Skip to main content

Grafarholtsblaðið 1. tbl. 2026

Page 1


Grafarholtsblaðið

Grafarholtsblaðið

1. tbl. 15. árg. 2026 janúar - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Enn bíður stígurinn

- sjá bls. 2

VISSIR ÞÚ?

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST.

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

Spönginni

Grafarholtsblaðið Grafarholtsblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssongv@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.

Strákarnir okkar í essinu sínu

Enn einn ganginn er allt orðið vitlaust á Íslandi þegar íslenska landsliðið í handknattleik er að etja kappi við bestu lands-lið heims á stórmóti.

Strákarnir okkar hafa verið stórkostlegir í leikjum sínum gegn Ítalíu, Póllandi og Ungverjalandi. Þegar þetta er skrifað er leikurinn gegn Króatíu eða Svíþjóð innan seilingar en Ísl-and leikur einnig gegn

Slóveníu og Sviss í milliriðlinum.

Úrslitaleikurinn í F-riðli gegn Ungverjum var spennutryllir frá fyrstu mínútu og ekki fyrir hjartveika að horfa á atganginn. Lengi vel í fyrri hálfleik leit út fyrir að gjörsamlega vanhæfir dómarar frá Norður Makedóníu myndu fara með leikinn fyrir okkur en okkar menn svöruðu arfaslakri dóm-gæslu inn á vellinum á stórkostlegan hátt. Sérstaklega Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður og Gísli Þorgeir Kristjánsson sem báðir sýndu stórkostleg tilþrif.

Framundan eru miklir spennuleikir og mikil handbolta- veisla sem öll íslenska þjóðin tekur þátt í. Þúsundum saman flykkjast Íslendingar á leikina og veita okkar mönnum ómetanlegan stuðning. Er nú svo komið að ekki eru lengur til miðar á leikina í milliriðlinum og enga flugmiða að fá hjá Icelandair lengur. Allt uppselt.

Snorri Steinn Guðjónsson er að gera frábæra hluti með íslenska liðið sem virðist vera mun sterkara í dag en á síðustu stórmótum. En það eru skakkaföll í gangi. Elvar Örn Jónsson leikur ekki fleiri leiki á mótinu vegna meiðsla en hann meidd-ist illa á hendi í fyrri hálfleik gegn Ungverjum. Þetta er sérstaklega slæmt fyrir varnarleik íslenska liðsins. Þá er stórskyttan Þorsteinn Leó Gunnarsson enn meiddur en von-andi getur hann leikið með liðinu í einhverjum leikjum í milliriðlinum.

Fleiri íslenskir þjálfarar eru að gera það gott á EM og þeir Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason eru komnir með Króatíu og Þýskaland í milliriðlana. Við Íslendingar erum ekki á flæðiskeri staddir hvað þjálfara í heimsklassa varðar. Framundan eru spennandi tímar í íslenskum handbolta. Vissulega möguleikar á að gera frábæra hluti en í afar mikilvægum leikjum þar sem spennan og kröfurnar eru langt yfir meðallagi er ekkert pláss fyrir mistök. Við vonum það besta en verðum að reyna að halda okkur á jörðinni. Stefán Kristjánsson

Göngustígurinn í Úlfarsárdal bíður enn

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks

Íbúar í austurhluta Úlfarsárdals hafa lengi beðið eftir því að lokið verði við göngustíginn sem liggur frá Skyggnisbraut, í gegnum hverfið og niður að Dalslaug. Hverfið er að mestu fullbyggt, fjölskyldur hafa flutt inn, börnin hafa vaxið úr grasi en samt stendur þessi grunnstoð í innviðum enn eftir. Það er ekki boðlegt.

Göngustígar eru hluti af lágmarksöryggi íbúa og daglegri umferð barna og fullorðinna. Stígurinn sem um ræðir er einn af helstu samgönguleiðum gangandi og hjólandi í hverfinu enda þurfa börn sem sækja æfingar hjá Fram að ganga um stíginn. Þá þurfa börnin jafnframt að nota hann á leið í skóla, í tómstundir og í Dalslaug og fullorðnir nýta hann til hreyfingar og almennra daglegra ferða enda eru fá bílastæði við Dalslaug. Þegar stígur er ófrágenginn, illa upplýstur eða ótryggur eykst hættan á slysum og það er á ábyrgð borgarinnar.

Hundruð barna fara daglega fótgangandi um svæðið Þrátt fyrir að íbúar hafi ítrekað bent á stöðuna í samskiptum við borgaryfirvöld hefur lítið gerst. Það er sérstaklega

alvarlegt í ljósi þess að Úlfarsárdalur er eitt af fjölskylduvænni hverfum borgarinnar, þar sem hundruð barna fara daglega fótgangandi um svæðið. Að láta slíkan aðalstíg sitja á hakanum árum

saman sendir röng skilaboð til íbúanna um forgangsröðun borgarinnar.

Íbúar Úlfarsárdals eiga skýlausa kröfu á öruggan, upplýstan og vel frágenginn göngustíg í gegnum hverfið. Það er ekki bara spurning um þægindi, þetta er spurning um öryggi. Við megum aldrei gefa afslátt af öryggi barna.

Reykjavíkurborg verður að taka þetta mál föstum tökum og tryggja að stígurinn verði frágenginn án frekari tafa.

Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Þrátt fyrir að íbúar í Úlfarsárdalk hafi ítrekað bent á stöðuna á umræddum göngustíg í samskiptum við borgaryfirvöld hefur lítið gerst.

Við mælum með að kíkja við í þjálfunarstöðinni Metabolic Reykjavík, þar færðu fyrstu tvær vikurnar í þjálfun alveg fríar og getur þannig mátað æfingarnar á eigin skinni án allra skuldbindinga.

Nýtt

ár - gömul markmið?

Það hefur lengi verið hefð fyrir því að setja áramótaheiti í upphafi nýs árs. Það er ágætt að setja sér áramótaheiti, eins og margir kannast við, þá förum við mörg hver full af eldmóði inn í nýtt ár með heitið í huga, en svo á metnaðurinn til með að dvína þegar líður á. Eflaust kannast einhver ykkar við það að setja sama eða svipað heiti ár eftir ár. Þá er eitthvað í ferlinu ekki að virka, við erum ekki að ná árangri með áramótaheitin með þessum hætti. Ég er hér til að hvetja þig til að gera öðruvísi áramótaheit þetta árið. Hvernig væri að skrifa niður lista yfir hluti sem þú vilt gera á árinu framundan? Það má skrifa niður fleiri en eitt atriði og svo velja topp fimm til að byrja á. Þetta gætu verið atriði eins og að: fara í utanlandsferð á stað sem þig hefur lengi langað, hlaupa í einu utanvegahlaup næsta sumar eða geta lyft eigin þyngd í réttstöðulyftu innan ársins.

Allt ofantalið er það sem má kalla frammistöðu drifin markmið. Markmið sem leiðir þig á þann stað að getir gert eitthvað sem þú gast ekki áður. Þú þarft til dæmis kannski að hefja reglulegan

sparnað til að komast í útlandaferðina og til að geta gert réttstöðu, þarftu að æfa lyftingar reglulega.

Það eru líka til annars konar markmið, svokölluð hegðunarmarkmið, þau gætu til dæmis verið að: borða að minnsta kosti þrjá skammta af grænmeti á dag, mæta í ræktina þrisvar í viku eða fara í tvo göngutúra yfir vikuna.

Þessi markmið henta vel þeim sem vita að breytt hegðun muni hafa góð áhrif á líf og lífsgæði - en langar ekki endilega að fara í utanvegahlaup og hafa ekki áhuga, eins og er, á frammistöðu tengdum markmiðum í ræktinni.

Það sem mestu máli skiptir er að markmiðið sem þú velur, henti þér og að skrefin að þeim séu einföld og það sé eitthvað sem þig raunverulega langar að gera.

Segjum sem svo að þú ætlir að setja þér markmið að mæta í ræktina þrisvar

í viku, þá er líklega best fyrir þig að velja rækt sem er nálægt heimili þínu eða er í leiðinni fyrir þig þegar þú ferðast til og frá vinnu til dæmis. Hreyfingin þarf líka að vera nógu skemmtileg og passlega krefjandi til að þú getir hugsað þér að mæta aftur og aftur.

Þegar þú stendur við markmiðin þín, þá gerast líka góðir hlutir innra með þér. Að standa við eigin loforð gagnvart sjálfum sér er mjög sjálfseflandi.

Ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja í heilsutengdu markmiðunum þínum, mæli ég með að kíkja við í þjálfunarstöðinni Metabolic Reykjavík, þar færðu fyrstu tvær vikurnar í þjálfun alveg fríar og getur þannig mátað æfingarnar á eigin skinni án allra skuldbindinga.

Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Mantran um hraða og magn

Þegar ég talaði um mikilvægi þess að passa upp á gæðin í uppbyggingu í kosningabaráttunni 2022 var nánast hlegið að mér. Mantran um hraða og magn tröllreið umræðunni um húsnæðismál sem eina raunhæfa viðfangsefnið og fólk kepptist við að ræða aðferðafræðina. En það er hægt að gera bæði. Styrkja skipulagsferlana til að auka skilvirkni og flýta fyrir uppbyggingu en huga jafnframt að gæðum í þágu borgarbúa og þeirra velferðar. Þetta er það sem ég hef gert sem formaður skipulagsmála borgarinnar.

Það var strax á síðasta kjörtímabili sem ég vildi hefja vinnu við gerð borgarhönnunarstefnu til að tryggja betur gæði í uppbyggingu. Á þeim tíma hafði ég ekki erindi sem erfiði enda mest í umræðunni hvernig hægt væri að einfalda reglugerðir og kröfur til að vera ekki að flækjast fyrir uppbyggingaraðilum, í því samhengi var sífellt verið að leita leiða til að létta á byggingarreglugerð. Hinn óhefti markaður væri fullfær um að mæta þörfum íbúa. Eins og ég hef trú á mikilvægi aðila á markaði þá tek ég alvarlega þá ábyrgð sem yfirvöld bera á velferð íbúa og þeirra hagsmunum. Meginhlutverk einkaaðila er að tryggja sinn eigin hag og gróða en það er hinsvegar hlutverk hins opinbera að tryggja almannahagsmuni.

Ég hóf þetta kjörtímabil með því að setja það sem ófrávíkjanlega kröfu í samningum um meirihlutasáttmála að fá að vinna borgarhönnunarstefnu. Í síðasta samstarfssamningi þeirra fimm flokka sem nú eru við völd var borgarhönnunarstefna og gæði í uppbyggingu enn og aftur innprentað.

Að sama skapi settum við inn í samstarfssáttmálann að umbylta skipulagsferlunum til að auka skilvirknina og tryggja gæðin og á árinu 2025 var undir minni formennsku í skipulagsráði gerð ein stærsta breyting á skipulags- og uppbyggingarferlum borgarinnar síðustu áratugi. Borgarhönnunarstefna var svo unnin undir minni forystu og samþykkt í haust. Loksins. Þar er kveðið á um aukinn gróður og innleiðingu svokallaðrar 3-30-300 reglu um að allsstaðar frá skuli sjást í að lágmarki 3 tré, 30% laufþekja sé innan allra hverfa og ekki sé lengra en 300 metrar í næsta

græna almenningssvæði. Kvaðir eru um næga birtu í íbúðum og á útisvæðum, að dauðir og gluggalausir veggir séu að mestu óheimilir og að fjölbreytileiki og metnaðarfull hönnun gefi af sér inn í borgarrýmið.

Þessi stefna skiptir miklu máli og nú skiptir öllu máli að fylgja henni markvisst eftir. Verið er að vinna tékklista og mælanleg markmið en það þarf skýra forystu við eftirfylgnina með metnað og þekkingu á viðfangsefninu. Við erum að byggja upp á sjálfbæran hátt, þétta byggð og nýta vel innviði borgarinnar en það er ekki sama hvernig það er gert. Við verðum að tryggja gæðin. Borgarhönnunarstefna gengur út á einmitt það og með markvissri innleiðingu hennar í öllum okkar verkferlum og verkefnum þá mun hún skipta sköpum. Svo hús verði góð heimili. Svo borgin byggist upp á forsendum íbúa, fyrst og fremst, og þeirra velferðar. Ég bið um stuðning í 3. - 4. sæti í forvali Samfylkingarinnar sem fer fram 24. janúar næstkomandi til að fá skýrt umboð til að innleiða af þekkingu og metnaði borgarhönnunarstefnu. Til að tryggja gæði í uppbyggingu og skapa með því mannvænt, skemmtilegt og gefandi borgarsamfélag - fyrir okkur öll og framtíðarkynslóðir.

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Grafarvogsbúi og frambjóðandi í forvali fyrir borgarstjórnarkosningarnar

Dóra Björt Guðjónsdóttir.

Bæta þarf gatnamót Víkurvegar, Þúsaldar og Reynisvatnsvegar

- eftir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Bæta þarf umferðarflæði og auka umferðaröryggi við gatnamót Víkurvegar, Þúsaldar og Reynisvatnsvegar. Verulegar umferðartafir eru á þessum gatnamótum, sérstaklega á annatímum. Góðu fréttirnar eru þær að nokkrar leiðir eru færar til að bæta ástandið á gatnamótunum.

Umbætur á umræddum gatnamótum hafa verið eitt af baráttumálum mínum. Í febrúar 2024 flutti ég tillögu í umhverfis- og skipulagsráði um að gripið yrði til aðgerða í því skyni að greiða fyrir umferð og bæta umferðaröryggi á gatnamótunum. Þeirri tillögu var vísað frá með atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna. Í nóvember 2025 endurflutti ég tillöguna. Borgarfulltrúar vinstri flokk-anna voru jafnvel enn neikvæðari til málsins en áður og var tillagan felld með atkvæðum Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna. Fulltrúi Framsóknarflokksins sat hjá við afgreiðslu málsins. Ef Sjálfstæðisflokkurinn nær að mynda meirihluta í borgarstjórn að loknum kosningum í maí nk., mun hann leggja áherslu á að tillagan verði samþykkt.

Hringtorg verði skoðað Samkvæmt tillögunni skal m.a.

skoða hvort tvöfalt hringtorg á gatnamótunum geti þjónað áðurnefndu hlutverki. Einnig verði kannað hvort hægt sé að leggja nýja akrein (ramp) frá Vesturlandsvegi að Víkurvegi. Þá verði athugað hvort unnt sé að breikka Víkurveg yfir Vesturlandsveg til að ná þessum markmiðum.

Samkvæmt tillögunni verður leitað eftir samstarfi við Vegagerð ríkisins um málið vegna tengingar gatnamótanna við mislæg gatnamót

Íbúar hafa kallað eftir úrbótum á gatnamótum Víkurvegar-Þúsaldar og Reynisvatnsvegar í mörg ár.

Víkurvegar og Vesturlandsvegar.

Úrbætur eru brýnar

Mislæg gatnamót Vesturlandsvegar og Víkurvegar voru tekin í notkun sumarið 2002. Við hönnun gatnamótanna á sínum tíma var gert ráð fyrir að tvær brýr lægju yfir Vestur-landsveg með tveimur akreinum í hvora átt og römpum fjölgað í samræmi við það. Þannig var gert ráð fyrir rampi frá Vesturlandsvegi að Víkurvegi við hlið núverandi verslunar Húsasmiðj-unnar. Ljóst er að slíkur rampur myndi létta á áðurnefndum gatnamótum og greiða mjög fyrir umferð um þau.

Einungis önnur brúin yfir Vesturlandsveg hefur verið smíðuð af þeim tveimur, sem fyrirhugaðar voru í upphafi. Var gert ráð fyrir að síðar væri hægt að bæta við brú og römpum þegar fjölgaði í hverfinu og umferð ykist. Umferðin hefur svo sannarlega aukist þarna án þess að brugðist hafi verið við vegna áhugaleysis borgaryfirvalda.

Ítrekaðar tillögur um úrbætur felldar Vegna mikillar uppbyggingar í Grafarholti og Úlfarsárdal er löngu orðið tímabært að bæta umrædd gatnamót og smíða einnig seinni brúna, eins og ráðgert var í upphafi. Vinstri flokkarnir, sem mynda meirihluta borgarstjórnar, hafa hins vegar skellt skollaeyrum við óskum Grafhyltinga og Úlfdælinga, sem og tillögum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um málið.

Kjartan Magnússon.

Ljúfur og kryddaður morgunmatur

- frábær réttur sem vert er að prófa

Morgunmaturinn er af mörgum talinn mikilvægasta máltíð dagsins.

Ljúfur og kryddaður morgunmatur fyrir þá sem vilja hafa sem minnst fyrir morgunmatnum og græja hann kvöldinu áður og fá kaffibollann með morgunmatnum og fá þannig góða orku inn í daginn ásamt trefjum og próteinmettandi og næringarríkur morgungrautur

Innihald:

½ bolli hafrar.

1 espresso hazelnut Sjöstrand kaffi eða annað sambærilegt gott kaffi. 2 msk. hampfræ. 1/4 bolli mjólk.

1 bolli grísk jógúrt með kaffi og súkkulaði bragði. 1–2 tsk. hunang eða önnur sæta. Smá kakóduft og nokkrar saxaðar heslihnetur til að toppa.

Aðferð: Blandið öllu nema kakóduftinu vel saman í litla skál og hrærið vel. Toppið með örlitlu kakódufti og söxuðum heslihnetum.

Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir

Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla

Morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins að margra mati.
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

Keiluhöllin er fullt hús af skemmtun!

Keiluhöllin Egilshöll hefur allt frá árinu 2012 verið einn vinsælasti afþreyingarstaðurinn á höfuðborgarsvæðinu. En á sama tíma heimili og höfuðvígi

keiluíþróttarinnar sem nýtur stöðugra og vaxandi vinsælda hérlendis.

Keilusalurinn í Keiluhöllinni er með stærri keilusölum í Evrópu og er vottaður

Pizzurnar í Keiluhöllinni eru ótrúlega góðar. Shake&Pizza sérhæfir sig í hágæða pizzum og einstöku úrvali mjólkur-hristinga.

Það er alltaf líf og fjör í Keiluhöllinni og þar eru í boði fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir og fólk á öllum aldri skemmtir sér konunglega.

keppnissalur með 22 keilubrautum af fullkomnustu gerð. Í Keiluhöllinni á

Keilusamband Íslands aðsetur sitt og þar hefur íþróttin aðsetur, bæði til æfinga og keppni. Það er til marks um gæði Keiluhallarinnar sem keppnissalar að fjölmörg alþjóðleg keilumót hafa verið

haldin þar ásamt öllum innanlandsmótum á vegum Keilusambands Íslands.

Sportbarinn með stærsta Led skjá landsins

Sportbarinn í Keiluhöllinni hefur í áraraðir verið samastaður ástríðufullra

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í

Spöng:

Regluleg hreyfing skiptir öllu máli

Í janúar þurfa hundar og kettir oft smá aukastuðning, alveg eins og við mannfólkið. Kuldinn, styttri dagar og minni hreyfing geta haft áhrif á orku, meltingu og liðleika. Bætiefni hjálpa líkamanum að halda jafnvægi og styðja við náttúruleg ferli sem skipta máli yfir veturinn. Rétt eins og við þurfum vítamín og steinefni til að dafna, þurfa gæludýrin okkar næringarríkan stuðning sem hentar þeirra líkamsstarfsemi. Við hjá Dýrabæ höfum tekið saman nokkra hluti sem er gott að huga að á nýju ári til að hjálpa dýrunum okkar að vera heilbrigð og hamingjusöm.

Brilliant Salmon Oil, eða Brillant Laxa Olían er sérstaklega góð á þessum tíma árs. Hún er rík af ómega 3 og ómega 6 fitusýrum sem styðja húð og feld, draga úr þurrki og kláða, bæta liðheilsu og styðja hjarta og æðakerfið. Fyrir mörg dýr er þetta einföld leið til að bæta bæði vellíðan og útlit á köldum mánuðum.

Fyrir þau sem þurfa að létta sig eftir hátíðarnar eru Fat Dog Slim og Fat Cat Slim fórðið frá Barking Heads og Mewing Cats einstaklega góðar lausnir. Fóðrið er hannað til að styðja við þyngdarstjórnun án

þess að skerða næringu eða bragðgæði. Formúlurnar innihalda trefjar sem stuðla að mettun, prótein sem halda vöðvamassa stöðugum og rétt stillt orkujafnvægi sem hjálpar dýrinu að léttast á öruggan og stöðugan hátt. Þetta er mild leið til að koma líkamanum aftur í gott jafnvægi án þess að dýrið upplifi hungur eða streitu.

Chewllagen beinin eru svo frábær viðbót fyrir hvern einasta hund. Þau eru unnin úr kollageni sem styður liðheilsu, styrkir sinar og brjósk og getur hjálpað eldri

hundum að halda betri hreyfigetu. Kollagenið er líka gott fyrir meltinguna og húðina, og beinin eru náttúruleg, próteinrík og henta vel sem hollt tygg sem heldur hundinum uppteknum og ánægðum. Að lokum skiptir regluleg hreyfing öllu máli. Göngutúrar, leikur og örvun halda líkamanum virkum og huga hamingjusömum. Með góð matarræði, réttum bætiefnum og daglegri hreyfingu fer árið af stað á réttum nótum fyrir alla loðna fjölskyldumeðlimi. Við hjá Dýrabæ getum aðstoðað ykkur við að finna rétta næringu og

áhugamanna um knattspyrnu og aðrar íþróttir, er jafnframt heimili Dr. Football, þar sem hann heldur þar mánaðarlega sín vinsælu Pub Quiz. Doktorinn sjálfur, Hjörvar Hafliðason, er jafnframt brand ambassador Keiluhallarinnar þegar kemur að knattspyrnu.

Fyrir skemmstu vígði Sportbarinn í Keiluhöllinni tvo nýja og stórglæsilega risaskjái sem beðið hefur verið eftir með óþreyju um allnokkurt skeið. Stærri skjárinn er engin smásmíði, heilir 7 metrar að lengd og tæpir 2 metrar á breidd og er þeim eiginleikum gæddur að geta sýnt frá mörgum viðburðum samtímis. Pílusvæðið Sportbarsins hefur einnig verið endurnýjað og stækkað, sem gerir fleirum kleift að njóta aðstöðunnar og reyna fyrir sér í pílukasti.

Sportbarinn er jafnframt vettvangur fastra fimmtudagsviðburða sem njóta ótrúlegra vinsælda. Má þar nefna spurningaleikinn Svara Bara, Dr. Football Pub Quiz og Partýbingó Evu Ruzu og Hjálmars.

Fyrsti gæðavottaði Sportbar landsins Í tilefni af komu nýja risaskjásins, ákvað Dr. Football að veita Sportbarnum sérstaka gæðavottun sem gerir hann að fyrsta Dr. Football gæðavottaða Sportbar landsins. ,,Ég hef lengi haft ambisjónir um að færa mig meira yfir í eftirlits- og gæðavottunariðnaðinn enda gef ég engan afslátt þegar kemur að knattspyrnuáhorfi. Nú er það orðið að veruleika. Þegar Jói og félagar í Keiluhöllinni vígðu nýja risaskjáinn þá var ljóst að þeir höfðu uppfyllt öll skilyrði til þess að hljóta, fyrstir Sportbara, hina virtu gæðavottun Dr. Football. Gæðavottunin byggir á nokkrum lykilbreytum og má þar nefna urrandi stemningu, breidd í drykkjaúrvali, lifandi og skemmtilega þjónustu, glatt starfsfólk og framúrskarandi bílastæða aðgengi. En það er vissulega nýi skjárinn sem að ýtir þeim yfir marklínuna og siglir þessu heim,” segir Hjörvar Hafliðason, Dr. Football.

Shake&Pizza - heimili fjórðu bestu pizzu í heimi

Pizzuelskandi Íslendingar þekkja Shake&Pizza í Keiluhöllinni. Þessi framsækni pizzastaður á heimili sitt inni í Keiluhöllinni og fæðir viðskiptavini keilunnar, Sportbarsins og þeirra sem koma einfaldlega út að borða í glæsilegum veitingasalnum. Shake&Pizza sérhæfir sig í hágæða pizzum og einstöku úrvali mjólkur-hristinga. Nú nýverið frumsýndi

Shake&Pizza nýjan kjúklingamatseðil þar sem hægt er að velja um nýjar tegundir af kjúklingavængjum og kjúklingalundum sem eru bornar fram í himneskum sósum og má þar nefna Buffalo Hot, Býfluguna, Cobra Kaí og Honey Butter Lemon Fire.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook