GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/14/2026 2:38 PM Page 1
Grafarholtsblaðið 10. tbl. 15. árg. 2026 október - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
Fjórfaldir meistarar - sjá bls. 7
Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki
Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844
,,Mahoný’’
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/14/2026 3:06 PM Page 2
2
Grafarholtsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.
Íþróttir og forvarnir Íþróttaiðkun barna og ungmenna er besta forvörn sem til er. Í íþróttastarfi eru ákveðnar reglur og skyldur í hávegum hafðar og ungir iðkendur læra að fara eftir reglunum, verði á því misbrestur hefur það jafnan afleiðingar í för með sér. Reglusemi er í hávegum höfð þegar íþróttir eru annars vegar og þeim sem ekki rata rétta veginn í þeim efnum er jafnan refsað á einhvern hátt. Þegar íþróttamenn eiga hlut að máli er jafnan helsta markmiðið að komast í landslið eða atvinnumennsku. Metnaðarfullir íþróttamenn setja stefnuna þangað og margir gera allt sem þeir geta til að ná háleitum markmiðum sínum. Á dögunum urðu einhverjir landsliðsmenn í landsliði karla í knattspyrnu uppvísir að því að brjóta agareglur landsliðsins. Einhverjir leikmenn landsliðsins fóru ,,út á lífið” á milli leikja í landsleikjahrinu og gerðu sér glaðan dag. Upp komst um þetta háttalag þeirra og greint var frá aga-brotum leikmannanna í fjölmiðlum. Þar kom fram að Knattspyrnusambandi Íslands var kunnugt um þessi agabrot og málin voru rædd og skoðuð innan sambandsins. Niðurstaða KSÍ var að ræða málið við umrædda leikmenn og stjórnendur landsliðsins með það fyrir augum að komast að því hvað hefði gerst. Og í framhaldinu ákvað KSÍ að gera ekkert í málinu. Þetta er algjörlega óviðunandi niðurstaða hvernig sem á hana er litið. Og enn og aftur virðist KSÍ ófært um að finna réttu lausnina þegar upp koma vandamál innan hreyfingarinnar. Eina rétta niðurstaðan í málinu var auðvitað að refsa þeim leikmönnum sem brutu agareglur landsliðsins. Þó ekki væri nema fyrir þær sakir að sýna ungum knattspyrnumönnum afar slæmt fordæmi og móðga stóran hóp áhugamanna sem jafnan sækir leiki liðsins. Þeir leikmenn sem áttu í hlut eiga að stíga fram og biðjst afsökunar. Stefán Kristjánsson
gv@skrautas.is
Fréttir
Grafarholtsblaðið
15, 23 eða 68 borgarfulltrúar? Hver á að ráða? - eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Á síðasta fundi borgarstjórnar, þriðjudaginn 6. október, var samþykkt sameiginleg tillaga Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að skora á Alþingi að breyta sveitarstjórnarlögum þannig að sveitarfélög geti sjálf ákveðið fjölda kjörinna fulltrúa sinna. Tillagan var samþykkt með 15 atkvæðum gegn þremur, með stuðningi Miðflokksins, en Samfylkingin sat hjá. Kjarni málsins er einfaldur að mínu mati. Sveitarfélögunum sjálfum á að vera treyst til að meta hvaða fjöldi kjörinna fulltrúa hentar best, með hliðsjón af kostnaði, skilvirkni og lýðræði. Umræðan fékk svo áhugavert framhaldslíf á Alþingi aðeins tveimur dögum síðar, fimmtudaginn 8. október. Þar fór fram fyrsta umræða um frumvarp Sigríðar Á. Andersen, þingmanns, sem myndi heimila Reykjavík að fara með fjölda borgarfulltrúa niður í 15, eins og þeir voru, í stað 23 að lágmarki eins og nú er. Þess má jafnframt geta að Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur áður og nú aftur lagt fram frumvarp á yfirstandandi þingi sem gengur enn lengra í þá átt að efla sjálfstjórn sveitarfélaga. Samkvæmt því yrði sveitarfélögunum sjálfum falið að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa, að uppfylltu því skilyrði að þeir væru að lágmarki þrír og ávallt oddatala. Frumvarpið liggur fyrir Alþingi og bíður fyrstu umræðu. Dagur og borgarfulltrúarnir 68 Í þingumræðunni tók Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar, til máls og setti fram nokkuð athyglisverðan samanburð. Dagur benti á að í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur sætu samtals 56 kjörnir fulltrúar. Ef Reykjavík hefði hlutfallslega jafn marga fulltrúa miðað við íbúafjölda ættu borgarfulltrúarnir samkvæmt útreikningi hans að vera 68 talsins. Já, 68 borgarfulltrúar! Til samanburðar sitja 63 þingmenn á Alþingi Íslendinga, kjörnir í sex kjördæmum. Dagur var vissulega að setja fram samanburð en ekki formlega tillögu um slíka fjölgun. Hann spurði jafnframt hvers vegna borgarfulltrúar Reykvíkinga ættu að vera færri en þingmenn Reykjavíkur, sem
ákvæði, þótt annað mætti ætla af málflutningi Dags. Og jafnvel þótt allir hefðu verið sammála árið 2011 hlýtur að mega endurskoða lögin fimmtán árum síðar. Dagur velti því einnig upp hvort umræðan væri einhvers konar pólitísk keila gagnvart borgarstjórn Reykjavíkur. Það er nokkuð sérstök nálgun þegar haft er í huga að meirihluti borgarstjórnar hefur sjálfur samþykkt að skora á Alþingi að endurskoða lögin.
Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. eru 22. Þar má þó minna á að borgarfulltrúar eru nú þegar 23. Ég tel að slíkur talnasamanburður segi takmarkað um hversu margir borgarfulltrúar þurfi að vera. Fleiri kjörnir fulltrúar tryggja ekki sjálfkrafa betri stjórnsýslu, aukið lýðræði eða meiri skilvirkni. Það skiptir ekki síður máli hvernig þeir sinna störfum sínum og hvaða árangri þeir skila fyrir borgarbúa. Var enginn ágreiningur árið 2011? Dagur rifjaði einnig upp að sveitarstjórnarlögin frá 2011 hefðu verið samþykkt á Alþingi með 42 atkvæðum gegn engu. Það er rétt að sveitarstjórnarlögin í heild nutu víðtæks stuðnings og voru samþykkt með 42 atkvæðum gegn engu. Hins vegar er mikilvægt að halda því til haga að þegar ákvæðið um fjölda sveitarstjórnarmanna, sem nú er til umræðu, var afgreitt sérstaklega við aðra umræðu á Alþingi var það samþykkt með 28 atkvæðum gegn 13. Þrír þingmenn greiddu ekki atkvæði og 19 voru fjarverandi eða skráðir í fjarvist. Enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með ákvæðinu. Það er því villandi að vísa til samhljóða samþykktar laganna í heild sem vísbendingar um að samstaða hafi ríkt um þetta tiltekna ákvæði. Þvert á móti sýnir atkvæðagreiðslan að um það var verulegur ágreiningur á Alþingi.Það var því sannarlega ágreiningur um þetta tiltekna
Sjálfstjórn sveitarfélaganna í forgrunni Frumvarp Diljár Mistar byggist á þeirri hugsun að sveitarfélögin sjálf eigi að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa sinna, þó aldrei færri en þrjá. Það gengur því lengra í sjálfstjórnarátt en frumvarp Sigríðar sem nú er rætt á Alþingi og endurspeglar í raun betur það sem borgarstjórn er nú að kalla eftir. Tillagan sem við samþykktum í borgarstjórn gerir ráð fyrir að sveitarfélög geti sjálf ákveðið fjöldann, að lágmarki fimm og að hámarki 31 fulltrúa. Með samþykkt hennar er ekki verið að ákveða fækkun borgarfulltrúa heldur óska eftir því að sveitarfélögin fái sjálf heimild til að taka slíka ákvörðun. Treystum borginni fyrir ákvörðuninni Árið 2018 var borgarfulltrúum í Reykjavík fjölgað úr 15 í 23. Átta árum síðar er full ástæða til að meta hvort sú breyting hafi reynst vel. Við eigum að horfa til kostnaðar, skilvirkni, lýðræðislegrar þátttöku og þess hversu vel kjörnir fulltrúar sinna hagsmunum borgarbúa. Mér finnst nokkuð sérstakt að sveitarfélögum sé treyst til að reka skóla, sinna velferðarþjónustu, skipuleggja heilu hverfin og ráðstafa milljörðum króna, en ekki til að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa sinna. Hvort borgarfulltrúar eigi að vera 15, 23 eða einhver annar fjöldi á að ráðast af því hvað þjónar borgarbúum best. Það er ákvörðun sem á heima hjá Reykjavíkurborg, ekki Alþingi. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 8:56 PM Page 3
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 9:12 PM Page 4
4
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Ný endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg:
Hönnuð frá grunni með gesti í huga SORPA opnaði nýja endurvinnslustöð við Lambhagaveg 14 þann 1. september síðastliðinn, og hefur stöðin þegar tekið á móti fjölda gesta.
bæði hægt að gefa nothæfa hluti áfram og finna efni í næsta verkefni á góðu verði, sem er
hringrásarhagkerfið í verki. Verið velkomin
Stöðin er opin frá kl 09-19 alla daga. Við hvetjum öll til að kíkja við, kynnast nýju stöðinni og hjálpa okkur
að koma sem mestu aftur inn í hringrásina. Takk fyrir að flokka!
Stöðin á Lambhagavegi á sér nokkra sérstöðu. Hún er fyrsta endurvinnslustöðin sem SORPA hefur fengið tækifæri til að byggja og hanna alveg frá grunni. Stöðin var hönnuð með það að leiðarljósi að hafa öryggi og flæði sem best fyrir bæði gesti og starfsfólk. Öryggi og gott flæði Stöðin er byggð á tveimur pöllum þannig að bílar gesta eru aðskildir frá gámaflutningabílum og öðrum þjónustutækjum. Þannig dregur úr skörun í umferðinni og umhverfið verður öruggara fyrir alla. Stöðin er einnig hringlaga. Gestir aka einfaldlega hringinn, stoppa við þá gáma sem þeir þurfa og halda svo áfram án þess að teppa umferð annarra. Þrjú innkeyrsluhlið gera það að verkum að biðraðir styttast og heimsóknin tekur skemmri tíma. Allt á einum stað Á Lambhagavegi er tekið á móti öllum sömu flokkum og á stærri endurvinnslustöðvum SORPU, t.d. pappír og pappa, plasti, málmum, timbri, garðaúrgangi, raftækjum, spilliefnum, textíl og öðrum flokkum. Það þýðir að gestir geta losað sig við nánast allt sem fellur til á heimilinu sem og framkvæmdarrusli, í einni ferð Góði hirðirinn er einnig með starfsemi á stöðinni, með áherslu á framkvæmdaefni og búnað sem nýtist við framkvæmdir og viðhald. Þar er
Endurvinnslustöð Sorpu við Lamhagaveg var hönnuð með það að leiðarljósi að hafa öryggi og flæði sem best fyrir bæði gesti og starfsfólk.
Íslensk Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 1:33 PM Page 5
Stæ ærðin sk kiptir ekki máli.
Breiðhöfða 13
Á Nesdekki Brreiðhöfða 13 finnur þú eitt fullkomnasta h hjólbar ðaverkstæ æði landsins þa ar sem hægt er að þjónusta bíla af öllu um stærðum og gerðum. ðum Bókaðu tíma á nesdekk.is
Bókað ðu tíma á netinu
B Bókaðu tím ma og skoð ðaðu d dekkjaúrva alið á nesde ekk.is Breiðhöfði 13
110 Reykjavík 590 2080
Stæ ærðin skiptir ekki máli á Brre eiðhöffða 13.
nesdekk.iis / 561 4200
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 10:19 PM Page 6
6
Grafarholtsblaðið
Fréttir
3. sætið líkleg staða hjá Fram - ósanngjarnt tap á heimavelli gegn KR
Þriðja sætið verður líklega hlutskipti Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu. Síðasti leikur Fram var á dögunum gegn KR í Úlfarsárdalnum. KR sigraði 1-2 og nú munar fjórum stigum á KR, sem er í öðru sætinu og Fram í þriðja sætinu þegar sex stig eru eftir í pottinum.
og skorað úr henni væri munurinn á KR og Fram aðeins eitt stig í dag og sex stig eftir í pottinum eins og áður sagði. Fram á eftir heimaleik gegn Akurnesingum þann 18. október og lokaleikur liðsins fer fram á heimavelli Íslandsmeistara Víkings 24. október.
Tapið gegn KR í síðasta leik var sárt en Fram var mun betra liðið í leiknum allan tímann.
KR á eftir að leika gegn heimamönnum í Keflavík og lokaleikur KR er heimaleikur gegn Breiðabliki.
Dómari leiksins gerði afdrifarík mistök undir lok leiksins þegar brotið var á leikmanni Fram innan vítateigs KR. Augljós vítaspyrna á KR en dómarinn hafði ekki kjarkinn til að taka rétta ákvörðun.
Fram hefur leikið frábærlega vel í sumar undir stjórn Rúnars Kristinssonar. Fram hefur verið í mikilli framför síðustu árin og þriðja sæti Bestu deildar, eða annað sætið ef allt fellur með okkar mönnum í lokaleikjunum, er besti árangur Fram í mjög mörg ár. Liðið leikur mjög
Ef Fram hefði fengið vítaspyrnuna
Grafarholtsblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844
Rúnar Kristinsson. Án efa einn besti þjálfarinn í Bestu deildinni í dag og þótt víðar væri leitað. Fram hefur leikið frábæra knattspyrnu í sumar undir hans stjórn. skemmtilega knattspyrnu og með bættum árangri undanfarið hafa fleiri áhorfendur látið sjá sig á Lambhagavellinum og mikil stemning hefur skapast á heimaleikjum Fram. Það er ljóst að Fram er að nálgast topplið Víkings í Bestu deildinni og verður afar fróðlegt að fylgjast með liðinu í leikjum þess í framtíðinni.
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/14/2026 2:43 PM Page 7
7
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Fjórfaldir Íslandsmeistarar Það er óhætt að segja að 5. flokkur kvenna í Fram hafi átt hreint út sagt magnað tímabil! Stelpurnar hafa staðið sig frábærlega á tímabilinu og árangurinn talar sínu máli. Þrír Reykjavíkurmeistaratitlar, einn Íslandsmeistaratitill og aðeins tveir tapleikir í deildarkeppni allt sumarið! Fram tefldi fram fjórum liðum á Íslandsmótinu, A-, B-, C- og D-liði, og gerðu þau sér lítið fyrir og unnu öll sína riðla. Það sem gerir árangurinn enn
glæsilegri er að liðin töpuðu samtals aðeins tveimur leikjum í deildarkeppninni í allt sumar! Öll fjögur liðin tryggðu sér sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins þar sem D-liðið fór alla leið og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Árangurinn í sumar var þó ekki bundinn við Íslandsmótið. Stelpurnar urðu einnig Reykjavíkurmeistarar í B-, C- og D-liðum og náðu sögulegum árangri hjá FRAM á bæði TM-mótinu
og Símamótinu. Þetta er einstakur árangur hjá frábærum hópi stelpna sem hafa sýnt mikinn metnað, dugnað og liðsheild í gegnum allt tímabilið. Við óskum Íslandsmeisturunum innilega til hamingju með titilinn og öllum stelpunum í 5. flokki, þjálfurum þeirra og aðstandendum til hamingju með stórkostlegt sumar..Framtíðin er svo sannarlega björt hjá Fram. (Frétt frá Fram)
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
A-lið Fram sem náði frábærum árangri í sumar eins og B-llðið, C-liðið og D-liðið. Myndir af þeim liðum eru hér að neðan.
!
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 5:57 PM Page 8
8
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Stórtónleikar Lions 12. nóv.
Stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Grafarvogskirkju Fimmtudaginn 12. nóvember verða hinir árlegu stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Grafarvogskirkju til stuðnings BUGL og líknarsjóði klúbbsins. Tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Miðasala er á TIX.is. Fyrstu tónleikar klúbbsins voru 2003 og þetta er í 22. sinn sem þeir eru haldnir, en hlé var gert á tónleikahaldi á Covidárunum. Gegnum árin hafa landskunnir tónlistarmenn komið fram og hafa þeir ávallt gefið sína vinnu til styrktar málefninu.
kemur á tónleikunum ung söngkona, Aþena Rut Friðriksdóttir, sem verður ævin-lega þakklát fyrir þjónustu BUGL, en ákveðið teymi þar reyndist henni ómetanlegur styrkur í veikindum. Með framlagi sínu á tónleikunum vill Aþena þakka aðstoðina við að ná bata.
Flytjendur í ár eru söngdívan Dísella Lárusdóttir og stórtenórinn Gissur Páll. Kristján Kristjánsson (KK) mætir með kassagítarinn sinn. Einnig mun Mugison stíga á fjöl. Feðgarnir Herbert Guðmundsson og Guðmundur Herberstsson hafa slegið í gegn að undanförnu. Páll Óskar mun birtast, einnig Rebekka Blöndal. Karlakórinn Esja mun láta heyra vel í sér. Frést hefur að Gunni og Felix mæti. Loks er þess að geta að fram
Felix Bergsson verður kynnir á tónleikunum. Að vanda mun Lionsklúbburinn Fold vera með veitingasölu til styrktar sínum líknarsjóði. Fold hefur m.a. styrkt Konukot, Bergið og Einstök börn.
Í hópi undirleikara eru Steingrímur Teague, Ásgeir Ásgeirsson, Pálmi Sigurhjartarson og Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti Grafarvogskirkju. Lára mun væntanlega grípa bæði í flygil og hið frábæra orgel kirkjunnar.
Fyrir hönd félaga í Lionsklúbbnum Fjörgyn Þór Steinarsson Mugison hinn eini sanni skemmtir gestum á tónleikunum í Grafarvogskirkju 12. nóvember.
Páll Óskar verður á sínum stað 12. nóvember.
Herbert Guðmundsson þenur raddböndin í Grafarvogskirkju 12. nóvember.
KK á útkíkkinu. Hann mætir á stórtónleikana í Grafarvogskirkju 12. nóvember.
VISSIR ÞÚ?
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 1:20 PM Page 9
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 10:40 AM Page 10
10
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Af hverju velja sífellt fleiri að búa hjá Búseta? Búseti hefur vaxið hratt á undanförnum árum og sífellt fleiri uppgötva kosti þessa norræna búsetuforms sem sameinar húsnæðisöryggi, fjárhagslegan fyrirsjáanleika og þægindi í daglegu lífi. Nú gefst áhugasömum sérstakt tækifæri til að eignast búseturétt í glæsilegum nýjum íbúðum við Eirhöfða 3–5 á Ártúnshöfða, óháð því hversu lengi þeir hafa verið félagsmenn. Við ræddum við Elínborgu Önnu Rúnarsdóttur Erludóttur hjá Búseta um kosti búsetuformsins og þau spennandi tækifæri sem nú bjóðast. „Fólk áttar sig oft ekki á því hvað þetta er hagstætt fyrirkomulag“ - Elínborg Anna, hvað gerir Búseta að svona áhugaverðum valkosti á húsnæðismarkaði? „Það er fyrst og fremst þessi skemmtilega blanda af húsnæðisöryggi, þægindum og fjárhagslegum fyrirsjáanleika,“ segir Elínborg Anna. „Þegar fólk kaupir búseturétt eignast það verðmæta eign, en Búseti sér um rekstur fasteignarinnar og stóran hluta þeirra verkefna sem venjulega hvíla á herðum fasteignaeigenda. Þannig getur fólk notið þess að eiga sitt heimili án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öllum þeim skuldbindingum og óvæntu útgjöldum sem geta fylgt hefðbundnu eignarhaldi.“ Hún segir fyrirkomulagið eiga sér sterkar rætur á Norðurlöndunum og vinsældir þess hér á landi hafa aukist jafnt og þétt. „Enginn ákveður að selja heimilið þitt nema þú sjálfur“ - En hvað felst nákvæmlega í því að eiga búseturétt? „Þetta er atriði sem við þurfum stundum að útskýra. Búseturéttur er eignarréttur sem er tryggður með þinglýsingu. Það er eigandi búseturéttarins sem ákveður hvenær
hann vill selja og flytja. Hann getur búið í íbúðinni eins lengi og hann kýs, svo framarlega sem hann uppfyllir skyldur sínar samkvæmt búsetusamningnum.“ Elínborg Anna segir annað mikilvægt atriði vera að búseturétturinn sé vísitölutengdur. „Þegar búseturétturinn er seldur er verðið uppreiknað samkvæmt þróun vísitölu neysluverðs, að teknu tilliti til þeirra uppgjörsreglna sem gilda. Þannig er búseturétturinn varinn gagnvart áhrifum verðbólgu. Þetta er kostur sem margir átta sig ekki á fyrr en við förum yfir fyrirkomulagið með þeim.“ „Þú færð ekki skyndilega milljónareikning vegna þaksins“ - Þið leggið líka mikla áherslu á fyrirsjáanleika í rekstri. Hvað felst í því? „Þetta er einn allra stærsti kosturinn að mínu mati,“ segir Elínborg Anna. „Í hefðbundnu fjölbýlishúsi getur komið upp sú staða að skipta þurfi um þak, glugga eða ráðast í aðrar stórframkvæmdir. Þá geta eigendur allt í einu staðið frammi fyrir reikningum upp á margar milljónir króna. Hjá Búseta er þessu öðruvísi háttað. Félagið sér um utanhússviðhald fasteignanna og fyrir því er safnað með reglulegum framlögum í viðhaldssjóði. Þannig þarf fólk ekki að óttast óvænta stóra reikninga vegna utanhússviðhalds.“
gleyma öllum öðrum útgjöldum. Hjá Búseta er þessi kostnaður tekinn saman í eitt mánaðarlegt gjald. Það einfaldar heimilisbókhaldið verulega.“ „Það þarf ekki að greiða milljónir í fasteignasöluþóknun“ - En hvað ef fólk vill síðar flytja í stærri eða minni íbúð? „Þá kemur enn einn kosturinn í ljós,“ segir Elínborg Anna og brosir. „Þarfir fólks breytast í gegnum lífið. Ungt par byrjar kannski í tveggja herbergja íbúð, stækkar svo við sig þegar fjölskyldan stækkar og minnkar aftur við sig þegar börnin flytja að heiman. Við erum með fjölbreytt úrval íbúða, allt frá minni íbúðum upp í rúmgóðar fjölskylduíbúðir og jafnvel sérbýli.“ Hún segir það líka mun hagkvæmara að skipta um húsnæði innan félagsins en margir geri sér grein fyrir. „Búseti annast umsýslu vegna sölu og kaupa búseturétta og fyrir það er greitt hóflegt þjónustugjald. Fólk þarf því ekki að greiða háar fasteignasöluþóknanir sem geta hlaupið á milljónum króna.“ Um 4.000 manns búa hjá Búseta - Búseti hefur stækkað mikið undanfarin ár. Hverjir eru helst að velja þetta búsetuform? „Það er í raun fólk á öllum aldri og öllum stigum lífsins. Við erum með
,,Ég held að það komi fólki skemmtilega á óvart, hversu fallegar og vandaðar íbúðirnar eru og hversu margir kostir fylgja því að vera hjá Búseta,“ segir Elínborg Anna Rúnarsdóttir Erludóttir markaðsstjóri hjá Búseta.
Og hvað er innifalið í mánaðarlega búsetugjaldinu? „Allt nema rafmagnsnotkun íbúðarinnar! Þar eru meðal annars fjármagnskostnaður fasteignarinnar, fasteignagjöld, hiti, hússjóður, tryggingar, þjónusta og framlög í viðhaldssjóð.“ Hún segir mikilvægt að bera saman heildarkostnað þegar fólk skoðar mismunandi húsnæðiskosti. „Það er auðvelt að horfa eingöngu á greiðslubyrðina af húsnæðisláni og
Frá afhendingu á Eirhöfða til Búseta. Frá vinstri Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri, Rafn Hermannsson forstöðumaður Eignaumsjónar, Anna S. Garðarsdóttir Blomsterberg fjármálastjóri, Linda Björk Unnarsdóttir sérfræðingur á samskiptasviði og Hlynur Örn Björgvinsson verkefnastjóri. ungt fólk að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði, barnafjölskyldur og eldra fólk sem vill minnka við sig og einfalda lífið.“ Elínborg Anna segir um 4.000 einstaklinga nú búa í húsnæði á vegum Búseta og starfsemina ná til allra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins. „Við leggjum mikla áherslu á vandaðar byggingar, góða hönnun og fjölbreytt úrval íbúða. Þessi norræna leið að öruggu heimili hefur greinilega sannað gildi sitt og sífellt fleiri uppgötva kosti hennar.“
Nýjar íbúðir við Eirhöfða – sérstakt tækifæri - Nú eruð þið að bjóða nýjar íbúðir við Eirhöfða 3–5. Hvað gerir þær áhugaverðar? „Við erum virkilega ánægð með þetta verkefni. Hér er um að ræða glæsilegar, vandaðar og vel hannaðar íbúðir á einu helsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.“
Elínborg Anna bendir á að Ártúnshöfði og Elliðaárvogur séu að þróast í nýjan og spennandi borgarhluta þar sem íbúðabyggð, þjónusta og útivist fléttast saman. „Staðsetningin er frábær, stutt í Elliðaárdalinn, göngu- og hjólaleiðir og helstu samgönguæðar borgarinnar. Hér er spennandi tækifæri til að eignast heimili í nýju hverfi sem á eftir að vaxa og dafna á komandi árum.“ „Þú þarft ekki að hafa verið félagsmaður árum saman“ - En þarf fólk ekki að vera með mjög gamalt félagsnúmer til að fá íbúð hjá Búseta? „Jú, almennt skiptir félagsnúmer máli við úthlutun íbúða og því er skynsamlegt að ganga snemma í félagið. En þegar margar nýjar íbúðir koma í sölu samtímis, eins og þegar heilt fjölbýlishús er tekið í notkun, geta skapast sérstök tækifæri.“ Hún segir nokkrar glæsilegar íbúðir
enn lausar við Eirhöfða 3–5 og þær standi nú áhugasömum til boða óháð aldri félagsnúmers. „Það þýðir að fólk sem er nýgengið í Búseta, eða ákveður að ganga í félagið núna, getur átt raunhæfan möguleika á að eignast búseturétt í glænýrri íbúð. Slík tækifæri gefast ekki á hverjum degi.“ - Hvað myndirðu segja við fólk sem hefur ekki áður velt Búseta fyrir sér? „Ég myndi einfaldlega hvetja það til að kynna sér þetta vel og koma að skoða íbúðirnar við Eirhöfða. Ég held að það komi fólki skemmtilega á óvart, bæði á því hversu fallegar og vandaðar íbúðirnar eru og hversu margir kostir fylgja því að vera hjá Búseta.“ Hún brosir að lokum og bætir við: „Heimilið á að vera staðurinn þar sem maður nýtur lífsins, ekki uppspretta endalausra áhyggjuefna. Það er í raun kjarninn í því sem Búseti stendur fyrir.“
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 9:18 PM Page 11
EIRHÖFÐI 3 3-5 110 Reykjavík k
Nokkrar glæsileg gar 3ja herbergja íb búðir óseldar Ve erð rð frá krr.. 13.269.000 13 269 000 og mánaðarlegt mánað ðarlegt búsetug gjald gj jald frá krr.. 292.000. 292 000 Flestar íbúðanna eru með stæði í bílageymslu. Skoða íbúðir
Grafarholtsblaðið 2. tbl. 11. árg. 2022 febrúar
Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Grafarholtsblaðið er lesið á hverju heimili Mest lesni fjölmiðillinn í hverfinu? Auglýsingar skila árangri í Grafarholtsblaðinu
698-2844 - gv@skrautas.is
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2026 9:30 PM Page 12
12
Tólf spor – Andlegt ferðalag
Tólf spor – Andlegt ferðalag. Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Fyrsti opni spora fundur vetrarins verður 7. október kl. 19.30. Í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Þrjú næstu miðvikudagskvöld verða opnirfundir til frekari viðkynningar. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Spennandi tónleikar með Þórunni í Guðríðarkirkju Þórunn Stefánsdóttir mezzosópran og Líkamsræktarkennari heldur einsöngstónleika í Guðríðarkirkju, sunnudaginn 18. október kl.16.00 Meðleikarar hennar eru Arnhildur Valgarðsdóttir píanóleikari og Matthías Stefánsson fiðluleikari. Gestir tónleikanna eru Kór Guðríðarkirkju. Á efnisskránni er m.a. gospeltónlist, söngleikjatónlist og klassísk verk. Þórunn lauk áttunda stigi í söng frá Tónlistarskólanum í Garðabæ 1996 og Burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík 1998. Aðalsönngkennari hennar var Snæbjörg Snæbjarnardóttir. Einnig sótti hún söngtíma hjá Andre Orlowitz í Danmörku einn vetur og hjá ýmsum söngkennurum í Þýskalandi og hér heima. Þórunn tók þátt í uppfærslum Óperukórsins í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes í Íslensku Óperunni m.a. á Ástardrykknum (Donizetti), Leðurblökunni (Johann Strauss), Turandot (Pucchini), Elía (Mendelssohn) og Aidu (Verdi). Síðustu ár hefur hún sungið með kór Guðríðarkirkju undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur.
Þórunn Stefánsdóttir mezzosópran og Líkamsræktarkennari.
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
2025
Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.
Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!
Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800
eignaumsjon.is umsjon is
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/10/2026 8:02 PM Page 13
13
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Blóðsykurmælingar - í Húsgagnahöllinni 21. nóvember Blóðsykurmælingar í boði Lionsklúbbanna Fold og Fjörgyn verða í boði laugardaginn 21. nóvember á Bíldshöfða 20 (Húsgagnahöllin) milli 11:00 og 16:00. Sykursýkisvarnir er eitt af höfuðverkefnum Lions um allan heim og eru ýmsir viðburðir því tengdu á dagskrá hjá Lionsklúbbum svo sem fræðsla og mælingar blóðsykurs. Lionsklúbburinn Fjörgyn hóf að bjóða upp á blóðsykurmælingar árið 2012 og höfum við gert það árlega eftir það að undanskildum Covid árunum og höfum við fengið aðstöðu í verslunarkjarnanum Bíldshöfða 20 en þar hafa Krónan, JYSK og Húsgagnahöllin veitt okkur húsaskjól fyrir þetta verkefni. Frá árinu 2017 höfum við átt í góðu samstarf við Lionsklúbbinn Fold við mælingarnar og höfum við ávallt skilað af okkur flestum mælingum á landsvísu. Þessi þjónusta er að öllu leiti í boði
klúbbanna og höfum við átt því láni að fagna að hafa gott aðgengi að heilbrigðis starfsmanni sem hefur verið okkur til halds og trausts og veitt þeim ráðgjöf sem þess þurfa. Á þessum árum höfum við mælt blóðsykur í 6081 einstaklingum, 3591 konur og 2490 karlar, Þetta er fólk á öllum aldri frá barnsaldri og yfir nírætt og kemur fólk í sumum tilfellur á staðinn þegar það veit að þessi þjónusta okkar er í boði. Þetta er verkefni er mjög góð og öflug kynning fyrir Lions hreyfinguna og veitir það okkur félögunum mikla ánægju að fá að taka þátt í þessu verkefni. Í ár bjóða Lionsklúbbarnir Fjörgyn og Fold upp á blóðsykurmælingar á Bíldshöfða 20 laugar-daginn 21. nóvember n.k. og hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur. Fyrir hönd félaga í Fjörgyn og Fold, Guðmundur Helgi Gunnarsson
Félagar í Lionsklúbbunum Fjörgyn og Fold bjóða upp á blóðsykurmælingar í Húsgagnahöllinni þann 21. nóvember nk.
VISSIR ÞÚ?
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00 Þessar konur verða í eldlínunni í Húsgagnahöllinni laugardaginn 21. nóvember.
1 2 . n óve em b er 2 0 2 6 k l . 1 9 : 3 0
m i ða v e r ð 7. 50 0 k r
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/14/2026 2:51 PM Page 14
14
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Steinbítur frá Öldunni með „veisluhjúp” - frábær uppskrift sem vert er að prófa Þessi uppskrift er alveg sturluð og ég mæli með að fólk prófi hana og Steinbít frá Öldunni. Steinbítur fra Öldunni með „veislu“- hjúp Fiskurinn fyrir 4 • 800 gr. Steinbítur. • Salt og svartur pipar. • 1 msk. ólífuolía. • Smá sítrónusafi.
Stökki gúmmelaðishjúpurinn • 100 gr. mjúkt smjör. • 1 hvítlauksrif, pressað. • 5 gr. fersk steinselja, smátt söxuð. • 1 msk. vorlaukur, saxaður smátt. • 1 box basil, saxað smátt. • Rifinn börkur af 1 sítrónu og safi frá 1/2 sítrónu. • 1 tsk. Dijon-sinnep. • 1½ msk. hunang. • 50 gr. pankó raspur. • 50 gr. parmesan, fínt rifinn.
Steinbíturinn frá Öldunni er sannkallað lostæti. kryddaðu með salt og pipar. • ½ tsk. paprika. • Smá salt og pipar. 5. Þrýstu ríflegu lagi af hjúpnum yfir Aðferð: hvern fiskbita. 1. Hitaðu ofninn í 200 gráður, blástur. 2. Þerraðu fiskinn vel og kryddaðu með salti og pipar. 3. Blandaðu öllu í hjúpinn saman. Hann á að vera þykkur og svolítið klessulegur.
Spönginni Grafarvogi
4. Settu fiskinn í eldfast mót og
6.Bakaðu í um 15–18 mínútur, eftir þykkt. 7.Settu undir grill í 1–2 mínútur í lokin þar til hjúpurinn er fallega gylltur og stökkur. Smá auka til að gera þetta að extra veislumat: Settu smá klípu af smjöri, 1 tsk. af
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). hunangi og smá sítrónusafa í pönnu eftir að fiskurinn kemur úr ofninum. Bræddu saman og helltu örlitlu yfir fiskinn rétt áður en hann fer á borðið. Dásamlegur réttur sem kemur svo sannarlega á óvart. Frábært að bera fram með fersku salati og hrísgrjónum eða íslenskum nýjum kartöflum. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) Jana.is - Instragram.com/Janast
,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,,
!+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('
Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR
Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar
Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is '"+*%'$ " "',%$! ! '"(*
! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2026 8:35 PM Page 15
15
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:
Heilbrigðar tennur hjá hundum og köttum Góð tannhirða er mikilvæg fyrir vellíðan hunda og katta. Með reglulegri umhirðu og réttum vörum má draga úr uppsöfnun tannskánar og tannsteins. Hjá Dýrabæ finnur þú fjölbreyttar lausnir sem auðvelt er að gera að hluta af daglegri rútínu. Tanngel og vatnsbætiefni Veldu tannkrem eða tanngel sem er sérstaklega ætlað dýrum. Gott er að leita að VOHC-viðurkenningu frá Veterinary Oral Health Council. Hún staðfestir að rannsóknargögn sýni virkni gegn uppsöfnun tannskánar og/eða tannsteins, eftir því sem kemur fram á vörunni. Fyrir dýr sem taka illa í tanngel geta vatnsbætiefni frá TropiClean verið þægileg viðbót við tannhirðuna. Tannhirða í matarskálinni Fóður getur líka verið hluti af tannhirðunni. Canagan Dental fyrir hunda og ketti inniheldur ProDen PlaqueOff® og er ætlað að styðja við daglega tannheilsu. Canagan Dental fyrir
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
hunda hefur hlotið VOHCviðurkenningu fyrir virkni gegn tannskán og tannsteini. Veldu fóður sem hentar aldri og þörfum dýrsins. Nagbein og tannhirðunammi Fyrir hunda sem elska að naga eru fjölbreyttar vörur í boði, meðal annars frá Dr. Clauder’s, Yora og Antos Cerea. Veldu rétta stærð fyrir hundinn og skoðaðu innihaldslýsinguna sérstaklega ef hann er viðkvæmur eða með fæðuofnæmi. Hafðu alltaf eftirlit með hundinum þegar hann nagar. Ferskt kattagras Kattagras er skemmtileg viðbót fyrir kisur sem hafa gaman af að narta í gróður, en kemur ekki í stað tannhirðu. Ferskt, tilbúið kattagras fæst í verslunum Dýrabæjar á höfuðborgarsvæðinu. Sé tannsteinn þegar til staðar er rétt að láta dýralækni meta þörf á tannhreinsun. Komdu við hjá Dýrabæ, við hjálpum þér að finna tannhirðuvörur sem henta þínu dýri.
Uppl. í síma 698-2844
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/10/2026 8:04 PM Page 16
Velko omin á nýja omin nýja endurrvinnslustöð Nú höfum við opnað nnýja og heldur betur glæsilega endurvinnslustöð við La ambhagaveg 14. Við hlökkum til að sjá vana flokkara, nýja a flokkara og allt þar á milli. Takk fyrir að flokka a! rg to u rp
Ba
Lambhag gavegur
uh au s
Ko