiðið er að halda áfram að bæta okkur, þróa nýja rétti og bjóða upp á ferskasta fiskinn og flottustu fiskrétti landsins,“ bætir Halli við. Jólagóðgætið á leiðinni í Ölduna Á næstu dögum fara jólavörurnar að streyma í hús og verður úrvalið glæsilegt. Þar verður meðal annars að finna reyktan lax og grafinn lax ásamt ljúffengum sósum, auk hinnar vinsælu jólasíldar sem hefur slegið rækilega í gegn. „Jólasíldin hefur fengið alveg frábærar viðtökur og margir bíða

spenntir eftir henni. Hún verður að sjálfsögðu á sínum stað fyrir jólin,“ segir Palli. Einnig verður í boði humar í öllum stærðum og hin vinsæla humarsúpa. „Við viljum að fólk geti komið til okkar og fundið eitthvað virkilega gott á hátíðarborðið. Við leggjum sama metnað í gæðin og ferskleikann, hvort sem um er að ræða lax, síld, humar eða humarsúpu,“ segir Halli. „Við viljum einfaldlega segja takk“ Þegar eigendurnir líta yfir fyrsta árið stendur eitt upp úr: stuðningur viðskiptavinanna og þróun verslunarinnar. „Við viljum einfaldlega segja takk! Takk fyrir viðskiptin, góðu orðin og stuðninginn á þessu fyrsta ári. Við hlökkum til að halda áfram að bjóða ykkur það besta úr hafinu um ókomin ár,“ segja þeir félagar.

Uppskrift frá Öldunni · Ljúffeng heimagerð graflaxsósa Í lokin látum við hér fylgja með uppskrift að mjög góðri sósu með graflaxi: Hráefni: 3 msk. sætt sinnep · 1 msk. Dijonsinnep · 2 msk. púðursykur · 2 msk. hvítvínsedik · 1 dl bragðlítil olía · 2–3 msk. ferskt, saxað dill · salt og nýmalaður pipar eftir smekk. Aðferð: Blandið sinnepi, púðursykri og ed iki saman. Hellið olíunni rólega út í á meðan hrært er, þar til sósan verður mjúk og samfelld. Bætið dillinu saman við og smakkið til með salti og pipar. Best er að leyfa sósunni að standa í kæli í nokkrar klukkustundir áður en hún er borin fram. Fullkomin með góðum gröfnum laxi frá Öldunni! Verði ykkur að góðu!


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2026 11:32 PM Page 12

12

Jólabækurnar

Grafarholtsblaðið

Fröken Sigríður

Bókin Þér eruð ekki neitt, fröken Sigríður! kom nýlega út á vegum bókaforlagsins Hóla. Bókin fjallar um Lífshlaup Sigríðar Ólafsdóttur Meyburg og er það Sigrún Hildur Kristjánsdóttir sem skrifar bókina en Sigríður var ömmusystir hennar. Fjöldi mynda prýðir bókina. Sigríður var fædd árið 1916 á Ströndum og ólst þar upp með foreldrum sínum og yngri systkinum en þegar faðir hennar fórst með togaranum Jóni forseta var heimili hennar leyst upp þegar hún var enn barn að aldri. Hún komst til mennta síðar þrátt fyrir erfiðar aðstæður og varð hjúkrunarkona. Hún fór til Danmerkur í framhaldsnám, þá einstæð móðir og flutti síðar til Grænlands þar sem hún starfaði í kýólítnámubæ í nokkur ár og flutti síðar til Bandaríkjanna þar sem hún bjó og starfaði í um sextíu ár. Hún flutti aftur heim til Íslands rétt undir nírætt. Ástamál Sigríðar voru flókin framan af ævinni og við grípum hér niður í einn kafla í bókinni sem fjallar um þau mál. Tímabært að festa ráð sitt Í lok nóvember árið 1965, nokkrum mánuðum eftir að Sigríður kynntist Fransisco var henni boðið í þakkargjörðarmáltíð hjá bandarískri vinkonu sinni. Þær höfðu kynnst þegar þær bjuggu í sama stigagangi á Manhattan. Vinkonan hafði boðið fleiri gestum og meðal þeirra var hógvær maður, nokkuð roskinn, að mati Sigríðar. Hann var þar staddur ásamt móður sinni sem var einnig komin vel á aldur, að henni sýndist. Maðurinn hét Gustav Meyburg og var af þýskum ættum. Hann var fæddur í Bandaríkjunum árið 1908 og var því ekki nema átta árum eldri en Sigríður. Foreldrar hans voru bæði Þjóðverjar sem höfðu sest að í Bandaríkjunum í kringum aldamótin í leit að betra lífi og vildu upplifa ameríska drauminn. Kvöldið leið rólega áfram og þótt Sigríður hefði fyrst í stað ekki veitt Gustaf mikla athygli fór henni smám saman að þykja hann forvitnilegur. Hann talaði lítið og leitaði alls ekki eftir athygli. Þegar Sigríður reyndi að hefja samtal við manninn beindi hann athyglinni jafnan að móður sinni og lét

hana verða fyrir svörum ef yrt var á hann. Að góðum þýskum kurteisissið vildi sonurinn alls ekki trana sér fram og hvað þá í viðurvist móður sinnar og ókunnugs fólks. Sigríður fylgdist með þessu um stund og fannst framkoma hans einkennileg og hún hugsaði með sér að þessi maður væri aldeilis mikið dauðyfli sem léti móður sína stjórna sér langt fram yfir það sem henni þótti eðlilegt. Skömmu eftir þetta matarboð lést móðir Gustavs enda orðin háöldruð. Í kjölfarið sótti hann þá fast í það að kynnast Sigríði nánar og hann fór að bjóða henni út að borða með sér á síðkvöldum. Hann valdi staði af kostgæfni, oft frekar kyrrláta og fjarri ys og þys eins og hann vildi tryggja að þau gætu átt samtöl óáreitt. Í fyrstu var hann nokkuð klaufalegur og flausturslegur í framkomu en smám

saman rjátlaðist það af honum. Þegar móðir hans var ekki lengur nærri reyndist hann hafa hinn liprasta talsmáta og samtöl þeirra urðu bæði dýpri og líflegri. Þau gátu talað saman um hvaðeina á jafningjagrundvelli, hann sagði henni frá starfi sínu í borginni sem hann þekkti út og inn og frá áhugamálum sínum. Sigríður hlustaði af athygli og fann hvernig virðing hennar fyrir manninum jókst með hverjum deginum. Hann spurði hana einnig margs um hennar hagi. Gustav var hávaxinn maður og

Sigríður Álafsdóttir Meyburg var glæsileg kona. nokkuð stórgerður. Þegar Sigríður sá hann fyrst var hann með sterk fjarsýnisgleraugu sem henni fannst gefa honum ellilegt yfirbragð. Hárið var farið að grána og þynnast verulega og hann var þegar kominn með nokkuð áberandi kollvik. Sigríður hugsaði með sér að hann hefði eflaust verið myndarlegur á yngri árum. Þrátt fyrir allt virtist hann traustur og heiðvirður maður og þótt hann hefði verið klaufalegur í samskiptum í fyrstu, kunni hún ágætlega við hann. Henni fannst hann bæði skynsamur og vel gefinn. Yfir honum var einhver ró sem veitti Sigríði öryggiskennd, ró sem hún hafði ef til vill ekki áttað sig á að hún leitaði eftir fyrr en nú. Samt mátti greina í framkomu hans að hann hafði ekki haft mikla reynslu af nánum samskiptum við konur þrátt fyrir að vera orðinn miðaldra, hann virkaði svolítið óöruggur fyrir bragðið. Sigríður var á þessum tíma sjálf að nálgast fimmtugt og þegar Gustav spurði hana ítrekað hvort hún myndi ekki hugsanlega geta kunnað við sig til frambúðar og hvort þau ættu ekki bara að rugla saman reytum, sló hún slíkt alls ekki strax af borðinu heldur hugsaði sig vandlega um. Tilhugsunin um að binda trúss sitt við þennan gáfaða og vel menntaða verkfræðing var kannski ekki svo slæm. Hún sagðist þó ekki geta gert upp hug sinn í þeim efnum strax, var nokkuð óviss um hvort hann væri sá rétti og þurfti Gustav að ganga talsvert á eftir henni. Sigríður fann að hún stóð

á tímamótum í lífinu en í hennar huga herrana meðal gesta og sjá svo til var þetta ekki einföld ákvörðun því hverju myndi fram vinda. Þar gæti hún hún gat ekki annað en borið Gustav fylgst með þeim, borið þá jafnvel saman við Fransisco sem var opinn, svolítið saman í laumi þegar hún sæi þá líflegur og óútreiknanlegar. Gustav var saman. Hún ákvað þó að bjóða fleira hins vegar yfirvegaður, traustur en fólki til veislunnar, svo ekki yrði of kannski of fyrirsjáanlegur. Með Gustav augljóst hver raunverulegur tilgangur ríkti stöðugleiki sem veitti henni öryggi hennar væri með matarboðinu. en með Fransisco hafði hún fundið fyrir spennu og tilfinningum sem hún hafði ekki fundið fyrir í langan tíma. Eftir svolítinn tíma og nánari umhugsun ákvað Sigríður þó að nú væri tíminn kominn og hún ákvað að láta vaða og taka ákvörðun í þessum málum. Spænski sjarmörinn var enn ofarlega í huga hennar þrátt fyrir að hún væri nú farin að átta sig á að hann væri ef til vill ekki allur þar sem hann var séður. Hún ákvað að bjóða til matarveislu og hafa báða Hjúkrunarkonan Sigríður.

Afmælishátíð Borgarholtsskóla Mögulega rekur einhverja Grafarvogsbúa minni til þess þegar byrjað var að grafa grunn að glænýjum framhaldsskóla í hverfinu. Síðan eru þó liðin allmörg ár en í haust var þrjátíu ára starfsafmæli Borgarholtsskóla fagnað. Fyrsti kennsludagur í hinum nýreista skóla var 2. september 1996 og þann dag, þrjátíu árum seinna, hófst afmælishátíðin á afmælisköku og kórsöng. Fyrsta október var svo heljarinnar hátíðardagskrá í skólanum en til hennar var boðið forseta Íslands, barna- og menntamálaráðherra, forseta borgarstjórnar Reykjavíkur ásamt fjölmörgum vinum og velunnurum skólans. Dagskráin var fjölbreytt og tókst með eindæmum vel. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar flutti tónlist fyrir athöfnina og kór Borgarholtsskóla söng á milli atriða með liðsauka frá kórum frá Þýskalandi og Liechtenstein sem voru í heimsókn. Ræður voru fluttar þar sem skólastarfið var lofað í hástert. Einkum var hinni miklu fjölbreytni sem boðið er upp á í námsvali og vingjarnlegu viðmóti til hins margbreytta nemendahóps hrósað. Grafarvogsbúinn Kristmundur Axel flutti lag sitt „Komdu til baka“ ásamt félaga sínum Júlí Heiðari en þeir eru báðir fyrrum nemendur skólans. Lagið varð hlutskarpast í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2010 og var flutningurinn ógleymanlegur öllum sem á hlýddu. Einnig var heimildarmynd um sögu skólans frumsýnd þar sem núverandi nemendur tóku viðtöl við fyrrverandi nemendur með stórskemmtilegri útkomu. Margs er að minnast frá þessum þrjátíu starfsárum Borgarholtsskóla og ýmislegt hefur breyst. Einkunnarorð skólans og grunngildi eru þó ávallt í gildi en það er að sýna hverju öðru virðingu og kærleika ásamt því að gefa öllum tækifæri til að blómstra í Borgó.

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra ásamt nokkrum hressum nemendum Borgarholtsskóla. Mynd Snjókallinn.


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2026 9:40 PM Page 13

JÓLLAMARKAÐ ÐUR - í Heiðmörkk Íslen nsk jólatré – Tröpp putré H Handverksmarkaðu ur Jólasveinar Ba ar nastund í Rjóðrin nu Opið allar a aðventuhelgar milli kl 121 17. Njótið fjölskyldustundar f í Heiðmörk með he eitu súkkulaði og smákökum við ið eldstæðið. ld ðið Jólaskóg gurinn á Hólmsheiði – högg gvið eigið jólatré úr skóginum

www.heidmork.is/verslun ssala@heidmork.is | Sími 587 012 20


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2026 12:54 PM Page 14

14

Fréttir

Jólakyrrð í Heiðmörk á aðventunni

Grafarholtsblaðið

- fyrsta aðventuhelgin 28.-29. nóvember á Jólamarkaðnum í Heiðmörk

Hlýleg náttúrufegurð og jólastemning verður ráðandi á Jólamarkaðnum í Heiðmörk á aðventunni. Fyrsta aðventuhelgin, 28.-29. nóvember, verður sérstaklega helguð rólegri skógarstemningu. Boðið verður

upp á skógarbað, standandi jóga, göngu, leidda hugleiðslu og ljóðalestur. Óvíða er jólalegra en á Jólamarkaðnum í Heiðmörk. Margir kaupa þar jólatré beint úr skóginum eða gjafir á handverksmarkaðnum. Aðrir koma

fyrst og fremst til að njóta jólastemmningar í fallegu umhverfi, drekka kakó í jólakjallaranum eða setjast við varðeld í Rjóðrinu, þar sem rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum klukkan 14, bæði laugardaga og sunnudaga. Svo er tilvalið að nota tækifærið til að ganga um skóglendið, sem er ekki síður fallegt á veturna en sumrin. Þau sem vilja finna og fella sitt jólatré sjálf, geta svo farið í Jólaskóginn á Hólmsheiði. Margar fjölskyldur koma í Jólaskóginn ár eftir ár, enda hátíðlegt og skemmtileg samvinna að sækja sitt eigið tré í skóginn. Hægt er að setjast við varðeld á staðnum, gæða sér á kakói og smákökum eða jafnvel grilla sykurpúða yfir eldinum. Jólasveinar verða á ferli milli klukkan 13 og 14.

Þessi flotti jólasveinn mætti í Heiðmörkina í fyrra og kemur eflaust aftir þegar Jólamarkaðurinn opnar. Með Jólamarkaðnum í Heiðmörk og Jólaskóginum á Hólmsheiði vill Skógræktarfélag Reykjavíkur kynna fólk fyrir töfrum skógarins og skapa notalegar stundir á aðventunni.

Þessi fjölskylda náði sér í fallegt jólatré í Heiðmörkinni í fyrra.

Það er ýmislegt brallað á Jólamarkaðnum í Heiðmörk og börnin hafa gaman af.

Hlýleg ljós og skreytingar fyrir jólin Nú er hægt að panta jólaskreytingar og ljósakrossa fyrir leiði í öllum görðum Kirkjugarða Reykjavíkur í vefverslun okkar á kirkjugardar.is og í síma: 585-2700. Skoðaðu úrvalið á kirkjugardar.is/thjonusta/vefverslun

Tekjurnar af jólatrjáasölunni renna svo beint til starfsemi þessara frjálsu félagasamtaka. Meðal annars skógræktar, landgræðslu og uppbyggingar útivistarsvæða í Heiðmörk og víðar.


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2026 2:22 PM Page 15


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2026 10:28 PM Page 16

16

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Við verðum að horfa á fjölskylduna sem eina heild - eftir Bjarnveigu Birtu Björnsdóttur borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Ímyndum okkur fjölskyldu í Grafarvogi þar sem barn á í vanda í skólanum. Fjölskyldan leitar til sálfræðings á hverfamiðstöðinni og fljótlega kemur í ljós að foreldrarnir þurfa líka á stuðningi að halda. Hingað til hefur fjölskyldan fengið alla þá aðstoð sem hún þurfti á einum stað, úti í hverfum borgarinnar, þar sem fagfólk gat metið stöðu fjölskyldunnar í heild sinni. Eftir þær skipulagsbreytingar sem nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hefur keyrt í gegn mun þessi samfella í þjónustu falla niður, foreldrarnir sækja þjónustu á einn stað en þjónusta við barnið flyst á annan. Málaflokkum barna og fjölskyldna hefur verið skipt upp á tvö svið borgarinnar, velferðarsvið annars vegar og skóla- og frístundasvið hins vegar, sem leiðir til þess að fagfólk mun

síður vinna saman þvert á fagsvið. Það er auðvelt að láta þessa skiptingu líta vel út í Excel-skjali en í raunveruleikanum verður líf fjölskyldna ekki skipt eftir sviðum. Hugmyndin var að færa þjónustuna nær fólkinu Nærþjónusta er oft það sem ræður því hvort fólk leitar sér aðstoðar yfirhöfuð. Með breytingum nýs meirihluta verða hverfamiðstöðvar lagðar niður og þjónusta við börn og foreldra færð á sitt hvort sviðið og raunar í sitt hvorn hluta Reykjavíkur. Oft standa litlar hindranir lengi í vegi fyrir því að fólk sæki sér aðstoð og fjarlægð frá þjónustu skiptir máli. Þau sem þurfa mest á þjónustunni að halda hafa oft minnstu burðina til að sækja hana langt. Unglingur sem glímir við skólaforðun eða félagslega einangrun

mun ekki taka strætó niður í Borgartún til að sækja sér aðstoð. Betri borg fyrir börn var helsta leið Reykjavíkur til að framfylgja lögum um farsæld barna. Hugsunin á bak við Betri borg fyrir börn var einföld: stuðningurinn átti að færast nær börnunum og fjölskyldum þeirra svo hægt væri að grípa fyrr inn í og þar spiluðu hverfamiðstöðvar mikilvægt hlutverk. Farsældarlögin byggja á sömu hugsun, að þjónustan sé samþætt og byggð upp í kringum barnið en ekki kerfið. Þetta skiptir máli vegna þess að vandi barns stendur sjaldnast einn og sér. Barn sem á erfitt með að fóta sig í námi býr oft við erfiðar aðstæður heima sem gætu tengst stöðu foreldra barnsins. Þegar fagfólk annast bæði barnið og foreldrana sem eina heild er auðveldara að sjá samhengið og bregðast við í tæka tíð. Hættan við yfirstandandi breytingar

er sú að hvort svið horfi bara á sinn hluta fjölskyldunnar og missi þannig sjónar af heildarmyndinni. Góður félagsráðgjafi sem starfar inni í hverfunum í nánd við skjólstæðinga sína veit hvaða fjölskyldur eru nýfluttar og hafa ekkert bakland, hvaða krakkar eru einir heima eftir skóla, hvaða stuðning börnin hafa heima fyrir og í hvern á að hringja þegar eitthvað kemur upp. Þessi þekking verður til með fastri viðveru fagfólks í hverfinu sjálfu. Í tuttugu ár hefur borgin unnið að því að færa þjónustuna nær fólkinu og inn í skólana og við ættum að vera að byggja ofan á þá vinnu en ekki rífa hana niður eins og nýr meirihluti virðist ætla að gera. Niðurskurðaraðgerð sem gæti orðið dýr Meirihlutinn rökstyður breytingarnar

Bjarnveig Birta Björnsdóttir. með hagræðingu en í raun er verið að færa kostnað frá borginni yfir á fjölskyldurnar sem þurfa á þjónustunni að halda, í lengri ferðum, meiri tíma og flóknara kerfi. Breytingarnar voru gerðar án raunverulegs samráðs við fagfólkið sem vinnur þessi störf og meirihlutinn hefur hvorki lagt fram markmið né árangursmælingar til að meta hvort þjónustan verði betri með breytingunum. Kostnaðurinn við að grípa of seint inn í hjá börnum í vanda hverfur ekki. Hann birtist bara seinna. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2026 5:01 PM Page 17

17

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Blóðsykurmælingar - í Húsgagnahöllinni 21. nóvember Blóðsykurmælingar í boði Lionsklúbbanna Fold og Fjörgyn verða í boði laugardaginn 21. nóvember á Bíldshöfða 20 (Húsgagnahöllin) milli 11:00 og 16:00. Sykursýkisvarnir er eitt af höfuðverkefnum Lions um allan heim og eru ýmsir viðburðir því tengdu á dagskrá hjá Lionsklúbbum svo sem fræðsla og mælingar blóðsykurs. Lionsklúbburinn Fjörgyn hóf að bjóða upp á blóðsykurmælingar árið 2012 og höfum við gert það árlega eftir það að undanskildum Covid árunum og höfum við fengið aðstöðu í verslunarkjarnanum Bíldshöfða 20 en þar hafa Krónan, JYSK og Húsgagnahöllin veitt okkur húsaskjól fyrir þetta verkefni. Frá árinu 2017 höfum við átt í góðu samstarf við Lionsklúbbinn Fold við mælingarnar og höfum við ávallt skilað af okkur flestum mælingum á landsvísu. Þessi þjónusta er að öllu leiti í boði

klúbbanna og höfum við átt því láni að fagna að hafa gott aðgengi að heilbrigðis starfsmanni sem hefur verið okkur til halds og trausts og veitt þeim ráðgjöf sem þess þurfa. Á þessum árum höfum við mælt blóðsykur í 6081 einstaklingum, 3591 konur og 2490 karlar, Þetta er fólk á öllum aldri frá barnsaldri og yfir nírætt og kemur fólk í sumum tilfellur á staðinn þegar það veit að þessi þjónusta okkar er í boði. Þetta er verkefni er mjög góð og öflug kynning fyrir Lions hreyfinguna og veitir það okkur félögunum mikla ánægju að fá að taka þátt í þessu verkefni. Í ár bjóða Lionsklúbbarnir Fjörgyn og Fold upp á blóðsykurmælingar á Bíldshöfða 20 laugar-daginn 21. nóvember n.k. og hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur. Fyrir hönd félaga í Fjörgyn og Fold, Guðmundur Helgi Gunnarsson

Félagar í Lionsklúbbunum Fjörgyn og Fold bjóða upp á blóðsykurmælingar í Húsgagnahöllinni þann 21. nóvember nk.

VISSIR ÞÚ?

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00 Þessar konur verða í eldlínunni í Húsgagnahöllinni laugardaginn 21. nóvember.


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2026 2:28 PM Page 18

18

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Smjörsteiktur skötuselur með kartöflusmælki og rjómalagaðri sveppasósu - frábær uppskrift sem vert er að prófa Smjörsteiktur skötuselur frá Öldunni með kartöflusmælki og rjómalagaðri sveppasósu. Þetta hljómar vægast sagt vel og við skorum á lesendur að prófa þessa geggjuðu uppskrift. 1 kg hreinsaður skötuselur. 1 msk olía. 1 msk smjör. 1 stk hvítlauks geiri.

1 grein rósmarín. Salt og pipar eftir smekk. Skötuselurinn er brúnaður á öllum hliðum í olíu á mjög heitri pönnu. Hitinn er lækkaður og bætið við smjöri, hvítlauk og rósmarín á pönn-una. Eftir um það bil 2 mínútur fer fiskurinn í ofninn og er bakaður í um það bil 7 mínútur við 200 gráðu hita.

Smjörsteiktur skötuselur frá Öldunni með kartöflusmælki og rjómalagaðri sveppasósu er lostæti. Rótargrænmeti 400 gr kartöflusmælki. 200 gr gulrætur. 1 msk olía. 2 msk smjör. 2 msk fínt skorið dill.

Spönginni Grafarvogi

Smælkið er forbakað við 180 gráðu hita í um það bil 20 mínútur eða þang-að til að þær eru tilbúnar. Síðan eru þær kældar og skornar í helming. Gulræturnar eru skornar í bita og steiktar í smjöri á rólegum hita eða þar til að þær eru eldaðar í gegn. Bætið við dillinu áður en blandan er borin fram.

Rjómalöguð sveppasósa með imjan og parmesan Hráefni: 2 msk smjör. 1/2 msk olía. 300 gr sneiddir sveppir. Salt og pipar. 2 hvítlauksgeirar rifnir niður. 65 ml hvítvín. 125 ml fiski eða grænmetissoð. 250 ml rjómi. 30g rifinn parmesan. 2 tsk ferskt timjan. Aðferð: 1. Hitið olíu og smjör á pönnu og steikið sveppina þar til þeir fara að

taka á sig fallega gylltan lit, eða um 4-5 mín. Rétt áður en þeir eru klárir þá fer hvítlaukur saman við þá ásamt smá salti og pipar. Steikið áfram í um eina mínútu. 2. Næst fer hvítvínið á pönnuna og sósan látin malla í um eina mínútu. Bætið þá fiski/grænmetis soði, rjóma og parmesan á pönnuna. Hrærið vel, lækkið aðeins hitann og leyfið þessu að malla á vægum hita í um 2-3 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. 3. Í lokin fer timjan í sósuna og salt og pipar eftir smekk.

,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,,

!+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is '"+*%'$ " "',%$! ! '"(*

! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/15/2026 7:35 PM Page 19

19

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Dýrin og kuldinn: Góð ráð fyrir Það hefur kólnað hressilega og frostið bítur í kinnarnar á göngunni í kringum Reynisvatn eða upp á Úlfarsfell. Dýrin okkar finna líka fyrir kuldanum. Með nokkrum einföldum ráðum verður veturinn þægilegri fyrir hunda, ketti og önnur dýr á heimilinu.

sköpum. Varúð á ísnum Reynisvatn og tjarnirnar í kring frjósa, en ísinn er oft ótraustur, sérstaklega fyrst á veturna. Hafðu hundinn í taumi nálægt vatninu. Ef hann fer út á ísinn, kallaðu hann til þín frekar en að fara út á eftir honum.

Loppurnar þurfa umhyggju Salt og sandur á gangstéttum geta ert þófana og valdið því að þeir springa. Skolaðu loppurnar með volgu vatni eftir göngutúrinn, sérstaklega milli tánna, og þurrkaðu þær vel. Þannig sleikir hundurinn heldur ekki saltið af loppunum. Smyrsl fyrir loppur heldur þófunum mjúkum og gott er að bera það á fyrir göngu. Hjá síðhærðum hundum hlaðast oft upp snjókögglar í hárunum milli þófanna. Það hjálpar að klippa þau hár stutt. Skór eru líka góður kostur fyrir hunda sem þola illa saltið.

Kettirnir leita í hlýjuna Kettir skríða gjarnan inn undir bíla og upp í vélarrúmið þar sem enn er hlýtt. Bankaðu létt á vélarhlífina áður en þú setur bílinn í gang. Margir útikettir kjósa að vera meira inni á veturna. Þá skiptir máli að kattasandurinn sé hreinn og að kisa fái nóg að leika sér.

Hlý föt fyrir þá sem þurfa Ekki þurfa allir hundar úlpu. Hundar með þykkan og tvöfaldan feld eru vel búnir frá náttúrunnar hendi. Smáhundar, snögghærðir hundar, hvolpar og eldri hundar kólna hins vegar fljótt. Ef hundurinn skelfur, lyftir loppunum eða vill snúa heim er honum kalt. Vel sniðin úlpa eða peysa sem hylur bakið og bringuna gerir mikið gagn. Raki kælir, svo þurrkaðu feldinn vel þegar heim er komið. Og sparaðu stuttu klippinguna þangað til í vor, því feldurinn er besta vörn hundsins gegn kuldanum. Sjáumst í myrkrinu Nú er dimmt bæði á morgnana og síðdegis. Endurskinsól, endurskinsvesti eða úlpa með endurskini gerir það að verkum að ökumenn sjá hundinn í tæka tíð. Lítið ljós á ólinni gerir enn betur. Sama gildir um útiketti: hálsól með endurskini getur skipt

Vatnsheld vetrarúlpa með endurskini heldur hundinum þurrum og sýnilegum í skammdeginu. Mynd: Dýrabær

Uppl. í síma 698-2844

Frostlögur er hættulegur Frostlögur er sætur á bragðið og dýrin sækja í hann, en hann er mjög eitraður, jafnvel í litlu magni. Þurrkaðu strax upp ef hellist niður og geymdu brúsann þar sem dýrin ná ekki til. Vatn, fóður og hreyfing Vatn í skálum úti frýs fljótt, svo skiptu oft um það. Kanínur og önnur smádýr sem búa úti þurfa þurrt og vel einangrað skjól með nóg af heyi. Hundar sem eru mikið úti og á fullri ferð brenna meiru í kuldanum, en þeir sem hreyfa sig minna á veturna þurfa minna. Fylgstu með holdafarinu og stilltu skammtinn eftir því. Á dimmum dögum er gott að þreyta hugann líka. Feldu nammi um íbúðina og leyfðu hundinum að leita, eða notaðu leikföng þar sem hann þarf að leysa þraut til að ná í nammið. Gleymum ekki smáfuglunum Þegar snjór og frost liggja yfir öllu er erfitt fyrir smáfuglana að finna æti. Þrestir, starar og snjótittlingar þiggja korn, epli og fituríkt fóður. Ef þú byrjar að gefa, haltu því

Smáhundar og snögghærðir hundar kólna fljótt. Mynd: Dýrabær áfram reglulega því fuglarnir fara að treysta á þig. Kíktu við Starfsfólk Dýrabæjar í Spönginni 23 tekur vel á móti þér og hjálpar þér að finna réttu úlpuna, endurskinsólina eða smyrslið

VISSIR ÞÚ?

fyrir loppurnar. Þú getur líka verslað á dyrabaer.is og fengið vörurnar sendar heim. Ókeypis heimsending um allt land yfir 7.000 kr. Dýrabær · Spönginni 23, 112 Reykjavík · Sími 511 2022 · dyrabaer.is

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2026 12:56 PM Page 20


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarholtsblaðið 11. tbl. 2026 by Skrautás Ehf. - Issuu